Skip to main content

Víkurfréttir 40 / 2017

Page 1

• fimmtudagur 12. október 2017 • 40. tölublað • 38. árgangur

STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

DREYMIR OFT UM PYLSU MEÐ ÖLLU

20

KOSNINGAR 2017

NJARÐVÍK ER STÓRVELDI

Sport

Lífleg umræða í blaðinu í dag

Hraðasti vöxtur hótelgistinga á Suðurnesjum ■■Suðurnes sker sig úr í fjölda gistinótta á árinu en fjöldi gistinótta jókst um 41% í ágúst. Svo virðist sem nálægðin við Flugstöð Leifs Eiríkssonar sé svæðinu til góðs og nýta ferðamenn sér nálægðina í auknum mæli og panta gistingu á Suðurnesjum. Á Suðurnesjum hefur hótelgistimarkaðurinn stækkað hratt og frá því að uppsveiflan í ferðaþjónustu hófst árið 2011 hefur fjöldi gistinótta á hótelum á Suðurnesjum aukist um 470%. Aukningin hefur hvergi verið meiri hlutfallslega. Þegar fyrstu átta mánuðir ársins eru skoðaðir skera Suðurnes sig verulega frá öðrum svæðum á landinu í aukningu gistinótta, að því er kemur fram í Hagsjá Landsbankans.

FERÐAMENN Í HVALASKOÐUN VF-mynd: Páll Ketilsson

Hvalir hafa verið tíðir gestir uppi í landsteinum við Keflavík í allt sumar. Hér má sjá ferðamenn skoða hvali frá hvalaskoðunarbátum við Vatnsnes.

Víkurfréttum dreift á miðvikudegi og fimmtudegi

FÍTON / SÍA

■■Undanfarnar vikur hafa Víkurfréttir verið að berast lesendum á fimmtudögum og föstudögum. Það er vegna skerðingar á þjónustu hjá Póstinum, sem hætti að bjóða upp á aldreifingu á fimmtudögum á Suðurnesjum. Til að bregðast við þessu höfum við ákveðið að færa til prentun á blaðinu, þannig að Víkurfréttum verður nú dreift til heimila og fyrirtækja á miðvikudögum og fimmtudögum. Víkurfréttir þurfa því að fara til prentunar síðdegis á þriðjudegi. Við þessar breytingar þurfum við að fá bókanir á auglýsingum, ekki seinna en kl. 17:00 á mánudegi í útgáfuviku. Auglýsingar sem við þurfum að útbúa til prentunar þurfa að berast fyrr á mánudeginum. Breytingin tekur gildi nú þegar o g næ stu Ví ku r f ré tt i r f ar a í prentun þriðjudaginn 17. október. Sími auglýsingadeildar er 421 0001 og póstfangið er fusi@vf.is.

einföld reiknivél á ebox.is

●●Á annað hundrað eldri borgarar í fjölþættri heilsueflingu í Reykjanesbæ:

Mikill sparnaður og betra líf eldri borgara ■■Um 120 manns í Reykjanesbæ 65 ára og eldri hafa stundað fjölþætta heilsueflingu undanfarnar vikur undir handleiðslu Janusar Guðlaugssonar PhD íþrótta- og heilsufræðings. Janus segir að kostnaður við hvern einstakling á hjúkrunarheimili sé 12 til 15 milljónir króna á ári . „Ef ég næ að seinka einum einstakling um eitt ár inn á dvalarog hjúkrunarheimili þá tel ég að við séum í rauninni búin að spara hjá hinu opinbera og greiða upp þann kostnað sem fer í þessa forvarnarleið.“ „Fjölþætt heilsurækt í Reykjanesbæ – Heilsuefling fyrir eldri aldurshópa 65+“ er samstarfsverkefni Reykjanesbæjar, Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Sóknaráætlunar Suðurnesja og Janusar heilsueflingar slf. Fyrirmynd þess er sótt í doktorsverkefni dr. Janusar. Reykjanesbær er fyrst sveitarfélaga í landinu til að styðja verkefnið og fylgja því markvisst eftir. Megin

TEKUR Á ÞVÍ Á TÍRÆÐISALDRI

Gunnar Sigurðsson er 94 ára og tekur á því í ræktinni. Örugglega sá elsti á Suðurnesjum. „Jú, svei mér ef þetta hefur ekki góð áhrif á mig,“ sagði sá gamli í spjalli við VF og Sjónvarp Víkurfrétta. VF-mynd/pket.

viðfangsefnið er forvarnarstarf og heilsuefling á sviði líkams- og heilsuræktar fyrir eldri aldurshópa í Reykjanesbæ. Niðurstöður doktorsrannsóknarinnar sýndu að með markvissri

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

fyrirbyggjandi heilsurækt eldri aldurshópa megi efla verulega afkastagetu þeirra og lífsgæði, ásamt því að draga úr áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma. Janus bendir á að aldurshópurinn yfir 60 ára muni nær þrefaldast á næstu fimmtán árum. „Við reiknuðum með svona 60 til 80 þátttakendum hér í fyrstu lotu, en það skráðu sig yfir 120 þátttakendur og við fórum af stað með þann fjölda. Það má reikna með að eitthvað brottfall sé í þessum aldursflokki, en þau eru ótrúlega seig og dugleg og ég heyri það bara á þeim, nú eru þau að spyrja um framhaldið af því að þetta er ekkert átak í rauninni,

þetta er lífstílsbreyting og hún tekur tíma. „Hagkerfið þarf líka að skoða þessa nálgun með tilliti til þessara miklu breytinga sem eru að eiga sér stað í eldri aldurshópum. Forvörnin er tæki, ekki bara sparnaðar, heldur bætir og styrkir heilsutengd lífsgæði fólks þegar þú ert orðinn 60, 70 ára gamall og það er fullt eftir, því við erum farin að lifa lengur.“ Sjónvarp Víkurfrétta ræddi við Janus og nokkra þátttakendur í átakinu í líkamsræktarsalnum Massa í Íþróttahúsi Njarðvíkur í vikunni. Innslag úr heimsókninni er í þætti vikunnar í Suðurnesjamagasíni á Hringbraut og á vefsíðu Víkurfrétta, vf.is.


2

VÍKURFRÉTTIR

Efni frá kísilverksmiðjunni ekki í skaðlegum mæli ■■Efni frá kísilverksmiðju United Silicon í Helguvík voru ekki í skaðlegum mæli í neinum sýnum sem tekin voru í íbúabyggð í námunda við verksmiðjuna, á lóð hennar og inn í henni, þar sem styrkleiki efna ætti að vera hvað mestur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu United Silicon en niðurstöðurnar eru úr mælingum NILU, norsku loftrannsóknarstofnunarinnar, á rokgjörnum lífrænum efnasamböndum. Sýnin voru tekin á tímabilinu 21. maí til 23. júní nú í ár, en alls voru 200 efni mæld. Á meðal þeirra 35 efna sem hæst mældust var ekkert þeirra á þeim kvarða sem þykir óeðlilegur í úthverfi eða í þéttbýli. Vert er þó að taka það fram að á umræddu tímabili voru kvartanir til Umhverfisstofnunar vegna lyktar fremur fáar. Niðurstöður rannsóknanna eru því þær að engin skaðleg efni finnist í sýnunum í þeim styrk að þau gætu haft skaðleg áhrif á íbúa nærliggjandi svæða. Í samantekt skýrslunnar segir meðal annars að efnamælingarnar þyki dæmigerðar fyrir það sem þekkist utandyra yfir sumartíma í íbúðabyggð. Efnastyrkur í ofnhúsi verksmiðjunnar var fremur lágur miðað við það sem

þekkist í sams konar iðnaði, að því er segir í skýrslunni. Í síuhúsi, þ. e. reyksíu verksmiðjunnar, voru vísbendingar um lífrænt anhýdríð sem gæti valdið lykt og tímabundinni ertingu í öndunarvegi og augum, en síuhús er hluti hreinsibúnaðar verksmiðjunnar. Í skýrslunni kemur fram að þó hafi ekki reynst unnt að mæla formaldehýði á umræddu tímabili. Umhverfisstofnun óskaði þó í sumar eftir greiningu á formaldehýði í nágrenni United Silicon og í útblæstri síuhúss fyrirtækisins ásamt mælingu á öðrum gastegundum. Umsjón mælinga var í höndum Efnagreiningar Keldnaholti/Nýsköpunarmiðstöðvar. Karen Kjartansdóttir, talsmaður United Silicon, segir mikilvægast að vera viss um að öryggi íbúa á svæðinu og starfsmanna sé ekki ógnað og því séu niðurstæður mælinga sem þessara forgangsatriði. „Fyrir liggja tillögur frá NILU um frekari mælingar en það er ekki hægt að ráðast í þær nema leyfi fáist á því að ræsa verksmiðjuna á ný.“ Slökkt var á ofni verksmiðjunnar þann 1. september síðastliðinn að kröfu Umhverfisstofnunar.

Upplýsingasíða vegna kosningar um sameiningu Garðs og Sandgerðis opnuð ■■Sérstök upplýsingasíða hefur verið opnuð vegna kosninga um sameiningu Sandgerðis og Garðs, sem fram fer þann 11. nóvember næstkomandi. Markmið vefsíðunnar er að auðvelda íbúum að kynna sér stöðu sveitarfélaganna tveggja nú og ef af sameiningu verður. Þar má meðal annars finna allar helstu upplýsingar um sveitarfélögin tvö, tölfræðilegar upplýsingar svo sem íbúafjölda, rekstur, eignir og skuldir, skatta og gjöld og svo framvegis.

Á síðunni má einnig finna greiningu KPMG og sviðsmyndir sem fyrirtækið vann þar sem leitast er við að lýsa líklegri þróun sveitarfélaganna í framtíðinni. Á upplýsingasíðunni má sömuleiðis finna spurningar og svör auk þess sem íbúum í Garði og Sandgerði gefst færi á að senda inn spurningar sem brenna á þeim vegna kosninganna. Hægt er að nálgast upplýsingasíðuna á heimasíðum sveitarfélaganna eða beint á slóðinni sameining.silfra.is.

fimmtudagur 12. október 2017

●●Nýr veitingarstaður á pari við það besta í höfuðborginni opnar innan skamms

Ný upplifun í mat og drykk á Park Inn hótelinu

■■Miklar breytingar eru framundan á Park Inn hótelinu í Reykjanesbæ því Vocal veitingastaðurinn mun algjörlega breytast og opna undir nýju nafni og áherslum í lok október. Undir nýju nafni verður þar sælkera bistró veitingastaður ásamt glænýjum bar og betrumbættu „lounge-i“. „Við erum í raun að gera Vocal fokheldan og þangað fer inn þetta nýja concept sem við félagarnir höfum þróað með hótelinu síðan í vor. Þessi nýi staður verður á pari við það allra besta sem höfuðborgin hefur upp á að bjóða í upplifun á mat og drykk ásamt því að við erum að sérflytja inn glæsileg húsgögn frá Ítalíu fyrir staðinn,“ segir Jón Gunnar Geirdal markaðsmaður hjá fyrirtækinu Ysland en hann og lífsstílsmeistarinn Arnar Gauti Sverrisson stýra verkefninu og framkvæmdunum.

áhugasama í mat, drykk og öllu því tengt - og við hlökkum mikið til að kynna staðinn fyrir heimafólki á Suðurnesjum. Hvað um ykkur? Í fyrsta lagi höfum við verið vinir í meira en tuttugu ár og þar byrjar þetta í raun. Arnar Gauti er „creative director“ fyrir Húsgagnahöllina og með bloggsíðuna www.sirarnargauti.is á meðan ég hef verið í fjölbreyttum verkefnum fyrir fyrirtæki mitt Ysland. Þetta verkefni okkar í Reykjanesbæ er fyrsta „concept-clinic“ verkefni okkar, þ.e.a.s við tökum stað sem er til staðar og breytum honum frá grunni í nýja og betri allsherjar upplifun. Einnig erum við í mörgum öðrum spennandi verkefnum og áhugaverðir tímar framundan. Félagarnir Jón Gunnar og Arnar Gauti vinna að miklum breytingum á veitingastað Park Inn hótelsins.

Til hvaða markshóps ætlið þið að ná með þessum breytingum? Markhópurinn er auðvitað þessi fjölbreytta flóra alþjóðlegra gesta hótelsins en á sama tíma erum við að horfa til nýrrar upplifunar fyrir heimamenn - nú er engin þörf á því að fara út að borða, í brunch eða happy hour til Reykjavíkur - þetta verður staðurinn til þess. Við höfum upplifað það á ferðalögum okkar um heiminn þ.e.a.s., við höfum tekið út öll helstu trendin í mat og drykk og hótelbarir eru gríðarlega vinsælir og þessi blanda viðskiptavina svo skemmtileg, hótelgestir í bland við innfædda. Hvenær er stefnt að því að opna nýjan stað? Í öllum stórum framkvæmdum fylgir mikil spenna en stefnan er sett á endan október ef allt gengur eftir og sú opnun mun ekki fara framhjá heimafólki eða öðrum. Nú eruð þið báðir búsettir á höfuðborgarsvæðinu en hafið tengingar til Suðurnesja. Eruð þið að mæta með borgarfjör í bítlabæinn? Okkur þykir báðum vænt um Suðurnesin, nokkuð sem teygir sig aftur til æsku okkar og fjölskyldu á svæðinu. Arnar Gauti er t.d uppalinn á svæðinu og ég var mikið hérna sem barn í heimsókn hjá ömmu, afa og frændfólki. Verkefnið stendur okkur því mjög nærri og þykir okkur ótrúlega vænt um það og ætlum að skila af okkur stað sem Suðurnesjamenn geta verið stoltir af. En borgarfjör eða ekki. Við erum allavega að koma með glænýjan og glæsilegan valmöguleika í upplifun fyrir heimamenn og aðra

VIÐ ÆTLUM AÐ VERA MEÐ SÖLUSÝNINGU LAUGARDAG OG SUNNUDAG FRÁ 13:00 TIL 15:00 BÁÐA DAGANA

D L E S Löggiltir fasteignasalar:

Skilalýsingar eru:

Eignirnar eru:

Byggt samkv. samþykktum aðaluppdráttum og byggingalýsingu samþykktum 2017 af byggingafulltrúa Sandgerðisbæjar.

Fagurhóll 15, Fagurhóll 17, Fagurhóll 19, Fagurhóll 21,

Eignin skilast fullbúnin að utan með grófjafnaðri lóð, hvítar plasthurðar og plastgluggar klætt með bárujárni og timbri,

91.3 m2 89.8 m2 89.8 m2 91.3 m2 Seld

Haukur Andreasson, lfs.

Jóhannes A. Kristbjörnsson, lfs.

Úlfar Guðmundsson, lfs.

Að innan skilast eignin: Allir veggir gipsklæddir og einangraðir, loft einangrað með rafmagnsgrind (loftaklæðning fylgir), öll loft eru upptekin. Einnig fylgja hvítar innihurðir. Hitakerfi hússins er gólfhiti og neysluvatnslagnir eru lagðar undir gólfplötu, rör í rör kerfi. Hitalagnir komnar í plötu, fest niður með smartclip. Gert er ráð fyrir inntökum í vaskahúsi. Eignirnar skilast 1. nóvember samkvæmt skilalýsingu. Mögulegt er að fá eignirnar lengra komnar samkvæmt frekara samkomulagi og kaupendur hafa tök á að ganga inní tilboð frá Amp rafverktökum ásamt Lögnum og þjónustu uppá að fullklára eignina.

