elōsTM háreyðingartæki
Notendahandbók
Efnisyfirlit
Kynning ....................................................................................................................................... 1 Hvað er elōs tækni? ................................................................................................................. 2 Innihald pakkninga ................................................................................................................... 3 Lýsing á tæki ........................................................................................................................ 4 Mikilvæg öryggisatriði .............................................................................................................. 6 Hvenær skal ekki nota háreyðingartækið / frábendingar ........................................... 6 Aukaverkanir og húðviðbrögð ................................................................................................ 9 Hvernig á að nota háreyðingartækið? ............................................................................... 10 Skref 1: Undirbúningur ....................................................................................................... 11 Skref 2: Húðertingarpróf ................................................................................................... 11 Skref 3: Háreyðing með mē elōs ..................................................................................... 11 Andlit.................................................................................................................................12 Að viðhalda mjúkri og hárlausri húð .................................................................................... 14 Lengd meðferðar.................................................................................................................... 14 Eftir meðferð ............................................................................................................................ 14 Þrif og geymsla ........................................................................................................................ 15 Hvernig á að skipta um elōs hylki og aukahluti .................................................................. 16 Förgun elōs hylkja.................................................................................................................... 17 Að ferðast með mē elōs tækið ............................................................................................. 18 Vandamál – orsakir og lausnir ............................................................................................... 19 Ábyrgð og þjónusta ............................................................................................................. 231 Hafðu samband .............................................................................................................. 231 Upplýsingar um framleiðanda ............................................................................................ 242 Tákn og merki.........................................................................................................................23 Ítarupplýsingar ....................................................................................................................... 264
ÍSL
Kynning… Til hamingju með nýja mē elōs háreyðingartækið þitt. mē elōs byggir á framúrskarandi tækni og er bæði auðvelt og þægilegt að nota heima við til að fjarlægja líkamshár. mē elōs er eina háreyðingartækið, sem hægt er að nota heima við, sem notar elōs tækni og dregur varanlega úr hárvexti. Klínískar rannsóknir hafa sýnt að tækið hentar öllum húðgerðum og húðlitum. Þetta meðfærilega tæki gerir þér kleift að njóta mjúkrar og hárlausrar húðar án raksturs og vaxmeðferða.
Minnkar hárvöxt Að draga úr hárvexti getur verið hægfara ferli. Rannsóknir okkar hafa sýnt að mē elōs háreyðingartækið dregur varanlega úr hárvexti. Það er þó persónubundið hve langan tíma það tekur hvern og einn að ná sjáanlegum árangri og hve lengi sá árangur varir. Mælt er með reglubundinni meðferð til að viðhalda árangri. Klínískar rannsóknir hafa sýnt að þegar hárið vex aftur á milli meðferða er það í mun minna mæli.
memyelos.com
1
ÍSL
Hvað er elōs tækni? elōs tæknin (electro-optical synergy) gerir mē elōs tækinu kleift að eyða líkamshárum og draga varanlega úr hárvexti. Þessi tækni byggir á samvirkni leifturljóss (Intense Pulsed Light) og rafsegulbylgna (Radio Frequency). Blossi leifturljóssins smýgur inn í húðina, skemmir hársekkina og eyðir þannig hári á öruggan og áhrifaríkan máta. Þessi tækni er uppfinning Dr. Shimon Eckhouse og var hún í fjölda ára aðeins aðgengileg fagfólki. elōs háreyðingartæknin er nú í fyrsta skipti aðgengileg almenningi í gegnum mē elōs tækið.
Hvernig virkar þetta? elōs tæknin hitar hársekkina með leifturljósi og rafsegulbylgjum og hefur þannig áhrif á hæfni sekkjanna til að mynda nýtt hár. Hárið, sem fyrir var í sekknum, losnar frá honum og sekkurinn skemmist. Þannig minnkar hárvöxtur á því svæði sem hefur verið meðhöndlað. elōs tæknina má nota á allar húðgerðir, einnig náttúrulega dökkan húðlit.
Stig hárvaxtar Öll hár líkamans ganga í gegnum mismunandi vaxtarstig. Í grófum dráttum færast þau frá hvíldarstigi yfir á vaxtarstig. Háreyðing sem byggir á ljósi hefur mest áhrif á hársekkina þegar hárin eru á vaxtarstigi. Það er þó erfitt að segja til um hvenær hárin eru á vaxtarstigi, þar sem töluverður munur er á lengd stiga á milli einstaklinga og líkamshluta. Aðrir þættir, eins og erfðir, efnaskipti og aldur, geta einnig haft áhrif á lengd hvers stigs.
