9 minute read

Uppáhalds Hámumatur: Réttindaskrifstofa SHÍ situr fyrir svörum

HVERNIG Á AÐ NOTA SÓLARVARNARSTUÐULINN Ástralski sólarvarnarframleiðandinn Badger lýsir því á heimasíðu sinni:

Ef húðin þín myndi venjulega brenna eftir 10 mínútur í sólinni, myndi notkun á sólarvörn með sólarvarnarstuðli 15 gera þér kleift að vera í sólinni í um það bil 150 mínútur án þess að brenna (stuðull 15 sinnum meiri). Þetta er gróft mat sem veltur á tegund húðar, styrk sólarljóss og magni sólarvarnar sem notuð er. Sólar varnarstuðullinn er í raun mælikvarði á vörn gegn magni UVB útsetningar og er ekki ætlað að hjálpa þér að ákvarða lengd útsetningar. Til að fá sem mesta vörn mæla sérfræðingar með því að nota í minnsta lagi sólarvörn með stuðli 15, að bera á sig rétt magn (2mg/cm2 af húð, eða um eina únsu (29,6 ml) til að hylja líkamann), og að bera aftur á sig á 2ja tíma fresti. Flestir bera á sig of litlu magni af sólarvörn og nota aðeins ¼ til ½ nauðsynlegs magns. Þegar helmingur nauðsynlegs magns er notað veitir sólarvörnin aðeins vörn sem hljómar upp á kvaðratrót uppgefinnar tölu. Svo að notkun á helmingi nauðsynlegs magns af sólarvörn með stuðli 30 veitir bara vörn sem sam svarar réttri notkun á sólarvörn með stuðli 5,5!“

Advertisement

Það væri óréttlátt gagnvart sjálfu þér að verja þig ekki fyrir útfjólubláum geislum með notkun á sólarvörn með sólarvarnarstuðli. Framfarir í vísindum hafa fært okkur á þann stað að við getum nú verndað okkur fyrir skaðlegum áhrifum sólarinnar. Það er ekki tryggt að þú fáir ekki krabbamein en varúðarráðstafanir eru alltaf betri en lækning.

If your skin would normally burn after 10 minutes in the sun, applying an SPF 15 sunscreen would allow you to stay in the sun without burning for approximately 150 minutes (a factor of 15 times longer). This is a rough estimate that depends on skin type, the intensity of sunlight and the amount of sunscreen used. SPF is actually a measure of protection from the amount of UVB exposure and it is not meant to help you determine the duration of exposure. For best protection, experts recommend using a minimum SPF sunscreen of 15, applying the proper amount (2mg/cm2 of skin, or about one ounce for full body coverage), and reapplying every 2 hours. Most people under-apply sunscreens, using ¼ to ½ the amount required. Using half the required amount of sunscreen only provides the square root of the SPF. So, a half application of an SPF 30 sunscreen only provides an effective SPF of 5.5!

It would be an injustice to yourself if you are not protecting yourself against UV rays by wearing sunscreen with SPF. Scientific advancement has brought us this far where we can now protect ourselves from the harmful effects of the sun. It is not guaranteed that you will not develop cancer but precaution is always better than the cure.

Grein / Article

Karitas M. Bjarkadóttir Uppáhalds Hámumatur Réttindaskrifstofa SHÍ situr fyrir svörum

Favourite Meals from Háma

The Students’ Rights Office Give Their Opinions Þýðing / Translation Lilja Ragnheiður Einarsdóttir

Á réttindaskrifstofu Stúdentaráðs starfa fjórir kjörnir fulltrúar og þrír faglega ráðnir starfsmenn við að berjast fyrir réttindum stúdenta (og ritstýra handa þeim æðislegum blöðum). Við eyðum öll miklum tíma á háskólasvæðinu en skrifstofan er staðsett beint fyrir ofan Bóksöluna. Það gefur því auga leið að við erum meðal hollustu viðskiptavina Hámu og höfum marga fjöruna sopið í neyslu þess fjölbreytta úrvals sem hún býður upp á. Hér má lesa um það sem stendur upp úr hjá okkur.