Lögbýli eignamiðlum Hafnargötu 35 - 230 Keflavík - 420-3040


lindex.is

Opnuna r t íma r Reykja nesbæ mán-mið fim fös lau sun

10-18 10-20 10-19 10-18 13-18


4

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 12. október 2017

Sigurbergur Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is // Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Rannveig Jónína Guðmundsdóttir, sími 421 0002, rannveig@vf.is // Sólborg Guðbrandsdóttir, sími 421 0002, solborg@vf.is // Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is // Umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is // Afgreiðsla: Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@vf.is // Prentun: Landsprent // Upplag: 9000 eintök // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is

er FS-ingur vikunnar

Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00 á þriðjudegi fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga er á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15:00 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og skilafrestur auglýsinga færist fram um einn sólarhring. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga. Blað sem kemur út á fimmtudegi er dreift á þeim degi og föstudegi inn á öll heimili á Suðurnesjum. Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.

ATVINNA

Laus er til umsóknar staða starfsmanns á hafnarvog Sandgerðishafnar Lýsing á starfinu: • Vigtun og skráning sjávarafla • Afgreiðsla á vatni og rafmagni til skipa • Raða skipum í höfn • Eftirlit með bátum og skipum í leguplássum • Þrif á bryggjum • Almennt viðhald á hafnarsvæðinu Menntunar- og hæfniskröfur: • Góð almenn tölvukunnátta • Réttindi á hafnarvog er kostur • Lögð er áhersla á kurteisi, þjónustulipurð og stundvísi Vinnutími: • Vaktavinna í 100% starfi Launakjör: • Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag Starfið hentar konum jafnt sem körlum. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist á netfangið sandgerdi@sandgerdi.is eða á skrifstofu Sandgerðisbæjar, Miðnestorgi 3, 245 Sandgerði, merktar „Starfsmaður á hafnarvog“. Umsóknarfrestur er til og með 22. október nk.

ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM

DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA, TVISVAR Á DAG.

SUÐURNES - REYK JAVÍK SÍMI: 845 0900

EftirlætisKennari: Gunni smíðakennari. Bjössi og Þorv aldur koma svo sterkir inn eft ir á. Fag í skólanum : Timburhús, (TIH10AL). Sjónvarpsþættir: St Kvikmynd: Batm ranger Things. an The Dark Knight. Hljómsveit/tón lista maður: XXX Rottw reiler Leikari: Johnny Depp, ég elska hann.

ason er 18 ára Sigurbergur Bjarn óla Suðurnesja. sk ta u ra lb jö F í i nem hann, hann elskar Kóngulær hræða g stefnir á að að spila fótbolta o ði í Danmörku. læra byggingarfræ FS-ingur: Sigurbergur Bjarnason. Á hvaða braut ertu? Húsasmiðabraut í FS. Hvaðan ertu og aldur? Ég er úr Keflavík og er 18 ára. Helsti kostur FS? Það eru helvítis kóngar og drottningar sem vinna þar. Áhugamál? Fótbolti í fyrsta sæti. Hvað hræðistu mest? Kóngulær. Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur og hvers vegna? Það er er sennilega einhver sem tengist tónlist eða íþrótt. Hver er fyndnastur í skólanum? Egill Darri Einarsson. Hvað sástu síðast í bíó? Nýju Kings Man. Hvað finnst þér vanta í mötuneytið? Nocco og Redbull. Hver er þinn helsti galli? Vinstri fóturinn. Hver er þinn helsti kostur? Hægri fóturinn. Hvaða þrjú öpp eru mest notuð í símanum hjá þér? Facebook, Instagram og Snapchat. Hverju myndir þú breyta ef þú værir skólameistari FS? Fá stoð aftur fyrir hádegi. Hvaða frasa eða orð notar þú oftast? „I like dat“. Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum? Núna er félagslífið í FS hrein skita, nefndirnar verða að rífa þetta í gang ASAP. Hvert er stefnan tekin í framtíðinni? Atvinnumennskan í fótboltanum er plan A. Það hefur alltaf heillað mig að spila með A-landsliðinu.

Ég hef hins vegar verið að glíma við meiðsli og þurft að hvíla í ár. Ég mun svo alltaf mennta mig líka og eins og staðan er núna er ég

hrifinn af byggingariðnaði. Ég væri til í að fara í háskóla í Danmörku. Hver er best klæddur í FS? Axel Ingi.

r a n n u ik v i m e n la ó k s Grunn Nafn: Ásta María V. þegar ég er að flýta mér. Guðjónsdóttir. Hvað er skemmtilegasta Skóli: Holtaskóli. fagið? Klárlega náttHver eru áhugamálin þín? úrufræði og enska. Förðun, tíska og svoleiðis. En leiðinlegasta? Mér Í hvaða bekk ertu og finnst leiðinlegast í hvað ertu gömul? Ég er stærðfræði og sundi. 15 ára og ég er í 10. bekk. Án hvaða hlutar geturðu Hvað finnst þér best ekki verið? Augnháravið það að vera í Holtauppbrettara og varasalva skóla? Það er alltaf og svo auðvitað símans. gaman í tíma hjá Marý og Mæju, svo er alltaf gaman með krökkunum. Ertu búin að ákveða hvað þú ætlar að gera þegar þú útskrifast úr skólanum? Ég stefni á að fara í MR eða Kvennó. Ertu að æfa eitthvað? Neibb. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Bara að vera með vinum og svoleiðis. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Bíða eftir asalat. fólki : Kjúkling ubbi lds matur B Uppáha maður: tónlistar Uppáhalds ns allan daginn. at. Morthe app: Snapch Uppáhalds ur: Síminn minn. hlut ives. Uppáhalds : Desperate Housew r u t t á þ s Uppáhald

ÍSLAND FRÁ A TIL Ö

– NÝ VEGFERÐ Í MARKAÐSSETNINGU ÁFANGASTAÐARINS Íslandsstofa verður með fund á Reykjanesi 19. október þar sem farið verður yfir nýjar markaðsáherslur og markhópagreiningu fyrir ferðaþjónustuna. Fundurinn er haldinn í samstarfi við Markaðsstofu Reykjaness og er öllum opinn.

Dagskrá • Hverjir eru markhópar íslenskrar ferðaþjónustu - ný markhópagreining • Ísland frá A til Ö - nýjar markaðsáherslur • Áfangastaðurinn Reykjanes • Umræður um framtíðina Í lokin verður Markaðsstofa Reykjaness með vinnustofu fyrir áhugasama um markhópagreiningu og mörkun. Fimmtudagur 19. október kl. 12 Krossmóar 4, 5. hæð Reykjanesbær

Nánari upplýsingar og skráning á visitreykjanes.is/vinnustofa

FINNDU OKKUR Á FACEBOOK

www.visitreykjanes.is | info@visitreykjanes.is


markhönnun ehf

www.netto.is

-50%

-40%

NAUTAHAKK

1 KG (FROSIÐ Í RÚLLU)

999

KR KG

ÁÐUR: 1.665 KR/KG

BAYONNESTEIK FRÁ KJÖTSEL

999

KR KG

ÁÐUR: 1.998 KR/KG

Berjadagar -30% BRÓMBER DRISCOLLS 250 GR

RIFSBER 125 GR

HINDBER 250 GR

Tilboðin gilda 12. - 15. október 2017 www.netto.is Tilboðin gilda meðan birgðir endast • Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl • Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana. Búðakór • Grandi • Mjódd • Salavegur • Hafnarfjörður • Hrísalundur • Glerártorg • Húsavík • Höfn • Iðavellir • Grindavik • Krossmói • Borgarnes • Ísafjörður • Egilsstaðir • Selfoss


NÝBAKAÐ!

Smáratorgi opnar aftur laugardaginn 14. okt. kl. 10:00 stærri og endurbætta verslun. Fjöldi opnunartilboða.

259

Verið velkomin

kr. 300 g

Íslenskar

LÍFRÆNAR

Bónus Kanilsnúðar 300 g

Gulrætur

500g

3

198

v

kr. stk.

Bónus Ostaslaufa 120 g

PRÓTEINBOMBA

398 kr. 500 g

259

Akursel Gulrætur Lífrænar, 500 g

kr. 1 kg

Bónus Kornbrauð 1 kg

500g

200kr verðlækkun

598

98

kr. 500 g

Merrild 103 Kaffi 500 g

98

kr. 1 l

kr. 330 ml

Bónus Eplasafi 1 lítri

Ceres Jóla Hvítöl Danskt, 330 ml

1.398 kr. 200 g Gullfiskur Bitafiskur 200 g - Verð áður 1.598 kr.

LÆGRA VERÐ

NÝ SENDING

1l

381kr. verðlækkun

698

298 kr. 500 ml

1.498 kr. 1 kg

Neutral Sturtusápa Með pumpu, 1 l

Gunry Premium Handsápa 500 ml, 4 tegundir

Lýsi Omega3 Forte 150 töflur

kr. 1 l

Verð gildir til og með 15. október eða meðan birgðir endast

4.998 kr. stk. Nutrilenk Gold Fyrir þá sem þjást af verkjum og sliti í liðamótum, 180 töflur. Verð áður 5.379 kr.


!

FULLELDAÐ Aðeins að hita

300kr

798 kr. kg

1.298 kr. kg

Ali Spareribs Fullelduð - Verð áður 1.098 kr. kg

Bónus Hamborgarhryggur Með beini

verðlækkun pr. kg

Kellogg’s

KAUPAUKI Cars 350g

Bónus Allra Landsmanna

kr

475 kr. pk.

798 kr. kg

Kellogg’s Special K 750 g - Kaupauki Cars Morgunkorn, 350 g

2

Ð

kr.

n

Rauð Vínber USA

brauð í pakka

Matarmiklar súpur

FULLELDAÐAR Aðeins að hita

139 kr. pk.

Hvítlauksbrauð 2 stk. í pakka

1.598 kr. 1 kg

1.498 kr. 1 kg

Mexíkósk Kjúklingasúpa 1 kg

Íslensk Kjötsúpa 1 kg

Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00


8

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 12. október 2017

#godarsogur Formaður Ljósops vann myndaleikinn Góðar sögur Jón Óskar Hauksson bar sigur úr býtum í ljósmyndasamkeppninni „Við höfum góðar sögur að segja“ sem Heklan – atvinnuþróunarfélag Suðurnesja stóð fyrir. Að launum hlýtur Jón Óskar ferðavinning fyrir tvo með flugfélaginu WOW Air. Á fimmta hundrað myndir bárust í keppnina en hún gekk út á að taka myndir á Reykjanesinu og birta á samfélagsmiðlinum Instagram undir myllumerkinu #godarsogur. Fjöldi vinninga var í boði en aðalvinningurinn var flugferð fyrir tvo til Evrópu. Jón Óskar tók glæsilegar myndir í öllum sveitarfélögunum, þar á meðal Hvalsneskirkju og Kálfatjarnarkirkju, bænum Júnkaragerði og Festarfjalli. „Við erum gríðarlega ánægð með þátttökuna í leiknum og gaman að sjá hvað fólk hefur ferðast víða um svæðið sem er að vissu leyti falin náttúruperla,“ segir Dagný Maggýjar, verkefnastjóri hjá Heklunni. Það eru fáir staðir á landinu sem hafa jafn stórbrotna og fjölbreytta náttúru og Reykjanesið.” Jón Óskar, sigurvegarinn í myndaleiknum, er formaður Ljósops, félags áhugaljósmyndara á Suðurnesjum, og þekkir því Suðurnesin vel. „Ég byrjaði að fikta við að mynda svona um 2009 og nú fer ég um allt land að mynda. Ég hef að vísu haft

minni tíma síðasta árið þar sem ég hef verið að hjálpa stráknum mínum að byggja,” segir Jón Óskar. „Ég fer út um allt land að mynda en tek aðallega myndir af náttúrunni, norðurljósum og fossum. Ég ferðast mikið innanlands til að mynda en skýst líka svona dagstúra hér á Suðurnesjunum.“ Jón Óskar segist eiga sína uppáhalds staði á Reykjanesi sem hann fer reglulega á til að mynda. „Það er stutt að fara og margt að finna hér á Suðurnesjum. Ég fer til dæmis í Sogin og þar í kring. Það eru svo fallegir litir þar og einn af fáum stöðum þar sem maður fær alveg að vera í friði,” segir Jón Óskar. „Ég fer líka reglulega á svæðið í kringum Gunnuhver, þar eru litlir hverir og svæðið er einhvern veginn aldrei eins. Það er eins og maður sé alltaf að koma á nýjan stað.“ Jón Óskar hlaut einnig aukavinning, út að borða Hjá Höllu, fyrir mynd sem sýnir fólk í briminu við Brimketil. „Ég mynda líka nokkuð reglulega þarna. Brimið getur verið ansi hátt í vissum áttum.”

Jón Óskar Hauksson (jonoskarhauksson) – flug fyrir tvo til Evrópu með Wow-air

Við erum með fastakúnna sem halda tryggð við okkur

Skóbúð Keflavíkur er staðsett að Hafnargötu 29 í Reykjanesbæ en árið 2002 opnuðu Steinunn Ýr Þorsteinsdóttir og Hermann Helgason búðina saman. Dalrós Jóhannsdóttir og Gunnlaugur Þór Ævarsson keyptu síðan helminginn á móti þeim í ágúst 2012. Upphaflega var skóbúðin staðsett að Hafnargötu 35 en þær Steinunn og Dalrós eru sammála því að staðsetning búðarinnar í dag sé mjög góð og eru þær alsælar á Hafnargötunni. „Við erum með fastakúnna sem halda góða tryggð við okkur,“ segja þær báðar og eru sammála því að þeir séu mikilvægur hlekkur í rekstrinum. Steinunn og Dalrós segja einnig að Ljósanótt sé hápunktur ársins þar sem að margir koma við og kaupa sér skó. Á Ljósanótt er sett

í fimmta gír og allt að sjö starfsmenn eru á hlaupum í búðinni að afgreiða. „Það er ákveðinn hópur sem kemur alltaf við á Ljósanótt og kaupir skó á hverju ári.“ Þær bjóða upp á skó fyrir alla fjölskylduna og hefur úrvalið af kuldaskóm á yngstu börnin sjaldan verið meira.

Skóbúðin er með samning við fyrirtæki í flugstöðinni ásamt Bláa Lóninu en þeir samningar hafa verið í mörg ár og eru alltaf endurnýjaðir ár frá ári. Þeir samningar eru afar mikilvægir að þeirra sögn en það eru ekki margir sem átta sig á því hvaða áhrif það hefur á lítið fyrirtæki eins og þeirra að hafa samninga við stór fyrirtæki sem vilja versla í heimabyggð. „Fólk kemur hingað þegar það hefur jafnvel leitað að skópari um alla höfuðborg,“ segir Dalrós. „Við erum með rjómann af því besta og kaupum inn það sem kúnninn vill hverju sinni. Þetta snýst allt um framboð og eftirspurn.“ „Margir vita ekki af því en við erum með opið til klukkan fjögur á laugardögum,“ segir Steinunn. „Við stöndum vaktina alla daga og vinnum tvo daga og erum tvo daga í fríi. Við erum einnig með annan starfsmann, hana Katrínu, með okkur í búðinni.“ Aðspurðar um skótískuna í dag eru þær sammála um það að vetrartískan sé frábrugðin sumartískunni. „Ökklastígvélin eru alltaf vinsæl á veturna og kuldaskórnir á börnin, svo eru stígvélin líka vinsæl,“ segir Dalrós.

Rúnar Muccio – gisting fyrir tvo á Hótel Keflavík

Marvin Ingi Einarsson (marvineinars) – árskort í Víkingaheima


Nýir og notad ir HJÁ BERNHARD REYKJANESBÆ

OPIÐ LAUGARDAG MILLI KL. 11:00 OG 16:00

Komdu og prófaðu nýja og notaða gæða bíla á góðu verði. Sölufulltrúar okkar verða í samningsstuði. Það verður líf og fjör hjá okkur í Bernhard Reykjanesbæ á nýjum og notuðum dögum, þar sem við kynnum allt það helsta Honda. Bílaplanið er endurnýjað af nýjum notuðum bílum á einstöku verði. Grill, gos og góðgæti. Njarðarbraut 15 • 260 Reykjanesbæ • Sími 421 7800 • www.bernhard.is


Maður vikunnar árið 2000

10

VÍKURFRÉTTIR

Íris Sigtryggsdóttir starfar sem verslunarstjóri hjá BYKO á Suðurnesjum en hún var valin „Maður vikunnar“ í einu tölublaði Víkurfrétta árið 2000. Þá svaraði hún spurningalista sem birtist í blaðinu. Íris svarar nú sama spurningalista, sautján árum síðar.

Nafn: Margrét Íris Sigtryggsdóttir Fædd hvar og hvenær: 11. ágúst 1968 í Reykjavæik Stjörnumerki: Ljón Atvinna: Yfirmaður á skráningarskrifstofu Varnarliðsins Laun: Fín Maki: Andrew, Ásgrímur Krczek Börn: Daði Þór Ásgrímsson Bifreið: Toyota Corolla og Nissan Maxima Besti bíllinn: Nissan Versti bíll: Flokkast enginn undir það Uppáhaldsmatur: Góður fiskur Versti matur: Mér finnst allt gott Besti drykkur: Grand Mariner og kaffi Skemmtilegast í umferðinni: Þegar ég keyri sjálf Leiðinlegast í umferðinni: Tillitsleysi Gæludýr: Engin Skemmtilegast í vinnunni: Þegar allt gengur upp Leiðinlegast í vinnunni: Þegar hringt er í mig á nóttunni Hvað kanntu að meta í fari fólks: Heiðarleika En verst: Frekja og tillitsleysi Draumastaðurinn: Sumarbústaðurinn Uppáhalds líkamshluti á körlum: Ekki uppgefið Fallegasti karl fyrir utan maka: Daði Þór Bókin á náttborðinu: Stafakarlarnir Uppáhalds blað/tímarit: Morgunblaðið Besti stjórnmálamaðurinn: Halldór Ásgrímsson Uppáhalds sjónvarpsþátturinn: E.R. Íþróttafélag: Er að gera upp hug minn Uppáhalds skemmtistaður: Enginn Þægilegustu fötin: Náttbolurinn Framtíðaráform: Að gera betur Spakmæli: Hver er sinnar gæfu smiður

fimmtudagur 12. október 2017

Haustfagnaður á Hlévangi

Sömu spurningu svarað sautján árum seinna

Atvinna: Verslunarstjóri BYKO Suðurnesjum Laun: Má alltaf semja um meira Maki: Ragnar Sævarsson (kæró) Börn: Daði Þór Ásgrímsson Bifreið: Skoda Octavia Besti bíllinn: Scoda Octavia Versti bíll: Hef alltaf verið á eðalvögnum Uppáhaldsmatur: Íslenskur Versti matur: Núðlusúpur Besti drykkur: G&T Skemmtilegast í umferðinni: Hringtorg Leiðinlegast í umferðinni: Fólk sem kann ekki að keyra í hringtorgum Gæludýr: Ný búin að kveðja hana Perlu eftir tæp 16 ár (Labrador) Skemmtilegast í vinnunni: Viðskiptavinirnir og samstarfsfólkið Leiðinlegast í vinnunni: Aldrei leiðinleg stund hjá BYKO Hvað kanntu að meta í fari fólks: Sveigjanleika og húmor En verst: Drama Draumastaðurinn: Er að leita að honum Uppáhalds líkamshluti á körlum: Hendurnar Fallegasti karl fyrir utan maka: Fegurðin kemur að innan Bókin á náttborðinu: Sterkari í seinni hálfleik Uppáhalds blað/tímarit: Þessa dagana er það BYKO blaðið Besti stjórnmálamaðurinn: Hef lúmskt gaman af Brynjari Níels og svo er Bjarni flottur Uppáhalds sjónvarpsþátturinn: Núna er það Shameless Íþróttafélag: Hvað sagðiru……... Uppáhalds skemmtistaður: Alltaf gaman að setjast inn á Boston Þægilegustu fötin: Náttfötin klárlega Framtíðaráofm: Hvenær kemur þessi framtíð? TÓNLEIKAR TVEGGJA KÓRA Í DUUS Spakmæli: „Lífið snýst bara um hugarfar“ Karlakór Keflavíkur og Harmóníukórinn úr Árbæ bjóða til tónleika í Duus Safnahúsum í samvinnu við Duus Safnahús föstudaginn 13. október kl. 20.00. Ókeypis aðgangur.

VIÐBURÐIR

Haustfagnaður íbúa, aðstandenda og starfsfólks Hlévangs var haldinn sl. föstudag í samkomusal Hlévangs við Faxabraut í Reykjanesbæ. Söngfuglarnir Jógvan Hansen og Selma Björnsdóttir fóru með veislustjórn, sungu nokkur lög og fóru með gamanmál. Veitingamenn Hrafnistu töfruðu fram kótilettuveislu og að loknu borðhaldi og meiri söng frá þeim Jógvan og Selmu var slegið upp dansleik þar sem Thelma Byrd og hljómsveit sáu um skemmtunina. Ljósmyndari Víkurfrétta, Hilmar Bragi, smellti meðfylgjandi myndum á haustfagnaðinum.

LISTASAFN REYKJANESBÆJAR Nú fer hver að verða síðastur til að sjá eftirtaldar sýningar: Glyttur. Sýning Elísabetar Ásberg í Gryfju. Blossi. Sýning Sossu og Antons Helga Jónssonar í Bíósal. Próf. Sýning Fríðu Dísar Guðmundsdóttur í Stofu. Síðasti sýningardagur er sunnudagur 15. október. Opið 12-17. BÓKASAFN REYKJANESBÆJAR Hugleiðsla kl. 12:15-12:30 alla mánudaga í vetur. Enginn aðgangseyrir. Miðvikudaginn 18. október kl. 19.30 verður föndurkvöld í safninu. Kennt verður Bókabrot sem breytir gömlum og gölluðum bókum í fegursta stofustáss. Þú þarft bara að mæta og vera með. Allir velkomnir.

LAUS STÖRF

Arnar Guðjónsson, Arnar Dór og Hrafnkell Pálmarsson.

AKURSKÓLI VELFERÐARSVIÐ

Skólaliðar Starfsfólk á heimili fatlaðra barna

Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanesbæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf og á Facebook síðunni Reykjanesbær - laus störf. Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði.

Voice-stjarna gefur út sitt annað lag

■■Söngvarinn og Voice stjarnan Arnar Dór hefur gefið út sitt annað lag en það ber heitið „Þarna ert þú“ og er eftir þá Hrafnkel Pálmarsson og Valgeir Magnússon. Arnar Guðjónsson sér um upptökustjórn lagsins en hann hefur meðal annars séð um upptökustjórn fyrir hljómsveitina Kaleo.

Arnar Dór lenti í öðru sæti í söngkeppninni The Voice Ísland síðasta vetur og í vor gaf hann út sitt fyrsta lag „Hittu mig í draumi“ sem var mikið spilað á útvarpsstöðvum landsins. „Ég er gríðalega ánægður með útkomuna á þessu lagi sem ætti að tala til margra. Ég tengdi sérstaklega vel við lagið þar sem oft hefur maður þurft

að harka að sér og hamast, algjörlega búinn en svo fær maður eitt bros að morgni og þá er þetta allt þess virði. Alma, konan mín, kom svo með mér í bakraddirnar sem heppnuðust ótrúlega vel. Ég er spenntur að sjá hvernig fólk mun taka laginu,“ segir Arnar Dór um útkomuna.


fimmtudagur 12. október 2017

11

VÍKURFRÉTTIR

Minjar og náttúra Evrópsku menningarminjadagarnir 2017

Patterson flugvöllur Laugardaginn 14. október kl. 14:00 verða flutt stutt fræðsluerindi um herminjar í Duus safnahúsi í Keflavík og í lok þeirra verður farið í vettvangsferð á Pattersonflugvöll en Bandaríkjamenn hófu byggingu hans snemma árs 1942. Viðburðurinn er samstarfsverkefni Minjastofnunar Íslands, Byggðasafns Reykjanesbæjar og Reykjanes Geopark.

14. október

Nánari upplýsingar á www.minjastofnun.is www.europeanheritagedays.com

Viðburðurinn er ókeypis og allir eru velkomnir!

Yndislegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,

Walter Gunnlaugsson, lést þann 3. október 2017 og er hans sárt saknað. Kveðjuathöfn hefur farið fram. Anna Lísa Ásgeirsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. ( Káinn)

Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,

Halldís Bergþórsdóttir,

Er minnið farið að gefa sig?

Getur það verið að minnið sé farið að gefa sig? Heilabilun er ástand en ekki nafn á sjúkdóm, Alzheimer er einn af heilabilunarsjúkdómunum. Alzheimer er ekki öldrunarsjúkdómur, þetta er hrörnunarsjúkdómur. Ert þú aðstandandi? Hvar er að finna gagnlegar upplýsingar? Tölum um heilabilun.

Vegna þessa stóra málaflokks sem heilabilun er, þá viljum við minna Suðurnesjamenn á Alzheimersamtökin á Suðurnesjum. Hópurinn samanstendur af hópi kvenna sem hefur á bak við sig bæði fagmenntun og mikla reynslu af heilabilun í fjölskyldu. Unnið hefur verið mikið sjálfboðaliðastarf í þessum málaflokki, með það að markmiði að efla fræðslu og opna umræðu um heilabilun á heimaslóðum. Undanfarin ár hefur sú stefna verið höfð að hafa þrjá fræðslu/spjallfundi yfir veturinn. Yfirskrift fundanna núna er „ ALZHEIMERKAFFI“ sem er svo auglýst með veggauglýsingum/netpóstum og á Facebook síðu sem heitir Alzheimersamtökin á Suðurnesjum. Hvetjum við sem flesta að líka við síðuna og deila. Kaffiveitingar eru á hverjum fræðslufundi, allir velkomnir og enginn aðgangseyrir. Við viljum geta þess að allt frá upphafi starfssemi okkar höfum við átt góða að hér á Suðurnesjum og notið

styrkja frá ýmsum klúbbum og félagasamtökum bæði í formi beinna og óbeinna fjárstyrkja. Allt það hefur gert okkur kleift að geta boðið upp á fría fræðslu og kaffiveitingar og allir notið. Viljum við því koma þökkum á framfæri til allra þeirra sem stutt hafa við samtökin. Við bjóðum nýtt fólk velkomið í vinnuhópinn okkar og biðjum áhugasama að vera í sambandi með skilaboðum í gegnum Facebook síðuna. Við vekjum einnig athygli á að við erum hluti af tenglaneti Alzheimersamtakanna á Íslandi, sem hafa komið upp svipuðu tenglaneti nánast um allt land, öll með sömu meginmarkmið. Við mælum eindregið með að fólk kynni sér þá víðtæku starfssemi sem Alzheimersamtökin á Íslandi (www. alzheimer.is) standa fyrir, ásamt því að leggja þeim lið. Hjá þeim eru mikið af gagnlegum upplýsingum um heilabilun í heild sinni s.s. persónuleg ráðgjöf, ráðgjafasími og hvers kyns úrræði.

Við vekjum athygli á að vetrastarfið er hafið og fyrsta Alzheimerkaffinu er lokið þar sem Sr.Jóna Hrönn Bolladóttir var með erindið ,,Gleymum ekki þeim gleymnu“. Næsta Alzheimerkaffi er áætlað miðvikudaginn 8. nóvember n.k., kl. 16.30 (í beinu frh. af spilavist á Nesvöllum) og verður nánar auglýst, á Facebook síðu okkar. Gestur nóvemberfundar verður Sirrý Sif Sigurlaugardóttir, fræðslu- og verkefnastjóri Alzheimersamtakanna á Íslandi, sem verður með athyglisverðar og nytsamlegar upplýsingar um hið víðtæka starf sem samtökin standa fyrir. Við vonumst eftir áframhaldandi góðri mætingu í Alzheimerkaffi á Suðurnesjum og styðja þannig við fræðslu á heimaslóðum. F.h. Alzheimersamtaka á Suðurnesjum Aðalheiður Valgeirsdóttir Hjúkrunarfræðingur

Langholti 14, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn 6. október. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þeir sem vilja minnast hennar er bent á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Ásgerður Kormáksdóttir Jón Jóhannsson Jórunn Tómasdóttir Skúli Thoroddsen Halla Tómasdóttir Pálmi Einarsson Bergþóra Tómasdóttir Stefán Eyjólfsson Tómas Tómasson Svala B. Reynisdóttir barnabörn og barnabarnabörn.

Ástkær sonur okkar, bróðir, mágur og barnabarn,

Jón Einar Randversson,

Holtsgötu 14, Reykjanesbæ, er látinn. Útför hans fer fram í kyrrþey. Randver Richter Heiðrún Friðbjörnsdóttir Svala Kristín Pálsdóttir Aðalsteinn Jörgensen Rannveig K. Richter Heba Maren Sigurpálsdóttir Karen Ösp Randversdóttir ömmur og afi

Okkar yndislegi pabbi, sonur, bróðir, barnabarn, frændi, og fyrrum sambýlismaður,

Kristinn Freyr Ólafs,

flugvirki, Fífumóa 5d, Njarðvík, lést á heimili sínu, mánudaginn 2. október. Kristinn Freyr, yndið okkar, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju, mánudaginn 16. október kl. 13:00. Kær kveðja, Lilja Rún Ólafs Kristinn Karl Ólafs Sigurjóna Sigurbjörnsdóttir Björgvin Haraldur Ólafs Sigríður Inga Eysteinsdóttir Herdís Matthildur Ólafs Sigurbjörn Þór Kristinsson Sædís Þorbjörnsdóttir Vilborg Telma Kristinsdóttir Róbert Aron Kristinsson Ólafs Inga Valgarðsdóttir Sigurbjörn Björnsson Þóra Þórhallsdóttir systkinabörn hins látna og Jóhanna Margrét Eggertsdóttir.


12

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 12. október 2017

Lést eftir fall úr bíl ■■Karlmaður sem fór úr leigubíl á ferð í ágúst síðastliðnum er látinn. Maðurinn féll út úr leigubifreið á ferð á Austurbraut á Ásbrú. Við fallið hlaut hann mikla höfuðáverka. Maðurinn, sem var kínverskur ferðamaður, virðist hafa kastað sér út úr bílnum á ferð og skall illa í götuna. Lögreglan á Suðurnesjum fer með rannsókn málsins en ekki er grunur um að andlát mannsins hafi borið að með saknæmum hætti. Rannsókn málsins er nú á lokastigi.

UPPBYGGINGARSJÓÐUR SUÐURNESJA AUGLÝSIR EFTIR STYRKUMSÓKNUM

Ný ÓB stöð opnuð við Aðaltorg í Reykjanesbæ ■■Olíuverzlun Íslands opnaði sl. föstudag nýja ÓB stöð við Aðaltorg að Aðalgötu 62 í Reykjanesbæ við skemmtilega athöfn. Jökull og Auður Ingvarsbörn afhentu Steinari Sigtryggssyni, útibússtjóra Olís á Suðurnesjum, lykil sem Auður perlaði í tilefni opnunar ÓB stöðvarinnar. Nýja stöðin er sjálfsafgreiðslustöð sem býður upp á gott og einfalt aðgengi að eldsneytissjálfsölum. „Það er sérlega ánægjulegt að opna þessa nýju og flottu ÓB stöð í hjarta Reykjanesbæjar á 90 ára afmæli Olíuverzlunar Íslands. Með auknum straumi ferðamanna til landsins hefur þörfin aukist fyrir nýja stöð í Reykjanesbæ. Við erum með opnun þessarar stöðvar að auka mjög þjónustu við

ferðamenn, sem margir aka um á bílaleigubílum, en ekki síður við íbúa á svæðinu og alla þá heimamenn sem starfa við ferðaþjónustu á Keflavíkursvæðinu og þá sérstaklega í Leifsstöð. Markmið ÓB er að fjölga valkostum í eldsneytissölu á Íslandi en jafnframt að koma til móts við óskir viðskiptavina sem gjarnan vilja dæla sjálfir gegn lægra verði. Við leggjum áherslu á að stöðvarnar séu bjartar og snyrtilegar, að aðgengi að þeim sé gott og sjálfsalar einfaldir í notkun,” segir Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís. Fyrsta sjálfsafgreiðslustöð ÓB var opnuð við Fjarðarkaup í Hafnarfirði árið 1996. Með nýju stöðinni á Aðalgötu er fjöldi ÓB stöðva nú 37 talsins víðs vegar um landið.

