Selma Björnsdóttir (leikstjórn) hefur starfað við fjölda leiksýninga sem söng- og leikkona, dansari, leikstjóri og danshönnuður. Hún leik stýrði söngleiknum Oliver! og Kardemommu bænum í Þjóðleikhúsinu, Gosa í Borgarleik húsinu og Grease í Loftkastalanum. Hún var meðleikstjóri og kóreógraf í The Heart of Robin Hood hjá Royal Shakespeare Company. Tvær barnasýninga hennar hafa verið tilnefndar til Grímunnar.
Kate Flatt (sviðshreyfingar) lærði dans við the Royal Ballet School. Hún hefur starfað sem kóreógraf og leikstjóri í heimalandi sínu Bretlandi og víðar. Hún hefur meðal annars unnið við ballet, leikhús, nútímadans, kvik myndir, óperur og söngleiki. Hún samdi kóreó grafíu fyrir frumuppfærsluna á Vesal ingu num 1985 hjá Royal Shakespeare Company og hefur einnig samið kóreógrafíu fyrir fleiri uppfærslur verksins.
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson (tónlistar stjórn) lauk einleikaraprófi í klassískum gítarleik frá Tónskóla Sigursveins 1986 og burtfararprófi í tónsmíðum frá Tónl istarskóla Reykjavíkur 1989. Hann hefur starfað sem lagasmiður/tónskáld, upptökustjóri, útsetjari og gítarleikari við fjölda ólíkra verkefna. Hann hefur samið tónlist fyrir sex söngleiki og verið tónlistarstjóri fjölda söngleikja.
Sigurvald Ívar Helgason (hljóðstjórn) hefur starfað við leikhús frá árinu 1996 sem tækni maður og við hönnun hljóðs og lýsingar. Hann hefur starfað hjá LR, Vesturporti og Íslenska dansflokknum, og er nú fastráðinn við hljóðdeild Þjóðleikhússins. Hann sá hér um hljóðmynd/hljóðstjórn fyrir Bjart með köflum, Listaverkið og Litla skrímslið og stóra skrímslið. Hann hefur einnig sinnt hljóðstjórn á tónleikum.
Friðrik Erlingsson (þýðing) hefur sent frá sér skáldsögur fyrir börn og fullorðna og skrifað handrit kvikmyndanna Þórs, Litlu lirfunnar ljótu og Benjamíns dúfu. Hann hefur samið fjölda söngtexta, meðal annars við lög eftir Gunnar Þórðarson og Ingva Þór Kormáksson og fyrir Jóhönnu Guðrúnu, Guðrúnu Gunnars dóttur, Sigríði Beinteinsdóttur, Björgvin Halldórsson, Leone Tinganelli, Borgardætur og Frostr ósir.
Lárus Björnsson (lýsing) hóf störf hjá Þjóðleik húsinu haustið 2006 eftir tuttugu ára starf hjá Leikfélagi Reykjav íkur. Lárus hefur lýst á annað hundrað leiksýningar, meðal annars fyrir Þjóðleikhúsið, LR, Íslensku óperuna, Nemendaleikhúsið, Íslenska dansflokkinn, Loftk asta lann, Leikfélag Íslands og Þjóðleik hús Færeyinga. Hann hefur mörgum sinnum verið tilnefndur til Grímunnar, nú síðast fyrir Alla syni mína.
Finnur Arnar Arnarson (leikmynd) útskrif aðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1991. Hann hefur gert fjölda leikmynda, meðal annars hjá Hafnarfjarðarleikhúsinu, LR, LA og Þjóðleikhúsinu, nú síðast fyrir Heddu Gabler. Hann starfar jafnframt sem myndlistarmaður og á að baki fjölda einka- og samsýninga. Hann var tilnefndur til Grímunnar fyrir leik mynd í Íslandsklukkunni og Kryddlegnum hjörtum.
Ólafur Ágúst Stefánsson (lýsing) hefur starfað sem ljósamaður og ljósahönnuður hjá Þjóðleikhúsinu frá 2008. Meðal ljósa hönnunarverkefna hans hér eru Litla skrímslið og stóra skrímslið, Sögustund, Ballið á Bessastöðum, Oliver og Kardemommubærinn, sem og samstarfsverkefnin Af ástum manns og hrærivélar og Verði þér að góðu. Hann hefur hannað lýsingu fyrir Landnámssetrið og Brúðuheima.
María Th. Ólafsdóttir (búningar) hefur hannað búninga fyrir fjölda sviðsverka og sjónvarp. Verkefni hennar í Þjóðleikhúsinu eru Ballið á Bessastöðum, Oliver!, Karde mommubærinn, Þrek og tár og West Side Story. Meðal annarra verkefna eru Dísa ljósálfur í Austurbæ, Gosi í Borgarleikhúsinu, Hárið og Ávaxtakarfan í Gamla bíói og Latibær 28 og Grease í Loftkastalanum.
Henrik Linnet (myndbandshönnun) útskrif aðist frá Gerrit Rietveld Akademíunni í Amsterdam 2006 með BA-gráðu í sjónlistum. Hann hefur unnið að myndbandsgerð síðan, bæði að eigin verkum og við eftirv innslu auglýsinga og kvikmynda. Meðal sýni nga sem hann hefur unnið við eru Oliver! í Þjóðleikhúsinu, Gauragangur í Borgarleik húsinu og Töfraflautan hjá Íslensku óperunni í Hörpu.