
7 minute read
FRÁBÆRT TÍMABIL HJÁ STELPUNUM OKKAR Í MEISTARAFLOKKI Í HANDBOLTA
Stelpurnar okkar í meistaraflokki kvenna í handbolta lutu lægra haldi síðasta laugardag þegar Valur varð Íslandsmeistari eftir 3-0 sigur í viðureign þeirra um Íslandsmeistaratitilinn. Þrátt fyrir svekkjandi tap hafa þær átt stórkostlegt tímabil enda bæði bikar-og deildarmeistarar sem er hreint út sagt frábær árangur. Þess má geta að um stund voru þær taplausar í yfir tuttugu leikjum, sem er einstakt. Það er óhætt að segja að gott sem öll Eyjan sé búin að fylgjast með þeim í allan vetur og einstakt að sjá hversu flottur og samheldin hópurinn er. Við fengum aðalþjálfara liðsins Sigga Braga og einn af lykilleikmönnum liðsins Hrafnhildi Hönnu í smá spjall og gera upp veturinn.
Jæja Siggi eftir frábæran árangur á tímabilinu, hvað er það sem þér þótti eftirminnilegast innan vallar?
Advertisement
Innan vallar, þá verð ég að segja þessar síðustu 10 sek í bikarúrslitaleiknum. Að sjá það raungerast sem maður var búin að stefna að í 3 ár. Vinna bikar, leyfa stelpunum að upplifa heimsiglingu og gera stóra mynd í íþróttasalinn. Það var ótrúlega sætt móment og sjá okkar fólk gersigra stúkuna líka... frábært.
Nú urðu þið bæði bikar-og deildarmeistarar, kannski erfitt að gera upp á milli en hvor titillinn myndir þú segja að hafi verið sætari?
,,við skulum orða það þannig að hér eftir mun ég líta deildarmeistara allt öðrum augum. Í raun er það sá titill sem sýnir hvað best hvaða lið er best yfir tímabilið, þ.e.a.s. þessa 8 mánuði sem það stendur. En ég verð að segja að bikarinn var sætari, er „stærri“ Laugardalshöllin, mikil umfjöllun o.s.frv“.
Allir leikmenn tala um töfrana við að sigla heim með bikar og fá móttökurnar á bryggjunni, hvernig var það fyrir þig að sigla heima í hlutverki aðalþjálfara?
,,Fyrir mig sem Eyjamann þá var það auðvitað gæsahúð og nokkur gleiðtár. Var alltaf eitt af aðalstefnumáli mínu og að takast það var ótrúlega gott. Fengum líka frábærar móttökur, það að tæplega 2000 manns hafi samglaðst með okkur (í höllinni og svo á bryggjunni) var frábært og það í miðri loðnuvertíð.... segir allt um þá samstöðu sem hér ríkir“ Hvernig finnst þér liðið þitt hafa þroskast yfir tímabilið? ,,Alveg frábærlega. Mér finnst liðið hafa tekið stórt skref upp á við. Aðallega liggur það í því að núna ætla allar sér stóra hluti og sá skilningur að ef þú vilt eitthvað verulega mikið þá þarf að hafa fyrir því að ná í það. Sú hugsun var komin í allan hópinn en ekki bara einhverjar tvær eða þrjár“.
Eyjamenn eru þekktir fyrir ákveðna geðveiki þegar kemur að því að styðja sitt lið, hvernig fannst þér stuðningur Eyjamanna í vetur? ,,Aftur frábær. Við megum lík a vera ótrúlega stolt sem klúbbur þarna, við erum undantekningarlaust með yfir 150 manns á deildarleikjum og svo fullt hús í úrslitakeppni. Ég fór í öll 7 íþróttahúsin sem áttu lið í efstu deild í vetur. Ég verð að segja að það að spila íþróttaleik í efstu deild með kannski 30 áhorfendur er asnalegt og skammarlegt. Auðvitað er það þannig að leikur Tottenham og Wolves er kannski meira spennandi fyrir suma en leikur í Olísdeild. En að foreldrar, vinir og þeir sem eru næst leikmönnunum láti ekki sjá sig er hörmung“.En við hér á Eyjunni getum verið hrikalega stolt. Stolt af stuðningi og ekki síst af þessu íþróttafólki okkar. Verðum að hjálpa peyjunum að klára Íslandsmeistaratitilinn... þá mun ÍBV vera handhafi þriggja af 6 titlum vetursins og sannast þá að við erum besti handboltaklúbbur landsins sesonið 2022-2023“.
Ef þú horfir til baka, er eitthvað sem þú hefðir viljað gera öðruvísi? ,,Eftir úrslitakeppnina og svona stuttu eftir þetta allt saman þá myndi ég segja að ég hefði viljað hafa stærri hóp. Okkur munar rosalega um hvað við erum fáar þegar svona erfitt hraðmót fer í gang, eins og úrslitakeppni er. En það er rosalega erfitt, við erum vissulega ekki mörg hérna og svo vilja íslenskar stelpur bara ekki koma hingað. Persónulega finnst mér ótrúlegt að handboltastelpur vilji ekki koma. Ég er að fara inn í fimmta tímabilið mitt sem aðalþjálfari og ótrúlegt að segja frá því að ég hef ekki fengið eina íslenska stelpu frá íslensku liði til okkar. Þrátt fyrir að bjóða mjög mörgum. Þessar íslensku sem eru hjá okkur Sunna, Birna og Hanna komu allar að utan eftir atvinnumannaferil. Þetta er allt öðruvísi hjá strákunum, þar hafa margir komið til okkar síðustu 10 ár (sem eru árin sem við höfum verið með liðið í toppklassa) “.
Munt þú halda áfram sem þjálfari liðsins?
,,Ég á eitt ár eftir af mínum samningi. Það tímabil verður mitt þrítugasta í röð í ÍBV handball club, fór reyndar eitt tímabil (992000) í Víking þegar ég var í HR. Ég er hrikalega stoltur af þessari staðreynd og mun reyna hvað ég get að hafa það tímabil jafn skemmtilegt og þetta sem var að klárast“.

Er eitthvað sem þú vilt segja að lokum Siggi minn?
,,Vissulega er orðið bara takk. Takk stjórn, takk Vilmar (sem er að hætta hjá okkur), takk Himmi minn, Elli styrkarþjálfari, Bjartey og Kolbrún sjúkraþjálfarar , Ester titillinn sem ég var að vinna persónulega, en einnig sá fyrsti í nokkuð mörg ár hjá kvennaliði ÍBV. Við lentum í töluverðu mótlæti í aðdraganda leiksins og í leiknum sjálfum sem við létum ekki á okkur fá. Fengum gífurlegan stuðning í stúkunni í Höllinni frá hvítklæddu
Sandra Dís og Harpa liðsstjórar. Svo að sjálfsögðu allir Eyjamenn og konur, það eru forréttindi að vinna í sporti með svona stuðning eins og hér. En þetta er engin endastöð nú er bara negla sér í smá frí, styðja peyjana til sigurs og svo næsta season“.
Hrafnhildur Hanna nú var árangurinn ykkar á tímabilinu hreint út sagt frábær, hvað er það sem þér þótti eftirminnilegast innan vallar?
,,Það var svo margt eftirminnilegt á þessu tímabili sem væri hægt að tala um. En titlarnir tveir eru það sem stendur upp úr. Að sjá vinnu síðustu mánaða og ára vera að skila sér“.
Hvort fannst þér erfiðara að sækja bikar- eða deildarmeistaratitilinn? Og hvor titillinn var sætari? ,,Mér fannst báðir titlarnir hafa sinn sjarma. Við vorum í harðri baráttu við Val um báða þessa titla. Við komumst langt með það að tryggja okkur deildarmeistaratitilinn þegar við unnum Val með flautumarki á heimavelli þegar nokkrir leikir voru eftir. Það var líklega einn dramatískasti leikur sem ég hef spilað, með fulla stúku af okkar fólki og frábær stemming. Það var virkilega sætt. Að vinna deildina er mjög vanmetið að mínu mati, enda mjög erfitt að vinna þann titil. Til þess þarf stöðugleika yfir allt tímabilið og því er ég mjög stolt af liðinu að ná að sækja deildarmeistaratitilinn. Bikarmeistaratitillinn var hins vegar mjög sætur. Þetta var fyrsti eyjafólki sem hjálpaði okkur við að klára leikinn með sigri og gerði upplifunina enn þá betri með því að fá að sigla með þeim heim til eyja með bikarinn“.
Hvernig var svo upplifunin að sigla heim með bikarinn?
,,Frábær! Mikið búið að segja mér frá því að það væri nauðsynlegt að prufa að sigla heim með bikarinn og tala um hvað það sé ólýsanleg tilfinning. Það hefur því verið draumur hjá mér lengi og stóðst svo sannarlega væntingar. Að ferðast heim með okkar fólki eftir þennan skemmtilega sigur er virkilega dýrmætt, og hvað þá að fá þær móttökur sem við fengum á bryggjunni frá okkar fólki sem stóð vaktina heima. Held ég geti talað fyrir allt liðið þegar ég segi að við höfum svo sannarlega fundið fyrir stuðningum í vetur sem hefur verið ómetanlegur. Fyrir það segi ég bara TAKK!“.
Nú stóðst þú þig hreint út sagt frábærlega á tímabilinu og varst einn af bestu ef ekki besti leikmaður deildarinnar. Myndir þú segja að þetta væri þitt besta tímabil á þínum ferli? ,,Takk fyrir það. Það má alveg segja að þetta sé mögulega besta tímabilið hingað til hjá mér persónulega. Mér hefur heilt yfir bara liðið nokkuð vel á þessu tímabili og náð finna mig ágætlega inni á vellinum. Það er þó ekki hægt nema að vera með frábæra liðsfélaga og vera umkringdur góðu fólki, en þar hef ég verið mjög heppin og á mörgum að þakka. Fyrir þetta tímabil hafði ég ekki verið í liði sem hefur unnið titil í meistaraflokki í handbolta. Það var því klárlega risastór draumur að rætast að ná núna í 2 af 3 bikurum á þessu tímabili og ég er virkilega stolt að hafa fengið að vera partur af þessu einstaka liði“.
Hvernig lítur þú á tíma þinn hjá ÍBV þar sem af er og hvernig hefur þér líkað dvölin í Vestmannaeyjum?
,,Núna var ég að klára mitt þriðja tímabil hjá ÍBV og ég hef verið mjög ánægð með þann tíma sem ég hef verið hér. Mér hefur alltaf þótt vænt um Vestmannaeyjar enda ættuð héðan og kom hingað reglulega áður en ég flutti. Fyrsta árið hér var aðeins litað af Covid, annað árið fór svo mestmegnis í meiðsli hjá mér persónulega, en núna þriðja árið hefur verið virkilega skemmtilegt og við svo sannarlega að uppskera eftir vinnu síðustu ára“.
Settir þú þér einhver persónuleg markmið fyrir á nýafstöðnu tímabili? ,,Já ég er alltaf að vinna að ákveðnum markmiðum. Fyrir þetta tímabil var ég búin að vera lengi frá í meiðslum sem gerðu það að verkum að ég vissi ekkert hversu mikið ég gæti spilað handbolta aftur. Mitt stóra markmið var því bara að geta spilað handbolta aftur, bæði varnar- og sóknarlega. Til þess að styðja undir það stóra markmið var ég að vinna í mörgum öðrum minni markmiðum, t.d. sem tengjast æfingum, mataræði, hugarfari og ýmsu öðru. Mér tókst að ná stóra markmiðinu sem ég er mjög þakklát fyrir“.
Myndir þú segja að stemmingin í liðinu sé betri á þessu tímabili heldur en á undanförnum tímabilum? ,,Stemmingin í liðinu er búin að vera mjög góð á þessu tímabili. Þetta er mjög þéttur og skemmtilegur hópur sem inniheldur marga ólíka karaktera sem fá að njóta sín. Við elskum að vera saman og það er klárlega liðsheildin sem skilar þeim árangri sem náðst hefur“.
Eitthvað sem þú vilt segja að lokum? ,,Ég vil bara nýta tækifærið til að þakka enn og aftur fyrir allan stuðninginn sem við höfum fengið í gegnum tímabilið. Það hefur verið einstakt að vera partur af þessu samfélagi sem stendur við bakið á manni sama hvað gengur á“.
Við þökkum Sigga og Hrafnhildi Hönnu kærlega fyrir spjallið og óskum stelpunum innilega til hamingju með þennan frábæra árangur. Eyjamenn geta svo sannarlega verið stolir af stelpunum sínum.