Tilgangur uppbyggingarsjóðs Suðurnesja er að styrkja menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Suðurnesjum. Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður, auglýst er reglulega eftir umsóknum og þær metnar út frá reglum sjóðsins. Styrkveitingar miðast við árið 2018 og aðeins er um eina úthlutun fyrir árið að ræða. Hægt er að sækja um styrki í eftirfarandi flokkum: • Styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar. • Styrkir á sviði menningar og lista. • Stofn- og rekstrarstyrkir á sviði menningarmála. Umsóknareyðublöð eru á vef Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum www.sss.is. Á vefsíðunni má einnig kynna sér úthlutunarreglur sjóðsins og Sóknaráætlun Suðurnesja.

Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís, og Steinar Sigtryggsson, útibússtjóri Olís á Suðurnesjum, klipptu á borðann og opnuðu ÓB stöðina formlega.

Umsóknarfrestur er til 9. nóvember 2017. Nánari upplýsingar veitir: Björk Guðjónsdóttir, verkefnastjóri bjork@sss.is eða í síma 420 3288.

SÓKNARÁÆTLUN SUÐURNESJA Jökull og Auður Ingvarsbörn afhentu Steinari Sigtryggssyni, útibússtjóra Olís á Suðurnesjum, lykil sem Auður perlaði í tilefni opnunar ÓB stöðvarinnar.


ÍSLENSKA/SIA.IS/TOY 86046 10/17

hjá Toyota Reykjanesbæ á laugardag kl. 12–16

Við hrópum ferfalt húrra fyrir sérvöldum bílum á sýningartilboði. Takmarkað magn af Land Cruiser 150 Black, Hilux Invincible, RAV4 og C-HR á sjaldséðu verði. Til að fagna haustinu fylgir 100.000 kr. gjafabréf frá 66°N með hverjum seldum bíl á sýningunni. Funheitt tilboð á Webasto miðstöðvum fyrir veturinn og sértilboð á vetrardekkjum frá Kletti. Rjúkandi kakó með rjóma og gómsætar veitingar á dúndurflottri haustsýningu hjá Toyota Reykjanesbæ, viðurkenndum söluaðila Toyota, laugardag kl. 12–16. Kynntu þér Toyota FLEX, nýja leið til að eignast Toyota bifreið, á www.toyota.is VILDARPUNKTAR ICELANDAIR MEÐ ÖLLUM NÝJUM TOYOTUM

3+2 ÁBYRGÐ

Sjá nánar um Vildarpunktasöfnun á www.toyota.is Allar upplýsingar eru birtar með fyrirvara um villur.

Toyota Reykjanesbæ Njarðarbraut 19 Reykjanesbæ Sími: 420-6600


14

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 12. október 2017

Börn þurfa að læra að þekkja tilfinningar sínar Búum við mikla streitu

Lovísa segir að um sex þúsund hugsanir fari í gegnum heilann á degi hverjum og heilinn sé í raun og veru eins og lestarstöð. „Það er síðan þitt að ákveða hvar þú ætlar að stoppa á lestarstöðinni, hvort þú ætlir að stoppa við það jákvæða eða það neikvæða. Við búum við mikla streitu frá morgni til kvölds og þurfum að læra að kúpla okkur út og læra að anda. Núvitund byggist á því að vera hér og nú, staldra við í smástund og anda, því þannig jarðtengir maður sig. Börn verða oft þreytt þegar þau prófa að staldra við og anda því þá eru þau í raun og veru aðeins að kúpla sig út. Þau átta sig ekki á því hvað þau eru í miklu stressi og spennu daglega.“

Lovísa Hafsteinsdóttir og dóttir hennar Gunnella Hólmarsdóttir eru að fara af stað með námskeið fyrir börn á aldrinum tíu ára til tvítugs. Á námskeiðinu leggja þær áherslu á jákvæða sjálfsmynd, að þekkja tilfinningar sínar og kvíðaeinkenni, efla félagsfærni og að standa með sjálfum sér, styrkleika og veikleika, hugarró og núvitund. Námskeiðið stendur yfir í sex vikur og fer fram einu sinni í viku í eina og hálfa klukkustund í senn. Það mun fara fram í Fjölskyldusetrinu á Skólavegi 1 í Reykjanesbæ. Lovísa er menntaður námsráðgjafi en í grunninn er hún tómstundafræðingur. Hún hefur einnig lokið námi í hugrænni atferlismeðferð (HAM) þar sem unnið er með kvíða og þunglyndi og svo var hún einnig að útskrifast í jákvæðri sálfræði. Námskeiðið byggist á hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði, hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) og núvitund, en allt eru þetta þættir sem hafa áhrif á hamingju og velferð einstaklingsins.

Vanlíðan barna orðin algengari

„Ég er búin að vera með þetta námskeið í maganum í mörg ár en ég er búin að vinna með börnum í þrettán ár. Ástæðan fyrir því að ég fór í

HAM var að fá fleiri tæki og tól til að vinna með því sem við erum að takast á við í samfélaginu í dag. Almenn vanlíðan barna er orðin mun algengari og nýjustu rannsóknir koma okkur ekki á óvart. Það er alveg sama hvaða rannsókna þú lítur til, allar benda þær á vanlíðan. Mörg börn þekkja ekki þessar tilfinningar og hafa ekkert í höndunum til að vinna með.“

Læra tjáningu í gegnum leik

Dóttir Lovísu starfar í Borgarleikhúsinu þar sem hún er með leiklistarval og sér einnig um „Leiktu með“ hér á Suðurnesjum. „Ég spurði hana hvort hún vildi ekki taka þátt í þessu verkefni með mér. Hún hefur mikinn áhuga á börnum og mun koma inn með tjáninguna. Þau læra tjáningu í gegnum leik og það að fara aðeins út fyrir rammann, þau fá þá líka hugsanlega þor til að gera það sem þeim langar til að gera.“

Veljum sjálf hamingjuna

„Í dag er áreitið alls staðar og kröfurnar eru miklar. Á námskeiðinu mun ég fara yfir hvernig hægt er að takast á við áreitið og það að við höfum val. Við höfum val um það hvað við gerum, hverjum við fylgjumst með o.s.frv. Það er nauðsynlegt að kenna börnunum okkar að þau hafa val um að vera hamingjusöm, hvernig þau hugsa og hvort þau vilji sjá það jákvæða eða neikvæða í kringum sig.“

Sælla að gefa en þiggja

Jákvæða sálfræðin breytti lífi Lovísu og segist hún hafa fengið nýja sýn á lífið eftir að hún útskrifaðist. „Ég hef val og þarf ekki að ströggla í einhverjum erfiðum tilfinningum eða eyða heilu dögunum í neikvæðar hugsanir. Ég hef val og get valið hvað ég vil gera. Það er gott í kringum mig alls staðar, ég hef styrkleika og það er líka mikilvægt að vinna með styrkleika sína og vera duglegur að þakka fyrir sig. Allar rannsóknir sýna það að okkur líður best þegar við gerum eitthvað gott fyrir aðra því sælla er að gefa en þiggja.“

Hægt er að sækja um hvatagreiðslur fyrir námskeiðið á heimasíðu Reykjanesbæjar. Námskeiðin verða á miðvikudögum: 5.-7. bekkur kl.16:30- 18:00. 8.-10. bekkur kl.18:10-19:40. 16-20 ára kl.20:00-21:30. Verð: 29.000 kr. Skráning á sensjalfsstyrking@gmail.com Einnig er ykkur velkomið að hafa samband við Lovísu í síma 894-5097 fyrir nánari upplýsingar.

Heilsu- og forvarnar­ viku á Suðurnesjum lokið ■Heilsu■ og forvarnarvika á Suðurnesjum fór fram vikuna 2. til 8. október sl. Tilgangur og markmið vikunnnar var að hvetja íbúa til heilsusamlegs lífernis. Fjölmargar stofnanir sveitarfélaganna, fyrirtæki og einstaklingar buðu upp á metnaðarfulla dagskrá. Að auki var boðið upp á margs konar fyrirlestra um hreyfingu og heilsu. Mörg fyrirtæki voru með heilsuvörur á tilboði. Með sameiginlegu framlagi þeirra fjölmörgu sem tóku þátt með einum eða öðrum hætti göngum við veginn fram á við til betri heilsu. Það er mikilvægt að huga að heilsu og forvörnum. Það er von okkar að Heilsu- og forvarnarvikan verði hvatning fyrir íbúa sveitarfélaganna til að halda áfram að hlúa að velferð sinni, fjölskyldu sinnar og nærumhverfis. Það skiptir máli að við hlúum vel hvort að öðru. Við þökkum ykkur öllum fyrir þátttökuna og hlökkum til að efla vikuna enn frekar að ári með ykkur. Allar ábendingar varðandi Heilsuog forvarnarvikuna eru vel þegnar á netföng skipuleggjanda sem eru hér að neðan: hafthor.birgisson@reykjanesbaer.is rut@sandgerdi.is bjorg@grindavik.is stefan@vogar.is gudbrandurjs@svgardur.is

PÓLÝHÚÐUN Bergraf-stál ehf. hefur tekið í notkun nýjan búnað til duftlökkunar (Pólýhúðunar). Við getum húðað fyrir þig málmhluti allt að 3,1 m á lengd, bílfelgur ofl. ofl.

Við erum í Selvík 3 – bil nr. 7 - Reykjanesbæ. Kíktu við og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig. Þú getur einnig fengið frekari upplýsingar í síma 692 7353 Kiddi og með að senda okkur tölvupóst á netfangið poly@bergraf.is


fimmtudagur 12. október 2017

! ð o b l i T

25%

NÝTT BLAÐ

AFSLÁTTUR AF ÖLLU PARKETI

LJÓS, PERUR, PARKET INNRÉTTINGAR OFL.

Til 16. október

GILDIR 28. SEPTEMBER - 16. OKTÓBER

Flettu blaðinu

20% AFSLÁTTUR AF

á www.byko.is

20% 20% AFSLÁTTUR AF VINNUFATNAÐI

OG ÖRYGGISSKÓM

25%

AFSLÁTTUR AF ÖLLUM PERUM OG LJÓSUM Til 16. október

AFSLÁTTUR AF

ICOPAL ÞAKRENNUM

25% 25%

AFSLÁTTUR AF ÖLLU TORIN

15

VÍKURFRÉTTIR

AFSLÁTTUR AF ÖLLUM MATAR-

OG KAFFISTELLUM

Auðvelt að versla á netinu


Kosningar 2017

Hvetja flokka að setja málefni aldraða í forgang ●●Öldungaráð Suðurnesja vill betri heilbrigðisþjónustu Aðalfundur Öldungaráðs Suðurnesja fór fram þann 23. september síðastliðinn. Mikið var rætt á fundinum um það hversu höllum fæti heilbrigðismálin standa hér á Suðurnesjum. Þá var einnig rætt að skortur sé á hjúkrunarrýmum á Suðurnesjum, bæta þurfi þjónustu verulega og flokkar hvattir til að setja málefni aldraðra í forgang fyrir næstu kosningar.

Mikill skortur á hjúkrunarrýmum á Suðurnesjum

Formaður Öldungaráðs Suðurnesja Erna M. Sveinbjarnardóttir tók til máls á fundinum og sagði hún að þegar litið væri til baka á þessu ári þá hafi stjórnin verið afar atorkusöm. Stjórnin hefur meðal annars lagt áherslu á og komið fram ályktunum

Kosningar 2017 Nú eru að koma kosningar til Alþingis 2017. Stjórnmálaflokkar og frambjóðendur þeirra fara um kjördæmið og eiga atvinnuviðtal við kjósendur. Við erum að velja okkur fulltrúa til að stjórna landinu fyrir okkur næstu fjögur árin svo það er eins gott að velja vel. Þessar kosningar koma alveg eins óvænt og síðustu kosningar, það má ekki gleymast að það er allt vegna þess að eitthvað óviðeigandi, sem var falið fyrir okkur almenningi og reynt að troða niður í undirdjúpin, flaut upp á yfirborðið. Við íbúar Reykjanesbæjar höfum einnig þurft að upplifa slíka leyndarhyggju hvað varðar starfsleyfi United Silicon og það stóriðjubrölt sem á sér stað í Helguvík. En í þessari grein minni ætla ég ekki mikið að tala um það mál heldur um stöðu okkar hér í bæjarfélaginu. Um það afskiptaleysi og fjársvelti sem við höfum

www.n1.is

eins og; Mikill skortur er á hjúkrunarrýmum á Suðurnesjum, hér er skorturinn sá mesti á landinu. Haldi þetta svona áfram getur skapast neyðarástand. Fólksfjölgun er einnig mikil á svæðinu og það fjölgar sífellt í hópi aldraða. Þetta hefur verið rætt við ráðamenn á fundum en það virðist vera talað fyrir daufum eyrum. Ekki nóg þurft að þola í samhengi við þær kosningar sem fram undan eru. Bæjarfélagið okkar rambar á barmi gjaldþrots og þar vega hæst skuldir út af höfninni í Helguvík. Heilsugæslan okkar hér í Reykjanesbæ er fjársvelt og það er bara merkilegt að það skuli vera hægt að halda úti þessari lágmarksþjónustu hér á svæðinu. Við erum 22 þúsund manns, sem eru um 6,95% þjóðarinnar á Suðurnesjum, og við erum með eina heilsugæslu og eitt útibú í Grindavík fyrir allan þennan fjölda. Það þarf svo sannarlega að auka við fjármagn í heilsugæsluna og sjúkrahúsið hér á Suðurnesjum. Ekki má nú gleyma í þessari upptalningu minni um þann húsnæðisvanda sem fólk er að glíma við hér á Suðurnesjum. Fólk er nánast á götunni eða þarf að flytja inn á ættingja og vini. Ríkið tók við svæðinu á Ásbrú af Varnarliðinu og stofnaði Kadeco til að hafa umsjón með eignum sínum. Þarna skyldi ríkið okkur eftir með svæði sem svarar heilu þorpi úti á landi til að þjónusta en engan ágóða af því húsnæði sem selt var. Ég segi að við höfum verið vanrækt af ríkinu og ekki fengið neinar fyrirgreiðslur, frekar er skorið niður og þá í heilbrigðismálum, skólamálum, vegamálum, hafnarmálum o.s.frv. Þegar við bendum á þessa þætti er svarið alltaf það sama: „Þið hafið flugvöllinn, náið í tekjurnar þar“.

með að hjúkrunarrýmin séu fá heldur er skortur á læknum sem sé einnig mikið áhyggjuefni. Þau velta fyrir sér hvers vegna þjónustan er ekki lengur eins og hún var, með útibú í Sandgerði og Garði. Álagið hafi bara aukist á starfsfólk með auknum ferðamannastraumi og fólksfjölgun, ekki sé þó við starfsfólkið að sakast, það er bara að sinna vinnunni sinni.

Bíða lengst eftir umönnun

Reiknað er með að sjúkum öldruðum fjölgi ört á næstu árum og í dag eru um þrjátíu sjúkir aldraðir sem svarar einni hjúkrunardeild. Stjórn Öldungaráðs ítrekar enn og aftur áskorun sína til sveitarfélagNú kem ég aftur að upphafspunktinum. Það eru að koma kosningar og þegar frambjóðendur allra flokka koma og eiga við ykkur atvinnusamtal þá eigið þið að spyrja um alla þessa þætti og hvort þeir ætli að aðstoða okkur við að koma Suðurnesjum á réttan kjöl með því að rétta okkur hjálparhönd. Sumir vilja hneykslast og tala um kjördæmapot en hvað eru til dæmis Vaðlaheiðargöng annað en kjördæmapot? Ef við spyrjum, ef við þrýstum á þá munu raddir okkar heyrast. Við eigum ekki að þurfa að sækja okkar grunnþjónustu, svo sem lækna og sérfræðiþjónustu, til Reykjavíkur, né borga vegatolla á Reykjanesbraut. Auðvitað eru margir orðnir leiðir á loforðum sem svo oft eru svikin eftir kosningar en við megum ekki gefast upp, við verðum að hafa þrautseigju. Í ár eru það um sjö flokkar sem valið stendur um og bjóða væntanlega fram í Suðurkjördæmi. Nú er um að gera að skoða stefnur flokkanna, hlusta á frambjóðendur í sjónvarpi og útvarpi, mynda sér sína skoðun og vera upplýstur í sinni ákvörðunartöku þegar inn í kjörklefann kemur. En umfram allt að mæta á kjörstað og kjósa. Þú átt þann rétt og þitt atkvæði skiptir máli. Margrét S Þórólfsdóttir

anna á Suðurnesjum að standa saman og senda inn umsókn um uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis á Suðurnesjum. Kemur einnig fram í tillögunni að sjúkir aldraðir hér á Suðurnesjum bíði lang lengst eftir umönnun á hjúkrunarheimilum en áður hafi þeir notið þjónustu heimilishjálpar og heimahjúkrunar. Eldri borgurum fjölgi ört hér á Suðurnesjum og til að mæta því sé nauðsynlegt að bregðast nú þegar við og setja nýtt hjúkrunarheimili á dagkrá.

Bæta þarf þjónustuna

Ályktun var borin fram af ÖS og vilja þau að þjónusta fyrir sjúklinga á HSS verði færð aftur í sama horf og hún var fyrir tólf árum síðan og í það þjónustustig sem ætlað var frá upphafi. Skipulag þurfi einnig að koma á viðveru heimilislækna og ráða fleiri. Það þurfi að auka starfsemi fæðingadeildar, skurðdeildar og efla slysa- og bráðamóttöku sjúkrahússins. Fæðingum hefur fækkað gríðarlega á svæðinu undanfarin ár. Tryggja þurfi öryggi íbúa á Suðurnesjum eins og áætlun um uppbyggingu á heilbrigðisþjónustu geri ráð fyrir og aukinnar umsvifa vegna mikilla fjölgunar íbúa og vaxandi umferðar á Keflavíkurflugvelli. „Stöndum saman a rétti okkar til jafnaðar í heilbrigðisþjónustu, hér hefur verið vitlaust gefið til okkar á Suðurnesjum.“ Málefni aldraða í forgang fyrir næstu kosningar Skorað er á alla flokka sem bjóða fram í Alþingiskosningum þann 28. október næstkomandi að setja málefni aldraða í algjöran forgang á næsta kjörtímabili. Stefna þarf að því að afnema frítekjumark eldri borgara í áföngum. Fyrsta skrefið þarf að vera að hækka frítekjumarkið nú um áramótin úr 25 þúsund krónum í 100 þúsund krónur. Það stangast á við jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar að beita sérstökum skatti á fólk sem náð hefur ákveðnum aldri. Skattar og skerðingar geta í dag numið allt að 71% á eldra fólk. Óbreytt staða stuðlar að því að hvatinn til

vinna hverfur. Óbreytt staða hvetur til þess að launamenn færa sig inn í svarta hagkerfið. Það þarf því að vera algjört forgangsmál að hækka frítekjumarkið í 100 þúsund krónur um næstu áramót. Aðalfundur Öldungaráðs Suðurnesja skorar einnig á alla stjórnmálaflokka að beita sér fyrir hækkun á skattleysismörkum. Það getur ekki gengið að eldri borgarar sem hafa eingöngu 280 þúsund krónur á mánuði þurfi að greiða um 53 þúsund krónur í skatta af þeirri upphæð. Aðalfundur Öldungaráðs Suðurnesja tekur undir samþykkt Landsambands eldri borgara á Landsfundi sínum í maí s.l. : „ Í skýrslu um fjölþjóðlega rannsókn á vegum OECD kemur fram að íslenska lífeyriskerfið sker sig úr með mikilli tekjutengingu lífeyris úr almannatryggingunum, jafnframt er Ísland eina landið þar sem lífeyrir frá Tryggingastofnun fellur niður ef tekjur frá lífeyrissjóðum fara yfir tiltekin mörk. Draga þarf úr þessum skerðingum hið fyrsta og taka upp eðlilegan grunnlífeyri fyrir alla. Fundurinn bendir á að Íslendingar sé eina þjóða í Evrópu sem gert er að búa við skertan grunnlífeyri.“

Ekki komin formleg afstaða til samþættingar

Öldungaráð kannaði í júní síðastliðinn afstöðu þeirra bæjarstjórna á Suðurnesjum sem aðild eiga að Öldungarráði um samþættingu heimahjúkrunar og félagslegrar heimilishjálpar á Suðurnesjum. Svar þeirra flestra var að ekki hefði verið tekin formleg afstaða til samþættingar en það væri vissulega mikill áhugi og jákvæðni í afstöðu til málsins. ÖS hefur formlega óskað eftir því að forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja beiti sér fyrir því að skipuð verði nefnd á vegum HSS og sveitarfélaganna á Suðurnesjum sem útfæra á tillögu um fyrirkomulag samþættingar. Ályktunin var lögð fram með þeirri fullvissu að nú verði kannað hvort hægt verði að gera enn betur í málefnum eldri borgara á Suðurnesjum.

facebook.com/enneinn

Við dekkum veturinn af öryggi Pantaðu tíma fyrir dekkjaskiptin á www.n1.is

Michelin X-ICE

Michelin X-ICE NORTH

Michelin Alpin 5

Hljóðlát og naglalaus vetrardekk

10% styttri hemlunarvegalengd á ís

Endingargóð naglalaus vetrardekk

Ný APS gúmmíblanda tryggir gott grip í kulda og hita

Færri naglar en meira grip

Sérhönnuð fyrir fjölskylduog borgarbíla

Aukið öryggi og meiri virðing fyrir umhverfinu

Frábærir aksturseiginleikar

Mikið skorið og stefnuvirkt mynstur sem veitir frábært grip við erfiðar aðstæður

Hjólbarðaþjónusta N1 Bíldshöfða Fellsmúla Réttarhálsi Ægisíðu

440-1318 440-1322 440-1326 440-1320

Langatanga Mosfellsbæ Reykjavíkurvegi Hafnarfirði Grænásbraut Reykjanesbæ Dalbraut Akranesi Réttarhvammi Akureyri

440-1378 440-1374 440-1372 440-1394 440-1433

Opið mán – fös kl. 08-18 laugardaga kl. 09-13 www.n1.is

Alltaf til staðar


fimmtudagur 12. október 2017

Ragnhildur leiðir Dögun í Suðurkjördæmi Frambjóðendur í fyrstu 10. sætum lista Dögunar í Suðurkjördæmi til alþingiskosninganna, sem fram fara þann 28. október nk., hafa verið valdir. Ragnhildur L. Guðmundsdóttir úr Reykjanesbæ leiðir listann, en hún er kennari og náms- og starfsráðgjafi. Önnur á listanum er Aníta Engley, húsmóðir og nemi og sú þriðja Ásta Bryndís Schram, lektor í HÍ.

Skora á verðandi þingmenn að hafa að leiðarljósi kjör og velferð hins vinnandi manns

Listi Dögunar í Suðurkjördæmi er eftirfarandi:

ungar munu leysa hluta hefðbundinna starfa af hólmi. Þessi þróun er þegar byrjuð. Víðast hvar í Evrópu er verið að breyta grunn- og iðnnámi, auka fullorðinsfræðslu og símenntun til að bregðast við þessu. Störf hverfa og önnur verða til sem krefjast mun meiri þekkingar á breiðari sviðum eins og tækniþekkingar og samskiptahæfni. Nú þegar þarf að hefjast handa að aðlaga skólakerfið að þessum breytingum, allt frá grunnnámi að fullorðinsfræðslu. Lykillinn að því er að efla nám þar sem fólkið býr víða um land. Iðnnám, tækninám og annað fjölbreytt nám þarf að vera til staðar til að aðlaga verkafólk að nýjum veruleika á vinnumarkaði.

1. Ragnhildur L. Guðmunds­ dóttir, kennari og námsog starfs­ráðgjafi 2. Aníta Engley, húsmóðir og nemi 3. Ásta Bryndis Schram, lektor HÍ 4. Gunnhildur H. S. Magnúsdóttir, húsmóðir og nemi 5. María Líndal, byggingafræðingur 6. Davíð Páll, afgr.maður 7. Haukur Hilmarsson, ráðgjafi í fjármálahegðun 8. Eyrún Sif Rögnvaldsdóttir, húsmóðir og nemi 9. Jóhanna Ásta Þórarinsdóttir, nemi 10. Gunnar Skuli Ármannsson, læknir

FYLGSTU MEÐ UMRÆÐUNNI Á

VF.IS

■■Verkalýðsfélag Grindavíkur og Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis eru á meðal stéttarfélaga í Suðurkjördæmi sem skora á verðandi þingmenn að hafa að leiðarljósi kjör og velferð hins vinnandi manns á komandi kjörtímabili. Trúnaðarmenn og stjórnir verkalýðsfélaganna í Suðurkjördæmi hittust á Hótel Dyrhólaey dagana 4 .-6. október og fóru yfir stöðu kjaramála ásamt málefnum sem brenna á launafólki í kjördæminu og byggðunum við suðurströndina. Eftirfarandi ályktun var samþykkt:

Heilbrigðismál

Aðgangur að heilbrigðisþjónustu fyrir alla landsmenn eru sjálfsögð mannréttindi. Barnshafandi konur þurfa í mörgum tilfellum að vera í burtu frá fjölskyldu sinni til lengri tíma. Þessu fylgir óöryggi og fjárhagsleg óvissa sem ekki verður við unað. Geðheilbrigðisþjónustu er verulega ábótavant og það er forgangsverkefni að sálfræðiþjónusta verði inni í sjúkratryggingakerfinu. Landsbyggðarfólk fer um langan veg til þess að sækja sérfræðiþjónustu og læknisaðgerðir sem hefur í för með sér gríðarlegan kostnað. Leiðréttum þennan aðstöðumun strax.

Samgöngumál

Greiðar og öruggar samgöngur eru lífæðar hvers samfélags og undirstaða atvinnulífs og búsetu víða um land. Stórbæta þarf samgöngumál í kjör-

dæminu. Mikil aukning ferðamanna kallar á viðbrögð í samgöngumálum og hefur Suðurkjördæmi þar sérstöðu vegna þessarar miklu aukingar í fjölda ferðamanna. Samgöngur falla stundum nið­u r svo sólarhringum skiptir í hluta kjördæmisins með tilheyrandi óþægindum, tekjutapi og hættum bæði fyrir einstaklinga og atvinnulíf. Þar sem sífellt er verið að færa þjónustu á höfuðborgarsvæðið verður að tryggja sólarhringsþjónustu í samgöngum hvort sem er á láði eða legi á kjörum sem almenningur ræður við.

Húsnæðismál

Staðan á húsnæðismarkaði er algjörlega í molum. Unga fólkið í landinu getur ekki keypt húsnæði og neyðist til þess að búa við okurleiguverð, óöryggi og vanlíðan því samhliða. Vextir á Íslandi hafa í gegnum tíðina verið

Báran, stéttarfélag Selfossi Drífandi, stéttarfélag Vestmannaeyjum Verkalýðsfélag Grindavíkur Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis Verkalýðsfélag Suðurlands.

Mennta- og atvinnumál

Á vinnumarkaðnum eru framundan einar mestu breytingar á atvinnuháttum sem við höfum séð í áratugi. Gervigreind, vélmenni og tækninýj-

ó Íþr hú tta s

stæ gur

I

an nng

æð

ih efr

gur gan æð -9 Inn ðri h e r4 n ildi rde ) Kjö i hæð r (ef

ði

Kjörfundur í Reykjanesbæ hefst kl 9:00 og lýkur eigi síðar en klukkan 22:00.

Það er skylda okkar að leiðrétta kjör þessara hópa þannig að lífvænlegt verði.

Bíla

Kjörskrá miðast við skráð lögheimili kjósenda hjá Þjóðskrá Íslands þann 23. september 2017. Kjósendum er frjálst að skoða kjörskrána og liggur hún frammi í þjónustuveri Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, Reykjanesbæ og á www.kosning.is.

Lífeyrissjóðir voru stofnaðir að frumkvæði verkalýðshreyfingarinnar fyrir um 50 árum síðan. Í dag eru lífeyrissjóðirnir helsta og stærsta stoð þeirra sem komnir eru á eftirlaun. Lífeyrissjóðirnir greiða milli 70-80% af öllum ellilífeyri sem greiddur er til landsmanna. Ríkið greiðir 20-30% á móti. Launafólk verður að standa vörð um sjóðina og því hlutverki sem þeir eiga að gegna. Sífelldar hækkanir í beina og óbeina skatta aldraðra, öryrkja og hjá öðrum lágtekju hópum verður ekki við unað lengur.

okurvextir og fer mestur hluti launa fólks í húsnæði og jafnvel dugar ekki til. Forsendur verðtryggingar eru mjög umdeildar hjá almenningi og þarf að endurskoða og ná sátt um þau mál. Húsnæðiskostnaður ætti ekki að vera inn í vísitölunni eða hafa áhrif á hana. Margir hafa misst heimili sín og sér ekki fyrir endann á þrengingum þessa fólks. Að búa í mannsæmandi húsnæði hljóta að vera sjálfsögð mannréttindi. Húsnæðisfélög án hagnaðarsjónarmiða er kostur sem stjórnvöld og sveitarfélög verða að taka höndum saman um að vinna að og skapa hér lífvænlegt samfélag handa öllum.

Nýr kjörstaður í Reykjanesbæ Í Alþingiskosningunum laugardaginn 28. október 2017 munu kjósendur í Reykjanesbæ greiða atkvæði á nýjum kjörstað, Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Jafnframt hefur götum verið deilt á kjördeildir eftir stafrófsröð og er kjósendum bent á að kynna sér í hvaða kjördeild þeim ber að kjósa, sjá vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is.

Lífeyris- og skattamál

ði

Bíl

æ ast

3 r 1i d l i ð) rde Kjö ðri hæ (ne

Yfirkjörstjórn Reykjanesbæjar Hildur Ellertsdóttir Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir Kristján Friðjónsson

Inngangur efri hæð við Faxabraut

Inngangur neðri hæðásamt bílastæðum Inngangur neðri hæð við Sunnubraut


Kosningar 2017

Gefum óábyrgri hagstjórn frí Í kosningunum 28. október næstkomandi gefst okkur Íslendingum færi á að gefa f r á f a r a n d i s tj ó r n völdum falleinkunn. Fa l l ein kunn veg na spillingar, leyndarhyggju og skorts á heiðarleika og réttlæti. Okkur gefst tækifæri til þess að snúa af þeirri braut sem mörkuð hefur verið og lítil sátt er um, miðað við kannanir um stuðning við ríkisstjórnina.

