Festingar fyrir palla og girðingar
Það er lykilatriði við smíði á trépöllum og girðingum að góðar festingar séu notaðar. Þær eru ýmist úr ryðfríu stáli eða varðar með sinki til að koma í veg fyrir tæringu. Með réttri notkun á vinklum, skrúfum og öðrum festingum verður flókin og spennandi útfærsla einföld í smíðum.
Klofið flatjárn neðst á staur tryggir góða festingu í steypuna.
Kofaloka - IPA læsing. Þægileg loka sem passar afar vel við ljósan viðinn.
Hurðalamir í stíl. Þessi gerð er sérstaklega hönnuð til að bera þunga hurð.
Galvanisering
Ryðfríar tréskrúfur
Galvanisering er sinkhúðun sem ver járn gegn tæringu. Áætlaður endingartími er 15 til 20 ár.
Í gagnvarinn við eru notaðar A4 tréskrúfur. A4 tréskrúfur eru ryðfríar og sýruþolnar.
Vinkill er notaður til að festa saman grind trépalls.
Þakásankeri tengir saman bita og dregara í trépalli, eins festing fyrir báðar hliðar.
Þakásankeri tengir saman bita og dregara í trépalli hægri og vinstri.
IPA-lamir notaðar t.d. á sorptunnugeymslur.
Vinklar í ýmsum stærðum eru notaðir til að festa saman girðingar.
Bjálkaskó má nota þegar grind trépalls tengist húsi. Þeir eru einnig gagnlegir ef þil í girðingu þarf að vera laust.
Búðu til þinn eigin sælureit
59