• fimmtudagur 6. júlí 2017 • 27. tölublað • 38. árgangur
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Veiddi fisk með tyggjói ■■Hinni tíu ára Elísabetu Jóhannesdóttur tókst á dögunum að veiða urriða í Svarfaðardalsá en mörgum gæti þótt beitan sem hún notaðist við dálítið undarleg. Elísabet og frændi hennar ákváðu að prófa að nota tyggjó á öngulinn. Hanna Björg Konráðsdóttir, móðir Elísabetar, sagði í samtali við Víkurfréttir að stórfjölskyldan hefði verið samankomin í orlofshúsi í Svafaðardal. Þar fannst afa Elísabetar nauðsynlegt að ná sér í veiðileyfi og fara með krakkana að veiða. „Eins og gengur með börn, þá dettur þeim eitthvað í hug og pabbi hefur greinilega ekki náð að fylgjast með þeim öllum í einu. Elísabet og Alexander frændi hennar ákveða að henda tyggjói á öngulinn. Í þriðja kasti er hann síðan kominn á, búinn að gleypa Extra tyggjóið, þessi fíni urriði,“ segir Hanna, en Elísabet var sú eina af þeim öllum sem tókst að veiða fisk.
SIRKUS OG SKRÚÐGANGA Á AFMÆLI VESTURBERGS
Í tilefni af tuttugu ára afmæli leikskólans Vesturbergs var boðið til veislu. Útisvæðið var skreytt, börnin léku sér í hoppukastala og í hádeginu var boðið upp á pylsur og ís í eftirrétt. Eftir hádegi var svo lagt af stað í skrúðgöngu undir trommuslætti frá nemendum Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Þegar úr skrúðgöngunni var komið var búið að opna kaffihús í Kiddasal leikskólans þar sem boðið var upp á afmælisköku. Sirkus Íslands mætti á svæðið með skemmtiatriði. VF-mynd: Sólborg Guðbrandsdóttir.
Leiguíbúðum fækkar og verðið hækkar ●●Leiguverð hefur hækkað um 74% frá 2011 ●●Fleiri fara í fasteignakaup í stað þess að leigja ●●Hvati til að flytja á Suðurnesin af höfuðborgarsvæðinu er talsverður Leiguverð hefur hækkað mikið á Suðurnesjum síðustu ár. Frá árinu 2011 til loka árs 2016 hækkaði það um 74%. Hækkun á leiguverði frá apríl 2016 til sama mánaðar 2017 nam 13%. Þetta kom fram í erindi Magnúsar Árna Skúlasonar á fundi um húsnæðismarkaðinn á Suðurnesjum á vegum Íslandsbanka nýlega. Á árunum 2005-2016 voru flestir leigusamningar gerðir árið 2011 eða um 1300 samningar. Á síðasta ári voru gerðir 1100 leigusamningar á Suðurnesjum og voru því um 200 færri en þegar þeir voru flestir árið 2011.
FÍTON / SÍA
Elísabetu Jóhannesdóttur tókst á dögunum að veiða urriða í Svarfaðardalsá en mörgum gæti þótt beitan sem hún notaðist við dálítið undarleg. Elísabet og frændi hennar ákváðu að prófa að nota tyggjó á öngulinn.
einföld reiknivél á ebox.is
Magnús Árni telur að það séu nokkrar skýringar á þessu. „Ein skýringin er sú að fjöldi nýrra kaupenda hefur fjölgað á sama tíma. Fyrstu kaupendur eru að færa sig af leigumarkaðnum og yfir á séreignina. Önnur skýring er sú að þrátt fyrir að íbúðarverð hafi hækkað á Suðurnesjum er það enn talsvert undir íbúðarverði á höfuðborgarsvæðinu. Hvati til að flytja á Suðurnesin af höfuðborgarsvæðinu er talsverður,“ segir Magnús. Framboð af íbúðarhúsnæði til leigu hefur minnkað þar sem íbúðir sem áður voru í leigu hafa verið seldar og aðrar íbúðir ekki komið inn á leigumarkaðinn í staðinn. Meðaleiguverð á tveggja herbergja íbúð hér á Suður-
nesjum er 1814 kr. fm., þriggja herbergja íbúðir á 1692 kr. fm. og fjögurra herbergja íbúðir á 1211 kr. fm. Leiguverð er samt talsvert undir leiguverði í höfuðborginni. Íbúðarverð miðað við leigu var einnig hagstætt en ávöxtun leigusala á Suðurnesjum var með því besta sem gerist á landinu. Á fasteigna- og leigumiðluninni Fermetra í Reykjanesbæ er ekki nein íbúð auglýst til leigu. „Framboð af lausu leiguhúsnæði er í sögulegu lágmarki um þessar mundir. Eftirspurn eftir leiguhúsnæði er mun meiri en framboðið og leiguverð hefur hækkað umtalsvert á þessu og síðasta ári,“ segir Þröstur Ástþórsson hjá Fermetra. Heimavellir er eitt af stærri leigu-
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR
auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
félögum á landinu en þeir eiga 778 í búðir á Suðurnesjum sem þeir leigja út. Flestar íbúðirnar eru staðsettar á Ásbrú í Reykjanesbæ og í Grindavík. „Við upplifum vel þann mikla uppgang sem er á svæðinu og allar íbúðir sem losna hjá okkur leigjast hratt og vel. Við notum ekki biðlistakerfi heldur eru einfaldlega allar íbúðir sem losna auglýstar á heimasíðu og facebook síðu félagsins í 5 daga og þeim úthlutað að því loknu. Við erum svo heppin að í eignunum á Ásbrú erum við með ríflega 70 setustofur sem við erum að breyta í íbúðir og munu fara í leigu um leið og þær verða tilbúnar,“ segir Guðbrandur Sigurðsson hjá Heimavöllum. Heimavellir hófu starfsemi á Suðurnesjum síðasta sumar þegar þeir eignuðust blokkina við Stamphólsveg í Grindavík og skömmu síðar keyptu Heimavellir um 100 leiguíbúðir í
Reykjanesbæ. „Í lok síðasta árs sameinuðust við Ásabyggð sem átti ríflega 700 eignir á Ásbrú og tókum yfir starfsemi þessa félags í byrjun þessa árs. Ef við horfum til Ásabyggðar sem áður hét Háskólavellir þá erum við með um 10 ára rekstrarsögu á svæðinu. Við höfum verið að endurskipuleggja safnið undanfarna mánuði og höfum þannig selt frá okkur tvær einstaklingsblokkir upp á Ásbrú og eitthvað af stökum eða óhentugum leigueignum á öðrum stöðum.“ Staðan á leigumarkaðinum hefur versnað enn frekar að undanförnu því annað stóru leigufélaganna á Ásbrú tók þá ákvörðun að selja íbúðir sem til stóð að leigja. Af þeim sökum hafa allnokkrir sem höfðu gert ráð fyrir því að komast þar inn lent í vandræðum þar sem framboðið af leiguíbúðum er mjög lítið um þessar mundir.
eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
Frá árinu 2011 til loka árs 2016 hækkaði húsaleiga um 74%.
2
VÍKURFRÉTTIR
Listaverkið Áttir endurafhjúpað við Flugstöð Leifs Eiríkssonar ■■Listaverkið Áttir eftir Steinunni Þórarinsdóttur myndlistarmann hefur verið komið fyrir á nýjum stað við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Listaverkið var áður á brottfararsvæði flugstöðvarinnar en var tekið niður þegar breytingar voru gerðar á brottfararsalnum. Það hefur verið í geymslu í nokkurn tíma. Listaverkinu hefur verið fundinn nýr staður fyrir utan flugstöðina við útganginn komumegin. Það voru þau Steinunn Þórarinsdóttir, höfundur listaverksins, og Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, sem klipptu á borðann við hátíðlega athöfn. Í lýsingu listamannsins segir: „Verkið sýnir fjórar manneskjur steyptar í sama mót sem komið er fyrir ofan á súlum úr stuðlabergi. Þær snúa í höfuðáttirnar og vísa til þess að á þessum stað í Flugstöð Leifs Eiríkssonar liggja vegir til allra átta og um leið eru þær vegvísir. Manneskjurnar eru eins konar vitar sem vísa veginn og sjást víða að á þessu stóra opna svæði, jafnvel þótt fólk sé sitjandi. Farþegar og þeir sem um svæðið fara geta í raun gengið inn í verkið og staðið í því miðju og upplifað áttirnar þannig beint og sjálft sig sem eins konar kjarna eða miðju verksins. Manneskjurnar eru allar steyptar í sama mót úr áli sem tengist lit og efni flugvéla og himinsins. Þær eru í líkamsstærð og standa á 120 cm háum stuðlabergssúlum, íslensku bergi sem minnir á landið sjálft. Hæð verksins er því um þrír metrar og er það innan ramma sem er 3x3 metrar að flatarmáli.”
fimmtudagur 6. júLí 2017
●●Fimm svangir ungar í hreiðri á Týsvöllum í Keflavík
Skógarþröstur gerir sig heimakominn í hengiblómi Heimilisfólk í íbúðarhúsi einu á Týsvöllum í Reykjanesbæ brá sér af bæ nýlega. Þegar komið var til baka tók það eftir því að skógarþröstur var búinn að gera sig heimakominn í hengiblómi við innganginn inn á heimilið. Þegar betur var að gáð var komið hreiður í hengiblómið, fyrst var eitt egg en að lokum urðu þau
Það voru þau Steinunn Þórarinsdóttir, höfundur listaverksins, og Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, sem klipptu á borðann við hátíðlega athöfn
Umsókn um dvöl í
orlofshús
Búið er að opna fyrir umsóknir um dvöl í íbúð Verkalýðsfélags Grindavíkur á Tenerife um jólin 19. desember til 2. janúar. Umsóknarfrestur er til 16. ágúst. Hægt er að sækja um á sjóðsfélagavef félagsins sem er að finna inná www.VLFGRV.is undir orlofshús
ALLTAF PLÁSS Í B Í L N UM
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA, TVISVAR Á DAG.
SUÐURNES - REYK JAVÍK SÍMI: 845 0900
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
fimm. Eftir nokkra daga var búið að unga út eggjunum og fimm ungar litu dagsins ljós. Ungarnir hafa dafnað vel síðustu daga enda foreldrarnir duglegir við að tína orma og annað góðgæti og gefa þeim. Heimilisfólkið hefur haft gaman að þessari nýju fjölskyldu og fylgst með ungunum vaxa og dafna.
