• Miðvikudagurinn 4. nóvember 2026 • 22. tölublað • 47. árgangur
DREIFT Á SUÐURNESJUM OG HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • DAGLEGAR FRÉTTIR Á VF.IS
Framúrskarandi fyrirtæki á Suðurnesjum verðlaunuð 25 milljónir frá KSK til íþróttastarfs SÍÐUR 8-10 SÍÐA 15
María Rós í Nærmynd Rúntaði Hafnargötuna á Fífí með vinkonum SÍÐA 7
Neyðarkyndistöðvar ekki tilbúnar þrátt fyrir yfirvofandi gosvá Olíukatlar fyrir neyðarkyndistöðvarnar á Fitjum og í Rockville hafa ekki verið settir upp fyrir komandi vetur þrátt fyrir áframhaldandi hættu á kvikuhlaupi og eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni. HS Veitur segja í svari vegna fyrirspurnar Víkurfrétta hafa kallað eftir því að stjórnvöld tryggi nauðsynlegan viðbúnað til að verja húsnæði og lagnakerfi á Suðurnesjum fyrir frostskemmdum ef heitavatnsflutningur frá Svartsengi rofnar. Neyðarkyndistöðvarnar á Fitjum og í Rockville voru settar upp í lok árs 2025 í tengslum við náttúruhamfarirnar á Reykjanesskaga. Þær voru meðal fjölmargra viðbragðsaðgerða stjórnvalda og almannavarna og áttu að tryggja varakyndingu ef heitavatnsflutningur frá Svartsengi stöðvaðist að vetri til. Meginmarkmiðið var að koma í veg fyrir umfangsmiklar
frostskemmdir á húsum og lagnakerfum. Undanfarna vetur hafa stöðvarnar verið hafðar til reiðu með nauðsynlegum búnaði, þar á meðal olíukötlum sem stjórnvöld hafa leigt erlendis frá. Kötlunum hefur verið skilað á vorin vegna mikils leigukostnaðar og minni þarfar fyrir slíkan viðbúnað yfir sumartímann.
Neyðarkyndistöðin á Fitjum í Njarðvík.
Rúmar 46 milljónir safnast fyrir brjóstaskimunartæki á HSS Alls hafa safnast 46,4 milljónir króna til kaupa á brjóstaskimunartæki fyrir Heilbrigðisstofnun Suðurnesja á vef sar.is, þar sem söfnunin fer fram. Söfnunin hefur því náð 92,7 prósentum af 50 milljóna króna markmiði sínu. Söfnunin fer fram undir yfirskriftinni „Stöndum saman um bætta heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum“ og miðar að því að koma brjóstamyndatökutæki á HSS. Markmiðið er nú í sjónmáli. Í kynningarefni söfnunarinnar er vakin athygli á mikilvægi þess að greina brjóstakrabbamein snemma og því hlutverki sem brjóstamyndataka gegnir í þeirri greiningu. Með söfnuninni er lögð áhersla á að efla heilbrigðisþjónustu í heimabyggð.
Varmaskiptar sem almannavarnir létu smíða eru enn á stöðvunum en olíukatlarnir hafa ekki verið fluttir til landsins og settir upp fyrir þennan vetur að því er kemur fram í svari frá Páli Erland, forstjóra HS Veitna. Neyðarkyndistöðvarnar eru því ekki tilbúnar til að gegna því hlutverki sem þeim var ætlað ef heitavatnsflutningur frá Svartsengi rofnar. Þessi staða vekur athygli í ljósi þess að áfram er talin hætta á náttúruhamförum á svæðinu. Samkvæmt áhættumati er kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni enn talin líklegasta sviðsmyndin, enda heldur kvika áfram að safnast fyrir undir Svartsengi. HS Veitur hafa kallað eftir því að stjórnvöld tryggi áframhaldandi viðbúnað neyðarkyndistöðvanna fyrir íbúa og atvinnulíf á Suðurnesjum. Með veturinn fram undan og áframhaldandi gosvá er því enn ótryggt það varaúrræði sem komið var á fót til að draga úr afleiðingum hugsanlegs rofs á heitavatnsflutningi frá Svartsengi.
Hress eftir tíundu hjartaþræðinguna n Axel Jónsson er með fleiri líf en kötturinn „Mér líður alltaf vel eftir þræðingar,“ segir Axel Jónsson, stofnandi og stjórnarformaður Skólamatar. Nýkominn úr sinni tíundu hjartaþræðingu segir hann frá áföllum og ævintýrum í veitingarekstri, húsinu sem hann varð að selja til að greiða skuldir og gæfunni sem fylgdi því að láta börnin sín taka við stjórninni. Axel er í viðtali við Víkurfréttir í dag en ítarlegri útgáfa af viðtalinu verður aðgengilegt í hlaðvarpi og sjónvarpi Víkurfrétta á vf.is síðar í dag, miðvikudag.
20%
Afsláttur ef þú bókar í Noona appinu Annars alltaf velkomið að renna við!
1 6 S Í Ð U R • S TÆ R S T A F R É T T A - O G A U G LÝ S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M F R Á 1 9 8 0
2 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Grindavíkurleiðin til skoðunar en engin útfærsla ákveðin Engin ákvörðun hefur verið tekin um að innleiða Grindavíkurleiðina svokölluðu í íþrótta- og tómstundastarfi barna í Reykjanesbæ. Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri segir hana eina mögulega leið að því markmiði að auka aðgengi barna óháð efnahag og aðstæðum. Málið var rætt í bæjarstjórn Reykjanesbæjar í tengslum við fyrirspurn um íþrótta-, tómstunda- og menningarráð. Í umræðunni var Grindavíkurleiðinni lýst sem fyrirkomulagi þar sem foreldrar greiddu eitt gjald og börn gætu nýtt fleiri en eina íþrótt. Guðný Birna Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingar, sagði skýringarnar varpa ljósi á að leiðinni hefði ekki verið lofað með afdráttarlausum hætti. Hún taldi hins vegar væntingar hafa skapast meðal íbúa fyrir kosningar um lægri gjöld og aukna möguleika barna til þátttöku.
Íþróttahreyfingin eigi að vera í forgrunni Bæjarstjóri sagði Grindavíkurleiðina hafa verið nefnda sem góða leið að markmiðinu. Meirihlutinn hefði þó ekki ætlað að ákveða fyrirfram hvaða útfærsla yrði valin án samtals við íþróttahreyfinguna og aðra sem kæmu að málunum. Hann lagði áherslu á að vinnan ætti að fara fram í samstarfi og samráði þar sem íþróttahreyfingin væri í forgrunni. Markmiðið um aukið aðgengi væri skýrt þótt leiðin hefði ekki verið ákveðin. Guðný Birna vísaði til hóps sem ynni að rýni íþróttamála og sagðist bíða niðurstöðu þeirrar vinnu. Ekki var kynnt á fundinum kostnaðarmat á Grindavíkurleiðinni, ákvörðun um breytt æfingagjöld eða dagsetning á innleiðingu nýs fyrirkomulags.
Nýfjárfestingar Vegagerðarinnar:
Lægsta hlutfall allra landshluta til Suðurnesja Nýtt minnisblað Vegagerðarinnar sýnir að á árunum 2015– 2025 runnu aðeins 2.652 m.kr. til nýfjárfestinga í vegakerfinu á Suðurnesjum. Það jafngildir einungis 1,7% af heildarfjárfestingum á landsvísu og er lægsta hlutfall allra landshluta. Þetta kemur fram í samantekt Berglindar Kristinsdóttur, framkvæmdastjóra Sambands Sveitarfélaga á Suðurnesjum.
„Suðurnes eru eitt helsta vaxtarsvæði landsins. Reykjanesbraut er lykilæð fyrir íbúa, atvinnulíf, ferðaþjónustu, Keflavíkurflugvöll og almannavarnir en þrátt fyrir það er hvorki gert ráð fyrir fjárveitingu né útboði vegna áframhaldandi tvöföldunar Reykjanesbrautar fyrr en eftir 2030. Þetta verður að breytast,“ segir Berglind í færslu sinni á Facebook.
Kostnaður við nýbyggingar í vegagerð á verðlagi hvers árs (2015–2025)
ndshlutasamtök Landshlutasamtök
Heildarkostnaður Heildarkostnaður (m.kr.) Hlutfall (m.kr.)
rðungssamband Fjórðungssamband stfirðinga Vestfirðinga
35.889
sturland
9.482
Vesturland
ðurland vestra Norðurland vestra
6.397
ðurland eystra Norðurland eystra
13.086
sturland
Austurland
17.896
ðurland
Suðurland
39.892
ðurnes
Suðurnes
2.652
uðborgarsvæðið Höfuðborgarsvæðið
35.058
Suðurnesjafólk í öndvegi þegar Þjóðaróperan heimsótti Reykjanesbæ Þjóðaróperan heimsótti Reykjanesbæ sunnudaginn 1. nóvember með opnunarviðburð sinn Undir sömu stjörnu í Hljómahöll. Viðburðurinn markaði jafnframt upphaf samstarfs Reykjanesbæjar og Þjóðaróperunnar en aðilar undirrituðu viljayfirlýsingu í tilefni heimsóknarinnar. Markmiðið er að efla óperulist í sveitarfélaginu, auka aðgengi íbúa að listforminu og skapa fleiri tækifæri fyrir tónlistarfólk á svæðinu. Meðal annars verður horft til þess að bjóða upp á óperusýningar í Reykjanesbæ, þróa fræðsluverkefni fyrir börn og ungmenni og skapa tækifæri fyrir tónlistarfólk til þátttöku í sýningum, vinnustofum og faglegu samstarfi. Samstarfið verður unnið í nánu samráði við Óperufélagið Norðuróp og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og byggir á þeirri aðstöðu, þekkingu og öflugu tónlistarstarfi sem þegar er til staðar í sveitarfélaginu. Það er hugsað til þriggja ára og verður næstu skrefum fylgt eftir með samtali aðila um verkefni
Þeir sem skrifuðu undir viljayfirlýsinguna. Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri, Finnur Bjarnason óperustjóri, Jóhann Smári Sævarsson stjórnandi Norðuróps og Haraldur Árni Haraldsson skólastjóri Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. og tækifæri til áframhaldandi uppbyggingar.
Tónlistarfólk á Suðurnesjum í sviðsljósinu Á sýningunni Undir sömu stjörnu var Suðurnesjafólk svo sannarlega í öndvegi en Tónlistarskóli Reykjanesbæjar og Norðuróp komu að viðburðinum með öflugum hætti. Hljómsveit Norðuróps og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar lék undir stjórn Jóhanns Smára Sævarssonar, Hátíðarkór Norðuróps
kom fram og gestasöngvari var Martyna Patrycja Gesella. Söngvarar Þjóðaróperunnar fluttu perlur úr óperusögunni og leikarar Þjóðleikhússins leiddu áhorfendur í gegnum dagskrána. Viljayfirlýsingin var undirrituð af Vilhjálmi Árnasyni, bæjarstjóra Reykjanesbæjar, Finni Bjarnasyni, óperustjóra Þjóðaróperunnar, Jóhanni Smára Sævarssyni, listrænum stjórnanda Óperufélagsins Norðuróps, og Haraldi Árna Haraldssyni, skólastjóra Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Bláa Lónið á markað og efnir til almenns hlutafjárútboðs Samþykkt að efna til almenns hlutafjárútboðs, sækja um töku hlutabréfa til viðskipta og Hlutfall innleiða kaupréttarkerfi fyrir allt starfsfólk
22,4% 35.889
22,4% Á hluthafafundi Bláa Lónsins hf. í dag var formlega samþykkt að efna til almenns hlutafjárútboðs 5,9% 9.482 og óska 5,9% eftir töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðal4,0% 6.397 markað 4,0% Nasdaq Iceland. Hluthafar samþykktu einnig kaup8,2% 13.086 réttaráætlun 8,2% fyrir allt fastráðið starfsfólk samstæðunnar. 11,2% 17.896 Starfsemi 11,2% Bláa Lónsins hefur vaxið verulega undanfarin ár. 24,9% 39.892 Skráning 24,9%á Aðalmarkað Nasdaq Iceland er stór áfangi í sögu Bláa Skráning mun styrkja og 1,7% 2.652 Lónsins. 1,7% breikka hluthafahópinn og gefa al35.058 menningi, 21,9%fagfjárfestum og starfs21,9% fólki tækifæri til að eiga hlut í einu þekktasta fyrirtæki landsins. Stefnt er að almennu hlutafjárútboði og skráningu í nóvember segir í tilkynningu frá félaginu.
Starfsfólk geti orðið hluthafar
Þétt umferð í vatnsveðri á Reykjanesbraut í Hvassahrauni. VF/hilmarbragi
Kaupréttaráætlunin sem samþykkt var nær til alls fastráðins starfsfólks Bláa Lónsins hf. og dótturfélaga þar sem félagið á yfir 90% hlut í, alls um 700 einstaklinga. Hver kaupréttarhafi öðlast rétt til að kaupa hluti í félaginu fyrir allt að 1.500.000 krónur einu
sinni á ári í fimm ár, á árunum 2028 til 2032, eða samtals fyrir allt að 7.500.000 krónur. „Starfsfólkið okkar er sá hópur sem skapar þá einstöku upplifun og þær einstöku vörur sem viðskiptavinir okkar um allan heim þekkja. Það skiptir okkur miklu að þegar félagið tekur þetta skref inn á markað geti allt fastráðið starfsfólk tekið þátt í vextinum fram undan,“ segir Hildur Þórisdóttir,
framkvæmdastjóri mannauðs Bláa Lónsins. Markmið kaupréttarkerfisins er að halda í og laða að framúrskarandi starfsfólk og gefa því hlutdeild í árangri félagsins. Áætlunin er gerð í samræmi við 10. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og verður borin undir Ríkisskattstjóra til staðfestingar áður en gengið verður frá kaupréttarsamningum við starfsfólk.
Störf í boði hjá Verne Global Customer Support Supervisor Department: Customer Success Reports to Manager: Customer Success Manager Responsibilities/goals: The role is responsible for supervising day-to-day customer support activities and customer projects, coordinating the Customer Support team, and acting as a key escalation and communication point for customers. The overall objective is to ensure reliable, responsive and high-quality customer support 24/7/365.
Job/project description: • •
• • •
• • • • •
•
• • •
Assign and supervise daily tasks for the Customer Success team. Maintain the Customer Success team task list to ensure visibility and effective coordination across the team and management. Monitor customer requests and tasks, ensuring appropriate follow-up and completion. Monitor support tickets in accordance with applicable SLA requirements. Provide operational support and assist with staffing support functions as required, including during emergency situations. Lead customer communications relating to deployments, migrations and remote hands services. Take ownership of complex or highpriority cases when required. Act as an escalation point for customers and Customer Support team members. Escalate significant issues or disputes within the Customer Success team to management as appropriate. Ensure work is carried out in accordance with operational best practices, standards, procedures, manuals and guidelines. Review tickets, calls and chats against established quality standards and conduct improvement sessions where required. Ensure internal and customer-facing information is accurately documented, maintained and kept up to date. Create and maintain procedures, work instructions and training materials for the Customer Support team. Participate in and, where required, lead development and continuous improvement initiatives.
•
• • •
• • • •
• •
• •
Collaborate with Product, Engineering, Sales and Operations teams to communicate customer feedback and support the resolution of systemic issues. Coordinate with vendors, carriers and contractors requiring access to customer spaces. Compile monthly remote hands hours for submission to the Finance team for invoicing. Order required materials, maintain inventory records and ensure appropriate invoicing for customer orders and requests. Collect, analyze and compile data for monthly, quarterly and annual reporting. Comply with all applicable site health and safety requirements. Participate in recruiting, hiring, onboarding, and training new team members; Participate in employee training and continuous improvement program and ensuring that all customer support technicians have been trained in their roles and responsibilities; Provide technical coaching so staff can triage power, cooling, network, and hardware issues accurately; Set individual and team goals; recognize strong performance and address underperformance through documented improvement plans; Build schedules, approve time off, and manage attendance and shift coverage; Perform other duties and responsibilities as reasonably required and assigned by your manager in line with business needs.
Qualifications: • •
• • • •
•
Relevant technical education, vocational qualification, or equivalent practical experience. Previous experience in customer support, technical support, data centre, critical infrastructure, or similar operational environment. Previous supervisory or team leadership experience is preferred. Good understanding of critical infrastructure, including power, cooling, network and hardware systems. Experience working with ticketing systems, SLAs and customer support processes. Strong customer service mindset with the ability to manage customer expectations and handle escalations professionally. Strong organizational and prioritization skills, with the ability to coordinate multiple tasks in a 24/7 operational environment.
• •
•
• • • • •
Ability to coach, train and support team members and contribute to continuous improvement. Strong problem-solving and decisionmaking skills, particularly when dealing with technical or high-priority issues. Excellent communication and interpersonal skills, with the ability to work effectively with customers, colleagues, vendors and contractors. Good documentation and reporting skills with strong attention to detail. Proficiency in standard Microsoft Office applications and relevant operational/customer support systems. Fluent written and spoken English. Ability to work independently as well as collaboratively across teams. Strong commitment to health and safety, operational procedures and service quality.
Infrastructure Technician – Piping & Cooling Systems Department: Verne Operations Reports to Manager: Technical Operations Manager Location: Iceland Responsibilities/goals: The Data Center Infrastructure Technician – Piping & Cooling Systems is responsible for the safe, reliable operation and maintenance of critical liquid-based mechanical infrastructure within the data centre. Combining specialist plumbing and pipefitting expertise with data centre facilities management, the role oversees chilled water loops, direct-to-chip liquid cooling systems, fire suppression infrastructure, and general plumbing. The technician actively uses CMMS and BMS platforms to manage work orders, coordinate preventative maintenance, monitor system performance, and maintain accurate incident and maintenance records.
Duties & Responsibilities Fluid & Cooling System Operations: Perform routine maintenance and servicing on chilled water systems, cooling distribution units (CDUs), heat exchangers, backflow preventers, and chemical dosing systems. Fire Suppression Infrastructure: Oversee dry-pipe, pre-action sprinkler systems, and high-pressure water mist suppression systems in accordance with NFPA 13, 25, and 750 standards. Digital Workflows & CMMS: Create, schedule, track, and close out work orders within the Computerized Maintenance Management System (CMMS). System Monitoring & Reporting: Monitor real-time system metrics (pressures, temperatures, flow rates) via BMS/SCADA and generate detailed root-cause analysis (RCA) and maintenance logs. Water Quality Management: Conduct periodic water chemistry, pH, and conductivity sampling to prevent biofouling, corrosion, and scaling across closed/open loops. General Responsibilities: Support fault finding, emergency response, planned maintenance, and continuous improvement activities related to critical mechanical infrastructure. Perform any other duties reasonably assigned by the manager.
Candidate Qualifications Experience / Licensing: Journeyman Plumber/Pipefitter qualification or a minimum of four years of relevant experience in industrial piping, commercial mechanical/HVAC systems, or mission-critical facility maintenance. Technical Expertise: Strong practical knowledge of piping and mechanical systems, chilled water and glycol loops, liquid cooling systems, fire suppression infrastructure, and the ability to read and interpret P&IDs, technical drawings, and mechanical blueprints. Computer Proficiency: Good computer skills with experience using CMMS and BMS platforms, ticketing systems, and standard office productivity software such as Microsoft Excel and Word. Problem-Solving: Strong troubleshooting skills with the ability to identify faults, investigate root causes, and carry out corrective actions in a structured and safety-focused manner. Safety & Compliance: Strong understanding of safe working practices and the ability to follow site procedures, permits, technical standards, and maintenance requirements. Communication & Teamwork: Good communication and collaboration skills, with the ability to work effectively with operations teams, contractors, vendors, and other technical specialists.
Umsóknir og nánari upplýsingar Umsókn óskast send til victorias@verne.co og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni. Nánari upplýsingar veitir Victoria Solodovnychenko (victorias@verne.co).
4 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Byggja nýja eldisstöð á Reykjanesi sem verður stærsta abalónueldisstöð Evrópu Aurora Abalone lýkur 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu Nesvegur tengir athafnasvæðið á Reykjanesi.
Vara við vetrarþjónustu á Nesvegi aðeins þrjá daga í viku Fyrirhuguð vetrarþjónusta á Nesvegi, sem samkvæmt bókun atvinnu- og hafnarráðs er takmörkuð við þrjá daga í viku, fullnægir ekki þörfum atvinnulífs og umferðaröryggis á svæðinu. Þetta var meðal þess sem bæjarfulltrúar Reykjanesbæjar tóku undir þegar rætt var um áhyggjur fyrirtækja við veginn á bæjarstjórnarfundi á dögunum. Um Nesveg 425 fara daglega vöruflutningabifreiðar, þungavinnuvélar og hundruð starfsmanna. Fyrirtæki í Auðlindagarði HS Orku eru meðal þeirra sem hafa lýst áhyggjum af þjónustunni. Í bókun ráðsins segir að ófærð og hálka geti tafið vöruflutninga, torveldað rekstur og komið í veg fyrir að starfsfólk komist til og frá vinnu. Hvatt er til tafarlauss endurmats á þjónustustigi vegarins.
ekki að fullu byggður upp fyrir þá umferð sem þar væri þegar til staðar. Bæjarstjóri nefndi meðal annars Reykjanesvirkjun, fiskvinnslu, fiskþurrkanir og uppbyggingu landeldis sem starfsemi sem þyrfti öruggar samgöngur. Hann taldi að umferðin ætti eftir að aukast.
Flóttaleið vegna náttúruvár
Alexander Ragnarsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, hvatti til þess að bæjarstjórn legðist öll á eitt við að þrýsta á úrbætur. Róbert Jóhann Guðmundsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, tók undir og vildi að málinu yrði haldið á lofti þar til eitthvað yrði gert. Bæjarstjóri sagði að bókanir atvinnu- og hafnarráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs yrðu sendar þar til bærum yfirvöldum með upplýsingum um umræðuna í bæjarstjórn.
Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri sagði mikilvægi Nesvegar ná langt út fyrir daglega atvinnustarfsemi. Vegurinn gegndi einnig hlutverki við rýmingu vegna náttúruvár og gæti skipt máli ef Reykjanesbraut lokaðist. Hann benti á að þung ökutæki vegna orkuvinnslu og matvælaframleiðslu færu um sama veg og ferðamenn sem þekktu ekki íslenskar aðstæður. Vegurinn væri
Vilja bæði betri þjónustu og uppbyggingu
Aurora Abalone hefur lokið 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu. Fjármagnið verður nýtt til að styðja við stærsta uppbyggingaráfanga í sögu félagsins, sem felst í að byggja upp 100 tonna árlega framleiðslu á abalónum. Abalónur teljast til sælkeraafurða sem eru eftirsóttar hjá fremstu matreiðslumönnum heims. Aurora Abalone byggir á áratugalöngu rannsóknar- og þróunarstarfi sem nú er stefnt að skili hágæða afurðum á kröfuharða markaði erlendis. Félagið rekur hlýsjávarlandeldi í Grindavík og í Auðlindagarði HS Orku á Reykjanesi, þar sem eigið eldiskerfi félagsins, SustainCycle™, nýtir sérstöðu Íslands: kaldan, hraunsíaðan borholusjó sem hitaður er með jarðvarma. Richard K. Dulaney, forstjóri, segir: „ Aurora Abalone hefur skref fyrir skref síðustu áratugi ræktað og þróað einstaka afurð. Við erum með öflugt og reynslumikið alþjóðlegt teymi og teljum góða vaxtarmöguleika fram undan. Nú einbeitum við okkur að því að halda fast utan um fjárfestinguna, samhliða því sem við byggjum upp traust viðskiptasambönd og mætum eftirspurn með aukinni og sjálfbærri framleiðslu.“ Sigurður Pétursson, stjórnarformaður, segir: „Við erum afar þakklát fyrir það traust sem reynslumiklir fjárfestar sýna fé-
laginu, sem gerir okkur kleift að ráðast í stærsta uppbyggingaráfanga þess. Stjórn félagsins réð Richard í starf forstjóra í september. Hann hefur gegnt lykilhlutverki sem fjármálastjóri félagsins og komið náið að undirbúningi þeirrar uppbyggingar sem fram undan er. Hann hefur mikla reynslu af stjórnun fyrirtækja og er með doktorsgráðu í erfðafræði, sem ásamt ástríðu hans fyrir verkefninu mun nýtast félaginu vel.“
Um Aurora Abalone Aurora Abalone er eina abalónueldi Íslands. Félagið ræktar Ezoabalónur (Haliotis discus hannai),
sem eru í hávegum hafðar í japanskri matargerð, og blendinga af Ezo- og rauðri abalónu, í landeldi í Grindavík og á Reykjanesi. Eldisstofn félagsins hefur verið byggður upp í áratugi úr japönskum stofnum frá Hokkaido, Iwate og Miyagi. Eldið nýtir hraunsíaðan borholusjó sem hitaður er með affallssjó frá jarðvarmavirkjun, og sjávarsalat sem ræktað er á staðnum er hluti af fóðri dýranna. Hjá félaginu starfa 11 manns. Félagið undirbýr nú nýja eldisstöð í Auðlindagarði HS Orku sem verður stærsta abalónueldisstöð Evrópu, og byggir upp markaði fyrir afurðir sínar í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 5
Þróun fermetraverðs á Suðurnesjum og samanburðarsvæðum Svæði
2021–2022
2025–2026
Hækkun
Fjöldi samninga*
Keflavík
353 þús.
588 þús.
66,6%
345 / 195
Njarðvík
427 þús.
677 þús.
58,5%
449 / 249
Ásbrú
319 þús.
511 þús.
60,4%
142 / 63
Sandgerði
281 þús.
601 þús.
113,6%
54 / 35
Garður
326 þús.
559 þús.
71,3%
60 / 50
Vogar
418 þús.
584 þús.
39,6%
46 / 64
Reykjanesbær
382 þús.
630 þús.
64,9%
940 / 508
Selfoss
431 þús.
632 þús.
46,7%
530 / 310
Höfuðborgarsvæðið
580 þús.
813 þús.
40,2%
7.827 / 5.745
Fjárhæðir eru miðgildi kaupverðs á fermetra í þúsundum króna. *Fjöldi samninga er sýndur fyrir fyrra og síðara tímabilið, í þeirri röð. Heimild: Karp (karp.is), úr kaupskrá HMS.
Fermetraverð í Reykjanesbæ nánast það sama og á Selfossi Fermetraverð í Reykjanesbæ hefur hækkað um tæp 65% frá árunum 2021–2022, samanborið við rúm 40% hækkun á höfuðborgarsvæðinu. Miðgildi kaupverðs á fermetra í Reykjanesbæ var um 630 þúsund krónur á tólf mánaða tímabili til loka september 2026, nánast það sama og á Selfossi þar sem fermetraverðið var 632 þúsund krónur. Fermetraverð í Reykjanesbæ hefur hækkað um tæp 65% frá árunum 2021–2022, samanborið við rúm 40% hækkun á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í útreikningum Karp (karp.is) úr kaupskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS). Bornir eru saman kaupsamningar sem þinglýst var frá apríl 2021 til mars 2022 og frá október 2025 til september 2026. Á fyrra tímabilinu var miðgildi fermetraverðs í Reykjanesbæ 382 þúsund krónur en er nú 630 þúsund krónur. Hækkunin nemur 64,9%. Á sama tíma hefur fermetraverð á Selfossi hækkað úr 431 þúsund krónum í 632 þúsund, eða um 46,7%. Reykjanesbær var því rúmlega 11% undir Selfossi á fyrra tímabilinu en munurinn er nú nánast horfinn. Þótt fermetraverðið sé orðið svipað er ekki þar með sagt að heildarkaupverð íbúða sé það sama. Íbúðir sem seljast á Selfossi eru að jafnaði stærri og heildarkaupverðið því nokkrum milljónum króna hærra þar.
Hlutfallslegt verðbil við höfuðborgarsvæðið hefur minnkað Á fyrra tímabilinu var fermetraverð í Reykjanesbæ um 66% af verðinu á höfuðborgarsvæðinu en er nú 77,5%. Hlutfallslega hefur bilið því minnkað um þriðjung. Munurinn er þó enn verulegur. Miðgildi fermetraverðs á höfuðborgarsvæðinu er 813 þúsund krónur, eða 183 þúsund krónum hærra en í Reykjanesbæ. Fermetraverðið í Reykjanesbæ er því enn 22,5% lægra. Í krónum talið hefur munurinn aðeins minnkað um 15 þúsund krónur á fermetra, úr 198 þúsund krónum á fyrra tímabilinu í 183 þúsund krónur nú. Svipuð þróun kemur fram þegar nýbyggingar eru undanskildar útreikningunum.
Njarðvík með hæsta fermetraverðið á Suðurnesjum Þegar einstakir byggðarkjarnar á Suðurnesjum eru skoðaðir kemur í ljós að miðgildi fermetraverðs er hæst í Njarðvík, eða 677 þúsund krónur. Þar hefur verðið hækkað um 58,5% frá fyrra tímabilinu þegar það var 427 þúsund krónur. Í Keflavík hefur fermetraverðið hækkað úr 353 þúsund krónum í 588 þúsund, eða um 66,6%. Á Ásbrú hefur það farið úr 319 þúsund krónum í 511 þúsund, sem er 60,4% hækkun.
Í Garði hefur fermetraverðið hækkað um 71,3%, úr 326 þúsund krónum í 559 þúsund krónur. Í Vogum hefur hækkunin verið 39,6% og er fermetraverðið þar nú 584 þúsund krónur.
Nýbyggingar hafa mikil áhrif í Sandgerði Mesta hlutfallslega hækkunin mælist í Sandgerði, þar sem miðgildi fermetraverðs hefur farið úr 281 þúsund krónum í 601 þúsund krónur, eða um 113,6%. Þessa hækkun þarf þó að skoða í ljósi þess að nýbyggingar skýra stóran hluta hennar. Þegar eignum sem byggðar voru á söluárinu eða árinu á undan er sleppt fer fermetraverðið úr 280 þúsund krónum í 468 þúsund krónur. Það jafngildir um 67% hækkun, sem er svipað og í Keflavík og Garði. Einnig ber að hafa í huga að tiltölulega fáir kaupsamningar liggja að baki niðurstöðunum í Sandgerði. Á síðara tímabilinu voru þeir aðeins 35. Sölur í Sandgerði, Garði og Vogum eru almennt mun færri en í stærri byggðarkjörnum og því getur miðgildi fermetraverðs sveiflast töluvert milli ára, meðal annars eftir því hvers konar eignir seljast.
Útreikningar byggja á þinglýstum kaupsamningum Útreikningarnir ná til allra íbúða, bæði í fjölbýli og sérbýli, í kaupsamningum sem HMS hefur merkt nothæfa. Miðað er við þinglýsingardag samninganna. Í Reykjanesbæ voru 940 kaupsamningar á fyrra tímabilinu og 508 á því síðara. Á höfuðborgarsvæðinu voru samningarnir 7.827 á fyrra tímabilinu og 5.745 á því síðara. Um er að ræða útreikninga Karp á miðgildi fermetraverðs í seldum eignum, en ekki formlega húsnæðisverðsvísitölu. Samsetning seldra eigna, meðal annars stærð þeirra, tegund og hlutfall nýbygginga, getur haft áhrif á niðurstöðurnar. Hækkanirnar eru reiknaðar í krónum á verðlagi hvers tímabils og hafa ekki verið leiðréttar fyrir verðbólgu.
BÓLUSETNING GEGN ÁRLEGRI INFLÚENSU 2026 Áhættuhópum sem eru skráðir á HSS er boðið upp á inflúensu bólusetningu á eftirtöldum stöðum: Kirkjulundi,
safnaðarheimili Keflavíkurkirkju á Kirkjuvegi Athugið að gengið inn á framan, frá Kirkjuvegi. Mánudaginn 16. nóvember frá kl. 9-12 Einstaklingar í forgangshópum fá sms boðun á Heilsuveru. Athugið að ef búið að bóka tíma þá á að halda þeirri tímasetningu.
Heilsugæslu í Vogum
Þriðjudaginn 10. nóvember. Bókið tíma.
Heilsugæslu Suðurnesjabæjar Miðvikudaginn 4. nóvember. Bókið tíma.
Ungbarnavernd HSS
Börnum boðið upp á inflúensubólusetningu í Ungbarnavernd valda daga. Bókið tíma.
Reykjanesapótek
er í samstarfi við HSS og er að bólusetja við inflúensu alla virka daga.
Hægt er að bóka tíma á Heilsuvera.is eða í síma 422-0500 á milli kl. 8-16.
Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar: • Allir einstaklingar 60 ára og eldri (Influvac). • Börn undir 5 ára aldri sem náð hafa 6 mánaða aldri við bólusetningu (bóluefni í samræmi við aldur). • Öll börn sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, offitu, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum. Meta þarf frábendingar Fluenz á einstaklings grundvelli og eftir atvikum má nota Influvac þess í stað. • Allir fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, offitu, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum (Influvac). • Barnshafandi (eingöngu Influvac jafnvel þótt hafi ekki náð 18 ára aldri). • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan (Influvac). • Fólk í starfstengdri áhættu vegna samsmits árlegrar inflúensu og fuglainflúensu sbr. frétt í okt. 2023 (Influvac).
Kostnaður vegna inflúensubólusetninga fyrir forgangshópa: Bóluefni gegn inflúensu er forgangshópum að kostnaðarlausu. Um komugjöld í heilsugæslu vegna inflúensubólusetningar gildir 8. gr. reglugerðar nr. 1495 frá 2025 Kveðja, Heilsugæsla HSS
6 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Framtíð íslenskra hafna rædd á Suðurnesjum
Velferðarsjóður Suðurnesja Rauði Krossinn á Suðurnesjum Ungur maður til lækninga í London Jólagjafir til Bráðalegurdeildar geð- og fíknisjúkd. Tvö samlokugrill til Íþróttafélagsins Nes Verðlaun til Vinningshafa í friðar veggspjaldakkeppni Becciadeild Nes Snjallskjár til Akurskóla Njarðvík Ungmennabúðin í Reykjanesbæ 2025 Styrkur til stúlku í íþróttafélagi fatlaðra Sumarbúðir á vegum íþróttafélags fatlaðra Rafstöðvar til Úkraínu Árlegur styrkur til LCIF-alþjóðlegur hjálparsjóður Orkestra Norden, tónleikar á Íslandi Styrkur til konu vegna brunaskemmda Fjölsmiðjan á Suðurnesjum SÁÁ samtökin Styrkur til félagskonu Skátafélagið Heiðabúar /landsmót
500.000 400.000 200.000 100.000 20.778 20.000 68.000 345.194 11.000 100.000 100.000 200.000 211.208 119.000 200.000 200.000 20.000 200.000 200.000
Samtals
3.215.180
Þökkum íbúum á Suðurnesjum fyrir góðar móttökur, þegar við seldum ykkur fallegu jólasælgætis kransana okkar í fyrra. Við munum bjóða ykkur krasana aftur fyrir jólin í ár.
Þú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á
vf is Bílaviðgerðir Smurþjónusta Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979 www.bilarogpartar.is
Heyrðu umskiptin, fáðu heyrnartæki til reynslu
HEYRN.IS HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF Heyrn // Hlíðasmára 19 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is //
Rétturinn Ljúffengur heimilismatur í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
ferðaskipa og aðgengi að dýpkunarþjónustu.
Jóna Árný nýr formaður
Alexandra Jóhannesdóttir er í stjórn Hafnasambandsins.
Á þinginu var jafnframt kjörin ný stjórn Hafnasambands Íslands til næstu tveggja ára. Jóna Árný Þórðardóttir, bæjar- og hafnarstjóri Fjarðabyggðar, var kjörin formaður Hafnasambandsins og tekur hún við af Lúðvík Geirssyni, hafnarstjóra Hafnarfjarðarhafnar. Fulltrúi Suðurnesja í stjórn er Alexandra Jóhannesdóttir. Samþykkt var að næsta hafnasambandsþing verði haldið í Vestmannaeyjum haustið 2028.
