Skip to main content

Víkurfréttir 30. tbl. 39. árg.

Page 1

Ferðamenn sækja í fiskinn

Þorlákur Guðmundsson, eigandi Salthússins í Grindavík, spjallar um fiskinn, ferðamennina og framtíðina.

Opnunartími

– sjá bls. 6

Krossmóa 4 | Reykjanesbæ

mán.–fös. frá 9–20 lau.–sun. frá 11–18

STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

Erfitt að fá klippingu í bítlabænum

Það var nóg að gera á Prodomo hársnyrtistofunni sem er staðsett á Nesvöllum í Reykjanesbæ. VF-mynd/pket.

Bæjarstjóraólga í Grindavík

Gríðarleg óánægja ríkir hjá mörgum starfsmönnum Grindavíkurbæjar um þessar mundir en ráðning nýs bæjarstjóra virðist hafa dregist vegna þess. Fannar Jónasson hefur gengt stöðu bæjarstjóra frá ársbyrjun 2017 en andrúmsloftið hefur verið þungt og er talað um samkiptaörðugleika í þessu sambandi síðustu mánuði hjá Grindavíkurbæ og hafa stafsmannamál verið ítrekað á dagskrá bæjarráðs. Fjórir aðilar hafa verið í viðtalsferli vegna bæjarstjórastöðunnar og er Fannar þar á meðal samkvæmt heimildum VF en Hagvangur sér um ferlið fyrir Grindavíkurbæ og hefur Rödd unga fólksins, nýr flokkur sem situr í minnihluta bæjarstjórnar Grindavíkur gagnrýnt ferlið og sendi frá sér tilkynningu á Facebook-síðu sinni á dögunum. Þar kemur meðal annars fram að einungis þeir sem hafa atkvæðisrétt í bæjarráði muni vera með í ráðningarferlinu með nýjan bæjarstjóra en það eru tveir fulltrúar meirihlutans, oddvitar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, sem og einn fulltrúi minnihlutans sem er oddviti Raddar unga fólksins. Í færslunni

á Facebook er einnig sú spurning lögð fram hvort það sé nú þegar búið að ákveða hver næsti bæjarstjóri verður og hvort það sé verið að láta bæinn borga fyrir pólitíska leiki að hálfu meirihlutans. Fannar Jónasson er með ráðningarsamning til 15. ágúst. Samkvæmt heimildum Víkurfrétta eru nokkrir reynslumiklir starfsmenn á bæjarskrifstofunni á förum eða íhuga stöðu sína hjá Grindavíkurbæ. Á óformlegum fundi með bæjarfulltrúum á þriðjudagskvöld átti að reyna að ná lendingu í málinu. Á aukafundi bæjarstjórnar, sem halda átti fyrir luktum dyrum, miðvikudaginn 1. ágúst átti svo að greina frá nýjum bæjarstjóra í Grindavík.

AÐALSÍMANÚMER 421 0000

■

Svo mikið er að gera á hársnyrtistofum í Reykjanesbæ að erfitt getur verið að fá tíma í klippingu. „Það hefur verið fækkun í stéttinni á svæðinu og ekki nógu mikil endurnýjun samfara mikilli fólksfjölgun. Við látum okkar gömlu viðskiptavini ganga fyrir og þeir bóka yfirleitt tíma innan sex vikna og þannig verður lítið svigrúm eftir til að taka á móti nýjum viðskiptavinum,“ segir Marta Teitsdóttir, hárgreiðslumeistari á hársnyrtistofunni Promoda í Reykjanesbæ. Marta segir að vinnudagur þeirra fjögurra sem starfa á Prodoma sé yfirleitt mjög langur. Þær byrji snemma morgun og iðulega fram á kvöldmat. Aðspurð um tískusveiflur í hárgreiðslu og klippingu sögðu þær stöllur á stofunni að flestar konur vildu fá lit í hárið en svo væri allt nokkuð opið hvað klippingu varðar. „Þetta er ekki eins og þegar 70% kvenna fengu sér permanent en það eru nokkuð mörg ár síðan,“ sögðu þær. En hvað með karlana sem í gegnum tíðina hafa oft viljað koma inn á stofu og fá klippingu með stuttum eða engum fyrirvara. „Það gengur ekki lengur en auðvitað reynum við að þjóna okkar fólki vel og stundum er hægt að bjarga málunum. En við þurfum líka að fara á klósettið og það er stundum eina pásan sem við fáum,“ sögðu þær hressar þrátt fyrir annríkið. Sama er upp á teningnum hjá annarri grein á svæðinu en það eru tannlæknar. Þar þarf að panta tíma eins og hjá hárgreiðslufólkinu og þar hefur lítil sem engin fjölgun orðið í stéttinni í áraraðir þrátt fyrir mikla íbúafjölgun á Suðurnesjum. Svipaða sögu er að segja frá fleiri þjónustugreinum á Suðurnesjum um þessar mundir. Iðnaðarmenn eru mjög uppteknir í margvíslegum verkefnum og erfitt er að fá pípara, smið eða rafvirkja, hvað þá múrara.

AUGLÝSINGASÍMINN 421 0001

■

FRÉTTASÍMINN 421 0002

SUMARLEG ÁGÚSTTILBOÐ Danpo kjúklingabringur 900gr Frosið

Lambalærissneiðar Heiðalamb

Nýbakað! Focaccia með pepperoni eða skinku

HRINGBRAUT REYKJANESBÆ AFGREIÐSLUTÍMAR:

VIRKA DAGA

ALLTAF OPIÐ

fimmtudagur 2. ágúst 2018 // 30. tbl. // 39. árg.

30%

35%

50%

1.399

1.949

199

KR

KR/KG

KR/STK

HELGAR

ALLTAF OPIÐ

S U Ð U R N E S J A

MAGASÍN fimmtudagskvöld kl. 20 á Hringbraut og vf.is


2

FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

r e ð Hva ta? t é r f að Víkurfréttir koma ekki út í næstu viku, 9. ágúst, vegna sumarleyfa.

BLAÐIÐ KEMUR NÆST ÚT

16. ÁGÚST Hvetjum auglýsendur að tryggja sér pláss í blaðinu, pantanir og fyrirspurnir sendist á andrea@vf.is. Víkurfréttavefurinn vf.is sinnir öflugri fréttaþjónustu og er alltaf opinn.

FERÐIR Á DAG ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM SUÐURNES - REYK JAVÍK DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA

845 0900

FINNDU OKKUR Á FACEBOOK

Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is // Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Rannveig Jónína Guðmundsdóttir, sími 421 0002, rannveig@vf.is // Árni Þór Guðjónsson, sími 421 0002, vf@vf.is // Auglýsingastjóri: Andrea Sif Þorvaldsdóttir, sími 421 0001, andrea@vf.is // Útlit & umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@ vf.is // Afgreiðsla: Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@vf.is // Prentun: Landsprent // Upplag: 9000 eintök // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið andrea@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00 á mánudegi fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga er á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15:00 á mánudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga og er dreift inn á öll heimili á Suðurnesjum. Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur­ frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.

FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM MANNLÍF Á SUÐURNESJUM

fimmtudagur 2. ágúst 2018 // 30. tbl. // 39. árg.

MESTA GOSDRYKKJANEYSLA BARNA OG FULLORÐINNA Á SUÐURNESJUM

Landlæknisembættið birti lýðheilsuvísa eftir heilbrigðisumdæmum á dögunum en birting þeirra er liður í því að veita yfirsýn yfir lýðheilsu í hverju umdæmi fyrir sig í samanburði við landið í heild. Þar kemur meðal annars fram að á Suðurnesjum er fjölgun íbúa yfir landsmeðaltali, þunglyndislyfjanotkun karla er minnst á landinu á svæðinu og gosdrykkjaneysla barna og fullorðinna er mest. „Lýðheilsuvísar eru safn mælikvarða sem gefa vísbendingar um heilsu og líðan þjóðarinnar. Birting lýðheilsuvísa eftir heilbrigðisumdæmum á Íslandi er liður í því að veita yfirsýn yfir lýðheilsu í hverju umdæmi fyrir sig í samanburði við landið í heild. Lýðheilsuvísum er ætlað að auðvelda sveitarfélögum, heilsueflandi samfélögum og heilbrigðisþjónustu að greina stöðuna í eigin umdæmi,

finna styrkleika og áskoranir og skilja þarfir íbúa þannig að hægt sé að vinna að því að bæta heilsu og líðan,“ segir á heimasíðu embættis landlæknis Íslands

HÉR ERU DÆMI UM LÝÐHEILSUVÍSA ÞAR SEM TÖLUR FYRIR SUÐURNES ERU FRÁBRUGÐNAR TÖLUM FYRIR LANDIÐ Í HEILD: • • • • • •

Fjöldi á biðlista eftir hjúkrunarrými undir landsmeðaltali. Þunglyndislyfjanotkun karla minnst á landinu. Fjölgun íbúa yfir landsmeðaltali. Gosdrykkjaneysla bæði barna og fullorðinna mest. Dánartíðni kvenna vegna hjarta- og æðasjúkdóma hæst. Þátttaka í skimun fyrir legháls- og brjóstakrabbameini minnst. Hægt er að lesa skýrsluna fyrir Suðurnesin á heimasíðu landlæknis.

Magnús Stefánsson bæjarstjóri nýs sameinaðs sveitarfélags Magnús Stefánsson hefur verið ráðinn bæjarstjóri nýs sameinaðs sveitarfélags Garðs og Sandgerðis, þetta kemur fram í tilkynningu frá Róberti Ragnarssyni, starfandi bæjarstjóra. Ráðning Magnúsar var samþykkt á fundi bæjarstjórnar í sameinuðu sveitarfélagi Sandgerðisbæjar og Sveitarfélags Sandgerðisbæjar nú seinnipartinn og mun hann sitja kjörtímabilið 2018–2022.

Magnús er viðskiptafræðingur MBA að mennt og fyrrverandi alþingismaður, ráðherra og bæjarstjóri. Magnús var valinn úr hópi fjórtán umsækjenda um starf bæjarstjóra og naut bæjarstjórn aðstoðar Hagvangs við ráðningarferlið. Magnús hefur störf þann 15. ágúst næstkomandi og mun Róbert sinna starfi bæjarstjóra þangað til.

Magnús þakkar fyrir góðar óskir

Samræmi sé í ákvörðunum gagnvart rekstri knattspyrnumannvirkja Bæjarráð Sameinaðs sveitarfélags Garðs og Sandgerðis telur mikilvægt að samræmi sé í þeim ákvörðunum sem teknar eru gangvart rekstri knattspyrnumannvirkja í sveitarfélaginu. Samningar vegna beggja knattspyrnuvalla eru lausir í árslok og er umræðu um þá vísað til fjárhagsáætlunargerðar ársins 2019 og til umsagnar í íþrótta- og tómstundaráði. Erindi Knattspyrnufélagsins Víðis, þar sem óskað var eftir styrk upp á 1,5 milljónir króna til kaupa á sláttuvél til grashirðingar á æfingasvæði félagsins var vísað til vinnslu hjá bæjarstjóra.

Semja við Símann um fjarskiptaþjónustu Bæjarráð Sameinaðs sveitarfélags Garðs og Sandgerðis hefur falið starfandi bæjarstjóra að ganga til samninga við Símann á grundvelli fyrirliggjandi tilboða um fjarskiptaþjónustu sveitarfélagsins og skal samningurinn lagður fyrir bæjarstjórn til staðfestingar. Jafnframt felur bæjarráð starfandi bæjarstóra að skipa verkefnahóp sem fær það verkefni að fylgja eftir innleiðingu nýs símkerfis. Hópurinn skal skila tillögu um símanúmeraseríu fyrir sveitarfélagið á næsta fundi bæjarráðs.

Magnús Stefánsson var ráðinn bæjarstjóri nýs sameinaðs sveitarfélags Garðs og Sandgerðis í gær en ráðningin var samþykkt á bæjarstjórnarfundi seinnipartinn í gær. Magnús hefur fengið fjölmargar heillaóskir og kveðjur eftir að í ljós kom að hann fékk stöðuna og þakkar hann fyrir sig á Facebook-síðu sinni. „Í gær samþykkti bæjarstjórn sameinaðs sveitarfélags Sandgerðisbæjar og Sveitarfélagsins Garðs ráðningu mína sem bæjarstjóra hins sameinaða sveitarfélags. Ég þakka bæjarstjórninni það traust sem mér er sýnt með þessari ráðningu. Framundan eru margvísleg verkefni og áskoranir sem ég hlakka til að takast á við, í samstarfi við bæjarstjórn, starfsfólk sveitarfélagsins og íbúana. Ég hef af þessu tilefni fengið fjölmargar góðar óskir og kveðjur hér á Fésbókinni, með SMS skeytum, tölvupóstum og í símtölum. Ég þakka fyrir það og óska ykkur öllum alls góðs,“ segir Magnús í færslu sinni á Facebook.

VERSLUNARMANNAHELGIN KOMUM HEIL HEIM

ÆTLAR AÐ NJÓTA MEÐ FJÖLSKYLDUNNI UM HELGINA Bryndís Garðarsdóttir Hvað ætlar þú að gera um verslunarmannahelgina? Við fjölskyldan ætlum að fara í útilegu með góðum vinum. Við ætlum að taka bátinn okkar með, veiða og njóta samverunnar. Ertu vanaföst/fastur um verslunarmannahelgina eða breytir þú reglulega til? Vaninn felst í að fara í útilegu en staðarvalið fer eftir veðri. Við reynum þó að vera þar sem hægt er að njóta fallegrar náttúru og skoða nýja staði. Hver er eftirminnilegasta verslunarmannahelgin til þessa? Af hverju? Þetta er erfið spurning því þær eru margar eftirminnilegar! Ætli síðasta verslunarmannahelgi sé ekki svona með þeim eftirminnilegri. Þá vorum við fjölskyldan í útilegu í Vaglaskógi og fórum að skoða Flateyjardal sem var búið að vera draumur lengi. Það voru alveg frábærir dagar. Hvað er nauðsynlegt að þínu mati um verslunarmannahelgina? Samvera með fjölskyldunni og öðrum góðum vinum, gott veður og góður matur! Hvað ertu búin að gera í sumar? Við erum búin að fara í frábæra ferð til Bandaríkjanna þar sem við gerðum sitt lítið af hverju. Eftir að við

FLUTNINGASPÁ DAGSINS GARÐUR

REYKJANESBÆR

komum heim erum við búin að fara á ættarmót eina helgi og af því að veðurspár gerðu fyrir besta veðrinu fyrir austan drifum við okkur í útilegu þangað í tæpa viku. Hvað er planið eftir sumarið? Eftir verslunarmannahelgi fer skólafólk að huga að næsta vetri þannig að ég sný aftur til vinnu eftir hana en ætli við skellum okkur ekki í eins og eina útilegu áður en það fer að hausta. Flugeldasýningin á jökulsárlóninu er alveg inni í myndinni. Það eru komin rúm fimm ár síðan við fórum síðast að sjá hana.

SPÁÐ ER SENDINGUM UM ALLT REYKJANES SANDGERÐI

GRINDAVÍK

VOGAR

VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM

12°

4kg

4°

40kg

-20°

150kg

14°

1250kg

12°

75kg


ARÐABER 50 G

XXX KRKG

ÐUR: XXX KR/KG

ALLT Í FERÐALAGIÐ! Gómsætir og girnilegir hamborgarar í úrvali 199 KR

-15%

STYKKIÐ

MÁ SKELLA FROSNUM Á GRILLIÐ!

HAMBORGARAR DRY AGED 8 X 120 G KR PK

UNGNAUTA HAMBORGARAR 4 X 90 G M/BRAUÐI KR PK

-30%

979

1.594

FYLLTIR HAMBORGARAR M/ BEIKONI, CHILI EÐA GRÁÐAOSTI 2 X 100 G KR PK

475

ÁÐUR: 1.398 KR/PK

ÁÐUR: 1.898 KR/PK

ÁÐUR: 559 KR/PK

-50% -25% LAMBALÆRISSNEIÐAR M/ PAPRIKU, CHILI OG HVÍTLAUK KR KG

2.249

LÚXUS GRÍSAGRILLPAKKI BÓGSNEIÐAR, HNAKKASNEIÐAR OG KÓTILETTUR KR KG

GRÍSAKÓTILETTUR HUNANGSREYKTAR KR KG

949

1.998

ÁÐUR: 1.898 KR/KG

-30%

ÁÐUR: 2.998 KR/KG

-20%

ÁÐUR: 2.498 KR/KG HUMAR Í SKEL 1 KG POKI

3.398 KRPK

-15%

ÁÐUR: 3.998 KR/PK NAUTAPIPARSTEIK FERSK KR KG

-15%

3.398

LÆRISSNEIÐAR BLANDAÐAR KR KG

1.749

ÁÐUR: 2.498 KR/KG

ÁÐUR: 3.998 KR/KG

-34%

SANTA MARIA VÖRUR 20% AF SÓSUM / 25% AF SNAKKI

HYTOP SYKURPÚÐAR 284 G KR PK

198

ÁÐUR: 298 KR/PK

-15% NÓA KROPP 200 G KR PK

398

DRISCOLL JARÐARBER 400 G KR PK

-43%

399

ÁÐUR: 698 KR/PK

ÁÐUR: 459 KR/PK

Tilboðin gilda 1. - 6. ágúst 2018 www.netto.is Tilboðin gilda meðan birgðir endast • Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl • Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana Búðakór • Grandi • Mjódd • Salavegur • Hafnarfjörður • Hrísalundur • Glerártorg • Húsavík • Höfn • Iðavellir • Grindavik • Krossmói • Borgarnes • Ísafjörður • Egilsstaðir • Selfoss

www.netto.is


4

FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

fimmtudagur 2. ágúst 2018 // 30. tbl. // 39. árg.

Húsafriðunarnefnd ákveður framtíð Sundhallarinnar Bærinn geti komið með frekari athugasemdir á síðari stigum

Mat sem unnið var af Hjörleifi Stefánssyni, arkitekt verður sent til húsafriðunarnefndar sem mun funda um framtíð Sundhallarinnar í Keflavík á fundi þann 13. ágúst. Vísir.is greinir frá þessu. Þar kemur einnig fram að ysta byrði hússins sé í slæmu ástandi en það er timburklætt að mestu leyti. Húsafriðunarnefnd óskaði eftir því að Minjastofnun myndi leggja rökstutt mat á varðveislugildi sundhallarinnar en Vatnsnessteinn ehf., hefur stefnt að því í nokkurn tíma að láta rífa sundhöllina og reisa þar

fjölbýlishús, þá hafa Hollvinasamtök Sundhallarinnar barist hart gegn því að húsið verði rifið og að sundhöllin fái að standa en Guðjón Samúelsson hannaði húsnæðið.

Skipulagsbreytingar í Reykjanesbæ Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér með auglýstar eftirfarandi skipulagstillögur. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Seltjörn Tillagan felur í sér skipulag fyrir svæðið þar sem lögð er áhersla á að bæta aðgengi og skilgreina nýja stíga og áningarstaði. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Reynidal 2 Tillagan felur í fjölgun íbúða úr 16 í 19 og bílastæðakrafa lækkar úr 1,8 í 1,6 á lóð. Heildarfjöldi bílastæða verði 31. Tillögurnar verða til sýnis á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 frá og með 19. júlí til 5. september 2018. Tillögurnar eru einnig aðgengilegar á heimasíðu Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með Frestur til að skila inn athugasemdum er til 5. september Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 eða á netfang skipulagsfulltrúa gunnar.k.ottosson@reykjanesbaer.is þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram. Reykjanesbæ, 19. júlí 2018. Skipulagsfulltrúi

FRAMKVÆMDIR Á REYKJANESI HAFA TAFIST VEGNA VEÐURS Framkvæmdir hafa staðið yfir á Reykjanesi undanfarnar vikur og meðal annars við Gunnuhver, þær hafa þó tafist vegna veðurs og vegna þess að efni í palla var lengi á leiðinni. Nú er búið að stækka palla við Gunnuhver og einnig á að skipta úr handriðum. Frá þessu er greint á Facebook-síðunni „Ferðaþjónar á Reykjanesi.“

Hér má lesa færsluna og meðfylgjandi myndir eru af nýju pöllunum við Gunnuhver: „Eins og áður hefur komið fram hér á síðunni standa yfir framkvæmdir við Gunnuhver. Þær hafa tafist af ýmsum

ástæðum, m.a. vegna þess að lerkið var lengur á leið til landsins en áætlað var og svo hefur veðrið verið smá að stríða okkur. Veturinn var of snjóþungur og sumarið of blautt. Búið er að stækka pallana eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Á næstunni verður öryggisböndum skipt út og unnið í handriðunum. Þá þarf að styrkja núverandi palla. Jarðvinnuverktakinn er byrjaður á nýju bílastæði vestan við hverasvæðið og gönguleið sem tengist vestari pallinum. Þegar framkvæmdum við Gunnuhver lýkur hefjast framkvæmdir við stíg upp að Reykjanesvita og að skipta út tréverki við Brú milli heimsálfa.“

Matsáætlun vegna stækkunar Keflavíkurflugvallar

Isavia hefur til kynningar á vefnum tillögu að matsáætlun vegna stækkunar Keflavíkurflugvallar. Isavia er framkvæmdaraðili verksins en mat á umhverfisáhrifum er unnið af VSÓ Ráðgjöf. Í drögum að tillögu að matsáætlun er m.a. gerð grein fyrir eftirfarandi: Framkvæmdum til ársins 2025, helstu áhrifaþáttum framkvæmda, hvernig staðið verði að mati á umhverfisáhrifum; matsspurningar, gögn sem verður stuðst við og nýjar rannsóknir sem verður aflað. Fyrirkomulagi kynninga og samráðs og framsetningu gagna í frummatsskýrslu. Drögin eru aðgengileg á vefsíðu Isavia, www.isavia.is, á sérstöku svæði sem nefnist „Stækkun flugvallar“. Senda skal skriflegar athugasemdir eða ábendingar um drögin á netfangið stefan@vso.is eða VSÓ Ráðgjöf, Borgartún 20, 105 Reykjavík. Frestur til að senda inn ábendingar er til 15. ágúst n.k.

Drög að umsögn bæjarstjóra og skipulagsfulltrúa Reykjanesbæjar um drög að matsáætlun fyrir kísilverksmiðju Helguvík voru lögð fram á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar þann 12. Júlí sl. Bæjarstjóra var falið að koma umsögninni á framfæri til Verkís með fyrirvara um að bæjaryfirvöld geti komið með frekari athugasemdir á síðari stigum málsins.

Erlendum ríkisborgurum fjölgar í Reykjanesbæ Erlendir ríkisborgarar voru 8,6% í lok árs 2011 en í dag eru þeir 23%, Kjarninn greindi frá þessu. Þar segir að hlutfallslega setjist flestir erlendir ríkisborgarar að í Reykjanesbæ og hefur því tala þeirra tæplega fjórfaldast frá árinu 2011. Frá byrjun árs 2018 hefur erlendum ríkisborgurum fjölgað um 18%, um áramót voru þeir 3650 og núna eru þeir 4270. Aðal ástæða fjölgunar erlendra ríkisborgara í Reykjanesbæ er aukið vinnuafl í Flugstöð Leifs Eiríkssonar en mikið mannafl þarf til starfa vegna fjölgunar ferðamanna. Á vef Kjarnans segir að þessi staða hafi gert það að verkum að breytingar á samsetningu íbúa í Reykjanesbæ hafi orðið meiri en áður hefur þekkst í íslensku samfélagi.

25 milljónir í sparkvöll í Innri-Njarðvík Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum í síðustu viku að byggja sparkvöll og körfuboltavöll við Stapaskóla í Innri-Njarðvík. Framkvæmdir við skólann hafa tafist vegna kæru sem barst um útboðið í byggingu hans. Að sögn Guðlaugs H. Sigurjónssonar, sviðsstjóra Umhverfissviðs Reykjanesbæjar, er verið að mæta ákalli íbúa um að fá meiri afþreyingarmöguleika fyrir börnin á svæðinu. Kostnaðurinn nemur um 25 milljónum króna.

VERSLUNARMANNAHELGIN KOMUM HEIL HEIM

STEFNAN ER ALLTAF SETT Á EINHVER ÆVINTÝRI Áshildur Linnet

Kynning á frummatsskýrslu Vegna stækkunar fiskeldis Matorku í Húsatóftum í Grindavík úr 3.000 tonnum í 6.000 tonn. Kynningarfundur verður haldinn vegna stækkunar í samræmi við lög nr. 106/2000 m.s.br. frummatsskýrsla. Fundurinn verður á skrifstofu félagsins, Hlíðasmára 6, 3. hæð, miðvikudaginn 8. águst kl. 15:00.

Hvað ætlar þú að gera um verslunarmannahelgina? Það er ekkert fastmótað en stefnan er alltaf sett á einhver ævintýri. Ertu vanaföst/fastur um verslunarmannahelgina eða breytir þú reglulega til? Nei ég er alls ekki vanaföst og breyti reglulega til. Nú lendir verslunarmannahelgin inn í miðju sumarfríi svo það býður uppá fleiri möguleika til spennandi ferðalaga. Hver er eftirminnilegasta verslunarmannahelgin til þessa? Af hverju? Ætli það sé ekki bara frá þjóðhátíð þegar ég var 19 ára og fór með vinkonunum. Hún er eftirminnileg bæði vegna þess að þetta var fyrsta stóra útihátíðin og svo líka þar sem það var svo gaman að hitta ættingja mína í Eyjum og borða reyktan lunda og kíkja í kjötsúpu til Siggu frænku í Skuld. Hvað er nauðsynlegt að þínu mati um verslunarmannahelgina? Að ganga hægt um gleðinnar dyr og ganga vel um landið.

Hvað ertu búin að gera í sumar? Við skelltum okkur til Krítar í sólina og svo höfum við nýtt rigningardagana í endurbætur á heimilinu. Þess á milli er það lestur góðra bóka en ég hef lengi mælt gæði frís í fjölda bóka sem ég næ að lesa.

Hvað er planið eftir sumarið? Það er fjölskyldulíf, vinnan og bæjarmálin. Yngsti fjölskyldumeðlimurinn er að hefja skólagöngu svo veturinn mun snúast um stafina og fyrsta heimalesturinn. Það er því yndislegur vetur framundan.


TASKAN ÞÍN! ALLAR

SKÓLATÖSKUR

30% AFSLÁTTUR

Bakpoki blár og munstraður VILDARVERÐ: 6.999.Verð: 9.999.-

Bakpoki hestur VILDARVERÐ: 14.139.Verð: 20.199.-

Bakpoki grænn felulitur VILDARVERÐ: 14.139.Verð: 20.199.-

Bakpoki grár VILDARVERÐ: 5.599.Verð: 7.999.-

Bakpoki blár VILDARVERÐ: 14.139.Verð: 20.199.-

Bakpoki rauður hundur VILDARVERÐ: 14.139.Verð: 20.199.-

Bakpoki peace VILDARVERÐ: 14.139.Verð: 20.199.-

Bakpoki pony VILDARVERÐ: 14.139.Verð: 20.199.-

Bakpoki bleik blóm VILDARVERÐ: 14.139.Verð: 20.199.-

Bakpoki fótbolti VILDARVERÐ: 14.139.Verð: 20.199.-

Bakpoki blár með hvítum röndum VILDARVERÐ: 14.139.Verð: 20.199.-

Bakpoki gráar tölur VILDARVERÐ: 14.139.Verð: 20.199.-

Bakpoki ferskjulitaður VILDARVERÐ: 5.599.Verð: 7.999.-

Bakpoki bleikur VILDARVERÐ: 14.139.Verð: 20.199.-

Bakpoki hjólabretti VILDARVERÐ: 14.139.Verð: 20.199.-

IÐJUÞJÁLFAR MÆTA OG AÐSTOÐA

Iðjuþjálfar verða í völdum verslunum hjá okkur á næstu dögum og hjálpa við val á réttu töskunni. Komdu við og fáðu tösku sem passar þér fullkomlega!

• KEFLAVÍK - 3. ágúst (12:00 - 14:00)

Austurstræti 18

- Hafnarstræti 2 Álfabakka 14b, - Álfabakka Strandgötu 31 Mjódd Austurstræti 18 Mjódd Hafnarfirði 14b, Mjódd Austurstræti - Strandgötu 18 31 Álfabakka Ísafirði - Hafnarstræti 14b, Mjódd 2 Hafnarfirði Hafnarfirði Strandgötu 31 Ísafirði - Hafnarstræti 2 31 Hafnarfirði - Strandgötu 31 Ísafirði --Strandgötu Álfabakka 14b, MjóddHafnarfirði 14b, Austurstræti 18 Álfabakka Austurstræti 18

Skólavörðustíg 11

Vestmannaeyjum - Bárustíg 2 Kringlunni norður Keflavík 2norður - Bárustíg Skólavörðustíg 11 Kringlunni Keflavík norður - Sólvallagötu Skólavörðustíg 2 11 - Sólvallagötu Kringlunni Vestmannaeyjum Keflavík 2 - Sólvallagötu

Austurstræti 18

Álfabakka 14b, Mjódd

Hafnarfirði - Strandgötu 31

Ísafirði 2- Hafnarstræti 2 Ísafirði - Hafnarstræti

Ísafirði - Hafnarstræti 2

Vestmannaeyjum - Bárustíg 2 Vestmannaeyjum - Bárustíg 2 Vestmannaeyjum KeflavíkKringlunni - Sólvallagötu Keflavík 2 Kringlunni norður norður Skólavörðustíg 11 Skólavörðustíg 11 Vestmannaeyjum - Bárustíg 2 - Bárustíg 2 Keflavík -2Sólvallagötu 2 - Sólvallagötu Kringlunni norður Skólavörðustíg 11

Flugstöð Leifs -Eiríkssonar Kringlunni Akureyri 91-93 Flugstöð Leifs Eiríkssonar Laugavegi 77 Laugavegi 77 suður Kringlunni Akureyri suður - Hafnarstræti Laugavegi 77 91-93- Hafnarstræti Kringlunni Flugstöð Leifs suður Eiríkssonar Akureyri Hafnarstræti 91-93 Flugstöð Leifs Eiríkssonar Akureyri - Hafnarstræti 91-93 suður Laugavegi 77KringlunniKringlunni Flugstöð Eiríkssonar Flugstöð Leifs Eiríkssonar - Hafnarstræti -Leifs suður Kringlunni Ísafirði - Hafnarstræti -Laugavegi Strandgötu 4b, Mjódd 4 Hafnarfirði Smáralind Akranesi - Dalbraut 1 suður 91-93 Akureyri Hallarmúla Hallarmúla 4 77 31 Smáralind Akranesi - Laugavegi Dalbraut Hallarmúla 17724 Akureyri Smáralind Akranesi -Hafnarstræti Dalbraut 1 91-93 540 2000 | penninn@penninn.is 540 2000 | penninn@penninn.is www.penninn.is | www.eymundsson.is | www.penninn.is 540 2000 | www.eymundsson.is | penninn@penninn.is | www.penninn.is | www.eymundsson.is Akranesi 1 Smáralind Hallarmúla 540 2000 | penninn@penninn.is | www.penninn.is | www.eymundsson.is Strandgötu 31 Keflavík Ísafirði - Hafnarstræti Húsavík - Garðarsbraut 9Akranesi - Sólvallagötu orður Vestmannaeyjum - Bárustíg 2 Smáralind - Dalbraut 1 - Dalbraut - Dalbraut 1 Hallarmúla 42 2 4Smáralind Hallarmúla 4 Akranesi 540 2000 | penninn@penninn.is | www.penninn.is 540 2000 | penninn@penninn.is | www.eymundsson.is | www.penninn.is | www.eymundsson.is

vallagötu 2 uður

Vestmannaeyjum BárustígFlugstöð 2 Akureyri - Hafnarstræti -91-93 Leifs Eiríkssonar

narstræti 91-93 Flugstöð Leifs 1Eiríkssonar Akranesi - Dalbraut

lbraut 1

Vöruúrval mismunandi eftir verslunum. Tlboð á töskum gildir til og með 4. ágúst. Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um villur og myndabrengl.

540 2000 | penninn@penninn.is | www.penninn.is | www.eymundsson.is 540 2000 | penninn@penninn.is | www.penninn.is | www.eymundsson.is


6

VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM

fimmtudagur 2. ágúst 2018 // 30. tbl. // 39. árg.

Veitingahúsið Salthúsið Grindavík

Fiskurinn er alltaf vinsæll – Ferðamenn sækja í fiskinn

Þorlákur í litla sal Salhússins.

Þorlákur Guðmundsson er eigandi Salthússins í Grindavík, hann hefur rekið veitingastaðinn í tæp tíu ár og hefur gengið vel frá því hann tók við. Þorlákur segir að fyrstu árin hafi verið róleg en síðan hafi verið stígandi hjá þeim, sérstaklega með auknum ferðamannastraumi. Blaðamaður Víkurfrétta hitti Þorlák á dögunum á Salthúsinu þar sem spjallað var um fiskinn, ferðamennina og framtíðina. Ferskur fiskur daglega

Bókasafn Reykjanesbæjar Laugardaginn 18. ágúst kl. 13–15 verður námskeið í silkiþrykki með myndlistarkonunni Gillian Pokalo. Nauðsynlegt er að skrá sig á vef safnsins. Þriðjudaginn 21. ágúst kl. 20–21 hittist Leshringur bókasafnsins og ræðir sumarlesturinn 2018. Fimmtudaginn 23. ágúst kl. 11 er fyrsti Foreldramorgun vetrarins. RIE-Respectful Parenting uppeldisnálgunin verður kynnt. Allir velkomnir og enginn aðgangseyrir. Sundmiðstöð/Vatnaveröld Á frídegi verslunarmanna, mánudaginn 6. ágúst verður Sundmiðstöð/Vatnaveröld opin kl. 9–17. Verið velkomin í sund.

Störf í boði hjá Reykjanesbæ Akurskóli - Skólaliðar Fræðslusvið - Hegðunarráðgjafi Málefni fatlaðs fólks - Gefandi ummönnuarstarf á heimili fatlaðra barna Umsóknir um auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef Reykjanesbæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf og á facebook síðunni Reykjanesbær – laus störf. Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði.

Gestir koma víða að

Vinsældir ferðamanna á Salthúsið má meðal annars rekja til góðs orðspors, bæði frá ferðaskrifstofum og leiðsögumönnum. „Ég hef ekki þurft að auglýsa mig mikið en leiðsögumenn segja frá okkur og láta aðra vita af okkur þannig að orðspor okkar hefur spurst mikið út ásamt því að við erum í góðu samstarfi við ferðaskrifstofur.“ Fjölmargir hópar koma á hverju ári á Salthúsið en Bandaríkjamenn eru stærstu viðskiptavinirnir ásamt stórum hópum í gegnum ferðaskrifstofur. „Hér, fyrir ekki svo löngu síðan, vorum við meðal annars með þúsund skólakrakka frá Bandaríkjunum í

Þorlákur í eldhúsinu.

VIÐTAL

Viðburðir í Reykjanesbæ

Þegar Þorlákur er spurður hvað sé vinsælasti rétturinn þá er hann fljótur að svara að það sé fiskur dagsins. „Við erum með fisk dagsins en hann hefur alltaf selst vel, við erum ekki alltaf með sama fisk, tegund eða fiskréttinn þannig að það er fjölbreytni hjá okkur.“ Þorlákur verslar meðal annars fisk hjá Þorbirni í Grindavík en hann segir að þau séu afar heppin með það að geta sótt ferskan fisk nánast hvenær sem er. Saltfiskinn sækir Þorlákur hinsvegar norður þar sem hann er verkaður á gamla mátann. „Ég hef verið með saltfiskrétti og saltfisk frá upphafi en hann hefur notið mikilla vinsælda frá því að við opnuðum.“

Rannveig Jónína Guðmundsdóttir vf@vf.is

gegnum Iceland Travel en við fáum ferðamenn alls staðar af, hér hafa meðal annars borðað hjá okkur hópar og einstaklingar frá Tævan, Japan og Kína.“

Samfélagsmiðlar og internetið mikilvægt

Þorlákur segir að samfélagsmiðlar og internetið skipi einnig stóran sess í því hversu vel gangi hjá þeim. „Hingað droppa ferðamenn oft inn en þeir hafa þá fengið afspurn af okkur í gegnum Trip Advisor eða aðra miðla. Svo hefur landslagið einnig breyst töluvert hér í Grindavík á síðastliðnum tíu árum en fjölmörg gistirými eru hér í Grindavík sem var ekki áður fyrr og gestir þeirra koma til okkar til að borða.“

Lokað tvo daga á ári

Nálægðin við Bláa lónið er einnig mikilvæg að sögn Þorláks en þau sækja gesti þangað sem eru annað hvort að fara í Lónið eða fara upp úr en það er þá hluti af skipulagðri ferð hjá þeim í gegnum ferðaskrifstofu. „Síðan skiptir líka máli að standa sig, viðskiptavinirnir þurfa að vera ánægðir en það er gaman að segja frá því að einn hópur sem var hjá okkur

um daginn gaf okkur 9,6 í einkunn sem var það hæsta sem var gefið í könnuninni sem hópurinn tók og þar var tekið mið af allri þeirri þjónustu sem hópurinn upplifði. Við fáum líka alltaf að vita hvað við getum lagað og ef það er eitthvað sem þarf að bæta, sem er mikilvægt fyrir okkur.“ Á Salthúsinu eru sjö fastráðnir starfsmenn en veitingasalurinn skiptist í einn stóran sal, annan lítinn sem hægt er að loka og efri hæð. Á árum áður var töluvert um böll en sá markaður hefur breyst en þó eru alltaf fastir viðburðir og böll um sjómannahelgina og hið árlega Geimfaraball fer einnig fram á Salthúsinu á milli jóla og nýárs. „Ég er með opið alla daga ársins, nema aðfangadag og jóladag. Það er meira að segja opið hjá okkur á gamlársdag og nýársdag en ég hef nú þegar fengið pöntun fyrir gamlársdag.“ Fréttir af fækkun ferðamanna hafa verið á fjölmörgum miðlum undanfarna mánuði en Þorlákur segist ekki finna fyrir því, það sé vel bókað hjá þeim fram í tímann en hann er nú þegar farinn að taka við bókunum fyrir næsta ár. „Við finnum líka fyrir aukinni kröfu um verð en það er dýrt að koma til Íslands og við höfum passað upp á það að vera með sanngjarnt verð í gegnum tíðina.“


MANNLÍF Á SUÐURNESJUM

fimmtudagur 2. ágúst 2018 // 30. tbl. // 39. árg.

7

STEINUNN UNA SIGURÐARDÓTTIR ER LESANDI VIKUNNAR Í BÓKASAFNI REYKJANESBÆJAR

„Reisubók Guðríðar Símonardóttur hreinlega breytti lífi mínu“ Lesandi vikunnar í Bókasafni Reykjanesbæjar er Steinunn Una Sigurðardóttir en hún er að leika sér um þessar mundir í miðaldursorlofi eftir að hafa komið fjórum börnum á legg og verið í krefjandi störfum. Una les á hverjum degi og hlustar á hljóðbækur í hverri „dauðri stund.“ Hvaða bók ertu að lesa núna? Bækurnar á náttborðinu mínu eru: Daring Greatly eftur Brené Brown, Commonwealth eftir Ann Patchett, Indversk heimspeki eftir Gunnar Dal, Run Less - Run Faster og Anatomy of Fitness Yoga eru búnar að vera í nokkur ár á náttborðinu og glugga ég oft í þær. Sú hljóðbók sem ég er að hlusta á núna er Andartak eilífðar eftir Paul Kalanithi. Hver er uppáhaldsbókin? Ég fæ bókadellur og á því nokkrar uppáhaldsbækur. Upp úr tvítugu þá grét ég yfir Gone With the Wind í nokkur ár, þá tók við Hús andanna eftir Isabel Allende. Svo var það Reisubók Guðríðar Símonardóttur sem mér fannst hreinlega breyta lífi mínu þegar ég var um þrítugt. Nú undanfarin ár hafa átt stað í hjarta mínu bækur eins og Veröld sem var eftir Stefan Zweig sem

góður vinur minn gaf mér og Fátækt fólk eftir Tryggva Emilsson. Hver er uppáhaldshöfundurinn? Ég á engan uppáhaldshöfund. Hvaða tegundir bóka lestu helst? Ég les allt á milli himins og jarðar. Bara stuðið sem ég er í þann daginn. En æviminningar og skáldsögur byggðar á heimildum höfða sterkt til mín. Hvaða bók hefur haft mestu áhrifin á þig? Reisubók Guðríðar hafði mikil áhrif á mig á þeim tíma og Gone With the Wind gleymi ég aldrei enda mjög rómantísk. Mátturinn í núinu eftir Eckhart Tolle les ég reglulega og læri alltaf eitthvað nýtt. Hvaða bók ættu allir að lesa? Mér finnst að allir Íslendingar ættu að lesa Fátækt fólk eftir Tryggva Emilsson.

Hvar finnst þér best að lesa? Mér finnst best að lesa uppi í rúmi og undir sólskyggni á sólarströnd Hvaða bækur standa upp úr sem þú mælir með fyrir aðra lesendur? Það er Andartak eilífðar eftir Paul Kalanithi og The Handmaid´s Tale eftir Margaret Atwood. Ef þú værir föst á eyðieyju og mættir velja eina bók til að hafa hjá þér, hvaða bók yrði fyrir valinu? Í augnablikinu þá myndi ég taka með mér Gone With the Wind. Hún er sú stærsta sem ég man eftir akkúrat núna og svo langt síðan ég las hana.

Lesandi vikunnar er samstarfsverkefni Bókasafns Reykjanesbæjar og Víkurfrétta og verður nýr lesandi valinn í hverri viku í sumar. Þau sem vilja taka þátt eða mæla með lesanda geta skráð sig á heimasíðunni sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn eða í afgreiðslu Bókasafnsins að Tjarnargötu 12.

Umsóknarfrestur er til 15. ágúst

Virkjaðu hæfileikana Máttur kvenna er nám fyrir konur sem vilja öðlast þekkingu og færni í rekstri fyrirtækja. Kennsla fer fram í fjarnámi þar sem þátttakendur geta sjálfir stjórnað því hvenær horft er á fyrirlestra og verkefni unnin, allt eftir hentugsemi hvers fyrir sig.

Námið byggir á fjórum kjarnanámskeiðum

Á vinnuhelgum verður ennfremur lögð áhersla á

• Upplýsingatækni

• Námstækni

• Fjármál og bókhald

• Nýsköpun og frumkvöðlar

• Stofnun fyrirtækja og rekstrarform

• Skapandi stjórnun

• Markaðs- og sölutækni

• Framsækni og tjáning

Í fararbroddi í fjarnámi Nánari upplýsingar á bifrost.is


BÍLM

M F E A B R G HÁT Í Ð N L A A T A G T ÆKI R A N Æ A LAR ARA K R DVD I M Ú AR R SPIL TVÖ P Þ 3 A SJÓ RÁÐ RAR RP BÍLH S P I N ÁTA LAR LAU V LAR Ö R A S AR HEY I P R R RNA S M RTÓ YND ÍMAR L AVÉ LAR HL JÓM

REIK

BOR

Ð

NIV

MEIR

A EN

ÉLA

3000

VÖRU ALL TEGU NDIR T MEÐ A UPP Ð ÓTRÚ Þ 7 HEL VOTT LEGU 5 LUB A % V M AF ÉLA ORÐ A SLÆ OFN R E F TTI S LDA AR L V ÁTT FRY STIK ÉLAR ISTU ÍSSK U R R ÁPA R HRÆ KAF

RIV

ÉLA

R Ö RBY LAR VÖF LGJU FLU BLA OFN JÁR NDA RYK AR N R SU ST A FIVÉ

GUR

RAU

JÁR

N

R

ÞUR

ÞVO

SAM TTA LOK V RAR ÉLA UGR R I

RKA

LL

7 VERSLANIR UM ALLT LAND

SUÐURLANDSBRAUT 26 HAFNARGÖTU 90 AUSTURVEGI 34 ÞJÓÐBRAUT 1 GLERÁRTORGI GARÐARSBRAUT 18A KAUPVANGI 6

REYKJAVÍK REYKJANESBÆ SELFOSSI AKRANESI AKUREYRI HÚSAVÍK EGILSSTÖÐUM

6 MÁNAÐA VAXTALAUSAR GREIÐSLUR Í BOÐI

S: 569 1500 S: 414 1740 S: 414 1745 S: 431-3333 S: 460 3380

HÁF AR

TAKMARKAÐ MAGN Fyrstur kemur – fyrstur fær!

S: 464 1600 S: 414 1735

Sjá allt úrvalið á ht.is

HAFNARGÖTU 90 REYKJANESBÆ Sími 414 1740

R


SKÓLINN ER BYRJAÐUR HJÁ OKKUR !

tl.is

INTEL i3 OG 256GB SSD 6GB VINNSLUMINNI ACE-NXGNPED036

15,6" FULL HD FARTÖLVA MEÐ INTEL i3

15,6" FULL HD INTEL i3 INTEL HD 620

OG HRAÐVIRKUM 256GB SSD DISKI Á

6GB MINNI

AÐEINS 79.995

256GB SSD

149.995

79.995 15,6" INTEL i3 SSD OG FULL HD ASU-X507UAEJ142T

15,6" ASUS FARTÖLVA MEÐ NANOEDGE

15,6" MATTUR IPS

ASU-FX504GDE4148T

INTEL i5 - COFFEE LAKE

KRAFTMIKIL ASUS TUF GAMING LEIKJATÖLVA MEÐ 8GB MINNI, 256GB M.2 SSD.

INTEL i3 INTEL HD 520

SKJÁRAMMA, TALNABORÐI OG

4GB MINNI

AUKAPLÁSSI FYRIR 2,5" DISK

128GB SSD

69.995

i5 OG GTX1050 LEIKJATÖLVA 8GB MINNI OG 256GB SSD

15,6" FULL HD

GTX 1050 8GB MINNI 256GB

i5 VIVOBOOK MEÐ TVÖFÖLDUM DISKI 128GB SSD OG 1TB HDD ASU-X510UAEJ763T

HRAÐI OG GLÆSILEIKI EINKENNIR ÞESSA VIOBOOK MEÐ INTEL i5, 8GB MINNI OG TVÖFÖLDUM DISKI.

15,6" FULL HD INTEL i5 INTEL UHD 620 8GB MINNI

119.995

128GB SSD + 1 TB HDD

14" ÖRÞUNN OG LÉTT ZENBOOK

119.995

AÐEINS 1,25 KG. ASU-UX430UAPURE1X

SÉRSTAKLEGA GLÆSILEGA HÖNNUÐ

14" FULL HD INTEL i3 INTEL HD 620

OG LÉTT Í SKÓLANN. INTEL i3 ÖRGJÖRVI

4GB MINNI

OG SSD DISKUR

128GB SSD

SKOÐAÐU ALLT FARTÖLVURÚRVALIÐ Á TL.IS HAFNARGÖTU 90 · REYKJANESBÆR · 414 1740


10

MANNLÍF Á SUÐURNESJUM

fimmtudagur 2. ágúst 2018 // 30. tbl. // 39. árg.

Jákvæðnin besta vopnið í rigningunni – Vinnuskóli Grindavíkur hefur gengið vel í sumar Vinnuskóli Grindavíkur hefur verið starfræktur frá því í byrjun sumars en alls sóttu um áttatíu krakkar um störf hjá Vinnuskólanum frá 8.–10. bekk að sögn yfirflokkstjórans, Ingu Fanney Rúnarsdóttur.

Ná ekki að mála sökum vætutíðar

fyrir vonbrigðum, við reynum að taka þessu með jákvæðnina að vopni, þó það geti oft verið erfitt. En á verstu rigningardögunum þá eru krakkarnir vanalega með stuttan dag og við höfum alltaf næga innivinnu til að sinna sem við geymum fyrir þessa ,,skemmtilegu“ daga.“

Ágætlega gekk að ráða inn flokkstjóra en Inga Fanney segir að flokkstjórastarfið sé alls ekki fyrir alla og að útlitið hafi ekki verið bjart í fyrstu. „En við náðum að púsla þessu saman í lokin og réðum inn gott fólk sem vinnur vel saman.“ Helstu verkefni vinnuskólans í sumar hafa verið beðahreinsun, gróðursetning og almenn hreinsum bæjarins. Inn á milli er málningarvinna en sökum regns og vætutíðar hefur ekki verið hægt að fara í þau málningarverkefni sem liggja fyrir innan bæjarins en Inga segist krossa fingur og vonast til þess að það komi nokkrir þurrir dagar til þess að hægt verði að klára þau verkefni. En hvernig hefur nemendum Vinnuskólans gengið í rigningunni í sumar? „Ég er alltaf bjartsýn fyrir góðu sumri en verð því miður oftast

Guðni á trukknum á DVD

Sunnudaginn 14. janúar 2018 var frumsýnd heimildamynd eftir Guðmund Magnússon kvikmyndagerðarmann. Myndin fjallar um lífshlaup Guðna Ingimundarsonar frá Garðstöðum í Garði og var mjög vel tekið. Núna er hugmyndin að gefa myndina út á DVD. Þetta kemur fram á Karolina Fund síðu þar sem stofnað hefur verið til söfnunar fyrir útgáfu myndarinnar á DVD. „Guðni er fæddur árið 1923, gerði út trukk með lyftibúnaði og loftpressu og sá um fleygun og sprengdi jarðveg á suðurnesjum um hálfrar aldar skeið. Að því loknu hefur hann gert upp á annað hundrað véla af mörgum gerðum, gert þær gangfærar að nýju. Vélarnar eru til sýnis í Byggðasafninu í Garðinum. Þá kom Guðni með trukkinn að fjölda verkefna í höfnum á Suðurnesjum, tengt framkvæmdum við hafnarmannvirki eða við lagfæringu og tilfærslu báta. Þá var hann kvaddur til aðstoðar við lausn á fjölbreyttum verkefnum tengt viðgerðum og flutningi á margs konar búnaði. Gjarnan fór hann um vegi á Suðurnesjum í óveðrum til aðstoðar áður en björgunarsveitir náðu núverandi styrk. Um árabil glímdi hann við að ná málmum í fjörum úr skipum sem þar urðu til og útbjó sig með búnað til þess. Fór með trukkinn á fjöru allt út í Flasarhaus á Garðskaga og var ætíð kominn með búnað sinn að landi áður en flæddi. Hreinsun málma úr fjörum má flokka með umhverfisvernd. Guðni var vitavörður á Garðskaga og Hólmsbergi í 25 ár, “ segir á söfnunarsíðunni. Stefnt er að því að gefa myndina út á DVD-diski eins og áður hefur komið fram en kostnaður við útgáfuna er um ein milljón króna með öllum réttindum. Þeir einstaklingar sem styrkja að upphæð 3000 kr. eða meira fá myndina á veglegum DVD-diski. Hægt að styrkja verkefnið á karolinafund.com.

FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Nóg að gera í Grindavík þrátt fyrir sumarfrí

„Það er því í mörg horn að líta fyrir Sigurð Rúnar Karlsson, umsjónarmann fasteigna hjá bænum, en hann smellti af nokkrum myndum fyrir okkur í vikunni sem veita áhugaverða innsýn í þá vinnu sem fer fram á bakvið tjöldin þessa dagana. Víða er unnið í kapphlaupi við tímann enda styttist í að skólarnir opni á ný og þá hefur ekki alltaf viðrað nógu vel til að sinna vinnu utandyra. Iðnaðarmennirnir hafa því orðið að sæta lagi en sumarið lét loksins sjá sig í vikunni og þá fór allt á fullt,“ segir á heimasíðu Grindavíkur. Hægt er að skoða fleiri myndir af framkvæmdum bæjarins á heimasíðunni grindavik.is.

Í Grindavík er nóg að gera hjá flestum stofnunum þrátt fyrir að margar þeirra séu lokaðar yfir hásumarið og margir starfsmenn í sumarfríi. Viðhaldsvinna og framkvæmdir eru á fullu í bænum og eru sumarfríin nýtt í það að sinna nauðsynlegu viðhaldi af fjölmörgum byggingum sem Grindavíkurbær á. Þetta kemur fram á heimasíðu Grindavíkurbæjar.

VERSLUNARMANNAHELGIN KOMUM HEIL HEIM

FJÖLBRAUTASKÓLI SUÐURNESJA ÓSKAR EFTIR AÐ RÁÐA STARFSMANN Í 50–75% STARF NÆSTA SKÓLAÁR Í starfinu felst meðal annars: Umsjón með nemendabókhaldi, kynningamál (veftengd) og erlend samskipti. Við leitum að starfsmanni sem hefur gaman að því að vinna með ungu fólki, er jákvæður og lipur í mannlegum samskiptum. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu eða menntun sem hentar starfinu. Ráðning í stöðuna er frá 15. ágúst 2018 og eru starfskjör í samræmi við stofnanasamninga skólans og viðkomandi stéttarfélags. Umsókn með upplýsingum um menntun og starfsreynslu skal skila í tölvupósti til skólameistara á netfangið kras@fss.is eigi síðar en 13. ágúst 2018. Nánari upplýsingar má fá í síma 421-3100 eða í tölvupósti hjá Kristjáni Ásmundssyni skólameistara, kras@fss.is og Guðlaugu Pálsdóttur aðstoðarskólameistara, gp@fss.is. Öllum umsóknum verður svarað eftir að ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Á heimasíðu skólans, www.fss.is, má finna frekari upplýsingar og sjá myndir úr skólalífinu. Skólameistari

VERÐUR AÐ VINNA UM VERSLUNARMANNAHELGINA Hallgrímur Hjálmarsson Hvað ætlar þú að gera um verslunarmannahelgina? Ég verð að vinna um versló­. Ertu vanaföst/fastur um verslunarmannahelgina eða breytir þú reglulega til? Nei, en ég var reyndar að vinna síðustu versló líka. Það er alltaf gaman að breyta til en þjóðahátíð hefur oftast verið fyrir valinu. Hver er eftirminnilegasta verslunarmannahelgin til þessa? Af hverju? Þjóðhátíð 2012, það var geggjað veður og sól allan tímann, svo missti ég líka sveindóminn þarna á laugardeginum. Hvað er nauðsynlegt að þínu mati um verslunarmannahelgina?

Góða skapið, skemmtilegt fólk og útilega! Svo skemmir sólin ekki fyrir. Hvað ertu búin að gera í sumar? Það er mest lítið, skellti mér reyndar norður á Akureyri í sólina í byrjun júlí en ætli ég bíði ekki með utanlandsferð þar til í vetur svo ég missi ekki af öllu „góða veðrinu” hérna heima. Hvað er planið eftir sumarið? það eru svona nokkrir hlutir í stöðunni en er sennilega að fara að breyta til eitthvað í vinnu í haust en það kemur í ljós, svo er nú planið að fara að hreyfa sig loksins og ná af sér bjórbumbunni.


UNGA FÓLKIÐ Á SUÐURNESJUM

fimmtudagur 2. ágúst 2018 // 30. tbl. // 39. árg.

Guðrún Hanna Jónsdóttir Aldur: 16

ÁRNAFRÉTTIR

UMSJÓN: Árni Þór Guðjónsson arnithor02@gmail.com

Krakkarnir duglegir í vinnuskólanum Aníta Lind Róbertsdóttir Fisher, yfirflokkstjóri hjá vinnuskóla Reykjanesbæjar segir okkur hér hvernig krakkarnir eru búnir að standa sig í sumar. Hvernig er sumarið búið að ganga? Sumarið hefur gengið mjög vel, þrátt fyrir leiðinlegt veður. Nemendurnir leyfa veðrinu ekki að hafa áhrif á sig og standa þau sig öll frábærlega. Einnig er vinnuskólinn mjög heppin með flokkstjóra í ár og eiga þau öll mikið hrós skilið fyrir vinnusemi og jákvæðni. Hvernig standa krakkarnir sig? Krakkarnir standa sig mjög vel, andinn virðist vera góður í öllum hverfum og þau í sameiningu ná að gera gott út sumrinu þrátt fyrir veðrið. Þau standa sig öll frábærlega og eiga þau öll hrós skilið fyrir vel unnin verk. Ég mæli með því að fylgjast með fyrir og eftir myndum af verkum þeirra inn

á Facebook- síðunni okkar. Facebooksíðan er undir nafninu Vinnuskóli Reykjanesbæjar. Hvernig er að vinna í þessu veðri? Það getur tekið á þolinmæðina, en eins og má sjá á fyrir og eftir myndunum þá leyfa hvorki nemendurnir né flokkstjórarnir veðrinu að koma niður á verkefnunum. Það er í raun ótrúlegt hvað bæði nemendur og flokkstjórar hafa staðið sig vel þrátt fyrir veðrið. Voru krakkarnir sáttir? Krakkarnir verða að sjálfsögðu leið á rigningunni og kuldanum, en það sem huggar þau eru góðir flokkstjórar og pizzuveislan á langbest sem er tvisvar sinnum á hvoru tímabili fyrir duglegasta hópinn.

Hvað ætlar þú að gera um verslunarmannahelgina? Ég verð sennilega bara með vinum hér heima eða fer upp í bústað með fjölskyldunni. Ertu vanaföst/fastur um verslunarmannahelgina eða breytir þú reglulega til? Ég er ekki vanaföst yfir þessa helgi, geri bara það sem ég vil gera. Hver er eftirminnilegasta verslunarmannahelgin til þessa? Af hverju? Eftirminnilegasta verslunarmannahelgin hingað til er þegar mamma bauð mér óvænt til útlanda. Hvað er nauðsynlegt að þínu mati um verslunarmannahelgina? Það nauðsynlegasta er væntanlega að hafa gaman og skemmta sér en það er must að fara einu sinni til Eyja á þjóðhátíð. Hvað ertu búin að gera í sumar? Ég fór til Spánar í sumar svo er ég bara búin að vera að vinna og vera með vinum. Hvað er planið eftir sumarið? Planið eftir sumarið er að fara í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og vinna.

Tómas Elí Stefánsson Aldur: 16

Hvað ætlar þú að gera um verslunarmannahelgina? Ég ætla á Unglingalandsmótið sem verður haldið í Þorlákshöfn Ertu vanaföst/fastur um verslunarmannahelgina eða breytir þú reglulega til? Ég breyti reglulega til en fór seinast á Unglingalandsmótið fyrir tveimur árum Hver er eftirminnilegasta verslunarmannahelgin til þessa? Af hverju? Eftirminnilegasta verslunarmannahelgin mín var fyrir tveimur árum þá fór pabbi minn með fellihýsi í Borgarnes og ég og vinir mínir gistum saman í því Hvað er nauðsynlegt að þínu mati um verslunarmannahelgina? Það sem er nauðsynilegt fyrir mig er að hafa gaman Hvað ertu búin að gera í sumar? Ég er búinn að vera vinna sem smiður í allt sumar og hitta vini mína Hvað er planið eftir sumarið? Að fara í FS og vinna í bakaríinu.

11

Thea Ólafía Lucic Jónsdóttir Aldur: 16

Hvað ætlar þú að gera um verslunarmannahelgina? Ég er að fara á Unglingalandsmótið. Ertu vanaföst/fastur um verslunarmannahelgina eða breytir þú reglulega til? Nei er ekki vanaföst. Hver er eftirminnilegasta verslunarmannahelgin til þessa? Af hverju? Í fyrra þegar ég fór til ömmu og afa á Selfossi. Hvað er nauðsynlegt að þínu mati um verslunarmannahelgina? Að hafa gaman og njóta. Hvað ertu búin að gera í sumar? Er búin að vera vinna, á landsliðsæfingum og fór líka í landsliðsferð til Finnlands. Hvað er planið eftir sumarið? Byrja í framhaldsskóla og æfa körfubolta.

Írena Björt Magnúsdóttir Aldur: 16

Hvað ætlar þú að gera um verslunarmannahelgina? Fara á Unglingalandsmótið í Þorlákshöfn Ertu vanaföst/fastur um verslunarmannahelgina eða breytir þú reglulega til? Ég hef oftast farið á unglingalandsmótið þannig frekar vanaföst en væri til í að prufa eitthvað annað Hver er eftirminnilegasta verslunarmannahelgin til þessa? Af hverju? Unglingalandsmótið á Akureyri 2015 því þá var bæði Unglingalandsmótið og Ein með öllu í gangi þar Hvað er nauðsynlegt að þínu mati um verslunarmannahelgina? Gott veður og góður félagsskapur Hvað ertu búin að gera í sumar? Ég er búin að vera vinna í Ungó, fara í útilegur og fór til Svíþjóðar að heimsækja vinkonu mína Hvað er planið eftir sumarið? Halda áfram í Verslunarskóla Íslands

Hermann Nökkvi Gunnarsson Aldur: 16

Hvað ætlar þú að gera um verslunarmannahelgina? Ég er ekki búinn að plana neitt þessa verslunarmannahelgi en það verður eitthvað skemmtilegt með fjölskyldunni eins og venjulega. Ertu vanaföst/fastur um verslunarmannahelgina eða breytir þú reglulega til? Ég er tilturlega vanafastur um verslunarmannahelgina að því leyti að ég fer reglulega á Þjóðhátíð í Eyjum og ef ekki þá hlustum við fjölskyldan alltaf á brekkusönginn í útvarpinu og syngjum með. Hver er eftirminnilegasta verslunarmannahelgin til þessa? Af hverju? Eftirminnilegasta verslunarmannahelgin er Þjóðhátíð í Eyjum 2011. Hvað er nauðsynlegt að þínu mati um verslunarmannahelgina? Það er mjög nauðsynlegt að vera í góðum félagsskap hlusta á brekkusönginn úr Eyjum!

Hvað ertu búinn að gera í sumar? Í sumar er ég búinn að gera margt eins og t.d vinna og chilla. En líklegast er hápunktur sumarsins búnir að vera þeir að ég fór til Bandaríkjanna að kíkja á vin í tvær vikur og það var náttúrlega geggjað enda var nóg að gera þar. Síðan er ég búinn að vera æfa amerískan fótbolta í allt sumar og við enduðum æfingartímabilið á fyrsta ungmennaleik í amerískum fótbolta á Íslandi og af sjálfsögðu vann mitt lið það. Einnig keypti ég mér krossara og það er búið að vera gaman að keyra hann. Hvað er planið eftir sumarið? Planið núna eftir sumar er að fara í FS og síðan að halda áfram að vinna fyrir ungmenni í þessum bæ með Ungmennaráði Reykjanesbæjar. Einnig hefur mér verið boðið í samtök sem heita 'Students for liberty á Íslandi' og þar mun ég reyna að einbeita mér að því að læra meira um frjálshyggju og koma á viðburðum undir nafni þeirra samtaka sem snúast um pólitík.

Instagram-leikur Víkurfrétta mynd vikunn ar!

Í sumar verða Víkurfréttir með myndaleik á samfélagsmiðlinum Instagram. Eina sem þú þarft að gera er að setja hasstaggið #vikurfrettir með næstu Instagram-mynd sem þú tekur. Við munum velja mynd vikulega í blaðið og oftar á vf.is ef viðbrögð verða góð. Besta mynd vikunnar verður valin og fær eigandi hennar pítsuverðlaun frá Langbest. Í lok sumars munum við velja bestu mynd sumarsins og fær eigandi hennar vegleg verðlaun.

! ar m su í ir tt re rf ku vi # ta no að eg gl du ð ri Ve


12

VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM

fimmtudagur 2. ágúst 2018 // 30. tbl. // 39. árg.

EITT HUNDRAÐ AÐILAR FRÁ Flugakademía Keilis SECURITAS Í FLUGSTÖÐINNI – Nýr samningur við Isavia um öryggisleit opnar starfsstöð á Spáni

Securitas hefur skrifað undir samstarfssamning við Isavia um öryggisleit á Keflavíkurflugvelli. Samningurinn innifelur að Securitas mun sinna öryggisleit í verktakahliðum á Keflavíkurflugvelli ásamt öryggisleit komufarþega frá þriðju löndum. Securitas mun taka yfir þjónustuna á næstu dögum og er undirbúningur í fullum gangi. Eftir að þessi nýi samningur tekur gildi verða rúmlega 100 aðilar á vegum Securitas að störfum í Leifsstöð. Securitas starfrækir útibú á Reykjanesi sem fer ört stækkandi með auknum umsvifum á svæðinu og á Keflavíkurflugvelli. Starfsemi Securitas á flugvöllum og í tengslum við flug er alltaf að aukast. Auk þess að sinna öryggismálum einstakra flugfélaga þá sinnir Securitas öryggisleit, aðstoð við farþega með skerta hreyfigetu (PRM), umsjón með týndum munum ásamt fleiri verkefnum.

Telma Dögg Guðlaugsdóttir, útibússtjóri Securitas Reykjanesi: „Við erum mjög stolt af því að Isavia skyldi velja okkur til þessa verkefnis. Reynsla okkar af sambærilegum verkefnum er mjög góð og samstarf við Isavia í gegnum árin farsælt. Við höfum sinnt sambærilegri þjónustu fyrir Isavia á Reykjavíkurflugvelli til fjölda ára með góðum árangri. Starfsfólki Securitas fjölgar mjög ört hér á Reykjanesi enda hefur samstarfið við United Airlines, Isavia og fleiri gengið vel. Securitas á Reykjanesi er frábærlega staðsett með tilliti til þessara samstarfsaðila, auk skrifstofu okkar á Iðavöllum erum við nú með skrifstofuaðstöðu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar fyrir okkar starfsfólk til að mæta auknum starfsmannafjölda og þörfum þeirra.“ Um Securitas Securitas er forystufyrirtæki á sviði öryggismála á Íslandi. Starfsmenn Securitas eru rúmlega 500 og þjóna yfir 20.000 viðskiptavinum, þar með talið flestum af stærstu fyrirtækjum landsins. Stjórnstöð fyrirtækisins er fullmönnuð allan sólarhringinn, alla daga ársins. Þjónustuframboð Securitas spannar öll svið mannaðrar gæslu og fjargæslu. Söluvörur fyrirtækisins tengjast öryggismálum, svo sem innbrotaviðvörunarkerfum, brunaviðvörunarkerfum, myndavélakerfum, aðgangsstýrikerfum og slökkvikerfum.

Hegðunarráðgjafi á Fræðslusviði Fræðslusvið Reykjanesbæjar óskar eftir að ráða hegðunarráðgjafa til starfa á sviðið. Markmið þjónustunnar er að veita sérhæfða og einstaklingsmiðaða ráðgjöf í raunaðstæðum, sem byggir á viðurkenndum aðferðum. Hegðunarráðgjafi starfar í þverfaglegu samstarfi við kennsluráðgjafa, sálfræðinga, talmeinafræðinga, starfsfólk skóla, velferðarþjónustu og aðra sérfræðinga. Faglegt starfsumhverfi þar sem lögð er áhersla á sjálfstæði, vönduð vinnubrögð, klínískar leiðbeiningar og að hagsmunir nemenda séu hafðir að leiðarljósi. Starfssvið hegðunarráðgjafa • Sérhæfð og einstaklingsmiðuð ráðgjöf til skóla vegna nemenda í leikskóla og yngri bekkjum grunnskóla sem eiga erfitt með að taka virkan þátt í daglegu skólastarfi • Bein athugun á börnum í leik- og grunnskólum, þar sem stuðst er við viðurkenndar aðferðir við kortlagningu hegðunar (sbr. virknimat) • Vinnur aðgerðaráætlun í samstarfi við starfsfólk skóla og styður við innleiðingu og framkvæmd hennar • Vinnur í þverfaglegu teymi skólaþjónustu Menntunar- og hæfniskröfur • Menntun og reynsla á sviði kennslufræða, sálfræði, uppeldis- og menntunarfræða eða önnur menntun sem nýtist í starfi og tengist vinnu með börnum í skólaaðstæðum • Yfirgripsmikil þekking og reynsla á sviði árangursríkra uppeldis- og hegðunarmótandi aðferða • Góð skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum • Lipurð í mannlegum samskiptum Umsóknarfrestur er til og með 13. ágúst 2018. Nánari upplýsingar um starfið veitir Einar Trausti Einarsson yfirsálfræðingur, einar.t.einarsson@reykjanesbaer.is Sótt er um starfið á vef Reykjanesbæjar, reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf

Til að mæta auknum áhuga og tryggja að skólinn geti kennt verklegt flugnám allt árið um kring, hefur Flugakademía Keilis opnað starfsstöð fyrir utan Barcelona. Keilir er þannig fyrsti flugskóli landsins til að halda úti verklegu flugnámi í tveimur löndum. Fyrstu nemendur skólans fóru utan fyrr í sumar og una sér vel, enda kjöraðstæður til flugs flesta daga ársins. Að jafnaði verða um ellefu nemendur Keilis í starfsstöðinni í tvo mánuði í senn og er stefnt að því að nemendur skólans fljúgi árlega um 3.000 klukkutíma á Spáni. Undirbúningur fyrir opnun starfsstöðvar Keilis á Spáni, sem eru staðsettar í bænum Sabadell rétt fyrir utan Barcelona, hefur staðið í nokkurn tíma. Með opnun hennar er skólinn betur settur til að geta boðið upp á hágæða atvinnuflugnám á einungis 16-18 mánuðum. Samkvæmt Snorra Páli Snorrasyni, skólastjóra Flugakademíu Keilis er þetta stórt skref fyrir skólann, enda er með þessu verið að sýna fram á að hægt sé að yfirfæra verklega þjálfun og gæðaferla Keilis á aðrar starfsstöðvar víðsvegar í Evrópu. Þá hafa nemendur möguleika á því að auka færni sína og þekkingu á alþjóðlegum vettvangi sem mikilvægur þáttur í þjálfun flugmanna. Flugiðnaðurinn er í örum og hröðum vexti á alþjóðavísu og er mikil eftirspurn eftir atvinnuflugmönnum um allan heim. Stytting námstíma til atvinnuflugmannsprófs, líkt og Flugakademía Keilis hefur unnið að, er því mikilvægur áfangi fyrir bæði flugnema og flugiðnaðinn sjálfan. „Flestir nemendur okkar hafa fengið atvinnutilboð áður en þeir hafa lokið námi hjá okkur, bæði frá innlendum og erlendum flugfélögum, þannig að við höfum einsett okkur að gera þeim kleift að komast á vinnumarkaðinn eins fljótt og mögulegt er,“ segir Rúnar Árnason, forstöðumaður Flugakademíu Keilis.

fimm DA20 tveggja sæta vélar og eina tveggja hreyfja DA42 kennsluvél. DA40 flugvélar Keilis eru með tæknivæddustu kennsluvélum á landinu, búnar fullkomnum blindflugsbúnaði, stórum tölvuskjám og nútíma flugmælitækjum. Með komu nýju vélanna hefur skólinn yfir að ráða einn nýstárlegasta og yngsta flota kennsluvéla í Evrópu. Fyrirhugað er að fyrstu tvær vélarnar verði afhentar í mars næstkomandi og þær seinni í lok maí. Þá tók Flugakademían nýverið í notkun fullkominn flughermi frá Diamond fyrir þjálfun á tveggja hreyfla DA42 flugvél skólans sem hefur aukið verulega við þjálfunarmöguleika atvinnuflugnema við skólann og bætist hann við núverandi Redbird hreyfanlegan flughermi skólans. Vegna mikillar aðsóknar í flugnám er áhugasömum bent á að senda inn námsumsókn sem fyrst.

Mikil ásókn í flugnám

Á þriðja hundrað nemendur leggja stund á atvinnuflugnám í Flugakademíu Keilis. Aukin ásókn hefur verið í námið á undanförnum misserum og er fullbókað í bæði samtvinnað og áfangaskipt atvinnuflugnám. Vegna aukinna umsvifa festi Flugakademía Keilis kaup á fjórum nýjum DA40 kennsluflugvélum á árinu og hefur skólinn nú til umráða alls fjórtán flugvélar frá Diamond flugvélaframleiðandanum: átta DA40 fjögurra sæta vélar,

Sýslumaðurinn á Suðurnesjum Sýslumaðurinn á Suðurnesjum óskar eftir að ráða í 100% stöðu skrifstofumanns í tryggingaumboði á skrifstofu embættisins að Vatnsnesvegi 33, Reykjanesbæ frá 15 ágúst n.k. Hæfniskröfur: • Góð almenn tölvu- og íslenskukunnátta. • Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum. • Jákvæðni, traust og sjálfstæði í vinnubrögðum. • Hreint sakavottorð. • Stundvísi. • Geti unnið undir álagi.

Starfssvið: • Almenn afgreiðsla, þjónusta og símsvörun. • Upplýsingagjöf og úrlausn mála.

Um er að ræða fjölbreytt starf sem hentar bæði konum og körlum. Launakjör eru skv. Kjarasamningi félags starfsmanna ríkisins SFR og fjármálaráðherra f.h.ríkissjóðs. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr.70/1996. Nánari upplýsingar um starfið veita Halldóra K. Ólafsdóttir skrifstofustjóri í síma 4582222 og Ásdís Ármannsdóttir sýslumaður í síma 4582228. Umsóknum ber að skila til Sýslumannsins á Suðurnesjum, Vatnsnesvegi 33, Reykjanesbæ fyrir 07.08.2018 nk. á netfangið sudurnes@syslumenn.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.


VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM

fimmtudagur 2. ágúst 2018 // 30. tbl. // 39. árg.

13

VERSLUNARMANNAHELGIN KOMUM HEIL HEIM

ER EKKI VANAFASTUR UM VERSLUNARMANNAHELGINA Dagbjartur Willardsson

Hótelið rekst ekki á áform um stækkun flugvallarins - Fjöldi fólks fylgdist með þegar fyrsta skóflustungan var tekin að flugvallarhóteli skammt frá Keflavíkurflugvelli

Uppbygging þjónustu komi til með að styrkja Reykjanesið sem ferðamannastað

Nýtt 150 herbergja Courtyard-flugvallarhótel Marriott-keðjunnar mun ekki þrengja að framtíðarstækkunarmöguleikum flugvallarins þar sem það rís á lóð sem liggur utan við mörk yfirráðasvæðis Isavia. Fram kom við fyrstu skóflustunguna að aðstandendur framkvæmdanna hyggi á uppbyggingu enn frekari þjónustu við flugvöllinn í kjölfar opnunar hótelsins. Á lóðinni, sem gefið hefur verið nafnið Aðaltorg, kemur einnig til greina að opna matvöruverslun sem verði opin allan sólarhringinn.

Þegar er komin þar ÓB eldsneytisstöð á vegum Olís og þá hafa bílaleigur, sem eru með starfsemi á flugvellinum, verið í óða önn að koma sér fyrir á nærliggjandi lóðum. Þar hafa þær fengið úthlutað meira landrými til að geyma og afhenda þúsundir bílaleigubíla sem ferðamenn notast við á ferðum sínum um landið. Gert er ráð fyrir því að farþegar sem gisti á hótelinu eða þurfi að sækja bílaleigubíl ferðist í framtíðinni með sérstökum gjaldfrjálsum skutlum sem verði í áætlunarakstri frá flugstöðinni, en ferðin tekur á bilinu 2–4 mínútur. Slíkar skutlur eru algeng sjón við erlenda flugvelli. Það var Rósa Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri Álftavíkur sem er leiðandi fjárfestir í verkefninu, sem tók fyrstu skóflustunguna með stórri beltagröfu. Gröfturinn fór fram

undir vökulum augum starfsmanna Íslenskra aðalverktaka sem hefjast handa við byggingaframkvæmdir strax á morgun. Meðal viðstaddra við skóflustunguna voru sveitarstjórnarmenn í Reykjanesbæ og nokkrir þingmenn Suðurkjördæmis. Lýstu þeir mikilli ánægju með nýja flugvallarhótelið, en um milljarða framkvæmdir er að ræða. Bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Kjartan Már Kjartansson, sagði þarna vera um mikilvægan áfanga að ræða. Byggingaraðili hótelsins, Aðaltorg ehf. í Reykjanesbæ, á alls byggingarétt upp á tæpa 25.000 fm á lóðinni og sér fyrirtækið fyrir sér að þar muni byggjast upp fjölbreytt stoðþjónusta við flugvöllinn, ferðafólk, áhafnir flugfélaga og annað starfsfólk. Áfram sé gert ráð fyrir vexti í fjölda farþega sem fara um völlinn.

Reykjanesið hefur ekki farið varhluta af þeirri aukningu sem verið hefur í ferðamennsku hér á landi og hefur fjöldi gistinátta á svæðinu margfaldast. Áður fyrr var úrval afþreyingar takmarkað í næsta nágrenni við flugvöllinn. Úr því hefur þó verið bætt hægt og bítandi á síðustu árum og hafa aðstandendur Aðaltorgs komið að markaðssetningu svokallaðra „Blue Diamond“-ferða en í þeim gefst jafnt tengifarþegum og öðrum ferðamönnum sem stoppa stutt við á landinu tækifæri til að skoða helstu náttúruperlur Reykjanesskagans í skipulagðri rútuferð og er þá komið við hjá Gunnuhver, Valahnúk, Reykjanesvita, Kleifarvatni, Krísuvík og Bláa lóninu svo fátt eitt sé nefnt.

Hvað ætlar þú að gera um verslunarmannahelgina? Ekkert ákveðið með verslunarmannahelgina enn. Höfum oft verið heima síðastliðin ár en fjölskyldan hefur reynt að gera eitthvað skemmtilegt. Ertu vanaföst/fastur um verslunarmannahelgina eða breytir þú reglulega til? Nei ekkert vanafastur og bara skoðað á hverju ári hvað verður gert. Hver er eftirminnilegasta verslunarmannahelgin til þessa? Af hverju? Sumarið 1999 þegar við hjónin vorum tiltölulega nýbyrjuð saman þá fórum við á sunnudagskvöldinu á Þjóðhátíð og heim aftur morguninn eftir, það var mjög skemmtilegt og gaman að upplifa. Hvað er nauðsynlegt að þínu mati um verslunarmannahelgina? Nauðsynlegt um verslunarmannahelgina eins og reyndar í lífinu almennt er að vera umkringdur af góðu fólki sem hjálpar manni að líða vel. Hvað ertu búin að gera í sumar? Við fjölskyldan fórum til Danmerkur

í sumarhús í viku, það var frábær ferð en við fengum geggjað veður þar, þannig að sólarleysið hér á klakanum hefur ekki haft afgerandi áhrif á sálarlífið. Hvað er planið eftir sumarið? Planið eftir sumarið er bara að hafa gaman af lífinu eins og maður reynir alltaf og láta gott af sér leiða. Erum að vísu að öllum líkindum að flytja til Garðabæjar núna í ágúst.

HLUTASTARF Airport fashion er norsk keðja sem er með glæsilega verslun á Keflavíkurflugvelli. Við leitum að einstaklega þjónustulunduðum, glaðlyndum og snyrtilegum einstaklingi sem hefur góðan samskiptahæfileika og mikla söluhæfileika. Um er að ræða hlutastarf, kvöldvaktir 18–01, unnið er í vaktavinnu og þarf einstaklingurinn að geta byrjað sem allra fyrst. Umsækjendur þurfa að vera eldri en 20 ára . Íslenskukunnátta er skilyrði. Áhugasamir vinsamlegast sendið umsókn á inga.reynisdottir@airportretail.is

Starfsfólk óskast!

Við leitum að starfsfólki í tvær lausar stöður í Korninu bakarí á Fitjum.

Rannveig Jónína, blaðamaður Víkur­ frétta var viðstödd skóflustunguna og tók meðfylgjandi myndir.

• Afgreiðslustörf: Jákvætt og þjónustulundað starfsfólk í afgreiðslu virka daga í vetur og til framtíðar. • Verslunarumsjón: Afgreiðslustörf ásamt verslunarumsjón, en í því felst umsjón með daglegum rekstri bakarísins, þjálfun, eftirfylgni ofl. í samráði við rekstrarstjóra verslana. Umsóknir sendist á umsokn@kornid.is merkt "Fitjar"


14

ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM

fimmtudagur 2. ágúst 2018 // 30. tbl. // 39. árg.

Jón Norðdal náði draumahögginu á Bergvíkinni

Jonni glaður á Bergvíkinni með draumahöggið.

Kylfingurinn og fyrrverandi körfuboltastjarna með Keflavík, Jón Norðdal Hafsteinsson úr Golfklúbbi Suðurnesja, fór holu í höggi á 3. braut Hólmsvallar, Bergvíkinni. Jonni er áhugasamur kylfingur og að sögn kunnugra lifir fyrir íþróttina. Það er því ekki amalegt að ná draumahögginu á þekktustu golfholu landsins, Bergvíkinni. Jonni er greinilega alvöru sleggja því hann var með 9-járnið í höndunum þegar hvíti golfboltinn rataði í holuna litlu.

ATVINNA

FÓTBOLTASAMANTEKT

Hólmar Örn Rúnarsson skoraði úr víti fyrir Keflavík gegn UBK, fyrsta mark Keflvíkinga í nærri tvo mánuði eða síðan 4. júní. PEPSI-DEILD KARLA

INKASSO-DEILD KARLA

Grindavík tapaði 2:0 gegn KR í Frostaskjóli í fjórtándu umferð. Bæði mörk KR komu á síðustu mínútum leiksins en Grindavík situr í sjötta sæti þrátt fyrir að hafa tapað fjórum síðustu leikjum af sex.

Njarðvík nældi sér í fyrsta heimasigurinn á dögunum þegar liðið mætti Leikni. Leiknum lauk með 1:0 sigri Njarðvíkur en Birkir Freyr Sigurðsson skoraði það á 21. mínútu.

Fjórða tap Grindavíkur í síðustu sex leikjum

Góður leikur Keflvíkinga dugði ekki gegn Blikum

Óskum að ráða bílstjóra. Upplýsingar í síma 893-9916 eða á staðnum.

Keflavík skoraði sitt fyrsta mark í nærri tvo mánuði þegar liðið tók á móti Breiðablik í 14. umferð en lokatölur leiksins voru 1:3 fyrir Breiðablik. Hólmar Örn Rúnarsson skoraði mark Keflavíkur en hann sagði að það hefði verið margt jákvætt í leik þeirra en að þeir hafi verið númeri of litlir.

Grindavík mætti Breiðablik í 11. umferð deildarinnar á dögunum en Breiðablik nældi sér í stigin þrjú og endaði leikurinn 2:0 fyrir gestunum. Grindavík situr í níunda og jafnframt næst neðsta sæti deildarinnar eftir ellefu umferðir.

Iðavöllum 11 b, Keflavík

INKASSO-DEILD KVENNA

Sigurganga Keflavíkur heldur áfram

Keflavík mætti Fjölni í 10. umferð deildarinnar og endaði leikurinn á 2:1 sigri Keflavíkur. Mörk Keflavíkur skoruðu þær Spohie Groff og seinna markið var sjálfsmark. Keflavík situr í efsta sæti deilarinnar eftir tíu umferðir.

2. DEILD KARLA

Markalaust jafntefli á Vogabæjarvelli

PEPSI-DEILD KVENNA

Blikar tóku þrjú stig í Grindavík

Fyrsti heimasigur Njarðvíkur

Þróttur Vogum gerði sitt þriðja jafntefli í deildinni á dögunum þegar liðið mætti Gróttu í 13. umferð deildarinnar. Lokatölur leiksins urðu 0:0 en Þróttur situr í 5. sæti deildarinnar.

Þriggja marka tap Víðis

Víðir mætti Völsungi frá Húsavík í 13. umferð deildarinnar og endaði leikurinn með 3:0 sigri Völsungs. Víðir situr í áttunda sæti deildarinnar.

VERSLUNARMANNAHELGIN KOMUM HEIL HEIM

FYRSTA ÚTIHÁTÍÐIN Í HÚSAFELLI EFTIRMINNILEGUST Ólafur Þór Ólafsson

Áskær sambýlismaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi

ANDRÉS P. EYJÓLFSSON Bóndi Læk Holtum

sem lést á heilbrigðistofnun Suðurlands Selfossi þann 26. júlí, verður jarðsunginn frá Holtakirkju laugardaginn 4. ágúst kl 14.00. Sambýliskona, börn og aðrir aðstendendur

Hvað ætlar þú að gera um verslunarmannahelgina? Það er bara ekki alveg ákveðið í þetta skiptið. Mér finnst þó líklegt að það verði eitthvað kíkt í til tengdaforeldranna í kotið þeirra í Úthlíð og svo kemur bara í ljós hvort það verði farið eitthvað víðar. Ertu vanaföst/fastur um verslunarmannahelgina eða breytir þú reglulega til? Það er ekki mikið um hefðir eða venjur hjá mér um verslunarmanna-

JÓN MARÍUS EMILSSON Stapafelli 12, 260 Njarðvík.

Varð bráðkvaddur á heimili sínu þann 10. júlí sl. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Vinir og vandamenn

Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84

best, allt annað er í raun aukaatriði. Hvað ertu búinn að gera í sumar? Þetta sumar hefur að miklu leyti farið í alls konar stúss í kringum fyrstu skref nýs sveitarfélags. Það hefur varla liðið sá dagur að ég hafi ekki þurft að fara á fund eða sinna einhverjum verkefnum í tengslum við sveitarfélagið þannig að það hefur svo sem ekki verið mikið sumarfrí þannig lagað. Síðan er ég búinn að vera að stússa í húsinu mínu sem ég eignaðist í byrjun árs og svo auðvitað eitthvað að spila bæði með Föruneytinu og 3/4. Ég skrapp reyndar til Brighton í nokkra daga með betri helmingnum og tengdó sem var yndislegt og tek svo nokkra daga á Vestfjörðum fyrir lok sumars eins og ég reyni að gera á hverju ári. Hvað er planið eftir sumarið? Halda áfram að hafa gaman af lífinu og vera hraustur og glaður. Ef það tekst þá verður allt annað svo mikið auðveldara sama hvort það er í kennslu, pólitík, tónlist eða hvað svo sem maður er að fást við. Mig mun í það minnsta ekki vanta verkefnin.

ER FREKAR VANAFÖST UM ÞESSA HELGI

Verið velkomin á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00

helgina. Það er kannski helst að ég er ekki mikið að stressa mig í kringum hana. Ég er t.d. mjög sjaldan að spila einhvers staðar þessa helgi sem er nú frekar óvanalegt fyrir íslenskan tónlistarmann. Það er mjög gaman að kíkja eitthvað þessa helgi en svo getur líka verið ákaflega huggulegt að vera bara heima í rólegheitum í tómum bæ. Hver er eftirminnilegasta verslunarmannahelgin til þessa? Af hverju? Það hefur nú ýmislegt skemmtilegt og eftirminnilegt gerst um verslunarmannahelgina og kannski ekki alveg hægt að hafa það allt eftir í virðulegu blaði eins og Víkurféttum. Ætli fyrsta útihátíðin í Húsafelli 1987 sé nú ekki samt eftirminnilegust þegar maður upplifði þessa einstöku stemningu sem fylgir verslunarmannahelginni í fyrsta skipti. Hvað er nauðsynlegt að þínu mati um verslunarmannahelgina? Gott skap, lífsgleði, góður félagsskapur og svo verður gítar að vera einhvers staðar nálægt til að grípa í. Að vera með fólkinu sínu er auðvitað

Helena Bjarndís Bjarnadóttir

NÝTT

Forvarnir með næringu

Opið alla daga fram á kvöld

STAPAFELL

Hafnargötu 50, Keflavík

Hvað ætlar þú að gera um verslunarmannahelgina? Ætli við fjölskyldan kíkjum ekki aðeins upp í Múlakot á flughátíðina sem þar fer fram. Ertu vanaföst/fastur um verslunarmannahelgina eða breytir þú reglulega til? Frekar vanaföst myndi ég segja. Hver er eftirminnilegasta verslunarmannahelgin til þessa? Af hverju? Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum 2009. Ég upplifði þjóðhátíð í fyrsta skipti, vorum í viku í eyjum í bongó blíðu og brekkusöngurinn á sunnudagskvöldinu toppaði einhvern vegin tilveruna.

Hvað er nauðsynlegt að þínu mati um verslunarmannahelgina? Fjölskyldan, góður félagsskapur og réttur búnaður eftir veðri. Svo skemmir að sjálfsögðu ekki ef veðrið er gott. Hvað ertu búin að gera í sumar? Ég er búin að vera að vinna og þess á milli að njóta stundanna með fjölskyldunni. Hvað er planið eftir sumarið? Fara í sumarfrí og lengja sumarið með utanlandsferð. Annars mun lífið bara ganga sinn vanagang, börnin í skólanum og við hjónin í vinnu.


ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM

fimmtudagur 2. ágúst 2018 // 30. tbl. // 39. árg.

Rigningarsumarið mikla 2018 hefur verið okkur foreldrum nokkuð erfitt. „Jæja strákar, hættiði nú að hanga í tölvunni og drífið ykkur út að leika,“ hefur verið algengur frasi, en þó hefur samviskan ekki alltaf staðist mótmælaraddirnar þegar regnið hefur bulið lárétt á gluggunum. Spil, bækur, legó og allskonar dót hefur verið dregið fram í stutta stund í senn, en alltaf virðast þeir enda aftur í tölvunni. Ég hef haft miklar áhyggjur af þessu og held reglulega ræðurnar um að þetta sé nú alveg ómögulegt og að svona hafi þetta nú ekki verið þegar ég var lítil. Þá lékum við okkur úti frá morgni til kvölds og lásum heilu bókastaflana þegar veðrið var vont. Og urðum þess vegna mjög gáfuð og fróð um alla mögulega hluti. Við hlustuðum líka alltaf á fréttir (höfðum reyndar ekkert val um það þar sem okkur var alltaf sagt að hafa hljóð á meðan fréttatíminn var) og vissum þess vegna allt um það sem var að gerast í heiminum. Ólíkt því sem nú er þar sem mínir menn sitja með heyrnartól og hlusta og horfa bara á það sem þeim þykir skemmtilegt. Þetta getur ekki endað vel, hugsa ég með mér, við endum með heila kynslóð sem er óupplýst, fylgist ekkert með heimsmálunum og hefur bara áhuga á Fortnite og byssuleikjum. En sannleikurinn er sá að þessi umrædda kynslóð er komin ljósárum lengra en við vorum á þeirra aldri og ég ætti að skammast mín fyrir hversu gamaldags þröngsýnn tuðari ég er orðin. Sem ég hét að verða aldrei. Börn í dag eru fróðleiksfús og forvitin og soga í sig alls konar upplýsingar héðan og þaðan. Alveg eins

Njarðvíkingarnir Gunnar Örn Guðmundsson og Daníel Dagur Árnason fóru með fimm manna unglingalandsliði Íslands í til Englands í síðustu viku. Þeir voru að keppa í Keltneskri glímu fyrir hönd Glímusambands Íslands Þar glímdu þeir á þremur mótum í unglinga- og fullorðinsflokki en Daníel náði að leggja andstæðinga sína í nokkrum viðureignum og Gunnar varð þriðji í fullorðinsflokk á einu mótinu ásamt því að verða annar í flokki sextán ára og yngri. Þá varð hann annar í fullorðinsflokki á sama móti.

VERSLUNARMANNAHELGIN KOMUM HEIL HEIM

ÞJÓÐHÁTÍÐ SJÖUNDA ÁRIÐ Í RÖÐ Styrmir Gauti Fjeldsted Hvað ætlar þú að gera um verslunarmannahelgina? Þetta árið verður skellt sér til Vestmannaeyja á Þjóðhátíð í góðra vina hópi. Tökum alla helgina saman eins og við höfum gert síðastliðin ár. Ertu vanaföst/fastur um verslunarmannahelgina eða breytir þú reglulega til? Þetta verður sjöunda árið í röð þar sem ég fer á Þjóðhátíð svo það má segja að ég sé mjög vanafastur. Fyrir mitt leyti er hvergi betra að vera þessa helgina. Hver er eftirminnilegasta verslunarmannahelgin til þessa? Af hverju? Ætla það sé ekki fyrsta Þjóðhátíðin. Að upplifa brekkuna, brekkusönginn

og allt hitt í fyrsta skiptið. Veðrið þessa helgina var einnig frábært sem skemmdi ekki fyrir. Hvað er nauðsynlegt að þínu mati um verslunarmannahelgina? Að vera í góðra vina hópi og komast út úr bænum. Hvað ertu búin að gera í sumar? Skellti mér í helgarferð til Frankfurt og svo hef ég farið í nokkra veiðitúra. Þar fyrir utan hefur maður verið mikið heima bara að bölva veðrinu. Hvað er planið eftir sumarið? Það verður mest lítið held ég bara. Í dag er allavega ekkert sérstakt planað og býst ég ekki við því að það breytist.

LOKAORÐ

Góður árangur Að hanga Njarðvíkinga á glímumóti í tölvunni

15

RAGNHEIÐAR ELÍNAR og við gerðum. Þau hafa hins vegar það forskot að allar upplýsingarnar eru þeim innan seilingar. Ég hékk á bókasafninu og las um alls konar. Sonur minn 10 ára hangir í tölvunni og les um alls konar. Þess vegna getur hann þulið upp öll 197 löndin í heiminum og þekkir fána þeirra flestra. Hann getur sagt mér án þess að hugsa hvenær Abraham Lincoln var forseti Bandaríkjanna og númer hvað Obama var. Áhuginn er svo að færast núna yfir í stjörnukerfið og hann getur ekki beðið eftir að það komi myrkur svo hann geti notað nýja stjörnuappið til þess að læra um stjörnumerkin. Og þrátt fyrir að vera ekki skikkuð til að hlusta á fréttir klukkan 12:20 á hverjum degi fylgjast þau víst með því sem er að gerast. Alla vega 10 ára strákarnir tveir sem sendu mér tölvupóst í dag og spurðu hvort ég væri til í að veita þeim viðtal. Þeir eru með sína eigin fréttastofu á You Tube þar sem þeir framleiða pistla um það sem þeim er hugleikið, t.d. umhverfismál, bíla, internetið og stjórnmál. Og þeir vilja gera frétt um Sundhöll Keflavíkur, heyrðu af því að hugsanlega ætti að rífa hana og finnst það ómögulegt. Þeir fóru að skoða sögu Guðjóns Samúelssonar og sundhallanna hans og ætla sem sagt að fjalla um þetta í næsta þætti. Algjörlega frábært. Við þurfum engar áhyggjur að hafa af þessari komandi kynslóð – ég held hún muni spjara sig vel. Þrátt fyrir að eiga það til að hanga í tölvunni.

PENNAVINIR ÓSKAST Í LEIFSSTÖÐ

Óskum eftir harðduglegu og brosmildu starfsfólki á eftirfarandi vaktir í verslun okkar í Leifsstöð. Viðkomandi þurfa að hafa náð 19 ára aldri.

HÆFNISKRÖFUR •

Um framtíðarstörf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi aðilar geti hafið störf sem fyrst.

Góð tungumálakunnátta

Út í vitann • Reynsla af afgreiðslustörfum æskileg

Skrímslakisi

Verð: • Góð3.499.almenn tölvukunnátta, þekking á Navision er kostur •

Eftirfarandi vaktir eru í boði: Frá kl.04:00-12:00. Vaktaskipulag 2-2-3. Frá kl.12:00-20:00. Vaktaskipulag 2-2-3. Frá kl. 05:00-17:00. Verð: 3.499.- Vaktaskipulag 2-2-3 (fullt starf). Vinsamlegast sækið um á heimasíðu Pennans Eymundsson https://www.penninn.is/is/laus-storf Umsóknarfrestur er til og með 12. ágúst nk.

Rík þjónustulund og jákvæðni

FÍsafirði - Hafnarstræti 2

Surtsey í sjónmáli

Vestmannaeyjum - Faxastíg 36

Verð: 7.499.LeifsstöðLeifs Eiríkssonar Flugstöð

Manndómsár

Út í vitann

Verð: 3.299.-

Verð: 3.499.-

540 2000 | penninn@penninn.is | www.penninn.is | www.eymundsson.is Austurstræti 18

Álfabakka 16, Mjódd

Hafnarfirði - Strandgötu 31

Ísafirði - Hafnarstræti 2

Skólavörðustíg 11

Kringlunni norður

Keflavík - Sólvallagötu 2

Vestmannaeyjum - Faxastíg 36

Laugavegi 77

Kringlunni suður

Akureyri - Hafnarstræti 91-93

LeifsstöðLeifs Eiríkssonar Flugstöð

Hallarmúla 4

Smáralind

Akranesi - Dalbraut 1

Húsavík - Garðarsbraut 9

Vöoktóber, ruúrval mtil ism andi12. eftiroktóber. verslunuUpplýsingar m. Upplýsingeru ar ebirtar ru birtameð r mefyrirvara ð fyrirvaraum umvillur villurog ogmyndabrengl. myndabrengl. ilboða er frá 9. ogunmeð

540 2000 | p

Vöoktóber, ruúrval mtil ism andi12. eftiroktóber. ve Vöruúrval mismunandi eftir verslunum. Gildistími tilboða er frá 9. ogunmeð Up


GÓÐA FERÐAHELGI!

AÐGÁT Í UMFERÐINNI og munum að áfengi og akstur fara ekki saman. Verum tillitssöm og brosum í umferðinni.

Akið varlega!

REYKJANESBÆ

vinalegur bær


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 30. tbl. 39. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu