02 2026 BLAÐSÍÐA 10 Kjarasamningar standa
VR BLAÐIÐ BLAÐSÍÐA 12 Uppsagnarfrestur og hópuppsagnir
BLAÐSÍÐA 13 Fæðingar- og foreldraorlof
BLAÐSÍÐA 14 VR blaðið 70 ára
VR BLAÐIÐ 02 2026
1
EFNISYFIRLIT
EFNISYFIRLIT
EFNISYFIRLIT STARFSMENNTAMÁL 3
LEIÐARI
4
FRÉTTIR
6
NÁMSKEIÐ OG FYRIRLESTRAR Starfsþróun
14
VR BLAÐIÐ 70 ÁRA
18
GERVIGREIND OG SJÁLFRÆÐI STARFSFÓLKS
22
UNGLIÐARÁÐ VR
33
FYRIRTÆKI ÁRSINS 2026
26 12 34
17 22
Mikilvægi sí-og endurmenntunar
23
Þrjár leiðir til að sækja um styrk FRÆÐSLUERINDI FYRIR LEIÐSÖGUFÓLK Í DEILD VR í starfsmenntasjóði VR/LÍV
ELDRI VR FÉLAGAR BOÐNIR Í HÖRPU
37 TRÚNAÐARMAÐURINN FÉLAGSMÁL 38 KROSSGÁTAN
3
39
SUDOKU ÞRAUT
Leiðari
4 Fréttir
8
9 10
KJARAMÁL SAMKOMULAG UM VIÐBRÖGÐ VIÐ FORSENDUBRESTI KJARASAMNINGAR STANDA
Fjármálalæsi ungs fólks 12 UPPSAGNARFRESTUR OG HÓPUPPSAGNIR
1420
28
SKOÐAR ÞÚ LAUNASEÐILINN ÞINN?
24 um FÆÐINGARORLOF FORELDRAORLOF Baráttan Ísland og sjálfstæðiOG þjóðar 36
20
AF VETTVANGI LÍV
Fræðsluviðurkenning VR veitt í fyrsta sinn
26
STARFSMENNTAMÁL
Öflugt VR VITIÐ tekur til2026 starfa 27 Ungliðaráð RÆKTUM
2828
FJÖGUR ÞREP STARFA Í VERSLUN
29 FAGNÁMerVERSLUNAR OG ÞJÓNUSTU Niðurskurðarstefna ekki efnahagsleg nauðsyn 30 HVER ER ÞÍN STAFRÆNA HÆFNI?
3031
36
STARFSÞRÓUN – FRAMTÍÐIN ER Í ÞÍNUM HÖNDUM
Nú32 er nógÞRJÁR komið! LEIÐIR TIL AÐ SÆKJA UM STYRK
32 Af vettvangi LÍV
36 Trúnaðarmaðurinn
37
KJARAMÁL
10 Helstu atriði nýs kjarasamnings
12
Námskeið fyrir trúnaðarmenn VR
Sanngirnismál að endurskoða lífeyrisgreiðslur eftir 70 ára aldur
38
24
Krossgátan
Forsíðumynd: Forsíður gamalla VR blaða úr Forsíðumynd: er Þórólfsson. af styttunni skjalageymslu Forsíðumyndin VR. Reynir Albert af Skúla Magnússyni fógeta en nánar er fjallað um styttuna á bls. 25 hér í blaðinu. VR BLAÐIÐ 2. tbl. 2026 VR BLAÐIÐ 2. tbl.verslunarinnar 46. árgangur september 2024 Hús Kringlan 7 Hús verslunarinnar 103 Reykjavík Kringlan 7 Sími 510 1700 103 Reykjavík vr@vr.is Sími 510 1700 vr.is vr@vr.is www.vr.is Ábyrgðarmaður Halla Gunnarsdóttir Ábyrgðarmaður Ragnar Þór Ingólfsson Ritstjóri Fjóla Helgadóttir Ritstjóri Fjóla Helgadóttir Ritstjórn Ritstjórn Aðalheiður Rán Þrastardóttir Árdís Birgisdóttir Aðalheiður Rán Þrastardóttir Fjóla Helgadóttir Árdís Birgisdóttir Steinunn Böðvarsdóttir Fjóla Helgadóttir Victor Karl Ragnar ÞórMagnússon Ingólfsson Steinunn Böðvarsdóttir Umbrot ogMagnússon útlit Victor Karl Reynir Albert Þórólfsson Umbrot og útlit Ljósmyndir Tomas Bolli Hafthorsson Birgir Ísleifur Ljósmyndir Eygló Gísladóttir Birgir Ísleifur Hallmar Freyr Thorvaldsson Tomas Hafthorsson Karítas Bolli Ríkharðsdóttir Reynir Albert Þórólfsson Prentun Tómas Bolli Hafthorsson Prentmet Oddi Prentun Upplag Prentmet Oddi 14.660 UpplagVR Stjórn 11.860 Þór Ingólfsson, formaður Ragnar Halla Gunnarsdóttir, varaformaður Stjórn VR Ólafur Reimar Gunnarsson, ritari Halla Gunnarsdóttir, formaður Bjarni Þór Sigurðsson Ólafur Reimar Gunnarsson, varaformaður Diljá Ámundadóttir Zoega Andrea Rut Pálsdóttir, ritari Harpa BirgittaSævarsdóttir Ragnarsdóttir Jennifer Bjarni ÞórSchröder Sigurðsson Jónas Yngvi Ásgrímsson Jennifer Schröder Kristjana Þorbjörg Jónsdóttir Jónas Yngvi Ásgrímsson Sigríður Lovísa Jónsdóttir Júlíana Einarsdóttir Sigurður SigfússonThorarensen Karl F. Hilmarsson Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir Paula A. Rodriguez Sanchez Selma Björk Grétarsdóttir Tómas Gabríel Benjamin Sigríður Jónsdóttir Vala ÓlöfLovísa Krisinsdóttir Styrmir Jökull Einarsson Þórir Hilmarsson Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir Arnþór Sigurðsson Tómas Björk Gabríel Benjamin Selma Grétarsdóttir Eldar Ástþórsson Þorvarður Bergmann Kjartansson AN SV
S MERK
IÐ
Sterk hreyfing – sterkt samfélag! Prentgripur 1041 0818
VR blaðið er Svansvottaður prentgripur.
2 2
VR BLAÐIÐ 02 2026 VR BLAÐIÐ 02 2024
LEIÐARI FORMANNS beinst að ríkinu og þar sem aðstæður eru iðulega víðsjárverðar þegar forsendur bresta hefur verkalýðshreyfingin ef til vill verið helst til fljót til að slá af kröfum fyrir hönd launafólks. Hart var lagt að okkur að gera slíkt hið sama með vísan til þess að verðbólgan væri á flugi, framleiðni ekki nógu góð og atvinnuleysi að færast í aukana. Þessu síðastnefnda svaraði ég alltaf á þá leið að vissulega færi atvinnuleysi hækkandi en það væri vegna þess að Seðlabankinn væri að framkalla atvinnuleysi með alltof háum vöxtum. Um miðjan október steig varaseðlabankastjóri fram og sagði stoltur frá því framtaki bankans að gera fólk atvinnulaust og það er orðið morgunljóst að Seðlabankinn gengur erinda atvinnurekenda og fjármagnsafla, á kostnað launafólks.
ÞEGAR FORSENDUR BRESTA Óhætt er að segja að 8. október sl. hafi verið nokkuð spennuþrunginn en kl. 16 þann dag rann út frestur til að segja upp kjarasamningum vegna forsendubrests. Einni mínútu áður en klukkan sló fjögur handsöluðum við í forystu VR, LÍV og Fagfélaganna samkomulag við formann og framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins um viðbragð við forsendubrestinum sem varð til þess að kjarasamningar halda gildi sínu. Launafólk undirgekkst mikla áhættu þegar langtímakjarasamningar voru undirritaðir árið 2024. Samningarnir kváðu á um lágar launahækkanir gegn því að fyrirtæki og stjórnvöld héldu aftur af verðog gjaldskrárhækkunum. Að auki komu til mikilvægar aðgerðir frá ríkinu og fyrir stóra hópa innan VR munaði þar mest um gjaldfrjálsar skólamáltíðir. Loforð voru gefin um að passa sérstaklega upp á barnafólk sem á tímum hárra vaxta væri að taka á sig sérlega þungar byrðar. Á þessum tíma urðu nokkrar deilur um forsenduákvæði kjarasamninga og fyrrum formaður VR sleit félagið frá samstarfi við Breiðfylkinguna þar sem forsenduákvæðin þóttu alltof rúm og fæstir höfðu trú á að þau yrðu nokkurn tímann virkjuð. Þegar forsendur brustu kom því ekkert annað til álita fyrir VR en að láta til sín taka. Verðbólgan í ágúst sl. var langt yfir mörkum og að stofninum til var hún heimatilbúinn vandi með rætur í húsnæðismálum, gjaldskrárhækkunum (ekki síst á barnafólk!) og verðhækkunum fyrirtækja. Þetta síðastnefnda er athygli vert, enda ljóst að hluti verðbólgunnar hefur verið hagnaðardrifinn, sum fyrirtæki hafa vissulega hækkað verð því þau þurfa þess, en fjöldi fyrirtækja hefur hækkað verð einmitt af því að þau geta það. Þetta sést á góðri afkomu stórra, verðmótandi fyrirtækja. Strax í mars sl. var ljóst að forsendur kynnu að bresta og þá hófst samstarf VR, LÍV og Fagfélaganna um viðbragð við forsendubresti. Við reyndum hvað við gátum til að fá bæði fyrirtæki og stjórnvöld til að snúa af braut í tæka tíð svo að við hefðum eitthvað í hendi þegar kæmi að viðbragði við forsendubresti. Í stuttu máli vorum við skýr á því að við myndum ekki halda áfram inn í hálft annað ár með endurnýtt loforð í farteskinu og alla áhættuna á herðum launafólks. Við sendum bréf á bæði fyrirtæki og sveitarfélög og óskuðum svara við því hvað þau hygðust leggja á vogarskálarnar og heimturnar voru með ágætum. Sveitarfélög og ríki féllust á að stilla gjaldskrárhækkunum í hóf og fjöldi fyrirtækja steig fram með áform um að draga úr verðhækkunum. Vissulega voru sum þeirra fyrirtækja í afar góðri stöðu fyrir og hefði mátt gagnrýna þau fyrir að bregðast seint og illa við, en inni á milli eru líka fyrirtæki sem taka raunverulega áhættu með aðgerðum sínum. Með jákvæðni að vopni fögnuðum við öllum sem vildu leggja hönd á plóg og brýndum til dáða. En eftir stóð að kjarasamningur okkar er við Samtök atvinnulífsins og um forsendubrestinn þarf að semja þar í milli. Almennt hefur forsendubrestur ekki haft mikla þýðingu fyrir SA. Spjótin hafa heldur
Innan VR eru stórir hópar félagsfólks sem hafa á gildistíma þessara kjarasamninga eingöngu fengið almennar kjarasamningsbundnar hækkanir og ekkert umfram það. Verðbólga hefur verið yfir þessum hækkunum og þessir hópar hafa því lækkað í raunlaunum, á sama tíma og húsnæðiskostnaður hefur aukist gríðarlega. Enn fremur hefur þjónusta verið skert við barnafólk með styttri opnunartíma leikskóla og frístundaheimila og álögur á þessa hópa auknar. Fyrir okkur var í raun lagt að taka áhættuna á því að þetta yrði reyndin áfram. Um áramót gengur í gildi 3,5% launahækkun en flestar spár gera ráð fyrir hærri verðbólgu, sem gæti þýtt áframhaldandi raunlaunalækkun. Það gekk illa að fá SA til að taka þessar áhyggjur alvarlega og hart var lagt að okkur úr öllum áttum að reisa ekki kröfur fyrir okkar fólk heldur bera áhættuna frekar áfram án nokkurra varna. Við vorum ekki tilbúin til að fallast á það og svo fór að við vorum mætt á skrifstofur SA með undirrituð uppsagnarbréf í höndunum. Á lokametrunum var einkum tvennt þess valdandi að við í VR, LÍV og Fagfélögunum féllum frá því að segja upp kjarasamningum. Samtök atvinnulífsins féllust á forsenduákvæði sem innifól ákveðið markmið um ársverðbólgu næsta árs en líka 3,8% viðmið fyrir verðbólgutakt til sex mánaða. Að sama skapi bauð ríkisstjórnin sérstakan vaxtabótaauka sem virkjast líka í 3,8% verðbólgu í lok næsta árs og fer hækkandi eftir því sem verðbólgan hækkar. Þetta hljómar bæði tæknilegt og flókið, en í grunninn þá þýðir þetta að ef verðbólga er farin að sigla fram úr almennum launahækkunum þá virkjast varnir fyrir okkar félagsfólk. Við getum sest að samningaborðinu að nýju og skulduga barnafólkið fær einhverja leiðréttingu. Hvað þetta síðastnefnda varðar skiptir útfærslan miklu máli en við unnum með forsætisráðuneytinu að því að tryggja að tekjuskerðingar yrðu ekki svo ríkar að fullvinnandi fólk detti nánast sjálfkrafa úr menginu. Þær varnir sem við tryggðum fyrir okkar hópa, ásamt mikilvægum aðgerðum ríkis og sveitarfélaga og viðleitni fyrirtækja til að draga úr verðhækkunum, voru á endanum ástæðan fyrir því að við féllumst á að kjarasamningar haldi gildi sínu. Þegar hiti hleypur í kjaraviðræður getur reynt á innan félagsins. Skiptar skoðanir geta verið á því hversu langt beri að ganga og hversu miklu megi kosta til. Í þessum viðræðum vorum við í stjórn VR einróma og með gríðarlega kröftugt bakland í trúnaðarráði. Trúnaðarmenn voru upplýstir reglulega um framvindu mála og félagsfólk ætíð velkomið að hafa samband með spurningar sem vakna eða skoðanir sem það vill deila. Staðreyndin er sú að það er samstaðan sem skilar raunverulegum árangri, án hennar megum við okkar einskis. Ég vil því hvetja félagsfólk sérstaklega til að vera minnugt þess, næst þegar við stöndum í storminum, að eina leiðin fyrir stjórn VR til að tryggja bættan hag félagsfólks er í gegnum víðtæka samstöðu. Eftir stendur mjög kröftugt og traust samstarf VR, LÍV og Fagfélaganna en samanlagt erum við í kringum 45% af almennum vinnumarkaði. Við munum starfa áfram saman, halda fyrirtækjum og stjórnvöldum við efnið og mæta samhent til leiks í næstu kjarasamningum. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR VR BLAÐIÐ 02 2026
3
FRÉTTIR
MUNDU EFTIR FÉLAGSGJALDINU! Að mörgu er að hyggja þegar fólk missir vinnuna og það getur skipt sköpum fyrir VR félaga að halda áfram að greiða til félagsins. Með því varðveitast áunnin réttindi t.d. í VR varasjóði, starfsmenntasjóðum og Sjúkrasjóði VR. Í umsóknarferlinu um atvinnuleysisbætur þarf því að gæta þess að merkja við VR í sérstöku boxi svo félagsgjaldinu sé skilað til stéttarfélagsins af atvinnuleysisbótum. Athugið að þegar félagsgjöld hafa ekki borist vegna síðustu sex mánaða falla öll réttindi í starfsmenntasjóði niður. Réttindi í Sjúkrasjóði tapast einnig ef félagsgjöld halda ekki áfram að berast af atvinnuleysisbótum. Ef VR félagi fær nú þegar greiddar atvinnuleysisbætur og er óviss um hvort verið sé að greiða félagsgjöld til VR er einfalt mál að skrá sig inn á Mínar síður hjá Vinnumálastofnun, velja persónuupplýsingar og bankaupplýsingar, lífeyrissjóður og stéttarfélag og sjá þannig hvort verið sé að greiða til VR. Ef gleymst hefur að merkja við VR í boxinu
NIÐURGREIÐSLA Á FERÐAVÖGNUM VR félagar geta tekið á leigu tjaldvagna, fellihýsi, húsbíla eða hjólhýsi af viðurkenndum leiguaðilum og fengið niðurgreiðslu frá VR gegn framvísun kvittunar. Niðurgreiðslan er 5.000 kr. pr. nótt en þó að hámarki sex nætur fyrir hvert orlofstímabil, hámarksendurgreiðsla er því 30.000 kr. Greitt er eftir að dvöl lýkur gegn fullri greiðslu fyrir vagninn, leigutímabil þarf að koma fram á kvittun. Umsókn um niðurgreiðslu á ferðavagni er að finna á Mínum síðum.