93% eigna seldar með 10 milljarða hagnaði fyrir ríkið á tíu árum ●●Hagnaður ársins 2016 tæpir 1,2 milljarðar kr. Ný stjórn Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, KADECO, var kjörin á aðalfundi félagsins í sl. viku. Í stjórn voru kjörin Georg Brynjarsson formaður, Hafsteinn S. Hafsteinsson og Steinunn Sigvaldadóttir og í varastjórn Hrafn Hlynsson. Á aðalfundinum var samþykktur ársreikningur fyrir árið 2016 og ársskýrsla kynnt en árið markaði 10 ára afmæli félagsins. Á fundinum kom fram að á þeim tíu árum sem félagið hefur starfað hafa 93% þeirra eigna sem félagið fékk til umsjónar verið seldar og hefur ríkið hagnast um 10 milljarða á sölu þeirra. Á Ásbrú er nú lífleg íbúabyggð og fjölbreytt atvinnustarfsemi sem hefur styrkt samfélagið í Reykjanesbæ mikið og enn eru fjölmörg ónýtt tækifæri til frekari atvinnuuppbyggingar á svæðinu, sérstaklega vegna nálægðar við Keflavíkurflugvöll, segir í tilkynningu frá KADECO. Hagnaður ársins tæpir 1,2 milljarðar Hagnaður Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar árið 2016 fyrir afskriftir og fjármagnsliði var 647 milljónir króna. Að teknu tilliti til fjármagnsliða og áhrifa dótturfélaga var hagnaður félagsins 1.465,2 milljónir króna. Hagnaður ársins eftir reiknaða skatta nam 1.188,2 milljónum króna. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar í lok ársins 2016 samtals 10.558 milljónum króna. Heildar-
skuldir félagsins námu 8.441,1 milljónum króna og eigið fé félagsins nam 2.116,9 milljónum króna. 10 milljarða hagnaður til ríkisins á tíu árum Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar var stofnað 24. október árið 2006 og því markaði árið 2016 tíu ára afmæli félagsins. Markmið ríkisins með stofnun félagsins var að koma eignum sem ríkið tók yfir á varnarsvæðinu á Miðnesheiði sem fyrst í skipuleg, hagfelld, borgaraleg not með sem mestum jákvæðum áhrifum á nærsamfélagið. Þegar félagið tók til starfa var verðmæti eigna ríkisins metið á 4 til 5 milljarða króna. Nú þegar sér fyrir endann á sölu þeirra fasteigna sem félagið fékk í sína vörslu er ljóst að söluverðmæti þeirra verði um 18 milljarðar króna. Þannig munu hreinar tekjur ríkissjóðs af sölu eignanna nema um 10 milljörðum króna. Í dag búa um 2.500 manns á Ásbrú og þar starfa á annað hundrað fyrirtæki og stofnanir á ýmsum sviðum með yfir 800 starfsmönnum. Á svæðinu eru starfrækt fimm gagnaver stór og smá, stórskala örþörungaræktun, menntastofnun, fjöldi hótela, gistiheimila og annarra þjónustufyrirtækja auk grunnskóla og tveggja leikskóla. Þegar allt er lagt saman nemur heildarfjárfesting frá árinu 2006 vel á annað hundrað milljarða króna, segir í tilkynningu félagsins.
Kadeco verður lagt niður í núverandi mynd Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir að til standi að leggja starfsemi Kadeco, þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, niður í núverandi mynd. Þetta kemur fram í frétt Kjarnans. Skipt var um stjórn í félaginu í vikunni og upprunalega hlutverki þess, að selja fasteignir á Ásbrú, sé nú lokið. Benedikt telur hins vegar vera þekkingu hjá starfsfólki félagsins, sem sé þess eðlis að hún gæti nýst áfram. Ráðuneytið vilji taka upp viðræður við heimamenn um hvernig hægt sé að endurskoða starfsemina með það í huga.
Lagfæra öryggissvæði Grindavíkurvegar ■■Til stendur að lagfæra öryggissvæði Grindavíkurvegar, sem hluta af sérstakri öryggisaðgerð. Í það verkefni hefur verið veitt 20 milljónum króna. Í því felst m.a. að lagfæra hvassar brúnir sem eru við malbikskanta og hreinsa stórgrýti úr vegsvæði og lagfæra fláa við veginn. Þrír kaflar á Grindavíkurvegi verða malbikaðir í sumar. Tveir stuttir og einn lengri upp af Seltjörn. Þá verður væntanlega eitthvað unnið við holuviðgerðir á veginum líka. Einnig verður malbikaður kafli á Austurvegi í Grindavík, frá tjaldstæðinu og að Hópsbraut. Einnig eru vegrifflur á miðjunni á Grindavíkurvegi, þannig að fræsa þarf nýja þar sem nýtt malbikslag verður sett. Þetta kemur fram í svari Vegagerðarinnar við fyrirspurn Víkurfrétta um malbikun á þjóðvegum á Suðurnesjum í sumar.
Skötumessan í Garði haldin 19. júlí ■■Skötumessan 2017 verður haldin í Miðgarði Gerðaskóla í Garði miðvikudaginn 19. júlí kl. 19. Að venju er fjölbreytt skemmtidagskrá; Dói og Baldvin, Páll Rúnar Pálsson, Hermann Ingi og Helgi Hermannssynir, Gullkistan; Ásgeir Óskarsson úr Stuðmönnum, Gunnar Þórðarson úr Hljómum, Jón Ólafsson úr Pelican og Óttar Felix Hauksson úr Pops. Ræðumaður verður Ólafur Helgi Kjartansson lögreglustjóri. Styrkveitingar til einstaklinga og félagasamtaka eru hluti af dagskrá. Verð kr. 4.000, sama verð ár eftir ár. Greiðið inn á reikning Skötumessunnar; 0142-05-70506, kt. 5807110650. Þeir sem greiða í forsölu fá örugg sæti en alltaf er uppselt á Skötumessuna. Skötumessan er áhugafélag um velferð fatlaðra.
25%
25%
POTTAR, PÖNNUR & BÚSÁHÖLD
REIÐHJÓL
20% SMÁRAFTÆKI
20% 25% 25% ÁBURÐUR
GARÐHÚSGÖGN
25% 30%
30%
TIMBURBLÓMAKASSAR
GJÖCO MÁLNING OG VIÐARVÖRN
35%
REIÐHJÓLAFYLGIHLUTIR
70% VORLAUKAR
50% BAVARIA RAFMAGNSVERKFÆRI
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/ eða myndabrengl.
20-40% KEÐJUSAGIR
30% REYKOFNAR
35%
30%
25%
HEKKKLIPPUR, HEKKSNYRTAR & LAUFSUGUR
MOTTUR & DREGLAR
ELDSTÆÐI
FRÆ
20%
30-40% NAPOLEON GRILL-
30%
FÖNDURVÖRUR
FYLGIHLUTIR
35% LEIKFÖNG
20-40% SLÁTTUVÉLAR
25%
BAÐFYLGIHLUTIR
FERÐAVARA
BLÓMAPOTTAR & GARÐSKRAUT
BLÓM, TRÉ & RUNNAR
40% 40% 25%
KÖRFUBOLTASPJÖLD
30-40% VERKFÆRABOX
KERTI, LUKTIR & HEIMILISSKRAUT
35% PLASTBOX
Gerðu frábær kaup!
35%
FERÐATÖSKUR
AUÐVELT AÐ VERSLA Á BYKO.IS SENDUM ÚT UM ALLT LAND
30% JÁRNHILLUR
ÍSLENSK framleiðsla
ORKUDRYKKUR Líka til sykurlaus
M
Í
198
69
kr. 250 ml
Pepsi eða Pepsi Max 330 ml
ES Orkudrykkur 250 ml, 3 teg.
kr. 200 g Góu Hraun 200 g
Ódýrt og gott í
59
kr. 330 ml
320kr
FERÐALAGIÐ
verðlækkun pr. kg
1.259 kr. kg
69
Brauðostur, 26% Verð áður 1.579 kr. kg
kr. 145 g Maryland Kex 145 g, 4 tegundir
NÝTT Í BÓNUS
SAMA VERd
um land allt 8stk. Hlunkar
Extra mjúkur
220
blöð á rúllu
598 kr. pk.
Kitten Soft Salernispappír Mjúkur, 9 rúllur í pakka.
359 kr. pk.
259
Bónus Hlunkar 8 stk.
Hunt’s Tómatsósa 992 g
Verð gildir til og með 9. júlí eða meðan birgðir endast
kr. 992 g
Miðlærissneiðar
ÍSLENSKT Lambakjöt
ÍSLENSKT Grísakjöt
2.598 kr. kg
1.298 kr. kg
Íslandslamb Lærissneiðar 1. flokkur, kryddaðar
Bónus Grísakótilettur Kryddaðar
BÓNUS KEMUR MEÐ LÁGA VERÐIÐ TIL ÞÍN ÓDÝRARA að krydda sjálfur
ÍSLENSKT Lambakjöt
ÍSLENSKT Lambakjöt
1.298 kr. kg Íslandslamb Bógsneiðar Kryddaðar
EINFALDAR Kótilettur
2.298 kr. kg SS Lambakótilettur Frosnar
459 kr. 500 ml
Caj P. Grillolía 500 ml
198 kr. 510 ml
1.398 kr. kg KS Lambalærissneiðar Frosnar
1.398 kr. kg SS Lambalæri Bragð frá Grikklandi
359 kr. pk.
Hunt’s BBQ sósur 510 ml, 3 teg.
Þykkvabæjar Grillkartöflur Forsoðnar, 3 stk., ca. 700 g
Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00
6
VÍKURFRÉTTIR
Masterar markaðsfræði hinum megin á hnettinum ●● Ellen Agata Jónsdóttir nýtur lífsins í Ástralíu
fimmtudagur 6. júLí 2017
Lesandi vikunnar í Bókasafni Reykjanesbæjar
,,Það verða allir betri manneskjur af því að lesa bókina Góði dátinn Svejk” -segir Eysteinn Eyjólfsson lesandi vikunnar
Ellen í Blue Mountains, New South Wales.
„Ég held ég hafi komið fjölskyldu minni svolítið á óvart með þessari ákvörðun þar sem ég hef aldrei þolað mikinn hita né mátt sjá svo mikið sem húsflugu án þess að hlaupa í burtu öskrandi,“ segir Keflvíkingurinn Ellen Agata Jónsdóttir, en hún er búsett hinum megin á hnettinum í Brisbane í Ástralíu þar sem hún stundar mastersnám í markaðsfræði við Griffith University. Ellen segist sátt í Ástralíu en hún flutti þangað um hásumar og segist í dag vera farin að venjast hitanum. „Fólkið hér er mjög viðkunnanlegt og skemmtilegt og maður lendir oft í samræðum við bláókunnugt fólk, hvort sem það er úti í búð eða í strætó. Hér í Brisbane er lífinu tekið nokkuð rólega. Það er stutt í strendurnar og fólk fer mikið þangað um helgar. Það er einnig mikið um matarmarkaði og þangað fer ég oft, bæði til að smakka mat frá öllum heimshornum og til að versla ferska ávexti og grænmeti. Svo elska ég að labba um borgina og finna ný kaffihús og fylgjast með mannlífinu.“ Ellen, sem er útskrifaður tómstundaog félagsmálafræðingur frá HÍ, ætlaði upprunalega að sækja um í skóla í London, en það hafði alltaf verið hennar draumur. Hún ákvað þó á síð-
ustu stundu að reyna að upplifa meira ævintýri og endaði í Brisbane. „Þegar ég lærði í HÍ reyndi ég að leggja sem mesta áherslu á viðburðastjórnun í námi en ég kláraði einnig diplómu í viðburðarstjórnun frá Háskólanum á Hólum. Þegar ég fór svo að huga að mastersnámi vissi ég að ég vildi auka þekkingu mína á öðru sviði og hefur mér alltaf þótt markaðsmál áhugaverð og viðburðarstjórnun og markaðsfræði passa vel saman.“ Hingað til hefur Ellen reynt að ferðast eins mikið og hún getur. Hún hefur meðal annars ferðast um Norður Queensland til að skoða The Great Barrier Reef, siglt á milli Whitsundays eyjanna, þar sem hún synti í sjónum með banvænum marglittum, farið í roadtrip til Sydney, í tveggja vikna rútuferð um Nýja Sjáland og nýlega kom hún heim frá Fiji sem hún segir Ellen ásamt vinum sínum á Fiji.
Sólborg Guðbrandsdóttir solborg@vf.is
Með vinkonum við Óperuhúsið í Sydney.
einn magnaðasta stað sem hún hefur upplifað. „Ég held ég hafi ekki farið í skó í viku. Á Fiji er æðislegt fólk og þar er enginn að stressa sig á hlutunum.“ Það hefur komið Ellen á óvart hvað hún hefur fengið litla heimþrá, en hún flytur þó aftur heim til Íslands í ágúst að náminu loknu. „Ég er búin að upplifa svo mikið af nýjum og skemmtilegum hlutum, en það er líka svo auðvelt að vera í sambandi við fjölskyldu og vini í gegnum netið. Auðvitað koma upp tímar þar sem maður væri alveg til í að vera heima og þá finnur maður virkilega hvað þetta er langt í burtu. Þær aðstæður hafa komið upp þar sem ég gat ekki hugsað mér að vera annars staðar en á Íslandi. Ég á svo ótrúlega fjölskyldu sem flaug mér þá heim sem ég verð ævinlega þakklát fyrir. Ferðalagið tók tvo heila daga sem einkenndust af flugvallarbið og flugferðum.“ Ellen segir það ekki fyrir hvern sem er að búa svona langt í burtu en hún segist hafa kynnst fullt af fólki alls staðar frá í heiminum. „Það eru fjölmargir búnir að boða komu sína til Íslands þegar ég flyt heim. Fyrsta heimsóknin er einmitt núna í október þar sem vinkonur mínar frá Noregi, Kanada og London ætla að koma í heimsókn.“
Eysteinn Eyjólfsson byrjaði mjög ungur að lesa og hefur alltaf verið öflugur lesandi. Um ellefu ára aldurinn var hann farinn að taka níu bækur á tveggja daga fresti að láni hjá Bókasafninu. Hann flutti sig yfir í fullorðins deildina um tólf ára aldurinn en þá var hann búinn að lesa allar bækurnar í barnadeildinni. Eysteinn hefur gjarnan þann háttinn á að lesa margar bækur í einu. Núna les hann skáldsögu um Víetnam sem heitir The story of war eftir Bao Ninh ásamt því að glugga í Góða dátann Svejk eftir Jaroslav Hašek. Einnig er hann með Marvel teiknimyndablöð við hendina ásamt ferðahandbókum um Róm, Puglía og Krít en þá staði heimsækir hann í sumar. Eysteinn á þrjár eftirlætis bækur en þær les hann aftur og aftur. Það eru bækurnar Hundrað ára einsemd eftir Gabriel Garcia Márquez, Meistarinn og margarita eftir Mikhail Bulgakov og Góði dátinn Svejk eftir Jaroslav Hašek. „Þetta eru allt saman skáldsögur og tvær þeirra eiga það sameiginlegt að fjalla um töfraraunsæi. Það er líka mikill humor í Meistaranum og margaritu og Góða dátanum Svejk, en þær eru líka ádeilubækur.“ Gabriel Garcia Márquez er eftirlætis höfundur Eysteins en hann hefur lesið flestar bækur eftir hann. „Hundrað ára einsemd var fyrsta bókin sem ég las eftir hann en síðan hef ég lesið fleiri verk eftir hann. Bókin finnst mér mjög heillandi en hún fjallar um sögu Buendía ættarinnar og er eins og spegill inn í Suður-Ameríku á ákveðnum tíma.” Núna les Eysteinn einna helst bækur tengdar sögulegu efni, bæði sögulegar skáldsögur og sagnfræðirit.
Einnig fylgist hann vel með því sem fram fer í heimsmálum og les bækur sem tengjast því. „Ég les líka alltaf mikið af teiknimyndasögum,“ bætir Eysteinn við kíminn. Sú bók sem hefur haft mest áhrif á Eystein er bókin Ég lifi eftir Martin Gray. Bókin segir frá manni sem lendir ungur í nasistabúðum og lifir það af en lendir síðar í því að missa hluta fjölskyldu sinnar í skógareldi. „Ég las þessa bók tiltölulega ungur og ég man eftir því að hún var mjög áhrifarík. Á svipuðum tíma las ég líka Dagbók Önnu Frank sem hafði líka mikil áhrif á mig.“ Eysteinn er ekki í vafa um hvaða bók allir ættu að lesa; „Það verða allir betri manneskjur af því að lesa bókina Góði dátinn Svejk.“ Eysteinn getur lesið nánast alls staðar og sem barn las hann mikið í baði og við matarborðið, sem hann segir að hafi ekki vakið neina sérstaka lukku. Allra best þykir honum að lesa upp í rúmi á kvöldin og segist ekki geta sofnað án þess að lesa nokkrar blaðsíður. Á eyðieyju tæki Eysteinn með sér öll bindi alfræðirits Brittanicu, enda þarf fólk á eyðieyjum líka að sofa. Í sumar ætlar Eysteinn meðal annars að ferðast til Ítalíu og Krítar. „Mér finnst gaman að koma inn í bókasöfn þegar ég ferðast. Ég fer alltaf í bókabúðir í öllum borgum sem ég ferðast til og mér finnst gott að kaupa mér bækur um svæðið þar sem ég er.“ Bókasafn Reykjanesbæjar er opið alla virka daga frá klukkan 09-18 og á laugardögum frá klukkan 11 til 17. Rafbókasafnið er alltaf opið – nánari upplýsingar á heimasíðu safnsins. Á heimasíðu safnsins er hægt að mæla með Lesanda vikunnar.
Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma,
María Hafdís Ragnarsdóttir, Lómatjörn 3, 260 Reykjanesbæ,
lést 1. júlí eftir stutta baráttu við krabbamein. Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 12. júlí kl.13 Sveinbjörn Þórisson Ragnar Ómarsson Þórir Sveinbjörnsson Kristjana Dögg Hafþórsdóttir Sóley Sveinbjörnsdóttir Kenneth W. Frederick Bjarni Steinar Sveinbjörnsson Thelma Karen Kristjánsdóttir og barnabörn
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is // Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Óskar Birgisson, sími 421 0002, oskar@vf.is // Sólborg Guðbrandsdóttir, sími 421 0002, solborg@vf.is // Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is // Umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is // Afgreiðsla: Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@vf.is // Prentun: Landsprent // Upplag: 9000 eintök // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00 á þriðjudegi fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga er á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15:00 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og skilafrestur auglýsinga færist fram um einn sólarhring. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga. Blað sem kemur út á fimmtudegi er dreift á þeim degi og föstudegi inn á öll heimili á Suðurnesjum. Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
markhönnun ehf
r ma su ill gr Gleðilegt
- grillveislan byrjar í Nettó!
-20%
DANISH CROWN NAUTA FILLE SNYRT / FROSIÐ KR KG ÁÐUR: 2.998
2.398
-36%
LAMBA PRIME HVÍTLAUK OG RÓSMARÍN KR KG ÁÐUR: 4.498 KR/KG
2.879
1.199
-50%
KJÚKLINGABRINGUR DANSKAR 900 GR. KR PK
1.184 GRILL LAMBASIRLOIN ÍSLENSKT FJALLALAMB KR KG ÁÐUR: 1.598 KR/KG
1.278
-40%
KJÖTSEL GRILL SVÍNAKÓTILETTUR KR KG ÁÐUR: 1.998 KR/KG
FERSKJUR 1 KG. KR ASKJAN ÁÐUR: 298 KR/ASKJAN
149
Gott á grillið!
-40%
SKINNEY ÝSUBITAR 1 KG. KR KG ÁÐUR: 1.698 KR/KG
1.358
BOCUSE D’OR LAMBALÆRI HÁTÍÐAR KR KG ÁÐUR: 1.798 KR/KG
1.582
-30% ESPUNA CHORIZO 100 GR. KR PK ÁÐUR: 398 KR/PK
279
HUMAR ÁN SKELJAR 800 GR. FROSIÐ. KR PK ÁÐUR: 4.998 KR/PK
2.799
BOCUSE D’OR PRIME GRAND CRU KR KG ÁÐUR: 3.398 KR/KG
2.752
GOÐI GRILLPYLSUR OSTA. 300 GR. KR PK ÁÐUR: 593 KR/PK
534
ESPUNA SERRANO 70 GR. KR PK ÁÐUR: 398 KR/PK
279
ESPUNA SALAMI 100 GR. KR PK ÁÐUR: 398 KR/PK
279
COOP PIZZA PEPPERONI. 350 GR. GOÐI MORGUNVERÐARPYLSUR KR 180 GR. STK KR ÁÐUR: 399 KR/STK
359
446 PK
NÝTT Í
COOP PIZZA SKINKA & OSTUR. 340 GR. KR STK ÁÐUR: 399 KR/STK W
359
ÁÐUR: 495 KR/PK CAFFESSO NESPRESSO GRANDE GUSTO 55 GR KR PK ÁÐUR: 529 KR/PK
370 BYSSA NERF MODULUS STÓR KR STK ÁÐUR: 5.998 KR/STK
4.199
-30%
VATNSBYSSA ÞRÝSTISPRAUTA BLÁ KR
699 STK
ÁÐUR: 998 KR/STK
-30%
-30%
NUTRAMINO HEAT BCAA ENERGY 330 ML MANGO STRAWBERRY /PASSION /WATERMELON KR KR STK STK
259
259
Tilboðin gilda 6. - 9. júlí 2017 www.netto.is Tilboðin gilda meðan birgðir endast • Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl • Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana. Búðakór • Grandi • Mjódd • Salavegur • Hafnarfjörður • Hrísalundur • Glerártorg • Húsavík • Höfn • Iðavellir • Grindavik • Krossmói • Borgarnes • Ísafjörður • Egilsstaðir • Selfoss
8
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 6. júLí 2017
TARA RÓS JÓHANNSDÓTTIR SVARAR SPURNINGUM
UM LÍFIÐ OG TILVERUNA SUÐUR MEÐ SJÓ
FÆRRI Í VINNUSKÓLA VOGA EN ÁÐUR
■■Vel hefur gengið að manna sumarstörf hjá Sveitarfélaginu Vogum þrátt fyrir afar gott atvinnuástand. Umsækjendur í vinnuskóla eru hins vegar nokkuð færri en áður og á það sérstaklega við um elstu árgangana. Þetta kom fram á fundi frístundaog menningarnefndar Sveitarfélagsins Voga á dögunum. Búið er að gefa út bækling um sumarstarf í Vogum og hefur honum verið dreift í öll hús í sveitarfélaginu. Þar er farið yfir það starf sem í boði er fyrir börn og ungmenni í sveitarfélaginu í sumar. Má þar nefna leikjanámskeið, vinnuskóla, sumarstarf Þróttar, golfnámskeið GVS o.fl.
Hvað ertu að bralla þessa dagana? Ég vinn á leikskólanum Gefnarborg í Garði. Hvað finnst þér best við það að hafa alist upp á Suðurnesjunum? Frelsið. Mér fannst ég alltaf örugg hérna og ég vissi að ef eitthvað kæmi upp á þá væri alltaf stutt í hjálpina. Það er stutt í allt og alla. Það var einnig svo æðislegt að það þyrfti ekki að fara langt til þess að komast í algjöra kyrrð og sveitafýling. Ef þú ættir að mæla með einhverju einu af svæðinu fyrir ferðamenn eða þá sem
búa ekki hér, hvað væri það? Það er svo erfitt að velja einn stað því það er svo margt fallegt hérna en annars Reykjaneshringurinn og Garðskaginn stendur einnig alltaf fyrir sínu. Hvað ætlarðu að gera í sumar? Ég ætla að ferðast um landið. Markmiðið mitt er að reyna að fara í margar náttúrulaugar. En ég verð að vinna eitthvað líka. Hvað finnst þér betur mega fara í bænum? Það þarf að reyna að lífga upp á Hafnargötuna, bæði götuna sjálfa og lífið í kringum hana.
Lætur verkin tala og draumana rætast ●●„Gott að næra „sitt innra nörd“ af og til,“ segir alþingismaðurinn Silja Dögg sem er nú meistari í alþjóðaviðskiptum „Tíminn bara hvarf. Allt í einu voru liðin 14 ár og ég enn ekki komin með meistaragráðuna. Að auki er ég í mjög ótryggu starfi. Þannig að þegar ég sá fjarnám auglýst hjá Bifröst vorið 2015, þá fannst mér rétti tíminn kominn. Börnin mín voru komin á legg, ég búin að ná ágætum tökum á nýja starfinu og tilbúin að setjast aftur á skólabekk,“ segir Njarðvíkingurinn Silja Dögg Gunnarsdóttir er þriðji þingmaður Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, en nýverið útskrifaðist hún úr meistaranámi í alþjóðaviðskiptum. Hún segist alltaf hafa ætlað sér að fara í meistaranám að BA-námi loknu, sem hún kláraði árið 2001, en eftir að hún komst út á vinnumarkaðinn hafi alvara lífsins tekið við og námið þurft að sitja á hakanum. Silja ákvað að fara í alþjóðaviðskipti og segir að sér hafi þótt fögin sem kennd voru á þeirri braut öll mjög áhugaverð. „Ég valdi alþjóðaviðskipti þar sem ég taldi að það nám gæfi mér aukna þekkingu á því sem ég er að fást við á Alþingi og aukna möguleika á vinnumarkaði. Ég valdi hagsögubraut á sínum tíma í sagnfræðináminu þannig að þessi tegund meistaranáms rímaði líka vel við þann grunn.“ Sveigjanleikinn góður Hún segir fjarnámið á Bifröst mjög sveigjanlegt, að það hafi hentað sér mjög vel og passað vel við taktinn í þingstöfunum. „Fjarnámið á Bifröst er
sniðið að fólki sem er í fullri vinnu og fólk getur ráðið hversu hratt það fer. Margir samnemendur mínir voru t.d. í vaktavinnu og/eða bjuggu erlendis. Í fjarnámi getur þú hlustað á fyrirlestra hvar og hvenær sem er og unnið verkefnin þegar þér hentar. Við unnum mörg hópverkefni og það gerðum við að mestu í gegnum Google docs og Skype. Þannig að námsaðferðirnar sem fylgja fjarnáminu voru ekki síður gagnlegar og lærdómsríkar fyrir mig en námið sjálft. Öll heimildavinna er líka gerbreytt frá því sem áður var. Það er talsvert fljótlegra í dag að safna heimildum heldur en þegar ég var í sagnfræðinni og eyddi löngum stundum á Þjóðarbókhlöðunni að leita að bókum, ljóstrita og skrifa niður.“ Silja segir fólk fyrst og fremst verða að hafa mikinn vilja og metnað til að leggja sig fram, vera tilbúið til að fórna öllu á meðan náminu stendur eins og skemmtunum, sjónvarpsglápi, samveru með vinum og svo framvegis. Þá segir hún að það hjálpi líka til að fólk sé mjög skipulagt, sé fljótt að greina aðalatriði frá aukaatriðum í námsefninu og síðast en ekki síst, vera hraðlæst og eiga fjölskyldu sem styður það algjörlega. Fjarnámið hentaði vel Vinnudegi Silju lýsir hún sem mjög óreglubundnum og oft fullkomlega ófyrirsjáanlegum og því hafi fjarnámið hentað henni vel. „Ég hefði ekki geta verið í námi þar sem ég þyrfti alltaf að mæta á vissan stað á ákveðnum
LAUS STÖRF
LEIKSKÓLINN HJALLATÚN Deildarstjóri HEIÐARSKÓLI Umsjónarkennsla á yngsta stigi LEIKSKÓLINN HJALLATÚN Leikskólakennarar HÁALEITISSKÓLI Þroskaþjálfi HEIÐARSKÓLI Textílkennsla á mið- og elsta stigi LEIKSKÓLINN HOLT Leikskólakennari Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanesbæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf og á Facebook síðunni Reykjanesbær - laus störf. Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði.
tíma. Það hefði verið útilokað. Hið sama gildir til dæmis um vaktavinnufólk eins og hjúkrunarfræðinga, en þeir voru þó nokkrir með mér í fjarnáminu.“ Hún segir að námið hafi gert sig hæfari í þeim störfum sem hún sinnir nú á Alþingi. „Ég tók til dæmis áfanga er snúa að stjórnun og þjónandi forystu, áfanga í lögum um stjórnsýslurétt og nokkra áfanga í fjármálum og alþjóðaviðskiptum sem hafa allir nýst mér afar vel bæði í fjárlaganefnd og í utanríkismálanefnd, sem hafa verið mínar aðalefndir það sem af er. Að auki tel ég mig hafa bætt stöðu mína á vinnumarkaði, en eins og allir vita þá er það liðin tíð að þingstörf séu álitin framtíðarstörf. Alþingismenn eru nú bara fólk og þurfa að fá tækifæri til að hugsa um eitthvað annað en vinnuna. Sumir hlaða batteríin með því að fara út að hlaupa, syngja í kór, mála myndir, fara á hestbak eða eitthvað annað. Ég kaus að fara aðra leið, loka mig inni í herbergi með fræðibækur og hlusta á fyrirlestra. Já, maður er skrýtið nörd en það er gott að næra „sitt innra nörd“ af og til. Silja segist hafa lagt sig alla fram við að sinna skyldum sínum á Alþingi af kostgæfni. „Ég hef lagt fram fjölmörg mál, bæði frumvörp, þingsályktanir og fyrirspurnir, verið virk í umræðunni í þingsal og sinnt nefndarstörfum eftir bestu getu. Ég læt verkin tala og draumana rætast og vona að ég geti verið sem flestum hvatning.“ solborg@vf.is
VIÐBURÐIR ÞAÐ SEM EFTIR STENDUR Gillian Pokalo, bandarískur listamaður sýnir silkiprent af Reykjanesi í Duus Safnahúsum. Hún verður með leiðsögn sunnudaginn 9. júlí kl. 14.00 og er sá dagur jafnframt síðasti dagur sýningarinnar. Allir velkomnir, ókeypis aðgangur. SÝNING UM KÖRFUKNATTLEIK Í KEFLAVÍK OG NJARÐVÍK Lumar þú á munum er tengjast meistaraflokkum Keflavíkur og Njarðvíkur í körfubolta? Sýning um körfuknattleik í Keflavík og Njarðvík opnar í byrjun september í Átthagastofu Bókasafns Reykjanesbæjar. Við óskum eftir munum og myndum frá öllum tímabilum félaganna, jafnt kvenna- sem karlaliðum. Tekið er við munum í afgreiðslu safnsins og hægt er að hafa samband í gegnum netfangið bokasafn@reykjanesbaer.is ef einhverjar spurningar vakna.
Guðlaug Erlendsdóttir nýr aðstoðarskólastjóri í Grindavík ■■Guðlaug Erlendsdóttir hefur verið ráðin sem aðstoðarskólastjóri í Grunnskóla Grindavíkur. Guðlaug er með kennsluréttindi í grunnog framhaldsskóla, BA próf í sálar- og afbrotafræði, meistarapróf í stjórnun menntastofnana, meistarapróf í félagsfræði og er í doktorsnámi við HÍ. Guðlaug hefur kennt mið- og elsta stigi grunnskóla á Íslandi og einnig í alþjóðaskólum erlendis. Þá hefur hún einnig starfað sem námsráðgjafi. Guðlaug var ráðin frá og með 1. ágúst næstkomandi en umsækjendur voru átta talsins.
SLÁTTUVÉLAR · GARÐVERKFÆRI · HEKKKLIPPUR · KEÐJUSAGIR · PA-
sala t ú r a m u s a t s NILL · VATNSKLÆÐNING ·OVERMIREITIR kkar stær · BLÓMAKASSAR · HÁÞRÝ-
FR
Á UPB&D PHA·FHJÓL I SIDÆLUR · ÁLTRÖPPUR · STIGAR · RAFMAGNSVERKFÆRI
OG FYLGIHLUTIR · GARÐHÚSGÖGN · ÚÐARAR · SLÖNGUHJÓL · TENGI · CLABER · ÚTIVISTAFATNAÐUR · JOTUN PALLAOLÍA JOTUN VIÐARVÖRN · ELECTROLUX RYKSUGUR · VEGGÞILJUR · LOFTAÞILJUR · LEIKFÖNG · BÚSÁHÖLD · BROILKING GRILL · GRILL FYLGIHLUTIR, BROIL KING, GRILLPRO · HARÐPARKET OG UNDIRLAG · ELECTROLUX SMÁRAFTÆKI · VERKFÆRATÖSKUR OG FLEIRA · SLÁTTUVÉLAR · GARÐVERKFÆRI · HEKKKLIPPUR · KEÐJUSAGIR · PANILL · VATNSKLÆÐNING · VERMIREITIR · BLÓMAKASSAR · HÁÞRÝSIDÆLUR · ÁLTRÖPPUR · STIGAR · RAFMAGNSVERKFÆRI B&D · HJÓL OG FYLGIHLUTIR · GARÐHÚSGÖGN · ÚÐARAR · SLÖNGUHJÓL · TENGI · CLABER · ÚTIVISTAFATNAÐUR · JOTUN PALLAOLÍA JOTUN VIÐARVÖRN · ELECTROLUX RYKSUGUR · VEGGÞILJUR · LOFTAÞILJUR · LEIKFÖNG · BÚSÁHÖLD · BROILKING GRILL · GRILL FYLGIHLUTIR, BROIL KING, GRILLPRO · HARÐPARKET OG UNDIRLAG · ELECTROLUX SMÁRAFTÆKI · VERKFÆRATÖSKUR OG FLEIRA · SLÁTTUVÉLAR · GARÐVERKFÆRI · HEKKKLIPPUR · KEÐJUSAGIR · PANILL · VATNSKLÆÐNING · VERMIREITIR · BLÓMAKASSAR · HÁÞRÝSIDÆLUR · ÁLTRÖPPUR · STIGAR · RAFMAGNSVERKFÆRI B&D · HJÓL OG FYLGIHLUTIR · GARÐHÚSGÖGN · ÚÐARAR · SLÖNGUHJÓL · TENGI · CLABER · ÚTIVISTAFATNAÐUR · JOTUN PALLAOLÍA JOTUN VIÐARVÖRN · ELECTROLUX RYKSUGUR · VEGGÞILJUR · LOFTAÞILJUR · LEIKFÖNG · BÚSÁHÖLD · BROILKING GRILL · GRILL FYLGIHLUTIR, BROIL KING,
AFSLÁTTUR
GRILLPRO · HARÐPARKET OG UNDIRLAG · ELECTROLUX SMÁRAFTÆKI · VERKFÆRATÖSKUR OG FLEIRA · SLÁTTUVÉLAR · GARÐVERKFÆRI · HEKKKLIPPUR · KEÐJUSAGIR · PANILL · VATNSKLÆÐNING · VERMIREITIR · BLÓMAKASSAR · HÁÞRÝSIDÆLUR · ÁLTRÖPPUR · STIGAR · RAFMAGNSVERKFÆRI B&D · HJÓL OG FYLGIHLUTIR · GARÐHÚSGÖGN · ÚÐARAR · SLÖNGUHJÓLSumarblóm · TENGI · ÚTIVISTAFATNAÐUR · JOTUN PAL30-50% ··TréCLABER og runnar 50% · Fjölærar plöntur 50% · Matjurtir 50% · Garðarósir 50% · Útipottar 30% · Garðstyttur 30% · Fræ og sáðbakkar 30% · Silkisumarblóm 30% · Vökvunarkönnur 30% · Úðabrúsar 30% · Sláttuvélar 20% · Garðverkfæri 25% · Hekkklippur 30% · Keðjusagir 30% · Vermireitir og blómakassar 20% · Háþrýstidælur 20% · Áltröppur og stigar 30% · Rafmagnsverkfæri Black&Decker 30% · Reiðjól og fylgihlutir 30% · Garðhúsgögn 30% · Úðarar, slönguhjól og tengi 30% · True North Útivistafatnaður 50% · Pallaolía 25% · viðarvörn 25% · Innimálning 25% · Útimálning 25% · Vegg- og loftaþiljur 25% · Leikföng 30% · Búsáhöld - 25% · BroilKing grill 20% · Grill fylgihlutir, Broil King, GrillPro 30% · Harðparket og undirlag 25% · Electrolux smáraftæki 20% · Verkfæratöskur 35% · Ferðavörur 25% og margt fleira
LAOLÍA JOTUN VIÐARVÖRN · ELECTROLUX RYKSUGUR · VEGGÞILJUR · LOFTAÞILJUR · LEIKFÖNG · BÚSÁHÖLD · BROILKING GRILL · GRILL FYLGIHLUTIR, BROIL KING, GRILLPRO · HARÐPARKET OG UNDIRLAG · ELECByggjum á betra verði
Frí heimsendinhugsa.is
í vefv·erslun TROLUX SMÁRAFTÆKI · VERKFÆRATÖSKUR OG FLEIRA
w w MEI w.RAh u s a . i s
0 KR. EÐA EF VERSLAÐ ER FYRIR 5.99
10
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 6. júLí 2017
Öll börn eru okkar börn Endurskoðun deiliskipulags ofan Garðvangs í Sveitarfélaginu Garði Teiga- og Klappahverfi Sveitarfélagið Garður vinnur nú að endurskoðun deiliskipulags ofan Garðvangs, svokölluðu Teiga- og Klappahverfi. Breytingin snýr að þéttingu byggðar og fjölbreyttari íbúðagerð. Þannig mun einbýlishúsalóðum fækka umtalsvert og meirihluti lóðanna verður skipulagður fyrir par- og raðhús. Aðkomuleið hverfisins færist vestur fyrir Sandgerðisveg 7. Endurskoðunin nær einungis til gatnanna Asparteigs, Berjateigs, Báruklappar, Brimklappar og Fjöruklappar, aðrir hlutar hverfisins verða óbreyttir. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við skipulagsfulltrúa Garðs. Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar og berast annað hvort á Sunnubraut 4, 250 Garður eða á netfangið jonben@svgardur.is í síðasta lagi 4. ágúst n.k. Garði 6. júlí 2017 Jón Ben Einarsson, skipulagsfulltrúi
●●„Við eigum að vera efst og best í því að gæta að góðum lífsgæðum allra barna,“ segir Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
„Á Íslandi ætti ekkert barn að líða efnislegan skort,“ segir Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, en nýlega sat hún fund á vegum UNICEF, verkefnastjórnar um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, Hagstofu Íslands og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands þar sem kynnt var skýrsla um stöðu barna í efnameiri ríkjum. Oddný segir Ísland standa sig vel á mörgum sviðum er varðar velferð barna en að það megi sannarlega gera betur. „Þúsundir barna geta því miður ekki tekið þátt í félags- og íþróttastarfi vegna þess að foreldrarnir eiga ekki peninga nema rétt fyrir fæði, klæði og húsnæði. Tónlistarnám á Íslandi er nánast bara fyrir börn efnameira fólks. Það finnst mér ekki ganga og því verður að breyta. Það eru til áhrifamiklar og einfaldar leiðir til þess að bæta úr þessu en þær eru ekki nýttar. Þessu mætti til dæmis breyta með því að nota jöfnunartækin sem ríkið á og hafa sýnt sig að virka best, barnabætur
Auglýsing um skipulag Breyting á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga 2008-2028 Svæði norðan Vogavegar Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti þann 28. júní 2017 tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga 2008-2028 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í að felld er burt verslunar- og þjónustusvæði (VÞ-1) fyrir eldsneytisstöð með sjálfsafgreiðslu við iðnaðarsvæði (I-1) norðan Vogavegar. Þess í stað er svæðið skilgreint sem iðnaðarsvæði (I-1) á sama hátt og aðliggjandi svæði. Greinargerð með rökstuðningi er á uppdrætti dags. 19. júní 2017 Í mkv. 1:10.000. Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulags- og byggingarfulltrúa Sveitarfélagsins Voga. Vogum, 6. júlí 2017 f.h. bæjarstjórnar, Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri
Auglýsing um skipulag Sveitarfélagið Vogar Tillaga að deiliskipulagi fyrir Aragerði 4. Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti þann 28. júní 2017 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir Aragerði 4 vegna fyrirhugaðar byggingar fjölbýlishúss á tveimur hæðum með 6 íbúðum. Tillagan er sett fram á uppdrætti ásamt greinargerð og vísast til hennar um nánari upplýsingar. Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar frá og með fimmtudeginum 6. júlí 2017 til og með fimmtudagsins 17. ágúst 2017. Tillagan er einnig aðgengileg á vef Sveitarfélagsins Voga, www.vogar.is/Skipulag/Skipulag_i_kynningu/ Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Skila skal skriflegum athugasemdum til skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar eða á netfangið skrifstofa@vogar.is eigi síðar en fimmtudaginn 17. ágúst 2017. Vogum, 6. júlí 2017 f.h. bæjarstjórnar, Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri
og vaxtabætur. Þessi jöfnunartæki hafa illu heilli verið veikt mjög mikið vegna aðgerða síðustu ríkisstjórnar og sú sem nú heldur um stjórnartaumana hefur sýnt á spilin í fimm ára fjármálaáætlun og ætlar að veikja þau enn frekar. Á meðan mun staða margra barna versna.“ Oddný segir margt hægt að gera til að bæta stöðu barna hér á landi. „Við eigum ekki bara að sætta okkur við að vera ofarlega í mælingum á velferð barna, við eigum að vera efst og best í því að gæta að góðum lífsgæðum allra barna. Það er hægt og við höfum efni á því. Akureyrarbær hefur tekið að sér að gera tilraun sem barnvænt sveitarfélag þar sem áhersla er lögð á að framfylgja barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, að börn eigi talsmann á þeim stöðum sem þau verja mestum tíma og markvisst sé unnið úr upplýsingum sem til staðar séu, t.d. um ofbeldi gegn börnum og heimilisofbeldi,“ segir hún en hugmyndin er sú að Akureyri verði fyrirmynd annarra sveitarfélaga í þessum
efnum. Þá segir hún að forgangsröðun stjórnvalda, hvort sem það sé ríkisins eða sveitarfélaganna, skipti mestu máli, þ.e. að málefnum barna og ungra fjölskyldna sé raðað framar þegar velja á í hvað opinberir fjármunir fari. „Mér finnst staða barna efnaminni fjölskyldna óásættanleg og vil ekki hætta fyrr en við getum verið viss um að öll börn séu með og ekkert barn skilið eftir.“ Oddný bendir á að það séu mörg börn á Íslandi sem verði fyrir obeldi af hálfu fullorðinna sem misnoti þau með ýmsum hætti. „Þetta gerist hér á landi og við eigum að gera allt sem við getum til að vernda öll börn gegn slíku. Þar skiptir t.d. máli að lögreglan sé ekki fjársvelt og að hún hafi þekkingu og bolmagn til að sinna slíkum málum hratt og vel. Og að við þegjum aldrei ef við höfum grun um að ofbeldi hafi átt sér stað. Svo er styrkur til barnahjálpar hvar sem er í heiminum svo mikilvægur. Öll börn eru okkar börn og við eigum að tryggja þeim öllum gott líf.“ solborg@vf.is
Jóhanna Sæmundsdóttir - minning F. 2 3 . 9 . 1 9 2 8 - D . 1 2 . 6 . 2 0 1 7
Hún var mannvera af besta gæðaflokki og skilur eftir sig betri heim. Nanna var Vesturbæingur eins og ég. Hún var á aldur við mömmu, bjó í húsi forfeðra sinna, gift Valdimar sínum og saman eiga þau fjóra syni. Vesturbæjarvillingurinn ég tók snemma eftir fólki sem var það sjálft, barst ekki á, vann verk sín hljóð og skilaði ávallt sínu besta til samfélagsins, tók ekki annað en það hafði sannanlega unnið fyrir. Þannig var fjölskylda Nönnu. Valdimar var sjómaður sem bar björg í bú, Nanna sá um mest allt annað. Drengirnir þeirra skáru sig úr Vesturbæjar barnahópnum. Þeir léku með okkur, en voru ekki ,,villingar”. Ég bar virðingu fyrir uppeldinu á þeim, sem skilaði sér m.a. í afburða nemendum og síðar fyrirmyndar fullorðnum mannverum. Þegar ég gekk með yngri son minn, bjó ég í næsta húsi við fjölskylduna. Mamma var farin að vinna úti og ég þurfti að finna mér nýtt dagforeldri. Ég heimsótti Nönnu og spurði hvort hún væri tilbúin að hjálpa mér með uppeldi ófædda barnsins. Hún ræddi hugmyndina við Valdimar og drengina og úr varð dagfjölskylda sonar míns. Sonur minn var hjá þeim virka daga í sjö
ár. Á þeim tíma lærði hann margt gott sem hefur fylgt honum síðan. Nanna tók hlutverk sitt alvarlega og stóð fullkomlega undir væntingum mínum. Valdimar hafði gaman af peyja og urðu þeir mestu mátar, borðuðu saman hákarl ofl. Eitt atvik er mér sérstaklega minnisstætt, en það sýnir svo vel yfirvegun, æðru- og fordómaleysi Nönnu. Ég hafði hætt að reykja og hafði orð á því við Nönnu að ég fyndi svo sterka tóbakslykt af fólki sem reykti. „Já, Hjördís mín, svona lykt hefur fylgt drengnum þínum frá því þú komst með hann fjögurra mánaða.” Ég efast ekki um að þessi setning hafi hjálpað mér að halda reykbindindinu. Vinátta mín og þeirra hjóna hefur haldist, þó samverustundum hafi fækkað. Það var alltaf gott að sækja þau heim og tekið á móti mér með hlýju þegar ég birtist. Síðustu árin hef ég litið til þeirra af og til á Nesvelli og farið heim betri manneskja. Ég er þakklát að hafa fengið Nönnu og fjölskyldu hennar inn í líf mitt og fjölskyldu minnar fyrir 38 árum. Hugur minn er hjá Valdimar, strákunum fjórum og fjölskyldum þeirra.
SMÁAUGLÝSINGAR
Verið velkomin
Til leigu
Einstaklingsíbúð til leigu í Keflavik. Aðeins fyrir reyklausan, reglusaman einstakling með fasta vinnu. Ekkert dýrahald. 8630733. Milli 13-19 Lítil, ný 3ja herb. íbúð til leigu. Laus strax.Upplýsingar í síma 8932974
Til Sölu
Hjördís Árnadóttir
á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84
Bílskúrssala verður á Hringbraut 136b laugard- og sunnudaginn 8. til 9. júlí frá kl.13-16 báða dagana staðgreiðsla óskast.
Bílaviðgerðir Smurþjónusta Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979 www.bilarogpartar.is
NÝTT
Forvarnir með næringu
Opið alla daga fram á kvöld
STAPAFELL
Hafnargötu 50, Keflavík
GRILLVEISLA 30%
AFSLÁTTUR
Kailber Ferðagasgrill 2x2,5KW brennarar, grillflötur 196,0cm2, 5KW, vagn fylgir
Áður kr. 29.980 Kaliber KG-1301 Gasgrill 3+1 brennarar/hliðarhella grillflötur 252,0 cm2, 11,5KW
19.990
Áður kr. 43.400
33%
R ÁTTU AFSL
29.990
ið Flott í ferðalag
20%
AFSLÁTTUR Kailber KG-1503 Gasgrill 3x3KW brennarar, grillflötur 252,0 cm2, 9KW
Áður kr. 39.900
27.890 Kailber KG-2 Gasgrill 4x3,5KW brennarar, grillflötur 303,6 cm2,14KW
25%
30%
AFSLÁTTUR
Áður kr. 52.880
39.490
AFSLÁTTUR
Grillbursti
380
Grilláhöld, 3 stk. í setti
990 AFSLÁTT UR
20%
AFSLÁTTUR
Lavor One Plus 130 háþrýstidæla
140 Max bar 450 l/klst. 1900KW
130 Max bar 420 l/klst. Fylgihlutir: Burstar, sápubrúsi & Turbóstútur.
14.390 Gildistími tilboða til 15/7
Made by Lavor
Lavor Galaxy 140 háþrýstidæla
Áður kr. 17.990
47.980
Áður kr. 480
Áður kr. 1.390
20%
Áður kr. 59.980 Kailber AG1125 Gasgrill 5x3,5KW brennarar, grillflötur 815x460 mm, 17,5KW
Lavor Space 180 háþrýstidæla 180 Max bar 510min Litrar Pallahreinsir, bursti og aukaspíssar.
24.990
Áður kr. 12.490
9.990
Reykjavík
Kletthálsi 7.
Opið virka daga kl. 8-18, laugard. 10-16
Reykjanesbær
Fuglavík 18.
Opið virka daga kl. 8-18, laugard. 10-14
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Gott verð fyrir alla, alltaf !
Neytendur athugið! Múrbúðin selur allar vörur sínar á lágmarksverði fyrir alla, alltaf. Gerið verð- og gæðasamanburð!
12
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 6. júLí 2017
FREYR LÉT RAUÐU LOKKANA FJÚKA ●●Tapaði veðmáli gegn leikmönnum 5. flokks. Stúlkurnar í 5. flokki árið 1987 klipptu allar einn vænan lokk
Freyr lætur rauðu lokkana fjúka.
Einstök ráðgjöf atvinna
Einstök ráðgjöf leitar að hressu, skemmtilegu og jákvæðu fólki í hlutastörf. Starfið felst í að aðstoða tvo unga einhverfa menn sem búa í sjálfstæðri búsetu. Það er fjölbreytt og skemmtilegt. Um er að ræða Grindavík og Reykjanesbæ. Bílpróf er skilyrði! Frekari upplýsingar veitir Sunna í síma 6925815 / tölvupóst sunnaros87@msn.com
GAMLA FRÉTTIN Fyrir þrjátíu árum birtist frétt í Víkurfréttum þar sem Freyr Sverrisson, sem þá þjálfaði 5. flokk kvenna í knattspyrnu í Keflavík, lét rauðu lokkana fjúka en hann var með rautt sítt hár á þeim tíma. Hann hafði lofað stúlkunum sem hann var að þjálfa, að þær fengu að klippa hár hans ef þær sigruðu í öllum leikjunum í fyrstu „turneringunni“. Það fór svo þannig að þær sigruðu í öllum leikjunum og því varð Freyr að standa við loforðið. Athöfnin fór fram við íþróttavallarhúsið í Keflavík. Stúlkurnar klipptu fyrst saman einn stóran lokk með garðklippum en síðan klippti hver og ein vænan lokk. Hann varð svo að fara í klippingu til að laga hárið eftir að stúlkurnar höfðu farið höndum um það. Við athuguðum hvort Freyr gæti sagt okkur eitthvað frá þessu atviki sem við fundum í Víkurfréttum sumarið 1987 og hvað hann hefði verð að bralla síðustu þrjátíu ár. Getur þú sagt okkur eitthvað frá þessu? „Stelpurnar spurðu mig hvort ég vildi veðja hárinu ef þær ynnu mótið og ég lofaði því. Mátti vita að það gæti gerst þar sem í þessum hóp voru miklar íþrótta- og keppnismanneskjur. Ég þjálfaði þessar stelpur bæði í knattspyrnu og handbolta og urðu þær Íslandsmeistarar í báðum greinum.“ Ertu aftur komin með rauða lokka?
„Já, það vill svo til en ég þori varla að veðja hárinu aftur. Ég er hræddur um að það komi ekki aftur.“ Hvað hefur þú verið að gera síðustu þrjátíu ár? „Rækta fjölskylduna og þjálfa knattspyrnu, fyrst hjá Keflavík og svo fór ég austur og var með meistaraflokk Hattar á Egilsstöðum í tvö ár ásamt yngri flokkum. Þaðan fór ég í yngri flokka Njarðvíkur, var landsliðsþjálfari U16 hjá KSÍ í 15 ár þar sem ég fór í gegnum 199 landsleiki víðs vegar um Evrópu og er nú hjá þjálfari
hjá Haukum. Ég er svo heppinn að fá að vinna við áhugamálið og það hafa verið mikil forréttindi.“ Ertu hættur að leika trúð? „Nei það geri ég sennilega aldrei, er alltaf að galdra og sprella eitthvað. Tobbi trúður verður alltaf á hliðarlínunni tilbúinn í slaginn.“ Er eitthvað sem þú vilt segja að lokum? Vísa eftir einn leikinn hjá mér. Freyr fékk boltann á mikilli ferð. og fagnaði glaður og feginn. Hann skaut í hornið í skeytin efst En skoraði vitlausu megin.
Tobbi Trúður með leikskólabörnum á Holti í Njarðvík
LEITUM AÐ FRÁBÆRU FÓLKI Á FRÁBÆRAN VINNUSTAÐ ÖRYGGISVÖRÐUM Í STAÐBUNDNA GÆSLU • Starfsmaður hefur starfstöð hjá einu fyrirtæki og sinnir eftirliti og gæslu þar staðbundið.
VAKTSTJÓRI Í ÞJÓNUSTU VIÐ FATLAÐA OG HREYFIHAMLAÐA (PRM) Í FLUGSTÖÐINNI • Ber ábyrgð á framkvæmd þjónustunnar, skipulag og mönnun.
Óskum eftir að ráða sem fyrst, en umsóknarfrestur er til 15. ágúst. Allir umsækjendur þurfa að geta framvísað hreinu sakavottorði og standast bakgrunnsskoðun í Flugstöðinni. Securitas er stærsta öryggisfyrirtæki landsins með um 500 starfsmenn. Securitas rekur útibú og starfsstöðvar víða um land, á Reykjanesi starfa á milli 70 og 80 manns. Við leggjum áherslu á að vera góður vinnustaður og hafa hlutina í lagi. Nánari upplýsingar um störfin er að finna á heimasíðu okkar www.securitas.is en þar er einnig sótt um störfin.
SECURITAS REYKJANESI IÐAVELLIR 13, REYKJANESBÆ, S. 580 7200
TÆKNIMENN Helstu verkefni: • Uppsetning og forritun helstu öryggiskerfa s.s. innbrota-, bruna-, aðgangsstýri- og myndavélakerfa ásamt viðgerðum og öðrum tilfallandi verkefnum. Menntunar- og hæfniskröfur: • Menntun sem nýtist í starfi t.d. sveinspróf í rafvirkjun (má vera ólokið) • Rík þjónustulund, vandvirkni og hæfni í mannlegum samskiptum
SAMEIGINLEGAR HÆFNISKRÖFUR:
• Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum. • Enskukunnátta skilyrði, íslenskukunnátta kostur. • Gott ef starfsmenn gætu hafið störf sem fyrst . en leitum einnig að fólki frá og með hausti.