Engin húrrahróp hjá sjómönnum yfir október AFLAFRÉTTIR Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is
Þá er október kominn á enda og það er ekki hægt að segja að sjómenn hrópi húrra fyrir nýliðnum mánuði, því hann var býsna erfiður, sérstaklega gagnvart veðurfari. Það gengu ansi miklir stormar yfir landið og það skipti ekki máli hvort bátarnir væru gerðir út frá Suðurnesjum, fyrir austan eða norðan. Allir fengu sinn skerf af veðurfarinu. Það voru helst stóru línubátarnir og togararnir sem gátu verið að veiðum en þeir lönduðu víða um landið. Sóley Sigurjóns GK var með 409 tonn í fjórum löndunum og var öllu landað í Neskaupstað. Hulda Björnsdóttir GK kom líka til Neskaupstaðar en landaði að öðru leyti í Grindavík, var með 517 tonn í fjórum löndunum og mest 160 tonn. Sömuleiðis var Pálína Þórunn GK í Neskaupstað og reyndar líka í Hafnarfirði og var með 231 tonn í fimm löndunum og var þessu reyndar öllu landað í Neskaupstað nema snemma í október þegar Pálína kom til Hafnarfjarðar. Allir frystitogararnir lönduðu í október og gekk vel hjá þeim. Hrafn Sveinbjarnarsson GK kom með 655 tonn í land og Tómas Þorvaldsson GK kom með 827 tonn í land, báðir til Grindavíkur. Baldvin Njálsson GK kom með 783 tonn til Hafnarfjarðar þar sem uppistaðan var ýsa og þorskur, um 311 tonn af ýsu. Hjá línubátunum þá fór frekar illa fyrir Gulltoppi EA sem rær á balalínu frá Skagaströnd, en Stakkavík ehf. á bátinn. Hann landaði í byrjun október 23 tonnum í fjórum róðrum, en síðan kom upp vélarbilun í bátnum og hún var svo stór að hífa þurfti vélina úr bátnum, og er því Gull-
toppur EA úr leik eitthvað út þetta ár meðan unnið er að viðgerð á vélinni. Margrét GK var í Sandgerði og með 68 tonn í 12 róðrum og mest 8,4 tonn, þetta er ágætis afli, en veðurfarið gerði það að verkum að báturinn komst ekki í fleiri róðra. Af hinum línubátunum má nefna að Auður Vésteins SU var með 188 tonn í 18 róðrum og mest 19 tonn. Vésteinn GK 101 tonn í 9 og mest 19,1 tonn. Gísli Súrsson GK 123 tonn í 11 og mest 17,8 tonn. Allt eru þetta Einhamarsbátar og lönduðu þeir að mestu í Neskaupstað og einnig á Stöðvarfirði. Mestu öllum fiskinum frá bátunum var ekið til Grindavíkur til vinnslu. Fjölnir GK var líka í Neskaupstað og var með 158 tonn í 15 róðrum og mest 21 tonn. Aðeins fór að fjölga hjá netabátunum því að tveir bátar á vegum Hólmgríms fóru á þorsknetaveiðar í Faxaflóa, Emma Rós KE sem var með 14,6 tonn í 6 róðrum og Elley GK sem var með 6,4 tonn í 7, Grímsi GK er enn að eltast við ufsann en það gekk tregt hjá honum, var með 81 tonn í 9 og mest 20 tonn. Hann fór alla leið austur að Hornafirði, svo hann þvældist ansi víða. Reyndar var ufsinn mjög erfiður í október og færabátararnir sem reyndu fyrir sér við hann náðu nokkur hundruð kílóum af ufsa eftir daginn, en það hjálpaði til þó að veiðin væri treg að verð á fiskmörkuðum fyrir ufsa voru mjög
há, svo að 500 kg afli af ufsa gaf nokkuð vel af sér. En nóvember er kominn í gang og vonandi lagast veiðin hjá færabátunum.
.is
Styrkir veittir á starfsárinu 2025-2026
skoðun hafnarlaga, orkuskipti í höfnum, skattlagning skemmti-
arit
Kæru velunnarar! Við erum að fara af stað með sölu á sælgætiskrönsunum okkar. Kransinn kostar 10.000 kr. Allur ágóði af sölunni rennur til líknarmála á Suðurnesjum eins og verið hefur. Lionskonur munu fara á milli fyrirtækja eins og verið hefur og bjóða kransa til sölu ein einnig er hægt að leggja inn pantanir í síma 8613409 (Drífa) og Hulda (896-5895). Með ósk um góðar móttökur og þökkum stuðninginn á liðnum árum. Lionsklúbburinn Freyja, Keflavík.
Frá hafnasambandsþinginu í Hljómahöll.
tim
Jólakransar Lionskvenna til styrktar líknarmála á Suðurnesjum
Hafnasamband Íslands hélt 45. hafnasambandsþing sitt í Hljómahöll í Reykjanesbæ dagana 22. og 23. október sl. Þingið var haldið í samstarfi við hafnirnar á Suðurnesjum, Grindavíkurhöfn, Reykjaneshöfn og Sandgerðishöfn. Um hundrað þingfulltrúar frá 31 aðildarhöfn sóttu þingið. Hafnasamband Íslands var stofnað 12. nóvember 1969 að frumkvæði Sambands íslenskra sveitarfélaga og hét upphaflega Hafnasamband sveitarfélaga. Árið 2006 var nafni samtakanna breytt í Hafnasamband Íslands, meðal annars til að opna fyrir aðild hafna sem ekki eru í eigu sveitarfélaga. Meginmarkmið Hafnasambandsins hefur frá upphafi verið að gæta sameiginlegra hagsmuna íslenskra hafna, efla samstarf þeirra og vera öflugur málsvari hafna gagnvart stjórnvöldum. Hlutverk hafna hefur þróast mikið á síðustu árum og verkefni Hafnasambandsins samhliða því. Auk hefðbundinna hafna- og samgöngumála hafa meðal annars umhverfismál, orkuskipti, öryggismál, alþjóðlegir flutningar, skemmtiferðaskip og sjálfbær rekstur fengið aukið vægi. Á þinginu var samþykktar ályktun um ýmis mikilvæg málefni hafna. Þar má nefna uppbygging hafna og þjóðaröryggi, endur-
Öll tölublöð Víkurfrétta frá 1980 og til dagsins í dag eru aðgengileg á
timarit.is
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319. Afgreiðsla og ritstjórn: Hólmbergsbraut 13, (bil 1), 230 Keflavík, sími 421-0000. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Prentun: Landsprent.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 7
María Rós Skúladóttir er alin upp í Lyngholtinu í Keflavík og tekur nú við starfi sviðsstjóra velferðarsviðs Reykjanesbæjar. Hún slakar best á við að brasa, er verkstjóri heimilisins og stenst illa snúð með bleikum glassúr. Í Nærmynd rifjar María Rós meðal annars upp rúntana á Fiat Uno sem hét Fífí, segir frá fyrirhuguðum jólum í Kína og hvers vegna „Full af andstæðum“ væri rétti titillinn á ævisögu hennar. Nafn: María Rós Skúladóttir Árgangur: 1977 Búseta: Reykjanebær Hverra manna ertu og hvar uppalin? Foreldrar mínir eru Inga Lóa Guðmundsdóttirog Skúli Skúlason og ég er alin upp í Lyngholtinu í Keflavík. Starf: Sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjanesbæjar. Hvað er í deiglunni: Ég er fyrst og fremst spennt að taka við mikilvægu hlutverki sem sviðsstjóri velferðarsviðs og fá tækifæri til að vinna með öflugu starfsfólki sem þar vinnur. Framundan eru svo aðeins öðruvísi jól þar sem við ætlum að eyða þeim í Kína þar sem sonur minn er við nám. Hvernig nemandi varstu? Ég held að ég hafi verið ágæt, þó á tímum hafi mér nú þótt aðrir hlutir eins og félagsstarf og skemmtileg heit meira mikilvæg en bókalestur. Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? Við undirbúning fermingadagsins man ég nú helst að það þótti eðlilegt að vera búin að liggja í ljósabekkjum. Það er mér mjög minnistætt þegar vinkona mín sofnaði í einum ljósabekkjana í Perlunni og uppi varð fótur og fit því ekki tókst að vekja hana.
GÆÐA
VARA -F
Y R I R ÍS L E
U
Uppáhaldsmálsháttur eða tilvitnun? Livet er ikke det værste man har og om lidt er kaffen klar.
Besti ilmurinn? Kaffi ilmur á morgnana og lyktin af manninum mínum Á hvaða bíl fórstu fyrsta rúntinn eftir prófið og með hverjum? Ég hafði keypt mér Fiat Uno áður en ég varð 17 ára sem beið mín í innkeyrslunni. Bíllinn hét Fífí og þjónaði sínu hlutverki vel. Ég hef alveg örugglega farið fyrsta rúntinn með vinkonum mínum upp og niður Hafnargötuna með stoppi í lúgunni á Aðalstöðinni. Hvernig slakarðu á? Ég slaka best á því að brasa og finnst fátt betra en að vera að brasa eitthvað í höndunum, þó alls ekki við handavinnu enda arfaléleg í því. En við hjónin keyptum okkur hús á spáni sem við erum að gera upp og þar er mjög gott að slaka á.
U
SK
Hvert var uppáhaldsleikfangið þitt þegar þú varst krakki? Ég á góðar minningar af því að eyða tíma með ömmu og afa í sumarbústaðnum þeirra á þingvöllum þar sem ég var í búleik.
N
R
AÐSTÆÐ
Y R I R ÍS L E
Hvað fer mest í taugarnar á þér? Þegar það er hægagangur á hlutunum
AÐSTÆÐ
AR
-F
Áttu einhverja sérstaka fyrirmynd? Ég sæki fyrirmyndir víða. Oft er það fólk í kringum mig sem sýnir seiglu, hlýju og hugrekki í hversdagsleikanum sem veitir mér mestan innblástur og fólk sem þorir að gera hlutina öðruvísi og lætur verkin tala.
AR
N
Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. Úrval getur verið misjafnt milli verslana.
R
Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu? Kvöldfréttum, the Block og vikunni með Gísla Marteini.
SK
Afsláttur gildir ekki af tilboðsvörum og „Lægsta lága verði Húsasmiðjunnar“.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Ég held að það hafi alltaf blundað í mér lítill félagsráðgjafi og þörfin til þess að vera til gagns í samfélagi manna.
NÆRMYND NÆR MYND
Ók Fífí upp og niður Hafnargötuna með vinkonunum Hvað heldurðu að skjátími þinn sé mikill á hverjum degi að jafnaði? Allt of mikill Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? Ég er verkstjóri á heimilinu og því frekar flink í því að koma hlutum á dagsskrá og útdeila verkefnum. Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? Ég sé um sunnudagssteikina og hægeldað lambalæri þá oftast fyrir valinu. Hvert er hættulegasta helgarnammið? Snúður með bleikum glassúr
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Leti og framtaksleysi
Hver er elsta minningin sem þú átt? Þegar ég var 2-3 ára þá bjuggum við mamma og pabbi á Sólvallargötunni. Þar bjó á efri hæðinni maður sem hét Geiri, fyrsta minningin mín er af mér á leið upp tröppurnar með ilmandi pönnukökur til að færa Geira gamla. Hver er uppáhaldsbókin þín og rithöfundur? Bókin um Jónatan Livingstone máv eftir Richard Bach er bók sem mér þykir vænt um. Bókina fékk ég í gjöf frá vinkonu minni fyrir 30 árum en bókin kennir okkur að vera trú sjálfum okkur og markmiðum okkar en ekki síður að vera óhrædd við að fara okkar eigin leiðir í lífinu. Er orð eða frasi sem þú notar mikið? Koma svo Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Full af andstæðum
Vilja finna hvað stendur að baki fjarvistum barna Nýtt verklag um skólasókn í grunnskólum Reykjanesbæjar á að beina sjónum fyrr að því sem hindrar börn í að mæta í skólann. Verklagið byggir á þremur stuðningsþrepum og leggur áherslu á að sjónarmið barnsins sjálfs séu hluti af mati og ákvörðunum. Í yfirferð í bæjarstjórn Reykjanesbæjar kom fram að ætlunin væri að færa áhersluna frá því að horfa fyrst og fremst á fjölda fjarvista yfir í að greina ástæður vandans. Skólaforðun og erfiðleikar með skólasókn gætu verið flóknir og kallað á mismunandi stuðning. Díana Hilmarsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, sagði stuðningsþrepin ná frá snemmtækri aðstoð innan skólans til aukins stuðnings og þverfaglegrar samvinnu eftir þörfum. Mikilvægt væri að reyna að skilja hvað lægi að baki fjarvistum. Menntaráð hefur lagt áherslu á að verklagið verði innleitt með samræmdum hætti í öllum grunnskólum sveitarfélagsins. Starfsfólk eigi að fá fræðslu og stuðning til að vinna eftir því.
Daglega á vf.is
Fimmtudag til sunnudags
STÓRA
SERÍU
HELGIN
25% Allar seríur, skrautseríur, gluggaljós, aðventuljós o.fl.
Samtengjanlegar LED seríur. Tengdu saman margar seríur, allt að 2.000 ljós á eina kló Frost LED seríurnar fást eingöngu í Húsasmiðjunni og Blómavali. Útiseríurnar þola íslenskt veðurfar mjög vel og hafa reynst einstaklega vel hérlendis. Húsasmiðjan og Blómaval leggja áherslu á að bjóða góðar seríur á lægra verði og breitt vöruúrval sem hentar íslenskum aðstæðum.
afsláttur Gildir einnig á husa.is
SUÐURNESJAFYRIRT Í FREMSTU RÖÐ! VIÐ ERUM STOLT AF ÞVÍ AÐ VERA Í HÓPI FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKJA Á SUÐURNESJUM 2026 SAMKVÆMT ÚTNEFNINGU CREDITINFO
ÚTGERÐARFÉLAG SANDGERÐIS Merki KSK eignir fyrir 4lita offsetprentun Litur: CMYK: C 100 - M 55 - Y 0 - B 55
TÆKI 2026
Framúrskarandi frá upphafi
TRÖNUDALUR EHF.
REA
Hollt, gott og heimilislegt
10 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
VERKFRÆÐISTOFA SUÐURNESJA
REA, SUÐURFLUG OG AIRPORT ASSOCIATES.
