Bókhald og almenn skrifstofustörf á Hvammstanga Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) leita að ábyrgum og traustum starfsmanni í 75-100% starf til að sinna bókhaldi og almennum skrifstofustörfum á skrifstofu samtakanna á Hvammstanga.
Umsjón og færsla bókhalds (þ.m.t. afstemmingar, útgáfa reikninga, innheimta, útgreiðslur, laun, verkbókhald, milliuppgjör o.fl.) Símsvörun Skjalavarsla Skýrslugerð Undirbúningur funda og viðburða Almennt skrifstofuhald Ýmiskonar aðstoð við framkvæmdastjóra
Menntun og reynsla sem nýtist í starfi, viðurkenndur bókari kostur Haldbær reynsla af færslu bókhalds í Navision bókhaldskerfi eða sambærilegum kerfum Nákvæmni og greiningarhæfni Framúrskarandi íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu eða riti Góð almenn tölvukunnátta, sérstaklega á Excel
Umsóknarfrestur er til og með 26. nóvember 2020 Umsóknir með ítarlegri ferilskrá og kynningarbréfi skulu sendar inn í gegnum ráðningavefinn www.alfred.is Nánari upplýsingar veitir Unnur V. Hilmarsdóttir, unnur@ssnv.is Upplýsingar um starfsemi SSNV er að finna á www.ssnv.is