Skip to main content

Námsvísir, Vidskiptadeildar HR grunnam 2009-2010

Page 29

Kennsluskrá 2009-2010

Stig námskeiðs: Grunnnám–Framhaldsnámskeið. Tegund: Skyldunámskeið. Undanfarar: Fjárhagsbókhald og rekstrargreining. Skipulag: Þrír fyrirlestrar og einn dæmatími á viku. Kennarar: Jón Gunnsteinn Hjálmarsson, aðjúnkt. Námsmarkmið: Markmið námskeiðsins eru að nemendur: • Öðlist skilning á lögum og reglum sem gilda um ársreikninga íslenskra fyrirtækja • Öðlist skilning á helstu matsreglum, hugtökum og kennitölum sem birtast í íslenska ársreikningnum. • Séu færir um að semja tiltölulega einfaldan ársreikning þ.e. rekstrarreikning, efnahagsreikning og sjóðstreymi. • Skilji grunnhugsunina á bakvið samstæðureikningsskil séu færir um að bera saman lykilyfirlit árseikninga og túlka niðurstöður þeirra • Séu færir um að gera einföld verðmöt á fyrirtækjum útfrá upplýsingum í ársreikningum/áætlunum. Lýsing: Kynning á lögum um ársreikninga, kynning reglugerðar um framsetningu og innihald ársreikninga og ársreikningskafla hlutafélagalaganna. Nemendur fá þjálfun í gerð einfaldra ársreikninga. Dæmum um ársreikninga verður dreift eða vísað á heimasíður og farið yfir í tíma. Reglur um fjárfestingar í hlutabréfum og öðrum markaðsverðbréfum kynntar með hliðsjón af lögum um ársreikninga og stöðlum alþjóðlegu reikningsskilanefndarinnar (IASB). Eiginfjárreikningar kynntir og ráðstöfunarmöguleikar einstakra reikninga með skírskotun í lög. Reglur um færslu tekjuskatts í reikningsskil kynntar. Sjóðstreymi og notkun helstu kennitalna því tengdu. Meðferð kaupréttar á hlutabréfum (options) í reikningsskilum kynnt. Helstu kennitölur í ársreikningum kynntar. Stutt kynning verður á lífeyris- og ábyrgðarskuldbindingum, óefnislegum eignum og gerð verður grein fyrir mismuninum á fjármögnunarleigu- og kaupleigusamningum. Kynning á samstæðureikningsskilum. Lesefni: Verður tilkynnt í upphafi námskeiðs. Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar og dæmatímar. Námsmat: 2 lítil verkefni 15% (2*7,5%), áfangapróf 10%, verkefni 15%, lokapróf 60%. Tungumál: Íslenska. V-308-ALVI Alþjóðaviðskipti 6 ECTS (3 ein.) Ár: 2. ár. Önn: Haustönn (dsk.) og sumarönn (HMV). Stig námskeiðs: Grunnnám-Inngangssnámskeið. Tegund: Skyldunámskeið. Undanfarar: Þjóðhagfræði I og markaðsfræði. Skipulag: Fjórir fyrirlestrar á viku á haustönn, níu fyrirlestrar á viku á sumarönn. 27


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook