Æ
PÓSTHÚSSTRÆTI 5 VIÐ SJÁVARSÍÐUNA REYKJANESBÆ
9090
NÝJAR ÍBÚÐIR VIÐ SJÁVARSÍÐUNA OPIÐ OPIÐ HÚS FIMMTUDAGINN 17. DES. KL. HÚS SUNNUDAGINN KL. 1516-17. - 16.
Hafnargötu 20 Reykjanesbær Sími 420 4000 Hafnargötu 20 - Reykjanesbær - -Sími 420- 4000
Grensásvegur 11 - www.eignamidlun.is - Sími 588 9090
OPI
Miðvikudagur 16. desember 2020 // 48. tbl. // 41. árg.
Gleðilega hátíð Jólablað Víkurfrétta 2020 Jólablaðið er síðasta tölublað Víkurfrétta fyrir jól. Næsta blað verður áramótablað Víkurfrétta sem kemur út þriðjudaginn 29. desember. Skilafrestur auglýsinga í það blað er á hádegi mánudaginn 28. desember. Póstfang Víkurfrétta er vf@vf.is. Víkurfréttavefurinn vf.is er uppfærður daglega og þannig verður það einnig um jólin. Hátíðleg sjónvarpsdagskrá verður hjá Víkurfréttum um jól og áramót. Suðurnesjamagasín verður á tónlistarlegum nótum á aðfangadagskvöld á Hringbraut og vf.is. Á aðfangadag verður sýnt frá barnamessu í Keflavíkurkirkju á vf.is og á jóladag sendum við út jóladagsmessu kirkjunnar. Nýársmessa í Keflavíkurkirkju verður svo send út á nýársdag. Þá verður sýnt frá Bliki í auga um jólin og á nýju ári eru það svo nýárstónleikar Alexöndru Chernyshova á Hringbraut í samstarfi við Víkurfréttir.
Jólalukka 2020
VÍKURFRÉTTAMYND: HILMAR BRAGI BÁRÐARSON
FLJÓTLEGT OG GOTT! 2
GOTT VERÐ
fyrir
1
Allan sólarhringinn
870
479
Opnunartími Tjarnabraut: 08.00 - 23.30 Virka daga 09.00 - 23.30 Helgar
kr/pk
áður 1.299 kr
kr/stk
Ristorante pizza 26 cm - 4 teg.
33%
Opnunartími Hringbraut:
Coca Cola 0,5 ltr - 2 teg.
Hamborgari m/brauði Kjötsel - 4x90 gr
FRÍ FAGLJÓSMYNDUN
FASTEIGNASALI SÝNIR ALLAR EIGNIR
PÁLL ÞORBJÖRNSSON
LÖGGILTUR FASTEIGNASALI HAFNARGATA 91, REYKJANESBÆ VÍKURBRAUT 62, GRINDAVÍK PALL@ALLT.IS - 698-6655
2 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000
Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 898 2222, hilmar@vf.is Prentun: Landsprent
Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, sími 421 0001, andrea@vf.is Útlit og umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson Hilmar Bragi Bárðarson Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Óskum Suðurnesjamönnum öllum
gleðilegra jóla, árs og friðar
með þökk fyrir árið sem er að líða
ÓSKUM SUÐURNESJABÚUM GLEÐILEGRA JÓLA OG FARSÆLS NÝS ÁRS ÞÖKKUM SAMFYLGDINA Á ÁRINU SEM ER AÐ LÍÐA
HREINSUM RIMLAGARDÍNUR OG MYRKVUNARGARDÍNUR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
Skipaþjónustuklasi í Njarðvík í höfn Þriggja milljarða króna framkvæmdir og hundruð starfa skapast Umfangsmikil uppbygging hafnarog upptökumannvirkja í Njarðvík þar sem byggður yrði skipaþjónustuklasi til að taka á móti og þjónusta stærstu fiskiskipa landsins er í höfn eftir samþykkt framlags frá ríkinu á Alþingi í dag en um er að ræða framkvæmdir fyrir allt að þrjá milljarða króna. Skipasmíðastöð Njarðvíkur og Reykjaneshöfn vinna saman að verkefninu með stuðningi ríkisins og Reykjanesbæjar. Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður í Suðurkjördæmi, sagði eftir að málið var samþykkt við aðra umræðu breytinga á fjárlagafrumvarpi á Alþingi að það væri ánægjulegt og mikilvægt. „Það er afar ánægjulegt að sjá þessa breytingartillögu meirihluta fjárlaganefndar hér á pappírum. Við höfum lengi reynt að vekja athygli á þessu mikilvæga atvinnumáli á Suðurnesjum. Eins og fram kemur í nefndaráliti meirihlutans er lagt til að 350 millj. kr. verði lagðar til Hafnabótasjóðs en Skipasmíðastöð Njarðvíkur hefur lengi undirbúið uppbyggingu þurrkvíar við Njarðvíkurhöfn. Forsenda þess að svo geti orðið, og skapað þar með tugi starfa, er að ríkið komi einnig inn með fjárframlag til að gera nauðsynlegar framkvæmdir á höfninni og við höfnina. Fjárfestar hafa sýnt málinu mikinn áhuga og sveitarfélagið og skipasmíðastöðin hafa unnið gríðarlega vandaða undirbúningsvinnu við þetta verkefni,“ sagði Silja Dögg. Auk 350 milljóna í breytingartilllögunum hafa þegar verið samþykktar framkvæmdir hjá Reykjaneshöfn fyrir 270 milljónir króna sem verða færðar í þetta verkefni. Ríkið mun leggja til um 600 milljónir króna og Reykjaneshöfn um 350–400 millj. kr. en kostnaður við dýpkun og gerð varnargarðs til að hægt verði að taka við stærstu
Svona mun skipaþjónustuklasinn í Njarðvík líta út þegar hann hefur verið byggður.
skipum landins, kostar um einn milljarð króna. Framkvæmdir munu líklega hefjast næsta vor. Skipasmíðastöð Njarðvíkur munu kosta byggingu flotkvíarinnar og húsið utan um hana en kostnaður við það verkefni er áætlaður á bilinu 1,5 til tveir milljarðar króna. Skipasmíðastöðin hefur fengið tilboð í smíði kvíar og húseininga frá Tyrklandi sem yrði flutt sjóleiðina til Íslands í tvennu lagi. Húsið verður 33 metrar á hæð, 135 metra langt og 40 metrar á breidd. Það mun geta tekið inn öll stærstu fiskiskip íslenska flotans og einnig varðskip Landhelgisgæslunnar. Framkvæmdirnar og þegar þurrkvíin verður komin upp munu skapa 250 til 350 bein og óbein störf.
„Mörg stærri fiskiskipa flotans hér á landi hafa farið til útlanda til að fá þjónustu, viðgerðir og viðhald. Við ætlum að fjárfesta í yfirbyggðri skipakví sem gæti tekið þessi stærri skip. Það er því til mikils að vinna fyrir okkur og samfélagið á Suðurnesjum. Við teljum það ekki óraunhæft að á fáum árum gæti orðið til í Njarðvík þekkingarklasi í viðhaldi og þjónustu við skip sem teldi um 250 til 350 bein og óbein störf,“ sagði Þráinn Jónsson, framkvæmdastjóri Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur, þegar viljalýsing um málið var undirrituð fyrr á þessu ári. Ekki er ólíklegt að þurrkvíin geti tekið við fyrstu skipunum, gangi allt að óskum í framkvæmdum, á árinu 2022.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár Langbest þakkar viðskiptin á árinu sem er að líða
langbest.is
Frá flugvöllum og starfsstöðvum um land allt óskar starfsfólk Isavia þér gleðilegra jóla og farsældar á ferðalögum komandi árs.
4 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Styrkir til Velferðarsjóðs Suðurnesja og Vinarvoðar Lionessuklúbbur Keflavíkur og Lionsklúbburinn Freyja afhentu á dögunum veglega styrki til samfélagsverkefna á Suðurnesjum. Líknarnefnd færði Velferðarsjóði Suðurnesja styrk fyrir 400 þúsund kr. Við honum tók Þórunn Þórisdóttir fyrir hönd sjóðsins. Þá hlaut Vinarvoð 50 þúsund kr. styrk til kaupa á garni en það er félagsskapur á vegum Ytri-Njarðvíkurkirkju. Á myndinni eru f.v.: Gunnlaug Árnadóttir, Sr. Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir, Steinunn Guðnadóttir, Þórunn Friðriksdóttir og Kristín Bárðardóttir. Á efri myndinni eru Gunnlaug og Kristín með Þórunni frá Velferðarsjóði.
Óskum Suðurnesjamönnum og öðrum landsmönnum gleðilegrar jólahátíðar með ósk um gæfuríkt komandi ár.
Kiwanis færir jólastyrki – Hafa opnað jólatréssölu á Fitjum
Undanfarin ár hefur Kiwanisklúbburinn Keilir afhent styrki til Fjölskylduhjálpar og Velferðarsjóðs í upphafi jólatrésölu. Árið í ár er engin undantekning á þeirri venju. Formaður styrktar-
nefndar, Ingólfur Ingibergsson, og Reynir Friðriksson, forseti klúbbsins, heilsuðu í þetta skiptið upp á Þórunni Þórisdóttur hjá Velferðarsjóði og Önnu Valdísi Jónsdóttur hjá Fjölskylduhjálpinni til að afhenda styrki upp á 500.000 krónur og tíu jólatré á hvorn stað og voru myndirnar teknar við það tækifæri. Þess má geta að jólatrésalan, sem er í porti Húsasmiðjunnar, hófst föstudaginn 11. desember og er opin frá klukkan 17 til 20 alla virka daga fram að jólum, 16 til 20 föstudaginn 18. desember, 12 til 18 laugardaginn 19. desember og 13 til 18 sunnudaginn 20. desember.
Færðu Rauða krossinum 2.653 krónur Þær Birna Rán Hilmarsdóttir og Helena Marý Óðinsdóttir ákváðu að snúa bökum saman og halda tombólu til styrktar Rauða krossinum í haust í Vogum. Þær stöllur söfnuðu 2.653 krónum. Vegna Covid-takmarkana komu þær framlaginu ekki í hús hjá Rauða krossinum en dóu ekki ráðalausar og létu millifæra framlagið. Þær hyggja á frekara tombóluhald næsta vor með von um að þá verði veiran á brott og að allir þori að koma á tombólu.
Þökkum viðskiptin á liðnum árum.
Óvissa með áramótabrennu í Vogum
– Efna til þrettándahátíðar fyrir börn og flugeldasýningar Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga kom saman til fundar í þarsíðustu viku þar sem fjallað var um væntanlega þrettándagleði 2021. Eðli málsins samkvæmt ríkir óvissa með alla viðburði þar sem fólk kemur saman meðan á veirufaraldrinum stendur og samkomutakmarkanir eru í gildi. Fram kemur í bókun nefndarinnar að hún telji ekki raunhæft að halda áramótabrennu að þessu sinni. Nefndin leggur til að haldin verði hátíð á þrettándanum í staðinn og þá yrðu hátíðarhöld fyrir börnin samkvæmt þeim samkomutakmörkunum sem þá kunna að vera í gildi.
Einnig verði haldin vegleg flugeldasýning en hana er hægt að halda óháð fjöldatakmörkunum. Í Suðurnesjabæ hefur þegar verið tekið ákvörðun um að engar áramótabrennur verði í sveitarfélaginu um komandi áramót.
Gleðilega hátíð
Landsbankinn
landsbankinn.is
410 4000
6 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
SIGRÚN DRÍFA ÓTTARSDÓTTIR er eiginkona Magnúsar Stefánssonar, bæjarstjóra í Suðurnesjabæ:
Öðruvísi jól þessi jólin
Byrjar að kaupa jólagjafir í ágúst
Bæjarstjórarnir á Suðurnesjum eru vanir því að vera í sviðsljósinu. Þeir eru allir harðgiftir menn og lék okkur forvitni á að vita hvað eiginkonur þeirra væru að stússast fyrir jólin. Við báðum þær að gefa lesendum Víkurfrétta uppskrift að uppáhaldsjólasmákökum fjölskyldunnar. Bæjarstjórafrúrnar voru til í það og fengum við þær til að svara í leiðinni nokkrum laufléttum spurningum varðandi jólahald fjölskyldunnar á Covid-ári.
V
UMSJÓN
Marta Eiríksdóttir MYNDIR ÚR EINKASAFNI
Þú þarft ekki að fara langt til að fá fallega jólagjöf
HAFNARGÖTU 23 • ZOLO.IS
Starfsfólk Apóteks Suðurnesja óskar þér og þínum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári Þökkum fyrir viðskiptin á árinu
ið höldum í ákveðnar hefðir. Ég byrja snemma að undirbúa jólin, byrja að kaupa jólagjafir í ágúst, klára að baka um miðjan nóvember svo setjum við upp jólaskreytingar í vikunni fyrir aðventu. Jólatré er svo skreytt viku fyrir jól. Við fjölskyldan komum saman hjá okkur um miðjan desember, þar sem við höfum svona julefrokost, sem okkur finnst svo skemmtilegt. Ein ömmustelpan mín á afmæli um miðjan desember svo stundum hittist þannig á að jule frokost er í tengslum við afmælið hennar. Ein ríkasta hefðin okkar er svo sú að á Þorláksmessukvöld sjóðum við hangikjöt, ég baka brauð á aðfangadagsmorgun og eiginmaðurinn sér um að sjóða rauðkálið fyrir jólamatinn. Þá er jólailmurinn kominn í hús og sjálf jólahátíðin gengur í garð. Samvera fjölskyldunnar er eitt það besta við jólin, líka hvað allt er hátíðlegt. Við förum alltaf vestur í Ólafsvík fyrir jólin til að hitta tengdamömmu og fjölskyldurnar okkar, förum í kirkjugarðinn þar og setjum logandi kerti á leiði ömmu minnar og afa og tengdapabba. Ég sakna þeirra mikið og finnst jólin mega koma þegar við erum búin að fara í kirkjugarðinn í Ólafsvík. Þetta verða að vísu svolítið skrítin og óvenjuleg jól. Við munum væntanlega ekki hitta eins marga um hátíðarnar og oftast áður en það vill svo vel til að við fjölskyldan erum ekki nema níu þegar við hittumst svo þetta ætti að sleppa hjá okkur. Ég er mikið jólabarn. Þegar ég byrjaði að búa hét ég því að vera alltaf tímanleg með allt og bara njóta mín svo á aðventunni. Þegar ég var stelpa var verið að gera allt alla aðventuna og setja svo upp jólaeldhúsgarndínurnar kl. 23.30 á Þorláksmessukvöld og skreyta svo jólatré. Það var ekki alveg fyrir mig. Ég skreyti bara svona temmilega og hef ekki voða mikið jóladót en ég er hrikalegur krummi því allt sem glitrar finnst mér svo fallegt.
Mér finnst fínt að búa hér á Suðurnesjum. Hef sagt að þetta sé svona eins og heima í Ólafsvík en vantar bara fjöllin. Annars hefur okkur verið tekið vel og það er yndislegt fólk hér. Það er nú allaf gaman þegar er kveikt á jólatrjánum hér í bæ og hvað bæjaryfirvöld skreyta göturnar vel og skemmtilega. Ég er alltaf svo hrifin þegar fólkið byrjar að setja upp jólaseríurnar snemma á húsin hjá sér, því þá birtir svo til úti og tölum ekki um þegar er smá snjór yfir öllu. Mér finnst fólk í Suðurnesjabæ mjög duglegt að skreyta umhverfi sitt með jólaljósum, ég bara elska jólaljósin. Heima hjá okkur elska allir rúsínukökurnar sem ég baka eftir uppskrift frá mömmu. Svo eru það lakkrístopparnir og brún lagterta sem verður að vera og tilheyrir aðventunni.“ Allir heima hjá Drífu elska rúsínukökur.
Rúsínukökur 2,5 bolli hveiti 2 bollar haframjöl 2 bollar sykur 1 bolli smjörlíki 1 bolli rúsínur 1 tesk natron 0,5 tesk salt Deigið hnoðað, kökur mótaðar og bakaðar við 250°C
Þú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á
vf is
Hjá okkur njóta allir sérkjara Félagar í FEB og öryrkjar fá
16% afslátt
Verið hjartanlega velkomin
Gleðilega hátíð! Hringbraut 99 - 577 1150
Opið: Mánudaga-föstudaga 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.
Við óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum árið sem er að líða.
JÓLIN ERU KOMIN Í NETTÓ! -20% -30% Hamborgarhryggur Úrbeinaður
-20%
1.399 ÁÐUR: 1.999 KR/KG
Nautalundir Danish Crown
KR/KG
-20%
Okkar Laufabrauð 8 stk.
-14%
3.999
KR/KG
ÁÐUR: 4.999 KR/KG
1.999 ÁÐUR: 2.499 KR/KG
KR/KG
NÚ GETA ALLIR VERIÐ STJÖRNUKOKKAR!
Fiskisúpa Hafið – 1 lítri
1.199
KR/PK ÁÐUR: 1.499 KR/PK
1.599 ÁÐUR: 1.859 KR/PK
-40%
KR/PK
Heilsuvara vikunnar!
Nautamínútusteik Marineruð - Sous vide
2.996
KR/KG
Wellington nautalund
5.399 ÁÐUR: 8.999 KR/KG
-25%
-19%
ÁÐUR: 3.699 KR/KG
Hangiframpartur Úrbeinaður
Bökunarkartöflur
Möndlur Himnesk hollusta – 200 gr
593
KR/PK ÁÐUR: 790 KR/PK
KR/KG
135
KR/KG ÁÐUR: 269 KR/KG
-20%
-50%
Grafinn lax í sneiðum Fisherman – 300 gr
1.599 ÁÐUR: 1.999 KR/PK
KR/PK
JÓLAINNKAUPIN
hafa aldrei verið eins leikandi létt. Þú færð jólasteikina á netto.is Tilboðin gilda 17.—20. desember
Lægra verð – léttari innkaup
Tilboðin gilda meðan birgðir endast. Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.
8 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR Aðferð:
JÓNÍNA GUÐJÓNSDÓTTIR er eiginkona Kjartans Más Kjartanssonar, bæjarstjóra í Reykjanesbæ:
Laukur í pott gullbrúnaður, kúr bítur sneiddur og látinn malla með lauknum. Gulrætur, blaðlaukur, sveppir, sellerírót, engiferrót og chilli saxað út í, kókosmjólk hellt út í gumsið. Kryddað með estragoni, tening og pipar. Hnetur setttar í mat vinnsluvél og grófmalaðar. Hnetur léttristaðar á pönnu og settar í pottinn. Hægt að þykkja með haframjöli, u.þ.b. 1 bolla. Sett inn í 200 gráðu heitan ofninn og bakað í 30–40 mín
Höldum í gamlar hefðir
A
ðventan finnst mér dásamlegur tími og nýt þess að skapa notalega stemmningu heima. Ljósin útí glugga, kertaljósin, tónlistin, jólailmur, grenið og ekki síst túlipanarnir og svo er rauður amaryllis í uppáhaldi. Samveran við fjölskyldu og vini skapar stóran sess í hefðinni á aðventu en við stórfjölskyldan færðum okkar boð yfir á aðventuna. Vinahópurinn borðar saman villibráð. Vinkonuhópar hittast í notalegri stemmningu, tónleikar og hefðbundinn undirbúningur jólahaldsins. Við höldum í gamlar hefðir og bjuggum líka til okkar eigin hefð í matargerð. Á aðfangadag erum við með kalkúnabringu og hnetusteik. Við fjölskyldan borðum andar-confit á milli jóla og nýárs og svo er breytilegt hjá okkur á gamlárskvöld. Ég geri alltaf heimatilbúinn ís sem ég ólst upp við og kom frá ömmu minni Ástu og kókostertu í eftirrétt. Á jóladag er algjör afslöppun en seint á jóladagskvöld kemur hópur góðra vina í heimsókn. Okkur þykir vænt um þessa hefð sem staðið hefur yfir frá því að við byrjuðum að búa. Þá er spjallað og stundum spilað. Það er líka hefð hjá okkur að fara í kirkju yfir jólahátíðina.
Það fer lítið fyrir smákökubakstri núorðið en ég á góða að sem færa okkur sörur. Okkur finnst stemmning á þessum árstíma í því að borða og bjóða upp á allskonar villibráð, paté, grafna gæs, önd, osta, lax og fleira þegar gesti ber að garði. Alltaf tilhlökkun að borða rjúpur með matarklúbbnum okkar en sjálf var ég alin upp við rjúpur á aðfangadag ásamt hamborgarhrygg en ég lærði ekki að meta rjúpurnar af neinni alvöru fyrr en í seinni tíð. Besta við jólin er ef maður nær að slaka á og njóta með fólkinu sínu. Jólin leggjast bara vel í mig, maður er orðinn vanur að hitta fáa í einu svo ef ég fæ að hitta mitt nánasta fólk verður þetta í góðu lagi. Já, ég er jólabarn og er svo heppin að jólin kalla fram góðar tilfinningar hjá mér. Ég á hlýjar minningar frá mínum bernskujólum og vona að maður hafi náð að koma því svo áfram til barna og barnabarna. Við eigum þrjú uppkomin börn og fimm ömmu- og afastráka og tvo á ská, samtals sjö myndarlega pilta á aldrinum tveggja til ellefu ára. Ég skreyti hóflega, við erum alltaf með lifandi jólatré sem við kaupum af Kiwanis og setjum upp viku fyrir jól. Þá finnst mér jólin vera komin. Ég skreyti líka sveitabæ fjölskyld-
Vi óskum nemendum, starfsfólki og samstarfsa ilum okkar gle ilegra jóla og farsældar á n ju ári.
Kókosterta með frostnu rjómaþaki 4 egg 140 gr kókosmjöl 140 gr flórsykur
unnar á Hvalsnesi en þar ríkir mikil kyrrð og þangað finnst vinum og fjölskyldu gott að koma á aðventunni. Mér finnst gott að búa í Reykjanesbæ. Við hjónin erum hér fædd og uppalin og höfum bæði búið hér alla okkar ævi nema á námsárunum þá bjuggum við í Reykjavík. Hér er fólkið okkar flest og hér eigum við marga góða vini. Mér finnst einkennandi fyrir aðventuna hversu mikil samstaða er á meðal íbúa og hversu vel og dyggilega fyrirtæki, félagasamtök og einstaklingar eru að styðja við og styrkja Velferðasjóð kirkjunnar og fleiri aðila sem láta sig varða að sinna þeim sem eru hjálparþurfi. Svo er líka gaman að sjá að bæjarbúar tóku sig saman og eru fyrr á ferðinni í ár með ljósin í gluggum og skreytingar, sem er frábært í þessu mikla skammdegi. Mér finnst alltaf stemmning á Þorláksmessukvöld í bænum okkar,
fullt af fólki í miðbænum, lúðrasveit Tónlistarskólans spilar jólalög og jólasveinarnir á ferðinni. Það er gaman að sjá hversu vel nýi Aðventugarðurinn er að falla í kramið hjá íbúum þar sem markmiðið er að lýsa upp svartasta skammdegið og skapa góða og notalega stemmningu fyrir fjölskylduna í aðdraganda jóla.
Hnetusteikin hans Péturs 400 gr blandaðar hnetur (cashew, hessel o.fl.) 2 stk kúrbítur 1 stk laukur 4 gulrætur 6 blöð blaðlaukur 300 gr sveppir 200 gr sellerírót ½ ferskur chilli 10 gr engiferrót 3 stk fáfnisgras (estragon) 1 stk kjúklingateningur 1 dós kókosmjólk
Aðskiljið eggjarauður og hvítur og þeytið eggjahvítur vandlega með fljórsykrinum. Blandið kókosmjölinu varlega saman við með sleikju og setjið deigið í smurt lausbotna tertu form. Bakið botninn við 130-150 gráður í 20–30 mín eða þar til hann er ljós brúnn að lit. Útbúið kremið á meðan kókosbotninn kólnar. Krem: 100 gr smjör 100 gr suðusúkkulaði 60 gr flórsykur 4 eggjarauður Bræðið smjörið og súkkulaðið yfir vatnsbaði og setjið í skál. Blandið flórsykrinum saman við og kælið blönduna vel. Bætið eggjarauðum í og þeytið á fullum krafti þar til kremið verður ljóst og þykkt. Smyrjið kreminu á botninn og látið kökuna standa í kæli fram að fram reiðslu. Frystið einn pela af þeyttum rjóma í sama formi og kakan var bökuð í og leggið ofan á rétt áður en tertan er borin fram.“
Vinnuverndarskóli Íslands
• !"#$ %$&
Þjónusta TM er hugsuð fyrir þig Hjá TM getur þú fengið tjón bætt á 60 sekúndum, keypt tryggingu upp í sófa að kvöldi til eða framkvæmt kaskóskoðun í gegnum appið. Þú getur líka nálgast alla ráðgjöf og þjónustu á öruggan máta með rafrænum skilríkjum í netspjallinu á tm.is.
Hugsum í framtíð
10 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
KRISTRÚN DAVÍÐSDÓTTIR
er eiginkona Ásgeirs Eiríkssonar, bæjarstjóra í Vogum:
A Óskum Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum samstarfið á árinu.
OPNUNARTÍMAR UM JÓL OG ÁRAMÓT Starfstöðvar Kölku í Helguvík, Grindavík og Vogum verða lokaðar á aðfangadag, jóladag, annan í jólum, gamlársdag og nýársdag. Að öðru leyti verða starfstöðvar fyrirtækisins opnar eins og venjulega. Sjá nánar á heimasíðu fyrirtækisins: www.kalka.is Við óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða!
ðventan fer í að skreyta á hefðbundinn hátt, setja upp jólaljós og fleira í þeim dúr. Engar sérstakar hefðir eru hjá okkur umfram það sem hefðbundið getur talist. Það besta við jólin er samveran með barnabörnunum og að fylgjast með gleði þeirra og tilhlökkun. Við eigum tvo syni, annar þeirra býr á Englandi og hinn á Íslandi. Þetta árið verðum við hjónin þó að öllum líkindum á Spáni um jól og áramót og munum því njóta þess að vera í samskiptum við þau í gegnum tölvuna. Við erum vön að hittast í báðum stórfjölskyldunum en nú verða engin stórfjölskyldujólaboð vegna Covid. Í gegnum árin höfum við eignast jólaskraut og muni sem við notum aftur og aftur. Jólabarnið í mér gerir því helst vart við sig með því að halda í þessar góðu hefðir sem skapast með árunum. Það er gaman að sjá hversu margir bæjarbúar eru duglegir að skreyta hjá sér, það er sannarlega upplyfting í skammdeginu. Börnin í skólanum og leikskólanum sáu um að kveikja á jólatrénu í Aragerði Vogum í ár, það heppnaðist vel og er dæmi um góða lausn þegar samkomubann ríkir.“
Uppáhaldsjólasmákökur fjölskyldunnar hafa verið Sörur. Sörur (200 kökur) Botnar 6 pokar möndlur með hýði (600 g) 1 pakki flórsykur (500 g) 11 eggjahvítur (eða 10-12, allt eftir stærð eggjanna) Aðferð: Möndlur malaðar í möndlukvörn (ekki í matvinnsluvél) og flór sykur sigtaður út í. Eggjahvítur stífþeyttar og blandað saman við möndlur og flórsykur. Deigið sett með teskeið á bökunarpappír og bakað í u.þ.b. 10 mín. (allt frá 8 upp í 12 mín, það fer eftir ofni og því hvort blástur er notaður). Hitastigið er 180° en 160° með blæstri. Krem 11 eggjarauður (10–12, allt eftir stærð) 2¼ dl sykur 2¼ dl vatn 1 stk smjör (500 g) mjúkt 3 msk kakó 1 msk neskaffi Aðferð: Sjóðið saman vatn og sykur þar til það fer að líkjast sírópi (taumarnir lafa út frá skeiðinni). Þeytið eggja rauður og hellið sírópi út í í mjórri bunu. Þeytið nú vel og lengi, eða þar til hræran hefur kólnað og er orðin létt og ljós. Þá er smjörinu bætt út í og að lokum er kakó og kaffi sigtað saman við. Súkkulaðihjúpur 8–10 pokar dökkt Odense-hjúp súkkulaði (800-1000 gr) Kreminu er loks smurt á köku botnana og þeir kældir vel, til dæmis í frysti. Að lokum er krem hliðinni dýft í bráðið hjúpsúkku laði, sem má alls ekki vera of heitt, heldur rétt volgt. Kökurnar geymast best í frysti, eða í góðum kæli.
HRINGBRAUT OG VF.IS
vf is
Þessi jól verða samskiptin líklega í gegnum tölvuna
FIMMTUDAG KL. 20:30
Þú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á
VORAR
GOTT AÐ GEFA – HIMNESKT AÐ ÞIGGJA
12 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
HRAFNHILDUR KRISTJÁNSDÓTTIR
er eiginkona Fannars Jónassonar, bæjarstjóra í Grindavík:
Aðventan snýst um að hitta vini og vandamenn
H
efðirnar hafa breyst nokkuð hjá okkur í gegnum árin. Meðan krakkarnir voru litlir þá fórum við ásamt stórfjölskyldunni í skógræktarsvæði nærri heimahögunum og hjuggum okkur jólatré. Við skárum líka út og bökuðum laufabrauð í nokkuð mörg ár og fórum í skötu á Þorláksmessu hjá bróður mínum og hans fjölskyldu. Nú snýst aðventan frekar um að hitta vini og vandamenn, heimsækja börnin, barnabörn og aðra í stórfjölskyldunni. Við höfum líka reynt að sækja jólatónleika og aðra hátíðlega viðburði í aðdraganda jólanna en
vegna Covid verður dagskráin því miður lítilfjörleg utan þess að hitta nánustu ættingja. Það er líka fastur siður hjá fjölskyldunni að borða saman í hádeginu á aðfangadag og í framhaldinu förum með kertaljós og skreytingu á leiði foreldra Fannars sem hvíla í Gufuneskirkjugarði. Á aðfangadagskvöld er systir Fannars, dætur okkar tvær og fjölskyldur þeirra hjá okkur. Á jóladag hafa svo verið jólaboð. Jólin í ár verða að mörgu leyti öðruvísi þar sem mamma mín féll frá í ágúst síðastliðnum. Hún spilaði stórt hlutverk í lífi okkar allra í fjölskyldunni og við söknum mjög vináttu hennar og samverustunda.
Best við jólin er samveran með fjölskyldunni og þær ljúfu og notalegu stundir sem jólahátíðin býður upp á. Við höfum reynt að taka lífinu með ró á öðrum degi jóla og haldið okkur heima við, lesið góðar bækur og notið tilverunnar. Ég hlakka til jólanna þó að þau verði með öðrum hætti en venjulega.
Við óskum viðskiptavinum okkar gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Með þökk fyrir viðskiptin á liðnu ári.
Við munum einungis hitta nánustu fjölskyldumeðlimi en stórfjölskyldan verður aðeins sýnileg á samskiptamiðlunum. Við hugsum hlýlega hvert til annars og gerum það besta úr aðstæðum. Von mín er sú að ekkert okkar smitist af veirunni en því miður eru ekki allir landsmenn sem sleppa undan þeim vágesti. Ég mundi segja að ég væri jólabarn. Ég hef gaman af og reyni að njóta þess sem jólin hafa upp á að bjóða. Nýt samverunnar, ljósanna, kyrrðarinnar og hátíðleikans. Ég skreyti ekkert sérstaklega mikið, svona hæfilega fyrir minn smekk. Ég nýt þess að kveikja á kertum og er mikið fyrir allt greni, nota það nokkuð mikið og geri alltaf útikrans. Ég á mitt uppáhaldsskraut sem ég set upp um hver jól og hef gert öll mín búskaparár, ekkert mikið verið að breyta þar. Ég er að tína skrautið upp smátt og smátt alla aðventuna og enda á að setja upp jólatréð stuttu fyrir jól. Það spaugilega er að jólaskrautið sem börnin bjuggu
til á unga aldri fer alltaf upp, þó að það standist ekki samanburð við flottustu skreytingar nútímans. Mér finnst einstaklega gaman og gott að fá að búa hér, kynnast mannlífinu og kraftinum í fólkinu sem hér býr. Í Grindavík er öflugt atvinnulíf með stórum og smáum fyrirtækjum sem og listamenn og handverksfólk sem auðgar tilveruna. Hér er líka óhemju fallegt, ógnarkraftur í sjónum og stórbrotin náttúra, hraunið og gróðurinn með sínum óendanlega fallegu litum. Það er gaman að geta sagt með stolti frá því hvar þú býrð. Nú eru aðrir tímar vegna Covid en það hefur skapast skemmtileg stemmning í kringum „fjörugan föstudag“ sem haldinn hefur verið nokkru fyrir jól. Þá eru verslanir og fyrirtæki hér í Grindavík með opið fram á kvöld og ýmislegt í boði fyrir gesti og gangandi. Þarna hefur verið margt um manninn og fyrstu merki þess að það styttist í jól. Það sem ég hef tekið eftir er hversu bæjarbúar eru duglegir að setja upp falleg jólaljós og eins má ég til með að nefna ljósin sem HS Orka varpar á mannvirkin í Svartsengi í kringum jólin. Lýsingin og gufan sem stígur uppljómuð frá iðrum jarðar setur hátíðarbrag á hið dulmagnaða umhverfi. Svo hafa tónlistarmenn lagt sitt af mörkum við að auðga á hátíðleika jólanna. Það er aðeins ein smákökutegund sem ég baka alltaf fyrir jólin en það eru súkkulaðibitkökur sem bakaðar voru á mínu heimili þegar ég var að alast upp. Þessi uppskrift er í miklu uppáhaldi og það mun þurfa mikið til að ég sleppi þeim bakstri fyrir jól. Annað baka ég eftir því sem mig langar og hef tíma til, ekkert stress í kringum það.“
Súkkulaðibitakökur 1 bolli smjör 1 bolli sykur 1 bolli púðursykur 2 egg 3 bollar hveiti 1 bolli kókosmjöl 1 tsk. natron ½ tsk. salt 200 gr. suðusúkkulaði Byrjið á að þeyta vel saman smjör og sykur, bætið eggjunum við og þeytið áfram. Blandið þurrefnum og brytjuðu súkkulaði varlega saman við. Búið til litlar kökur og bakið í 200° heitum ofni í u.þ.b. 10 mínútur.
Þekking í þína þágu
Sendum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á nýju ári.
Gleðileg jól kæru nemendur Óskum öllum nemendum og Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og þökkum samstarfið á árinu sem er að líða.
mss.is
FIMMTUDAG KL. 20:30 HRINGBRAUT OG VF.IS
Þökkum fyrir viðskiptin á árinu
&
óskum öllum Suðurnesjamönnum
gleðilegrar hátíðar
Hafnargötu 6, 230 Reykjanesbæ // Sími 421-1544.
14 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
GRUNNSKÓLI GRINDAVÍKUR
Áhersla á jólalegar samverustundir
Gleðileg jól
gott og farsælt komandi ár með þökk fyrir samstarfið á árinu sem er að líða og síðustu 40 árin
Í Grunnskóla Grindavíkur hefur ýmislegt skemmtilegt verið gert fyrir jólin og mikill metnaður lagður í að skapa notalega aðventu og skreytt af miklum móð. Nemendur í 1.–3. bekk fóru í Kvikuna þar sem kveikt var á jólatré og jólasveinar kíktu í heimsókn. Ungt fólk úr björgunarsveitinni Þorbirni sá um veitingar og skemmtu nemendur sér vel. Þá fóru börnin í heimsókn í Grindavíkurkirkju þar sem jólasagan var rifjuð upp og sungið, virkilega góð samvera. Þá hefur skólinn verið skreyttur á skemmtilegan hátt og meðal annars í anda Uppbyggingarstefnunnar sem unnið er eftir í Grunnskóla Grinda-
víkur. Þá er það skemmtileg hefð hjá nemendum að skreyta hurðir á skólastofum og metnaðurinn og frumleikinn í fyrirrúmi. Á aðventunni er skólastarfið brotið upp á ýmsan hátt þar sem nemendur skreyta stofur, fá kakó og piparkökur í skólastofuna og horfa á jólamyndir og farið í spurningaleiki eins og Kahoot. Söngur og tónlist er fyrirferðarmikil á þessum árstíma. Kennarar í elstu árgöngunum tóku sig til og bökuðu vöfflur fyrir nemendur en hjá nemendum á unglingastigi hefur skólastarfið verið með öðruvísi hætti sökum sóttvarnarreglna.
Verkfræðistofa Suðurnesja ehf. Víkurbraut 13, 230 Reykjanesbæ / Sími 420 0100 / vss.is / vs@vss.is
Óskum viðskiptavinum okkar gleðilegra jóla, farsældar á komandi ári með þökk fyrir viðskiptin á liðnum árum.
Á aðventunni er skólastarfið brotið upp á ýmsan hátt þar sem nemendur skreyta stofur, fá kakó og piparkökur í skólastofun. SMÁAUGLÝSINGAR
Íbúð óskast Bráðvantar íbúð með eða án húsgagna í Grindavík. Ég er 27 ára sjómaður. Ég var á sjó á Siglufirði en báturinn er nú kominn til Grindavíkur. Vantar góðan íverustað í brælum. Upplýsingar í síma 767-4391 og 869-3678
OPNUNARTÍMAR UM HÁTÍÐIRNAR Vínbúðin Grindavík
Miðvikudagur
16. desember
11-18
Miðvikudagur
16. desember
11-18
Fimmtudagur
17. desember
11-18
Fimmtudagur
17. desember
11-18
Föstudagur
18. desember
11-19
Föstudagur
18. desember
11-19
Laugardagur
19. desember
11-18
Laugardagur
19. desember
11-14
Sunnudagur
20. desember
Lokað
Sunnudagur
20. desember
Lokað
Mánudagur
21. desember
11-18
Mánudagur
21. desember
11-18
Þriðjudagur
22. desember
10-20
Þriðjudagur
22. desember
11-18
Miðvikudagur
23. desember
10-22
Miðvikudagur
23. desember
11-19
Fimmtudagur
24. desember
9 -13
Fimmtudagur
24. desember
10-12
Föstudagur
25. desember
Lokað
Föstudagur
25. desember
Lokað
Laugardagur
26. desember
Lokað
Laugardagur
26. desember
Lokað
Sunnudagur
27. desember
Lokað
Sunnudagur
27. desember
Lokað
Mánudagur
28. desember
11-18
Mánudagur
28. desember
11-18
Þriðjudagur
29. desember
11-18
Þriðjudagur
29. desember
11-18
Miðvikudagur
30. desember
10-20
Miðvikudagur
30. desember
11-19
Fimmtudagur
31. desember
9 -14
Fimmtudagur
31. desember
10-13
Föstudagur
1. janúar
Lokað
Föstudagur
1. janúar
Lokað
Laugardagur
2. janúar
11-18
Laugardagur
2. janúar
11-14
Nánari upplýsingar um opnunartíma er að finna á vinbudin.is MUNUM EFTIR
GRÍMUNUM
Við minnum á að áfengiskaupaaldurinn á Íslandi er 20 ár og biðjum fólk að hafa skilríki meðferðis.
ENNEMM / SÍA / NM-003122
Vínbúðin Reykjanesbæ
16 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Gáfu 150 samfellur til fæðingardeildar HSS Fæðingardeild Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja var í vikunni færð myndarleg gjöf frá þátttakendum í Samvinnu starfsendurhæfingu. Þau tóku þátt í námskeiði sem var á vegum Samvinnu, sem er deild innan Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum. Námskeiðið fjallar um þróun vöru og þjónustu og á því er komið inn á þætti eins og vöruþróun, vöruhönnun, samskipti, markaðs- og sölumál ásamt þjónustu við samfélagið.
Í ár, eins og í fyrra, var unnið að gerð samfellu fyrir nýbura á fæðingardeild HSS. Á samfelluna var prentuð falleg mynd sem listamaðurinn Þórarinn Örn teiknaði en hann var þátttakandi í námskeiðinu. Lindex í Reykjanesbæ gaf 150 bómullarsamfellur til verkefnisins og Reykjanesapótek styrkti verkefnið með því að greiða fyrir prentun á myndinni á samfellurnar. Myndin var tekin þegar samfellurnar 150 voru afhentar en það var Jónína Birgisdóttir yfirljósmóðir á HSS sem veitti gjöfinni viðtöku.
OPNUNARTÍMI flestra verslana í Betri bæ í Reykjanesbæ fyrir jólin.
Laugardag
19. des kl. 11-18
Sunnudag
20. des kl. 13-18
Mánudag
21. des kl. 11-22
Þriðjudag
22. des kl. 11-22
Miðvikudag 23. des kl. 11-23 Fimmtudag 24. des kl. 10-12 Gjafabréf í Betri bæ gilda í öllum verslunum og veitingastöðum. Tilvalin jólagjöf.
Jólin koma þegar húsið er skreytt og smákökurnar bakaðar Guðrún Kristinsdóttir starfar hjá Höllu í Grindavík. Jólaljósin hjá henni fara vanalega upp á fyrsta sunnudegi í aðventu en fóru núna upp þann 18. nóvember. – Ertu mikið jólabarn? „Já, aðeins.“ – Fóru jólaljósin fyrr upp í ár en í fyrra? „Já, núna bara 18. nóvember en fara venjulega upp á fyrsta sunnudegi í aðventu.“ – Skreytir þú heimilið mikið? „Já, frekar mikið en hvað er mikið?“ – Áttu einhverja sérstaka minningu frá jólum? „Já, þegar Helga frænka kom með smákökur handa okkur þegar við vorum yngri.“ – Hvað er ómissandi á jólum? „Samveran með fjölskyldunni og góður matur.“ – Hvað finnst þér skemmtilegast um jólahátíðina? „Sjá gleðina í börnunum.“
– Bakar þú fyrir jólin og hvað þá helst? „Já, sörur, lakkrístoppa og ætla núna að leggja í hrærðu lagtertuna hennar mömmu með aðstoð Bjöggu systur.“ – Hvenær klárar þú að kaupa jólagjafirnar? „Er ekki búin en býst við að klára í byrjun desember.“ – Hvenær setjið þið upp jólatré? „Yfirleitt um miðjan desember.“ – Eftirminnilegasta jólagjöfin? „Skartskripaskrín frá pabba.“ – Hvenær eru jólin komin fyrir þér? „Þegar húsið er skreytt og smákökurnar bakaðar.“ – Hefurðu sótt messu um jólahátíðirnar í gegnum tíðina? „Nei, hef ekki gert það en kannski breytist það.“
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár ÞÖKKUM VIÐSKIPTIN Á ÁRINU SEM ER AÐ LÍÐA
18 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Slökkviliðið braut upp útihurðina vegna hávaða frá vekjaraklukku á jóladag því það hefði rafmagnsvekjaraklukka í íbúðinni hringt klukkan sex. Hún byrjaði rólega en ef ekki væri slökkt á henni þá jókst hávaðinn og á endanum hljómaði hún eins og reykskynjari. Dóttir mín hafði stillt hana klukkan sex deginum áður til að missa örugglega ekki af jólunum og hún svo farið aftur í gang daginn eftir. Það var stillt veður og brunalykt í loftinu út af eldi í örnum í húsum í kring. Nágrannar heyrðu í klukkunni og hringdu á slökkviliðið. Þetta var sem betur fer talið vera löglegt útkall og tryggingar borguðu viðgerðina á útihurðinni.“ – Hvað er ómissandi á jólum? „Fjölskyldan og samvera með þeim og svo náttúrlega Nóa konfektið.“ Guðmundur Hermannsson er tónmenntakennari í Heiðarskóla í Keflavík og tónlistarmaður. Hann segir jólin koma þegar jólaljósin fara upp í bænum og jólalögin byrja að hljóma í útvarpi og tónmenntatímum. – Ertu mikið jólabarn? „Já, ég tel mig vera það. Alla vega finnst mér jólin vera yndislegur tími.“ – Fóru jólaljósin fyrr upp í ár en í fyrra? „Þau eru nú ekki enn komin upp en aðventuljósin eru komin út í glugga.“ – Skreytir þú heimilið mikið? „Nei, ég geri það nú ekki.“ – Áttu einhverja sérstaka minningu frá jólum? „Margar yndislegar minningar en líklega stendur upp úr sjokkið sem ég fékk þegar ég fékk símtal á jóladag í miðju fjölskylduboði hjá Kalla bróður þar sem mér var sagt að það væri kviknað í heimili mínu. Við hjónin rukum út og keyrðum í loftinu niður Faxabrautina og sáum blikkandi ljós slövkkviliðsbifreiðar fyrir utan íbúðina okkar og slökkviliðsmann standa í hurðagættinni sem þeir höfðu brotið upp. Ég hljóp í áttina til hans en hann kallaði og sagði mér að slaka á. Þetta væri misskilningur
– Hvað finnst þér skemmtilegast um jólahátíðina? „Það er svo sérstök og skemmtileg stemmning í loftinu á jólunum.“ – Bakar þú fyrir jólin og hvað þá helst? „Nei, ég baka aldrei.“ – Hvenær klárar þú að kaupa jólagjafirnar? „Tja, það er nú misjafnt en ég reyni að vera tímanlega í því.“ – Hvenær setjið þið upp jólatré? „Hér áður fyrr var það alltaf gert á Þorláksmessu en núna síðastliðin ár geri ég þó fyrr en ekki á einhverjum ákveðnum degi.“ – Eftirminnilegasta jólagjöfin? „Ætli það sé ekki stóri slökkvibíllinn sem ég fékk sendan frá Bandaríkjunum frá frænku minni sem bjó þar. Þá hef ég verið uþb. fjögurra, fimm ára.“
– Hefurðu sótt messu um jólahátíðirnar í gegnum tíðina? „Aldrei eða ekki svo ég muni.“
VIÐ ÓSKUM ÞÉR OG FJÖLSKYLDU ÞINNI GLEÐILEGRA JÓLA OG FARSÆLDAR Á NÝJU ÁRI Við þökkum kærlega viðskiptin á árinu sem senn er að líða hjá okkur í Grindavík og á Keflavíkurflugvelli. Opið er hjá okkur til hádegis á Þorláksmessu en opnunartími á milli jóla og nýárs ræðst af sóttvarnarreglum. Hlökkum til að sjá ykkur á nýju ári. Jólakveðja, starfsfólk Hjá Höllu. &
Sigurbjörg Róbertsdóttir, skólastjóri Akurskóla, segir að aðventan í skólanum hafi sé öðruvísi í ár en mörg önnur ár. „Við vorum þó með uppbrotsdag í skólanum 2. desember þar sem nemendur skreyttu stofurnar sínar og tóku þátt í keppni um fallegustu jólahurðina. Við höfum fengið rithöfunda til að lesa fyrir börnin á Zoom eða Teams og það hefur verið skemmtilegt. Nemendur okkar í 1. bekk fengu upplestur frá rithöfundum.
Bergrún Íris las úr bókum sínum fyrir nemendur okkar ásamt nemendum Stapaskóla, Akurs og Holts. 4–7. bekkur fékk síðan upplestur frá Ævari vísindamanni. Þó svo að þessir frábæru höfundar hafi ekki getað heimsótt okkur þá dóum við ekki ráðalaus og nýttum okkur tæknina. Gekk þetta mjög vel og voru nemendur mjög ánægðir með þetta fyrirkomulag.“ Undanfarin ár þá hefur foreldrafélagið verið með jólaföndur fyrir alla fjölskylduna í skólanum. Í ár bauð félagið nemendum í 7.–10. bekk upp á mandarínur og piparkökur í skólanum 2. desember og sendi svo föndurpakka heim með nemendum í 1.–6. bekk. Skemmtilegt framtak hjá foreldrafélaginu og góð lausn á þessum skrýtnu tímum að sögn Sigurbjargar. „Litlu jólin verða einnig með öðru sniði í ár en önnur ár. Við munum ekki fara öll saman í íþróttahúsið og dansa í kringum jólatréð en tré hefur verið sett upp í salnum í ár og hver og einn hópur getur komið og dansað. Þá verður helgileikurinn leikinn af nemendum í 5. bekk og tekinn upp og sendur í hverja stofu þar sem nemendur geta horft á hann. Lesin verður jólasaga og nemendur skiptast á pökkum.“
– Hvenær eru jólin komin fyrir þér? „Tja, þegar jólaljósin fara að koma upp í bænum og jólalögin fara að hljóma í tónmenntatímum og útvarpi.“
Gle ileg jól
www.hjahollu.is
Breytt aðventa í Akurskóla
/hjahollu
Sendum íbúum Grindavíkur okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt nýtt ár
Gleðilega hátíð ljóss og friðar
Starfsfólk HS Orku óskar ykkur birtu og gleði um jólin, orku og farsældar á nýju ári.
www.hsorka.is
20 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Bestu jóla- og nýárskveðjur sendum við til ættingja og vina með þakklæti fyrir liðnar stundir
Klárar jólagjafakaupin stundum á útsölum í janúar
Íbúar og starfsmenn Hrafnistu Reykjanesbæ
Einvarður Jóhannsson er íþróttakennari en er í leyfi í vetur og starfa nú sem ökukennari í fullu starfi í geggjuðu veðri á Akureyri. Hann segir jólaljósin hafa farið upp fyrr í ár en í fyrra hjá öðrum en honum sjálfum. – Ertu mikið jólabarn? „Nei, ég er mun nær Grinch heldur en jólabarninu.“ – Fóru jólaljósin fyrr upp í ár en í fyrra? „Já, örugglega hjá einhverjum öðrum en mér.“ – Skreytir þú heimilið mikið? „Nei, það fá aðrir á heimilinu að sjá alfarið um það.“ – Áttu einhverja sérstaka minningu frá jólum? „Já, þá var amma að fá sér karmellusósu á ísinn sinn ... alltof löng saga til að segja frá hér.“ – Hvað er ómissandi á jólum? „Piparkökur og mandarínur. Þá eru súkkulaðibitakökur eftir mömmu uppskrift alveg ómissandi.“ – Hvað finnst þér skemmtilegast um jólahátíðina? „Að borða góðan mat.“
Gleðilega hátíð og farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin og samskiptin á árinu sem er að líða.
– Bakar þú fyrir jólin og hvað þá helst? „Konan mín og miðjudóttirin sjá alfarið um baksturinn.“ – Hvenær klárar þú að kaupa jólagjafirnar? „Rétt fyrir lokun á aðfangadag og stundum á útsölum í janúar.“ – Hvenær setjið þið upp jólatré? „Á Þorláksmessu ef ég fæ að ráða.“ – Eftirminnilegasta jólagjöfin? „Sem ég hef fengið munu vera allar gjafir sem ég hef getað borðað, ég er alltaf til í góðan mat.“ – Hvenær eru jólin komin fyrir þér? „Þegar sest er niður og borðað á aðfangadag.“ – Hefurðu sótt messu um jólahátíðirnar í gegnum tíðina? „Nei, þar er ég ekki að standa mig.“
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR // 21
Landsnet sækir um framkvæmdaleyfi fyrir loftlínu vegna Suðurnesjalínu 2 Landsnet hefur ákveðið að sækja um framkvæmdaleyfi vegna Suðurnesjalínu 2 og að lögð verði loftlína. Verði hún lögð meðfram Suðurnesjalínu 1 en meðal nýrra forsenda í ákvörðun um loftlínu eru miklar jarðhræringar á Reykjanesi á árinu. Steinunn Þorsteinsdóttir hjá Landsneti segir að eftir að álit Skipulagsstofnunnar á nýju umhverfismati lá fyrir var farið aftur yfir matið og tekið samtal við sveitarfélögin, Orkustofnun, landeigendur og verkefnaráð línunnar. Auk þess voru gögn um jarðvá sérstaklega yfirfarin af rannsóknaraðilum vegna aukinnar jarðskjálftavirkni á Reykjanesi. „Eftir ítarlega yfirferð og rýni er niðurstaðan varðandi aðalvalkost óbreytt, þ.e. loftlína meðfram Suðurnesjalínu 1. Ákvörðunin er að á grundvelli ákvæða raforkulaga sem kveða á um skyldur Landsnets um að byggja upp öruggt og hagkvæmt flutningskerfi raforku og stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfisins. Að auki byggir ákvörðunin á ákvæðum laga um mat á umhverfisáhrifum um að leyfisveitingin byggi á upplýstri ákvarð-
anatöku hvað varðar áhrif framkvæmdarinnar á umhverfið, þar sem bornir hafa verið saman valkostir, umhverfismatið kynnt opinberlega og almenningi og hagsmunaaðilum gefið tækifæri til að koma á framfæri ábendingum. Í áliti Skipulagsstofnunar var farið fram á að sveitarfélögin tækju sameiginlega afstöðu og í ljósi þess að nú eru liðnir um sex mánuðir og að ekkert lát virðist á jarðhræringum á Reykjanesi, sem enn frekar ýtir undir mikilvægi þess að koma á annarri tengingu Suðurnesja við meginflutningskerfið, hefur Landsnet nú ákveðið að sækja um framkvæmdaleyfi vegna Suðurnesjalínu 2 og var beiðni þessi efnis send á viðkomandi sveitarfélög föstudaginn 11. desember. Undirbúningur fyrir lagningu Suðurnesjalínu 2 hefur staðið yfir lengi og við hjá Landsneti höfum í mörg ár talað fyrir mikilvægi þess að ráðast í framkvæmdir til að bæta afhendingaröryggi raforku á Suðurnesjum og auka flutningsgetu raforkukerfisins milli höfuðborgarsvæðisins og Suðurnesja,“ sagði Steinunn.
Starfsfólk Kadeco óskar Suðurnesjabúum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
22 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Börnin á Vesturbergi skreyttu Aðventugarðinn Elstu börnin á Vesturbergi fengu það skemmtilega verkefni að búa til myndir sem þau settu síðan á tré í Aðventugarðinum og höfðu gaman af. „Frábært framtak hjá Reykjanesbæ að koma Aðventugarðinum upp og eru börnin svo sannarlega að njóta góðs af,“ segja kennarar á Vesturbergi í skeyti til blaðsins með meðfylgjandi myndum.
UPPHAF ALDAUÐANS sýningar og vinnustofur um örlög geirfuglsins
Við sendum okkar bestu óskir um gleðilega jólahátíð og þökkum árið sem er að líða
Sendum félagsmönnum og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þökkum samstarf á árinu sem er að líða.
Listasafn ASÍ stóð fyrir vinnustofu barna á stéttinni við innganginn að Listasafni Reykjanesbæjar þriðjudaginn 8. desember 2020. Til að hægt væri að uppfylla kröfur um smitvarnir var vinnustofan haldin undir berum himni. Þátttakendur voru sextán börn í Pennahópnum sem eru elstu nemendurnir í leikskólanum Vesturbergi. Kennari á námskeiðinu var Þór Sigurþórsson, myndlistarmaður, og honum til aðstoðar Gísli Pálsson, mannfræðingur og höfundur bókarinnar Fuglinn sem gat ekki flogið. Börnin steyptu saman geirfuglsegg úr gifsi, teiknuðu geirfugla af báðum kynjum með bleki og skríktu af gleði þegar þau heyrðu hljóð geirfuglsins úr síma kennarans. Talið er að síðustu geirfuglarnir hafi verið drepnir í Eldey undan Reykjanesi árið 1844. Það má segja að vinnustofa barnanna hafi verið sögulegur gjörningur á þessum stað þar sem sagt er að síðustu geirfuglarnir hafi staldrað við í Duus-húsi á leið sinni til Kaupmannahafnar. Verkefnið er m.a. styrkt af Barnamenningarsjóði, Myndlistarsjóði og Safnasjóði. Dagur Jóhannsson vann heimildarmyndband um vinnustofuna. Gerð myndbandsins er samstarfsverkefni Listasafns Reykjanesbæjar og Listasafns ASÍ.
Sendum öllum Suðurnesjamönnum bestu jóla - og nýárskveðjur, þökkum fyrir viðskiptin á árinu
Óskum Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári
24 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Jólaskreyttir gluggar í Stóru-Vogaskóla Jólaundirbúningur í Stóru-Vogaskóla hefur ekki farið varhluta af því ástandi sem nú ríkir í samfélaginu. Þrátt fyrir það hefur verið reynt eftir fremsta megni að viðhalda þeim siðum og hefðum sem venjulega eru viðhafðar í skólastarfinu í aðdraganda jóla – en margt var öðruvísi en vanalega eins og gefur að skilja. Föndurdagurinn var með örlítið breyttu sniði í ár. Þá flökkuðu nemendahópar ekki á milli ólíkra stöðva í
skólanum eins og verið hefur undanfarin ár, heldur föndraði hver bekkur í sinni heimastofu. Jólafatadagurinn var á sínum stað en jólasöngsamverur á sal skólans voru ekki í ár. Jólatónleikum tónlistarskólans var streymt á Facebook-síðu skólans. Sú nýjung var í ár að gluggar skólans voru jólaskreyttir. Þá föndruðu bekkir myndir eða máluðu á glugga sinna heimastofa. Litlu jólin, en svo heitir lokaviðburður skólans fyrir jólafrí, verður á sínum stað með
hátíðarbrag að vanda. Þá koma nemendur saman, spariklæddir, í sínum heimastofum. Nemendur koma með kerti og stöðugan kertastjaka
að heima. Þegar kertin hafa verið tendruð er lesin jólasaga. Að lestri loknum skiptast nemendur á jólapökkum og gæða sér á góðgætinu
sem þau koma með að heiman. Því næst verður dansað í kringum jólatréð en í ár munu einungis 1.–4. bekkur dansa og í tveimur hollum.
AFLAFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Líflegt í Sandgerði Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is
Ekki margir pistlar eftir á þessu herrans furðulega ári 2020. Þetta átti bara að vera ansi fínt ár en síðan kom þessi blessaða litla veira, kórónuveiran, og allt hefur farið niður á við.
TILLAGA AÐ MATSÁÆTLUN Samherji Fiskeldi ehf auglýsir tillögu að mats áætlun vegna stækkunar fiskeldisstöðvarinnar að Stað í Grindavík samkvæmt reglugerð um mat á umhverfisáhrifum nr. 660/2015. Framleiðsluaukning er 9.000 tonn á ársgrundvelli og verður framleiðslan 12.000 tonn að loknum framkvæmdum. Tillagan er auglýst í Fréttablaðinu og Víkufréttum 16. desember 2020. Almenningi er gefinn kostur á að kynna sér tillöguna á vefsíðunni www.samherji.is og gera athugasemdir við hana til og með 31.desember 2020. Athugasemdir sendist á netfangið gdd@samherji.is eða í pósti: Samherji Fiskeldi Glerárgötu 30, 600 Akureyri
Nema eins og ég hef komið inn á áður, sjávarútvegurinn. Hann hefur haldið sínu. Bátarnir hafa geta róið og fólk hefur haldið vinnu sinni – og í raun vantar fólk. Ef einhver sem hefur t.d. beitt eða unnið beitningu þá vantar beitningafólk í Sandgerði en þar er verið að beita í tveimur húsum. Hjá Stakkavík ehf. í gamla Guðfinnshúsinu og í Rauða Miðnesshúsinu bak við Vitann í Sandgerði. Annars er mjög mikið búið að vera að gera í Sandgerði núna í desember og ansi margir bátar að leggja þar upp. Veiði bátanna hefur verið góð og það er greinilegt að mjög mikið magn af fiski er í sjónum utan við Sandgerði og á ansi dreifðu svæði því bátarnir hafa verið að reyna fyrir sér svo til frá Eldeyjarsvæðinu og alveg útí miðjan Faxaflóa, mjög stórt svæði. Ef við lítum aðeins á aflatölur. Maron GK með 30 tonn í sjö, Sunna Líf GK 17,6 tonn í sex, Halldór Afi GK 11,3 tonn í sjö, Guðrún GK þrettán tonn í átta en þetta eru allt netabátar. Grímsnes GK og Langanes GK eru ennþá á ufsaveiðum við suðurströndina, þeir verða á þeim veiðum eitthvað frameftir desember en koma síðan til Sandgerðis um eða eftir áramótin. Grímsnes GK er með 49 tonn í tveimur og Langanes GK 20 tonn í tveimur. Erling KE hefur landað tvisvar, fyrst 42 tonn sem fékkst við suðurströndina. Síðan fór hann út á Selvogsbanka og kom til Grindavíkur með 8,3 tonn. Þegar þessi pistill er skrifaður þá var Erling KE á Eldeyjarsvæðinu og hafði þá landað tvisvar í Sandgerði.
Dragnótabátarnir hafa fiskað ágætlega. Sigurfari GK hefur haldið sig á Hafnarleirnum og þar í kring en hann hefur ekki leyfi til þess að veiða í Faxaflóanum því hann er lengri enn 25 metrar. Hefur hann landað 33 tonnum í fjórum, Siggi Bjarna GK sextán tonn í fimm, Benni Sæm GK sjö tonn í fjórum. Þessar landanir hjá Sigga og Benna eru eftir veiðar í Faxaflóanum en þeir fóru fyrsta róðra sína á svipuðum slóðum og Sigurfari GK hefur verið að veiðum um þann tíma sem þessi pistill er skrifaður. Í Grindavík eru stóru línubátarnir loksins komnir heim. Hrafn GK kom með 66 tonn þangað en hann var meðal annars með línuna utan við Sandgerði að veiðum. Valdimar GK kom með 74 tonn og var hann á veiðum utan við Látrabjarg en færði sig síðan suður og var kominn undir Sandgerði undir lok ferðar – og Páll Jónsson GK kom með 61 tonn, hann er eini Vísisbáturinn sem hefur landað í Grindavík núna í haust.
Lítum stuttlega á minni bátanna. Daðey GK 50 tonn í átta, Óli á Stað GK 44 tonn í átta, Margrét GK 40 tonn í sjö, Dóri GK 32 tonn í sjö, Steinunn HF 29 tonn í fimm, Beta GK átján tonn í sex, Geirfugl GK sautján tonn í fimm, allir í Sandgerði. Sævík GK 44 tonn í sjö í Grindavík og Sandgerði en þó mestum hluta landað í Sandgerði. Síðasti farfuglinn, ef þannig má orða hlutina, er komin suður – eða svona næstum því. Það er Addi Afi GK sem hafði gert út frá Skagaströnd í haust. Þessi bátur er ekki nema um ellefu tonn af stærð og á þessum árstíma er ekki hægt að sigla svona litlum báti frá Skagaströnd og fyrir Horn og Vestfirðina. Svo Óskar eigandi af bátnum gerði bara eins og hann hefur gert oft áður, setur bátinn á vörubíl og lætur aka honum til Akraness. Þar er báturinn settur á flot og siglir svo til Sandgerðis. Það er nú reyndar annar farfugl sem kom um það leyti sem þessi pistill var skrifaður en það er togarinn Berglín GK – og það eftir enga smá siglingu. Togarinn fór frá Siglufirði og fór á miðin út af norðausturhorni landsins. Út af Raufarhöfn og þar. Tók nokkur tog þar og út af af Langanesi og síðan var siglt heim á leið, bara þessi sigling hefur tekið um 44 klukkutíma en Berglín GK hefur verið að ganga þetta 9,5 til 12 sjómílur. Þetta er ansi löng leið eða alls um 660 sjómílur, um 1220 km. Annars er þetta síðasti pistill fyrir jól og vil ég því senda ykkur lesendur góðir innilegar jóla- og áramótakveðjur. Takk fyrir viðbrögðin við þessum pistlum og þar sem vetrarvertíðin árið 2021 er framunda þá fylgir hérna með myndband þar sem að Langanes GK og Pálína Þórunn GK eru á landleið til Sandgerðis. Eigið góðar stundir.
SMELLTU Á MYNDSKEIÐIÐ TIL AÐ HORFA OG HLUSTA MYNDSKEIÐIÐ ER AÐEINS AÐGENGILEGT Í RAFRÆNNI ÚTGÁFU VÍKURFRÉTTA
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR // 25
Sólborg leiðir starfshóp um kynfræðslu í grunnog framhaldsskólum Sólborg Guðbrandsdóttir, fyrirlestari, bókarútgefandi og áhrifavaldur hefur verið skipaður formaður starfshóps um kynfræðslu í grunn- og framhaldsskólum af menntamálaráðherra sem einnig skipaði Sigríði Dögg Arnardóttur, kynfræðing og rithöfund, í hópinn. Hópurinn á að skila áfangaskýrslu með kostnaðarmetnum og tímasettum aðgerðartillögum fyrir lok febrúar og ljúka störfum í lok maí 2021. Þær Sólrún og Sigríður eru báðar Keflvíkingar, þá er Hanna Björg Vilhjálmsdóttir frá Kennarasambandi Íslands einnig fædd og uppalin í Keflavík en hún er fulltrúi Kennarasambands Íslands í starfshópnum. Helstu verkefni hópsins: Gera tillögu að framkvæmd kennslu í kynfræðslu og ofbeldisforvörnum á grunn- og framhaldsskólastigi. Láta vinna stöðukönnun á fram kvæmd kynfræðslu í grunn- og fram haldsskólum þar sem m.a. komi fram
SUÐURNESJAMAGASÍN FIMMTUDAG KL. 20:30 HRINGBRAUT OG VF.IS
LÍFIÐ Á VELLINUM
DAGNÝ GÍS LAD MEÐ NÝJA B ÓTTIR Ó LÍFIÐ Í HERS K UM TÖÐINNI viðhorf skólastjórnenda, nemenda og kennara. Taka afstöðu til hvort og þá hvaða breytingar þurfi að gera á aðalnám skrám grunn- og framhaldsskóla, á inntaki kennaramenntunar, hlut verki skólahjúkrunarfræðinga, náms ráðgjafa og tómstundafræðinga til að kynfræðsla á þessum skólastigum verði með fullnægjandi hætti. Gera tillögur um með hvaða hætti best sé að miðla fræðslu um kynlíf og kynheilbrigði.
IN G N I N T T O R D RKIRKJU Í KEFLAVÍKU NÝ HLJÓMAR Á
Starfshópinn skipa: Sólborg Guðbrandsdóttir, fyrirlesari og formaður hópsins, án tilnefningar, Sigríður Dögg Arnardóttir, kynfræðingur og rithöfundur, án tilnefningar, Sóley Sesselja Bender, prófessor og forstöðumaður fræðasviðs um kyn heilbrigði í Háskóla Íslands, án tilnefningar, Unnur Þöll Benediktsdóttir, án tilnefningar, Sigurþór Maggi Snorrason, Samband íslenskra framhaldsskóla nema, Ingólfur Atli Ingason, Samfés - landssamtök félagsmiðstöðva og ung mennahúsa á Íslandi, Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, Samband íslenskra sveitarfélaga, Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, Kennarasamband Íslands, Sigrún Sóley Jökulsdóttir, Menntamálastofnun, Ása Sjöfn Lórensdóttir, Þróunar miðstöð heilsugæslunnar, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Embætti landlæknis, Þóra Björt Sveinsdóttir, Stígamót, Indíana Rós Ægisdóttir, Kynís – Kyn fræðifélagi Íslands.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár Þökkum ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða
BÍLAKJARNINN
26 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Snjóþotunni pakkað inn í svartan poka því pappírinn var búinn Lára María Ingimundardóttir er starfsmaður í Njarðvíkurskóla. Hún hefur verið í veikindaleyfi frá störfum núna undanfarið en hefur þrátt fyrir það sótt ýmis námskeið hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum og stundað boccia með íþróttafélaginu Nes. „Ég hef líka verið dugleg að fara út að ganga og svo finnst mér gaman að prjóna og teikna myndir í tölvunni. Verst finnst mér að komast ekki á körfuboltaleiki,“ segir Lára María í samtali við Víkurfréttir sem fengu hana til að svara nokkrum jólatengdum spurningum. – Fyrstu jólaminningarnar? „Fyrsta jólaminningin mín var þegar pabbi og mamma voru að skreyta jólatréð og fannst það rosastórt, vá. Hef verið u.þ.b. sex ára.“ – Jólahefðir hjá þér? „Við erum saman nærfjölskyldan á aðfangadagskvöld og hlustum á jólamessuna, líka á jóladag. Ég óska öllum vinum mínum gleðilegra jóla á fésbókinni núna, er hætt að senda jólakort. Ég fæ líka mikið af gleðilegum jólaóskum frá þeim.“ – Ertu dugleg í eldhúsinu yfir hátíðarnar? „Já, ég hjálpa til í eldhúsinu með ýmislegt. Svo hef ég bakað smákökur sem er partur af jólamatnum.“ – Uppáhaldsjólamyndin? „Uppáhaldsjólamyndin er „Christmas Vacation“ með Chevy Chase.“
– Uppáhaldsjólatónlistin? „Uppáhaldsjólatónlistin mín er „I’m walking in the air“, held það heiti á íslensku „Himinganga“ úr jólateiknimyndinni „The Snowman“. Ég horfi bara á þessa mynd á jólunum og þess vegna er þetta fyrir mér jólalag.“ – Hvar verslarðu jólagjafirnar? „Verslaði heima þetta árið enda nóg úrval hér.“ – Gefurðu margar jólagjafir? „Já, ég gef nokkrar. Öllum í nærfjölskyldunni og nokkrum vinkonum mínum, u.þ.b. svona tíu gjafir.“ – Ertu vanaföst um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf? „Já, það eru ýmsir siðir sem ég vil alltaf halda eins og t.d. fara í messu klukkan sex, þó það verði víst ekki raunin þetta árið út af þessari leiðindapest. Í jólamatinn vil ég bæði hangikjöt og hamborgarhrygg sinn hvorn daginn með sínu fíneríi. Svo fer ég alltaf með skreytingar
á leiði fjölskyldu minnar í kirkjugarðinum í Njarðvík.“ – Besta jólagjöf sem þú hefur fengið? „Einu sinni um jólin, þegar ég var tólf ára, voru pabbi og bróðir minn að reyna að pakka jólagjöfinni minni en mamma var búin að klára allan jólapappírinn. Þetta endaði með því að þeir þurftu að nota svartan ruslapoka utan um jólagjöfina. Ég var frekar hissa hvað væri eiginlega í þessum stóra ruslapoka en svo kom í ljós að þetta var snjóþota og hefur verið eftirminnilegasta jólagjöfin mín.“ – Hvað langar þig í jólagjöf? „Mig langar að geta lifað hraustlegu lífi.“ – Hvað er í matinn á aðfangadag? „Það verður hangikjöt og fíneríi meðlæti.“ – Eftirminnilegustu jólin? „Þegar mamma mín var hjá okkur síðustu jólin hennar árið 1988.“
Hangikjötið og jólakonfekt er ómissandi Hörður Baldursson Olsen er hættur vinnu en fæst við áhugaljósmyndun og lestur bóka ásamt gönguferðum. Hann ætlar að verja jólunum á Spáni og setur því ekki upp jólaljós að þessu sinni. – Ertu mikið jólabarn? „Það er nú það. Jú, ætli maður sé það ekki ennþá inn við beinið.“ – Skreytir þú heimilið mikið? „Jólaljósin fara ekki upp í ár, enda eyðum við þessum jólum á Spáni – en þau fara vanalega upp fyrir fyrsta sunnudag í aðventu.“ – Áttu einhverja sérstaka minningu frá jólum? „Man þegar yngri stjúpdóttir reif frá mér diskinn þegar að gaffallinn fór í síðasta bitann. Það þurfti að drífa af frágang til að komast í pakkana.“ – Hvað er ómissandi á jólum? „Hangikjötið og jólakonfekt er ómissandi.“ – Hvað finnst þér skemmtilegast um jólahátíðina? „Skemmtilegast um jólahátíðina, borða góðan mat og slaka á og njóta hátíðarinnar.“
Glæsilegar jólagjafir!
– Bakar þú fyrir jólin og hvað þá helst? „Bakstur fyrir jól. Hjá mér aðallega þá vandræði, læt konuna um það en er duglegur í smakkinu. Hálfmánar, súkkulaðibita- og kókoskökur og lagtertan brúna sú besta.“ BURBERRY
– Hvenær klárar þú að kaupa jólagjafirnar? „Yfirleitt búinn fyrir miðjan nóvember nema með konuna.“ – Hvenær setjið þið upp jólatré? „Jólatré er sett upp nú orðið fyrsta sunnudag í aðventa, gaman að njóta alla aðventuna.“ – Eftirminnilegasta jólagjöfin? „SAS flugvél sem ég fékk frá ömmu og afa í Noregi þegar að ég var barn.“
Skoðaðu úrvalið á opticalstudio.is
KEFLAVÍK
– Hvenær eru jólin komin fyrir þér? „Svona í kringum fyrsta sunnudag í aðventu.“ – Hefurðu sótt messu um jólahátíðirnar í gegnum tíðina? „Hef farið að a.m.k. einu sinni í miðnæturmessu á aðfangadagskvöldi í Útskálakirkju
Við frænkurnar Margrét Sörensen og Þórdís Lára höfum opnað hár- og snyrtistofu á Brekkustíg 41 Njarðvík. Á stofunni eru löggildir hár- og snyrtisveinar, fótaaðgerðaog naglafræðingar sem eru ávall tilbúnir að aðstoða þig. Við viljum þakka frábærar mótökur sem við höfum fengið síðustu vikur. Hlökkum til að sjá núverandi og nýja viðskipavini á komandi tímum. Viljum minna á vinsælu gjafabréfin, hár og snyrti gjafaöskjurnar sem eru tilvalinn í jólapakkann. Við bjóðum upp á mörg þekkt vörumerki.
Primos stelpurnar óska öllum gleðilegra jóla.
Ágústa Guðný Árnadóttir naglafræðingur
Margrét Rut Sörensen eigandi, hársnyrtisveinn
Þórdís Lára Herbertsdóttir eigandi, snyrtifræðingur
Rán Reynisdóttir hársnyrtimeistari
Margrét Ósk Magnúsdóttir hársnyrtisveinn
Alma Rún Jensdóttir hársnyrtir
Sigrún Arnberg Kjartansdóttir naglafræðingur
Eyrún Erla Sigurgeirsdóttir fótaaðgerða-/snyrtifræðingur
Tímapantanir í síma 4215909 eða í appinu okkar fresha.com undir Primos hár og dekur.
28 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Vil engin forréttindi – bara sömu réttindi og aðrir
Arnar Helgi Lárusson lenti í hræðilegu vélhjólaslysi fyrir átján árum síðan, í september 2002, sem skyldi hann eftir lamaðan frá brjósti og niður. Strax eftir slysið fór hann í að byggja sig upp. „Ég er pínu ofvirkur, hef ekki verið greindur en konan mín segir að ég myndi sprengja alla skala. Ég kann ekki að stoppa. Þegar ég slasaðist var talið mjög eðilegt að vera svona eitt ár á Grensás, einhvern tímann hafði einhver verið átta mánuði – ég var fluttur heim eftir þrjá.“ Þetta segir meira en mörg orð um ákveðni og viljastyrk Arnars Helga sem hefur náð frábærum árangri sem íþróttamaður og verið ötull í baráttu sinni fyrir réttindum fatlaðra.
Viðburðir í Reykjanesbæ Aðventugarðurinn Tjarnargötutorg Opið á laugardaginn 19. desember frá 12:00 til 17:00. Jólamarkaður og óvæntar uppákomur. Jólasveinn dagsins Jólasveinarnir koma einn af öðrum á hverjum degi til jóla. Hægt verður að fylgjast með uppátækjum þeirra á Facebooksíðu Duus Safnahúsa á hverjum degi kl. 14:00. Ekki missa af þeim. Jólaveinaratleikur og óskalistar jólasveinanna Taktu þátt í ratleik í Bryggjuhúsinu og leitaðu að gömlu jólasveinunum sem hafa falið sig hér og þar um húsið.
„Við vorum búin að koma okkur fyrir á Berginu en fluttum í bæinn fyrst. Mér leið aldrei vel í Reykjavík en svo fluttum við aftur hingað og hér vil ég vera, mér líður ótrúlega vel hérna suður frá. Hér þekkja mig margir, enn fleiri eftir slysið, og ég er ekki að finna fyrir neinni vorkunn. Mér er bara tekið eins og jafningja, það er það sem maður vill.“ „Ég er þakklátur fyrir að hafa verið þó orðinn þetta fullorðinn þegar ég lenti í slysinu, 26 ára gamall, fullmótaður og ákveðinn einstaklingur. Það er heilmikill munur að vera tíu ára og lenda í svona, eða fæðast svona. Það breyttist hellingur við slysið en í raun og veru breyttist ekki neitt. Ég er ennþá með sömu konunni, á mitt sama net ennþá. Fyrir utan það að vera þakklátur fyrir það sem þú hefur í staðinn fyrir að grenja yfir því sem þú hefur ekki. Einum sentimetra ofar og ég hefði ekki hendurnar. Ég er það hátt lamaður. Fyrst um sinn var ég ekkert að hreyfa hendurnar, þegar ég lá þarna í götunni gat ég ekkert beitt þeim en svo kom það til baka.“
vinnuhestur, það tek ég með mér inn í íþróttirnar. Ég er kannski ekki besti íþróttamaðurinn – en ég nenni. Ég set mér eitthvað markmið og svo bara held ég áfram. Það er það sem ég græði á, ég sest alltaf aftur í stólinn og held áfram. Ef ég næ ekki markmiðinu þá bara lengi ég tímann, ég hætti ekki.“
Mikill keppnismaður „Það var í raun ekki fyrr en 2012 sem ég byrjaði að keppa. Ég byrjaði fyrst bara að lyfta og venjulegri hreyfingu, var fyrstu árin að reyna að ganga. Eyddi mörgum árum í að reyna að ganga á spelkum, úr því verður eiginlega íþróttamaðurinn. Ég fór að ýta mér í stólnum hérna innabæjar, úr Njarðvíkunum yfir í Keflavík. Svo var ég búinn að ákveða að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu en ég sagði engum frá því, þá gæti ég bara ýtt mér út úr því og enginn myndi vita. Sóley, konan mín, hjólaði með mér og það voru eitthvað um átta hundruð manns skráð í heilt maraþon. Þarna var einhver 85 gamall karl sem var elstur og ég hugsaði bara að ég ætlaði ekki að verða síðastur, ég setti mér það takmark að verða ekki síðastur. Það voru tvö hundruð manns á eftir mér í mark – og ég á venjulegum hjólastól. Ég hafði aldrei farið maraþon áður,
Jóhann Páll Kristbjörnsson johann@vf.is
kannski farið fimmtán, tuttugu kílómetra, og þegar ég var búinn með svona þrjátíu kílómetra fannst mér eitthvað vera að. Mér fannst ég ekkert komast áfram og hélt að eitthvað hefði flækst í stólnum en það var ekkert, ég lenti bara á vegg og eftir svona fimm kílómetra komst ég yfir það. Ég kláraði maraþonið á eitthvað um fimm tímum, 42 kílómetrar í hjólastól, á höndunum. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og besti löglegi tíminn minn í maraþoni í dag er 2:02 á keppnishjólastól, ég hef reyndar farið á 1:48 en ekki í keppni. Bestu hlauparar í heimi eru að fara maraþon á eitthvað um tveimur tímum, við erum miklu hægari en þeir af stað en viðhöldum hraðanum betur. Ég var í race-inu þar til fyrir svona þremur árum síðan. Þá lenti ég í því að eftir æfingu fór ég í bað og var að teygja á mér. Ég setti fótinn í ákveðna stellingu og tók svolítið vel á því sem endaði á að ég tók lærlegginn í sundur, braut hann. Ég var nýkominn úr axlaraðgerð og þá voru góð ráð dýr. Ég var auðvitað tekinn og negldur. Tveimur vikum síðar var ég kominn upp í flugvél, flaug til Eng-
Verður yngri með íþróttunum
Störf í boði hjá Reykjanesbæ Stapaskóli – Kennari í myndlist Velferðarsvið – Liðveisla Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef Reykjanesbæjar, Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir fyrnast að sex mánuðum liðnum.
Eins of fyrr segir hefur Arnar Helgi náð undraverður bata og þakkar hann það íþróttunum fyrst og fremst. „Það halda margir að ég sé lamaður frá mitti en ég er lamaður héðan,“ segir Arnar og bendir á brjóstið á sér. „Aðeins sentimetri í viðbót og ég hefði misst máttinn í höndunum líka. Ég hef byggt mig upp í gegnum árin og fer alltaf lengra í ár en ég fór í fyrra. Íþróttirnar hafa gefið mér það að ég er að yngjast. Það er ótrúlegt hvað þær gefa mér mikið, bara möguleikann á að halda áfram lífinu. Ég var ekki íþróttamaður áður en ég lenti í slysinu en var alltaf í góðu formi, hafði gaman af því að hlaupa og hafði stundað einhverjar lyftingar en aldrei neinar alvarlega íþróttir. Ég byrjaði í skellinöðrunum tólf ára gamall og svo breyttist það í stærri hjól, það var sportið sem ég hafði ótrúlega gaman að. Ég hef líka gaman af vinnu og er
Arnar hefur náð frábærum árangri með stöðugri þjálfun enda æfir hann á hverjum degi – engar afsakanir.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR // 29
... það var sett upp róla fyrir hreyfihamlaða fyrir utan 88-húsið, svo getur liðið bara farið heim til sín ef það þarf að fara á klósettið. Það er ekki einu sinni hægt að komast á klósettið ef þú ert í hjólastól ...
Hjólreiðatúr með fjölskyldunni.
lands og keypti mér notað reiðhjól sem ég flutti til Íslands og byrjaði að hjóla. Þetta var svona liggjandi hjól sem ég ætlaði að nota til að hjóla og sem æfingadót. Svo var ég bara smátt og smátt að festast í hjólinu því hjólið er íþróttalega séð hvorki auðveldara né erfiðara en hjólastóllinn, hins vegar er allt í kringum hjólið einfaldara. Það fer betur með líkamann og allt í kringum stólana, varahlutir o.þ.h., er miklu dýrara. Svo var ég alltaf með race-erinn í höndunum meðan hjólið er miklu sterkara og ég get farið á næsta hjólreiðaverkstæði til að láta gera við í staðinn fyrir að gera það sjálfur. Þannig að ég er alfarið kominn í hjólreiðarnar núna þótt ég sé ekki enn búinn að taka þátt í neinni keppni. Ég veit að ég er kominn á mjög góðan stað, er búinn að vera á flugferð í vetur og finn bara hvernig það er að koma upp. Um leið og losnar um höftin út af þessari veiru bóka ég mig í mót úti. Hérna heima eru engir til að keppa við en erlendis eru hjólreiðar fatlaðra í mikilli sókn.“ Arnar Helgi æfir á hverjum degi í æfingaaðstöðu sem hann hefur útbúið í risinu á heimili sínu í Njarðvík. Hann hefur náð þeim markmiðum sem hann setti sér í ár þrátt fyrir bakslag í byrjun árs þegar alls kyns kvillar fóru að hrjá hann. „Þessi árangur er auðvitað bara tilkominn af síendurteknum æfingum. Ég mæti hérna á hverjum morgni, sama hvernig mér líður. Ég bara sest og byrja að æfa, ég æfi í hjólinu svona tólf tíma á viku. Svo eru alls kyns aukaæfingar, eins og teygjur og styrktaræfingar. Ég huga vel að mataræðinu, er ekki vegan en reyni frekar að fá prótein úr baunum o.þ.h. en kjöti. Svo borða ég fisk, grænmeti og kolvetni á löngum æfingum. Ég hef alltaf verið
alæta en, eins og ég segi, er farinn að minnka kjötátið.“
Víða pottur brotinn í aðgengismálum fatlaðra Talið berst nú að þeim baráttumálum sem Arnar Helgi hefur beitt sér fyrir. Hann hefur verið óþreytandi að vekja máls á aðgengismálum fatlaðra, sér í lagi í sinni heimabyggð. „Ég hef farið þrisvar eða fjórum sinnum hringinn í kringum landið með félaga mínum, Guðjóni Sigurðssyni hjá MND-samtökunum, þar sem við höfum verið að heimsækja skóla og ræða aðgengismál. Höfum verið að fá krakkana til að taka þátt í að skoða sitt nærumhverfi með aðgengi í huga. Skólar sækja um að taka þátt og hérna á Suðurnesjum hafa eingöngu Njarðvíkurskóli tekið þátt Heiðarskóli – eða alla vega meðan við unnum í þessu verkefni.“ – Hvernig er staðan á aðgengismálum í skólum hérna? „Það er mjög bágt. Aðgengi hér á Suðurnesjum er mjög lélegt og hefur verið, og er, illa sinnt. Sérstaklega hérna í Reykjanesbæ – og það er bara metnaðarleysi hjá stjórnsýslunni hér um að kenna. Það er því miður synd.“ – Þá kannski bæði hjá stjórnsýslunni og einkaaðilum? „Þetta liggur hjá stjórnsýslunni, ekki einkaaðilum. Það eru lög og reglur í landinu. Einkaaðilar sem eru að byggja sína starfsemi reyna að gera það á sem hagkvæmastan hátt. Það er stjórnsýslan sem gefur út leyfi og á að fylgja því eftir að farið sé að lögum. Ég man eftir því að hér var verið að opna hótel og það var ekki lyfta í því. Ég benti á að það væri ekki
hægt að leyfa opnun á því nema lyfta væri til staðar. Rökin sem ég fékk frá byggingafulltrúa Reykjanesbæjar var að hótelið hefði aldrei verið opnað ef það hefði þurft að setja lyftu. Þarna var aðili að breyta gömlu iðnaðarhúsnæði í hótel og að setja lyftu var aðeins brot af kostnaðinum. Ef hann hafði ekki efni á að setja lyftu þá hafði hann ekki efni á að opna staðinn. Samkvæmt lögum verður að vera lyfta á svona stöðum. Þetta er pólitík sem viðgengst hér, að leyfa hlutum að sleppa í gegn.“ – Fórstu strax í þessa baráttu fyrir bættu aðgengi? „Það gerðist eiginlega eftir að við eignuðumst fyrsta barnið. Fram að því fórum við hjónin bara á þá staði sem höfðu hjólastólaaðgengi en eftir að barnið fæddist þá þurfti ég að fara á þá staði sem barnið þurfti að fara á – sama hvort mér líkaði það betur eða verr. Margir af þessum stöðum höfðu ekkert aðgengi fyrir hjólastóla, eins og leikskólinn. Þegar ég benti á þetta var ein hurð löguð, svo ég komst inn á einum stað en ekkert lengra. Fljótlega byrjaði þessi barátta hjá mér og hún hefur bara ágerst. Ég er búinn að reyna góðu leiðina, að vinna með yfirvöldum. 2006 fór ég alla Hafnargötuna með bæjaryfirvöldum og sýndi þeim hvað væri ábótavant og það átti að gera eitthvað – en það gerist bara ekkert, þetta gerist á hraða snigilsins. Verandi eins og ég er, svolítið óþolinmóður, þá er ég ekkert tilbúinn að bíða bara. Af hverjum lögum við þetta ekki bara? Svo ég lagðist í lestur og kann núna byggingareglugerðir utan af. Fólk er alltaf að fara í kringum hlutina, túlka sér í hag það sem stendur ekki í reglugerðum og hefur komist upp með það. Við erum alltaf tuttugu, fjörutíu árum
á eftir Bandaríkjamönnum í svona málum, þeir hafa bara kært þegar hlutirnir eru ekki í lagi. Núna erum við komin þangað. Erum byrjuð að negla kærur inn. Ég er búinn að tapa í héraði og hæstarétti, sem kom mér ekkert verulega á óvart en var mjög svekktur með það, en ég er ekki að fara að tapa í Mannréttindadómstóli Evrópu. Ég get lofað þér því, því ég veit að þetta eru mál sem eru að vinnast út um allan heim. Það er ekkert spurning hvort heldur hvenær. Það versta við þetta er, að fyrst að Reykjanesbær tekur ekki bara af skarið og lagar sína hluti þá eiga þeir eftir að taka höggið – og höggið verður ekkert lítið, það verður stórt.“
Vill sömu réttindi og aðrir „Mannréttindadómstóllinn er búinn að taka mál mitt, sem snýr að aðgengi í Duus-húsunum og 88-húsinu, inn og svo er það bara í röðinni. Þetta eru bara tvö hús sem voru valin af handahófi, af nógu er að taka. Ef ég á að nefna einhver rök fyrir því að þessi hús voru valin þá eru fjölmörg fötluð og hreyfihömluð börn á Suðurnesjum – og hverjir eru líklegri til að verða útundan í þessu samfélagi en börn á þessum aldri? Að bjóða upp á ungmannamiðstöð sem er óaðgengileg hreyfihömluðu fólki. Ég meina, það var sett upp róla fyrir hreyfihamlaða fyrir utan 88-húsið, svo getur liðið bara farið heim til sín ef það þarf að fara á klósettið. Það er ekki einu sinni hægt að
komast á klósettið ef þú ert í hjólastól. Það er verið að gera grín að fólki sem er hreyfihamlað, eins og það skipti engu máli. Það skiptir bara jafn miklu máli og næsti einstaklingur, ekki meira máli eða minna máli. Nákvæmlega sama máli. Hverjir eru líklegastir til að vilja skoða byggðasafn? Það er eldra fólkið. Svo er byggðasafn sett upp á þriðju hæð í Duus-húsum, með snarbröttum stiga. Sérðu eldra fólk fyrir þér fara upp þessa stiga? Ég segi það, ef það var ekki peningur til að setja lyftu þá var ekki til peningur til að opna þetta safn. Það engin afsökun að ekki séu til peningar. Ekki opna það, ekki bjóða upp á það ef það er ekki hægt að bjóða öllum. Ég borga mína skatta hér eins og allir aðrir. Ekkert minna, kannski meira. Ég þarf að fara með dóttur mína í tannréttingar til Reykjavíkur, taka mér frí frá vinnu í staðinn fyrir að geta skotist hérna innanbæjar. Hér er ekkert aðgengi í tannréttingar fyrir fatlaða. Ef ég ætla að fara með fjölskylduna í bíó þarf ég að fara í Smárann. Ég byggði mér stórt hús af því að ég er hreyfihamlaður, þá borga ég bara hærri fasteignagjöld. Ég vil ekki fá neitt frítt en allur þessi aukakostnaður leggst á mig af því að ég er fatlaður. Ég vil bara fá það sama og aðrir, það má vel vera að ég sé bara frekur – en mér er bara alveg sama,“ segir Arnar Helgi sem er augljóslega ekkert á þeim buxunum að leggja árar í bát.
Óskum Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári
Arnar Helgi á fleygiferð.
30 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Opnaði allar jólagjafir á aðfangadagsmorgun á meðan foreldrarnir sváfu Berglind Bjarnadóttir starfar í öryggisstjórnstöð Isavia á Keflavíkurflugvelli. Eftirminnilegustu jólin hennar eru líklegast aðfangadagskvöld fyrir nokkrum árum þegar mamma hennar reyndi að svindla á henni og systkinum hennar með aðkeyptri brúnni lagköku í staðin fyrir að baka hana sjálf. „Við föttuðum það strax á fyrsta bita og það nánast brutust út slagsmál á heimilinu út af þessu hneyksli,“ segir Berglind í samtali við Víkurfréttir. Hún svarar nokkrum spurningum um jólin. – Fyrstu jólaminningarnar? „Jólin þegar ég var um þriggja, fjögurra ára og bróðir minn árinu yngri. Við vorum búin að opna allar jólagjafir á aðfangadagsmorgun eld snemma, á meðan foreldrarnir sváfu. Mamma var ekkert glöð með að hún gat ekki séð hver gaf okkur hvað!“ – Jólahefðir hjá þér? „Klukkan 18:00 þegar klukkurnar hringja inn jólin, vil alls ekki missa af því. Annars engar brjálaðar hefðir sem ég held í.“ – Ertu dugleg í eldhúsinu yfir hátíðarnar? „Nei, er upp á aðra komin með það. Það er öllum í fjölskyldunni til happs að ég hvorki eldi né baki yfir höfuð.“
– Uppáhaldsjólamyndin? „Christmas Vacation með Chevy Chase.“
– Besta jólagjöf sem þú hefur fengið? „Vá! Svo margar, get ekki valið eina.“
– Uppáhaldsjólatónlistin? „Það snjóar með Sigga Guðmunds er uppáhalds jólalagið mitt.“
– Hvað langar þig í jólagjöf? „Það sem dóttir mín ætlar (skal) gefa mér.“
– Hvar verslarðu jólagjafirnar? „Allt verslað á netinu þetta árið í hinum ýmsu netverslunum.“ – Gefurðu margar jólagjafir? „Nei, ekkert svo. Slepp ágætlega með það.“ – Ertu vanaföst um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf? „Nei, ég er ekki vanaföst. Ég er alin upp við að jólin eru allskonar og það hefur alltaf fylgt mér og mínum börnum eftir að ég fór að búa sjálf.“
Sendum Suðurnesjamönnum okkar bestu jóla- og nýárskveðjur. Þökkum viðskiptin og samskiptin á árinu sem er að líða.
– Hvað er í matinn á aðfangadag? „Hamborgarhryggur með öllu tilheyrandi.“ – Eftirminnilegustu jólin? „Líklegast aðfangadagskvöld fyrir nokkrum árum þegar mamma reyndi að svindla á okkur systkinum með aðkeyptri brúnni lagköku í staðin fyrir að baka hana sjálf. Við föttuðum það strax á fyrsta bita og það nánast brutust út slagsmál á heimilinu út af þessu hneyksli.“
Elskar að opna pakka Einar Skaftason starfar við flugvernd í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Ekki hefur verið mikið um flug að undanförnu en alltaf eitthvað smá að gerast þannig að dagarnir í vinnunni hjá Einari hafa verið skrítnir. „Það er nú lítið að frétta af áhugamálunum þar sem allar íþróttir liggja niðri en hef þó alla fjölskylduna með mér í þessum skrítnu aðstæðum,“ segir hann í samtali við Víkurfréttir. Einar svaraði nokkrum jólaspurningum frá Víkurfréttum. – Fyrstu jólaminningarnar? „Þegar ég sá jólasveinana í fyrsta skiptið aftan á traktors kerru um miðja nótt og frá og með þeirri stundu hef ég trúað á tilvist þeirra og læt engan segja mér annað.“ – Jólahefðir hjá þér? „Lítið um hefðir en erum senni lega eins og flestir. Borða góðan mat, opna pakka og bara vera saman fjölskyldan og njóta samverunnar.“ – Ertu duglegur í eldhúsinu yfir hátíðarnar? „Get ekki sagt það, hef alltaf verið smá dekurdýr og er svo heppinn að betri helmingurinn sér alfarið um matinn og gerir það lystavel.“ – Uppáhaldsjólamyndin? „Christmas Vacation með Chevy Chase sígild og góð.“ – Uppáhaldsjólatónlistin? „Rut Reginalds og Helgi Björns koma þar sterk inn og bara þessi sígildu lög sem fá spilun í útvarpi.“ – Hvar verslarðu jólagjafirnar? „Í ljósi aðstæðna var allt verslað á netinu. Black Fridays, Single Days og Cyber Mondays eða hvað þetta nú allt saman heitir. “ – Gefurðu margar jólagjafir? „Elska að opna pakka og þar af leiðandi gef ég þrjá pakka á hvern fjölskyldumeðlim og óska eftir því sama alla vega frá makanum. Börnin sleppa með einn pakka ...“ – Ertu vanafastur um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf? „Get nú ekki sagt það en reyni þó alltaf að fara kirkju garðsrúnt og kasta kveðju á fólkið mitt þar.“ – Besta jólagjöf sem þú hefur fengið? „Erfið spurning – en fyrir mér þá eru allar gjafir góðar. Það er hugurinn sem skiptir öllu máli gott fólk, ekki hvað hún kostar.“ – Hvað langar þig í jólagjöf? „Ef einhver getur gefið mér og okkur öllum Covid-laust líf þá þigg ég það með þökkum. Sennilega pakkinn sem allir óska sér.“ – Hvað er í matinn á aðfangadag? „Hamborgarhryggur og kalkúnn vegna sérþarfa barnanna.“ – Eftirminnilegustu jólin? „Öll jól eftirminnilegust. Vera með sínum nánustu og njóta er það besta og hugsa til þeirra sem eru ekki lengur meðal okkar. Óska öllum gleðilegra jóla og muna að vera góð við hvert annað.“
r a g n i n n i v 0 0 0 6
Nærri
a t t é r f r u k í V u k k lu la ó J í
Fylgist með á vf.is Þú færð Jólalukku VF í tuttugu og þremur verslunum. Þrír útdrættir í desember úr vinningslausum miðum sem skilað er í Nettó verslanir.
Vinningshafar í fyrsta útdrætti í Jólalukku 2020 Sylwia Wszeborowska, Vatnsnesvegur 36, Reykjanesbæ - LG 60” UHD Smart Sjónvarp Steinþóra Eir Hjaltadóttir, Baldursgarður 12, Reykjanesbæ - Hreindýrapar frá Kristinsson handmade í Grindavík Svanhildur Gunnarsdóttir, Efstaleiti 77, Reykjanesbæ - Gisting og morgunveður hjá Íslandshótelum
Gjafabréf að upphæð 15.000 í Nettó Krossmóa/Iðavöllum Linda Sigurgeirsdóttir, Reykjanesbæ Þorgerður Halldórsdóttir, Smáratúni 19, Reykjanesbæ Einar Ólason, Skólavegi 48, Reykjanesbæ
Gjafabréf að upphæð 15.000 í Nettó Grindavík Þóra K. Hermannsdóttir, Árnastíg 10, Grindavík Ólína Þorsteinsdóttir, Laut 35, Grindavík Fredrik Bocin, Hraunbraut 2, Grindavík
! a g n i n n i v r a t t á r d t ú a s s e ið þ
Sjá
Við drögum út glæsilega vinninga þrisvar í desember, 11., 18. og 23. desember. Skilaðu miðanum þínum (með engum vinningi á) í Nettó í Krossmóa, Iðavöllum eða Grindavík.
1 3 18
Hreindýraparið vinsæla frá Kristinsson í Grindavík
LG 60” UHD Smart sjónvarp
Nettó gjafabréf 15.000 kr.
2 1 25
Gisting í eina nótt á Íslandshótelum í 2ja manna herbergi með morgunverði
Hótelgisting fyrir tvo á ION CITY og sjö rétta kvöldverður á Sumac
Nóa & Síríus konfektkassar
32 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
KRA F TAVERK AÐ HANN LIFÐI AF
Árið 2014 líður líklega seint úr minni Sigurðar Vignis og fjölskyldu en hann lenti í tveimur vinnuslysum þetta ár og aðeins með nokkurra mánaða millibili. Hið fyrra í byrjun apríl og hið seinna í byrjun nóvember. Víkurfréttir kíktu í spjall einn fallegan morgun í lok nóvember til að ræða við Sigurð Vigni um þetta örlagaríka ár. Þennan morgun var hann nýkominn heim úr skriflegu prófi hjá Flugakademíu Keilis en Sigurður býr í foreldrahúsum. Sigurður Vignir Guðmundsson er fæddur rétt fyrir jólin árið 1992, skírður í höfuðið á afa sínum sem margir Keflvíkingar þekkja undir nafninu Siggi tíví. Sigurður Vignir er ósköp glaðlegur ungur maður og ber þess engin merki að hafa lent í erfiðum höfuðmeiðslum fyrir nokkrum árum eða fingurmeiðslum. Hann er frískur og hress og hefur náð sér að fullu, svo vel að læknarnir stóðu
agndofa yfir því hversu fljótt drengurinn náði sér eftir fyrra slysið sem var lífshættulegt. Sigurður Vignir var farinn að æfa aftur körfubolta aðeins nokkrum mánuðum eftir fyrra slysið en eftir seinna slysið átti hann erfiðara með að æfa því tveir fingur flæktust í fiskskurðarvél þegar hann var að reyna fyrir sér í körfubolta hjá Þór á Akureyri um haustið.
Sigurður Vignir ásamt foreldrum sínum, Ásdísi Elvu Sigurðardóttur og Guðmundi Þór Ármannssyni.
Ég var alltaf í körfu, í öllum frítíma. Körfu boltinn var nánast fastur við lófann minn ...
Alltaf stundað íþróttir Sigurður Vignir er alinn upp í kringum íþróttir og byrjaði að æfa fótbolta sex ára gamall hjá Keflavík. Honum gekk vel, fékk verðlaun fyrir rakningu og líkaði vel í boltanum. Þegar Sigurður var kominn í 7. bekk þá vildi þjálfarinn hans setja hann í aðra stöðu á vellinum en það líkaði stráknum ekki og ákvað að hætta að æfa fótbolta. Eldri systur hans æfðu körfubolta, þær Guðrún Harpa og sú elsta í systkinahópnum, María Anna. „Ég var ekki sáttur við það að láta færa mig í aðra stöðu á vellinum og ákvað að hætta. Þá fór ég leika mér á hjólabretti og gerði það í nokkur ár.
Jólatréssala
Kiwanis er í porti Húsasmiðjunnar á Fitjum í Njarðvík
ð: OpiVirka daga fram að jólum kl. 17–20
Föstudaginn 18. des. kl. 16–20 Laugardaginn 19. des. kl. 12–18 Sunnudaginn 20. des. kl. 13–18 Jólatré - norðmannsþinur - fura - greni - leiðiskrossar - skreyttar greinar Allur ágóði af sölunni rennur til líknarmála
Ég spilaði samt nokkra leiki á sumrin í fótbolta en byrjaði að æfa körfubolta í 9. bekk þegar bekkjarfélagi minn spurði hvort ég vildi koma á æfingu hjá Keflavík. Ég fór og fannst gaman og ákvað að halda áfram í körfunni. Ég hafði verið í kringum körfuboltann í nokkur ár því báðar systur mínar æfðu körfu en elsta systir mín, María Anna, bæði æfði og þjálfaði yngri flokka hjá Keflavík. Ég fór oft með henni að horfa á en langaði samt ekkert að spila fyrr en þarna í 9. bekk. Eftir fyrstu æfinguna mína elskaði ég að æfa körfubolta, fannst það ótrúlega gaman. Ég endaði í meistaraflokki hjá Keflavík og komst í landsliðsúrtak. Daginn sem ég fékk bílprófið sautján ára keyrði ég á landsliðsæfingu inn í Grafarvog, alveg skíthræddur að keyra aleinn í Reykjavík en það tókst. Samkeppnin var hörð í körfunni og með árunum var erfiðara að komast í lið því mig vantaði hæðina. Það voru fleiri hærri og sterkari í liðinu en ég gafst ekki upp og þegar ég fékk beiðni frá þjálfara um að koma og spila með Breiðabliki í Kópavogi þá stökk ég á það. Þetta gerði ég um tíma en svo þreyttist ég á að keyra inn eftir á æfingu og vildi einnig fá fleiri tækifæri þar inni á vellinum og færði mig til Reynis í Sandgerði. Þar fékk ég að spila fullt og það var rosa skemmtilegur tími. Við vorum fleiri úr Keflavík sem þráðum að spila og þarna fengum við útrás. Þó að liðið væri ekki í úrvalsdeild þá var mjög gaman hjá okkur. Það var aðalatriðið. Á tímabili var körfubolti númer eitt og skólinn númer tvö en ég var á félagsfræðibraut í FS. Ég var alltaf í körfu, í öllum frítíma. Körfuboltinn var nánast fastur við lófann minn. Mér tókst að útskrifast sem stúdent frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja en ég segi tókst því það er allt mömmu að þakka sem hvatti mig áfram og sagði að ég myndi sjá eftir því að klára ekki stúdentinn,“ segir Sigurður Vignir og horfir sposkur á móður sína, Ásdísi Elvu Sigurðar-
dóttur, sem blaðamaður bað um að vera viðstadda spjallið okkar til að fá hennar hlið og föðurins, Guðmundar Þórs Ármannssonar, á slysinu mikla þegar Sigurður Vignir vann hjá IGS í hlaðdeild. Hann man lítið sem ekkert sjálfur frá þessum degi eða eftir vikunni á sjúkrahúsinu.
Örlagaríkur dagur Þau unnu öll þrjú sömu vaktdaga í Leifsstöð og voru því öll á vakt þennan örlagaríka dag þegar sonurinn slasaðist alvarlega. Ásdís Elva og Sigurður Vignir störfuðu bæði hjá IGS, hún á Saga biðstofunni en hann í hlaðdeild flugvéla, og Guðmundur Þór vann sem flugvirki hjá Icelandair. „Nei, það er svo skrítið að ég man ekkert of vel atburðina frá hádegi þennan dag sem ég lendi í slysinu og næstu viku á eftir. Það er bara næstum tómt minnið en ég lenti í slysinu eftir kaffipásu klukkan fjögur um daginn. Ég man eitthvað slitrótt eftir því að ég var uppi í farangurslest á flugvél sem var nýlent en þá er oft frost og bleyta inni í lest. Ég er að ná í cargo-trébretti og er að draga það út með mér og ætla að stíga út á færibandið og hlýt að hafa dottið vegna hálkunnar. Ég datt aftur fyrir mig og skall beint niður á jörðina en man ekkert þegar þetta gerðist og þar til ég vakna næsta dag á sjúkrahúsi í Reykjavík. Þar situr mamma við rúmið mitt og hún segir mér þegar ég spyr hana hvað hafi gerst að ég hafi lent í vinnuslysi. Ég svona hálfbrosi til hennar og svo loka ég augunum aftur og steinsofna. Ég fékk svo að vita að ég hafði fengið þriðja stigs heilahristing, einnig heilablæðingu og mar á heilann.“
Kraftaverk að ekki fór verr Sigurður Vignir var í raun ótrúlega heppinn hversu vel fór því hann hefði jú getað lamast eða orðið heilaskaddaður eftir slysið en strákurinn
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR // 33
reif sig á fætur með góðra manna hjálp. Það skal tekið fram að engir hjálmar voru á höfði starfsmanna í hlaðdeild IGS á þessum tíma. „Já, svona eftir á að hyggja er í rauninni kraftaverk að hann Siggi okkar skuli vera á lífi eftir svona alvarlega áverka en röð atburða þennan örlagaríka dag gerði það að verkum að hann lifði. Samstarfsfélagi hans hjá hlaðdeild IGS kom að honum þar sem hann lá en hann er björgunarsveitarmaður og vissi nákvæmlega hvernig átti að bregðast við. Hann setti Sigga strax í læsta hliðarlegu. Það var nú svo skrítið að sjúkrabíll var einnig staddur innan flugvallarsvæðisins þegar þetta gerðist en hann var að bíða eftir flugvél sem var að koma til lendingar með veikan farþega. Örlögin gripu svo sannarlega í taumana því það mátti ekki tæpara standa með Sigurð Vigni sem fór með þessum sama sjúkrabíl strax undir læknishendur á bráðadeild í Reykjavík. Annar sjúkrabíll kom stuttu seinna og var tilbúinn fyrir farþegann þegar flugvél hans lenti. Að sjúkrabíllinn skyldi vera staddur þarna og hvernig vinnufélagi hans brást við með því að setja hann strax í læsta hliðarlegu var lífsbjörg stráksins okkar,“ segir Ásdís Elva sem jafnframt er lærður Bowen-tæknir en sú meðferð kemur einnig við sögu í uppbyggingarferli Sigurðar Vignis.
Óhefðbundin meðhöndlun hafði einnig áhrif á bata „Þetta og að mamma hans hafi meðhöndlað Sigga junior nokkrum sinnum á dag í Bowen á meðan hann lá á sjúkrahúsinu og eftir að hann kom heim, gerði gæfumuninn. Við vitum það,“ segir Guðmundur, faðir Sigurðar Vignis, og horfir á konuna sína. „Já, já. Ég get alveg samþykkt það, ég gafst ekki upp á að meðhöndla strákinn okkar með Bowen og var endalaust að pota í hann til að virkja lækningamátt líkama hans. Fyrstu þrjá dagana kom hjúkrunarfræðingur inn með töflur í glas handa honum og ég spurði hvaða pillur þetta væru. Hún sagði að þetta væru verkjalyf til að minnka höfuðverkinn hans en ég vissi að hann væri ekki með neinn höfuðverk og gaf honum því ekki þessi lyf. Meðferðin sem hann fékk frá mér gerði það að verkum að engin þörf var á verkjalyfjum en ég vildi frekar gefa líkama hans tækifæri til að lækna sig sjálfur og það tókst með undraverðum árangri. Ég var alveg hissa að sjá virknina af Bowen-meðferð hjá honum svona illa slösuðum og læknarnir voru einnig alveg hissa á því hvað hann var fljótur að jafna sig,“ segir Ásdís
Ég hef alltaf viljað hreyfa mig og það kom aldrei til greina að gefast upp. Ég hef alltaf haft jafnaðargeð og slysið breytti því ekki, ég er yfirleitt kátur. Ef það er til æðri máttur þá vakti hann yfir mér þennan dag ... og bætir við að þetta þurfi ekkert að koma fram í viðtalinu, hógværðin uppmáluð en blaðakonunni finnst þessi partur mjög áhugaverður og vill endilega láta þetta fylgja með. Hugsið ykkur ef hefðbundnar og óhefðbundnar lækningar sameinuðust í þágu sjúklinga.
Fjölskyldan stóð saman sem eitt „Þetta var langt og strangt endurhæfingarferli með strákinn okkar og við erum mjög þakklát öllum þeim sem komu að því að hann náði sér að fullu. Við fengum stíft endurhæfingarprógramm frá spítalanum sem við fjölskyldan fórum eftir. Það voru allir með í endurhæfingarferlinu, systur hans og bróðir, amma Ella og afi Siggi og við foreldrarnir. Við vorum öll samtaka um að hann skyldi komast til heilsu á ný og það tókst. Siggi Viggi var hvattur til að hreyfa sig strax á sjúkrahúsinu, koma sér á lappir og í fyrstu gat hann ekki gengið nema með göngugrind. Þegar við komum heim eftir viku þá man ég að fyrsta gönguferðin hans úti voru aðeins nokkrir metrar en þá gat hann ekki meir. Hann var í heimaþjálfun á hverjum degi í nokkrar vikur. Þessi strákur sem var búinn að æfa stíft íþróttir í mörg ár fór alveg á núllið, hafði ekkert þrek fyrst eftir slysið. Það var allt farið en að hann skyldi hafa verið í svona góðu líkamlegu formi var stór þáttur í að hann náði sér svona fljótt,“ segir Guðmundur. „Já við erum mjög þakklát öllum sem hjálpuðu honum að byggja sig upp, að gefast ekki upp. Ég er þannig sjálf, ég vil aldrei gefast upp og það vildi ég kenna stráknum okkar. Það er gott að eiga góða að og finna samheldnina þegar eitthvað svona alvarlegt kemur upp á í fjölskyldunni,“ segir Ásdís.
Þurfti að læra að ganga upp á nýtt „Ég missti allt jafnvægi og þurfti eiginlega að læra að ganga upp á nýtt. Öll fjölskyldan sameinaðist með mér í þessu, það voru allir að hjálpa mér að verða heill aftur. Ég man vel eftir fyrsta göngutúrnum með pabba sem voru nokkrir metrar en ég hafði ekkert þrek í meira. Ég hafði heldur ekkert skammtímaminni fyrst eftir slysið en það er allt búið að jafna sig og líkaminn komst fljótt í gott form. Ég var vakinn á morgnana klukkan níu og látinn gera eitthvað öðru hvoru til klukkan tíu á kvöldin. Það var stíft prógramm hjá fjölskyldunni minni. Ég hef aldrei reykt og hafði ekki bragðað áfengi heldur á þessum tíma sem hafði einnig góð áhrif sögðu læknarnir, að ég náði mér fljótt. Ég er ekki enn farinn að drekka áfengi, hef smakkað eitthvað smá þrisvar en hef engan áhuga á því. Ég hef alltaf viljað hreyfa mig og það kom aldrei til greina að gefast upp. Ég hef alltaf haft jafnaðargeð og slysið breytti því ekki, ég er yfirleitt kátur. Ef það er til æðri máttur þá vakti hann yfir mér þennan dag í apríl 2014 segja foreldrar mínir en ég spái í raun ekkert í svoleiðis hluti. Ég var rosa glaður að geta byrjað að æfa aftur körfu en þarna um sumarið finnst mér ég vera búinn að ná mér. Ég var frá vinnu í tvo mánuði og fór svo aftur í hlaðdeild hjá IGS í 50% starf. Þá hafði körfuboltaþjálfari samband við mig og bauð mér að spila með Þór á
Akureyri um haustið og ég ákvað að skreppa norður og skoða aðstæður,“ segir Sigurður Vignir.
