Heitir pottar Að slaka á í heitum potti eftir erfiðan vinnu-dag, umlukinn leyndardómsfullri gufu, er munaður sem margir vilja leyfa sér. Þarna líður þreytan úr líkamanum og þyngdarleysið í heita vatninu mýkir vöðvana og hressir upp á sálina. Til að þessi draumur geti orðið að veruleika þarf góðan undirbúning. Velja þarf potti stað, tryggja öryggi, finna út úr pípulögnum og sjá til þess að kröf ur byggingarreglugerðar séu uppfylltar.
44
Handbók garðeigandans
Þarf leyfi fyrir heitum potti?
Hvar á að staðsetja pottinn?
Til þess að heitur pottur sé fullkomlega lög legur þarf að teikna hann inn á aðalteikningu viðkomandi húss og fá samþykki hjá byggingar fulltrúa sveitarfélagsins. Arkitektar, byggingar fræðingar og verkfræðingar með leyfi sem aðalhönnuðir geta útbúið slíka teikningu og skrifað upp á hana. Byggingarfulltrúi getur einnig veitt leyfi fyrir minniháttar breytingum án þess að lagðar séu inn teikningar eða önnur hönnunargögn. Þá er rétt að spyrjast fyrir um það hjá sveitarfélaginu hvað þurfi að fylgja umsókn um heitan pott en samþykki fulltrúans á fyrst og fremst að tryggja að öryggiskröf um sé fullnægt og að ekki sé á einhvern hátt gengið á rétt nágranna. Í byggingarreglugerð er heitur pottur skilgreindur sem setlaug og þar segir að laugin verði að vera 0,4 m hærri en göngusvæðið í kring og að hún verði að vera útbúin læsanlegu loki.
Pottur sem er langt frá húsi hefur þann kost að baðsvæðið er vel aðskilið frá öðrum dvalarsvæðum garðsins. Þannig er ólíklegt að vatnssull og háreysti frá baðsvæðinu trufli aðra í garðinum. Þá eru sturta, snagar fyrir föt, raflýsing og jafnvel búningsaðstaða atriði sem geta ráðið því hvernig potturinn nýtist því óþægilegt getur verið að hlaupa langar leiðir hálfber í svartamyrkri. Þegar pottur er staðsettur nálægt húsi er algengt að honum sé valinn staður við suðurvegg því þar er sólin sterkust. Þetta getur verið góð staðsetning, sérstaklega með tilliti til vetrarsólar, en heitir pottar nýtast ekki síður á þeim árstíma. Staðsetningin má þó ekki vera á kostnað besta sólbaðssvæðisins og ef plássið er af skornum skammti má hugsanlega staðsetja hann þar sem kvöldsólar nýtur. Ef reiknað er með mikilli notkun þarf að skoða afstöðu sól baðssvæðis, matarborðs og pottsins, þannig að háreysti í potti trufli til dæmis ekki borðhald.