Við hverju má ég búast af meðferðinni? Það þarf yfirleitt að meðhöndla hvert svæði mörgum sinnum til að ná hárunum þegar þau eru á vaxtarstigi og skemma hársekkina. Þegar hársekkurinn hefur verið skemmdur getur það tekið hárið eina til tvær vikur að hverfa. Á meðan gæti það litið út eins og hárið sé enn að vaxa, en í raun er líkaminn að ýta því út úr húðinni. Það er þó ekki víst að þú munir taka eftir því.
2
HOMEDICS me ˉ
ÍSL
Innihald pakkninga Í pakkningum mē elōs háreyðingatækisins ættir þú að finna: • mē elōs háreyðingatæki, meðferðarhaus með áföstu elōs hylki og hlífðarloki • Hlífðarlok f. aukahlutahólf • Rafmagnssnúru • Notendahandbók • Hlífðargleraugu f. andlitsmeðferð • Þvottabursta • Hárplokkari (epilator)
Aukahlutir Fylgja ekki með (seldir sér): • Rakvél • elōs hylki til skiptana
memyelos.com
3
ÍSL GB
Lýsing á tæki: 1. Grunneining 2. Hólf fyrir meðferðarhaus 3. Stjórnborð: aðalrofi (kveikja/slökkva) elōs styrkleikahnappur (stillir styrkleika meðferðar) aukahlutahnappur (virkjar aukahluti) viðvörunarljós (gefur til kynna þegar elōs hylkið er búið) 4. Meðferðarhaus (með snúru) 5. elōs hylki, sem framkallar leifturljós og rafsegulbylgjur
1
4
5
2
4
HOMEDICS me ˉ
3
Á meðferðarhausnum er: ÍSL
1. elōs hylki: Þegar þú færð tækið hefur hylkið þegar verið fest á meðferðarhausinn og hlaðið með leifturljósi. Þú þarft að skipta um hylki þegar viðvörunarljósið er rautt. 2. Gluggi fyrir elōs leifturljós. 3. Rafsegulstangir: Rafsegulstangirnar tvær verða að snerta húðina svo að leifturljósið blikki. 4. elōs hnappur til að kveikja á hylkinu. 5. Kæliraufar. 6. Hlífðarlok.
4
5 6 3
1
2
ATH: Ef þú átt ekki hylki til skiptana – gættu þess að setja elōs hlífðarlokið á meðferðarhausinn í stað notaða hylkisins. Þetta verndar innviði meðferðarhaussins. memyelos.com
5
ÍSL
Mikilvæg öryggisatriði Mikilvægar öryggisupplýsingar – lesist fyrir notkun! Lesið allar viðvörunar- og öryggisupplýsingar í þessari handbók vandlega áður en tækið er notað. Gætið varúðar við notkun allra raftækja. mē elōs háreyðingatækið er ekki ætlað öllum. Vinsamlegast lesið leiðbeiningarnar vel fyrir notkun. Gætið þess að fylgja leiðbeiningunum. Notaðu ekki tækið ef það hentar þér ekki (sjá kafla um frábendingar að neðan).
Hvenær skal ekki nota háreyðingartækið / frábendingar • NOTIÐ EKKI ef húðin er sólbrún eða sólbrunnin af völdum sólbaða, ljósabekkjanotkunar eða brúnkukrema. Það getur valdið tímabundinni eða varanlegri aflitun á húðinni. Bíddu í 2 vikur þar til sólbruninn eða brúnkan er horfin áður en þú notar háreyðingartækið. • HAFIÐ EKKI meðhöndluð svæði óvarin í sólinni. Bíðið í a.m.k. 24 klst. (lengur fyrir andlit) þar til meðhöndluð svæði sjá sól eða ljósabekk. Jafnvel þó að 24 klst. séu liðnar frá meðferð skal gæta þess hafa meðhöndluð svæði ekki í sól ef roða gætir enn á svæðinu. Gættu þess að verja meðhöndluð svæði með sólarvörn ef þú ferð út í sól á meðferðartímabilinu. • NOTAÐU EKKI ef þú ert barnshafandi, að reyna að verða barnshafandi eða með barn á brjósti. Áhrif mē elōs háreyðingatækisins á barnshafandi konur eða konur með börn á brjósti hafa ekki verið könnuð. • NOTAÐU EKKI ef þú ert með flogaveiki, ljósnæma flogaveiki eða mígreni. Leifturljósið gæti valdið alvarlegum höfuðverkjum og mígreni. • NOTIÐ EKKI á húðflúr og dökkbrúna eða svarta bletti (s.s. dökkar freknur, fæðingabletti eða vörtur). Húðflúr og dökkir blettir drekka í sig of mikla ljósorku, sem getur valdið bólgum, tímabundnum eða varanlegum blöðrum og aflitun húðar. • NOTIÐ EKKI á svæði í kringum augu, höfuð, eyru, geirvörtur, kynfæri eða endaþarm. Notkun tækisins á þessum svæðum getur valdið bólgum, blöðrum eða tímabundinni/varanlegri aflitun á húð. 6
HOMEDICS mē
ÍSL
• NOTAÐU EKKI ef þú hefur ekki náð 18 ára aldri. Áhrif þess að nota mē elōs tækið í þessum aldurshópi eru óþekkt. • NOTAÐU EKKI ef þú glímir við einhver húðvandamál á því svæði sem þú vilt meðhöndla, s.s. unglingabólur, sár, psoriasis, exem, bruna, áblástur (herpes) eða útbrot. Slík vandamál geta valdið auknu ljósnæmi í húð, sem gæti gert meðferðina óþægilega og valdið bólgum, blöðrumyndun og sýkingum. Bíddu með að nota tækið þar til vandinn hefur verið leystur. Ef þú ert óviss um hvort húð þín sé nógu heilbrigð fyrir háreyðingu skaltu ráðfæra þig við lækni.
VARÚÐ • EKKI MÁ taka mē elōs tækið í sundur og snerta innviði þess. Reynið ekki að gera við tækið sjálf. Að taka tækið í sundur gæti leitt til skemmda og ógildir ábyrgðina. Hafið samband við starfsfólk Eirbergs ef tækið er gallað eða bilað. Ef þú fylgir ekki þessum leiðbeiningum gætirðu átt á hættu að fá raflost. • NOTIÐ EKKI mē elōs tækið nálægt raka eða bleytu (vaski/ baði/sturtu). Það gæti leitt til raflosts. Ef tækið fellur í bleytu skal taka það úr sambandi tafarlaust. Nálgist tækið ekki fyrr en það hefur verið tekið úr sambandi. Notið tækið ekki aftur og hafið samband við starfsfólk Eirbergs. • EKKI MÁ halda meðferðarhausnum kyrrum á sama svæði á húðinni og láta ljósið leiftra mörgum sinnum á sama svæði. Við slíkt getur húðin ofhitnað, sem getur valdið bólgum, blöðrum og tímabundnum eða varanlegum litabreytingum í húð. Eftir hvert leiftur skal færa meðferðarhausinn á nærliggjandi svæði. Bíðið í a.m.k. 10 sekúndur áður en meðferðarhausinn er færður aftur á sama svæði. • NOTIÐ EKKI mē elōs tækið ef eitthvað bendir til þess að tækið sé ónýtt eða bilað. Það gæti valdið meiðslum. • HYLJIÐ EKKI kæliraufarnar á meðan á notkun stendur, þar sem þær eiga þátt í kælingu tækisins. Ef kæliraufarnar eru huldar gæti tækið ofhitnað. • GEYMIÐ ÞAR SEM BÖRN NÁ EKKI TIL! mē elōs er öflugt raftæki og því ætti enginn undir 18 ára aldri að nota það.
memyelos.com
7
ÍSL
• SKILJIÐ EKKI börn eftir eftirlitslaus í kringum mē elōs háreyðingatækið. Það gæti reynst hættulegt. Ávallt skal hafa eftirlit með börnum í kringum tækið. • NOTAÐU EKKI ef húð þín er viðkvæm fyrir ljósi. Ef þú ert með ljósnæma húð getur ljósameðferðin verið þér óþægileg og/eða valdið bólgum, blöðrum eða sýkingum. Til að skera úr um hvort mē elōs hentar þér skaltu prófa að meðhöndla lítið svæði og bíða í 30 mínútur (lengur fyrir andlit) til að sjá hvernig húðin bregst við. Ef húðin lítur eðlilega út máttu nota mē elōs háreyðingatækið (sjá „Húðertingarpróf“ að neðan). • NOTIÐ EKKI mē elōs á svæði sem þú vilt að hár vaxi aftur. • NOTIÐ EKKI tækið við hærri hita en 30°C. Ef tækið ofhitnar getur það bilað og valdið meiðslum.
8
HOMEDICS me ˉ
ÍSL
Aukaverkanir og húðviðbrögð Háreyðing með mē elōs tækinu getur haft aukaverkanir. Aukaverkanir eru sjaldgæfar og hverfa yfirleitt innan skamms tíma. Þó skal hafa í huga að öllum snyrtimeðferðum fylgir einhver áhætta. Sjaldgæfum aukaverkunum er lýst í töflunni hér að neðan. Aukaverkanir
Ráðleggingar
Litur eða áferð húðar breytist; gæti verið varanlegt
Getur komið fram á meðan á meðferð stendur eða eftir meðferð. Ef ástandið lagast ekki innan 24 klst. skal ráðfæra sig við lækni.
Roði í húð
Getur komið fram á meðan á meðferð stendur eða eftir meðferð. Ef ástandið lagast ekki innan 24 klst. skal ráðfæra sig við lækni.
Kláði í húð
Unglingabólur (acne)
Blöðrur eða bruni í húð
Kælið svæðið með kælipoka (ekki klaka). Ef kláði hættir ekki skal hafa samband við lækni. Ef ástandið lagast ekki innan 24 klst. skal hafa samband við lækni. Kælið svæðið strax með kælipoka (ekki klaka). Hafa skal samband við lækni.
Varanleg öramyndun, tap á húðvef og dældir
Getur komið fram meðan á meðferð stendur eða eftir meðferð. Ef ástandið lagast ekki innan 24 klst. skal hafa samband við lækni.
Óeðlilegur sársauki
Stöðvið meðferðina og ráðfærið ykkur við lækni.
memyelos.com
9
ÍSL
Hvernig á að nota háreyðingatækið? mē elōs dregur varanlega úr hárvexti.
Húðlitur mē elōs er ætlað öllum húðgerðum og húðlitum (náttúrulegum húðlitum).
Hárlitur mē elōs má nota á alla hárliti. ATH: Til að ná góðum árangri skal nota hárplokkara á ljós, hvít, grá og rauð líkamshár. Ekki má nota mē hárplokkarann á hár í andliti.
Líkamssvæði mē elōs má nota á líkamshár kvenna og karla fyrir neðan háls. Konur mega einnig nota tækið á andlitshár fyrir neðan nef (sjá mynd).
ATH: Meðhöndlun andlitshára er ólík meðhöndlun líkamshára. Gætið þess að lesa allar leiðbeiningar vel fyrir notkun.
10
HOMEDICS me ˉ
ÍSL
Notkun – skref fyrir skref Skref 1: Undirbúningur
Fjarlægðu hár þess svæðis sem þú ætlar að meðhöndla (hér má nota aukahluti, s.s. hárplokkara eða rakvél). Gættu þess að hárið sé ekki lengra en 0,5 cm.
Skref 2: Húðertingarpróf
Áður en þú notar háreyðingartækið í fyrsta skipti skaltu prófa það á litlu svæði, nálægt því svæði sem þú vilt meðhöndla, til að kanna viðbrögð húðarinnar. Fylgdu leiðbeiningunum hér að neðan (skref 3). Þegar þú hefur prófað tækið skaltu bíða í 30 mínútur og athuga hvernig húðin bregst við. Ef þú ert að prófa tækið á húð í andliti skaltu bíða í 3 daga. Ef húðin virðist eðlileg og þú verður ekki vör/var við roða eða önnur viðbrögð máttu nota tækið á allt svæðið. Notaðu þær stillingar sem þú notaðir áður og leiddu ekki til aukaverkana.
Skref 3: Háreyðing með mē elōs Líkami:
1. Ýttu á aðalrofann á grunneiningunni til að kveikja á tækinu. 2. Ýttu á elōs styrkleikahnappinn á grunneiningunni til að velja styrkleika meðferðar (lágur - miðlungs - eða hár). Við mælum með því að þú byrjir við lægsta styrk og ef þú ert laus við öll óþægindi geturðu hækkað hann. 3. Ef þú ætlar að nota aukahluti (hárplokkara / rakvél) skaltu tengja þá við meðferðarhausinn í stað hlífðarloksins og ýta á aukahlutahnapp. Til að nota hárplokkarann á lágum hraða skaltu ýta einu sinni á aukahlutahnappinn. Ef þú vilt auka hraðann getur þú ýtt aftur á hnappinn. Aðeins er hægt að nota rakvélina við lægstu hraðastillingu. 4. Ýttu á elōs hnappinn á meðferðarhausnum. 5. Settu meðferðarhausinn á það svæði sem þú vilt meðhöndla og gættu þess að rafsegulstangirnar snerti húðina. Þrýstu meðferðarhausnum ekki að húðinni, láttu hann snerta húðina mjúklega. Hylkið mun byrja að framkalla leifturljós. 6. Færðu meðferðarhausinn rólega fram og aftur um svæðið án þess að nema staðar. Bíddu í a.m.k. 10 sekúndur þar til þú ferð yfir sama svæði aftur. Þegar þú hefur farið 3-4 sinnum yfir allt svæðið skal ljúka meðferð. Meðferðartími er breytilegur eftir svæðum (sjá „Lengd meðferðar“).
memyelos.com
11
ÍSL
Andlit:
Að fjarlægja andlitshár er mjög ólíkt því að fjarlægja líkamshár. Vinsamlegast lesið leiðbeiningar og varúðarráðstafanir vel áður en tækið er notað til að fjarlægja andlitshár. Við mælum með því að þú notir millistykki fyrir andlitsmeðferð við meðhöndlun andlitshára. Millistykki fyrir andlitshár hefur verið hannað sérstaklega fyrir smærri meðferðarsvæði og viðkvæmari húð andlitsins. Það gefur frá sér einn ljósblossa í einu í þeim styrkleika sem þú velur. Millistykki fyrir andlit fylgir með tækinu eða er hægt að kaupa sér hjá Eirbergi.
VARÚÐ NOTIÐ EKKI háreyðingartækið á svæði í kringum augu. EKKI MÁ nota tækið til að móta augabrúnir, þar sem meðferðin dregur varanlega úr hárvexti. NOTIÐ EKKI til að fjarlægja skegg á karlmanni, þar sem meðferðin dregur varanlega úr hárvexti. EKKI MÁ meðhöndla fæðingabletti eða aðra dökka bletti. Notaðu hvítan augnblýant til að hylja slíka bletti á meðan á meðferð stendur. Þú getur einnig notað þykkt blað eða pappa til að hylja stærri svæði. EKKI MÁ meðhöndla húðflúruð svæði. EKKI MÁ meðhöndla hársvörðinn. NOTIÐ EKKI á hár í nösum eða eyrum, þar sem þau svæði eru mjög viðkvæm. Forðist að meðhöndla mjög fín hár (s.s. nasahár) með mē elōs háreyðingatækinu, þar sem það gæti leitt til óeðlilegs hárvaxtar. LÁTIÐ EKKI sól skína á meðhöndluð svæði á meðferðartímabili. Notið sólarvörn. Bíðið í a.m.k. 2 vikur eftir síðustu meðferð, þar til meðhöndluð svæði sjá sól eða ljósabekk. NOTIÐ EKKI farða eða vörur sem innihalda ilmefni á andlit í allt að 24 klst. eftir meðferð, þar sem það gæti valdið óþægindum. Ef þú finnur fyrir óeðlilega miklum sársauka á meðan á meðferð stendur skaltu stöðva meðferðina. Húðin getur roðnað fyrstu 24 klst. eftir meðferð. Ef roðinn hverfur ekki innan þess tíma skal ráðfæra sig við lækni.
12
HOMEDICS me ˉ
Háreyðing í andliti: Gættu þess að framkvæma húðertingarpróf á óáberandi svæði áður en þú byrjar meðferð (sjá skref 2 að ofan). 1. Þvoðu húðina vandlega og fjarlægðu hár þess svæðis sem á að meðhöndla. Þú getur notað plokkara, vax, rakvél o.s.frv. Ekki má nota mē hárplokkarann á andlitshár, þar sem hann var ekki hannaður fyrir notkun í andliti . 2. Notaðu hvítan augnblýant til að hylja þau svæði sem ekki á að meðhöndla, svo sem útlínur vara og fæðingabletti. 3. Vertu í björtu herbergi. 4. Kveiktu á tækinu og veldu lægsta meðferðarstyrkleika. Settu hlífðargleraugun á þig (eða sólgleraugu). Ef þú átt millistykki fyrir andlit skaltu setja það í samband við meðferðarhausinn. Millistykkið leyfir tækinu aðeins að gefa frá sér einn ljósblossa í einu í þeim styrkleika sem þú hefur valið. 5. Ýttu á elōs hnappinn á meðferðarhausnum til að kveikja á honum. 6. Tylltu meðferðarhausnum mjúklega á það svæði sem þú ætlar að meðhöndla. Ýttu aftur á elōs hnappinn á meðferðarhausnum til að framkalla leifturljós. Ef þú finnur ekki fyrir neinum óþægindum máttu auka styrkleika meðferðarinnar. 7. Komdu meðferðarhausnum fyrir á næsta svæði sem þú vilt meðhöndla og ýttu á elōs hnappinn á meðferðarhausnum til að framkalla annað leifturljós. Endurtaktu þessi skref þar til þú hefur farið yfir allt svæðið sem þú vilt meðhöndla. Bíddu í a.m.k. 10 sekúndur þar til þú ferð yfir sama svæði aftur. ATH: Byrjaðu alltaf á lágum styrkleika, ef þér líður vel og finnst þú vera tilbúin(n) getur þú aukið styrk meðferðarinnar til að ná betri árangri.
memyelos.com
13
ÍSL
Að viðhalda mjúkri og hárlausri húð Til að ná sem bestum árangri skal meðhöndla hvert svæði með mē elōs tækinu einu sinni í viku í 7 vikur. Þegar svæðið hefur verið meðhöndlað 7 sinnum er gott að viðhalda árangrinum með viðbótameðferðum þegar hárin byrja að vaxa aftur. Svæði í andliti skal meðhöndla einu sinni í viku eða aðra hverja viku. ATH: Ef þér finnst hár tiltekins svæðis of áberandi getur þú meðhöndlað það svæði á tveggja daga fresti.
