
1 minute read
4.8 Greiningar
er við mat verkefnisstjórans, upplýsingar um fyrri skólagöngu nemenda, kunnáttu í íslensku, aldur, stöðumatið „milli mála“ og annað sem talið er skipta máli.
Kennsluaðferðir og námsefni
Advertisement
o Útlistunarkennsla o Þjálfunaræfingar o Verklegar æfingar o Umræðu- og spurnaraðferðir o Hópvinnubrögð
Í námsgreininni íslenska sem annað mál er mælt sérstaklega með námsefni sem er myndrænt auk þess að hæfa aldri nemenda efnislega. Þegar nemendur hefja nám í íslensku sem öðru máli þarf að velja námsefni með tilliti til aldurs nemendanna, hversu lík íslenskan og móðurmál þeirra og stöðu þeirra í lestri á móðurmálinu. Myndræn tenging við texta og námsefni er mikilvæg til að byggja upp orðaforða og hjálpa nemendum að skilja það sem þeir vinna að. MMS gefur út efni sem er sérstaklega ætlað nemendum með íslensku sem annað tungumál. Þá hafa mörg spil verið gefin út sem og námsefni unnið af kennurum ÍSAT nemenda, sem efla orðaforða og nýtast vel í kennslu. Þá ber síðast að nefna vef MMS sem hýsir fjölda leikja sem styrkja íslenskukunnáttu. Þá er einnig stuðst við aðferðir Byrjendalæsis.
Samstarf heimilis og skóla
Samstarf milli heimilis og skóla eru forsenda þess að vel takist til með nám og þjálfun nemandans í görðum sem og í öðru skólastarfi. Einnig er mjög mikilvægt að allt starfsfólk sem koma að nemendum starfi vel saman. Teymisfundir eru mikilvægir þar sem upplýsingum er miðlað og byggð upp samvinna milli heimili, skóla og aðra fagaðila ef við á. Þannig næst markviss árangur í starfi.
4.8 Greiningar
Telji foreldrar eða kennarar ástæðu til að nemandi fái stoðþjónustu og þurfi sérstakan stuðning er það tekið fyrir á nemendaverndarráðsfundi. Oft eru lögð til greiningarpróf sem framkvæmd eru af sérfræðingum. Umsóknir skulu vera vandlega útfylltar af umsjónarkennara, foreldri og skólastjórnanda. Allar umsóknir um greiningar, sem óskað er eftir fara til meðhöndlunar og samþykkis hjá Nemendaverndarráði.