LYFTA
Sextíu framúrskarandi fyrirtæki á Suðurnesjum 2026 Sextíu fyrirtæki á Suðurnesjum eru á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki 2026. Fyrirtækin koma úr öllum helstu greinum atvinnulífsins, sjávarútvegi, framleiðslu og verslun, verktakar úr iðnaðargeiranum og hugbúnaðargeiranum.
ÍSLANDSHÚS
Eitt fyrirtæki á Suðurnesjum hefur verið á listanum á hverju ári síðan hann kom fyrst út árið 2010 en það er Verkfræðistofa Suðurnesja sem er á honum í sautjánda sinn. Suðurnesin eru í 3. sæti yfir landshluta utan höfuðborgarsvæðisins hvað varðar fjölda fyrirtækja sem eru framúrskarandi.
Þetta er í sautjánda sinn sem Creditinfo veitir framúrskarandi fyrirtækjum í íslensku atvinnulífi vottun fyrir góðan og traustan rekstur en listinn í ár var gerður opinber á viðburði í Hörpu í síðustu viku. VF fékk nokkrar myndir frá Creditinfo frá afhendingunni.
LAGNIR OG ÞJÓNUSTA
EINHAMAR SEAFOOD
HUG VERKTAKAR
HOTEL KEFLAVÍK OG KEF SERVICE
BENNI PÍPARI
NESRAF
SI RAFLAGNIR
HS VEITUR
GRJÓTGARÐAR
Úrslit leikja og fréttir birtast á
sport
vf.is
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 11
Krefst skýrra svara um völd umbóta- og hagræðingarteymisins Guðný Birna Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingar, óskaði formlegra svara um hvort umbóta- og hagræðingarteymi Reykjanesbæjar gæti tekið lokaákvarðanir um verkefni eða starfsfólk án aðkomu bæjarráðs. Hún sagði pólitíska ákvörðunarvaldið liggja hjá bæjarráði og bæjarstjórn. Fyrirspurnin kom fram við umræðu um gerð fjárhagsáætlunar fyrir 2027 til 2030 í bæjarstjórn Reykjanesbæjar. Þar lá fyrir svar um að teymið gerði ekki sjálft núllgrunnsáætlanir heldur hefði það hlutverk að rýna áætlanir sviðsstjóranna. Guðný Birna gagnrýndi að teymið tæki til við rýnina áður en bæjarráð fengi áætlanirnar til umfjöllunar. Hún óskaði eftir því að skýrt yrði að teymið skilaði tillögum til bæjarráðs en tæki ekki að sér endanlegt pólitískt ákvörðunarvald.
Minnihlutinn á ekki sæti Hún sagði minnihlutanum ekki hafa verið boðið sæti í teyminu og gagnrýndi þá skipan. Spurningar hennar vörðuðu meðal annars hvort rýni hópsins gæti náð til einstakra verkefna og starfsmanna á vinnustöðum bæjarins. Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri hafði fyrr á fundinum lýst teyminu sem hluta af vinnu stjórnsýslunnar
Fannar Jónasson var ráðinn til verktakastarfa í umbóta- og hagræðingarteymi Reykjanesbæjar. við undirbúning áætlunarinnar. Í fyrirliggjandi svörum var hlutverki þess lýst sem rýni áætlana. Kristján Pétur Kristjánsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, varði starf teymisins og sagði það góða viðbót á þessum tímapunkti. Hann gagnrýndi jafnframt að í fyrirspurninni væri talað um sparnaðarteymi fremur en umbóta- og hagræðingarteymi. Teymið var stofnað í sumar en fulltrúar Samfylkingar og Framsóknar greiddu atkvæði gegn tillögunni við afgreiðslu í bæjarráði. Auk embættis- og starfsmanna Reykjanesbæjar er Fannar Jónasson, fráfarandi bæjarstjóri í því. Teymið er tímabundið og á meðal annars að vinna að núllgrunnsáætlun, fara yfir stjórnsýsluog fjárhagsúttektir og leggja til hagræðingaraðgerðir. Samkvæmt samþykktinni er ekki greitt sérstaklega fyrir þátttöku í teyminu, en Fannar Jónasson starfar samkvæmt sérstökum verktakasamningi.
Sóknarsjóður veitir tuttugu at vinnurekendum í Grindavík styrk Byggðastofnun hefur úthlutað tæpum 67 milljónum króna úr Sóknarsjóði til 20 smærri atvinnurekenda í Grindavík. Flestir fá um 3,6 milljónir króna í styrk. Þetta er önnur úthlutun úr sjóðnum en í þeirri fyrri, í nóvember 2025, fengu 33 fyrirtæki samtals um 130 milljónir króna. Styrkirnir fara til kaupa á tækjum og búnaði og til breytinga á rekstri sem styrkja starfsemi í bænum. Meðal þeirra sem fá styrk eru veitingastaðir, ferðaþjónusta, flutningafyrirtæki, iðnaðarmenn, tannlæknastofa og Fisktækniskóli Íslands. Fjórtán þeirra fengu líka styrk í fyrri úthlutuninni og sex bætast nú við. Áherslan í úthlutun hefur breyst frá fyrri umferðinni. Haustið 2025 mátti sækja um rekstrarstyrk til allt að sex mánaða og um styrk til að flytja starfsemi frá Grindavík. Nú eru eingöngu veittir styrkir til að byggja upp starfsemi í bænum. Ríkisstjórnin ákvað í mars 2025 að styðja atvinnulíf í Grindavík og stofnaði Sóknarsjóð. Byggðastofnun sér um sjóðinn og féð kemur úr varasjóði byggðaáætlunar. Fyrirtæki og einstaklingar geta fengið styrk ef þeir voru með starfsemi í Grindavík 10. nóvember 2023, daginn sem bærinn var rýmdur. Velta ársins 2023 þurfti að vera undir 250 milljónum króna og að minnsta kosti einn starfsmaður á launaskrá. Úr Sóknarsjóði hafa nú farið um 197 milljónir króna til atvinnulífs í Grindavík. Eftirfarandi aðilar hlutu styrk: Njóttu ehf., Fjórhjólaævintýri ehf., Bryggjan Gastro ehf., 240 ehf., Pepp ehf., HP flutningar ehf., Ragnheiður Þóra Ólafsdóttir, Fisktækniskóli Íslands ehf., Gistihúsgrindavíkur ehf., Torfhóll ehf., Rúnar Málari ehf., Guðlaugsson ehf., Víkurfrakt ehf., VIGT ehf.,
Sæbýli rekstur ehf. og Fishhouse ehf. hlutu hvert um sig 3.570 þúsund króna styrk. PGV Framtíðarform ehf. hlaut 3.214 þúsund króna styrk, Tannlæknastofa Grindavíkur ehf. 3.142 þúsund króna styrk, Hérastubbur ehf. 2.142 þúsund króna styrk og VK list ehf. 1.071 þúsund króna styrk.
N779XW / WH001 er fyrsta 777X-9 prófunarvélin. Hún er því ekki venjuleg farþegavél heldur full af prófunarbúnaði og mælitækjum. Hér er hún á austurhlaði Keflavíkurflugvallar í síðustu viku. VF/hilmarbragi
Lengsta farþegaþota heims prófuð í Keflavíkurvindi Fyrsta 777X-9 tilraunavél Boeing kom til Keflavíkurflugvallar á dögunum og nýtti sér hausthvassviðri og fékk rigningu í kaupbæti. Vélin var hingað komin til hliðarvindsprófana en henni var flogið frá Seattle. Þetta er í fyrsta sinn sem Boeing 777X-9 kemur til Íslands en vélin er stærsta tveggja hreyfla farþegaþota heims, hún er 76,7 metra löng og með 71,8 metra flugvænghaf á flugi og er hönnuð fyrir að bera 375 til 450 farþega. Í þessari Íslandsheimsókn var stjórnhæfni flugvélarinnar og afköst metin við krefjandi vindaðstæður en vottunarferli 777X heldur áfram. Vélin er fjórum metrum lengri en Jumboþota Boeing 747-8 og verður sú lengsta í heimi. Það sem er áhugavert við þessa nýju vél eru vængendarnir. Boeing 777X er með samanbrjótanlega vængenda. Þegar vélin er í flugi er vænghafið 71,8 m, en þegar hún er á jörðu eru endarnir felldir upp og vænghafið verður aðeins 64,8 m. Þetta gerir Boeing kleift að hafa mjög langa og skilvirka vængi í flugi án þess að vélin verði of breið fyrir mörg hefðbundin flughlið að
Vélin með uppbretta vængenda. Mynd: Boeing því er fram kemur á heimasíðu Boeing.
Af hverju er Boeing að prófa hana í Keflavík? En af hverju er Boeing að mæta til Keflavíkur til prófana? Málið er að vélin þarf að sýna fram á hvernig vélin ræður við mjög sterkan hliðarvind við flugtak og lendingu áður en hún fær endanlega tegundarvottun. Boeing leitar því bókstaflega að stöðum þar sem líklegt er að fá nógu mikinn vind og þar kemur Keflavíkurflugvöllur til sögunnar og ekki í fyrsta skipti en þar eru sterkir og breytilegir vindar, tvær langar og breiðar flug-
brautir sem liggja í mismunandi áttir, auk þess að á flugvellinum er góð aðstaða fyrir stórar flugvélar. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Keflavík gegnir þessu hlutverki; þar hafa meðal annars farið fram hliðarvindsprófanir á eldri Boeing 777 og Airbus A380 og A350. Og þessi tiltekna vél er enn merkilegri. N779XW / WH001 er fyrsta 777X-9 prófunarvélin. Hún er því ekki venjuleg farþegavél heldur full af prófunarbúnaði og mælitækjum. Vélin er enn í vottunarferli. Boeing sagði í sumar að prófunarflotinn hefði farið meira en 4.800 flugtíma og um 1.700 flugferðir, og stefnt væri að fyrstu afhendingum árið 2027.
Jólalýsing í kirkjugarðinum að Stað í Grindavík Yfir jólatímann býður TG raf / Kælismiðjan Frost upp á þjónustu við jólalýsingu í kirkjugarðinum að Stað í Grindavík. Gjald fyrir þjónustuna er kr. 8.990 á hvern kross en innifalið í því er eftirfarandi: •
Starfsmenn TG raf / Frost setja upp krossa fyrir 1. í aðventu þegar kveikt er á garðinum við hátíðlega athöfn.
•
Starfsmenn TG raf / Frost sjá um minni háttar viðhald á krossum, peruskipti, viðhald raflagna ofl.
•
Ef um stærri viðgerðir eða skemmdir er að ræða er haft samband við eiganda sem tekur ákvörðun um framhaldið.
•
Eftir þrettándann er slökkt á ljósum, krossar teknir niður og geymdir hjá TG raf / Frost fram til næsta árs.
Þjónustan endurnýjast sjálfkrafa milli ára en sé óskað eftir breytingum eða nýjum krossi má hafa samband við skrifstofu TG raf / Frost í síma 464-9400 milli kl. 8:00 og 15:00 virka daga eða senda á netfangið skrifstofa@tgraf.is.
Greiðsluseðlar eru sendir undir nafni Kælismiðjunnar Frost ehf. Nánari upplýsingar á Facebooksíðu TG raf
12 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Axel Jónsson er með fleiri líf en kötturinn
Hress eftir tíundu hjartaþræðinguna „Mér líður alltaf vel eftir þræðingar,“ segir Axel Jónsson, stofnandi og stjórnarformaður Skólamatar. Nýkominn úr sinni tíundu hjartaþræðingu segir hann frá áföllum og ævintýrum í veitingarekstri, húsinu sem hann varð að selja til að greiða skuldir og gæfunni sem fylgdi því að láta börnin sín taka við stjórninni. „Mér líður bara rosalega vel,“ segir Axel, sem þekkti einkennin þegar hann fór í göngutúr með Þórunni Halldórsdóttur, eiginkonu sinni, í síðustu viku. „Ég var búinn að finna fyrir þessu síðustu tvo mánuði, voðalega lítið, en ég vissi þetta. Það er ekki nema ár síðan ég fór í níundu þræðinguna.“ Eftir örfá skref fann hann að eitthvað var að. Hann lauk samt göngunni og settist í sófann þegar heim kom. „Þetta er sami verkurinn og síðast og lýsir sér nákvæmlega eins. Ég hugsaði með sjálfum mér: Hvað á ég að gera? Það er bara með okkur karlmenn, við viljum ekki alveg viðurkenna þetta strax.“ Hann kallaði í Þórunni og bað hana að hringja í 112 og endaði svo á að hringja sjálfur. Morguninn eftir var hann kominn í tíundu hjartaþræðinguna. „Ég var dálítið harður í þetta skipti þótt verkurinn væri ekki mikill. Hugsaði með mér: Ég fer ekkert heim. Af því að ég veit að þetta er eitthvað í kransæðunum.“ Hann fylgdist vakandi með aðgerðinni á skjá. „Ég sá hvernig hann opnaði æðina. Þetta var hliðarkransæð sem var smá stífla í og hann bara lagaði það og sagði: Ég sé þig seinna.“
Fyrsta þræðingin aðeins 41 árs Fyrsta hjartaþræðingin var árið 1991, fyrir aldarfjórðungi. Þá var Axel 41 árs. „Það var töff hjartaþræðing og önnur hjartaþræðing var í raun og veru hjartaáfall með sjálfsagt einhverri skemmd. Það var rosalega töff.“
... Það voru engar greiningar í gamla daga en ég var ofvirkur, lesblindur og með athyglisbrest. Ég var einu sinni í viku hjá læknum að láta sauma í putta eða í hausinn eða einhvers staðar. Ég var alltaf einhvers staðar...
