44 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
GRILLAÐ FYRIR
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur mætti í portið hjá Heilbrigðis stofnun Suðurnesja og grillaði hamborgara í vorblíðunni fyrir starfsfólk stofnunarinnar sem og lögreglunnar á Suðurnesjum og Brunavarna Suðurnesja. Um var að ræða þakklætisvott fyrir frammistöðu framlínufólks í COVID-faraldrinum. „Við í körfuknattleiksdeild Keflavíkur erum afar þakklát í dag. Þakklát fyrir allan þann stuðning og meðbyr sem við höfum fundið fyrir undanfarið og sérstaklega eftir að við fórum af stað með Karolina Fundverkefnið okkar. Þvílíkar móttökur sem við fengum þar. Til að sýna okkar þakklæti ákváðum við að nýta hamborgarana sem átti að grilla í úrslitakeppninni í að bjóða okkar framlínufólki, eða starfsfólki HSS, Brunavarna Suðurnesja og lögregluembættis Suðurnesja, að koma í portið við sjúkrahúsið okkar og gæða sér á gourmetborgurum, frönskum og gosi.
Fimmtudagur 20. maí 2020 // 21. tbl. // 41. árg.
Okkur fannst það mjög viðeigandi að fólkið sem hefur staðið vaktina á þessum erfiðu tímum fyrir alla bæjarbúa Keflavíkur njóti góðs af því að við gátum loksins gefið til baka. Ég veit að þið kæru stuðningsmenn eruð okkur hjartanlega sammála,“ segir í pistli frá körfuknattleiksdeildinni á fésbókinni. Á fésbók Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja er skrifað: „Starfsfólk HSS þakkar innilega fyrir bragðgóða borgara, og ekki síður fyrir stuðninginn í samfélaginu hér Suður með sjó.“ Meðfylgjandi myndir tók Hilmar Bragi í grillveislunni.