
3 minute read
NÆGJUSÖMUM STARFSKRAFTI ÓSKUM EFTIR
Fr Indi Starfi
Óþægileg stemning á vinnustað
Advertisement
Sumir fá launahækkun, aðrir ekki
Skýr mismunun í ómissandi starfi
SÆKTU UM STRAX Í DAG sömulaun.is s: 515 4900
Vestmannaeyjabær neitar að leiðrétta augljóst launamisrétti.
Fólk í ómissandi störfum á skilið launahækkun eins og aðrir.
N Msfer Til Auschwitz Var A Veruleika Fr Ttahorn
Eins og Eyjafólk hefur eflaust orðið vart við, hafa nemendur í söguáfanga skólans verið öflugir í fjáröflunum þessa vorönnina. Markmið fjáröflunarinnar var að safna fyrir námsferð til Kraków í lok annar og skoða m.a. hinu alræmdu útrýmingarbúðir nasista n.tt. Auschwitz-Birkenau. Einstaklingar, sem og ýmis fyrirtæki, voru mjög dugleg að styrkja nemendur okkar og þökk sé þessum góðu viðtökum varð ferðin að veruleika.
Sunnudaginn 14. maí flugu 13 nemendur FÍV ásamt tveimur kennurum, Auðbjörgu Höllu Jóhannsdóttur og Tinnu Hauksdóttur, til Kraków í suðurhluta Póllands. Borgin er þekkt fyrir ríka sögu og menningu, en hún var fyrsta borg Póllands til að komast á heimsminjaskrá UNESCO. Eftir langt ferðalag nýttu nemendur restina af deginum í að skoða borgina (þá sérstaklega verslunarmiðstöðina).
Á mánudeginum var hópurinn sóttur snemma upp á hótel og keyrt var af stað til Auschwitz.
Nemendur höfðu verið vel undirbúnir fyrir ferðina og unnið ýmiskonar verkefni tengd seinni heimsstyrjöldinni og enn ítarlegri verkefni tengd helförinni. Þrátt fyrir undirbúninginn og þá mikla þekkingu sem nemendur bjuggu yfir komu útrýmingarbúðirnar samt að óvart. Við byrjuðum á því að skoða fyrstu búðirnar (Auschwitz I) þar sem að skiltið Arbeit macht frei tók á móti okkur. Það var ólýsanleg tilfinning að ganga um svæðið og inn í byggingarnar þar sem slíkur hryllingur hafi átt sér stað. Við fengum að sjá aðstæður fanganna og ýmsa muni sem höfðu fundist eftir að bandamenn tóku yfir búðirnar undir lok stríðsins s.s. gleraugu, og hjálpartæki eins og hækjur og gervifætur sem höfðu verið fjarlægðir af fórnarlömbum nasista, og einnig mikið magn tómra gas hylkja (zyklon b) sem höfðu verið notuð í gasklefana. Það var átakanlegt þegar við gengum fram hjá skópörum fórnarlambanna og rákum augun í smæstu skónna, en yfir 200.000 börn voru tekin af lífi í Auschwitz, og voru ungbarnaföt meðal safngripanna. Nemendur voru þó flestir sammála um að erfiðast var að labba inn í gasklefann sjálfan og þar á eftir sjá bræðsluofnana.
Eftir að hafa gengið um Auschwitz I í tæpa þrjá klukkutíma fórum við yfir í seinni búðirnar Birkenau en það er sá hluti sem var byggður í þeim tilgangi að útrýma fólki. Þar sáum við hvernig lestarvögnum fólkið var flutt í og gerðum okkur grein fyrir stærð búðanna. Fjölmargar rústir blöstu við innan gaddavírsgirðinga og svo við endann voru rústir tveggja stórra bygginga sem höfðu verið gasklefar og bræðsluofnar – en nasistarnir reyndu að hylma yfir og fela það sem hafði átt sér stað þarna. Við fengum síðan að fara inn í einn gistiskálann, þar sem hundruðum fanga var komið fyrir og það var sláandi að sjá þrengslin„9-18 fangar að sofa á svæði sem kannski rúmar 3“ eins og einn nemandi hafði orð á. Aðrir nemendur töluðu um að eitt af því sem kom á þá var allt hárið á safninu og sjá hvernig hár fórnarlambanna hafði verið notað til þess að búa til vefnaðarvörur. Þetta er í raun einungis brot af því sem að við sáum í þessari átakanlegu heimsókn þar sem 1.3 milljón manns létu lífið, og nær alla leiðina til baka upp á hótel var þögn í bílnum.
Ferðin var samt ekki eingöngu átakanleg. Nemendur sáu um að skipuleggja þriðjudaginn og tóku sjálf að sér leiðsögumannahlutverkið. Við byrjuðum snemma á þessum sólríka degi og fórum í miðborg Kraków og skoðuðum konunglega kastalann Zamek Wawel og kirkjuna sem er þar uppi. Við gengum yfir í Remah kirkjugarðinn sem er einna frægastur fyrir að hafa verið nýttur af nasistum, en þeir tóku legsteinana og nýttu í gatnagerð. Kirkjugarðurinn var svo lagaður eftir stríð og þeir legsteinar sem var ekki hægt að púsla saman voru nýttir í veggjagerð umhverfis garðinn. Leiðin lá svo til Plac Bohaterow, torgið við gettó Kraków. Þar standa núna stólar til minningar um þá sem sátu á torginu og biðu eftir að vera fluttir í útrýmingarbúðir. Við gengum fram hjá verksmiðju Oskar’s Schindlers og að lokum var gengið upp Krakus Mound sem er með elstu minjum borgarinnar, og notið útsýnisins. Eftir gönguferðina fengu nemendur frjálsan tíma og hlupu margir hverjir beinustu leið í verslunarmiðstöðina, aðrir upp á hótel herbergi að hvíla sig og nokkrir skelltu sér á Oskar Schindlers safnið (sögukennaranum til mikillar gleði). Við sáum mikið af allri borginni þennan dag, virkilega snyrtileg og falleg borg, glæsilegar byggingar og skemmtileg hverfi. Það er óhætt að segja að allir voru með þreytta fætur eftir þennan mikla göngudag og tilbúnir að fara heim til Íslands næsta dag.
Nemendur töluðu um í byrjun annar að eitt markmið ferðarinnar var að setja sig í spor fortíðarinnar til að auka skilning þeirra á því sem gerðist og hvernig það gat gerst. Þá má halda því fram að þessu markmiði hafi verið náð. Þó að það sé enn erfitt að skilja hvernig þetta gat gerst, þá eru allir sammála um að heimsóknin undirstrikaði mikilvægi þess að vera meðvitaður um hvað fordómar geta verið hættulegir. Að lokum langar mig að þakka nemendum mínum persónulega, ekki bara fyrir að hafa komið með hugmyndina, heldur fyrir að vera tilbúin að framkvæma hana. Það er auðveldara sagt en gert að setja svona ferð á laggirnar og hún krefst mikillar vinnu. Þið megið vera stolt af ykkur. Þetta var ógleymanleg ferð með samheldnum og duglegum nemendum FÍV.
Tinna Hauksdóttir Kennari við FÍV
Fleiri myndir munu birtast með greininni inn á tigull.is