Lengd meðferðar Til að ná sem bestum árangri skal fylgja eftirfarandi leiðbeiningum um lengd meðferða:
ATH: Byrjaðu á lágum meðferðarstyrkleika. Þegar þú ert tilbúin(n) getur þú aukið styrkleikann til að ná betri árangri.
Eftir meðferð 1. 2. 3. 4. 5. 6.
Ýttu á aðalrofann á grunneiningunni til að slökkva á tækinu. Settu meðferðarhausinn í hólf sitt á grunneiningunni og taktu tækið úr sambandi. Þurrkaðu meðferðarhausinn og aukahluti með þurrum eða rökum klút. Geymdu tækið á köldum og þurrum stað, þar sem börn ná ekki til. Skolaðu húðina með volgu vatni og þurrkaðu með handklæði. Berðu rakakrem eða Aloe Vera gel á þau svæði sem þú meðhöndlaðir. Gættu þess að setja sólavörn á meðhöndluð svæði, ef þú ferð í sól á meðferðartímabilinu. Ef þú fylgir ekki þessum leiðbeiningum gæti húð þín bólgnað, myndað blöðrur eða orðið fyrir litabreytingum.
memyelos.com
14
ÍSL
Þrif og geymsla 1. Settu meðferðarhausinn í hólf sitt á grunneiningunni. 2. Ýttu á aðalrofann á grunneiningunni til að slökkva á tækinu. 3. Skolaðu húð þína með volgu vatni. 4. Berðu rakakrem á húðina. 5. Taktu tækið úr sambandi við rafmagn. 6. Þvoðu meðferðarhausinn með þurrum eða rökum og mjúkum klút. Ekki nota hreinsiefni með alkóhóli. 7. Ef þú notaðir aukahluti (s.s. rakvél eða hárplokkara): Taktu rakvélina eða plokkarann af meðferðarhausnum og settu hlífðarlokið á. Notaðu meðfylgjandi þvottabursta til að hreinsa rakvélina/plokkarann. Það er æskilegt að nota rakan og mjúkan klút við þrif. 8. Ef þú notaðir millistykki fyrir andlit: Taktu millistykkið af meðferðarhausnum og settu hlífðarlokið á. Hreinsaðu millistykkið með þurrum eða rökum klút. Ekki nota hreinsiefni með alkóhóli. 9. Þrífðu yfirborð grunneiningarinnar með þurrum eða rökum klút. Ekki nota hreinsiefni með alkóhóli. 10. Geymdu tækið á þurrum og köldum stað, þar sem börn ná ekki til.
15
HOMEDICS me ˉ
6.
ÍSL
Hvernig á að skipta um elōs hylki og aukahluti Að skipta um elōs hylki: 1. Gakktu úr skugga um að slökkt sé á tækinu og taktu það úr sambandi. 2. Taktu gamla hylkið úr meðferðarhausnum með því að renna því varlega af (sjá mynd). 3. Losaðu þig við gamla hylkið skv. leiðbeiningum á bls. 17. 4. Taktu nýja hylkið úr umbúðunum. Forðastu að snerta glerið. Fingraför og olía frá húðinni geta truflað skin ljóssins í gegnum glerið og dregið úr árangri meðferðar. 5. Renndu nýja hylkinu varlega inn í meðferðarhausinn, þar til þú finnur það smella á réttan stað. 6. Settu meðferðarhausinn í hólfið á grunneiningunni áður en þú kveikir á tækinu.
memyelos.com
16
ÍSL
Að skipa um mē rakvél, hárplokkara og millistykki fyrir andlit: 1. Gakktu úr skugga um að slökkt sé á tækinu og taktu það úr sambandi. 2. Taktu hlífðarlokið af meðferðarhausnum með því að renna því varlega af (sjá mynd 2). 3. Taktu rakvélina, hárplokkarann eða millistykkið úr umbúðunum. Renndu stykkinu varlega á meðferðarhausinn þar til þú finnur það smella á réttan stað (sjá mynd 3).
2.
4. Settu meðferðarhausinn í hólfið á grunneiningunni áður en þú kveikir á tækinu. 5. Kveiktu á tækinu. Það er tilbúið til notkunar. 3.
Förgun elōs hylkja a) Ef þú átt ekki nýtt hylki til skiptana skaltu gæta þess að setja hlífðarlokið á meðferðarhausinn í stað hylkis, til að vernda innviði hans. b) Vinsamlegast fylgdu settum reglum um förgun/endurvinnslu raftækja þegar þú losar þig við grunneininguna, meðferðarhausinn eða elōs hylki. WEEE-tilskipun Þetta merki gefur til kynna að ekki má henda þessu tæki með venjulegu heimilissorpi. Til að koma í veg fyrir þann skaða sem óábyrg losun úrgangs getur valdið umhverfinu og heilsu manna og dýra, skal fara með tækið á endurvinnslustöð þegar líftíma þess er lokið. Sjá frekari upplýsingar um endurvinnslu raftækja á sorpa.is.
17
HOMEDICS me ˉ
mē elōs er hannað þannig að það má nota við allar rafspennur. Það er því hægt að nota tækið hvar sem er í heiminum. Þú þarft þó ef til vill að kaupa millistykki, þar sem klær og innstungur eru ólíkar milli landa. Gættu þess að tækið blotni ekki þegar þú ferðast með það.
ÍSL GB
Að ferðast með mē elōs tækið
Notið ekki í blautu eða röku umhverfi.
memyelos.com
18
ÍSL
Vandamál – orsakir og lausnir Vandamál
Hvað þýðir það?
Hvað er til ráða?
Stjórnborð
19
Ljósin kvikna ekki.
Snúran er ekki í sambandi.
Settu snúruna í samband.
Öll ljós í stjórnborði við hlið elōs styrkleikahnapps, blikka.
Styrkleiki meðferðar hefur ekki verið valinn.
Veldu viðeigandi styrkleika. Viftan í meðferðarhausnum mun fara í gang, sem gefur til kynna kveikt sé á hylkinu.
elōs hnappur á meðferðarhaus blikkar.
Búið er að velja styrkleika meðferðar. elōs hnappurinn blikkar til að gefa til kynna að það þarf að ýta á hann.
Ýttu á hnappinn. Viftan í meðferðarhausnum mun fara í gang, sem gefur til kynna að hylkið sé í gangi.
Appelsínugult ljós blikkar við aðalrofa í stjórnborði.
Villa hefur komið upp.
Endurræsing: 1 . Taktu tækið úr sambandi. 2 . Bíddu þar til öll ljós slokkna (allt að 2 mínútur). 3 . Settu tækið aftur í samband og kveiktu á því. 4 . Færðu þig yfir í kaldara herbergi, þar sem hiti er undir 30°C og kveiktu aftur á tækinu.
elōs hylki framkallar ekki leifturljós.
1 . Rafsegulstangirnar snerta ekki húðina. 2 . Ekki hefur verið ýtt á elōs hnappinn á meðferðarhausnum.
Til þess að hylkið framkalli leifturljós þarf að uppfylla 3 skilyrði: Rafsegulstangirnar verða að snerta húðina, ýta þarf á elōs hnapp á meðferðarhaus og velja þarf styrkleika meðferðar.
HOMEDICS me ˉ
Hólf á meðferðarhaus er tómt.
Settu hlífðarlok eða nýtt hylki á meðferðarhaus.
Aukahlutahnappur á grunneiningu blikkar.
Hólf fyrir aukahluti á meðferðarhaus er tómt.
Settu millistykki fyrir andlit, rakvél, hárplokkara eða hlífðarlok á hólfið.
Viðvörunarljós blikkar.
Hylkið er að verða búið.
Undirbúðu þig undir að þurfa að skipta um elōs hylki.
Viðvörunarljós er alltaf kveikt.
Hylkið er búið.
Skiptu um elōs hylki.
Það er roði í húðinni eftir meðferð.
Húðin kann að roðna vegna meðferðarinnar. Roði hverfur yfirleitt innan 24 klst.
Ef roði hverfur ekki innan 24 klst. skal stöðva notkun tækis og ráðfæra sig við lækni eða hafa samband við Eirberg.
Það virðist ekki draga neitt úr hárvexti.
Gakktu úr skugga um að þú sért að fylgja leiðbeiningum um notkun tækis og lengd meðferða.
Árangur er breytilegur milli einstaklinga, líkamssvæða og eftir því hve vel leiðbeiningum er fylgt. Hafðu samband við starfsfólk Eirbergs fyrir frekari aðstoð.
Ég finn fyrir sársauka og hita í húðinni á meðan á meðferð stendur. Er það eðlilegt?
Sumir finna fyrir hita, náladoða eða kláða. Þessi óþægindi og hiti ættu þó að vera lítil eða í meðallagi.
Ef sársauki er mjög mikill eða ef hann viðhelst í meira en 24 klst. eftir meðferð, skal stöðva notkun tækis og ráðfæra sig við lækni.
ÍSL GB
Meðferðarhaus elōs styrkleikahnappur á grunneiningu blikkar.
Annað
memyelos.com
20
ÍSL
Ábyrgð og þjónusta Eirberg ábyrgist þessa vöru í 2 ár frá kaupum. Ábyrgðin nær yfir framleiðslugalla, en ekki slit vegna eðlilegrar notkunar. Ábyrgðin nær ekki yfir þann skaða sem tækið kann að hljóta vegna misnotkunar; slysfara; notkunar á aukahlutum sem ekki eru ætlaðir tækinu; breytinga sem gerðar eru á tækinu; eða annarra ástæðna sem Eirberg hefur ekki stjórn á. Ef tækið bilar eða er gallað skal skila því til Eirbergs ásamt kassakvittun. Starfsfólk Eirbergs mun eftir því sem við á, laga tækið eða skipta því út fyrir annað tæki.
Hafðu samband: Eirberg ehf. Stórhöfða 25 110 Reykjavík Sími: 569 3100 eirberg@eirberg.is eirberg.is
21
HOMEDICS me ˉ
Syneron Medical Ltd. er framleiðandi me ˉ elōs háreyðingartækisins en HoMedics Group Ltd. sér um dreifingu þess. Syneron Medical Ltd. áskilur sér þann rétt að gera breytingar á tækinu án fyrirvara, í því skyni að bæta frammistöðu og áreiðanleika þess. Þær upplýsingar sem Syneron Medical Ltd. og HoMedics Group Ltd. setja hér fram eru, eftir bestu vitneskju, nákvæmar og áreiðanlegar. Hins vegar, taka Syneron Medical Ltd. og HoMedics Group Ltd. ekki ábyrgð á notkun háreyðingartækisins. Syneron Medical Ltd. hefur einkaleyfisrétt, vörumerkjarétt og höfundarétt á me ˉ vörunum.
ÍSL
Upplýsingar um framleiðanda
Hvorki kaup á me ˉ vörum né upplýsingarnar í þessu skjali gefa þér einkaleyfisrétt, vörumerkjarétt eða höfundarétt á þessari vöru. Aðeins opinbert skjal frá Syneron Medical Ltd. getur gefið þér slíkan rétt. Gættu þess að lesa allar leiðbeiningar vandlega fyrir notkun. Copyright © 2012 HoMedics Group Ltd. Allur réttur áskilinn.
memyelos.com
22
ÍSL
Tákn og merkingar Þessi miði er festur við botn tækisins. Þar finnur þú nafn og heimilisfang framleiðanda, raðnúmer tækis, upplýsingar um rafmagn og þá staðla sem tækið er hannað í samræmi við. Notið ekki nálægt bleytu eða raka Tæki í flokki II Vörn gegn rafmagnshluta í flokki BF WEEE-tilskipun um endurvinnslu CE merking Fylgdu leiðbeiningum Þetta tæki er í samræmi við hluta 15 í (FCC) Federal Communications Commission reglunum CSA merking í BNA og Kanada
Varnir gegn innstreymi vatns: venjulegar. Þetta tæki má ekki nota nálægt eldfimu efni blönduðu við loft, súrefni eða nituroxíð.
23
HOMEDICS me ˉ
Litróf: 550 – 1200 nm Max Ljóseiginleikar: 4J/cm2 Tíðni rafbylgju: 6.78 MHz Mesta afl rafbylgju: 5 vött Leiðni RF 5J/cm2 Staðlar: Öryggisstaðlar EN 60335:1 2002(A1:2004; A2:2009) EN 60335-2-8 EN 60335-2-23: 2003 EN 60335-2-27: 2003 EN 60825-9 IEC 60601-1, 3rd útgáfa IEC 60601-1, 2nd útgáfa IEC 60601-1-11
Viðunandi aðstæður Geymsla og flutningur Hitastig: 10ºC - 55ºC (50ºF- 131ºF) Rakastig: 90% við 55ºC (131ºF) Þrýstingur: 700-1060hPa
ÍSL
Ítarupplýsingar
Notkun Hitastig: 10ºC - 30ºC (50F- 86ºF) Rakasig: Allt að 80% við 37ºC (99ºF) Hæð yfir sjávarmáli: Allt að 3900 m (13,000 ft) ATH: Ekki er hægt að nota tækið í meiri hita en 30°C (86°F). Ef tækið var geymt við mikinn raka skal leyfa því að þorna í a.m.k. klukkustund fyrir notkun.
EMC staðlar EN 61000-6-1:2007 EN 61000-6-3:2007 Rafmagn: 100-240 VAC, 50-60 Hz Mál og þyngd: 20 .5 x 15 x 9 cm [B x L x H) 1.17 Kg
memyelos.com
24
Frekari upplýsingar um me ˉ elōs háreyðingartækið má finna á vefsíðunni www.memyelos.com
Jan 2013 Allur réttur áskilinn. Syneron og mē eru vörumerki í eigu Syneron Beauty Ltd. Útgáfa 0113, REV . 01