Skip to main content

iHealth Align blóðsykursmælir

Page 1

iHealth Align Leiรฐbeiningar


Velkomin

Tengingar við snjalltæki

iHealth Gluco-Monitoring tækin eru sérhönnuð til að nota með iHealth GlucoSmart snjallforritinu sem hjálpar þér að halda betur utan um þínar upplýsingar.

Hægt er að velja iHealth snjallforritið fyrir tæki með IOS- (Apple) og Android stýrikerfi. Til að sjá hvort tækið þitt geti notað snjallforritin er hægt að fara inn á www.ihealthlabs.com

Fyrstu skref Náðu í snjallforritið (app) Áður en byrjað er að nota iHealth Align mælinn þarf að sækja ókeypis snjallforrit í Apple App Store (IOS) eða Google Play Store (Android). Fylgið leiðbeiningum í forritinu og stofnið ykkar grunnupplýsingar.

Stofnaðu aðgang í iHealth skýinu Hægt er að vera með aðgang að upplýsingum bæði í gegnum snjallforrit og á vefnum. Farið á síðuna www.ihealthlabs.com og veljið SIGN IN til að stofna aðgang.


Skannaðu iHealth AGS1000 glúkósastrimlana Vinsamlegast lesið vandlega leiðbeiningarnar sem fylgja hér að neðan til að koma í veg fyrir ónákvæmar mælingar eða lenda í vandræðum með strimlana.

Tengdu snjalltækið þitt við þráðlaust net (WiFi) eða farsímakerfi (3G/4G) og opnið GlucoSmart forritið (app). Þegar óskað er eftir skannið QR kóðann sem er á loki iHealth strimlaboxins til þess að tengja saman strimla og tæki.

Byrjaðu að mæla Skref 1 Opnaðu snjallforritið

Vinsamlegast athugið • Ekki snúa mælinum þegar mæling er í gangi

Skref 2 Tengdu mælinn með því að stinga honum í heyrnartólatengið. iHealth merkið á mælinum þarf að snúa eins og skjárinn á snjalltækinu

• Fjarlægið hlífar og hulstur af símanum eða spjaldtölvunni ef þörf krefur


Skref 3 Settu strimilinn í mælinn, gættu þess að strimillinn snúi eins og iHealth merkið á mælinum og skjárinn á snjalltækinu

Skref 4 1. Gerðu stungupennann tilbúinn 2. Taktu lokið af pennanum 3. Settu nýja stungunál í stungupennann 4. Snúðu hlífina af stungunálinni 5. Settu lokið aftur á stungupennann 6. Stilltu stungupennann eftir því hvað þú vilt djúpa stungu 7. Snúðu handfanginu þar til þú heyrir smell


Skref 5 Notaðu stungupennann til að fá blóðsýni

Skref 6 Berið blóðsýnið að strimlinum

Þrýstu stungupennanum að svæðinu sem þú vilt stinga í og þrýstið því næst á takkann á hlið stungupennans til að fá stungu.

Beinið blóðsýninu fljótt og örugglega að svæði í enda strimilsins. Gætið þess að blóðsýnið fyllið svæðið vel áður en fingur er fjarlægður

Þrýstið varlega þar til að blóðdropi myndast


Skref 7 Lesið niðurstöðuna

Skref 8 Losið ykkur við notaðan strimil og stungunál

Eftir um það bil 5 sekúndur mun blóðsykursmælingin birtast á skjá snjalltækisins. Mælirinn þarf að vera tengur við snjalltækið þegar verið að mæla og skrá gögn í snjallforritið

Fjarlægið strimil með bréfi eða þurrku Fjarlægið stungunál úr stungupenna (gott er að setja hlífina aftur á stungunálina) Losið ykkur vel og vandlega við notaðan strimil og stungunál.


Skipta um rafhlöðu Í mælinum er 3V CR1620 Lithium rafhlaða auk þess sem önnur fylgir með. Rafhlöðuending er um það bil 6 mánuðir en fer alfarið eftir notkun. Fylgið leiðbeiningum hér að neðan þegar skipta þarf um rafhlöðu. 1. 2. 3. 4. 5.

Snúðu mælinum við og láttu iHealth merkið vísa niður Lyftið lokinu með því að þrýsta því upp hjá strimlaraufinni Fjarlægið rafhlöðuna með því að ýta á litla hvíta hnappinn við hlið rafhlöðu Setjið nýja rafhlöðu í og látið + merkið snúa upp, smellið henni vandlega í Setjið lok aftur á, setjið hakið fyrst á réttan stað og smellið því á

Vinsamlegast athugið Þegar BATTERY IS LOW birtist í snjallforritinu þarf að skipta um rafhlöðu til að tryggja áreiðanlega mælingu


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
iHealth Align blóðsykursmælir by Eirberg - Issuu