1 minute read

Slæm fjárhagsstaða bitnar á íbúum

- eftir Björn Gíslason borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks

Fjármál borgarinnar eru komin í töluvert óefni eins og vart hefur farið fram hjá neinum, en borgarstjórnarmeirihlutinn hefur nú tvívegis hætt við skuldabréfaútboð til að forða borginni frá niðurlægingu, enda engin tilbúinn að lána borginni nema á mjög háum vöxtum. Sú staðreynd segir sína sögu um tiltrú markaðarins á fjármálum borgarinnar, en ekki þarf frekari vitnanna við að mínu mati.

Advertisement

En hvað þýðir þetta raunverulega fyrir okkur íbúana í borginni og hvernig er þessi staða farin að bitna nú þegar á borgarbúum?

Nú þegar er áhrifa þessarar slæmu fjármálastjórnar meirihlutans farið að gæta. Þess sjást t.d. merki þegar litið er til neyðarástandsins í leikskólamálum borgarinnar, en ekki hefur tekist að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla eins og lofað var fyrir síðustu kosningar. Þá hefur snjómoksturinn verið í ólestri, sem hefur bitnað verulega á borgarbúum í vetur. Og nú síðast um páskana, urðu Reykvíkingar, og sérstaklega íbúar efri byggða, varir við það að búið var að skerða afgreiðslutíma sundlauga yfir bænadagana og páskana. En fyrir ári síðan voru allar sundlaugar opnar alla páskahelgina. Enn fremur hefur þjónusta strætó farið versnandi og fyrirséð að fara þarf í frekari niðurskurðaraðgerðir þar.

Gæluverkefni víki fyrir grunnþjónustu

Verði ekkert aðhafst mun það bitna harkalega á skattgreiðendum í borginni með skertri þjónustu og auknum álögum. Þá er hætt við því að þegar komið er að skuldadögum eins og nú, lendi aðhaldið á þeim sem síst mega við því.

Það er orðið löngu tímabært og raunar aðkallandi að fjárfestingar borgarstjórnarmeirihlutans í gæluverkefni á borð við Braggann og puntstráin í Nauthólsvík, víki fyrir grunnþjónustu borgarinnar.

Ef borgarstjórnarmeirihlutinn viðurkennir ekki vandann nú og tekur hann ekki föstum tökum stefnir í að vandinn

Garnbúð Þverholti 5, Mosfellsbæ

Opið 13 18 mán fös, 11 14 laugardaga

Endilega kíktu við, sjón er sögu ríkari

verði óviðráðanlegur. Það gæti þýtt að sveitarstjórnarráðuneytið muni sjá sig knúið til að taka fjármál borgarinnar í gjörgæslu með tilheyrandi niðurlægingu fyrir stærsta sveitarfélag landsins.

Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík

This article is from: