f
r a a g g n i da ð 4 læ b r i yr
r
early detect
Snemmtækt þungunarpróf
Jafn áreiðanlegt og þvagpróf á heilbrigðisstofnunum
• Gefur áreiðanlegar niðurstöður 4 dögum fyrir áætlaðar blæðingar • Yfir 99% áreiðanleiki • Auðvelt að lesa niðurstöðu • Stórt prófunarsvæði • Öruggt, einfalt og fljótlegt • Ætlað til heimanota
GERATHERM MEDICAL AG Germany phone: +49 36205 98-0 • fax: +49 36205 98-116 info@geratherm.com • www.geratherm.com
PUIVED02201 2013-08
early detect Hvernig virkar þungunarprófið? Við þungun byrjar líkaminn að framleiða meðgönguhormónið hCG (human choriongonadotropine). Magn hCG byrjar að aukast strax við getnað og tvöfaldast að styrk á tveggja til þriggja daga fresti þar til það nær hámarki á öðrum og þriðja mánuði meðgöngu. Geratherm® þungunarprófið nemur styrk hCG í þvagi við og yfir 10 IU/L. Hve snemma má taka þungunarprófið? Prófið gefur áreiðanlega niðurstöðu fjórum dögum fyrir áætlaðar blæðingar. Hvernig er prófið framkvæmt? Hægt er að framkvæma prófið á tvenna vegu. Í fyrsta lagi getur þú haldið rakadræga hluta prófsins undir þvagbununni á meðan þú pissar, í u.þ.b. 10 sekúndur. Í öðru lagi geturðu tekið þvagsýni í hreint og þurrt ílát og haldið rakadræga hluta prófsins í sýninu í u.þ.b. 10 sekúndur. Framkvæma má prófið hvenær sem er, en áreiðanlegustu niðurstöðurnar fást ef prófið er framkvæmt að morgni við fyrstu þvaglát eftir nætursvefn. Niðurstöðuna er hægt að lesa eftir 3-5 mínútur. Hvernig er lesið úr niðurstöðunum? JÁ: Ef tvær litaðar línur myndast, önnur í viðmiðunarglugganum (C) og hin í niðurstöðuglugganum (T), ertu þunguð, jafnvel þó að línan í niðurstöðuglugganum (T) sé dauf. NEI: Ef aðeins ein lituð lína kemur fram í viðmiðunarglugganum (C) hefur prófið verið rétt framkvæmt en þú ert ekki þunguð. Ef enginn lituð lína birtist í viðmiðunarglugganum (C) hefur prófið ekki verið rétt framkvæmt og þungun er ekki staðfest jafnvel þó að lituð lína sjáist í niðurstöðuglugganum (T). Hver áreiðanlegt er prófið? Geratherm® þungunarprófið hefur verið borið saman við önnur þungunarpróf í klínískum rannsóknum. Niðurstöður þessara rannsókna hafa sýnt að Geratherm® þungunarprófið er yfir 99 % áreiðanlegt.
GERATHERM MEDICAL AG Germany phone: +49 36205 98-0 • fax: +49 36205 98-116 info@geratherm.com • www.geratherm.com
PUIVIC02401 2013-08