Valgar冒ur Gunnarsson S枚gubrot 10. okt贸ber - 8. n贸vember 2013
Valgarður Gunnarsson Myndlistarmaðurinn Valgarður Gunnarsson (1952) snýr nú aftur á sjónarsviðið eftir langt hlé, en síðasta einkasýning hans var í Stúdíó Stafni veturinn 2009. Valgarður á langan feril að baki, hefur haldið einkasýningar í stærstu söfnum landsins og tekið þátt í samsýningum hérlendis og erlendis. Valgarður nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands árin 1975 – 1979 og frá 1979 – 1981 við myndlistardeild Empire State College, State University of New York. Í því mikla riti Íslensk listasaga segir m.a. um Valgarð „Eftir nám í New York í lok áttunda áratugarins kynnti Valgarður (1952) verk sín í íslensku listalífi sem hluta af nýbylgjumálverkinu í byrjun níunda áratugarins. Strax í upphafi einkenndust verk hans af samspili milli geómetrískra flata og eru eins konar módernískur grunnur fyrir einfaldað leiksvið mannsins. Verk hans hafa ávallt haldið þessum einkennum sem bera með sér skýra fagurfræðilega sýn, fágað handbragð og hárfínt litaval.“
Sögubrot Verk Valgarðs Gunnarssonar á sýningunni í Eiðisskeri spanna tæpan áratug á ferli hans, hið elsta frá 2004 en flest eru unnin á síðastliðnum tveimur árum. Valgarður hefur þróað með sér sterkan persónulegan myndheim sem byggir annars vegar á vefnaði og hins vegar á saumum. Þetta má heita aðalsmerki í myndlist hans. Grunnflöturinn í verkum Valgarðs er haganlega ofinn með fíngerðum penslinum í smekklega samsettum litum á meðan bogadreginn þráðurinn liðast um flötinn og hefur þrætt sig í gegnum undirlagið. Þó sum verka Valgarðs hafi á sér abstrakt yfirbragð er þar að finna fígúratívt myndmál. Í fígúratívum verkum listamannsins er myndmál hans einfalt, látlaust og beinskeytt, sprottið úr farvegi ólíkra og oft tilviljanakenndra hugmynda. Þannig er sýningin byggð upp af fjölbreyttum hugmyndum og frásögnum án þematískrar tengingar. Í huga Valgarðs er það handbragðið sem slíkt og beiting pensilsins sem sker úr um listrænan varanleika verksins, en ekki viðfangsefnið sjálft. Þannig segir listamaðurinn listaverkið lifa eins lengi og einhver nennir að horfa á það.
Númer
Heiti
Efni
Gerð
1.
Enn um sinn
Olía á striga
2012
2.
Pan
Olía á striga
2013
3.
Mæliker
Olía á striga
2013
4.
Óskandi
Olía á striga
2013
5.
Hárprúð
Olía á striga
2013
6.
Þalamus II
Olía á striga
2004/5
7.
Hosur grænar
Olía á striga
2013
8.
Andvaka
Olía á striga
2007
9.
Dans?
Olía á striga
2013
10.
Barnaleikur
Olía á striga
2013
11.
Beinlínis
Olía á striga
2013
12.
Iðri
Olía á striga
2011
13.
Lesið
Olía á striga
2010
14.
Sögumaður
Olía á striga
2013
15.
Blessaður
Olía á striga
2013