Hefur hann verið hræddur um að deyja eftir þessa löngu reynslu af hjartaveseni? „Sjálfsagt, eflaust, það er engin spurning. En seinni ár hefur það dvínað. Maður treystir þessu fólki, þessum læknum og hjúkrunarfólki.“ Hann segir framfarirnar gríðarlegar frá fyrstu aðgerðinni. „Ég man eftir fyrstu þræðingunni. Þá var þetta gömul vél og rosalega skrýtið hvernig þeir gerðu þetta. Í dag er þetta í raun og veru rosalega einfalt. Vellíðanin er svo gríðarleg eftir svona aðgerð. Þér líður svo vel og þú ert svo sáttur.“
Missti ömmu sína, systur og afa Axel ólst upp hjá afa sínum og ömmu á Borg í Sandgerði. Fyrsta minningin er af því þegar hann horfði út um gluggann á vindmyllu við húsið. „Þar var ég alinn upp hjá afa og ömmu við gott atlæti. Fyrstu leikfélagarnir mínir voru fiskiflugurnar í gluggunum.“ Hann var fjörugur strákur og rúmlega það. „Það voru engar greiningar í gamla daga en ég var ofvirkur, lesblindur og með athyglisbrest. Ég var einu sinni í viku hjá læknum að láta sauma í putta eða í hausinn eða einhvers staðar. Ég var alltaf einhvers staðar.“ Tíu ára gamall varð hann fyrir miklum missi. „Amma mín og systir mín deyja í bílslysi. Það er náttúrulega mikil sorg en afi lifði þetta bílslys af. Ég er hjá honum í eitt ár í viðbót en þá deyr hann líka.“ Eftir það var hann til skiptis hjá foreldrum sínum, í Sandgerði og Hafnarfirði. Vinnan hófst hins vegar löngu áður. Um fimm ára
aldur flokkaði hann gosflöskur í trékassa og síðar vigtaði hann kartöflur og matarkex í verslun föður síns. „Afi minn var kaupmaður og pabbi minn var kaupmaður þannig að það var auðvelt að fá vinnu.“ Um þrettán eða fjórtán ára aldur rak hann fiskbúð fyrir föður sinn. „Ég var ekki með fiskibollur eða marineraðan fisk. Þetta voru gellur, kinnar, saltfiskur, skata og reyktur fiskur.“ Var rekstraráhuginn þá vaknaður? „Nei, þú varst ekkert að hugsa. Þú varst bara að vinna og fá útborgað.“
„Þú stjórnar mér ekki. Ég ætla að verða kokkur“ Axel kláraði Flensborgarskólann í Hafnarfirði eftir grunnskólagöngu í Sandgerði. Hann var ekki viss um framtíðarstarfið sitt. Eftir gagnfræðanámið hugðist hann læra iðn. Rafvirkjun, pípulagnir eða smíðar komu til greina en atvinnuástandið var erfitt og námssamningur fékkst ekki. Það var svo síðdegis haustið 1968 og Axel var að vinna í verslun föður síns þegar hann fékk símtal frá móður sinni í Hafnarfiðri. Hún spurði: „ Axel, viltu ekki verða kokkur? Axel leist vel á það. Hann þurfti þá að taka rútuna um kvöldið og mæta í skólann morguninn eftir. Friðrik, móðurbróðir hans og skólastjóri Hótel- og veitingaskólans, hafði útvegað honum pláss. „Ég fór að leita að pabba og sagði: Pabbi, ég er að fara í bæinn til mömmu. Nú? Já, ég ætla að verða kokkur. Já, allt í lagi, bless.“ Ekki þurfti að ræða það frekar. „Ég fór heim að ná í tannburstann og það litla sem ég setti í eina litla tösku. Klukkan átta um morguninn var ég mættur upp í Sjómannaskóla.“
Í starfsnáminu í flugeldhúsinu á Keflavíkurflugvelli mætti hann mótlæti. „Það var einn maður sem gerði í því að rakka mig niður. Ég væri kaupmannssonur, yrði aldrei kokkur og ætti bara að vera búðarmaður.“ Eitt laugardagskvöld gekk hann út og hugleiddi að hætta. Vinirnir voru á balli í Stapa. „Ég hugsaði: Á ég ekki bara að hætta þessu helvítis kokkaríi? Ég verð aldrei kokkur, það er líklega rétt sem hann er að segja.“ Svo sneri hann við. „Ég labbaði inn í eldhús og sagði við viðkomandi: Þú stjórnar mér ekki. Ég ætla að verða kokkur. Og hélt áfram að vinna. Við vorum bestu vinir seinna.“ Eftir námið bauðst honum áframhaldandi starf á Hótel Loftleiðum. Þegar hann nefndi launakröfuna stóð hótelstjórinn upp, tók í hönd hans og þakkaði samstarfið. „Það var ekki gefinn séns á að ræða launin eða eitthvað slíkt.“ Eftir stutt atvinnuleysi og starf á öðrum veitingastað kom enn símtal frá Friðriki. Nú vantaði matreiðslumann á Laugarvatn. Axel og Þórunn fóru að skoða aðstæður og leist vel á þær. Þau dvöldu þar í fimm ár með Jóni syni sínum. Axel segir árin hafa verið góðan skóla. Fjölskyldan hafði frítt fæði og húsnæði, gat lagt fyrir og byggt sér raðhús í Keflavík áður en hún flutti aftur suður með sjó. Þar reyndi hann fyrst að fá vinnu í Fríhöfninni, án árangurs. Stuttur túr sem kokkur á sjó hjá þeim Hilmari og Oddi á Stafnesi
FRÁ MIÐVIKUDEGINUM 4. NÓVEMBER.
KE sannfærði hann svo um að sjómennskan ætti ekki við hann. Tengdamóðir hans átti hins vegar tillögu. Hún hafði rekið verslun að Smáratúni 28 og var að hætta. Gæti hann ekki nýtt húsnæðið fyrir veisluþjónustu? Axel innréttaði eldhús og hófst handa. Verkefnin urðu fleiri, veislurnar stærri og vinnudagarnir lengri. Hann var beðinn um mat fyrir fermingar og samkomur vítt og breitt um Suðurnes og tók verkefnunum fagnandi. Þarna kom líka fljótt í ljós eiginleiki sem átti eftir að fylgja honum lengi. „Eitt af því sem ég hef ekki kunnað, það er að segja nei.“
Bæjarstjórnin fékk steik en ekkert vín Árið 1983 opnaði hann Glóðina við Hafnargötu. Þar voru steikur og sjávarréttir en ekkert vínveitingaleyfi. „Það voru margir búnir að sækja um vínveitingaleyfi á Suðurnesjum og því var alltaf hafnað.“ Axel bauð bæjarstjórninni í mat. „Þeir pöntuðu flottar steikur og sjávarrétti. Svo þegar allir voru búnir að fá matinn sögðu þeir: „Heyrðu, hvar er vínið? Við ætlum að fá hvítvín og rauðvín með steikinni. Já, nei, það er ekki í boði í þessum bæ,“ sagði ég. Því er alltaf hafnað.“ Viðbrögðin létu ekki á sér standa. „Þá sögðu þeir: Hafðu samband við okkur eftir helgi. Ég gerði það og vínveitingaleyfið kom.“
Varnarliðsmenn frábærir kúnnar „Þeir komu klukkan fimm og voru búnir að borða klukkan sjö þegar Íslendingarnir komu. Keflvíkingum fannst hálfhallærislegt að fara á veitingastað að borða en borða ekki heima hjá sér. Þetta var ekki menning þá. Það tók tíma að fólk þyrði að fara og fá sér að borða en það breyttist fljótt.“ Síðan bættust við flugmatur fyrir Arnarflug, pizzustaðurinn Langbest og dansleikir á efri hæðinni. „Allt var í gangi og þetta var bara mér ofviða í raun og veru. Ég kom stundum heim klukkan fimm um morguninn úr vinnu þegar ég var búinn að vera frá því átta. Svona var lífið. Þetta var bara rugl.“ Hann seldi veitingastaðina og einbeitti sér að flugmat og veisluþjónustu á Iðavöllum.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 13
Axel var kjörinn Maður ársins á Suðurnesjum 2010 af VF. Hér er hann sama ár með krökkum úr Gerðaskóla.
Heimilið fór fyrir skuldunum Þegar Arnarflug varð gjaldþrota segir Axel félagið hafa skuldað sér sautján milljónir króna. „Þeir höfðu ekki borgað mér í þrjár vikur. Þegar ég kom heim voru þeir farnir á hausinn og ég fékk ekki borgað. Hvað átti ég að gera? Ég átti að borga skuldirnar sem lágu á mér. Svo ég seldi húsið.“ Hann hélt áfram og var einu sinni flugvellinum í Lúxemborg kom hann auga á Arngrím Jóhannsson hjá Atlanta. „Ég hljóp bara á hann og sagði: Sæll, Arngrímur. Axel Jónsson heiti ég. Ég var með matinn fyrir Arnarflug. Á ég ekki að taka matinn fyrir þig í Atlanta?“ Arngrímur bað hann að hitta sig í Mosfellsbæ á mánudagsmorgni. „Ég var mættur. Þar skrifuðum við undir samning. Ég hafði reynslu, kunni þetta og hafði gott orð á mér fyrir að framleiða mat og þjóna fólki. En ég hafði ekkert gott orð á mér í bankanum.“
Þrír leikskólar og ný byrjun Undir lok tíunda áratugarins var Axel aftur með lítið að gera. Hugmyndin að skólamáltíðum hafði þá lengi blundað í honum, allt frá því hann sat í bæjarstjórn og skólanefnd og rætt var um einsetningu skóla. „Þá hugsaði ég með mér: Þarna er tækifæri.“ Á erfiðum degi á Iðavöllunum tók hann ákvörðun um að bretta upp ermarnar. Skömmu síðar hringdi Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, og bað hann að bjarga matarmálum þriggja leikskóla. Axel hringdi í vin sinn, matreiðslumanninn Guðjón Vilmar Reynisson. „Villi, það er komið verkefni. Ertu til í að koma? Hann kom til mín og við byrjuðum að undirbúa. Viku seinna vorum við byrjaðir að afgreiða þrjá skóla í Hafnarfirði.“ Þetta varð upphaf Skólamatar. Til að undirbúa reksturinn keypti Axel tölvu, lærði undirstöðuatriði í Excel og dvaldi í viku hjá vinafólki á Ísafirði við áætlanagerð.
„Ég setti alla matseðla, verð og allt saman inn í tölvuna. Ég reiknaði út að til þess að ná núlli þyrfti ég þrjú þúsund skólamáltíðir.“ Bankarnir voru tregir til að lána. Hann samdi við lánardrottna og bað um frest. „Ég ætlaði mér að borga. Ég þurfti bara frest.“ Að lokum fékkst fyrirgreiðsla og viðskiptunum fjölgaði. Nú ætlaði hann líka að hafa allt uppi á borðum. Hann viðurkennir að hafa áður tekið þátt í „svörtum“ greiðslum og ekki gefið allt upp. „Ég hætti því öllu, hafði nótu fyrir öllu og gerði allt rétt. Þetta átti ekki að klikka.“
„Þrír geta ekki stjórnað“ Fanney dóttir Axels kom til starfa og tók utan um fjármálin. „Ég sagði við hana: Ég verð á gólfinu að vinna og framleiða. Þú sérð um heftið, borgar reikninga og rukkar.“ Jón sonur hans, Nonni, hafði síður viljað koma nálægt veitingarekstri en gekk til liðs við fyrirtækið árið 2009. „Ég fann alveg að þrír geta ekki stjórnað. Það verður einn að ráða. En það var gaman að fá börnin í fyrirtækið.“ Axel segir Jón vera varkáran á meðan hann sjálfur komi með nýjar hugmyndir daglega. „Sumar fá að lifa en aðrar ekki. Ég fann að ég átti að draga mig út og sætta mig við að láta þau um þetta. Það hefur verið gæfa hjá mér.“ Nú segir hann um 250 starfsmenn hjá Skólamat vera með 18 þúsund aðalmáltíðir framleiddar daglega og f immtán þúsund skammta af morgunverði og síðdegisnesti til viðbótar. Skráning á neyslu og afgöngum hafi gert fyrirtækinu kleift að áætla magnið nákvæmar. „Við erum búin að vinna niður matarsóun. Það er til hagsbóta fyrir okkur og samfélagið.“ Maturinn byggist áfram á kunnuglegum réttum. Hvað er verið að elda ofan í börnin?
