Jóhannes Haukur Jóhannesson (Enjolras) útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ 2005. Hann hefur leikið burðarhlutverk í fjölda sýninga hjá Þjóðleikhúsinu, LR, LA og víðar, meðal annars í söngleikjunum Grease, Hárinu (2003 og 2011), Kabarett, Litlu hryllingsbúðinni, Legi, Abbababb, Rocky Horror og Söngvaseið. Hann var tilnefndur til Grímunnar fyrir Eilífa hamingju. Nýleg verkefni hér eru Gerpla og Heimsljós.
Valgeir Hrafn Skagfjörð (Gavroche) er á fimmtánda aldursári og er í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi. Hann fékk ungur áhuga á leiklist og sótti námskeið hjá Leynileikhúsinu. Einnig var hann eina önn hjá Sönglist. Hann lék Hrapp í uppfærslu Þjóðleikhússins á Oliver!. Einnig hefur hann leikið í innlendum og erlendum sjónvarpsauglýsingum. Árið 2011 lék hann í kvikmyndinni Okkar eigin Osló.
Margrét Eir (ýmis hlutverk / Madame Thénardier) hefur starfað sem söngkona og leikkona í yfir tuttugu ár. Hún lauk námi í leiklist við Emerson College í Boston 1998, útskrifaðist úr Raddskóla Kristin Linklater í New York 2007 og stofnaði söngskólann MEiriskóli árið 2009. Meðal sýninga sem hún hefur leikið í eru RENT, Með fullri reisn hjá Þjóðleikhúsi nu, Hárið í Gamla bíói og Oliver! hjá LA.
Valgerður Guðnadóttir (Fantine) útskrifaðist úr framhaldsdeild Guildhall School of Music and Drama vorið 2000, en áður hafði hún lokið 8. stigi frá Söngskólanum í Reykjavík. Hún lék í Þjóðleikhúsinu árið 1995 Maríu í West Side Story, en meðal nýlegra hlutverka eru Papagena í Töfraflautunni hjá Íslensku óperunni og Linda í Gauragangi hjá LR. Hún hlaut Grímuna sem söngvari ársins fyrir Söngvaseið.
Margrét Vilhjálmsdóttir (Madame Thénardier) útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands 1994 og hefur leikið í fjölda sýninga hjá Þjóðleikhúsinu, LR og víðar, sem og í kvikmyndum. Hún hefur einnig leikstýrt eigin verkum. Hún hlaut Grímuna fyrir Lé konung og var tilnefnd fyrir Ívanov, Dínamít og Eldhús eftir máli. Hún hlaut Edduverðlaunin fyrir Mávahlátur og var tilnefnd fyrir Fálka og Brúðgumann.
Vigdís Hrefna Pálsdóttir (Cosette) útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ 2002 og lauk masters prófi frá Royal Scottish Academy of Music and Drama í Glasgow. Hún hefur farið með fjölmörg hlutverk í Þjóðleikhúsinu, hjá LA og leikhópum. Hún fór með aðalhlutverk í söngleikjunum Oliver! og Ástin er diskó lífið er pönk í Þjóðleikhúsinu og Litlu hrylli ngs búðinni hjá LA. Hún lék í Hreinsun og Heimsljósi hér í vetur.
Orri Huginn Ágústsson (ýmis hlutverk) útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ 2005. Hann hefur farið með fjölda hlutverka hjá LR, LA og leikhópum og tekið þátt í dansleikhúsverkum með Íslenska dansflokknum og fleirum, gjörni ngum og tilraunaleikhúsi. Meðal söng leikjaverkefna hans eru Jesus Christ Super star í Borgarleikhúsinu, Abbababb í Hafnar fjarðarleikhúsinu og Kabarett og Hrekkjusvín í Gamla bíói.
Þór Breiðfjörð (Jean Valjean) útskrifaðist úr söngleikjadeild Arts Educational London Schools 1997 og hefur komið fram í fjölda söngleikja í Bretlandi, Þýskalandi og Skandi navíu, en einnig starfað sjálfstætt sem tón listarmaður. Meðal hlutverka sem hann hefur farið með eru Jean Valjean, Javert, Enjolras og biskupinn af Digne í Vesal ingu num, titilh lut verkið í Óperudraugnum og Júdas í Jesus Christ Superstar.
Ragnheiður Steindórsdóttir (ýmis hlutverk) lauk prófi frá The Bristol Old Vic Theatre School 1975 og hefur verið fastráðin við Þjóðleikhúsið frá 1983. Hún lék hlutverk Fantine í Vesalingunum 1987 og hefur farið hér með aðalhlutverk í söngleikjunum Gæjum og píum, Oliver! og Fiðlaranum á þakinu og í My Fair Lady hjá LA. Hún hefur leikið fjölmörg önnur hlutverk á sviði, í kvikmyndum, útvarpi og sjónvarpi.
Þórhallur Sigurðsson / Laddi (Thénardier) hefur komið víða við sem skemmtikraftur, leikari og tónl istarm aður. Hann hefur leikið í fjölda leiksýninga og söngleikja í Þjóðleik húsinu, Borgarleikhúsinu, Gamla bíói og víðar, sem og í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Hann lék hér meðal annars Fagin í Oliver! 1989, tannlækninn í Litlu hryllingsbúðinni í 33 Gamla bíói og titilhlutverkið í Galdrakarlinum í Oz hjá LR.