VR BÝÐUR UPP Á SKÓLAKYNNINGAR VR býður áfram upp á skólakynningar fyrir útskriftarhópa í grunnog framhaldsskólum. Markmið skólakynninganna er að kynna fyrir nemendum helstu réttindi og skyldur á vinnumarkaði. Í kynningunni er farið yfir helstu grunnþætti sem mikilvægt er að ungt fólk þekki þegar það fer út á vinnumarkaðinn sem og hvaða hlutverki stéttarfélögin gegna og þjónustuna sem þau veita. Forsvarsmenn skóla geta fengið frekari upplýsingar og bókað kynningu með því að hringja í þjónustuver VR í síma 510 1700 eða sent tölvupóst á kynningar@vr.is
4
VR BLAÐIÐ 02 2026
þar sem stéttarfélag er valið getur VR félagi breytt skráningunni sjálfur þarna undir. Atvinnuleitendur sem þegar voru félagar í VR þegar þeir misstu vinnuna geta áfram greitt til félagsins af atvinnuleysisbótum og viðhaldið þannig réttindum sínum í sjóðum VR. Hafi atvinnuleitendur ekki verið félagar í VR við upphaf atvinnuleysisbótagreiðslna skulu þeir hafa greitt félagsgjald til VR að lágmarki í 36 mánuði á síðustu 5 árum fyrir umsókn atvinnuleysisbóta til að eiga rétt á því að greiða til félagsins og skapa sér þannig réttindi á ný. Nánari upplýsingar má finna á undir „Lög og reglugerðir“ á vr.is. Einnig er hægt að hafa samband við þjónustuver VR í síma 510-1700.
FRÉTTIR
VR BÝÐUR FÉLAGSFÓLKI SÍNU STARFSÞRÓUNAR RÁÐGJÖF VR heldur áfram að bjóða félagsfólki sínu starfsþróunarráðgjöf, eins og síðastliðna vetur. Starfsþróunarráðgjöfin er í umsjón námsog starfsráðgjafa hjá Mími símenntun. Viðtölin eru félagsfólki að kostnaðarlausu og fer skráning þeirra fram á Mínum síðum VR. Viðtölin eru til þess fallin að veita stuðning og upplýsingar um mögulegar leiðir til frekari starfsþróunar. Með starfsþróun er átt við mikilvægi þess að vaxa og þróast í starfi. Áherslan er ekki endilega á að skipta um starfsvettvang eða breyta verkefnum heldur fyrst og fremst að móta nýjar aðferðir við að sinna núverandi starfi og verkefnum í síbreytilegu umhverfi og kynna sér þær leiðir sem í boði eru. Við hvetjum félagsfólk einnig til að kanna hvort verkfærin á Starfsþróunarsíðu VR geti nýst í starfsþróunarvegferð þeirra sem stefna að og hafa áhuga á slíkri framþróun.
FÆÐINGARSTYRKUR Í BOÐI FYRIR FÉLAGSFÓLK Nú gefst félagsfólki VR kostur á að sækja um fæðingarstyrk og er það í fyrsta skipti sem VR veitir slíkan styrk. Fæðingarstyrkurinn er alls 100.000 kr. vegna hvers barns sem fætt er eftir 26. mars 2026. Styrkurinn nær einnig til ættleiðinga barna yngri en 18 ára. Foreldri þarf að vera í að minnsta kosti 75% fæðingarorlofi til að eiga rétt á styrk. Þá þarf foreldri jafnframt að hafa verið fullgildur VR félagi og hafa greitt félagsgjald til sjóðsins í 12 af síðustu 18 mánuðum fyrir fæðingu barns. Breytingarnar tóku gildi frá og með 1. maí 2026. Athugið: Sótt er um fæðingarstyrk á Mínum síðum á vef VR. Einungis félagsfólk sem Fæðingarorlofssjóður hefur skilað félagsgjöldum af til VR sér umsóknina fyrir styrknum á Mínum síðum.
ERT ÞÚ EKKI ÖRUGGLEGA MEÐ RÉTTAR UPPLÝSINGAR SKRÁÐAR HJÁ OKKUR? Skannaðu kóðann til að fara á Mínar síður
Mikilvægt er að félagsfólk skrái réttar upplýsingar um starfsheiti og vinnutíma á Mínum síðum á vr.is Upplýsingarnar eru nýttar í launarannsókn félagsins sem gefur félagsfólki mikilvæga innsýn í stöðu sína samanborið við aðra í sömu atvinnugrein.
VR BLAÐIÐ 02 2026
5
NÁMSKEIÐ OG FYRIRLESTRAR
NÁMSKEIÐ OG FYRIRLESTRAR
NÁMSKEIÐ FYRIR FÉLAGSFÓLK
TRÚNAÐARMANNA NÁMSKEIÐ
ÞEKKTU ÞINN RÉTT 18. nóvember 2026 kl. 13:30-15:30 Leiðbeinandi: Jurgita Subonyte, kjaramálasérfræðingur
MÓTTÖKUR FYRIR NÝJA TRÚNAÐARMENN Sérstök móttaka fyrir nýja trúnaðarmenn er haldin í hverjum mánuði. Þar er boðið upp á léttan hádegisverð, stutta fræðslu um starfsemi VR og mikilvæg gögn afhent. Í viðburðadagatali VR má sjá hvenær næstu móttökur eru.
Stutt námskeið þar sem öll helstu réttindi samkvæmt kjarasamningi VR og SA eru kynnt. Á námskeiðinu er farið yfir veikindarétt, orlof, uppsagnarfrest, vinnutíma og áunnin réttindi. VR mun einnig veita almennar upplýsingar um réttindi fólks á íslenskum vinnumarkaði og kynna sjóði VR. Þetta námskeið fer fram á ensku. Námskeiðið verður haldið í sal VR á 9. hæð í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7. Einnig er hægt að taka þátt í því í gegnum Teams. Veldu þann möguleika sem hentar þér í viðburðadagatalinu á vr.is. Skráning er nauðsynleg, bæði fyrir þátttöku á staðnum og í gegnum Teams. Þátttakendur sem velja að taka þátt í námskeiðinu í gegnum Teams fá sendan tengil á það áður en það hefst. Við skráningu færðu áminningu á netfangið sem þú ert með skráð hjá VR. Ef þú skráir þig sem þátttakanda rafrænt færðu sendan hlekk í tölvupóstinum. Þú getur séð hvaða netfang þú ert með skráð á Mínum síðum á vr.is.
6
VR BLAÐIÐ 02 2026
SAMNINGATÆKNI OG SÁTTAMIÐLUN Á VINNUSTÖÐUM 11. nóvember kl. 8:45-12:00 (húsið opnað kl. 8:30) Fyrirlesari: Lilja Bjarnadóttir, LL.M. sáttamiðlari og lögfræðingur Á námskeiðinu verður farið yfir hagnýtar aðferðir í samningatækni og sáttamiðlun sem nýtast trúnaðarmönnum í daglegu starfi. Fjallað verður um hvernig undirbúa má samningaviðræður, greina hagsmuni og þarfir, byggja upp traust og ná fram niðurstöðu sem ólíkir aðilar geta sætt sig við. Áhersla verður á hagnýt verkfæri, samskipti og raunhæfar aðstæður sem trúnaðarmenn geta mætt í starfi. Efni námskeiðsins er gagnlegt fyrir trúnaðarmenn og því leggur VR til að allir trúnaðarmenn félagsins fari í gegnum námskeiðið. Námskeiðið er haldið í sal VR á 9. hæð í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7 en einnig er hægt að vera með á Teams. Morgunmatur er í boði fyrir þau sem mæta á staðinn. Veldu þann möguleika sem hentar þér í viðburðadagatalinu á vr.is.
NÁMSKEIÐ OG FYRIRLESTRAR
VEÐUR OG FERÐASKIPULAG 18. nóvember kl. 17:30-19:30 (húsið opnar kl. 17:15) Fyrirlesari: Einar Sveinbjörnsson Veður getur haft afgerandi áhrif á öryggi og framkvæmd ferða og því er mikilvægt að leiðsögufólk nýti veðurupplýsingar við skipulagningu ferða. Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig taka má mið af veðurspá bæði við undirbúning lengri ferða og við mat á aðstæðum til skemmri tíma. Hvaða veðurupplýsingar og -spár gagnast best við skipulagningu langferða? Hvers þarf helst að horfa til með tilliti til vindhviða, hríðarbyls/skafrennings og annars sem getur leitt til lokana. Þá verður farið í myndun ísingar og hálku á vegum. Markmiðið er að efla skilning á því hvernig veðurupplýsingar nýtast leiðsögufólki til að taka upplýstar ákvarðanir um leiðarval, tímasetningar og áframhald ferðar. Námskeiðið er ætlað leiðsögufólki í deild VR en er opið öllu félagsfólki. Skráning er nauðsynleg, bæði fyrir þátttöku á staðnum og í gegnum Teams og fer fram í viðburðadagatalinu á vr.is
RAFRÆNIR FYRIRLESTRAR Á MÍNUM SÍÐUM HÆGT ER AÐ HORFA Á EFTIRFARANDI FYRIRLESTRA Á MÍNUM SÍÐUM:
VIÐBÓTARLÍFEYRISSPARNAÐUR Í myndbandinu er farið yfir helstu atriði viðbótarlífeyrissparnaðar og þann ávinning sem hann getur veitt. Útskýrt er hvernig hægt er að hefja sparnaðinn og hvaða valkostir standa til boða. Einnig er fjallað um helstu kosti sparnaðarins, mismunandi fjárfestingaleiðir og hvernig hægt er að nýta hann. Tekið er dæmi um hversu háa fjárhæð einstaklingur getur safnað fram að starfslokum og hvað þarf að hafa í huga þegar skipt er um starf. Fyrirlesari: Jenný Ýr, sérfræðingur hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna. Lengd: 8 mínútur HÁLFLEIKUR Þegar starfsævin er um það bil hálfnuð er tilvalið að staldra við og taka stöðuna. Í myndbandinu er fjallað um atriði sem vert er fyrir félagsfólk VR í kringum fimmtugt að velta fyrir sér. Hvað þýðir það að starfsævin sé hálfnuð? Viltu vinna eins lengi og heilsa leyfir eða stefna að því að hætta fyrr – og hvað getur hvor leið þýtt fyrir þig?
NORÐURLJÓSAFRÆÐSLA MEÐ SÆVARI HELGA Fjallað er almennt um vísindin á bak við norðurljós. Rýnt er í ýmis konar geimveðurgögn sem auðvelda leiðsögufólki að sjá norðurljós og átta sig á hvenær líkur eru á að þau kvikni. Upptaka frá fyrirlestri 17. september sl. aðgengileg tímabundið. Fyrirlesari: Sævar Helgi Bragason. Lengd: 1 klst. og 50 mínútur.
NÁNARI UPPLÝSINGAR MÁ FINNA Í VIÐBURÐA DAGATALI Á VR.IS
Fyrirlesari: Jenný Ýr, sérfræðingur hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna. Lengd: Um 8 mínútur VR BLAÐIÐ 02 2026
7
SAMKOMULAG UM VIÐBRÖGÐ VIÐ FORSENDUBRESTI KJARASAMNINGA Laust fyrir kl. 16 fimmtudaginn 8. október 2026 lá fyrir samkomulag milli VR, LÍV og Fagfélaganna annars vegar og Samtaka atvinnulífsins hins vegar um viðbrögð við forsendubresti kjarasamninga. Samkomulagið og ekki síst aðgerðir sem ríkið leggur til í tengslum við gerð þess koma til móts við erfiða stöðu félagsfólks VR og styður það inn í árið 2027 segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR. Hún telur að félagið hafi náð eins góðri lendingu og unnt var við þær aðstæður sem uppi voru. Sjá leiðara formanns á bls. 3.
væru í hættu. Félögin unnu þétt saman þar til samkomulag var undirritað. Síðustu daga og vikur fyrir undirritun var á brattann að sækja enda lítinn samningsvilja að finna hjá viðsemjendum félaganna. Eftir harðar kjaraviðræður náðist þó samkomulag sem félagið getur unað við. Aðkoma stjórnvalda skipti þar sköpum. Með samkomulagi við SA um forsenduákvæði og við aðkomu ríkisstjórnar í gegnum vaxtabótaauka tókst að tryggja varnir fyrir launafólk sem virkjast ef verðbólgan verður 3,8% eða hærri undir árslok.
FORSENDUR BRUSTU OG KJARAVIÐRÆÐUR HÓFUST Forsendur samninganna, sem undirritaðir voru árið 2024, voru þær að verðbólga í ágúst 2026 mældist ekki yfir 4,7% eða verðbólga á sex mánaða tímabili, frá mars til ágúst sama ár, yrði 4,4% eða lægri miðað við árshraða. Verðbólga í ágúst mældist hins vegar 5,6% og forsendur brustu. Innan VR eru stórir hópar félagsfólks sem hafa eingöngu fengið almennar kjarasamningsbundnar hækkanir á gildistíma þessara kjarasamninga. Verðbólga hefur verið hærri en þær hækkanir sem þýðir að félagsfólk hefur verið að lækka í raunlaunum á sama tíma og húsnæðiskostnaður hefur snaraukist vegna hárra stýrivaxta. Um áramótin hækka almenn laun um 3,5% en verðbólguspár eru hærri. VR lagði því ríka áherslu á einhverjar varnir fyrir launafólk verði verðbólgan umfram 3,5% eins og líklegt er.
Hér á eftir er fjallað um helstu atriði samkomulagsins og aðgerðapakka stjórnvalda sem liðkaði verulega fyrir viðræðum. Samkomulagið sjálft og upplýsingar um aðgerðir stjórnvalda má sjá á vefsíðu VR, vr.is.
VR tók höndum saman við Landssamband ísl. verzlunarmanna og Fagfélögin snemma í mars 2026 þegar ljóst var að forsenduákvæðin
Forsenduákvæðið heimilar að stytta samningstímann um allt að tvo mánuði ef 12 mánaða verðbólga í október 2027 mælist yfir 4,3% eða
8
VR BLAÐIÐ 02 2026
FORSENDUÁKVÆÐI OG VERÐBÓLGUVIÐMIÐ Samkomulagið sem var undirritað nú í október felur í sér forsenduákvæði tengt verðbólguþróun en stytta má samninga ef verðbólga fer yfir tiltekið viðmið. VR og samstarfsfélögin lögðu áherslu á að aðilar kæmu sér saman um verðbólguviðmið til að tryggja að fyrirtæki og stjórnvöld stæðu við gefin fyrirheit um að halda aftur af verð- og gjaldskrárhækkunum. Forsenduákvæðið veitir VR og samstarfsfélögum þess þannig svigrúm til að setjast að samningaborðinu fyrr ef markmið um að ná niður verðbólgu ganga ekki eftir.
ef verðbólga á sex mánaða tímabili frá apríl til október 2027 verður yfir 3,8% miðað við árshraða. Kjarasamningsbundnar launahækkanir nema að lágmarki 3,5% þannig að viðmiðið virkjast fljótt ef staðan breytist ekki. GJALDSKRÁRHÆKKANIR EKKI UMFRAM 2,5% Ríkið, sveitarfélögin, Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu þegar samkomulag VR, LÍV og Fagfélaganna lá fyrir og stjórnvöld kynntu ítarlegan aðgerðapakka. Þessari aðgerðir liðkuðu allar fyrir samningaviðræðum og eru til marks um að samfélagið allt vill leggja sitt af mörkum til að freista þess að kjarasamningar lifi út gildistímann. Ríkið ætlar til að mynda að halda gjaldskrárhækkunum sem hafa áhrif á vísitölu neysluverðs – að kílómetragjaldi undanskildu – við 2,5% markið. Sama á við um ríkisstofnanir og sveitarfélögin. Þá ætla Samtök atvinnulífsins að hvetja fyrirtæki innan sinna raða til að halda aftur af verðhækkunum. Mörg fyrirtæki höfðu þá þegar brugðist við bréfi frá VR, LÍV og Fagfélögunum með yfirlýsingum um með hvaða hætti þau ætluðu sér að halda aftur af verðhækkunum og samstarfsfélögin munu áfram halda fyrirtækjum og stjórnvöldum við efnið.
leigubremsu, að barnabætur haldi í við verðlag og átak í uppbyggingu innan almenna íbúðakerfisins. Það sem hafði einna mest áhrif á að samkomulag náðist er tillaga ríkisins um einskiptisvaxtabætur sem munu létta á skuldsettum heimilum haldi verðbólga áfram að vera há. Þessar vaxtabætur eru stigvaxandi, þær eru tengdar verðbólguviðmiði og eru þannig hærri eftir því sem verðbólga er hærri. Mælist ársverðbólga í lok október 2027 yfir 3,8% verða greiddar einskiptisvaxtabætur í upphafi árs 2028 upp á 1,3 milljarða króna, tvo milljarða króna mælist verðbólga yfir 4% en þrjá milljarða króna ef ársverðbólgan mælist yfir 5%. Slíkar vaxtabætur eru afar mikilvægar fjölskyldum með þunga skuldabyrði. VR, LÍV og Fagfélögin unnu með forsætisráðuneytinu að útfærslu vaxtabótanna til að tryggja að þær mæti skuldugu félagsfólki en iðulega hefur tekjutenging vaxtabóta leitt til þess að jafnvel barnafólk með lægri millitekjur á engan slíkan rétt. Samkomulagið sem VR, LÍV og Fagfélögin náðu rétt áður en klukkan sló fjögur síðdegis fimmtudaginn 8. október 2026 felur í sér varnir fyrir launafólk gagnvart þrálátri verðbólgu og er hvatning fyrir atvinnurekendur, sveitarfélög og ríkið að standa við þau fyrirheit sem gefin voru í tengslum við kjaraviðræðurnar.