„Íslenskan mat, steiktan fisk, soðinn fisk. Þetta er ekkert flókið. Fiskibollur, grjónagrautur, kjötsúpa, hakk og spagettí. Æðislegur matur.“ Axel segir traust skólastjórnenda skipti miklu. „Ef skólastjórinn sleppur við að hugsa um mötuneytið og treystir fólkinu sem sér um það er það gríðarlegur léttir á hans álagi. En við gleymum því aldrei að skólastjóri ræður á skipinu. Við erum bara hluti af áhöfninni.“
Úr 4 lítrum í 4-5 þúsund skammta Á Ljósanótt er Axel enn í kokkagallanum að gefa kjötsúpu. Ásmundur Friðriksson hafi átt hugmyndina. „Ég byrjaði með fjörutíu lítra pott. Í dag erum við að fara í fjögur til fimm þúsund skammta. Þetta er svakalega gaman.“ Heima njóti hann þess líka að elda fyrir þau Þórunni. „Ég reyni alltaf að hlaupa og ná í pönnuna á undan henni. Mér finnst svo gaman að leggja fallega á borð, hafa kerti og elda einfaldan, góðan mat.“ En hver er uppáhaldsmaturin þinn? „Ætli það sé ekki bara saltkjöt og baunir.“ En hvaða ráð á hann fyrir ungt fólk sem vill hefja rekstur? „Þú verður að hafa trú á því sem þú ert að gera. Auðvitað áttu að hlusta á aðra sem vilja gefa þér góð ráð. Svo meturðu sjálfur hvað þér finnst rétt.“ Og fara ekki of geyst. „Byrja smátt, taka þetta skref fyrir skref. Ekki byrja á toppnum.“ Sjálfur hafi hann aldrei séð fyrir sér hvert Skólamatur myndi ná. „Þetta er framar vonum. Ég leysti bara hvern dag fyrir sig og geri í raun og veru enn.“ Hvað stendur þá upp úr eftir öll árin, áföllin og sigrana? „Ég tek bara þakklætið.“ Og hann bætir við: „Ekki gleyma að þakka fyrir það sem þú hefur.“ Axel, Jón og Fanný heimsóttu Stapaskóla í lok árs í fyrra og heilsuðu upp á börnin.
Vel heppnuð árshátíð Skólamatar
Árshátíð Skólamatar fór fram laugardagskvöldið 24. október á Hilton Reykjavík Nordica þar sem um 320 manns komu saman og áttu ánægjulega kvöldstund. Gestir nutu góðs matar og drykkja og skemmtidagskráin var ekki af verri endanum. Herra Hnetusmjör skemmti gestum og hljómsveitin Bandmenn hélt uppi fjörinu fram eftir kvöldi.
14 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Nýtt samstarf sagt hafa leyst biðlista í skammtímavistun Elsku hjartans móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
KATRÍN BJÖRK FRIÐJÓNSDÓTTIR DÆDÝ lést á Hrafnistu, Nesvöllum 21. október. Útför hennar fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju miðvikudaginn 11. nóvember kl. 13. Innilegar þakkir til starfsfólks Hrafnistu fyrir kærleiksríka umönnun. Friðjón Viðar Pálmason Soffía Sveinsdóttir Ásdís Björk Pálmadóttir Páll H. Ketilsson Jóhanna Björk Pálmadóttir Arnar Aðalsteinsson barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ERNA SIGRÍÐUR EINARSDÓTTIR snyrtifræðingur Vallarbraut 2, Njarðvík
lést á Hrafnistu Hraunvangi, þriðjudaginn 20 október. Útför fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju fimmtudaginn 5. nóvember kl. 13. Innilegar þakkir til starfsfólks Bylgjuhrauns fyrir kærleiksríka umönnun.
Tryggvi Daníel Jónsson Ingibjörg Jónsdóttir Ásgeir Eyþórsson Anna María Jónsdóttir Emil Hafsteinsson barnabörn og barnabarnabörn
Sameiginlegt úrræði Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar hefur leyst biðlista vegna Heiðarholts og skammtímavistunar fyrir fötluð börn, að sögn Guðnýjar Birnu Guðmundsdóttur, bæjarfulltrúa Samfylkingar. Hún greindi frá því við umræðu um húsnæðismál velferðarþjónustunnar í bæjarstjórn Reykjanesbæjar.
Guðný Birna sagði úrræðið hafa komið til fyrir nokkrum mánuðum. Hún tengdi það við breytta stöðu húsnæðisþarfar eftir að á síðasta kjörtímabili hefði ríkt mikil þrenging í aðstöðu fyrir ýmis verkefni velferðarsviðs. Meðal þeirra verkefna sem hún nefndi voru þjónusta við fötluð börn og barnaverndarmál. Húsnæðisþörfin hefði meðal annars
Spyrja hvað verður um húsnæði Selsins eftir flutning dagdvalar Óskað hefur verið formlegra svara um hvað Reykjanesbær hyggst gera við húsnæði Selsins þegar dagdvalarstarfsemi þar hefur verið flutt á Nesvelli. Guðný Birna Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingar, lagði fyrirspurnina fram í bæjarstjórn Reykjanesbæjar við umræðu um sameiningu dagdvala. Hún rakti að á síðasta kjörtímabili hefði verið mikil húsnæðisþörf í velferðarþjónustu, meðal annars vegna úrræða fyrir fötluð börn og
verkefna barnaverndar. Á þeim tíma hefði verið ákveðið að flytja starfsemi Selsins á Nesvelli. Guðný Birna sagði flutninginn jafnframt hafa gefið tækifæri til samnýtingar húsnæðis, aðstöðu og starfsfólks dagdvalarinnar á Nesvöllum. Hún vísaði til þess að sameiginlegt úrræði með Suðurnesjabæ hefði nýlega tekið til starfa og leyst biðlista vegna Heiðarholts og skammtímavistunar fatlaðra barna. Í ljósi þess vildi hún fá að vita hvað
Fyrirhuguð bygging við Iðjustíg 1 hefur verið lækkuð, íbúðum fækkað og hlutfall bílastæða aukið í kjölfar athugasemda nágranna. Þetta kom fram í svörum meirihluta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar við fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi reitsins. Heildarfjöldi bílastæða er áætlaður 155. Þar af er gert ráð fyrir um 50 til 54 stæðum í bílakjallara, samkvæmt þeim áætlunum sem bæjarstjóri kynnti. Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri sagði athugasemdir hafa verið ræddar við hönnuð á milli funda
Svona voru fyrri hugmyndir um byggingu að Iðjustíg 1. skipulagsráðs. Gögn um skuggavarp og vindgreiningu hefðu einnig komið fram í ferlinu. Bæjarstjóri sagði umferðarskipulagi við bygginguna hafa verið breytt þannig að aðkoma íbúa væri öðrum megin og þeirra sem nýttu
Minjastofnun Íslands
lést á Hrafnistu, Nesvöllum föstudaginn 16. október.
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr
Sérstakar þakki til starfsfólks á Felli, Nesvöllum fyrir umhyggju og hlýhug.
Ragnar Ólafur Sigurðsson Guðmunda Sigrún Ögmundsd. Ingibjörg Sigurðardóttir Lára Björk Sigurðardóttir John Lee Elkins Guðrún Jóna Sigurðardóttir Reynir Ástvaldsson Sigurður Guðjónsson Karólína Björg Óskarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn
hlaðvarp VÍKURFRÉTTA ER Á VF.IS
þjónustu hinum megin. Hann þakkaði uppbyggingaraðilum fyrir að taka vel í ábendingar úr nágrenninu. Í fyrirspurn Guðnýjar Birnu Guðmundsdóttur, bæjarfulltrúa Samfylkingar, var miðað við 85 viðbótaríbúðir á reitnum. Hún spurði meðal annars hvernig brugðist yrði við aukinni umferð og hversu marga bíla kjallarinn rúmaði. Hún taldi breytingarnar kalla á skýra sýn á innviði og umferð á nærliggjandi götum. Ekki var kynnt ný ákvörðun um tvöföldun Njarðarbrautar eða Þjóðbrautar samhliða svörunum.
Símafriður metinn í lok skólaársins
Krossmóa 10, Reykjanesbæ
Útför mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
stæði til að gera við húsnæðið sem losnaði. Ekki var veitt efnislegt svar á fundinum. Forseti bæjarstjórnar sagði fyrirspurnum sem kæmu fram með þessum hætti verða svarað á viðeigandi vettvangi þegar starfsfólk hefði haft tækifæri til þess. Í umræðunni kom því hvorki fram ákvörðun um nýja starfsemi í húsinu né tímasetning á næstu ráðstöfun þess.
Lækka byggingu og fjölga bílastæðum við Iðjustíg
Elskuleg móðir okkar, tendamóðir, amma og langamma,
ÞÓRA RAGNARSDÓTTIR
verið forsenda ákvörðunar um flutning dagdvalar úr Selinu á Nesvelli. Ekki kom fram hversu mörg börn nýttu nýja úrræðið, hvert umfang þess væri eða hvernig kostnaði væri skipt milli sveitarfélaganna. Upplýsingarnar um stöðu biðlistans voru settar fram í tengslum við fyrirspurn um framtíðarnotkun húsnæðis Selins.
húsafriðunarsjóði fyrir árið 2027
Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi friðlýstra og friðaðra húsa og mannvirkja, sbr. reglur um úthlutun úr húsafriðunarsjóði nr. 577/2016. Veittir verða styrkir úr sjóðnum til: • viðhalds og endurbóta á friðlýstum og friðuðum húsum og mannvirkjum, ásamt öðrum húsum og mannvirkjum, sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi. Sérstök áhersla er lögð á viðhald og endurgerð aldursfriðaðra og friðlýstra kirkjubygginga. • byggingarsögulegra rannsókna, þar með talið skráningu húsa og mannvirkja, og miðlun upplýsinga um íslenskan byggingararf. • sveitarfélaga til að vinna tillögur að verndarsvæði í byggð, í samræmi við ákvæði laga nr. 87/2015 og reglugerðar nr. 575/2016. Minjastofnun Íslands hefur eftirlit með að styrkt verkefni séu viðunandi af hendi leyst, og í samræmi við innsend umsóknargögn. Umsóknareyðublaðið er fyllt út rafrænt og má finna á vef Minjastofnunar Íslands www.minjastofnun.is, - Sjóðir & nefndir Umsóknir í húsafriðunarsjóð. Þar er einnig að finna leiðbeiningar við gerð umsókna. Fyrirspurnir sendist á netfangið: husafridunarsjodur@minjastofnun.is, eða hringið í síma 570-1307. Umsóknarfrestur er til miðnættis þriðjudaginn 1. desember 2026. Suðurgötu 39, 101 Reykjavík Sími: 5701300 www.minjastofnun.is
Reynsla af innleiðingu símafriðar í grunnskólum og frístundaheimilum Reykjanesbæjar á að verða metin í lok skólaársins 2026–2027. Sjónarmið nemenda, foreldra og starfsfólks eiga að verða hluti matsins. Markmiðið með fyrirkomulaginu er að skapa meiri námsfrið, bæta líðan og efla félagsleg samskipti barna. Í umræðu bæjarstjórnar var lögð áhersla á að framkvæmdin tæki mið af ólíkum þörfum nemenda, að því er fram kom á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar. Díana Hilmarsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, sagði menntaráð hafa kallað eftir skýrum undanþágum vegna heilsufars, fötlunar, sérþarfa og annarra málefnalegra ástæðna. Mikilvægt væri að framkvæmdin væri sanngjörn. Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri sagði innleiðinguna unna með nemendum, foreldrum og starfsfólki. Vinna við hana hefði að miklu leyti verið hafin áður en breyting varð á reglugerð. Í umræðunni var ekki kynnt neitt ítarlegt fyrirkomulag fyrir geymslu síma eða viðbrögð við brotum. Áherslan var á markmið innleiðingar, nauðsynlegar undanþágur og að reynslan yrði tekin til mats að skólaári loknu.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 15
Emma best hjá UMFG/UMFN
Eiður Orri og Anita, bestu leikmenn Keflavíkur 2026.