Við höfum val

Við getum kosið að bæta hag þeirra sem ekki hafa notið hagsældar síðustu ára og óttast margir hverjir um afkomu sína hver mánaðarmót. Um sex þúsund börn búa við skort á Íslandi og ungt fólk fótar sig varla utan foreldrahúsa. Aðgerða er þörf til bóta

á kjörum öryrkja, eldri borgara og barnafólks. Einnig verður að létta á spennunni á húsnæðismarkaði, m.a. með átaki í byggingu félagslegra íbúða. Við getum kosið stjórnvöld sem virða vilja þjóðarinnar. Stjórnvöld sem taka mark á 86 þúsund manna undirskriftasöfnun um endurreisn heilbrigðiskerfisins, vilja þjóðarinnar til stjórnarskrárbreytinga og sömuleiðis til aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Við getum líka kosið stjórnvöld sem vilja breyta áherslum og leikreglum þegar kemur að nýtingu auðlinda landsins. Samfylkingin vill fá sanngjarnt verð fyrir íslenska orku og eðlilegar skattgreiðslur frá stóriðjunni. Við viljum hafa græna hagkerfið að

leiðarljósi, beita hvötum í þágu umhverfisverndar og fjárfesta með það fyrir augum að skaða ekki umhverfið og auka sjálfbærni. Við viljum leiða stefnu í mennta- og atvinnumálum til að takast á við áskoranir framtíðarinnar og leggja áherslu á þekkingariðnað, hugvit, nýsköpun o.fl. umfram stóriðju. Slík stefnumótun kæmi í veg fyrir umhverfisslys eins og við höfum séð á Suðurnesjum með komu United Silicon, þar sem óábyrg hagstjórn, stefnuleysi og óvissa í atvinnumálum gerðu það að verkum að farið var í óðagoti í stóriðjuframkvæmdir sem bitna nú á íbúum Suðurnesja. Kjósum nýtt, betra og réttlátara samfélag. Kjósum Samfylkinguna. Marinó Örn Ólafsson 4. sæti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi

ALÞINGISKOSNINGAR LAUGARDAGINN 28. OKTÓBER 2017

Kjörskrá liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofum Grindavíkurbæjar, frá föstudeginum 13. október fram að kjördegi. Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar.

Kosið er í Grunnskóla Grindavíkur, Ásabraut 2. Kjósendur skulu framvísa persónuskilríki á kjörstað. Kjörstaður opnar kl. 09:00 og lokar kl. 22:00.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninga fer fram á skrifstofu sýslumannsins, að Víkurbraut 25, neðri hæð. Aðeins er opið virka daga frá kl. 8:30-13:00.

Rjúfum þennan hring

- sem séreignastefnan hefur sett okkur í

Öll viljum við búa í öruggu húsnæði. Til þess að það geti gerst þurfum við að kaupa okkur fasteign. Eða svo er okkur sagt. Ég vil leyfa mér að draga það í efa, ég tel að við þurfum heldur viðhorfsbreytingu þegar kemur að húsnæðismálum á Íslandi. Það þarf að gefa okkur aukið frelsi til að velja hvernig við viljum haga okkar eigin málum þegar kemur að þessum efnum. Í dag er það frelsi ekki til staðar. Það búa 3 unglingar á mínu heimili og einhvern daginn munu þeir vilja flytja úr foreldrahúsum. Ég vil að þeir hafi frelsi til að velja hvernig þeir vilja hafa sitt heimili og ég vil að þeir geti búið sér heimili. Ég vil að þeir hafi valfrelsi um sitt búsetuform. Ég treysti þeim eins og öðru fólki, til að ákveða hvað er þeim fyrir bestu. Þeim á ekki að þykja það sjálfsagt mál að að skuldbinda sig lánastofnum til 25 eða 45 ára til þess að geta búið sér heimili. Þeir mega það en eiga ekki að þurfa þess. Í flestum löndum Vestur-Evrópu er leigumarkaður stór hluti húsnæðiskerfisins. Þar er leigumarkaður með ýmsu sniði, sumir húsnæðiskostir eru á hinum almenna leigumarkaði, aðrir eru reknir af sveitarfélögunum, sumir eru leiguréttaríbúðir á vegum hinna ýmsu stofnanna sem eru rekin án hagnaðardrifinna sjónarmiða (NFP) og fleira mætti upp telja. Þar er litið á það sem lögboðna skyldu ríkis og sveitarfélaga að allir hafi öruggt húsa-

skjól og svo á einnig að vera hér, Ríki og sveitarfélög verða einnig að móta sér langtímastefnu þegar kemur að búsetumöguleikum almennings. Í leigustefnu Pírata segir: Heilbrigður húsnæðismarkaður býður upp á valfrelsi og öruggur leigumarkaður myndi stuðla að stöðugleika. Því skal miða að því að leigumarkaður verði sanngjarn, stöðugur og öruggur. Til þess þarf skýrt og gagnsætt regluverk með innbyggðum hvötum til langtímaleigu, sem tryggir bæði réttindi leigjenda og leigusala. Ég geri mér fyllilega grein fyrir að stærsta vandamálið núna er skortur á íbúðum, lóðum og iðnaðarmönnum en ekki hvaða búsetuform hentar hverjum og einum. Ég vil því leyfa mér að spyrja: Hvað ef séreignastefnan hefði ekki verið svona ráðandi síðustu tugi ára? Hvað ef hér á landi hefði fyrr verið boðið upp á valkosti aðra en fasteignakaup þegar kemur að því að eignast heimili? Ég ætla að fullyrða að staðan væri allt önnur og betri fyrir okkur almenning. Fasteignaverð væri líklega ekki svona svimandi hátt og verð á leiguhúsnæði væri viðráðanlegt fyrir hinn venjulega launamann. Mig langar að við rjúfum þennan hring sem séreignastefnan hefur sett okkur í sem allra fyrst. Við getum ekki breytt fortíðinni en við getum breytt framtíðinni. Þess vegna vil ég að við förum að hugsa um þetta núna, fyrir framtíð okkar allra. Fanný Þórsdóttir Formaður Pírata á Suðurnesjum. Er í þriðja sæti á lista Pírata í Suðurkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar Fanný Þórsdóttir Formaður Pírata á Suðurnesjum. Er í þriðja sæti á lista Pírata í Suðurkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar

Dagana 23.- 27. október frá kl. 8:30 til 18:00. Kjörstjórn Grindavíkurbæjar

Sigurður Ingi leiðir Framsóknarflokkinn í Suðurkjördæmi

ALÞINGISKOSNINGAR LAUGARDAGINN 28. OKTÓBER 2017

Kjörskrá liggur frammi almenningi til sýnis, frá miðvikudeginum 18. október fram að kjördegi á skrifstofu Sveitarfélagsins Garðs, Sunnubraut 4. Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Garðs.

Kosið er í Gerðaskóla. Sérstök athygli er vakin á því að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði. Kjörstaður opnar kl. 09:00 og lokar kl. 22:00. Kjörstjórn Sveitarfélagsins Garðs

Sigurður Ingi Jóhannsson, alþingismaður og fyrrverandi forsætisráðherra, leiðir lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi í næstu Alþingiskosningum. Þetta var samþykkt á fjölmennu kjördæmisþingi Framsóknarfélaganna í Suðurkjördæmi sem haldið var í félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli um helgina.

„Glæsilegur listi sem ég hef mikla trú á. Ég myndi segja að reynsla og þor væri það sem einkenndi okkar lista. Við erum tilbúin að takast á við verkefnin framundan og þær áskoranir sem bíða okkar. Verkefnin eru ærin,” sagði Sigurður Ingi Jóhannsson eftir að listinn var samþykktur.

Framboðslisti Framsóknar í Suðurkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar 28. október 2017: 1. Sigurður Ingi Jóhannsson, alþingismaður 2. Silja Dögg Gunnarsdóttir, alþingismaður 3. Ásgerður K. Gylfadóttir, bæjarfulltrúi og hjúkrunarstjóri 4. Jóhann Friðrik Friðriksson, lýðheilsufræðingur 5. Sæbjörg Erlingsdóttir, sálfræðinemi 6. Inga Jara Jónsdóttir, nemi 7. Pálmi Sævar Þórðarson, bifvélavirki 8. Sandra Rán Ásgrímsdóttir, verkfræðingur 9. Lára Skæringsdóttir, grunnskólakennari

10. Herdís Þórðardóttir, innkaupastjóri 11. Stefán Geirsson, bóndi 12. Jón H. Sigurðsson, lögreglufulltrúi 13. Hrönn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri 14. Ármann Friðriksson, nemi 15. Valgeir Ómar Jónsson, sagnfræðingur 16. Sigrún Þórarinsdóttir, bóndi 17. Jóhannes Gissurarson, bóndi 18. Jóngeir Hlinason, hagfræðingur og bæjarfulltrúi 19. Haraldur Einarsson, fyrrv. alþingismaður 20. Páll Jóhann Pálsson, fyrrv. alþingismaður


fimmtudagur 12. október 2017

Gerum betur Ágætu Suðurnesjamenn Undirritaður hefur ákveðið að gefa kost á sér í Suðurkjördæmi í komandi alþingiskosningum og skipa ég efsta sæti á lista flokks Fólksins í kjördæminu. Þar sem ég er nýr í pólitíkinni liggur beinast fyrir að kynna sig. Ég er lögfræðingur og hef verið formaður yfirkjörstjórnar Suðurkjördæmis í nær 20 ár. Ég hef víða unnið og búið í Suðurkjördæmi. Um tíma starfaði ég í sýslumannsembættinu hér í Keflavík og síðar á Selfossi en lengst af var ég sýslumaður í Vestmannaeyjum og tel mig þekkja töluvert til um hvað mæðir á í kjördæminu og vil þar nefna samgöngur, ferðaþjónustu, sjúkraþjónustu og atvinnufyrirtækin. Þannig brenn ég í skinninu til að fá að takast á við að sinna því sem þarf að færa til betri vegar. Ég er tilbúinn til að leggja mitt af mörkum til hagsbóta fyrir Suðurnesjamenn, Suðurkjördæmi í heild og allt landið, ef ég næ kjöri inn á alþingi okkar Íslendinga. Sjúkrahúsþjónusta fyrir íbúa víða úti á landi, sem og hér í Reykjanesbæ er til mikillar skammar og ótækt að sækja þurfi þessa þjónustu að miklu leyti til Reykjavíkur með tilheyrandi óþægindum og áhættu fyrir íbúana. Samgöngumálin eru batnandi en þó

þarf að klára þessa hættulegu vegakafla á Reykjanesbraut sem enn eru einbreiðir og svo ég tali nú ekki um Grindavíkurveginn. Ferðaþjónustan er bjargvættur þjóðarinnar og þarf að tryggja að rekstrargrundvelli hennar sé ekki kollvarpað með misvitrum ákvörðunum. Sama má segja um aðbúnað í kringum ferðamannastaði, sem eru mörgum árum á eftir fjölda ferðamanna, og í raun umhverfismál að lagfæra. Óstöðugleiki hefur einkennt umhverfi sjávarútvegsins. Þar þarf að koma á festu í lagaumgjörð, en útgerðarfyrirtækjunum ber að greiða sanngjarnt og eðlilegt gjald fyrir aðgang að auðlindinni til samfélagsins. Flokkur fólksins er almennt með á stefnuskrá sinni að bæta kjör verkafólks, lífeyris- og öryrkja, því þeir hafa sannarlega ekki fengið sinn skerf að hagvexti umliðinna ára. Þetta hyggjumst við gera með því t.d. að hækka skattleysismörk stórlega. Auðug þjóð á að hafa efni á að veita öllum sómasamlegt lífviðurværi. Bestu kveðjur. X–F Karl Gauti Hjaltason, oddviti F listans í Suðurkjördæmi.

Sjálfstæðisflokkurinn opnar kosningaskrifstofu sína

Við erum öll með á nótum þegar spurt er í hvaða málaflokkum umbætur eru næstar og brýnastar í samfélaginu, bæði á landinu öllu og á Suðurnesjum. Menn t.d. án mikillar umhugsunar: Heilbrigðismál, kjör aldraðra og öryrkja, húsnæðismál, samgöngur og úrbætur í menntamálum. Fleira kemur til í máli manna svo sem umhverfis- og loftslagsmál, helstu atvinnugreinar og stjórnarskráin. Stöðvun heilsuspillandi mengunar frá orkufrekum iðnaði í Helguvík er þar lykilatriði. Með öllum tiltækum ráðum. Við í VG stöndum að baki íbúum í Reykjanesbæ sem vilja búa við eðlilegt umhverfi.

hlífa öðrum þegnum, færa fjármuni til þeirra og líka til margvíslegra umbóta sem kallað er eftir en ekki stóð til að framkvæma samkvæmt fjármálastefnu síðustu ára. Í tveimur af tíu efstu tekjuflokkum landsmanna eru meðalárslaun 11 til 18 milljónir kr. Það eru 54.8% allra tekna á landinu. Til samanburðar eru meðalárstekjur í neðsta flokki 318 þúsund kr. Í efsta flokki eru 20.860 einstaklingar með alls 339 milljarða í árstekjur. Aflögufært fólk? Fjármagnstekjur hafa verið um 95 til 100 milljarðar kr. á ári. Nálægt helmingur af þeim falla í hlut 1-2% fjármagnseigenda. Aflögufært fólk? Og enn fremur: Bankar og stór fyrirtæki eru flest afar vel haldin. Aflögufær? Umbætur næstu fjögur ár útheimta þor, yfirvegun, sanngirni og stöðugleika. Um leið má bæta eitt og annað í ríkisrekstrinum. VG er í stakk búið til að leiða nauðsynlega vinnu til úrbóta undir traustri forystu Katrínar Jakobsdóttur, í samvinnu við þá sem ná saman um samfélagslegar lausnir í áföngum.

ingar á Íslandi en nokkru sinni. Það tel ég stafa af uppbroti í samfélaginu við efnahagshrunið. Alþjóðleg efnahagsmál, opnun milli landa, afdrifarík hlýnun, ófriður víða og óöryggi fólks koma líka við sögu, þrátt fyrir aukna velmegun að meðaltali hér heima, sem um leið einkennist af vaxandi ójöfnuði og óþoli. Fátækt er staðreynd á Íslandi.

Ólík hugmyndafræði

Þegar rætt er um hvernig skuli standa að umbótum í því góðæri, sem hefur smám saman orðið að veruleika eftir efnahagshrunið, eru ólíkar lausnir á lofti. Einnig hvar og hvernig finna skuli fjármagna þær. Pólitík er að stórum hluta grunduð á ólíkri afstöðu okkar til þess hvernig samfélagið á að þróast. Við byggjum afstöðuna á lífsviðhorfum og hugmyndafræði. Nú hafa orðið til fleiri stjórnmálahreyf-

Sumir eru vel aflögufærir, aðrir ekki

Vinstri hreyfingin - grænt framboð boðar umbætur til næstu fjögurra ára og svarar þannig ákalli mikils meirihluta þjóðarinnar. Við teljum gerlegt að mynda félagshyggjustjórn sem fetar aðrar og betri leiðir en tvær síðustu ríkisstjórnir. Lykilatriði er að afla ríki og sveitarfélögum tekna hjá þeim sem sannarlega eru aflögu færir,

Ari Trausti Guðmundsson, 1. sæti á lista VG í Suðurkjördæmi

Óskar segir skilið við Framsóknarflokkinn Óskar Þórmundsson hefur sagt skilið við Framsóknarflokkinn. Óskar á sæti í miðstjórn flokksins og er varamaður í laganefnd. Þetta kemur fram í yfirlýsingu. Þar segir: „Eftir vandlega íhugun hef ég ákveðið að ganga úr Framsóknarflokknum og láta af þeim trúnaðarstörfum sem ég gegni fyrir flokkinn. Þetta er ekki gert í fljótræði, heldur hef ég tekið mér nokkra daga til velta þessu fyrir mér. Eftir áratuga starf er þetta ekki létt skref að stíga og með söknuði segi ég skilið við minn góða flokk og það yndislega fólk sem með mér hefur starfað í áratugi, en fyrir orð og störf Ólafs heitins Jóhannessonar

gekk ég ungur í Framsóknarflokkinn. Á löngum tíma hefur mér verið trúað fyrir ýmsum trúnaðarstörfum innan flokksins, m.a. kosinn formaður Framsóknarfélags Njarðvíkur, formaður fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Reykjanesbæ og fyrsti formaður Suðurkjördæmis við kjördæmabreytinguna 2001. Ég sat um tíma í blaðstjórn Tímans, landsstjórn og sit nú í miðstjórn og er varamaður í laganefnd.“ Þá segir Óskar í yfirlýsingunni að hann hafi íhugað að ganga til liðs við Miðflokkinn og stofnandann Sigmund Davíð Gunnlaugsson. „Hann

hefur sýnt og sannað að hann er sá stjórnmálamaður sem hugsar í lausnum og hefur kjark og áræðni sem til þarf,“ segir í yfirlýsingu Óskars Þórmundssonar.

ALÞINGISKOSNINGAR Tekið var úr lás á kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ að Hafnargötu 61 síðastliðinn sunnudag. Formleg opnun skrifstofunnar fer hins vegar fram í dag, fimmtudaginn 12. október, kl. 18 en Bjarni Benediktsson, formaður flokksins hefur boðað komu sína. Margt var um manninn en vel á annað hundrað manns voru mættir og þáðu vöfflur en efstu átta frambjóðendur flokksins bökuðu ofan í gesti og gangandi.

Frambjóðendur í efstu sætum listans ávörpuðu gesti. Páll Magnússon, oddviti Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, sagði m.a. í ræðu sinni: „Það er lífsnauðsyn fyrir atvinnulífið í landinu að fá nú meiri festu og fyrirsjáanleika í umhverfi sitt. Fyrirtækin þurfa að geta gert langtímaáætlanir um rekstur og fjárfestingar. Þetta er ekki bara mikilvægt fyrir fyrirtækin sjálf, heldur ekki síður fyrir fólkið sem vinnur hjá þeim.“

LAUGARDAGINN 28. OKTÓBER 2017

Kjörskrá liggur frammi almenningi til sýnis, á bæjarskrifstofu Sandgerðisbæjar, Vörðunni, Miðnestorgi 3. Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar. Athygli er vakin á því að kjósendur geta kannað á vefnum kosning.is hvar þeir eru á kjörskrá (www.kosning.is/althingiskosningar-2017/kjorskra/) Kosið er í Grunnskólanum í Sandgerði. Kjörstaður opnar kl. 09:00 og lokar kl. 22:00. Á kjördag mun kjörstjórn hafa aðsetur í Grunnskólanum í Sandgerði og í síma 899-6317. Kjörstjórn Sandgerðisbæjar.


20

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 12. október 2017

Dreymir oft um pylsu með öllu og kókómjólk Herta Pálmadóttir er fædd og uppalin í Grindavík, en hún býr núna í Sheffield í Englandi með kærastanum sínum Lawrence Murphy sem kemur frá Selby í Bretlandi. Herta stundar fjarnám frá Háskólanum á Akureyri og saknar þess að komast í heitan pott en hún segir að íslendingar séu afar heppnir með heita vatnið á Íslandi. Herta á einnig von á sínu fyrsta barni í apríl á næsta ári svo það eru spennandi tímar framundan hjá henni.

Herta nýtur sólarinnar í Sheffield.

Starfsmenn óskast Íslenskir aðalverktakar óska eftir dugmiklu starfsfólki í eftirfarandi störf: • • • •

Rafvirkjar Píparar Trésmiðir Verkamenn

Hvað ert þú að gera úti í Sheffield? „Ég bý með kærastanum mínum hér. Ég er í fullu fjarnámi frá HA þannig ég lagði vinnuna á hilluna til að reyna að einbeita mér að náminu. Annars er ég bara að lifa lífinu svipað og ég væri að gera á Íslandi.“ Hvenær fluttir þú til Sheffield? „Ég flutti hingað í lok árs 2015.“ Hvernig er mannlífið í borginni? „Þetta er stór háskólaborg sem er full af fólki frá alls konar löndum, það gerir borgina líflega og skemmtilega. Fólkið frá Yorkshire er þekkt fyrir að vera viðkunnanlegt svo allir eru tilbúnir að hjálpa þér eða bara spjalla úti á götu. Ég varð mjög hrifin af mannlífinu um leið og ég flutti hingað þrátt fyrir örlítið menningarsjokk að sjá fólk hittast í bjór og „full english“ á mánudagsmorgnum.“ Hvernig er týpískur dagur hjá þér? „Allur morguninn fer í lærdóm, síðan reyni ég að fara í ræktina eða hitta vini mína í hádegismat. Oft fer seinni parturinn líka í lærdóm en ég reyni alltaf að elda fyrir okkur

Kærustuparið á góðri stund á Krít.

góðan kvöldmat. Við reynum svo að nýta helgarnar í eitthvað skemmtilegra, eins og að heimsækja aðrar borgir, fara í fjallgöngur eða eitthvað í þá áttina.“ Stefnir þú að búa þarna til lengri tíma eða leitar hugurinn heim? „Ég og kærastinn minn keyptum okkur hús hér í byrjun árs þannig framtíðarplanið er að vera áfram hér. En plön geta alltaf breyst og það er aldrei að vita nema við endum heima á Íslandi.“ Saknar þú einhvers á Íslandi, fyrir utan fjölskyldu og vina? „Mig dreymir oft um pylsu með öllu og kókómjólk og svo stóran bragðarref í eftirrétt. Ég sakna þess líka að geta farið í upphitaða útisundlaug og heitan pott en við erum ótrúlega heppin með það á Íslandi.“

Kúrekasstígvélin vinsæl í West Virginia - Kormákur Andri Þórsson lærir sálfræði og spilar fótbolta í Bandaríkjunum

Um er að ræða skemmtileg og fjölbreytt störf í þjónustu, viðhalds- og nýframkvæmdum á Suðurnesjum. Upplýsingar veitir Einar Ragnarsson í síma 414 4313 eða einar.ragnarsson@iav.is. Umsókn skal skila inná vef ÍAV, www.iav.is. Öllum umsóknum verður svarað og farið verður með þær sem trúnaðarmál. ÍAV hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um.

Við breytum vilja í verk

ÍAV hf. | Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | s. 530 4200 | www.iav.is

ATVINNA

Viltu vera með í uppbyggingu í ört stækkandi fyrirtæki? Vegna aukinar umsvifa hjá okkur óskum við eftir að ráða til okkar starfsfólk í framleiðslu. Starfsvið: Hefðibundin framleiðslustörf í verksmiðju fyrirtækisins á Iðngörðum í Garði. Óskum eftir jákvæðum, samviskusömum og stundvísum manneskjum sem sýna frumkvæði í starfi.

Kormákur Andri er hér fyrir miðju ásamt félögum sínum.

Hvað ertu að gera í Bandaríkjunum? „Ég er að læra sálfræði í háskóla sem heitir Alderson Broaddus í West Virginia, ásamt því að spila fótbolta með skólaliðinu.“

Hvernig gengur hjá þér úti? „Þetta hefur byrjað bara nokkuð vel. Liðsfélagarnir hafa tekið vel á móti mér og ég var fljótur að komast inn í hlutina. Mér gengur vel námslega og

mér líkar vel við fólkið hérna úti.“ Finnst þér Bandaríkin ólík Íslandi? „Já, mjög. Það fyrsta sem mér dettur í hug er maturinn, þeir djúpsteikja allt og ef það er einhver leið til að gera matinn óhollari en hann er, þá hika þeir ekki við það. Það mætti flokka fylkið sem ég bý í sem sveitafylki og fólkið hérna er öðruvísi heldur en heima. Kúrekaskór eru mjög vinsælir til dæmis og það eiga nánast allir pallbíl. Það er kannski full ýkt að kalla þetta menningarsjokk, en ég þurfti að aðlagast töluvert, því fólkið hérna er mjög gamaldags miðað við heima.“ Hvernig er hefðbundinn dagur hjá þér? „Hefðbundinn dagur hjá mér byrjar kl. 9 á morgnana þegar ég fer í tíma. Kl. 11 fer ég og hitti „Athletic Trainer“, sem er eiginlega eins og sjúkraþjálfari, og geri æfingar eða fæ meðferð ef ég er meiddur eða aumur, fæ mér svo að borða og fer aftur í skólann. Skólinn er búinn um 15 og þá annað hvort læri ég eða slappa af. Æfingar eru alltaf 18 til 20 á kvöldin ef það er ekki leikur. Eftir æfingu borðar liðið saman og svo er frjáls tími restina af kvöldinu.“ Hvað er það besta við að vera þarna úti? „Úrvalið á Netflix er töluvert betra heldur en heima, svo verður líka þægilegt að geta fylgst með NBA án þess að þurfa að vaka allan sólarhringinn.“ Hvað er planið eftir nám? „Ég fæ Bachelor gráðu í sálfræði hérna og draumurinn er að byggja ofan á það og mennta mig eitthvað meira.“

Umsóknir og ferilskrár sendist á solmundur@arcticpet.com

fimmtudagskvöld kl. 20 og 22 á Hringbraut og vf.is


fimmtudagur 12. október 2017

21

VÍKURFRÉTTIR

Góðar gjafir til Dósasels og afkastagetan aukin ■■Dósaseli Þroskahjálpar á Suðurnesjum barst á dögunum góð gjöf frá Advania. Það var viðbót við símkerfi Dósasels sem gerir starfsfólki kleift að svara síma þráðlaust í móttökustöðinni við Hrannargötu. Þá fengu starfsmenn Dósasels einnig gjafir frá fyrirtækinu. Það hefur verið mikið annríki í Dósaseli í allt sumar og stundum langar raðir út á götu þegar fólk mætir með flöskur og dósir í endurvinnsluna. Nýja húsnæðið hjá Dósaseli gerir ráð fyrir að þar séu tvær vélasamstæður í dósamóttöku og flokkun. Hins vegar hefur orðið töf á að seinni vélin komi til Dósasels. Nú liggur fyrir að það verður ekki fyrr en í febrúar á næsta ári.

Vinnudagurinn í Dósaseli er langur. Strákarnir sjö sem vinna í móttökustöðinni hefja störf ýmist kl. 08 eða 09 að morgni alla virka daga. Fram að hádegi er unnið að flokkun umbúða frá fyrirtækjum og þeim sem berast sem gjafir til Þroskahjálpar á Suðurnesjum. Frá kl. 12:00 er svo opið fyrir móttöku frá almenningi sem stendur til 16:30. Þá er lokað fyrir móttöku en starfsemin heldur þá áfram í hálftíma til klukkustund við flokkun áður en þrif á húsnæðinu eru unnin. Eins og sjá má er vinnudagurinn hjá Dósaseli langur og ekki hægt að lengja hann þar sem vinnustaðurinn er fyrir starfsmenn með skerta starfsgetu. Dósamóttakan skiptir hins vegar Þroskahjálp miklu máli og Suðurnesjamenn hvattir til að sýna ástandinu þolinmæði þar til nýja flokkunarvélin verður komin í starfrækslu um miðjan febrúar.

Frá afhendingu gjafarinnar frá Advania til Dósasels.

SUNNUDAGINN 15. OKTÓBER KL. 11:00

Sr. Fritz Már þjónar í fyrsta sinn í Keflavíkurkirku, Kór kirkjunnar syngur Eide sálma undir stjórn Arnórs organista. Ólöf Sveinsdóttir og Kristinn Þór Jakobsson eru messuþjónar. Bjarni Páll og fermingarforeldrar bjóða uppá yndislega súpu. Jón “okkar” Ísleifsson kemur með brauð sem Sigurjónsbakarí gefur að venju. Það verður líf og fjör í sunnudagskólanum sem er á sínum stað í umsjón Systu, Helgu og Jóhönnu Maríu. MIÐVIKUDAGURINN 18. OKTÓBER KL. 12:00

Kyrrðarstund í kapellu vonarinnar í umsjón presta og Arnórs organista. Gæðakonur bera fram dásemdarsúpu og brauð eftir stundina. MIÐVIKUDAGURINN 18. OKTÓBER KL. 17:00

Fermingarbörn mæta í fræðslu í Kirkjulund kl.17 og eiga góða stund með Arnóri organista og prestum kirkjunnar.

Starf í Viðskiptaþjónustu PwC í Reykjanesbæ Ertu öflugur einstaklingur með þekkingu á uppgjörum og bókhaldi? Við stækkum og styrkjum hópinn og auglýsum eftir starfsmanni í Viðskiptaþjónustu PwC í Reykjanesbæ en PwC mun opna þar nýja skrifstofu í byrjun nóvember.

Verið alltaf öll velkomin

Menntunar- og hæfniskröfur: •

Ytri-Njarðvíkurkirkja Sunnudaginn 15. október, kl.20 í Ytri-Njarðvíkurkirkju Messa með bleiku ívafi. Sr. Brynja Vigdís þjónar, hugvekju flytur Katrín Júlía Júlíusdóttir. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Bylgja Dís Gunnarsdóttir syngur, einnig nemendur frá Söngskóla Emilíu. Hvetjum við sem flesta til að mæta í einhverju bleiku, í tilefni af Bleikum október. Kaffisopi og konfekt eftir stundina.

Næsta blað í prentun á þriðjudag. Verið tímanlega með auglýsingar

• • •

Menntun og/eða reynslu af bókhaldi og uppgjörum, launavinnslu, skattframtalsgerð eða sambærilegum verkefnum. Reynsla af notkun DK og TOK viðskiptahugbúnaðar er kostur. Samviskusemi, nákvæmni í vinnubrögðum og áhugi á framþróun. Jákvæðni, frumkvæði og samskiptahæfni.

PwC leggur mikið upp úr faglegum vinnubrögðum og gerir miklar kröfur til starfsfólks síns í þeim efnum. Umsóknarfrestur er til 15. október 2017. Vinsamlegast sækið um á vef PwC, https://pwc.rada.is/is og látið ferilskrá sem inniheldur upplýsingar um menntun og fyrri störf fylgja umsókninni. Frekari upplýsingar veitir Vilhjálmur Kári Haraldsson, mannauðsstjóri PwC með tölvupósti á netfangið vilhjalmur.k.haraldsson@is.pwc.com. Öllum umsóknum verður svarað og verða þær meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.

PwC | Skógarhlíð 12 | 105 Reykjavík | Sími 550 5300 | www.pwc.is PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar, endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem skilgreinir sig sem þekkingarfyrirtæki sem aðstoðar viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn.


Íþróttir á Suðurnesjum

fimmtudagur 12. október 2017

Ætlum að vera eitt af bestu liðunum í vetur ■■Ólöf Rún Óladóttir, leikmaður Grindavíkur og leikmaður U-16 ára landsliðsins í körfu, segir að erfitt hafi verið að æfa í byrjun tímabils án þjálfara en að framundan sé skemmtilegt verkefni hjá Grindavík.

„Veturinn leggst mjög vel í mig og framundan er mjög skemmtilegt en krefjandi verkefni,“ segir Ólöf þegar hún er spurð hvernig veturinn leggist í hana. Hún segir að stemningin í hópnum sé mjög góð og samheldnin mikil enda

Ólöf er hér lengst til hægri í leik Grindavíkur og Fjölnis á dögunum.

hafi stelpurnar flestar þekkst frekar lengi og nái vel saman. „Væntingar okkar í vetur eru klárlega að vera eitt af bestu liðunum og berjast á toppnum, svo sjáum við hvert það leiðir okkur.“ Kvennalið Grindavíkur hefur verið þjálfaralaust í nokkurn tíma núna þar sem þjálfari þeirra, Angela Rodriguez, er erlendis í myndatökum vegna meiðsla í baki. Ólöf segir æfingarnar hafa verið fínar, en það sé þó erfitt að hafa þjálfarann ekki viðstaddan. Undirbúningurinn hafi annars gengið vel.

Miðflokkurinn opnar kosningarskrifstofu að Hafnargötu 60 Reykjanesbæ laugardaginn 14. október 2017 milli kl 17:00 og 20:00

Bjarni með sigur í Skotlandi

Bjarni Darri (til vinstri) og Ægir Már.

• Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kynnir helstu stefnumál flokksins • Efstu frambjóðendur flokksins í Suðurkjördæmi kynntir

Allir velkomnir – Tónlist og léttar veitingar í boði

Kosningastjórnin

Sigraði eftir bráðabana

Bjarni Darri Sigfússon og Ægir Már Baldvinsson kepptu báðir í MMA í Skotlandi um helgina. Bardagarnir fóru fram á Inferno 9 bardagakvöldinu í Forfar í Skotlandi. Ægir Már mætti Aaron Towns og var þetta hans fyrsti bardagi í bantamvigt en andstæðingur hans var að keppa í annað sinn. Bardaginn var stöðvaður í annari lotu eftir að Towns kýldi Ægi niður.

Ísak Óli á reynslu til Leeds United Einn efnilegasti leikmaður Keflvíkinga í knattspyrnu, hinn 17 ára Ísak Óli Ólafsson, fór til Leeds United á reynslu síðastliðinn sunnudag en þar dvelur hann í viku. „Það er búið að vera mjög fínt. Það gengur vel á æfingunum og ég er hjá mjög fínu fólki,“ segir Ísak í samtali við Víkurfréttir. Hann hefur spilað 21 leik í Inkasso-deildinni og staðið sig vel, en þar að auki hefur hann spilað leiki með U17 landsliði Íslands og einn leik með U19. „Næstu daga verða stífar æfingar. Hérna úti æfa þeir oftar en heima og lyfta á hverjum degi, þannig þetta er öðruvísi. Ég mun æfa vel og njóta þess,“ segir Ísak Óli.

Darri keppti í uppgjafarglímu við Chris Cownie. Bráðabana þurfti til að knýja út sigurvegara kvöldsins en glíman var stöðvuð eftir 45 sekúndur þar sem að dómarinn taldi að Bjarni hefði verið svæfður en svo reyndist ekki vera. Bjarni var að lokum úrskurðaður sigurvegari þar sem hann var fyrri til að klára bráðabana. Þess má einnig geta að Cownie er tíu árum eldri en Bjarni en Bjarni er átján ára gamall.

KOMDU Í KÖRFU

Vetrarstarf Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur er komið á fulla ferð og við eigum nóg pláss fyrir nýja iðkendur, bæði stelpur og stráka. Við hvetjum alla áhugasama iðkendur og foreldra til að koma og prufa þessa stórkostlegu íþrótt í október undir handleiðslu frábærra þjálfara.

ÆFINGATAFLA VETURINN 2017-2018 FYRIR 1.-6. BEKK Flokkur

Mán

5.-6. bekkur stráka

Mið

Fim

15.30-16.40

16.40-17.50

B-sal

B-sal

5.-6. bekkur stúlkna 3.-4. bekkur stráka 3.-4. bekkur stúlkna

1.-2 bekkur stráka

1.-2. bekkur stúlkna

Þri

Fös

Lau

Þjálfarar

14.50-16.00

11.15-12.30

Kolbeinn Skagfjörð

A-sal

Heiðarskóli

16.30-17.30

16.20-17.30

14.20-15.20

10.00-11.15

A-sal

B-sal

B-sal

Heiðarskóli

15.30-16.30

15.30-16.30

15.30-16.40

A-sal

A-sal

B-sal

Þröstur Leó Jóhannsson

16.10-17.10

15.30-16.40

15.20-16.20

Heiðarskóli

A-sal

B-sal

Helena Jónsdóttir

16.30-17.20

14.00-15.00

A-sal

Heiðarskóli

15.20-16.10

16.40-17.30

Heiðarskóli

A-sal

Jón Guðmundsson

Þröstur Leó Jóhannsson

Helena Jónsdóttir

Æft er í Íþróttahúsinu við Sunnubraut og Heiðarskóla

LEIKSKÓLAHÓPUR Á LAUGARDÖGUM

Nú ætlum við að bjóða upp á fríar körfuboltaæfingar fyrir stelpur og stráka fædd 2012 og 2013. Æft verður í B-sal á laugardögum kl. 9.00-9.50 í íþróttahúsinu við Sunnubraut og mun Kristjana Eir Jónsdóttir stýra æfingunum. Fyrsta æfing verður laugardaginn 14. oktober. Æfingatöflu allra flokka og frekari upplýsingar um Körfuknattleksdeild Keflavíkur má sjá á www.keflavik.is/karfa

Barna- og unglingaráð Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur


„Njarðvík

fimmtudagur 12. október 2017

ORLOFSHÚS Á SPÁNI Starfsmannafélag Suðurnesja auglýsir orlofshús félagsins á Spáni laust til umsóknar fyrir páska og sumar 2018

er stórveldi“

„Tímabilið leggst mjög vel í mig, bæði innan sem utan vallar. Við vitum hvað við ætlum að gera og hvernig á að framkvæma það,“ segir Ragnar Nathanaelsson, leikmaður Njarðvíkur í körfuknattleik, en hann gekk til liðs við Njarðvíkinga fyrr í sumar.

Mynd: Karfan.is

Hann segir væntingarnar fyrir komandi tímabili skýrar. „Við ætlum að gera betur en á síðasta tímabili. Æfingarnar hjá Njarðvík hafa verið virkilega góðar og Daníel og Rúnar eru að gera mjög góða hluti.“ Hann segir þá góða liðsþjálfara sem geti einnig einblínt á sig sem einstakling og hvernig hann geti bætt sig sem leikmann. Þá sé Ólafur Hrafn einnig að gera góða hluti með drengjunum á styrktaræfing­ unum. Njarðvíkingar áttu stórleik strax í fyrstu umferð Domino´s deildarinnar, en liðið tapaði 87:79 gegn Íslands- og bikarmeisturum KR. „Við áttum marga góða kafla í leiknum en þurfum að gera betur. Ég persónulega var ekki nógu góður. Bæði liðið og ég sjálfur ætlumst til meira frá mér.“ Ragnar er þó bjartsýnn fyrir komandi tímabili. „Þó ég sé nýr í liðinu ólst ég upp við að Njarðvík væri stórveldi og við ætlum okkur að sýna það í ár að Njarðvík er „mekka“ körfunnar.“ Næsti leikur Njarðvíkinga er útileikur gegn Þór Þorlákshöfn en leikurinn fer fram þann 12. október næstkomandi og hefst kl. 19:15.

Búið er að opna fyrir tímabilið 1.1. 2018 – 27.3. 2018 á orlofshúsi okkar á La Marina á Spáni, einnig er opið frá deginum í dag fyrir umsóknir um páska og sumar 2018 eða frá 27/3 til 9/10 2018. Tvær vikur hver úthlutun. Umsóknarfrestur er til 8. janúar 2018. Úthlutað verður 10. janúar 2018. Einnig er búið að opna fyrir orlofshúsin okkar hér heima frá áramótum fram að páskum. Hægt er að sækja um á skrifstofu félagsins eða á www.stfs.is Orlofsnefnd STFS

Þróttarar leita eftirmanns Brynjars

Körfuboltasamantekt

Þjálfarinn sagði upp störfum

Karfan komin á fleygiferð

■■Körfuboltavertíðin er formlega hafin og leika Suðurnesjaliðin í Domino´s-deildum, fyrir utan kvennalið Grindavíkur, sem leikur í 1. deildinni. Síðasta vika var viðburðarík hjá öllum liðunum og hefur kvennalið Njarðvíkur sagt upp samningi sínum við Eriku Williams eftir aðeins tvo leiki. Lið Grindavíkur í 1. deild kvenna spilar án Angelu Rodriguez þessa dagana en hún glímir við meiðsli í baki og er í Bandaríkjunum í myndatökum en hún er væntanleg til landsins á næstu dögum. Hún mun ekki spila með liðinu strax og óvíst er hvenær hún verður leikfær. ■■Keflavík og Njarðvík hafa spilað tvær umferðir í Domino´s-deild kvenna, Njarðvík hefur tapað báðum leikjum sínum og Keflavík hefur unnið einn og tapað einum. Ein umferð hefur farið fram í Domino´s-deild karla, Keflavík

Næstu leikir:

■■Grindavík og Njarðvík eiga næst leiki í Domino´s-deild karla þann 12. október nk. og Keflavík þann 13. október.

Verið velkomin á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00

Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84

fór með sigur á Val, Njarðvík tapaði gegn KR og Grindavík vann Þór Þorlákshöfn. ■■Grindavíkurstúlkur hafa spilað tvo leiki í 1. deild kvenna og fóru þær með sigur af hólmi í báðum leikjunum. ■■Njarðvík og Keflavík spila næst þann 11. október í Domino´sdeild kvenna og Grindavík á leik þann 14. október í 1. deild kvenna.

Bílaviðgerðir Smurþjónusta Varahlutir

Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík

sími 421 7979 www.bilarogpartar.is

Brynjar Þór Gestsson, þjálfari karla­liðs Þróttar Vogum í knattspyrnu, hefur sagt upp störfum sem þjálfari liðsins, er fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Brynjar var einnig yfirþjálfari barna- og unglingastarfs Þróttar. „Það er sam­dóma álit stjórn­ar UMFÞ og Knattspyrnu­ deildar UMFÞ að Brynjar hafi sinnt starfi sínu vel og sam­starf við hann inn­an fé­lagsins verið til mik­ill­ar fyr­ ir­mynd­ar. Þróttur Vogum kann hon­um mikl­ar þakk­ir fyr­ir sitt fram­lag til knattspyrnunnar í Vogum og ósk­ar hon­um og hans fjölskyldu alls hins besta í framtíðinni.“ Þróttur komst upp í aðra deildina í sumar í fyrsta sinn í sögu félagsins en félagið fagnar 85 ára afmæli í haust. „Stjórn knattspyrnudeildar ætlar að leggja áherslu á að halda þeim leikmönnum sem fyrir eru hjá félaginu og hefur framkvæmdastjóra Þróttar verið falið að leita eftirmanns Brynjars og mun sú vinna hefjast á næstu dögum.“ Fyrir hönd Þróttar skrifa Baldvin Hróar, for­ maður UMFÞ, og Friðrik V., formaður knattspyrnu­ deildar UMFÞ.


Mundi

Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000

Skál fyrir Pírötum!

Póstur: vf@vf.is

Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001

STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

facebook.com/vikurfrettirehf

twitter.com/vikurfrettir

instagram.com/vikurfrettir

Ekkert fyllerí á kosningaskrifstofu Pírata LOKAORÐ Sævars Sævarssonar

Ást mín á bíó ■■Að fara í bíó er alltaf jafn spennandi fyrir mér. Ég elska einfaldlega að fara í bíó og upplifa bíó. Ég elska lyktina af poppinu og goslausa vélargosið í fitugu líters plastglösunum, sem ekki mega vera í minni því einhvern veginn verður maður að bæta upp fyrir hin síendurteknu mistök að salta poppið of mikið. Ég elska líka drunurnar í græjunum, dempandi ljósin, teppin á gólfunum og svarvínrauða tauveggfóðrið. Allt er þetta liður í að gera upplifunina kósí og notalega, svolítið svipaða og þegar maður fer í heimsókn til amma sinna og fær brauð með kæfu og svala á meðan maður hjúfrar um sig í sófanum með teppi og horfir á fyndnar fjölskyldumyndir, Derrick eða Hunter. Já, ætli megi ekki segja að ég elski jafn mikið að fara í bíó og ég elskaði að fara í heimsókn til amma minna. Nú er hins vegar svo komið að ég fer æ sjaldnar í bíó og það sama á við um heimsóknirnar. Sjarminn minnkar þegar bíóum er ekki haldið við og er þess í stað leyft að drappast niður. Líklega styttist í að ég fari jafn sjaldan í bíó og ég fer í heimsókn til amma minna, þ.e. aldrei. Hafið þó ekki áhyggjur af þessu heimsóknarleysi mínu enda eru ástæðurnar aðrar en fækkun bíóferða. Tja, og þó. En þær eru þó vonandi báðar á betri stað og ef ákveðin saga er sönn er aldrei að vita nema maður heimsæki þær aftur um síðir. Svo fremi sem þar verði bíósalur í góðu standi. Til að fyrirbyggja allan misskilning þá elska ég auðvitað ömmur mínar meira en bíó en þó notalegheit bíóferðanna og umræddra heimsókna séu sambærileg er auðvitað ákveðið atriði sem skilur þar á milli en það er að aldrei dytti manni í hug að fara einn í bíó...

„Nei, ég hefði aldrei samþykkt að taka þetta á leigu ef svo hefði verið,“ svarar Fanný Þórsdóttir, sem gegnir 3. sæti á lista Pírata í Suðurkjördæmi, aðspurð um það hvort starfsemi kosningaskrifstofu flokksins sé í gangi á sama tíma og starfsemi barsins sem deilir húsnæði með skrifstofunni. Kosningaskrifstofa Pírata er staðsett á Hafnargötu 21 í Reykjanesbæ þar sem barinn Studio 16 er einnig til húsa. „Þetta er rekið sem bar um helgar frá klukkan tíu um kvöldið. En við lokum kosningaskrifstofunni klukkan átta á föstudögum og yfirleitt um sex, sjö leitið á laugardögum. Þannig löngu eftir að við lokum er þetta bar,“ segir Fanný. Píratar taka þá skiltin sín niður og allt

sitt dót af staðnum, sem þeir mæta svo með aftur á ný daginn eftir. Aðspurð hvort boðið sé upp á bjór á barnum á meðan kosningakaffi stendur yfir neitar hún því alfarið. „Við í Pírötum erum ekki í þeim pakka, því get ég lofað.“

NÝTT L’ A B S O L U G L O S S

LIVE MORE. LIVE PINK. L’A BSOLU RÔSE S

LITIR – ÁFERÐIR – ÓENDANLEGIR MÖGULEIKAR

LANCÔME DAGAR Í LYFJU LANCÔME DAGAR Í LYFJU REYKJANESBÆ FÖSTUDAGINN 13. OKT. KL. 11 - 18.

Safn í skúrnum hjá Rúnari Hannah

Suðurnesjamagasín er frumsýnt á Hringbraut á fimmtudagskvöldum kl. 20:00 Þátturinn er einnig sýndur á vf.is og fésbókarsíðu Víkurfrétta.

20%

AFSLÁTTUR AF ÖLLUM LANCÔME VÖRUM DAGANA 12. - 14. OKTÓBER

VIÐ MÆLUM MEÐ TVEIMUR NÝJUNGUM FRÁ LANCÔME SEM HENTA ÖLLUM KONUM. Flestir þekkja BI-FACIL augnfarðahreinsinn vinsæla. Nú er kominn nýr Bi-FACIL VISAGE tveggja fasa hreinsir fyrir andlit sem hreinsar óhreinindi og allar förðunarvörur. Bi-Facil er sett í baðmull og farði, óhreinindi og mengun strokin burt hratt og örugglega án þess að nudda. Fljótlegt og þægilegt og húðin verður tandurhrein á augabragði. MIEL-EN-MOUSSE er freiðandi farðahreinsir með hunangi sem hefur tvöfalda virkni. Hann er borinn á húðina og nuddaður þar til hann verður kremkenndur og þá er volgt vatn sett á hendurnar og nuddað létt áfram þar til froða myndast. Skolaður af með vatni og húðin er hrein og ljlómandi. lyfja.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 40 / 2017 by Víkurfréttir ehf - Issuu