Isabel Alejandra Diaz, forseti Stúdentaráðs Í morgunmat fæ ég mér oftast hafragrautinn. Hann er hollur og seðjandi og í rauninni frábær leið til að byrja langan dag af hagsmunabaráttu. Með honum drekk ég kaffi, og finnst ægilega gott að tríta mig með cappuccino úr vélinni í Hámu. Ég er mikið fyrir fisk, enda alin upp á Vestfjörðum og verð því alltaf spennt þegar bleikjan eða laxinn er á matseðlinum og hlakka til hádegisverðarins. Þetta á líka við um paprikusúpuna.

Karitas M. Bjarkadóttir, ritstýra Stúdentablaðsins Frá því að ég hóf nám við háskólann hef ég vanið mig á að byrja daginn á rúnstykki með osti úr Hámu og boozti eða flösku af Froosh. Ég er soddan gikkur og þessi morgunmatur ber þess merki. En rúnstykkin eru alltaf mjúk og nóg af smjöri á þeim, auk þess sem þetta endist mér út daginn. Í hádegismat fæ ég mér oftast þann grænmetisrétt sem er á boðstólum hverju sinni, en ég verð samt At the Students Rights Office a team of four elected representatives and three hired employees advocate for students’ rights (and edit wonderful papers for them). We all spend a considerable amount of time on the university campus which is located right above Bóksala Stúdenta. It therefore goes without saying that we are among the most regular patrons of Háma and have extensive experience with the various meals it has to offer. Here are some of our favourites.

Isabel Alejandra Diaz, president of the Student Council. For breakfast I usually have oatmeal. It’s healthy and filling and a great way to start a long day of fighting for students’ interests. I drink coffee along with it and enjoy treating myself to a cappuccino from the machine in Háma. I really enjoy fish, since I was brought up in the Westfjords after all, and get excited when trout or salmon is on the menu and look forward to lunch. This also applies to the bell pepper soup.

Karitas M. Bjarkadóttir, editor of the Student Paper Ever since I started my studies at the university I have started my day with a bread roll and cheese from Háma with a boozt or a bottle of Froosh. I’m a picky eater and this choice of breakfast really illustrates that. But the bread rolls are always soft and with plenty of butter and they last throughout the morning. For lunch I usually have the vegetarian meal of the day but I always do get extra hungry on Fridays when there’s

Vaka Lind Birkisdóttir, framkvæmdastýra Ég byrja daginn á hafragraut með smá kanil sykri, eða græna booztinu frá Hámu. Hafra grauturinn fer vel með meltinguna og er próteinríkur en græni booztinn er það besta sem ég fæ, ég væri mjög til í uppskriftina því mér hefur ekki tekist að gera hann sjálf. Ég er afar hrifin af fiskinum í hádeginu, sérstaklega með kartöflum, salati og smá sósu, en annars er ég líka dugleg að fara á salatbarinn þegar þannig liggur á mér. Ég er hins vegar alltaf til í góða blómkálssúpu eða sterka og góða súpu fyrir hálsinn og svo er alltaf gott að fá kaffi yfir daginn og eina fílakaramellu með.

Sara Þöll Finnbogadóttir, varaforseti Stúdentaráðs Það er mikilvægt að borða góðan morgunmat til að byrja daginn vel og ég er komin með skothelda uppskrift til að fá það mesta út úr grænmetisrúnstykkjunum í Hámu með því að bæta á þau eggjum sem ég kaupi sér. Með því þamba ég rauða booztinn og er þá orðin full af orku og tilbúin í verkefni dagsins. Ég kætist alltaf þegar ég sé að tómatsúpan er í pottinum í hádeginu en hún er með því besta sem ég fæ.

