Skip to main content

Svefnvandi barna með röskun á einhverfurófi

Page 1

Svefnvandi barna með röskun á einhverfurófi


Almennt um svefn Þó svefn sé ekki að fullu rannsakaður er vitað að gæði hans skipta miklu máli hvað varðar bæði andlega og líkamlega heilsu manna. Á meðan við sofum á sér stað endurnýjun í likamanum en rannsóknir sýna að gott svefnmynstur virðist hafa verndandi áhrif gegn hinum ýmsu sjúkdómum. Yfirleitt er svefnvandi mældur út frá því hversu lengi viðkomandi er að sofna á kvöldin og/eða hvort hann eigi erfitt með að sofa út á morgnana. Hinsvegar eru fleiri breytur sem horfa þarf til þegar um svefnvanda er að ræða. Helstu breytur sem notaðar eru til að mæla svefn og svefnvanda eru lengd á heildarsvefntíma og lengstu svefnlotu, svefntöf, eða hversu langan tíma það tekur viðkomandi að sofna, og hegðun í vöku. Í þessum bæklingi má finna ráð við svefnvanda sem gætu nýst þér og barninu þínu.

Tekið er fram að efni bæklingsins nær ekki yfir sérstæðan svefnvanda á borð við hrotur, kæfisvefn, næturvætu eða önnur samskonar vandamál.


Lengd svefns í klukkustundum

Almennar ráðleggingar um lengd svefns fyrir hvern aldurshóp 24 23 22 21 20 19 18 17 16 15 14 13 12 11 10 9 8 7 6 5 4 3 2 1 0

18-19 12-15 14-17

15-16 12-15

11-13 10-11

0-3 mánaða

4-11 mánaða

14 11-14 9-10

1-2 ára

Æskilegur svefntími

10-13

12 9-11

8-9

3-5 ára

7-8

6-13 ára

11 8-10 7

14-17 ára

Stundum viðeigandi

10-11

10

7-9

7-9

6

6

18-25 ára

26-64 ára

9 7-8 5-6

65+ ára

Óæskilegur svefntími Heimild: National sleep foundation


Svefnvandi barna með röskun á einhverfurófi Algengi Talið er að 1 af hverjum 100 einstaklingum sé með röskun á einhverfurófi og hafa rannsóknir sýnt að 80% barna með röskun á einhverfurófi eiga við svefnörðugleika að stríða. Samkvæmt þessu má því gera ráð fyrir að á Íslandi séu um 1.400 börn með röskun á einhverfurófi sem þjást af svefnvanda af einhverju tagi.


Orsakir Ýmsar ástæður geta legið að baki svefnvanda barna og unglinga. Til þess að ná sem bestum árangri í meðhöndlun er best að ráðast á rót vandans sem er þó gjarnan dulin þegar um svefnvanda er að ræða. Rannsóknir hafa m.a. sýnt fram á skort á melatóníni hjá börnum og unglingum með röskun á einhverfurófi. Melatónín er náttúrulegt svefnhormón sem finnst í mannslíkamanum. Það tekur m.a. þátt í að stýra hringrás svefns og vöku en myndun þess í líkamanum er m.a. háð birtustigi. Almennt er það þannig að melatóníngildi hækka í líkamanum á kvöldin þegar háttatími nálgast en lækkar stuttu áður en við vöknum á morgnana. Ruglingur á melatóníngildum getur þessvegna haft veruleg áhrif á svefnmynstur og er það meðal annars talið skýra þann svefnvanda sem fylgir gjarnan einstaklingum með röskun á einhverfurófi.


Svefnvandi barna með röskun á einhverfurófi Einkenni Einkenni svefnleysis eru yfirleitt augljós, eða þannig að einstaklingurinn vakir þegar hann á að sofa. Hinsvegar geta fylgt svefnleysi lúmskir fylgikvillar sem gerir það að verkum að erfitt er að átta sig á að um svefnvanda sé að ræða. Dæmi um slík einkenni er versnun á hegðunarvanda barna og unglinga með röskun á einhverfurófi. Helstu fylgikvillar langvarandi svefnleysis meðal barna og unglinga með röskun á einhverfurófi eru skert minni, aukin einhverfueinkenni og skerðing á félagslegri færni, seinkaður þroski og vöxtur, aukinn hegðunarvandi, lærdómsörðugleikar, aukin árásarhneigð og ofvirkni, minnkuð stjórn á tilfinningum, ótti og skelfing og félagsleg einangrun. Einnig er þekkt að svefnvandi barna og unglinga og fylgikvillar hans hafi umtalsverð neikvæð áhrif á foreldra, systkin og aðra aðstandendur.


Hvað er til ráða? Langvarandi svefnvandi ætti aldrei að vera ásættanlegt ástand, og þá sérstaklega meðal barna. Til eru ýmis tæki og tól til meðferðar á svefnvanda en það getur krafist mikillar þolinmæði að finna það sem hentar hverjum og einum best.

Þekktar meðferðir og tól: • Góðar svefnvenjur (e. sleep hygiene) • Þyngingarteppi/sængur • Hljóðmeðferð (e. sound-to-sleep) • Lyfjameðferð • Uppbótarmeðferð með náttúrulega svefnhormóninu melatóníni • Andhistamín með róandi og slævandi verkun • Geðrofslyf


Góðar svefnvenjur Notalegt svefnumhverfi Hafa gott hitastig á svefnstað, frekar svalt en heitt Slökkva á öllum skjátækjum minnst 1 klst. fyrir háttatíma Tryggja myrkur á svefnstað en bjóða upp á náttljós ef þörf krefur Koma í veg fyrir hávaða nálægt svefnstað barnsins • Hljóð sem er stöðugt yfir nóttina, eins og hvítt suð, gæti hinsvegar róað barnið og þar með virkað sem hljóðmeðferð • Önnur hljóð sem alla jafna teldust eðlileg, eins og rennandi vatn úr krana, gætu verið truflandi fyrir einstaklinga með röskun á einhverfurófi og því þarf að huga vel að staðsetningu svefnstaðar og umhverfishljóðum tengdum honum


Halda föstum háttatíma Finnið út hvaða háttatími hentar best og haldið honum Það gæti verið hjálplegt að færa háttatímann aftur um hálfa til heila klukkustund ef illa gengur fyrir barnið/unglinginn að ná sér niður.

Koma á reglulegum og afslappandi svefnvenjum Bursta tennur Kvöldbað Lesa Spjalla á rólegum nótum Mikilvægt er að allir aðilar sem koma að svefntíma barnsins/unglingsins haldi sömu rútínu á háttatíma Það gæti verið gott að hafa lista yfir svefnvenjur með orðum og/eða myndum við höndina svo ekkert komi barninu/unglingnum á óvart. Einnig mætti nota uppröðun hluta við ferlið.


Góðar svefnvenjur Venja barnið/unglinginn á að sofna sjálft Börn og unglingar sem geta sofnað sjálf á háttatíma vakna síður alveg upp um miðja nóttu heldur rumska frekar lauslega og þannig raskast svefninn síður

Forðast daglúra hjá eldri börnum/unglingum Ef barnið/unglingurinn er oft þreyttur á daginn getur daglúr hinsvegar verið nauðsynlegur en þá þarf að passa að hann sé ekki of langur og alltaf á sama tíma


a

Hvetja til daglegra athafna sem hafa góð áhrif á svefn Dagleg hreyfing hefur góð áhrif á svefn – passið þó að krefjandi hreyfing sé ekki framkvæmd stuttu fyrir háttatíma Forðast skal fæðu og drykki sem geta haft slæm áhrif á svefn. Dæmi: Drykkir sem innihalda koffín Fylgið útivistarreglum til að raska ekki ró barnsins/unglingsins á háttatíma Mikilvægt er að foreldrar og annað heimilisfólk sýni gott fordæmi í svefnhegðun


Hvað ef þessar aðferðir virka ekki? Ef breytingar á svefnvenjum skila ekki markvissum árangri gæti þurft að leita læknisaðstoðar eða annarrar sambærilegrar aðstoðar. Mikilvægt er að gefast ekki upp fyrr en markviss árangur næst. Svefnvandi á ekki að vera viðvarandi heldur aðeins tímabundið ástand. Sem fyrr segir hafa rannsóknir sýnt fram á skort á melatóníni hjá börnum og unglingum með röskun á einhverfurófi og er það meðal annars talið skýra þann svefnvanda sem fylgir þeim einstaklingum. Til eru lyf sem eru sérstaklega ætluð til þess að leiðrétta melatónínbirgðir líkamans en einnig eru notuð almenn svefn- og geðlyf til að meðhöndla svefnvanda barna. • Ræðið við lyfjafræðing, lækni, hjúkrunarfræðing eða annað heilbrigðisstarfsfólk um mögulegar lyfjameðferðir fyrir barnið ykkar

Athugið að sum lyf geta haft slæm áhrif á svefn • Ræðið við lyfjafræðing, lækni, hjúkrunarfræðing eða annað heilbrigðisstarfsfólk um áhyggjur eða vandamál tengd lyfjameðferðum


En hvenær er markvissum árangri náð? Gott er að fara yfir eftirfarandi spurningar til að mæla árangur þeirra meðferða sem notaðar eru:

Tími sem tekur að sofna Það tekur barnið/unglinginn minna en 30 mínútur að sofna á kvöldin

JÁ

NEI

Það tekur barnið/unglinginn nú skemmri tíma að sofna frá því að meðferðin hófst

JÁ

NEI

Ef já, um hvað margar mínútur?

mínútur

Heildarsvefntími Barnið/unglingurinn sefur samkvæmt ráðleggingum* Heildarsvefntími** hefur aukist um amk 1 klst síðan meðferðin hófst

JÁ

NEI

JÁ

NEI

JÁ

NEI

Ánægjustig Ég er ánægð/ur/t með svefn barnsins/unglingsins


Lengd svefns í klukkustundum

*Almennar ráðleggingar um lengd svefns fyrir hvern aldurshóp 20 19 18 17 16 15 14 13 12 11 10 9 8 7 6 5 4

Æskilegur svefntími

18-19

Stundum viðeigandi

12-15 14-17

Óæskilegur svefntími

15-16 12-15

11-13 10-11

0-3 mán. 4-11 mán.

14 11-14 9-10

1-2 ára

10-13

12 9-11

8-9

3-5 ára

7-8

6-13 ára

11 8-10 7

10-11

10

7-9

7-9

6

6

14-17 ára 18-25 ára 26-64 ára

9 7-8 5-6 65+ ára

**Heildarsvefntími: Heildartími sem barnið/unglingurinn sefur yfir alla nóttina. Best er að halda svefndagbók til að reikna heildarsvefntíma. Heildarsvefntími = Tími sem barnið vaknaði – tími sem barnið sofnaði – tími sem barn vakir yfir nóttina. Dæmi: Barn vaknaði kl 7:00, barn sofnaði kl 23:00 og vakti í 2 klst samtals yfir nóttina = Heildarsvefntími = 6 klst


Leitaðu aðstoðar við svefnvanda barna/unglinga. Mögulegir meðferðaraðilar: • Betri Svefn - Hugræn atferlismeðferð við svefnleysi • Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins • Sálfræðingar á heilsugæslu eða í skólaþjónustu • Sjálfstætt starfandi sálfræðingar • Svefnráðgjöf LSH fyrir foreldra barna Aðrar gagnlegar upplýsingasíður um einhverfu: www.blarapril.is www.einhverfa.is www.heilsuvera.is www.landlaeknir.is

Framleiðsla bæklings:

527 0640 Reykjavikurvegur 62 220 Hafnarfjordur, Iceland www.wh.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Svefnvandi barna með röskun á einhverfurófi by Williams & Halls - Issuu