Æskan og skógurinn

Page 35

ágúst má venjulega hefjast handa á nýjan leik en hætta aftur í lok þess mánaðar. Þó má halda áfram nokkru lengur ef gróðursett er inni í skógi eða kjarrlendi.

Staðarval Enginn skyldi hefja trjáplöntun fyrr en hverri tegund hefur verið valinn staður og reiknað út hve mikið land fer undir væntanlega plöntun. Þetta þarf að gera áður en plönturnar eru pantaðar svo tryggt sé að hver tegund fái jarðveg við sitt hæfi. Flokkun á landi eins og sagt er frá í kaflanum um jarðveg og grósku kemur í veg fyrir að menn panti óhentugar trátegundir.

Útvegun plantna Þá kemur að því að útvega plöntur en þær verður að panta tímanlega frá næstu gróðrarstöð. Ef gróðursetja á greni mega plönturnar ekki vera yngri en fjögurra ára. Stærð og aldur plantnanna verður þó ætíð að miða við vaxtarskilyrði á staðnum. Þar sem grasvöxtur er mikill skal eingöngu planta stórum og þroskamiklum plöntum. Ekki sakar að skýra frá plöntunarstað, ástandi girðingar, landstærð og landgæðum um leið og plönturnar eru pantaðar svo að skógarverðir eigi auðveldara með að átta sig á verkinu og gefa leiðbeiningar.

Vinnutilhögun Alla vinnu verður að skipuleggja mjög vel áður en plönturnar koma á áfangastað. Verkfæri þurfa að vera næg og góð og útvega þarf eftirfarandi áhöld í tæka tíð: bjúgskóflur, haka, stunguskóflu, þjalir, trjáklippur, beittan hníf, plöntupoka, snúrur og hæla eða merkjaflögg. Allt á að vera komið á staðinn áður en plönturnar koma svo að verkið geti hafist án tafar. Þegar plöntur koma á áfangastað skulu þær strax leystar úr umbúðunum, greiddar varlega í sundur og síðan settar í rásir.

36


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.