Alma Ágústsdóttir, alþjóðafulltrúi Ég er fyllilega á þeirri skoðun að morgunmatur sé bara matur og það sé enginn matur frekar en annar sem á að borða fyrst á daginn. Ekki það að ég borða oftast fyrstu máltíð dagsins í hádeginu. Ég er mjög hrifin af salatbarnum, og stunda hann grimmt. Oft fæ ég mér líka eina af þeim fjölmörgu vegansamlokum sem eru í boði í Hámu en ég sé þó mikið eftir soya ciabatta samlokunni, og þetta er formleg beiðni um að hún verði aftur sett á boðstóla.

Jessý Jónsdóttir, hagsmunafulltrúi Ég er ekki mikið fyrir morgunmat, venjulega fæ ég mér bara kaffi, en ef ég borða yfir höfuð er það rúnstykki með osti og gúrku úr Hámu og rauður Collab. Þetta er góð leið til að byrja daginn, orku mikið og ég get farið hress og kát í hagsmunagæslu hvers dags. Í hádeginu finnst mér æðislega gott að fá mér eina af tveimur súpum dagsins. Ég er mikil áhugakona um súpu almennt, mér finnst sveppa súpa geggjuð og ef ég elda sjálf verður súpa líka oft fyrir valinu.

Vífill Harðarson, lánasjóðsfulltrúi Ég borða oftast ekki fyrr en eftir klukkan tíu, ég er frekar lystarlaus rétt eftir að ég vakna. Flatkaka með osti verður þó mjög oft fyrir valinu sem fyrsti maturinn sem ég læt ofan í mig með koffíni af hvaða toga sem er, kaffi, hvítum Monster eða Nocco, það sem hendi er næst. Ég geri mér sérstaka ferð í Hámu þó ég sé ekki á háskólasvæðinu þegar Þakkargjörðarmaturinn er, sem er það besta sem ég fæ. Þetta er orðin hefð hjá mér og ég veit nákvæmlega við hverju ég á að búast, þetta klikkar aldrei og ég geng sáttur frá borði.

Vaka Lind Birkisdóttir, Managing Director I start my day with oatmeal and a little bit of cinnamon sugar or the green boost from Háma. The oatmeal is good for digestion and has a lot of protein but the green boozt is my favourite. I would really appreciate having the recipe because I have not been able to replicate it myself. I’m a big fan of the fish dishes at lunchtime, especially along with potatoes, salad and a bit of sauce. I also tend to frequent the salad bar when I’m in the mood for it. I’m always up for a good cauliflower soup or a good strong soup for the throat and coffee is stellar throughout the day, especially the one with elephant caramel on the side.

Sara Þöll Finnbogadóttir, Vice-President of the Student Council It is important to eat a good breakfast to start the day off well and I have cooked up a foolproof recipe to perfect the veggie bread rolls from Háma by adding eggs to them that I buy separately. Alongside that I gulp down the red boozt and am then ready to get cracking on the day’s projects. I’m always happy when I see tomato soup in the pot at lunchtime, it is one of my favourites.

Alma Ágústsdóttir, International Officer I am firmly of the belief that breakfast is just food and no food is superior to any other to eat first during the day. I usually eat my first meal around noon. I’m a big fan of the salad bar and am a frequent customer there. I also often have one of the vegan sandwiches that Háma offers but I really do miss the soya ciabatta sandwich and I hereby officially ask that it be put back on the menu.

Jessý Jónsdóttir, Student Interest Representative I’m not really one for breakfast, I usually just have coffee, but if I’m eating anything it would be a bread roll with cheese and cucumber from Háma and a red Collab. This is a good and energising way to start the day and I can happily jump into representing students’ interests every day. At lunch I like to have one of the two soups available each day. I am quite the soul food enthusiast in general, I really love mushroom soup and when I’m cooking myself it tends to be soup.

Vífill Harðarson, Loan Representative I usually don’t eat until after ten o’clock, I don’t have much of an appetite right after I wake up. Icelandic flatbread with cheese is very often my first meal of the day along with caffeine in any form, be it coffee, a white Monster or a Nocco, whatever is closest. I make a trip to Háma for the Thanksgiving meal every year, even if I’m not on campus already, because it’s one of my favourites. This has become a tradition of mine and I know exactly what to expect, it never fails and I always walk away happy and content.

This article is from: