Ráðstefnur

Page 1

www.harpa.is

Viltu finna svörin í Reykjavík? Harpa tónlistarog ráðstefnuhús


Velkomin í Hörpu Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa er staðsett í hjarta Reykjavíkur. Þessi einstæða perla byggingarlistarinnar stendur á sérlega fallegum útsýnisstað við Reykjavíkurhöfn, í hringiðu mið­ bæjarins, og státar af stórfenglegu útsýni til fjallanna í nágrenni borgar­ innar og út á Atlantshafið. Harpa býður upp á stórkostlegan arkí­ tektúr og er búin nýjasta tækni­búnaði á öllum notkunarsviðum bygg­ingar­innar. Aðal­salirnir fjórir og fundar­herbergin skarta háþróuðum og vönduðum tækja­ kosti. Í Hörpu má einnig finna rúmgóð móttökurými og sýningar­svæði sem henta margs konar viðburðum.

Í Hörpu er frábær aðstaða fyrir kaup­ stefnur og vörusýningar þeim tengdar, ráðstefnur, fundi, tónleika og aðra menningar­viðburði. Gullfallegur gler­hjúpurinn á ytra byrði Hörpu er hannaður af Ólafi Elíassyni, Henning Larsen Architechts og arkitektastofunni Batteríið og hönnunin endurspeglar stuðla­bergs­myndanir sem víða má sjá í náttúru Íslands. Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús er vistvæn bygging. Hún var hönnuð með það fyrir augum að nýta sem best þá náttúrulega birtu sem flæðir gegnum glerhjúpinn á þremur hliðanna, en það dregur verulega úr orkunotkun í húsinu. Allir þeir sem voru valdir til verka í Hörpu settu sér það markmið að byggingin yrði sem sjálfbærust. Bæði veitingahúsin og veisluþjónustan nota innlent hráefni eftir föngum og fylgja ströngum kröfum um endurvinnslu.

Við hlökkum til að taka vel á móti þér í Hörpu.


Hvers vegna Harpa? • Mitt á milli Evrópu og NorðurAmeríku. • Daglega er flogið beint til Reykjavíkur frá mörgum stærri borga í NorðurAmeríku og í Evrópu, • Frábærlega staðsett við hafnar­ bakkann, í hjarta miðborgarlífsins í Reykjavík. • Hönnun og þróun hússins er í sam­ ræmi við helstu kröfur sem gerðar eru til alþjóðlegrar ráðstefnu­ miðstöðvar í fremstu röð.

• Vandaðasti tæknibúnaður sem völ er á í stórkostlegri umgjörð með ógleymanlegu útsýni. • Þrautreynt starfslið fagfólks á öllum sviðum sem leggur metnað sinn í að veita persónulega og einstaklingsmiðaða þjónustu. • Hótel, veitingastaðir og verslanir í göngufæri og sérhæfð ferða­ mannaþjónusta á borð við hvala­ skoðun í fimm mínútna göngufæri. • Gott aðgengi, hvort sem er með einkabíl, rútu eða skutlu. Bíla- og smárútuleiga er til staðar í húsinu.


Eldborg Eldborg er stærsti salur Hörpu og tekur allt að 1.600 gesti í sæti. Eldborg er aðalsalur byggingarinnar og hönnun salarins táknar höfuðskepnuna eld. Salurinn er hannaður með margs konar notkunarmöguleika í huga og hentar sérlega vel fyrir stórar ráðstefnur og fyrirlestra. Á annarri hæðinni, fyrir framan innganginn að Eldborg, er hægt að halda standandi móttökur í tengslum við viðburði.

Sætafjöldi 1.630 sæti (leikhúsuppröðun)



Silfurberg Ráðstefnusalur Hörpu táknar höfuð­ skepnuna jörð og nafnið er dregið af tæra, kristallaða kalksteininum sem erfitt er að finna annars staðar en á Íslandi. Salurinn hentar ráðstefnum af öllu tagi, móttökum eða öðrum viðburðum. Hann er sérhannaður til ráðstefnuhalds og er búinn besta fáanlega tæknibúnaði. Salurinn hentar einnig margs konar tónleikahaldi. Hljóðvist salarins er hönnuð með talað orð í huga og má sérstilla eftir þörfum. Silfurberg er á annarri hæð Hörpu. Sviðið er færanlegt og það má stækka. Salnum er hægt að skipta í tvennt með hljóðeinangruðum skilvegg sem auðvelt er að draga út.

Sætafjöldi 840/360 sæti (leikhúsuppröðun)


Kaldalón Kaldalón, sem er minnsti salurinn í húsinu, er á fyrstu hæð Hörpu. Hann hentar vel fyrir hvers konar fyrirlestra en einnig fyrir fundahald, kvikmyndasýningar og tónleika. Sviðið er færanlegt og einnig má nota gólfrými sem svið. Hægt er að sérstilla ómtíma salarins til að hæfa mismunandi gerðum viðburða.

Sætafjöldi 195 sæti (leikhúsuppröðun)


Norðurljós Norðurljós er tónleikasalur á annarri hæð Hörpu, mitt á milli Eldborgar og Silfurbergs. Salurinn býður upp á margs konar notkunarmöguleika, jafnt fyrir ráðstefnur, móttökur, tónleika og aðra viðburði. Svalir liggja meðfram öllum veggjum salarins og sviðið er færanlegt. Sal­ urinn er búinn sérhönnuðum ljósa­ búnaði með margs konar lita­þemum til að skapa viðeigandi yfirbragð fyrir hvern viðburð fyrir sig.

Sætafjöldi 520 sæti (leikhúsuppröðun)


Björtuloft Björtuloft eru, eins og nafnið ber með sér, fallegt og rúmgott svæði. Rýmið nær yfir tvær hæðir Hörpu – þá sjöttu og þá sjöundu – og er fullkomið fyrir fundi, móttökur og ýmiss konar samkomur. Það hentar frábærlega að taka á móti gestunum á neðri hæðinni og vísa þeim því næst upp á þá efri til sitjandi borðhalds fyrir allt að 130 gesti. Björtuloft eru búin sýningartjaldi og fundabúnaði með hljóðkerfi. Það sem gerir Björtuloft að einstöku rými eru svalirnar með stórfenglegu útsýni yfir borgina, höfnina, fjalla­hringinn og hafið.


Fundaherbergi Við bjóðum einnig upp á fundasali og fundaherbergi með sætarými fyrir allt að 130 manns. Starfsfólk okkar veitir frekari upp­ lýsingar um pakkatilboð.


Háaloft Háaloft er nýr og glæsilegur salur á áttundu hæð Hörpu. Útsýni til vesturs er óviðjafnanlegt, yfir höfnina og fjöllin í nágrenni borgarinnar. Háaloft hefur verið nefnt litli salurinn á þaki borgarinnar. Salurinn er 200 m2 og er með stóru sýningartjaldi.


Ráðstefnur, tónleikar og viðburðir Á meðal ráðstefna og viðburða sem fram hafa farið í Hörpu má nefna You Are In Control, Eve Online Fanfest, Poptech, Food and Fun, Reykjavík Fashion Festival, Vest Norden, HönnunarMars og fjölda læknaráðstefna. Á hinni árvissu tónlistarhátíð Iceland Airwaves hefur Harpa tekið á móti goðsögnum úr tónlist og dægur­ menningu á borð við Björk og Yoko Ono og vorið 2013 fór alþjóðlega tónlistarhátíðin Sónar fram í Hörpu í fyrsta skipti.


Sýningarrými Fyrir framan salina er fjöldi opinna rýma sem henta frábærlega fyrir margs konar viðburði og móttökur. Við mælum sérstaklega með opna svæðinu á annarri hæð, við glerhjúpinn, þar sem lofthæð er einstaklega mikil. Norður­ bryggja á fyrstu hæðinni býður upp á útsýni yfir höfnina en frá Eyri, sem er svæðið fyrir utan Silfurberg, er horft út yfir Reykjavíkurhöfn og vesturborgina. Flói er stærsta opna rými hússins og þaðan er útsýni yfir höfnina. Flói er hentugt rými fyrir stærri viðburði eða sýningar. Líttu endilega inn eða hringdu í okkur til að kanna hvaða rými hentar þínum viðburði best.




Græn stefna

Verðlaun

• Nánast öll orka sem íslensk heimili og fyrirtæki nota er frá hreinum, endurnýjanlegum jarðhita- eða vatnsorkugjöfum. Harpa er tengd við íslenska raforkukerfið, sem hefur eitt hæsta hlutfall nýtanlegs tíma í heiminum.

Mies van der Rohe-verðlaunin 2013 Árið 2013 hlaut Harpa verðlaun Evrópu­ sambandsins fyrir byggingarlist, hin svonefndu Mies van der Rohe-verðlaun.

• Vatnið sem notað er í Hörpu er frá drykkjarvatnslindum í nágrenni Reykjavíkur. Þetta vatn er einstakt að gæðum og þarfnast engrar meðhöndlunar áður en því er dreift til neytenda. • Framhlið byggingarinnar er úr gleri, en það dregur verulega úr kostnaði við lýsingu. • Allt sorp í Hörpu er flokkað og allt endurvinnanlegt sorp sent til endurvinnslu. • Öll hreinsiefni sem notuð eru í Hörpu eru með Svansmerkinu, sem er þekkt og virt umhverfis­ vottunarmerki á Norðurlöndunum.

Við erum græn ráðstefnumiðstöð

MICE Report-verðlaunin 2012 Harpa hlaut MICE Report-verðlaunin sem besta ráðstefnuhús í NorðurEvrópu árið 2012.


Harpa er 43 metrar á hæð, mælt frá götuhæð. Framhlið Hörpu er hönnuð af hinum heimskunna lista­manni Ólafi Elíassyni.

Í glerhjúpnum á framhlið Hörpu er 956 gler­ strendingar.

Hönnuð af Henning Larsen Architects og Batteríið Arkitektum.

Harpa er 28.000 m2


Önnur hæð

Silfurberg B

Norðurljós

Silfurberg A Eldborg

Eyri Opið rými

hæð

Jarð

Fjórða hæð

ð

ja hæ

Þrið

Hörpuhorn Opið rými

2. hæð Fyrsta hæð

Norðurbryggja Opið rými Starfsmannainngangur

Stemma Ríma A Kaldalón Vísa Ríma B

Flói Opið rými

12Tónar Epal

nur

Ön

ð

Miðasala

Munnharpan

Upplifun Aðalinngangur


s rg Be

5

ns

stí

gu

Sk

r

ar

st

stu

rst

ti

a

ga

stu

r vö

llu

a rg na ar

kju

str

æt

i

r

Fó ga geta rð ur

Miðbærinn

Su

ðu

rg

at

a

t ræ as rð

ta

In

ga

t ræ

l fs

va

In

Ga

ti

ti

rg

rst

gg

l fs

y Tr

str

t

æt

i

au

fna

to

br

Ha

als

Ar

ti

r kja

ta

K ir

Au

Tj

Au

at

l

at

pla ta

ag

ól

ti

Tem

ga

ti

fis

úl

rh

Vo n

brú

s t ræ

er

Sk

Sk

na

óla

ti

und

t ræ

r

ra s

as

an

gu

hús

a

nk

tm

stí

Pós t

nd

at

Hv

su

sg

Ba

ug

ól

Am

ur

ata

ga

ur tíg ars pp K la

lvh

rg

eg

ðu

gu r gan

da

av

tna

Lin

ug

ínú

La

kh

m

Tún g

na

rg

ata

ru

ga

ta

ta

isg

ta

ga

Æg

du

ata

Öl

i

a

M

Salir og fundaherbergi

at

ga

æt

rg

irs

str

tu

Ge

Ve s

Harpa

M

ata

ýr ar

Fyrsta hæð Fjórða hæð

ta

Önnur hæð

ga

Rými Gerð rýmis Leikhúsuppr. Fyrirlestraruppr. Kabarettuppr. Veisluuppr. Eldborg Tónleikasalur 1.630 N/A N/A N/A Silfurberg Ráðstefnusalur A+B 840 600 432 540 – Ráðstefnusalur A 360 250 200 240 – Ráðstefnusalur B 378 325 200 240

Móttökuuppr. N/A 1.100 400 400

Lofthæð Stærð í m2 23 1,008 8 735 8 357 8 357

Norðurljós Tónleikasalur

520

400

248

310

650

12

Kaldalón

195

N/A

N/A

N/A

N/A

8 198

130 66 66

100 50 50

72 40 32

90 50 40

250 120 120

Vísa – –

Fundaherbergi 1+2 44 Fundaherbergi 1 20 Fundaherbergi 2 20

28 12 12

N/A 16 N/A N/A 8 N/A N/A 8 N/A

3,8 40 3,8 20 3,8 20

Stemma – –

Fundaherbergi 3+4 44 Fundaherbergi 3 20 Fundaherbergi 4 20

28 12 12

N/A 16 N/A N/A 8 N/A N/A 8 N/A

3,8 40 3,8 20 3,8 20

Nes

Fundaherbergi 5

N/A

N/A

N/A 10 N/A

3,8 16

Vík

Fundaherbergi 6

N/A

N/A

N/A 8 N/A

3,8 15

Vör

Fundaherbergi 7

N/A

N/A

N/A 8 N/A

3,8 15

Sund

Fundaherbergi 8

N/A

N/A

N/A 10 N/A

3,8 16

Björtuloft

Móttökusalur

120

80

96

128

350

3 (hvor hæð)

400

Háaloft

Risrými

100

60

90

100

100

5

200

Rými Flói

Gerð rýmis Sýningarrými

Veisluuppr. 530

Móttökuuppr. 1.200

Lofthæð 3,8

Stærð í m2 1.000

Harp’s corner

Sýningarrými

320

500

26

450

Eyri

Sýningarrými

150

400

7

300

450

3.8

300

Fyrirlestrarsalur

Ríma Fundasalur A+B – Fundasalur A – Fundasalur B

Opin rými

Norðurbryggja Sýningarrými 200 Önnur smærri rými tiltæk – leitaðu ráða hjá starfsfólki okkar.

3,8 3,8 3,8

540 144 72 72


Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús Austurbakki 2 — 101 Reykjavík Ráðstefnusvið, sími: 528 5060 Hönnun: Brandenburg Prentun: Oddi www.harpa.is Fyrirspurnir um ráðstefnur og viðburði: conferences@harpa.is


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.