2 minute read

Búkolla

Frá héraðsbókasafni rangæinga

SumarleStrarhvatning verkStæði hBr

Eins og undanfarin ár verður sumarlestrarhvatning á Héraðsbókasafninu.

Skráning verður á bókasafninu 1. – 8. júní fyrir öll börn fædd á árunum 2013-2016. Lestrarhestarnir fá þá kynningu á verkefninu en að þessu sinni ætlum við að safna fallegum fuglum í glugga safnsins, þátttakendur fá einnig ævintýrakortið Leitin að ævintýraheimum (sjá https://borgarbokasafn.is/sumarlestur-leitin-ad-aevintyraheimum).

Bókaormarnir fá svo sína uppskeruhátíð föstudaginn 25.ágúst.

SumarBókamarkaður: Okkar árlegi sumarbókamarkaður verður á safninu frá 5.júní – 10.ágúst á afgreiðslutíma safnsins. Eins og áður eru allar bækur seldar á 200kr. en einnig er boðið upp á að fylla kassa fyrir 2.000 kr.

Verkstæðið er líka opið í sumar á afgreiðslutíma safnsins, þar geta gestir notað þrívíddarprentara, beltagatara, smellutöng, ljósmyndaskanna, Cricut skurðarvél og ýmislegt til kortagerðar.

SumaraFgreiðSlutími:

Mánudaga 15 – 20

Þriðjudaga 15 – 18

Miðvikudaga 15 – 18

Fimmtudaga 15 – 18

Föstudaga – Lokað

Verið velkomin

Héraðsbókasafn Rangæinga

Vallarbraut 16, 860 Hvolsvöllur - Sími: 488-4235 - www.bokrang.is

Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra

Rangárþing eystra óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan einstakling í starf skipulags- og byggingarfulltrúa.

Skipulags- og byggingarfulltrúi ber ábyrgð á skipulagsgerð í sveitarfélaginu í samræmi við lög nr.123/2010 og reglugerðir auk framkvæmdar opinbers byggingareftirlits í samræmi við gildandi lög nr. 160/2010 og reglugerðir. Viðkomandi heyrir beint undir sveitarstjóra og ber ábyrgð gagnvart sveitarstjóra í öllum störfum sínum og ákvörðunum. Um fjölbreytt starf er að ræða í sveitarfélagi þar sem mikil uppbygging á sér stað. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð:

• Yfirumsjón, framkvæmd og málsmeðferð skipulags- og byggingarmála í sveitarfélaginu.

• Útgáfa framkvæmdaleyfa og eftirlit með að framkvæmdir séu í samræmi við skipulag og útgefin leyfi.

• Yfirferð og samþykkt aðaluppdrátta, verkfræði- og séruppdrátta.

• Gerð fjárhagsáætlana í samvinnu við skrifstofustjóra og sveitarstjóra.

• Samskipti við hönnuði, verktaka og íbúa í tengslum við framkvæmdir í sveitarfélaginu.

• Ábyrgð á og umsjón með útgáfu byggingarleyfa, vottorða og skráningu mannvirkja.

• Umsýsla vegna stofnunar lóða og landskipta í sveitarfélaginu.

• Undirbúningur nefndarfunda, lögformleg afgreiðsla erinda og eftirfylgni mála.

Menntunar- og hæfniskröfur

• Háskólapróf sem nýtist í starfi s.s. byggingarfræði, verkfræði, tæknifræði eða arkitektúr.

• Æskilegt er að umsækjandi uppfylli skilyrði 8. og 25. gr. mannvirkjalaga og 7. gr. skipulagslaga.

• Góð þekking á lögum og reglugerðum tengdum byggingar- og skipulagsmálum er æskileg.

• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg.

• Reynsla af áætlanagerð, s.s. verk-, kostnaðar- og fjárhagsáætlanagerð.

• Þekking og reynsla af stjórnun og rekstri er æskileg.

• Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.

• Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfni.

• Góð tölvukunnátta og reynsla af notkun One System, Navision og Autodesk er kostur.

• Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.

Umsóknarfrestur er til og með 5. júní 2023. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta. is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar veita Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225.

Skoðunarstöðin á Hvolsvelli

Sími 570 9211

Opnunardagar

1. til 15. og 26. til 30.

- þegar vel er skoðað -

Rangárþing ytra Fyrir okkur öll!

This article is from: