Stefán Hallur Stefánsson (aðstoðarleik stjóri) útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ 2006. Hann hefur starfað með Þjóðleikhúsinu, LR, Vesturporti, Vér Morðingjum, Sokkabandinu, ART í Bandaríkjunum og CDN Orleans, og leikið í kvikmyndum og sjónvarpi. Nýjustu verkefni hans hér eru Heimsljós, Hreinsun, Lér konungur og Hedda Gabler. Nýjasta leikstjórnarverkefni hans er Eftir lokin hjá SuðSuðVestur. Kristín Hauksdóttir (sýningarstjóri) lauk námi í sýningarstjórn frá Mountview Theatre School í London vorið 1981. Hún hefur síðan starfað sem sýningarstjóri við Þjóðleikhúsið og haft með höndum sýningarstjórn fjöl margra verkefna leikhússins, leiksýni nga, ballettsýninga, söngleikja og óperusýninga. Hún var meðal annars sýningarstjóri Vesa linganna er verkið var sviðsett í Þjóðleikhúsinu árið 1987. Sigríður Soffía Níelsdóttir (aðstoð við sviðs hreyfingar) lauk námi frá dansbraut LHÍ 2009. Hún hefur unnið sjálfstætt sem dansa ri og -höfundur, meðal annars með Shalala-flokki Ernu Ómarsdóttur, Íslenska dansflokknum, DF-Krumma og gjörni ngahópnum Bristol Ninja Cava Crew. Í haust söng hún eitt af aðalhlutverkum óperu nnar Red Waters eftir Barða Jóhannson, Keren Ann og Sjón í Frakklandi. Agla Bríet Gísladóttir (Éponine yngri) er átta ára gömul og er nemandi í Melaskóla. Hún hefur æft fimleika í fimm ár, síðast í Gróttu. Hún hefur verið eina önn í Söngskóla Maríu og er í barnakór Neskirkju.
30
Ari Páll Karlsson (Gavroche) er fjórtán ára nemandi í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ. Hann hefur lært á píanó frá árinu 2001. Hann lék í Oliver! í Þjóðleikhúsinu 2009. Hann hefur um þriggja ára skeið tekið þátt í uppfærslum Bæjarleikhússins í Mosfellsbæ. Hann lék í Lísu í Undralandi 2010 og Hár spreyi 2011. Hann starfrækir ásamt öðrum stuttmyndagerðina JÁ-Myndir, sem sýnir myndir sínar á YouTube.