Verslunarstjóri í Reykjanesbæ Viltu taka þátt í að opna nýja verslun Vatnsvirkjans í Reykjanesbæ og sjá um daglegan rekstur í framhaldinu? Við leitum að aðila sem er framsækinn, hress, útsjónarsamur og tilbúinn að leggja mikið á sig til að ná árangri. Í boði eru fjölbreytt verkefni og áhugavert starf í krefjandi og spennandi umhverfi. Við hvetjum konur jafnt sem karla að sækja um. Nánari upplýsingar veitir Guðni Vilberg s.8665999 / gudni@vatnsvirkinn.is
Vatnsvirkinn ehf er framsækinn söluaðili á lagnaefni og er fyrst og fremst fagverslun fyrir fagmenn í pípulögnum og vatnsveitum.
14
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 6. júLí 2017
Eva Margrét stefnir á Ólympíuleikana Ísak Ernir í sumardeild NBA ■■Hin tólf ára gamla Eva Margrét Falsdóttir hefur æft sund af kappi frá unga aldri en á dögunum keppti hún á AMÍ, Aldursflokkameistaramóti Íslands, þar sem hún náði glæsilegum árangri, en Eva Margrét varð Íslandsmeistari í öllum þeim greinum sem hún keppti. Hún var stigahæst í meyjaflokki og hlaut svokallaðan „Ólafsbikar“, en hann hlýtur sá keppandi sem vinnur mesta afrekið á mótinu, með tilliti til aldurs. Systir Evu Margrétar, Birta María, hefur einnig hlotið bikarinn. Eva Margrét æfir alla daga vikunnar, fyrir utan sunnudaga, og skemmtilegast þykir henni að synda bringusund. Þá finnst henni erfiðast að synda flugsund þar sem hún þreytist
Eva Margrét hlaðin verðlaunagripum.
Leikir Suðurnesjaliða í knattspyrnu Grindavík sigraði annan deildarleikinn í röð
Keflavík vann Gróttu 1:0 á Seltjarnarnesi í Inkasso deildinn í síðustu viku. Það var Adam Árni Róbertsson sem skoraði mark Keflavíkur á 60. mínútu eftir frábæra fyrirgjöf Sigurbergs Elíssonar. Keflavík er komið í 2. sæti deildarinnar.
Njarðvík sigraði KV í markaleik
Njarðvík sigraði KV 6:4 á KR-vellinum í 2. deild karla í knattspyrnu á þriðjudagskvöldið. Fyrsta mark Njarð-
víkur kom strax á 3. mínútu og var þar Arnar Helgi Magnússon sem skoraði það. Njörður Þórhallsson jafnaði fyrir KV á 26. mínútu. Njarðvíkingar skoruðu þrjú næstu mörkin og þar voru á ferðinni Stefán Birgir Jóhannesson, Styrmir Gauti Fjeldsted og Arnar Helgi Magnússon með sitt annað mark. Júlí Karlson skoraði mark fyrir KV á 47. mínútu og Davíð Birgisson skoraði annað mark fyrir KV á 52. mínútu. Næstu tvö mörkin komu frá Njarðvíkingum og voru það þeir Theodór Guðni Halldórsson og Arnar Helgi Magnússon með sitt þriðja mark. Lokatölur í þessum mikla markaleik voru 6:4 fyrir Njarðvík.
●●Fyrsti íslenski dómarinn sem fær boð á námskeið NBA
Keflavíkingurinn Ísak Ernir Kristinsson er staddur í Bandaríkjunum þar sem hann kemur til með að dæma í sumardeild NBA deildarinnar í körfubolta sem fram fer í Las Vegas. Hann mun taka þátt í Global Camp fyrir efnilega dómara í Bandaríkjunum ásamt því að dæma einhverja leiki, en Ísak hefur í dag stimplað sig sem einn fremsti dómari á Íslandi. Í samtali við Víkurfréttir segir Ísak þetta vera frábært tækifæri fyrir sig. „Þetta boð er einnig mikill heiður fyrir mig og íslenskan körfubolta. Íslenskir körfuboltadómarar leggja mikla vinnu á sig til að verða betri og er þetta sönnun þess að við erum að gera eitthvað rétt. Ég er fullur tilhlökkunar að takast á við þetta verkefni og er ég staðráðinn í að koma heim sem betri dómari.“
Víðir í fjórða sæti eftir jafntefli
Víðir gerði 1:1 jafntefli við Aftureldingu í 2. deild karla í Garðinum á þriðjudagskvöldið. Það var Aleksandar Stojkovic sem skoraði fyrsta markið fyrir Víði á 32. mínútu. Gregory Thomas Conrad jafnaði fyrir Aftureldingu 40. mínútu. Þetta reyndist vera lokamarkið og því endaði leikurinn 1:1 jafntefli. Víðir er með sextán stig í 4. sæti í deildarinnar.
Þróttur úr Vogum gerði jafntefli
Þróttur Vogum gerði 1:1 jafntefli við Vængi Júpiters í þriðju deild karla í knattspyrnu um síðustu helgi. Leikurinn fór fram á heimavelli Þróttar. Það
17 - 1501 — HVÍTA HÚSIÐ / SÍA
Grindavík sigraði Hauka 2:1 í Hafnafirði í fyrrakvöld í Pepsi-deild kvenna. Fyrsta markið kom á 12. mínútu og var það Marjani Hing-Glover sem skoraði markið fyrir Hauka. Rilany Aguiar Da Silva jafnaði fyrir Grindavík á 44. mínútu og Berglind Ósk Kristjánsdóttir gerði sigurmarkið á 57. mínútu. Það reyndist vera lokamarkið og því var niðurstaðan 2:1, Grindavík í vil. Þetta er annar sigur Grindavíkur í röð. Þær eru komnar í 7. sæti deildarinnar.
Keflavík í annað sætið eftir góðan útisigur
fyrr. Henni þykir gaman að keppa á sundmótum og undirbýr sig vel fyrir þau. „Maður gerir erfiðari æfingar fyrir mót og þegar það eru svona fjórir dagar í mót byrjar maður að hvíla. Það er líka mikilvægt að fara snemma að sofa og passa hvað maður borðar,“ segir hún. Aðspurð um framtíðina og markmið segist Eva Margrét stefna langt. „Ég ætla að komast á Ólympíuleikana, allavega.“
MORGUNDSTUND Það skiptir Heiðu máli að byrja fríið vel. Þess vegna mætir hún snemma á flugvöllinn.
MÆTTU FYRR Í FRÍIÐ
Stærsta ferðamannasumar Íslands til þessa er hafið. Við ætlum að hafa opið frá miðnætti í sumar svo þú getir mætt fyrir álagstíma og minnkað líkurnar á að þurfa að standa í biðröð. Í samstarfi við WOW, Icelandair og Primera geta farþegar í morgunflugum þessara flugfélaga mætt í innritun frá miðnætti. Mættu tímanlega á Keflavíkurflugvöll — við tökum vel á móti þér.
S J Á Ð U H V E N Æ R Þ Ú G E T U R I N N R I TA Ð Þ I G Á W W W. K E FA I R P O R T. I S/ S N E M M A
var Admir Kubat sem skoraði fyrir Þrótt á 61. mínútu. Hjörleifur Þórðarsson jafnaði fyrir Vængi Júpiters á lokamínútuni úr víti. Þróttur er með tólf stig í 5. sæti deildarinnar.
Reynir í neðsta sæti eftir tap
Reynir tapaði fyrir KFG 5:2 í Garðabæ í 3. deild karla um síðustu helgi. Mörk Reynis skoruðu þeir Rúben Filipe Vasques Narciso og Bjarki Frímann Helgason. Reynir er í neðsta sæti 3. deildarinnar.
fimmtudagur 6. júLí 2017
15
VÍKURFRÉTTIR
Samúel Kári lék sinn fyrsta deildarleik með Vålerenga
Hörður Axel fer til liðs í Kasakstan
Hörður Axel Vilhjálmsson, lands liðsmaður í körfubolta, hefur gert samning við BC Astana frá Ka sakstan. Hörður Axel, hefur farið víða á ferlinum en auk Íslands og nú Kasakstans hefur hann spilað á Spáni, Þýskalandi, Grikklandi, Tékk landi, Belgíu og Ítalíu. Hörður Axel lék með Keflavík á síðasta leiktímabili og var stoðsend ingakóngur Domino’s deildarinnar. Hörður Axel hefur leikið 57 lands leiki fyrir Ísland sem er á leið á annað Evrópumótið í röð.
Arnór Ingvi í nýjum búningi á næstu keppnistíð Arnór Ingvi Traustason mun leika með gríska stórliðinu AEK frá Aþenu á næstu keppnistíð á láni frá Rapid Vín. Þetta var tilkynnt á heimasíðu félagsins í vikunni. Suðurnesjamaður inn fór í læknisskoðun í Grikklandi í dag en samningurinn við gríska liðið er þannig að félagi geti keypt hann að
●●Þetta er mikil vinna og það hjálpar ekkert að vera óþolinmóður Kef lv í k i ng uri nn S amú e l Kár i Friðjónsson lék sinn fyrsta deildar leik fyrir aðallið Vålerenga í norsku efstu deildinni í knatts pyrnu um síðustu helgi. Samúel Kári kom inná á 65. mínútu þegar Vålerenga gerði markalaust jafntefli við Brann í 15. umferð deildarinnar. Samúel Kári gekk til liðs við Vålerenga frá Reading í fyrrasumar, en hann sleit krossband á einni af sínum fyrstu æf ingum með Vålerenga. Samúel Kári fékk langþráðar mínútu r með Vål erenga í leiknum. Næsti leikur liðsins er útileikur gegn Kristiansund. Samúel Kári segist loksins vera orðinn 100% góður af meiðslunum og líði æðislega þessa dagana. „Mér leið vel i
leiknum og það var dásamlegt að spila aftur eftir þessa fjarveru. Stemningin var mögnuð á leiknum enda sautján þúsund manns á áhorfendapöllunum. Völlurinn var mjög blautur og erfitt að spila fótbolta en við spiluðum vel.“ Samúel telur líklegt að þjálfarinn verði áfram með sama hópinn en að hugsanlegt sé að hann fái að spila fleiri mínútur. „Þetta er mikil vinna og það hjálpar ekkert að vera óþolinmóður þannig eina sem ég geri er að halda áfram að bæta mig og þá kemur tæki færið. Við erum í 5. - 6. sæti deildar innar en það er stutt á milli liða í fyrstu sex sætunum. Það er mikið eftir af tímabilinu og við getum unnið okkur inn mörg stig sem er okkar markmið.”
Grindvíkingurinn Ingibjörg Sig urðardóttir er í 23 manna hóp ís lenska landsliðsins í knattspyrnu sem fer fyrir hönd Íslands á lokakeppni
23.00
22.00
21.00
20.00
19.00
18.00
17.00
16.00
15.00
14.00
13.00
12.00
11.00
10.00
09.00
08.00
07.00
06.00
05.00
04.00
03.00
02.00
01.00
Það eru ekki bara betri sæti í boði, heldur líka minni líkur á að þurfa að standa í röð.
