Lega girðinga
Uppsetning girðingaeininga
Aðalsmerki flestra garða er gróðurinn en á meðan aðrir þættir garðsins eldast og veðrast stækkar gróðurinn og verður blómlegri. Þess vegna er skynsamlegt að skoða gróðurval og staðsetningu um leið og ákvarðanir um girð ingar eru teknar. Vel valinn gróður beggja vegna girðingar og fjölbreytileiki í hæð, gerð og legu hennar tryggir fegurð garðsins í fram tíðinni.
Staurunum er komið fyrir á sama hátt og ef um væri að ræða girðingu smíðaða á staðnum, en því er lýst í girðingahluta handbókarinnar. Þeim er stillt upp með því að nota stífur og settir í rétta línu með hjálp snúru og síðan er lóðrétt staða þeirra tryggð með hallamáli. Staurana þarf að stilla mjög vandlega af svo að ekki myndist óeðlilegt bil milli staursins og einingarinnar.
Smáatriðin skipta máli Girðingaeiningar setja mikinn svip á garðinn og með góðum lokafrágangi fær hann sinn eigin sérstaka stíl. Raflýsing, blómapottar, sumar blóm, listaverk og falleg garðhúsgögn eru allt atriði sem vert er að taka með í hönnunina. Vönduð raflýsing gefur garðinum ljóma og þar með þá tilfinningu að við séum stödd í allt öðrum garði en þeim sem við njótum á sólríkum sumardögum. Þá má lýsa upp girðingar með niðurfelldum ljósum sem beina geislunum upp eftir þeim og „teikna“ á þær keilulaga mynstur. Girðingarnar má prýða með veggljósum sem ýmist lýsa upp eða niður. Það má einnig hengja blómakörfur á þær. Ekki má gleyma því að innstungur á vel völdum stöðum koma sér vel fyrir ljósaseríur um jólin og færanleg útiljós.
Girðingaeiningar á að festa við staurana með löngum ryðfríum skrúfum. Borað er fyrir skrúfunum í gegnum einingarnar með 60 cm millibili. Dæmi: Í girðingaeiningu sem er 1,80 m á hæð eru settar 3 skrúfur hvorum megin, en skarast um 30 cm (ekki hver á móti annarri). Skrúfuhausunum er sökkt inn í viðinn.
Þegar einingarnar eru festar við staurana eru notaðar til þess franskar skrúfur. Notuð eru 2 til 6 stk. 150 mm langar skrúfur í hverja einingu, allt eftir stærð og lögun einingarinnar. Skrúfurnar eru látnar ganga lárétt en á ská í gegnum staurinn og í girðinga eininguna. Fyrir skrúfunum þarf að bora með löngum bor til þess að borvélin komist fyrir. Einnig má nota framlengingu á borvélina. Til þess að frágangurinn verði fallegur má bora víðara gat efst þannig að haus skrúfunnar falli að yfirborði viðarins.
Tvær útfærslur af því hvernig hægt er að festa einingarnar við staurana.
Búðu til þinn eigin sælureit
37