Matarauður Vesturlands

Page 1

Tökum upp US Dollar

SKESSUHORN 2017

Til alþingismanna

Pétur Geirsson

FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is

39. tbl. 20. árg. 27. september 2017 - kr. 750 í lausasölu

Matarauður

Vesturlands

Sauðamessan

7. október í Borgarnesi

Stuðlabandið á Sauðamessuballinu kl. 23:00-03:00 Hlökkum til að sjá ykkur

Með Skessuhorni í dag fylgir 36 síðna sérblað um vinnslu, sölu og markaðssetningu á vestlenskum mat. Sjá bls. 15 til 50

Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson.

Tvennar tvíburasystur saman á deildinni

/ = Ð ;( / Ø : 0 ð : Ð ( ¶

Stúlkurnar hittust allar fjórar á kvennadeildinni síðastliðinn föstudag. Til vinstri á myndinni kúra stysturnar Emilíu og Freyju, en hægra megin hjúfra sig upp við hvora aðra systurnar Natalía og Ísabella.

Tvær tvíburamæður lágu sængurleguna á kvennadeild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi í síðustu viku. Að sögn ljósmæðra á Akranesi mun þetta vera í fyrsta sinn svo vitað sé að tvenn tvíburasystkini dvelji á deildinni á sama tíma. Oftast fæðast ekki nema ein tvíburasystkini á deildinni á ári hverju og því afar ólíklegt að rekast þar á tvenn tvíburasystkini sama daginn. Foreldrar barnanna eru annars vegar Bryndís Ottesen og Jón Einar Hjaltested og hins vegar Linda Sif Frímannsdóttir og Jón Már Brynjólfsson, öll búsett á Akranesi. Þeim

Bryndísi og Jóni Einari fæddust tvær stúlkur að morgni þriðjudagsins 19. september. Þær komu í heiminn á Landspítalanum en rúmlega sólarhring síðar færði fjölskyldan sig til sængurlegu á kvennadeildina á Akranesi. Stúlkurar hafa fengið nöfnin Emilía og Freyja. Fimmtudaginn 21. september fæddust Lindu og Jóni Má einnig tvær stúlkur. Þær komu í heiminn á Akranesi og fjölskyldan lá sömuleiðis sængurleguna á kvennadeildinni í síðustu viku. Dætur Lindu og Jóns Más hafa fengið nöfnin Natalía og Ísabella. kgk/ Ljósm. eo.

Loratadin LYFIS

- fæst án lyfseðils

Yfir ��� tilboð Allir viðskiptavinir Arion banka eru í Einkaklúbbnum Náðu í appið og nýttu þér tilboðin


MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

2

Klæðning Stjórnsýsluhúss lekur Stjórnsýsluhúsið við Stillholt 16-18 á Akranesi er í eigu nokkurra fyrirtækja og stofnana, meðal annars Akraneskaupstaðar, sem á um fimmtung í húsinu, fasteigna Ríkissjóðs og Regins, auk eigenda að smærri eignarhlutum. Í nokkurn tíma hefur það legið fyrir að ástand klæðningar á húsinu er ábótavant og hún talin leka. Því var í upphafi þessa árs fengin verkfræðistofa til að meta ástand hússins, kanna skemmdir og leggja mat á viðgerðakostnað. Í minnisblöðum vegna þeirrar úttektar, sem Skessuhorn hefur undir höndum, kemur m.a. fram að kannað var ástand ytra byrðis hússins og þeir helstu ágallar sem eru líklegir til þess að vera orsök viðvarandi leka. Þar kemur fram að afar kostnaðarsamt verður að koma ytra byrði hússins í viðunandi horf en bent er á fleiri

en eina leið til þess. Í minnisblaðinu kemur fram að áætlaður heildarkostnaður, miðað við að farið verði í að endurnýja alla glugga og hurðir í húsinu, sem og að klæða það allt að utan, er 308 milljónir króna. Hins vegar er lagt mat á að kostnaður við viðgerðir að því gefnu að haldið verði í glugga, hurðir og annað ytra byrði hússins eins og það er fyrir sé um þriðjungur þeirrar upphæðar. Verkfræðistofan sem framkvæmdi úttektina telur að heppilegast sé, hvort heldur litið er til faglegra eða kostnaðarlegra atriða, að fara í heildarendurnýjun á ytra byrði hússins, frekar en að reyna á því hæpnar viðgerðir. Fram kemur í minnisblaðinu um ástand hússins að ljóst sé að skorti á loftun og af þeim sökum þéttist vatn innan við klæðninguna. Þá skorti upp á frágang við glugga. Vegna þessara ágalla hafi tréverk, svo sem burðargrind, krossviður og loftunarlistar á bak við klæðninguna blotnað,

VG með uppstillingu

Stjórnsýsluhúsið við Stillholt 16-18 á Akranesi.

ekki síst við glugga og þá mest neðan við þá. Nokkuð víða er burðargrind, krossviður á vatnsbrettum, loftunarlistar og fleira orðið ónýtt af fúa og bleytu. Þá er farið að bera talsvert á ryði í festingum burðargrindarinnar, þ.e. vinklum, nöglum og múrboltum í stein. Eigendum hússins hefur verið kynnt niðurstaða verkfræðistofunn-

ar en samkvæmt heimildum Skessuhorns liggur ekki fyrir ákvörðun um framkvæmdir. Samkvæmt heimildum blaðsins er þó meirihluti eigenda hússins þeirrar skoðunar að ráðlagt sé að fara í heildarlagfæringar, sem þá munu eins og fyrr segir samkvæmt kostnaðarmati kosta 308 milljónir króna. mm

Ritari fluttur í nýtt og stærra húsnæði á Akranesi

Til minnis Skessuhorni vikunnar fylgir sérblaðið Matarauður Vesturlands. Þar er að finna kynningar og umfjallanir um brot þess matar sem framleiddur og framreiddur er í landshlutanum. Lesendur eru varaðir við því að lesturinn kunni að kalla fram svengd og því ráðlagt að hafa eitthvað matarkyns, helst úr landshlutanum, innan seilingar við lesturinn.

Veðurhorfur

Það verður breytileg átt, yfirleitt 8-15 m/s á morgun, fimmtudag. Víða talsverð rigning, en mikil á suðausturhorni landsins. Dregur úr úrkomu með kvöldinu. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Austan 8-13 m/s og rigning á föstudag. Heldur hægari vindur og úrkomulítið norðanlands. Hiti 8 til 13 stig. Rigning eða skúrir á flestum landshlutum á laugardag. Breytileg átt en síðar vestlæg, 5-13 m/s. Hiti breytist lítið. Breytileg átt og víðast væta á sunnudag. Norðlægari áttir síðdegis og rofar til sunnan heiða. Hiti 6 til 11 stig. Eftir helgi er útlit fyrir norðanátt með rigningu, en bjartviðri sunnan- og suðvestanlands. Hiti á bilinu 5 til 12 stig.

Spurning vikunnar

á gistiheimilum sem Ritari ehf. hefur flutt sig starfa undir merkjum um set innanbæjar á AkraStayAkranes. Það fyrirnesi í nýtt og stærra hústæki er með gistiheimili næði að Esjubraut 49. Fyrá tveimur stöðum í bænir í húsinu er starfsemi VS um, Apotek hostel & gutölvuþjónustunnar. Að sögn esthouse og Kirkjuhvoll Ingibjargar Valdimarsdóttguesthouse. „Með því að ur framkvæmdastjóra Ritláta Ritara sjá um þessa ara.is rúmar þetta hús betþjónustu nýtast starfsur starfsemina enda aukin menn betur á báðum umsvif. „Nýja húsnæðið er stöðum og öll þjónusta á jarðhæð sem býður upp og upplýsingar til gesta á marga nýja möguleika í Fyrirtækið er nú til húsa á Esjubraut 49 en þar er einnig VS tölvueru veittar á einum stað. þjónustu Ritara. Fyrirtæk- þjónustan til húsa. Þessa þjónustu gætu ið hefur vaxið jafnt og þétt önnur gisitheimili á Akranesi einnfyrirtækjum sem eiga erfitt með að í gegnum árin og mun innan skamms ig nýtt sér og losnað þannig undan fagna tíu ára afmæli sínu,“ segir Ingitaka á móti viðskiptavinum í þeim því að binda starfsmenn, því sjaldnbjörg. Í dag eru starfsmenn Ritara tilfellum þegar starfsmenn geta eðli ast er vitað nákvæmlega hvenær von starfseminnar vegna þurft að vera tólf með starfsstöðvar á Akranesi og fjarri, eða húsnæðið hentar ekki móter á gestum í hús. Auk áðurnefndrí Reykjavík. ar þjónustu skapast aukið rými í nýju töku viðskiptavina. Einnig á það við „Hingað til höfum við boðið alhúsnæði fyrir fjölgun starfsmanna um fyrirtæki sem vilja hafa útibú á menna ritaraþjónustu sem felst aðalRitara enda fjölmörg ný og spennlega í símsvörun, bókunum, úthringAkranesi þar sem hægt er að afhenda andi verkefni framundan í starfsemi ingum auk annarra ritaraverkefna og og taka á móti vörum svo ég nefni eitthvað,“ segir Ingibjörg. fyrirtækisins,“ segir Ingibjörg Valdibókhaldsþjónustu. Í nýju húsnæði Hún segir að til að byrja með marsdóttir. getum við einnig boðið móttökumuni Ritari t.d. sinna móttöku gesta þjónustu fyrir fyrirtæki. Hún hentar mm

NV.KJÖRD: Kjördæmisráð VG í Norðvesturkjördæmi kom saman til fundar síðastliðinn sunnudag og ákvað að skipa fimm manna kjörnefnd til að stilla upp lista fyrir kosningarnar 28. október nk. Formaður kjörnefndar er Ragnar Frank Kristjánsson. „Kjörnefndin auglýsir hér með eftir þeim sem hafa áhuga á að taka sæti á lista en einnig má senda inn uppástungur. Allar tillögur þurfa að berast á netfangið vgnv2017@gmail.com fyrir 28. september nk,“ segir í tilkynningu. -mm

Briddsarar hefja vetrarstarf sitt BORGARFJ: Borgfirskir briddsspilarar hófu vetrarstarf félags síns með formlegum hætti að kveldi síðasta mánudags. Til leiks mættu tíu pör og einum spilara betur, en þrír skiptust á að skipa eitt parið. Heiðar og Logi skruppu í æfingaferð suður í borg óttans helgina áður og virðist sú ferð hafa heppnast vel enda stóðu þeir uppi sem sigurvegarar á fyrsta kvöldi Bridgefélags Borgarfjarðar. Annað sætið hirtu Anna Heiða Baldursdóttir og Ingimundur Jónsson en þriðju urðu Hvanneyrarþríeykið Sveinn, Flemming og Gylfi. Næstu mánudagskvöld verða spilaðir léttir tvímenningar í Logalandi uns aðaltvímenningur hefst, en hann verður auglýstur síðar. „Félagar í briddsfélaginu eru ætíð viljugir að kenna nýju fólki spilið og ef einhvern langar að læra þá er um að gera að hafa samband við Ingimund í síma 861-5171 eða með tölvupósti á zetorinn@visir. is,“ segir í tilkynningu. -mm

Jólin eru komin hjá okkur Mikið úrval

„Ertu ánægð(ur) með ríkisstjórnarslitin“ var spurningin sem lesendur gátu svarað á vef Skessuhorns undanfarna viku. Af svörunum að dæma skiptist fólk í tvær fylkingar því„já, mjög ánægður“ var svar flestra, eða 43%, en næstflestir sögðu„nei, mjög óánægður“ og mældist sá hópur 24%. „Hvorki né“ sögðu 13%,„nei, frekar óánægður“ sögðu 10% og„já, frekar ánægður“ sögðu 9%. Í næstu viku er spurt:„Hvað áttu mörg pör af vettlingum?“

Vestlendingur vikunnar Þeir fjölmörgu Vestlendingar sem hafa ástríðu fyrir matargerð, framleiða úrvals hráefni og/eða reiða fram ljúffenga rétti á hverjum degi eru Vestlendingar vikunnar.

Opið mán. - fös. 9-18 · Lau. 11-15 Erum á Facebook


Umhverfisvænasta ál í heimi Íslenskt ál verður sífellt eftirsóttara meðal framleiðenda sem vilja draga úr kolefnisfótspori vöru sinnar og hvergi í veröldinni er álframleiðsla jafn umhverfisvæn og hér. Orkan sem álfyrirtæki nota víða um heim er að mestu úr óendurnýjanlegum orkugjöfum eins og kolum og jarðgasi og henni fylgir mikil losun gróðurhúsalofttegunda. Á Íslandi losnar allt að tífalt minna af CO� við orkuframleiðslu. Með grænni orku og framúrskarandi framleiðslutækni leggjum við þannig mikið af mörkum til að sporna gegn mengun í heiminum.

Ísland

(CO�eq/Al)

��

��

��

��

Á Íslandi er öll orka unnin úr endurnýjanlegum orkugjöfum. Miðausturlönd

(CO�eq/Al)

��

��

��

��

Miðausturlönd nota einkum jarðgas til orkuvinnslu. Kína

(CO�eq/Al)

Í Kína kemur raforkan að mestu úr kolum.

Íslenskt ál um allan heim

nordural.is

��

��

��

��


MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

4

Dr. Sæmundur Sveinsson skipaður í stöðu rektors LBHÍ Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smáauglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.835 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.457. Rafræn áskrift kostar 2.226 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.058 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf.

skessuhorn@skessuhorn.is

Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 Kristján Gauti Karlsson Anna Rósa Guðmundsdóttir

magnus@skessuhorn.is kgauti@skessuhorn.is arg@skessuhorn.is

Auglýsingar og dreifing: Emilía Ottesen

emilia@skessuhorn.is

Umbrot og hönnun: Tinna Ósk Grímarsdóttir

tinna@skessuhorn.is

Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir

bokhald@skessuhorn.is

Prentun:

Landsprent ehf.

Leiðari

Matur er mannsins megin Mikið er til í þeirri staðhæfingu þegar sagt er að við séum það sem við borðum. Verðum hvorki betri né verri en sú fæða sem við veljum að láta ofan í okkur. Alveg á sama hátt er hægt að fullyrða að við við verðum hvorki vitrari né betri en sú samanlagða fræðsla og það mikla áreiti sem við kjósum að verða fyrir úr fjölmiðlum í gegnum skynfæri okkar. Ef við kjósum til dæmis að láta markaðsöflin ein um að ákveða hvað við lesum, heyrum eða sjáum er nokkuð víst að samanlagt værum við ekki að gera okkur skynsamari í dag en við vorum í gær. Við getum nánast verið viss um að verið sé að reyna að fá okkur til að kaupa eða neyta einhvers sem aðrir græða á að selja, algjörlega óháð hollustu, gæðum eða heilbrigðri skynsemi. Meðal annars þess vegna er samkvæmt lögum hérlendis óheimilt að auglýsa áfengi eða tóbak og eiturlyf eru mörg bönnuð. Hins vegar er heimilt að auglýsa allan fj.. sem hefur ekkert að gera með hollustu, eins og sykraða gos- og ofurorkudrykki, lakkrís og fjölmargar vörur sem bókstaflega æra blóðþrýstinginn ef þeirra er neytt. Margt er svo eitrað að það er mér óskiljanlegt að það hafi nokkurn tímann verið heimilað til manneldis. Vörur sem bjóða heim hættunni á sjúkdómum og draga úr lífsgæðum þeirra sem neyta þeirra. En við höfum val. Já, við höfum vissulega val og ég kýs að færa þetta í tal nú í sömu andrá og við leggjum fram kynningarblað um þann matarauð sem við Vestlendingar erum svo ótrúlega heppnir að hafa við bæjardyrnar. Hér í okkar landshluta er framleitt og unnið úr frábæru hráefni matvara sem við svo sannarlega getum verið stolt af og þurfum ekki að óttast hið versta leggjum við hana okkur til munns. Það á við hvort sem við ræðum um sjávarfang, ræktun eða landbúnaðarvörur. Að hafa óskertan aðgang að hreinu vatni og góðum mat er auðlind sem við eigum að meta að verðleikum og styðja af einurð við frumkvöðlastarf, hvort sem það er í nafni beint frá býli, fisks úr vinnslu sem við treystum eða grænmeti sem ræktað er við bestu aðstæður án aukaefna. Neysla á slíkum mat er ein af undirstöðum fyrir góðri heilsu og langlífi. Við þurfum að nærast rétt, hreyfa okkur reglulega og sofa til að bæði andlegt og líkamlegt jafnvægi skapi grunn að atorkusemi og dragi úr líkum á sjúkdómum. Þannig er hollur matur undirstaða velsældar, hvar í heimi sem við erum. Meðalaldur þjóða ræðst af þessu og fleiri efnahagslegum þáttum. Við á Íslandi erum heppnari en aðrir. Hér þarf t.d. ekki rótsterk krydd til að fela hið raunverulega bragð sem einkennir fiskinn okkar eða kjötið eða lyf til að framleiða úrvals kjöt. Einungis að hráefnið sé rétt meðhöndlað, kælt og fryst eftir því hvað á við. En maturinn gegnir hlutverki í lífi okkar umfram það að með neyslu hans erum við að „fylla á tankinn.“ Við höldum veislur og gleðjumst, notum mat til að gera okkur glaðan dag oft á forsendum sjálfs matarins, svo sem í sjávarréttaveislum eða þorrablótum. Þetta leitumst við með að draga fram í dagsljósið í þessu blaði sem fjallar að stærstum hluta um matvælaframleiðslu og veitingar á Vesturlandi. Ég vil að endingu hvetja lesendur til að kynna sér það með opnum huga sem framleiðendur, veitingastaðir og verslanir í landshlutanum eru að bjóða nú í október. Úrval matvæla sem við með stolti getum neytt og boðið gestum okkar. Sjálf erum við best til að kynna það sem í boði er í nærumhverfi okkar og þessvegna er þetta blað á borð borið með stuðningi fjölmargra samstarfsaðila okkar. Ég vona að þið njótið og verði ykkur að góðu! Magnús Magnússon

Að fenginni tillögu háskólaráðs Landbúnaðarháskóla Íslands hefur Kristján Þór Júlíusson menntamálaráðherra skipað dr. Sæmund Sveinsson í stöðu rektors til eins árs frá og með 1. október nk. Tekur hann við starfinu af Dr. Birni Þorsteinssyni. Á árunum 2010 til 2014 var Sæmundur aðstoðarkennari við grasafræðideild háskólans í Bresku Kólumbíu í Vancouver í Kanada. Eftir að hann lauk doktorsnámi hefur hann starfað sem sérfræðingur við auðlindadeild Landbúnaðarháskóla Íslands og unnið m.a. við byggrannsóknir í samnorrænu PPP (Public Private Partnership) verkefni, sem snýst um að bera saman norrænar kynbótalínur af byggi og kanna erfðafræðilegan fjölbreytileika þeirra - einkum með tilliti til eiginleika sem hafa áhrif á sjúkdómsþol og flýti. Einnig hefur hann kennt í Háskóla Íslands, Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna og Landbúnaðarháskólanum. Hann hefur setið í erfðanefnd landbúnaðarins fyrir hönd Landbúnaðarháskóla Íslands

frá árinu 2015. Sæmundur útskrifaðist með BS próf frá líffræðideild Háskóla Íslands í júní 2007. Hann lauk mastersprófi frá sömu deild sumarið 2009. Leiðbeinandi Sæmundar á mastersstigi var Dr. Kesara Anamthawat-Jónsson. Í mastersnámi kannaði Sæmundur skyldleika ýmissa meltegunda (Leymus) með frumuerfðafræðilegum aðferðum. Hann varði doktorsrit-

gerð sína frá grasafræðideild háskólans í Bresku Kólumbíu í Vancouver í Kanada (www.botany.ubc.ca) árið 2014. Doktorsritgerð Sæmundar ber titilinn: “Investigations of plant genome evolution using massive parallel sequencing”, en á íslensku nefnist hún „Þróun plöntuerfðamengja könnuð með næstu kynslóðar raðgreingartækni“. mm

Breytinga að vænta á framboðslista Framsóknarflokks í NV kjördæmi Síðastliðinn laugardag hélt Framsóknarflokkurinn í Norðvesturkjördæmi aukaþing á Reykjum í Hrútafirði til að ræða leiðir við val á framboðslista fyrir kosningarnar eftir mánuð. Segja má að þar hafi heldur betur dregið til tíðinda. Fyrirfram var vitað að atlaga yrði gerð að oddvitasæti listans sem Gunnar Bragi Sveinsson skipar. Óánægju hefur gætt með störf hans hjá hluta flokksbundinna Framsóknarmanna, jafnvel í baklandi hans í heimahéraðinu eins og komið hefur fram í fréttum. Að einhverju leyti er sá urgur af sama meiði og gagnvart fyrrverandi formanni flokksins Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni sem tilkynnti síðastliðinn sunnudag úrsögn sína úr Framsóknarflokknum og boðun nýs stjórnmálaafls. Samkvæmt heimildum Skessuhorns hafði Elsa Lára Arnardóttir alþingismaður, sem er 2. þingmaður flokksins í NV kjördæmi, tilkynnt Gunnari Braga fyrir þingið á laugardaginn að hún myndi sækjast eftir forystusæti á listanum og þannig fara gegn honum í baráttu um sætið. Á þinginu sjálfu tilkynnti hún hinsvegar, flestum að óvörum, að hún hygðist hætta þingmennsku og gæfi því ekki kost á sér á lista fyrir komandi kosningar. Samkvæmt sömu heimildum Skessuhorns hyggst Elsa Lára taka áskorun Ingibjargar Pálmadóttur, fyrrverandi ráðherra og bæjarfull-

Þau skipuðu fjögur efstu sætin fyrir kosningarnar 2016. F.v. Gunnar Bragi Sveinsson, Lilja Sigurðardóttir, Elsa Lára Arnardóttir og Sigurður Páll Jónsson.

trúa Framsóknarflokksins á Akranesi, um að taka efsta sæti á lista flokksins þar fyrir bæjarstjórnarkosningar næsta vor. Á aukakjördæmaþinginu tilkynnti Ásmundur Einar Daðason fyrrverandi alþingismaður að hann gefi kost á sér til að leiða lista flokksins. Fer hann því fram gegn Gunnari Braga Sveinssyni á tvöföldu kjördæmaþingi sem haldið verður 8. október næstkomandi á Bifröst. Á fundinum var ákveðið að kos-

ið verði um fimm efstu sæti listans á tvöföldu kjördæmaþingi. Nokkrir tilkynntu þegar um framboð sín. Auk Ásmundar Einars og Gunnars Braga sem bjóða sig fram í fyrsta sæti mun Lilja Sigurðardóttir varaþingmaður bjóða sig fram í 2. - 3. sæti, Stefán Vagn Stefánsson á Sauðárkróki býður sig fram í 3. sæti og þær Guðveig Anna Eyglóardóttir í Borgarnesi og Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir í Bakkakoti í 3. - 4. sæti. mm

Kosið verður um fjögur efstu sætin Samfylkingin í Norðvesturkjödæmi hélt kjördæmisþing á Akranesi síðastliðinn laugardag. Þar var ákveðið að kjósa um fjögur efstu sætin á listanum á auknu kjördæmisþingi sem haldið verður sunnudaginn 1. október á Hótel Bjarkalundi. Jafnframt verður lögð fram tillaga uppstillingarnefndar um þau sæti á framboðslistanum sem ekki verður kosið um. Eini þingmaður flokksins í kjördæminu, Guðjón Brjánsson, gefur kost á sér til endurkjörs. „Þeir sem hefðu áhuga á að taka sæti á framboðslistanum eru beðnir um að hafa samband við Björn Guðmundsson, formann uppstillingarnefndar, á net-

Þau skipuðu tvö efstu sætin á lista Samfylkingarinnar fyrir kosningarnar 2016. Guðjón Brjánsson og Inga Björk Bjarnadóttir.

fangið bg56@aknet.is fyrir miðvikudaginn 27. september kl. 18,“ segir í tilkynningu frá stjórn kjördæmisráðs sem hvetur alla félagsmenn til

að mæta á kjördæmisþingið og taka þátt í kosningum á framboðslista og umræðum vegna komandi alþingiskosninga. mm


FrÁ 1816

FuD tÁlFuGlAr

TRAUST FJÖLSKYLDUFYRIRTÆKI FRÁ 1998

OpIð AlLa DaGa:

OpIð:

ViRkA dAgA 9:00 tIl 18:00 LaUgArDaGa 11:00 tIl 15:00

KRÓKHÁLS I 4 • SÍM I 5 1 7 8 0 5 0 Veidimad u r in n . is

SÍÐ U M Ú L A 8 • S Í M I 568 8410 Veid ih o r ni d . i s

ViRkA dAgA 9:00 tIl 18:00 LaUgArDaGa 10:00 tIl 16:00


MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

6

Undirbúa kalkþörungaverksmiðju

Nóg að gera hjá Starfsbraut FSN Húsfell í einu þekktasta viðskiptablaði heims BORGARFJ: Viðskiptablaðið Forbes, sem er eitt þekktasta viðskiptablað heims, birti á mánudaginn grein á vefsíðu sinni um Húsafell og aðrar náttúruperlur Borgarfjarðar. Í greininni, sem ber yfirskriftina The Hidden Gem of Iceland: Husafell (Falinn fjársjóður Íslands: Húsafell), er sagt frá Húsafelli og þeirri stórbrotnu náttúru sem finna má í grenndinni. Greinarhöfundur skrifar mjög jákvætt um þær upplifanir sem ferðamenn mega búast við ef þeir heimsækja Húsafell. Um er að ræða einstaklega mikilvæga landkynningu og viðurkenningu fyrir Húsafell sem áfangastað. -arg

Hlutur ferðaþjónustu eykst LANDIÐ: Hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu nam 6,7% árið 2015 en til samanburðar var þetta hlutfall 5,6% árið 2014 og 4,9% árið 2013. Í frétt Hagstofunnar kemur fram að vaxtarhraði ferðaþjónustunnar, mældur sem aukning í hlutdeild landsframleiðslu milli ára, hefur aldrei mælst meiri en árið 2015. Sé horft aftur til ársins 2011 hefur vöxturinn verið örari með hverju árinu. Bráðabirgðatölur um áætlaða hlutdeild ferðaþjónustu í landsframleiðslu ársins 2016 verða birtar 4. október næstkomandi. -mm

Í Fjölbrautaskóla Snæfellinga er rekin starfsbraut fyrir nemendur sem hafa verið í námsverum eða í sérdeildum grunnskóla eða haft aðlagað námsefni. Nemendahópurinn er fjölbreyttur á Starfsbrautinni og er allt nám einstaklingsmiðað. Á öðru ári námsins hefja nemendur starfsnám utan skóla og fer það fram innan veggja vinnustaðar sem nemandinn velur í samráði við kennara sinn. Til að mynda fara nemendur tvisvar í viku í Samkaup Úrval og raða í hillur. Þá hafa þeir þrifið safnaðarheimili kirkjunnar einu sinni í viku, aðstoðað á leikskólanum, unnið í þvottahúsi Blossa, aðstoðað í íþróttahúsinu og hjá Íslenska gámafélaginu svo eitthvað sé nefnt. Þetta hefur reynst mjög vel og oft er þetta hápunktur vikunnar hjá nemendum Starfsbrautarinnar.

Jóhann Steinn Gunnarsson 19 ára nemandi Starfsbrautar FSN hafði í nógu að snúast við að raða brauði í hillur hjá Samkaup Úrval þegar fréttaritari Skessuhorns átti þar leið

hjá í gær. Hann gaf sér þó tíma til að líta aðeins frá brauðhillunum og gantast fyrir myndavélina áður en hann hélt starfi sínu áfram. tfk

Kirkjugarðsveggur í höndum hleðslumeistara Á liðnum misserum hefur verið unnið við stækkun kirkjugarðsins á Hvanneyri til austurs. Sóknarnefnd fól Unnsteini Elíassyni, hleðslumeistara frá Ferjubakka, að hlaða nýjan garðvegg. Bjarni Guðmundsson tók meðfylgjandi myndir og birti með þessari fallegu umsögn: „Unnsteinn er fágætur hagleiksmaður á grjót og er löngu þekktur fyrir yfrið vandaðar og eftir því fallegar steinhleðslur sínar. Er mesta undur að sjá hvernig hann fær mislagaða og óstýriláta steina til þess að falla í löð, líkt og þeir hafi aldrei átt annars staðar heima. Unnsteinn hefur þannig hafið gamalt handverk til mikils vegs og þróað það áfram með sínum hætti.“ Sjálfur kveðst Bjarni ekki kvíða því að leggjast þarna til hinstu hvílu þegar sá tími kemur. „Ef til vill fæ ég leg í þessum kirkjugarði, líklega get ég þá sagt eins og skagfirska góðskáldið: „....sæl verður gleymskan undir grasi þínu...“ Alla vega þykir mér einsýnt að garðsveggurinn til fóta verði bæði fallegur og traustur,“ skrifar Bjarni og bætir að endingu við: „Bak honum verður gott að signast morgunsól af austurfjöllum hvern bjartan dag.“ mm/ Ljósm. bg.

STYKKISH: Íslenska kalkþörungafélagið á Bíldudal hefur mikinn áhuga á að hefja vinnslu á þangi í Breiðafirði með aðstöðu í Stykkishólmi. Í tilynningu frá fyrirtækinu kemur fram að Einar Sveinn Ólafsson, sem áður gegndi stöðu framkvæmdastjóra fyrirtækisins á Bíldudal, hafi verið ráðinn í nýtt starf nýfjárfestingastjóra hjá írska móðurfélaginu Marigot. Verkefni hans verður að fylgja eftir þróunarverkefnum um vinnslu þangs í Stykkishólmi og á Súðavík. Í fyrstu mun Einar fylgja eftir verkefninu í Stykkishólmi og mun flytja í Hólminn á næstu mánuðum. Áhersla verður lögð á að starfsemin geti hafist innan fimm ára, en áður þarf að afla tilskilinna leyfa og tryggja starfsemi í sátt við umhverfið. Vonir standa til að starfsemin skapi fjölmörg störf í Stykkihólmi. -mm

„Grunur um aðskotahlut í spínati“ LANDIÐ: Matvælastofnun sendi um miðja síðustu viku frá sér tilkynningu með ofangreindri fyrirsögn. Þar segir að stofnunin hafi „fengið upplýsingar frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur um að Innnes ehf. hafi innkallað Azora spínat vegna gruns um aðskotahlut (húsamús).“ Þá segir að um sé að ræða innköllun í varúðarsjónarmiði með tilliti til neytendaverndar. Vöruheiti salatsins sem um ræðir er Azora spínat. Strikanúmer: 8436539071136 og 8436539070764. Framleiðslulands salatsins er Spánn og sölustaðir eru sagði út um allt land. Samkvæmt þessu er neytendum ráðlagt að kíkja á uppruna spænskættaðs salats sem það hugsanlega hefur keypt á síðustu dögum og leita sérstaklega eftir því hvort dauðar húsamýs sé að finna í því. -mm


Múlalundur | Vinnustofa SÍBS Reykjalundur | 270 Mosfellsbær mulalundur@mulalundur.is

Sími 562 8500 www.mulalundur.is

Fáðu góðar vörur á góðu verði og láttu gott af þér leiða - þá vinna allir! Þú pantar og við sendum til þín hvert á land sem er!

Öflugt starfsfólk á bláum degi á Múlalundi

Allt fyrir skrifstofuna Ritföng, pappír og skrifstofuvörur

Möppur af öllum stærðum og gerðum

Plastvasar og barmmerki Eins og henta þér best

Klemmuspjöld og verkstæðismöppur Einföld, tvöföld, lítil, stór eða sérhæfð með vasa fyrir bíllykla

Sendum frítt um allt land ef keypt er fyrir kr. 16.000 eða meira. Sendingargjald smærri pantana er kr. 2.150.

Fyrir hótel og veitingahús Matseðlar, hótelmöppur og lyklakippur fyrir gistiheimili og hótel

Plöstun Plöstum bækur, pakka og margt fleira

Handavinna Vantar þig að láta strikamerkja, pakka, plasta, brjóta, merkja eða annað?

Sérframleitt eftir þínu höfði Komdu með hugmynd - við finnum lausnina saman!

Kíktu á heimasíðu Múlalundar - mulalundur.is - Úrvalið kemur á óvart!


HO NDA CIV IC F RÁ K R. 3 .130.000

www.honda.is

Honda Civic er bíll sem er allt annað og meira. Hannaður sérstaklega fyrir þig. Hann endurspeglar metnað okkar fyrir tæknilegum yfirburðum. Skemmtilegur að keyra, öruggur, áreiðanlegur með pláss fyrir flest, þó sérstaklega – athygli! Fullkomin blanda af krafti, sparneytni og gæðum. Komdu í heimsókn og prófaðu meira af okkar besta til þessa.


NÝ OG FERSK HUGSUN FRÁ UPPHAFI TIL ENDA

Innnesvegi 1 • 300 Akranesi • Sími 431 1985


MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

10

Átelja svik um lækkun tryggingagjalds LANDIÐ: „Stjórn Félags ráðgjafarverkfræðinga lýsir yfir miklum vonbrigðum með að enn er tryggingagjald hér á landi of hátt og ekkert bólar á áformum um að lækka það þrátt fyrir að atvinnuleysið hafi nær horfið. Það eru gríðarleg vonbrigði að í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2017 skuli ekki sjást samkomulag stjórnvalda og Samtaka atvinnulífsins um lækkun tryggingagjalds í áföngum sem gert var í tengslum við gerð kjarasamninga á almennum markaði í byrjun árs 2016.“ Þá segir að samkomulagið hafi falið í sér lækkun tryggingagjalds um 0,5% á árinu 2016 og 0,5% á árinu 2017, sem síðan hafi ekkert orðið af. „Jafnframt var handsalað samkomulag við fjármálaráðherra um að stefnt skyldi að því að almenna tryggingagjaldið færi í fyrra horf, þ.e. í 4,5% á árinu 2018, enda skapi lækkun vaxtabyrði ríkissjóðs samhliða lækkun skulda ríkisins svigrúm til lækkunar gjaldsins. Það var sameiginlegur skilningur á að lækkun tryggingagjaldsins til fyrra horfs væri fyrirtækjum mikilvægt til að mæta miklum kostnaði við umsamdar launahækkanir og jöfnun lífeyrisréttinda án þess að raska efnahagslegum stöðugleika. Það lá ljóst fyrir að kjarasamningarnir myndu ganga mjög nærri getu fyrirtækja og að mótvægisaðgerðir stjórnvalda væru nauðsynlegar til að kostnaðaraukinn færi ekki að stórum hluta út í verðlag.“ -mm

Söfnuðu yfir 80 milljónum

VR vill uppfærslu persónuafsláttar í kröfugerð fyrir komandi samninga Nýverið samþykkti stjórn Verslunarmannafélags Reykjavíkur, stærsta stéttarfélags landsins, að markmið félagsins í komandi kjarasamningum verði að krefjast þess að lægstu laun verði gerð skattfrjáls. Það markmið ætti að nást með því að hækka persónuafslátt þannig að hann verði endurskoðaður til samræmis við launavísitölu frá árinu 1990 og þetta ákvæði verði sömuleiðis bundið í lög. „Stjórn VR beinir þeim tilmælum til stjórnvalda að endurskoða fjárhæð persónuafsláttar til samræmis við launavísitölu frá árinu 1990 í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2018. Í komandi kjarasamningum er mikilvægt að horft sé til framtíðar og launafólki verði tryggður stöðugleiki og raunveruleg kaupmáttaraukning. Mikilvægur þáttur í því er að festa með lögum að persónuafsláttur fylgi launavísitölu.“ Með því að persónuafsláttur verði hækkaður muni kaupmáttur lægstu launa og millitekjufólks hækka umtalsvert. „Hækkun persónuafsláttar verður ein af aðalkröfum félagsins fyrir komandi kjara-

samninga,“ segir í samþykkt stjórnar VR. Ekki þurfti lengi að bíða andsvara, en þau komu frá Samtökum atvinnulífsins, enda féll ríkisstjórnin skömmu eftir að stjórn VR hafði opinberað kröfugerð sína og ekki að vænta viðbragða úr þeirri átt. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, skrifaði grein í Markað Frétta-

blaðsins í síðustu viku og kvaðst afar skeptískur á möguleika þess að stjórnvöld gætu orðið við kröfu VR. Hann sagði m.a. að hugmyndir um að endurskoða fjárhæð persónuafsláttar til samræmis við þróun launavísitölu frá árinu 1990 myndu þýða tekjutap fyrir ríkissjóð upp á að lágmarki 130 milljarða króna á ári. Af þeirri fjárhæð færu um 74% til þeirra tekjuhærri. mm

Hjáleið vegna lokunar BORGARNES: Vegna framkvæmda við lagnir og þverun Borgarbrautar í Borgarnesi verður lokað fyrir umferð um götuna á móts við Borgarbraut 57-59 frá og með mánudeginum 2. október til og með föstudeginum 6. október nk. Verktaki í verkinu er Borgarverk ehf en verkið er unnið fyrir Veitur ohf og Rarik ohf. Hjáleið verður um Kveldúlfsgötu/Kjartansgötu á meðan á framkvæmdum stendur. „Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þessi lokun hefur í för með sér fyrir vegfarendur,“ segir í tilkynningu frá framkvæmdasviði sveitarfélagsins. -mm

Sjö þingmenn NV kjördæmis flytja frumvarp um vegagerð um Teigsskóg Sjö af átta þingmönnum Norðvesturkjördæmis, allir utan Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur VG, hyggjast leggja fram frumvarp á næstu dögum á Alþingi þess efnis að veita Vegagerðinni leyfi til framkvæmda á leið Þ-H á Vestfjarðarvegi (60), sem liggur um Teigsskóg í vestanverðum Þorskafirði. Þrátt fyrir að vera ekki meðflutningsmaður er Lilja Rafney engu að síður fylgjandi því að málið komist á rekspöl. „Samstaða er meðal allra þingmanna kjördæmisins að málið komist úr þeirri kyrrstöðu sem það hefur verið í og fái framgang í samræmi við matsskýrslu Vegagerðarinnar og álit Skipulagsstofnunar,“ segir Teitur Björn Einarsson alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, en hann hefur fyrir hönd þingmannanna sjö sent fjölmiðlum yfirlýsingu vegna þessa. „Ekki þarf að fjölyrða um brýna nauðsyn þess að ráðast í vegabætur á svæðinu sem um ræðir, enda ber gamli malarvegurinn um Gufudalssveit ekki lengur þá umferð sem um hann fer og skapar alvarlega hættu,“ segir Teitur Björn. „Óásættanleg töf hefur nú þegar orðið á málinu en það hefur nú velkst í kerfinu í tæp 15 ár.

Flutningsmenn telja ekki ásættanlegt að íbúar svæðisins þurfi lengur að líða fyrir þær miklu ógöngur sem leyfi til framkvæmda hefur þurft að feta. Það hefur varla verið vilji löggjafans að hægt sé að halda jafn brýnni samgöngubót í gíslingu flækjustigs stjórnsýslunnar í jafn langan tíma og raun ber vitni. Tafir á uppbyggingu Vestfjarðarvegar um Gufudalssveit eru án fordæmis og því getur veiting framkvæmdaleyfis með sérstökum lögum nú heldur ekki verið fordæmisgefandi. Tímabært er að umræða um rétt íbúa gegn svifaseinni stjórnsýslu eigi sér stað.“ Nú er staða málsins sú að öll efnisleg atriði liggja fyrir í nýju mati á umhverfisáhrifum og í áliti Skipulagsstofnunar. Búið er að taka tillit til margvíslegra athugasemda, draga verulega úr neikvæðum áhrifum framkvæmdarinnar á umhverfið og eldri ágreiningsefni um stjórnsýslumeðferðina heyra enn fremur sögunni til. En enn á ný eru tafir á framkvæmdum og snúa þær tafir að málsmeðferð er varðar veitingu framkvæmdaleyfis. Flutningsmenn frumvarpsins telja nauðsynlegt að löggjafinn grípi nú

um tauma í þeim tilgangi að koma í veg fyrir frekari tafir og flýta því eins og kostur er að framkvæmdir geti hafist. „Sveitarfélög á Vestfjörðum hafa á undanförnu sett fram sambærileg sjónarmið. Með veitingu framkvæmdaleyfis með lögum er verið að eyða óvissu um þann þátt málsins sem snýr að veitingu framkvæmdaleyfis samkvæmt gildandi lögum og fyrirbyggja þannig frekari tafir á þessari brýnu samgönguframkvæmd sem varðar ríka almannahagsmuni. Áréttað er í frumvarpinu að þrátt fyrir veitingu framkvæmdaleyfisins hefur viðkomandi sveitarfélag eftirlit með framkvæmdum samkvæmt ákvæðum skipulagslaga. Eins er gert ráð fyrir að Vegagerðin verði eftir sem áður að ljúka ákveðnum verkefnum áður en ráðist verður í framkvæmdir en þar er um að ræða rannsóknir Hafrannsóknastofnunar á botnsseti á leið Þ-H í Þorskafirði í samræmi við álit Skipulagsstofnunar og breyting á aðalskipulagi Reykhólahrepps vegna nýrra efnistökustaða,“ segir í yfirlýsingu þingmannanna sjö. mm

Aflatölur fyrir Vesturland dagana 16. - 22. september Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes: 2 bátar. Heildarlöndun: 12.839 kg. Mestur afli: Ebbi AK: 12.681 kg í tveimur löndunum. Arnarstapi: 1 bátur. Heildarlöndun: 372 kg. Mestur afli: Hansi MB: kg í 372 í einum róðri. Grundarfjörður: 7 bátar. Heildarlöndun: 238.330 kg. Mestur afli: Steinunn SF: 115.930 kg í tveimur löndunum. Ólafsvík: 9 bátar. Heildarlöndun: 104.950 kg. Mestur afli: Tryggvi Eðvarðs SH: 18.649 kg í fjórum róðrum. Rif: 9 bátar. Heildarlöndun: 72.906 kg. Mestur afli: Esjar SH: 15.563 kg í einni löndun.

RVK: Á laugardagskvöldið fór fram á RUV söfnunarþáttur til styrktar átakinu Á allra vörum, sem styður við rekstur og uppbyggingu Kvennaathvarfsins. Ríflega 80 milljónir söfnuðust, bæði með frjálsum framlögum og sölu á Á allra vörum, varasettum frá Benecos. „Við erum í skýjunum með árangurinn. Þetta þýðir að góður grundvöllur er nú fyrir byggingu húsnæðis þar sem konur og börn þeirra geta búið í allt að tvö ár meðan verið er að fóta sig aftur út í lífið,“ segir Elísabet Sveinsdóttir ein af þeim sem standa fyrir átakinu. -mm

Stykkishólmur: 5 bátar. Heildarlöndun: 91.656 kg. Mestur afli: Hannes Andrésson SH: 34.450 kg í fimm löndunum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Hringur SH - GRU: 64.094 kg. 19. september. 2. Steinunn SF - GRU: 59.612 kg. 20. september. 3. Steinunn SF - GRU: 56.318 kg. 17. september. 4. Helgi SH - GRU: 45.584 kg. 18. september. 5. Esjar SH - RIF: 15.563 kg. 20. september. -kgk

Teigsskógur. Á þessari teikningu sést fyrirhuguð Þ-H leið.


Við hjálpum þér að fylla í eyðurnar

Hvort sem þig vantar sérhæfða iðnaðarmenn, málara, rafvirkja, þúsundþjalasmið til lengri tíma eða handlangara til skemmri tíma, þá höfum við hendur í verkið. ELJA útvegar þér þann fjölda starfsmanna sem þú þarft — eins lengi og verkefni þín krefjast. Láttu okkur ráða.

Láttu okkur ráða Elja starfsmannaþjónusta 4 150 140 elja.is elja@elja.is


MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

12

Tveir selkópar komnir í fóstur í Búðardal Svavar Garðarsson hefur verið ötull við sjálfboðaliðastörf hjá Dalabyggð með það að markmiði að bæta ásýnd Búðardals. Nýjasta verkefnið hans er þó af allt öðrum toga en með heimild frá Dalabyggð hefur Svavar gert samkomulag við Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í Reykjavík um að fóstra tvo selkópa fyrir garðinn tímabundið í aðstöðu við höfnina í Búðardal. Kóparnir komu í gær í Búðardal og una sér vel, taka meðal annars fóðri og skoða sig um í nýjum heimkynnum. Við höfnina hefur Svavar útbúið tjörn á afgirtu svæði auk þess sem hann hefur aðgang að geymslurými að Ægisbraut 2. Samkvæmt fundargerð byggðarráðs 12. september síðastliðinn er það von aðila að með tímanum fáist leyfi til sleppingar kópanna og að í framhaldinu verði byggð upp þekking og aðstaða í Búðardal til aðlögunar og sleppinga sela sem verið hafa í haldi af einhverjum ástæðum. Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar hefur fyrir sitt leyti samþykkt leyfið til 1. maí 2018. sm

Selirnir una sér vel í nýjum heimkynnum.

Þessi lék sér í smástund með fiskinn en át hann svo.

Tjörnin og aðstaðan sem selirnir hafa er prýðileg.

Kjörstjórn Norðvesturkjördæmis auglýsir eftir framboðum á framboðslista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi Um leið við sendum okkar óskir fyrirog alþingiskosningarnar 28.bestu október 2017um

gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári, Þeir flokksmenn sem hafa hug á því að taka sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í kjördæminu fyrir alþingiskosningarnar skulu viljum við þakka kærlega fyrir stuðning og senda kjörstjórn skriflega kynningu þar sem frambjóðendur kynna aðstoð áhelstu árinu sem er auk aðþess líða. sig og gera grein fyrir baráttumálum að tilgreina hvaða sætum á lista sóst er eftir. Kynningunni skal fylgja ljósmynd.

Með Með framboðstilkynningu skal kveðju fylgja meðmælendalisti með að lágmarki 10 og eða hámarki með 20 flokksbundnum FramsóknarGunnar Bragi Sveinsson, mönnum. Framboðsfrestur er til kl. 12.00 á hádegi sunnudaginn 1. októberÁsmundur nk. Einar Daðason,

Lára Arnardóttir og FramboðumElsa skal skilað á netfangið: gudmundur.p.jonsson@gmail.com. Jóhanna María Sigmundsdóttir

SKESSUHORN 2017

Tvöfalt kjördæmisþing Norðvesturkjördæmis verður haldið á Bifröst í Borgarbyggð sunnudaginn 8. október 2017 kl. 11:00.

FRAMSÓKNARFLOKKURINN

Komið með selina í Búðardal.

Sauðburður í september Alla jafnan er vorið tími sauðburðar til sveita, þegar grundirnar gróa og lömbin sér una um blómgaða bala. Haustið, aftur á móti, er sá tími þegar kindur og lömb eru sótt af fjalli eftir sumardvöl fram til heiða og upp til dala. Stöku sinnum kemur þó fyrir að einstaka ær fresti sauðburðinum fram á haustið. Sú var einmitt raunin á Kambi í Reykhólasveit nú í byrjun vikunnar. Á sunnudag ráku Karl Kristjánsson og Svanborg Guðbjörnsdóttir lamblausa á inn í tún. Ærin var geld í vor en bar óvænt tveimur lömbum, hrút og gimbur, á mánudagsmorguninn. Líklegast er að hún hafi fengið í byrjun maí, eftir að hún var sett í girðingu með hrútunum ásamt öðrum geldum ám. kgk

Kindin bar óvænt hrút og gimbur að morgni síðasta mánudags. Ljósm. Svanborg Guðbjörnsdóttir.

Nýir rekstraraðilar í Munaðarnesi MS Búðardal – nám í mjólkuriðn Nám í mjólkuriðn er iðnnám og tekur 3 ár. Bóklegi hluti námsins fer fram í Danmörku. Gert er ráð fyrir að viðkomandi starfi hjá MS Búðardal að námi loknu, og verði hluti af stjórnunarteymi. MS Búðardal framleiðir aðallega osta og fer framleiðslan ört vaxandi. Allar nánari upplýsingar veitir Lúðvík Hermannsson rekstrarstjóri í síma 664-1641 eða ludvikh@ms.is og Elísabet Svansdóttir á elisabets@ms.is Hjá MS starfa rúmlega 400 starfsmenn á 5 starfsstöðvum, þ.e. Reykjavík, Búðardal, Akureyri, Egilsstöðum og á Selfossi.

MS Búðardal framleiðir m.a. Dala-Feta og Dalaosta Gott handbragð úr Dölunum.

SKESSUHORN 2017

Mjólkursamsalan ehf. í Búðardal óskar að ráða starfsmann sem hefur áhuga á að stunda nám í mjólkuriðn.

Ragnar Jakob Kristinsson og Sigurður Karlsson hafa látið af störfum í Munaðarnesi eftir að hafa verið staðarhaldarar þar í rúmlega tvö ár. Nú hafa vinahjón þeirra, Elín Arna Arnardóttir Hannam og Ólafur Haukur Ólafsson tekið við keflinu. „Núna erum við að taka staðinn í gegn og gera þetta að okkar,“ segir Elín Arna þegar blaðamaður heyrði í henni í gær. „Við tókum við 1. september en höfum ekki tekið ákvörðun um hvenær við opnum. Við stefnum á að hafa jólahlaðborð og svo gæti vel farið svo að við gerum eitthvað meira í vetur, það verður bara að koma í ljós. Mögulega opnum við ekki fyrr en næsta vor,“ segir Elín Arna. „Það eru ekki fyrirhugaðar neinar stórar breytingar á staðnum eins og er og verður þetta líklega með svipuðu sniði og verið hefur. Yfir veturinn stefnum við á að hér verði hægt að hafa veislur, ráðstefnur og þess háttar og á sumrin verðum við með veitingasölu. Við þjónustum nokkur sumarhús og erum með hostel, sem við gætum þó hugsanlega breytt í

Ólafur Haukur Ólafsson og Elín Arna Arnardóttir Hannam tóku við rekstri í Munaðarnesi þann 1. september. Ljósm. Facebook.

smáíbúðir, en það er ekkert ákveðið,“ bætir Elín Arna við. „Vinir okkar voru að reka þetta en voru að hætta svo við ákváðum að sækja um. Þetta hentar okkur vel og við erum mjög spennt fyrir þessu verkefni,“ segir Elín Arna aðspurð hvað hafi orðið til þess að þau

Ólafur Haukur ákváðu að taka þetta verkefni að sér. „Við erum með fyrirtæki í bænum og eigum hús þar svo ég geri ráð fyrir að við verðum svona fram og til baka en þetta á allt eftir að koma betur í ljós, við erum svo nýlega búin að taka við þessu,“ segir hún. arg


REXTON – ALVÖRU JEPPI! 7 manna 2,6 t dráttargeta

Hlaðinn búnaði

Fjórhjóladrifinn Byggður á grind

Millikassi með læsingu og lágu drifi

VERÐ FRÁ:

4.990.000 KR.

GERÐU SAMANBURÐ Á VERÐI OG BÚNAÐI Verið velkomin í reynsluakstur! Reykjavík Tangarhöfða 8 Sími: 590 2000

Reykjanesbær Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330

benni.is. Bílaríki, Akureyri Glerárgötu 36 Sími: 461 3636

Opið: Virka daga frá 9:00 til 18:00 Laugardag frá 12:00 til 16:00

Bíllinn í þessari auglýsingu endurspeglar ekki endilega það verð og þann búnað sem tilgreindur er. Allar upplýsingar eru birtar með fyrirvara um villur.


MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

14

Búið að malbika fyrsta áfanga Vesturgötu Endurgerð Vesturgötu á Akranesi, milli Stillholts og Merkigerðis, hefur verið eitt stærsta verkefni Akraneskaupstaðar á þessu ári. Vegna umfangs verksins var því skipt upp í tvo áfanga en er komið langt á leið, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Akraneskaupstaðar. Malbikun fyrsta áfanga lauk síðastliðinn mánudag, 25. september og áætlað er að ljúka gerð gangstétta í sama áfanga 18. október næstkomandi. Malbikun annars áfanga á síðan að vera lokið 26. október og áætlað er að gangstéttir í síðari áfanga verði tilbúnar 10. nóvember. Nokkrar tafir hafa orðið á verkinu miðað við upphaflegar áætlanir. Undir lok ágústmánaðar ræddi Skessuhorn við Guðmund Guðjónsson, eiganda Skóflunnar hf. sem sér um verkið. Hann sagði tafir eiga sér eðlilegar skýring-

Svona leit fyrsti áfangi út fyrir helgi, milli Stillholts og Háholts.

Fyrsti áfangi Vesturgötu var malbikaður á á mánudaginn. Horft frá horni Háholts í átt að Stillholti.

ar. „Það hefur verið nokkur magnaukning á verkinu, m.a. með fleiri lögnum og ýmsar breytingar hafa orðið á verkinu meðan á því stóð. Klöppin í götunni er til að mynda

megni reynt að bregðast við breytingum í verkinu með lengri vinnudögum og vinnuviku. Á einhverjum tímapunkti eigi óvissuþættir verksins síðan að vera að baki og

fimmfalt meiri en búist var við. Þegar unnið er í eldri hverfum er eðlilegt að það komi upp ófyrirséð vandamál,“ sagði Guðmundur. Verktaki hefur eftir fremsta

því gert ráð fyrir því að tímaáætlun verksins komi til með að standast í meginatriðum. kgk

Íbúðarhús úr krosslímdum viði risið á Akranesi Hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi Um þessar mundir er í byggingu fyrsta íbúðarhúsið á Íslandi, svo vitað sé, sem byggt er alfarið úr krosslímdum timbureiningum. Um er að ræða parhús á tveimur hæðum við Seljuskóga á Akranesi. Hvor íbúðin um sig rétt tæpir 200 fermetrar að stærð. Það eru þeir Bjarni Ingi Björnsson og Jón Þór Jónsson sem byggja húsið. Skessuhorn hitti Bjarna Inga að máli síðastliðinn fimmtudag og ræddi við hann um bygginguna. „Húsið er smíðað úr krossviðareinginum sem eru framleiddar í Austurríki af fyrirtækinu Binderholz og fluttar inn af Strúktúr ehf. Einingarnar eru léttar og meðfærilegar og því hefur gengið mjög hratt að byggja,“ segir hann. „Fyrsta skóflustungan var tekin með handskóflu 19. júlí og svo var byrjað að byggja í ágúst. Fyrst var steypt gólfplata og síðan slegið upp flekum og kjallari steyptur. Seinni part miðvikudagsins í síðustu viku [13. september, innsk.] kom Óli Þórðar á kranabíl frá ÞÞÞ og fyrstu einingarnar voru hífðar á sinn stað. Morguninn eftir var byrjað að reisa á fullu og við vorum búnir að reisa á fimm virkum dögum,“ segir hann. Smiðirnir Sturla og Fannar Magnússynir sjá um smíði hússins fyrir þá félaga Bjarna og Jón. Á meðan reisningunni stóð kom maður frá Binderholz og leiðbeindi smiðunum við byggingu krossviðarhúsa frá fyrirtækinu. Sturla lætur afar vel af þessari byggingaraðferð. „Þetta er algjör snilld. Efnið gott og meðfærilegt sem gerir það fljótlegt í uppsetningu. Allt er einangrað utan frá og maður þarf aldrei að einangra upp fyrir sig. Öll eftirvinna er þægileg og verður snyrtilegri fyrir vikið,“ segir Sturla. „Svo er þetta bara svo skemmtilegt. Þetta er eiginlega draumur trésmiðsins, að fá loksins að byggja hús úr viði,“ bætir hann við.

an undra að framkvæmdin hafi vakið töluverða athygli vegfarenda á Akranesi á framkvæmdatímanum. „Það er búinn að vera stöðugur straumur gesta eftir að við byrjuðum að reisa. Fólk er forvitið um þessa nýjung, sem eðlilegt er. Flestir, ef ekki allir, iðnaðarmenn á Akranesi hafa komið við hjá okkur og síðan haldið uppi mjög virku eftirliti með framkvæmdinni,“ segir Bjarni léttur í bragði.

Virkt eftirlit

Spurður hvernig þeim datt í hug að reisa íbúðarhús úr krossviði segir Bjarni að Jón hafi átt hugmyndina að því. „Jón var staddur á byggingarsýningu í München í Þýskalandi í fyrra og þar kemst hann í fyrsta sinn í kynni við þessar einingar, á sýningarbásnum hjá Binderholz. Það var reyndar á þessari sömu sýningu

Sem fyrr segir er parhúsið á Seljuskógum fyrsta íbúðarhúsið á Íslandi sem byggt er úr krossviðareiningum. Bjarni man eftir tveimur húsum á landinu sem eru byggð úr sama efni; Hótel á Hnappavöllum og Lava Centre á Hvolsvelli. Því skyldi eng-

sem Ingólfur Sigþórsson hjá Strúktur, sem flytur einingarnar inn, rakst á þetta í fyrsta skipti,“ segir Bjarni. „Jóni fannst þetta strax mjög sniðugt en ég skal alveg viðurkenna að mér leist ekkert á þetta í fyrstu,“ bætir Bjarni við og brosir. „Upphaflega ætluðum við að byggja úr forsteyptum einingum og ég vildi bara að við héldum okkur við þær áætlanir. En eftir að hafa farið út til Austurríkis,

Parhús Bjarna og Jóns við Seljuskóga á Akranesi er fyrsta íbúðarhúsið á Íslandi sem eingöngu er byggt úr krosslímdum viðareiningum.

Sturla Magnússon smiður vopnaður límbandi.

Félagarnir Bjarni Ingi Björnsson og Jón Þór Jónsson tóku fyrstu skóflustunguna seinni hluta júlímánaðar. Í síðustu viku var húsið risið.

Sáu einingarnar á sýningu í Þýskalandi

skoðað verksmiðjuna hjá Binderholz og nokkur hús sem eru byggð úr svona einingum þá snerist mér hugur. Eftir ferðina var aldrei spurning í mínum huga að fara þessa leið.“

Ódýrara en að staðsteypa Bjarni segir að með því að byggja úr krossviði sé hægt að ná kostnaðinum töluvert niður. „Þetta er tölu-

Sáttir og sælir að lokinni reisningu í síðustu viku.

vert ódýrara en hefðbundið staðsteypt hús og ég mæli hiklaust með því að fólk kynni sér krossviðareiningar ef það ætlar að byggja sjálft,“ segir hann. Aðspurður kveðst hann ekki vilja skjóta á neinar tölur en telur víst að fólk geti sparað sér nokkrar milljónir í heildarkostnað við byggingu á einbýlis- eða parhúsi, miðað við aðrar byggingaraðferðir. „Ég myndi því telja þetta raunhæfan kost sem fólk ætti að kanna ef það er í byggingarhugleiðingum.

Þetta er talsvert ódýrara og munar gríðarlega í byggingartíma,“ segir hann. Og hvenær er stefnt að því að byggingu hússins ljúki? „Jón ætlar að flytja inn um páskana en ég og konan mín stefnum að því að flytja inn í desember. Miðað við hvernig gengur held ég að það sé alveg raunhæft. En það verður bara að koma í ljós hvort það gengur eftir,“ segir Bjarni Ingi Björnsson að endingu. kgk


Matarauรฐur Vesturlands


16

Matarauður

MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

Matarauður Vesturlands

Matarauður Íslands Við njótum þeirrar gæfu að búa við matarauð sem byggir á dýrmætri frumkvöðulshefð sem gengið hefur kynslóða á milli. Tilgangur Matarauðs Íslands er að nýta matarauðinn okkar sem sóknarfæri til frekari verðmætasköpunar t.d. í tengslum við matarferðaþjónustu, vöruþróun og ímyndaruppbyggingu með sjálfbærni að leiðarljósi. Ætlunin er að draga Íslendinga og erlenda gesti að hlaðborði íslenskra krása, upplýsa um hollustu og heilnæmi þeirra og tefla fram sögu Íslendinga sem birtist í matarmenningu og hefðum. Matarhefðir, rétt eins og tungumál og trúarbrögð, spegla sérkenni hverrar þjóðar og eru samofin náttúru og tíðarfari. Þessi hefð í bland við aukna þekkingu og skapandi hugsun hefur leitt af sér úrval matar á heimsmælikvarða. Matarauður Íslands er verkefni sem heyrir undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og er ætlað að ljúka í desember 2021. Sjávarútvegs- og landbúnaðarvörur eru undirstaða Íslands sem matvælalands og gegna stóru hlutverki í sjálfbærri þróun. Án matar væri ekkert líf og eigum við bændum og sjómönnum mikið að þakka að brauðfæða þjóðina. Mikilvægi norðurslóða sem matvælauppspretta mun aukast á komandi árum og því er mikilvægt að við hlúum að þeim skilyrðum og auðlindum sem við búum við. Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) telur að landbúnaðarframleiðslan verði að aukast um 60% á heimsvísu til að fæða jarðarbúa árið 2050. Sem þjóð er mikilvægt að búa að fjölbreyttu mannlífi og byggð um land allt og til að stuðla að atvinnuþróun vilja stjórnvöld vinna

þvert á greinar tengdum matarauði okkar því að samvinna og þekkingaryfirfærsla eru drifkraftar nýsköpunar og framþróunar. Til að mynda hefur verkefnastjóri Matarauðs Vesturlands ásamt verkefnastjóra áfangastaðaáætlunar Vesturlands unnið að kortlagningu tækifæra og áskorana með Matarauði Íslands. Er nokkuð víst að metnaðarfull verkefni munu fæðast upp úr því samstarfi. Matur er öflugt markaðsafl og mikilvægt að nýta aukinn áhuga á matarferðaþjónustu með því að setja meiri slagkraft í uppbyggingu og markaðssetningu þeirra matarsérstöðu sem hver landshluti býr yfir. Ef gert er ráð fyrir að tvær milljónir erlendra ferðamanna sæki Ísland heim og hver dvelur að meðaltali í sjö daga og borðar tvisvar á dag má reikna með að daglega bætast 77.000 máltíðir við neyslu Íslendinga. Orðræðan um íslensk matvæli þarf að hverfast meira um stolt og þekkingu. Verð og gæði þurfa að haldast í hendur og bregðast þarf við aukinni gæða- og umhverfisvitund neytenda í matvörum. Aukin krafa er um lífræna ræktun, rekjanleika og upprunavottun og meiri ásókn er í svæðisbundin matvæli sem gefa af sér minna sótspor. Við njótum öll góðs af því að deila reynslu, þekkingu og sögum hvert með öðru og sameiginlega styrkjum við ímynd íslensks matar og matarmenningar. Matarauðurinn er okkar, okkur að góðu. Brynja Laxdal, verkefnastjóri (Erum á Facebook og Instagram og fljótlega fer vefurinn okkar í loftið).

Matarauður Vesturlands Matarauður Vesturlands

Á myndinni er brot af úrvali matar af Vesturlandi. Meðal annars ærkjöt frá Ytra-Hólmi I, þorskur frá G.Run í Grundarfirði, kræklingur og þang frá Bláskel í Stykkishólmi, smágúrkur frá Laugalandi, salat og jarðarber frá Sólbyrgi, lífrænt súrdeigsbrauð frá Matarbúri Kaju, bygg frá Ásgarði og sitthvað fleira. Um matseld sá veitingastaðurinn Galitó á Akranesi en hönnun og framsetningu Emilía Ottesen og Guðbjörg Ólafsdóttir. Gefið út í samstarfi Skessuhorns og verkefnisstjórnar Matarauðs Vesturlands / Sóknaráætlunar Vesturlands. Ábm. Signý Óskarsdóttir verkefnisstjóri. Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson.

Mikil umræða hefur verið á Vesturlandi, líkt og í öðrum landshlutum, um að efla matvælaframleiðslu og þá sérstaklega framleiðslu minni framleiðenda sem oftar en ekki tengist ferðaþjónustu á svæðinu. Verkefnið hefur sterka tengingu við Sóknaráætlun Vesturlands og sett markmið eru í takt við áætlunina og þá framtíðarsýn Vestlendinga sem Sóknaráætlun endurspeglar. Markmið Matarauðs Vesturlands eru að; • efla matvælaframleiðslu, • fullvinnslu hráefnis í héraði, • sölu beint frá býli, • hráefnisnotkun úr heimahéraði á veitingastöðum og • matartengda upplifun á Vesturlandi. Vinna að ofangreindum markmiðum er í gangi og hefur verkefnastjóri Matarauðs Vesturlands ásamt verkefnastjóra áfangastaðaáætlunar Vesturlands og Matarauði Íslands, unnið að kortlagningu tækifæra og áskorana

á Vesturlandi. Sú vinna mun halda áfram með heimsóknum til framleiðenda og veitingahúsa á Vesturlandi fram á haust. En við látum ekki þar við sitja. Matarauður Vesturlands

stendur fyrir viðburðum og stefnumóti ásamt fræðslu og samvinnu við ýmsa opinbera aðila til að vinna að settum markmiðum í vetur. Þú ert að lesa blað sem er liður í því að sýna hvað er í boði af mat og matartengdri upplifun á Vesturlandi. Hér eru því engan veginn gerð tæmandi skil, en efnistök blaðsins eru fjölbreytt og safarík eins og matarauðurinn okkar. Nýttu tækifærið og njóttu kræsinganna og þeirra viðburða sem í boði verða og eru kynntir í blaðinu. Við hvetjum þig til að geyma blaðið og smjatta á innihaldinu út októbermánuð eða eins lengi og þig lystir. Ef þú villt vita meira um verkefnið Matarauður Vesturlands þá er hægt að lesa um það á heimasíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi undir ahersluverkefni.ssv.is Með góðri kveðju fyrir hönd verkefnisstjórnar, Signý Óskarsdóttir

Heimasíða Matarauðs Vesturlands Heimasíða Matarauðs Vesturlands fer í loftið í lok árs og á þeirri síðu verður hægt að markaðssetja matarmenningu og matarupplifun á Vesturlandi. Einnig verða á þeirri síðu upplýsingar um matarmarkaði og viðburði sem tengjast á einhvern hátt mat úr héraði. Öllum sem tengjast matvælaframleiðslu, fullvinnslu hráefnis í héraði, sölu beint frá býli, hráefnisnotkun úr heimahéraði á veitingastöðum og matartengdri upplifun á Vesturlandi er boðið að vera með á síðunni. Heimasíðan kemur til með að efla markaðssetningu á vörum úr héraði og mun haldast í hendur við markaðssetningu Matarauðs Íslands.

Við Samkomuhúsið á Arnarstapa.

Sóknaráætlun Vesturlands Í febrúar 2015 skrifuðu Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi undir samning við stjórnvöld um Sóknaráætlun Vesturlands fyrir árin 2015-2019. Markmið sóknaráætlunar er að ráðstafa þeim fjármunum sem varið er af ríkinu til atvinnu-, byggða- og menningarmála á Vesturlandi í samræmi við stefnu sem landshlutinn mótar sjálfur á þessum sviðum. Sóknaráætlun á að stuðla að jákvæðri samfélagsþróun, treysta stoðir menningar og auka samkeppnishæfni Vesturlands. Vinnan við sóknaráætlun er þríþætt; að móta framtíðarsýn, markmið og aðgerðir fyrir Vesturland sem ráðstöfun fjármuna tekur mið af, að setja upp uppbyggingarsjóð sem styður við nýsköpun í atvinnulífi og menningarmálum og að skilgreina áhersluverkefni fyrir Vesturland sem endurspegla framtíðarsýnina og markmiðin. Framtíðarsýn Vestlendinga er grunnurinn í sóknaráætlun, sem öll önnur verkefni byggja á. Sýnin er útfærð með markmiðum og aðgerðaráætlun. Kjarninn í þeirri sýn sem unnið er eftir, og stefnu sóknaráætlunar í heild sinni, eru áherslur sem komu fram á stórum fundi sem haldinn var í

Hjálmakletti í Borgarnesi vorið 2015. Tæplega 100 aðilar á Vesturlandi, frá öllum sveitarfélögum og úr hinum ýmsu starfsgreinum komu að mótun stefnunnar. Verkefnið „Matarauður Vesturlands“ sem sérstaklega er kynnt í þessu blaði er eitt af fimm áhersluverkefnum sem unnið er að á árinu 2017. Hin verkefnin eru; • Nýsköpun, frumkvöðlar og tækninám • Efling ferðaþjónustu • Samstarf og markaðssetning safna á Vesturlandi • Ungmennaþing Öll eiga þessi verkefni sér grunn í aðgerðaráætlun Sóknaráætlunar Vesturlands og eru í raun ákveðin útfærsla á þeim aðgerðum sem Vestlendingar

telja mikilvægar til þess að stuðla að jákvæðri samfélagsþróun og aukinni samkeppnishæfni. Uppbyggingarsjóður Vesturlands sem er þriðja stoð sóknaráætlunar hefur starfað frá því vorið 2015. Sjóðurinn úthlutar styrkjum til verkefna sem lúta að nýsköpun í atvinnumálum og eflingu menningarlífs á Vesturlandi. Sjóðurinn hefur úthlutað um 160 m.kr. til á þriðja hundrað verkefna frá stofnun. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi halda utan um rekstur Sóknaráætlunar Vesturlands, en samráðsvettvangur Vesturlands sem í sitja 30 aðilar vítt og breytt úr landshlutanum eru ráðgjafandi varðandi áætlunina og val á áhersluverkefnum. Páll S Brynjarsson.


GRÆNKÁL Blandið saman raspi og safa úr 1/2 sítrónu, 2 msk. ólífuolíu, salti og pipar. Veltið með grænkálinu og látið bíða í 5 mín. Grillið þar til kálið er QTÌKÌ UVÒMMV

Grillaðu grænmeti eins og meistari með hjálp myndbandanna okkar á islenskt.is


18

Matarauður

MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

„Það geta allir eldað ef þeim er bara kennt það“ Rúnar Marvinsson tók vel á móti blaðamanni á heimili sínu á Hellissandi á dögunum. Rúnar var ungur þegar hann byrjaði að grúska í matargerð og segir að í dag sé fátt, ef eitthvað, sem gæti komið honum á óvart í þeim efnum. „Amma mín var kokkur í mötuneyti fyrir verkamenn og hún tók mig stundum með sér í vinnuna. Þá byrjaði ég svona að væflast um eldhúsið og umgangast áhöldin og matinn,“ segir Rúnar. „Mér finnst við ekki nógu dugleg að kenna börnum í dag að elda og bjarga sér í matargerð. Við erum of dugleg við að kaupa tilbúinn mat, fullan af aukaefnum og rusli, til að gefa þeim. Fólk ætti frekar að gefa sér tíma í að útbúa matinn sjálft og þá læra börnin það líka. Það geta allir eldað ef þeim er bara kennt það. Allir eru bara of uppteknir við að vinna, til að afla meiri peninga en þörf er á og enginn hefur tíma til að hugsa um hvað er látið ofan í sig. Það endar með að fólk verður orðið heilsulaust en með nóg af peningum og óþarfa hlutum,“ segir Rúnar sem án efa er einn þekktasti kokkur landsins og þá ekki síst fyrir það þor sem hann hefur sýnt með að feta ótroðnar slóðir.

Smærri sláturhús og vinnslur Lambakjötið er ofarlega í huga Rúnars um þessar mundir og telur

hann að nú sé tími til að taka skref afturábak hvað varðar framleiðslu og sölu á því. „Nú eru allir með í maganum yfir framleiðslu lambakjötsins og kjaraskerðingu bænda. Ég held að við gætum stórlega lagað þetta ástand með því að breyta aðeins til,“ segir Rúnar og bætir því við að hann telji það vera framtíðina að hafa fleiri smærri sláturhús í stað þessara stóru. „Hvað er eðlilegt við að senda féð á milli landshluta til slátrunar? Ég held að það þurfi bara að taka skref aftur hvað þetta varðar, stokka þetta allt og gefa upp á nýtt. Jafnvel að bændur komi bara sjálfir upp sinni eigin sláturaðstöðu og þurfi ekki að borga hálfan skrokk til láta slátra á „réttum stað“ og láta svo geyma skrokkinn og geyma.“

Vill að við nýtum lambakjötið betur „Það er svo mikil tímaskekkja hvernig við erum að meðhöndla lambakjötið, við gætum nýtt það svo mikið betur. Ég get bara ekki skilið að á sama tíma og verið er að tala um offramleiðslu á lambakjötinu á Íslandi erum við að flytja inn matvöru, þar á meðal kjöt, í stórum stíl. Af hverju ætli maður sjái t.d. aldrei lambahakk í verslunum en þú getur keypt innflutt nautahakk,“ spyr hann. Rúnar telur það mun vænlegra að vinna lambaskrokk-

ana meira og nýta þá betur, jafnvel úrbeina skrokkana í heilu lagi. „Við erum alltaf að selja lambakjötið niðursagað en fólk kærir sig ekki um að kaupa bita sem eru lítið annað en fita og bein. Ef við myndum úrbeina og fituhreinsa kjötið betur gætum við gert það mun söluvænna. Fólk myndi mikið frekar vilja kaupa vöðvana í heilu lagi, annað mætti svo hakka. Beinin mætti líka selja sér, það er nefnilega vel hægt að nýta þau líka, t.d. í soð. Svo gætu líka allir lært að úrbeina sjálfir.“

Ofbýður allar þessar umbúðir

„Það er ekki nóg með hversu fáránlegt það er að við séum að flytja inn allt þetta óþarfa kjöt, heldur eru það líka allar þessar tilbúnu matvörur og allar umbúðirnar sem þær koma í. Eitt það einfaldasta sem hægt er að búa til er pizza en samt er fólk að kaupa tilbúnar frosnar pizzur sem eru fullar af aukaefnum og rusli. Og í þokkabót eru þessar tilbúnu vörur gjarnan innfluttar og pakkaðar í ofboðslegt magn af óumhverfisvænum umbúðum,“ segir Rúnar og bætir því við að við þurfum aðeins að fara að hugsa um allar umbúðirnar sem við erum að nota. „Væri ekki nær að taka sér örfáar mínútur í að hnoða í eina pizzu sem þú veist nákvæmlega hvað inniheldur frekar en að kaupa

Rúnar Marvinsson.

þetta rusl í myndskreyttum pappakassa frá Kína? Krakkarnir væru auk þess alltaf að búa sjálf til pizzu.“

Heiðarlegri gagnvart náttúrunni Rúnar hefur, eins og svo margir, miklar áhyggjur af öllu plastinu sem við notum og vonast til að fólk taki við sér og hugsi betur um náttúruna. „Ég get ekki ímyndað mér að þetta sé okkur hollt. Nú eru plastagnir farnar að finnast í drykkjarvatni og ég trúi ekki öðru en það sé slæmt fyrir heilsuna okkar, og dýranna,“ segir Rúnar. „Mér finnst vægast sagt skrítið að fólk sé að elda matinn sinn í plasti, það getur varla verið gott fyrir okkur. Þetta plast er fullt af óþverra sem smitast yfir í matinn okkar. Við þurfum aðeins

að fara að verða heiðarlegri, bæði gagnvart náttúrunni og okkar eigin heilsu og lífi, kynnast börnunum okkar og elda sjálf.“

Tíska í matargerð Aðspurður hvað hafi komið honum mest á óvart varðandi matargerð í gegnum tíðina segir Rúnar það vera fátt. Hann segir matargerð ganga í tískubylgjum. „Einn daginn er einhver matur mjög vinsæll en þann næsta vill kannski engin sjá hann. Fyrir ekki svo mörgum árum vildi fólk ekki sjá þorsk og allir borðuðu bara ýsu. Nú er alveg öfugt farið, ýsan er orðin annars flokks en þorskurinn þykir hinn fínasti matur og allir eru alltaf að borða þorskhnakka,“ segir Rúnar og hlær. arg

19. OKTÓBER 2017

STEFNUMÓT matarframleiðenda & veitingasala Þér er boðið á stefnumót matvælaframleiðenda og veitingahúsa á Vesturlandi 19. október frá kl. 13—16 í Hjálmakletti í Borgarnesi.

7XIJRYQzXMë IV LYKWEë XMP Eë I¾E XIRKWPERIX WEQXEP SK WEQZMRRY EëMPE WIQ ZMPNE I¾E QEXZ PEJVEQPIMëWPY JYPPZMRRWPY LVjIJRMW u LqVEëM W}PY FIMRX JVj FíPM LVjIJRMWRSXOYR

V LIMQELqVEëM j ZIMXMRKEWX}ëYQ SK QEXEVXIRKHE upplifun á Vesturlandi.

Å WXEëRYQ ZIVëE JYPPXV EV JVj 1EXuW ÈWPERHWWXSJY 0ERHF REëEVLjWOzPE ÈWPERHW SK EXZMRRYïVzYREVJqP}KYQ svo eitthvað sé nefnt. Einnig fáum við góða gesti sem FPjWE SOOYV u FVNzWX ZEVëERHM RíWO}TYR u QEX

skráning & upplýsingar hjá signy@creatrix.is

SÓKNARÁÆTLUN VESTURLANDS


VEISLA Á VESTURLANDI Í OKTÓBER

DAGSKRÁ Október er veislumánuður Matarauðs Vesturlands þá gefst öllum sem áhuga hafa tækifæri til að lyfta upp þeirri matarmenningu og framleiðslu sem nú þegar er til staðar hjá okkur á Vesturlandi. Allir íbúar Vesturlands og gestir eru hvattir til að sækja heim þá aðila og taka þátt í þeim viðburðum sem eru í boði í október. Kynnið ykkur dagskrána og hvað kraumar í pottunum í október! 3. október kl. 18.30 Ostanámskeið með áherslu á kind og geit.

3.

Bjúgnahátíð Haldin verður bjúgnahátíð í Langaholti

7. október Sauðamessusúpa í Skallagrímsgarði Borgarnesi kl. 14

14.

Athugið að skrá verður þátttöku fyrir mánudaginn 16. október.

21. október Fjölmenningarhátíð u *V]WXMOPIJERYQ u 6M½ ¯ %PïNzëPIK matarveisla á Vesturlandi

Upplýsingar og skráning hlediss@gmail.com Með fyrirvara um næga skráningu.

7.

19. október kl. 13 - 16 Stefnumót matarframleiðenda og veitingasala á Vesturlandi. Staðsetning Hjálmaklettur Borgarnesi

Sveitamarkaður Æðarodda Akranesi

29. október Matarmarkaður á Breiðabliki Matarframleiðendur af Snæfellsnesi selja vörur sínar frá kl. 13 – 17.

14. október Ljómalind býður upp á smakk

Vetrardagskrá

Mýranaut býður upp á grillað nautakjöt í Ljómalind Lágafell er með opið hús í ræktunarstöðinni á Snæfellsnesi frá kl. 13 -17 Gestum boðið að smakka afurðir og kíkja í gróðurhús. Ytri Hólmur opnar heimasölumarkað frá kl. 13 – 17. Allir velkomnir!

19.

21. 29.

Boðið verður upp á fræðslu og fundi fyrir matarframleiðendur og veitingafólk víða um Vesturland í vetur í samvinnu við Matarauð Íslands, Símenntunarmiðstöð Vesturlands, ,YKLIMQE 2íWO}TYREVQMëWX}ë ÈWPERHW 1EXuW SK ¾IMVM EëMPE (EKWOVj ZIXVEVMRW SK ¾IMVE WOIQQXMPIKX WIQ ZIVëYV j H}½RRM IV F ëM J]VMV JzPO u FVERWEREYQ SK SOOYV LMR WIQ L}JYQ FVIRRERHM jLYKE j JVEQPIMëWPY QEXEV u LqVEëM OKT > Stefnumót | NÓV > Fullvinnsla lambakjöts | JAN " 9RHMVF RMRKYV WXEVJWPI]½W FEB > Rekstur matarmarkaða / Umbúðir & merkingar | MAR > Að byggja upp matseðil APR > Markaðssetning matarupplifunar

îIWWM WXEëMV XEOE ïjXX u ZIMWPYRRM u SOXzFIV SK FNzëE ]OOYV WqVWXEOPIKE ZIPOSQMR Nánari lýsing á blaðsíðum 14 - 18. Bjarteyjarsandur Bjargarsteinn Breiðablik Brúarás Café Kaja Hótel Búðir Hreðavatnsskáli

Hraun Hraunsnef Hrísakot .Dê (PLO Landnámssetrið Langaholt Ljómalind

Lindarbrekka Lýsuhóll Narfeyrarstofa Matarlist Mýrarnaut 3UÒPXV NDê Rjúkandi

Ræktunarstöðin Lágafelli Sjávarpakkhúsið Viðvík Sauðfjárbúið Ytra Hólmi


20

Matarauður

MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

Matarverkstæði brátt opnað í Borgarnesi Unnið er að því að koma á fót aðstöðu fyrir fólk sem vill þróa vöru úr vestlensku hráefni. Ljómalind í Borgarnesi hefur tekið að sér skipulag og rekstur matarverkstæðis sem verður til húsa við Sólbakka 4 í Borgarnesi. Stefnt er að opnun í október.

