
1 minute read
Girðingar
Einn daginn hættum við vinnu fyrr en endranær.
Úti við Hafursá eru menn að lagfæra skógræktargirðinguna og endurnýja nokkurn hluta hennar. Við skulum skreppa þangað. Það á að sýna okkur hvernig verkið er unnið og hvernig svona girðingar eigi að vera. Við eigum sem sé að kynnast flestu sem lýtur að skógrækt.
Girðingar skal vanda vel því að þær eiga að standa lengi. Fyrst þarf að velja besta girðingarstæðið, því næst útvega gott efni og í þriðja lagi setja niður trausta hornstaura og máttarstólpa á réttum stöðum. Þá er net og gaddavír strengt á þessa staura en grennri staurar reknir niður á eftir og girðingin einnig reist á þá. Skógræktargirðingar eru rúmur metri á hæð, sjaldan yfir hundrað metrar milli máttarstólpa og tíu metrar á milli venjulegra staura. En á milli þeirra eru negldar tvær renglur á girðinguna til að treysta hana. Ganga þarf sérstaklega vel frá hlið-, máttar- og hornstólpum.
Jarðýtur eru stundum notaðar til að jafna girðingarstæði svo að auðveldara sé að beita vélknúnum tækjum við verkið og létta flutninga efnis. Ekki þarf að hlaða undir slíkar girðingar.
Okkur þótti gaman að sjá vinnubrögð girðingarmannanna við Hafursá því að svona vinnu höfðum við ekki áður séð. En hitt þótti okkur merkilegt að þarna voru eingöngu notaðir lerkistaurar úr Hallormsstaðaskógi. Við höfðum einmitt verið að planta lerki og okkur fannst það öðlast meira gildi við þessa sjón.
Æskan og skógurinn 45
Hvað gæti þjóðin sparað mikið ef hún ræktaði nógan efnivið í girðingastaura í landinu sjálfu, og hvað gætu margir unglingar fengið sumarvinnu við þessa ræktun?
Samt er hið mikilvægasta enn ótalið. Við hugsuðum til allra litlu plantnanna í skóginum. Þær myndu flestar tortímast og aldrei verða að trjám ef landið væri ógirt.
Við biðjum því alla að taka höndum saman og muna: ♦að loka alltaf hliði á eftir okkur
♦að klifra ekki að óþörfu yfir girðingar ♦að klippa aldrei sundur girðingar til þess að komast leiðar okkar með farartæki.
46 Æskan og skógurinn 7