00.00
AEK endaði í 4. sæti í grísku deildinni á síðasta tímabili en liðið vann síðan umspil um sæti í Meistaradeildinni. Eiður Smári Guðjohnsen og Elfar Freyr Helgason voru á mála hjá fé laginu fyrir nokkrum árum en þá var Arnar Grétarsson yfirmaður íþrótta mála þar.
Ingibjörg á leiðinni á EM
GEFUR GULL Í MUND
Á Æ T L A Ð I R Á L AG S T Í M A R Í I N N R I T U N
loknum leigusamningi. Arnór Ingvi náði aldrei að sýna sitt rétta andlit hjá austuríska liðinu en þar spiluðu meiðsli m.a. inn í. Suður nesjamaðurinn hefur átt fast sæti í landsliðshópi Heimis Hallgrímssonar og skoraði sigurmark Íslands gegn Austurríki á EM í fyrra.
EM í Hollandi. Ingibjörg spilaði sína fyrstu landsleiki í síðasta landsliðs verkefni og greip tækifærið þá, en hún er fædd árið 1997 og því tutt ugu ára gömul. Síðustu ár hefur hún leikið með liði Breiðabliks. „Ég var rosalega heppin að fá tækifæri og traust frá þjálfurunum í landsliðinu núna á móti Írlandi og Brasilíu. Ég vissi að ég þyrfti að nýta það vel og sýna hvað ég gæti. Ég átti fínan leik á móti Írlandi sem gaf mér sjálfstraust fyrir næsta leik sem gekk líka vel.“ Ingibjörg æfði mikið í vetur og að hennar mati er hún í sínu besta formi.
„Ég er með mikið sjálfstraust, sem skiptir miklu máli. Ég held að mikil vægasti þátturinn í þessu öllu sé að hafa trú á því verkefni sem maður er í og trú á sjálfum sér. Ég hef lært fárán lega mikið á þeim stutta tíma sem ég hef verið í liðinu, bæði af þjálfurunum og stelpunum sem hafa meiri reynslu en ég.“ Ingibjörgu dreymir um að verða lykil maður í landsliðinu og að fara á enn fleiri stórmót með liðinu. „Að vinna við það að spila fótbolta er algjör draumur. Ég ætla mér að ná eins langt og ég mögulega get.“
Mundi
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Auglýsingasími: 421 0001
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
TU I U KÍK AFF GD Í K HRIN A EÐ
42
00
UMBOÐSAÐILI
40
0
Afar slök mæting meirihlutans í Umhverfis- og skipulagsráð
facebook.com/vikurfrettirehf
Það er spurning hvort sala á Extra tyggjói rjúki upp meðal veiðimanna...
Bæjafulltrúar minnihlutans í Reykjanesbæ ósáttir ■■Bæjarfulltrúar í minnihluta Reykjanesbæjar eru ósáttir við afar slaka mætingu nefndarmanna meirihlutans í Umhverfis- og skipulagsráði. Annar nefndarmanna er aðeins með 15% mætingu og hinn var með 60% mætingu. Einnig hafa varamenn ekki verið boðaðir á fundi í forföllum aðalmanna. Á síðasta fundi mættu aðeins þrír af fimm aðalfulltrúum. Þetta kemur fram í bókun minnihlutans á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar sem haldinn var 20. júní sl. Hér fyrir neðan má lesa bókunina: „Undirritaðir bæjarfulltrúar vekja athygli á og gera athugasemdir við afar slaka mætingu nefndarmanna meirihlutans hjá Umhverfis- og skipulagsráði. Fyrir utan formann nefndarinnar, sem hefur sinnt sínum verkefnum með ágætum, skipar meirihluti bæjarstjórnar tvo nefndarmenn í Umhverfis- og skipulagsráð. Hefur annar þeirra um 60% mætingarhlutfall á fundi þessa árs en hinn aðeins innan við 15%. Þrátt fyrir slaka mætingu nefndarmanna meirihlutans á fundi heyrir nánast til undantekninga að varamenn þeirra séu boðaðir í staðinn. Á síðasta fundi nefndarinnar voru aðeins 3 af 5 aðalfulltrúum mættir, þar af vantar tvo fulltrúa meirihlutans á fundinn og enginn varamaður var boðaður. Umhverfis- og skipulagsráð er ein mikilvægasta fastanefnd sveitarfélagsins og gegnir mjög mikilvægu hlutverki í stjórnsýslunni. Á það ekki síst við á uppbyggingartímum eins og nú er, þegar byggingarframkvæmdir íbúðarhúsnæðis eru í blóma auk framkvæmda við iðnaðarsvæðið í Helguvík, óskir um breytingar á skipulagi eru fjölmargar og vinna við aðal- og deiliskipulag stendur yfir. Skorað er á meirihlutann að sýna málaflokknum meiri áhuga og tryggja að þeir fulltrúar sem skipaðir eru til að sinna verkefninu geri það, eða boði varamenn sína að öðrum kosti.“ Undir þetta rita bæjarfulltrúarnir Baldur Þ. Guðmundsson, Böðvar Jónsson, Ingigerður Sæmundsdóttir, Kristinn Þór Jakobsson og Magnea Guðmundsdóttir.
Sameinast Kalka og Sorpa? - Garðmenn vilja fund með eigendum Kölku ■■Stjórn Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja hefur óskað eftir afstöðu bæjarstjórna sveitarfélaganna á Suðurnesjum til hugmynda um sameiningu Kölku og Sorpu. Málið hefur verið kynnt bæjarstjórn Sveitarfélagsins Garðs óformlega. Bæjarráð Garðs tók erindi Kölku fyrir í síðustu viku. Samþykkt var að óska eftir sameiginlegum fundi eigenda sveitarfélaga um málið. Þá var frekari afgreiðslu málsins frestað.
FORD Expedition el xlt 4wd.
LAND ROVER Discovery.
VOLKSWAGEN, VW Amarok.
MMC Outlander.
TOYOTA Land cruiser 100.
KIA Sportage.
FORD Humer.c 542 cl tcmobile.
TOYOTA Tundra access cab ltd 4wd.
VW Tiguan.
RENAULT Megane scenic grand iii bose. Árgerð 2014, ekinn 42 Þ.KM,
Árgerð 2014, ekinn 21 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur 6 gírar. Verð 8.900.000. Rnr.202294.
Árgerð 2014, ekinn 50 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur 6 gírar. Verð 3.990.000. Rnr.761437.
Árgerð 2015, ekinn 65 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur 8 gírar. Verð 7.390.000. Rnr.761432.
Árgerð 2008, ekinn 123 Þ.KM, dísel, 6 gírar. Verð 3.890.000. Rnr.761120.
Árgerð 2016, ekinn 2 Þ.KM, dísel, 6 gírar. Verð 4.690.000. Rnr.202507.
Árgerð 2015, ekinn 82 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur 6 gírar. Verð 4.090.000. Rnr.202324.
Árgerð 2004, ekinn -1 Þ.KM, bensín, . Verð 3.790.000. Rnr.202578.
Árgerð 2015, ekinn 64 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur 7 gírar. Verð 3.690.000. Rnr.202401.
Árgerð 1999, ekinn 460 Þ.KM, dísel, . Verð 3.990.000. Rnr.202577.
dísel, sjálfskiptur 6 gírar.
Verð 3.290.000. Rnr.761414.
RENAULT Trafic.
PORSCHE Cayenne s.
VW Golf.
KIA Ceed.
HYUNDAI Ix35 gls.
SKODA Octavia ambiente.
FORD F250 ext 4x4.
DACIA Duster 4x4.
CADILLAC Escalade esv.
RENAULT Megane sport tourer.
RENAULT Clio expression.
DACIA Dokker.
RENAULT Megane.
NISSAN Pathfinder.
RENAULT Megane sport tourer.
HONDA Cr-v.
KIA Sorento.
DODGE Ram 1500.
CHEVROLET Captiva.
HYUNDAI I30.
FLEETWOOD Allegiance.
COMANCHE Montana linea desert.
VOLVO V70xc v-awd.
NISSAN Patrol gr.
SUBARU Forester.
Árgerð 2014, ekinn 87 Þ.KM, dísel, 6 gírar. Verð 2.990.000. Rnr.761455.
Árgerð 2012, ekinn 86 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur 7 gírar. Verð 1.990.000. Rnr.761415.
Árgerð 2014, ekinn 53 Þ.KM, dísel, 5 gírar. Verð 1.690.000. Rnr.202234.
Árgerð 2007, ekinn 167 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur 5 gírar. Verð 1.390.000. Rnr.761451.
Árgerð 2004, ekinn 0 Þ.KM, bensín, . Verð 990.000. Rnr.202557.
Árgerð 2007, ekinn 171 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur 6 gírar. Verð 2.990.000. Rnr.761454.
Árgerð 2003, ekinn 114 Þ.KM, bensín, . Verð 1.990.000. Rnr.202506.
Árgerð 2015, ekinn 58 Þ.KM, bensín, 5 gírar. Verð 1.690.000. Rnr.761462.
Árgerð 2007, ekinn 210 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur 5 gírar. Verð 1.350.000. Rnr.202539.
Árgerð 2016, ekinn 0 Þ.KM, ??, . Verð 990.000. Rnr.202483.
Árgerð 2013, ekinn 48 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur 7 gírar. Verð 2.690.000. Rnr.202445.
Árgerð 2015, ekinn 107 Þ.KM, dísel, 6 gírar. Verð 1.990.000. Rnr.202444.
Árgerð 2012, ekinn 97 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur 6 gírar. Verð 1.590.000. Rnr.202559.
Árgerð 2004, ekinn 109 Þ.MÍLUR, bensín, . Verð 1.290.000. Rnr.202567.
Árgerð 2001, ekinn 180 Þ.MÍLUR, bensín, . Verð 850.000. Rnr.202575.
Árgerð 2014, ekinn 85 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur 6 gírar. Verð 2.590.000. Rnr.761466.
Árgerð 2005, ekinn 146 Þ.KM, bensín, . Verð 1.990.000. Rnr.202357.
Árgerð 2005, ekinn 200 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur 5 gírar. Verð 1.590.000. Rnr.202363.
Árgerð 2007, ekinn 180 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur 5 gírar. Verð 1.290.000. Rnr.202560.
Árgerð 2002, ekinn 270 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur 4 gírar. Verð 850.000. Rnr.761436.
Bolafótur 1 - 260 Reykjanesbær - GE bílar ehf - Sími 420 0400 - gebilar@gebilar.is - www.gebilar.is
Árgerð 2012, ekinn 140 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur 6 gírar. Verð 2.490.000. Rnr.761398.
Árgerð 2012, ekinn 62 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur 6 gírar. Verð 1.980.000. Rnr.761354.
Árgerð 2011, ekinn 140 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur 6 gírar. Verð 1.490.000. Rnr.761401.
Árgerð 2008, ekinn 152 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur 4 gírar. Verð 1.090.000. Rnr.761444.
Árgerð 2006, ekinn 171 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur 4 gírar. Verð 840.000. Rnr.202316.