5. tbl. 2019

Page 32

Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir, GDRN, tónlistarkona skaraði fram úr á Íslensku tónlistarverðlaununum í Hörpu

Henti mér út í djúpu laugina T

ónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir eða GDRN eins og hún kýs að kalla sig hlaut fern verðlaun þegar Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í Hörpu nýlega. Þar var hún valin söngkona ársins í flokki popp-, rokk-, raf- og hiphopptónlistar, plata hennar „Hvað ef“ var valin poppplata ársins og hún átti lag og tónlistarmyndband ársins. Í þakkarræðu sinni hvatti Guðrún Ýr ungar stelpur til þess að láta sig dreyma risastórt, því þetta væri mögulegt.

HIN HLIÐIN Besta lykt í heimi? Pönnukökulyktin af pönnukökunum sem mamma bakar. Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Syngja á tónleikum. Fyrsta minningin? Þegar ég tók fyrstu skóflustunguna þegar við fjölskyldan vorum að byggja húsið okkar. Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið? Þegar ég hætti í fastri vinnu og fór að vera í fullu starfi sem tónlistarkona. Hvar líður þér best? Úti í garði í Mosfellsbænum á sumrin. Uppáhaldsflíkin? Dúnúlpan mín. Hvað finnst þér skemmtilegast að kaupa? Mér finnst skemmtilegast að kaupa gjafir handa þeim sem mér þykir vænt um. Ef þú ættir eina ósk sem myndi örugglega rætast, hver væri hún? Að geta alltaf starfað sem tónlistarkona.

Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir er fædd 8. janúar 1996. Foreldrar hennar eru þau Kristín María Ingimarsdóttir grafískur hönnuður og kennari í Borgarholtsskóla og Jóhannes Eyfjörð Eiríksson öryggisstjóri hjá Origo. Guðrún Ýr á tvo bræður, Matthías Eyfjörð f. 2002 og Andra Eyfjörð f. 2004.

Sveit í bæ fílingur „Ég er fædd í Reykjavík en flutti í Mosfellsbæ þegar ég var fjögurra ára. Það var frábært að alast hér upp því þetta var smá sveit í bæ fílingur og mikið frelsi. Það var gaman að banka upp á hjá jafnöldrum mínum og fara svo saman út að leika. Ég var fimm ára þegar ég byrjaði að læra á fiðlu í Tónlistarskóla Mosfellsbæjar. Þegar kennarinn minn flutti til Írlands þá færði ég mig yfir í Suzukitónlistarskólann í Reykjavík. Ég hætti í fiðlunáminu 17 ára og ákvað stuttu eftir það að hefja söngnám í Tónlistarskólanum í Mosfellsbæ og þar var ég í nokkur ár. Ég færði mig svo yfir í Tónlistarskóla FÍH og fór að læra jazz-söng og seinna á píanó og ég er enn við nám þar í dag. Ég æfði líka knattspyrnu í mörg ár hjá Aftureldingu og dreymdi um að verða fótboltastjarna en þurfti því miður að hætta vegna hnémeiðsla.“

tekið við verðlaunum

ung að árum

Ætlaði að verða læknir „Mér fannst alltaf gaman í skóla en ég gekk í Varmárskóla og Gagnfræðaskóla Mosfellsbæjar. Uppáhaldsfögin mín voru myndmennt og textíl. Gelgjan var nú svolítið í hámarki síðustu árin í gaggó,“ segir Guðrún Ýr og Eftir Ruth Örnólfsdóttur gríðarlega athygli. Platan var brosir. valin plata ársins á Grapevine MOSFELLINGURINN „Ég fór í Menntaskólann í ruth@mosfellingur.is Music Awards og hlaut einnig Reykjavík á náttúrufræðibraut Kraumsverðlaunin. Platan var því ég ætlaði mér að verða læknir. Ég fann líka tilnefnd á Nordic Music Prize í Noregi samt fljótt út að þetta var ekki leiðin sem en í sama flokki var söngkonan Robyn tilnefnd sem gerði garðinn frægan árið 2010 hentaði mér, ég kláraði stúdentinn og fór svo af fullum krafti í tónlist.“ með laginu sínu „Dancing on my own“ sem náði vinsældum á heimsvísu. GDRN Á milli lagasmíða kemur Guðrún Ýr fram Guðrún Ýr segist hafa hent sér út í djúpu á tónleikum. laugina þegar hún fór að búa til sína eigin tónlist. Það gerir hún undir nafninu GDRN Með ótrúlegt tóneyra sem stendur fyrir Guðrún án sérhljóða. „Það þýðir ekkert annað en að vera kræfHún gaf út sína fyrstu tónlist árið 2017 ur í þessum bransa, ég er alveg óhrædd við að spyrja hvort ég megi syngja með þeim en það var ekki fyrr en hún gaf út lagið sem mig langar að syngja með og fæ alltaf „Lætur mig“ sumarið 2018 sem boltinn fór almennilega að rúlla. Hún gaf síðan út góð viðbrögð. Það er gott að vera kona í plötuna „Hvað ef“ í ágúst 2018 og vakti hún tónlistarbransanum á Íslandi og ég finn

fyrir miklum stuðningi frá öðrum tónlistar­konum. Ég vil vera innblástur fyrir ungar stúlkur sem eru að taka sín fyrstu skref.“ Guðrún Ýr vinnur einnig með upptökustjórateyminu ra:tio sem samanstendur af þeim Bjarka Sigurðarsyni og Teiti Helga Skúlasyni en þau hafa þekkst síðan í MR. Þeir félagar segja hana tónlistarlegan suðupott sem sé með óvenjulega rödd og komi með óvænt áhrif inn í poppið. Hún sé einlægur karakter, föst á sínu og með ótrúlegt tóneyra.

gdrn

Það er gott að vera kona í tónlistarbransanum á Íslandi og ég finn fyrir miklum stuðningi frá öðrum tónlistarkonum. Ég vil vera innblástur fyrir ungar stúlkur sem eru að taka sín fyrstu skref. Þetta var draumi líkast

Fjölskyldan á Reykjamelnum, Kristín María, Guðrún Ýr, Andri, Jóhannes og Matthías.

32

- Mosfellingurinn Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir

á tónleikum

Fjölbreytni og fagmennska var í fyrirrúmi á glæsilegri verðlaunahátíð tónlistargeirans þegar Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í Silfurbergi í Hörpu. Plata Guðrúnar „Hvað ef“ var valin poppplata ársins, lagið „Lætur mig“ sem hún syngur með Flóna var valið popplag ársins. Guðrún Ýr var valin söngkona ársins í flokki popp-, rokk-, raf- og hiphopptónlistar og hún fékk einnig verðlaun fyrir tónlistarmyndband ársins. Hún segir verðlaunin hafi komið sér reglulega á óvart. „Ég var búin að gera mér vonir um að

Hvað ef

vinna titilinn söngkona ársins en fékk svo þrenn verðlaun til viðbótar, þetta var bara draumi líkast. Það er svo gaman að fá svona viðurkenningu sérstaklega þegar maður hefur lagt svona mikla vinnu í hlutina, það er bara æðislegt.“

Kemur fram á þjóðhátíð í Eyjum Guðrún Ýr er ein af þeim sem kemur fram á þjóðhátíð í Eyjum í ár og segist hún full eftirvæntingar. Hún fór fyrst á þjóðhátíð í fyrra og segir þau kynni hafi verið ansi köld og blaut því veðrið var ekki upp á sitt besta. „Ég hef nú oftast verið á unglingalandsmótum um þessa helgi að keppa í fótbolta og frjálsum eða að ferðast með fjölskyldunni um landið. Það var því mikið upplifelsi að prófa eitthvað nýtt og fara á þjóðhátíð, þetta var svona fyrsta skrallhelgin. Það verður örugglega enn skemmtilegra núna þar sem maður fær að taka þátt í dagskránni á stóra sviðinu og ég hlakka mikið til,“ segir Guðrún Ýr að lokum er við kveðjumst. Myndir: Ruth Örnólfsdóttir, Lárus Karl Ingason og úr einkasafni.


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.