VAXTABÆTUR TIL SKULDSETTRA HEIMILA Stjórnvöld boða frekari aðgerðir í þágu launafólks og heimila og má sjá aðgerðapakkann í heild sinni á vefsíðu VR, vr.is. Þar á meðal má nefna
VR BLAÐIÐ 02 2026
9
KJARASAMNINGAR STANDA Snemma á vormánuðum 2026 ákváðu VR, Landssamband ísl. verzlunarmanna og Fagfélögin að vinna sameiginlega að því að vernda hagsmuni félagsfólks í þeirri stöðu sem þá var uppi en þrálát verðbólga og svimandi háir stýrivextir stefndu kjarasamningum í hættu. Í forsenduákvæði kjarasamninganna frá 2024 er viðmiðið 4,7% verðbólga eða lægri í ágúst 2026, að öðrum kosti teldust forsendur hafa brostið. Strax á vormánuðum 2026 var ljóst í hvað stefndi og raunin var sú að verðbólga í ágúst stóð í 5,6% og forsendur samninganna brustu. VR, LÍV og Fagfélögin eru í forsvari fyrir um það bil 45% launafólks á almennum vinnumarkaði sem margt er fyrir löngu komið að þolmörkum. Í sjö mánuði stóðu félögin í stappi við atvinnurekendur og stjórnvöld í þeirri von að hægt væri að koma í veg fyrir uppsögn samninga. Það gekk að lokum og náðist samkomulag sem felur í sér nýtt forsenduákvæði sem heimilar styttingu gildistíma kjarasamninga um tvo mánuði, verði þróun verðbólgu umfram ákveðið viðmið. Ríkisstjórnin steig inn í kjaraviðræðurnar með afgerandi hætti sem liðkaði verulega fyrir því að samkomulag náðist. Hér á eftir er stiklað á stóru í vegferð félaganna frá vori 2026 þar til gengið var frá nýju samkomulagi.
10 VR BLAÐIÐ 02 2026
MARS OG APRÍL 2026 Samstarf VR, LÍV og Fagfélaganna hófst snemma í marsmánuði en þá þegar var ljóst að forsendur kjarasamninga stóðu tæpt. Í lok apríl birtu félögin kröfur sínar þar sem lagt var að öllum að leggja sitt af mörkum – fyrirtækjum sem ráða hér verðmyndun, stjórnvöldum sem hafa í hendi sér að grípa inn í húsnæðismálin og sveitarfélögunum sem eiga að leiðrétta gjaldskrár sínar. Krafan var sú að staðið yrði við gefin loforð. MAÍ 2026 Á verkalýðsdeginum – 1. maí 2026 – birtu VR, LÍV og Fagfélögin tillögur að því hvernig vinna mætti bug á verðbólgu og koma til móts við þann hóp sem verst hefði orðið úti vegna efnahagsástandsins. Verðbólgan væri heimatilbúinn vandi og skoruðu félögin á fyrirtæki og stjórnvöld að axla ábyrgð og grípa til aðgerða. Þess var krafist að bankarnir drægju vaxtahækkanir, sem kynntar voru undir lok mánaðarins, til baka. Þegar stríðið gegn Íran hófst beittu félögin sér fyrir því að fundnar yrðu leiðir til að verðhækkanir á olíu myndu ekki dynja á heimilum landsins af fullum
þunga. Í maí voru samþykkt lög um verðþak á olíu til að bregðast við áhrifum olíukrísunnar. Það var framsækið skref en því miður eingöngu tímabundið. Lögin féllu úr gildi á haustmánuðum og áhrifa þess gætti fljótlega í verðbólgumælingum. JÚNÍ 2026 Í fyrri hluta júnímánaðar efndu félögin til fjölmenns fundar um verðbólgu, verðlag og laun undir yfirskriftinni Eggið eða hænan. Á fundinum var hrakin sú mýta að launahækkanir séu helsti orsakavaldur verðbólgu. Verðbólga ráðist öðru fremur af þáttum á borð við verðþróun erlendis og gengi krónunnar. Fundurinn var liður í þeirri vegferð félaganna að efna til umræðu í þjóðfélaginu um raunverulegar orsakir stöðunnar í efnahagslífinu og leita leiða til að snúa þróuninni við. ÁGÚST 2026 Sumarið leið án aðgerða af hálfu atvinnurekenda eða stjórnvalda. Í ágúst settu félögin enn og aftur fram kröfu um að þessir aðilar tækju þátt í því með launafólki að koma böndum á verðbólguna ella væri enginn annar kostur í stöðunni en uppsögn kjarasamninga. Enn á ný var efnt til opins fundar, nú undir yfirskriftinni Langvarandi vaxtaverkir þar sem fjallað var um samspil stýrivaxta og verðbólgu. Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að hækka stýrivexti í 8%, sem tilkynnt var skömmu áður en fundurinn hófst, setti svip sinn á umræðurnar. Jaya Sood, hagfræðingur hjá New Economics Foundation í Bretlandi, benti á það á fundinum að hækkun stýrivaxta væri val, ekki náttúrulögmál, og hækkun bankans hefði ekki verið rétta skrefið í þeim aðstæðum sem þá voru uppi – og eru enn. Í ágústmánuði varð svo endanlega ljóst að forsendur kjarasamninga voru brostnar, verðbólga mældist 5,6% en forsendur kjarasamninga miðuðu við 4,7% eða lægri vexti. Í kjölfarið samþykktu samninganefndir VR, LÍV og fagfélaganna að skora á atvinnurekendur og stjórnvöld að mæta lausnamiðuð til leiks. Í ágúst skipaði VR jafnframt viðræðunefnd til að undirbúa þær kjaraviðræður sem blöstu við þar sem allt benti á þeim tíma til uppsagnar kjarasamninga.
Félögin sendu í september stærri fyrirtækjum og sveitarfélögum bréf þar sem óskað var svara við því hvað þessir aðilar ætluðu að leggja af mörkum svo kjarasamningar gætu haldið gildi sínu. Í kjölfarið samþykkti þing Sambands íslenskra sveitarfélaga áskorun til sveitarfélaganna að halda gjaldskrárhækkunum við 2,5% markið á árinu 2027 og lýstu mörg þeirra yfir vilja til þess. Nokkur verðmótandi fyrirtæki svöruðu einnig með loforðum um frystingu verðlags eða lækkun, allavega fram til áramóta. Enn voru að berast viðbrögð fyrirtækja og sveitarfélaga um það leyti sem VR blaðið fór í vinnslu. OKTÓBER 2026 Herferð félaganna í fjölmiðlum undir yfirskriftinni Orð skulu standa hófst svo þann 1. október. Herferðinni var ætlað að beina sjónum að aðgerðaleysi fyrirtækja og stjórnvalda undangenginna mánaða sem leiddi til þeirrar stöðu sem þá var uppi – líkur á uppsögn kjarasamninga voru miklar. Launafólk hafi verið svikið um samstöðuna sem lofað var í tengslum við gerð kjarasamninganna 2024 og félagsfólk VR stóð frammi fyrir því að bera áfram áhættuna af efnahagsástandinu með sömu loforðin í vasanum og síðast. LOKAMETRARNIR Frestur til að segja upp samningum var til kl. 16:00 þann 8. október 2026. VR, LÍV og Fagfélögin funduðu stíft með Samtökum atvinnulífsins fram að síðustu mínútu, lögðu fram margar tillögur að lausn og reyndu að koma til móts við áhyggjur fyrirtækjanna. Tæplega tveimur sólarhringum fyrir eindaga sömdu nokkur önnur stéttarfélög á vinnumarkaði við Samtök atvinnulífsins um framlengingu samninga til loka árs 2027. Það var mat VR að það kæmi ekki nægjanlega til móts við hagsmuni félagsfólks VR. Viðræður héldu því áfram við atvinnurekendur alveg fram að síðustu stundu og kl. 15:59 var samkomulagið í höfn. Nánar er fjallað um samkomulagið á bls. 8 - 9 og í leiðara formanns á bls. 3.
SEPTEMBER 2026 Stjórn VR sendi frá sér ályktun í september eftir að fjármálaráðherra kynnti fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar sem gerði lítið til að styrkja forsendur kjarasamninganna. Stjórnin krafðist þess að ríkisstjórnin og Alþingi endurskoðuðu frumvarpið með hagsmuni launafólks að leiðarljósi, drægju úr fyrirhuguðum álögum á heimilin, frystu opinberar gjaldskrár og legðu fram raunverulegar aðgerðir til að ná niður verðbólgu og vöxtum.
VR BLAÐIÐ 02 2026 11
GREIN
UPPSAGNARFRESTUR OG HÓPUPPSAGNIR HVAÐ ER UPPSAGNARFRESTUR? Uppsagnarfrestur er gagnkvæmur réttur atvinnurekanda og starfskrafts til að slíta vinnusambandi aðila. Báðir aðilar þurfa að tilkynna hinum með formlegum og sannanlegum hætti þegar ætlunin er að slíta vinnusambandinu. HVAÐ ER UPPSAGNARFRESTURINN LANGUR? ▪ Eftir 0-3 mánuði í vinnu, uppsagnarfresturinn er ein vika. ▪ Eftir 3-6 mánuði í vinnu, uppsagnarfresturinn er einn mánuður. ▪ Ef unnir eru fleiri en sex mánuðir, uppsagnarfresturinn er þrír mánuðir.
Uppsagnarfresturinn er bundinn við mánaðamót og byrjar að telja frá og með fyrsta degi næsta mánaðar eftir að uppsögn hefur verið birt þeim sem uppsögnin beinist að. Uppsagnarfresturinn lengist þegar starfskraftur hefur náð 10 ára starfstíma hjá fyrirtæki og ákveðnum aldri. Uppsagnarfrestur starfsfólks í hlutastarfi og/eða tímavinnu er jafnlangur fólks sem er í fullu starfi. Framangreindur réttur á við um allt starfsfólk sem vinnur hjá atvinnurekanda, hvort sem atvinnurekandi hefur sinnt skyldu sinni til að útbúa ráðningarsamning eða ekki.
12 VR BLAÐIÐ 02 2026
ÞARF ÉG AÐ VINNA UPPSAGNARFRESTINN? Meginreglan í vinnurétti er að starfskraftur vinni á uppsagnarfresti. Heimilt er að aðilar semji um skemmri uppsagnarfrest. Ef samið er um styttri uppsagnarfrest er mikilvægt að það sé gert skriflega. MÁ UPPSÖGN VERA MUNNLEG? Já, en ef upp kemur ágreiningur getur verið erfitt að sanna munnlega uppsögn. Því er ávallt ráðlagt að hafa uppsögn skriflega. GET ÉG TEKIÐ UPPSAFNAÐ ORLOF INN Í UPPSAGNARFREST? Meginreglan er sú að orlof og uppsagnarfrestur getur ekki farið saman. Því er einungis hægt að fella áunnið orlof inn í uppsagnarfrest og stytta þar með uppsagnarfrestinn ef gagnkvæmt samkomulag er um það milli atvinnurekanda og starfskrafts. Sé ekki samkomulag um slíkt fyrirkomulag lengist uppsagnarfrestur miðað við það orlof sem tekið er í uppsagnarfresti. Á ÉG RÉTT Á AÐ VITA ÁSTÆÐU UPPSAGNAR? Meginreglan er sú að hvorugum aðilanum, þ.e. atvinnurekanda og starfskrafti, er skylt að greina frá ástæðum uppsagnar í uppsagnarbréfinu. Eina undantekningin er í tilfelli atvinnurekanda ef ætlunin er að segja starfskrafti upp störfum sem þar sem rökstyðja þarf uppsögn, t.d. eftir tilkynningu á töku fæðingarorlofs eða vegna uppsagnar trúnaðarmanns. Starfskraftur á þó þann kjarasamningsbundna rétt að óska eftir viðtali um starfslok sín og ástæður uppsagnarinnar. Í því tilviki er hann vill nýta þann rétt skal hann biðja um viðtal innan fjögurra sólarhringa frá því að uppsögnin var móttekin.
HVAÐ ER FYRIRVARALAUS UPPSÖGN? Fyrirvaralaus uppsögn er þegar starfskrafti er sagt upp án þess að fyrirtækið ætli að virða kjarasamningsbundinn uppsagnarfrest. Ef starfskraftur fær fyrirvaralausa uppsögn þar sem uppsagnarfrestur er ekki virtur skal hann setja sig í samband við kjaramálasvið VR eins fljótt og unnt er. HVERNIG Á AÐ STANDA AÐ UPPGJÖRI STARFSKRAFTS VIÐ STARFSLOK? Þegar starfskraftur hættir, hvort sem er með samkomulagi eða við lok uppsagnarfrests, þarf að gera upp laun ásamt áunnum réttindum eins og orlofsuppbót, desemberuppbót og orlofi. Uppgjör á að eiga sér stað með síðustu launagreiðslu síðustu mánaðamóta uppsagnar. HVAÐ ER HÓPUPPSÖGN? Hópuppsögn er þegar fjöldi þeirra sem sagt er upp á 30 daga tímabili er: ▪ a.m.k. 10 í fyrirtækjum með 16-100 starfandi ▪ a.m.k. 10% í fyrirtækjum með 100-300 starfandi ▪ a.m.k. 30 í fyrirtækjum með 300 starfandi eða fleiri
HVAÐ ER ÓLÍKT MEÐ HÓPUPPSÖGN OG ÖÐRUM UPPSÖGNUM? Þegar til hópuppsagnar kemur þarf atvinnurekandi að hafa samráð við trúnaðarmann eða annan fulltrúa starfsfólks ef enginn trúnaðarmaður er í fyrirtækinu. Trúnaðarmaðurinn/fulltrúi starfsfólks skal þá aðstoða atvinnurekandann í að leita leiða til að komast hjá uppsögnum eins og kostur er. Hann á rétt á upplýsingum um ástæður uppsagnar, fjölda starfsfólks sem til stendur að segja upp og hvenær uppsagnirnar muni eiga sér stað. Allt starfsfólk á að minnsta kosti 30 daga uppsagnarfrest þótt það hafi unnið skemur en þrjá mánuði hjá fyrirtækinu. HVAÐ EF STEFNT ER AÐ ENDURRÁÐNINGU EINHVERS STARFSFÓLKS? Ef atvinnurekandi telur nauðsynlegt að segja upp hópi fólks en þó er stefnt að endurráðningu hluta starfsfólksins getur það haft áhrif á lengd uppsagnarfrestsins. Atvinnurekandinn þarf að tilkynna hvaða starfsfólk verður ráðið aftur þegar minna en þriðjungur uppsagnarfrestsins hefur liðið. Ef starfskrafti er tilkynnt að hann verði ekki ráðinn þegar eftir standa a.m.k. 2/3 hlutar uppsagnarfrests framlengist uppsagnarfrestur hans
Þúsundir VR félaga hafa tekið sjálfspróf VR í stafrænni hæfni! Ert þú búin/n/ð að taka prófið?
▪ um einn mánuð ef uppsagnarfresturinn er þrír mánuðir ▪ um þrjár vikur ef uppsagnarfresturinn er tveir mánuðir ▪ um tvær vikur ef uppsagnarfresturinn er einn mánuður
Á þetta við um starfsfólk sem hefur a.m.k. eins mánaðar uppsagnarfrest skv. kjarasamningi. Fleiri spurningar og svör varðandi veikindarétt, uppsagnir og orlof má finna á vef VR.
Kynntu þér málið nánar á stafrænhæfni.is
VR BLAÐIÐ 02 2026 13
VR BLAÐIÐ 70 ÁRA
VR BLAÐIÐ 70 ÁRA Fyrsta tölublað VR blaðsins leit dagsins ljós í október 1956 og verður VR blaðið því 70 ára í ár. Í þessu fyrsta tölublaði, sem var fjórar síður af texta án mynda, var lögð áhersla á að birta kjarasamning félagsins og launatöflur verslunarfólks. Blaðið hefur alla tíð verið vettvangur fyrir hagsmunamál félagsfólks, eins og kemur fram í fyrsta tölublaðinu félagins, þar sem birtar hafa verið umfjallanir um réttindi félagsfólks og félagsfólk sjálft tekið tali inn á vinnustöðunum. Það er fróðlegt að fletta gömlum VR blöðum og skoða viðfangsefnin í áranna rás og eru blöðin um margt spegill á það sem var að gerast í samfélaginu á hverjum tíma. Á sjöunda áratugnum birtist í VR blaðinu fyrirsögnin „Af hverju vinna giftar konur úti?“ en á þeim níunda var verslunarfólk spurt um laugardagslokanir í verslunum. Hér fyrir neðan má sjá umfjallanir sem hafa birst í VR blaðinu í gegnum tíðina. 1956 – Aðvörun send til verslunarmanna að félagsfólk VR hafi forgangsrétt að starfi hjá atvinnurekendum sem eru aðilar að samningi VR. Uppsagnir voru sagðar fyrirhugaðar hjá verslunarmönnum á Keflavíkurflugvelli og taldi VR nauðsynlegt að árétta til verslunareigenda að starfsfólk þeirra væru aðilar að VR, því annars gæti það átt hættu að vera vikið úr starfi fyrir atvinnulausu félagsfólki VR. 1956 – Nýr sparisjóður, Verzlunarsparisjóðurinn, tekur til starfa. 1957 – Trúnaðarmannakerfi sett á laggirnar. 1957 – Landssamband íslenzkra verzlunarmanna stofnað. 1960 – Verslunarfólk sækir um inngöngu í ASÍ. 1961 – Þrjú störfuðu á skrifstofu félagsins, Magnús L. Sveinsson sem þá var skrifstofustjóri (og síðar formaður félagsins), frú Heiður Sæmundsdóttir og Tryggvi Tryggvason sem var í hlutastarfi. 1962 – Launajöfnuður kvenna og karla – Laun kvenna hækkuðu frá 1. janúar 1962. 14 VR BLAÐIÐ 02 2026
VR BLAÐIÐ 70 ÁRA
1962 – „VR semur um 9% kauphækkun“ 1963 – Eyðublað til útfyllingar til að gerast félagi í VR. 1964 – Fyrsta verkfall VR – „10. desember 1963 mun verða minnst sem einum af viðburðaríkustu dögum í sögu Verzlunarmannafélags Reykjavikur. Sá dagur var fyrsti dagur fyrstu vinnustöðvunar félagsins“, sagði Magnús L. Sveinsson formaður VR á fjölmennum fundi í Sjálfstæðishúsinu 13. desember sama ár. 1965 – „Af hverju vinna giftar konur úti?“ Grein í tímariti breska Alþýðusambandsins „Labour“ var birt í VR blaðinu en í henni kom fram að ein af hverjum þremur giftum konum í Bretlandi ynnu úti. Þær ynnu þó ekki til að afla brýnustu nauðsynja, heldur til að skapa fjölskyldu sinni betri lífskjör, sem voru til dæmis kaup á sjónvarpstæki eða jafnvel bílakaup og reksturs bíls. Börn mæðra sem unnu úti áttu fleiri leikföng og fengu meiri vasapeninga. Sumar ynnu þó félagsskaparins vegna þar sem eiginmaðurinn væri í vinnu allan daginn og börnin í skóla.
1979 – „Sjúkrasjóður VR stofnaður.“ Sjóðurinn fær í tekjur sem nemur 1% af öllum launum félagsfólks VR og greiðist það af atvinnurekanda. 1981 – „Tölvuvæðing í verslunarstétt – tækniþróun sem verður ekki stöðvuð“ 1982 – Félagsfólk tekið tali og spurt álits um laugardagslokanir í verslunum, sem stóðu frá 20. júní til loka ágústmánaðar. Þar segir að þessar lokanir hafi valdið talsverðum blaðaskrifum og deilum en í svörum verslunarfólks má sjá að þau séu öll sammála um nauðsyn þess að fá frí á laugardögum, en ákvæði í kjarasamningi gerði ráð fyrir lokun í verslunum 10 laugardaga yfir sumarið. Einni verslunarkonu þótti nauðsynlegt að fá almennilegt helgarfrí nokkrum sinnum á ári. 1982 – „Tölva notuð í fyrsta sinn við úthlutun orlofshúsa“ 1982 – Fólk tekið tali í aðdraganda jóla og margir sammála um að „jólagjafafarganið“ sé orðið algert brjálæði.
1968 – Atvinnulaust félagsfólk í Verslunarmannafélagi Reykjavíkur hvatt til að skrá sig hjá Ráðningarskrifstofu Reykjavíkurborgar. Ef fólk skráir sig ekki þar nýtur það ekki bótagreiðslna úr atvinnuleysistryggingarsjóði.
1982 – „Flokkaskipan frá 1. jan 1983“ - Athygli vekja launataxtar fyrir unglinga að 14 ára aldri.
1968 – VR aðili að íbúðum í Breiðholti.
1983 – Nýr Verzlunarskóli Íslands.
1970 – Stefnt að 5 daga vinnuviku og að dagvinnutíminn verði 38 stundir á viku.
1983 – Ingibjörg R. Guðmundsdóttir kjörin formaður VR fyrst kvenna.
1970 – Stjórnunarfélag Íslands gaf út leiðbeiningarbækling um símsvörun sem birtur var í VR blaðinu.
1984 – Viðtal við tvær konur sem vinna kvöldvinnu við að innrita notkun krítarkorta. 1984 – „Við viljum ekki vinna á laugardögum í sumar!“
1971 – „Óhóflega langur vinnutími hjá afgreiðslufólki“ 1985 – Tölvuvæðing á skrifstofu VR. 1973 – Vísiskrakkarnir – auglýsing. 1985 – „Aftur metaðsókn“ – 10 árum eftir kvennaverkfallið. 1975 – „Þriggja mánaða fæðingarorlof“ 1975 – „Athyglisverð nýjung! Sveigjanlegur vinnutími“
1987 – Fullyrt að danskir og íslenskir verslunarmenn hafi kennt Íslendingum að borða með hníf og gaffli!
1975 – „Krafa að hægt sé að lifa af dagvinnunni“
1988 – „Allsherjaratkvæðagreiðsla í fyrsta sinn“
VR BLAÐIÐ 02 2026 15
VR BLAÐIÐ 70 ÁRA
1988 – „Kolanámur nútímans?“ Fjallað um vinnu unglinga 1988 – „VR í verkfalli“ 1995 – Barn fæddist í orlofshúsi VR í Miðhúsaskógi. Barnið fæddist nokkrum vikum fyrir tímann. 1996 – „Nauðsynlegt fyrir launþega að fylgjast vel með launaseðlum sínum“ 1996 – „Laun kvenna 70% af launum karla“ 1999 – „Félagsmenn VR njóta 80% launa í fæðingarorlofi“ 1999 - „Mikilvægt fyrir unga fólkið að byrja séreignasparnað strax“
2010 – „Breytt mannauðsstjórnun á Íslandi eftir efnahagshrunið“
1999 - „Orsakir kulnunar gjarnan hægt að rekja til vinnuaðstæðna“
2011 – „Launin hækka en launamunur kynjanna óbreyttur“
1999 – VR kom að skipulagningu ráðstefnunnar Konur og lýðræði við árþúsundamót en heiðursgestur hennar Hillary Clinton.
2011 – „Unga fólkið og kreppan“
2000 – „VR á vettvangi“. Fulltrúar VR fóru reglulega í heimsóknir í fyrirtæki í höfuðborginni í aðdraganda kjarasamningaviðræðna.
2012 – „Tjaldsvæði VR í Miðhúsaskógi opnað“ 2015 – „VR- skóli lífsins fer á flug“
2000 – Vinnuvikan stytt um 30 mínútur.
2013 – „Raunfærnimat styrkir einstaklinginn“
2000 – Nýr starfsmenntasjóður tekinn til starfa, Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks.
2019 – „Stytting vinnuvikunnar. Breyttir tímar á vinnumarkaði“
2000 – Ný lög um fæðingarorlof.
2021 – „Stöndum þriðju vaktina saman“
2002 – „Áformum um sumarlokanir leikskóla mótmælt“
2021 – „Fjarvinna á tímum Covid-19. Félagsleg einangrun stærsta áskorunin“
2003 – „Tölvuhræðsla algengt vandamál“
2025 – „Fyrstu íbúðir VR Blævar afhentar“
2006 – „Málið snýst um jafnvægi – Vinnualkar þjást af þráhyggju“
2026 – „Áhrif gervigreindar á vinnumarkaðinn“
16 VR BLAÐIÐ 02 2026
VR BLAÐIÐ 70 ÁRA
VR BLAÐIÐ 02 2026 17
GERVIGREIND OG SJÁLFRÆÐI STARFSFÓLKS Þegar rætt er um gervigreind og vinnumarkaðinn snýst umræðan oft um hvaða störf muni hverfa með aukinni sjálfvirknivæðingu. Hagfræðingum og öðrum sérfræðingum greinir þó verulega á um hverjar líklegustu sviðsmyndirnar séu í þeim efnum. Victor Karl Magnússon
almennings eftir vörunni eykst til muna (fyrirbæri sem hagfræðingar hafa nefnt þverstæðu Jevons).
Sérfræðingur hjá VR og doktorsnemi við Oxford háskóla
Þeir sem eru bjartsýnni á horfur á atvinnumarkaði með tilkomu gervigreindar hafa líka bent á þá staðreynd að þótt störfum fækki innan tiltekins geira geti fleiri störf skapast í öðrum, ótengdum greinum. Saga þróaðra iðnríkja á 20. öld sýnir glögglega hvernig þetta getur gerst en með sjálfvirknivæðingu og úthýsingu starfa til annarra ríkja fækkaði starfsfólki í verksmiðjum og framleiðslu til muna á nokkrum áratugum en samhliða þeirri þróun snarfjölgaði stöðugildum í verslun og þjónustu.
Svartsýnustu spár gera ráð fyrir stórfelldu atvinnuleysi á næstu árum og áratugum, þvert á starfsgreinar, eftir því sem tækninni fleygir fram og fyrirtæki komast upp með að sinna verkefnum sínum með færra (og í sumum tilfellum engu) starfsfólki. Aðrar spár eru hóflegri og bjartsýnni. Þá er reglulega bent á þá staðreynd að tæknibreytingar hafi í gegnum tíðina einnig skapað ný störf. Þetta getur átt sér stað þegar ný störf skapast innan geira þar sem sjálfvirknivæðing á sér stað, til dæmis þegar ný vél sem er tekin til notkunar kallar á starfsfólk sem hefur eftirlit með henni og heldur henni við. Eins geta áhrifin orðið þau þegar tæknin eykur framleiðslugetu til muna að starfsfólki fjölgi, frekar en fækki. Það gerist vegna þess að sparnaðurinn sem hlýst af tækninni verður til þess að lækka verð á vörunni sem er framleidd með þeim afleiðingum að eftirspurn
18 VR BLAÐIÐ 02 2026
Loks má nefna ýmsa aðra þætti sem gætu dempað áhrif gervigreindar á atvinnuleysi, ekki síst kostnaðinn sem fylgir því að keyra gervigreindartól í stórum stíl en einnig áhættuna sem fylgir því að treysta gervigreindinni fyrir viðkvæmum verkefnum þar sem mistök eru dýrkeypt og eftirlit lítið. Nú þegar hafa komið fram dæmi í Bandaríkjunum og víðar þar sem stórfyrirtæki hafa afturkallað hópuppsagnir þegar í ljós kom að kostnaðurinn og áhættan vegna notkunar á gervigreind sem átti að taka við hlutverki starfsfólks reyndist ekki réttlætanleg. Þá mun almennt viðhorf almennings og stjórnvalda einnig skipta gríðarlega miklu máli í því hversu hratt tæknin er innleidd og með
hvaða hætti. Sum störf og verkefni eru þess eðlis að krafan um mannlega nálgun verður rík. Það verður til dæmis eflaust hægt að hagnýta ýmis gervigreindartól með uppbyggilegum hætti við kennslu eða í heilbrigðisgeiranum en það er harla ólíklegt að nokkur hafi áhuga á því að senda börnin sín í skóla án kennara eða sækja læknisþjónustu þar sem engin mannleg samskipti eiga sér stað. Þrátt fyrir þessar röksemdafærslur er mörgum spurningum enn ósvarað um áhrif gervigreindar á atvinnuhorfur næstu árin. Ljóst er að stéttarfélög verða, eins og samfélagið allt, að búa sig undir þær sviðsmyndir sem gætu raungerst. Þá þurfa þau að tryggja að launafólk fái réttláta hlutdeild í þeim gæðum sem tæknin skapar á sama tíma og hagsmunir og réttindi þeirra sem gætu hlotið skaða af þessum breytingum eru varin. Þó svo að talsverð óvissa ríki um áhrif tæknibreytinga á fjölda starfa og atvinnuþátttöku eru flestir sérfræðingar á því máli að gervigreind muni breyta því hvernig mörg störf verða unnin. Þannig má búast við því að mörg störf séu þess eðlis að einhver reglubundin verkefni verði sjálfvirknivædd með þeim afleiðingum að starfsfólk setji meiri tíma og athygli í aðra þætti starfsins sem krefjast flóknari úrvinnslu, dómgreindar eða mannlegrar nálgunar. Margar spár gera ráð fyrir að breytingar af þessu tagi verði sérstaklega miklar hjá skrifstofufólki sem vinnur mikið með tölur, texta og gögn – aðstæður þar sem gervigreind er á heimavelli. Því er mikilvægt að stéttarfélög einblíni ekki á þá (vissulega mikilvægu) spurningu um hvort störf hverfi heldur líka á það hvort þær breytingar sem verða á starfsumhverfinu verði til þess fallnar að gera störf betri eða verri, skemmtilegri eða leiðinlegri og hvort starfsánægja og vellíðan aukist eða verði ógnað af tækninni. Í mörgum tilfellum má til dæmis ímynda sér að starfsfólk yrði fegið ef tæknin gæti tekið við tímafrekum rútínuverkefnum sem þarf að klára en eru endurtekningasöm, leiðinleg eða taka tíma frá öðrum þáttum í starfinu sem eru mikilvægari eða meira gefandi. Það er niðurstaða sem flest okkar myndu fagna og myndi bæta afkastagetu starfsfólks og starfsþróun. Hins vegar má líka merkja dæmi um innleiðingu tæknilausna sem hafa þveröfug áhrif á gæði starfa og vellíðan í vinnu. Ákveðnar tegundir af reikniritadrifinni stjórnun (e. algorithmic management) sýna einmitt vel hvernig gervigreind getur haft skaðleg áhrif á starfsumhverfi og rýrt traust milli starfsfólks og stjórnenda. Reikniritadrifin stjórnun er hugtak sem er notað til að lýsa því þegar hugbúnaður er notaður til að skipuleggja, stýra, fylgjast með eða meta vinnu starfsfólks. Kerfi getur til dæmis ákveðið hver fær hvaða verkefni, útbúið vaktaskipulag, mælt vinnuhraða eða metið frammistöðu. Slík kerfi þurfa ekki endilega að byggja á gervigreind en gera það þó í síauknum mæli. Með reikniritadrifinni stjórnun eru tölvukerfi í auknum mæli notuð til að sinna verkefnum sem áður voru í höndum stjórnenda. Munurinn er hins vegar sá að með tilkomu gervigreindar og öflugri hugbúnaðar er hægt að safna og vinna úr gríðarlegu magni gagna í rauntíma. Það er nokkuð sem mennskir stjórnendur hafa aldrei getað gert. Þannig eru dæmi um það bæði í Evrópu en einkum Bandaríkjunum að fyrirtæki fylgist með öllu sem starfsfólk gerir í vinnunni: hversu oft það slær á lyklaborðið á mínútu, hversu oft það hreyfir tölvumúsina, öll samskipti í gegnum tölvupóst eða síma og svo mætti lengi telja.
Þessi gögn eru svo notuð til þess að meta árangur og afköst starfsfólks með sjálfvirkum hætti sem spilar síðan inn í ákvarðanir stjórnenda í launaviðtölum eða þegar taka þarf ákvarðanir um uppsagnir, ráðningar eða skipulagsbreytingar. Reikniritadrifin stjórnun getur í einhverjum tilfellum haft augljósa kosti. Hún getur einfaldað skipulag, sparað tíma og hjálpað stjórnendum að vinna úr upplýsingum. Í könnun OECD meðal rúmlega 6.000 stjórnenda í sex löndum taldi stór hluti þeirra að slík kerfi bættu ákvarðanatöku. Aftur á móti geta sömu kerfi haft verulega neikvæð áhrif á stöðu starfsfólks. Ef tölvukerfi ákveður vinnuhraða, forgangsraðar verkefnum og mælir stöðugt frammistöðu getur dregið úr svigrúmi starfskrafts til að skipuleggja eigin vinnu. Þá vakna líka spurningar um gagnsæi. Veit starfskrafturinn hvaða gögn eru notuð til að meta hann? Skilur hann hvernig niðurstaðan varð til? Hver ber ábyrgð ef kerfið tekur ranga eða ósanngjarna ákvörðun? Þessir þættir eru til þess fallnir að grafa undan sjálfræði starfsfólks í vinnunni en flestar rannsóknir benda til þess að sjálfræði sé ein grunnforsenda þess að starfsfólk dafni og líði vel í starfi. Eins vekur reikniritadrifin stjórnun augljósar spurningar um persónuvernd og hvað fyrirtæki mega ganga langt í því að safna upplýsingum um starfsfólk með þessum hætti. Hversu algengt er að fyrirtæki styðjist við reikniritadrifna stjórnun af þessu tagi? Slíkir stjórnunarhættir hafi verið algengir um nokkurt skeið í flutningastarfsemi og tengdum greinum, sérstaklega í Bandaríkjunum þar sem tæknirisinn Amazon hefur notað slík tól til að hámarka afkastagetu í vöruhúsum og útkeyrslu. Með framþróun gervigreindar hefur hins vegar orðið auðveldara að beita svipuðum aðferðum til þess að hafa sjálfvirkt eftirlit með skrifstofufólki og því má búast við því að aðferðafræðin verði æ algengari. Sameiginleg rannsókn Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, ILO, og rannsóknarmiðstöðvar framkvæmdastjórnar ESB, JRC, sýndi fram á umfangsmikla notkun slíkra kerfa í hefðbundnum fyrirtækjum í Evrópu, sérstaklega í Frakklandi og á Ítalíu. Kerfin gátu einfaldað verkferla og aukið skilvirkni en rannsakendur bentu jafnframt á hættu á auknu eftirliti og lakari starfsgæðum. Í rannsókn sem birt var sumarið 2026 tengdist reikniritadrifin stjórnun að meðaltali minna sjálfræði starfsfólks, minni möguleikum á að taka hlé og meiri vinnutengdri streitu. Sterkustu tengslin sáust þegar kerfin stjórnuðu beint hvernig verkefni voru framkvæmd og hversu hratt var unnið. Niðurstöðurnar voru þó mjög mismunandi eftir löndum og tegund kerfa. Rannsóknin sýnir því ekki að öll reikniritadrifin stjórnun sé slæm heldur að það skipti miklu máli hvernig tæknin er notuð og við hvaða aðstæður. Við vitum hins vegar minna um það hvernig málum er háttað hér á landi. Rannsóknir á þessu sviði eru takmarkaðar en gögn benda þó til að reikniritadrifin stjórnun meðal skrifstofufólks sé sjaldgæfari en víða í Evrópu og Bandaríkjunum. Hins vegar er ljóst að íslensk stéttarfélög verða að vera vakandi fyrir því hvernig málin þróast og tryggja að sjálfræði og friðhelgi starfsfólks sé virt. Þessi dæmi sýna að umræður um gervigreind og vinnumarkaðinn verða að ná til fleiri þátta en einungis þeirrar spurningar um hvort störfum fjölgi eða fækki. Það skiptir líka máli hvernig störf eru unnin og metin. Því er nauðsynlegt að launafólk hafi sæti við borðið þegar breytingar eru innleiddar svo hægt sé tryggja að breytt starfsumhverfi af völdum gervigreindar verði til góðs frekar en til ills.
VR BLAÐIÐ 02 2026 19
SKOÐAR ÞÚ LAUNASEÐILINN ÞINN? Launaseðlar starfsfólks eru oftast sendir í heimabanka og er þá að finna undir „rafræn skjöl“ í heimabankanum. Slík afhending er viðurkennd og er í raun mjög hentug því þá eru allir launaseðlarnir á einum stað og ekki hætta á að þeir týnist. Það er aldrei of oft minnt á nauðsyn þess að fara reglulega yfir launaseðla og ganga úr skugga um að rétt laun séu greidd og öll viðeigandi gjöld dregin af launum. LAUN Skýrt á að vera á launaseðli fyrir hvað starfsfólk fær greitt, hvort sem um mánaðarlaun eða tímavinnu er að ræða.
persónuafsláttar síns sem skal sérstaklega haft í huga vinni starfsfólk á fleiri en einum vinnustað. Upplýsingar um nýtingu á persónuafslætti er hægt að skoða á þjónustuvef Skattsins.
Mánaðarlaun skv. ráðningarsamningi eða kjarasamningi, þ.e. samið er um ákveðna upphæð fyrir unninn mánuð og reiknast starfshlutfall af þeirri upphæð.
Lífeyrissjóður: 4% skyldugreiðsla frá launafólki, atvinnurekandi greiðir einnig 11,5%.
Tímafjöldi og tímakaup og þá hvers kyns, t.d. dagvinna, eftirvinna og yfirvinna eða álag. Bónus eða aðrar aukagreiðslur, s.s. dagpeningar, ökutækjastyrkur, desemberuppbót, bifreiðahlunnindi o.fl.
Séreignarlífeyrissjóður: Valkvæð greiðsla. Launafólk greiðir 2% eða 4%, fer eftir þeim samningi sem það gerir við viðeigandi séreignarlífeyrissjóð. Atvinnurekandi greiðir 2% á móti. Stéttarfélagsgjöld: 0,7% til VR. Starfsmannafélag: Ef við á.
Orlof skal koma fram á launaseðlum hvern mánuð, hvort sem það er reiknað í dögum, tímum eða sem hlutfall af greiddum launum sem lagt er inn á orlofsreikning. Orlof skal reikna á öll laun skv. lögum um orlof. Samtala launa er svo tekin saman í eina upphæð, heildarlaun fyrir frádrátt. FRÁDRÁTTUR Skattur: Atvinnurekandi ber ábyrgð á greiðslu opinberra gjalda. Launaseðillinn er því mjög mikilvæg kvittun fyrir starfskraftinn ef greiðslur skila sér ekki á rétta staði. Staðgreiðsla 2026: 31,49% fyrir tekjur upp að 498.122 kr., 37,99% fyrir tekjur á bilinu 498.123 – 1.398.450 kr. og 46,29% af tekjum umfram 1.398.450 kr. Persónuafsláttur 2026: Mánaðarlegur persónuafsláttur árið 2026 er 72.492 kr. Það er á ábyrgð launafólks að gæta að nýtingu 20 VR BLAÐIÐ 02 2026
Frádráttur á orlofi: Þegar orlof er reiknað sem hlutfall af launum um hver mánaðamót skal orlofið greitt í banka og upplýsingar um orlofsreikning koma fram á launaseðlinum. Annað: Til dæmis eftirágreiddir skattar eða frádráttur sem samið hefur verið um, s.s. bifreiðahlunnindi eða matur í mötuneyti. Fyrirtækjum er óheimilt að draga t.d. skuld við fyrirtækið af launum án samþykkis launafólks. Niðurstaða Þegar allir frádráttarliðir hafa verið dregnir frá heildarlaunum stendur eftir sú upphæð sem greidd er inn á bankareikning starfsmanns. Gott er að fara yfir launaseðilinn sinn mánaðarlega, til dæmis með tillit til greiddra tíma, orlofs og nýtingar persónuafsláttar. Telji starfskraftur launin vera röng, s.s. starfshlutfall of lágt, tímar ekki réttir eða laun ekki í samræmi við umsamin kjör skal hann koma sem fyrst með ábendingu
og beiðni um leiðréttingu launa til atvinnurekanda. Launaseðillinn er kvittun starfsfólks fyrir unninn tíma og greidd gjöld. Atvinnurekanda ber skylda skv. kjarasamningi til að afhenda starfsfólki launaseðil við hverja útborgun og er því mikilvægt að ganga úr skugga um að hann berist starfsfólki örugglega, hvort sem það er í pósti, heimabanka eða hann afhentur á vinnustað.
EFST Á SEÐLINUM EIGA AÐ VERA HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR:
▪ Kennitala og nafn fyrirtækis og starfskrafts
Launaseðlar eru mismunandi milli fyrirtækja en innihald þeirra skal vera það sama þótt framsetningin sé ólík. Starfsfólk ætti að geta leitað til næsta yfirmanns síns eða til mannauðssviðs/launafulltrúa ef það óskar eftir að fá skýringu á launaseðlinum sínum. Félagsfólki VR er alltaf velkomið að leita til sérfræðinga á kjaramálasviði VR ef það þarf aðstoð við að lesa úr launaseðlinum sínum.
▪ Dagsetning greiðslu ▪ Dagsetning tímabils
Á vef VR er hlekkur á reiknivél sem sýnir hvernig reikna skal laun, orlofsstundir og frádrátt sem og framlag atvinnurekanda.
Sýnishorn ehf
Kringlan 7 – 103 Reykjavík Kt. 250899-7589
Launaseðill
Friðbjartur Agnmundarson Blásalir 283 111 Reykjavík
Laun 101 102 305 306
Frádráttur 10 11 50 910 305
Dagsetning: Tímabil: Seðilnúmer: Kennitala: Laun: Frádráttur: Útborguð laun:
30.09.2026 01.09.– 30.09.2026 9 050100-5759 965.257 312.316 652.941
Frá áramótum Mánaðarlaun Yfirvinna Orlof af yfirvinnu Orlofsstundir
Tímar/Ein. Taxti 1 884.000 8 9.180 10.64% 73.443 16.94 Samtals laun:
Lífeyrissjóðsiðgjald 4% Séreignarsparnaður 2% Félagsgjald 0,7% Staðgreiðsla skatta Orlof greitt í banka Samtals frádráttur:
Upphæð 884.000 73.443 7.814
Tímar/Ein. 9 64
Upphæð 7.956.000 587.542 62.514
965.257
Upphæð 38.610 19.305 6.757 239.829 7.814 312.316
Friðbjartur er með umsamin mánaðarlaun fyrir starf sitt hjá Sýnishorni ehf. Mánaðarlaun hans eru jöfn miðgildi launa hjá félagsfólki VR skv. launarannsókn VR í febrúar 2026. Þar sem hann hefur unnið hjá fyrirtækinu í meira en sex mánuði og er eldri en 22 ára er hann með 25 daga orlof eða 10,64% orlofshlutfall. Hann ávinnur sér því 16,94 orlofsstundir hvern mánuð sem hann vinnur nema þegar hann er í orlofi. Sjá nánari upplýsingar um útreikning orlofsstunda á vefsíðu VR. Þegar hann vinnur yfirvinnu fær hann hana sérstaklega greidda sem og orlof reiknað á yfirvinnuna sem síðan er lagt í banka.
Upphæð 347.493 173.746 60.811 62.514
Staðgreiðsluskyld laun eru 965.257 kr. en til lækkunar kemur iðgjald í lífeyrissjóð 57.915 kr. Staðgreiðslustofn er því 907.342 kr. og dreifist á skattþrep samanber eftirfarandi sundurliðun: Þrep 1: upphæð: 498.122 31,49% skattprósenta: 156.859 Þrep 2: upphæð: 409.220 37,99% skattprósenta: 155.463 Persónuafsláttur til lækkunar: 72.492 kr. Staðgreiðsla er því 239.829 kr. Lífeyrissjóður verslunarmanna Lífeyrissjóðsiðgjald starfsmanns: Séreignarsparnaður: Mótframlag atvinnurekanda: Mótframlag atvinnurekanda, séreignarsparnaður: Framlag atvinnurekanda í endurhæfingarsjóð:
38.610 19.305 111.005 19.305 965
VR - Stéttarfélagsgjald Félagsgjald launþega: Framlag atvinnurekanda:
6.757 14.961
Arionbanki – Kirkjubraut 28 - Laun lögð inn á bankareikning: 0330-26-4447, 652.941 kr. - Orlof lagt inn á bankareikning: 0330-26-4447, 7.814 kr. Staða frá 1. maí 2026: 31.257 kr. Orlofsstundir Áunnar orlofsstundir frá 1. maí 2026: 68 klst. Nýttar orlofsstundir frá 1. maí 2026: 0 klst.
VR BLAÐIÐ 02 2026 21
UNGLIÐARÁÐ VR
Efri röð frá vinstri: Lijing Zhou og María Jesús Adjaba Nve. Neðri röð frá vinstri: Styrmir Jökull Einarsson, Andrea Rut Pálsdóttir, formaður Ungliðaráðs og Mateusz Gabríel Kowalczyk.
Nýtt Ungliðaráð VR hefur tekið til starfa eftir kosningar á vormánuðum. Alls voru sex í framboði og voru Óbi Snær Barböruson, María Jesús Adjaba Nve og Lijing Zhou kosin í ráðið. Stjórn VR skipaði jafnframt Andreu Rut Pálsdóttur, Mateusz Gabríel Kowalczyk Róbertsson og Styrmi Jökul Einarsson í ráðið. Andrea Rut var kjörin formaður ráðsins. Ungliðaráð er vettvangur fyrir ungt félagsfólk VR til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og taka þátt í umræðu um málefni sem snerta ungt fólk á vinnumarkaði. Ungt fólk er stór hluti af félagsfólki VR. Af 40.000 félögum er um helmingur á aldrinum 16-35 ára. Það er því bæði stór og fjölbreyttur hópur sem Ungliðaráðið er í forsvari fyrir. Á fyrstu fundum nýs Ungliðaráðs hefur verið rætt um ýmis mál sem varða ungt fólk. Þar hefur meðal annars verið lögð áhersla á að ná enn betur til þess hóps í VR og halda áfram að fræða það um leikreglur á vinnumarkaði. Sömuleiðis hefur verið rætt um hvernig hægt sé að gera nýju félagsfólki auðveldara með að átta sig á stéttarfélagsaðild sinni. Geðheilsa og aðstæður á vinnumarkaði eru einnig meðal áherslumála ráðsins. Margt ungt fólk starfar í framlínustörfum þar sem það er í daglegum samskiptum við viðskiptavini. Það getur því þurft að takast
22 VR BLAÐIÐ 02 2026
á við krefjandi aðstæður. Ungliðaráðið vill meðal annars vekja athygli á mikilvægi stuðnings við þetta fólk og að félagsfólk hafi greiðan aðgang að aðstoð og viti hvert það getur leitað eftir henni þegar á reynir. FYRRA UNGLIÐARÁÐ 2024-2026 Ungliðaráð VR ræðir ekki bara um málefni heldur kemur þeim á dagskrá innan VR. Það er virkilega ánægjulegt að áherslur fyrra Ungliðaráðs hafi komist í framkvæmd á síðasta kjörtímabili en ráðið studdi tillögur stjórnar um endurskoðun á VR varasjóði sem kosið var um á vettvangi félagsins árið 2025. Þá fór Ungliðaráð fram á að VR myndi bjóða upp á fæðingarstyrk til félagsfólks í barneignum sem hefur nú orðið að veruleika. Við þökkum fráfarandi Ungliðaráði kærlega fyrir vel unnin störf og hlökkum til að sjá nýtt öflugt fólk láta til sín taka á þessum vettvangi félagsins.
FYRIRTÆKI ÁRSINS 2026 2026? Niðurstöður í könnun VR á Fyrirtæki ársins 2026 voru kynntar við hátíðlega athöfn í Hörpu í maí síðastliðnum. Heildareinkunn fyrirtækja er reiknuð út frá viðhorfi starfsfólks til ólíkra þátta starfsumhverfis. Spurt er um stjórnun, launakjör, starfsanda, jafnrétti, starfsánægju og margt fleira. Þau fyrirtæki sem skara fram úr í könnuninni hljóta formlega viðurkenningu enda ærin ástæða til að vekja athygli á frammistöðu þeirra. Verðlaun voru veitt í þremur stærðarflokkum, til lítilla, meðalstórra og stórra fyrirtækja. Þá voru tvenn aukaverðlaun veitt en þrjú fyrirtæki fengu nafnbótina Fjölskylduvænustu fyrirtækin 2026 og þrjú fyrirtæki hlutu Fræðsluviðurkenningu VR 2026. Könnun VR á Fyrirtæki ársins er stærsta vinnumarkaðsrannsókn á Íslandi og á sér nær þrjátíu ára sögu. Gallup lagði könnunina fyrir og sá um úrvinnslu niðurstaðna. FYRIRTÆKI ÁRSINS Í FLOKKI STÓRRA FYRIRTÆKJA ▪ APRÓ ▪ Garri ▪ Travel Connect
FYRIRTÆKI ÁRSINS Í FLOKKI MEÐALSTÓRRA FYRIRTÆKJA ▪ Hringdu ▪ Orkan ▪ Syndis
FYRIRTÆKI ÁRSINS Í FLOKKI LÍTILLA FYRIRTÆKJA ▪ Kjólar & Konfekt ▪ Rekstrarfélag Kringlunnar ▪ Tryggja
Nánar má lesa um niðurstöður í könnun VR á Fyrirtæki ársins 2026 á vef félagsins, vr.is.
VR BLAÐIÐ 02 2026 23
FÆÐINGAR- OG FORELDRAORLOF TILKYNNING UM TÖKU FÆÐINGARORLOFS Samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof má ekki segja starfsfólki upp hafi það tilkynnt um töku fæðingarorlofs. Í daglegu tali er oft talað um „uppsagnarvernd“ fólks sem á von á barni og þá talið að í engum tilvikum megi segja því starfsfólki upp. Það er nærri lagi þó svo undantekningar séu á því. Gæta þarf þó að ákveðnum atriðum til að tryggja rétt starfsfólks sem á von á barni. Í framangreindum lögum kemur einnig fram að sá sem fæðir barn skuli taka tveggja vikna fæðingarorlof, þeim aðila er skylt að fara í fæðingarorlof. Makanum er hins vegar ekki skylt að fara í fæðingarorlof þótt hann eigi rétt á því. Af því leiðir að þegar barnshafandi einstaklingur tilkynnir um þungun hefur hann einnig tilkynnt um töku fæðingarorlofs. Þegar makinn tilkynnir hins vegar um þungun maka síns hefur hann ekki sjálfkrafa tilkynnt um töku fæðingarorlofs. Makinn þarf því að gæta þess að tilkynna sérstaklega að hann muni fara í fæðingarorlof þótt hann þurfi ekki að tilkynna strax um fyrirkomulag orlofsins. Best er að tilkynning um töku fæðingarorlofs beggja aðila sé gerð skriflega, þ.e. með sannanlegum hætti. Þá skal einnig hafa í huga hverjum er tilkynnt um þungunina. Ekki dugar að segja samstarfsaðilum frá fréttunum á kaffistofunni heldur þarf að tilkynna sérstaklega til yfirmanns að farið verði í fæðingarorlof til að tryggja að ekki megi segja starfskraftinum upp án rökstuðnings. Ef atvinnurekandi hyggst segja starfskrafti upp sem hefur tilkynnt um töku fæðingarorlofs þarf sú uppsögn að vera vel rökstudd. Í þeim tilvikum sem starfsfólki er sagt upp eftir að það hefur tilkynnt um töku
24 VR BLAÐIÐ 02 2026
fæðingarorlofs mælum við alltaf með að heyra í kjaramáladeild VR til að kanna réttmæti uppsagnarinnar. Heimild til uppsagnar þeirra sem eiga von á barni er almennt túlkuð fremur þröngt og á hvað helst við ef starfsfólk hefur brotið á sér í starfi eða ef fyrirtæki hættir rekstri, svo það helsta sé nefnt. ÖRYGGI OG HEILBRIGÐI Á OG EFTIR MEÐGÖNGU Vinnueftirlit ríkisins fer með eftirlit um reglugerð sem gert er að gæta öryggis og heilbrigðis þungaðra, fólks sem hefur nýlega alið barn eða er með barn á brjósti. Samkvæmt reglugerðinni skal gæta sérstaklega að því hvort vinnuaðstæður starfsfólks á meðgöngu eða eftir fæðingu séu öruggar. Sé svo ekki, s.s. vegna notkunar efna, skal atvinnurekandi fela þunguðum starfskrafti önnur verkefni. Við mat á því hvort starfið sé öruggt á meðgöngu getur hvort um sig, atvinnurekandinn eða starfskrafturinn, leitað umsagnar Vinnueftirlitsins en óheimilt er að skylda þungaða til að sinna hættulegu starfi á meðgöngu. Skal breyting sökum þessa t.d. á vinnutíma, vinnuskilyrðum eða verkefnum ekki leiða til lækkunar launa. Í þeim tilvikum sem atvinnurekandi getur ekki falið starfskraftinum önnur verkefni á meðgöngu getur starfskrafturinn átt rétt á greiðslum frá Fæðingarorlofssjóði á meðgöngu. Þá er einnig óheimilt að skylda þungaða til að vinna á næturvöktum og getur sú vernd jafnvel gilt í allt að sex mánuði eftir fæðingu en í slíkum tilvikum kann að þurfa að staðfesta með læknisvottorði að slíkt sé nauðsynlegt sökum heilsu. Tryggt hefur verið í kjarasamningum að barnshafandi fólk eigi rétt á að
fara í mæðraskoðun á vinnutíma án þess að tími frá vinnu sé dreginn frá launum. Makinn á ekki sjálfkrafa sama rétt þótt sumir atvinnurekendur heimili slíkt. FÆÐINGAR- OG FORELDRAORLOF Í ár, árið 2026, er lengd fæðingarorlofs sex mánuðir fyrir hvort foreldri en þar af getur annað foreldrið framselt að hámarki sex vikur til hins foreldrisins. Hægt er að nýta fæðingarorlof til tveggja ára aldurs barns. Fæðingarorlofssjóður, sem er í vörslu Vinnumálastofnunar, sér um greiðslu orlofsins og má sjá upphæðir greiðslna á vef sjóðsins. Þegar ljóst er hvernig foreldri vill nýta fæðingarorlof sitt skal hann tilkynna atvinnurekanda um fyrirkomulagið, þó í síðasta lagi átta vikum fyrir settan fæðingardag. Eftir móttöku atvinnurekanda á tilkynningunni hefur hann eina viku til að gera athugasemdir um fyrirkomulagið. Séu engar athugasemdir gerðar fyrir þann tíma skal hann undirrita tilkynninguna sem svo er send Fæðingarorlofssjóði. Ef starfskraftur og atvinnurekandi ná ekki samkomulagi um fyrirkomulag fæðingarorlofs er það alltaf réttur foreldrisins að taka fæðingarorlof í einu lagi frá þeim upphafsdegi sem foreldrið ákveður. Ef foreldri vill gera breytingu á upphafsdegi fæðingarorlofs skal tilkynna atvinnurekanda um breytingu með að minnsta kosti þriggja vikna fyrirvara. Gjarnan dreifa foreldrar fæðingarorlofi sínu og taka t.d. sex mánaða orlof á alls 10 mánuðum. Þessir sex mánuðir eru lögbundnir mánuðir í fæðingarorlofi og teljast þeir mánuðir til starfsréttinda foreldra. Ef starfskraftur hefur til dæmis unnið hjá fyrirtæki í fjögur ár og níu mánuði þegar hann fer í fæðingarorlof telst hann hafa unnið í fimm ár og þrjá mánuði þegar hann kemur til baka úr orlofinu. Það getur haft áhrif á réttindi hans eftir að hann kemur til baka til starfa, s.s. til hækkunar launa skv. launataxta, hærri ávinnslu orlofs og veikindaréttar svo það helsta sé upptalið. Þá ber einnig að gæta þess að starfsfólk sem unnið hefur í meira en eitt ár hjá atvinnurekanda þegar það fer í fæðingarorlof á rétt á greiðslu desember- og orlofsuppbóta fyrir þann tíma er það er í lögbundnu orlofi. Ekki hafa jafnmörg heyrt um foreldraorlof og þau er hafa heyrt um fæðingarorlof. Foreldraorlof veitir foreldrum sem unnið hafa í meira en sex mánuði hjá atvinnurekanda rétt til leyfis frá vinnu í allt að fjóra mánuði þar til barn þeirra er orðið átta ára. Greinist barn síðar með alvarlegan og langvinnan sjúkdóm eða alvarlega fötlun lengist rétturinn að 18 ára aldri. Foreldraorlof er launalaust en orlofið heyrir undir sömu lög og fæðingarorlof. Sömu ákvæði um uppsagnir eiga við um foreldraorlof og eiga við um fæðingarorlof, þ.e. rökstyðja þarf uppsögn þess sem tilkynnt hefur um töku foreldraorlofs. Foreldri
sem hyggst nýta foreldraorlof skal tilkynna atvinnurekanda um töku orlofsins í síðasta lagi sex vikum fyrir töku foreldraorlofs. Heimilt er að skipta orlofinu niður, í samráði við atvinnurekandann, en foreldri hefur ávallt rétt til að taka orlofið í heilu lagi. AFTUR TIL VINNU Ráðningarsamband starfsfólks og atvinnurekanda breytist ekki í fæðingar- eða foreldraorlofi. Á starfsfólk því rétt á að koma úr orlofi í sama starf og það var í þegar það fór í fæðingar-/foreldraorlof. Ef þess er ekki kostur á starfsfólk rétt á sambærilegu starfi í samræmi við ráðningarsamning. Í lögum um jafna stöðu og rétt kynjanna kemur jafnframt fram að atvinnurekendur skuli gera nauðsynlegar ráðstafanir til að gera starfsfólki kleift að samræma starfsskyldur sínar og ábyrgð gagnvart fjölskyldu, óháð kyni. Þar með talið skal auðvelda starfsfólki að koma aftur til starfa eftir fæðingar- og foreldraorlof. SORGARLEYFI Lög um sorgarleyfi voru samþykkt árið 2022 og taka þau til foreldra er verða fyrir barnsmissi eftir 18 vikna meðgöngu sem og makamissi. Rétturinn stofnast þann dag er foreldri verður fyrir missi og fellur niður tveimur árum síðar. Rétturinn er þrír mánuðir vegna fósturláts eftir 18 vikna meðgöngu en sex mánuðir vegna andláts eftir 22 vikna meðgöngu, missi barns fyrir 18 ára aldur eða við missi maka. Vinnumálastofnun sinnir greiðslum til foreldra í sorgarleyfi en upphæðir greiðslna vegna sorgarleyfis eru þær sömu og fæðingarorlofs. Réttindi starfsfólks í sorgarleyfi eru að miklu leyti eins og þeirra í fæðingarorlofi, þ.e. rökstyðja þarf uppsögn starfsfólks sem tilkynnt hefur um töku sorgarleyfis. Leyfið reiknast til starfstíma og ráðningarsamband starfsfólks helst óbreytt á meðan á sorgarleyfi stendur. Eins á starfsfólk rétt á að taka sorgarleyfi í einu lagi en hægt er að skipta því upp í samráði við atvinnurekanda eða taka það samhliða minnkuðu starfshlutfalli. Ekki er kveðið á um fyrirvara tilkynningar um sorgarleyfi sökum eðlis leyfisins, einungis að það skuli tilkynnast eins fljótt og unnt er.
Reglugerð nr. 931/2000 um ráðstafanir til þess að auka öryggi og heilbrigði á vinnustöðum fyrir konur sem eru þungaðar, hafa nýlega alið barn eða hafa barn á brjósti. Lög nr. 144/2020 um foreldra- og fæðingarorlof. Lög nr. 77/2022 um sorgarleyfi. Lög nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Kjarasamningur VR og SA.
VR BLAÐIÐ 02 2026 25
FRÆÐSLUERINDI FYRIR LEIÐSÖGUFÓLK Í DEILD VR VR hefur boðið leiðsögufólki í deild VR upp á fræðsluerindi sem miða að því að efla þekkingu þess í starfi. Má þar nefna fyrirlestra með Sævari Helga Bragasyni sem hefur komið tvívegis. Í fyrra skiptið hélt hann erindi um sólmyrkva og í seinna skiptið var hann með fræðslu um norðurljósin. Sá fyrirlestur er aðgengilegur félagsfólki á Mínum síðum á vr.is. Næsta fræðsluerindi er fyrirhugað þann 18. nóvember næstkomandi með Einari Sveinbjörnssyni veðurfræðingi sem ætlar að fjalla um veður og ferðaskipulag. Nánari upplýsingar um um þann fyrirlestur má sjá á bls. 7 hér í blaðinu og í viðburðadagatalinu á vr.is. Þó fræðsluerindin séu stíluð inn á leiðsögufólk vegna starfa þeirra er allt félagsfólk VR velkomið. Þá mun Rauði krossinn halda utan um skyndihjálparnámskeið fyrir leiðsögufólk í deild VR og verður fyrirkomulagið auglýst nánar þegar nær dregur.
DEILD LEIÐSÖGUFÓLKS 26 VR BLAÐIÐ 02 2026
Ræktum og eflumst í starfi Hefst 1. vitið október Ræktum og eflumst SVÞ, í starfi Ræktum vitiðvitið er samstarfsverkefni VR og LÍV sem hvetur til sí- og endurmenntunar í verslun og þjónustu. Ræktum vitið er samstarfsverkefni SVÞ, VR og LÍV sem hvetur til sí- og endurmenntunar og þjónustu. Október 2026 hefur veriðí verslun tileinkaður átaki þar sem
vinnustaðir ogtökum starfsfólk hafa verið hvött til að taka frá Í október 2026 við höndum saman í sérstöku mánaðarátaki undirtil merkjum Ræktum vinnustaðir og starfsfólk tíma náms, efla færnivitið. sínaÞá ogeru gera þekkingaröflun að hvött til að taka frá tíma til náms, efla færni sína og gera þekkingaröflun sjálfsögðum hluta vinnudagsins. að sjálfsögðum hluta vinnudagsins.
Öll nánar skref telja - hvort sem um er að ræða námskeið, lestur, Sjá á ræktumvitið.is
hlaðvarp eða aðra starfstengda fræðslu. Skráum það sem við lærum og ræktum vitið saman!
Skannaðu til að skrá þig
VR BLAÐIÐ 02 2026 27
FJÖGUR ÞREP STARFA Í VERSLUN: SKÝR LEIÐ TIL STARFSÞRÓUNAR Vinnumarkaðurinn er í stöðugri þróun. Tækniþróun hefur þegar breytt störfum verulega, meðal annars með aukinni sjálfvirknivæðingu og á næstu árum mun gervigreind móta þróun þeirra enn frekar. Til að takast á við þessar breytingar er mikilvægt að hafa yfirsýn yfir störf og þá hæfni sem þarf til að sinna þeim. Slík yfirsýn er forsenda þess að starfsfólk og fyrirtæki geti eflt þekkingu og færni í takt við þróun starfa. Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks hefur lagt ríka áherslu að gera hæfnikröfur starfa í verslun sýnilegri og skilgreina verkefni og ábyrgð á hverju hæfniþrepi fyrir sig. Þannig er hægt að skapa grundvöll fyrir þróun náms og staðfestingu á færni starfsfólks með raunfærnimati. Svokallaður starfaprófíll og matslisti hefur verið útbúinn fyrir hvert starf í verslun. Að baki liggur mikil greiningarvinna þar sem helstu viðfangsefni hvers starfs hafa verið greind í þrep samkvæmt íslenska hæfnirammanum um menntun. Þannig verða hæfnikröfur starfanna skýrar og leiðir til starfsþróunar sýnilegri. FJÖGUR ÞREP VERSLUNARSTARFA Nýir starfaprófílar fyrir verslun lýsa fjórum þrepum verslunarstarfa. Þrepin eru betur skilgreind hér á eftir. Starf í verslun á þrepi 1 er grunnstarf þar sem starfsfólk sinnir einföldum og skýrt afmörkuðum verkefnum undir leiðsögn. Verkefnin geta meðal annars falist í áfyllingu, vörufrágangi, hreinlæti, vörumóttöku og einfaldri afgreiðslu. Starfsfólk fylgir fyrirmælum, vinnureglum, gæðakröfum og öryggisreglum og fær aukið sjálfstæði eftir því sem reynsla og þjálfun eykst. Ábyrgðin felst fyrst og fremst í stundvísi, að vinna verkefni rétt og ljúka þeim samkvæmt fyrirmælum.
28 VR BLAÐIÐ 02 2026
Starf í verslun á þrepi 2 felst í almennum, skilgreindum störfum í verslun undir stjórn deildar-, rekstrarstjóra eða öðrum sem hefur stöðu yfirmanns í viðkomandi deild eða verslun. Þar er meiri áhersla á beina þjónustu, sölu, vöruráðgjöf og greiningu á þörfum viðskiptavina. Starfsfólk ber ábyrgð á vörum, verðmætum og því að réttum verkferlum sé fylgt. Það getur tekið við ábendingum og kvörtunum en vísar flóknari málum áfram. Starfsfólk á þessu þrepi getur jafnframt leiðbeint nýju starfsfólki um almenna verkferla, án þess þó að hafa formleg mannaforráð. Starf í verslun á þrepi 3 felur í sér ábyrgð á daglegum rekstri. Starfsfólk á þessu þrepi ber ábyrgð á ásýnd svæðis, sinnir ráðgjöf og stuðlar að góðri þjónustu og jákvæðri upplifun viðskiptavina. Það skipuleggur verkefni, úthlutar þeim, fylgir framkvæmd eftir og bregst við breytingum á mönnun og álagi. Þá hefur það jafnframt yfirsýn yfir sölu, birgðir, vöruframstillingu, rýrnun, vöruskil, þjónustugæði og öryggi á sínu svæði. Starf í verslun á þrepi 4 felur í sér ábyrgð á og umsjón með daglegum rekstri verslunar auk umsjónar með þjónustu við viðskiptavini. Þá setur starfsfólki á þessu þrepi viðmið um þjónustustig svo að þjónusta sé ávallt í forgangi. Það ber ábyrgð á rekstri, starfsfólki, sölu, framlegð, kostnaði, þjónustugæðum og öryggi. Starfið nær meðal annars til ráðninga, frammistöðumats, starfsþróunar, vaktaskipulags, launakostnaðar, birgðastýringar og eftirfylgni með rekstrarlegum markmiðum. Á þessu
Hæfnigreining starfs – ferli Fulltrúar starfs og hagsmunaaðilar
Stýrihópur Starf skilgreint, ferli, verkefni, ábyrgð
Greiningarfundur 1 Kjarni og viðfangsefni
Greiningarfundur 2 Hæfniþættir
Greiningarfundur 3 Hæfniþættir og hæfniþrep
Greiningarfundur 4 Matslisti og hæfniviðmið
Stýrihópur Starfaprófíll og matlisti
Mynd 1. Hæfnigreining starfs, greiningarferli FA.
Copyrights c Fræðslumiðstöð atvinnulífsins 2026
þrepi eru teknar formlegar stjórnunarlegar og fjárhagslegar ákvarðanir og ábyrgð er borin gagnvart yfirstjórn á afkomu verslunarinnar. HVERNIG HAFA STÖRF Í VERSLUN BREYST? Störf í verslun hafa breyst og þróast í takt við öra tækniþróun undanfarinna ára. Það sést vel ef nýir starfaprófílar eru bornir saman við þá eldri. Störf í verslun eru nú skilgreind með skýrari hætti enda hafa þau orðið tæknivæddari og ferlamiðaðri. HVAÐ EIGA STÖRFIN SAMEIGINLEGT? Þrátt fyrir mismunandi ábyrgðarstig byggjast öll störfin á sameiginlegum faglegum grunni. Á öllum þrepum er lögð áhersla á faglega framkomu, þjónustu við viðskiptavini, öryggi, samvinnu, gæði, hreinlæti og rétta meðferð vara. Starfsfólk þarf einnig að geta fylgt reglum, tileinkað sér verkferla og brugðist við þeim aðstæðum sem geta komið upp í daglegum rekstri.
Þessa framvindu má draga saman með einföldum hætti: Þrep 1 lærir og fylgir, þrep 2 framkvæmir sjálfstætt, þrep 3 stýrir og fylgir eftir og þrep 4 tryggir árangur og ber heildarábyrgð. HVERNIG NÝTIST ÞESSI VINNA FÓLKI Á VINNUMARKAÐI? Skýrir starfaprófílar geta haft mikið gildi fyrir fólk sem starfar í verslun. Þeir gera ósýnilega eða óformlega hæfni sýnilega og skapa sameiginlegt viðmið til að lýsa því sem starfsfólk kann og getur. Einstaklingur sem hefur aflað sér þekkingar og færni með starfsreynslu getur þannig fengið skýrari mynd af eigin hæfni, hvort sem hennar hefur verið aflað með formlegu námi eða reynslu í starfi.
Þjónusta er rauður þráður í gegnum öll þrepin. Á þrepi 1 felst hún einkum í einfaldri aðstoð og hjálpsemi. Á þrepi 2 bætist við ráðgjöf, þarfagreining og sala. Á þrepi 3 er ábyrgð tekin á þjónustugæðum og ásýnd afmarkaðs svæðis og úrlausn almennra vandamála. Á þrepi 4 eru sett viðmið um þjónustustig verslunarinnar og niðurstöður þjónustumælinga nýttar til umbóta.
Starfaprófílarnir mynda jafnframt grundvöll fyrir raunfærnimat. Með raunfærnimati er hægt að bera hæfni einstaklings saman við þær kröfur sem gerðar eru í ákveðnu starfi. Niðurstöðurnar geta staðfest þá hæfni sem þegar er til staðar og sýnt hvar þörf er á frekari fræðslu, þjálfun eða starfsreynslu. Þannig getur matið orðið hvati að markvissri starfsþróun. Skipting starfanna í fjögur þrep auðveldar starfsfólki að sjá mögulegar starfsþróunarleiðir innan verslunar. Starfsmaður getur greint hvaða hæfni hann hefur þegar öðlast og hvaða hæfni þarf að efla til að geta tekið að sér meiri ábyrgð. Leiðin frá grunnstarfi yfir í sjálfstætt verslunarstarf, svæðisstjórnun og heildarstjórnun verður þannig sýnilegri og aðgengilegri.
Öryggi er annað sameiginlegt viðfangsefni en hlutverk starfsfólks gagnvart því breytist eftir þrepum. Á lægri þrepum er áhersla lögð á að þekkja reglur, nota réttan búnað og fylgja fyrirmælum. Á þrepi 3 er starfsfólki leiðbeint og fylgst með öryggi á afmörkuðu svæði. Á þrepi 4 er ábyrgðin heildstæð og nær til innleiðingar reglna, öryggisáætlana, fræðslu, forvarna og eftirfylgni.
Vinnan getur jafnframt nýst atvinnurekendum við ráðningar, móttöku nýs starfsfólks, skipulag þjálfunar, starfsþróunarsamtöl og mat á frammistöðu. Með skýrari aðgreiningu starfanna verður auðveldara að tryggja að ábyrgð og væntingar séu í samræmi við hlutverk hvers starfsmanns. Það getur dregið úr óvissu, styrkt gæði í starfseminni og auðveldað skipulagningu náms og fræðslu á vinnustað.
HVAÐ SKILUR STÖRFIN AÐ? Helsti munurinn á störfunum felst í sjálfstæði, ákvörðunarvaldi, mannaforráðum og rekstrarábyrgð. Á þrepi 1 vinnur starfsfólk undir leiðsögn og tekur takmarkaðar ákvarðanir um framkvæmd eigin verkefna. Á þrepi 2 vinnur það sjálfstætt að almennum verkefnum en leitar aðstoðar þegar mál eru óvenjuleg eða utan ábyrgðarsviðs þess. Á þrepi 3 eru verkefni annarra skipulögð og rekstrarlegar ákvarðanir teknar innan afmarkaðs svæðis. Á þrepi 4 eru teknar formlegar ákvarðanir um rekstur, mannafla og fjármál verslunarinnar.
SKÝR GRUNNUR FYRIR HÆFNIÞRÓUN OG RAUNFÆRNIMAT Hæfnigreining verslunarstarfa sýnir að störfin mynda rökrétta og stigvaxandi heild. Þau eiga sameiginlegan faglegan grunn en eru aðgreind eftir umfangi verkefna, sjálfstæði, stjórnun og ábyrgð. Samhliða þessu endurspegla starfaprófílarnir breytingar á verslunarumhverfinu þar sem tækni, þjónustugæði, öryggi og reglufylgni hefur fengið aukið vægi.
Sambærilegur stígandi birtist í þjálfun starfsfólks. Starfsfólk á þrepi 1 fær fyrst og fremst þjálfun. Á þrepi 2 getur það miðlað reynslu sinni og leiðbeint nýliðum um almenn verkefni. Á þrepi 3 ber það ábyrgð á nýliðakynningu og þjálfun innan síns svæðis. Á þrepi 4 er ábyrgðin víðtækari og tekur til skipulags fræðslu, hæfnimats og starfsþróunar alls starfsfólks verslunarinnar.
Með hæfnigreiningu verður hæfni starfsfólks sýnilegri og auðveldara að tengja saman starfsreynslu, raunfærnimat og framgang í starfi. Þannig getur vinnan stuðlað að aukinni viðurkenningu á hæfni fólks í verslun, markvissari starfsþróun og sterkari stöðu þess á vinnumarkaði. Sérfræðingar frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins tóku saman, allar nánari upplýsingar má finna á frae.is
VR BLAÐIÐ 02 2026 29
Fagnám verslunar og þjónustu Fagnám verslunar og þjónustu er 90 eininga nám á framhaldsskólastigi og er blanda af fjarnámi hjá Verzlunarskóla Íslands og vinnustaðanámi sem fer fram úti í fyrirtækjum
RAUNFÆRNIMAT
FAGNÁM
Fáðu hæfni þína á móti hæfnikröfum starfsins staðfesta með fagbréfi
Fjarnám hjá Verzlunarskóla Íslands
fyrir starfandi verslunarfólk
Taktu skrefið Skráðu þig með því að senda póst á fjarnam@verslo.is
Pantaðu ráðgjöf hjá Mími símenntun
SKREF 1
SKREF 2
STÚDENT
DIPLÓMANÁM EÐA BS-NÁM
Ljúktu stúdentsprófi í fjarnámi hjá Verzlunarskóla Íslands
SKREF 3
Taktu skrefið í fjarnámi með vinnu hjá Háskólanum á Bifröst í Diplómanámi í viðskiptafræði og verslunarstjórnun eða með BS-námi í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun í verslun og þjónustu.
SKREF 4
Valfrjálst er milli skrefa hvort einstaklingur kjósi að halda áfram eða ekki. Vegferðin er í boði fyrir starfsgreinina og valið ávallt einstaklingsins.
30 VR BLAÐIÐ 02 2026
Kynntu þér málið á fagnam.is
Hvað fellur undir viðmið um námskeið hjá starfsmenntasjóði VR/LÍV? 1
2
3
4
5
Skilgreint upphaf og endir
Upplýsingar aðgengilegar
Opið öllum
Fylgir fyrirfram ákveðinni áætlun eða skilgreiningu
Ráðgjöf, persónuleg áætlun og handleiðsla uppfylla ekki skilyrði námskeiðs.
Hvað er þá styrkhæft? Styrkhæft nám
Nám til eininga Aukin réttindi Tungumálanám
Styrkhæft námskeið
Styrkhæft netnámskeið
Ferðastyrkir
Fellur að viðmiðum um námskeið
Styrkhæf sjálfstyrking
Verður að vera forvörn, ekki meðferð Eingöngu sjálfstyrkingarnámskeið innanlands
einkakennsla í tungumáli er styrkhæf
Starfstengd markþjálfun
Fellur að viðmiðum um námskeið
Ráðstefna með skipulagðri dagskrá
Starfstengt námskeið
ef það er óljóst, þá þurfa rök að fylgja með
Ráðgjöf, handleiðsla og meðferðarúrræði eru ekki styrkhæf Fellur að viðmiðum um námskeið Starfstengt námskeið
ef það er óljóst, þá þurfa rök að fylgja með
Áskrift
með mörgum starfstengdum námskeiðum er heimil
Ferð tengist starfstengdu námi, ráðstefnu eða námskeiði Vegalengdin milli dvalarstaðs og fræðslustofnunar er meiri en 50km
12 tímar á ári, tímafjöldi sýnilegur á reikningi
Styrkhæf ráðstefna Styrkhæft tómstunda námskeið Skila þarf inn sérumsókn um ferðastyrk
sem inniheldur starfstengd fræðsluerindi
Eingöngu ráðstefnugjald Hlekkur á vefsíðu og dagskrá þarf að fylgja umsókn Fellur að viðmiðum um námskeið Byrjendanámskeið en ekki iðkun í sama fagi Greiddur reikningur verður að vera á nafni félaga
Eingöngu innanlands Greiddur reikningur
verður að vera á nafni félaga
Starfsþróun Framþróun
HÆFNI
Styrkir
Stafræn
Raunfærnimat
hæfni
Fræðsla Endurmenntun/símenntun
STARFSÞRÓUN – FRAMTÍÐIN ER Í ÞÍNUM HÖNDUM VILTU VAXA Í STARFI? | LANGAR ÞIG AUKA VIÐ HÆFNI ÞÍNA? | ER KOMINN TÍMI TIL AÐ TAKA NÆSTA SKREF? Á starfsþróunarsíðu VR finnur þú innblástur, leiðbeiningar og verkfæri sem hjálpa þér að taka næstu skref í starfi – á þínum hraða. Starfsþróun snýst ekki bara um að skipta um starf, heldur að sjá tækifærin til að efla hæfni þína, læra nýjar aðferðir og vaxa í starfi.
Taktu næsta skref! ▪ ▪ ▪ ▪ ▪
Ókeypis starfsþróunarráðgjöf fyrir félagsfólk VR
Finndu hvatningu til starfsþróunar Fáðu upplýsingar og ráð um fjölbreytta möguleika Þróaðu nýja hæfni til dragast ekki aftur úr Axlaðu meiri ábyrgð Vertu sterkari í því sem þú gerir nú þegar
▪ ▪ ▪
Skráning í gegnum Mínar síður á vr.is 30 mínútna Teams-viðtal Einstaklingsmiðuð ráðgjöf – líka í boði á ensku
Markmiðið með starfsþróunarráðgjöf er að hjálpa þér að sjá næstu skref, finna réttu leiðirnar og styðja þig í ákvarðanatöku um aukna hæfni á vinnumarkaði. Starfsþróun er ferðalag – byrjaðu í dag! 32 VR BLAÐIÐ 02 2026
Þrjár leiðir til að sækja um styrk í starfsmenntasjóði VR/LÍV Veldu eina leið
Einstaklingar
Fyrirtæki
Sameiginlegur styrkur
Einstaklingur sækir um styrk
Fyrirtæki sækir um styrk
Sameiginlegur styrkur einstaklings og fyrirtækis
1. Umsókn Sótt er um á Mínum síðum á vr.is. Félagsfólk annarra aðildarfélaga LÍV sækir um hjá sínu stéttarfélagi.
1. Umsókn Sótt er um á attin.is
2. Reikningur 2. Reikningur Greiddur reikningur verður að vera á nafni þess sem sækir um og staðfesting á að reikningur sé greiddur þarf að fylgja.
Greiddur reikningur verður að vera á nafni fyrirtækis og stað festing á að reikningur sé greiddur þarf að fylgja.
3. Upplýsingar 3. Upplýsingar Lýsing á námi skal fylgja með umsókn ef óljóst er hvers konar nám/námskeið sótt er um.
4. Greiðsla Styrkur greiddur inn á reikning félaga að uppfylltum skilyrðum sjóðsins.
Lýsing á námi skal fylgja með umsókn og listi starfsfólks sem sóttu námið/námskeiðið (nafnkennitala-stéttarfélagsaðild).
4. Greiðsla Styrkur greiddur inn á reikning fyrirtækis að uppfylltum skilyrðum sjóðsins.
Athugið
Athugið
Veittur styrkur er 90% af reikningi vegna náms, af starfstengdu námskeiðsgjaldi eða af ráðstefnugjaldi.
Veittur styrkur er 90% af reikningi vegna náms, af starfstengdu námskeiðsgjaldi eða af ráðstefnugjaldi.
Hámarksstyrkur er 180.000 kr. og 540.000 kr. þegar félagi á rétt á uppsöfnun. Veittur styrkur af tómstundanámskeiði er 50% að hámarki 40.000 kr. sem dregst frá árlegum hámarksstyrk.
Hámarksstyrkur er 390.000 kr. fyrir hvern einstakling. Hámarksstyrkur til fyrirtækja er 4 milljónir kr. á ári.
1. Kostnaður Nám verður að kosta að lágmarki 200.000 kr.
2. Reikningur Það skiptir ekki máli á hvoru nafni greiddur reikningur er, nafni fyrirtækis eða félaga.
3. Umsókn Félagi sækir um styrkinn á mínum síður á vr.is eða hjá sínu LÍV-félagi og gildir sú umsókn einnig vegna styrks fyrirtækisins. Því þarf ekki að senda inn sér umsókn fyrir fyrirtækið Yfirlýsing frá fyrirtækinu verður að fylgja með umsókninni þar sem fram kemur að um sé að ræða sameiginlega umsókn og að námið sé hluti af starfs þróunaráætlun starfskraftsins.
4. Afgreiðsla Við samþykkt umsóknar dregst styrk upphæðin af rétti beggja. Miðað er við 50/50 en ef félagi á rétt á uppsöfnun þá er uppsöfnunin nýtt fyrst og svo réttur fyrirtækis.
5. Útborgun Styrkupphæð greiðist inn á reikning beggja.
Tómstundastyrkur hefur ekki áhrif á uppsöfnun. Veittur ferðastyrkur vegna náms/starfstengdra námskeiða er 50%, að h ámarki 50.000 kr. sem dregst frá árlegum hámarksstyrk.
6. Upphæð styrks Samanlagður styrkur er 90% af námsgjaldi – hámark 570.000 kr. (180.000 kr. réttur félaga + 390.000 kr. réttur fyrirtækis) eða að hámarki 800.000 kr. þegar félagi á rétt á uppsöfnun.
starfsmennt.is vr.is | attin.is | landssamband.is
Tók gildi 1. janúar 2024.
VR BLAÐIÐ 02 2026 33
ELDRI VR FÉLAGAR BOÐNIR Í HÖRPU Rúmlega 600 eldri VR félagar nutu kaffiveitinga í Hörpu í vor en hefð hefur skapast fyrir því að VR bjóði eldra félagsfólki sínu til kaffisamsætis að vori. Örn Árnason skemmti gestum og Salka Sól söng nokkur lög við undirleik Jónasar Þóris píanóleikara.
34 VR BLAÐIÐ 02 2026
VR BLAÐIÐ 02 2026 35
AF VETTVANGI LÍV
LÍV - Landssamband íslenzkra verzlunarmanna er fjölmennasta landssamband launafólks á Íslandi. Það er stærsta landssambandið innan ASÍ með samtals um 50.000 félaga og er VR langstærst þeirra félaga sem eiga aðild að LÍV. Tilgangur sambandsins er að vera sameiginlegur vettvangur aðildarfélaganna til að vinna að bættum kjörum og öðrum hagsmunamálum félagsmanna. Eitt af lykilhlutverkum LÍV er að taka þátt í alþjóðastarfi samtaka launafólks. LÍV á m.a. aðild að NHK, Nordisk Handelskommittén sem er samstarfsvettvangur sex samtaka verslunarfólks á Norðurlöndum. Samtök verslunarfólks á Norðurlöndum starfa þétt saman í baráttu sinni fyrir hönd félagsfólks síns og þó að vinnumarkaðurinn þar eigi margt sameiginlegt þá er líka býsna margt ólíkt. Dagana 2.-3. júní hélt NHK ársfund sinn í Reykjavík og kom forystufólk frá PAM í Finnlandi, Handels og Unionen í Svíþjóð, HK Handel í Danmörku og HK í Noregi saman til fundar. Fulltrúar atvinnurekenda tóku þátt í fyrri fundardeginum en seinni daginn tóku eingöngu fulltrúar samtaka launafólks þátt í dagskránni. Á fyrri deginum fékk hópurinn kynningu á stöðu Norðurlanda árið 2026 þar sem fulltrúar frá Nordregio, Maria Bobrinskaya og Hjördís Guðmundsdóttir kynntu niðurstöður nýjustu skýrslu Nordregio. Mjög hefur dregið úr fólksfjölgun alls staðar á Norðurlöndum og raunar er það svo að fæðingartíðni fólks sem fætt er og uppalið á Norðurlöndum er ekki nægileg til þess að halda í horfinu hvað varðar fólksfjölda. Þjónusta við foreldra og möguleika þeirra til þess að vera á vinnumarkaði er því mikilvægur þáttur í að bregðast við þessari þróun. Líkt og félög innan LÍV hafa vakið athygli á skipa leikskólar lykilhlutverk í því að auðvelda foreldrum að taka þátt í vinnumarkaðnum. Há gjöld fyrir þjónustu og tekjutengingar, ásamt minni tækifærum til menntunar og atvinnu, geta dregið úr áhuga fólks á barneignum. Síðari dagurinn hófst á hefðbundnum aðalfundarstörfum þar sem meðal annars var valinn formaður og stjórn NHK. Engar breytingar urðu á samsetningu stjórnar en Eiður Stefánsson, formaður LÍV, situr í stjórn NHK og er Linda Palmetzhofer, formaður Handels í Svíþjóð, formaður NHK. Annika Rönni-Sällinen, formaður PAM í Finnlandi, er varaformaður og Mette Høgh, formaður HK Handel í Danmörku, er gjaldkeri. Auk þeirra eru Christopher Ray Beckham, formaður HK Norge, og Victoria Kirchhoff, varaformaður Unionen í Svíþjóð, í stjórn. Efnahagsmálin voru líka rædd og kom fram að ný ríkisstjórn í Danmörku hefði ákveðið að fella niður virðisaukaskatt á grænmeti og græn matvæli og lækka hann jafnframt um helming á alla matvöru. Sænsk stjórnvöld
36 VR BLAÐIÐ 02 2026
fóru í svipaða aðgerð en létu nægja að lækka virðisaukaskatt á matvæli um helming fram að kosningum sem fram fóru 13. september 2026. Öll norrænu ríkin takast á við miklar tæknibreytingar. Fulltrúar launafólks hafa af því áhyggjur hvernig þessi tækni verður notuð. Skerðing á persónufrelsi og áhrif á vinnutíma þar sem þess er mögulega krafist að starfsfólk sé alltaf til staðar eru sameiginlegar áskoranir. En ekki síður að þessi tækni verði ekki misnotuð og hún taki tillit til uppbyggingar vinnumarkaða á Norðurlöndunum. LÍV og VR stóðu þannig sameiginlega að yfirlýsingu varðandi vinnu á stafrænum verkvöngum (e. platform work) þar sem þau benda m.a. á að vinna á stafrænum verkvöngum hafi haft í för með sér margvísleg vandamál um allan heim: skattasniðgöngu, undanbrögð frá lögum og reglum, tilraunir til að komast hjá kjarasamningum, félagsleg undirboð og fyrirtæki sem neita að axla ábyrgð sem atvinnurekendur. Á Norðurlöndum leggja stéttarfélög áherslu á sanngjörn laun, öflug réttindi launafólks og kjarasamninga – ekki kerfi sem byggist á óöryggi og láglaunastörfum. Norræn stéttarfélög hafa leitast við að bæta kjör þeirra sem starfa á stafrænum verkvöngum með norrænu aðferðinni: með kjarasamningum. Við erum staðföst í þeirri sannfæringu okkar að norræna vinnumarkaðsmódelið – með skipulögðum vinnumarkaði, öflugri vernd launafólks og sterkri hefð fyrir kjarasamningum – sé lykillinn að því að sjálfbær fyrirtæki, launafólk og samfélagið í heild geti vaxið og dafnað. Norræna nálgunin gagnvart nýrri tækni felst ekki í því að leggjast gegn henni heldur að launafólk og verkalýðsfélög taki þátt í að móta hvernig tæknin er nýtt og hvernig vinnu með henni er háttað. Þessi norræna nálgun hefur með góðum árangri sameinað nýsköpun og aukna framleiðni við mannsæmandi starfskjör og jöfnuð. Starfsmenntamál eru þessu nátengd og þar skiptir miklu máli hver tækifæri launafólks eru til að bæta við færni sína á vinnutíma. Samhliða því er mikilvægt að þau sem þurfa að takast á við breytingar á framboði starfa, oft vel menntað fólk, hafi möguleika á því að afla sér nýrrar færni. Eins þarf að efla áhuga fólks á því að starfa í verslun og efla virðingu fyrir þeim sem þar starfa. LÍV leggur á það áherslu að breytingar á vinnumarkaði eigi að skila launafólki betri lífskjörum og að mikilvægt sé að sú mikla þekking og reynsla sem launafólk býr yfir tapist ekki þegar ný tækni er tekin i notkun.
TRÚNAÐARMAÐURINN
INGA ÓSK MAGDAL KRISTINSDÓTTIR Aldur: 26 ára. Vinnustaður: Byko Breidd Kópavogur. Hversu lengi hefurðu verið trúnaðarmaður? Síðan í febrúar á þessu ári. Hvernig fræðslu hefurðu sótt þér sem trúnaðarmaður? Ekki neina eins og er en er að fara á námskeið 22 október, trúnaðarmannanámskeið - allt um VR. Finnst þér þú hafa lært eitthvað af því að vera trúnaðarmaður? Já, þetta er krefjandi en samt áhugavert hlutverk. Ég hef sjálf leitað til trúnaðarmanna þegar ég var það ekki og sé núna vinnuna og tímann sem fólk leggur á sig til að hjálpa öðrum. Hvað gerirðu í frítíma þínum? Ég fer í sund eða í göngutúra, stundum finnst mér líka bara næs að „chilla“ heima og horfa á góða bíómynd.
VR BLAÐIÐ 02 2026 37
KROSSGÁTAN )Ut VWXQGDU NURVVJiWXU 95 EODèLè
0(ç 6.È180 È 0,//,
%25* $5$ /(*6
0(*,5 7,/
)Ut VWXQGDU 67$)180 NURVVJiWXU /é6,5 )g*18ç, 95 EODèLè
ë9(5 0811,
*(67$ %2ç,
'$16
0$116 1$)1,
+g)8ç 5,ç$
Òç$ 0$116 1$)16
) 77
%Ï085
*(,6/$ +-Ò3
<),5 67e77
0</67 681'85
*5Ï3
)251 0(11 Ë 68ç85 $0(5Ë.8 6$1'$/$
6/$*$5$ %<7785
)(50,1*
5$.7
-$5ç9(*
5È3,
3$
)<5,5 %2ç$5
)(1-Ï77
+5Ò*80
5<.,ç
%25* Ë -$3$1
%5(<77
6. 67 67Ï5 9(/',6 +1-Ï6. Ï775,
67$)85
80%2ç6 69 ç,
+/-Ïç ) 5,6
+Ë%é/,1 Ò7 $) )<5,5 6,*
0È/8ç
È77 ) 7/$
6.$5ç,
/$*1(7
7$87$
Ï/<)-$1
)/$7) 7,
(,*85
7,/ ()1,6 /(1*-$
%(55, +,.,ç
)5$0 /(,ç6/ 81$
7$0$ 6-Ò. 'Ï0
60È+(5 %(5*,ç
'5$* 63,/,
*5$)Ë. 0<1'
'85785
$5
7,0%85
+$/$ç,
/é6,5 +,., %5$*ç$ .$5/
(//(*$5 Ï)Ò6
È5È6
0 /7,
)Ut VWXQGDU 0(67$1 NURVVJiWXU +/87$ 95 EODèLè
1$0 67$ç$5
1Ëç
*$%%$ç,
6325,
(16.85 ()7,5 5e7785
È66 )5-Ï 6(0,
7-Ï1,ç
5()6$
7g)/8 7(*81'
)5È 5Ï780
5g/7,
'581$
+5(<) ,67
+5(<. ,11,
+ 67$1
Ë6
)Ut VWXQGDU NURVVJiWXU 95 EODèLè
67-Ï51 0È/$ 67()18
9$),
675$;
6.,37,
3/$77 )Ï785
6È/'$ç
'é5$ +/-Ïç
%5271,
67Ï5$ Ë/È7,ç
.(<5,ç
È6<1-8
0$7$5 9(,6/8
%25ç $1',
67$.5,
0Ò/ %$1'6
(<77 0(5.,5 /Ë7,/6 9,5ç,
+81'6 1$)1
(0% 77,
VERÐLAUN FYRIR RÉTTA LAUSN KR. 15.000 Lausnin á síðustu krossgátu er: Vagnstjóri Vinningshafi krossgátunnar í síðasta blaði var Guðrún Jósafatsdóttir. Guðrún starfar hjá kvennadeild Rauða Krossins á Íslandi. VR óskar Guðrúnu til hamingju með verðlaunin. Í lausn krossgátunnar hér að ofan er orð. Skila má lausnum á krossgata@vr.is. Vinsamlega látið kennitölu fylgja með. Þá má einnig skila krossgátulausnum í pósti. Utanáskriftin er: VR blaðið - krossgáta, Kringlunni 7, 103 Reykjavík. Skilafrestur er til 17. febrúar 2027.
38 VR BLAÐIÐ 02 2026
SUDOKU ÞRAUT Sudoku byggist á því að klára að fylla út 9x9 ytri grind með tölum frá 1 upp í 9 þannig að hver tala komi aðeins fyrir einu sinni í hverri röð, hverjum dálki og hverri 3x3 innri grind.
ERT ÞÚ EKKI ÖRUGGLEGA MEÐ RÉTTAR UPPLÝSINGAR SKRÁÐAR HJÁ OKKUR? Mikilvægt er að félagsfólk skrái réttar upplýsingar um starfsheiti og vinnutíma á Mínum síðum á vr.is Upplýsingarnar eru nýttar í launarannsókn félagsins sem gefur félagsfólki mikilvæga innsýn í stöðu sína samanborið við aðra í sömu atvinnugrein. VR BLAÐIÐ 02 2025 2026 39
40 VR BLAÐIÐ 02 2026