Á Snæfellsnesi er menning og minjar sem tengjast sjónum, útgerð og sjósókn, allt frá landnámi til vorra daga. Þegar ferðast er um Snæfellsnes finnur maður líka mjög fyrir nálægð hafsins þar sem allsstaðar sést til sjávar. Ströndin er margbreytileg og seiðandi, þar sem skiptast á sendnar fjörur, klettar, sker og björg. Þar eru líka margar hafnir sem eru lífæð byggðanna. Á Snæfellsnesi er því margt áhugavert tengt sjónum, sem gaman er að sjá og skoða, fræðast um, upplifa og smakka. Veitingaaðilar á Snæfellsnesi eru duglegir að nýta sér aðgang að fjölbreyttu og fersku sjávarfangi og bjóða gjarnan upp á góða og girni-

lega sjávarrétti. Nú hafa nokkrir veitingaaðilar í samstarfi við Svæðisgarðinn Snæfellsnes, tekið sig saman um að gera „sjávarsúpuslóð“ (food trail) um Snæfellsnes. Þessir veitingastaðir bjóða allir upp á sjávarréttasúpu úr hráefni af heimaslóð. Sjávarréttasúpur sem eru í boði á veitingastöðum á Snæfellsnesi eru margbreytilegar og því getur það verið skemmtileg upplifun að ferðast á milli staða og gleðja bragðlaukana með því að borða mismunandi sjávarréttasúpur. Nú þegar hafa ellefu veitingaaðilar skráð sig á „sjávarsúpuslóðina,“ svo það er upplagt fyrir fólk að fara um Snæfellsnes,

Nánari upplýsingar um notkun og leyfisveitingar verða sendar út þegar aðstaðan verður tilbúin. Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Ljómalind í síma 437-1400 og með því að senda póst á ljomalind@ljomalind.is

skoða ýmsar menningaminjar sem tengjast sjósókn, upplifa náttúrufegurð í fersku sjávarlofti, smakka sjávarréttasúpur og njóta lífsins. Þeir veitingastaðir sem taka þátt í Sjávarsúpuslóðinni eru: Rjúkandi Langaholt Lýsuhóll Hótel Búðir Prímus kaffi Viðvík Hraun Bjargarsteinn Kaffi Emil Sjávarpakkhúsið Narfeyrarstofa.

Sveitamarkaður í Æðarodda um aðra helgi Laugardaginn 7. október næstkomandi verður slegið upp sveitamarkaði í Æðarodda, félagsheimili Hestamannafélagsins Dreyra á Akranesi. Eins og jafnan á sveitamörkuðum verður ýmiss konar varningur boðinn til sölu, allt frá

Diverse menu suitable for both families and fine diners.

Galito býður fjölbreyttann matseðil sem hefur að geyma spennandi rétti fyrir alla aldurshópa.

handverki til matar. Markaðurinn hefst kl. 13:00 og stendur til kl. 17:00. Áhugasömum er bent á að ekki verður posi á öllum básum markaðarins og gestum því ráðlagt að hafa reiðufé meðferðis. kgk

Akranesi | Stillholt 16-18 | Sími 430 6767 Við erum á Facebook & Youtube


Auður djúpúðga á Söguloftinu frumsýning 14. október nk. kl. 20:00 Í flutningi Vilborgar Davíðsdóttur

Sýnt verður í október og nóvember Fyrir starfsmannafélög og vinahópa; Á komandi vetri og fram á vor bjóðum við einnig upp á lauflétta The Beatles tónleika. Birgir Þórisson & Hlynur Ben fara á kostum.

Veitingahús Landnámsseturs nýtur mikilla vinsælda, bæði, innlendra sem og erlendra gesta. Sjá umsagnir á TripAdvisor

Upplagt er að panta kvöldverð í tengslum við sýningarnar. SKESSUHORN 2017

Alltaf gaman að koma á óvart og njóta samvista.

Alla daga, frá 11:30, bjóðum við upp á okkar gríðarvinsæla og holla hádegishlaðborð. Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Landnámsseturs, landnam.is. Miða- og borðapantanir í síma 437-1600 eða landnam@landnam.is. Landnámssetur Íslands, Brákarbraut 13 – 15, Borgarnesi Sími. 437 1600 • www.landnam.is


22

Matarauður

MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

Ræktar ávexti og grænmeti á Akranesi Jón Guðmundsson garðyrkjubóndi hefur ræktað epli í garðinum sínum á Akranesi um nokkurt skeið en nú hefur hann stækkað við sig. Fyrir rúmlega ári fékk hann úthlutað landi til leigu við Miðvogslæk, skammt utan við Akranes, til að setja upp garðyrkjustöð, þangað sem blaðamaður kíkti til hans í stutt spjall. „Hér er meiningin að vera með fjölbreytta ræktun og prófa nýja hluti. Þetta er nú óttalegt fikt í mér, ég er kominn með allskonar ávaxtatré og berjarunna sem ég ætla að prófa mig áfram með. En það er ekki hægt að vera eingöngu í svona fíflagangi svo ég er líka að rækta þetta hefðbundna; matjurtir, kartöflur, tré og grænmeti,“ segir Jón og hlær.

Ánægður með fyrstu uppskeruna Nú er fyrsta uppskera Jóns á nýja svæðinu öll að verða tilbúin og er hann mjög ánægður með afraksturinn. „Ég setti niður margar ólíkar tegundir af ávaxtatrjám og berjarunnum og mun svo bara sjá hvað virkar og hvað ekki. Ég er ánægður með fyrstu uppskeru, en trén eru öll óþroskuð ennþá og það tekur aðeins lengri tíma að sjá hvað komi til með að virka við þessar aðstæður. Grænmetið og matjurtirnar hafa vaxið mjög vel hér enda er þetta einstaklega góður jarðvegur,“ segir Jón og bætir því við að það sé misskilningur að ávextir vaxi einvörðungu í heitum löndum. „Eplin þurf aðeins um 12 gráðu meðalhita yfir sumartímann og það nær því oftast hér. Það

Fyrstu epli Jóns á Miðvogslæk við Akranes að verða klár.

Gojiberjarunni Jóns tekur vel við sér fyrsta sumarið, þó engin ber séu komin enn.

Jón Guðmundsson garðyrkjubóndi ræktar m.a. ávexti og ber á Akranesi.

er aftur á móti vindurinn sem spilar meira inní. Ef það er skjólgott á vel að vera hægt að rækta fjölbreyttara úrval ávaxta hér á landi,“ segir hann. Meðal þess sem Jón er að prófa sig áfram með eru ólíkar tegundir af eplatrjám, perutré, kirsuberjarunnar og gojiberjarunnar. „Þetta er að ég held í fyrsta skipti sem einhver reynir að rækta gojiber hér á landi, allavega í langan tíma. Ég er mjög ánægður með hvernig runnarnir eru að taka við sér fyrsta sumarið, þó það séu engin ber komin ennþá,“ segir Jón.

Reisti gróðurhús „Ég hef verið að fikta við ræktun í mörg ár og á ég nokkur mjög góð

eplatré sem hafa verið að gefa mjög vel af sér í nokkur ár. Þetta er fyrsta árið sem ég er að rækta og selja. Ég hef verið að selja í Matarbúri Kaju hér á Akranesi og svo var fyrsti veitingastaðurinn að koma inn, vonandi verða þeir svo fleiri,“ segir Jón. Í upphafi septembermánaðar reisti hann fyrsta gróðurhúsið við Miðvogslækinn. „Þetta hús er hugsað sem uppeldishús og vinnuaðstaða. Þarna ætla ég að sá nýjum plöntum og koma þeim upp áður en ég set þær niður hér fyrir utan,“ segir Jón. „Það er svo aldrei að vita nema seinna meir komi upp annað hús sem ég get notað fyrir frekari ræktun,“ bætir hann við að lokum. arg

Jón reisti gróðurhúsið við Miðvogslæk í byrjun þessa mánaðar.


VEISLUMATUR Á HEIMSMÆLIKVARÐA

Rómantísk helgi fyrir einstaklinga, skemmtiferð fyrir

Á Hótel Búðum leggjum við okkur fram við að

bjóða upp á matargerð sem treystir á fyrsta flokks vinahópinn eða hvataferð á vegum fyrirtækis – hráefni úr nærumhverfinu. Matseldin okkar byggir Hótel Búðir er staðurinn til að treysta sambandið og á „Beint frá býli“ og hún tryggir gæðin á matseðli Hótel Búða. Þannig reiðum við fram meistararétti á heimsmælikvarða sem gestir frá öllum

njóta þess besta. Kynntu þér möguleikana og bókaðu dvöl á Hótel Búðum í síma 435 6700 eða á hotelbudir.is – þar er

heimshornum kunna að meta og mæla með.

einnig að finna upplýsingar um gjafabréf okkar sem

Matseðillinn okkar bregður sér í villibráðarbúning í eru tilvalin fyrir einstaklinga, hvort heldur fyrirfram október og í hátíðarútgáfu í lok nóvember. Þess

ákveðin eða sérsniðin að þínum óskum.

vegna er tilvalið að gera sér dagamun, njóta lystisemda á Hótel Búðum og meðtaka kraftinn sem staðurinn býr yfir.

hotelbudir.is

hotelbudir

hotelbudir

KYNNTU ÞÉR ÚRVAL GJAFABRÉFA Á HOTELBUDIR.IS

budir@budir.is

+354 435 6700


24

Matarauður

MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

Einstakt mannlíf á matarmörkuðum Saga matarmarkaða nær langt aftur í tímann. Einn elsti matarmarkaður heims er Borough Market sem staðsettur er í miðbæ Lundúna. Hann hefur verið starfræktur í meira en þúsund ár. En þangað fóru íslenskir framleiðendur fyrir tveimur árum til að kynna, selja og segja frá sínum vörum. Þar á meðal voru tveir framleiðendur af Vesturlandi, Bjarteyjarsandur og Hundastapi, sem kynntu sína framleiðslu og um leið sögu og matarhefðir Íslands. Það er ekki löng hefð fyrir matarmörkuðum á Íslandi. Saga okkar í verslun og þjónustu inniheldur ekki blómlega tíma matarmarkaða. Hins vegar höfum við alltaf búið að góðum mat og skemmtilegum matarhefðum. Nú hefur orðið mikil vakning um gamlar matarhefðir. Fleiri og fleiri bændur hafa verið að selja hluta sinnar framleiðslu beint til neytenda. Einnig hefur smáframleiðendum með ýmsar matvörur fjölgað hratt á síðustu árum. Allt hefur þetta hjálpast að við að búa til frjóan jarðveg fyrir matarmarkaði.

Fátt sameinar fólk eins vel og matur Matarmarkaðir gefa neytendum möguleika á að nálgast einstakar vörur sem stundum eru nefndar matarhandverk og fást ekki í stórmörkuðum. Á matarmörkuðum geta neytendur komið sínum óskum á framfæri, sagt sína skoðun og kynnst framleiðendanum að baki vörunni. Þannig myndast gagnkvæmt traust milli kaupenda og seljanda. Framleiðendur hafa að sama skapi möguleika á að kanna hug neytenda gagnvart vörunni. Við erum að verða meðvitaðri sem neytendur og með auknu aðgengi að upplýsingum, þökk sé internetinu, getum við nú sjálf aflað okkur upplýsinga. Neytendur vilja í auknum mæli vita hvað stendur að baki vörunni. Ein fegursta leiðin er sala sem er beint frá frumframleiðenda til neytanda, það á oftast við á matarmörkuðum. En internetið vinnur ekki bara með neytendum. Í raun eru framleiðendur komnir með markaðstæki heim í stofu og allur heimurinn er undir. Á mörkuðum hafa framleiðendur tækifæri til að koma sínum áherslum á framfæri og hvað þeim finnst skipta máli í framleiðslunni. Framleiðandinn getur með þessum hætti líka tekið til sín fleiri hlekki úr virðiskeðjunni. Með því standa sjálfur að baki vörunni sinni og selja beint fær framleiðandinn meira fyrir sinn snúð. Það má segja að matur sé manns gaman og sést það vel á matarmörkuðum. Þar er samankominn fjöldi framleiðenda sem eru tilbúnir að standa stolt á bak við sína framleiðslu, segja frá því hvaðan varan er, hvernig hún var unnin og gefa þannig eitthvað

sérstakt til neytandans, sögu og sérstöðu. En þó að matarmarkaðir snúist í grunninn um samtal framleiðenda og neytenda er mannlífið ekki síður mikilvægur þáttur. Iðandi mannlíf og einstök stemning verður til á mörkuðum. Það verða alltaf til einhverjir töfrar á staðnum. Á Vesturlandi eru reglulega starfræktir matar- og handverksmarkaðir sem skipulagðir eru af heimafólki sem vill koma vöru sinni á framfæri. Dæmi um slíka markaði er sveitamarkaðurinn í Nesi í Reykholtsdal og sveitamarkaðurinn í félagsheimilinu Breiðabliki, en hann fagnaði einmitt tíu ára afmæli í sumar.

Nýjasta barn sveitamarkaðarins er verslunin Búsæld, sem selur mat og handverk. Þar gefst framleiðendum af öllu Snæfellsnesi kostur á að selja sínar vörur að uppfylltum gæðakröfum. Næstu skref verða vonandi heilsársrekstur á Búsæld með góðri kynningu framleiðenda og markaðssetningu varanna á nokkrum tungumálum. Næsti matarmarkaður verður haldinn sunnudaginn 29. október á Breiðabliki þar sem við fögum haustuppskerunni.

Afraksturinn meira en tífaldast

Greinarhöfundar hafa verið duglegir að þræða matarmarkaði á Vesturlandi í gegnum tíðina og það er gaman að sjá hve víða er nýsköpun og framþróun í framleiðslu á gæðamatvælum úr hreinu vestlensku hráefni. Matarauður Vesturlands vinnur að því að safna upplýsingum um alla matar- og handverksmarkaði á Vesturlandi með það að markmiði að búa til dagatal og kynningarefni fyrir 2018. Ef þú hefur upplýsingar um matar- og handverksmarkaði þá endilega sendu póst á okkur.

Markaðurinn á Breiðabliki spratt upp úr verkefninu Lifandi landbúnaður sem grasrótarhreyfing kvenna. Frá því fyrsti markaðurinn var haldinn, í grenjandi rigningu, hefur afraksturinn meira en tífaldast. Í upphafi þurfti að hafa mikið fyrir þátttöku framleiðenda á markaðnum en í dag rennur skipulagið ljúft og félagsheimilið er fullt af mat og handverki í hvert sinn. Stjórn markaðarins stendur vörð um gæði þeirra vara sem eru seldar á markaðnum. Kjarnahópur markaðarins telur um 30 framleiðendur og eru flestir þeirra kvenkyns. Á þessum tíu árum sem markaðurinn hefur verið að þróast hefur margt verið reynt og stundum hefur hreinlega verið slegið upp sveitahátíð í samstarfi við fyrirtæki og félög á Snæfellsnesi. Á Breiðabliki er vottað eldhús sem framleiðendur geta nýtt og hvetur það til nýsköpunar og vöruþróunar. Í takt við aukna umhverfisvitund er markaðurinn burðarplastpokalaus, margnota pokar eru keyptir af Ásbyrgi í Stykkishólmi og Smiðjunni í Ólafsvík og seldir á kostnaðarverði. Ferðaþjónusta er orðin öflug heilsársatvinnugrein og stórkostleg tækifæri fólgin í að samþætta enn betur starfsemi markaða og þjónustu við ferðafólk.

Matarmarkaðir á Vesturlandi

Með matarkveðju, Hlédís Sveinsdóttir og Ragnhildur Sigurðardóttir (ragnhildur@snaefellsnes.is)


Reyktur og grafinn Eðallax fyrir ljúfar stundir

Eðalfiskur ehf

Sólbakka 4

310 Borgarnesi S: 437-1680 sala@edalfiskur.is

www.edalfiskur.is


26

Matarauður

MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

Pennagrein

Hvað er í matinn? eð er þurfa endalaust að spyrja að þessu. Svarið er „Nei,“ fólk hefur eiginlega ekki áhuga á neinu öðru og það er ekki mikið annað að tala um. Kannski veðrið. Sem hefur mjög mikil áhrif á matvælaframleiðslu. Matur er og verður miðpunktur í okkar lífi og athöfnum og mun líklega alltaf leika lykilhlutverk á stóru stundunum. Við sem störfum innan landbúnaðarins höfum með frumframleiðslu á matvælum að gera. Okkar hlutverk er að sjá fólkinu okkar, þjóðinni og ferðamönnum, fyrir hollum og góðum mat sem er framleiddur á sem sjálfbærastan og ábyrgastan hátt. Við sköpum þessi verðmæti sem skipta fólk svo miklu máli. Við þurfum því bæði að vera mjög meðvituð um hvernig við framleiðum matvælin og hvað það er sem neytendur leita eftir en við þurfum einnig að gera ríkar kröfur um það að okkur sé launað í samræmi. Að þessi undirstaða mannlegs lífs

Í síðustu viku reið mikið áfall yfir í minu lífi. Ég varð fertug. Hótunarbréfum frá allskonar aldurstengdum áhættuþáttum rigndi inn. Seinni hálfleikur byrjaður. Verð reyndar að líta svo á að ég sé yfir í hálfleik þar sem gæfa mín mæld í persónum og leikendum í lífinu er mjög mikil. Á þessum tímamótum var ýmislegt sem fór í gegnum hugann en alltumvefjandi var þessi eilífa spurning: „Hvað er í matinn?“ Hvað á ég að elda í veislunni, hvað fæ ég mér í hádegismat á fertugsafmælinu, hvaða kvöldsnarl er viðeigandi á þessum stóra degi. Allir sem reka heimili fá þessa spurningu í andlitið á óvæntustu tímum og sum okkar sem alveg nenna að elda eru samt orðin dauðleið á þessu. Er ekki eitthvað annað sem má tala um? Getur fólk ekki haft áhuga á einhverju öðru? Ég meina, það er enginn að fara að svelta á Íslandi. Og börn sem aldrei borða matinn sinn hvort

sé metin að verðleikum og að flæði virðiskeðjunnar liggi í átt að frumframleiðendum. Við eigum einnig að skapa meiri verðmæti úr matnum með nýsköpun og vöruþróun því þessi markaður lokast líklega aldrei. Kannski verður einhvern tímann hægt að þrívíddarprenta lambalæri með sveppasósu og brúnuðum kartöflum en þangað til þarf frumframleiðsla að vera í lagi og hún þarf að vera ábyrg en hún þarf líka að njóta virðingar í samræmi. Nú er ég fjörtíu ára og nokkurra daga og verð að hætta að pikka því ég þarf að finna út hvað ég á að hafa í matinn. Auður Magnúsdóttir, Höf. er deildarforseti Auðlinda- og umhverfisdeildar Landbúnaðarháskóla Íslands.

Í Langaholti er áhersla á matvæli úr héraði Þorkell Símonarson, betur þekktur sem Keli vert, hefur rekið gistihúsið og veitingastaðinn Langaholt í Staðarsveit á Snæfellsnesi í ellefu ár en þar á undan var staðurinn í höndum foreldra hans. „Við erum með fullvinnslueldhús sem þýðir að öll vinnsla matvælanna er unnin á staðnum. Við höfum einnig alla tíð lagt mikla áherslu á að nýta hráefni úr héraði. Við kaupum fiskinn á markaði í nágrenninu, bláskelin kemur úr Breiðafiðri og svo hef ég verið að fikra mig áfram með kálfakjöt sem ég fæ hjá bændum í sveitinni,“ segir Keli í samtali við blaðamann.

„Við kaupum fiskinn í heilu lagi og sjáum sjálf um að meðhöndla hann, t.d. að flaka og reykja. Svo erum við bara að gera allan skrattann, eins og að búa til marmelaði, sultur, álegg og svo höfum við verið að fikta við ostagerð. Þetta er þó allt bara fyrir veitingastaðinn, við erum ekki að selja þetta sérstaklega eða neitt slíkt,“ bætir hann við.

Breytilegur matseðill Matseðillinn í Langaholti er breytilegur og fer algjörlega eftir því hráefni sem til er hverju sinni. „Hug-

myndafræðin okkar er að vinna eins og hægt er með það sem til er í grenndinni. Það þýðir vissulega að matseðillinn er sífellt að breytast, en það er líka skemmtilegt. Mín skoðun er að maður á ekki að vera að hefta sig við fastan matseðil heldur bara þefa aðeins út í loftið og sjá hvað er til og nota það,“ segir Keli og hlær. Hann segir vissulega alltaf til fólk sem kemur og vill geta fengið sinn ostborgara með frönskum. „Við erum bara ekki með þannig veitingastað, en það er líka ekki eins og það sé ekki til nóg af þeim. Ég trúi því bara að ef maður vill vera með afgerandi góðan veitingastað er ekkert vit í að reyna að hafa matseðil þar sem allir eigi að geta fundið eitthvað fyrir sig. Við viljum vera góð í því sem við erum að gera og hafa okkar matseðil einstakan,“ bætir hann við.

Vill upplifun fyrir viðskiptavini

Morgunverðahlaðborð í Langaholti.

Erlendir ferðamenn er stór hluti viðskiptavina í Langaholti og segir Keli að þeir séu langflestir mjög ánægðir með þetta fyrirkomulag. „Hingað kemur fólk sem vill fá að upplifa matinn og það er gert t.d. með því að gefa því mat úr nærumhverfinu. Þetta er í það minnsta mín skoð-

Ungnautakjöt frá Ölkeldu í Staðarsveit.

Hörpuskel úr Breiðafirði.

Keli með barnabörn í eldhúsinu.

un og mín upplifun. Mér finnst það partur af heimsóknum mínum á veitingastaði í öðrum landshlutum að fá að finna hvernig nærumhverfið er ráðandi,“ segir Keli og bendir á að á Snæfellsnesi sé það sjávarfangið sem ráði helst ríkjum. „Svo eru önnur héruð þar sem landbúnaðurinn er meira ríkjandi eða kannski gróður-

húsin og það er svo skemmtilegt að fá að upplifa svæðin í gegnum matinn og veitingastaðina. Hér áður fyrr var þetta bara hagræðing. Það var auðveldast að fá matvælin úr héraði ef maður vildi hafa þau fersk. Það hætti svo að vera svoleiðis og þá breyttist þetta og maður fór að sjá alltaf eins matseðla hjá öllum. Núna er þetta samt að komast í tísku aftur, að vera með mat úr héraði en margir þessara veitingastaða eru með þessu verksmiðjulega sniði, með þennan hefðbundna matseðil, en hafa svo einn rétt úr héraði og hampa honum alveg rosalega. Mér finnst það frekar kjánalegt. Hjá okkur er þetta alls ekki svona, það kemur allt úr héraði,“ segir Keli og bætir því við að hann vilji gefa sínum viðskiptavinum upplifun með matnum. „Ég vil að staðurinn, húsið og maturinn hafi karakter og tóni við svæðið. Fólk sem kemur til okkar er ekki að leita að pylsu, samloku eða slíku, það vill fá góðan mat með upplifun,“ bætir Keli við að lokum. arg/Ljósm. Þorkell Símonarson.


Lífrænt - Bio - Organic

Verslun og kaffihús Fæðubótaefni og vítamín

Ný súrdeigsbrauð alla daga

Selt eftir vigt - fylltu á eigin ílát

Skot og bústar í úrvali

Kaffihús Kaju

Krydd í lausu - eftir vigt

Kaffihús Kaju

Dr Hauschka snyrti- og förðunarvörur

Úrval af lífrænum og umhverfisvænum hreinlætisvörum

Matarbúr Kaju & Café Kaja - Kirkjubraut 54, Akranes- 822-1669 - matarburkaja@gmail.com


28

Matarauður - Veisla á Vesturlandi

Veitingastaðurinn Rjúkandi „Veitingastaðurinn Rjúkandi býður upp á freistandi úrval af mat úr héraði. „Við höfum lagt vinnu í samstarf við bændur í nágrenninu til að geta alltaf boðið uppá besta og ferskasta hráefnið eftir árstíðum. Allt á matseðlinum okkar er búið til á staðnum úr fyrsta flokks hráefni og standa frábærir kokkar á bak við hvern og einn rétt og úr verður óvænt upplifun matargesta þar sem nútíminn og íslensk matarhefð mætast í tíma og rúmi. Við á Rjúkanda leggjum mikla áherslu á staðbundin matvæli og erum í samstarfi við bændur í kring sem eru með fjölbreyttan búskap. Þegar að matargerðinni kemur þá eru ekki neinar reglur sem stjórna heldur er það framleiðsla bænda sem stjórnar því hvað er í boði hverju sinni. Þrátt fyrir viljann um sjálfbærni þá komumst við ekki undan því að þurfa að versla einnig utan héraðs. Við bjóðum uppá fjölbreytt úrval af mat til þess að koma til móts við sem flesta, má þar nefna kjöt, fisk og grænmetisrétti. Allar kökur og eftirréttir eru bakaðir á staðnum af mikilli ást og umhyggju. Nýmalað rjúkandi kaffi er alltaf á boðstólnum.“ Rjúkandi tekur þátt í Súpuslóð um Snæfellsnes sem hefst í október.

Viðvík við Hellissand Viðvík er lítið fjölskyldurekið veitingahús sem var opnað í júlí síðastliðnum. „Staðurinn er á besta stað við Hellissand, með útsýni upp á Snæfellsjökul og yfir Breiðafjörð. „Að okkar mati gerir útsýnið ótrúlega mikið fyrir matarupplifunina, þá sérstaklega túristann. Við leggjum mikla áherslu á gæði, góða þjónustu og bjóðum upp á góðan mat í hlýlegu og fallegu umhverfi. Matseðilinn okkar er lítill og hnitmiðaður með gæði hráefna í fyrirrúmi.“ Viðvík tekur þátt í verkefninu Súpuslóð um Snæfellsnes sem hefst í október.

MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

Ræktunarstöðin Lágafell á Snæfellsnesi Ræktunarstöðin Lágafell á Snæfellsnesi ræktar salat, krydd og blóm og selur til kaffi- og veitingahúsa á Snæfellsnesi. Það sem er í boði í október og allan ársins hring: Lágafell verður með á matarmarkaði Breiðabliks sunnudaginn 29. október en býður einnig heim laugardaginn 14. október kl. 14 - 17.

Sjávarpakkhúsið í Stykkishólmi Sjávarpakkhúsið er fjölskyldurekinn sjávarréttastaður við höfnina í Stykkishólmi. “Við ætlum að setja bláskelina hans Símonar á veisluborðið í október.”

Sauðfjárbúið Ytra-Hólmi Á Ytra-Hólmi í Hvalfjarðarsveit er heimavinnsla á kjötafurðum beint frá býli. Þar er framleitt úrval af vörum eins og sveitabjúgu, grafinn ærvöðvi, tvíreykt hangikjöt, krydduð lambalæri, lambaskanki, lamba prime og lambahakk. Viðburðir í október: Ytri-Hólmur verður á Sveitamarkaði í Æðarodda laugardaginn 7. október frá klukkan 13-17.

Prímus Kaffi á Hellnum Prímus Kaffi er staðsett á Hellnum við rætur Snæfellsjökuls með fallega sjávarsýn. “Við leggjum áherslu á að fólki finnist notalegt að koma til okkar. Boðið er upp á hefðbundinn íslenskan mat (heimilismat). Má þar nefna plokkfisk, kjötbollur, kjöt- og fiskisúpu og fleira. Einnig er boðið upp á heimabakað brauð og tertur. Prímus kaffi tekur þátt í Súpuhring um Snæfellsnes sem hefst í október.

Opnun á heimasölumarkaði að Ytra-Hólmi 1 verður laugardaginn 14. október frá klukkan 13-17.

Sif Matthíasdóttir í Hrísakoti Í Hrísakoti á Snæfellsnesi eru ræktaðar geitur og hross. Sif Matthíasdóttir er einnig formaður Geitfjárræktarfélags Íslands og framleiðir afurðir úr geitakjöti til að mynda grafið geitakjöt og svokallaðar geita-partýbollur.

Einnig framleiðir Ytri-Hólmur vörur fyrir Hjarðarfell á Snæfellsnesi og er hægt að nálgast þær í Búsæld á Breiðabliki á Snæfellsnesi.


MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

Matarauður - Veisla á Vesturlandi

29

Bjargarsteinn Mathús í Grundarfirði Bjargarsteinn Mathús er nýr veitingastaður í gömlu húsi. Þar er mikið lagt upp úr notalegu andrúmslofti og góðum mat með áherslu á staðbundið hráefni og það besta á hverjum árstíma. Sjávarréttasúpa að hætti Gunna er sá réttur sem breytist ekki milli árstíma enda alltaf jafn vinsæll. Frá staðnum er óhindrað útsýni yfir Grundarfjörð og hið glæsilega Kirkjufell. Bjargarsteinn hefur líka þá sérstöðu að á lóðinni stendur gamall hjallur sem var gerður upp. Þar er fiskur og kjöt hengt til þerris á tilheyrandi og þjóðlegan máta. Bjargarsteinn tekur þátt í Súpuslóð Snæfellsness sem hefst í október.

Hraun í Ólafsvík

Landnámssetur Íslands í Borgarnesi Í veitingahúsi Landnámssetursins í Borgarnesi er bæði hægt að fá mat, kökur, kaffi og aðra drykki. Á matseðlinum er að finna fjölbreytta rétti sem ættu að fullnægja þörfum flestra, bæði barna og fullorðinna. „Við höfum hollustu og ferskleika að leiðarljósi og höfum svanga ferðalanga sérstaklega í huga þegar skammtað er á diskana. Allir réttir eru unnir frá grunni á staðnum. Í október bjóðum við upp á tvíreykt kindakjöt borið fram með rúgbrauði frá Geira bakara, ruccola, pikkluðum rauðlauk og piparrótarsósu. Reykt kindakjöt er sterkt í hefðum Vesturlands sem er mikið landbúnaðarhérað.“

Hraun í Ólafsvík er ekki nema þriggja ára gamalt lítið fjölskyldufyrirtæki. „Við hjónin vinnum bæði í eldhúsinu og börnin hjálpa til. Við höfum frá upphafi notast við hráefni frá Snæfellsnesi og ef það er ekki mögulegt þá tökum við íslenskt fram yfir erlent. Markmið okkar er einfalt, en það er að vera trú hráefninu og ekki reyna einhvað sem við ekki getum. Við tökum nautið okkar frá Hönnu í Mýranauti, salat frá Áslaugu á Lágafelli við Vegamót, bláskel og hörpuskel frá Stykkishólmi, þorsk frá Hraðfrystihúsi Hellissands og svo framvegis. Við höfum opið allt árið og hefur svo verið alveg frá upphafi, þó það hafi verið erfitt á köflum.“ Hraun tekur þátt í Súpuslóð um Snæfellsnes í október.


30

Matarauður - Veisla á Vesturlandi

Narfeyrarstofa í Stykkishólmi Lindarbrekka Snæfellsnesi Lindabrekka á Snæfellsnesi framleiðir aðallega kálfakjöt en er einnig með kindur, landnámshænur og grísi á sumrin. Afurðir Lindarbrekku eru seldar beint frá býli á heimasíðunni www.lindarbrekka.is Í október verður Lindabrekka með vörur sínar til sölu í Breiðabliki á Snæfellsnesi á opnunartíma Gestastofunnar. Einnig verður hægt að kaupa vörurnar þeirra á sérstökum matarmarkaði 29. október á sama stað.

Veitinga- og kaffihúsið Narfeyrarstofa í Stykkishólmi er í núverandi mynd orðinn fastur liður í atvinnu- og menningarlífi bæjarins og hefur orðspor þess borist víða. Veitingahúsið er opið allan ársins hring þótt afgreiðslutími taki árstíðabundnum breytingum. Á veturna snýst starfsemin um hádegið og helgar að miklu leyti og einnig er bryddað upp á uppákomum yfir vetrartímann sem ekki gefst kostur á yfir annasömustu mánuðina. Það sem er í boði í október og allan ársins hring: Matseðill Narfeyrarstofu hefur að geyma frumlega rétti, lystilega borna fram í fallegu umhverfi staðarins þar sem afar sjarmerandi útsýni úr salarkynnum hússins kryddar stemninguna. Á matseðlinum er einnig úrval hamborgara en þeir hafa verið afar vinsælir og nefndir „ekta“, „sveittir“ og betri en „búlluborgarar“ af gestum sem koma aftur og aftur og fá sér hamborgara! „Núna erum við að vinna eingöngu með lambakjöt frá Helgafelli í Helgafellssveit. Á næstunni munum við bjóða uppá mismunandi steikur og það eru tíu mismunandi vöðvar sem við notum sem sérrétti fyrir utan hakk og gúllash. Við bjóðum auðvitað upp á ferska hörpuskel og bláskel og núna eru aftur að hefjast veiðar og vinnsla á þorski sem býður uppá ferskmeti í fiski og svo ekki sé minnst á saltfiskinn. Allt úr Breiðafirði ef það kemur ekki þaðan þá er það ekki til hjá okkur.“ (Ljósm. Anna Melsteð).

MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

Hótel Búðir Hótel Búðir hefur fest sig í sessi sem vinsælt sveitahótel. Á Hótel Búðum er leitast eftir að hafa andrúmsloftið heillandi, framúrskarandi þjónustu og síðast en ekki síst; mat í sérflokki. Maturinn á Búðum hefur löngum verið eitt helsta aðdráttarafl staðarins. Ferskt hráefni er keypt af bændum og sjómönnum í nágrenninu auk þess sem matseðillinn endurspeglar árstíðirnar. Hótel Búðir tekur þátt í Súpuhring um Snæfellsnes sem hefst í október.

Matarlist í Ólafsvík Bjarteyjarsandur á Hvalfjarðarströnd Hraunsnef sveitahótel Veitingastaðurinn að Hraunsnefi leggur áherslu á að bjóða uppá mat úr hérðaði með velferð dýra í huga. Við framleiðum sjálf það nauta- og svínakjöt sem við bjóðum uppá.” Í boði í október “Í október bjóðum við uppá Roast beef með bernais sósu á 3.900 krónur af Hraunsnefs nautakjöti og Hraunsnefs eggjum og einnig Þrefaldan grísaborgara sem inniheldur borgara úr hreinu grísahakki, heimagert bacon og bbq langeldað og rifið grísakjöt með frönskum á 2.400 krónur.

Matarlist er til húsa í Ólafsvík og er ungur veitingastaður sem sérhæfir sig í matreiðslu rétta úr staðbundnu hráefni eins og kostur er. Mikil áhersla er lögð á að matreiða allt frá grunni. “Við tökum sérstaklega vel á móti gestum í október og bjóðum uppá fjölbreyttan matseðil.”

Bjarteyjarsandur er veitingastaður á sveitabýli sem leggur áherslu á matarupplifun, eigin framleiðslu og fræðslu í tengslum við mat, matarmenningu og hráefni. Sérstaða Bjarteyjarsands felst í framleiðslu á úrvals lambakjöti með gæðastýringu og sjálfbærni að leiðarljósi, grísakjöt af útigrísum og sú staðreynd að bærinn er staðsettur við Hvalfjörð, sem er þekktur fyrir góðar og gjöfular kræklingafjörur. Það sem er í boði í október og allan ársins hring: Í október sem og aðra mánuði ársins er hægt að fá lambakjöt, reykt og nýtt. Heitreyktar handverkspylsur úr grísakjöti af grísum sem eru útialdir. Hvalfjarðarkrækling, þang og þara.

býli. Þar er jafnframt starfrækt upplýsingaþjónusta og verslun með handverk, fatnað og minjagripi. Náttúran allt í kring og nálægðin við margar helstu náttúruperlur Vesturlands gerir Brúarás að einstökum viðkomustað og ákjósanlegum vettvangi fyrir margvíslegar veislur og viðburði.

Brúarás Geo Center Brúarás er glæsilegt veitinga- og samkomuhús steinsnar frá Hraunfossum í Borgarfirði. Í boði eru fjölbreyttar veitingar og áhersla er lögð á að nota hráefni beint frá

Allan október bjóðum við geitaost hamborgara með hvítlauks mayo, grænmetis salsa, tómötum og geitaost frá Geitfjársetrinu Háafelli.


Sláturtíð

Gott úrval hnífa og brýna Kjötnet, kjötkrókar, pækilmælar Gott úrval af tunnum og fötum Kjötfarsblanda, rúllupylsukrydd, nítrítsalt og gróft salt Bjúgnaplast, pylsuplast, hamborgaraplast Gerfivambir, sláturnælur, sláturgarn Maxima: vakúmpökkunarvélar og pokar

SKESSUHORN 2017

Regnföt og ullarundirföt í úrvali, fyrir börn og fullorðna

www.kb.is

Egilsholti 1, 310 Borgarnes Tel. 430 5500


32

Matarauður - Veisla á Vesturlandi

Kaffi Emil í Grundarfirði Kaffi Emil er fjölskyldurekið kaffihús, staðsett í Sögumiðstöðinni sem er miðsvæðis í Grundarfirði. Einnig er í húsinu upplýsingamiðstöð og Bókasafn Grundarfjarðar. „Við leggjum áherslu á notalegt umhverfi þar sem gestir okkar geta fengið léttar veitingar, gripið í hljóðfæri eða bækur. Gestir okkar geta fengið upplýsingar um sögu og menningu svæðisins á meðan safnið er skoðað, ásamt almennum upplýsingum og þá sérstaklega um Snæfellsnes. Fiskisúpan okkar hefur hlotið góða dóma og er mjög vinsæl enda gott hráefni af svæðinu. Við erum með létta rétti, súpur, heimabakaðar kökur og drykki. Námsmenn eru í auknu mæli að koma til okkar þar sem þau vinna verkefni, hlusta á fyrirlestra og taka próf. Einnig erum við að fá skemmtilega fararstjóra sem nota tækifærið og grípa í hljóðfæri og syngja fyrir farþegana sína. Kaffi Emil tekur þátt í Súpuslóð um Snæfellsnes sem hefst í október.

MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

Mýranaut Mýranaut er fjölskyldubú á Leirulæk á Mýrum sem hefur framleitt úrvals nautakjöt undir merkjum Beint frá býli síðan 2007. Mýranaut mun bjóða upp á smakk í verslun Ljómalindar í Borgarnesi laugardaginn 14. október.

Café kaja/ Matarbúr Kaju Café Kaja er lífrænt kaffihús og verslun á Akranesi sem býður upp á lífrænar hrátertur allan októbermánuð.

Langaholt Í Langaholti er rekið heimilislegt gistihús og borinn fram ljúffengur kvöldmatur, staðgóður morgunverður með stórbrotna náttúru Snæfellsness allt um kring. Veitingastaðurinn er opinn allt árið fyrir gesti og gangandi. Aðaláherslan er á sjávarfang af Snæfellsnesi og erum við stolt af þeim fjölda rétta sem við fullvinnum í eldhúsi okkar og þeim kræsingum sem bjóðast af nægtarborði náttúrunnar á hverjum tíma. Fiskisúpan í Langaholti er okkar helsta stolt, gerð úr fiskisoði frá grunni og hefur margan ferðalangann glatt. Langaholt tekur þátt í Súpuhring um Snæfellsnes sem hefst í október og þann 21. okt. verður bjúgnahátíð.

Ljómalind Ljómalind er verslun í Borgarnesi, þar sem til sölu er varningur sem framleiddur er af íbúum Vesturlands. “Komið og smakkið nautakjötið frá Mýranauti laugardaginn 14. október í verslun okkar í Borgarnesi.”

Matarmarkaður á

Breiðabliki, Snæfellsnesi

Hreðavatnsskáli

Matarframleiðendur á Snæfellsnesi koma saman og standa fyrir Matarmarkaði á Breiðabliki, Snæfellsnesi sunnudaginn 29. október frá kl. 13 – 17.

Norðurárdal í Borgarfirði Hreðavatnsskáli og Grábrók gistihús er eini staðurinn á landinu þar sem framleiðsla á lífrænt vottuðu pasta fer fram. Í boði eru fjórar bragðtegundir; hreint pasta, engifer, sítrónu og eldpipar (chili), kókos og karrý pasta. Núna er unnið að tilraunaframleiðslu á glúteinfríu pasta og vegan pasta. Í Hreðavatnsskála eru heimagerð brauð og deigið í pizzurnar er líka heimalagað. Lamba- og nautakjöt er fengið frá Mýranauti og í október verður boðið upp á skinku og beikon sem kemur af þeirra eigin svínum og eggin eru að stórum hluta úr þeirra eigin framleiðslu. Allur matur á matseðli er gerður eftir pöntun til að tryggja ferskleika matarins.

Lýsuhóll í Staðarsveit Hjá Ferðaþjónustunni Lýsuhóli er opnunartími alla virka daga frá klukkan 12 til 14 og 18:30 til 20:30 í október. Lokað er um helgar. Boðið er upp á heimalagaða októbersúpu með glænýjum fiski frá Snæfellsnesi og heimabakað brauð með.


Matarauður

MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

„Við sönsum og þú eldar“

33

Hungangsgljáður lax með möndlum og sætum kartöflum.

- segir Doddi Gylfa hjá Sansa á Akranesi Næsta þriðjudag munu viðskiptavinir fyrirtækisins Sansa á Akranesi fá fyrstu pantanir sínar afhentar. Sansa sérhæfir sig í að útbúa heimilismat fyrir þá sem vilja nýta sér slíkt. Starfar fyrirtækið í anda þjónustu sem margir þekkja undir merkjum Eldum rétt. Hjá Sansa verður hægt að panta og fá hráefni í þrjár máltíðir í viku sem og uppskriftir til að elda eftir. Hægt að fá matarskammta fyrir allt frá einum til sex einstaklinga. „Sansa útvegar allt það hráefni sem þarf í réttina og upp-

skriftir svo fólk geti eldað matinn alveg upp á tíu. Við sönsum matinn og þú eldar hann heima hjá þér,“ segir stofnandi Sansa, Þórður Már Gylfason, eða Doddi Gylfa eins og hann er jafnan kallaður.

Akranes, Borgarnes, Hvalfjarðarsveit og Borgarfjörður

Húsnæði Sansa er staðsett að Smiðjuvöllum 17 á Akranesi. „Þetta er alveg

geggjað húsnæði og feykinógu stórt fyrir þessa starfsemi, að minnsta kosti til að byrja með. Þarna ætla ég að vera með tilraunaeldhús og get haldið þar námskeið. Þá geta hópar komið og lært að elda ýmislegt sniðugt,“ segir Doddi. Á Smiðjuvöllum verður enn fremur afgreiðsla Sansa þar sem matarpakkarnir verða afhentir alla þriðjudaga. En Sansa er ekki einungis ætlað íbúum Akraness. Einnig býðst íbúum Borgarness, Borgarfjarðar, Hvalfjarðarsveitar og nærsveitarmönnum að nýta sér þjónustuna. „Skagamenn geta sótt sínar pantanir að Smiðjuvöllum, en viðskiptavinir í Borgarnesi og nærsveitum fá sína pakka afhenta á planinu hjá Geirabakaríi í Borgarnesi,“ segir hann.

Karrý lambapottréttur með hrísgrjónum og naanbrauði.

Hráefni úr héraði

Þórður Már Gylfason, eða Doddi Gylfa eins og hann er jafnan kallaður.

Hráefni til matseldarinnar verður fengið úr landshlutanum eins og framast er unnt. „Hráefnin í alla réttina verða fengin af Vesturlandi, eins mikið og hægt er. Fiskurinn kemur allur frá G.Run í Grundarfirði til dæmis,“ segir Doddi og bætir því við að umbúðirnar hafi verið hafðar eins umhverfisvænar og hægt var. „Vinkona mín Unnur Jónsdóttir er grafískur hönnuður og hún hannaði lógóið fyrir Sansa og allar umbúðirnar. Unnur er algjör snillingur með frábært auga fyrir allri hönnun og ég er mjög ánægður með útkomuna. Umbúðirnar eru mjög flottar og þær eru líka umhverfisvænar. Þær eru allar úr umhverfisvænu efni nema filman utan um kjötið, hún er

það eina sem inniheldur plast,“ segir hann.

Fullur eftirvæntingar Hægt er að panta fyrsta vikuskammtinn til miðnættis í kvöld, miðvikudaginn 27. september. Á matseðlinum í fyrstu vikunni er þorskur á spjóti, fylltar kjúklingabringur og íslensk kjötsúpa. Matarpakkar sem innihalda hráefni í alla þrjá réttina, verða afhentir næsta þriðjudag ásamt uppskriftum. Í hverri viku birtist síð-

an nýr matseðill með þremur nýjum réttum. Doddi kveðst fullur eftirvæntingar að afhenda fyrstu skammtana. „Ég hef fundið fyrir mikilli eftirvæntingu fyrir opnuninni, sérstaklega á Akranesi. Margir hafa stoppað mig úti í búð eða á förnum vegi, spurt mig út í Sansa, hvar þeir geti pantað og hvenær. Ég er því mjög spenntur að afhenda fyrstu matarpakkana á þriðjudaginn og hefja formlega starfsemi Sansa,“ segir Doddi að endingu. kgk/ Ljósm. Unnur Jónsdóttir.

SKESSUHORN 2017

„Ef sjórinn er hérað, þá er maturinn okkar sannarlega úr héraði“

www.langaholt.is


34

Matarauður

MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

Pennagrein

Tækifæri felast í matarauði Vesturlands Þegar horft er yfir Vesturland þá blasir við að matarauðurinn er einn af styrkleikum og tækifærum landshlutans. Vesturland skartar fjölbreyttri náttúru og er ríkt af auðlindum bæði til sjós og lands, sem hægt er að nýta til sjálfbærrar matvælaframleiðslu. Þar eru grösugir dalir og búsældarlegar sveitir sem henta vel til ræktunar, gjöfulir firðir, flóar og fiskimið, ár og vötn með laxi og silungi, víðáttumikil náttúra með berjum og plöntum sem hægt er að vinna úr og áfram má telja. Einnig er nægt hreint vatn og svæði með miklum jarðvarma og grænni orku sem nýta má til ræktunar og vöruþróunar. Segja má að við búum við alsnægtir. Því hefur verið mikil umræða á Vesturlandi, líkt og í öðrum landshlutum, um að efla matvælaframleiðslu. Á fjölmennu íbúaþingi í tengslum við gerð sóknaráætlunar Vesturlands kom fram sterkur vilji til að farið yrði í sérstakt verkefni um eflingu matvælaframleiðslu í héraði. Í framhaldi af því er nú unnið að áhersluverkefni sóknaráætlunar sem kallast Matarauður Vesturlands. Í tengslum við það verkefni hefur verið farið víða um landshlutann til að sjá, skoða og heyra hvað brennur á þeim sem eru að vinna með matarauðinn. Í þessari vinnu hefur verið rætt við margt gott fólk, fræðst, spjallað og skipst á skoðunum varðandi sérstöðu, styrkleika, veikleika og tækifæri tengd matarauði Vesturlands. Þessi vinna sem af er, hefur kallað fram margar hugmyndir, vangaveltur og góða umræðu sem vert er að velta fyrir sér, meðal annars um framleiðslu og sölu á landbúnaðarvörum, dreifingarleiðir, afhendingaröryggi og fleira.

fá matvöru sem framleidd er við aðstæður þar sem ofangreind gildi eru í hávegum höfð. Flestir íslenskir bændur leggja líka mikið upp úr að framleiða landbúnaðarvöru með þessa þætti að leiðarljósi og vinna samkvæmt gæðakerfum til að geta boðið hágæða matvöru á íslenskum matvörumarkaði.

Landbúnaður er líka matvælaframleiðsla Í umræðu um matarauð Vesturlands hafa komið upp ýmsar vangaveltur varðandi þróun landbúnaðar og byggðaþróun í sveitum landsins. Rætt hefur verið um hvernig búin hafi þurft að stækka og eflast til að standa undir hagræðingarkröfu og matvælaþörf á Íslandi. En fólk er líka sammála um að samhliða þeirri þróun hafi einnig verið vaxandi markaður fyrir sölu á landbúnaðarvörum beint frá býli og á matarmörkuðum. Margir tala um að mikilvægt sé fyrir íslensk-

fyrir hagræðingu sem getur falist í tækni- og vélvæðingu á fjölskyldubúum og eflingu afurðastöðva. En það sé ekki síður mikilvægt fyrir alla að viðhalda og standa vörð um íslenska búfjárstofna, verkþekkingu og þá sérstöðu sem fæst með gæðavottuðum vörum, menningararfi, matarhandverki og svæðistengdri matvælaframleiðslu í héraði. Þessir þættir séu allir mjög dýrmætir, bæði fyrir þjóðarsálina og í markaðslegu tilliti fyrir bæði landbúnað og ferðaþjónustu. Með því að leggja rækt við og stuðla að uppbyggingu og framþróun á fjölbreyttum búskaparháttum sé hægt að efla byggð í sveitum landsins og auðga matvælaframleiðslu á Íslandi. Til að hægt sé að viðhalda byggð og halda uppi þeirri þjónustu sem þarf að vera til staðar fyrir íbúa, þá er mikilvægt að stuðla að fjölbreyttu byggðamynstri og atvinnuuppbyggingu sem laði að sér fólk til búsetu í sveitunum. Með öðrum orðum, nýsköpun og

lýtur að nýsköpun, vöruþróun og fullvinnslu matvæla til að koma til móts við kröfur og þarfir markaðar og neytenda. Sóknarfæri gætu falist í því ef fólki biðist tækifæri á að efla þekkingu sína í heildstæðu námi, þar sem unnið væri með verkferla sem lúta að framleiðslu matvöru alla leið frá haga í maga. Bændur þurfa ekki allir að vera eins og þess vegna er mjög mikilvægt að það nám sem ætlað er bændum til undirbúnings fyrir sína starfsemi, sé fjölþætt og bjóði upp á val um hvaða áherslur þeir velja í sinni framleiðslu. Einnig sé mikilvægt að hlúð sé vel að öllu námi sem lítur að úrvinnslu og fullvinnslu landbúnaðarafurða, þannig að fólk eigi þess kost að mennta sig til þeirra starfa við eftirsóknarverðar aðstæður og með jákvæða framtíðarsýn fyrir sinn starfsferil. Margir hafa velt fyrir sér hvort ekki liggi tækifæri í því fyrir íslenskt samfélag að Landbúnaðarháskólinn snúi vörn í sókn

væri þekkingarmiðlun sem kennir fólki að vinna með þá sérstöðu og auðlindir sem aðgangur er að á hverjum stað. Þannig gæti fólk öðlast þekkingu og færni varðandi vöruþróun sem byggir á samþættingu náttúruauðs, menningarauðs, matarauðs og mannauðs, sem eru einmitt þeir þættir sem gefa okkur tækifæri til vöru- og byggðaþróunar sem byggir á sérstöðu hvers svæðis. Þetta nám gæti tekið á öllum ferlum sem varða landnýtingu og matvælaframleiðslu – frá haga í maga.

Matarauður Vesturlands Vesturland er búsældarlegt landbúnaðarhérað, þar sem landkostir eru vel fallnir bæði til ræktunar og beitar og náttúrufar gefur tækifæri til sjálfbærrar nýtingar á fjölbreyttum auðlindum til matvælaframleiðslu. Auk þess sem vegalengdin að fjölmennasta markaðssvæði Íslands er allstaðar innan við

Matur skiptir okkur máli Áhugi almennings á mat virðist vera vaxandi. Fólk hugsar og talar um mat, mataruppskriftir, strauma og stefnur í matargerð og næringu og allir hafa skoðun á málinu. Matarþættir í sjónvarpi eru vinsælir og til eru sjónvarpsstöðvar sem sýna aðeins matartengt efni. Fólk úr ýmsum áttum markar sér sess á samskiptamiðlum með matarumfjöllun, auk þess sem matreiðslu-, matarupplifunar- og næringarnámskeið njóta mikilla vinsælda og gróska er í útgáfa bóka og blaða sem fjalla um mat. Almenningur virðist líka vera meðvitaður um heilbrigði og heilsusamlegan lífsstíl, þar sem lagt er upp með að hreinleiki og gæði matvöru skipti miklu máli. Þá eru sífellt fleiri sem hugsa og tala um umhverfis- og dýravelferð, mengun, kolefnisjöfnuð, sótspor, sanngjörn viðskipti og rekjanleika vöru. Þeir neytendur sem tileinka sér þessa lífssýn vilja væntanlega hafa allt þetta í huga þegar þeir velja mat á diskinn sinn. Sjálfbærni er líka hugmyndafræði sem er hátt skrifuð í ræðu og riti í íslensku þjóðfélagi, þar sem allir virðast sammála um að sjálfbærni skuli höfð að leiðarljósi. Ef tekið er mið af þessari umræðu, stefnu og straumum í þjóðfélaginu, þá er hægt að draga þá ályktun að meðal almennings séu margir meðvitaðir neytendur sem vilja aðeins

„Sóknarfæri gætu falist í því ef fólki biðist tækifæri á að efla þekkingu sína í heildstæðu námi, þar sem unnið væri með verkferla sem lúta að framleiðslu matvöru alla leið frá haga í maga.“ Mynd frá Hvanneyri í sumar. Ljósm. mm.

an landbúnað, byggðaþróun og matvælaframleiðslu á Íslandi að tryggja fjölbreytta landbúnaðarstarfsemi í sveitum landsins. Það þurfi bæði öflug stór fjölskyldubú sem falla að þeirri menningu og ímynd sem íslenskur landbúnaður byggir á, til að standa undir þeirri magnframleiðslu sem þarf fyrir dagvörumarkað á Íslandi. En einnig sé mjög mikilvægt að hafa matvælaframleiðslu þar sem bændur selja bæði sérvörur, gæðavottaða og rekjanlega landbúnaðarvörur beint frá býli og á matarmörkuðum. Mikilvægt sé að hvorutveggja geti verið arðvænlegur rekstur fyrir þá aðila sem þessa framleiðslu stunda í sveitum landsins. Mál manna hefur verið að það þurfi vissulega að vera vakandi

fjölbreytileiki í landbúnaði er mikilvægur til að efla inniviði samfélagsins. En á sama tíma verður að auka virðingu fyrir og tækifæri til að stunda svæðisbundið matarhandverk sem einkennist af fjölbreytni, ferskleika og gæðum.

Skóli lífs og lands Oft hefur komið upp í umræðuna mikilvægi Landbúnaðarháskóla Íslands – háskóla lífs og lands, varðandi þróun búskaparhátta og byggðaþróun landsbyggðanna. Fólk hefur velt fyrir sér hvort það væri ekki meðal annarra, hluverk Landbúnaðarháskóla Íslands að byggja upp nám sem styður við þessa þróun landbúnaðar á Íslandi. Það gæti verið nám sem

og bæti matvælanámi við það nám og rannsóknarstarf sem þar fer fram og lýtur að náttúruvísindum, auðlinda- og umhverfisfræðum og landnýtingu. Með því væri hægt að byggja upp þverfaglegt nám sem lýtur að búrekstri og verkháttum sem stuðla að varðveislu á verkkunnáttu, nýsköpun og vöruþróun. Slíkt nám gæti hæglega boðið upp á innlent og erlent samstarf háskóla og snert margar fræðigreinar. Það má líka sjá fyrir sér að þeir sem ljúka slíku námi geti valið sér að verða bændur sem fullvinna sína vöru og selja beint frá býli, en þeir hefðu líka þekkingu til að taka að sér ýmis störf í nýsköpun og vöruþróun, tengd ferðaþjónustu, markaðssetningu, geymslu og dreifingu matvæla og áfram mætti telja. Þetta

250 km. Miðað við þau gildi sem áður hafa verið rakin hér og varða lífssýn fólks sem er meðvitað um velferð lífs og lands, og möguleikana á framleiðsu á gæðamatvöru sem getur fallið að þeim gildum, þá ætti Vesturland að henta mjög vel til matvælaframleiðslu fyrir íslenskan matvælamarkað. Því er áhugavert að fylgjast áfram með því hvort neytendur eru sjálfum sér samkvæmir varðandi lífssýn og gildi sem lúta að umhverfismálum og matvælaframleiðslu, og hvernig íslensk þjóð og Vestlendingar velja að nýta þau tækifæri sem felast í matarauði Vesturlands. Margrét Björk Björnsdóttir og Signý Óskarsdóttir.


Matarauður

MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

35

Matur er menning okkar og saga Það var hreint ekkert sjálfgefið að Íslendingar kæmust af hér á árum og öldum áður. Landið var harðbýlt og hér voru vetrarhörkur svo miklar að lífsnauðsynlegt var að birgja heimilin upp af forða ætti heimilisfólk að lifa veturinn af. Fyrir rafvæðinguna var frysting matar ekki kostur og því þurfti að geyma hann með þeim aðferðum sem þekktust, eða voru fundnar upp. Fiskur var þurrkaður, hertur eða saltaður, sláturmatur og kjet var súrsað, saltað og reykt, egg lögð í kös og svo framvegis. Íslendingar komu sér því af hreinni nauðsyn upp geymsluaðferðum sem dugðu en byggðu um leið upp matarmenningu sem að flestu leyti varð einstök á heimsvísu. Með iðnbyltingunni og breyttum tímum hefur fokið hratt yfir slóð þessarar matarmenningar og raunveruleg hætta á að ýmislegt falli í gleymskunnar dá, sé því ekki kerfisbundið haldið á lofti. Til eru þeir sem eru stoltir af matarmenningu okkar og sjá tækifærin í að miðla til gesta okkar og næstu kynslóða.

Forðast erlendar dægursveiflur Ferðamenn nútímans vilja fræðast um matarmenningu þeirra þjóða sem

staðið fyrir kútmagakvöldi fyrir eldri íbúa þar sem boðið er upp á þjóðlega og skemmtilega veislu. Lionsmenn í Grundarfirði standa sömuleiðis fyrir árlegri veislu þar sem kútmagar, hausastappa og annað góðmeti er á borð borið. Þannig má segja að kútmagakvöld séu engu minni veislur en þorrablótin inn til sveita.

Fórnað fyrir menningu og listir

Svipmynd frá hlaðborði kvenfélagskvenna á Vatnsnesi í Húnþingi vestra. Ljósm. mm.

þeir sækja heim og sækjast mjög eftir því. Finnst það hluti af upplifun sinni að njóta ekki eingöngu náttúrunnar heldur um um leið að kynnast þeim venjum og hefðum sem gestgjafarnir drógu fram lífið með. Til eru veitingastaðir hér á Vesturlandi sem leggja ríka áherslu á heimafengið hráefni, íslenskan mat og menningu. Láta þannig dægursveiflur amerískrar, asískar eða suður-evrópskrar matar-

menningar lönd og leið. Í þessu blaði um Matarauð Vesturlands má glöggt sjá þann metnað sem margir veitingamenn sýna þessu viðfangsefni. Segja reyndar að það sé ekki erfitt að byggja matseld upp á heimafengnu hráefni, það sé einfaldlega betra og heilnæmara en margt af því sem innflutt er.

Menning út við ysta sæ Til að geta höfðað til landsmanna og erlendra gesta er hægt að kynna matarmenningu okkar með ýmsum hætti. Hægt er að leggja áherslu á matargerð 20. aldar og margar þær aðferðir sem tíðkuðust á tímum foreldra okkar og foreldra þeirra við verkun og geymslu matar. En hægt er að stíga skrefinu lengra, bjóða mat eins og forfeður okkar á 18. og 19. öld drógu fram lífið með. Líklega væri það þó of

framandi vinnsluaðferðir til að jafnvel forvitnustu gestir okkar myndu láta sér líka. Í því samhengi er gaman að rifja upp frægar veislur kvenfélagskvenna á Vatnsnesi í Húnaþingi vestra sem haldnar voru á Jónsmessunni í fjöruborðinu í Hamarsbúð um árabil. Þær tóku sig til og reiddu fram ýmsan þjóðlegan mat samkvæmt aldagamalli hefð norður við ysta sæ. Ekki stóð á viðtökum; fólk streymdi til þeirra úr öllum landshlutum og voru veislur þessar orðnar fjölmennari en húsakostur bar. Réttirnir sem þær buðu voru bæði fjölbreyttari og eldri að gerð en gerist og gengur. Þar var selkjöt nýtt og saltað, grafinn silungur og reyktur rauðmagi, sigin grásleppa og súrir selshreifar, harðfiskur, hákarl og reykt sauðahangikjet og allt þetta borið fram með blóðpönnukökum og öðru brauðmeti. Einnig var hægt að gæða sér á svartfugli, sviðasultu og súrum hval og ábrystum eða berjagraut í eftirrétt.

Kútmögum gerð skil

Kútmagar eru herramannsmatur. Á veisluborði á árlegu kútmagakvöldi í Grundarfirði má finna hina ýmsu fiskrétti ásamt hausastöppunni alræmdu og kútmögunum að sjálfsögðu. Allt framleitt og á borð borið undir dyggri stjórn Móses Geirmundssonar. Ljósm. tfk.

Svipmynd frá Sviðaveislu á haustfagnaði Félags sauðfjárbænda í Dölum. Ljósm. mm.

Gestir á kútmagakvöldi á Hellissandi.

Ljósm. fh.

Saltað hrossakjöt er aðalrétturinn á borðum þegar karlakórinn Söngbræður stendur fyrir árlegri söngveislu. Ljósm. mm.

Þegar Íslendingar koma saman er það oft tengt mat. Þorrablótin eru þar þekktustu veislurnar. Ýmist eru þó slíkar veislur á forsendum matarins eða annarrar menningar. Kútmagakvöld eru til dæmis oft haldin út við sjávarsíðuna og beinlínis til að tapa ekki niður vinnslu og matreiðslu. Fyrir þá sem ekki vita er kútmagi nafn yfir það þegar þorsklifur og fleira er sett inn í þorskmaga og þetta er svo soðið við lágan hita í langan tíma. Lionsklúbbur Nesþinga, Slysavarnadeildin Helga Bárðardóttir á Hellissandi og Leikfélag Ólafsvíkur hafa til dæmis í tæpa þrjá áratugi

En til eru fleiri veislur í landshlutanum sem tengjast menningu. Karlakórinn Söngbræður stendur á hverju ári fyrir söngveislu í janúar. Þar er náttúrlega sungið út í nóttina en áður en til þess kemur er borinn fram tvíréttaður matur. Annars vegar svið sem sviðin eru af þolinmæði með gamla Kósan-gasinu norður á Kópaskeri, en hins vegar saltað hrossakjöt. Hefð er fyrir því að kórfélagar taki að sér allt er viðkemur veislunni og hefst undirbúningur nokkrum mánuðum áður. Einhver kórfélagi slátrar hrossi fyrir málstaðinn og saltar í tunnu. Hrekkjóttum hesti eða haltri hryssu hefur þannig verið fórnað fyrir málstað menningar og lista.

Sprengja öll félagsheimili utan af sér Þegar sauðfjárbændur í Dölum fóru að tvinna í kringum hrútasýningar í héraðinu menningarhátíð fyrir ríflega áratug hefur þeim væntanlega ekki dottið í hug að það myndi leiða af sér slíka hátíð sem raun ber vitni. Þessi árlega menningarhátíð bændafólks í Dölum og gesta þeirra nefnist Haustfagnaður og er fyrir löngu orðin landsþekkt skemmtun og stendur yfir heila helgi. Skemmtanir í bland við hrútasýningar, markaði og leiki, hagyrðingar fara á kostum og á borðum eru svið og tilheyrandi meðlæti eins og gestir geta í sig látið. Matarveislan hefur sprengt utan af sér hvert félagsheimilið á fætur öðru. Var fyrst í Árbliki, þá Dalabúð og undanfarið í íþróttahúsinu á Laugum og komast færri að en vilja. Við þetta má bæta árlegar skötuveislur skömmu fyrir jól, grjúpánhátíðir og sjávarréttakvöld, svo dæmi séu tekin. Af þessu má sjá að ómögulegt er að aðskilja mat þegar menning landsmanna er annars vegar. Við erum það sem við borðum og ekki nóg með það - við erum til af því okkur tóks að geyma matinn þar til birta sólar kveikti nýtt líf að vori. -mm


36

Matarauður

MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

Veiðir og selur silung á sveitamörkuðum Sigurður Helgason bóndi og veiðimaður í Hraunholtum í Kolbeinsstaðarhreppi hefur í yfir hálfa öld veitt silung sem hann selur á mörkuðum. Blaðamaður hitti Sigurð á dögunum og ræddi við hann um veiðarnar. Áður fyrr var Sigurður einnig með blandað bú en er hættur búskap að mestu og einbeitir sér alveg að veiðunum. „Ég er bara með um 50 ær núna og myndi líklega kallast hobbýbóndi í dag,“ segir Sigurður og hlær. „En ég hef bara lagt áherslu á veiðina núna eftir að börnin tóku við búskapnum og reyni að búa mér til mat úr því.“

Strangt regluverk fyrir einstaklinga Sigurður segir aðstæður fyrir einstaklinga sem vilja framleiða matvöru vera mun erfiðari í dag en áður fyrr og segir hann það mjög miður. „Ég er að selja ferskan, grafinn og reyktan silung en ég má ekki reykja hann sjálfur eins og ég gat gert hér áður fyrr. Matvælastofnun hefur sett algjörlega óþarfar kröfur á fólk sem vill framleiða matvæli. Ég skil vel að það þurfi að setja reglur en margar þeirra eru að mínu mati algjörlega óskiljanlegar. Sem dæmi þarf ég eldhús með tveimur vöskum til að fá

að reykja silunginn og selja, þetta er mjög undarleg krafa,“ segir Sigurður. „Ég var öflugri veiðimaður hér áður fyrr en í dag legg ég bara net þegar ég nenni því. Það er nú bara aldurinn og veðurfarið sem hefur haft áhrif þar á,“ segir Sigurður og hlær. „Fyrir aldamótin veiddi ég gjarnan undir ís en maður gerir það ekkert í dag. Veiðar undir ís er alltaf jafnari en á sumrin er silungurinn svo viðkvæmur og það þarf t.d. að vitja hans í netinu mjög ört því annars drepast þeir,“ bætir hann við. Sigurður útskýrir fyrir blaðamanni hvernig nokkurskonar moldarbragð

Sigurður Helgason bóndi og veiðimaður í Hraunholtum í Kolbeinsstaðahreppi hefur veitt silung og selt í yfir hálfa öld.

geti komið af silungnum ef hann er ekki tekinn rétt. „Það er ekki nóg að ná honum á land áður en hann drepst í netinu heldur þarf líka að drepa hann um leið og hann kemur úr netinu, annars er hætta á þessu svokallaða moldarbragði.“

Mjög misjafnt hversu vel veiðist

Sigurður selur bæði reyktan og grafinn silung á mörkuðum. Ljósm. sh.

Góð veiði hjá Sigurði í sumar en hann fékk tvisvar um 30 kíló af fiski í netið á einum sólarhring. Ljósm. sh.

Mjög misjafnt er hversu mikið veiðist í hvert skipti en að sögn Sigurðar getur verið allt frá engum fisk í netinu upp í tuttugu. „Ég myndi segja að algengast sé svona fimm til sjö fiskar en það kemur alveg fyrir að það veiðist mun betur. Ég var nú svo heppinn tvisvar í sumar að fá um 30 kíló í netið á einum sólarhring,“ segir Sigurður og bætir því við að

meðalfiskurinn sé rúmlega eitt pund eða rétt um hálft kíló. Silungurinn hans Sigurðar hefur eingöngu verið seldur á sveitamarkaði í félagsheimilinu Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshreppi undanfarin ár. „Ég hef ekki verið að setja fiskinn í sölu í verslanir. Kaupfélag Borgfirðinga var með hann hér áður. Eins sá ég um Hótel Eldborg um tíma og var þá alltaf með fiskinn þar. Ég er ekki að fara að auka framleiðsluna eitthvað úr þessu en fólk getur alltaf haft samband við mig ef það er vill kaupa fisk. Ég fer alltaf reglulega með fiskinn í Reykofninn í Kópavogi og þar er hann verkaður og honum pakkað í loftþéttar umbúðir. Ég geymi hann svo hér í frystinum og á yfirleitt nóg til,“ segir Sigurður að lokum. arg

ÍSLENSKT

GÆÐA UNGNAUTAKJÖT BEINT FRÁ BÝLI Steikur, snitsel, gúllas og hakk. Minnst 1/8 úr skrokk. Bjóðum líka lambakjöt núna í sláturtíðinni.

Mýranaut ehf / Leirulæk, 311 Borgarnes / myranaut.is / s. 868 7204


Matarauður

MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

37

Einu lífrænt vottuðu verslanirnar á landinu Verslunin Matarbúr Kaju var fyrst opnuð á Akranesi sumarið 2014 og í dag hefur kaffihús bæst við og önnur verslun verið opnuð í Reykjavík. Þetta eru einu verslanirnar á landinu sem hafa fengið lífræna vottun og fyrsta kaffihúsið. „Til að fá lífræna vottun þurfa allar vörurnar sem við seljum í lausu að vera ræktaðar og unnar á umhverfisvænan hátt, án eiturefna, erfðabreyttra efna eða annarra aukaefna,“ segir Karen Jónsdóttir eigandi Matarbúrs Kaju. „Hugmyndin hjá mér er að bjóða upp á lífrænt, umbúðalaust og plastlaust. Ég hef t.d. aldrei boðið upp á plastpoka í verslununum og hingað getur fólk komið með eigin ílát og verslað þurrvöru eftir vigt og ávexti og grænmeti í lausu,“ segir Kaja.

Er með lífrænt vottaða matvörulínu

Karen Jónsdóttir á og rekur Matarbúr Kaju á Akranesi og í Reykjavík, en það eru einu verslanirnar á landinu sem hafa fengið lífræna vottun.

Karen hefur einnig framleitt eigin matvörulínu sem seld er í verslununum og er það eina vörulínan sem pökkuð er hér á landi sem hefur fengið lífræna vottun. „Matvörulínan Kaja er pökkuð í endurvinnanlegar umbúðir algjörlega án hefðbundins plasts. Ef ég nota plast, sem ég geri eingöngu

ef varan geymist ekki með öðrum hætti, þá nota ég plasttegund sem brotnar mjög hratt niður, á örfáum mánuðum,“ segir Karen. „Til að koma vöru í sölu hjá mér þurfa þær að standast mínar kröfur, sem er ekki alltaf auðvelt,“ segir Karen og hlær. „Ég geri þá kröfu að í vörunni séu engin efni sem ræktuð eru á heilsuspillandi hátt. Til að mynda er það algengt með snyrtivörur að olían í þeim sé ekki endilega lífræn þó snyrtivaran sjálf sé með umhverfisvæna vottun. Ég geng því úr skugga um að ég geti rakið uppruna vörunnar alveg og hún sé í raun og veru alveg lífræn.“ Í Matarbúri Kaju eru seldar ýmsar matvörur, hreinlætisvörur, snyrtivörur og ýmsar heimilisvörur. „Nýlega fór ég í samstarf við Brauð og Co en ég fæ send frá þeim nýbökuð súrdeigsbrauð og snúða á hverjum degi. Þessu hafa Skagamenn tekið mjög vel og rýkur þetta alveg út,“ segir Karen og brosir. „Kökurnar okkar eru einnig mjög vinsælar, enda mjög góðar þó ég segi sjálf frá,“ segir hún og hlær. „Þetta eru Vegan og glútenlausar hrákökur sem búnar eru til hér í eldhúsinu og frystar svo þær haldast mjög ferskar,“ bætir hún við að lokum. arg

Við þjónustum allt landið

Umboðs- og heildsöluverslun SKESSUHORN 2017

Yfir 2000 vörutegundir á skrá

NÝTT Á SKRÁ! Grænmeti og ávextir, alltaf ferskt.

Sími: 437-1057 - Netfang: jgr@simnet.is

Þjónusta í 25 ár


38

Matarauður

MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

Fræðst um geitur og afurðir þeirra á Háafelli Geiturnar á Háafelli í Hvítárssíðu eru vinsælar meðal ferðafólks. Að sögn Jóhönnu Bergmann Þorvaldsdóttur bónda eru það ekki aðeins geiturnar sjálfar heldur einnig afurðir þeirra sem fólk hefur áhuga á. „Við reynum að forðast öll aukaefni í þær geitaafurðir sem við framleiðum og það er svo skemmtilegt að sjá viðbrögð fólks þegar það smakkar svona hreina matvöru. Fólk er ekki vant þessu og langflestir eru mjög hrifnir,“ segir Jóhanna í samtali við blaðamann. Á Háafelli býðst fólki að koma í heimsókn og kynnast geitunum. „Við bjóðum upp á leiðsögn og viljum fræða fólk um geitina en þær eru bara ansi merkileg dýr. Við fræðum fólk um mikilvægi

geitanna, sögu þeirra frá landnámi og um hollustu og gæði afurðanna. Það eru ekki aðeins matvæli sem koma af geitinni heldur gerum við einnig krem úr tólginni, sápu úr mjólkinni og svo eru ullin líka mjög dýrmæt. Kremin eru græðandi og mjög góð fyrir þá sem eru t.d. með exem eða psoriasis,“ segir Jóhanna.

Selur geitaafurðir Á Háafelli er lítil verslun þar sem fólk getur keypt geitaafurðir eða hlaup og síróp úr ólíkum plöntum í náttúrunni. „Við erum með kiðlingakjöt, pylsur, kiðlingakæfu, geitamjólkurís, fetaost, hvítmygluost, sápur og

Geitur á túninu á Háafelli.

Jóhanna Bergmann Þorvaldsdóttir bóndi á Háafelli býr til ýmsar geitaafurðir sem hún selur í lítilli verslun á bænum.

krem. Auk þess sem við búum til og seljum bæði hlaup og síróp úr jurtum sem við fáum úr garðinum og náttúrunni hér í kring. Við gerum t.d. mjög skemmtilegt fjólublátt hlaup úr þrenningarfjólu,“ segir Jóhanna. Aðspurð segir hún allar vörurnar nema

mjólkurvörurnar vera framleiddar á staðnum. „Við höfum ekki enn lagt í að fá aðstöðu sem er samþykkt fyrir framleiðslu mjólkurvara. Þorgrímur á Erpsstöðum hefur séð um að gera ostinn fyrir okkur en við ræktum sjálf allar kryddjurtir sem notaðar eru í

Tvær blómarósir; þær Unnur Þórdís Kristinsdóttir og Elín Elísabet Einarsdóttir í heimsókn hjá Jóhönnu á Háafelli. Ljósm. úr safni/gj.

hann. Við erum bæði með vanilluog súkkulaðiís en hann er búinn til í Holtseli í Eyjafirði. Það væri vissulega hagkvæmara að geta gert þetta sjálf og við leggjum vonandi í það einn daginn,“ segir Jóhanna.

Hægt að kaupa ostana í Reykjavík Fyrir þá sem hafa ekki kost á að koma við á Háafelli er hægt að kaupa ostana hjá Frú Laugu við Laugalæk í Reykjavík. „Ostabúðin við Skólavörðustíg hefur stundum verið með osta frá okkur en það er mest í Frú Laugu. Annars erum við bara að selja sjálf og fólk getur alltaf haft samband eða komið í heimsókn. Úrvalið er líka langmest hér hjá okkur auk þess sem fólk sem kemur til okkar fær að hitta geiturnar og fræðast um þær í leiðinni,“ segir Jóhanna að lokum. arg/ Ljósm. úr safni Skessuhorns

fastus.is

MJÚKT OG VANDAÐ LÍN FYRIR ÞIG OG ÞÍNA GESTI Fastus býður upp á vandað lín s.s. baðsloppa, inniskó, handklæði, þvottastykki, baðmottur og vönduð 250 þráða sængur- og koddaver fyrir hótel, ferðaþjónustur og heilbrigðisstofnanir á sanngjörnu verði. Kíktu á úrvalið í verslun okkar og í vefverslun fastus.is

Verið velkomin í verslun okkar Opið virka daga kl. 8:30–17:00 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is

Fastus er aðalstyrktaraðili Bocuse d’Or Iceland

Veit á vandaða lausn


Matarauður

MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

39

Bláskel og þari úr Breiðafirði Tíu ár eru liðin frá því fyrirtækið Íslensk bláskel og sjávargróður ehf. var stofnað og hóf ræktun á bláskel. „Skelin er um þrjú ár að vaxa í markaðsstærð en við höfum verið að uppskera skelina og selja í sjö ár núna,“ segir Símon Már Sturluson framkvæmdastjóri fyrirtækisins. „Þetta hefur gengið ágætlega og skelin okkar hefur verið með góða holdfyllingu. Salan hefur verið vaxandi á hverju ári og þá aðallega í okkar landshluta, frá Hvalfirði og vestur. Það skiptir okkur miklu máli að eiga góð viðskipti við aðila í nágrenninu, eins og þá sem vilja selja matvöru úr

héraði. Sérstaða okkar á Snæfellsnesi er einmitt sjávarfang og ég er ánægður að sjá hversu margir hér eru einmitt að nýta sér það og bjóða upp á ferskt sjávarfang á matseðli,“ segir Símon og bætir því við að um 85% af sölu bláskelja þeirra sé á Vesturlandi.

Aukin sala sjávargróðurs Bláskelin, sem oftast er þekkt sem kræklingur, er ekki veidd heldur ræktuð í svokallaðri línuræktun. „Við leggjum út línu, sem er ekki ósvipuð kaðli í útliti, sem lirfur

setjast á, stækka og verða að bláskelinni. Línan er svo dregin upp í bát þegar skeljarnar hafa þroskast og eru tilbúnar. Það er því talað um að fara og sækja skel, ekki veiða hana,“ segir Símon. Eins og nafn fyrirtækisins gefur til kynna selur það einnig sjávargróður. „Sala á sjávargróðri er alltaf að aukast og seljum við talsvert af honum til Norðurlandanna. Flestir Íslendingar þekkja söl, sem eru þurrkuð og verkuð til manneldis. Annar sjávargróður er minna þekktur meðal Íslendinga en tegundirnar eru þó töluvert margar og alltaf að fjölga. Sem dæmi erum við nýlega byrjuð að taka upp tvær nýjar tegundir, annars vegar Maríusvuntu og hins vegar Þangskegg, sem bragðast ekki svo ósvipað trufflusveppum,“ segir Símon.

Sjávargróður vinsæll í snyrtivörur

Bláskelin frá Símoni er með góða holdfyllingu og afar ljúffeng.

„Það er engin sérstakur uppskerutími fyrir bláskelina en sjávargróðurinn er eins og gróður á landi, með ákveðinn uppskerutíma. Skelina er hægt að taka allt árið, svo lengi sem ekki komi eiturþörungar í hana. Á þessum tíu árum höfum við aðeins einu sinni þurft að stoppa framleiðslu vegna eiturþörunga og það var einungis í þrjár vikur,“ segir Símon. „Sjávargróð-

Símon Már Sturluson fyrir utan Sjávarpakkhúsið í Stykkishólmi, þar sem bláskel frá honum má finna á matseðli.

urinn er ekki aðeins notaður til manneldis heldur er hann t.d. einnig notaður í snyrtivörur. Þörungar hafa í sér allskyns bætandi efni og hefur íslenska húðvörufyrirtæk-

Fagleg & freistandi Matarhandverk

NARFEYRARSTOFA Matur úr Héraði

Local Food - Stykkishólmur

narfeyrarstofa.is

ið Taramar notað sjávargróður frá okkur í vörur sínar. Áhugi fólks á þörungum fer sívaxandi enda eru þeir allra meina bót,“ segir Símon og brosir. arg


40

Matarauður

MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

Selur kindakjöt beint frá býli „Þetta byrjaði allt með bjúgunum,“ segir Kristín Helga Ármannsdóttir sauðfjárbóndi á YtriHólmi í Hvalfjarðarsveit. Kristín hafði í mörg ár búið til bjúgu fyrir heimilið og fyrir tveimur árum tók hún það skrefinu lengra þeg-

ar hún ákvað að búa til bjúgu og selja á sveitamörkuðum. Hún kom sér upp samþykktri aðstöðu til að vinna kjötafurðir og fór að selja bjúgun á sveitamörkuðum, auk þess sem hún fór að framleiða og selja tvíreykt hangikjöt og grafinn

ærvöðva. „Ég fór út í þetta því það þufti að auka tekjurnar meðfram bústörfunum, en á búinu eru um 600 ær,“ segir Kristín. „Viðtökurnar fóru alveg fram úr mínum björtustu vonum og sama fólkið er oft að hafa samband til að kaupa meira, sem ég er mjög þakklát fyrir. Hugmyndin var að skapa mér vinnu þar sem ég gæti stýrt vinnutímanum mínum sjálf. Fyrir síðustu jól ákvað ég að prófa að selja bæði léttreyktan lambahrygg og venjulegt hangikjöt, bæði á beini og úrbeinað. Þessu var svo vel tekið að ég er strax farin að taka við pöntunum fyrir næstu jól,“ segir Kristín og bætir því við að allir geti haft samband við hana og pantað fyrir jólin.

Tvíreykt hangikjöt gott til að narta í

Úrval af vörum sem Kristín býr til og selur.

Kristín fór að starfa í fiskvinnslu þegar hún var 14 ára og segist hafa verið með fingurna í matvælum síðan þá. „Ég hef gert svo margt sem tengist mat, til dæmis unnið í sláturhúsi og svo vann ég um tíma í eldhúsinu á Dvalarheimilinu Höfða. Ég hef svona verið í öllum öngum matvælaiðnaðarins,“ segir hún og brosir. „Ég hef í gegnum tíðina aflað mér þekkingar á kjötvinnslu og matreiðslu svo það var ekki flókið fyrir mig að byrja á þessu. Ég hef líka verið bóndi í 36 ár og unnið mitt kjöt sjálf,“ bætir hún við. Kristín segir erlendu ferðamennina helst kaupa hangikjötið og grafna kjötið. „Íslendingar eru að kaupa allar fram-

Grafinn ærvöðvi frá Ytra-Hólmi.

Kristín Helga Ármannsdóttir sauðfjárbóndi á Ytra-Hólmi í Hvalfjarðarsveit verkar kjöt og selur beint frá býli.

leiðsluvörur sem við höfum verið að bjóða. Ég hef verið að benda fólki á hversu sniðugt tvíreykta hangikjötið er sem snakk, þetta kemur niðurskorið og er fullkomið sem smá nart í bílnum. Íslendingar eru svo fastir í að hangikjöt sé bara fyrir jólin en það þarf ekki endilega að vera. Ég hef t.d. gjarnan tekið þetta með mér í útilegur yfir sumarið,“ segir Kristín.

Opnar markað „Ég ætla að prófa að selja ferskt kryddað lambakjöt núna í haust og sjá hvernig fólk tekur í það,“ segir Kristín aðspurð hvort eitthvað nýtt væri væntanlegt frá henni. „Ég verð með ferska kjötið á sveitamarkaði við Æðarodda laugardag-

inn 7. október og ef fólk er hrifið af því mun ég halda áfram að selja það.“ Fram til þessa hefur fólk aðeins getað keypt vörur Kristínar á sveitamökuðum eða með því að hringja og panta þær hjá henni. Hún hefur ekki haft neinn ákveðinn tíma sem fólk getur komið á til að kaupa vörur en hún stefnir á að breyta því. „Ég ætla að prófa að opna markað með vörum beint frá býli hér heima laugardaginn 14. október og vera þá með auglýstan opnunartíma. Ef það gengur vel held ég að það fyrirkomulag sé komið til að vera. Fólk getur þó alltaf hringt í mig eða fundið Sauðfjárbúið Ytra-Hólmi á Facebook og haft samband ef það vill kaupa hjá mér utan opnunartíma,“ segir Kristín að lokum. arg

Hákarlinn í hávegum hafður í Bjarnarhöfn Í Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi rekur Hildibrandur Bjarnason og fjölskylda hans víðfrægt hákarla- og sveitasetur. Í safninu er hægt að fræðast um veiðar á hákörlum fyrr á öldum, verkun þeirra og notagildi og að sjálfsögðu eiga gestir þess kost að gæða sér á hákarli sem verkaður er á staðnum. Hákarlaverkun hefur verið stunduð af fjölskyldu Hildibrands kynslóð fram af kynslóð og er sú hefð í hávegum höfð í Bjarnarhöfn. „Hákarlaveiðar hafa aldrei verið stundaðar hér en pabbi flutti verkunarþekkinguna með sér þegar við fluttum hingað frá Asparvík á Ströndum árið 1951,“ segir Hildibrandur. Hann segist fá hákarlinn í Bjarnarhöfn af togurum víðs vegar af landinu. „Við þekkjum orðið svo margar togaraáhafnir að við erum látnir vita þegar hákarl kemur í trollið. Þeir eru að senda frá sér hákarl allt árið en mest er þó eftirspurnin á þorranum.“

Hákarlinn unninn í neytandapakkningar Misjafnt er hvernig hákarlarnir eru þegar þeir berast frá togarasjómönnum. Mikið verk er að gera að einum hákarli til verkunar en Hildi-

Mikið verk er að gera að einum hákarli en Hildibrandur segir það vera eins og annað, ef samhent verkþekking sé á staðnum sé þetta auðvelt og ef hnífarnir bíti vel, þá takist þetta.

Vorið 2007 bar vel í veiði, en þá eignaðist Hildibrandur fjörutíu og fjóra hákarla í einni kippu af erlendum togara. Komið var að landi í Rifi og var það Páll skipstjóri á Björgu sem dró hákarlana að landi. Þegar í land var komið voru hákarlarnir dregnir upp í uppsátrið þar sem vörubifreið dró þá upp en síðan voru þeir hífðir á bílinn og brunað heim í Bjarnarhöfn þar sem aðgerð hófst. Ljósm. af.

brandur segir það vera eins og annað, ef samhent verkþekking er til staðar sé þetta auðvelt og ef hnífarnir bíti vel, þá takist þetta. Í Bjarnarhöfn tekur síðan við um hálfs árs verkun. Fyrst þarf að skera hákarlinn í hæfilegar beitur og leggja hann í kös í sérsmíðuðum kössum. Þar er hann látinn kæsast og síðan hengdur í hjall. Allt þetta ferli tekur sinn

fiskbúðir sem kaupa hákarlinn þannig og hengja upp hjá sér. Þar eru síðan skornar sneiðar af beitunni eftir óskum kaupenda. Hákarlasafnið opnuðu Hildibrandur og fjölskylda árið 2004 og segir hann viðtökurnar hafa verið mjög góðar frá opnun. Verkþekking heimamanna, atvinnusaga og hefð tvinnast saman í Bjarnarhöfn

tíma sem fer þó eftir tíðarfarinu hverju sinni. Þá tekur við að sneiða niður beiturnar, allt niður í litla teninga og koma afurðinni í neytendapakkningar. Þær fara víða en stærstu kaupendurnir eru stór dreifingarfyrirtæki, sem jafnframt bjóða og verka aðrar sjávarafurðir. Í sumum tilvikum eru beiturnar seldar í heilu lagi frá Bjarnarhöfn og helst eru það

og verður Hildibrandur ekki var við annað en að þetta veki áhuga fólks. „Hér er hægt að fræðast um allt sem tengist hákarli. Bjarnarhöfn hentar vel fyrir svona starfsemi enda eru þar bestu aðstæður til að verka hákarl. Starfsemi okkar fellur líka vel að hefð svæðisins í veiðum og verkun,“ segir Hildibrandur að endingu. hlh


Matarauður

MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

41

Paprikubóndi í Borgarfirði

Uppskeran hefur aukist samhliða meiri þekkingu í greininni „Ég er búinn að eiga þessa stöð frá árinu 2005 en hef verið í grænmetisrækt frá því ég var ungur. Pabbi var í útiræktun svo ég kynntist þessu snemma og hef ég verið að rækta eitt og annað t.d. gulrætur, tómata, gúrku og nú papriku,“ segir Dagur Andrésson garðyrkjubóndi í Reit í Borgarfirði. Í Reit er Dagur með 2.300 fermetra gróðurhús í fjórum einingum og ræktar þar um 18-20% af allri papriku sem framleidd er hér á landi. „Þetta er aðeins breytilegt á milli ára en ég hef, með þessa litlu stöð hér, verið að framleiða svona um þetta, 18-20%, en ansi mikið af paprikunni hér á landi er innflutt,“ segir Dagur.

Rólegast yfir sumartímann „Uppskerutíminn er frá apríl fram í nóvember en það er nóg að gera þess á milli. Ég þarf að sótthreinsa húsin á milli tímabila og svo í janúar sái ég fyrir nýjum plöntum. Ég el þær upp á borði undir ljósum svona fram í mars en þá þurfa húsin að vera tilbúin svo ég geti komið plöntunum fyrir,“ segir Dagur aðspurður um hvað garðyrkjubóndi geri þegar ekki er uppskerutími. „Sumarið er í raun rólegasti tíminn hjá mér. Þá er þetta bara rútína, huga að plöntun-

Paprikurnar nýkomnar af plöntunni.

um og taka af þeim. Svo er ég líka með starfsfólk hjá mér yfir sumarið,“ bætir Dagur við.

Þekking hefur aukist Aðspurður hvers vegna paprikuræktun sé ekki jafn öflug og gúrkuog tómataræktun hér á landi segist Dagur ekki vita það nákvæmlega, en að það gæti tengst því að paprikuplantan sé viðkvæm. „Ef paprikuplantan verður fyrir áfalli vegna kulda nær hún sér alls ekki alltaf á strik aftur. Það gæti spilað inní. En

Dagur Andrésson garðyrkjubóndi ræktar paprikur í Reit í Borgarfirði.

svo gefa paprikuplönturnar ekki jafn mikið af sér og gúrku- og tómataplönturnar. Það hefur þó lagast mikið svona frá aldamótum. Þá kom hér nýr ráðunautur sem hefur komið með góð ráð fyrir bændur og hefur orðið mikil aukning í framleiðslu síðan. Áður þótti það bara nokkuð gott að ná svona 7-10

kílóum á fermetra en í dag er það örugglega nær 18 kílóum,“ segir Dagur. Umbúðir um grænmeti hafa verið mikið í umræðunni að undanförnu og segir Dagur umbúðirnar þjóna tvennum tilgangi. „Pakkningarnar eru m.a. til að upprunamerkja vörurnar. Ef við pökkum þeim ekki og

merkjum geta kaupmenn auðveldlega sett erlenda vöru í kassana fyrir þær íslensku og þá er engin leið fyrir neytendur að vita um uppruna vörunnar. Svo hefur þetta gríðarleg áhrif á endingu grænmetisins. Varan endist töluvert betur í góðum pakkningum en í lausu,“ segir Dagur. arg

Matarbúrið Dalabyggð

Dalabyggð er fyrst og fremst landbúnaðarhérað, þar sem mikil hefð er fyrir sauðfjárrækt og mjólkurvinnslu. Við erum stolt af okkar metnaðarfullu fyrirtækjum á sviði matvælaframleiðslu í bæði stórum og smáum stíl, jafnt í frumvinnslu hráefnis og fullvinnslu afurða. Við hvetjum Dalamenn til þess að virkja ímyndunaraflið enn frekar og þróa og framleiða fleiri matvörur af öllu tagi. Þar má byggja á annars vegar því góða hráefni sem landbúnaður héraðsins býður upp á og hins vegar á þeim náttúruauðlindum til lands og sjávar sem héraðið býr yfir.

SKESSUHORN 2017

Sveitarfélagið byggir upp vottaða matvælaframleiðsluaðstöðu í félagsheimilinu Tjarnarlundi, sem stendur til boða fyrir íbúa sveitarfélagsins að nýta til þróunar og framleiðslu á nýjum matvælum. Matur framleiddur í vottaðri aðstöðu er meðal annars gjaldgengur í sælkeraverslanir og sem hráefni til veitingahúsa.


42

Matarauður

MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

Ferðaþjónusta sérhæfð í matarferðum um Vesturland Crisscross er nýtt ferðaþjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í matarferðum um Vesturland. Bændur og smáframleiðendur eru heimsóttir og ferðalöngum gefst tækifæri til að kynnast bústörfum og gæða sér á ljúffengum matarhandverki beint frá býli. Á bak við fyrirtækið stendur Sigríður Anna Ásgeirsdóttir. Hún er sjálf matarfrumkvöðull, en hún framleiðir Íslandus mysudrykk og Íslandus kex úr mysu frá Rjómabúinu á Erpsstöðum. Í drykkinn blandar hún bláberja- og krækiberjasafa og seyði af villtum jurtum við mysuna en kexið inniheldur auk mysu ýmis holl fræ og fjallagrasahratið úr drykkjarframleiðslunni. “Mig langaði að setja þessa hollu vöru, mysuna, í nýjan búning sem hentaði vel nútíma matarsmekk og kæmi í veg fyrir matarsóun,” segir Sigríður Anna. Í dag eru Íslandus vörurnar seldar í sérvöruverslunum víðsvegar um landið og ekki síst sem matarminjagripur til erlendra ferðamanna, enda vinsælt að taka heim til sín séríslenskar vörur til minningar um ferðina hingað til lands. Í gegnum þátttöku á matarmörkuðum kynntist ég mörgum frábærum framleiðendum sem leggja metnað í að koma hreinum og góðum afurðum sem framleidd-

ar eru á vandaðan og vistvænan hátt á framfæri. Það var þá sem hugmyndin fæddist að blanda saman þessum tveimur ástríðum mínum, matarframleiðslu og ferðalögum,” segir Sigríður Anna, en hún hefur einnig langa reynslu sem leiðsögumaður fyrir erlenda ferðamenn.

Stórkostleg matarkista Ferðir Crisscross byggjast á samvinnu við heimamenn og þeirra framlag. Gestirnir miðla af lífi sínu og eigin reynslu og eykur það mjög gildi ferðarinnar fyrir erlenda ferðamenn. Crisscross hefur að leiðarljósi að fara ótroðnar slóðir í sínum ferðum og það var ekki að ástæðulausu að Vesturland varð fyrir valinu sem áfangastaður. „Þar er mikil náttúrufegurð og hægt að velja úr mörgum náttúruperlum sem fáir leggja leið sína um. Einnig er Vesturlandið allt stórkostleg matarkista og mikil gróska í matarhandverki og nýtingu á staðbundnum hráefnum. Það er einmitt þetta sem ferðalangar með mataráhuga eru að leita að.” Þessi gerð ferðamennsku fer sannarlega ört stækkandi því víða um heim nýtur matarferðamennska mikilla vinsælda þótt hún sé ennþá fremur ný af nálinni hérlendis.

Samvinna er allra hagur

Fram til þessa hafa ferðirnar hjá Crisscross mestmegnis verið dagsferðir um Hvalfjörð og Borgarfjörð. Fyrirtækið hyggur á lengri ferðir þar sem farið verður um

Stefnumót 19. október í Hjálmakletti í Borgarnesi Stefnumótið er hugsað til að efla tengslanet, samtal og samvinnu aðila sem vilja efla matvælaframleiðslu, fullvinnslu hráefnis í héraði, sölu beint frá býli, hráefnisnotkun úr heimahéraði á veitingastöðum og matartengda upplifun á Vesturlandi. Stefnumótið er skipulagt með léttum brag og kryddað með reynslusögum matarfrumkvöðla. Sóknaráætlun Vesturlands reynir að endurspegla þær þarfir og framtíðarsýn sem Vestlendingar hafa fyrir landshlutann. Í vinnu við Sóknaráætlun 2015-2019 kom fram að auk eflingar og þróunar í þeim öflugu matvælafyrirtækjum sem fyrir eru á svæðinu er markvisst unnið að því að skapa aðstæður sem styðja við sprota í matvælaframleiðslu, ýta undir samvinnu, efla markaðssetningu og auka sölu. Í sömu vinnu var rætt um að stofna samstarfsvettvang til að skapa umgjörð fyrir matvælaframleiðendur

þar sem t.d. yrði hægt að vinna að sameiginlegu vörumerki, að stefnumótun, samstarfi við ferðaþjónustuaðila, stuðningi við beint frá býli og beint frá bát og eflingu ræktunar lífrænna matvæla. Stefnumótið fimmtudaginn 19.

október er tilraun til þess að bjóða upp á vettvang til tengslamyndunar og samhristings milli framleiðenda og veitingasala á Vesturlandi. Vonandi verður stefnumótið enn eitt skrefið í þá átt að efla samvinnu og samtal hagsmunaaðila á Vesturlandi. Á staðnum verða, auk matvælaframleiðenda og veitingasala, fulltrúar frá Matís, Íslandsstofu, Landbúnaðarháskóla Íslands og atvinnuþróunarfélögum svo eitthvað sé nefnt. Stefnumótið er einstakt tækifæri til að efla viðskiptatengsl, víkka sjóndeildarhringinn og taka þátt í skemmtilegri samkomu. Þeir matvælaframleiðendur sem vilja gefa smakk af vörunni sinni á stefnumótinu er velkomið að gera það en það er ekki skylda. Þátttökugjald er ekkert. Skráðu þig strax með því að senda póst á signy@creatrix.is fyrir 14. október.

fleiri svæði á nokkrum dögum. „Draumurinn er að hafa þematengdar ferðir þar sem lífinu til sjávar og til sveita er gert skil með því að heimsækja einn daginn bændur í uppsveitum Borgarfjarðar eða í Dölunum og næsta dag matarframleiðendur við sjávarsíðuna t.d. á Snæfellsnesi. Það er nefnilega hægt að segja svo margar sögur af landi og þjóð í gegnum mat og matarhefðir. Þetta er klárlega það sem ferðamaðurinn sem kemur til okkar hefur áhuga

á,” segir Sigríður Anna. Hún telur jafnframt mikilvægt að samvinna við heimamenn sé með allra besta móti og það gerist þegar allir hagnast á samvinnunni. „Hingað til höfum við verið mjög heppin með samstarfsaðila og það væri mjög gaman að heyra frá fleiri aðilum á Vesturlandi sem hefðu áhuga á að taka þátt í þessu með okkur. Ekki hika við að hafa samband,“ segir Sigríður Anna. Sjá nánar á: http://crisscross.is bg


Matarauður

MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

43

Rjómabúið Erpsstöðum fjósið og heimavinnsluna okkar og fá fræðslu um vinnsluferlið og íslenskan búskap og búskaparhætti í Dölunum,“ segir Þorgrímur. „Ég hef yfirumsjón með framleiðslunni en hef góða starfsmenn með mér. Það er ein kona hér úr sveitinni sem sér alveg um að búa til ísinn og önnur sem sér um skyrkonfektið. Ég fæ svo mjólkurfræðing til mín tvisvar í mánuði til að sjá um ostagerðina. Svo hjálpast allir heimilismeðlimir að,“ segir Þorgrímur aðspurður hvort þau Helga sjái ein um framleiðsluna. „Ég sé svo um að pakka vörunni, geri hana klára fyrir sölu og skila henni af mér í verslanir eða veitingastaði. Vörurnar okkar eru bæði seldar í versluninni Frú Laugu í Reykjavík og Ljómalind í Borgarnesi,“ bætir hann við.

Hluti af því vöruúrvali sem framleitt er á Rjómabúinu Erpsstöðum.

Þorgrímur Einar Guðbjartsson og Helga Elínborg Guðmundsdóttir eru með heimavinnslu mjólkurafurða og bjóða gesti velkomna.

Opna sýningu um skyr

Þau Þorgrímur og Helga hafa staðið í framkvæmdum undanfarna mánuði þar sem þau eru að breyta búð sem þau hafa verið með í öðrum endanum á fjósinu. „Við erum með búð hér þar sem gestir geta komið og keypt vörurnar okkar. Hingað hefur fólk einnig getað komið, sest niður og fengið sér ís og komist í návígi við dýrin,“ segir Þorgrímur og bætir því við að nokkur minni húsdýr og gæludýr séu á staðnum fyrir gesti að skoða og kynnast. „Við erum að breyta öllum innréttingum og skipulagi í búðinni og setja upp litla sýningu um skyrgerð, hvernig skyrið var gert áður fyrr og hvernig það er gert í dag,“ segir Þorgrímur. „Stefnan var að opna sýninguna í október en það er óvíst að það náist,“ bætir hann við. Þorgrímur seg-

Skyrkonfektið frá Rjómabúinu Erpsstöðum hefur notið mikilla vinsælda.

ir búðina venjulega bara vera opna yfir sumartímann en að þau reyni alltaf að taka á móti gestum allt

árið ef haft er samband við þau fyrst. arg/ Ljósm. Rjómabúinu Erpsstöðum

„Ljómalind sérhæfir sig í að bjóða upp á vörur frá heimavinnsluaðilum á Vesturlandi, allt frá ýmis konar handverki til búvara beint frá býli. Meðal þess sem við bjóðum upp á eru sultur, söl, ostar, ís, mysa, lax, lamba og nautakjöt. Einnig egg, sælgæti og grænmeti. Erum sem sagt með fjölbreytt úrval og allt unnið í héraðinu. Fáum nýjan varning í hverri viku.

Mýranaut og fleiri verða með smakk fyrir gesti og gangandi þann 14. október. SKESSUHORN 2017

„Við erum með kúabúskap og framleiðum mjólkurvörur, auk þess sem við bjóðum upp á gistingu fyrir fólk í húsi hér á bænum, svo það er nóg að gera,“ segir Þorgrímur Einar Guðbjartsson, mjólkurfræðingur og bóndi á Erpsstöðum í Miðdölum í Dalasýslu, þegar blaðamaður heyrði í honum. Þorgrímur og Helga Elínborg Guðmundsdóttir opnuðu Rjómabúið á Erpsstöðum vorið 2009 en fram að því voru þau með hefðbundinn kúabúskap. Þau byggðu nýtt fjós á bænum, komu sér upp heimavinnslu og fóru að framleiða rjómaís. „Þetta hefur aðeins undið uppá sig og í dag framleiðum við skyr, osta, skyrkonfekt og ís í mörgum bragðtegundum,“ segir Þorgrímur. „Gestir sem koma til okkar, bæði þeir sem eru í gistingu og aðrir, hafa kost á að skoða

Opnunartími í september 10-18, alla daga

Vetraropnunartími (frá 1. október.) frá 12-17 Opnum fyrir hópa


44

Matarauður

MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

Pennagrein

Matvælaframleiðsla á Vesturlandi Á Íslandi er gnægð náttúruauðlinda. Allar tengjast þær matvælaframleiðslu með beinum eða óbeinum hætti. Fiskimiðin eru einhver þau gjöfulustu sem þekkjast. Sýnt hefur verið fram á að það frumstæða landbúnaðarsamfélag sem einkenndi Ísland frá landnámi fram á seinni hluta 19. aldar hafi verið háð sjávarnytjum. Fiskveiðar voru þá einna mikilvægastar. Vegna frumstæðrar tækni (bátar og veiðarfæri) var best að sækja sjóinn á vetrarvertíðum þegar þorskurinn gekk á landgrunnið til hrygningar. Það gerði hann mest á Suðurlandi og Vesturlandi. Bændur fóru þá í ver, sem kallað var, alls staðar af að landinu og voru þau fjölmennustu á Reykjanesi, Vestfjörðum og Snæfellsnesi. Bent hefur verið á þá sérstöðu Íslands að vertíðarnar voru á þeim tíma ársins sem lítið álag var vegna sauðfjárbúskaparins en gæftir litlar þegar álag var í sauðfjárbúskapnum á vorin, sumrin og fyrst á haustin. Þessi sérstaða og samkeppnisforskot hafði Ísland fram yfir önnur lönd á norðurhveli jarðar. Því má segja að Íslandi hafi frá upphafi verið sérstaklega hentugt til matvælaframleiðslu og átti það við um suður- og vesturströnd landsins vegna hrygningarstaða þorsksins en ekki síður þess að mesta undirlendi landsins og hæsti meðalhiti er þar líka. Þar er vísað til undirlendi Suðurlands, Borgarfjarðar og jafnvel Dala. Veðráttan og ýmsar jarðhræringar hafa þó ávallt sett óheppilega strangar skorður á matvælaframleiðslu á Íslandi og þess vegna fjölgaði fólki ekki mikið frá landnámi fram að byrjun 20. aldar, þegar tæknivæðing hóf innreið sína. Í seinni tíð hefur samt þótt vænlegast að byggja forskot íslenskrar matvælaframleiðslu á sérstöðu landsins sem er gnægð grænnar orku, hreins vatns, hverfandi lítillar mengunar, skynsamlegrar nýtingar náttúruauðlinda og möguleika á að standa vel að velferð hús- og villtra dýra fremur en lágs verðs. Þrátt fyrir mikla umfjöllun um nauðsyn þess að styðja við fyrrnefnd gildi hefur afkoma verið afspyrnu léleg í íslenskum matvælaiðnaði að sjávarútvegi frátöldum.

verið hentugt að sækja sjóinn frá Akranesi og það talið vera elsti útgerðarstaður landsins. Á Akranesi hefur lengi verið um stærri fyrirtæki að ræða eins og Sementsverksmiðja ríkisins, sjúkrahús og Fjölbrautaskóli Vesturlands eru dæmi um. Það sama hefur einkennt matvælaframleiðslu. Þar bar Haraldur Böðvarsson hf. höfuð og herðar yfir aðra framleiðendur.

og fleira fyrst og fremst til útflutnings. Í Hvalfirði hefur hefðbundinn landbúnaður verið stundaður en vægi hans hefur dregist saman eftir að athafnasvæðið á Grundartanga byggðist upp. Þaðan voru Hvalveiðar stundaðar og vinnsla afurðanna fór þar fram í stórri hvalstöð og þeirri einu eftir miðja 20. öld. Þar hafa aðilar í Hvalfirði ráðist í

fjölgaði um 40% frá 1970 til 1980, árið 1970 voru þeir 1.157 en árið 1980 voru þeir 1.619. Árið 1981 var Borgarfjarðarbrúin opnuð fyrir umferð. Framkvæmdir við hana hófust árið 1975. Um svipað leyti hófust framkvæmdir við Hitaveitu Akraness og Borgarness. Á þessum tíma var mikið af húsnæði byggt í Borgarnesi. Fyrir utan landbúnað og þjónustu við hann voru starf-

Breiðafjörður hefur verið kallaður matarkista vegna fengsælla fiskimiða og fjölbreytni sjávarfangs. Ljósm. úr safni Skessuhorns/af.

Í dag hefur starfsemi Haralds Böðvarssonar verið hætt í nafni HB-Granda en nýir aðilar, Ísfiskur frá Kópavogi, hafa keypt bolfiskvinnsluhúsið og hyggjast nú nýta sér húsa- og tækjakost sem þar er til fiskvinnslu. Ennþá er Norðanfiskur starfræktur sem vinnur fisk og ýmsa fiskrétti og Akraborg sem sýður niður loðnu, smásíld, svil,

einskonar staðtengda handverksframleiðslu á matvælum undir merkjum „beint frá býli“.

Borgarfjarðarsvæði Myndun þéttbýlis í Borgarnesi á upptök sín að rekja til matvælaframleiðslu – þ.e. verslunar og tilrauna til útflutnings á laxaafurð-

ræktir fimm framhaldsskólar í Borgarfirði á þessum tíma, á Bifröst, Varmalandi, Reykholti, Borgarnesi og Hvanneyri. Þrír þeirra tengdust matvælaframleiðslu þar sem búfræði var kennd á Hvanneyri, húsmæðraskóli á Varmalandi og iðnskóli í Borgarnesi þar sem nema mátti mjólkur- og kjötiðn ásamt fleiru. Í dag eru aðeins

stöðugur í kringum 90 og starfsmenn um 15 nánast allan tíunda áratuginn en tók miklum breytingum við aldamótin og hélst nánast óslitið fram að bankahruni. Þennan tíma var stöðug uppbygging á aðstöðu, einkum nemendagarða og kennarabústaða. Við bankahrunið fækkaði nemendum að Bifröst. Skólastarf á Hvanneyri óx hægar á árunum fyrir bankahrun en tók vaxtarkipp eftir bankahrun. Þessu var fylgt eftir með uppbyggingu á aðstöðu. Í dag eru úrvinnslugreinar landbúnaðarins horfnar úr Borgarfirði ef frá er talin lítil veisluþjónusta sem heitir Kræsingar. Þá hafa bændur og fáeinir aðrir aðilar verið að þróa með sér matvælaframleiðslu í smáum stíl og í anda „beint frá býli“ og hafa þeir aðgang að vottuðu eldhúsi í þeim tilgangi og selja vörur sínar í versluninni Ljómalind. Tvö fyrirtæki eru að vinna og verka fisk – Eðalfiskur í bleikum fiski og annar smærri aðili í hvítum. Þó hefur matsölustöðum fjölgað ört vegna útþenslu ferðaþjónustunnar og má segja að hægt sé að kaupa mat á 12 stöðum í Borgarnesi. Einhver ylrækt er í Borgarfirði en miklu minni en hún var á níunda áratug 20. aldarinnar. Þar má nefna Laugaland á Varmalandi sem framleiðir gúrkur og svo er all nokkur framleiðsla tómata, jarðarberja og papriku og fleiri grænmetistegundir á Kleppjárnsreykjum, Reykholti og nágrenni. Þá eru framleiddar ýmsar vörur í Borgarfirði sem auka á fjölbreytni í matvælaframleiðsu þó það sé ekki í stórum stíl. Þar má nefna framleiðsla á víni, bjórnum Steðja, sultur og krydd.

Snæfellsnes Útræði var víða á Snæfellsnesi en eftir að vélbátavæðing hófst á Ís-

Vesturland Í fyrstu virðist atvinnulíf Vesturlands einkennast af hefðbundnum landbúnaði og sjávarútvegi eins og landsbyggðirnar flestar. Við nánari rýni kemur þó í ljós matvælaiðnaður á Vesturlandi á sér einhverja sérstöðu. Þar má nefna veiðar og vinnslu á skelfiski – einkum í Breiðafirði. Einnig má geta þess að fáir hlutar landsins geta státað af eins gjöfulum ám og vötnum í náttúrlegum laxi og silungi. Þá eru heiðar og engi á Vesturlandi ákaflega heppilegar til rjúpna- og gæsaveiða. Að öðrum landshlutum ólöstuðum þá hefur landshlutinn Vesturland verið einna öflugastur í landbúnaði og sjávarútvegi af fyrrgreindum sökum.

Akranes og Hvalfjörður Íbúar Akraness voru 767 árið 1900, 2.577 árið 1950 og 5.433 árið 2000. Frá fornu fari hefur

Kornrækt er stundum í sveitum Vesturlands, flest ár með ágætum árangri og bætir þá afkomu búana sem hana stunda. Meðal frumkvöðla á því sviði er Magnús Eggertsson bóndi í Ásgarði í Reykholtsdal sem hér þrestir korn. Ljósm. úr safni Skessuhorns/mm.

Víða er unnið að þróun í matvælaframleiðslu í landshlutanum. Í því sambandi má nefna salatræktun á gróðrarstöðinni Lágafelli við Vegamót á Snæfellsnesi. Ljósm. Matarauður Íslands.

skötusels- og þorsklifur í sælkerapakkningar. Þá starfrækir fyrirtækið líka niðursuðuverksmiðju í Ólafsvík á Snæfellsnesi. Á Akranesi hafa þróast atvinnugreinar í tengslum við sjávarútveg. Þar má nefna fyrirtæki eins og Skaginn 3X sem þróar, hannar og framleiðir hátæknilausnir fyrir bæði skip og fiskvinnslur í landi. Þá er Vignir G Jónsson hf. á Akranesi, sem í dag er í eigu HB Granda, framsækið framleiðslufyrirtæki sem framleiðir margvísleg matvæli úr sjávarfangi, hrogn

tveir þeirra starfræktir að hluta til, en tveir háskólar hafa bæst við. Frá miðjum níunda áratugnum fjaraði hratt undan skólarekstri Húsmæðraskólans að Varmalandi og Héraðsskólans í Reykholti. Þó að héraðsskóli teljist hafa verið starfræktur í Reykholti á tímabilinu 1931 til 1997 (Heimskringla, 2004) var starfsemi hans aðeins svipur hjá sjón á tíunda áratugnum. Árið 1995 var mjólkursamlaginu í Borgarbyggð lokað. Árið 1988 var Samvinnuskólinn fluttur upp á háskólastig og var nemendafjöldi nokkuð

um á seinni hluta 19. aldar. Íbúum fjölgaði síðan í hægum skrefum fram að seinni heimsstyrjöldinni. Um aldamótin, árið 1901, voru íbúar í Borgarnesi 50 talsins. Árið 1940 var fjöldi íbúanna kominn upp í 629. Á áttunda áratugnum var mikill uppgangstími í landbúnaði sem hófst reyndar á árunum strax eftir síðari heimsstyrjöldina. Þá var sláturhús í Brákarey stækkað mikið og byggt stórt mjólkursamlag í Borgarnesi. Uppganginn á áttunda áratugnum má sjá á því að íbúum

landi og mikilvægi góðra hafna fór að skipta meiru máli til að verja dýr fiskiskip þéttist byggðin þar sem þær var að finna í bland við nálægð gjöfulla miða. Það ásamt litlu undirlendi orsakaði að kjölfesta atvinnulífsins á norðanverðu Snæfellsnesi urðu veiðar og vinnsla sjávarfangs. Þó má segja að löngum hafi verið lögð talsverð áhersla á bolfiskvinnslu utarlega á nesinu en eftir því sem innar dró hafi áherslan aukist á veiðar og vinnslu á skelfiski. En skelfiskmiðin hrundu um aldamótin síðustu og árið 2002 voru veiðar


Matarauður

MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

bannaðar. Nú eru þó teikn á lofti að skelfiskveiðar geti hafist á ný. Þá hefur vægi smábátaútgerðar verið meiri utar á nesinu og nær fengsælustu fiskimiðunum við odda þess, en áhersla á stærri skip meiri eftir því sem innar dregur og lengra frá miðum. Breiðafjörður hefur verið kallaður matarkista vegna fengsælla fiskimiða og fjölbreytni sjávarfangs. Á Reykhólum í Barðastrandasýslu hefur verið þörungavinnsla sem nýtist í matvælaiðnaði erlendis en nýverið hafa aðilar á Snæfellsnesi sýnt því áhuga á að hefja uppbyggingu slíkrar framleiðslu. Yst á Snæfellsnesi eru þrír byggðakjarnar: Ólafsvík, Rif og Hellissandur. Í Ólafsvík voru 496 árið 1900, 481 árið 1950 og 988 árið 2000. Í Rifi hefur Hagstofan engar tölur fyrr en 1997 en þá bjuggu þar 150 og 148 árið 2000. Á Hellissandi hefur Hagstofan fyrst tölur frá 1904 og þá bjuggu þar 186, 329 árið 1950 og 413 árið 2000. Grundarfjarðarbær er yngsta þéttbýli á Snæfellsnesi. Upp úr miðri 20. öld færðist mikill kraftur í uppbyggingu bæjarins. Árið 1950 voru íbúar þar 219 talsins, en tuttugu árum síðar var íbúafjöldinn kominn upp í 599 og 952 árið 2000. Burðarásar atvinnulífsins hafa að öðrum ólöstuðum verið Guðmundur Runólfsson og Soffanías Cecilsson sem báðir hafa stundað blandaða útgerð í botnfisk- og flatfisktegundum. All nokkur skelfiskvinnsla var í Grundarfirði en liggur nú niðri. Nýlega keypti Fisk-Seafood á Sauðárkróki starfsemi Soffaníasar Cecilssonar og hyggst reka í óbreyttri mynd. Í Stykkishólmi hefur verslun verið stunduð frá fornu fari. Þar ráku danskir kaupmenn verslun lengi vel. Um síðustu aldamót, árið 1901, voru íbúar þar 363, 843 1950 og 1.229 árið 2000. Í Stykkishólmi hefur Sigurður Ágústsson verið umsvifamikill í sjávarútvegi. Starfsemi þess fyrirtækis má rekja til ársins 1933 þegar Sigurður Ágústsson keypti þrotabú Tangs og Riis, síð-

45

Þrátt fyrir tímabundið bakslag í afkomu sauðfjárbænda í haust er greinin ennþá kjölfesta í búsetu margra í landshlutanum. Ljósm. úr safni/sm.

Fyrirtækið Ísfiskur í Kópavogi keypti nýverið bolfiskvinnsluhús HB Granda á Akranesi og hyggst nýta sér húsa- og tækjakost sem þar er til fiskvinnslu og hefja vinnslu eftir næstu áramót. Ljósm. úr safni Skessuhorns/mm.

ustu leifar danskrar selstöðuverslunar á Íslandi. Þó Sigurður Ágústsson hafi aðallega verið í skelfiskvinnslu fyrir nokkrum árum er fyrirtækið núna í saltfiskframleiðslu, kavíarframleiðslu og reyktum fiski að auki. Þórsnes er annað stórt fiskverkunarfyrirtæki þar. Skipavík skipasmíðastöð er rekstur sem byggðist upp í skjóli öflugs sjávarútvegs og hefur verið rekin í marga áratugi í Stykkishólmi. Í Stykkishólmi var mest unnið úr rétt rúmlega 14.000 tonnum af hráefni úr sjó árið 1983. Síðan hefur þetta minnkað nokkuð jafnt og þétt og árið 2002 var unnið úr tæplega 6.700 tonnum. Það ár komu rúmlega 7.500 tonn að landi í Stykkishólmshöfn. Á sunnanverðu Snæfellsnesi hefur hefðbundinn landbúnaður verið stærsta atvinnugreinin. Núna allra síðustu árin hefur ferðaþjónusta verið að byggjast upp og eflast – því meira eftir því sem utar dregur og nær Þjóðgarðinum Snæfellsjökli. Þar er ekki mikil útgerð eða fiskiðnaður, þó einna helst á Arnarstapa. Í Kolbeinsstaða, Eyjaog Miklaholtshreppi er stundaður hefðbundinn landbúnaður sem hefur dregist saman á undanförnum áratugum líkt og annars staðar

ur tekist vel til með framleiðslu á margs konar vörum, sérstaklega ostum sem fara til dreifingar á landsvísu. Þá hefur starfsemin á Erpsstöðum vakið verðskuldaða athygli fyrir afurðir sínar þar sem lagt er mikið upp úr gæðum og ferskleika. Þetta er ís, skyr og rjómi. Þá þykir einnig hafa náðst verulegur árangur í framleiðslu á lambakjöti að YtriFagradal sem alið er m.a. á villtri hvönn. Úrvinnsla á fiski hefur verið stunduð í sláturhúsinu í Búðardal, starfsemi sem hefur verið að þróast og tengist annars vegar laxeldinu á sunnanverðum Vestfjörðum og bættum samgöngum til Hólmavíkur. Verslun hefur verið rekin um langt árabil í Búðardal. Nýleg smábátahöfn er í Búðardal og með nýjum vegi yfir Bröttubrekku sem tekinn var í notkun árið 2003 og vegi yfir Þröskulda hafa opnast bæði ný tækifæri og af honum stafa jafnframt ógnanir. Ný og erfiðari staða í sauðfjárrækt er stór ógn við matvælaframleiðslu í Dölunum en þeir hafa lengi verið sterkir í þeirri grein.

á landinu. Einn aðili hefur verið í úrvinnslu sjávarfangs með þurrkun sjávarafurða og hyggur á úrvinnslu þörunga. Á svæðinu hefur vottuðu eldhúsi í Breiðabliki verið komið upp í þeim tilgangi að efla framleiðslu í anda „beint frá býli“ og hafa heimamenn verið að prófa sig áfram. Undir þeim merkjum er starfræktur sveitamarkaðurinn Búsæld. Á Snæfellsnesi eru margir í framleiðslu á matvælum á smáum stíl. Þar má nefna hákarlverkun, harðfisk, reyktan makríl, niðursoðna þorsklifur, kræklingaeldi, ígulkerjavinnsla, sæbjúgu og beitukóng.

Dalir Búðardalur er þéttbýli Dalanna og er ungt í þeim skilningi að það byggðist upp á 20. öld. Íbúar voru 44 árið 1930, 99 árið 1960, 202 árið 1970, 292 árið 1990 og 259 árið 2000. Búðardalur byggðist fyrst upp sem þjónustukjarni við landbúnað en í dag er einnig farið að bera allnokkuð á ferðaþjónustu. Í frumvinnslugreinum sem reknar hafa verið þar má helst nefna mjólkurbú og sláturhús. Stærsta fyrirtækið og þar með stærsti vinnuveitandi staðarins er Mjólkurstöðin, en þar hef-

Lokaorð Vaxandi gróska hefur verið á öllu Vesturlandi varðandi nýjungar í matvælaframleiðslu á öllum svið-

um, hjálpast þar að aukinn ferðamannastraumur um svæðið og tækifæri sem skapast samhliða honum í fjölgun veitingastaða og markaðssetningar á sérstöðu, matvæla framleiddum í heimabyggð. Í þessu sambandi má nefna salatræktun á gróðrarstöðinni Lágafelli við Vegamót á Snæfellsnesi, þróun á lífrænum vörum hjá Kaju á Akranesi og þróunarstarfi hjá „Hinu blómlega búi“ í Borgarfirði. Allt hefur þetta jákvæðar víxlverkanir þar sem t.d. vöxtur í ferðaþjónustu skapar tækifæri í aukinni framleiðslu á matvælum í héraði sem vonandi leiðir til markaðssetningar á landsvísu og jafnvel útflutnings. En stóru framleiðendurnir, þá aðallega í sjávarútvegi, bera höfuð og herðar yfir þróunarstarf, verðmæta- og atvinnusköpun á svæðinu og fyrirséð að þannig verði það áfram og góð blanda af smærri og stærri fyrirtækjum kallar einfaldlega á öflugra þróunarstarfs og meiri grósku í atvinnugreininni.

Vífill Karlsson og Ólafur Sveinsson Höf. starfa við atvinnuþróun og rannsóknir hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi.

Matarsmiðja verður opnuð í Ljómalind „Hingað getur fólk á Vesturlandi komið með sínar vörur í sölu,“ segir Sigurbjörg Kristmundsdóttir verslunarstjóri í Ljómalind í Borgarnesi um fyrirkomulag verslunarinnar. „Einu kröfurnar sem við setjum eru að þeir sem vilja selja vöru hjá okkur búi á Vesturlandi og að vörurnar séu vel unnar úr góðu hráefni. Helst viljum við að vörurnar séu unnar úr náttúrulegum efnum, ekki gerviefnum,“ segir Sigurbjörg og bætir því við að alltaf sé pláss fyrir fleiri framleiðendur í versluninni. „Við gerum engar kröfur á framleiðendur að skila ákveðnu magni af sinni vöru. Fólk gæti þess vegna komið með eina vöru í sölu og svo aldrei meira,“ segir Sigurbjörg og bætir því við að allar vörur fara í gegnum matsnefnd þar sem gengið er úr skugga um að þær uppfylli kröfur.

Fjölbreytt vöruúrval Í Ljómalind er mjög fjölbreytt vöruúrval, bæði af matvöru og handverki. „Vöruúrvalið er oft breytilegt, það fer bæði eftir því hverjir eru með vörur í sölu hverju sinni og svo spilar árstíminn inní,“ segir Sigurbjörg. Þegar litið er yfir

Sigurbjörg Kristmundsdóttir verslunarstjóri í Ljómalind.

Mikið og fjölbreytt vöruúrval er að finna í versluninni Ljómalind í Borgarnesi.

verslunina er gríðarlega mikið af fallegu handverki þar að finna og mikið úrval af matvöru. „Við erum mikið með glerverk, keramik, skart, prjónavörur, kjöt, mjólkurvörur, grænmeti, melónur, sultur og svona mætti lengi telja. Þetta er mjög fjölbreytt, sem gerir verslunina svo áhugaverða. Ferðamenn hafa mjög gaman af því að versla hjá okkur en heimamenn og ís-

Eigendur og starfsmenn Ljómalindar hafa í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi unnið að opnun matarsmiðju í Borgarnesi, þ.e. eldhús sem stenst allar kröfur Matvælastofnunar um framleiðslu á matvælum. „Smiðjan á að verða aðstaða fyrir frumkvöðla á Vesturlandi þar sem þeir geta unnið að vöruþróun og smáframleiðslu.

lenskir ferðamenn eru líka duglegir að koma. Það er t.d. gaman að segja frá því að margir heimamenn versla alltaf ákveðnar matvörur hjá okkur,“ segir Sigurbjörg. „Þú sérð það að við erum með umboðssölu fyrir um 60-70 framleiðendur og allir eru þeir með vörur sem eru á einhvern hátt einstakar hjá okkur og úrvalið því fjölbreytt eftir því,“ bætir hún við.

Opna matarsmiðju

Vörurnar verða að vera matvæli eða skyldar vörur. Markmið verkefnisins er að leggja grunn að aðstöðu til smáframleiðslu, tilrauna fyrir frumkvöðla í matvælavinnslu og tengdri starfsemi, skapa umhverfi sem örvar hugmyndir íbúa á svæðinu og aðstoðar frumkvöðla og smáframleiðendur að þróa sín viðfangsefni,“ segir Sigurbjörg að endingu. arg


46

Matarauður

MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

Telur að hefja eigi að nýju sauðaostaframleiðslu á Íslandi Sveinn Hallgrímsson er mikill áhugamaður um nýtingu afurða íslensku sauðkindarinnar Sveinn Hallgrímsson kynbótafræðingur, fyrrum sauðfjárræktarráðunautur og skólastjóri Bændaskólans á Hvanneyri er mikill áhugamaður um nýtingu sauðfjárafurða og í seinni tíð einn helsti framámaður um sauðaostagerð á Íslandi. Sjálfur býr hann með sauðfé á Vatnshömrum í Andakíl. Árið 1983 stóð Sveinn fyrir tilraun með mjöltun áa og framleiðslu sauðaosta að Kastalabrekku í Ásahreppi. Árin 1996 til 1997 stóð hann fyrir sauðamjöltun á Hvanneyri í samstarfi við Mjólkursamlagið í Búðardal. Ærnar voru mjólkaðar frá miðjum júlí til ágústloka. Meðalnyt fór upp í 1,1 lítra þegar mest var í ánum og voru gerðir mygluostar úr mjólkinni í mjólkurbúinu í Búðardal og þóttu góðir.

Kom til af krísu líkt og nú

Á árunum 1979 og 1980 var sauðfjárræktin hér á landi í svipaðri krísu og hún er núna. Þá lokuðust markaðir erlendis svo hér varð kjötfjall. Þá briddaði Stéttasamband bænda upp á þeirri lausn að fá hugmyndir frá ráðunautum í sauðfjárrækt um hvað hægt væri að gera til að auka verðmæti annarra afurða en kjötsins. „Ég kom með fimm tillögur, þar á meðal að mjólka ær og framleiða sauðaosta. Markmiðið var að slátra utan hefðbundins sláturtíma og vera með nýtt kjöt á markaði - helst allt árið. Þetta fer nefnilega saman; að slátra lengur en bara einn mánuð að hausti, setja ferskt kjöt á markað og framleiða sauðaosta. Þessar hugmyndir fædd-

ust þarna fyrir rúmum þrjátíu árum en hafa komið til framkvæmda á mismunandi tímum,“ segir Sveinn.

Bragðmiklir ostar En hvaða sauðamjólkurafurðir telur Sveinn að henti best til framleiðslu hér? „Mér finnst einsýnt að við ættum að framleiða gráðosta. Bragðmikla og sterka osta sem framkalla þetta sérstaka bragð sauðamjólkurinnar. Það sem er svo áhugavert við sauðaostaframleiðslu er að þú sameinar tvennskonar nýsköpun: Þú ert með ferskt kjöt á markaði miklu lengur en bara á haustin og spennandi nýja afurð; hvaðeina sem fólk kýs að framleiða úr mjólkinni, svo sem jógúrt, skyr, ost eða hvað sem manni dettur í hug.“

Ætti að vera góð hliðarafurð Sveinn segir að þegar ný vara er markaðssett þurfi þrennt að haldast í hendur: „Varan þarf að vera góð, framleiðsluferlið skilvirkt og markaðssetningin úthugsuð. Persónulega finnst mér að menn hafi aldrei klárað þetta dæmi með sauðaostana á Íslandi. Til dæmis hefur aldrei verið ákveðið hvaða osta á að framleiða og hvernig eigi að markaðssetja þá,“ segir Sveinn og tekur fram að tæknin hafi verið til staðar. „Við vitum hvaða aðferðir eru viðhafðar við að mjólka ærnar, hvernig á að fóðra þær og að gott beitiland er afar mikilvægt. Einnig höfum við góðar upplýsingar um efnasamsetningu mjólkurinnar. Sauðamjólkin

Sveinn Hallgrímsson við hóp vænna kinda á túninu heima.

getur verið mjög mikilvæg hliðarafurð við dilkakjötsframleiðsluna því úr henni er hægt að skapa veruleg verðmæti.“

Ferskt kjöt vantar á markað Hann telur að einnig séu sóknarfæri í að hafa ferskt lambakjöt á markaði lengur en einungis á haustin. „Þó Íslendingar hafi hingað til aldrei kunnað að meta ferskt kjöt, því miður, þá kunna útlendingar að meta það og hafa kallað eftir því. Útlendingarnir vilja flestir ferskt kjöt, ekki frosið eða uppþýtt. Þessu hafa veitingamenn á Íslandi líka kallað eftir í áraraðir. Það er munur á kjöti sem hefur verið fryst og fersku kjöti sem ekki hefur verið fryst. Í 60% tilfella er ekki greinanlegur munur en í 30 til 40% tilfella er munurinn auðgreinanlegur og það er það sem skemmir fyrir frysta kjötinu.“

Hægt að láta ærnar bera á misjöfnum tímum

Roquefort er einhver elsti og frægasti blámygluostur heims og kannski um leið frægasti sauðaosturinn.

Á ítölsku er kind „pecoara.“ Peccorino er því sauðaostur. Talið er að saga sauðaosta á Ítalíu nái aftur á bronsöld. Ostar sem bera heitið Peccorino eru mýmargir og ber hver keim af beitinni í framleiðsluhéraðinu. Þetta eru fastir, hálf soðnir ostar úr nýmjólk sem yfirleitt fá að þroskast í minnst átta mánuði. Þeir eru ýmist notaðir sem borðostar, þá ungir og mjúkir, eða látnir þroskast og þá gjarnan rifnir niður með ýmsum réttum.

Þá segir Sveinn að hægt sé að frysta mjólkina og vinna úr henni þegar hentar án þess að eiginleikarnir tapist. „Auðvitað mjólka ær ekkert í líkingu við kýr, en menn geta litið á þetta sem aukaafurð við dilkakjötsframleiðslu. Ekki hefur verið skoðað nógu grannt hve mikið íslenskar

Ljósm. Guðni Páll Sæmundsson.

ær gætu mjólkað en við vitum að ef við færum að mjólka ár eftir ár, kynslóð eftir kynslóð þá gætum við kynbætt fyrir þessum eiginleika eins og öðrum. Hægt er að mjólka að sumri eins og við gerðum sumarið 1996 en svo er einnig hægt að nýta mjólkina að hausti. Ef fært er frá hundrað ám að hausti og mjólkað í tíu daga ætti að vera hægt að fá 400 kíló úr hundrað ám. En þá þarf maður að hafa góða beit. Ærnar geta líka borið á mismunandi tímum sem tryggir stöðugt framboð á mjólk og kjötframboð utan hefðbundins sláturtíma. Til eru bændur hér sem láta bera í apríl og slátra í byrjun júlí og kjötið fer á erlendan markað, það kemur vel út.“

Hátt skrifaðir í Frakklandi Sveinn segir að sauðamjólkurafurðir hafa alltaf verið hátt skrifaðar í Frakklandi og síðast þegar hann vissi voru framleiddar mjólkurvörur úr tíu milljónum kinda. „Þetta er stór atvinnuvegur. Til dæmis framleiða Frakkar þennan fræga sauðaost, Roquefort, og sú framleiðsla heldur uppi heilu héraði. Þar hugsa menn sko ekki að það sé hallærislegt og gamaldags að mjólka ær og framleiða osta eða það sé miklu gáfulegra og hagkvæmara að nota bara kúamjólk, enda miklu stærri skepnur sem mjólka mikið meira. Nei, þar huga menn líka að

Cambalou hellarnir í Roquefort-sur-Soulzon eru enn í dag lykilatriði í framleiðslu ostanna en gerillinn Penicillium roqueforti sem gerir ostinn svo einstakan er uppruninn í þeim.

menningunni, matarmenningunni. Frakkar vita að fólk vill breytilega vöru og mikið úrval. Fólk er matgæðingar og veit að almenningur borðar ekki einungis til að seðja hungur, heldur einnig til að njóta lífsins. Nú þegar öll áhersla í ræktunarstarfi hefur verið á kjötið láta kannski aðrir eiginleikar undan.“

Útlendingar spyrja út í sauðaosta En telur Sveinn að það taki langan tíma að rækta upp vel mjólkandi ær? „Á vissan hátt á mjólkurlægnin ekki að hafa dalað í íslensku sauðkindinni. Því það er valið fyrir þyngri dilkum og þungir dilkar koma undan ám sem mjólka meira, ekki satt? Þeim mun meira sem ærnar mjólka, því þyngri verða dilkarnir. Það er að sjálfsögðu líka háð beitilandi og fóðrun. Mjólkurlægnin á ennþá að vera til í íslensku ánum.“ Sveinn Hallgrímsson telur að sauðaostar séu vara sem við Íslendingar ættum að framleiða. „Leiðsögumenn segja útlendinga ekkert skilja í þessu, þeir horfa á kindur út um allt og spyrja svo: „Af hverju fáum við ekki sauðaosta hér á landi?“ Og það er bara góð spurning. Af hverju framleiðum við ekki sauðaosta á Íslandi? Það á að vera hægt að mínu viti,“ segir Sveinn Hallgrímsson. bg

Feta osta þekkja flestir. Færri vita þó að ekta fetaostur er gerður úr sauðamjólk, líkt og þessi gríski ostur sem prýðir og bætir grískt grænmeti. Stundum er fetaostur þó gerður úr blöndu af sauða- og geitamjólk sem þó má ekki hafa meira en 30% vægi. Í raun er þetta pæklaður ystingur sem ýmist er þéttur eða mjúkur. Því rjómakenndari sem feta er því fínni þykir hann, en orðið feta merkir sneið.


Matarauður

MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

Tískan á það til að fara í hringi og nú er tími matarhandverksins Langt síðan framleiðsla sauðaosta var fyrst reynd hér á landi Sauðamjólk hefur verið nýtt til manneldis um þúsundir ára, allt aftur á bronsöld. Vitnisburður þess eru fornminjar sem fundist hafa víða í Evrópu, t.d. í hellum á Spáni og Frakklandi. Einnig á Íslandi var sauðamjólk notuð og var raunar undirstöðufæða landsmanna allar aldir frá landnámi og fram á 20. öld. Vitað er að forðum var í seljum gerður sauðaostur ásamt sauðasmjöri og sauðaskyri. Getgátur eru um að norrænir menn hafi aðallega gert sýrða osta en því miður eru ekki til heimildir um aðferðir við ostagerð í fornöld. Ekki er hægt að fjalla um íslenska sauðaostagerð án þess að minnast á Ólafsdal en Torfi Bjarnason og Guðlaug Zakaríasdóttir komu upp góðri aðstöðu til ostagerðar sem löngum var stunduð þar. Ragnheiður dóttir þeirra og síðar skólastjórafrú á Hvanneyri fór til Danmerkur, á hinn

Sauðamjaltir á erlendu stórbúi.

Staðreynd: Sauðamjólk er 50% þurrefnaríkari en kúamjólk sem gerir hana heppilega til vinnslu á sérvöru á borð við osta og jógúrt. Einnig má nota hana í snyrtivörur. Sauðamjólk inniheldur mikið af MCT fitusýrum en talið er að þær hjálpi við niðurbrot mjólkursykurs, enda hefur sauðamjólk gagnast vel þeim sem hafa mjólkuróþol. Þá er hún mjög steinefnaog vítamínrík.

fræga búgarð Havarthigaard að læra að vinna úr mjólk og lagði sig sérstaklega eftir gerð dýrari osta á borð við roquefort úr sauðamjólk og gorgonzola úr kúamjólk. Hún hvatti til roquefortostagerðar í Ólafsdal og eftir að heim kom nýtti a hún lærdóm sinn til kennslu m.a á Hvanneyri. Ostarnir frá Ólafsdal voru seldir í Reykjavík og víðar. Vegna breytinga í búháttum lögðust sauðamjaltir af á síðustu öld. Þótti hentugra og hagkvæmara hjá ört stækkandi þjóð að nýta kýrnar, loksins þegar menn höfðu efni og góðar aðstæður til að halda þær, eftirspurnin eftir mjólk var vax-

Leiðsögn

alla virka daga ársins kl. 14

andi og kýr mjólka vel. En tækninni fleygir fram á upplýsingaöld, jafnt í búskap sem verslun og viðskiptum. Nýtt landslag blasir við í landbúnaðarmálum líkt og á öðrum sviðum þjóðlífsins. Með nýjum kynslóðum breytist matarmenningin og tískan á til að fara Roquefort Laucane sauðfé.

í hringi. Merkilegt nokk gætir vaxandi áhuga fyrir sauðamjólkurafurðum á Vesturlöndum og eins og fyrir stundarfrið frá hávaðanum í neyslusamfélaginu sækja menn í betri tengingu við framleiðendur. Tími handverksins er kominn aftur! Tími matarhandverksins og hann krefst þess ekki að menn sleppi mjaltavélunum, sem er ágætt fyrir sauðfjábændur á Vesturlandi, því miðað við tölur Byggðastofnunar um haustásetning 2016 eru 81.356 fjár sem flest ætti að drífa í sel næsta sumar. Bryndís Geirsdóttir

Heimildir: The Oxford Companion to Cheese. ed. Catherine Donnelly Culinaria France. ed André Dominé The oxford companion to food. Alan Davidson Complete Italian food. Antonio og Priscilla Carluccio Konur breyttu búháttum. Bjarni Guðmundsson

Auglýsing um íslenskan sauðaost frá Verzlun Jens Eyjólfssonar.

Velkomin til Akraness

Opnunartími

þri-lau kl. 11-17

Stórfenglegt útsýni frá toppi vitans

#AkranesLighthouse

#AkranesMuseum

1918

47


48

Matarauður

MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

Guðmundur Runólfsson hf eykur fisksölu innanlands Guðmundur Runólfsson hf í Grundarfirði er rótgróið fiskvinnslufyrirtæki sem hefur ætíð selt allan sinn afla á markaði erlendis. Fyrir um það bil tveimur árum fór fyrirtækið að fikra sig áfram á innanlandsmarkaði. Rósa Guðmundsdóttir framleiðslustjóri segir að lítill hluti framleiðslunnar fari á innanlandsmarkað en það hlutfall sé þó að aukast. „Það er mikill vilji innan fyrirtækisins til að selja innanlands og stækka þann hluta,“ segir Rósa í stuttu spjalli við fréttaritara. „Þetta er ekki stór hluti af heildarsölunni en er þó að aukast,“ bætir hún við. Fyrirtækið selur mest hérna á Vesturlandi á veitingahús,

Rósa Guðmundsdóttir framleiðslustjóri.

Frá fiskvinnslu G.Run hf. í Grundarfirði.

í veisluþjónustur og þess háttar. „Já, við erum með þónokkur fyrirtæki í viðskiptum en þessi markaður er samt mjög breytilegur,“ segir Rósa. „Við sendum þetta frá okkur í frauðplastkössum en þegar nýja fiskvinnslan kemur í notkun þá er möguleiki að við framleiðum fiskinn og pökkum í söluvænar um-

búðir,“ bætir Rósa við, en Guðmundur Runólfsson er með nýtt vinnsluhús á teikniborðinu. „Við reynum alltaf að uppfylla þarfir kaupandans á innanlandsmarkaði og hefur það gengið mjög vel hingað til,“ bætir hún við að lokum. tfk

Norðanfiskur framleiðir yfir þrjú hundruð vörutegundir Fyrirtækið Norðanfiskur á Akranesi sérhæfir sig í áframvinnslu á hvers kyns sjávarfangi. Að sögn Sigurjóns Gísla Jónssonar, framkvæmdastjóra Norðanfisks, má einkum skipta starfsemi fyrirtækisins í þrennt. „Vörur Norðanfisks eru mjög fjölbreyttar, við framleiðum og seljum yfir 300 vörutegundir. Framleiðslunni má einkum skipta í þrennt; framleiðsla fyrir stóreldhús, veitingastaði og síðan neytendapakkningar,“ segir Sigurjón. Sem dæmi um framleiðslu fyrir stóreldhús nefnir hann breitt vöruúrval af fiski í raspi, lax, plokkfisk og fiskibollur. „Þessar vörur eru fastur liður hjá stórum eldhúsum í skólum og öðrum stofnunum og mötuneytum fyrirtækja um land allt. En við framleiðum eftir pöntunum nánast allt milli himins og jarðar fyrir stóreldhúsin,“ segir hann. Þegar kemur að veitingahúsum segir Sigurjón fyrirtækið sömuleiðis bjóða mikið úrval af vörum úr gæðahráefni. „Við sjáum flestum veitingastöðum á höfuðborgarsvæðinu og mörgum á landsbyggðinni fyrir hvers kyns sjávarfangi. Allt frá hefðbundnum ferskum eða frosnum hvítfiski og laxi til „high end“ sjávarfangs á borð við humar, humarsoð, hörpudisk, bláskel, risarækjur og eins sjáum við viðskiptavinum okkar fyrir því sjávar-

fangi er þarf til sushigerðar svo sem túnfisk, hamachi, surimi og fleira í þeim dúr.

Fiskur í matinn Í þriðja lagi framleiðir Norðanfiskur og selur vörur í neytendapakkningum. „Við vinnum mikið af fiski til smásölu, bæði ferskum og frosnum. Þar má nefna þorsk og ýsu, lax og bleikju, hörpudisk, rækjur en líka tilbúna vöru eins og fisk í raspi, fiskborgara og fiskibollur. Svo er reykti og grafni laxinn hjá okkur alveg svakalega vinsæll,“ segir Sigurjón. Innan þessa smásöluhluta framleiðslunnar er líka að finna nýjustu vörulínu Norðanfisks sem ber heitið Fiskur í matinn. „Fiskur í matinn er vörulína sem við hleyptum af stokkunum í vor. Þar bjóðum við upp á ferskan lax, gullkarfa og þorsk í mismunandi krydd og marineringum, tilbúið til eldunar. Vörurnar eru seldar í fallegum og meðfærilegum umbúðum, eða svokölluðum „skin-pack,“ lofttæmdum umbúðum sem varðveita gæði vöruunnar,“ segir Sigurjón. „Fiskur í matinn hefur fengið mjög góðar viðtökur síðan við fórum af stað með þessa línu í mars á þessu ári. Núna erum við að skoða að bæta við fleiri tegundum í þessa flóru eins og t.d. bleikju og ýsu,“ segir hann.

Hunangs- og engiferkryddaður lax úr vörulínunni Fiskur í matinn, tilbúinn til eldunar.

Á heimasíðu Fiskur í matinn má finna ýmsar uppskriftir, m.a. af ofnbökuðum gullkarfa með chili, hvítlauk og ólífuolíu.

Hyggja á vöxt Norðanfisks Norðanfiskur er í eigu HB Granda og þar á bæ segir Sigurjón menn vera stórhuga hvað varðar starfsemi dótturfyrirtækisins. „Rekstur Norðanfisks hefur gengið vel og fyrirhugaður er vöxtur fyrirtækisins. Það eru mikil tækifæri hérna innanlands og einnig inn á markaði erlendis. Fiskneysla er alltaf að aukast jafnt og þétt í heiminum,“ segir Sigurjón. Hann segir áframhaldandi vöruþróun framundan hjá fyrirtækinu og nefnir sem dæmi að von sé á meira úrvali í vörulínunni Fiskur í matinn. „Þar er verið að skoða ýmislegt, til dæmis aukið úrval innan „Fiskur í matinn“ flórunnar. Einnig sjáum við fyrir okkur að bjóða upp á tilbúna fiskrétti, ferska rétti sem fólk getur kippt með sér heim og eldað í ofni án fyrirhafnar. Fiskurinn á mikið inni þegar kemur að slíkum réttum,“ segir Sigurjón Gísli að endingu.

Sigurjón Gísli Jónsson, framkvæmdastjóri Norðanfisks.

Lagt upp úr góðri þjónustu Fyrirtækið hefur aðalstarfsemi sína á Akranesi en er einnig með starfsstöð á Tangarhöfða í Reykjavík. Þar er hluta framleiðslunnar pakkað, auk þess sem þar er lager og skrifstofa. „Það hjálpar okkur að þjónusta viðskiptavini okkar á höfuðborgarsvæðinu. Við pössum okkur að eiga okkar helstu vörur alltaf til

á lager til að geta brugðist skjótt við ef pantanir koma með stuttum fyrirvara,“ segir Sigurjón. „Við leggjum mikið upp úr góðri þjónustu við viðskiptavini okkar og við afhendum allar vörur heim að dyrum til fyrirtækja um land allt. Húsmæður og heimilisfeður geta síðan nálgast smásöluvörur okkar í verslunum Bónus alls staðar á landinu,“ segir Sigurjón að endingu. kgk


Matarauður

MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

49

Grænmetisbændur í Sólbyrgi Hjónin Einar Pálsson og Kristjana Jónsdóttir fluttu frá Vestmannaeyjum í Sólbyrgi í Borgarfirði fyrir nærri áratug síðan og gerðust grænmetisbændur. Aðspurður hvað hafi orðið til þess að þau ákváðu að flytja í Borgarfjörðinn og gerast grænmetisbændur, svarar Einar og segist ekki eiga neitt gott svar við því. „Ætli það hafi ekki verið smá ævintýraþrá nú eða bara að straumurinn hafi legið þangað fyrir okkur og við bara fylgdum og vonuðum að það færi ekki mjög illa,“ segir Einar og hlær. „Við höfðum aldrei komið nálægt ræktun af neinu tagi áður og

vissum ekkert hvað við vorum að fara að gera. Þegar við keyptum Sólbyrgi voru ræktaðar hér gulrætur um allt og þar sem við kunnum ekki neitt, og vissum ennþá minna, héldum við því bara áfram til að byrja með. Við lærðum svo alltaf meira og ákváðum þá að færa okkur yfir í eitthvað annað sem gaf betur af sér og völdum jarðaberin,“ segir Einar. Til að rækta jarðarber allt árið þarf að nota lýsingu yfir dimmasta tíma ársins og gerir það bændum erfitt fyrir. „Við höfum verið að rækta jarðaberin allt árið undir lýsingu en rafmagn er svo dýrt að við þurfum að breyta um ræktun yfir veturinn.Við erum einnig búin að vera að rækta kál og kryddjurtir og stefnum á að færa okkur meira yfir í það yfir vetrartímann. Þar horfum við til þess að nota umhverfisvænar umbúðir og minnka plastið. Þetta er enn á tilraunastigi hjá okkur en við erum spennt fyrir því að geta boðið landanum uppá þessar umhverfisvænu og kolefnissporalausu afurðir,“ segir Einar.

Íslendingar mikilvægir viðskiptavinir

„Sala á jarðaberjum hefur verið mjög góð hjá okkur í ár,“ segir Einar. „Veðurfarið hefur samt aðeins haft áhrif á söluna hjá okkur. Í fyrra, þegar það var brakandi blíða allt sumarið, seldist mjög vel en núna hefur veðrið ekki verið jafn

gott og þá finnum við fyrir því. Við leggjum töluvert uppúr því að selja hér heima og eru mikilvægustu kúnnarnir okkar Íslendingar á ferðalögum. Þegar veðrið er síðra eru þeir ekki að skila sér í útilegur eða sumarbústaði hér í nágrenninu og þá selst ekki jafn vel hjá okkur. Þetta hefur engu að síður verið alveg fínt sumar,“ segir Einar að lokum. arg

„Kjötborðið eitt það dýrmætasta sem verslunin hefur“ - segir Hafsteinn Kjartansson, kjötiðnaðarmaður í Einarsbúð Hafsteinn Kjartansson kjötiðnaðarmaður hefur staðið vaktina í kjötborðinu í Verzlun Einars Ólafssonar á Akranesi undanfarin 19 ár. „Ég byrjaði hérna 1. mars 1998 og er því búinn að vera hér í 19 ár,“ segir Hafsteinn og brosir. Frá því hann stóð fyrstu vaktina í kjötborðinu í Einarsbúð hefur ýmislegt breyst í verslun í landshlutanum og á landinu öllu. Kjötborðin hafa til dæmis horfið eitt af öðru og eru fá orðin eftir, miðað við það sem áður var. „Eftir því sem ég best veit er þetta eina kjötborðið á Vesturlandi í dag. Því miður eru önnur kjötborð í landshlutanum fyrir löngu horfin. En þessi verslun er sem betur fer íhaldssöm hvað þetta varðar. Kaupmaðurinn byggir á gömlum og góðum grunni, þar sem lögð er áhersla á gríðarlega hátt þjónustustig í versluninni og þar með kjötborðinu. Það er klár stefna kaupmannshjónanna að vera með kjötborð með háu þjónustustigi um ókomna tíð,“ segir hann ánægður. „Að mínu viti er kjötborðið eitt það dýrmatasta sem verslunin hefur. Viðskiptin í kjötborðinu eru það góð að það er ekkert

vandmál að hafa ferska og góða vöru öllum stundum. Góð og fersk vara tryggir síðan góð viðskipti,“ bætir hann við.

Allt það helsta og fleira til Aðspurður segir Hafsteinn hægt að nálgast í kjötborðinu allar helstu steikur sem íslenskur landbúnaður og sjávarútvegur býður upp á. „Þá á ég við lamb, naut, svín og svo reynum við að vera með kálfakjöt líka. Einnig er fiskborðið sterkt. Við fáum ferskan fisk alla mánudaga, og eftir þörfum út vikuna, og vinnum úr þeim steikur og rétti eins og raspaðan fisk og ýmislegt fleira,“ segir hann. „Kjöt- og fiskborðið er þannig upp sett að á mánudögum er fiskur í allt að 70% af borðinu. Eftir því sem líður á vikuna minnkar hlutfall fisksins smátt og smátt þar til á föstudögum að það er orðið öfugt miðað við upphaf vikunnar. Þá er um það bil 70% kjöt í borðinu og 30% fiskur,“ útskýrir hann. Úrvalið er þó aðeins breytilegt eftir árstíðum, eins og

Brot af úrvalinu í kjöt- og fiskborðinu í Einarsbúð.

gengur. „Það eru árstíðabreytingar í kjöt- og fiskborðinu. Ber mest á þeim á vorin og haustin. Á vorin fer grillmaturinn að taka yfir og eykst sala á marineruðu kjöti, marineruðum fiski, krydduðum fiski og öllu því sem fólk setur á grillið. Hamborgarasalan tekur líka kipp. Síðan kemur haustið með sinn sjarma. Núna er innmatur í borðinu, það er þessi tími; lifur, nýru og hjörtu en síðast en ekki síst kjöt af nýslátruðu sem aldrei hefur farið í frost,“ segir Hafsteinn. „Ég meðhöndla kjöt af nýslátruðu þannig að ég tek það inn og geymi í kæli í fimm til sjö daga áður en það fer í sölu til að meyra það,“ bætir hann við.

Fólk vill þægindi og þjónustu Hafsteinn kveðst hafa orðið var við breytingar á neyslumynstri viðskiptavina kjötborðsins. „Undanfarin ár sérstaklega hef ég orðið var við mikla aukningu í sölu á tilbúnum réttum og réttum sem þarf lítið að hafa fyrir. Fyrir stuttu síðan byrjuðum við til dæmis að selja þorsk í orlydeigi, forsteiktan. Hann hefur selst mjög vel. Raspaða ýsan mokast út á mánudögum og þriðjudögum og alltaf selst vel af bollum. Þetta eru réttir sem fólk kaupir og setur síðan bara beint í ofninn eða á pönnuna. Við höfum líka verið að prófa okkur áfram með tilbúna grænmetisrétti, grænmetisbauta og fleira til að koma til móts við veganfólkið, sem og ýmiss konar foreldaða rétti sem þarf bara að hita,“ segir hann. „Þó alltaf sé umræðan að færast í þá áttina að fólk eigi að elda mat frá grunni þá sækir fólk stöð-

Hafsteinn Kjartansson kjötiðnaðarmaður á bakvið kjöt- og fiskborðið í Einarsbúð á Akranesi.

ugt meira í tilbúna rétti, það er bara þannig. Fólk vill aukin þægindi og meiri þjónustu.“

Fjölbreytni og gott hráefni Hafsteinn kveðst ánægður með þá stefnu kaupmannanna í Einarsbúð að halda úti kjöt- og fiskborði um ókomna tíð. Telur hann að kjötborðið geti lifað góðu lífi áfram þrátt fyrir að breytt neyslumynstur viðskiptavina og breytta viðskiptahegðun. „Lykillinn að því að halda úti góðu kjöt- og fiskborði liggur í gæðum hráefnisins og fjölbreytninni, ekki verðinu. Fólk sækir í kjötborðið vegna þeirra gæða. Þess vegna er gott hráefnisins og gott vöruúrval algjört grundvallaratriði. Þar tel ég okkur standa sterkum fótum og ætlum að halda áfram að gera vel í þeim efnum,“ segir Hafsteinn Kjartansson að endingu. kgk

Hafsteinn er hér að úrbeina og fylla lambalæri.


Fiskur fyrir stóreldhús & mötuneyti, fjótlegt, einfalt & þæginlegt! Úrvalið hjá okkur hefur aldrei verið glæsilegra. Margar tegundir af brauðuðum fisk, plokkfiskur, fiskibollur, grænmetisbuff og margt fleira. Sett beint inn í ofn og tilbúið á nokkrum mínútum. Vörulistann má finna á heimasíðu okkar, www.nordanfiskur.is

www.nordanfiskur.is | pantanir@nordanfiskur.is | 430-1700


MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

51

Leggja til hækkun á lágmarks íbúafjölda sveitarfélaga Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar Kosið verður til Alþingis laugardaginn 28. október 2017. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin. Í umdæmi Sýslumannsins á Vesturlandi fer hún fram á eftirtöldum stöðum: Akranesi - skrifstofu sýslumanns, Stillholti 16-18, virka daga kl. 10.00 til 15.00 Borgarnesi - skrifstofu sýslumanns, Bjarnarbraut 2, virka daga kl. 10.00 til 15.00 Búðardal - skrifstofu sýslumanns, Miðbraut 11, virka daga kl. 12:30 til 15.30 Tíu sveitarfélög eru nú innan gamla Vesturlandskjördæmis. Tillögur starfshóps innanríkisráðherra um eflingu sveitarstjórnarstigsins snert fjögur þeirra.

með um 2100 íbúa ef sameining verður samþykkt.

Málið verður unnið áfram Sveitarfélögin í landinu eru nú 74 talsins og í 40 þeirra búa færri en þúsund íbúar. Jón Gunnarsson ráðherra sveitarstjórnarmála í starfsstjórn Bjarna Benediktssonar kveðst í samtali við fjölmiðla hallast að því að ákvörðun um sameiningu sveitarfélaga eigi að liggja hjá íbúum. „Ég held að við getum samt öll verið sammála um að fyrsta skrefið sem lagt er til í þessari skýrslu eigi að verða stigið, að ekkert sveitarfélag verði með færri en 250 íbúa. Mér finnst liggja nokkuð í augum uppi að sveitarfélag með innan við

250 íbúa er varla í stakk búið til að sinna þeim skyldum sem á það eru lagðar. Svo geta landfræðilegar aðstæður verið þannig að sameining er ómöguleg og það þarf að taka tillit til þess,“ sagði Jón í samtali við RUV í síðustu viku. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, hefur verið stettur yfir starfshóp sem nú tekur við tillögunum og vinnur þær áfram. „Við munum ekkert draga úr þeirri vinnu, hún heldur áfram á fullu þrátt fyrir breyttar aðstæður og svo verður að koma í ljós hvort við komum þeim tillögum áfram,“ segir Jón Gunnarsson og vísar þar í að ríkisstjórnin féll fyrr í þessum mánuði og starfsstjórn mun sitja fram að kosningum. mm

Eyja- og Miklaholtshreppi - skrifstofu hreppsstjóra, Þverá, virka daga kl. 12.00 til 13.00 Snæfellsbæ - skrifstofu Snæfellsbæjar, Klettsbúð 4, virka daga kl.09.00 til 12.00 og 13.00 til 15.30 Stykkishólmi - skrifstofu sýslumanns, Borgarbraut 2, virka daga kl. 10.00 til 15.00 Hægt er að kjósa á öðrum tíma samkvæmt nánara samkomulagi við viðkomandi kjörstjóra

SKESSUHORN 2017

„Fækka ætti sveitarfélögum og festa lágmarksíbúafjölda þeirra í lög.“ Þetta er meginniðurstaða starfshóps um eflingu sveitarstjórnastigsins sem kynnt var í síðustu viku. Fjörutíu sveitarfélög uppfylla ekki þá lágmarksstærð sem lögð er til. Það var Ólöf Nordal, þáverandi innanríkisráðherra sem skipaði fyrrgreindan starfshóp í lok árs 2015. Átti hann að fjalla um sveitarstjórnastigið og finna tækifæri og leiðir til að styrkja það. Hópurinn hefur nú skilað samgönguráðherra niðurstöðum sínum og tillögum um hvernig efla megi og stækka sveitarfélögin í landinu. Þeim þurfi að fækka og skilgreina þau verkefni sem sveitarfélag verði að geta sinnt eitt og óstutt. Hópurinn leggur því til að sett verði lög um lágmarksíbúafjölda sveitarfélaga og að hann hækki í þrepum. Í byrjun árs 2020 verði lágmarksíbúafjöldi 250 manns, tveimur árum seinna 500 íbúar og í byrjun árs 2026 verði lágmarksíbúafjöldinn 1000 manns. Nokkur af fámennustu sveitarfélögum landsins eru hér á Vesurlandi og snerta þessar tillögur þau ef farið verður eftir þeim. Í Skorradal og Helgafellssveit eru 60 íbúar í hvoru sveitarfélagi en í Eyja- og Miklaholtshreppi eru 130 íbúar. Í Reykhólasveit eru íbúar 280 en önnur sveitarfélög í landshlutanum hafa fleiri íbúa; Hvalfjarðarsveit 660 og Dalabyggð 680. Grundarfjarðarbær hefur 880 íbúa en þar er nú til skoðunar sameining við Stykkishólmsbæ og Helgafellssveit og yrði það sveitarfélag

Kjósendum er bent á að hafa persónuskilríki meðferðis á kjörstað Stykkishólmi, 22. september 2017 Sýslumaðurinn á Vesturlandi

Menningar- og listahátíð Akranesi 26. október – 5. nóvember

Fylgstu með:

www.akranes.is

Facebook.com/ vokudagar

#Vokudagar SKESSUHORN 2017

Barnamenning Tónleikar Gjörningar Ljósmyndasýningar Málverkasýningar Dans Hönnun Ýmsar listsýningar og annað skemmtilegt


MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

52

Kallað eftir verkefnum á dagskrá fullveldisafmælis

Keppnislið Akurnesinga.

Vesturlandslið tókust á í Útsvari Síðastliðið föstudagskvöld áttust fulltrúar tveggja sveitarfélaga við í Útsvari, nýrri útgáfu af spurningaþættinum í Ríkissjónvarpinu. Var þetta önnur viðureignin í þessari nýju þáttaröð. Þannig vildi til að bæði Vesturlandsliðin sem keppa í vetur drógust saman; Akranes og Snæfellsbær. Lið Akraness komst alla leið í úrslitaþáttinn síðasta vetur og tefldi fram vönu fólki; Vilborgu Þórunni Guðbjartsdóttur, Gerði Jóhönnu Jóhannsdóttur og

Snæfellsbær tefldi fram nýju keppnisliði.

Aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands verður fagnað á næsta ári með fjölbreyttri dagskrá um land allt. Opnuð hefur verið vefsíða afmælisársins á slóðinni www.fullveldi1918.is. Vefsíðan verður upplýsingasíða þar sem m.a. verður hægt að fylgjast með dagskrá afmælisárs-

ins og skrá verkefni á dagskrá afmælisársins. Á síðunni verður einnig að finna fróðleik um árið 1918 og fullveldishugtakið sem og námsefni fyrir skóla. Kallað er eftir frumkvæði og virkri þátttöku landsmanna við mótun dagskrár afmælisársins og lögð er áhersla

á að ná til sem flestra landsmanna. Opnað hefur verið fyrir tillögur að verkefnum á dagskrá afmælisársins og skal þeim skilað rafrænt gegnum vefsíðuna www.fullveldi1918.is fyrir kl 16, 22. október nk. Verkefnisstjóri er Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir. mm

Erni Arnarsyni. Í liði Snæfellsbæjar voru hins vegar nýliðar á þessu sviði; þau Sóley Jónsdóttir, Anton Jónas Illugason og Einar Magnús Gunnlaugsson. Í keppninni reyndist jafnfræði með liðunum framan af en fyrir miðja keppni var ljóst að Snæfellingar myndu ekki eiga roð í vana Skagamenn. Viðureignin endaði því með 74 stigum Skagamanna gegn 31 stigi Snæfellinga sem þar með eru dottnir úr keppni. mm/ Ljósm. þa.

Á Þingvöllum.

KEMUR HEILSUNNI Í LAG

20% AFSLÁTTUR

28. SEPT - 31. OKT

EIN TAFLA Á DAG

SYKURLAUSAR

ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA


MIĂ?VIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

53

FjĂślgun ĂĄ tjaldstĂŚĂ°in en sundlaugargestir ĂĄlĂ­ka margir

Óskar Guðmundsson í VÊum. � baksýn er svipmynd frå Snorrahåtíðinni 1947.

SnorrahĂĄtĂ­Ă°in 1947 Ă­ lifandi myndum NĂŚstkomandi ĂžriĂ°judag 3. oktĂłber klukkan 20:30 verĂ°ur sĂ˝nd kvikmynd um SnorrahĂĄtĂ­Ă°ina 1947 Ă­ hĂĄtĂ­Ă°arsal gamla HĂŠraĂ°sskĂłlans Ă­ Reykholti. Kvikmyndin var unnin fyrir Snorrastofu og stendur saman af gĂśmlum myndbrotum frĂĄ SnorrahĂĄtĂ­Ă° 1947 Ă­ Reykholti og lĂ˝sir einnig fĂśr norsku gestanna sem hingaĂ° komu fyrir 70 ĂĄrum. HĂĄtĂ­Ă°arhĂśldin Ă­ framhaldi af SnorrahĂĄtĂ­Ă° Ă­ Reykholti stóðu Ă­ heila viku. HĂŠr er um aĂ° rĂŚĂ°a lengri gerĂ° af myndinni sem Kvikmyndasafn Ă?slands og Ă“skar GuĂ°mundsson unnu Ă­ tilefni af sjĂśtĂ­u ĂĄra afmĂŚlinu fyrr Ă­ sumar. Til Ă?slands kom floti norskra skipa og sendinefnd undir forystu Ă“lafs krĂłnprins Ă­ jĂşlĂ­umĂĄnuĂ°i 1947. NorĂ°mennirnir ĂĄttu ĂŚvintĂ˝ralega viku Ă­ vĂŚndum og margir urĂ°u til

aĂ° festa viĂ°burĂ°i ĂĄ filmur sem Ăžessi mynd nĂ˝tur góðs af. Kvikmyndin er ÞÜgul en Ă“skar GuĂ°mundsson kynnir efniĂ° og segir frĂĄ ĂžvĂ­ sem fyrir augu ber. Þå verĂ°a aĂ° vanda umrĂŚĂ°ur og boĂ°iĂ° upp ĂĄ kaffiveitingar fyrir 500 krĂłnur. MeĂ° bĂ­ĂłsĂ˝ningunni hefst vetrardagskrĂĄ Snorrastofu, sem verĂ°ur aĂ° vanda meĂ° fjĂślbreyttum og ĂĄnĂŚgjulegum samverustundum. Fyrsta PrjĂłna-bĂłka-kaffi vetrarins verĂ°ur fimmtudaginn 5. oktĂłber og fornsagnanĂĄmskeiĂ° stofnunarinnar, LandnĂĄmsseturs og SĂ­menntunarmiĂ°stÜðvarinnar ĂĄ Vesturlandi hefst ĂžriĂ°judaginn 10. oktĂłber. NĂĄnar greinir frĂĄ Ăžessu ĂĄ heimasĂ­Ă°u Snorrastofu og viĂ°burĂ°askrĂĄ, sem dreift verĂ°ur til heimila Ă­ BorgarfirĂ°i Ă­ oktĂłberbyrjun. -frĂŠttatilkynning

Ă?bĂşar SnĂŚfellsbĂŚjar hafa ekki fariĂ° varhluta af auknum ferĂ°amannastraumi til landsins, frekar en aĂ°rir landsmenn. Mikil fjĂślgun var ĂĄ tjaldstĂŚĂ°unum Ă­ SnĂŚfellsbĂŚ ĂĄ milli ĂĄra. Ă? ĂžvĂ­ samhengi mĂĄ nefna aĂ° Ă­ maĂ­ ĂĄriĂ° 2016 komu 380 gestir en Ă­ ĂĄr voru Ăžeir 1145. Ă? jĂşnĂ­ ĂĄriĂ° 2016 komu 2396 gestir en ĂĄ sama tĂ­ma Ă­ ĂĄr voru Ăžeir 3946. Ă? jĂşlĂ­ komu 6200 gestir en Ă­ fyrra voru Ăžeir 5800. SĂśmu sĂśgu er Þó ekki aĂ° segja um aĂ°sĂłkn Ă­ sundlaugarnar Ă­ SnĂŚfellsbĂŚ en tvĂŚr laugar eru Ă­ sveitarfĂŠlaginu; ĂĄ LĂ˝suhĂłli og Ă­ Ă“lafsvĂ­k. GestafjĂśldi Ăžar er svipaĂ°ur milli ĂĄra. Sundlaugargestir ĂĄ LĂ˝suhĂłli voru 9336 tĂ­mabiliĂ° jĂşnĂ­, jĂşlĂ­ og ĂĄgĂşst ĂĄriĂ° 2016 en

9841 sama tĂ­mabil Ă­ ĂĄr. Ă? sundlaug Ă“lafsvĂ­kur komu 8775 Ă­ jĂşnĂ­, jĂşlĂ­ og ĂĄgĂşst ĂĄ Ăžessu ĂĄri en ĂĄ sama tĂ­mabili Ă­ fyrra voru Ăžeir 8973 og eru Ăžeir ĂžvĂ­ aĂ°eins fĂŚrri Ăžetta sumariĂ°. Samt sem ĂĄĂ°ur hefur aĂ°sĂłkn Ă­ sundlaugina

Ă­ Ă“lafsvĂ­k veriĂ° betri fyrri hluta ĂĄrs en Ă­ fyrra Þó sumariĂ° hafi ekki veriĂ° eins gott, aĂ° sĂśgn SigrĂşnar Ă“lafsdĂłttur Ă­ĂžrĂłtta- og ĂŚskulýðsfulltrĂşa SnĂŚfellbĂŚjar. Ăža

OPUS LĂ–GMENN VESTURLANDI OPUS lĂśgmenn hafa opnaĂ° ĂştibĂş Ă­ Borgarnesi

Flosi H. SigurĂ°sson hdl. veitir nĂş alla almenna lĂśgfrĂŚĂ°iĂžjĂłnustu ĂĄ staĂ°num. Flosi er einn af eigendum OPUS lĂśgmanna og hefur starfaĂ° viĂ° lĂśgmennsku frĂĄ 2010.

FYRSTA VIĂ?TAL FRĂ?TT

PISTILL

Ăžessir litlu sigrar Eftir Ăžessa ferĂ° mun ĂŠg hugsa um, Ăžegar ĂŠg keyri fyrir aftan kerru eĂ°a sendibĂ­l meĂ° spĂ˝tum teipuĂ°um meĂ° HĂşsasmiĂ°juteipi, sem persĂłnulegan sigur viĂ°komandi. 10 spĂ˝tur eĂ°a 100, Ăžetta krefst ĂžolinmĂŚĂ°i, Ăžrautseigju, góðra samskiptahĂŚfileika og yfirgripsmikillar Ăžekkingar ĂĄ mĂŚlieining-

unni tommu. Eftir Ăžetta Ăžurfti ĂŠg aĂ° taka viku hvĂ­ld uppi Ă­ HĂşsafelli. SjokkiĂ° var slĂ­kt og fyrir aĂ°ra hefĂ°i Ăžetta eflaust endaĂ° verr, kannski sagt jĂĄ viĂ° ĂžvĂ­ aĂ° taka stutta sĂ­makĂśnnun og/eĂ°a allt Ă­ einu fundiĂ° ĂžaĂ° Ăşt aĂ° ĂžaĂ° vĂŚri Ă­ lagi aĂ° lĂĄta rista pylsubrauĂ°iĂ° sitt Ă­ staĂ° Ăžess aĂ° fĂĄ ĂžaĂ° hitaĂ°. En ĂŠg heimsĂłtti Surtshelli ĂĄ strigaskĂłnum, reyndi aĂ° lyfta HĂşsafellshellunni, tĂ˝ndist Ă­ ÞÊttvaxnasta birkiskĂłgi ĂĄ Ă?slandi, skoĂ°aĂ°i Hraunfossa, tĂşrista og fĂŠkk mĂŠr Ă­s. Fann ĂžaĂ° reyndar Ăşt aĂ° Ă­ HĂşsafelli mĂĄ lĂ­ka finna pylsupĂşritana sem bjóða upp ĂĄ suĂ°upottshituĂ° brauĂ° og alvĂśru soĂ°nar pylsur, bĂşiĂ° aĂ° filtera vatniĂ° Ă­ pottinum Ă­ gegnum hrauniĂ° svo aĂ° ĂžaĂ° er hreinara en annaĂ° vatn. ĂžaĂ° er kannski hĂŚgt aĂ° segja aĂ° pylsurnar Ă­ HĂşsafelli sĂŠu Reyka vodkann Ă­ pylsunum ĂĄ Ă?slandi (lĂĄsuĂ° ĂžaĂ° fyrst hĂŠr).

SkallagrĂ­msgata 3 \ SĂ­mi 415 2200 \ flosi@opus.is

Kristjån Baldursson hdl. og lÜggiltur fasteignasali, eigandi Trausta fasteignasÜlu, tekur til sÜlumeðferðar eignir í Borgarnesi og någrenni. Kristjån Baldursson, eigandi Trausta fasteignasÜlu, er reyndur å sviði fasteignasÜlu og hefur mikla reynslu af umsýslu fasteigna. Eins hefur hann verið dómkvaddur matsmaður og utt sem målytjandi mÜrg dómsmål, aðallega å sviði fasteignarÊttar.

ĂžjĂłnustustig Trausta er hĂĄtt og Ăžegar eign er tekin til sĂślumeĂ°ferĂ°ar bjóðum viĂ° upp ĂĄ eftirfarandi:

Trausti fasteignasala leggur metnaĂ° sinn Ă­ vandaĂ°a og skjĂłta ĂžjĂłnustu, hĂĄtt ĂžjĂłnustustig og aĂ° fylgja kaupendum og seljendum af metnaĂ°i og nĂĄkvĂŚmni frĂĄ byrjun ferlisins til enda.

• VerĂ°mat • RĂĄĂ°gjĂśf • Opin hĂşs • AtvinnuljĂłsmyndun • Eign auglĂ˝st ĂĄ netinu og Ă­ dagblÜðum

KristjĂĄn Baldursson

KveĂ°ja, Axel Freyr EirĂ­ksson

Frekari upplýsingar hjå Kristjåni í síma: 867-3040 eða hjå kristjan@trausti.is

• Eftirfylgni

VIĂ? ERUM TRAUSTI

hdl., lĂśggiltur fasteigna-, fyrirtĂŚkja- og skipasali, lĂśggiltur leigumiĂ°lari. S: 867-3040

BergÞóra Heiða Guðmundsdóttir

LĂśgfrĂŚĂ°ingur - lĂśggiltur fasteigna-, fyrirtĂŚkjaog skipasali. S: 779-1929

GuĂ°bjĂśrg G. SveinbjĂśrnsdĂłttir

HĂĄkon GuĂ°mundsson

AĂ°stoĂ°armaĂ°ur SĂślustjĂłri. ViĂ°skiptafr., fasteignasala. lĂśgg. fasteigna-, S: 861-9240 fyrirtĂŚkja- og skipasali, leigumiĂ°lari. S: 899-5949

Einar P. PĂĄlsson

lĂśggiltur fasteigna-, fyrirtĂŚkja- og skipasali S: 857-8392

GuĂ°bjĂśrg MatthĂ­asdĂłttir.

SĂłlveig RegĂ­na Biard

AĂ°stoĂ°armaĂ°ur hdl. SĂślufulltrĂşi. fasteignasala Er Ă­ nĂĄmi til lĂśggildingar S: 869-4879 fasteigna-, fyrirtĂŚkjaog skipasĂślu. S: 899-3984

BryndĂ­s BĂĄra EyjĂłlfsdĂłttir

BĂĄra DanĂ­elsdĂłttir

SkrifstofustjĂłri S: 693-1837 SĂślufulltrĂşi. Er Ă­ nĂĄmi til lĂśggildingar fasteigna-, fyrirtĂŚkjaog skipasĂślu. S: 616-8985

Gylfi Jens Gylfason

SKESSUHORN 2017

Ég lagĂ°i af staĂ° fyrr Ă­ sumar og heimsĂłtti timbursĂślu HĂşsasmiĂ°junnar vegna Ăžess aĂ° ĂŠg var aĂ° vinna Ă­ Ăžakkantinum Ă­ hĂşsinu mĂ­nu. HafĂ°i ĂŠg undirbĂşiĂ° mig vel fyrir ĂžaĂ°, var meĂ° allar mĂŚlingar (metra, sentimetra og millimetra) ĂĄ hreinu. SkrifaĂ°i ĂžaĂ° ĂĄ blaĂ° eĂ°a Ăśllu heldur krotaĂ°i ĂžaĂ° ĂžvĂ­ yfirleitt Ăžegar maĂ°ur skrifar lista yfir eitthvaĂ° sem maĂ°ur Ăžarf Þå hĂĄlfskrifar maĂ°ur, vegna Ăžess aĂ° maĂ°ur einn Ăžarf aĂ° skilja Ăžetta torf. Svona lĂ­kt og innkaupalisti Ă­ lĂŚknaskrift; 200 m af bands. vatns., 100 met. af bands. undrklĂŚĂ° o.s.frv. Ăžetta semsagt Þýddi 200 metra af bandsĂśguĂ°u meĂ° vatnsrĂĄsum og 100 metra af bandsagaĂ°ri undirklĂŚĂ°ningu. TĂślurnar er ĂŠg aĂ° skĂĄlda nĂşna ĂžvĂ­ ĂŠg man ekki hvaĂ° ĂŠg Ăžurfti mikiĂ°. Svo Ăžegar ĂŠg mĂŚtti ĂĄ vettvang meĂ° listann Ă­ hendinni Þå fĂłr ĂŠg strax aĂ° afsaka ritmĂĄliĂ° og tĂşlka miĂ°ann fyrir starfsmanninn vegna Ăžess aĂ° hann tĂłk miĂ°ann af mĂŠr og vildi fĂĄ aĂ° sjĂĄ. Ăžetta er ekki ĂłlĂ­kt ĂžvĂ­ Ăžegar maĂ°ur hittir einhvern ĂłgeĂ°slega frĂŚgan einstakling og maĂ°ur missir mĂĄliĂ°, ĂŠg fraus og byrjaĂ°i aĂ° stama. ĂžaĂ° Ăžyrmdi yfir mig Ăžegar ĂŠg renndi augunum yfir timburstaflana sem lĂĄgu ĂĄ vĂ­Ă° og dreif yfir svĂŚĂ°iĂ°. ĂžaĂ° var ĂĄ Ăžessu augnabliki sem ĂŠg ĂłskaĂ°i Ăžess aĂ° ĂŠg hefĂ°i meiri Ăžekkingu ĂĄ Ăşrvalinu Ă­ timbursĂślunni og hefĂ°i skrifaĂ° miĂ°ann Ă­ Word meĂ° 1,5 lĂ­nubili, greinarmerkjum, nĂĄkvĂŚmum mĂŚlingum og myndarÜð.

GarĂ°ar Kjartansson

hdl., lĂśggiltur fasteigna-, AĂ°stoĂ°armaĂ°ur fyrirtĂŚkja- og skipasali. fasteignasala S: 853-9779 S: 822-5124


MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

54

Afmælishátíð og stækkun Leikskólans í Stykkishólmi Laugardaginn 7. október verður haldin afmælishátíð í Leikskólanum í Stykkishólmi en þann dag verða 60 ár liðin frá því skólinn var fyrst opnaður. Hátíðin hefst klukkan 13 og áætlað er að henni verði lokið kl 16. „Það verður mikil hátíðardagskrá og eru allir velkomnir, þá munu forseti Íslands og forsetafrú koma við og flytja ávarp á hátíðinni,“ segir Sigrún Þórsteinsdóttir leikskólastjóri í samtali við Skessuhorn. „Okkar markmið frá upphafi var að láta þessa hátíð snúast um börnin og þeirra menningu og sköpun. Aðallega um þau börn sem eru hér í leikskólanum núna en einnig að gefa gaum að öllum þeim börnum sem hafa verið nemendur hér í leikskólanum öll þessi ár. Það verður gert með ýmsum hætti,“ segir Sigrún. „Afmælisfagnaðurinn mun standa yfir vikuna fyrir sjálfan af-

mælisdaginn. Elstu börn leikskólans, ásamt 1. bekk í grunnskólanum, munu vinna að listasmiðjum í umsjón kennara og listamanna í Stykkishólmi. Við munum einnig vinna hér í leikskólanum að skapandi verkefnum með öllum börnunum og verður afraksturinn sýndur á afmælishátíðinni,“ segir Sigrún.

Áhersla á fjölmenningu Mikið verður lagt upp úr fjölmenningu í tengslum við hátíðina og verður m.a. haldið menningarmót með börnunum í samvinnu við foreldra. „Menningarmótið, sem unnið verður með þremur elstu árgöngunum í leikskólanum, er hugsað til að varpa ljósi á fjölbreytta menningarheima okkar. Við eigum öll okkar persónulegu menningu sem endurspeglast í því hver við erum,

Leikskólinn í Stykkishólmi verður stækkaður með lausri kennslustofu sem flutt var frá Reykjavík til Stykkishólms í liðinni viku. Ljósm. Sumarliði Ásgeirsson.

Börnin skemmtu sér vel á sumarhátíð leikskólans í fyrrasumar. Ljósm. úr safni Skessuhorns.

hvað við viljum kynna fyrir öðrum og styrkja með því móti sjálfsmynd okkar. Ekki er endilega um að ræða þjóðarmenningu eða upprunamenningu heldur það sem skiptir hvern og einn mestu máli og vekur áhuga viðkomandi,“ segir Sigrún og bætir því við að á menningarmótunum verði allir bæði þátttakendur og áhorfendur.

Fjórðu deildinni bætt við leikskólann Börnum á leikskólaaldri hefur fjölgað mjög í Stykkishólmi og því mikil þörf á að fjölga plássum á leikskólanum. „Húsnæði skólans bauð ekki upp á fleiri pláss svo ákveðið var að bæta við lausri kennslustofu. Hingað var flutt hús í seinustu viku

og vonum við að geta tekið það í notkun um miðjan október,“ segir Sigrún. Húsið, sem áður var notað við Listaháskóla Íslands, er um 60 fermetrar að stærð og hentar vel sem viðbót við leikskólann. „Í húsinu verður fjórða deild leikskólans opnuð en sú deild á að vera fyrir yngstu börnin, sem eru um tíu talsins,“ segir Sigrún. arg

Íbúafundur um atvinnumál og skipulagsmál í Stykkishólmi Boðað er til íbúafundar um atvinnumál og skipulagsmál á vegum Stykkishólmsbæjar. Fundurinn verður í FOSSHÓTELI 4. október og hefst kl. 17.30

Dagskrá fundarins er sem hér segir: 1. Atvinnumál a) Jónas P Jónasson, sérfræðingur hjá HAFRÓ, kynnir rannsóknir á hörpudiski Spurt er: hvenær geta veiðar á hörpudiski hafist fyrir alvöru? b) Karl Gunnarsson, sérfræðingur hjá HAFRÓ, kynnir rannsóknir á þangi og þara í Breiðafirði. - Spurt er: hverjir eru nýtingarmöguleikar á þangi og þara úr Breiðafirði í ljósi nýrrar löggjafar um öflun sjávargróðurs? c) Arnór Snæbjörnsson, lögfræðingur í Atvinnuvegaráðuneytinu, kynnir löggjöf um öflun sjávargróðurs í atvinnuskini. d) Róbert A Stefánsson, forstöðumaður Náttúrustofu Vesturlands, fjallar um auðlinda nýtingu í Breiðafirði í ljósi rannsókna sem sérfræðingar HAFRÓ vinna að og kynna. 2. Skipulagsmál Kynning á aðalskipulagi og deiliskipulagi og áformum um byggingasvæði í Stykkishólmi fyrir íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði.

Sauðamessusúpan verður á sínum stað í Skallagrímsgarði. Ljósm. úr safni Skessuhorns.

Arkitektar frá GlámaKím arkitektastofu, þau Bæring Bjarnar Jónsson og Silja Traustadóttir, kynna skipulagssvæði bæjarins.

3. Fyrirspurnir og umræður Sturla Böðvarsson bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmur Sími: 433-8100 - netfang: stykkisholmur@stykkisholmur.is KT.: 620269-7009

Stykkishólmsbær

SKESSUHORN 2017

a) Gildandi aðalskipulag og þörf fyrir endurskoðun þess í ljósi þróunar atvinnulífs og byggðar. b) Deiliskipulag Miðbæjarsvæðis. c) Ný byggingasvæði kynnt við Vík, á Vatnsási og við Reitarveg. d) Hafnarsvæði í Skipavík-iðnaðarlóðir og stækkun athafnasvæðis. e) Hafnarsvæði Stykkishólmshöfn og skipulag bílastæða vegna vaxandi ferðamennsku og siglinga.

Sauðamessa framundan Sauðamessa verður haldin í Borgarnesi laugardaginn 7. október. Er þetta fjórtánda árið í röð sem hátíðin fer fram og má búast við fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá. „Við erum að vinna í dagskránni og er margt skemmtilegt á prjónunum í ár en það kemur betur í ljós þegar nær dregur,“ segir Hlédís Sveinsdóttir, skipuleggjandi Sauðamessu. „Þriðjudaginn 3. október klukkan 18:30 verður ostanámskeið með Eirný í Búrinu, ef næg þátttaka verður. Þar verður lögð áhersla á sauða- og geitaosta í tilefni Sauðamessu. Á laugardeginum byrjar dagskráin klukkan 10 með í íþróttamiðstöðinni þar sem Gunna Dan

ætlar að vera með sauðaspinning fyrir árrisula sauði. Þá verður hátíðardagskrá í Skallagrímsgarði þar sem m.a. verður boðið upp á Sauðamessusúpu. Jón Karl og Ómar Bjarki verða að vanda með vinsælasta lið Sauðamessu, lærakappátið,“ segir Hlédís og bætir því við að í ár verður markaðurinn Hjálmakletti. „Vonandi eru allir með eitthvað á prjónunum því Istex mun veita verðlaun fyrir bæði fallegustu og frumlegustu ullarflíkina.Við endum þetta svo á balli með Stuðlabandinu í Hjálmakletti um kvöldið. Nákvæmari dagskrá er svo væntanleg á allra næstu dögum,“ bætir Hlédís við. arg


MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

55

Hæfileikamótun á Vesturlandi Hæfileikamótun KSÍ og N1 fór fram á Akranesi sunnudaginn 17. september síðastliðinn. Æfingarnar voru fyrir drengi og stúlkur sem fædd eru árin 2003 og 2004. Að þessu sinni voru 14 stúlkur boðaðar á æfinguna. Fimm þeirra komu frá ÍA og fimm frá Víkingi Ólafsvík en tvær frá Vestra og Kormáki. Piltarnir sem tóku þátt voru 23 talsins. Sjö þeirra komu úr röðum ÍA, þrír frá Umf. Grundarfirði, þrír frá Snæfelli, tveir frá Víkingi Ó. og einn frá Skallagrími. Einnig tóku þátt þrír piltar frá Vestra, tveir frá Umf. Geislanum, einn frá Umf. Kormáki og einn frá Súðavík. Tilgangur hæfileikamótunarinnar er meðal annars að fjölga leikmönnum sem fylgst er með og fylgjast með yngri leikmönnum og undirbúa þá fyrir hefðbundnar landsliðsæfingar. Einnig að bæta samskiptin við aðild-

Hressir þátttakendur á hæfileikamótun.

Ljósm. þa

arfélögin og kynna þeim stefnu KSÍ í landsliðsmálum og undirbúa leikmenn enn betur með fræðslu til þess að mæta á landsliðsæfingar seinna. Það var Dean Martin sem stjórn-

aði æfingunum á Akranesi. Stóðu þessir ungu og efnilegu knattspyrnumenn sig með mikilli prýði á hæfileikamótuninni og höfðu bæði gagn og gaman af. kgk

Uppskeruhátíð Snæfellsnessamstarfsins efni voru veittar viðurkenningar fyrir árangur og framfarir en áður en að því kom sýndi Lísbet Rós frá Grundarfirði dans fyrir gesti. Leikmenn meistaraflokks karla hjá Víkingi Ólafsvík aðstoðuðu við afhendinguna. Iðkendur í 6. flokki og yngri fengu allir viðurkenningarpening og gamla Snæfellsnesbúninginn gefins. En frá 5. flokki og upp úr voru veittar viðurkenningar fyrir framfarir og árangur. Í 5. og 4. flokki voru veittar viðurkenningar fyrir framfarir í sumar bæði hjá strákum og stelpum á yngra og eldra ári í A og B liði. í 3. og 2. flokki voru veittar sömu viðurkenningar bæði hjá strákum og stelpum en einnig fengu markahæstu leikmenn í hverjum flokki viðurkenningu. Að lokinni veitingu allra þessara flottu viður-

kenninga var krökkunum þakkað fyrir frábært fótboltasumar og þau minnt á að nú hæfist vetrarstarfið og að allir sem væru á eldra ári í sínum flokki myndu nú færast upp í næsta flokk fyrir ofan. þa

Hausta tekur og við förum að huga að því að geyma mat til vetrarins Skyrmysa er tilvalin til að sýra slátrið og ýmsan annan mat. Fáanleg í 2,5, 5 og 10 ltr brúsum Hægt að panta í Ljómalind í síma 437 1400 eða á Erpsstöðum í síma 868 0357 Einnig er hægt að panta á netfanginu erpur@simnet.is www.erpsstadir.is Rjómabúið á facebook.

Völdu kokk ársins Klúbbur matreiðslumeistara stóð fyrir keppninni um Kokk ársins 2017 og fór úrslitakeppnin fram í Hörpunni um liðna helgi. Kokkur ársins er Hafsteinn Ólafsson matreiðslumaður á Sumac Grill + Drinks. Garðar Kári Garðarsson matreiðslumaður hjá Deplar Farm/ Strikinu var í öðru sæti og Víðir Erlingsson matreiðslumaður hjá Bláa lóninu lenti í því þriðja. Keppnin fór fram fyrir fullum sal í Hörpu þar sem fjöldi gesta hafa allan daginn fylgst með keppninni þar sem kokkarnir elduðu keppnismáltíðina í IKEA eldhúsum með hráefni frá Nettó. Lokasprettinn fór fram samhliða keppninni veisla fyrir gesti sem tryggðu sér miða á Kokkalandsliðskvöldverð og skemmtun. Keppendur háðu harða baráttu um titilinn eftirsóttta og naumt var milli efstu manna. Um val sigurvegarans sá fjölskipuð ellefu manna dómnefnd. Yfirdómari

var Krister Dahl frá Svíþjóð. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar krýndi Kokk ársins í lok kvölds. Krister Dahl yfirdómari sem er margverðlaunaður í keppnismatreiðslu og stýrir eldhúsum Gothia Towers í Gautaborg þ.m.t. 1 stjörnu Michelin veitingahúsinu Upper House hafði þetta um keppnina að segja „Það er greinilegt að keppendur koma vel undirbúnir til leiks og samkeppnin er hörð. Ég verð að hrósa þessum ungu íslensku kokkum fyrir þeirra framlag og er sérstaklega hrifinn af sigurvegaranum sem kom og heillaði dómnefndina með sínum flotta mat og faglegu vinnubrögðum. Ísland er svo sannarlega komið á kortið sem hágæða matarland og íslenskir kokkar standa sig afar vel í alþjóðlegum samanburði t.d. í alþjóðlegum matreiðslukeppnum.“ mm

Gallerí Bjarni Þór í hjarta bæjarnis - Opin vinnustofa og gallerí Teikningar, málverk, vatnslitamyndir, skopmyndir

Kirkjubraut 1, Akranes - listamadur@simnet.is www.listamadur.com - Sími 431 1964 / 857 2648

SKESSUHORN 2017

Árlegt fótboltamaraþon og uppskeruhátíð Snæfellsnessamstarfsins í fótbolta fór fram um síðustu helgi. Spilaður var fótbolti í sólarhring og skipt upp tímanum á Stykkishólm, Grundarfjörð og Snæfellsbæ. Fyrr í vikunni höfðu krakkarnir gengið í hús og safnað áheitum og safnaðist vel. Skemmtu bæði krakkarnir og fullorðnir sér mjög vel. Eins og venja er við þetta til-


MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

56

Vísnahorn

Fátt er svo með öllu illt - að ekki sé hún verri Einn ágætur vinur minn sagði að mesta vandamál mannkynsins væri að hafa of mikið af of góðum mat. Má vera að það gildi um hluta af hinum vestræna heimi en fráleitt held ég nú að það sé algild regla. Svo er líka alltaf spurningin hvað er góður matur og hvað ekki en Ólafur Gunnarsson lýsti sinni mestu veislu svo:

fundi og þótti nóg um kvartanir hreppsnefndarinnar yfir ómögum sveitarinnar: Heyrast mundi vol og víl, víst má nærri geta, ef andskotinn í Andakíl yrði niðurseta.

Sagt var um sum heimili að ekki væri þar of góð matarvist og á einum sómabæ andaðist vinnumaður aldraður og sagt að ekki hefði hann verið neitt ofhaldinn af matarvistinni en þó hefði verið settur askur með mat hjá honum eftir að hann var skilinn við svo sjá mætti að hann hefði gengið frá leyfðu. Er ekki alveg viss um hvor þeirra feðga Eyjólfur Jóhannesson eða Jón sonur hans orti eftirfarandi en hef séð eignað þeim báðum:

Þeir sem hafa allsnægtir og auð eta mat í salarkynnum fínum en ég hef aldrei smakkað betra brauð en bita sem ég át úr vasa mínum.

Á bæ einum í Skagafirði hafði verið dreginn að fiskur í nokkru magni að vorlagi en eitthvað þótti húsfreyju heimilisfólkið vera aðfaralítið við hann þegar hann fór að taka geymslubragðinu enda var þetta fyrir tíma allra frystigeymslna. Þegar frúin hafði orð á þessu við bónda sinn sagði hann; „Það er ekki von góða mín. Þú ert með indælt ket og allslags mat.“ Saltkjötstunnan hafði að vísu lekið pæklinum örlítið og kjötið orðið framsóknargrænt þó trúlega væri þetta fyrir tíma Framsóknarflokksins. Af þessu tilefni kvað Gísli Gíslason í Hjaltastaðahvammi:

Illa fór hann Gvendur grey þó gamalt æti hann ketið. Þeir eru til, sem þrífast ei, þótt þeir geti étið.

Eyjólfur Jóhannesson sem lengst bjó í Hvammi í Hvítársíðu var ástarbarn foreldra sinna en faðir hans hét Jóhannes Lund Jónsson. Ættaður úr Eyjafirði en var eitt ár vinnumaður á Gilsbakka. Bjó síðar á Rangárvöllum á nokkrum bæjum. Jóhannes var blótsamur nokkuð og lét sér æði tíðrætt um myrkrahöfðingjann sem hann nefndi ankota. Eitt sinn í Reykjavíkurferð hittir Jóhannes mann og spyr að heiti. Einhvern grun mun sá aðspurði hafa haft um spyrjandann því svarið var á þessa leið:

Á þeim tímum sem góðbændur í Borgarfirði gerðu út vinnumenn sína á vertíð suður á Suðurnes voru þeir að sjálfsögðu nestaðir til ferðarinnar. Frá einu góðbúi héraðsins fór vinnumaður til sjóróðra en ekki entist nú nestið lengra en í Hafnarskóginn. Nestið í þessu samhengi var gjarnan kallað útgerð en af þessu tilefni var kveðið:

Minn hórfaðir mig forlét myrkra nærri skoti. Ég man ekki, jú hann hét Jóhannes ankoti.

Útgerðin var ekki nóg, einhver gerði spara. Brauðið var hrátt og bringan mjó, brot af mjaðmarspaða.

Þetta var semsagt Eyjólfur Jóhannesson sem spurður var. Nú er ekki vitað um trúmál Eyjólfs eða hvað hann tók þá hluti alvarlega en Sigurður Björgólfsson taldi sig allavega eiga góðs von og sendi einhverjum þessa kveðju:

Mér er ekki grunlaust að það hafi verið sami hagyrðingur sem var staddur á hreppsnefndar-

Skeiðar til ég hef og hnífs en hvergi má við fórninni. Af öllu hjarta eilífs lífs óska ég ríkisstjórninni.

Karl Ágústsson í Litlagarði sendi góðvini sínum eftirfarandi vísu á þeim árum sem umræddir höfðingjar voru á dögum en þarna mun væntanlega átt við Benjamín Eiríksson bankastjóra og Bjarna Benediktsson (ekki þann sem nú er í ríkisstjórn):

Svo verður hver að gera upp við sig hvernig vísan á að skiljast. Yfirleitt er það svo með þá sem hafa einhver völd, hvort sem það eru ríkisstjórnir eða aðrir að allir vita miklu betur en þeir hvað ætti að gera og hvað er landi og þjóð fyrir bestu enda orti Kristján Ólason: Aðdáun og undrun hafa aukið hjá mér jafnt og þétt þeir sem aldrei eru í vafa og alltaf vita hvað er rétt.

Verði þér aldrei veröld myrk. Veití þér Drottinn Marsjalstyrk. Benjamíns ráðdeild blessist þér. Bjarni þá fyrir hinu sér.

Nú á síðustu dögum sem höktir öndin í blessaðri ríkisstjórninni væri kannske við hæfi að rifja upp gamla vísu um allt aðra ríkisstjórn enda hafa þær sjaldnast verið vinsælar fyrr en eftir andlát sitt:

Í síðasta þætti birti ég nokkrar haustvísur eftir Ingólf Ómar en einhverra hluta vegna aflagaðist ein vísan og því rétt að birta hana hér aftur rétta: Langa rekja leitarmenn leið um hraun og fláa. Heillar þeirra hugi enn heiðin fjallabláa.

Stjórnin bæði stirt og vilt stýrir dýrum knerri. Fátt er svo með öllu illt að ekki sé hún verri.

Að hann dáið hafi úr hor, held ég rengja megi, en hitt er satt hann var í vor vel fram genginn eigi.

Konan grét við krásarfat, karlinn lét á diskinn indælt ket og allslags mat. Enginn étur fiskinn.

Þó státir þú af sterkri trú og stiklir þrönga veginn. mun ég eiga eins og þú athvarf hinu megin.

Það hefur lengi verið siður okkar að yrkja eftirmæli hvort heldur er um hross eða ríkisstjórnir og um þá ríkisstjórn sem nú er í andarslitrunum orti Hjálmar Freysteinsson: Illa tókst að axla skyldur enda í heldur þröngum stakk. Hún var svoddan hrófatildur að heyrðist varla þegar hún sprakk.

Líklega hafa þeir ágætu menn verið að leita að lambakjötsfjallinu í einhverri mynd enda sýnist það torfundið og alls ekki af þeirri stærðargráðu sem reiknimeistarar höfðu séð fyrir sér. Guðmundur Halldórsson orti um þann eltingaleik við ,,Fata morgana“: Tálsýnir og talnabrall við tíðum megum þola, lambakjöts er farið fjall nú finnst þar bara hola.

Og Ragnar Önundarson kvað einnig í minningu sömu stjórnar:

Með þökk fyrir lesturinn,

Andvana var hún ugglaust fædd, andvana hlaut hún framann. Andvana starfað´ún ósköp mædd, andvana féll hún saman.

Dagbjartur Dagbjartsson Hrísum, 320 Reykholt S 435 1189 og 849 2715 dd@simnet.is

Ekki man ég betur en það hafi verið Gunnlaugur Pétursson frá Selhaga sem kvað um sitjandi ríkisstjórn á þeim tíma:

Krossgáta Skessuhorns Málsháttur

Samþykki

Gramur Kveikja

Skaut Spann Blaður

1050 Mjaka Galsi

Þófi Vær Stormur

Geð Hvíldi Skaði

Svoli Gæði

Örlæti Hólf Hljóta Harðindi Heill

Geymsla

Áhald Hætta Lykkja

For Grjót

1 Ágæti Drykkur Æst

3

Dynur Batt Móska

8

Flói Óhræsi Lánaði Fæði Sefar Laust Skrá Innyfli Rugga

Trjámylsna Annir

Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á. Auk þess birtum við lausn á krossgátu síðustu viku. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánudögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti sendi lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta, Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið verður úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn bókargjöf frá Skessuhorni. Alls bárust 85 lausnir við krossgátunni í blaðinu í síðustu viku. Lausnin var: „Uppsalir.“ Vinningshafi er Ína Sif Stefánsdóttir, Vesturgötu 40, 300 Akranesi.

Mamma Friðsöm

Flan Ílát Von

Núna Egnir Utan

7 Mont Forsk. Eilíf

Leynd Felur

Ró Eink.st Fiskur

Reim Þrek

Hýði

Þreytan Sk.st.

Væekill

Upp.hr. Nisti Mjöður

Leðja Öf.röð Karl Kusk Fen

Þegar Vitund Lík

Fugl Ambátt Samhlj.

Vann Önugur

6

Fuglinn

4

Næg

Skák Spyr Keyra Alúð Ofn Sál

Hlífa

Ras Tvíhlj. Rödd

2

Lín Dvína

Árbók

Annríki Korn Ennþá

Lognalda Rösk Svall

2

3

4

5

6

7

8

100

LAUSN ÚR SÍÐASTA BLAÐI

5

Mögl Pota

1

Mat Tónn Víma

Pabbi Stafina

S

K

Ý

J

A

M

Y

N

D

L

J

Ó

S

Y

L

A

I

L

Á

A

R

K

L

I

F

R

A

R

Ú

V

A

L

N

A

F

N

Á

T

Á

T

A

N

R

I

M

S

V

E

R

F

L

A

S

Á

T

E

L

Ú

R

E

L

T

O

J

Ú

G

N

A

R

R

Æ

Ð

A

R

U

R

Á

R

H J

Á

T

A

A

L

Á

L

R

A

R

D

R

T

R

Ú

R

A

R

Ð

A

E

R

N

Æ

R

Ð

I

S

T

A

U

G

L

Á

S

R

A

U

S

N

P

A

U

L

Ð

S

L

A

G

T

Ó

F

A

V

A

N

T

R

V

Ö

K

A

F

Ó

A

R

Á

R

I

F

N

U

S

L

A

P

S

N

E

M

M

A

I

S

N

L

Æ

M

E

F

G

L

E

R

O

F

A

Ö

V

O

Ð

T

A

K

K

U

R

R

K

S

U

L

L

T

A

G

L

Ý

T

R

A

Ð

I

R

G

Á

S

A

L

I

R

S

U

R

P

P

E

M

F

N

Ó

A

R

A

Ð

R

A


MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

57

Snorrastofa í Reykholti Snorrahátíð 1947–2017

Snorrabíó í héraðsskólanum Þriðjudaginn 3. október 2017 kl. 20:30 í hátíðarsal héraðsskólans

Ánægja með körfuboltabúðir Skallagríms og Arion banka Körfuboltabúðum Skallagríms og Arionbanka lauk á sunnudaginn. Þetta var skemmtilegt verkefni sem Arion banki studdi dyggilega við og leysti þátttakendur, sem voru tæplega 90 talsins, út með gjöfum. Í lok síðasta dags var slegið upp pizzuveislu sem þreyttir körfuboltakrakkar gerðu góð skil. Pálmi Sævarsson, yfirþjálfari yngri flokka Skallagríms, hélt utan um skipulagningu ásamt stjórn yngri flokkaráðs og lögðu margir þjálfara og leikmenn félagsins hönd á plóg. Góðir gestir komu einnig og færum við þeim bestu þakkir, sérstaklega þeim Daníel Guðmundssyni, þjálfara Njarðvíkur, sem kom og hélt fyrirlestur um markmið og fleira tengt íþróttasálfræði og Davíð Tómas dómari sem kom og ræddi um hlutverk dómara og regluverkið í kringum sportið. Einnig ræddi Davíð við eldri þátttakendurnar um forvarnar-

Verið velkomin Snorrastofa, menningar- og miðaldasetur í Reykholti Sími 433 8000 www.snorrastofa.is snorrastofa@snorrastofa.is

Fréttaveita Vesturlands

www.skessuhorn.is mál, virkilega gott innlegg frá báðum þessum heiðursmönnum. Körfuknattleiksdeildin þakkar öllum iðkendum, sem allir voru til mikillar fyrirmyndar, þjálfurum, foreldrum, starfsfólki íþróttahússins í Borgarnesi, Landnámssetrinu, Sam-

göngusafninu og öðrum sem hjálpuðu til með einum eða öðrum hætti kærlega fyrir helgina. Einnig eru ítrekaðar þakkir til Arionbanka fyrir stuðninginn. -fréttatilk./ Ljósm. Skallagrímur körfubolti

Sjónhverfing dregur úr umferðarhraða á gangbraut Nýstárlegri hraðahindrun hefur nú verið komið upp á Hafnarstræti á Ísafirði. Á fréttavef BB.is er greint frá þessu en þar segir að nýja gangbrautin minni á pappalöggurnar frægu sem stillt var upp á Reykjanesi um árið, sem að vísu vöktu takmarkaða lukku. Hraðahindrunin á Ísafirði er nokkurs konar sjónhverfing og hefur þann kost að geta með engu móti skaðað bíla sem yfir hana aka. mm/ Ljósm. bb.is

Óskar Guðmundsson rithöfundur leiðir sýningu á kvikmynd, sem unnin var fyrir Snorrastofu úr gömlum lifandi myndum frá Snorrahátíð í Reykholti og heim- Umræður og kaffiveitingar sókn Norðmanna sumarið 1947. Aðgangur kr. 500

Varmadælur Hagkvæmur kostur til upphitunar

• Kyndir húsið á veturna og kælir á sumrin • Fyrir norðlægar slóðir • Fjarstýring fylgir • Hægt að fá WiFi sendi svo hægt sé að stjórna dælunni úr GSM síma

R a u ð a g e rð i 2 5 · 1 0 8 R

eykjav

ík · S

Verð frá aðeins kr. 155.000 m.vsk Midea MOB12 Max 4,92 kW 2,19 kW við -7° úti og 20° inni hita (COP 2,44) f. íbúð ca 60m2. Uppsetningaaðilar og umboðsmenn um allt land

ími 4 40 18 00 · ww w.kaelitaekni.is

Okkar þekking nýtist þér


MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

58

Pennagrein

Veraldarsigling Jóns Eggertssonar á prent Í næstu viku, fimmtudaginn 5. október, er væntanleg úr prentun bókin „Leiðin frá Langanesi - suður í höf og heim aftur, veraldarsigling Jóns Eggertssonar.“ Sölvi Sveinsson skráði. „Við systkinin erum að gefa út bók um pabba okkar Jón Eggertsson, læknisson og fyrrverandi kaupmann í Borgarnesi. Bókin fjallar um æskuárin hans á Þórshöfn, veraldarsiglingar í 14 ár og minningar okkar með honum í Borgarnesi. Pabbi hefur nú ekkert verið að flíka sögunum af veraldarsiglingum sínum á sínum yngri árum. Það var reyndar þannig þegar við vorum yngri að læra landafræði eða sögu og þurftum að spyrja pabba um eitthvað sem tengdist útlöndum þá kom alltaf: „Já, ég var nú þarna.“ Þá fór maður að spyrja meira og alltaf hafði hann komið á þá staði sem við nefndum. Núna í seinni tíð þegar við systkinin erum að flækjast eitthvað um heiminn þá koma sögur af því þegar hann var þar og við verðum að koma við þarna og þarna. Hann er ótrúlega minnugur,“ segir Jóhanna

Erla Jónsdóttir dóttir hans í samtali við Skessuhorn. Á bókarkápu segir: „Í þessari bók segir Jón Eggertsson sögu sína, en hann fæddist og ólst upp í Þórshöfn á Langanesi, fluttist síðan suður á unglingsaldri 1941, var á síld fyrir norðan á sumrin en við þorskveið-

ar í Vestmannaeyjum á vetrum. Hann réði sig á færeyska skútu 1948, einn túr sem endaði í Færeyjum, en þar vantaði mann á norskt tankskip. Hann sló til og kom ekki heim næstu 14 ár, sigldi um öll heimsins höf. Jón er minnugur í betra lagi og kjarnyrtur. Fyrri hluti bókarinnar er helgaður frásögn hans af Þórshafnarárunum þar sem fléttað er inn skýrslum Eggerts Einarssonar héraðslæknis, föður hans, en þær eru upplýsandi um menn og málefni á Langanesi og víðar. Einnig eru kaflar úr hreppsbók Langaneshrepps og aðrar heimildir sem varpa ljósi á byggðamál og afkomu fólks, ekki síst á kreppuárunum. Í bókarlok eru æskuminningar Jóhönnu Erlu Jónsdóttur, en heim kominn settist Jón að í Borgarnesi og rak þar efnalaug og verslun um árabil.“ Í Borgarnesi eignaðist Jón sjö börn en átti eitt fyrir. Bókin er gefin út í takmörkuðu upplagi og seld í forsölu á facebook og í gegnum pantanir á netfangið johannaerla74@gmail.com. mm

Rafrænar kosningar styrkja lýðræðið Strax í upphafi kosningabaráttunnar kemur fram skýr munur á Pírötum annars vegar og nær öllum hinum flokkunum sem að hafa ákveðið að bjóða fram í komandi kosningum. Munurinn er að Píratar þora að láta fólkið ráða hverjir skipa listana og hvernig þeim er raðað í sæti. Þetta er gert með lýðræðislegri kosningu á netinu; sjá www.x.piratar.is, eftir að fólk hefur gefið kost á sér og flokksmeðlimum er gefin ein vika til að kynna sér frambjóðendur og klára málið. Þessi lýðræðislega leið er gagnsæ og nútímaleg. Er það ekki liðin tíð, gamaldags og mjög ólýðræðislegt, að vera með kjördæmisráð sem stillir upp lista þegar hægt er að hafa rafræna kosningu sem allir félagar geta tekið þátt í. Píratar notast við nútímatækni og allt er upp á borðum hvað varðar vinnubrögðin. Þetta er leið sem að hinir flokkarnir þora ekki að fara, þeir virðast hræddir við beint lýðræði og nútímatækni.

Píratar boða nýjar aðferðir og ný vinnubrögð Beint lýðræði er hluti af þeirri framtíðarsýn sem Píratar sjá fyrir sér. Fólkið í landinu á að geta tekið virk-

ari þátt í ákvörðunum um kjör þess og framgang þjóðmála. Hægt er að sjá fyrir sér þjóðaratkvæðagreiðslu um heilbrigðismálin, þar sem fólkið í landinu ákveður sjálft hversu miklum fjármunum á að ráðstafa til þessa mikilvæga málaflokks í lýðræðislegum beinum kosningum sem fram fara á netinu. Í dag og á undanförnum áratugum hefur þjóðin mátt horfa upp á hvernig staðhæfingar og loforð stjórnmálamanna hafa útþynnst og orðið vita merkingarlaus þegar búið er að mynda ríkisstjórn. Stefnuyfirlýsingar samstarfsflokka í ríkisstjórn hafa heldur ekki haldið vatni eins og dæmin sýna og er nýjasta fjárlagafrumvarpið skýrt dæmi um svikin loforð. Píratar vilja hleypa fólkinu í landinu beint að ákvörðunum um mikilvægustu málin sem alþingi fjallar um og þarf að leysa. Með rafrænum kosningum og beinu lýðræði næst meirihlutavilji fólksins í landinu að koma fram, ekki bara í alþingiskosningum heldur líka þeirra á milli. Píratar ráða við tæknina og treysta fólkinu til að velja. Horfum fram á vegin og hræðumst ekki breytingar. Eiríkur Þór Theodórsson. Höf. er frambjóðandi í prófkjöri Pírata í Norðvesturkjördæmi.

Vandaðar svuntur í mörgum litum Fáið verðtilboð í vinnufatnað og merkingar.

Smáprent Smáprent - Skagabraut 6, Akranesi - sími: 431-5110/666-5110 www.smaprent.is - smaprent@smaprent.is


MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

Umferðahlið sett upp við Búðardal

Messa á Staðastað Guðsþjónusta verður í Staðastaðakirkju sunnudaginn 1. október kl. 14.00. Samkór Lýsu syngur, söngstjóri og organisti er Hólmfríður Friðjónsdóttir. Verið velkomin Hjálmar Jónsson

Malbikunarvinna á Vesturbraut, bílafloti Kols ehf. í Búðardal. Fremst á myndinni er Gunnbjörn Óli Jóhannsson sem hélt utan um framkvæmdir.

SKESSUHORN 2017

Umferðarhraði um þjóðveginn í gegnum Búðardal hefur um nokkurn tíma verið áhyggjuefni íbúa en nú standa yfir framkvæmdir sem ættu að vinna á þeim vanda. Verið er að setja upp bæjarhlið beggja vegna þegar komið er inn í þéttbýlið. Nýverið var einnig sett upp gangbraut um veginn miðjan sem tengir saman grunnskólann og verslunarplanið við Samkaup auk þess sem nýtt malbik var lagt nú síðsumars. Kristján Ingi Arnarson, umsjónarmaður framkvæmda í Dalabyggð, hefur að auki sótt um leyfi fyrir nýrri gangbraut yfir Vesturbraut á móts við Brekkuhvamm. Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar samþykkti leyfið á fundi sínum 14. september sl. með fyrirvara um samþykki Vegagerðarinnar. sm

59

Verkfræðiþjónusta Tökum að okkur verkefni á sviði verk og tæknifræði. Eftirfarandi þjónusta er í boði: Hönnun og ráðgjöf á sviði mannvirkjagerðar Hönnun og ráðgjöf á sviði iðnaðarferla Gerð útboðsgagna - GPS mælingar- Kostnaðaráætlanir Verkefnastjórnun - Verkeftirlit - Byggingarstjórnun Ráðgjöf við mat á tilboðum – Eignaskiptayfirlýsingar

Karl Ingi Sveinsson

Véltæknifræðingur karl@kalman.is Katanesvegur 3 Grundartanga Sími: 864-0746

Gangbraut milli grunnskólans og verslunarplans Samkaupa.

Skúlptúr á vegg gamla samkomuhússins Einhver eða einhverjir sem fóru fyrr í þessum mánuði um Snæfellsnes tóku sig til og máluðu norn eða einhvers konar teiknimyndapersónu á húsgafl gamla samkomuhússins neðan við Dalsmynni í Eyja- og Miklaholtshreppi. Ekki er vitað hverjir voru þarna á ferð, en listamannsnafnið er Lolo. Nornin hefur vakið talsverða athygli ferðamanna sem margir hverjir hafa stoppað við húsið til þess eins að ná myndum af sér framan við það. iss

Volvo FM9 4x2 Árg: 2005

Einangraður kassi með hurð á báðum hliðum. B244cm x L490cm x H240cm. Lyfta er af gerðinni MBB max 1500 kg.

BLIKKSMIÐJA

JÁRNSMIÐJA

Loftræstingar – Reykrör Klæðningar – Nýsmíði Viðhald – Efnissala

Gjafagrindur – Nýsmíði Viðhald – Þjónusta Hesthúsinnréttingar

RAFMAGNSVERKSTÆÐI Nýlagnir – Viðhald Viðgerðaþjónusta

Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is

ÖLL ALMENN VERKTAKASTARFSEMI Sumarhús • Gluggar • Hurðir • Fög

Eiríkur J. Ingólfsson ehf. Sólbakka 8 • Borgarnesi • ejiehf@simnet.is Eiríkur 894 5151 • Ingólfur 892 8610

SKESSUHORN 2015

ÞJÓNUSTA ÞJÓNUSTA

Verð: 2.290.000 án vsk.

SKESSUHORN 2017

Uppl. í síma 420-0400.


MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

60

Pennagrein

Pennagrein

Óður til kosninga

Bara Vinstri, ekki Græn Það var athyglisvert að fylgjast með framgöngu Lilju Rafneyjar, þingmanns Vinstri grænna, á borgarafundi sem haldinn var í Ísafjarðarbæ á dögunum undir yfirskriftinni „fólk í fyrirrúmi“. Þar tók hún m.a. til umræðu að leyfa skyldi eldi á frjóum norskum laxi í Ísafjarðardjúpi hið fyrsta og að náttúran skyldi fá að njóta vafans. Samt veit þingmaðurinn að sá vafi leyfir ekki laxeldið, þar sem fyrir liggur áhættumat Hafrannsóknastofnar. Þar er varað við að slíkt eldi muni vafalaust stefna villtum laxastofnum í ám á svæðinu í hættu. Þrátt fyrir þetta krafðist þingmaðurinn þess að leyfi til laxeldis yrði veitt hið snarasta og virtist þarna alveg hafa gleymt pólitískum uppruna sínum. Það er liðin tíð að stjórmálamenn í atkvæðaleit geti hagað sér eins og umskiptingar eftir því við hverja þeir tala hverju sinni. Það var því óheppi-

legt fyrir þingmanninn að fundinum var streymt í beinni útsendingu og því ómar krafa hennar um frjóan lax í sjókvíum um allt Norðvesturkjördæmi. Því ekki má gleyma að aðrir hagsmunahópar búa í kjördæminu. Þar er að finna verðmætustu laxveiðiár á Íslandi og atvinnuhagsmuni þeim tengda sem þingmaðurinn virðist nú engu skeyta um. VG hefur hingað til gefið sig út fyrir að vera sá stjórnmálaflokkur sem stendur næst náttúrvernd í íslenskum stjórnmálum. Það á bersýnilega ekki lengur við, allavega ekki í Norðvesturkjördæmi. Þórarinn Halldór Óðinsson. Höfundur er formaður Egils, félags ungra Sjálfstæðismanna í Mýrasýslu.

Nú er komið haust. Það kólnar í lofti, haustlægðirnar koma yfir landið hver á fætur annarri, gróðurinn tekur á sig sinn fallega lit sem einkennir árstíðina og börnin fara aftur í skólann sinn. Já og svo eru auðvitað líka kosningar. Þegar ganga á til kosninga í þriðja sinn á aðeins fimm árum hlýtur að vera kominn tími til þess að staldra aðeins við og velta vöngum. Af hverju stafar þessi óstöðugleiki í stjórnmálunum? Enn á ný hefur almenningur risið upp og látið í sér heyra og skilaboðin eru skýr. Við viljum breyta stjórnmálamenningunni. Við viljum betri vinnubrögð í stjórnmálunum, meira gagnsæi í stjórnsýslunni og við gerum þá kröfu að stjórnmálamenn starfi með hag almennings að leiðarljósi. Þjóðin á skilið að stjórnmálamenn starfi af heilum hug að

því að byggja brú á milli hennar og stjórnmálanna, að stjórnmálamenn vinni af heilum hug að því að auka traust hennar til Alþingis. Að skipta út stjórnmálamönnum eða stjórnmálaflokkum mun ekki breyta miklu nema grunngildum stjórnmálanna sé breytt, stjórnmálamenningunni sé breytt. Allir flokkar gefa fögur loforð í aðdraganda kosninga og flestir gera það af góðum hug og vilja til þess að bæta samfélagið. Þegar á hólminn er komið og flokkar jafnvel komnir í ríkisstjórn virðist oftar en ekki illmögulegt að standa við gefin loforð ýmist vegna „pólitísks ómöguleika“ eða einhverrar kerfislægrar tregðu. Það ætti að vera krafa að stjórnmálamenn standi við gefin loforð. Ef það er ekki gert þá ætti almenningur að hafa óskoraðan rétt til þess að vera upplýstur um af hverju það er ekki hægt. Gagnsæi er lykilatriðið.

Það þarf að eyða þeirri kerfislægu hneigð stjórnvalda að leyna upplýsingum fyrir almenningi til þess að vernda eigin hagsmuni. Alþingismenn starfa í umboði þjóðarinnar og því skal aldrei gleyma. Í framtíðinni munu stjórnmál og stjórnsýsla vera gagnsæ og allar upplýsingar og gögn í fórum stjórnvalda munu vera tiltæk án undandráttar. Almenningur mun hafa tryggan aðgang að öllum gögnum sem opinberir aðilar safna eða sýsla með. Til þess að stuðla að þessari framtíð vil ég hvetja alla kjósendur, sérstaklega ungt fólk, til þess að taka framtíð sína í eigin hendur og nýta kosningarétt sinn. Eva Pandora Baldursdóttir Höf. er alþingismaður Pírata í Norðvesturkjördæmi.

Pennagrein

Að vera með heyrnartæki og njóta þeirra 20% fólks á aldrinum 40 til 60 ára er heyrnarskert og margir gera sér ekki grein fyrir því og halda að sá vandi sem þeir verða varir við stafi af einhverju öðru. Sá sem hefur grun um að hann sé ef til vill með heyrnarskerðingu þarf fyrst að fara í heyrnargreiningu og ef grunurinn reynist réttur þá er ráðlagt að fá heyrnartæki til reynslu. Gott er að hafa einhvern nákomin með sér því ef aðstandendur skilja vel hvers sé að vænta gengur betur að venjast tækjunum. Um leið og heyrnartæki eru sett upp þarf maður að læra að heyra á ný. Heilinn fær boð um ný hljóð sem hann hefur ekki fengið í langan tíma. Fyrir marga hefst aðlögunartími sem krefst þjálfunar. Í fyrstu finnst manni sum hljóð hávær og þreytandi. Það er mjög eðlilegt. Heilinn vinnur á fullu við að greina hljóðin. Með þolinmæði og jákvæðu hugarfari næst fljótt árangur og tækin verða ómissandi. Heyrnin skerðist venjulega á löngum tíma og maður er oftast nokkur ár að sætta sig við að hún hafi dofnað og að það þurfi að gera eitthvað í því. Samkvæmt þessu hefur maður smám saman sætt sig við að lifa í fábreyttari hljóðheimi. Maður heyrði t.d. ekki tif í úri, skrjáf í dagblaði, glamur í borðbúnaði, núningshljóð í fötum, fótatak, hvin frá bílvél, fuglasöng eða þyt í laufi.

Að venjast mismunandi hljóðumhverfi Maður venst heyrnartækjunum fljótar að vera með þau heima heldur en í meira krefjandi hljóðumhverfi, svo sem í vinnunni eða á mannamótum. Þessar aðstæður geta tekið á og maður getur þurft að leggja töluvert á sig í upphafi. Ef eftirfarandi leiðbeiningum er fylgt næst fljótlega árangur. Ef hávaði er í umhverfinu á að snúa baki í mesta hávaðann. Í miklu skvaldri, s.s. á veitingastað er best að sitja sem næst viðmælanda og andspænis honum, þá gengur samtalið vel. Sitja á tvo til þrjá metra fá sjónvarpinu og hljóðstyrkur þess á að vera hæfilegur fyrir þá sem hafa fulla heyrn. Velja á fjarlægð frá sjónvarpinu eða breyta styrkstilli á heyrnartækjunum þannig að hljóðið sé notalegt. Það sama gildir um útvarp. Því nær sem er setið þeim mun betur heyrist og umhverfishljóðin trufla minna. Það sem nýjir heyrnartækjanotendur spyrja oftast um: Munu heyrnartæki endurnýja heyrnina? Heyrnartæki hjálpa upp á heyrnina og bæta hana en þau geta ekki end-

urnýjað hana fullkomlega. Algengasta heyrnartap stafar af skemmd á örfínum skynhárum í innra eyranu. Þessi skemmd er ólæknandi eins og er. Hversu langan tíma tekur að venjast heyrnartækjum? Sá sem hefur verið heyrnarskertur í mörg ár án þess að nota heyrnartæki þarf að fara í gegnum endurhæfingu sem fellst í því að þekkja á ný hljóð sem eru gleymd. Það er mjög mismunandi hversu langan tíma endurhæfingin tekur. Í hreinskilni sagt getur hún verið erfið en í flestum tilvikum er hún mjög auðveld. Mikilvægt er að fara eftir því sem heyrnarfræðingurinn ráðlegg-

ur og hafa í hug að um er að ræða þjálfum sem á að skila árangri. Það að ákveða að bæta heyrnina eykur lífsgæði umtalsvert og jafnvel heilsuna. Geta heyrnartæki skemmt heyrnina? Nei. Nútíma heyrnartæki vinna þannig að þau draga úr mögnun háværra hljóða þannig að hljóð heyrast vel en ekki of hátt. Heyrnarfræðingur sníður virkni tækjanna að þörfum þess sem notar þau. Heyrnartæki virkja á ný heyrnarsvæði heilans og við það eykst til muna talskilningur. Hversu lengi endast heyrnartæki?

Venjulega er gert ráð fyrir að heyrnartæki endist að meðaltali í 5 ár. Sum tæki geta enst lengur. Til að lengja endingartíma tækjanna er nauðsynlegt að fara eftir leiðbeiningum sem fylgja með þeim og einnig ábendingum heyrnarfræðings um daglega umhirðu. Góð heyrn glæðir samskipti. Þess má geta að rannsóknir sýna að notkun heyrnartækja bætir félagsog tilfinningalíf fólks og hæfni þess til samskipta. Allar nánari upplýsingar má finna á www.heyrn.is Ellisif K. Björnsdóttir heyrnarfræðingur

Vörur og þjónusta Getum við aðstoðað þig?

Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmar 820-3722 Páll 699-4067

SKESSUHORN 2017

H P Pípulagnir ehf.

hppipulagnir@gmail.com

Þjónustuauglýsingar Skessuhorns

Fjölritunar- og útgáfuþjónustan

sími: 437 2360

olgeirhelgi@islandia.is

Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Dreifibréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni

RESTAURANT

Sprautu- og bifreiðaverkstæði Borgarness

RESTAURANT

Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti

Auglýsingasími: 433 5500

Þjónustum öll tryggingafélög Upplýsingar í síma: 430 6767

www.skessuhorn.is

Upplýsingar í síma: 430 6767

Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is


MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

Nýfæddir Vestlendingar

19. september. Tvíburasystur. Stúlka A: 2.515 gr og 45 cm. Stúlka B: 2.525 gr og 44,5 cm. Foreldrar: Bryndís Ottesen og Jón Einar Hjaltested, Akranesi. Ljósmóðir: Steinunn Zophoníasdóttir (LSH). Stúlkunum hafa verið gefin nöfnin Emilía og Freyja.

21. september. Tvíburasystur. Stúlka A: 3.168 gr og 52 cm. Stúlka B: 3.242 gr og 52 cm. Foreldrar: Linda Sif Frímannsdóttir og Jón Már Brynjólfsson, Akranesi. Ljósmóðir: Jóhanna Ólafsdóttir. Stúlkurnar hafa verið nefndar Natalía og Ísabella.

19. september. Drengur. Þyngd: 4.072 gr. Lengd: 54 cm. Foreldrar: Sigrún Ágústa Helgudóttir og Rúnar Freyr Ágústsson, Reykjavík. Ljósmóðir: Jóhanna Ólafsdóttir.

22. september. Drengur. Þyngd: 4.272 gr. Lengd: 53 cm. Foreldrar: Helga Hjördís Björgvinsdóttir og Steinar Már Ragnarsson, Stykkishólmi. Ljósmóðir: Erla Björk Ólafsdóttir.

21. september. Stúlka. Þyngd: 3.434 gr. Lengd: 50 cm. Foreldrar: Heiðrún Kristín Axelsdóttir og Kristófer Fannar Guðmundsson, Mosfellsbæ. Ljósmóðir: Björg Sigurðardóttir.

Getir þú barn þá birtist það hér, þ.e.a.s. barnið! www.skessuhorn.is

Markaðstorg Vesturlands LEIGUMARKAÐUR Húsnæði óskast Bráðvantar íbúð á Akranesi eða í nágrenni Akraness sem allra fyrst. Skoða allt. Upplýsingar sendist á baratommi@gmail.com. TIL SÖLU Toyota Corolla Station Til sölu Toyota Corolla Station. Sjálfskiptur, 1.600 cc, árg. 2004 ekinn 120000 þús. Tveir eigendur frá upphafi. Á nýlegum heilsársdekkjum. Upplýsingar: bjorn@stalsmidjan.is.

Peugeot 307sw til sölu Bíllinn er árgerð 2004. Dísel, dráttarkrókur, nýsmurður, skoðaður án athugasemda og á nýlegum dekkjum. Óska eftir tilboði. S: 844-6666. Nissan Terrano Nissan Terrano diesel árg. 1998 til sölu. Orðinn lúinn en vel nothæfur. Óska eftir tilboði. Sumar og vetrardekk á felgum. Nánari upplýsingar í síma 898-1253 eða á eliasjo@mi.is.

61

Á döfinni Borgarbyggð miðvikudagur 27. september Almennur félagafundur Félags aldraðra í Borgarfjarðardölum í Brún í Bæjarsveit kl. 13:30 til 17:00. Reynir Hauksson leikur á gítar. Nýir félagar 60+ boðnir velkomnir.

Stykkishólmur miðvikudagur 27. september Lýðheilsuganga Ferðafélags Íslands - Berserkjagatan. Mæting á bílastæðið við íþróttahúsið kl. 18:00 og sameinast í bíla. Fararstjóri er Elísabet Lára Björgvinsdóttir.

Akranesmiðvikudagur 27. september Íbúaþing um farsæl efri ár verður haldið kl. 17:00 til 21:00 í Grundaskóla. Markmið þingsins er að leita svara við eftirfarandi spurningum: Hvað er gott við að eldast á Akranesi? Hvernig viltu sjá málefni eldri borgara á Akranesi þróast? Hvernig getur Akraneskaupstaður stuðlað að farsælum efri árum? Hvað getum við sem einstaklingar gert til að stuðla að farsælum efri árum? Unnið verður eftir þjóðfundarfyrirkomulagi og verða niðurstöður íbúaþingsins notaðar sem innlegg í stefnumótunarvinnu í málefnum aldraða. Akraneskaupstaður býður þátttakendum upp á léttar veitingar. Allir íbúar á Akranesi eru velkomnir á þingið.

Grundarfjörður miðvikudagur 27. september Lýðheilsuganga Ferðafélags Íslands upp á Bárarháls. Upphafsstaður er afleggjarinn milli Suður- og Norður-Bárar kl. 18:00.

Akranes miðvikudagur 27. september Lýðheilsuganga Ferðafélags Íslands. Lagt af stað frá bílastæðinu við Akrafjall kl 18:00 og gengið áleiðis að flugvélaflakinu í fjallinu. Fararstjóri er Eydís Líndal Finnbogadóttir.

Snæfellsbær miðvikudagur 27. september Lýðheilsuganga Ferðafélags Íslands - Prestastígur. Upphafsstaður er við íþróttahúsið í Ólafsvík kl. 18:00 þar sem þátttakendur sameinast í bíla. Fararstjóri er Elfa Eydal Ármannsdóttir. Borgarbyggð fimmtudagur 28. september Félagsvist kl. 20:00. Fyrsta spilakvöld vetrarins. Fjögurra kvölda keppni, sem dreifist á sex kvöld. Veitingar í hléi. Góðir vinningar. Allir velkomnir.

Borgarbyggð föstudagur 29. september The Beatles Sagan á Söguloftinu. Á tónleikafarandssýningunni The Beatles Sagan flytja þeir Birgir Þórisson, píanóleikari og Hlynur Ben lög þessarar ótrúlegu hljómsveitar í bland við sögur af fjórmenningunum, tíðarandanum og tónlistinni sjálfri. Lauflétt og skemmtileg sýning á Sögulofti Landnámssetursins. Sýningin hefst kl. 20:00 og miðaverð eru litlar 2.500 kr. Posi á staðnum. Akranes föstudagur 29. september Hljómsveitin Uggla heldur tónleika í Dularfullu búðinni frá kl. 20:00 til 22:00. Akranes laugardagur 30. september ÍA og Víkingur Ó. mætast í lokaleik sumarsins í Pepsi deild karla í knattspyrnu. Með sigri getur Víkingur bjargað sér frá falli. Leikurinn hefst kl. 14:00 á Akranesvelli.


MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017

62 MT: Stefán Gísli með verðlaunagripinn síðastliðinn sunnudag.

Spurning vikunnar

Hver er uppáhalds íslenski maturinn þinn?

Karfan að hefjast

Steinar Þorsteinsson í baráttu við leikmann Víkings R. í fyrri viðureign liðanna í sumar. Ljósm. gbh.

(Spurt í Grundafirði)

Hafsteinn Mar Sigurbjörnsson: Lambahryggur með brúnni sósu, brúnuðum kartöflum og grænum baunum.

Hrafnhildur Hallvarðsdóttir: Hangikjöt með uppstúf.

María Kúld Heimisdóttir: Ein með öllu.

Ólafur Tryggvason: Lambalæri með rabbarbarasultu, grænum og kartöflum.

ÍA og Víkingur R. skildu jöfn ÍA og Víkingur R. mættust í næstsíðustu umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu á sunnudag. Leikurinn fór fram á Víkingsvelli í Reykjavík og lauk með markalausu jafntefli. Nokkur haustbragur var á leiknum, Skagamenn voru fallnir áður en leikurinn hófst og heimamenn svo gott sem hólpnir. Bar leikurinn þess merki að lítið væri í húfi fyrir liðin. Leikurinn fór afar rólega af stað og fátt markvert gerðist fyrstu 20 mínúturnar. Fyrsta færi leiksins kom á 24. mínútu þegar Steinar Þorsteinsson slapp einn í gegn. Hann vippaði boltanum yfir markvörðinn en varnarmaður bjargaði á línu. Skömmu síðar áttu Skagamenn annað dauðafæri. Róbert Örn Óskarsson varði skalla út í teiginn og upp úr því varð nokkur atgangur. Endaði það með því að boltinn small í þverslá heimamanna og þaðan frá marki. Þriðja sinni voru Skagamenn nálægt því að komast yfir rétt fyrir hálfleik. Þórður Þorsteinn Þórðarson átti frábæra aukaspyrnu beint á kollinn á Arnari Má Guðjónssyni en Róbert varði frá honum. Staðan því markalaus í hálfleik. Síðari hálfleikur fór fjörlega

af stað og Skagamenn fengu tvö hálffæri strax í upphafi hans. Stefán Teitur Þórðarson komst fyrst í ákjósanlegt færi en varnarmaður Víkings náði að henda sér fyrir skotið. Næst geystist Þórður Þorsteinn upp völlinn í skyndisókn ÍA og átti skot úr þröngu færi sem Róbert varði. Seinna í leiknum kom Geoffrey Castillion boltanum í netið eftir langa sendingu en var rangstæður og markið stóð því ekki. Undir lok leiksins hefðu bæði lið geta stolið sigrinum. Fyrst komust Skagamenn í dauðafæri. Steinar Þorsteinsson var kominn einn í gegn og hafði góðan tíma til að athafna sig en skot hans hárfínt framhjá samskeytunum. Á lokamínútu leiksins áttu heimamenn svo skalla að marki sem small í þverslánni. Staðan því markalaus þegar flautað var til leiksloka. ÍA er sem fyrr segir fallið úr deild þeirra bestu. Liðið hefur 16 stig í botnsæti deildarinnar. Í lokaleik sumarsins næstkomandi laugardag mæta Skagamenn liði Víkings Ó. á Akranesvelli í leik sem Ólsarar verða að sigra til að halda sæti sínu í deildinni. kgk

Arnar Már framlengir til tveggja ára Arnar Már Guðjónsson miðjumaður hefur endurnýjað samning sinn við Knattspyrnufélag ÍA til næstu tveggja ára og gildir hann út 2019. Arnar Már er þrítugur og hefur spilað stórt hlutverk á miðju Skagamanna síðustu árin. Arnar, sem er uppalinn hjá ÍA, hefur spilað 165 leiki fyrir félagið og skorað í þeim 31 mark. „Ég hef mikla trú á þeim gríðarlega metnaði og þeirri skýru stefnu sem stjórn KFÍA vinnur eftir þar sem ungir leikmenn fá tækifæri við hliðina á reyndari leikmönnum. Við erum með mjög efnilegan leikmannahóp sem hefur alla burði til að fara beint upp í Pepsi á ný og það er frábær stemning og vilji í hópnum til að gera enn bet-

ur. Ég vil sjálfur halda áfram að taka þátt í framtíðarsigrum með mínum bestu vinum í ÍA. Það var því auðveld ákvörðun að skrifa undir nýjan samning með allt þetta í huga,“ segir Arnar Már þegar hann skrifaði undir nýja samninginn. mm/kfia

Næstkomandi sunnudagur markar upphaf Íslandsmótsins í körfubolta, en þá verður leikið um titilinn „meistari meistaranna“. Skallagrímur mætir Keflavík í kvennaflokki, en síðarnefnda liðið vann tvöfalt á síðasta tímabili, hampaði bæði Íslandsog bikarmeistaratitlinum. Skallagrímur mætti Keflavík í úrslitaleik bikarkeppninnar og liðin mætast því á sunnudaginn í upphafi keppnistímabilsins. Í karlaflokki mætast KR og Þór frá Þorlákshöfn. KR vann sömuleiðis tvö- Skallagrímur mætir Keflavík þegar leikið verður um falt en þessi tvö lið mætt- titilinn „meistari meistaranna“ í kvennaflokki næsta ust síðast í úrslitum bik- sunnudag. Liðin áttust við í bikarúrslitum í vetur þar sem Skallagrímur tapaði naumlega. arsins. Báðir leikirnir fara Ljósm. úr safni/ jho. fram í Keflavík sunnudaginn 1. október. KR og Þór Þ. mætast daginn eftir, fimmtudaginn 5. októkl. 17:00 og Skallagrímur og Keflaber, sem og 1. deild karla en þar eiga vík mætast síðan kl. 19:15. Vestlendingar þrjú lið sem öll leika á Deildarkeppnin hefst síðan í næstu útivelli í fyrstu umferðinni. Skallaviku. Fyrsti leikdagur í Domino‘s grímur mætir FSu á fimmtudeginum deild kvenna er miðvikudagurinn 4. en daginn eftir mætast Snæfell og október. Þann dag mætir SkallagrímVestri annars vegar en ÍA og Fjölnir ur liði Njarðvíkur á útivelli en Snæhins vegar. fell tekur á móti Keflavík í stórleik Þá leika Grundfirðingar í 3. deild umferðarinnar. Liðin mættust síðast karla á vetri komanda líkt og síðustu í úrslitarimmu um Íslandsmeistaraár. Þeir hefja leik laugardaginn 14. titilinn í vor þar sem Keflavík hafði október þegar þeir taka á móti liði betur. Stál-úlfs. Domino‘s deild karla fer af stað kgk

Víkingur á enn von fyrir lokaumferðina Víkingur Ólafsvík er enn í fallsæti eftir leik helgarinnar í næstsíðustu umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu. Víkingur tók á móti FH í Ólafsvík á sunnudaginn og lauk leiknum með jafntefli, 1-1. Heimamenn fengu fyrsta alvöru færi leiksins. Þorsteinn Már Ragnarsson tók boltann með sér eftir langa sendingu og sótti einn gegn varnarmanni. Hann komst inn í vítateiginn og náði skoti að marki en það small í stönginni. Í næstu sókn voru FH-ingar nálægt því að skora. Þeir tóku hornspyrnu og náðu skalla að marki en Gabrielius Zagurskas bjargaði á línu. Boltinn sveif út í teiginn og aftur náðu gestirnir skalla á markið en aftur bjargaði Gabrielius á línu. Víkingur komst yfir á 24. mínútu leiksins og markið var ekki fallegt. Gunnar Nielsen, markvörður FH, var í alls kyns vandræðum. Fyrst mistókst honum að slá boltann frá og hugðist handsama boltann með því að henda sér ofan á hann. Boltanum tapaði hann frá sér í tvígang og í seinna skiptið hrökk hann til Þorsteins Más sem lagði boltann í autt markið. Staðan orðin 1-0 fyrir Víking Ó. Litlu munaði að FH jafnaði skömmu fyrir hálfleik. Atli Guðnason fór illa með varnarmenn Víkings, sendi boltann á Bjarna Þór Viðarsson sem var einn á auðum sjó í teignum en brenndi af. Staðan 1-0 í hálfleik. Gestirnir voru sprækir eftir hléið og fengu tvö góð færi í upphafi síðari hálfleiks sem bæði fóru forgörðum. Þeir sóttu án afláts en

Aðstæður til knattspyrnuiðkunar voru ekki þær bestu í Ólafsvík á sunnudaginn. Rok og rigning og völlurinn rennandi blautur. Ljósm. af.

komust lítt áleiðis gegn leikmönnum Víkings sem vörðust afar vel. Það var ekki fyrr en á 69. mínútu að FH-ingar jöfnuðu úr vítaspyrnu. Kwame Quee hafði brotið á Atla Guðnasyni og dómarinn ekki í nokkrum vafa. Steven Lennon steig á punktinn og skoraði örugglega. Hvorugu liði tókst að skapa sér almennilegt færi það sem eftir lifði leiks og ekki voru fleiri mörk skoruð. Leiknum lauk því með 1-1 jafntefli. Víkingur hefur 21 stig í næstneðsta sæti deildarinnar og liðið á enn von um að halda sæti sínu í deildinni. Til þess þarf Víkingur að sigra sumarsins á Akranesi ÍA í lokaleik á laugardaginn og um leið treysta á að ÍBV vinni ekki KA. kgk

DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.

Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is


Viltu slást í hópinn? Skessuhorn er héraðsfréttablað Vesturlands og nær starfssvæðið allt frá Hvalfirði, um Akranes, Borgarfjörð, Snæfellsnes, Dali og til Reykhólasveitar. Í blað okkar eru að jafnaði skifaðar sjö til tíu þúsund fréttir á ári, birtar þúsundir mynda og fjöldi greina. Meðal fasts efnis má nefna nýfædda Vestlendinga, vísnaþætti, krossgátur, veðurspár, skopmyndir, hugleiðingar ritstjóra og fleira. Ritstjórnarstefnan hefur frá upphafi verið að fjalla um það sem íbúar vilja og þurfa að vita. Fátt látum við okkur óviðkomandi til að verða við því. Ritum jöfnum höndum fréttir og mannlífstengt efni, um menningu, listir, íþróttum, félagsstarf og það sem til framfara horfir í vaxandi landshluta. Skessuhorn á tilveru sína undir sölu áskrifta. Hryggjarstykkið í útgáfunni er þéttur hópur íbúa sem vikulega fær blaðið sent heim. Þeir hafa puttann á púlsinum. Vilt þú bætast í hóp þeirra?

Allar nánari upplýsingar og pöntun áskrifta er í síma 433-5500 og á netfangið skessuhorn@skessuhorn.is


BÚIÐ AÐ RED DA MATNUM FYRIR NÆSTU VIKU

NÚ ER PÖNTUN Í GANGI SEM ER OPIN TIL MIÐNÆTTIS, MIÐVIKUDAGINN 27. SEPTEMBER OG VERÐUR MATURINN AFHENTUR, EÐA SÓTTUR, ÞRIÐJUDAGINN 3. OKTÓBER. Fyrsti matseðillinn lítur svona út: Þorskur á spjóti, fylltar kjúklingabringur og ekta íslensk kjötsúpa.

1

SÍMI: 431-2580 GSM: 865-2580 SMIÐJUVÖLLUM 17

300 AKRANES

2

3

Kíktu inná SANSA.IS


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.