4 minute read

Þetta land átt þú

Lind í lautu streymir lyng á heiði dreymir þetta land átt þú.

Guðmundur Böðvarsson

Svo segir eitt af bestu skáldum Íslands. Satt er það. Þetta land átt þú. Þetta land eigum við.

Skyldur okkar eru að byggja landið, nytja það skynsamlega og skila því betra og auðugra til næstu kynslóðar. Það getum við.

Skógrækt á Íslandi er ekki lengur draumsýn. Skógrækt er í senn staðreynd og þjóðarnauðsyn sem ekki er unnt að sniðganga. Vaxandi þjóð krefst aukinnar ræktunnar.

Hvaða not, bein og óbein eru þá af skógunum?

Áhrif þeirra eru margvísleg. Við getum vart ímyndað okkur þau öll, þar sem við lifum í skóglausu landi og þekkjum varla skóga nema í ævintýrum.

En við skulum staldra við og athuga þetta örlítið nánar.

Arður

Okkur verður ávallt í fersku minni dvölin á Hallormsstað og sú stund er við sáum Guttormslund. Við heyrum margt um ræktun skóga sem okkur kom algerlega á óvart. Okkur var skýrt frá því

Æskan og skógurinn 53

að tekjur af Guttormslundi um 1960 hafi verið tæpar þrjú þúsund krónur árlega þegar búið var að draga allan kostnað frá. Er þá miðað við einn hektara lands og var þá lundurinn um tuttugu ára. Þessi arður fékkst þó eingöngu með sölu á girðingarstaurum.

Við getum líka skyggnst lengra fram í tímann. Samkvæmt mælingum og útreikningum ætti heildarvöxturinn í Guttormslundi eftir 80 ár að nema um fjögur hundruð og sextíu teningsmetrum viðar á hektara.

Verðmætin aukast þó enn þegar viðnum er flett í bjálka og borð.

Hér er aðeins nefnt dæmi um arð af skógrækt á Austurlandi. En í mörgum öðrum héruðum er að vaxa upp ungskógur sem lofar góðu um framtíðina.

Atvinna

Hvarvetna veita skógar mikla vinnu. Með aukinni skógrækt á Íslandi yrði fjarmagn flutt inn í sveitir landsins þar sem náttúran ávaxtar það.

Mikil vinna er við plöntun, grisjun og hirðingu ungskógar. Hundruð unglinga um allt land starfa við garðyrkju og skógrækt sumarlangt en ættu að skipta þúsundum, því að engin störf eru hollari æskulýðnum.

54 Æskan og skógurinn

Skógar sem við gróðursetjum bæta landið, efla sveitirnar, veita niðjum okkar vinnu, gera atvinnulíf þjóðarinnar fjölbreyttara og gera þjóðina færari til sjálfbjargar.

Skjól

Áhrif skjóls á allan gróður sést óvíða betur hér á landi en í Hallormsstaðaskógi. Í skógarjaðrinum eru trén veðurbarin og kræklótt. Þau eru engin skrauttré en vernda skóginn gegn veðrum og minni snjóflóðum. Þetta eru útverðir skógarins. En er lengra kemur inn í skóginn verða trén stórvaxnari og jurtagróður fjölskrúðugri. Fuglalíf er þar einnig mun auðugra en á bersvæði.

Skjólbelti hafa sömu áhrif. Ræktun þeirra er enn skammt á veg komin en vænta má mikils af henni í framtíðinni.

Skjólbelti hafa meðal annars þessi áhrif:

Þau lægja vindinn og auka jarðvegs- og lofthitann næst yfirborði jarðar.

Skjól dregur úr uppgufun og varnar ofþornun.

Afurðir búfjár verða meiri þar sem beitt er á skýlt land.

Okkur líður betur við vinnu á skýldu landi, ekki síst við ýmiss konar jarðyrkjustörf.

Vatnsmiðlun

Um leið og snjóa leysir á vorin, hleypur vöxtur í ár og læki og þau flæða yfir landið í kring. Skriður falla úr fjallshlíðum og flytja aur og grjót niður á láglendi. En vegir og önnur mannvirki skemmast í vatnavöxtum. Þetta þekkja allir hér á landi.

Íslenskur skógur Ljósmyndari Jón Sandholt

Æskan og skógurinn 55

56 Æskan og skógurinn

Í skógivöxnum löndum er þessu annan veg farið. Snjórinn bráðnar þar mun hægar, skógarnir taka til sín mikið vatnsmagn og rætur trjánna binda jarðveginn. Allt þetta eykur jafnstreymi ánna og gerir þær meðal annars hæfari til virkjunar og fiskiræktar.

Heilsugjafi

Skógarloftið er heilnæmt, tært og hressandi. Heilsuveilt fólk flykkist því til skóganna til þess að öðlast þar nýjan þrótt. Þá sækir þangað fjöldi fólks hvíld og frið frá önnum dagsins. Og enn aðrir stunda þar skemmtanir og útilíf sem aukið getur lífsgleði og heilbrigði ef rétt er á haldið.

En nú haustar og tré og runnar í skólagarðinum breyta um svip. Laufin taka að blikna. Eitt og eitt falla þau hljóðlega til jarðar og þegar stormsveipir fara yfir falla þau í hrönnum. Sumarið hefur kvatt, önnur árstíð tekið við en samt er engu lokið. Upphafið getur alveg eins verið hér.

Við höfum búið trjábeðinn undir vetur og hlúð að fjölæru blómunum. Í Hallormsstaðaskógi áttum við í sumardvöl við leiki, nám og störf. Nú er veturinn einnig einráður þar. Ilmurinn frá björkinni er ekki hinn sami og þyturinn í laufi hennar heyrist ekki lengur. En grenitrén bera sitt barr, þótt vetur steypi yfir þau hvítri mjöll. Lengi sér í grænar greinar sem minna á sumarið.

Þótt vetur ríki leynist líf um allan skóg, líf sem bíður nýs sumars, nýs vaxtar.

Bókinni lýkur hér en starfinu og sögunni um skóginn er ekki lokið.

Æskan og skógurinn 57

58 Æskan og skógurinn

This article is from: