HAMAR
1. tölublað - 77. árgangur
S JÁ L F S TÆ Ð I S F L O K K U R I N N
xdhafnarfjordur.is
Sjálfstæðisflokkurinn óskar Hafnfirðingum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári
HAMAR
Útgefandi: Sjálfstæðisfélag Hafnarfjarðar – Blaðstjórn: Hilmar Ingimundarson – Forsíðumynd: Olga Björt Ábyrgðarmaður: Kristjana Ósk Jónsdóttir – Umbrot & Prentvinnsla: Prentun.is
HAMAR
Jólahugvekja
Styrkleiki í veikleika Lesandi góður! Það er margt sem heillar við blessuð jólin. Betri matur en vanalega, skreytingar, gjafir, fleiri samverustundir, þetta helsta sem við þekkjum og gerum ráð fyrir um hver jól. Hjá sumum dýpka jólin frekar gleðina, hjá öðrum dýpka jólin frekar sorgina. Við gerumst jafnframt eilítið „nostalgísk.“ Hver kannast ekki við atriðið úr hinni margrómuðu jólagamanmynd „Christmas Vacation“ hvar heimilisfaðirinn lokast uppi á háalofti og finnur þar 8mm filmur frá fyrri árum sem hann spilar og ornar sér við og tárin streyma? Ógleymanlegt atriði. En það er eitthvað við jólin sem magnar upp allt tilfinningalitrófið okkar og að því leytinu til er þessi hátíð svo áþreifanleg, hún ýtir við þér. Þau sem vilja ekki viðurkenna það hrista bara höfuðið en eru á sama tíma að velta þessu samt fyrir sér. Þetta er allt að því dulrænt. Og hvað ætli það geti verið? Þrátt fyrir að ófá hafi gert tilraunir til að afsanna Betlehemsfrásögn af Jesúbarni og hún í gegnum árin margsinnis sögð vera hin mestu hindurvitni og jafnvel ævintýri sem best sé þó að halda frá börnum, þá innifelur hún engu að síður í sér djúpstæð sannindi sem vert er að staldra við. Þar finnum við nefnilega sannleikann um styrkleikann í veikleikanum. Sjáum til! Hverjum hefði í raun dottið það í hug að Guð almáttugur, í alveldi sínu, myndi teygja sig til jarðar, snerta jörðina í barni fátækra foreldra á flótta hvar þeir fá það í hendur við eins frumstæðar aðstæður og unnt er. Eiga guðirnir ekki að mæta á svæðið eins og ofurmenni kvikmyndanna og bjarga sér og sínum og öllum heiminum með krepptum hnefanum? Gerum við ekki alltaf ráð fyrir því. Við viljum að myndin endi vel, að mennið með
2
ofurkrafta reddi þessu bara þegar allt er farið í bál og brand. Fyrr verðum við ekki róleg. Nei, sagan frá Betlehem snýst ekki um það, heldur þvert á móti sýnir hún okkur ár eftir ár, trekk í trekk, fram á þennan mystíska styrkleika í veikleikanum. Þegar við stöndum berskjölduð frammi fyrir hindrunum og erfiðleikum tilverunnar eins og ósjálfbjarga börn, vitum ekkert í hvorn fótinn við eigum að stíga, áttum okkur ekkert á því hvert ofurkraftar náttúrunnar eru að leiða okkur, hvað þá slysin og hætturnar, stríðin og heimsins ólga, mitt í öllum þeim hræringum þegar allt virðist vera sem þokuvíl er fylgir kvíðaspori vondeyfðar, uppgötvum við birtu kærleikans úr margvíslegum hornum, meira að segja þeim sem við áttum ekki von á, birtu samstöðu og samvitundar, birtu upprisunnar sem felur í sér æðruleysið og hefur hjálpað fjölmörgum fjölskyldum að takast á við vanda vímunnar svo dæmi sé tekið. Það er í raun þessi birta sem stafar frá gripahúsinu í Betlehem, styrkleikinn í veikleikanum. Gleðileg jól! Sr. Bolli Pétur Bollason, prestur Ástjarnarkirkju
HAMAR
Bestu óskir um gleðilega hátíð
Hafnarfjörður skín skært um þessar mundir í orðsins fyllstu merkingu. Jólaljósin ylja sem aldrei fyrr og íbúar og gestir streyma í miðbæinn til að upplifa ljúfa jólastemningu í Jólabænum. Ljósin lýsa upp tilveruna á annars myrkasta tíma ársins og gefa von um bjartari tíma þegar daginn tekur að lengja á ný. Við Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði erum stolt af okkar verkum í þágu íbúa og fyrirtækja bæjarins á árinu og lítum björtum augum til komandi árs. Tækifærin til að bæta og auðga bæjarandann, þjónustuna og starfsemina eru allt umlykjandi og okkar allra er að grípa þau og láta góðu hugmyndirnar verða að veruleika. Það er verkefni okkar kjörinna fulltrúa í góðu samstarfi og samráði við íbúana og fyrirtækin. Við Sjálfstæðismenn hlökkum til áframhaldandi samstarfs, þökkum samfylgdina á árinu og óskum Hafnfirðingum gleðilegrar hátíðar og farsældar á nýju ári.
VÉLSMIÐJA KONRÁÐS JÓNSSONAR KONNIJONS@SIMNET.IS 6933844
THOR SHIP 3
HAMAR
Heimsins bestu myndakökur
Svavar Halldórsson formaður Sjálfstæðisfélagsins Fram gefur okkur uppskrift að sínum uppáhalds jólasmákökum sem fylgt hefur fjölskyldunni í gegnum árin og eru ómissandi á hans heimili fyrir jólin. Hjá okkur flestum er aðventan í senn bæði erilsamur og ánægjulegur tími. Jólahlaðborð, laufabrauðsbakstur og mannamót af ýmsum toga eru mikilvægur hluti lífsins á þessum árstíma. Öll eigum við okkar uppáhalds jólahefðir. Á mínu heimili er myndakökugerð ómissandi upphitun fyrir jólin. Fjölskyldan kemur saman, gjarna síðustu helgina fyrir jól, og sker út myndakökur úr sýrópsdeigi. Margir nota piparkökudeig í sama tilgangi en svona er okkar hefð. Uppskriftina fékk ég frá móður minni, Vigdísi Ingibjörgu Ásgeirsdóttur. Kökugerð og skreytingar voru hluti af námi hennar í Húsmæðraskólanum á Blönduósi fyrir nærri sjötíu árum og þaðan kemur uppskriftin. Þetta eru bragðbestu myndakökur sem ég hef smakkað. Þegar búið er að baka, iðulega mörg hundruð kökur, er komið að því að skreyta. Þá fær listamaðurinn í ungum sem öldnum fjölskyldumeðlimum að blómstra. Við útbúum glassúr í ýmsum litum og notumst líka stundum við skrautsykur. Verði ykkur að góðu.
Sírópskökur Innihald Marengs 150 gr. sykur 250 gr. síróp 1 tsk. engifer 3 tsk. kanill ½ tsk. allrahanda ½ tsk. kardimommudropar 2 tsk. natron 150 gr. smjörlíki 1 egg 500 – 600 gr. hveiti
Aðferð Sjóðið sykur, síróp og krydd í potti. Setjið natron í og hrærið þangað til þetta fer að freyða. Setjið smjörlíkið í skál og hellið bráðinni sykurblöndunni yfir. Hrærið þar til smjörlíkið er bráðið. Látið kólna. Bætið egginu út í þegar deigið er orðið kalt. Blandið hveitinu í og hnoðið. Þetta deig er gott í fígúrur og hús. Fletjið deigið út og skerið út fígúrur. Bakið við 160 – 180 gráður þar til kökurnar eru orðnar fallega ljósbrúnar. Látið kökurnar kólna og skreytið með glassúr. Gleðilega hátíð.
Ungur atvinnurekandi ,,Það gengur vel að reka fyrirtæki í Hafnarfirði og ekki amalegt að komast í vinnuna án þess að eyða löngum stundum í bílnum ,“segir Júlíus Freyr Bjarnason, 22 ára athafnamaður sem rekur fyritækið Rafbox á Völlunum. Júlíus er vélfræðingur og rafvirki sem fæddist í Laxárvirkjun í Aðaldal en flutti á barnsaldri í Setbergið þar sem hann býr enn. Hugmyndin að Rafboxi kviknaði við eldhúsborðið þegar Júlíus Freyr var 17 ára. Hann sat þar með systur sinni og kærastanum hennar. Fyrirtækið flytur inn sænskar hleðslustöðvar frá Charge Amps og hefur vaxið og dafnað með fjölgun rafbíla sem fylgir orkuskiptum í samgöngum. Ungi athafnamaðurinn hefur lengi haft áhuga á rafbílum og reyndist sannspár þegar hann sá fyrir þá miklu fjölgun sem orðið hefur á slíkum farartækjum síðustu ár. Stolt af því að vera hafnfirskt fyrirtæki ,,Fyrirtækið selur og þjónustar rafstöðvar fyrir allar gerðir rafbíla, vörubíla og vinnuvéla. „Mér fannst mikilvægt að byrja snemma og vera búinn að skapa mér nafn og vera með reynslu af markaðnum þegar fyrirsjánleg fjölgun yrði og markaðurinn færi að stækka,“ segir Júlíus Freyr. Rafbox blómstrar og meðal viðskiptavina eru bæði heimili og húsfélög, og mörg af stærstu fyrirtækjum landsins. Vöxturinn er hraður og starfsmönnum fjölgar jafnt og þétt. „Við höfum alltaf verið í Hafnarfirði og erum við stolt að því að vera hafnfirskt fyrirtæki. Starfseminn hófst á sínum tíma í bílskúr, fór svo iðnaðarhúsnæði á Völlunum og nú er búið að ganga frá kaupum á enn stærra húsnæði í sama hverfi.“
4
Júlíus Freyr við Aura hleðslustöð eins og Rafbox flytur inn.
Spennandi tækifæri í grænni nýorku Þótt Júlíus Freyr reki vaxandi fyrirtæki í hverfi sem nú er að verða að einu öflugasta og eftirsóttasta iðnaðarsvæði landsins, þá lætur hann ekki þar við sitja. Hann stundar verkfræðinám í Háskóla Íslands, tekur virkan þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins og spilar handbolta með ÍH. Þótt ungur sé hefur honum tekist að byggja upp farsælt fyrirtæki. „Við horfum til spennandi tækifæra á sviði grænnar nýorku þar sem við viljum áfram afla okkur sérþekkingar og byggja upp,“ segir athafnamaðurinn ungi. „Með bættum samgöngum og vistlegra umhverfi getur bærinn stutt við atvinnusköpun eins og okkar“.
HAMAR
Árangur og ánægðir íbúar Mikil uppbygging og þróun þjónustunnar Senn er enn eitt árið á enda og aðventan í algleymingi þar sem mild jólaljósin gleðja okkur hvert sem litið er. Við áramót ríkir jafnan eftirvænting og við hugleiðum hvað nýja árið muni bera í skauti sér. Rósa Guðbjartsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði og bæjarstjóri ræðir við JólaHamar á þessum tímamótum. halda áfram og gera það að verkum að fjölskyldur með tvö eða fleiri börn í skóla greiða lægra verð en þekkist í mörgum öðrum sveitarfélögum. Ákveðið hefur verið að fara í útboð á skólamat á fyrri hluta ársins 2024 og stendur vinna við kröfulýsingu yfir. Vonir standa til að hægt verði að ná hagstæðari verðum í útboðinu en eru í gildi núna. Þá hefur meirihluti bæjarstjórnar lagt áherslu á að sá möguleiki sé fyrir hendi að endurskoða gjaldskrárbreytingar með hliðsjón af þeim kjarasamningum sem nást á komandi mánuðum. Og vert er að benda á að gjaldskrá vegna sorphirðu er almennt að hækka um 9,9% en breytt samsetning sorpíláta hjá íbúum getur dregið talsvert úr þeirri hækkun.“
„Það hefur verið í mörg horn að líta hjá bæjarstjórn á árinu sem er að líða eins og jafnan áður og ýmislegt spennandi framundan á nýju ári,“ segir Rósa í spjalli við Jóla-Hamar. „Málefni leikskóla og dagvistunar barna hafa verið í brennidepli undanfarna mánuði enda mikilvægt fyrir samfélagið allt að það kerfi virki. Til að bregðast við áskorunum í þeim efnum hafa verið gerðar miklar breytingar á leikskólakerfinu hér í Hafnarfirði og við höldum því áfram á komandi ári. Það þarf einfaldlega að þróa leiðirnar áfram til að geta boðið þá þjónustu sem nauðsynleg er. Þótt nægt pláss sé í leikskólunum þá þarf að tryggja að deildirnar séu fullmannaðar starfsfólki svo hægt sé að taka á móti börnunum. Ég bind miklar vonir við að við séum að móta og skapa nýja framtíð leikskólanna með breytingunum sem boðaðar hafa verið. Í ört stækkandi sveitarfélagi þarf svo að gera ráð fyrir nýjum leik- og grunnskólum og verður nýr sex deilda leikskóli byggður við Áshamar í nýjasta hverfi bæjarins í Hamranesi á nýja árinu. Undirbúningur fyrir næsta leik- og grunnskóla á svæðinu er líka að fara í gang.“ Góður rekstur mikilvægur Fjárhagsáætlun hvers árs er jafnan stefnumörkun bæjarstjórnar og því afar mikilvæg vinna sem á sér stað á hverju hausti við að undirbúa hana. Nú á aðventunni var fjárhagsáætlun fyrir árið 2024 samþykkt í bæjarstjórn. Hvað er það helst sem þar kemur fram? ,,Allt frá því við Sjálfstæðismenn komumst í meirihluta bæjarstjórnar Hafnarfjarðar fyrir bráðum tíu árum höfum við unnið að því að ná skuldaviðmiðum niður enda var skuldavandi bæjarfélagsins orðinn verulega íþyngjandi og kominn á alvarlegt stig. Þess vegna er það mjög ánægjulegt að skuldaviðmið heldur áfram að lækka og stefnt er að því að það verði komið í um 86% í lok næsta árs en sveitarfélögum er nú gert að hafa það undir 150%. Til þess að ná þessum markmiðum er lögð áhersla á að rekstur bæjarins sé agaður og að virðing sé borin fyrir fjármunum skattgreiðenda. Einnig að halda lántökum í algjöru lágmarki og framkvæma sem mest fyrir eigið fé. Við gerum ráð fyrir ríflegum afgangi af rekstrinum á komandi ári sem kemur sér vel enda mikið framkvæmdaár framundan, en fyrirhugaðar eru framkvæmdir fyrir um 8,5 milljarða króna. Góður rekstur undanfarin ár hjálpar til nú þegar efnahagsaðstæður í þjóðfélaginu eru krefjandi. Við leggjum sem fyrr áherslu á að efla enn frekar þjónustu við bæjarbúa og viðhalda og byggja upp góða innviði.“
Komið til móts við hækkað fasteignamat Verða breytingar á álögum og gjöldum á næsta ári? „Álagningarprósentan helst óbreytt og álagningarhlutfall fasteignaskatta á íbúða- og atvinnuhúsnæði er lækkað til að koma til móts við hækkað fasteignamat á árinu. Gert er ráð fyrir að flestar gjaldskrár hækki um 9,9% um áramótin þótt útgjöld bæjarins í málaflokkunum aukist umtalsvert meira á árinu, sbr. um 24% í fjölskylduþjónustu og 16% í fræðsluþjónustu vegna nýrra samninga við þjónustuaðila. En Hafnarfjarðarbær hefur ekki hækkað gjaldskrár sínar að hausti eins og mörg nágrannasveitarfélög hafa gert. Einnig er vert að benda á að í breytingum á skipulagi leikskólastarfs er gert ráð fyrir að gjöld fyrir sex tíma vistun á dag lækki umtalsvert frá því sem nú er. Gjaldskrá Skólamatar ehf hækkaði hins vegar umtalsvert í haust en niðurgreiðsluhlutfalli bæjarins var haldið óbreyttu. Hækkunin kom því jafnt niður á notendum þjónustunnar og Hafnarfjarðarbæ. Mjög góðir systkinaafslættir
Jólabærinn Hafnarfjörður kominn til að vera Það hefur ekki farið framhjá neinum sem átt hefur leið um miðbæ Hafnarfjarðar og víðar að bærinn stendur sannarlega undir nýja viðurnefninu Jólabærinn. Sífellt fleiri heimsækja bæinn til að upplifa einstaka jólastemningu. Hvernig vilt þú sjá Jólabæinn þróast á komandi árum? ,,Í mínum huga er þessi áhersla á að töfra fram hlýlega og skemmtilega jólastemningu að heppnast mjög vel. Bærinn er að skapa sér sérstöðu hvað þetta varðar og við erum ákaflega stolt af því hvernig til hefur tekist. Jólaþorpið á Thorsplani er 20 ára en fyrir nokkrum árum tókum við upp á því að skreyta og lýsa bæinn meira upp en áður hafði verið til að auka jólastemninguna og laða enn fleiri til bæjarins. Nú á allra síðustu árum hefur einhverju verið bætt við á hverju ári, ný ljós hér og þar, upplýst Hellisgerði, skreytt hjörtu og skautasvell. Í ár hefur ýmsu verið bætt við eins og stórum glerhýsum á Thorsplan sem við köllum upplifunarhús þar sem hægt er að fara inn og njóta, upplýstum svönum við Lækinn við Hafnarborg og Jólahjarta Hafnarfjarðar fyrir aftan Bæjarbíó svo eitthvað sé nefnt. Það er mjög gaman að heyra hve íbúarnir og rekstraraðilar í bænum eru ánægðir með þessa þróun og ekki síður allir aðrir gestir sem sækja okkur heim til að njóta og upplifa hlýlega jólastemningu í Jólabænum okkar. Við þurfum að hlúa vel að Jólabænum, halda snyrtimennsku og aðgengi góðu og vera jafnan vakandi fyrir nýjum hugmyndum að skreytingum og upplifunum svo hingað verði ætíð gaman að koma, “ segir Rósa og óskar lesendum Hamars gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
5
HAMAR
Jólastemning á Norðurbakkanum Það var notaleg jólastemning allsráðandi á jólalegum viðburðum í félagsheimili Sjálfstæðismanna á Norðurbakkanum á aðventunni. Góðir félagar komu saman, nutu ljúfra veiga og jólatóna og umfram allt höfðu gaman saman. Margir góðir gestir sóttu okkur Sjálfstæðismenn heim, meðal annarra vinkonur úr Landssambandi Sjálfstæðiskvenna sem héldu jólafund sinn í Hafnarfirði að þessu sinni. Á meðal gesta þar var Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins sem ræddi helstu viðfangsefnin í nýju ráðuneyti. Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri fór yfir Jólabæinn Hafnarfjörð og hvernig markvisst hefur verið unnið að því að láta bæinn ljóma á aðventunni undanfarin ár.
6
HAMAR
BÆJARHORN Brettafélag Hafnarfjarðar í nýtt húsnæði á Völlum
Hellisgerði á aðventu
Brettafélag Hafnarfjarðar er eitt hinna ört vaxandi félaga í bænum sem sinna nýrri greinum íþrótta og tómstunda. Félagið hefur starfað í rúman áratug en þar stunda nú yfir 400 iðkendur, á aldrinum 5 til 18 ára, skipulagðar æfingar og að auki sækir fjöldi barna og unglinga innanhússaðstöðu félagsins á degi hverjum. Fram til þessa hefur félagið haft aðstöðu fyrir starfsemi sína á Flatahrauni 14, þar sem Slökkvistöð Hafnarfjarðar var áður til húsa. Nú horfir til mikilla bóta í húsnæðismálum félagsins, en bæjarráð Hafnarfjarðar hefur samþykkt að taka á leigu húsnæði við Selhellu 7 þar sem sem ný og betri aðstaða fæst fyrir Brettafélagið. Húsnæðið er vel staðsett á Völlum, við vaxandi hverfi Hafnarfjarðar og nærri stoppistöð Strætó. Bæjarstjóri mun, ásamt sviðsstjórum, vinna áfram að frekari útfærslu þessa nýja rýmis sem bærinn tekur á leigu á nýju ári.
Nýtt hjúkrunarheimili í Hafnarfirði Þörf fyrir aukin og bætt úrræði í velferðarmálum hefur ekki farið framhjá neinum – annars vegar hjúkrunarheimili fyrir elstu borgara okkar og hins vegar heilsugæslu fyrir íbúa bæjarins á öllum aldri. Á vegum Hafnarfjarðarbæjar hefur um nokkurt skeið farið fram undirbúningur að næstu skrefum í þessum framfaramálum í bænum og nú þegar liggja fyrir næstu skref. Í nóvember sl. veitti bæjarráð Hafnarfjarðar Sóltúni heilbrigðisþjónustu ehf. vilyrði til eins ár fyrir lóð við Hringhamar í Hamranesi, þar sem ætlunin er að rísi hjúkrunarheimili og önnur þjónusta fyrir eldri borgara. Þar er gert ráð fyrir allt að 80 hefðbundnum hjúkrunarrýmum, með sérrýmum og sameiginlegum svæðum, en lóðarhafi mun sjálfur annast rekstur og uppbyggingu þjónustunnar.
7
HAMAR
Úr flokksstarfinu
8
HAMAR
Ný ásýnd Lækjargötu við miðbæinn
Þegar ekið er inn í miðbæ Hafnarfjarðar eftir Lækjargötu fer ekki fram hjá neinum að ásýnd götumyndarinnar hefur tekið stakkaskiptum. Iðnaðarhúsið Dvergur, sem komið var til ára sinna, hefur vikið fyrir fallegum húsum sem hýsa íbúðir á efri hæðum og atvinnustarfsemi á jarðhæð. Nýja byggðin á lóð Dvergs er byggð á hönnun sem hlaut fyrstu verðlaun í samkeppni um svæðið, þar sem markmiðið var að tengja með fallegum hætti nýja byggð við þá eldri. Nýlega var hönnunin og uppbyggingin á reitnum tilnefnd sem staður ársins í Hönnunarverðlaunum Íslands árið 2023. Í rökstuðningi dómnendar segir:
Reiturinn er höfundum sínum, verkkaupa og sveitarfélaginu, til mikils sóma og þar er þétting byggðar vel heppnuð. Í verkefninu er fallega unnið með umfang og form nærliggjandi húsa og haganlega sköpuð rými eru á milli bygginganna, þrátt fyrir mikinn þéttleika. Efnisval er nútímalegt, en vísar í nærliggjandi hús og minnkar sýnilega stærðarskölun með markvissri notkun breytileika í efnisvali. Þegar betur er að gáð er leikur að formum húsanna og jafnvel árekstur, sem gefur þeim kæruleysislegt, ef ekki hreinlega gamansamt yfirbragð. Áður stóðu verksmiðjuhús Dvergsins á reitnum. Lögð var áhersla á að nýbyggingar á lóðinni væru hannaðar með þeim hætti að þær féllu sem best að fíngerðara útliti nærliggjandi byggðar. Markmið hönnunarinnar var að skapa eins konar þorpsanda, ramma fyrir hlýlegt mannlíf, sem bæði íbúar sem hafa eigið viðverusvæði í skjólgóðum húsagarði fjær götunum og gestir sem sækja verslun og þjónustu á jarðhæðunum, geta notið. Óhætt er að segja að með nýrri byggð á lóð Dvergs hefur vel tekist til og jafnframt hefur frágangur handriða og gangleiðin meðfram Læknum handan götunnar verið endurbætt. Nú þegar hefur verið flutt inn í stóran hluta húsnæðisins, þar sem nýir íbúar og lifandi atvinnurekstur Gamla Dvergshúsið rifið árið 2017. við Lækjargötuna glæða miðbæinn okkar nýju lífi.
reykjavikasian.is
9
HAMAR
Nýjar tillögur í leikskólastarfi kynntar Hafnarfjarðarbær hefur verið leiðandi þegar kemur að breytingum í starfsumhverfi leikskólakennara. Stigið var stórt skref í byrjun ársins þegar breyting var gerð á vinnutíma leikskólakennara og annarra háskólamenntaðra starfsmanna. Nýverið skilaði starfshópur af sér 11 tillögum sem hafa það allar að markmiði að stuðla að betra leikskólalífi. Hamar fékk Kristínu Thoroddsen formann fræðsluráðs til að útskýra breytingarnar en hún var í forsvari starfhópsins. Kristínsegir tillögurnar eiga að minnka álag bæði á börn og starfsfólk, auka sveigjanleika og styrkja leikskólastigið enn frekar. “Leikskólinn er okkur afar mikilvægur fyrir menntun og þroska barnanna en hann þarf líka að henta foreldrum og þeirra þörfum. Lögð var áhersla á að vinna tillögurnar í samstarfi við hlutaðeigendur enda er þeirra rödd mikilvæg. Við höfðum það að markmiði að auka sveigjanleika foreldra og bjóða uppá töluvert lægri gjöld fyrir 6 tíma án þess þó að auka kostnað þeirra sem þurfa á lengri vistun að halda. Leikskólinn er fyrsta skólastigið og vildum við draga fram í leikskóladagatalinu hvenær er nám og hvenær frístund og gefa þessu enn meira vægi í tillögum okkar. Þannig náum við að nýta sem best menntun og styrkleika starfsfólks okkar og það fái að njóta sín sem best “ segir Kristín.
Breytingarnar eru meðal annars þessar: Skipulag leikskóladagsins Starfsemi innan leikskóladagsins og leikskólaársins verður tvíþætt. Annars vegar kennsla og hins vegar frístundastarf . Leikskóladagatal Kennsludagar verða 180 dagar yfir árið. Aðra daga er boðið upp á frístundastarf með sama vistunartíma. Þá daga þurfa foreldrar og forsjáraðilar að skrá börn sín sérstaklega. Stytting vinnuvikunnar Fagmenntaðir taka út uppsafnaða styttingu á frístundadögum. Skólaog frístundaliðar taka sína vinnutímastyttingu innan hvers mánaðar. Sveigjanlegur dvalartími barna Foreldrum stendur til boða sveigjanlegur daglegur dvalartími með að hámarki 42,5 tímum. Opnunartími leikskóla Opnunartími verður frá kl. 7:30 - 16.30 frá og með hausti 2024. Gjaldskrá Leikskólagjöld fyrir 8 klukkustundir á dag haldast óbreytt. Leikskólagjöld fyrir 6 klukkustunda vistun á dag lækka umtalsvert eða sem jafngildir 30% af heildarkostnaði af 40 klukkustunda vistun. Kostnaður við máltíðir er óbreyttur og áfram verða tekjutengdir afslættir og systkinaafslættir. „Við vitum öll að erfitt hefur reynst að manna leikskóla landsins og því ljóst að bæta þarf starfsumhverfið og laða þannig að gott fólk. Við erum heppin hér í Hafnarfirði með gott fólk en enn vantar okkur starfsfólk til að manna þau lausu pláss sem við eigum. Við vonum að með þessum aðgerðum séum við að stíga stórt skref í átt að betra skipulagi leikskóla sem skilar okkur enn öflugra starfi fyrir starfsfólk, foreldra en fyrst og fremst fyrir börnin okkar“
Elsta fyrirtæki Hafnarfjarðar RB-rúm fögnuðu 80 ára afmæli Flestir Hafnfirðingar þekkja verslunina RBrúm sem staðsett er á Dalshrauni 8. Um er að ræða rótgróið fjölskyldufyrirtæki sem hefur frá upphafi haft að markmiði að uppfylla þarfir viðskiptavina sinna ásamt því að vera í fararbroddi við þróun og framleiðslu springdýna. RB-rúm sérhæfir sig í hönnun á bólstruðum rúmgöflum, náttborðum og fleiri fylgihlutum, viðhaldi á springdýnum og eldri húsgögnum. Í gegnum árin hefur fyrirtækið verið öflugt í framleiðslu á rúmum fyrir hótel, fyrirtæki og félagasamtök. RB-rúm hefur nú bætt við úrval sitt með sölu á rúmum frá Vispring, einum elsta og virtasta framleiðanda heims. Þetta öfluga fjölskyldufyrirtæki fagnaði merkum áfanga á dögunum þegar haldið var upp á 80 ára afmæli þess í hópi vina og velunnara. Eftir því sem næst verður komið eru RB-rúm elsta fyrirtækið í Hafnarfirði, amk það sem starfað hefur lengst samfleytt í bænum. Fyrirtækið hefur fengið viðurkenningar frá Hafnarfjarðarbæ fyrir fallega aðkomu og snyrtimennsku. Hamar óskar fyrirtækinu og forsvarsmönnum þess til hamingju með árgangurinn og afmælið.
10
HAMAR
Munum þá sem gleyma Alzheimersamtökin hafa komið sér vel fyrir í fallegu húsnæði Lífsgæðasetursins í St.Jó og er þar rekin öflug og mikilvæg starfsemi. Hamar fékk Ragnheiði Ríkharðsdóttir formann Alzheimersamtakanna til að segja lesendum nánar frá því góða starfi sem þar fer fram. ,,Í byrjun vil ég hrósa bæjarstjórn Hafnarfjarðar sem ákváð að gera St. Jó að Lífsgæðasetri, þar sýndi bæjarstjórnin samfélagslega ábyrgð og það ber að þakka. Í Lífsgæðasetrinu eru nú ýmis félög og einyrkjar en sem heild stuðla þau að betri lífsgæðum fyrir þá skjólstæðinga sem þangað sækja,“ segir Ragnheiður í spjalli við Hamar. ,,Alzheimersamtökin eru frjáls félagasamtök sem vinna að hagsmunum einstaklinga með heilabilun og við gerum það með stuðningi, ráðgjöf og fræðslu. Yfirlýst markmið samtakanna eru að gæta hagsmuna skjólstæðinga, efla samvinnu og samheldni aðstandenda með fræðslufundum og útgáfustarfsemi. En okkar er einnig að auka skilning stjórnvalda, heilbrigðisstétta og almennings á þeim verkefnum eða vandamálum sem þessir einstaklingar og aðstandendur eiga við að etja.“ Vildi taka þátt í uppbyggingu starfsins Ragnheiður segist hafa gengið til liðs við Alzheimersamtökin því hún fann sig reiðubúna til að leggja sitt af mörkum í því uppbyggingarstarfi sem samtökin takast á hendur í þágu einstaklinga með heilabilun og aðstandenda þeirra. ,,Það sem kom mér mest á óvart er að einstaklingar með heilabilun lenda oftar en ekki á milli félagslega kerfisins og heilbrigðiskerfisins. Það felst í því að við greiningu þá grípur hvorugt kerfanna hinn greinda, það er ekki fyrr en sjúkdómurinn hefur tekið völdin sem heilbrigðiskerfið grípur inn í og greiðir daggjöld í sérhæfðar dagþjálfanir. Alzheimersamtökin reka í dag þrjár slíkar í Drafnarhúsi, Fríðuhúsi og Maríuhúsi. En fram að þeim tíma eru það ættingjar okkar skjólstæðinga sem sinna hinum veika. Þessu þurfti að breyta. Mér finnst eins og kerfin sýni þessum sjúkdómi ekki sömu virðingu og umhyggju (ef svo mætti að orði komast) eins og mörgum öðrum sjúkdómun þar sem kerfið bregst strax við þegar greining er ljós.
En hlutverk og markmið SEIGLUNNAR í St.Jó., sem er þjónustueining fyrir nýgreinda einstaklinga með heilabilun, er að hægja á framgangi sjúkdómsins, sem kemur öllum til góða, einstaklingum og þeirra aðstandendum en ekki síður heilbrigðiskerfinu. SEIGLAN starfar eftir hugmyndafræði iðjuþjálfunar og er áhersla lögð á endurhæfa og að vinna með styrkleika einstaklinga, skapa aðstæður til að þeir geti stundað sína iðju, styrkt félagsleg tengsl og lífað lengur innihaldsríku lífi. Eflum lífsgæði þeirra sem gleyma Enn hefur ekki fundist lækning við Alzheimer eða öðrum heilabilunar sjúkdómum þrátt fyrir víðtækar rannsóknir víða um heim en ýmsar rannsóknir hafa þó sýnt fram á að hægt er að gera líf þeirra sem greinast með Alzheimer/heilabilun bærilegra á ýmsan hátt. ,,Sýnt hefur verið fram á í rannsóknum að líkamleg, félagsleg og andleg heilsa skiptir verulegu máli og þess vegna er alls kyns hreyfing af hinu góða, félagsleg tengsl hvers konar eru afar mikilvæg og að reyna á heilann með ýmsum þrautum kemur öllum til góða og munum að þetta þrennt getur hamlað framgangi Alzheimer/heilabilunar. Höfum það hugfast og gerum okkar til að efla lífsgæði þeirra sem gleyma,“ segir Ragnheiður. ,,En mig langar mig einnig að nefna sérstaklega tengsl tónlistar og Alzheimer/heilabilunar því sýnt hefur verið fram á að tónlist hefur jákvæð áhrif á fólk með heilabilun, eflir sjálfsmynd, eykur lífsgæði og bætir samskipti. Þess vegna skiptir svo miklu máli í allri vinnu og umönnun einstaklinga með Alzheimer /heilabilun að tengja tónlistina inn í ferlið með einum eða öðrum hætti. Það er þekkt þegar tónlist er spiluð eða sungin að sumir einstaklingar með Alzheimer sem vart geta tjáð sig, byrja að syngja með, kunna textann og
jafnvelzvakna minningarbrot í tengslum við lag og texta og sá sem lært hefur á píanó en getur vart matast sjálfur, hann spilar eins og engill þegar hann sest við píanóið. Þetta gerist ekki á einni nóttu, ekki frekar en margt annað en skiptir ótrúlega miklu máli, eykur vellíðan og dregur úr óróleika. Það væri til fyrirmyndar að við sem leiðum þjónustu við einstaklinga með Alzheimer/heilabilun hugleiddum hvort ekki væri skynsamlegt að ráða almennt slíka einstaklinga í hæfingateymi þeirra sem sinna einstaklingum með Alzheimer eða aðra tegund heilabilunar.“ Þurfum að byggja brýr milli kerfa ,,Það er ósk mín og von að við höldum áfram því góða starfi sem Alzheimersamtökin sinna nú og að okkur takist að bæta enn þjónustuna við einstaklinga með heilabilun og aðstandendur þeirra. Það mun líka skipta sköpum að samtalið við ráðherra félagsmála og heilbrigðismála haldi áfram og okkur takist að byggja brýr á milli kerfa því það verður að tryggja okkar skjólstæðingum og aðstandendum þeirra þjónustu beggja ráðuneyta og að í þeirri vinnu verði leiðarstef “ ekkert um okkur án okkar”. Einnig þarf að hefja af fullum þunga samtal við sveitarstjórnarfólk í þeim tilgangi að kynna því starfsemi Alzheimersamtakanna, greina frá þörfinni eftir sérhæfðri dagþjálfun sem og dagþjálfun nýgreindra og fá að vita hvort og þá hvernig sveitarfélögin sjái sína aðkomu að þessum verkefnum,“ segir Ragnheiður að lokum bjartsýn og vongóð að vanda.
Starfsmenn og skjólstæðingar Seiglunnar í boði á Bessastöðum en Eliza Reid, forsetafrúin er verndari Alzheimersamtakanna. 11
HAMAR
12