
5 minute read
Þetta land átt þú
from Æskan og Skógurinn
by Tækniskólinn
Lind í lautu streymir lyng á heiði dreymir þetta land átt þú. Guðmundur Böðvarsson
Svo segir eitt af bestu skáldum Íslands. Satt er það. Þetta land átt þú. Þetta land eigum við.
Skyldur okkar eru að byggja landið, nytja það skynsamlega og skila því betra og auðugra til næstu kynslóðar. Það getum við.
Skógrækt á Íslandi er ekki lengur draumsýn. Skógrækt er í senn staðreynd og þjóðarnauðsyn sem ekki er unnt að sniðganga. Vaxandi þjóð krefst aukinnar ræktunnar.
Hvaða not, bein og óbein eru þá af skógunum? Áhrif þeirra eru margvísleg. Við getum vart
Fallega Ísland Ljósmyndari: óþekktur
ímyndað okkur þau öll, þar sem við lifum í skóglausu landi og þekkjum varla skóga nema í ævintýrum.
En við skulum staldra við og athuga þetta örlítið nánar.
Arður
Okkur verður ávallt í fersku minni dvölin á Hallormsstað og sú stund er við sáum Guttormslund. Við heyrum margt um ræktun skóga sem okkur kom algerlega á óvart. Okkur var skýrt frá því að tekjur af Guttormslundi um 1960 hafi verið tæpar þrjú þúsund krónur árlega þegar búið var að draga allan kostnað frá. Er þá miðað við einn hektara lands og var þá lundurinn um tuttugu ára.Þessi arður fékkst þó eingöngu með sölu á girðingarstaurum.
Við getum líka skyggnst lengra fram í tímann. Samkvæmt mælingum og útreikningum ætti heildarvöxturinn í Guttormslundi eftir 80 ár að nema um fjögur hundruð og sextíu teningsmetrum viðar á hektara.
Verðmætin aukast þó enn þegar viðnum er flett í bjálka og borð.
Ræktun skóga Ljósmyndari: óþekktur

Hér er aðeins nefnt dæmi um arð af skógrækt á Austurlandi. En í mörgum öðrum héruðum er að vaxa upp ungskógur sem lofar góðu um framtíðina.
Atvinna
Hvarvetna veita skógar mikla vinnu. Með aukinni skógrækt á Íslandi yrði fjarmagn flutt inn í sveitir landsins þar sem náttúran ávaxtar það.
Mikil vinna er við plöntun, grisjun og hirðingu ungskógar. Hundruð unglinga um allt land starfa við garðyrkju og skógrækt sumarlangt en ættu að skipta þúsundum, því að engin störf eru hollari æskulýðnum.
Skógar sem við gróðursetjum bæta landið, efla sveitirnar, veita niðjum okkar vinnu, gera atvinnulíf þjóðarinnar fjölbreyttara og gera þjóðina færari til sjálfbjargar.
Skjól
Áhrif skjóls á allan gróður sést óvíða betur hér á landi en í Hallormsstaðaskógi. Í skógarjaðrinum eru trén veðurbarin og kræklótt. Þau eru engin skrauttré en vernda skóginn gegn veðrum og minni snjóflóðum. Þetta eru útverðir skógarins. En er lengra kemur inn í skóginn verða trén stórvaxnari og jurtagróður fjölskrúðugri. Fuglalíf er þar einnig mun auðugra en á bersvæði.
Skjólbelti hafa sömu áhrif. Ræktun þeirra er enn skammt á veg komin en vænta má mikils af henni í framtíðinni.
Skjólbelti hafa meðal annars þessi áhrif:
Þau lægja vindinn og auka jarðvegs- og lofthitann næst yfirborði jarðar.
Skjól dregur úr uppgufun og varnar ofþornun.
Afurðir búfjár verða meiri þar sem beitt er á skýlt land.
Okkur líður betur við vinnu á skýldu landi, ekki síst við ýmiss konar jarðyrkjustörf.
Vatnsmiðlun
Um leið og snjóa leysir á vorin, hleypur vöxtur í ár og læki og þau flæða yfir landið í kring. Skriður falla úr fjallshlíðum og flytja aur og grjót niður á láglendi. En vegir og önnur mannvirki skemmast í vatnavöxtum. Þetta þekkja allir hér á landi.
Í skógivöxnum löndum er þessu annan veg farið. Snjórinn bráðnar þar mun hægar, skógarnir taka til sín mikið vatnsmagn og rætur trjánna binda jarðveginn. Allt þetta eykur jafnstreymi ánna og gerir þær meðal annars hæfari til virkjunar og fiskiræktar.
Heilsugjafi
Skógarloftið er heilnæmt, tært og hressandi. Heilsuveilt fólk flykkist því til skóganna til þess að öðlast þar nýjan þrótt. Þá sækir þangað fjöldi fólks hvíld og frið frá önnum dagsins. Og enn aðrir stunda þar skemmtanir og útilíf sem aukið getur lífsgleði og heilbrigði ef rétt er á haldið.
En nú haustar og tré og runnar í skólagarðinum breyta um svip. Laufin taka að blikna. Eitt og eitt falla þau hljóðlega til jarðar og þegar stormsveipir fara yfir falla þau í hrönnum. Sumarið hefur kvatt,
önnur árstíð tekið við en samt er engu lokið. Upphafið getur alveg eins verið hér.
Við höfum búið trjábeðinn undir vetur og hlúð að fjölæru blómunum. Í Hallormsstaðaskógi áttum við í sumar dvöl við leiki, nám og störf. Nú er veturinn einnig einráður þar. Ilmurinn frá björkinni er ekki hinn sami og þyturinn í laufi hennar heyrist ekki lengur. En grenitrén bera sitt barr, þótt vetur steypi yfir þau hvítri mjöll. Lengi sér í grænar greinar sem minna á sumarið.
Þótt vetur ríki leynist líf um allan skóg, líf sem bíður nýs sumars, nýs vaxtar.
Bókinni lýkur hér en starfinu og sögunni um skóginn er ekki lokið.
ÖRNEFNASKRÁ
Alaska 29, 31, 35, 38, 39, 54, Alpafjöll 37 Asía 28 Atlavík 35, 36, 39 Atlavíkurstekkur 34 Austurland 57 Árnessýsla 8 Breiðamerkursandur 48 Bretlandseyjar 28 Brimnesskógur 61 Bárðardalur 7 Bæjarstaðaskógur 45 Djúpá 10 Evrópa 21 Eyjafjörður 23 Fljótsdalshérað 52 Flugumýri 9 Fálkaklettur 18 Gatnaskógur 24 Glóðafeykir 58 Guttormslundur 43 Gönguskarðsós 51 Hafursá 33 Hallormsstaðaskógur 29 Hekla 44 Jökullækur 58 Jökulsá 61 Kerlingará 38 Klettafjöll 36 Kolafjörður 17 Kolbeinsárós 25 Kyrrahaf 62 Lagarfljót 38 Landbrot 52 Lýsishóll 26 Mið-Evrópa 19 Mörk 23, 54 Noregur 52 Norður-Ameríka 48 Norður-Noregur 59, 60, 68 Nýiskógur 71, 72 Ormsstaðir 42 Pýreneafjöll 27 Rússland 62 Skaftafellssýslur 27, 31 Skaftártungur 52 Snæfell 24, 27, 29 Suðausturland 52, 54 Suðurland 12, 15, 34, 54, 64 Suðvesturland 13, 17 Svíþjóð 29, 35 Tromsfylki 42 Vaglaskógur 33 Vestfirðir 49 Þingeyjarsýsla 28 Þistilfjörður 71 Þórsmörk 64
PLÖNTUSKRÁ
Alaskaösp 49, 52, 55 Álmur 32, 54 Balsamþinur 28, 34, 48, 50, 53 Bergfura 68 Birki 12, 13, 15, 28, 37, 39, 45, 59, 64 Bláber 67 Bláfjóla 32 Blágreni 51 Blágresi 62 Blæösp 55 Blóðberg 61 Brennisóley 52 Broddfura 38 Broddfura 12, 36 Broddgreni 54, 64 Brönugrös 26 Bugðupunktur 16 Elfting 31 Elri 28, 56 Fjallafura 60, 63 Fjallaþinur 37, 42 Fjallaþöll 28, 33 Fjalldalafífill 61 Fura 49 Geldingahnappur 35, 62, 68 Greni 28 Gráreynir 17 Gulmaðra 28 Gulrófa 26 Gulrót 13 Hlynur 45 Holtasóley 5 Holurt 36 Hrútaberjalyng 8, 12, 13, 15 Hvítelri 24 Hvítgreni 70 Hvítþinur 7 Ilmbjörk 33 Krækilyng 42 Lambagras 38 Lerki 41 Lindifura 67 Língresi 50 Maríustakkur 53 Marþöll 8 Móasef 62 Rauðelri 22 Rauðgreni 13, 17 Reynivður 9, 18, 21 Reyrgresi 25 Seljureynir 29 Silfurreynir 47 Sitkagreni 62 Skógarfura 59 Sortulyng 24 Stafafura 34 Svartgreni 65 Síberíuþinur 35 Umfeðmingur 28 Víðir 9, 10, 13 Ösp 48 Þursaskegg 38, 43