1 minute read

HVAÐ KANN ÉG EFTIR AÐ HAFA KLÁRAÐ NÁMIÐ?

Next Article
mynd list

mynd list

→ Þú hefur lært hvað það eru margar leiðir og aðferðir til að búa til myndlist.

→ Þú hefur lært að nota margar þessar aðferðir til að búa til eigin listaverk.

→ Þú hefur lært að nota allskonar verkfæri og tæki til þess að búa til myndlist.

→ Þú hefur lært að vinna í þinni eigin list. Þú hefur lært að gera það sjálfstætt eða með stuðningi frá öðrum.

→ Þú getur sagt frá þínum listaverkum og þú getur talað um listaverk eftir annað listafólk. Við getum öll lært að segja frá list eins og okkur líður best að gera það.

→ Þú getur sagt frá áhugamálunum þínum. Þú kannt leiðir til að halda áfram að búa til list og skapa listaverk. Þannig ert þú skapandi manneskja í samfélaginu.

Hvernig sæki ég um námið?

→ Þú fyllir út umsókn á www.mir.is. Umsóknarfrestur er til 24. maí.

→ Þú sendir líka skissubækur og sýnis-horn af listaverkum eftir þig.

→ Þú hittir okkur í skólanum og við tölum saman. Það heitir að koma í inntökuviðtal.

HEFUR ÞÚ SPURNINGAR?

→ Námsgjöld skólaárið 2023-24 er 192.000 kr. eða 96.000 kr. önnin.

→ Ef þú vilt spyrja um námið eða fá aðstoð getur þú hringt í skrifstofu skólans í síma 5511990 eða sent okkur tölvupóst á berglinderna@mir.is. Berglind Erna Tryggvadóttir er yfirkennari námsins.

This article is from: