Íþrótta- og tómstundastarf

Page 1


Efnisyfirlit

10

14

Norðfjörður

4

Reyðarfjörður

12

Eskifjörður

Fáskrúðsfjörður

Stöðvarfjörður

14

14

Mjóifjörður

Segulmottur Stærð: 9 x 13 sm. Prentlitir: Pantone 287 Pantone 485 Pantone Cool Gray 6 Pantone 144 Svart

Nú fer sumarið að ganga í garð og margir fullir tilhlökkunar eftir fremur snjóþungan vetur. Sólin hækkar á lofti og grasið grænkar og við tekur langþráð sumarfrí hjá mörgum. Sumarið er tíminn söng þekktur íslenskur dægurlagahöfundur og er ég honum hjartanlega sammála. Sumarið er tíminn til þess að vera úti, hreyfa sig og njóta lífsins en af þessu er það síðastnefnda eflaust mikilvægast og það má til dæmis gera með því að stunda íþróttir og tómstundir. Í sumar er nóg af íþróttum og tómstundum í Fjarðabyggð og tilgangur þessa bæklings er einmitt að fjalla um það helsta sem á boðstólnum verður fyrir börn og ungmenni, en þó er hér engan veginn tæmandi upptalning. Ég vil hvetja alla til að kynna sér framboðið vel og vonandi finna allir eitthvað við sitt hæfi. Ég vil óska ykkur mikillar gleði, hreyfingar og útiveru á komandi sumri.

Með kærri kveðju, Guðmundur Halldórsson Íþrótta- og tómstundafulltrúi Fjarðabyggðar.


Norðfjörður

Leikjanámskeið

Knattspyrna

Hvert námskeið stendur yfir virka daga í 2 vikur frá kl. 09:00– 12:00. Á dagskránni eru veiðiferðir, hjólatúrar, fjöruferðir, sund og margt fleira skemmtilegt.

Knattspyrnudeild Þróttar verður að vanda með æfingar í 3. til 8. flokki á Norðfjarðarvelli, auk samæfinga í Fjarðabyggðahöllinni á Reyðarfirði. Æfingar fara fram alla virka daga nema föstudaga, en æfingatíminn í sumar hefst mánudaginn 3. júní og stendur fram til föstudagsins 23. ágúst. Rúturferðir verða á milli Neskaupstaðar og Reyðarfjarðar vegna samæfinganna.

Æfingatafla 3. júní til 23. ágúst

1. námskeið 2. námskeið 3. námskeið 4. námskeið 5. námskeið

Klukkan

Hvenær

Börn fædd

09:00 -12:00 09:00 -12:00 09:00 -12:00 09:00 -12:00 09:00 -12:00

10. júní – 21. júní 24. júní – 05. júlí 08. júlí - 19. júlí 22. júlí – 02. ágúst 06. ágúst – 16. ágúst

2003 - 2004 2005 – 2006 2003 – 2006 2007 – 2008 2003 - 2006

Æfingatafla 3. júní til 23. ágúst Klukkan

Mánudagur

Þriðjudagur

Miðvikudagur

10:45 – 12:00 5. fl kk/kvk 5. fl. kk/kvk 13:00 – 14:15 6. fl. kk/6. og 7. kvk 6. fl. kk/6. og 7. kvk 15:00 – 16:00 7. og 8. fl. kk 7. og 8. fl. kk 16:00 – 17:15 3. fl. kk/3. og 4. kvk 4. fl. kk 3. og 4. fl. kvk

Hvert námskeið er á 10.000 kr. Umsjónarmaður er Jóna Bára Jakobsdóttir. Skráning og frekari upplýsingar eru eru veittar á netfanginu jonabaraj@hotmail.com og síma 844-0240

Sund Sú skemmtilega hefð hefur myndast hjá deildinni að greina aldursflokkana að með heitum úr sjávarríkinu. Æfingar eru alla virka daga og skiptast í 75, 60 og 45 mínútna tíma fyrir eldri krakkana en 30 mínútur fyrir þau yngri. Æfingatímabilið er mismunandi eftir aldursflokkum.

Fimmtudagur 5. fl. kk/kvk 6. fl. kk/6. og 7. kvk 7. og 8. fl. kk 3. og 4. fl. kk

Samæfingar Fjarðabyggðarhöllinni 3. júní til 23. ágúst Klukkan

Mánudagur

Þriðjudagur

Miðvikudagur

Fimmtudagur

16:30 – 17:45 17:45 – 19:00

6. fl. kk/kvk 4. fl. kk

4. fl. kvk 3. fl. kk/kvk

4. fl. kk 3. fl. kk

5. fl. kk/kvk 3. og 4 fl. kvk

Í 3. flokki eru börn fædd 1997-1998, 4. flokki börn fædd 1999-2000, 5. flokki börn fædd 2001-2002, 6. flokki börn fædd 20032004, 7. flokki börn fædd 2005-2006 og 8. flokki börn fædd 2007-2008. Þjálfarar Þróttar í hverjum flokki taka við skráningum, auk þess að veita nánari upplýsingar um æfingar.

Æfingar 3. júní til 2. ágúst. (Börn fædd 2003 til 2006) Klukkan 10:15-11:00 11:00-12:00 12:00-12:45 12:00-14:00

Mánudagur Hafmeyjar Höfrungar Selir Hákarlar

Þriðjudagur Hafmeyjar Höfrungar Selir Hákarlar

Miðvikudagur Hafmeyjar Höfrungar Selir Hákarlar

Fimmtudagur Hafmeyjar Höfrungar Selir Hákarlar

Föstudagur Hafmeyjar Höfrungar Selir Hákarlar

Æfingar til 24. júní til 4. júlí. (Börn fædd 2007)

Þjálfarar

Flokkur

Netfang

Farsími

Jóna Bára Sigurjón Egilsson Sir Arnar Varði Beddi

8. flokkur 7. flokkur 6. og 5. flokkur kk 7., 6. og 5. flokkur kvk 4. og 3. fl. kvk

jonabara@hotmail.com sigurjon.egilsson@olgerdin.is sirarnar@simnet.is thorvardursigurb@gmail.com ahbh@simnet.is

844 0240 665 8121 847 8208 698 1176 846 5077

Rúturferðir á samæfingar

Klukkan

Mánudagur

Þriðjudagur

Miðvikudagur

Fimmtudagur

Föstudagur

16:00-16:30 16:30-17:00

Síli kvk Síli kk

Síli kvk síli kk

Síli kvk Síli kk

Síli kvk Síli kk

Síli kvk Síli kk

Æfingar 10. júní til 21. Júní, frí 17. júní. (Börn fædd 2008) Klukkan

Mánudagur

Þriðjudagur

Miðvikudagur

Fimmtudagur

Föstudagur

16:00-16:30 16:30-17:00

Sæhestar kvk Sæhestar kk

Sæhestar kvk Sæhestar kk

Sæhestar kvk Sæhestar kk

Sæhestar kvk Sæhestar kk

Sæhestar kvk Sæhestar kk

Börn fædd 2003 og eldri eru í flokki hákarla, en 2003 og 2004 árgangarnir eru í flokki höfrunga. Strákar sem eru fæddir 2005 og 2006 eru selaflokki en stelpur fæddar 2005 og 2006 eru aftur á móti hafmeyjur. Í flokki síla eru börn fædd 2007 og sæhesta þau sem eru fædd árið 2008. Síli og sæhestar æfa á stelputímum og strákatímum.

Samæfingartími Nesbakkabúð Verkmenntaskólinn Miðstræti Hafnarbraut/Gilsbúð Orkuplanið

16:30-17:45 15:35 15:37 15:39 15:40 15:41

17:45-19:00 16:50 16:52 16:54 16.55 16:56

Blak Blakdeild Þróttar verður með æfingar á strandblakvellinum á Norðfirði. Æfingatíminn hefst á 4 vikna námskeiði sem stendur frá 10. júní til 10. júlí. Æft verður á mánudögum og miðvikudögum í tveimur flokkum. Nánari upplýsingar eru á heimsíðu blakdeildarinnar, 123.is/throtturnesblak ásamt æfingatímum fyrir fullorðna. Börn fædd Mánudagur Miðvikudagur 2000 og 2001 13:00 – 14:30 13:00 - 14:30 1999, 1998 OG 1997 18:00 – 19:30 20:00 – 21:30 Æfingataflan er birt með fyrirvara um breytingar


Frjálsar íþróttir Í sumar verður margt í boði fyrir áhugasöm börn um frjálsar íþróttir. Frjálsíþróttadeild Þróttar verður í samstarfi við UÍA með þjálfun fyrir bæði hnokka og hnátur og pilta og stúlkur á Norðfjarðarvelli. Æfingatímabilið stendur yfir frá 12. júní til 26. júlí og verða æfingarnar alls 14 talsins. Þá verður UÍA í samstarfi við UMFÍ með frjálsíþróttabúðir á Egilsstöðum, unglingalandsmót UMFÍ fer að þessu sinni fram á Höfn í Hornafirði og síðast en ekki síst verður keppt í frjálsum á sumarhátíð UÍA.

Æfingatafla 12. júní til 26. júlí Hnokkar og hnátur Piltar og stúlkur

Hvenær Miðvikudaga og föstudaga Miðvikudaga og föstudaga

Klukkan 09:30 – 10:30 10:30 – 12:00

Aldur 2003 og yngri 2002 og eldri

Æfingagjöld eru 4000 kr eða 2000 kr/mán. Þjálfari er Sandra og tekur hún við skráningum í farsíma 848 5687.

Mót og æfingabúðir í frjálsum

Sundlaugar í Fjarðabyggð

Komdu í sund Sundið hressir, bætir og kætir, bæði sem íþrótt og frábær afþreying sumardagana langa. Sumaropnun sundlauga er frá 1. júní til 31. ágúst fyrir sundlaugarnar í Neskaupstað og á Eskifirði. Á Stöðvarfirði verður sundlaugin opin frá 15. maí til 15. september. Á Fáskrúðsfirði er laugin á hinn bóginn lokuð í ágúst og opnar aftur 1. september skv. vetraropnunartíma. Ennfremur er hún lokuð á sunnudögum.

Sumaropnun sundlauga Neskaupstaður Eskifjörður Fáskrúðsfjörður * Stöðvarfjörður

Virka daga 06:00 – 20:00 06:30 – 21:00 16:00 – 19:00 13:00 – 19:00

* Lokað á sunnudögum

Helgar 10:00 – 18:30 10:00 – 18:00 10:00 – 13:00 13:00 – 17:00

Frjálsíþróttaskóli UMFÍ Sumarhátíð UÍA Sumarleikar HSÞ Unglingalandsmót UMFÍ

Hvenær 10. – 15. júní 12. – 14. júlí 02. – 03. Júlí 02. – 04. ágúst

Hvar Egilsstaðir Egilsstaðir Laugar Höfn í Hornafirði

Aldur 11 til 18 ára Ekkert aldurstakmark Ekkert aldurstakmark 11 til 18 ára

Golf Golfklúbbur Norðfjarðar verður með ókeypis golfæfingar fyrir börn og unglinga yngri en 16 ára á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 14:00 til 16:00. Æfingar hefjast mánudaginn 3. júní og standa yfir í 6 vikur eða til 12. júlí. Æfingatímabilinu lýkur svo með golfmóti, auk þess sem gengist verður fyrir öðru móti í ágúst. Þjálfari er Guðni Rúnar, en um skráningu og frekari upplýsingagjöf sér Sunna Reynisdóttir, 849 3446. Fyrir þá sem hafa áhuga á að ná tökum á golfíþróttinni, gæti nýliðanámskeið hjá Karli Ómari Karlssyni verið málið, en Karl Ómar er þrautreyndur PGA golfþjálfari og -kennari. Nýliðanámskeiðið er í þrjár klukkustundir alls sem skiptast á tvö skipti og hentar öllum sem vilja kynnast golfinu í návígi. Farið er yfir grunnatriði í púttum, vippum og sveiflu. Hver þátttakandi fær kennslubækling með sér heim að námskeiðinu loknu, sem gæti verið sniðugt fyrir mömmur, pabba og unga fólkið sem vill nýta sér golfið sem fjölskylduíþrótt. Nýliðanámskeiðið kostar kr. 7000 á mann. Önnur námskeið í boði golklúbbsins eru pútt- og vippnámskeið og námskeið í fley- og teighöggum. Hámarksfjöldi á hvort námskeið er sex og kosta þau 4.000 kr. á mann. Golfkylfur fást lánaðar hjá golfkennara. Nánari upplýsingar og tímapantanir eru í umsjá formannsins Gunnars Ásg. Karlssonar, 477 1973/856 2047.


Norðfjörður

Hestamennska

1.-4. BEKKUR

Hestamannafélagið Blær gengst í samstarfi við Fjarðaál fyrir hinum árlegu æskulýðsdögum á Kirkjubólseyrum dagana 7. til 9. júní. Kennari verður Helga Rósa Pálsdóttir. Þátttaka er ókeypis og ekki þarf að taka með sér nesti. Allir krakkar að 18 ára aldri sem geta útvegað sér reiðskjóta eru velkomnir.

FORELDRASÁTTMÁLINN

Nauðsynlegt er að foreldri eða fullorðinn forráðamaður fylgi ungum eða óreyndum knöpum.

1

Dagskrá æskulýðsdaga hefst á setningu klukkan 10:00, föstudaginn 7. júní. Þátttakendur dvelja á félagssvæðinu allan tímann og gista í tjöldum ef veður leyfir en annars í félagshúsinu. Margt skemmtilegt er á dagskrá með hestamennskunni. Farið verður í sund, hópastarf og óvissuferð. Einnig verður grillað og haldnar kvöldvökur svo að dæmi séu nefnd. Það helsta sem þarf að taka með (fyrir utan foreldri og góða skapið):  HESTUR  Reiðtygi og hjálmur  Kambur/bursti, faxteygjur  Svefnpoki, koddi  Dýna  Tjald  Sundföt  Snyrtidót  Hlý föt, líka til skiptanna  Hlífðarföt  Stígvél Skráning fer fram á netfanginu blaer@visir.is eða hjá Þórhöllu í síma 891 9419. Í skráningu þarf að koma fram nafn og aldur knapa og nafn reiðskjóta. Nánari dagskrá verður birt á heimasíðu Blæs 123.is/blaer þegar nær dregur. Síðasti skráningardagur er mánudagurinn 4. júní.

Kajakróður Kajakklúbburinn Kaj er með kajaknámskeið í undirbúningi fyrir sumarið og verður tilhögun þeirra auglýst á heimasíðu félagsins 123.is/kaj þegar nær dregur. Einnig eru veittar upplýsingar á netfanginu kayakklubburinn@gmail.com. Kaj er félag kajakræðara á Austurlandi með félaga víðsvegar úr fjórðungnum innanborðs. Byggð hefur verið upp félagsaðstaða á Norðfirði og á klúbburinn nokkurn búnað og báta. Á heimasíðu klúbbsins eru upplýsingar um það sem er á döfinni hverju sinni, s.s. félagsróðrar, námskeið, ferðir og annað. Í haust er svo stefnt að því að halda upp á afmæli klúbbsins, en hann var stofnaður árið 1993 og fagnar því 20 ára afmæli í ár.

3

RÆÐA VIÐ BARNIÐ UM NÁMIÐ OG SKÓLADAGINN. VEITA ÞVÍ STUÐNING OG GÓÐA AÐSTÖÐU TIL HEIMANÁMS.

6 9

STANDA VIÐ LÖGBOÐINN ÚTIVISTARTÍMA OG HUGA AÐ SVEFNÞÖRF BARNSINS.

4

BYGGJA UPP SJÁLFSTRAUST OG SJÁLFSVIRÐINGU HJÁ BARNINU OG KENNA ÞVÍ AÐ SÝNA ÖÐRUM BÖRNUM OG STARFSFÓLKI SKÓLANS TILLITSSEMI OG VIRÐINGU.

7

FRÆÐA BARNIÐ UM NOTKUN Á NÝRRI TÆKNI S.S. FARSÍMUM, SNJALLSÍMUM, SPJALDTÖLVUM OG NETINU OG SETJA REGLUR UM NOTKUN HENNAR.

10

2

VERA VAKANDI YFIR EINELTI OG LÁTA SKÓLA OG/EÐA FORELDRA VITA EF VIÐ TELJUM BARN GERANDA EÐA ÞOLANDA EINELTIS.

5

STUÐLA AÐ GÓÐUM BEKKJARANDA MEÐAL ANNARS MEÐ ÞÁTTTÖKU Í BEKKJARSTARFI OG GÆTA JAFNRÆÐIS TIL DÆMIS VEGNA AFMÆLISBOÐA.

11

SETJA MÖRK VARÐANDI SKJÁTÍMA, Þ.M.T. SJÓNVARP, TÖLVUR OG SNJALLSÍMA.

VIÐ FORELDRAR BARNA Í

TAKA ÞÁTT Í SKÓLA-, ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDASTARFI BARNSINS OG LEGGJA OKKAR AF MÖRKUM TIL FORELDRASTARFS.

KYNNAST VINUM OG SKÓLAFÉLÖGUM BARNSINS OKKAR OG HAFA SAMBAND OG SAMRÁÐ VIÐ FORELDRA ÞEIRRA.

8

KENNA BARNINU UMBURÐARLYNDI ÞANNIG AÐ ÞAÐ SKILJI AÐ VIÐ ERUM ÖLL ÓLÍK OG EIGUM JAFNAN RÉTT.

BEKK/HÓP

GÆTA ÞESS AÐ Á HEIMILINU HAFI BÖRN AÐEINS AÐGANG AÐ KVIKMYNDUM, TÖLVULEIKJUM OG EFNI Á NETINU SEM HÆFIR ALDRI ÞEIRRA OG ÞROSKA.

12

ANNAÐ ...

(SKÓLI)

SAMÞYKKJUM AÐ VERA VIRKIR ÞÁTTTAKENDUR Í SKÓLAGÖNGU BARNA OKKAR OG VIRÐA OFANTALIN VIÐMIÐ UNDIRSKRIFTIR FORELDRA OG FORRÁÐAMANNA

Heimili og skóli hafa endurútgefið Foreldrasáttmálann. Sáttmálinn byggir á þeirri hugmynd að foreldrar og forráðamenn komi saman og ræði um æskilegar reglur og uppeldisleg viðmið sem þeir geti sameinast um. Slíkt samráð er áhrifarík leið til þess að stuðla að vellíðan og velferð barna og unglinga og sporna gegn einelti og áfengis- og fíkniefnanotkun. Sáttmálinn er til í mismunandi útgáfum fyrir hvert stig grunnskólans. Sjá nánar á heimiliogskoli.is.


Eskifjörður

Leikjanámskeið Komum saman út að leika. Leikjanámskeið Austra verða 3. til 27. júní á æfingarsvæðinu við knattspyrnuvöllinn. Námskeiðin verða frá kl. 13:00 til 14:30 fyrir börn fædd 2007 til 2004 og frá kl. 14:30 til 16:00 fyrir börn fædd 2003 til 2001. Áhersla verður á leiki og frjálsar íþróttir og er stefnt að þátttöku á sumarhátíð UÍA, verði stemning fyrir því hjá börnum og foreldrum. Hátíðin fer fram dagana 12. til 14. júlí og færu þá fram sérstakar æfingar vikuna fyrir. Leikjanamskeiðin verða frá mánudegi til fimmtudags, að undanskildum mánudeginum þann 17. júní. Skráningarfrestur er til 29. maí, en æskilegt er að greitt sé áður en leikjanámskeið hefst. Lágmarksþátttaka miðast við átta börn á námskeið. Umsjón hefur Björnfríður Ólafía. Hægt er að hafa samband vegna nánari upplýsingar og skrá þátttakendur á lecki@simnet.is eða í síma 861 8646. Verð er kr. 5.000 á barn, kr. 4.000 fyrir annað barn í fjölskyldu og kr. 3.000 fyrir þriðja barn í fjölskyldu.

Rauðakrossdeildin á Eskifirði stendur fyrir námskeiðinu Börn og umhverfi dagana 10. til 13. júní á Eskifirði frá kl: 16:00 – 19:00. Námskeiðin eru ætluð ungmennum sem fædd eru á árinu 2001 og eldri. Farið verður í ýmsa þætti sem varða umgengni og framkomu við börn. Rætt er um árangursrík samskipti, aga, umönnun og hollar lífsvenjur, leiki og leikföng. Lögð er áhersla á umfjöllun um slysavarnir og algengar slysahættur í umhverfinu. Að auki fá þátttakendur innsýn í sögu og starf Rauða krossins. Um skráningu og nánari upplýsingagjöf sér Sigríður Herdís Pálsdóttir, siggadis@redcross.is, 470 9021 / 897 0916.

Golf

Sund

Golfklúbbur Byggðarholts Eskifirði er með golfkennslu í undirbúningi fyrir börn og unglinga í sumar. Stefnt er að því að hefja kennsluna í lok maí. Einnig verður boðið upp á fullorðinskennslu fyrir þá sem vilja. Kennarinn í sumar verður Guðni Rúnar. Nánari upplýsingar má nálgast hjá formanni golfklúbbsins Jóhanni Arnarsyni í síma 892 4622 og á fasbókinni (facebook.com) undir Golfklúbbur Byggðarholts.

Æfingar hjá sunddeild Austra hefjast mánudaginn 10. júní og lýkur miðvikudaginn 31. júlí. Einnig verður boðið upp á stubbanámskeið fyrir krakka fædd 2008 og 2007. Verður það nánar auglýst síðar. Þjálfari er Jóhann Valgeir Davíðsson eða Valli, og veitir hann nánari upplýsingar í síma 867 0346. Klukkan 09:00 – 10:00 10:00 – 10:45 11:15 – 12:00 12:30 – 14:00

Mánudagur 4. bekkur 3. bekkur 1. / 2. bekkur 5./10. bekkur

Þriðjudagur 4. bekkur 3. bekkur 1. / 2. bekkur 5./10. bekkur

Miðviikudagur 4. bekkur 3. bekkur 1. / 2. bekkur 5./10. bekkur

Fimmtudagur 4. bekkur 3. bekkur 1. / 2. bekkur 5./10. bekkur

Föstudagur

5./10. bekkur

Skotíþróttir Í Fjarðabyggð er starfrækt Skotíþróttafélagið Dreki. Félagið er með inniaðstöðu í kjallara íþróttahússins á Eskifirði auk skeetvölls og riffilbrautar í norður hlíðum Eskifjarðar. Frekari upplýsingar eru á heimasíðu félagsins, skotdreki.123.is

Knattspyrna Æfingar í yngri flokkum hjá knattspyrnudeild Austra hefjast mánudaginn 3. júní. Æft verður á grasvellinum við sundlaugina. Þjálfari er Helgi Ásgerisson eða Moli og veitir hann nánari upplýsingar í síma 895 2866.

Íþróttir og tómstundir á vef fjarðabyggðar

Æfingatafla sumarið 2013 Klukkan 10:00 – 11:00 11:00 – 12:00 12:20 – 13:20

Mánudagur 7. og 8.fl. kk/kvk 5. og 6. fl. kk/kvk 3. og 4. fl. kk/kvk

Þriðjudagur 7. og 8.fl. kk/kvk 5. og 6. fl. kk/kvk 3. og 4. fl. kk/kvk

Miðvikdagur 7. og 8.fl. kk/kvk 5. og 6. fl. kk/kvk 3. og 4. fl. kk/kvk

Fimmtudagur 7. og 8.fl. kk/kvk 5. og 6. fl. kk/kvk 3. og 4. fl. kk/kvk

Vakinn er athygli á því að bæklingurinn í heild sinni er aðgengilegur á nýjum vef sveitarfélagsins á fjardabyggd.is. Þar má svo einnig finna ýmsar gagnlegar upplýsingar fyrir foreldra og unglinga. Auk þess sem Vnnuskóli Fjarðabyggar er komin með síðu, er unnið að því að setja íþróttfélögin í Fjarðabyggð inn á vefinn Mannlíf/Útivist og hreyfing.


Reyðarfjörður

Knattspyrna

Heimspeki

Valsæfingar í knattspyrnu hefjast samkvæmt æfingatöflu 4. júní. Æfingar fara fram í 3. til 8. flokki frá kl. 14:00 – 19:00 á grassvæði eða í Fjarðabyggðahöllinni. Auk þess fara samæfingar fram í Fjarðabyggðahöllinni.

Sigurlaug Hreinsdóttir heimspekikennari stendur fyrir námskeiði í heimspekilegri samræðu í Grunnskóla Reyðarfjarðar 1. til 5. júlí, kl. 9:30-12:00 fyrir 6 til 9 ára og kl. 13:00-15:30 fyrir 10 til 13 ára krakka. Námskeiðið byggir á samræðu þátttakenda um hugtök, hugmyndir og heimspekilegar spurningar um lífið og tilveruna. Áhersla er lögð á að skapa andrúmsloft sem byggir á lýðræði og jafnræði allra þátttakenda. Skráning er á netfanginu sigurlh@simnet.is og nánari upplýsingar má nálgast á heimsíðunni samraeduheimspeki.wordpress. com. Taka verður fram nafn og kennitölu barns ásamt símanúmeri hjá forráðamanni. Verð: kr. 10.000 á hvern þátttakanda.

Æfingatafla 4. júní til 23. ágúst Klukkan Mánudagur Þriðjudagur 14:00 – 15:00 8. fl. kk/kvk 8. fl. kk/kvk 15:00 – 16:00 5. fl. kk/kvk 6. fl. kk/kvk 16:00 – 17:00 5. fl. kk/kvk 17:00 – 18:00 3. og 4. fl. kvk 18:00 – 19:00

Miðvikudagur 8. fl. kk/kvk 6. fl. kk/kvk 5. fl. kk/kvk

Fimmtudagur 8. fl. kk/kvk 6. fl. kk/kvk

3. og 4. fl. kk

Samæfingar Fjarðabyggðarhöllinni 4. júní til 23. ágúst Klukkan 16:30 – 17:45 17:45 – 19:00

Mánudagur 6. fl. kk/kvk 4. fl. kk

Þriðjudagur 4. fl. kvk 3. fl. kk/kvk

Miðvikudagur 4. fl. kk 3. fl. kk

Fimmtudagur 5. fl. kk/kvk 3. og 4 fl. kvk

Allar nánari upplýsingar um fótboltann í sumar eru á heimasíðu Vals, umfv.123.is.

Leikjanámskeið Leikjanámskeið Vals fyrir 1. til 4. bekkinga verður frá 4. júní til 12. júlí. Námskeiðið er virka daga, mánudaga til föstudaga, frá kl. 8:00 - 12:00. Mæting alla daga í Zveskjunni. Verð er kr. 6.000 fyrir tveggja vikna námskeið og kr. 15.000 fyrir allan námskeiðstímann.

Glíma, hlaup og frjálsar Æfingar í glímu verða í boði í sumar og verður boðað sérstaklega í þær af þjálfara. Þá eru allir Fjarðabúar velkomnir í hlaup sem fer fram á hverjum miðvikudegi. Á það við um unga jafnt sem aldna. Í undirbúningi eru svo æfingar í frjálsum íþróttum fram að sumarhátíð UÍA. Tilkynnt verður nánar um það ef/þegar þjálfari fæst. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Vals, umfv.123. is. Glímuþjálfari er Ásmundur Ásmundsson, 894 0559.

Eitt gjald er greitt ársþriðjungslega fyrir allar íþróttir hjá Ungmennafélaginu Val. Gjaldið er kr. 10.000 ef greitt er fyrir 15. júní, en eftir það hækkar gjaldið í kr. 15.000. Veittur er 50% systkinaaflsáttur fyrir 2. barn og 75% fyrir 3. barn. Fyrir 4. barn eru ekki innheimt æfingagjöld. Þátttökugjöld óskast lögð inn á reikn. 1106-05-402513, kt. 460578-0599 og kvittun með nafni barns í skýringum send á umfvalur@gmail.com.

Motocross Vélíþróttafélag Fjarðabyggðar, VÍF, er með í undirbúningi námskeið fyrir börn og unglinga ásamt kennslu í vélíþróttum. Er það liður í öflugra barna- og unglingastarfi á vegum félagsins, sem er með tvær motocrossbrautum á sínum vegum. Önnur þeirra er fyrir byrjendur og hin fyrir lengra komna. Verð og tímasetningar námskeiða verður auglýst síðar. Allar nánari upplýsingar gefur Pétur Gauti, formaður VÍF, í síma 692 3010.

Golf Æfingar hjá Golfklúbbi Fjarðabyggðar hefjast 3. júní og standa yfir í 6 vikur eða til 15. júlí. Æfinginarnar fara fram á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum, að undanskildum mánudeginum 17. júni. Æft verður í tveimur hópum, þeim fyrri kl. 14:00 - 15:00 og þeim síðar kl. 15:00 - 16:00. Aldursskipting í þeim kemur í ljós þegar skráningu er lokið, en leitast verður við að hafa sem jafnastan aldur í báðum hópum. Haldin verða tvö mót fyrir þátttakendur og verða þau auglýst þegar nær dregur. Skráning hjá Sunnu í síma 849 3446. Nánari upplýsingar veitir Sunna eða Guðni Rúnar Jónsson, þjálfari, í síma 845 0876. Guðni Rúnar mun einnig bjóða upp á einkatíma. Heimasíðu Golfklúbbs Fjarðabyggðar má finna á golf.is/pages/klubbar. Þátttaka er 16 ára börnum og yngri að kostnaðarlausu.


Fáskrúðsfjörður

Verum klár í sólinni

Knattspyrna, frjálsar og sund Leiknir verður með tvær fótboltaæfingar á viku fyrir alla flokka, auk samæfinga Fjarðabyggðar/Leiknis á Reyðarfirði. Sjá nánar á heimasíðu félagsins, leiknirfaskrudsfirdi.123.is. Enn fremur verður Leiknir með íþróttaskóla fyrir 6 til 10 ára börn. Áhersla verður lögð á alhliða íþróttaiðkun og fjölbreytta útivist, þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi. Þá verða æfingar í frjálsum fyrir 11 ára og eldri og sundæfingar fyrir sjö ára og eldri.

Íþróttaskóli fyrir 6 til 10 ára Alla virka daga frá kl. 10 – 12. Skólinn hefst mánudaginn 3. júní og lýkur föstudaginn 16. ágúst, en frí verður vikuna 1. - 7. ágúst. Tengiliður er Guðmundur Arnar Hjálmarsson, 846 6518. Vikan kostar kr. 2.500.

Sundæfingar fyrir 7 til 9 ára Mánudaga og miðvikudaga kl. 13:15 - 14:15.

Sundæfingar fyrir 10 ára og eldri Mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 14:15 - 15:15.

Frjálsar í íþróttir fyrir 11 ára og eldri Mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 12-13 inni á Búðagrund. Þjálfari fyrir sund og frjálsar er Fjóla Þorsteinsdóttir, 773 8816.

Stöðvarfjörður Ungmennafélagið Súlan er með í undirbúningi námskeið í frjálsum íþróttum fyrir börn og unglinga í júní. Nánari upplýsingar má nálgast hjá Jóhönnu Guðnýju, formanni Súlunnar í síma 868 3806.

Mjóifjörður Stefnt er að því að bjóða upp á tómstundadagskrá fyrir börn á Mjóafirði í sumar.

Njótum sólarinnar – hún færir okkur kærkomna birtu og hlýju en einnig geislun sem getur skaðað ef við förum ekki með gát. Sérstaklega er mikilvægt að verja börn vel gegn sólargeislunum því húð þeirra er mun þynnri og viðkvæmari en húð fullorðinna. Hér eru ábendingar um hvernig við getum notið sólarinnar með því að verja okkur og börnin gegn hættulegum geislum hennar á suðrænum slóðum. Ekki má gleyma því að hægt er að sólbrenna á skömmum tíma á Íslandi vegna þess hversu tært andrúmsloftið er hér á landi. Ung börn ættu aldrei að vera óvarin í sól. Sérstaklega ekki fyrsta aldursárið. Mikilvægt er að verja hvítvoðunga vandlega, sólhattur og þunn sumarföt henta þeim vel. Staðsetjið barnavagninn í skugganum eða notið sólhlíf.

Sitjum í skugganum - Það er einföld leið til að verja sig fyrir sólargeislunum. Góð regla er að vera aldrei óvarinn í sólinni ef skugginn er styttri en maður sjálfur, á tímabilinu kl. 11 – 15, því þá er mesta hættan á að brenna.

Forðumst sólina frá klukkan 11 til 15 því þá eru geislar sólarinnar sterkastir. Besta og einfaldasta sólarvörnin er að forðast geislun sólarinnar á þessum tíma. Enginn, og þá sérstaklega ekki börn, ætti að liggja í sólbaði þegar sólin er hátt á lofti.

Klæðumst fötum - Að klæðast víðum fötum er þægileg og árangursrík leið til að verja sig fyrir sólargeislunum, sé þörf á að vera utanhúss um miðjan dag. Okkur hættir til að brenna í andliti, á eyrunum og aftan á hálsi. Barðabreiðir hattar veita þar góða vörn.

Notum alltaf sólarvarnaráburð - Áburðurinn verður að vera með sólvarnarstuðulinn 15 eða hærri. Bera á áburðinn á hálftíma áður en farið er í sólina og endurtaka á tveggja klukkutíma fresti. Áburðurinn þarf að vera í nægjanlegu magni til

Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson

að þekja vel þau húðsvæði sem sólargeislarnir fá að leika óhindraðir um. Munum að jafnvel vatnsþolinn sólaráburður máist af við það að þurrka sér með handklæði. Notum sólgleraugu til að vernda augun gegn áreiti sólargeislanna en þeir geta orsakað ský á auga (e. cataract) og aðra augnsjúkdóma.

Forðumst ljósabekki Geislunin frá sólarlömpum getur skaðað húðina og augun. Brúnka sem fæst með sólarlömpum ver húðina ekki fyrir geislun frá sólinni og er því ekki undirbúningur fyrir sólarlandaferð.


Héraðsprent ehf.


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.