Lendir í öðru slysi sama ár „Ég hafði ekki góða tilfinningu fyrir þessu og leið ekki vel með að hann færi norður að spila körfu en hann var fullorðinn og réði sér sjálfur. Hann langaði að prófa þetta og fór,“ segir Ásdís og Sigurður Vignir bætir við: „Ég flyt norður, fæ íbúð og vinnu þar í fiski. Það var allt í lagi að vinna við fiskpökkun, aðalatriðið var að fá að spila körfubolta og prófa að búa fyrir norðan. Svo lenti ég í slysi þarna í fiskskurðarvél stuttu eftir að ég var fluttur norður og sker mig illa á vísifingri og löngutöng á vinstri hönd. Ég held ég hafi aldrei öskrað eins hátt og þarna þegar þetta gerðist því þetta var svo sárt en þetta gerði það að verkum að ég gat ekki spilað körfubolta í langan tíma. Þarna lokaðist á körfuboltaævintýrið á Akureyri. Ég átti í þessu allan veturinn og alveg þar til um vorið. Afleiðingarnar voru eiginlega verri af þessu slysi því ég var ekki í eins góðu líkamlegu formi og þegar ég lenti í fyrra slysinu. Ég var búinn að vera að byggja mig upp eftir fyrra slysið þegar þetta gerist. Ég fór eitthvað í sjúkraþjálfun með fingurna og svo kom þetta loksins. Í dag spila ég golf í Leirunni og finnst það skemmtilegt. Ég hef alltaf verið viðloðandi golfið en nú einbeiti ég mér bara að þeirri íþrótt og náði að landa þriðja
sæti í meistaramótinu í sumar í fyrsta flokki,“ segir Sigurður Vignir alsæll og segist nú vera kominn þangað sem hann dreymdi um þegar hann var lítill strákur.
Er að læra flugmanninn hjá Keili í dag „Ég er alveg sáttur við hvernig allt hefur þróast í lífi mínu því ég væri sjálfsagt ekki kominn í draumanámið nema af því að þetta gerðist allt. Mig langaði alltaf í flugmanninn sem er mjög dýrt nám og tryggingabæturnar sem ég fékk eftir slysið léttu undir með mér. Nú stunda ég bóklegt flugnám í Keili en þaðan útskrifast ég í janúar 2021. Þá á ég eftir að fara í flugtímana, er búinn að taka fimmtán flugtíma og fannst það ótrúlega gaman. Næsta skref er að fara alla leið og fer ég þá væntanlega til Florída eða eitthvað til útlanda að taka þá flugtíma sem ég á eftir, því það er ódýrara. Það verður næsta ævintýri mitt, að klára flugmanninn. Ég hef fulla trú á þessu framtíðarstarfi og er alveg spenntur fyrir því að starfa erlendis sem og hér heima. Þetta á allt eftir að koma í ljós,“ segir þessi geðþekki ungi maður að lokum. Það er aðdáunarvert að sjá hversu vel hann hefur staðist lífsins prófin sín hingað til og óskum við honum farsældar í framtíðinni. Marta Eiríksdóttir marta@vf.is
34 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Á fyrstu árum Víkurfrétta voru verðlaunamyndagátur vinsælt efni í jólablaðinu hvert ár. Þekktur myndagátuhöfundur var fenginn til að setja saman myndagátu og dregin voru út nokkur bókaverðlaun fyrir rétt svör. Hér að ofan er ein gömul og góð myndagáta úr blaðinu sem á vel við í dag þó áratugir séu síðan hún var fyrst birt. Sendu okkur lausnina á gátunni á póstfangið vf@vf.is ásamt nafni og símanúmeri. Dregið verður um bókaverðlaun úr réttum lausnum. Svarið við gátunni verður birt í 1. tölublaði Víkurfrétta árið 2021.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR // 35
Sextán ára með sína fyrstu bók Dagbjört Kristinsdóttir, sextán ára dansmær úr Reykjanesbæ og nemi í Verslunarskóla Íslands, lét drauminn rætast og gaf hún út sína fyrstu bók nú í haust. Hún teiknaði og myndskreytti bókina sjálf auk þess að setja hana upp sjálf í tölvunni með hjálp móður sinnar. Þá gerði hún líka vefsíðu utan um verkefnið.
Ætluð öllum dönsurum og hjálpar þeim að skipuleggja sig betur
Páll Ketilsson
Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. Úrval getur verið misjafnt milli verslana.
pket@vf.is
Dagbók Dansarans má kaupa á heimasíðu Dagbjartar, dancebright.is.
„Síðasta haust ákvað ég að hanna mína eigin bók sem lokaverkefni í 10. bekk. Mig hafði alltaf langað til að eiga hina fullkomnu dagbók sem inniheldur allt sem maður þarf í að skipuleggja sig á einum stað. Þá fór ferlið fyrst af stað en tók svo pásu eftir að ég skilaði verkefninu. Svo tók ég þá ákvörðun í sumar að gefa bókina út og endurhannaði næstum allt. Ég teiknaði og myndskreytti allt sjálf og fékk svo hjálp frá mömmu við að setja bókina upp í Indesign umbrotsforritinu og senda svo í prentun. Hún er ótrúlega opin, svo allir geti aðlagað hana sínu dansnámi og lífi. Bókin er ætluð öllum dönsurum á öllum aldri og hjálpar þeim að skipuleggja sig betur,“ segir ungi dansarinn en aðal áhugamál Dagbjartar er dans og fleira sem tengist list. Hún hefur æft dans frá því hún var fimm ára og æfir jazzballett og fleiri dansa auk þess að kenna í DansKompaníi. Dagbjört var með ákveðnar hugmyndir hvernig væri hægt að gera hina fullkomnu dagbók. „Stór hluti bókarinnar er óskrifaður, bara auðar og línustrikaðar blaðsíður svo hægt sé að skrá hjá sér það sem mann langar. Auk þess eru gátlistar og fleira sem hægt er að fylla út þegar þörf er á. Svo inniheldur hún stóran kafla um svefn íþróttafólks og mikilvægi hans, stóran kafla um næringu og mataræði, fullt af hollum uppskriftum og svo tók ég viðtal við atvinnudansara sem er mjög áhugavert að lesa um. Ferlið gekk ótrúlega vel þrátt fyrir Covid-19 og allt gekk hratt fyrir sig. Það var í byrjun ágúst sem ég hófst við að endurhanna allt og svo fór bókin í forsölu 1. nóvember. Auðvitað var þetta ekki allt dans
á rósum en allt hafðist á endanum og ég er svo ánægð með útkomuna. Í náinni framtíð langar mig að gefa út aðra bók sem höfðar þá til alls íþróttafólks, ekki bara dansara og er því miklu stærri hópur. Mig langar að vinna meira í heimasíðunni minni og stækka hana, ásamt því að hanna meira og hef verið með alls kyns vangaveltur í gangi. Hvað nám varðar, langar mig að klára framhaldsskólanámið í Verzló og fara svo erlendis að dansa, annað hvort í nám eða vinnu. Ég hef hugsað mér að fara í prufur fyrir skóla í London og Danmörku á komandi ári en næst á dagskrá er samt önnur bók,“ segir dansarinn og útgefandinn ungi.
Jólaútsala
20-50% afsláttur
Allar jólavörur, seríur, jólaljós eða jólaskraut Afgreiðslutími fram að jólum Virka daga 8:00-18:00 Laugardaginn 19. des.
Verslun kl. 10:00 - 16:00
Þorláksmessa Verslun, timbur- og lagnadeild
Timbur og lagnadeild 10-14:00
Opið frá kl. 8:00 - 18:00
Sunnudagur 20. des.
Aðfangadagur Verslun, timbur- og lagnadeild
kl. 11:00-17:00
Lokað í timbur- og lagnadeild
Opið frá kl. 8:00 - 12:00
Jóladag,
2. í jólum og 27. des. Lokað Mánudagur 28. des.
Opnum kl. 10:00
36 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Tónlist og söngur eru mitt líf og yndi
segir Alexandra Chervecova en hún fékk Súluna, menningarverðlaun Reykjanesbæjar 2020. Hefur fengið margar viðurkenningar og kennt tónlist víða á Íslandi en elskar mest að syngja. Hefur samið tvær óperur og sú þriðja verður um Vigdísi forseta. „Það er ekkert smá gaman að fá svona viðurkenningu og yndislegt að vita að fólk er að fylgjast með og kann að meta það sem maður er að gera,“ segir Alexandra Chervecova sem fékk Súluna 2020, menningarverðlaun Reykjanesbæjar, fyrir framlag sitt til eflingar tónlistarlíf í bæjarfélaginu. Víkurfréttir hittu sópransöngkonuna, píanóleikarann og tónskáldið á fallegu heimili fjölskyldunnar í InnriNjarðvík. Austur-Evrópukonan, sem kom fyrst til Íslands 2003 og er orðinn íslenskur ríkisborgari, tók á móti okkur í rauðum kjól en Alexandra segist iðulega klæða sig upp. Jón Hilmarson, eiginmaður hennar, heilsaði okkur en hann er borinn og barnfæddur Keflvíkingur, sonur hjónanna Elísabetar Jensdóttur, kennara, og Hilmars Jónssonar, rithöfundar og bókavarðar, sem er látinn. „Ég elti ástina til Íslands,“ segir hún brosandi en þau eiga þrjá syni, Alexander Leo, Nikolai Leo og Hilmi Snæ. Margar viðurkenningar „Íslendingar hafa tekið vel á móti mér og ég er mjög ánægð hérna en tónlist og söngur eru mitt líf og yndi. Ég gæti ekki lifað án þeirra,“ segir hún. Hún byrjaði að syngja aðeins þriggja ára og hóf að læra á píanó aðeins fimm ára. Alexandra er fædd árið 1979 og uppalin í Úkraínu og Rússlandi. Hún hefur tekið virkan þátt í íslensku tónlistarlífi og rekið, ásamt eiginmanni sínum, menningar- og fræðslufyrirtækið „DreamVoices“ frá árinu 2006. Alexandra hefur verið afkastamikil og hefur meðal annars stofnað kóra, óperufélag, haldið fjölmarga tónleika, gefið út geisladiska og samið tónlist. Í öllum þessum verkefnum hefur hún virkjað og fengið til liðs við sig fjölda listamanna, innlenda sem erlenda. Alexandra hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir árangur sinn á sviði tónlistar. Árið 2014 var hún valin í hóp tíu framúrskarandi ungra Íslendinga fyrir framlag sitt til menningar á Íslandi. Þá komst hún á topp tíu listann í World Folk Vision, alþjóðlegri tónlistarkeppni, í sumar með laginu Ave María úr frumsömdu óperunni „Skáldið og biskupsdóttirin“. Nú í haust sigraði hún í alþjóðlegri tónskáldakeppni í Moskvu fyrir tónsmíð, fjórtán lög, úr sömu óperu og samin er við handrit Guðrúnar Ásmundsdóttur, fyrstu óperu sem Alexandra samdi.
Sigraði í tónskáldakeppni í Rússlandi „Já það kom mér á óvart þegar ég hlaut fyrstu verðlaun í alþjóðlegri tónskáldakeppni í Moskvu, eftir Isak Dunajevski, sem er stórt nafn í Rússlandi. Ég hlaut fyrstu verðlaun fyrir
Við píanóið aðeins fimm ára.
útsetningu mína á fjórtán lögum úr óperunni Skáldið og biskupsdóttirin. Þetta er fyrsta óperan sem ég samdi og lauk 2013, við handrit Guðrúnar Ásmundsdóttir, leikkonu og rithöfund. Við unnum mikið saman. Þessi ópera varð til um vináttu Hallgríms Péturssonar og Ragnheiðar Brynjólfsdóttur. Mér þykir rosalega vænt um þessa sögu og þetta verk og finnst rosalega flott að hafa fengið svona stóra viðurkenningu í Rússlandi þar sem 80 atvinnutónskáld tóku þátt. Svo voru tónleikar í Moskvu í lok september og valdi dómnefndin tvö lög úr þessari nótnabók. Það voru Ave María og Kvöldbæn. Ave María er tónlist eftir mig og ljóð eftir Rúnar Kristjánsson. Kvöldbæn er þjóðvísa eða bæn sem Brynjólfur, biskupinn og Ragnheiður sungu saman áður en farið var að sofa. Þessi tvö lög voru sungin af rússneskum söngvurum á þessum tónleikum sem ég komst ekki á vegna Covid – og líka vegna þess að ég og Guðrún, ásamt öðrum söngvurum, vorum með rosalega flotta dagskrá um tónskáldið Sigvalda Kaldalóns og móður hans í Kaldalónssal í Hörpu á sama tíma.“ – En áttirðu að syngja á tónleikunum? „Nei, ég átti bara að mæta og taka á móti verðlaununum og njóta þess að hlusta á rússneska söngvara syngja lögin á íslensku. Sendiherra Íslands tók á móti þeim fyrir mig. Ég gerði „transcription“ og við vitum alveg hvað það er erfitt að syngja lög á erlendum tungumálum og hvað það tekur langan tíma. Það er hægt að sjá myndband af flutningnum á YouTube. Maður gat skynjað að söngvararnir höfðu lesið söguna og kynnt sér hvernig þetta var. Óperan var frumsýnd í Hallgrímskirkju í Saurbæ í Hvalfirði með fjórtán manna hljómsveit, kór og rosalega
flottum óperusöngvurum. Stórsöngvarinn Kristján Jóhannsson var í hlutverki Brynjólfs. Svo fórum við Guðrún til Moskvu og sungum þessi lög á íslensku í akademíunni í Moskvu. Við fengum rosa góða dóma og viðbrögð. Svo var óperan tekin í Kiev, í mínum gamla háskóla í Úkraínu. Það var 150 ára stórafmæli Glier-tónlistarakademíunnar og þetta voru fyrstu heiðurstónleikar skólans. Þeir völdu besta verk frá nemendum skólans og þetta var alveg ógleymanlegt, flutt af 30 manna hljómsveit, kór og einsöngvurum. Við mamma þýddum þetta yfir á úkraínsku og þau sungu á úkraínsku nema Vikivaka, því það er sálin í þessari óperu og það er ekki hægt að þýða það á önnur tungumál. Ég vildi að það yrði sungið á íslensku og það vakti mjög mikla lukku.“ Báðar óperurnar sem ég hef skrifað hafa verið fyrir heila hljómsveit, kóra og einsöngvara og það tekur mikinn tíma. Það var magnað að hitta Guðrúnu, hún hafði unnið handritið sitt í fimm ár áður en ég kom inn í myndina. Sagan um vináttuna hreif mig svo mikið að mig langaði að skrifa tónlist við hana. Það tók mig þrjú ár og svo eitt til viðbótar að skrifa útsetningarnar.“
Guðrún mögnuð „Guðrún hafði skrifað leikrit um þessa sögu, Skáldið og biskupsdótturina, sem var henni hjartans mál og á sama tíma, árið 2011, var ég í listaháskólanum að taka master í nýsköpun í tónlist og var með tónsmíði sem aukafag. Óperan var mitt útskriftarverk. Fyrst langaði mig að skrifa óperu um konu og ég ætlaði að skrifa grínóperu, eða farsa, og svo endaði ég með dramatíska sögu um vináttu. Á þessum tíma bjó ég fyrir norðan, á Hofsósi. Á laugardögum kenndi ég söng í söngskólanum og sinnti fjölskyldunni fram á þriðjudag en þá keyrði ég til Reykjavíkur til að læra og var fram á föstudag. Ég var svo heppin að geta verið hjá Guðrúnu. Ég bjó hjá henni þegar ég var í Reykjavík. Við töluðum rosalega mikið saman og hún sagði mér fullt af flottum sögum, hún er algjör fjársjóður. Það er ótrúlegt hvað hún veit og hvað hún hefur lesið mikið. Ég tengdi svo við þessa sögu um vináttu Ragnheiðar og Hallgríms sem er í raun frekar skrítin. Hann var tuttugu árum eldri og hún var, ung kona. Ein af fyrstu menntuðu konunum sem gat talað mörg tungumál, spilað á mörg hljóðfæri og gat skilið hann. Þau voru sálarvinir. Ég tengdi líka við það sem gerðist milli hennar og foreldra hennar. Á þessum tíma, á 17. öld, var það líka þannig í Úkraínu að foreldrar vildu hafa mikið að segja um hvað börnin þeirra gerðu varðandi sambönd og annað. Svo hafði ég mjög gaman
Með foreldrum sínum, Alexander og Evgenia og Maríu systur sinni.
að því að grúska í þjóðlögum. Ég er mjög þakklát Guðrúnu fyrir að hafa treyst mér fyrir þessari sögu og fyrir allri þessari vinnu sem hún hafði unnið.“
Einsöngvari í Kiev Alexandra var einsöngvari við óperuhúsið í Kiev og söng ung að árum tíu hlutverk. Hún fékk viðurkenningu hjá tímariti í hennar heimabæ þrettán ára gömul fyrir besta lagið, Súkkulaðiland og er fyrir börn. „Þarna var ég stúdent og var með besta lag allra stúdenta í Kiev. Söngurinn er samt stór partur af mér og tónsmíðin bara til hliðar. Ég átti ekki von á því að hún yrði að atvinnu eða að ég myndi semja eitthvað meira en bara lög – en svo fæðist þetta og ég hugsaði bara: „Já, ég ætla ekkert að stoppa.“ Það voru hindranir og fólk sem efaðist um mig en ég var viss um að ég gæti þetta, samið óperu.“
Góðar minningar Alexandra er fædd í Kiev og hún segist eiga góðar minningar frá þeim tíma. „Á þessum tíma hétu þetta Sovétríkin. Ég er svolítið alþjóðleg, pabbi minn er rússneskur og mamma úkraínsk. Allir ættingjar pabba eru Rússar og mömmu frá Úkraínu. Svo á ég franskan langalangafa – en á þessum tíma var maður ekkert að hugsa hvaðan maður kemur. Fimm ára fór ég að læra á píanó. Mér fannst það gaman en ég var ekkert undrabarn, enginn Mozart. Ég var bara venjuleg – en mér fannst rosalega gaman að syngja. Ég byrjaði að syngja þriggja ára. Það þurfti ekkert að spyrja mig um að koma og syngja. Mér fannst rosalega gaman að fá sóló í kór og að standa á sviði og syngja. Ég elskaði það. Mér fannst svo gaman hvað tónlistin hafði góð áhrif á fólk, það klappaði og sagði kannski að þetta lag vakti upp ein-
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR // 37
„Fimm ára fór ég að læra á píanó. Mér fannst það gaman en ég var ekkert undrabarn, enginn Mozart. Ég var bara venjuleg – en mér fannst rosalega gaman að syngja. Ég byrjaði að syngja þriggja ára.“
hverja minningu eða tilfinningar. Mér fannst svo gaman að heyra frá fólkinu og upplifun þess. Það sem gerir mest fyrir mig er ekki athyglin heldur að sjá hvað tónlistin getur gert mikið fyrir fólk. Ég horfi stundum á listafólk eins og einhvers konar lækna, því fólk kemur og hlustar og líður betur eftir á. Ég kláraði áttunda stig á píanó og var í kór, dansi og tennis. Ég var í alls konar en fannst alltaf skemmtilegast að syngja.“
Meira en tónlist og söngur Þegar Alexandra kláraði námið í tónlistarskólanum segist hún hafa farið þá leið sem foreldrar hennar vildu. Að fara í háskólanám til að eiga meiri möguleika á að fá atvinnu. Hún segist þakklát fyrir það. Samhliða tónlistarakademíunni fór hún í háskóla og kláraði kennsluréttindin í ensku, spænsku og bókmenntum. „Þetta var mikið basl og ég vann hörðum höndum en ég hef alltaf verið dugleg. Á tímabili langaði mig bara að hætta í kennaraskólanum og bara vera að syngja og sinna því betur en foreldrar mínir sögðu: „ Nei, ég skyldi klára.“ Og ég varð að hlýða og eftirá var ég mjög sátt. Þetta átti eftir að koma mér til góða.“ Þegar hún kom til Íslands byrjaði á því að fara í íslenskunám og hún skoðaði möguleika sína til starfs. Svo fékk Jón, maður hennar, skólastjórastarf á Bakkafirði og þau fluttu þangað. Þannig vildi til að á staðnum var enginn tónlistarkennari. Það starf beið eftir Alexöndru. „Þannig byrjaði minn ferill hér á Íslandi. Já, þarna fékk ég kaup sem tónlistarkennari og byrjaði í raun að læra íslensku. Fólkið tók mér mjög vel, og líka reyndar hér, þótt ég hafi ekki fengið vinnu fyrsta árið. Svo hélt ég mínu fyrstu tónleika á Suðurnesjum og í Kópavogi. Ég þakka tengdaforeldrum mínum, Hilmari Jónssyni og Elísabetu Jensdóttur, fyrir þeirra þátt í því. Ég hitti minn fyrsta píanóleikara á Íslandi, Gróu Hreinsdóttur, og við héldum stóra tónleika í Duus húsum, mína fyrstu einsöngstónleika á Íslandi. Svo héldum við þá líka í Salnum og víðar.“
Kenndi prestinum söng Hjólin fóru síðan aðeins að snúa fyrir Alexöndru á Bakkafirði þó henni hafi fundist hún vera svolítið langt í burtu á þessum litla stað en þar varð hún ólétt af fyrsta barni þeirra Jóns, Alexander Loga. Fljótlega eftir að hún kom til Bakkafjarðar uppgötvaði hún flygil á staðnum. „Ég kom inn í húsnæði sem er félagsheimili, skóli og skrifstofur og sá flygil. Á honum voru bara bækur og ég spurði hvort enginn væri að nota flygilinn. Ég hugsaði með mér að ég gæti örugglega samið eitthvað fallegt lag á hann,“ segir hún og í framhaldinu byrjaði hún að starfa sem tónlistarkennari á staðnum. „Það var fullt af nemendum, allir fimmtán nemendur skólans komu í píanónám hjá mér. Svo vorum við líka aðeins að syngja. Ég lærði íslensku smátt og smátt, krakkarnir voru svo þolinmóðir og voru stundum að leiðrétta mig. Svo kom prestur staðarins í söngnám hjá mér. Það var mjög gaman. Svo fékk hún mig nokkrum sinnum til að syngja í kirkjunni.“
Í söngmenningu Ári síðar flutti litla fjölskyldan til Hofsóss þegar Jón fékk stöðu þar. Þar var Alexandra komin
Með Súluna, verðlaunagrip eftir Elísabetu Ásberg.
í annað sveitarfélag, í Skagafjörðinn en þar hefur lengi verið mikil söngmenning. „Ég sagði bara: „Vá, þvílíkur kór þarna, Heimir.“ Ég spurði hvort þau væru búin að læra söng og hvar þá. Einn úr kórnum sagðist bara vera búin með þrjú stig í söng. Ég sagði: „Ha? Ertu ekki lærður söngvari í kór?“ Í Úkraínu og Rússlandi þarftu að vera búin með átta stig í söng í tónlistarskóla og fara svo í nám til að vera kórsöngvari – en hér á Íslandi skráir þú þig ef þú hefur áhuga og þú ert kominn í kór. Svo lærirðu bara að beita röddinni og þú kannt ekki einu sinni nótur. Ég var mjög hissa á þessu en bara annar menningarheimur auðvitað.“
La Traviata í Skagafirði Eftir tvö ár í Skagafirðinum fékk Alexandra þá hugmynd að gera óperu. „Ég var búin að kynnast söngvurum, búin að syngja í kórum, gera master class, kenna við tónlistarskólann og var búin að taka eftir því hvað kórfélagarnir voru flottir. Ég þráði að setja upp óperu. Fólkið var til staðar sem gat
sungið, bæði aðalhlutverkið og í kór. Ég segi við Jón minn að mig langi svo að setja upp óperuna La Traviata. Þetta er svo flott músík og falleg en sorgleg. Tónlistin eftir Verde er svo flott. Ég sá að ég gæti stofnað óperukór. Jón horfði á mig eins og ég væri að missa vitið, setti höndina á mig og sagði: „Já, Alexandra, fínt.“ Ég bjóst við að hann myndi segja mér að gleyma þessu en hann sagði að ef ég héldi að ég gæti gert þetta, þá ætti ég að láta slag standa. Ég var orðin listrænn stjórnandi, fann söngvara, yndislegan píanóleikara, Tómas Sigurðsson, og tvo söngvara, Þórhall Bárðarson frá Blönduósi og Jóhann Ara frá Varmahlíð. Ég setti upp áheyrnarprufur, setti saman tuttugu manna óperukór og ég kenndi þeim að syngja á ítölsku. Við fengum líka góða hjálp frá einum Ítala á staðnum. Þetta var algjört ævintýri. Jón sagði mér að sjá um þetta, hann myndi finna peninga í verkefnið. Hann sótti um styrki og einmitt svona gerast hlutirnir. Eins og með Guðrúnu. Ég hringdi ég í hana og sagði að við værum búin að opna óperu Skagafjarðar. Ég sagðist
vera að spá í að gera þetta í konsertútfærslu og hvort hún vildi koma. Hún var bara: „Já, ertu bara búin að stofna óperu?“ Þegar hún kom var tónlistarskólinn ekki í mjög góðu húsnæði, eiginlega bara í bílskúrshúsnæði. Hún kemur inn, sest og þá byrjar forleikurinn í La Traviata og hún vissi alveg að ég væri flott söngkona. Svo heyrir hún í hinum söngvurunum og svo kórnum. Sagði svo við mig: „Ég bara vissi ekki hvar ég var stödd. Ég er stödd á Sauðárkróki! Vá.“ Guðrún sagði að við myndum setja upp óperuna með öllu, ekki bara konsert. Við fengum síðan Guðmund Óla Gunnarsson og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands til að vera með okkur. Svo komu kassar frá mömmu í Kiev með búningum fyrir alla, fyrir kórinn, einsöngvara, alla. Þetta voru rosalega flottir búiningar. Þá spurði Guðrún mig hvort foreldrar mínir væru milljónamæringar. Ég sagði: „Nei, þeim þykir bara svo vænt um mig.“ Og þau gera það,“ segir hún hlægjandi og bætir því við að það sé svo mikilvægt að hafa sterkt bakland þegar maður fer í stór verkefni. „Það
38 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Afi Alexöndru, Rodion Efimenko er þekktur kvikmyndaleikstjóri.
Með Súluna við Súluna sem er við DuusSafnahúsin. er allt hægt ef þú ert með svona góða fjölskyldu og vini í kringum þig sem standa með þér og hjálpa þér. Það er ekki hægt að gera kraftaverk einn.“ – Í þinni fjölskyldu er mikil list, tónlist og leiklist. Þú ert með þetta í blóðinu er það ekki? „Bróðir langömmu minnar var frægur óperusöngvari og söng í Bolshoi og langamma mín var leikkona og söngkona. Afi minn var kvikmyndaleikstjóri og var stórt nafn í Úkraínu og Sovétríkjunum. Hann gerði yfir 50 kvikmyndir og fékk alþjóðleg verðlaun, meðal annars í Berlín. Pabbi hans var einn af stofnendum úkraínska leikhússins. Já, ég hef þetta í blóðinu. Pabbi minn er ljóðskáld og er búinn að gefa út tíu bækur. Hann er núna að hjálpa mér að setja íslensk ljóð í rússneskt
ljóðaform. Hann er í félagi rússneskra ljóðskálda og rithöfunda og fékk nýlega Majakowski viðurkenningu sem er svolítið stórt. Ég vona að ég geti þýtt Skáldið og Biskupsdótturina yfir á rússnesku, í það ljóðaform, þannig að hægt væri að syngja þessa óperu á rússnesku. Það tekur engan smá tíma að þýða Hallgrím Pétursson yfir á rússnesku með sömu tilfinningu og sama ljóðaflæði.“
Vigdís forseti næsta verkefni – Í næsta verkefni, þú ert ekki að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur, ópera um Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta. „Já og fyrsta kvenforseta í heimi. Finnst þér það ekki spennandi? Hún er svo merkileg þessi kona – og merkilegt að hún komi frá þessu
litla landi. Það tók mig tíma að semja handritið því saga hennar er svo stór. Ég reyndi að finna út hvernig ég gæti komið öllum atburðum í hennar lífi inn í eina óperu. Hún var ekki aðeins fyrsti kvenforseti í heiminum, hún var líka fyrsta einstæða foreldrið til að fá að ættleiða barn. Mér fannst líka svolítið sterkt á þessum tíma þegar hún var að fermast, árið 1944, þá var Ísland að öðlast sjálfstæði. Svo kemur þessi tími þar sem hún var að ferðast og læra frönsku og sjá heiminn. Svo kemur hún til baka árið 1975 og þá var kvenréttindadagurinn og kvennafrídagurinn, svolítið mikið að gerast í jafnréttismálum og mér fannst það svolítið flott. Síðan skoruðu konur á Vigdísi að bjóða sig fram til forseta. Hún var ekki búin að hugsa sér það sjálf, það var ekki hennar markmið. Hana langaði að vera móðir og ég fjalla svolítið um það í óperunni þegar hún heldur á barninu sínu sem er kjördóttirin Ástríður. Hún þráði svo mikið að vera mamma. Ég hef líka lesið bókina hennar margoft og fullt af viðtölum við hana. Þar sér maður hvað þetta er stórkostleg kona – og það voru konur og karlar sem skoruðu á hana að bjóða sig fram til forseta og hún er alin þannig upp að hún vill gera gagn. Hún tók mark á vinum sínum og fólki í kringum hana og konum sérstaklega, og það var kominn tími á að fá kvenkyns forseta. Vigdís var svo flottur forseti. Hún kom Íslandi svolítið á kortið.“
– En hvenær áttu von á því að klára þessa óperu? „Ef allt gengur vel og ef Covid setur ekki strik í reikninginn þá ætlum við að kynna óperuna í mars á næsta ári á alþjóðlega kvenréttindadeginum í húsi Vigdísar, með einsöngvurum og vonandi kór. Ég er búin að spyrja Kvennakór Suðurnesja um að vera með og þær voru mjög spenntar og ég vona að þetta verði að veruleika. Við erum að byrja að æfa með einsöngvurum, kvenréttindasenuna. Ég hlakka mjög til að kynna þessa óperu.“
Tónleikar í heimbyggð – Svo hefurðu verið með tónleika heima hjá þér og áramótatónleika undanfarin ár. „Já, það er mjög gaman að halda stofutónleika og fá flotta listamenn með mér í lið. Fólki finnst yndis-
legt að koma í stofuna, þetta er svo heimilislegt og maður nær meira til áhorfendanna. Gestirnir hjá mér eru orðnir eins konar klúbbur, þau fylgjast rosalega vel með og ég vona að á næstu Ljósanótt geti ég haldið heimatónleika. Svo hef ég verið með nýárstónleika undanfarin ár. Það er svo mikið af jólatónleikum, sem er mjög gaman, en svo þegar nýja árið kemur finnst mér æðislegt að byrja það á flottum tónleikum. Á þessu ári verða ekki þessir hefðbundnu tónleikar, tónlistarfólk er að gera ýmislegt öðruvísi eins og rafræna tónleika og myndbönd en það er mjög flott að fá í lið með mér manninn minn og ljósmyndarann í það verkefni. Auk mín verða Rúnar Þór Guðmundsson, tenór, Jóhann Smári Sævarsson, bassi, og við gerum eitthvað rosalega flott.“ (Tónleikarnir verða sýndir á Hringbraut og vf.is).
„Í Úkraínu og Rússlandi þarftu að vera búin með átta stig í söng í tónlistarskóla og fara svo í nám til að vera kórsöngvari – en hér á Íslandi skráir þú þig ef þú hefur áhuga og þú ert kominn í kór.“
JÓLAGJÖFINA FYRIR DÝRIN
FÆRÐU HJÁ OKKUR
Alexandra og Jón í Dubai með drengjunum, Alexander Loga, Nikolai Leo og Hilmari Blæ.
Alexandra með móður sinni.
KROSSMÓA - REYKJANESBÆ
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR // 39
„Það tók mig tíma að semja handritið því saga hennar er svo stór. Ég reyndi að finna út hvernig ég gæti komið öllum atburðum í hennar lífi inn í eina óperu. Hún var ekki aðeins fyrsti kvenforseti í heiminum, hún var líka fyrsta einstæða foreldrið til að fá að ættleiða barn.“ Á veiruárinu hafa þau Alexandra og Jón verið dugleg að taka upp myndbönd í flottri náttúru Íslands, þar sem hún hefur sungið. Við spyrjum Alexöndru hvernig leið hennar hafi legið til Íslands. „Það gerðist þannig að ég hitti Jón, manninn minn, á Spáni og það var örugglega ást við fyrstu sýn. Það er bara þannig. Ég var þá einsöngvari í Kiev, nóg að gera, en ég varð svo ástfangin. Hann kom til Kiev og bað um hönd mína. Við ákváðum að ég myndi flytja með honum til Íslands. Það var bara auðveldara fyrir mig.
Ég vildi vera með honum og ég kom hingað 30. október 2003.“ – Og þú sérð ekki eftir því? „Nei, ég sé ekki eftir því. Auðvitað ekki. Alexandra er núna búin að vera á Íslandi í átján ár. Komin með þrjú börn og hún segir að henni líði jafn mikið eins og Íslendingi eins og rússneskri eða úkraínskri. „Ég er allt þrennt og geri ekki upp á milli. Það var auðvitað margt skrítið og öðruvísi þegar ég kom hingað fyrst – og þegar ég horfi til baka þá sé ég kannski svolítið af
hverju við smullum saman, við Jón. Við komum bæði frá foreldrum sem eru kennari og ljóðskáld eða rithöfundur. Það var mikil og alþjóðleg menning á mínu heimili, mikill lestur, list, fegurð og forvitni. Jón er besti vinur minn og við höfum um svo margt að tala. Fyrst töluðum við saman á ensku en eftir tvö ár spurði ég hvort við gætum ekki talað bara saman á íslensku. Mér fannst skrítið ef barnið okkar, Alexander, hlustaði á okkur tala ensku saman en ég talaði rússnesku við hann og Jón íslensku. Mér fannst það of mikið fyrir lítið barn. Mér fannst líka gaman að geta tekið þátt í umræðum í kaffiboðum og forvitni um hvernig og hvað.“
Kostur að kunna tungumálið Alexandra segir að það sé mikill kostur að kunna tungumálið í því landi sem maður býr í. „Þá opnast dyr að nýjum heimi og nýrri menningu. Reykjanesbær er bær fjöl-
breytileikans þar sem fjórðungur íbúa er af erlendum uppruna. Ég er mjög stolt af því að vera fyrsti innflytjandinn sem fær menningarverðlaun bæjarins. Það er mikils virði. Á Íslandi eru að gerast hlutir bæði í kvenréttindum og mannréttindum og að minnka mismunun fólks. Þó það sé alltaf hægt að gera betur, þá samt er margt svo gott og maður getur verið stoltur af því að vera Íslendingur.“
skilur maður fólk þótt maður noti ekki tungumálið. Maður þarf líka að vera opinn fyrir íslenskri menningu og líka að segja frá skemmtilegum hlutum úr eigin menningu. Íslendingar verða bara ríkari af því að læra um eitthvað nýtt og skemmtilegt og geta kannski tileinkað sér það. Aðalatriðið er að þeir séu opnir fyrir þessum íbúum og svo nýbúarnir fyrir menningunni á staðnum.“
– Ertu með skilaboð til útlendinga sem búa á Íslandi? „Ég veit að þegar maður flytur til nýs lands þá getur maður verið rosalega einmana og maður saknar ákveðinna hluta á hverjum degi eins og sinnar rútínu, vina, ættingja – en það er mjög gott að kynnast fólki og hvort sem þú kemur hingað til að vinna eða á öðrum forsendum, eins og ég, fann ástina og kom hingað og stofnaði fjölskyldu, þá er mjög gott að vera opinn. Maður veit hvað það er erfitt að læra nýtt tungumál en oft
– En hvað finnst þér skrítnast á Íslandi? Tja, þegar maðurinn minn borðar sviðahausa á þorrablóti. Ég get ekki borðað hausa. Ætli það sé ekki skrítnast,“ segir menningarverðlaunahafinn Alexandra Chernyshova broandi um leið og hún kveður Víkurfréttamenn.
Páll Ketilsson pket@vf.is
JÓLAGJAFIR sem marga dreymir um
Gjafalínan frá Kay Bojesen
Georg Jensen gjafavörurnar í miklu úrvali
JÓLAGJAFIR sem marga dreymir um Jólastjarnan frá Georg Jensen Dönsku trévörurnar frá Spring Copenhagen - ný lína
Meraki vörurnar vinsælu Lyngby Porcelæn vasarnir vinsælu Tjarnargötu 3 Keflavík - Sími 421-3855 #draumaland230
40 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Desember í Gerðaskóla
Ef þú lendir í tjóni þá sér Bílnet um málin ! Hjá Bílneti færð þú bestu viðgerð og þjónustu sem völ er á. Bílnet er gæðavottað verkstæði og með 5 stjörnur frá Sjóvá. Bílnet leggur áherslu á fagleg og snögg vinnubrögð. Við notum einungis vottað hágæða lakk frá Du Pont í samstarfi við Poulsen.
Gleðileg jól og komandi ár ár Gleðileg jól farsælt og farsælt komandi ÞökkumÞökkum viðskiptin á árinu semsemeru viðskiptin á árinu eruað að líða líða Þjónusta í boði hjá Bílneti
Bílasprautun - Bílaréttingar - Tjónaskoðun - Plastviðgerðir Bílrúðuskipti - Mössun - Sprautulökkun
• Brekkustíg 38 • 260 Reykjanesbær • Sími: 420-0040 • GSM: 698-5693 • • Fitjabraut 30 • 260 Reykjanesbær • Sími: 420-0040 • GSM: 698-5693 • Bílasprautun • Réttingar • Sprautulökkun • Plastviðgerðir • Mössun • Bílrúðuskipti Bílasprautun • Réttingar • Sprautulökkun • Plastviðgerðir • Mössun • Bílrúðuskipti
Í desember er margvísleg dagskrá skipulögð í skólanum okkar og við finnum nýjar leiðir þessa dagana til að halda í gamlar hefðir. Stór hluti þess að fagna aðventunni felst í samveru á sal og með fjöldatakmörkunum getur það reynst örlítið flókið – en við lítum á þessar áskoranir sem tækifæri til að hugsa út fyrir kassann og aðlögum skipulagið okkar með áherslu á gleðiríkar jóla- og aðventustundir, höldum í hefðir og sköpum alltaf einhverjar nýjar líka. Nemendur í 1.–7. bekk tóku þátt í tendrun jólaljósa á jólatré bæjarbúa þann 1. desember síðastliðinn. Söngstundir eiga sinn sess á aðventunni og hittust nemendur í smærri hópum og sungu jólalög við gítarundirleik Vignis Begmanns. Bækur skipa að sjálfsögðu stórt hlutverk í Gerðaskóla og fengum við nokkra rithöfunda í heimsókn með aðstoð tækninnar. Það vakti t.d. mikla lukku þegar nemendur í 4.–8. bekk hjálpuðust að í gegnum hluta af bók Ævars vísindamanns, Þín eigin undirdjúp, en í bókinni þurfa lesendur að
taka ákvörðun um atburðarásina og velja úr valmöguleikum um næstu blaðsíður. Það gekk vonum framar að taka á móti rithöfundum með þessum hætti og frábært að geta kynnt spennandi skáldsögur fyrir nemendum. Skólaumhverfið fær jólalega upplyftingu í desember og hafa bekkir t.d. keppt um best skreyttu jólahurðina en það er afar metnaðarfull og frumleg keppni. Í ár var ákveðið að breyta til og leggja áherslu á gluggaskreytingar í staðinn og lögðu nemendur sitt af mörkum í því verkefni. Síðustu vikuna fyrir jólafrí njóta nemendur og kennarar þess að vera saman í hlýju jólaljósanna og litlu jólin eru svo fastur liður í lok vikunnar. Þá horfa allir bekkir á myndband af helgileik sem nemendur í 4. og 5. bekk hafa sett upp en vegna aðstæðna nýtum við upptöku í stað þess að koma á sal. Það er því mjög lærdómríkt að takast á við breyttar aðstæður með nýjum leiðum og við nýtum hvert tækifæri sem gefst til þess að læra, segir í frétt frá Gerðaskóla.
Bílnet ehf. - 420 0020 - Brekkustíg 38 - 260 Reykjanesbæ - www.bilnet.is
Starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja sendir Suðurnesjamönnum öllum innilegar jólakveðjur með óskum um farsælt komandi ár
Þú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á
Til þjónustu reiðubúin
vf is
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR // 41
Fjör á aðventunni í Gerðaskóla í Garði.
Kaupfélag Suðurnesja sendir félagsmönnum sínum bestu óskir um gleðileg jól, farsælt nýtt ár og þakkar samfylgdina í 75 ár
Setjum í sölu fljótlega í sölu 42 fermetra geymsluhúsnæðispláss í Selvík í Reykjanesbæ.
Kaupfélagi Suðurnesja félagsmönnum sínum bes Sendum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt nýtt ár með þökk fyrir viðskiptin á liðnum árum.
42 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Bara lítill strákur frá Grindavík sem felldi ríkisstjórn Það virtist vera einhver leyndarhyggja bara yfir þessu máli. Þetta varð á endanum til þess að ríkisstjórnin sprakk, þetta hafði engum dottið í hug að það ætti eftir að gerast vegna kynferðismála ... Óhætt er að líkja Bergi Ingólfssyni við dansarann Billy Elliott. Strákur sem pukrast með ástríðu sína af ótta við viðbrögð nærsamfélagsins. Bergur æfði línur sínar fyrir inntökupróf í Leiklistarskólann í hjöllum í jaðri Grindavíkur þar sem hann ól manninn. Síðar átti hann eftir að leikstýra söngleiknum um Billy í Borgarleikhúsinu sem nú er hans annað heimili. Bergur er fyrsti atvinnuleikarinn úr Grindavík og hefur hann átt farsælan feril sem leikari og leikstjóri í yfir aldarfjórðung. Bergur tók að sér sitt stærsta hlutverk til þessa árið 2017. Það var utan leiklistarinnar og vakti heimsathygli. Hann ásamt fjölskyldu sinni átti þá stóran þátt í að fella ríkisstjórn og hrinda af stað byltingu undir formerkjum höfum hátt. „Andlega og líkamlega var ekkert eftir af forðanum. Það sem fólk kallar að brenna út var líklegast staðan hjá mér. Samt hafði ég bankað upp á á geðdeild, fengið lyf og samtöl og reynt að vinna úr þessu öllu saman. Ég hef breytt um lífsstíl og er allur að koma til,“ segir Bergur í einlægu viðtali í hlaðvarpinu Góðar sögur sem Markaðsstofa Reykjaness og Heklan standa fyrir.
Leikarar detta af himnum ofan Leikhúsið hefur átt hug Bergs allan meira og minna síðan hann varð atvinnuleikari fyrir 25 árum. Þó ættu flestir landsmenn að kannast við kauða úr sjónvarpi eða bíómyndum, já eða teiknimyndum þar sem hann er vinsæll í talsetningar.
Sem barn var Bergur viljugur til þess að skemmta sínum nánustu en þó óraði hann ekki fyrir því að hann gæti mögulega orðið leikari. Það virtist ekki gerlegt fyrir Grindvíking. „Síðan sagði einhver við mig: „Þú ættir nú að fara í leiklistarskólann.“ Ég hef verið svona tíu ára, skóli nei, er þetta ekki bara fólk sem dettur af himnum,“ segir Bergur og hlær.
Blái herinn sendir öllum Suðurnesjamönnum kærar jóla- og nýárskveðjur og þakkar stuðninginn í 25 ár.
Í leiklistinni fann hann þó síðar stóðið sitt. Í Fjölbrautaskóla Suðurnesja var Bergur virkur í leikfélaginu Vox Arena og tók þátt í nokkrum uppfærslum. Þar segist hann hafa fengið frábæran grunn fyrir Leiklistarskólann. Hann fiktaði einnig við tónlist og var meðal annars valinn söngvari Suðurnesja árið 1989, þá söngvari í hljómsveit sem hét Móðins.
Hið heilaga GRAL og helvítis leikarinn Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, prestur í Grindavík, fékk Berg til þess að setja upp sýninguna 21 manns saknað með unga fólkinu í bæjarfélaginu. Það varð kveikjan að Grindvíska atvinnuleikhúsinu sem stofnað var árið 2007 af Bergi og Víði Guðmundssyni, einu atvinnuleikurunum sem Grindavík hefur alið. Bergur viðurkennir að stundum hafi verið erfitt að koma heim til Grindavíkur berjast fyrir blómlegu menningarlífi. „Þegar ég kem í heimsókn til Grindavíkur þá spyr fólk: „Er þetta ekki helvítis leikarinn?“ Það fylgir því helvítis. Fólk segir þetta við mig en meinar kannski ekkert illt. Þetta er samt ákveðinn þröskuldur og maður getur orðið viðkvæmur fyrir því. Þessi gamli verstöðvarvinnukúltúr, hann varð þess valdandi að mér fannst ég þurfa að pukrast með þetta.“ Heilmörg verk liggja eftir Berg sem hefur verið duglegur að búa sér til verkefni. Hann hefur unnið til fimm Grímuverðlauna á sínum ferli og leikstýrt stórum verkum á borð við Billy Elliott, Galdrakarlinn í OZ og Mary Poppins. Litlu, sjálfstæðu verkin eiga þó sérstakan sess í hans hjarta þar sem hann og GRAL koma að öllu sköpunarferlinu. Sýningar eins og Jesú litli, Horn á höfði og 21 manns saknað sem dæmi. Bergur
er mikill liðsmaður en oft er hann í aukahlutverkum og leikstjórar í leikhúsum eru ekki eins nafntogaðir eins og kollegar þeirra í kvikmyndum. Er hann sáttur við það hlutskipti? „Auðvitað vill maður njóta sammælis og fá kredit fyrir sín verk, maður er bara mannlegur. Framlag mitt skiptir máli en ekki kannski ég sem persóna. Það hafa þó komið tímar þar sem ég verð frústreraður og spyr: „En ég?“ Maður er bara lítill strákur frá Grindavík sko.“
Stanslaus straumur á taugakerfinu Í viðtalinu kemur Bergur inn á hið hræðilega ár 2017 en þá gekk hann og fjölskylda hans í gegnum dimman öldudal. Þá verður til það sem er þekktast undir myllumerkinu höfum hátt. „Nokkrum árum áður hafði þekktur lögfræðingur níðst á dóttur minni sem þá var fjórtán ára, platað hana í kynferðislegum tilgangi á margan og ógeðslegan hátt. Hann fékk dóm og hluti af þeim dómi var að hann missti lögmannsréttindi sín. Síðan gerist það sumarið 2017 að hann hlýtur uppreist æru, sem þýðir að hann má aftur sinna lögmannsstörfum. Við vorum ekki sátt við þetta og fékk mjög á okkur. Við sem fjölskylda ræðum þetta og dóttir mín segir að hún muni ekki þaga yfir þessu. Í framhaldinu setur hún færslu á Facebook sem fjölmiðlar taka eftir og fara að hafa samband. Ég tek svo að mér að henda mér fyrir þessa lest, ég kæmi lifandi út úr því.“ Bergur fór í kjölfarið í viðtal á Rás 2 og óhætt að segja að þjóðfélagið hafi farið á hliðina. „Svo kom í ljós að þetta fór svona á einhvern sjálfvirkan hátt. Hann sinnir störfum þar sem fólk er jafnvel á erfiðustu stöðum lífs síns. Það kemur í ljós að forsetinn skrifar upp á uppreist æru vegna
Auðvitað vill maður njóta sammælis og fá kredit fyrir sín verk, maður er bara mannlegur. Framlag mitt skiptir máli en ekki kannski ég sem persóna. Það hafa þó komið tímar þar sem ég verð frústreraður og spyr, en ég? Maður er bara lítill strákur frá Grindavík sko ...
tilmæla frá ráðuneyti sem endar á því að stjórnarskráin segir þeim að gera þetta. Við skiljum það ekki, af hverju? Við fórum því að rukka fólk um ábyrgð. Það virtist vera einhver leyndarhyggja bara yfir þessu máli. Þetta varð á endanum til þess að ríkisstjórnin sprakk, þetta hafði engum dottið í hug að það ætti eftir að gerast vegna kynferðismála.“
Viðtalið í heild sinni má nálgast á öllum helstu hlaðvarpsveitum og á www.reykjanes.is/is/godar-sogur-hladvarp.
Glæsilegir vinningar í Jólalukku
frá 50 verslunum og fyrirtækjum á Suðurnesjum
körfuknattleiksdeild
knattspyrnudeild
.is
44 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Helgileikur í rafrænu formi í Myllubakkaskóla
Tæknin nýtt á aðventu í Heiðarskóla
H
in árlega jólaskemmtun í Heiðarskóla í Reykjanesbæ verður á föstudaginn en hún verður þó ekki með hefðbundnu sniði. Hefð er fyrir því að nemendur og starfsfólk skólans komi saman í íþróttasal þar sem fram fer jóladagskrá sem endar með því að dansað er í kringum jólatréð. Nú verða bekkir með sínum umsjónarkennara í skólastofum og mun öll dagskráin fara þar fram. „Við munum nýta tæknina til þess að miðla upptöku af helgileiknum sem nemendur í 7. bekk leika ásamt öðru og gera okkar besta til þess að eiga notalegar stundir saman,“ segir Bryndís Jóna Magnúsdóttir, skólastjóri Heiðarskóla. Jólafrí nemenda hefst svo að lokinni jólahátíð. Skólastarf hefst aftur samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 5. janúar 2021. Myndirnar eru úr starfi nemenda Heiðarskóla nú á aðventunni en myndirnar eru birtar með leyfi foreldra og/eða forráðamanna nemenda.
Jólaundirbúningur í Myllubakkaskóla hefur að mestu verið með hefðbundnu sniði þrátt fyrir að árlegar skemmtanir á sal hafi ekki verið í ár. Nemendur hafa skreytt skólann hátt og lágt, sungið jólalög og Halla Karen las jólasögu fyrir yngstu börnin. Sú hefð hefur skapast að nemendur í 6. bekk hafa sýnt helgileik á sal skólans en í ár hafa þeir lagt mikla vinnu í að færa hann yfir á rafrænt form og verður hann sýndur á litlu jólunum hjá öllum bekkjum. Skemmtilegt verkefni hefur verið í gangi í haust í smíðastofunni „Hilla verður að húsi“. Alltaf er nóg um að vera á smíðastofunni í Myllubakkaskóla og tekist á við ýmsar áskoranir. Þær felast m.a. í því að gera upp og breyta gömlum hlutum í eitthvað allt annað. Þannig hefur gamalli hillu
sem smíðakennaranum, Ásdísi Erlu Guðjónsdóttur, áskotnaðist í haust verið breytt í undurfagurt dúkkuhús. Hilluverkefnið var „gæluverkefni“ í smíðastofunni sem nemendur og kennari dunduðu sér við þegar tími gafst til. Herbergi hönnuð, stigar og húsgögn smíðuð og hugsað út í hvert smáatriði. Það er gott og gefandi að sjá gamla hluti öðlast nýtt líf. Á aðventunni var húsið jólaskreytt hátt og lágt og haft til sýnis í sal skólans. Jólatré að sjálfsögðu í stofu stendur og Jesúbarninu og fjölskyldu boðin gisting á háaloftinu. Eftir jól mun dúkkuhúsið verða fært Frístundarheimilinu að gjöf þar sem yngstu nemendur skólans fá að njóta. Einstaklega skemmtilegt og gefandi verkefni fyrir eldri nemendur og kennara sem unnu að húsinu.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR // 45
Víkurfréttir í samstarfi við Keflavíkurkirkju senda út guðsþjónustur um jól og áramót á vf.is.
AÐFANGADAGUR Barnaguðsþjónusta kl. 16:00 JÓLADAGUR Jólaguðsþjónusta kl. 14:00 NÝÁRSDAGUR Nýársguðsþjónusta kl. 14:00
46 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Jólagjafainnkaupin með heldur óhefðbundnum hætti Daði Þorkelsson er rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglunni á Suðurnesjum. „Vinnan er heldur betur ekki með hefðbundnu sniði þessa daganna en ég vinn á starfstöð lögreglunnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þar er ekki alveg jafn margir og venjulega að fara um – en út af svolitlu eru verkefnin nokkuð sérstök og snúast mikið um að gæta landamæranna eftir reglum sóttvarnarlæknis. Verkefni lögreglu eru þó enn fjölmörg, flókin og tímafrek svo sjaldan að manni leiðist. Oftast er það þó að greiða leið fólks eða aðstoða svo það er gefandi,“ segir Daði í samtali við Víkurfréttir. Hann svaraði nokkrum jólaspurningum blaðsins. – Fyrstu jólaminningarnar? „Það er auðvitað afar löng bið eftir að gengið væri frá í eldhúsinu svo hægt væri að byrja að opna pakka, auðvitað reyndi maður að aðstoða við að ganga frá og skola af diskum til að reyna að stytta tímann.“ – Jólahefðir hjá þér? „Áður fyrr fór ég um alla Heimaey á aðfangadag með pabba að keyra út síðustu pökkunum og jólakortunum. Núna er jólakort og kveðjur með rafrænum hætti svo það skutl er úr sög-
unni. Núna eru fyrstu jólin á nýjum stað svo það er hætt við að það verði reynt að skapa nýjar hefðir fyrir jólin. Aðfangadagskvöld þetta árið hjá mér verður í haldið eins hátíðlegt og hægt er í Flugstöð Leifs Eiríkssonar því ég verð á vakt. Það er alltaf jafn erfitt að vera ekki heima við þessa hátíðadaga en það er því miður ekki hægt að loka hjá lögreglunni en vona þó það verði með rólegra móti.“ – Ertu duglegur í eldhúsinu yfir hátíðarnar? „Held það sé ekki hægt að kalla það að vera duglegur að hjálpa til eftir fremsta móti og getu. Best að spyrja aðra hvort það flokkast undir hjálp eða að flækjast fyrir.“ – Uppáhaldsjólamyndin? „Die Hard er auðvitað langbesta jólamyndin, hélt að það væri óumdeilt. Ég hélt að allir væru sammála því.“ – Uppáhaldsjólatónlistin? „Uppáhaldsjólalagið mitt er It's beginning to look a lot like Christmas með Johnny Mathis en ég get verið smá Grinch þegar jólalög byrja að hljóma í október.“
– Hvar verslarðu jólagjafirnar? „Þetta eru fordæmalausir tímar svo jólagjafainnkaupin hafa verið með heldur óhefðbundnum hættir og allt það sem hægt er að kaupa á netinu keypt þar, að langmestu leyti af innlendum vefverslunum. Annars er ég algerlega ómögulegur í að versla jólagjafir en svo ótrúlega heppinn að eiga góða að sem aðstoða mig í því. Svo það viðurkennist fúslega að í eigin persónu versla ég ekki mikið.“ – Gefurðu margar jólagjafir? „Ætli ég sé ekki ótrúlega nálægt hinu annars ágæta ríkismeðaltali, reyni að sjá til þess að allir fái í það minnsta kerti og spil. Finnst sannarlega skemmtilegra að gefa en þiggja.“ – Ertu vanafastur um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf? „Eins rosalega kassalegur og vanafastur sem ég er þá er frekar ótrúlegt að fastar jólahefðir séu ekki í föstum, hefðbundnum skorðum. Hangikjöt með uppstúf og kartöflum á jóladag eða annan í jólum hefur þó held ég fylgt mér alla tíð.“
– Hvað langar þig í jólagjöf? „Ég er alveg einstaklega erfiður þessi jól en hef mikið vafrað á netinu og gluggað í alla þá auglýsingabæklinga sem ég kemst í – en algjörlega án þess að finna eitthvað sem hugurinn girnist. Er alveg jafnómögulegur að velja fyrir sjálfan mig eins og ég er lélegur að velja fyrir aðra. Ef börnin verða ánægð með jólinn þá verð ég sáttur.“ – Hvað er í matinn á aðfangadag? „Í fyrra fékk ég í fyrsta skiptið Roast Beef-steik með heimagerðu rauðkáli,
steiktum lauk og tilheyrandi. Held og vona að það sé nýja aðfangadagshefð hjá mér – en mest af öllu vona ég að verkefnastaðan á vaktinni leyfi að ég hafi tök á að skjótast heim um matarleytið til að borða með fjölskyldunni.“ – Eftirminnilegustu jólin? „Svakalega erfitt að velja úr ein til að setja efst á blað. Minningar af því þegar sérstaklega vel tekst til við að gleðja börnin mín held ég að verði fyrir valinu.“
Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um
gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári!
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI
Tannlæknastofan Tjarnargötu 2
ehf. Trésmiðja - Verktakar Kt: 621071-0689
Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða!
&
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR // 47
Elskar að elda hollt og keypti jólagjafirnar á netinu
Sendum Suðurnesjamönnum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt nýtt ár
Nína Rut Eiríksdóttir er frá Bjargasteini í Garði og er gift Erni Steinari, þau eiga þrjár dætur. Nína Rut starfar á Tannlæknastofu Þorvaldar H. Bragasonar í Keflavík.
„Áhugamálin mín og það sem ég er að gera þessa dagana eru bakstur, hollt matarræði og andleg vinna er mér hugleikin, göngu- og hjóla—túrar með hundunum mínum, dansa og syngja með dætrum mínum, jógaiðkun, vitundarvaka og líkamsrækt í bílskúrnum heima. Ég hlakka til þegar íþróttahúsin og sundlaugarnar opna aftur,“ segir hún í samtali við Víkurfréttir. Nína Rut svaraði nokkrum jólatengdum spurningum.
– Hvar verslarðu jólagjafirnar? „Mest á netinu þessi jól, á þessum skrítnu tímum.“
– Fyrstu jólaminningarnar? „Fyrstu jólaminningarnar úr æsku eru með stórfjölskyldu minni þar sem ég var svo lánsöm að alast upp í foreldrahúsum mömmu minnar með bróðir mínum, ömmu og afa og bræðrum mömmu. Á aðfangadagskvöld komu svo systkini og systkinabörn hennar í heimsókn í heitt súkkulaði og kökur og voru þetta góðar og hlýjar minningar, ekki má svo gleyma góða eplaog mandarínuilminum.“
– Ertu dugleg í eldhúsinu yfir hátíðarnar? „Já, mjög svo. Elska að elda hollt, undirbý meðlætið, legg á borð með hjálp dætra minna og elda matinn ef Örn Steinar er á vakt, annars sér hann um aðalréttinn.“
– Ertu vanaföst um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf? „Nei, ekki lengur. Er ávallt opin fyrir breytingum. Gæti hugsað mér að vera erlendis yfir þennan tíma. Er svo fegin að jólakortahefðin er að hverfa.“
– Uppáhaldsjólamyndin? „Þessar eru mest uppáhalds: While You Were Sleeping, Love Actually, Bridget Jones Diary.“
– Jólahefðir hjá þér? „Það hafa myndast nokkrar. Við fjölskyldan erum heima ásamt mömmu minni og systkinum á aðfangadag og borðum góðan mat og opnun pakka. Förum svo til tengdamömmu á jóladag hittum fjölskyldu mannsins míns, borðum og opnum gjafir þar og á milli hátíða hitti ég bróðir minn og fjölskyldu hans.“
– Uppáhaldsjólatónlistin? „Ég á nokkur uppháhaldsjólalög, t.d. Ó helga nótt, Nóttin var sú ágæt ein, Dansaðu vindur, Bjart er yfir Betlehem, Joy to the World, Little Drummer Boy, Mary’s Boy Child og Þú komst með jólin til mín.“
– Besta jólagjöf sem þú hefur fengið? „Þær eru svo margar fallegar og góðar, erfitt að velja úr eina sérstaka.“
– Gefurðu margar jólagjafir? „Já, þó nokkrar.“
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
– Hvað langar þig í jólagjöf? „Frið á jörð – svo væri æði að komast í sól og hita við tækifæri.“ – Hvað er í matinn á aðfangadag? „Vegan Wellington og hamborgarhryggur ásamt vel völdu meðlæti. Eftirréttur; heimalagaður ís og kaka.“
IÐAVÖLLUM 6 - 230 KEFLAVÍK - SÍMI 421 4700 - FAX 421 3320
Gleðilega hátíð
Gleðilega hátíð og farsælt komandi ár með þökk fyrir ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða.
www.skolamatur.is @skolamatur @skolamatur_ehf
Hollt, ferskt og eldað frá grunni
48 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Nú fær hún heiminn til sín
Ferðaþjónustan á Íslandi hefur sums staðar farið mjög illa síðastliðna mánuði. Fyrirtæki hafa þurft að loka tímabundið eða alveg. Þó eru sumir aðilar í ferðaþjónustu hér á landi, sem segjast sjá tækifæri í þeim erfiðleikum sem kórónuveiran hefur skapað. Unnur Katrín Valdimarsdóttir, ávallt kölluð Kata, er ein þeirra bjartsýnu. Hún er ferðaþjónustubóndi í frístundabyggðinni Nátthaga, Suðurnesjabæ, og lítur á núverandi ástand sem tímabundið, sem það auðvitað er. Kata veit að það skiptir svo miklu máli hvernig við tölum og hvað við segjum um hlutina og þess vegna kýs hún að vera jákvæð og hafa trú á því sem hún er að gera. Hún segir nýjar hugmyndir hafa skotið upp kollinum hjá sér undanfarið, hugmyndir sem gleðja hana og efla til dáða. Við áttum spjall saman um heima og geima hreinlega, því konan er ansi víðförul, hefur ferðast og dvalið langdvölum víða um heim. Við gefum Kötu orðið.
Ólst upp í Garðinum „Foreldrar mínir flúðu gosið í Vestmannaeyjum þegar mamma gekk með mig árið 1973 og er ég oft kölluð Gosbarnið í fjölskyldunni því eldgosið var auðvitað þetta ár. Foreldrar mínir fluttu fyrst til Akraness og svo í Garðinn. Þar ólst ég upp, lék mér með krökkunum við höfnina, síkið, í fjörunni og úti í móa, þetta voru leiksvæðin okkar. Náttúran hafði mikil áhrif á mig í uppvextinum og gerði mig að náttúrubarni. Það voru mikil forréttindi að alast upp í Garðinum í kringum þessa náttúru,“ segir hún og ljómar en Kata gerir það gjarnan þegar hún talar, full af lífsgleði og krafti – þessi kona sem við getum léttilega kallað eldhuga. Það eru ekki allar einhleypar konur jafn hugrakkar og hún, að ferðast aleinar um heiminn, aðeins með bakpoka
Marta Eiríksdóttir marta@vf.is
eða að festa kaup á heilli sumarhúsabyggð og ætla sér að lifa af því en það gerir Kata. Hún segist vera nægjusöm og þess vegna hafi mörg ævintýra hennar gengið upp. Hún er hagsýn og skynsöm.
Víðförul heimskona Kata er forvitin um lönd sem bjóða upp á aðra menningu en við þekkjum á Íslandi. Henni finnst best að ferðast létt, með bakpoka og vera með laus ferðaplön, leyfa frekar lífinu að sýna sér eitthvað forvitnilegt og fræðandi. „Ferðalög hafa alltaf freistað mín og ég ferðaðist töluvert um heiminn
Kata er búin að taka öll sumarhúsin sín í gegn að innan sem utan.
Starfsfólk Olís óskar Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári með þökk fyrir viðskiptin og samskiptin á árinu sem er að líða.
ódýrt bensín Fitjabakka 2-4
Fitjabakka Njarðvík
ódýrt bensín Básinn Vatnsnesvegur 16
Aðalgötu Keflavík
þegar sonur minn var orðinn stálpaður og gat bjargað sér sjálfur – en við mæðgin urðum fyrir áfalli þegar hann var níu ára og faðir hans lést skyndilega. Þá urðu þáttaskil í lífi okkar beggja. Það var mjög erfitt tímabil sem kenndi okkur margt. Þetta ýtti einnig við sálartetrinu í mér. Þegar sonurinn var fimmtán ára sagðist hann vilja fara til Kína að læra og ég samþykkti það því ég vissi hann þurfti það. Hann fór til Kína til að læra bardagalistir og kínversku. Þarna dvaldi hann í sex mánuði og á meðan fór ég með bakpoka til MiðAmeríku og var jafn lengi og hann í burtu. Þetta var í október 2008 sem við fórum í þessi ferðalög. Ég sendi strákinn minn út í heim og fékk til baka fullorðinn mann, svo mikið þroskaðist hann á þessari dvöl í Kína. Hann hefur farið tvisvar þangað, er rosalega duglegur og stundar nú nám í tölvunarfræði við háskólann,“ segir Kata stolt og heldur áfram frásögn sinni um ferðalagið hennar: „Ferðalagið mitt sama ár var í fyrsta sinn sem ég fór á ókunnar
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR // 49
Eina helgi í Kambódíu fékk ég að kynnast fólki sem lifir af því sem náttúran hefur upp á að bjóða og hjálpaði þeim að setja upp nýtt þak sem gert var úr pálmalaufblöðum. slóðir. Ég fór til Mexíkó, Belize, Costa Rica, Panama, Nicaragua, Honduras, El Salvador og Guatemala, tók allan skagann í Mið-Ameríku. Ég ákvað að ferðast létt og var forvitin um aðra menningarheima. Ég fór meðal annars í fallhlífarstökk, gekk í viku um frumskóga Tikal með frumbyggja og lærði á brimbretti og fleira skemmtilegt á þessum suðrænu slóðum. Þegar ég kom heim þá fór ég í nám hjá Keili í verk- og raunvísindum, kláraði það með sóma, fór svo í ferðamálafræði
í eitt ár. Í ferðamálanáminu gerði ég mér grein fyrir því að ég heillaðist meira af fólki, menningu, trúar- og helgisiðum og matarvenjum annarra þjóða en landinu sjálfu, fattaði að mig langaði ekki að verða ferðamálafræðingur, heldur læra dýpra um manneskjuna. Það togaði í mig að fara í mannfræði í háskólanum. Ég var samt komin með ferðaþrá og safnaði mér fyrir næstu utanlandsferð sem ég fór í til Suðaustur-Asíu í sex mánuði og þá hitti ég soninn minn í Kína sem var kominn þangað aftur í nám í bardagalistum. Ég byrjaði í Kína, fór þaðan til Filippseyja, Singapore, Malasíu, Tælands og Kambódíu. Þegar ég ferðast þá er ég opin fyrir upplifunum, er ekki með fast ferðaplan og stoppa lengur á stað þar sem ég kynnist fólki sem býr þar. Ég kýs að vera í flæðinu og sjá hvert lífið leiðir mig á ferðalaginu og hef alltaf verið heppin og kynnst góðu fólki. Jákvætt viðhorf, að búast við því góða, hefur laðað til mín það góða. Verðlag í þessum löndum er miklu lægra en hér á Íslandi og maður kemst ansi langt á einum þúsundkalli. Eftir þetta ferðalag kem ég heim og breyti náminu sem sagt og fer í mannfræði, sem er mjög áhugaverð fræðigrein. Ég safnaði alltaf pening fyrir næsta ævintýri á meðan ég vann og stundaði nám. Næst fór ég til Indlands og dvaldi þar í þrjá mánuði. Þar kynntist ég jógaheimspeki og Ayurveda (Science of Life) sem er stundum kölluð Móðir allrar
Angkor Wat í Kambódíu eru stærstu trúarmusteri heims, frá 12. öld. Hér má sjá áhrif búddisma og hindúisma.
heilunar en á Indlandi eru reknar margar svona heilsustofnanir sem bjóða Ayurveda-heilsumeðferðir. Ég stúderaði Ayurveda-mataræði. Þarna dvaldi ég í Goa á Indlandi og lærði margskonar jóganálganir úti í skógi, allt frá Yoga Nidra til A shtanga Yoga. Þarna náði ég mér í full jóga-
kennararéttindi (200ryt). Hugleiðsla verður daglegur þáttur af degi mínum þarna og er enn. Hugleiðsla er frábær til þess að hjálpa okkur að þagga niður í síbylju hugans, halda innri ró og ekki síst góð í gegnum krefjandi tíma eins og núna. Ég gæti alveg verið stressuð í þessu ástandi
en hugleiðslan hjálpar mér að lifa út frá hjarta mínu en ekki hausnum. Fyrsta ferðin mín til Indlands breytti miklu fyrir mig, ég lærði svo margt um sjálfa mig og mannlega nálgun í dvölinni þar.“
Óskum Suðurnesjamönnum
Jólakveðja sem ég sendi heim til Íslands frá Tælandi jólin 2012.
Í El Salvador að læra á brimbretti.
gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári
Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þökkum ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða
50 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Útlönd toguðu í hana Nú var Kata komin með ferðabakteríuna og langaði að fara aftur til Indlands en nú á mjög krefjandi tíu daga hugleiðslunámskeið sem ekki margir ná að klára. „Svona leið lífið mitt á þessum árum, ég ferðaðist og kom heim, vann, og þá aðallega við þjónustustörf, lærði meira í mannfræði og safnaði fyrir næsta ferðalagi. Ég stoppaði stutt heima á Íslandi og fór aftur til Indlands á tíu daga Vipassana-hugleiðslunámskeið. Það má kalla þessa hugleiðsluaðferð auðmjúka þögn á íslensku, þar sem þáttakendur máttu ekki tala, horfast í augu, snertast, skrifa, engin sími og tölva eða lesa, heldur áttum við að hugleiða í átta klukkustundir á dag. Þetta var mögnuð
upplifun og opnaði fyrir mér rödd sálarinnar innra með mér. Fyrri jógaferðin til Indlands hafði einnig gert það því jóga hjálpar okkur að tengja saman andann við líkama og sál. Við heyrum betur í okkar innri rödd og leiðsögn þegar við stundum jógaæfingar og hugleiðslu. Við erum tengdari inn á við. Í fyrri ferðinni minni til Indlands féllu mörg tár, þá varð mikil losun, allt sem ég hafði ekki fengið útrás fyrir kom upp á yfirborðið. Í þessari seinni ferð til Indlands þá varð þessi sama andlega hreinsun og fyrirgefning gagnvart sjálfri mér og öðrum. Að fyrirgefa er svo mikil heilun. Ég var samt miklu meira tilbúin fyrir þetta seinna ferðalag og að taka þátt í þögninni í tíu daga. Það var stórkostleg upplifun sem ég naut en þetta reyndist mörgum mjög erfitt og meira en helmingur hópsins datt út. Við vorum aðeins 40% af upphaflega hópnum sem kláruðum námskeiðið,“ segir hún og brosir, greinilega ánægð með að hafa staðist þetta námskeið.
Endurnærð eftir svona ferðalög
Þessari litlu stúlku kynntist ég í Langkawi, Malasíu, og varð hún góð vinkona mín á meðan ég dvaldi þar.
„Svo kem ég heim til Íslands og er endurnærð af þessari dvöl. Mér finnst ég alltaf endurnærð eftir svona ferðalög því ég læri svo margt í leiðinni og upplifi svo margt gott. Næsta ferðalag mitt var til Perú og dvaldi ég þar í sex vikur. Ég kynntist stelpu í Lima sem var mannfræðingur eins og ég en hún var að leigja út herbergi í Airbnb. Þegar ég hef farið í svona ferðalög þá er ég ekki búin að festa niður allt ferðalagið, kannski fyrstu næturnar en svo er ég meira í flæðinu, kynnist fólki og treysti að ég fái til mín það sem mig vantar hverju sinni. Það hefur alltaf gengið upp og gerir ferðalagið mjög skemmtilegt og spennandi. Jú, auðvitað verður maður að vera hugrakkur en mér hefur gengið vel. Hugarfarið skiptir öllu. Ég endaði þessa dvöl með því að dvelja inni í
Trimurti jógasetrið á Indlandi, þar sem ég lærði jóga og hugleiðslu. Þessi tími var upphaf að nýjum lífstíl hjá mér.
Amazon-skógi með frumbyggjum, sjaman, það er innfæddum sem eru samt orðnir ansi nútímavæddir margir. Þetta var samt mjög áhugaverð dvöl og þeir halda í forna siði í helgiathöfnum og fleira sem ég fékk að upplifa. Það var mjög forvitnilegt og hafði góð áhrif á mig. Mér finnst ég alltaf vaxa sem manneskja í hverri ferð sem ég hef farið á svona ókunnugar slóðir og óhefðbundnar. Að dvelja með sjaman í Amazon breytti öllu fyrir mig, það var mjög margt nýtt sem ég lærði með þeim,“ segir Kata og á ekki von á öðru en að fá að halda áfram að ferðast og lét sig dreyma næst um ferðalag til Indónesíu en örlagadísirnir breyttu þeirri áætlun.
Örlögin grípa í taumana „Í október árið 2018 var ég á leiðinni til Indónesíu þegar mamma mín fékk heilablóðfall og það stoppaði öll mín ferðaplön, eðlilega. Nú þurfti mamma á mér að halda og ég vildi vera til staðar fyrir hana og er enn, því í dag dvelur hún á Nesvöllum. Ég varð að jarðtengja mig inn á þetta verkefni í kringum mömmu mína og gleyma ferðalögum til útlanda. Það leið smá tími þar til nýr draumur bankaði samt á dyrnar hjá mér en við fjölskyldan vorum á fullu að sinna mömmu. Faðir minn lést árið 2014. Hugur minn fer að leita að tækifærum hér heima. Ég saknaði þess að sjá ekki heiminn.
Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um
gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári!
Óðinsvöllum 11 • 230 Keflavík • Kt. 450986-1949 • VSK.nr. 9109 Banki: Íslandsbanki 0542-26-82
Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða! Guðrún Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali GSM 876 54321
Hafnargata 20 230 Reykjanesbæ
Sími 420 4000 prodomo@prodomo.is
www.prodomo.is
Svo datt ég inn á þetta, sumarhúsabyggð í Nátthaga, sem var til sölu á þeim tíma. Ég var lengi að velta því fyrir mér hvort ég ætti að stökkva. Ræddi hugmyndina við bróður minn sem hvatti mig áfram. Ég er dálítið þannig að þegar ég er að ákveða mig, búa til ferðaplön eða annað, þá vil ég ekki ræða það við marga, því fólk hefur allskonar skoðanir á því sem maður gerir og það getur bara truflað innsæi manns. Þegar ég gat ekki farið lengur út í heim þá langaði mig að heimurinn kæmi til mín og það gerir hann svo sannarlega í dag,“ segir Kata og ljómar, greinilega sátt við hlutskipti sitt og örlög sín.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR // 51
Úr mannfræði í ferðamennsku „Ég vissi alltaf af þessum sumarhúsum, að þau væru til sölu, en ég vildi vera frjáls. Þarna, á þessum tímapunkti voru aðstæður í lífi mínu þó breyttar og mig langaði að vera heima nálægt móður minni og ákvað að festa kaup á sumarhúsunum. Bróðir minn veitti mér mestu hvatninguna varðandi þessa ákvörðun og þegar hann sagði við mig að hann hefði trú á mér, þá varð það til þess að ég stökk. Það var svo 31. maí árið 2019 sem ég byrja minn eigin rekstur á Sandgerði Cottages í Nátthaga, Suðurnesjabæ. Mér var einstaklega vel tekið af íbúum í Nátthaga og hefur fyrrverandi eigandi og kona hans reynst mér mjög vel. Þegar ég kaupi þá sé ég tækifærin í húsunum og í umhverfinu í kringum þau, þessi hráa, ósnerta náttúra, ströndin, hafið og brimið. Svo auðvitað þetta skipulagða umhverfi sem golfvöllurinn er fyrir þá sem vilja
spila golf. Náttúran í Nátthaga iðar af fuglalífi á sumrin og á veturna eru hér svanir sem dvelja vetrarlangt við tjörnina. Vindarnir blása en hér getur einnig verið stafalogn. Umhverfið er mjög heillandi, bæði fyrir Íslendinga og erlenda ferðamenn. Ég ákvað að leigja mér hús hérna sjálf hjá nágranna mínum og bý í efri byggð Nátthaga og líkar mjög vel,“ segir hún.
Covid og ný tækifæri Það er mjög óvenjulegt að tala við Kötu og heyra viðhorf hennar til Covid því hún segist nýta þennan tíma mjög vel núna til að búa til nýjar hugmyndir og byggja upp innviði fyrirtækisins. Það er ekkert jarm í þessari viðskiptakonu. „Ég byrjaði strax í upphafi að taka á móti gestum, það var alltaf fullt hjá mér, alveg þar til Covid kom, þá varð hlé á traffíkinni. Í fyrstu bylgju nýtti ég tímann til að mála innandyra en svo fór traffíkin af stað aftur. Fyrst voru það Íslendingar og fólkið sjálft
Ég og Kristinn Ingi, sonur minn, ásamt meistara hans í Kína.
Ég og Kristinn, sonur minn, við eitt mustera Angkor Wat í Kambódíu.
sem býr í landinu okkar sem vildi leigja um helgar en svo hafa erlendir ferðamenn einnig verið að koma aftur og leigja af mér. Það er rólegra yfir á virkum dögum en um helgar er nýtingin betri. Frá því að ég keypti húsin þá hef ég tekið þau öll í gegn, uppfært húsin, dúlla og nostra við þau eins og ég vil hafa þau. Set mitt handbragð á stílinn og er enn að. Þetta er rosa gaman og auðvitað oft mjög krefjandi en ég var alla daga fyrsta sumarið að mála utandyra. Nú hef ég verið að hugsa upp nýjar leiðir til að kynna húsin, búa til markaðsáætlun, huga að heimasíðu, uppfæra bókunarkerfið og fleira sem áður vannst ekki tími til. Það er rólegra núna en á meðan nýti ég tímann vel. Ég elska þetta starf, að taka á móti fólki, að búa húsin þannig að fólk finni góðan
anda í húsunum, að öllum líði vel sem koma í Nátthaga. Ég sé þennan stað sem heilunarstað í náttúrunni. Hér í þögninni fær fólk hvíld og ró. Það verður einnig aðalatriðið eftir Covid. Fólk sem er búið að vera heft og lokað inni eða verið hrætt í Covid getur komið hingað og undið ofan af sér. Farið út að labba, verið niður við sjóinn og leyft náttúrunni að hreinsa anda sinn. Ég hef einmitt fengið fullt af svoleiðis gestum, fólk sem er að leita að þessari ró, bæði listafólk, heilbrigðisstarfsmenn og aðrir sem þrá þögnina og nálægð við náttúru. Svo hef ég fengið gesti sem koma í helgardvöl til að kúra inni og njóta þess að fara í heita pottinn, hafa það gott í sveitinni sem er þó staðsett í miðjum Suðurnesjabæ,“ segir Kata hlýlega og bætir við:
Þetta á allt eftir að verða miklu betra „Þegar Covid kom og bókanir urðu allt í einu færri þá tók ég ákvörðun um að þessi tími byði mér upp á tækifæri sem ég hef svo nýtt mér. Þessi tími er mjög dýrmætur. Ég hef ekki orðið hrædd um afkomu mína heldur haft trú á að hingað haldi gestir áfram að streyma og allt í einu fóru hjólin að snúast aftur. Kannski vegna þess að ég sá flæði allan tímann? Ég var jákvæð, hélt í innri frið með því að hugleiða kvölds og morgna og lét ekki hugann hræða úr mér líftóruna. Það skiptir svo miklu máli að hafa kollinn í lagi. Þetta ár hefur gefið mér meiri tíma til að huga að innra starfinu, hvernig ég vil að gestir upplifi dvölina hjá mér. Ég kíkti í heimsókn
Gleðileg jól og farsælt komandi ár
#bus4u_iceland @bus4uiceland Bus4u Iceland ehf. I info@bus4u.is I www.bus4u.is
I c e la n d
+354 421 4444
52 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Í Mið-Ameríku mátti sjá mikið af hermönnum. Hér kynntist ég og Anja, belgískur ferðafélagi minn, tveimur slíkum og fengum við að forvitnast um hugarheim þeirra.
Allskonar ferðamenn geta notið sín hér hjá okkur
Ég ásamt Signe Skriver frá Kaupmannahöfn við búddahof á Tælandi. Í dag er hún ein af mínum bestu vinkonum, heimsflakkari eins og ég. nýlega á Markaðsstofu Reykjaness til að gá hvers konar markaðsþjónustu þau geta veitt mér varðandi reksturinn. Þar var tekið vel á móti mér og ég er komin í samræður við þau um framhaldið, sé enn fleiri ný tækifæri og hvernig uppbyggingu
hægt er að skapa í ferðamennsku á Reykjanesi. Það var virkilega gott að tengjast þeim sem starfa á Markaðsstofu Reykjaness, frambærilegt fólk og við erum að skoða saman skemmtilega möguleika. Það væri gaman að sjá ferðaþjónustuaðila
hér á svæðinu taka höndum saman og einnig þá sem geta boðið upp á upplifanir. Samvinna er ávinningur fyrir alla og ekki síst fyrir Reykjanes sem við viljum koma betur á kortið.“
Kata er ekki eingöngu að hugsa um erlenda ferðamenn heldur veit hún að framtíðin í ferðamennsku á Íslandi snýst einnig um fólkið í landinu. Það má ekki gleyma þeim sem búa hér allt árið, þessu fólki langar einnig að njóta lands síns. Það sáum við svo glöggt í sumar þegar fólk komst ekki til útlanda. Íslendingar og aðrir eru að uppgötva Ísland sem áfangastað og nú þarf að kynna Reykjanes fyrir þeim, töfrana sem eru hér í náttúrunni og því kraftmikla fólki sem býr hér á Suðurnesjum. Kata er með ákveðnar hugmyndir. „Við erum ekki bara að tala um erlenda ferðamenn, heldur einnig fólkið sem býr í landinu. Við viljum fá það til að koma í heimsókn og upplifa magnaða náttúru hér. Náttúruöflin í
Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um
gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári!
Borg
Gistiheimili
Leikskólinn Völlur
Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða!
Tannlæknastofan Skólavegi 10
allri sinni mynd. Það er mjög algengt með erlenda ferðamenn að þeir eyði fyrstu og síðustu nóttinni hér hjá okkur en við þurfum að fá þau til að stoppa lengur, sjá meira af svæðinu. Fólk gerir sé oft ekki grein fyrir hvað svæðið hefur upp á margt að bjóða. Ég veit að landfræðingar og jarðeðlisfræðingar sjá Reykjanesskagann sem hafsjó tækifæra til rannsókna og skoðunar en svæðið er einnig svo dulmagnað. Það er þessi dulúð sem hvílir yfir svæðinu sem getur leitt gesti til okkar, bæði innlenda og erlenda. Það er nóg í boði af upplifunum hér og ef við tökum okkur saman þá getum við skapað öflugan segul á Reykjanesi og haldið ferðamönnum lengur. Þar sé ég tækifæri. Mig langar að gestir sem leita til mín í Nátthaga geti fundið innri frið og ró, tengingu við náttúruna og upplifi ákveðna heilun í náttúrunni. Húsin mín gefa möguleika á alls-
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR // 53
Hér ásamt bresku pari sem ég kynntist í Guatemala þegar gengum við í viku með frumbyggjum um regnskóga Tikal.
konar námskeiðahaldi, heilsudvöl og fleira því sem fólki getur dottið í hug að bjóða upp á. Það eru heitir pottar við hvert hús sem gefur dvölinni enn meira gildi. Fólk elskar að slappa af í heita vatninu í myrkrinu á
kvöldin. Þegar það er stjörnubjart og norðurljósin ljóma, þá gerast töfrar en það er engin ljósmengun í Nátthaga frá ljósastaurum. Hér er fullkomið myrkur á veturna til að njóta norðurljósanna.
Mér finnst æðislega gaman að taka á móti gestum og legg ég mig fram um að vera til staðar fyrir þá. Best er þegar persónuleg tengsl verða. Það er mikilvægt að sjá ferðamanninn og manneskjuna á bak við hann. Þegar upp er staðið er það, það sem við öll viljum, vera séð og heyrð. Þetta veitir mér mestu ánægjuna. Ég elska að hlúa að gestum, nostra við öll smáatriði svo að gestir mínir finni alúð og hlýleika þegar þeir dvelja í húsunum. Það er kannski skrítið en í Covid hef ég fundið fyrir miklu þakklæti þrátt fyrir óvissu og álag. Ég er búin að skoða heiminn í bili. Nú fæ ég heiminn til mín. Lífið hefur kennt mér það að þegar ég fer í gegnum erfiðleika með opnum huga, þá opnast fyrir ný tækifæri. Það versta getur oft breyst í það besta,“ segir Kata að lokum og það er margt til í þeirri lífsspeki hjá þessari kraftmiklu konu. Það verður áhugavert að fylgjast með þróun ferðamennsku næstu mánuði á Suðurnesjum, svæði sem ferðaþjónustan hefur ákveðið að kalla Reykjanes því það nafn er þjálla í markaðssetningu. Myndir: Marta Eiríksdóttir og úr einkasafni Kötu.
Þökkum ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða
Kata í Nátthaga, frístundabyggðinni í Suðurnesjabæ.
Við leigjum út og seljum
VINNULYFTUR af öllum gerðum Skotbómulyftara SMARTLIFT tæki til glerísetningar - Lyfta er umboðsaðili fyrir SNORKEL vinnulyftur og skotbómulyftara. - Lyfta er umboðsaðili fyrir SMARTLIFT tæki til gler og gluggaísetningar. - Kynnið ykkur úrvalið á heimasíðu okkar.
Gleðilegt nýtt bílaár!
REYKJANESBÆ
Við lyftum þér upp !
www.lyfta.is - lyfta@lyfta.is / 421-4037 / 892-7512
REYKJANESBÆR ÓSKAR BÆJARBÚUM GLEÐILEGRA JÓLA OG FARSÆLDAR Á NÝJU ÁRI
54 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
„Margt gott fólk í kringum mig sem gaman er að gleðja með jólagjöf“ Atli Geir Júlíusson er sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs hjá Grindavíkurbær. Hann er giftur Gígju Eyjólfsdóttur og saman eiga þau tvö börn. Atli er Njarðvíkingur, búsettur í Grindvík, sem hefur áhuga á samveru stundum með fjölskyldu og vinum, körfubolta og enska boltanum. – Fyrsta jólaminningin? „Man sérstaklega vel eftir að fangadagskvöldi á mínum yngri árum þar sem við vorum heima hjá ömmu og afa í Hafnarfirði og bróðir hennar mömmu kom í heim sókn frá USA. Einhverra hluta vegna situr þessi jólaminning fast í huga mér enda virkilega skemmtileg minning.“ – Jólahefðir hjá þér? „Það er þó nokkuð um jólahefðir hjá fjölskyldunni og má þar nefna skötuveislur á Þorláksmessu, möndlugrautur á aðfangadag, hamborgarhryggur á aðfanga dagskvöld og jólaboð á jóladag.“ – Ertu duglegur í eldhúsinu yfir hátíðarnar? „Já, ég er duglegur í eldhúsinu yfir hátíðarnar enda mikil áhugamaður um að elda góðan mat – sér í lagi ef grillið er tekið fram, sem er yfirleitt á gamlársdag.“ – Uppáhaldsjólamyndin? „National Lampoon's Christmas Vacation.“ – Uppáhaldsjólatónlistin? „Íslensku jólalögin eru í uppáhaldi. Það er mikið hlustað á jólalög á mínu heimili og sungið með. Jólin hafa undanfarin ár litast af tón leikahaldi og viðburðum með Vox Felix þar sem við hjónin erum bæði meðlimir. Við söknum þess mikið að geta ekki æft og sungið jólalög með kórnum.“ – Hvar verslaðir þú jólagjafirnar? „Þessi jólin voru nánast allar jóla gjafir keyptar á netinu og sendar heim.“ – Gefurðu margar jólagjafir? „Já, við gefum margar jólagjafir, enda margt gott fólk í kringum
mig sem gaman er að gleðja með jólagjöf.“ – Ertu vanafastur um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf? „Jólin eru í nokkuð föstum skorðum en það má kannski segja að hefðir sem voru áður séu að einhverju leyti að detta út, má þar nefna út burð jólakorta, fjölmenn jólaboð o.s.frv. Möndlugrautur hjá tengda foreldrum mínum í hádeginu á aðfangadag er fastur punktur í jólahaldinu, ekki verra að ég fæ yfirleitt möndluna. Þá er haldið til fjölskyldunnar í Njarðvík í hangi kjöt á jóladag.“ – Besta jólagjöf sem þú hefur fengið? „Úff, þegar stórt er spurt. Það sem ég man best eftir er Stigasleði sem ég fékk frá mömmu og pabba þegar ég var polli. Fjöl margar ferðir í Grænásbrekku á þeim ágæta sleða.“ – Hvað langar þig í jólagjöf? „Ekkert sérstakt á jólagjafalistanum hjá mér. Besta jólagjöfin er einfald lega að eyða góðum og verðmætum tíma með mínum nánustu.“ – Hvað er í matinn á aðfangadag? „Blómkálssúpa, hamborgar hryggur og einhver stórkostlegur eftirréttur sem á eftir að ákveða.“ – Eftirminnilegustu jólin? „Fyrstu jólin þar sem við vorum ein saman fjölskyldan og strákurinn okkar á þriðja aldursári. Vorum með steinasteik sem er svo sem ekki frásögu færandi nema hvað dreng urinn fékkst ekki frá matarborðinu þar sem kjötið var svo gott, þetta er líka í fyrsta og eina skiptið sem Bearnaise-sósan hefur klikkað hjá okkur.“
Jólin byrja í messu á aðfangadag Ólöf Kristín Sveindóttir gerir mandarínumarmelaði en dæturnar og eiginmaður sjá um jólabaksturinn – Hver eru fyrstu jólin sem þú manst eftir? „Ég er ekki ein af þeim sem man mikið heilu atburðina frá æsku. Á samt margar litlar minningar sem ylja, eins og jólaskreytingar og smákökur hjá ömmum mínum, ganga í kringum jólatréð heima hjá gamalli frænku, súkkulaðibolla með þeyttum rjóma á jóladagsmorgun, möndlugrautinn og möndlugjöfin, flottu jólafötin sem mamma saumaði á mig.“
Ólöf Kristín Sveindóttir heldur í ýmsar hefðir eins og að gera mandarínumarmelaði en breytir til með mat á aðfangadag. Nú eru samningar í gangi í fjölskyldunni um það. Jólahátíðin byrjar hjá henni þegar hún fer í messu á aðfangadag klukkan 18. – Hvernig hafa jólagjafakaup gengið? „Er bara búin að kaupa eina gjöf og hún var keypt á netinu. Er búin að skoða aðeins og hugsa um hvað ég vil kaupa. Markmiðið er að kaupa allar gjafir á Íslandi og þá helst íslenskar gjafir. Enda þurfum við á því að halda að styrkja hvert annað.“ – Hvað með jólaskreytingar, eru þær fyrr í ár? „Við byrjuðum ekki að setja upp jólaseríur fyrr en fyrsta sunnudag í aðventu. Þá settum við upp útiljósin og í gluggana. Aðventukransinn fór á sinn stað og túlipanar í vasa. Við setjum jólin svo hægt og rólega upp fram að jólum og viku fyrir jól fer tréið upp en við erum oftast með lifandi furu frá skógræktinni. Svo er bara að kvekja á nógu mörgum kertum og njóta.“ – Bakarðu fyrir jólin og ef hvað þá helst? „Hef nánast lagt niður þann góða sið, var mjög dugleg árum áður en ég er svo heppin að stelpurnar mínar og maðurinn minn hafa tekið við að mestu þannig ég fæ að njóta. Ég kaupa nokkuð mikið af mandarínum í desember og bý til mandarínumarmelaði, það er mitt framlag.“ – Hvernig sérðu desember fyrir þér í jólastemmningu í ljósi Covid-19? „Ég sé fyrir mér rólegri aðventu við kertaljós, líklega verður ekki eins mikil dagskrá enda margar hefðir eins og vina- og fjölskylduhittingar,
– Hefurðu sótt messu um jólahátíðirnar í gegnum tíðina? „Við reynum alltaf að fara í messu klukkan 18 á aðfangadag. Fyrir mig er það upphafið á jólahátíðinni en ég ólst upp við að fjölskyldan mín fór oftast í messu á nýársdag.“
tónleikar og leikhús sem falla upp fyrir vegna covid-19 – en ég vona innilega að staðan verði þannig að nánast stórfjölskyldan geti hist og átt góðar stundir. Ég er virkilega farin að sakna samskipta við margra.“ – Eru fastar jólahefðir hjá þér? „Mamma og pabbi hafa boðið okkur systrum og fjölskyldum í hangikjöt á aðventunni. Síðan er bakað piparkökuhús með barnabarninu og málaðar piparkökur. Við höfum alla tíð verið með möndlugraut í hádeginu á aðfangadag og hefur möndlugjöfin verið spil eða púsl sem fjölskyldan hefur notað til að skemmt sér saman og að stytta sér stundirnar fram að jólahaldinu. Eins höfum við hjónin farið yfir helgi í aðventuferð erlendis eða til Reykjavíkur. Farið á eina til tvenna tónleika og oft eru jólaskemmtun með vinnunni og vinkonuhittingur.“
Við óskum íbúum Suðurnesjabæjar og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári með hvatningu um áframhaldandi samstöðu á óvenjulegum tímum.
– Er eitthvað sérstakt sem þig langar í jólagjöf? „Eins og staðan er núna er mín ósk að fjölskyldunni takist að hittast sem flest. Kósýsokkar og góð bók er líka alltaf góð gjöf.“ – Hvað verður í matinn hjá þér á aðfangadagskvöld? „Við höfum ekki verið mjög vanaföst um jólin en síðastliðin ár hefur humar verið eldaður á ýmsan máta í forrétt. Andabringur með súrsætri í hindberjasósu í aðalrétt og svo er Toblerone-ís í eftirrétt. Þessa dagana er fjölskyldan að ræða og semja um breytingar á matseðli. Ég er mjög spennt að sjá hvað verður í matinn.“
Bílaviðgerðir Smurþjónusta Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979 www.bilarogpartar.is
Rétturinn Ljúffengur heimilismatur í hádeginu
HÖNNUN: VÍKURFRÉTTIR
Verið ávallt velkomin í Suðurnesjabæ!
– Eftirminnilegasta jólagjöfin? „Hugsa að það séu skíði sem ég fékk þegar ég var átta ára. Man enn eftir hvað ég varð glöð þegar ég sá hvað var í pakkanum.“
Opið:
11-13:30
alla virka daga
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR // 55
Samvera með fjölskyldunni er mikilvæg á jólum Jóhanna Halldórsdóttir er heimavinnandi og segist vera mikið jólabarn. Hún skreytir þó ekki eins mikið núna og áður. – Bakar þú fyrir jólin og hvað þá helst? „Já, það eru engin jól án vanilluhringja.“ – Hvenær klárar þú að kaupa jólagjafirnar? „Rosalega misjafnt.“ – Hvenær setjið þið upp jólatré? „Núorðið á Þorláksmessu.“ – Eftirminnilegasta jólagjöfin? „Annað tækifæri árið 2009.“
– Ertu mikið jólabarn? „Já.“
– Hvenær eru jólin komin fyrir þér? „Þegar útvarpsklukkurnar hringja inn jólin.“
– Fóru jólaljósin fyrr upp í ár en í fyrra? „Nei.“
– Hefurðu sótt messu um jólahátíðirnar í gegnum tíðina? „Ekki reglulega.“
– Skreytir þú heimilið mikið? „Ekki nú orðið.“ – Áttu einhverja sérstaka minningu frá jólum? „Að vakna á aðfangadag og mamma og pabbi voru búin að skreyta jólatréð.“ – Hvað er ómissandi á jólum? „Samvera með fjölskyldunni.“ – Hvað finnst þér skemmtilegast um jólahátíðina? „Samvera með fjölskyldunni.“
Pantið auglýsingapláss tímanlega. Póstfang auglýsingadeildar er andrea@vf.is
56 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Nú eru sauðir í gamla Krossinum – ekki sauðdrukknir menn Hluti af Krossinum í Njarðvík, einu þekktasta samkomuhúsi landsins, er í Skagafirði. Dagný Maggýjar tók saman ýmislegt skemmtilegt sem tengist Krossinum í Njarðvík. Dagný Maggýjar vf@vf.is
Krossinn í Njarðvík var eitt sögufrægasta samkomuhús landsins en þar komu Hljómar fyrst fram og þar fæddist íslenska bítlið, í það minnsta ef þú spyrð Njarðvíking. Hugsanlega hafa Keflvíkingar aðra skoðun á því. Þetta sögufræga hús endaði lífdaga sína árið 1980 þegar það var rifið og í dag má sjá minningarstein þar sem það stóð við Krossmóa, sem einmitt tekur nafn sitt af samkomuhúsinu. Hins vegar hefur komið í ljós að einn bragginn var keyptur norður í Skagafjörð þar sem hann stendur enn þann daginn í dag og spurning hvort ekki eigi að flytja þessar merku menningarminjar aftur heim í hérað, svona fyrir þá sem gáfust upp á Brautarnesti og gömlu sundhöllinni
Krossinn, eða hluti hans, í Skagafirði gegnir nú öðru hlutverki, sinnir nú öðrum sauðum.
... engir menn með hernaðareinkennum fá að dvelja í húsakynnum félaganna á skemmtunum þess eða öðrum samkomum í húsinu.
Skátastúlkur sýna dans á 20 ára afmæli Skátafélagsins Heiðarbúa í Krossinum í Njarðvík.
IceMar ehf. í Reykjanesbæ þakkar samstarfsaðilum um allt land fyrir traust og vináttu á umliðnum árum. Með óskum um gleðileg jól og heillaríks nýs árs til allra landsmanna.
Krossinn var reistur af ameríska Rauða krossinum á stríðsárunum og tekur þaðan nafn sitt en það þjónaði þá sem hersjúkrahús. Árið 1946 festu Kvenfélag Njarðvíkur og Ungmennafélag Njarðvíkur kaup á húsinu sem var í raun nokkrir braggar með fagurri framhlið. Húsið átti eftir að verða eitt allra vinsælasta samkomuhús Íslandssögunnar um tveggja áratuga skeið eða þar til samkomuhúsið Stapinn var reist. Um húsið urðu nokkur átök þegar Bandaríkjamenn komu aftur til Suðurnesja með sitt varnarlið árið 1951. Þau endurspegluðu viðhorf íslenskra stjórnvalda til varnarliðsins sem beitti harðri einangrunarstefnu enda vildu menn ekki missa fleiri konur til hermanna eins og á stríðsárunum. Tóku þar afstöðu kvenfélagskonur og ungmennafélagið sem samþykktu á sameiginlegum fundi 25. maí 1951 eftirfarandi „... engir menn með hernaðareinkennum fá að dvelja í húsakynnum félaganna á skemmt-
unum þess eða öðrum samkomum í húsinu.“ Þetta átti við um flesta almenna hermenn Bandaríkjahers í Keflavík en þeim var skylt að vera í einkennisbúningum utan vallar og máttu auk þess einungis vera úti til miðnættis á „þurrum“ miðvikudögum þegar ekkert áfengi var afgreitt og alveg örugglega engin böll í Krossinum.
FIMMTUDAG KL. 20:30 HRINGBRAUT OG VF.IS
– framúrskarandi fyrirtæki í sjávarútvegi
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR // 57
Vinsæll samkomustaður
Húsið var gríðarlega vinsæll samkomustaður enda bítlaæðið í algleymingi á sjötta áratuginum og þar voru oft alvöru slagsmál enda Krossinn bara bárujárnsbraggi sem lak í vatnsveðrum ...
Á árunum 1951–1952 var Krossinn leigður Sameinuðum verktökum undir mötuneyti og svefnskála fyrir verkamenn sem unnu á Keflavíkurflugvelli. Þess fyrir utan var hann nýttur til íþrótta- og æskulýðsstarfa og má þar nefna íþróttakennslu, alla almenna íþróttaiðkun, leiklistarsýningar, fundi, skátastarf og fleira. Húsið var gríðarlega vinsæll samkomustaður enda bítlaæðið í algleymingi á sjötta áratuginum og þar voru oft alvöru slagsmál enda Krossinn bara bárujárnsbraggi sem lak í vatnsveðrum. Einn veturinn voru þar haldnir átján dansleikir og ávallt húsfyllir eða um 400 manns. Fyrsta gigg Hljóma var í Krossinum en Ólafur Sigurjónsson, hreppsstjóri og formaður UMFN sem sá um rekstur hússins, leist svo vel á piltana að hann lánaði þeim hljóðfæri svo þeir gætu komið fram – þar með varð íslenska bítlið til. Rúnar Júlíusson sneri hliðinni í áhorfendur fyrsta kvöldið og héldu menn að kappinn væri svona feiminn – en það var ekki ástæðan, heldur var
Krossinn í Njarðvík – í gamla daga.
Gunnar Þórðarson að segja honum til með bassaleikinn svo lítið bæri á. Þeir fengu góðar undirtektir „and the rest is history“ eins og sagt er.
Peningamaskína og lyftistöng Krossinn var mikil peningamaskína og lyftistöng fyrir tómstundir og íþróttir í Njarðvík. Var félagið því betur statt en mörg önnur samskonar félög. Þannig gerðu tekjurnar af Krossinum Njarðvíkingum kleift að byggja íþróttavöll sem var mikið mannvirki á þeim tíma. Fékkst vilyrði fyrir byggingu hans á svokölluðu Nikkelsvæði skammt frá Krossinum og var íþróttavöllur Njarðvíkinga fyrsti grasvöllurinn á Suðurnesjum og með þeim allra fyrstu á landinu. Völlurinn var jafnframt heimavöllur Keflvíkinga auk þess sem Ásgeir Sigurvinsson og félagar hans í knattspyrnuliði ÍBV fengu að nota völlinn eftir gosið í Vestmannaeyjum 1973. Körfuboltamenn úr Keflavík léku með Njarðvík þar sem öll aðstaða til íþróttaiðkunar var betri. Það kom til af því að herinn greiddi hátt útsvar til Njarðvíkurhrepps sem var því vel
Sendum íbúum Suðurnesja hugheilar jóla- og nýárskveðjur
stöndugur. Má þar nefna sem dæmi að þrjár götur í Njarðvík voru steinsteyptar. Sögu þessa merkilega samkomustaðar lauk þegar Njarðvíkingar höfðu komið sér upp betra samkomuhúsi sem fékk nafnið Stapi og var tekið í notkun árið 1965. Sigtryggur Árnason, yfirlögregluþjónn, annaðist niðurrif hans og fór hluti af efninu í hesthús á Mánagrund. Einn bragginn var hins vegar seldur norður í land, nánar tiltekið í Brautartungu í Lýtingsstaðahreppi, þar sem hann stendur nú og þjónar hlutverki fjárhús. Er grindin á bragganum að mestu upprunaleg þótt eitthvað hafi hann verið viðbættur. Þótti mörgum sjónarsviptir af þessu sögufræga samkomuhúsi og því ánægjulegt að hluti þess hafi lifað af þótt hlutverkið sé annað. Þar sem áður voru oft sauðdrukknir menn eru í dag aðeins sauðir – og alls ekki víst að þeir hefðu fílað Hljóma.
58 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Aðventan í Stapaskóla Í upphafi aðventunnar fóru elstu nemendurnir af leikskólastigi í ævintýraferð í Aðventugarðinn þar sem þau skreyttu sinn reit með jólaskrauti sem þau höfðu búið til sjálf. Höfðu nemendur virkilega gaman af þessari ferð og voru stolt af því að geta sýnt bæjarbúum sín verk. Stapaskóli er fremur nýr skóli og erum við að skapa okkar hefðir saman tengdar aðventunni. Ein þeirra er að vera með samkeppni um best skreytta jólagluggann. Í nýju og glæsilegu skólabyggingunni okkar
Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um
gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári!
Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða!
eru gluggar á göngunum þar sem sjá má inn í tvenndirnar (kennslustofurnar). Við ákváðum að nýta okkur þessa glugga þannig að allir geta notið þess að sjá skreytingar árganganna þegar gengið er um ganga skólans. Vegna takmarkanna á skólastarfi eru tveir árgangar staðsettir í bráðabirgðahúsnæði Stapaskóla og skreyttu þeir því glugga þar að þessu sinni. Til að dæma um sigur-
vegara í keppninni voru fengnir fjórir einstaklingar frá ólíkum stofnunum bæjarins auk eins fulltrúa foreldra og höfðu þeir allir á orði að þetta væri skemmtileg hefð og vel að verki staðið hjá nemendum. Fór svo að sigurvegarar í jólaglugga Stapaskóla árið 2020 var 5. bekkur og fengu þau afhentan glæsilegan farandbikar sem að Haukur, smíðakennari, bjó til í laserprentara skólans.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR // 59
Kaupa rafstöð og útbúa tengingar fyrir fjöldahjálparstöð á Sunnubraut „Síðasta vetur kom upp atvik sem minnir okkur á að við þurfum að huga betur að neyðaráætlunum hjá okkur. Vegna óveðurs urðum við að taka við fjölda af fólki sem urðu „úti“ vegna ófærðar á Reykjanesbrautinni. Tekið var við fólki í íþróttarhúsinu við Sunnubraut og hentar það húsnæði ágætlega til þess brúks. Það er tillaga okkar á umhverfissviði að við útfærum þetta húsnæði með þeim hætti að það nýtist okkur við hvers konar vá og við hvaða aðstæður sem er.
Eitt af því er að tryggja að þótt rafmagn fari af sveitarfélaginu þá getum við tengt færanlega rafstöð við húsnæðið og verður því ekki ónothæft vegna rafmagnsleysis,“ segir í kynningu sem lögð var fyrir bæjarráð Reykjanesbæjar. Ráðast þarf í kaup á rafstöð og setja upp tengibúnað í aðaltöflu íþróttahússins við Sunnubraut ásamt tengli á útvegg þannig að hægt sé að koma rafmagni á húsið verði bæjarfélagið án rafmagns í einhvern tíma.
Sendum Suðurnesjamönnum
hátíðarkveðjur
og óskum þeim farsældar á nýju ári.
Frá fjöldahjálparstöðinni í íþróttahúsinu við Sunnubraut síðasta vetur.
FIMMTUDAG KL. 20:30 HRINGBRAUT OG VF.IS
Vallarbraut 12 í Njarðvík. Þriggja herbergja íbúðir í smíðum á besta stað í Reykjanesbæ.
Föstudaginn
eykjanesbæ
NING
skilast fullbúnar að innan 2mm lituðu áli. Áltrégluggar Grindinni. Á gólfum í stofum á öðrum rýmum. Ísskápur r að leggja raflagnir fyrir
AFHENDING
REYNIDALUR 6 VIÐ KAUPSAMNING
13. mars kl. 17.00 –19.00
Nánari upplýsingar hjá söluaðilum: Sendum SuðurnesjaStuðlaberg fasteignasala, mönnum okkar bestu s. 420 4000 Eignamiðlun óskirSuðurnesja, um gleðileg jól s. 420 4050 með þökk fyrir viðEignasalan, s. 420skiptin 6070 á liðnum árum.
60 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Hamingjan kemur með góðu fólki Eitt það besta sem við gerum er að hittast og vera saman, sýna hvort öðru áhuga og athygli, hlusta og segja frá. Nú á covidtímum hefur þetta farið undir vegna smithættu. Einmanaleiki hefur líklega aukist mest hjá eldri borgurum og þeim sem búa einir. Góð kærleiksrík félagsleg tengsl hafa góð áhrif á almennt heilsufar, þar með talið minni, líkamsstarfsemi og andlega virkni. Allar rannsóknir sýna að einmanaleiki veldur hrumleika en það fólk sem hittir títt aðra, á með þeim góðar samverustundir, lifir lengur og heilsan er betri. Við þurfum hvert annað. Hversu hamingjusöm við erum byggist á nánum samskiptum við einhvern nákomin, fólk sem við treystum og getum talað við um okkar innstu tilfinningar. Það hefur góð áhrif á lífsgæði okkar og almenna vellíðan. Kórónuveiran hefur skilið eftir sig sviðna jörð á mörgum stöðum, ekki aðeins á meðal þeirra sem urðu veikir vegna hennar, heldur einnig hjá þeim sem hættu að stunda félagslíf eða gátu ekki farið í ræktina vegna lokunar.
Í einstaka tilvika er farið þrisvar, fjórum sinnum á sama heimili á dag. Það starfa rúmlega tuttugu hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar í heimahjúkrun og á morgnanna fara um tíu þeirra í vitjanir í hvaða veðri sem er því það eru skjólstæðingar úti í bæ sem þarfnast umönnunar, eftirlits eða lyfja sem þær sjá um að gefa þeim.
Við getum alveg sagt að þetta séu hetjur hvunndagsins, konurnar sem starfa á bak við tjöldin og sinna þeim sem þurfa aðhlynningu. Já, þetta eru allt starfskonur á besta aldri, hressar og ferskar. Margrét Blöndal er deildarstjóri heimahjúkrunar og Vigdís Elísdóttir er aðstoðardeildarstjóri en báðar eru þær menntaðir hjúkrunarfræðingar.
Margrét Blöndal, deildarstjóri heimahjúkrunar.
Frábær hópur starfsfólks
Heimahjúkrun brúar bilið
Á Suðurnesjum er starfandi mjög öflug heimahjúkrun á vegum Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, HSS, ein sú besta á landinu segja margir. Fagfólkið sem starfar þar fer inn á um það bil 100 heimili alla daga og oft tvisvar á dag, allan ársins hring.
HARÐUR PAKKI UNDIR JÓLATRÉÐ?
TILBOÐSVERÐ:
4.599.5.999.TILBOÐSVERÐ:
6.299.Verð:
8.499.Fávitar
AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG LAUGAVEGI • AKUREYRI • VESTMANNAEYJUM
Ísland - Náttúra og undur
Austurstræti 18 Skólavörðustíg 11 Laugavegi 77 Hallarmúla 4 Álfabakka 16, Mjódd
Kringlunni norður Kringlunni suður Smáralind Hafnarfirði - Strandgötu 31 Keflavík - Krossmóa 4
„Tilgangur heimahjúkrunar er að veita öllum sem ekki eiga heimangengt heilbrigðisþjónustu og hjúkrun. Aldursbil skjólstæðingahópsins er 0 til 110 ára. Langflestir eru þó í hópi aldraðra eða um 80%. Stundum fáum við það verkefni að gefa mjög ungum börnum lyf í æð, við sinnum einnig líknandi þjónustu og eftirliti með einstaklingum sem glíma við langvinna sjúkdóma. Í samstarfi við lækni getum við brugðist við með því að draga úr einkennum sjúkdóma í heimahúsi og þannig komið í veg fyrir innlögn. Við vinnum í nánu samstarfi við D-deild HSS og skipuleggjum hvíldarinnlagnir í þeirri samvinnu. Í langvarandi veikindum fólks vilja sumir komast í öryggi á hjúkrunarheimili en stundum er löng bið eftir plássi. Hlutverk okkar er að brúa þetta bil með því að veita viðeigandi þjónustu í samráði við skjólstæðinga okkar og oft aðstandendum þeirra.“
Vigdís Elísdóttir, aðstoðardeildarstjóri heimahjúkrunar.
Verð:
Café
Við mæltum okkur mót við þær á covid-tímum og ræddum stöðuna. „Í öllu veðri fara tíu konur frá okkur út í bæ, á alla bæi sem þurfa þess með, stundum frá Hvassa hrauni og til Suðurnesjabæjar, allt nema til Grindavíkur sem eru með eigin heimahjúkrun. Þetta eru konurnar sem við getum alveg kallað hetjur. Þær hafa hjartað á réttum stað í starfi sínu og þurfa að halda vel á spilunum til að ná að sinna öllum 190 skjólstæðingum okkar svo vel sé. Þjónustan er veitt alla daga ársins, það er aldrei frí,“ er það fyrsta sem Margrét hefur orð á og nefnir að teymi heimahjúkrunar er skipað einum lækni, sjúkraliðum og hjúkrunarfræðingum. Lítil nýliðun hefur verið í starfshópnum, sem segir okkur margt varðandi starfsánægju hópsins og er meðalaldur starfsmanna um fjörutíu, fimmtíu ár. Margrét heldur áfram að fræða lesendur um heimahjúkrun:
Akureyri - Hafnarstræti 91-93 Akranesi - Dalbraut 1 Ísafirði - Hafnarstræti 2 Vestmannaeyjum - Bárustíg 2 Húsavík - Garðarsbraut 9
540 2000 | penninn@penninn.is | www.penninn.is | www.eymundsson.is
Vöruúrval mismunandi eftir verslunum. Tilboðsverð gilda til og með 14. desember. Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um villur og myndabrengl.
„Heimahjúkrun og félagsþjónustan vinna náið saman til að brúa þetta bil svo að fólk geti verið sem lengst heima. Það eru fleiri aldraðir í dag sem þurfa aðstoð heima og það hefur aukist á covid-tímum,“ segir Vigdís.
Fylgst vel með öllum „Í upphafi dags er alltaf fundur hjá okkur áður en starfsfólkið fer út í vitjanir og svo er aftur fundur um miðjan dag eftir vitjanir. Það er alltaf verið að fylgjast með öllum, sérstakt skráningarkerfi er skoðað kvölds og morgna til að sjá hvort einhver hafi farið inn á bráðamóttöku af skjólstæðingum okkar en á hverjum tíma erum við með um 190 manns í þjónustunni. Við fylgjumst vel með og aðstandendur hafa samband við okkur, það er ávallt velkomið. Starfsfólkið okkar er að gefa af sér, fara inn á allskonar heimili og að vinna við allskonar aðstæður. Allir eiga rétt á heimahjúkrun og fólki er vísað til okkar frá læknum, sjúkrahúsi, geðdeild og taugadeild svo eitthvað sé nefnt. Sumir þurfa langtímaþjónustu á meðan aðrir útskrifast fljótt frá okkur. Við viljum vera í góðum tengslum við alla. Við erum á margan hátt heppin hér á Suðurnesjum, því við búum á þéttbýlissvæði sem gerir það að verkum að létt og fljótt er að fara á milli staða. Það er mikill kostur. Suðurnes eru einnig ungt samfélag samanborið við annarsstaðar á landinu og samfélagið byggt kraftmiklum einstaklingum sem láta sig varða um hvernig HSS þróast. Það er áríðandi að vera með góða heilbrigðisþjónustu og að því stefnum við á hverjum degi hér hjá heimahjúkrun. Það er mikill metnaður hjá okkur í starfi og mjög góð samstaða í teyminu okkar,“ segir Margrét og leggur áherslu á orð sín. Þarna er yfirmaður sem brennur fyrir starfi sínu.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR // 61
Góðar breytingar framundan „Það er svo mikið í deiglunni hjá okkur hjá HSS. Fólk á eftir að sjá miklar breytingar næstu árin og jafnvel mánuði, covid er reyndar að tefja fyrir áætlunum yfirstjórnar. Nýlega var ráðinn mannauðsstjóri og til stendur að ráða gæðastjóra. Það er heilmargt í pípunum, miklar og góðar breytingar í vændum. Yfirstjórn HSS er að leggja drög að breytingum sem við starfsfólkið teljum mjög góðar og stofnuninni til heilla. Það verða einnig breytingar á skipulagi hússins bæði fyrir skjólstæðinga og starfsfólk. Breytt starfsumhverfi er í vændum. Við finnum að meiri stöðugleiki er að aukast í starfsmannahópnum, hér starfa sumar deildir með sama starfsfólki ár eftir ár. Fleiri hjúkrunarfræðingar og sjúkra-
liðar taka til starfa, fólk sem vill búa hér á svæðinu sem er mjög gott. Við höfum verið með flotta lækna hjá okkur vil ég segja, einhverjir eru búsettir hér og aðrir hafa ekið Reykjanesbrautina en starfað hér suður frá í nokkur ár. Við höfum þá trú að fleiri eigi eftir að sækjast eftir stöðu hjá HSS þegar fram í sækir. Það eru meiri lífsgæði fólgin í því að starfa í litlu samfélagi, húsnæðið er einnig mun ódýrara hér en á höfuðborgarsvæðinu. Við viljum sjá öfluga starfsemi hér og góða þjónustu, það er takmark okkar og umræðan er farin af stað innanhúss með góðum vilja yfirmanna og starfsmanna. Það er einnig mjög góð stemmning í húsinu, það verður að segjast eins og er. Covid hefur auðvitað haft áhrif á allt en dæmi um skemmtilegt samstarf á milli deilda í fyrra á léttu nótunum var þegar deildirnar skreyttu hjá sér
fyrir jólin. Það var sannkallað hópefli. Við ætlum að gera það aftur í ár þó svo við getum ekki komið öll saman í lokin til að fagna jólum,“ segir Margrét. „Við getum alveg sagt að stofnunin sem slík sé að breytast til hins betra. Almenningur, fólkið á Suðurnesjum, hefur alltaf haft skoðanir á starfsemi HSS og það er bara gott. Öll viljum við að HSS þjóni vel fólkinu á svæðinu. Orðsporið þarf að uppfæra því stofnunin er að breytast til hins betra. Reynslan mun sýna okkur að bjartir tímar eru framundan í starfsemi HSS en fyrst þarf að stöðva covid, veiruna sjálfa ,“ segir Vigdís.
Munum eftir ömmu og afa „Já, veiran hefur kennt okkur margt og ég reikna með að margt gott muni líta dagsins ljós þegar veiran
er horfin. Veiran gefur okkur tækifæri til að horfa inn á við, skoða hvað skiptir máli í lífi okkar og hverjir skipta máli. Við þurfum að muna eftir að sinna eldra fólkinu í fjölskyldum okkar. Ekki láta það vera afskiptalaust, það getur reynst þeim afdrifaríkt og mjög slæmt. Við viljum öll vera hamingjusöm. Öryggi og hlýja, samskipti við aðra gerir okkur hamingjusöm. Ömmur og afar, gamla fólkið okkar þarf á okkur að halda núna, þegar það kemst ekki í félagsstarfið sitt eða út úr húsi vegna covid og enn frekar nú í vetrarmyrkri og kulda. Verum góð hvert við annað. Kíkjum í heimsókn til okkar nánustu, ein lítil heimsókn getur breytt deginum í góðan dag. Bara það að eiga þessi samskipti, tala saman og hlusta á hvað hinn hefur að segja í fréttum. Ég veit að sonur minn er að gleðja langömmu sína
mikið á þessum tímum en hann er mjög hændur að henni og fer þangað í heimsókn mjög oft. Hún hefur yndi af því að gefa honum að borða og leyfa honum að læra hjá sér. Það þarf ekki mikið til að finna að við skiptum máli í lífi annarra. Við verðum öll að finna að við skiptum máli. Hægjum á okkur og verum meira saman. Við kunnum öll á smitvarnir, veiran er búin að kenna okkur það,“ segir Margrét.
Með hjartað í starfinu „Við erum mjög spenntar með þær breytingar sem framundan eru hjá HSS, starfið okkar verður enn betra. Já, það er nú þegar mjög gott samstarf innan veggja hússins og nýlega gerðum við þjónustusamning við Reykjanesbæ í samstarfi við stuðningsþjónustu félagsþjónustunnar. Það á einnig eftir að skila góðu. Það eru allir af vilja gerðir að gera sitt allra besta. Við erum öll með hjartað í starfinu,“ segir Vigdís. „Ég vil nefna þátt Reykjanesbæjar í heilsueflingu eldri borgara með Janusi og þakka kærlega fyrir það framtak. Janusarverkefnið er stórkostlegt framlag bæjaryfirvalda til að efla þegna sína, halda þeim frískum lengur sem gefur okkur færri veikindi og betra samfélag. Að lokum vil ég segja að heimahjúkrunin hjá HSS er eins og blóm í eggi. Við erum í draumaumhverfi við kjöraðstæður því hér höfum við aðgang að bráðamóttöku, heilsugæslu, blóðrannsókn og D-álmu. Það eru stuttar boðleiðir og samstarfið og metnaðurinn er mikill á meðal deilda. Það ber að þakka,“ segir Margrét og við kveðjum og óskum HSS alls hins besta. Myndir: Marta Eiríksdóttir/ Víkurfréttir
Marta Eiríksdóttir
Starfsfólk í heimahjúkrun jólin 2019. VF-mynd/pket.
marta@vf.is
VIÐ BJÓÐUM YKKUR HJARTANLEGA VELKOMIN Í DESEMBER Glæsilegar gjafir í jólapakkana fyrir alla fjölskylduna. Hlökkum til að sjá ykkur.
Apótekarinn Keflavík
Apótekarinn Fitjum
Aðfangadagur 24. desember kl. 9–12
Gamlársdagur 31. desember kl. 9–12
Aðfangadagur 24. desember kl. 10–12
Gamlársdagur 31. desember kl. 10–12
Jóladagur 25. desember LOKAÐ
Nýársdagur 1. janúar LOKAÐ
Jóladagur 25. desember LOKAÐ
Nýársdagur 1. janúar LOKAÐ
Annar í jólum 26. desember kl. 10–14
2. janúar kl. 10–14
Annar í jólum 26. desember LOKAÐ
2. janúar LOKAÐ
27. desember kl. 10–14
3. janúar kl. 10–14
27. desember LOKAÐ
3. janúar LOKAÐ
28. desember kl. 10–19
4. janúar kl. 10–19
28. desember kl. 10–18
4. janúar kl. 10–18
Apótekarinn Keflavík Suðurgötu 2 S: 421 3200
Apótekarinn Fitjum Fitjum 2 S: 534 3010
- lægra verð
62 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Börnin á Tjarnarseli fengu heitt súkkulaði og piparkökur Góðar hugmyndir kvikna oft á óvenjulegum tímum
Malt, appelsín og hangikjöt ómissandi á jólum Bryndís Rúnarsdóttir, kokkur í Landsbankanum í Reykjanesbæ, segir að aðventan sé skemmtilegust. Yfir jólin eigi að slappa af, vera með fjölskyldunni og borða góðan mat. – Ertu mikið jólabarn? „Já, ég mundi segja það.“ – Fóru jólaljósin fyrr upp í ár en í fyrra? „Útiljósin fóru fyrr upp í ár en ekki inniskrautið.“ – Skreytir þú heimilið mikið? „Bara svona meðal held ég.“ – Áttu einhverja sérstaka minningu frá jólum? „Já, jólin 1999 eignaðist ég mitt yngsta barn 28. desember og jólin 2015 fékk ég barnabarn á jóladag. Dóttir mín var hjá okkur á aðfangadagskvöld, var með hríðar það kvöld
og var komin á fæðingardeildina á jólanótt það var svolítið sérstakt en yndislegt.“ – Hvað er ómissandi á jólum? „Malt og appelsín og hangikjöt.“ – Hvað finnst þér skemmtilegast um jólahátíðina? „Mér finnst aðventan skemmtilegust svo bara að slappa af og vera með fjölskyldunni og borða góðan mat.“ – Bakar þú fyrir jólin og hvað þá helst? „Ég gerði það alltaf en undanfarin ár hef ég bakað lítið, lakkrístoppar eru vinsælastir.“
SENDUM ÍBÚUM Í VOGUM BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT NÝTT ÁR
FIMMTUDAG KL. 20:30 HRINGBRAUT OG VF.IS
– Hvenær klárar þú að kaupa jólagjafirnar? „Ég reyni að vera búin í byrjun desember.“ – Hvenær setjið þið upp jólatré? „Svona viku fyrir jól.“ – Eftirminnilegasta jólagjöfin? „Ég á erfitt með að segja eitthvað eitt en allt sem föðuramma mín, Stína í Réttarholti, gaf mér var alltaf í einhverju uppáhaldi. Það var gefið af svo mikilli ást og kærleika.“ – Hvenær eru jólin komin fyrir þér? „Þegar ég er búin í skötunni og hlusta á jólakveðjurnar í útvarpinu og finn ilminn af hangikjötinu.“ – Hefurðu sótt messu um jólahátíðirnar í gegnum tíðina? „Ég er alin upp við það en eftir að ég átti yngsta barnið datt það einhvern veginn upp fyrir. Ég er alltaf með alla í mat og mamma mín meðhjálpari í kirkjunni. Mér fannst ég þurfa að vera heima.“
„Aðventan á leikskólanum Tjarnarseli einkennist gjarnan af gömlum og góðum hefðum sem skapast hafa í áranna rás og okkur þykir vænt um – en á óvenjulegum tímum þarf að bregða út af vananum og þá kvikna oftar en ekki góðar hugmyndir,“ segir Ingibjörg Sif Stefánsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri á Tjarnarseli. Á þessari aðventu var ekki hægt að bjóða öllum foreldrunum í hefðbundna jólastund eins og venja er og því var brugðið á það ráð að breyta til og halda jólastundina okkar úti við í fallega garðinum í þessum elsta leikskóla Reykjanesbæjar. „Eldsnemma einn morguninn núna á aðventunni var haldið út í morgunrökkrið og kveikt upp í eldstæðinu okkar. Í góða pottinn fór svo heitt súkkulaði sem mallaði þar á meðan börnin týndust út eitt af öðru. Við ljúfa jólatóna hópuðust börnin í kringum jólatré sem þau höfðu smíðað sjálf við upphaf aðventunnar og skreytt ljósum í tilefni dagsins. Gengið var í kringum jólatréð og litlir og örlítið stærri kroppar sungu og dilluðu sér í takt. Eftir dansinn var kærkomið að setjast niður með vinum sínum og fá sér heitt súkkulaði og piparkökur að kjamsa á. Gott er að finna að jólaandinn kemur sannarlega innan frá, þó hefðir breytist og bátur vanans ruggi eilítið í vetrarsjó,“ sagði Ingibjörg Sif.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR // 63
Guðný Birna bakar lakkrístoppa og piparkökur með dótturinni á aðventunni
Allt jólaskraut komið upp 1. desember Guðný Birna Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ og meistaranemi, hefur haft meiri tíma til að jólaskreyta meira og hún hefur verið dugleg að kaupa jólagjafir. Jólagjöfin sem hún óskar er svolítið sérstök. – Hvernig hefur gengið að kaupa jólagjafir? „Ég er búin að kaupa flestar jólagjafir. Mér finnst svo erfitt að vera að þessu á síðustu stundu eins og venjan er en þar sem ég er í námi þá hef ég mun meiri tíma til að sinna erindum eins og þessum. Mest hef ég keypt á netinu þar sem maður vill vera minna í búðum núna en reyni að versla allt sem ég get í Reykjanesbæ.“ – Hvað með jólaskreytingar, eru þær fyrr í ár? „Klárlega. Skipulagða árið mitt 2020. Allt skraut komið upp fyrir 1. des nema jólatréð, finnst það aðeins of snemmt.“
– Skreytir þú heimilið mikið? „Já, eins mikið og ég get áður en maðurinn minn fer að kvarta. Þá veit ég að ég hef farið yfir strikið.“
þrífa. Við erum alltaf með jólamat heima hjá okkur og erum oftast með gesti hjá okkur. Nú verða allar stelpurnar saman, mamma kemur og systur mínar.“
– Bakarðu fyrir jólin og ef hvað þá helst? „Já, dóttir mín elskar að baka og við gerum lakkrístoppa og piparkökur, eitthvað sem er ekki svaka flókið. Hef ekki þolinmæði að standa yfir þessu allan daginn.“ – Hvernig sérðu desember fyrir þér í jólastemmningu í ljósi Covid-19? „Bara ágætan. Aðalatriðið er að kjarnafjölskyldur nái að hittast og njóta saman örugg.“
– Hvernig eru fyrstu jólin sem þú mannst eftir? „Ég man eftir jólaboði hjá ömmu og afa á Faxa brautinni. Ég man bara hvað það var gaman þegar við systurnar vorum að leika okkur og allir virkuðu svo glaðir. Afi dó svo í desember þegar ég var sex ára og jólin voru lengi vel ekki hátíðleg stund – en með tímanum lærir maður að minnast fólks með kærleika og gleði þó að þau séu ekki lengur til staðar hjá manni.“
– Eru fastar jólahefðir hjá þér? „Já, ég horfi alltaf á Hobbitann og Lord of the Rings myndirnar meðan ég skreyti húsið á hverju ári. Það kemur mér í þvílíkt jólaskap og fínt að hafa eitthvað undir þegar maður er að
– Hefurðu sótt messu um jólahátíðirnar í gegnum tíðina? „Já en ekki oft. Mér finnst kjarni jólanna vera heima með fjölskyldunni. Þegar við erum búin að opna pakkana og borða yfir okkur þá
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis sendir félagsmönnum sínum og landsmönnum öllum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.
leggjumst við saman í sófann og ég fer að lesa bókina sem ég fæ í jólagjöf, yndisleg stund.“ –Eftirminnilegasta jólagjöfin? „Gunni, maðurinn minn, gaf mér veski í jólagjöf sem ég var búin að þrá í mörg ár. Fallegasta og hugljúfasta gjöf sem ég hef fengið – en best er samt að vera heilbrigður og fagna með fólkinu okkar.“ – Er eitthvað sérstakt sem þig langar í jólagjöf? „Bólusetningu fyrir Covid og samveru með fjölskyldu og vinum.“ –Hvað verður í matinn hjá þér á aðfangadagskvöld? „Við erum með blómkálssúpu í forrétt og hamborgarhrygg í aðalrétt. Erum yfirleitt aldrei með eftirrétt enda allir sprungnir eftir matinn.“
64 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
VÍKURFRÉTTIR Í 40 ÁR // Hinrik í Merkinesi í Víkurfréttaviðtali árið 1987
„Refurinn hefur mannsvit eða meira“ – segir Hinrik í Merkinesi, eldhress á 89. aldursári Í Merkinesi, rétt suður af Höfnum, búa hjónin Hólmfríður Oddsdóttir og Vilhjálmur Hinrik Ívarsson, veiðimaður og fyrrverandi hreppsstjóri. Hinrik er á 89. aldursárinu, nítjándu aldar eintak, eldhress, minnugur og fylgist vel með. Hann er þráðbeinn í baki, grannur og ber sig eins og þrítugur nútímaskrifstofumaður, í góðu formi. Svo trúr er Hinrik eðli sínu, að þrátt fyrir nálægð Keflavíkurflugvallar, hefur aldrei hvarflað að honum að vinna þar. Enn síður hafa ýmis trúnaðarstörf og embættissýsla haft áhrif á skapgerð hans eða framkomu. Mér er næst að halda að Hinrik í Merkinesi hafi sjaldan eða aldrei yrt á mann án þess að koma honum í gott skap eða þá að minnsta kosti gert hann hissa – en það er það næsta sem sumir menn komast góðu skapi.
Í stuttu spjalli við hjónin nú í byrjun desember staðfesti Hinrik enn einu sinni þessa skoðun mína. Þrátt fyrir skammdegið var sólskin í sálum þeirra beggja.
Man ekki betri tíð „Ég minnist ekki betri tíðar en verið hefur allt þetta ár,“ sagði Hinrik þegar talið barst að veru hans á Suðurnesjum. Ég kom fyrst í Hafnirnar
1926, þá til bátasmíða og sjóróðra frá Kalmannstjörn. Hingað í Merkines fluttum við svo árið 1934. Þá var nú lífsbaráttan erfiðari en hún er í dag, góði minn. Maður varð að treysta á sjálfan sig og sjóinn. En allt hefur þetta blessast. Hér höfum við komið fimm börnum til manns, sem öll eru á lífi nema hann Vilhjálmur okkar, sem lést af slysförum út í Lúxemborg árið 1978.“
Jólakveðja
Félag eldri borgara á Suðurnesjum sendir kærar kveðjur til félagsmanna sinna með ósk um gleðileg jól og farsælt nýtt ár sem færir okkur gleði, hamingju og samverustundir sem allir geta tekið þátt í. Við bjóðum nýja aðila velkomna sem eru 60 ára + Umsókn um aðild með nafni, kennitölu og heimilisfangi sendist á netfang: gjaldkerifebs@simnet.is eða í síma: Loftur 860-4407 og Guðrún 899-0533 Með jólakveðju Fyrir hönd stjórnar, Guðrún Eyjólfsdóttir, formaður
Nóg að gera í bátasmíði „Ég er ættaður úr Grímsnesinu og Eyrarbakka,“ sagði Hinrik þegar ég spurði um uppruna þeirra hjóna. „Ég fór ungur til Reykjavíkur og lærði húsasmíði hjá Bjarna Símonarsyni. Þar kynntist ég Fríðu minni, hún er Reykvíkingur. Reyndar var ég skipverji á Sterling þegar bróðir hennar bauð mér heim til sín. Þar sá ég hana fyrst og síðan hefur hún setið uppi með mig. Það var góður maður, bróðir hennar Fríðu, skal ég segja þér. Hann hjálpaði mér við að smíða fyrsta bátinn sem ég smíðaði. Hvorugur okkar hafði komið nálægt bátasmíði fyrr. En svo vel tókst til að margir báðu mig að smíða fyrir sig báta, strax eftir þennan fyrsta – og nóg var að gera. Stundum voru svo margir að hjálpa til að ég hafði nóg að gera við að sníða efnið og bera það við. Ég þurfti ekki að hnoða einn einasta nagla sjálfur. Þetta voru nær eingöngu sexæringar og áttæringar, sannkallaðir „ballgeirar“. Við töldum einu sinni 1.160 þorska upp úr áttæringi sem ég smíðaði og réri héðan frá Merkinesi. Núna smíða ég bara eftirlíkingar af áttæringum, nákvæmar eftirlíkingar sko, með rá og reiða – og eftirspurnin er sú sama og áður. Ég er að byrja á þeim sjötugasta og fjórða. Ég er jafn lengi að smíða hvern bát núna og þá stóru áður. Pantanirnar eru svo margar að ég efast um að mér endist ævin til að klára þær allar, það held ég nú.“
Töfrabragð í tóbaki Hinrik gerir hlé á frásögninni. Hann situr teinréttur í stólnum og tekur tappann úr tóbakspontunni, sem hann hefur handleikið allan tímann, hellir góðum slurk úr henni á handarbak vinstri handar og með vísifingri hægri handar sópar hann tóbakinu saman í stóran, háan hrygg. Með virðulegri sveiflu ber hann hendina upp að nefinu, þar sem hvert einasta korn af tóbakinu hverfur. Þetta er eins og vel æft töfrabragð sjónhverfingamanns.
– Ertu mikill tóbaksmaður Hinrik? Hann hlær við en segir svo, alvarlegur í bragði: „Ég myndi nú telja það vægt til orða tekið. Það má segja um mig, eins og sagt var um manninn, „hann var ákafur tóbaksmaður“. Ég er búinn að taka í nefið frá átján ára aldri, já í rúm sjötíu ár, og verð alveg brjálaður ef ég verð tóbakslaus.“ – Þú ert þá búinn að taka eitt tonn af tóbaki í nefið á þessum tíma? Nú setur Hinrik alveg hljóðan smástund. „Heldurður það? Nei andskotinn, það getur ekki verið,“ segir hann að lokum og heldur áfram: „Heyrðu, ég náði einni um daginn, sem er alveg meistaraverk. Hún er um einhvern kvenmann: Hennar leið var löng á mið lífs því eyðast snæri. Hún var að greiða og gera við gömul veiðafæri.“
Veiðiskapur til sjós og lands – Nú ert þú lærður húsasmiður. Vannst þú aldrei við þá iðn? „Jú, jú, mikil ósköp. Ég byggði ein tíu hús í Höfnunum og ég man ekki hvað mörg önnur á skaganum. Ég byggði t.d. samkomuhúsið í Sandgerði – en
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR // 65 smíðarnar voru nú eiginlega bara aukavinna, sem ég stundaði aðallega yfir veturinn. Ég var bóndi í Merkinesi, með skepnur sem þurfti að hugsa um og svo stundaði ég sjóinn á hverju sumri og langt fram á haust. Ég var nú orðinn einn á í lokin. Á vorin stundaði ég refa- og minkaveiðar fyrir hreppinn, alveg frá Reykjanestá að Stafnesi. Aðalvinnan var náttúrlega veiðiskapur, bæði til sjós og lands. Til að ná árangri í veiðimennsku verður maður að gjörþekkja háttalag dýrategundarinnar sem maður er að spreyta sig við hverju sinni. Það gildir ekki sama aðferðin við þorskinn og refinn, góði minn.“ Hinrik tekur upp úr vasa sínum stóran, rauðan tóbaksklút og snýtir sér hressilega, sannkölluð hreppsstjórasnýta það. Um leið og hann brýtur klútinn vandlega saman segir hann hvatlega: „Hefur þú heyrt þessa?: Lífs mér óar ölduskrið er það œrinn vandi, að þurfa að róa og þreyta við þorska á sjó og landi.“
Refurinn vitur „En refurinn er vitur skepna. Hann hefur mannsvit eða meira. Þefskynið og heyrnin eru með ólíkindum. Að vissu leyti ber ég virðingu fyrir rebba og oft átti ég bágt með að skjóta hann. Einu sinni lá ég við greni í Haugsvörðugjá, hérna upp í hrauninu. Ég var búinn að vinna læðuna en rebbi hafði góðar gætur á mér og gætti þess alltaf, ef ég hreyfði mig, að láta vindinn standa af mér. Þó hann sæi mig ekki sagði þefskynið honum til um hvar ég var staddur. Ég var búinn að reyna öll ráð sem ég kunni þegar mér datt í hug að fara úr utanyfirflíkunum, buxunum og peysunni, og breiða það á stein sem þarna var. Ég læddist svo upp í vindinn góðan spöl, fór síðan í langan krók aftan að honum og náði honum þannig – en hljóðlega varð ég að fara. Sama skeði aftur, löngu seinna, við greni hjá selinu hérna fyrir innan, rétt upp af vötnunum, en þar var landið miklu flatara svo ég komst hvergi í skjól eða hvarf frá
og flýtur. Annars sekkur hann eins og steinn. En það er ljúffengt af honum kjötið. Einu sinni var ég að koma sunnan úr röst þegar ég rekst á höfrungavöðu út af Berginu. Og hvað heldurðu? Ég náði því að skjóta tvo. Þá var nú völlur á karli og hver einasta fjölskylda í Höfnum fékk eins mikið kjöt og hún vildi. Maður varð að nota hvert einasta tækifæri sem gafst til að afla matar. En aldrei hef ég skotið rjúpuna, eins og hún var gæf hér í hrauninu stundum.“
Fyrst og fremst veiðimaður „Já, góði minn. Ég er fyrst og fremst veiðimaður. Það er mitt eðli og kannski stundum tækifærissinni,“ segir þessi aldna kempa að lokum og hlær við. Það hvarflaði að mér á heimleiðinni hvort Davíð Stefánsson hefði haft Hinrik í huga þegar hann orti:
„Núna smíða ég bara eftirlíkingar af áttæringum, nákvæmar eftirlíkingar sko, með rá og reiða – og eftirspurnin er sú sama og áður. Ég er að byrja á þeim sjötugasta og fjórða. Ég er jafn lengi að smíða hvern bát núna og þá stóru áður.“ rebba. Ég fer því niður í Hafnir og bið Þorbjörn Ben. að hjálpa mér að plata refinn. Ég segi Bjössa nákvæmlega hvert hann eigi að fara og geng úr skugga um að rebbi bíði enn á sama stað. Meðan kauði beinir allri athyglinni að Bjössa læðist ég aftan að honum og kemst í skotfæri og hleypi af. En hvað skeður? Byssan klikkar í fyrsta og eina skiptið. Rebbi heyrði klikkið og tók á rás. Hann hljóp í seilingarfjarlægð frá mér. Ég hafði nægan tíma til að setja annað skot í byssuna en ég fékk mig ekki til að skjóta hann, greyið. Já, sérviskan tekur stundum af manni ráðin.“
Refurinn lifir af fræjum, fuglum og hræjum. Ef sérstaklega hart er í ári eiga þeir það til að leggjast á fé en ekki nærri allir. En því miður er það ástæðan fyrir því að talið er nauðsynlegt að eyða honum – en hann drepur aldrei meira en hann étur hverju sinni. Nú eru teknir við þessu starfi ungir og bráðflinkir menn. Síðastliðið ár náðu þeir 70 refum – en minkurinn, það helvíti, er algjör ófreskja og vargur í öllu lífríki. Ég þjálfaði þrjá hunda, sem ég átti, til að vinna á honum. Ég vil helst ekki tala um minkinn, svo svakalegur er hann.“
Nælonsokkar eini skaðinn
Aldrei átt bíl
Þegar Hinrik segir veiðisögur gerir hann það með tilheyrandi látbragði og spennu. Spennan dvínar þegar hann heldur áfram. „Ég tók marga yrðlinga í fóstur. Þeir gengu hér lausir og léku sér á túninu og í eldiviðarhlaða hér framan við húsið en sváfu í kjallaranum. Einn fylgdist
alltaf með þegar náð var í kýrnar, hann lét sig aldrei vanta. Annar átti það til, þegar krakkarnir voru að hoppa í París, að leggjast á steinvöluna sem notuð var og verja hana með kjafti og klóm. Eitt sinn var hér í heimsókn prestur utan af landi. Hann hafði gengið út á hlað til að viðra sig. Þegar mig fór að lengja eftir honum gekk ég út og sá hann á hnjánum framan við viðarhlaðann. Ég geng til hans og spyr: „Hvað er að séra minn?“ Klerki bregður en rís á fætur og segir grafalvarlegur: „Ég er handviss um að ég sá tófu hlaupa inn í hlaðann.“ Yrðlingarnir gerðu aldrei skaða hér, ef frá eru taldir nokkrir nælonsokkar.
Nú tekur Hinrik sér málhvíld og endurtekur nefítökuna, nákvæmlega eins og fyrr. „Já, góði, ég hef aldrei átt bíl eða tekið bílpróf, svo þetta voru miklar göngur, alveg frá Reykjanesi og að Stafnesi – og hjálparsveitirnar voru heldur ekki á eftir manni í þá daga þó ég þyrfti að liggja á greni í tvo, þrjá sólarhringa í einu.“ – Hafðirðu byssuna með þér á sjóinn? „Ó já, já, ég fór aldrei byssulaus í róður. Selur, hnýsa eða höfrungur var góð búbót og nýmeti. En það er sérstök list að skjóta höfrunginn. Það verður að hitta hann eiginlega um leið og hann snertir sjóinn úr stökkinu. Þá er hann fullur af lofti
Sendum þér og þínum bestu óskir um
gleðileg jól
og farsæld á komandi ári
Betra er að fylla bóndans sæti í byggðum þeim, sem hjartað ann, en reika einn um rökkvuð stræti rændur sínu eftirlæti, í ónáð við sinn innri mann. Viðtal: Pálmi Viðar Myndir: Páll Ketilsson
Vilhjálmur Hinrik Ívarsson var fæddur 12. ágúst 1899. Hann lést 24. janúar 1994. Viðtalið birtist í jólablaði Víkurfrétta árið 1987.
66 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Bella listakokkur eldar ofan í karlana Hún er fædd og uppalin fyrir norðan, á Raufarhöfn, en flutti ásamt eiginmanni, Reyni Þorsteinssyni, í Garðinn fyrir átján árum með dæturnar tvær og líkar vel. Ísabella Björk Bjarkadóttir hefur enga formlega menntun á sviði eldamennsku heldur lærði á gamla mátann af móður sinni, með því að standa við hlið hennar þegar hún var að elda mat. Í dag sér Bella um að elda ofan í starfsmenn hjá Toyota Reykjanesbæ.
Marta Eiríksdóttir marta@vf.is
Finnst gaman að matreiða „Ég er búin að vera í átta ár hjá Toyota en byrjaði að vinna hjá þeim í allt öðru árið 2006 þegar ég var að svara í símann og sækja bíla. Svo kom hrunið og þá missti ég vinnuna en var svo heppin stuttu seinna að komast í vinnu hjá Hjallatúni, leikskóla í Njarðvík, en þar var ég í eldhúsinu. Það var stór vinnustaður og ég eldaði ofan í eitthvað um hundrað manns, bæði börn og fullorðna. Allt eldað frá grunni, bakað brauð og ýmislegt. Ég byrjaði þar sem aðstoðarkona hjá vinkonu minni í eldhúsinu en fékk starfið hennar eftir eitt ár þegar hún hætti störfum. Ég hef alltaf haft áhuga á matargerð,
alveg frá því að ég var lítil stelpa og stóð með mömmu minni við pottana í eldhúsinu, var að fylgjast með mömmu græja og gera. Þetta voru góðar stundir því þá gátum við einnig spjallað saman í leiðinni. Þegar ég var átján ára fór ég á húsmæðraskólann á Hallormsstað, sem var æðislegt. Þar lærði ég allt mögulegt, mjög gaman. Ég elskaði að vera þarna fyrir austan og vildi helst vera þar í þrjú ár en þetta var hálfur vetur. Þarna var mikið brallað, einn strákur var í hópnum og hann varð kærasti einnar í nemendahópnum,“ segir Bella skælbrosandi við minninguna og bætir við: „Eftir svona tvö, þrjú ár í Hjalla túni höfðu þeir hjá Toyota sam-
band við mig og buðu mér starf í eldhúsinu þeirra sem þá var nýlega opnað fyrir starfsmenn. Þeir buðu mér styttri vinnutíma og einfaldara starf, hér er ég aðeins að útbúa hádegismat handa þeim virka daga. Ég ákvað að taka starfinu og hef verið hér síðan og líkar mjög vel. Ég elda venjulegan íslenskan heimilismat ofan í starfsfólkið hér, fer svona milliveginn í matargerð svo flestir séu ánægðir,“ segir Bella.
Má ekki breyta jólamatseðli fjölskyldunnar Þegar Bella er spurð út í jólahald heima hjá henni sjálfri þá kemur ýmislegt forvitnilegt fram en hún
Óskum ykkur öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári
er jú fædd og uppalin fyrir norðan og eru því rjúpur oftast í matinn hjá hennar fólki á aðfangadag. Alltaf sami jólamaturinn sem að vísu hefur stundum verið erfitt að nálgast vegna rjúpnaveiðibanns. „Heima hjá mér um jólin er alltaf sami matseðill og hefur verið frá því að ég var lítið barn en jólamatseðillinn hefur fylgt mér alveg inn í minn eigin búskap. Það þýðir ekkert að breyta en ég bauð fjölskyldunni minni upp á það eitt sinn og þau spurðu mig hvort ég væri ekki í lagi, hvort kerlingin væri eitthvað að tapa sér! Við höfum því haft þennan matseðil um jól en stundum hefur reynst erfitt að fá rjúpu vegna veiðibanns og einnig
vegna þess að henni er að fækka. Það er hefð að maðurinn minn fari á rjúpnaveiðar fyrir norðan. Svo kemur hann heim með fenginn og lætur fuglana hanga í tíu daga, svo er hann settur í frysti. Einum degi áður en við borðum fuglinn er hann tekinn úr frysti og hamflettur, ekki fyrr. Við erum með rjúpur í aðalrétt á aðfangadag en erum aldrei með forrétt á aðfangadag. Ég steiki rjúpurnar á pönnu í smjöri, krydda með salti og pipar. Síðan set ég þær í pott með smá vatni yfir og sýð þær í rúma klukkustund til að fá soðið í bestu sósu í heimi. Svo borðum við brúnaðar kartöflur með rjúpunum, waldorf-salat, rauðkál og grænar baunir frá Ora. Malt og appelsín er
Ástkær sonur, bróðir, barnabarn og frændi
GUNNAR MÁR VILBERTSSON Reykjanesbæ
lést sunnudaginn 22. nóvember og fór útför hans fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 8. desember að viðstöddum nánustu ættingjum og vinum. Vilbert Gústafsson, Birta Rós og Harpa Sóley Sara Margrét og Viktoría Lynn, Frederick Fríða Felixdóttir Rúnar Lúðvíksson Gústaf Ólafsson og aðrir aðstandendur
Við í Fiskbúð Reykjaness viljum þakka íbúum Suðurnesja fyrir frábærar móttökur Opnunartímar yfir hátíðarnar: 19. desember er opið frá 11:00 til 15:00 23. desember er opið frá 10:00 til 18:00 24. til 27. desember er lokað 28. desember er opið frá 10:00 til 19:00 29. desember er opið frá 10:00 til 18:00 30. desember er opið frá 10:00 til 18:00
Opnum svo aftur 4. janúar 2021
Innilegar þakkir til allra fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýju við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa.
VILHJÁLMS ÞÓRHALLSSONAR Njarðarvöllum 2 í Reykjanesbæ
Sérstakar þakkir til alls þess góða starfsfólks sem kom að umönnun föður okkar á Hrafnistu Nesvöllum.
Brekkustígur 40, Njarðvík Sími 7839821 - fbr@fbr.is
Þórhallur Vilhjálmsson Sólveig Bjarnadóttir Guðrún Vilhjálmsdóttir Ólafía Sigríður Vilhjálmsdóttir Nathan Balo barnabörn og barnabarnabörn.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR // 67
Heima hjá mér um jólin er alltaf sami matseðill og hefur verið frá því að ég var lítið barn en jólamatseðillinn hefur fylgt mér alveg inn í minn eigin búskap ...
jóladrykkurinn,“ segir hún og maður fær vatn í munninn af þessu matarspjalli sem er alls ekki búið því til að toppa matseðilinn á aðfangadag er eftirrétturinn sem móðir hennar sáluga var einnig alltaf með á borðum þetta kvöld. „Mamma gerði alltaf ananas sítrónufrómas og ég held hefðinni áfram. Ég er aldrei með forrétt því við borðum svo mikið af rjúpum og þessum eftirrétt sem allir elska. „Já þennan eftirrétt elska allir heima hjá mér á aðfangadag, alveg ómissandi. Annars er aðfangadagskvöld ósköp hefðbundið og notalegt kvöld. Við hlustum á messuna í útvarpinu og viljum helst borða klukkan sex að kvöldi. Þegar kirkjuklukkurnar hringja jólin inn í útvarpinu þá höfum við nú boðið hverju öðru koss á kinn til að bjóða gleðileg jól. Þegar við erum búin að borða þá fara allir saman inn í eldhús til að ganga frá, vaska upp og hjálpast að. Þá er farið inn í stofu aftur og pakkarnir teknir upp. Alltaf jafn hátíðleg stund. Við erum með konfekt, smákökur og fullt af mandarínum til að nasla í. Svo líður kvöldið. Vinsælustu
Ananas/sítrónufrómas 5 egg 180 gr sykur - þeytt saman 2 litlar dósir af ananaskurli 10 matarlímsblöð í pott með safanum úr ananasdósunum - þetta hitað varlega saman, ekki of heitt og sett síðast í alla blönduna ½ ltr rjómi þeyttur og settur saman við eggja/sykurblönduna 1 sítróna, börkurinn rifinn út í blönduna Öllu blandað saman og hellt í fallega glerskál og sett í kæliskáp í einn sólarhring - þá skreytt með þeyttum rjóma úr rjómasprautu, lítil rjómablóm og smá ananas til skrauts.
Borið fram beint úr kæli.
Ísabella Björk Bjarkadóttir gefur starfsmönnum Toyota í Reykjanesbæ að borða. Hér er hún með nokkrum þeirra.
jólagjafirnar heima hjá okkur eru bækur, þær eru efst á óskalistanum. Svo fellur allt í ró og heimilisfólkið fer að glugga í bækurnar sínar. Reynir maðurinn minn hverfur næstu daga við bókalestur inni í sólstofu þar sem hann kveikir upp í kamínunni og hefur það gott, yndislega notalegt,“ segir hún.
Kaupir jólagjafir í heimabyggð „Þegar búið er að opna alla pakkana á aðfangadagskvöld, sýð ég hangikjöt á beini en það kaupi ég alltaf frá Fjallalambi á Kópaskeri. Það er svo gott frá þeim. Ég sýð kjötið í þrjá tíma og læt það svo standa yfir nóttina en þetta er í matinn á
jóladag. Með köldu hangikjötinu hef ég heitar kartöflur og uppstúf, allt þetta hefðbundna en býð einnig upp á rauðrófu/eplasalat sem er í þeyttum rjóma. Þetta salat verður að vera með. Annars er jólaundirbúningurinn líka alltaf skemmtilegur, dagarnir fyrir jól. Ég kaupi allar jólagjafir hér suðurfrá, helst ekki í Reykjavík. Ég vil styðja við verslun hér á svæðinu og fæ fullt af fallegum gjöfum í Keflavík. Þá losnar maður líka við allar biðraðirnar í Reykjavík en hér gengur allt greiðlegar fyrir sig. Rólegra, ekkert stress og læti. Miklu skemmtilegra að versla heima. Ég pakka inn jólagjöfunum á Þorláksmessu og hlusta á jólakveðjurnar á RÚV í leiðinni. Þetta kvöld er ég með heitan brauðrétt handa fólkinu mínu
Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um
gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári!
STUÐLASTÁL
Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða!
en ég borða ekki skötu, hef aldrei gert og er ekki alin upp við það fyrir norðan,“ segir Bella sposk á svip. – En hvernig er að halda upp á jól á þessu stórmerkilega ári þegar covid stýrir för? Bella segist ætla norður að heimsækja uppkomna dóttur sína ef það verður hægt. „Við stefnum norður að heimsækja eldri dóttur okkar og fjölskyldu hennar um jólin ef Guð lofar og covid leyfir. Það á eftir að koma í ljós en þangað langar okkur í heimsókn.“ Texti og myndir: Marta Eiríksdóttir
68 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Á að loka framtíðina inni? Náttúruvernd er samofin þjóðarsálinni. Hún á sér uppsprettu og talsmenn í öllu litrófi stjórnmálanna. Sama má segja um loftslagsmálin. Stærsta framlag okkar til þeirra er orkuframleiðsla með endurnýjanlegum orkugjöfum. Atvinnuvegir og atvinnutækifæri komandi kynslóða munu byggja á þeim möguleikum sem felast í nýtingu orkunnar í landinu; til að skapa hér fjölbreytt og vel launuð störf í nýjum greinum. Vetnisframleiðsla og hátæknigeiri framtíðarinnar mun krefjast hreinu orkunnar okkar. Íslendingar mega því ekki loka á aðgang að auðlindum framtíðarinnar með ótímabærri löggjöf.
Ætlum við að uppfylla Parísarsamkomulagið? Frumvarp um Hálendisþjóðgarð nær yfir um 30% af flatarmáli landsins. Þar af er um helmingur svæðisins þegar friðlýstur. Um er að ræða Vatnajökulsþjóðgarð sem nær yfir um 14% af flatarmáli landsins, auk friðlýstra svæða á miðhálendinu í umsjón Umhverfisstofnunar. Þessir 33.000 ferkílómetrar þjóðgarðs að viðbættum jaðarsvæðum mun hafa áhrif á virkjanakosti en stærsti hluti raforkuframleiðslu landsins (tæplega 70%) er upprunninn innan marka fyrirhugaðs þjóðgarðs og þar liggja einnig stór hluti ónýttra endurnýjanlegra orkuauðlinda landsins. Stærð virkjunarkosta innan marka þjóðgarðsins nemur samtals 2200 MW eða 79% af uppsettu raforkuafli á Íslandi. Hluti þeirrar orku, eða um 300 MW þarf að nýta til að Íslendingar uppfylli Parísasamkomulagið um loftlagsmál sem Íslendingar eru aðilar að. Staðreyndirnar eru því þessar: • 300 MW þarf til að skipta út jarðefnaeldsneyti fyrir hreinan innlendan orkugjafa í samgöngum til að uppfylla Parísarsamkomulagið. • 600 MW þarf til að skipta út jarðefnaeldsneyti fyrir bílaflotann fyrir 2030. • 1200 MW þarf fyrir full orkuskipti bíla, skipa og flugvéla innanlands fyrir 2030. • Framleiðsla vetnis er orkufrek framleiðsla sem oft er kallað gull framtíðar.
Ísland er nær eina landið í heiminum sem fyrir 30 árum lauk því ferli að gera atvinnulífið og heimilin sjálfbært með orku. Orkan okkar kemur frá endurnýjanlegum auðlindum. Því miður hefur okkur ekki tekist að nýta þessa sérstöðu í lofslagssamningum við önnur lönd.
Hvaða áhrif mun stofnun þjóðgarðs hafa? Hugmyndin er að fyrirhugaður Hálendisþjóðgarður verði flokkaður í verndarflokkun samkvæmt IUCN verndarflokkunarkerfinu. Það kerfi útilokar hefðbundna orkuframleiðslu og tengingu nýrra virkjana með loftlínum. Einnig mun það útiloka styrkingu og endurnýjun á flutningskerfi raforku til framtíðar, innan Hálendisþjóðgarðsins og áhrifasvæða hans. Þessar áætlanir munu loka á tækifæri framtíðarinnar. Sveitastjórnir og bændur hafa hingað til séð um að vernda og græða miðhálendið. Í stjórn Hálendisþjóðgarðs, sem ráðherra skipar, munu sitja ellefu fulltrúar. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að ráðherra skipi a.m.k. níu fulltrúa í umdæmisráð sem fara með málefni rekstrarsvæða Hálendisþjóðgarðsins. Rekstrarsvæðin verða a.m.k. sex talsins. Þetta verða því a.m.k. 54 fulltrúar, auk ellefu manna í stjórn. Það er fátt eðlilegt við það að fjórtán fulltrúar umhverfis- og útivistarsamtaka, sem eru frjáls samtök á höfuðborgarsvæðinu, eigi að bera ábyrgð á stjórnunar- og verndaráætlun umdæmanna. Fólk sem ber enga ábyrgð gagnvart atvinnulífinu eða íbúum svæðanna enda ekki til þess kjörið af fólkinu. Það er kannski tímanna tákn
Norðurland vestra
Vestfirðir
Austurland
Suðvesturland
Suðurland
Guðlaugs- og Álfgeirs tungur
Breiðfjörður
Álfaborg
Akurey
Álftaversgígar
Hrútey
Dynjandi
Blábjörg
Álafoss
Árnahellir
Hveravellir á Kili
Flatey
Díma
Ástjörn
Dverghamrar
Kattarauga
Hornstrandir
Fólkv. Neskaupsst.
Ásfjall
Dyrhóley
Miklavatn
Hrísey, Reykhólahreppi
Háalda
Bakkatjörn
Friðland Fjallabaki
Spákonufellshöfði
Vatnsfjörður
Hálsar
Bláfjöll
Geysissvæðið
Norðurland eystra
Vesturland
Helgustaðanáma
Borgir
Gullfoss
Böggvistaðafjall
Andakíll
Hólmanes
Bringur
Herdísarvík
Dettifoss
Bárðarlaug
Ingólfshöfði
Búrfell
Ingólfshöfði
Dimmuborgir
Blautós
Kringilsárrani
Eldborg
Jörundur Lambahrauni
Fólkv. Glerárdal
Breiðafjörður
Lónsöræfi
Eldey
Kerlingarfjöll
Friðland Svarfaðardal
Búðahraun
Ósland
Kasthúsatjörn
Kirkjugólf
Goðafoss
Einkunnir
Salthöfði
Fossvogsbakkar
Oddaflóð
Hraun
Eldborg
Skrúður
Garðahraun
Pollengi/Tunguey
Hverastrýtur
Geitland
Teigarhorn
Gálgahraun
Skógafoss
Hverfjall
Grábrókargígar
Vatnajökulsþjóðgarður
Grótta
Surtsey
Krossanesborgir
Grunnafjörður
Hamarinn
Þjórsárdalur
Mývatn og Laxá
Hraunfossar
Háubakkar
Vatnajökulsþjóðgarður
Seljahjallagil
Húsafellsskógur
Hleinar
Viðey
Skútustaðagígar
Kalmanshellir
Hlið
Þingvellir Þjórsárver
Vatnajökulsþjóðgarður
Melrakkaey
Hvaleyrarlón
Vestmannsvatn
Steðji
Kaldárhraun
Stapi og Hellnar
Laugarás
Vatnshornsskógur
Litluborgir
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull
Rauðhólar Reykjanesfólkv. Skerjafjörður Stekkjahraun Tröllabörn Tungufoss Valhúsahæð Varmárósar Vífilsstaðavatn Víghólar
Byggt á upplýsingum af vef Umhverfisstofnunar að umboðslaust fólk af malbikinu setji bændum og íbúum dreifbýlisins reglur um þeirra nánasta umhverfi. Fólkið, börn náttúrunnar, sem hefur byggt afkomu sína á gæðum hálendisins og skapað þar tækifæri til atvinnulífs í ferðaþjónustu á betra skilið. Ekki nokkur maður þekkir það betur á eigin skinni en bóndinn. Bændur lifa í sátt við náttúruna og
landið. Um það samband eiga eðlilega að gilda reglur sem við höfum nú þegar. Í frumvarpinu sem nú liggur fyrir þinginu hefur verið fellt brott ákvæði um að sveitarstjórnir verði bundnar af stjórnunar- og verndaráætlun þjóðgarðsins sem er meginstjórntæki þjóðgarðsins. Í stjórnunar- og verndaráætlun verður hins vegar að finna almenn skilyrði um atvinnustarfsemi innan þjóðgarðsins sem mun hafa áhrif á gerð atvinnustefnu og leyfisveitingar fyrir atvinnutengda starfsemi. Þannig þurfa allar ákvarðanir og athafnir innan þjóðgarðs að samræmast stjórnunar- og verndaráætlun. Ráðherra hefur farið mikinn í að tala um að virkjanakostir verði á skilgreindum jaðarsvæðum og ekki hluti hins friðlýsta svæðis. Því skal hins vegar haldið til haga að stjórnunar- og verndaráætlun Hálendisþjóðgarðsins nær einnig til jaðarsvæða þjóðgarðsins þar sem gera má ráð fyrir orkunýtingu. Sökum nálægðar við þjóðgarðinn er í frumvarpinu og í stjórnunar- og verndaráætlun þjóðgarðsins settir tilteknir skilmálar um umgengni á þessum jaðarsvæðum.
Alþjóðlegt mont? Það virðist vera markmiðið með frumvarpinu að koma á fót stærsta þjóðgarði í Evrópu og slá þar með
Þú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á
ryk í augu Rússa, sem eru nú með einn stærsta þjóðgarðinn sem þekur nærri 11% af öllu landinu. Ég velti því hins vegar fyrir mér hverju þjóðargarðurinn muni raunverulega skila fyrir þjóðarbúið, sér í lagi þar sem atvinnutækifærin innan marka hans verða takmörkuð. Þjóðgarðar eru að mínu mati mikilvægir fyrir verndun náttúrunnar, þó ekki sé nauðsynlegt að taka 30% landsins undir slíka starfsemi. Á það hefur verið bent að skynsamlegra hefði verið að sameina þau landsvæði á miðhálendinu sem þegar hafa verið skilgreind sem sérstök verndar og friðlýst svæði undir einn hatt Hálendisþjóðgarðs. Þjóðgarðarnir á Íslandi telja nú þrjá. Í byrjun nóvember kynnti umhverfisráðherra áform um stofnun fjórða þjóðgarðsins á sunnanverðum Vestfjörðum. Þá eru friðlýst svæði og svæði sem njóta sérstakrar verndar í kringum 120 á landinu öllu (sjá töflu) og þeim fjölgar ört. Hugsunargangur og stjórnkerfi í frumvarpi um Hálendisþjóðgarð sem nú hefur verið lagt fram á Alþingi gengur ekki upp. Það er hlutverk okkar að tryggja aðgengi framtíðarkynslóða að sjálfbærum, endurnýjanlegum orkugjöfum, jafnt til heimilisþarfa og grænnar atvinnuuppbyggingar. Ásmundur Friðriksson, alþingismaður.
vf is
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR // 69
Orð í tilefni jóla og nýs árs Ari Trausti Guðmundsson Þegar nýtt ár gengur í garð djarfar fyrir lokum heimfaraldursins. Hann hefur leikið flest ef ekki öll lönd ýmist illa eða fremur grátt. Mannfall vegna Covidsýkingar, mikið álag á heilbrigðiskerfið og alvarleg vandkvæði í efnahagslífinu lita næstum allt árið 2020. Hér landi hefur faraldurinn tekið mikið á samfélag og einstaklinga. Má gera ráð fyrir, eins þótt ferðaþjónustan, ýmsir aðrir atvinnuvegir og innri stoðir samfélagsins sýni brátt veruleg batamerki, að allnokkur ár þurfi til úrbóta í samfélaginu og til endurgreiðslu fjármuna sem vörðu fólk eins og unnt var, þegar á heildina er litið. Ég tel að bærilega hafi til tekist og stjórnvöld axlað ábyrgðina sína. Lengst af með réttri vástjórnun frá einni viku til annarrar en þegar leið á með því að leggja línur um framhaldið eftir að veiran hefur beðið ósigur fyrir hugviti og vísindum. Hver bólusetning er sigur í sjálfu sér en um leið áminning um mátt náttúrunnar og nauðsyn þess að lifa og starfa sem sjálfbær hluti hennar án þess að telja sig yfir hana hafin – eða í rétti til að gera sér hana undirgefna. Eitt sinn var það talið hlutverk mannsins. Stjórnmál lituðu Covid-tímana eins og öll önnur tímabil stórra atburða í sögu okkar. Samstarf þriggja ólíkra flokka hefur leitt til margs konar umbóta og kostað, ef þannig má komast að orði, margar og flóknar málamiðlanir. Það er kjarni samsteypustjórnlistar sem er okkur búin kjörtímabil fram af kjörtímabili. Innviðir hafa styrkst, velferðarkerfið eflst og jafnrétti aukist. Engu að síður þarf enn að bæta kjör nokkurra hópa sem þurfa á sem mestri samfélagsaðstoð að halda. Við þurfum líka að raungera æ betur góða stefnu-
mörkum í málaflokkum eins og orkumálum, orkuskiptum, nýsköpun, ferðaþjónustu, frumatvinnuvegum, menntamálum og heilbrigðismálum – endurskoða og fylgja aðgerðaráætlunum í loftslagsmálum og umhverfisvernd. Það eru frumskilyrði þess að við náum að búa við sjálfbært hringrásarhagskerfi með þátttöku almennings í lipru lýðræði og með upplýstum ákvörðunum. Sameining sveitarfélaga, bætt úrgangsmeðferð, styrkari fjárstuðningur ríkisins og auðlinda- eða umhverfisstefna sveitarfélaga eru allt teikn um félagslegar og grænar framfarir sem ber að fagna. Hlutverk sveitarfélaga er ítrekað með stofnun og rekstri hálendisþjóðgarðs. Þar eru þau með meirihluta í þeim umdæmisráðum sem semja verndar- og nýtingaráætlanir fyrr sína landshluta inni á öræfum. Þau geta tryggt hefðbundnar nytjar og ýmsa atvinnustarfsemi, að frjáls en þó skipulögð för verði áfram almenningi og ferðamönnum heimil – og allt þetta fari fram með umhverfisvernd og sjálfbærni að leiðarljósi. Aðrar náttúrunytjar geta farið fram samkvæmt landsáætlunum, landsskipulagi og öðrum lögum og reglum sem samkomulag næst um í samfélaginu og á Alþingi. Friðuð svæði og þjóðgarðar eru ríkar auðlindir sem unnt er að nytja í bland við aðrar auðlindir. Þess vegna er sérhvert skref í þessum efnum samfélaginu mikils virði. Ég sendi öllum lesendum góðar kveðjur í tilefni desemberhátíðanna og óska þeim og þeirra fólki farsældar á nýju ári.
Höfundur er þingmaður VG.
„Víktu að mér vori“ Nýtt tungl lýsir gömlu mannkyni elt uppi af stakri stjörnu Svo fer nótt að sveitum Þú hristir heiminn í lófa þér snjórinn þyrlast yfir grundir Láttu ekki blekkjast af brosi mínu sýndu mildi og víktu að mér vori Annar í jólum eftir Gerði Kristnýju Sýndu mildi og víktu að mér vori segir Gerður Kristný í ljóði sínu Annar í jólum. Í heimsfaraldri biðjum við um mildi og betri tíð. Við vitum ekki hvað bíður á nýju ári. Aðeins að sólin á eftir að hækka á lofti. Við vorum vongóð í ársbyrjun. Hér var flest í blóma þótt blikur væru á lofti í ferðaiðnaðinum. Atvinnuleysi hafði farið vaxandi og um 10.000 manns voru í atvinnuleit í febrúar. Einmitt þá fóru að berast fréttir af óvenju skæðri veiru sem geisaði í Wuhan-héraði í Kína og kölluð var Covid-19. Fáir gerðu sér grein fyrir því þá hvaða afleiðingar veiran myndi hafa. Að hér ætti heimsfaraldur eftir að fara sem eldur í sinu um heimsbyggðina og skilja eftir sig dauða, heilsubrest og mestu efnahagsþrengingar í heila öld. Tilhugsun um að heimsfaraldur gæti gert slíkan usla í nútímasamfélagi var okkur víðs fjarri þá. En nú, tæpu ári síðar, má segja að við séum orðin sérfróð um sóttvarnir og sóttvarnaraðgerðir og búum yfir reynslu sem mun vara lengi. Árið 2020 gæti lifað í minningunni sem ár erfiðleika, kreppu og sorgar en þess gæti einnig verið minnst sem árs samstöðu og sam-
hjálpar ef við berum gæfu til þess að taka réttar ákvarðanir og byggja upp samfélag sem stendur með öllum sínum þegnum í gegnum erfiðleika. Gerir allt sem í mannlegu valdi stendur til veita bestu umönnun háum sem lágum, sjúkum sem frískum. Blessunarlega hafa dauðsföll hér á landi orðið færri en svartsýnustu spár gerðu ráð fyrir, svo er sóttvarnarteyminu víðfræga og samstöðu þjóðarinnar fyrir að þakka og frábæru heilbrigðisstarfsfólki sem spyr ekki um stétt né uppruna. Margir hafa orðið fyrir þungum áföllum, orðið veikir og þurft að glíma við eftirköst, sumir hafa horft á eftir ástvinum, fjölmargir hafa misst atvinnuna og jafnvel aleiguna og munu líklegast þurfa að glíma við afleiðingarnar til lengri eða skemmri tíma. Faraldurinn hefur sannarlega valdið dýpstu efnahagslægð í sögu þjóðarinnar. En öll él styttir upp um síðir og nú í árslok bárust fregnir af bóluefni sem við bindum öll miklar vonir við. Faraldurinn sýndi okkur hvar styrkur okkar liggur en hann undirstrikaði einnig veikleikana. Þegar þessi orð eru skrifuð eru um 21.000 íbúar landsins í atvinnuleit og lifa af atvinnuleysisbótum – og annar eins fjöldi dregur fram lífið á örorkulífeyri og ellilífeyri einum. Þessi hópar eru þeir sem bera þyngstu fjárhagslegu byrðarnar í kreppunni. Margir eiga vart til hnífs og skeiðar og geta ekki leyft sér neinn munað yfir hátíðarnar. Við jafnaðarmenn köllum eftir samstöðu með þessu fólki. Við viljum tryggja að samfélagið hlaupi hér undir bagga og rétti þeirra hlut. Við viljum dreifa byrðunum í dýpstu efnahagslægð í 100 ár. Ég vil að á Íslandi verði traust og gott velferðarsamfélag þar sem allir
hafa jafnan rétt. Að því eigum við að vinna og byggja upp til framtíðar á forsendum jafnaðarstefnunnar. Að þjóðin njóti arðsins af auðlindum sínum og að allir einstaklingar njóti mannsæmandi lífsskilyrða og afkomuöryggis. Að heilbrigðisþjónusta standi öllum til boða á jafnréttisgrunni og að allir eigi rétt á öruggu húsnæði – og ekki síst, að allir íbúar landsins hafi aðgang að menntun án tillits til efnahags eða félagslegra aðstæðna. Að aldrei megi hindra aðgang fólks að menntakerfinu sem vill styrkja stöðu sína á vinnumarkaði. Lærdómurinn af þessu erfiða ári, það sem við getum tekið með okkur inn í framtíðina og byggt framtíð okkar á, er að hér verði að byggja upp öflugt velferðarsamfélag og grænt og sjálfbært hagkerfi. Með öflugt heilbrigðiskerfi sem sinnir öllum, góðum skólum fyrir alla, samfélag þar sem enginn má líða skort og enginn er skilinn eftir. Við í Samfylkingunni berjumst fyrir hugsjónum jafnaðarmanna. Í samfélögum þar sem jöfnuður ríkir er velferðin almennari og fólkið sáttara, hamingjusamara og heilsuhraustara. Þannig viljum við að íslenskt samfélag þróist í kjölfar heimsfaraldurs. Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Kærar þakkir fyrir samskipti og samstarf á árinu sem er að líða. Oddný G. Harðardóttir, alþingismaður.
ICE FISH óskar landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári
www.ice-fish.is
70 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Mikilvægu verkefnin framundan Framsækin frumvörp í boði Framsóknar Íbúar Suðurnesja hafa fundið vel fyrir þeim afleiðingum sem Covid hefur haft á atvinnulífið hér á svæðinu síðustu mánuði og sér því miður ekki alveg fyrir endann á þeim í bráð. Atvinnuleysi er í hæstu hæðum og ef spár ganga eftir stefnir það enn hærra þegar fram líða stundir. Að ein lítil veira gæti haft svona gífurlega mikil áhrif á líf okkar og atvinnu hefði engum dottið í hug fyrir nokkrum misserum síðan en því miður er það raunveruleikinn sem við búum við í dag. En hver er ástæða þess að afleiðingar faraldursins rista svona djúpt í atvinnulífinu á Suðurnesjum og hvað er til ráða? Fyrir því eru nokkrar ástæður en vinnumarkaðurinn á Suðurnesjum hefur alla tíð verið frekar einsleitur og reitt sig á fáar atvinnugreinar í stað þess að auka fjölbreytni fyrir komandi kynslóðir. Við höfum treyst of mikið á flugstöðina og þau umsvif sem þar hafa átt sér stað á síðustu árum. Þessar nýju aðstæður sem uppi eru núna kalla á viðhorfsbreytingu og nýja nálgun. Ríkisstjórnin og hið opinbera verða því nú að líta til Suðurnesjanna og reyna að lágmarka þann skaða sem þessi staða gæti haft á svæðið til frambúðar, ég er hins vegar ekki viss um að hún geri sér grein fyrir alvarleika hennar. Við verðum því að berjast fyrir svæðinu og halda áfram þeirri uppbyggingu sem hefur átt
sér stað og halda stjórnvöldum þannig við efnið. Það er ekki lengur nóg fyrir stjórnvöld að segja „þið hafið flugstöðina“. Á síðustu misserum hafa ráðherrar Framsóknar verið mjög iðnir við að flytja störf og verkefni einstakra stofnana út á landsbyggðina, hvort það sé jákvætt skref í rétta átt er ekki mitt að svara. Mín spurning er hins vegar sú hví líta þeir ekki til Suðurnesja við slíkar ákvarðanir og þá sérstaklega núna þegar atvinnuleysið á svæðinu slær hvert metið á fætur öðru. Ef Viðreisn ætti þingmann í Suðurkjördæmi þá myndi sá hinn sami hafa hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi og berjast fyrir atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum á hvaða toga sem hún yrði. Því að á Suðurnesjum er mannkostur
góður, vinnuumhverfi framúrskarandi og innviðir sterkir fyrir hvaða starfsemi sem er. Gleymum því heldur ekki að hvert og eitt starf er verðmætt og skapar virði fyrir þann einstakling sem það stundar og tekjur fyrir það samfélag sem hann tilheyrir. Á Suðurnesjum þarf því að skapa fjölbreytt störf sem eru verðmæt og ekki árstíðarbundin heldur til frambúðar. Stuðla að aukinni nýsköpun og tækifærum og hafa Suðurnesin í huga þegar ákvarðanir eru teknar varðandi atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni. Síðast en ekki síst þarf að hlúa sérstaklega vel að þeim einstaklingum sem nú hafa misst atvinnu sína og veita þeim alla þá aðstoð sem í boði er til þess að komast í gegnum þá erfiðleika sem framundan eru. Á tímum sem þessum er því afar brýnt að hið opinbera geri allt til þess að það ástand sem nú ríkir í atvinnumálum vari sem styðst og leiði ekki til langvarandi vanda. Til þess að svo megi vera þarf að taka stór skref strax. Það eru mikilvægu verkefnin framundan. Arnar Páll Guðmundsson, formaður Viðreisnar í Reykjanesbæ.
HEYRNARÞJÓNUSTA Kæru Sunnlendingar Kæru Suðurnesjamenn Verðum á Selfossi í Grænumörk 5.
Viðamikil endurskoðun Núverandi félags- og barnamálaráðherra, og þingmaður Framsóknarflokksins, Ásmundur Einar Daðason hefur nú lagt fram frumvarp um breytingar á lögum um fæðingar- og foreldraorlof. Ráðherra skipaði nefnd í ágúst 2019 sem hafði það hlutverk að endurskoða lögin frá árinu 2000 í heild sinni. Alls er gert ráð fyrir að 19,1 milljarði króna verði varið í fæðingarorlof á árinu 2021 sem er tæplega tvöföldun á þeim fjármunum sem fóru til málaflokksins árið 2017, á verðlagi hvors árs.
Tólf mánuðir Helstu breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu er lenging fæðingarorlofs í tólf mánuði vegna barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. janúar 2021. Sjálfstæður réttur hvors foreldris um sig verður sex mánuðir en foreldrum verður heimilt að framselja einn mánuð sín á milli, og því getur annað foreldrið tekið fæðingarorlof í sjö mánuði en hitt í fimm.
Undantekningar frá reglunni
2. september. föstudaginn nóvember. Óskum ykkar gleðilegra25. jóla og farsæls k andi árs.Björnsdóttir Ellisif Katrín Heyrnarfræðingur veitir faglega ráðgjöf
Verið velkominá nýja árinu. Heyrumst
Heyrðu umskiptin Fáðu heyrnartæki til reynslu Heyrn, Hlíðasmára 11, Kópavogur, heyrn@heyrn.is
Tímapantanir - 534 9600
Framsóknarflokkurinn hefur verið í fararbroddi á vettvangi jafnréttismála og fjölskyldumála um áratugaskeið. Páll Pétursson var félagsmálaráðherra og þingmaður Framsóknarflokksins þegar gerð var veigamikil breyting á lögum um fæðingarorlof árið 2000. Ísland var þá fyrsta landið í heiminu til að lögbinda rétt beggja foreldra til töku fæðingarorlofs.
Nánari upplýsingar www.heyrn.is
Hlíðasmára 19, 201 Kópavogur - Sími 534 9600 - www.heyrn.is
Sendum starfsmönnum okkar, viðskiptavinum og bæjarbúum öllum okkar bestu jólakveðjur og óskum þeim farsældar á nýju ári.
Þá eru lagðar til frekari heimildir til yfirfærslu réttinda á milli foreldra þegar annað foreldri getur ekki af nánar tilgreindum ástæðum nýtt sinn rétt til fæðingarorlofs. Það gæti t.d. átt við þegar börn hafa ekki feðruð og þegar umgengni annars foreldris við barnið er engin eða verulega takmörkuð á grundvelli niðurstöðu lögmælts stjórnvalds eða dómstóla.
Styrkur til þeirra sem búa fjarri fæðingarstað Þá er lagt til að barnshafandi foreldri verði veittur sérstakur styrkur vegna skerts aðgengis að fæðingarþjónustu. Það þýðir að í þeim tilvikum þegar barnshafandi foreldri þarf að mati sérfræðilæknis að dvelja fjarri heimili sínu, fyrir áætlaðan fæðingardag, í tengslum við nauðsynlega þjónustu vegna fæðingar barnsins getur það fengið fjárhagsstyrk. Því síðastnefnda fagna ég sérstaklega en á haustþingi 2017 lagði ég fram frumvarp þess efnis að fæðingarorlof þeirra sem þyrftu að hefja töku fæðingarorlofs snemma vegna búsetu fjarri fæðingarstað yrði lengt sem næmi þeim tíma sem fólk yrði að dvelja fjarri heimili. Þar með yrði réttur barna til samveru við foreldra fyrstu mánuði lífsins tryggður án tillits til búsetu þeirra.
Mögulegar breytingar í meðferð Alþingis Alþingi hefur nú fengið málið til efnislegrar meðferðar. Það kann að fara svo að gerðar verði einhverjar breytingar á framlögðu frumvarpi ráðherra, því þingmenn kunna að hafa ólíka sýn á einstaka útfærslur laganna. Stóra myndin er hins vegar alltaf sú, að vegna áherslna Framsóknarflokksins mun fæðingarorlof foreldra og þar með réttur barna til samvista við foreldra sína verða lengdur úr níu mánuðum, eins og staðan var við upphafi kjörtímabilsins 2017, og í tólf mánuði frá og með komandi áramótum. Enn eitt framfaraskrefið hefur verið stigið í boði Framsóknarflokksins. Áfram veginn!
Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknar flokksins.
R E Y K JA NE S HÖ F N
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR // 71
Brátt hækkar sól Þau lýsa fegurst, er lækkar sól, í blámaheiði mín bernsku jól. Ljóð Stefáns frá Hvítadal sem ber einfaldlega heitið Jól hefur alltaf verið mér hugleikið og þá einnig einstaklega fallegt lagið sem Jórunn Viðar samdi við það. Það er í því einhver tærleiki og fegurð barnæskunnar og barnatrúarinnar. Aðventan er venjulega líflegur tími hjá okkur flestum. Vinir og fjölskyldur hittast og gera sér glaðan dag og á flestum vinnustöðum er hefð fyrir einhvers konar jólagleði. Árið í ár verður frábrugðið því sem við eigum að venjast vegna baráttunnar við veiruna. Þær skorður sem veiran setur okkur varðandi félagslíf eru vissulega íþyngjandi en eru nauðsynlegar til að vernda líf og heilsu fólks.
Viðbúin bjartari dögum Það er hins vegar ekki aðeins félagslíf okkar sem breytist því fjölmargir, fólk og fyrirtæki, hafa orðið fyrir alvarlegu höggi vegna veirunnar. Ríkisstjórnin hefur brugðist við því með fjölmörgum aðgerðum til að skapa viðspyrnu fyrir Ísland. Ríkissjóður stóð vel vegna ábyrgrar stjórnunar síðustu ár og getur því betur tekið á sig auknar byrðar tímabundið með skuldsetningu. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar sem síðast voru kynntar eiga að stuðla að öflugri viðspyrnu þegar heimurinn opnast að nýju. Hlutabótaleiðin verður framlengd til sumars, atvinnuleysisbætur hækkaðar, boðið upp á fleiri félagsleg úrræði og boðið upp á sérstaka viðspyrnustyrki sem hafa það
að markmiði að þekkingin hverfi ekki úr fyrirtækjunum með uppsögn lykilstarfsfólks, að fyrirtækin verði ekki lömuð þegar við loks lítum bjartari daga. Sérstökum ívilnunum verður einnig beitt til að auka kraft og fjárfestingu í einkageiranum sem er nauðsynlegt til að skapa störf og auka verðmætasköpun í samfélaginu. Þessar aðgerðir ríma við það sem ég sagði í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra: Verkefni okkar í stjórnmálunum næstu mánuði væri skýrt: atvinna, atvinna, atvinna. Við þurfum að vernda störf og skapa störf. Þar erum við í Framsókn á heimavelli því saga okkar er samofin atvinnuuppbyggingu landsins. Það er í kjarna flokksins að þekkja mikilvægi þess að hafa vinnu, að skilja sjálfstæðið sem felst í því að hafa trygga atvinnu, að vita hvað það er átakanlegt að vera án vinnu og án tekjuöryggis.
Í heimsókn minni á Suðurnes áður en heimsfaraldurinn skall á átti ég góða heimsókn í Keili þar sem Jóhann Friðrik Friðriksson fer fyrir öflugu starfi. Starfsemi Keilis verður mikilvæg í viðspyrnu svæðisins sem nú stríðir við mikið atvinnuleysi. Einnig heimsótti ég Njarðvíkurhöfn þar sem stendur fyrir dyrum gríðarleg uppbygging.
Fleiri sterkar greinar Þótt ég sé kannski ekki mjög aldraður maður, hef ég lifað þá tíð að horfa upp á íslenskt efnahagslíf rísa og hníga til skiptis. Það mun halda áfram – en ég er búinn að átta mig á því að það er beinlínis óskynsamlegt að treysta of mikið á eitthvað eitt. Við þurfum að fjölbreytt atvinnulíf. Við þurfum að styðja við nýjar greinar en hlúa áfram að rótgrónari atvinnuvegum. Eitt á ekki að útiloka annað. Við verðum að byggja á samvinnu, málamiðlunum og árangri. Við finnum leiðir. Suðurnesjamenn þekkja vel mikilvægi ferðaþjónustunnar fyrir atvinnu. Hún er augljóslega lykillinn að hraðri viðspyrnu. Við sáum það
í ferðum okkar um landið í sumar hversu metnaðarfull uppbygging ferðaþjónustunnar hefur verið. Nú standa flest hótel tóm og tækifæri þeirra sem störfuðu í ferðaþjónustu fá og jafnvel engin. En, og þetta er mikilvægt en, allir þeir glæstu innviðir sem byggðir hafa verið upp, hvort heldur í samgöngum eða gistingu, öll sú þekking sem ferðaþjónustufólk hefur öðlast og síðast en ekki síst náttúran, landið sjálft, er enn til og bíður þess að ferðalangar leggi leið sína að nýju til okkar. Því hingað mun fólk vilja koma. Þá mun aftur lifna yfir landinu.
Eftir vetur kemur vor Ég óska þér, lesandi góður, gleðilegra jóla og vona að þú finnir leið til að njóta aðventu og hátíðar við þessar einkennilegu aðstæður. Fréttirnar sem okkur berast þessa dagana af bóluefnum gefur okkur von um að með vorinu sjáum við aftur glitta í eðlilegt líf. Veturinn verður erfiður fyrir marga en með krafti samfélagsins, með krafti samvinnunnar þá mun hann verða auðveldari. Og eftir vetur kemur vor og þá verðum við vonandi aftur farin að faðma fólkið okkar og getum horft grímulaus fram á veginn.
Gleðilega Hátíð
Við óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Opnum 7. janúar 2021 Hlökkum til að sjá ykkur !
@courtyardkef @thebridge.courtyardkef
www.TheBridge.is www.Marriott.com/KEFCY
Ég sé þær sólir, mín sál er klökk af helgri hrifning og hjartans þökk. Lýstu þeim héðan er lokast brá, heilaga Guðsmóðir, himnum frá. Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar og samgöngu- og sveitar stjórnarráðherra.
Gjafakort Nettó – einföld og góð gjöf
Þú getur keypt gjafakort Nettó í öllum okkar verslunum – hvar sem er á landinu. Kortið er einfalt og þægilegt í notkun. Þú getur verslað gjafakortið beint á kassa fyrirhafnarlaust. Það hefur aldrei verið einfaldara.
T R O K A F GJA
Lægra verð – léttari innkaup