Skip to main content

Sælureitur 2015

Page 7

FURA – vinsælasta pallaefnið á íslandi Undanfarna áratugi hefur gagnvarin fura verið langvinsælasta pallaefni á Íslandi og ætla má að meirihluti sólpalla sé úr furu. Auðvelt er að vinna með efnið og hefur það reynst vel við íslenskar aðstæður sé því haldið við með réttri viðarvörn s.s. Jotun Treolje eða Jotun Trebitt. Margbreytilegar og stundum harðar veðuraðstæður hérlendis kalla á að það timbur sem við notum utandyra sé vel varið gagnvart áhrifum veðráttunnar. Hægt er að verja timbur með margvíslegum hætti en algengasti viðurinn í palla og skjólveggi er gagnvarin fura. Gagnvarið timbur er meðhöndlað með söltum til að auka mótstöðu þess gegn lífrænum efnum eða lífverum sem brjóta timbrið niður eins og t.d. fúasveppur og skordýr. Húsasmiðjan selur fyrsta flokks AB gagnvarið timbur frá framleiðendum sem nota viðurkennd efni gagnvart umhverfi og heilsu fólks.

SÍBERÍU LERKI – náttúrulega fúavarið Lerki hefur þann einstaka eiginleika að vera náttúrulega fúavarið og vinsælt er að láta viðinn grána, ómeðhöndlaðan, því þannig næst fallegt útlit sem ekki þarf að meðhöndla með viðarvörn eða pallaolíu. Í Rússlandi hefur lerki verið mikið notað í gegnum aldirnar vegna mikils styrkleika og endingartíma viðarins. Lerki hefur verið notað í timburhús, staura, brýr, undirstöður járnbrauta og skip. Undanfarin ár hefur notkun á lerki í pallaefni og utanhúsklæðningar stóraukist á Norðurlöndum sem og hér á landi. Vegna náttúrulegrar fúavarnar Síberíulerkis er ekki þörf á að yfirborðsmeðhöndla viðinn ef hann má grána. En ef halda á í upprunalegt útlit viðarins verður að yfirborðsmeðhöndla hann t.d. með sérstakri viðarvörn frá Jotun.

KOMPOSIT PALLAEFNI – nýtt á Íslandi Umhverfisvænt pallefni, unnið úr 60% endurunnu timbri og 40% endurunnum plasttrefjum. Sérstaklega slitsterkt og viðhaldsfrítt. Hentar mjög vel fyrir stofnanir, fyrirtæki, hótel, veitingastaði og ferðamannastaði þar sem er mikið og stöðugt álag og viðhaldsvinna þarf að vera í lágmarki.

Pallurinn 7


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Sælureitur 2015 by Húsasmiðjan - Issuu