T p T Ý s
N vatn
m
f ó r
n n u
ovu control
Frjósemispróf
– greinir frjósemisskeið kvenna.
youtube.com
• Vísindalega prófuð munnvatnsgreining • Inniheldur smásjá (50x stækkun) • Auðvelt í notkun og fjölnota • Gefur niðurstöðu strax • tÁreiðanlegt, nákvæmt og hreinlegt • Handhægt, á stærð við varalit • Kynningarmyndband fylgir með GERATHERM MEDICAL AG Germany phone: +49 36205 98-0 • fax: +49 36205 98-116 info@geratherm.com • www.geratherm.com
Ófrjótt tímabil Getnaður ólíklegur
Upphaf frjósemisskeiðs Getnaður mögulegur en ekki líklegur
Frjósemisskeið Getnaður mjög líklegur
ovu control Algengar spurningar um Geratherm® frjósemisprófið Áreiðanleiki prófsins fer eftir því hve nákvæmlega leiðbeiningum er fylgt og að rétt sé lesið úr niðurstöðum. Áður en byrjað er að nota Geratherm® frjósemisprófið skal lesa leiðbeiningar vandlega og horfa á kynningarmyndbandið sem fylgir vörunni. Einnig er hægt að nálgast myndbandið á youtube undir leitarheitinu „Geratherm® ovu control“ eða á heimasíðu Geratherm http://www.geratherm.de/en/diagnostic/home-care/family-planning/ovu-control/. 1. Hvernig virkar Geratherm® frjósemisprófið? Geratherm® frjósemisprófið nemur þær hormónabreytingar sem eiga sér stað í líkamanum fyrir og á meðan á egglosi stendur. Bein fylgni er á milli þéttni LH hormónsins (luteinizing hormone) og eggloss. Þegar konan er frjósöm eykst saltmagn í munnvatni í samhengi við aukna framleiðslu LH hormónsins. Þeir saltkristallar sem myndast í munnvatninu við egglos mynda mynstraða kjarna eða hópa, sem líkjast blóminu burkna. Þetta mynstur er því kallað burknamynstur og er greinilegast rétt fyrir egglos. Ef langt er liðið frá egglosi og frjósemi þess vegna lítil hverfur burknamynstrið vegna aukins magns af prógesteróni og saltkristallar sjást fáir á víð og dreif. 2. Er Geratherm® frjósemisprófið áreiðanlegt? Ef leiðbeiningum er fylgt nákvæmlega er hægt að áætla frjósemi með þessari aðferð með 98 % öryggi. 3. Lítur burknamynstrið eins út hjá öllum konum? Nei. Magn LH hormónsins er breytilegt á milli kvenna og því geta mynstur saltkristallanna verið ólík á milli kvenna. 4. Hvenær er best að framkvæma Geratherm® frjósemisprófið? Best er að gera prófið daglega rétt eftir að farið er á fætur, áður en þú færð þér morgunmat, reykir, burstar tennurnar o.s.frv. Ef prófið er notað síðari hluta dags skal reyna að forðast ofangreinda hluti í þrjár klukkustundir fyrir prófun. Skráðu niðurstöðurnar vel hjá þér, t.d. á dagatal. Ítarleg skráning getur þannig veitt þér mikilvægar upplýsingar um frjósemi þína. Þessar upplýsingar gætu einnig reynst lækni þínum gagnlegar. Byrjaðu skráningu á fyrsta degi tíðablæðinga.
GERATHERM MEDICAL AG Germany phone: +49 36205 98-0 • fax: +49 36205 98-116 info@geratherm.com • www.geratherm.com
ovu control 5. Hve oft má nota Geratherm® frjósemisprófið? Geratherm® frjósemisprófið er fjölnota. Engir aukahlutir og ekkert viðhald, annað en að skipta um rafhlöður. 6. Hvernig er best að setja munnvatnssýnið á linsuna? Best er að nota munnvatn undan tungunni. Notaðu hreinan og þurran fingur til að setja dropa af munnvatni á miðja linsuna. Láttu munnvatnið dropa á linsuna, ekki klína því á hana. Gættu þess að það sé engin froða eða loftbólur á linsunni. Leyfðu munnvatnssýninu að þorna á linsunni við stofuhita í um það bil 10 – 15 mínútur. ATH: Hægt er að örva munnvatnsframleiðslu með því að bíta laust í tunguna. 7. Má nota hárþurrku til að þurrka upp munnvatnssýnið? Nei. Notkun hvers konar tækja til að þurrka sýnið getur skemmt það. Blásturinn gæti skemmt sýnið eða hleypt aðskotahlutum í það. Þetta gæti leitt til mistúlkunar á niðurstöðum. Ef þú ert á hraðferð og nærð ekki að skoða sýnið skaltu leyfa því að þorna eins og leiðbeiningar segja til um og skoðaðu það svo síðar. 8. Hvers vegna breytast niðurstöðurnar ef ég bursta tennurnar eða borða eitthvað áður en ég tek sýnið? Við þessar athafnir þynnist munnvatnið og saltkristalshópum fækkar. Sýni tekið stuttu eftir þessar athafnir getur því gefið ranga mynd af saltkristöllum í munnvatninu. 9. Hefur brjóstagjöf áhrif á niðurstöðurnar? Já, brjóstagjöf getur stuðlað að óáreiðanlegum niðurstöðum. Við brjóstagjöf verða hormónabreytingar sem geta skekkt niðurstöðurnar. 10. Hvað getur haft áhrif á niðurstöðurnar? Allt það sem hefur áhrif á magn LH hormónsins í líkamanum getur haft áhrif á niðurstöðurnar. Eftirfarandi þættir geta valdið breytingum í mynstri saltkristalla í munnvatni: • Notkun eða nýleg notkun getnaðarvarnarpillunnar eða annarra lyfja • Fæðing og brjóstagjöf • Sjúkdómar og lyf sem hafa áhrif á munnvatnsframleiðslu (t.d. slímlosandi lyf). • Mikið magn LH hormónsins í líkamanum getur valdið viðvarandi burknamynstri í saltkri stöllunum munnvatnsins á meðan lítið magn myndar fáa kristalla sem erfitt er að nema í smásjánni. Við þessar aðstæður skal hafa samband við lækni.
GERATHERM MEDICAL AG Germany phone: +49 36205 98-0 • fax: +49 36205 98-116 info@geratherm.com • www.geratherm.com
ovu control 11. Má þrífa Geratherm® frjósemisprófið? Já. Þvo skal linsuna eftir hverja notkun, annaðhvort með meðfylgjandi klút eða hreinum og þurrum klút. Ekki má setja Geratherm® frjósemisprófið í vatn. 12. Getur burknamynstrið myndast jafnvel þó ég sé ekki með egglos? Í undantekningartilvikum getur mynstrið myndast þó að egglos hafi ekki átt sér stað. Þetta gerist yfirleitt vegna aukins estrógen magns í líkamanum við upphaf eða lok tíðahringsins eða við upphaf blæðinga. Í slíkum tilvikum er mynstrið þó minna og aðeins sjáanlegt í einn eða tvo daga. 13. Hvers vegna sé ég aldrei burknamynstrið? Eftirfarandi ástæður gætu skýrt það: • Sum lyf, hormón, hálsbólga, reykingar og áfengi geta haft áhrif á efnasamsetningu munnvatnsins og þannig haft áhrif á niðurstöðurnar. • Notaðu Geratherm® frjósemisprófið áður en þú borðar, drekkur, burstar tennur og reykir, eða a.m.k. þremur klukkustunum eftir þessar athafnir. • Munnvatnssýnið verður að vera alveg þurrt áður en það er skoðað í smásjá. Í undantekningartilvikum getur verið að líkaminn framleiði ekki nóg af LH hormóninu og ekkert egglos verður. Ef þig grunar að svo kunni að vera skaltu leita til læknis. 14. Hvers vegna sé ég alltaf burknamynstrið? Hjá mjög fáum konum er magn LH hormónsins mikið út allan tíðahringinn. Það kann að vera vegna of lítils magns af prógesteróni í líkamanum. Ef þig grunar að þetta eigi við um þig skaltu tafarlaust leita til læknis. 15. Hvað merkir það þegar ég sé vott af ókláruðu burknamynstri einn daginn en þann næsta er það horfið? Það merkir að smávægileg aukning hafi orðið á LH hormóninu. Margar ólíkar ástæður geta legið þar að baki. Líklega hefur lítil hormónasveifla átt sér stað, en ekki egglos. 16. Hvers vegna sé ég aðeins votta fyrir burknamynstrinu en ekki fullklárað mynstur? Konur með minna magn LH hormónsins í líkamanum sjá hugsanlega ekki allt mynstrið ef magn LH hormónsins (og salts) er ekki nægjanlegt til að mynda stóra kristalla. Þrátt fyrir þetta er hægt að bera kennsl á frjósemisskeið, þar sem óklárað mynstur getur gefið til kynna að egglos hafi átt sér stað.
GERATHERM MEDICAL AG Germany phone: +49 36205 98-0 • fax: +49 36205 98-116 info@geratherm.com • www.geratherm.com
ovu control 17. Ég hætti á pillunni í síðasta mánuði. Get ég notað Geratherm® frjósemisprófið? Fyrsti tíðahringur eftir að inntöku pillunnar er hætt er yfirleitt mjög óreglulegur. Þar af leiðandi mælum við með því að þú bíðir í tvo tíðahringi með að nota frjósemisprófið. Þannig gefur þú líkama þínum tíma til að finna sinn náttúrulega takt og niðurstöður frjósemisprófsins verða áreiðanlegri. 18. Má nota Geratherm® frjósemisprófið í stað getnaðarvarnar? Nei, frjósemisprófið getur ekki komið í stað getnaðarvarnar.
19. Hve lengi ætti ég að nota Geratherm® frjósemisprófið? Ef þú ert að reyna að verða barnshafandi mælum við með því að þú notir frjósemisprófið á hverjum degi þar til þú verður þunguð, jafnvel þó tíðahringur þinn sé reglulegur. Þættir, svo sem streita og lyf, geta haft áhrif á frjósemi, jafnvel hjá konum sem hafa reglulegan tíðahring. 20. Get ég notað Geratherm® frjósemisprófið jafnvel þó tíðahringurinn minn sé óreglulegur? Já, Geratherm® frjósemisprófið hjálpar þér að öðlast skilning og stjórn á tíðahring þínum, jafnvel þó hann sé óreglulegur. Með því að nota prófið daglega kemur óreglan í ljós og ef þú skráir allar niðurstöður vel hjá þér muntu fljótt læra að þekkja tíðahring þinn. 21. Hvað get ég gert til að auka líkur á þungun? Við mælum með því að þú hafir samfarir um leið og þú sérð burknamynstrið í smásjánni, við upphaf frjósemisskeiðs. Frjóvgun getur aðeins átt sér stað á innan við 8–10 klukkustundum.
GERATHERM MEDICAL AG Germany phone: +49 36205 98-0 • fax: +49 36205 98-116 info@geratherm.com • www.geratherm.com