Lokahóf Grindavíkur/Njarðvíkur fór fram um helgina þar sem frábærum árangri Suðurnesjaliðsins sem var nýliði í Bestu-deild kvenna í knattspyrnu, var fagnað. Emma Nicole Phillips var valin besti leikmaður tímabilsins, auk þess sem hún var markahæsti leikmaður tímabilsins. Natasha Anasi-Erlingsson var valin mikilvægasti leikmaður, á sínu síðasta tímabili en hún lagði nýverið skóna á hilluna eftir glæsilegan feril. Rut Sigurðardóttir var valin efnilegust en Rut lék með liðinu fyrri
hluta leiktíðar og er nú stödd í Bandaríkjunum í námi og að spila í háskólaboltanum þar í landi. Að lokum fékk Kamilla Ósk Jensdóttir verðlaun sem sjálfboðaliði ársins/sérstakt þakklæti frá Kvennaráði fyrir ómetanlega og óeigingjarna vinnu við ýmis störf. Nýlega var svo tilkynnt að Gylfi Tryggvason, þjálfari liðsins síðustu tvö árin verði ekki áfram með liðið.
Grindavík/Njarðvík stóð sig vel í Bestu deildinni.
Rúnar fékk gull og Hjördís silfur á 30 ára afmælisfundi ÍRB Árlegur formannafundur Íþróttabandalags Reykjanesbæjar fór fram nýlega en bandalagið fagnar 30 ára afmæli um þessar undir en það var stofnað 29. maí 1996. Á formannafundi koma saman allir formenn aðildarfélaga ÍRB ásamt stjórn ÍRB. Þar sem um var að ræða tímamótafund var mikið um góða gesti þar á meðal fulltrúa frá ÍSÍ, UMFÍ, bæjarstjórn Reykjanesbæjar, íþrótta- og tómstundaráð Reykjanesbæjar og fyrrverandi formenn ÍRB. Fyrsti formaður var Hjálmar Árnason og á eftir honum fylgdu Ólafur Thordersen, Jóhann B. Magnússon, Ingigerður Sæmundsdóttir, Guðbergur Reynisson og núverandi formaður er Rúnar V. Arnarson. Yfir 50 gestir mættu og mikill hugur í fundargestum að efla íþróttastarf í Reykjanesbæ enn frekar.
Meðal ræðumanna voru Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Jóhann Steinar Ingimundarson formaður UMFÍ og Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ. Í framhaldi af ræðu forseta ÍSÍ veitti Willum Þór tveimur núverandi stjórnarmönnum ÍRB viðurkenningu fyrir áratuga sjálfboðaliðastörf fyrir íþróttahreyfinguna. Hjördísi Baldursdóttur gjaldkera ÍRB var veitt silfurmerki ÍSÍ og Rúnari V. Arnarsyni formanni ÍRB var veitt gullmerki ÍSÍ
Frans var heiðraður en heldur nú á önnur mið.
Eiður Orri og Anita Lind leikmenn ársins Eiður Orri Ragnarsson og Anita Lind Daníelsdóttir voru valin bestu leikmenn meistaraflokka karla og kvenna hjá Keflavík að mati samherja sinna. Keflvíkingar fögnuðu að lokinni knattspyrnutíð í lokahófi knattspyrnudeildar Keflavíkur í Bluehöllinni laugardaginn 24. október. Þar komu leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar saman til að gera upp knattspyrnuárið 2026. Fjöldi viðurkenninga var veittur fyrir góðan árangur og framlag til félagsins. Björgvin Björgvinsson fékk viðurkenningu sem þjálfari ársins. Ariela Lewis hlaut gullskó kvennaliðsins með 13 mörk og Stefan Alexander Ljubicic gullskó karlaliðsins með 12 mörk. Margrét Viktoría Harðardóttir og Þorlákur Breki Þórarinsson Baxter voru valin efnilegustu leikmenn meistaraflokkanna. Hilda Rún Hafsteinsdóttir hlaut verðlaun fyrir mark ársins hjá konunum, gegn Gróttu, en Alpha Bedor Conteh hjá körlunum fyrir sigurmark sitt gegn KR.
Í 2. flokki voru Viktor Árni Traustason og Ragnheiður Júlía Rafnsdóttir valin leikmenn ársins. Arnór Atli Aðalbjörnsson og Guðlaug Emma Kristinsdóttir hlutu viðurkenningar sem efnilegustu leikmennirnir. Sérstök stund kvöldsins var þegar Frans Elvarsson var heiðraður fyrir einstakt framlag sitt til Keflavíkur. Frans hefur leikið hátt í 400 leiki fyrir félagið á sextán tímabilum og er leikjahæsti leikmaður í sögu Keflavíkur.
Einnig voru leikmenn sem kveðja félagið heiðraðir, ásamt útskriftarhópi annars flokks. Þá fengu fjölmargir leikmenn viðurkenningar fyrir leikjafjölda sinn. Sjálfboðaliðum félagsins voru jafnframt færðar sérstakar þakkir fyrir ómetanlegt starf á tímabilinu. Lokahófið markaði þannig lok viðburðaríks knattspyrnuárs þar sem karlaliðið tryggði sér sæti í efri hluta Bestu deildarinnar og félagið fagnaði árangri, samstöðu og öflugu starfi innan sinna raða.
Markvörðurinn Ásgeir Orri og framherjinn Stefan Ljubicic stóðu sig vel í sumar. Óvíst er með framtíð þeirra hjá Keflavík.
Heiða Dís með gull í Póllandi Það er búið að vera nóg um að vera hjà Taekwondo deild Keflavíkur að undanförnu. Mörg mót innanlands og erlendis. Í september fóru 4 keppendur frá deildinni til Póllands. Allir stóðu sig vel en Heiða Dís Helgadóttir vann til bronsverðlauna á þessu sterka móti. Í október var fyrsta Bikarmót tímabilsins. Keflvíkingar röðuðu þar inn verðlaunum og Heiða var valinn kvenkeppandi mótsins. Um helgina var Dracula Open mótið í Rúmeníu og þar voru 6 keppendur frá Keflavík. Keppendurnir börðust vel og var Viktor
Berg hársbreidd frá verðlaunum en hann er efnilegur ungur keppandi. Heiða Dís vann til gullverðlauna á mótinu. Þá var Heiða Dís valin á Evrópumót ungmenna sem haldið verður í nóvember. Eins og staðan er núna er Heiða í 5. sæti styrkleikalista Evrópu fyrir sinn flokk. Þess að auki vann Heiða sér inn rétt til að keppa á Grand Prix Open Final sem er eitt sterkasta unglingamót
Marc McAusland tekur við UMFN Marc McAusland hefur verið ráðinn næsti þjálfari hjá Lengjudeildarliði UMFN í knattspyrnu karla til næstu þriggja ára, eða út keppnistímabilið 2029. Marc á glæsilegan feril sem leikmaður St. Mirren í Skotlandi, með Keflavík, Grindavík, ÍR og nú síðast Víði Garði á Íslandi. Marc var fyrirliði UMFN 20202023. Hann lék 105 leiki fyrir Njarðvík og skoraði 19 mörk en
Marc er mikill leiðtogi og hefur ætíð verið fyrirliði sama hvert hann fer. Marc er með UEFA A gráðu og hefur áður þjálfað yngri flokka hjá Njarðvík, auk þess að hafa verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks fyrsta tímabilið sitt hjá Njarðvík.
Fulltrúar íþróttafélaganna sem hlutu styrk ásamt Sigurbirni Gunnarssyni, stjórnarformanni Kaupfélags Suðurnesja, við afhendingu styrkjanna. VF/hilmarbragi
25 milljónir króna til íþróttastarfs Hagnaður samstæðu Kaupfélags Suðurnesja (KSK) fyrstu 7 mánuði ársins nam 633 milljónum króna og bókfært eigið fé félagsins nemur um 9 milljörðum króna. Þetta kom fram á haustfundi fulltrúaráðs félagsins hinn 29. október sl. Á fundinum flutti Sigurbjörn Gunnarsson, formaður félagsins, skýrslu um starfsemina á árinu og Brynjar Steinarsson, framkvæmdastjóri dótturfélagsins, KSK eigna, gerði grein fyrir rekstri þess félags. Á fundinum voru afhentir styrkir sem Kaupfélagið veitir í ár til íþróttastarfs á Suðurnesjum, samtals að fjárhæð 25 milljónir króna. Þau félög sem hlutu styrkina eru Keflavík, íþrótta- og ungmennafélag, Ungmennafélagið Njarðvík, Ungmennafélag Grindavíkur, Knattspyrnufélagið Reynir, Sandgerði, Knattspyrnufélagið Víðir, Garði og Ungmennafélagið Þróttur, Vogum. Fulltrúar félaganna voru mættir á fundinn og veittu þeim viðtöku.
Kaupfélag Suðurnesja á sér djúpar rætur á Suðurnesjum, stofnað 1945, og hefur starfsemi þess og dótturfélaga í gegnum tíðina verið nátengd atvinnulífi og samfélagi Suðurnesja. Töluverðar breytingar hafa verið á starfseminni á síðustu árum en á árinu 2025 sameinaðist dótturfélagið Samkaup hf. inn í Dranga hf. sem í dag rekur auk Samkaupa, Orkuna, Lyfjaval, Löður og fleiri fyrirtæki. Kaupfélagið á nú um 18% hlut í Dröngum. Kaupfélagið
á einnig að fullu fasteignafélagið KSK eignir ehf. Á þessu ári seldu KSK eignir 25 fasteignir, einkum verslunarhús, sem staðsett eru víðsvegar um landið og nýlega var undirritaður samningur um kaup KSK eigna á Njarðarvöllum 2 sem hýsir hjúkrunarheimilið Nesvelli. Þessar breytingar á fasteignasafni félagsins eru liður í að byggja upp traust og fjölbreytt fasteignasafn til framtíðar, með aukinni áherslu á fjárfestingar á heimsvæði félagsins. Jafnframt endurspegla þau áherslur móðurfélagsins Kaupfélags Suðurnesja um að vera öflugur þátttakandi í atvinnulífi og samfélagi á Suðurnesjum og stuðla að áframhaldandi uppbyggingu svæðisins.
RAGNHEIÐAR ELÍNAR
Opnunar
hátíð
Ný og glæsileg Nettó verslun opnar á Aðaltorgi laugardaginn 7. nóvember! Opnunarhátíðin hefst með látum kl. 12:00 og það verður nóg um að vera fyrir alla fjölskylduna!
Lukkuhjól
Matarsmakk
Gjafapokar
Candyfloss
Opnunartilboð
Frumsýning á nýrri
Snyrtivörudeild
Spennandi nýjungar og fjölbreytt úrval snyrtivara á Aðaltorgi.
Kóreskar snyrtivörur frá merkjum á borð við Biodance, COSRX, TIRTIR, Beauty of Joseon, Medicube og Anua.
Á dekurbarnum getur þú tínt saman allt það besta fyrir alvöru dekurkvöld. Andlitsmaskar og vinsælustu vörurnar hverju sinni.
Fyrstu 100 sem versla snyrtivörur fá gjafapoka Gjafapokinn inniheldur meðal annars glaðninga frá Essence, by Veira, Frank Body, Erborian, GOSH, Rimmel, CeraVe, Garnier og Revolution.
Líðum
Frábær kynningartilboð á vörum frá Silk’n, Anua, Martinelia og Beauty of Joseon.
vel
Ö1330 og Reagan Þess var nýlega minnst að 40 ár eru liðin frá leiðtogafundi Reagan og Gorbachev í Höfða, fundi sem sannarlega markaði tímamót í heimssögunni. Þessi fundur er mér mjög minnisstæður og fylgdist ég, eins og landsmenn allir, mjög vel með öllu því sem var að gerast. En hann er mér líka minnisstæður af annarri ástæðu. Foreldrar mínir voru á þessum tíma í fríi í Bandaríkjunum og naut ég þess að hafa heimilisbílinn fyrir mig og keyrði á milli í Kvennaskólann. Fundurinn var um helgi og foreldrar mínir voru væntanlegir heim á mánudeginum. Ég fór í skólann eins og vanalega á föstudeginum og fékk hið fínasta stæði á Laufásveginum, rétt hjá Kvennó. Um klukkan hálf fimm, þegar skóladeginum var að ljúka, kom skólasystir mín og sagði mér að hún hefði séð bílinn – Ö1330 – dreginn af dráttarbíl eftir Fríkirkjuveginum við Tjörnina! Hún þekkti bílinn, auðþekkjanlegan, forláta Plymouth Reliant, sem pabbi hafði flutt inn sjálfur frá Bandaríkjunum og var sennilega sá eini sinnar tegundar á landinu. Það varð auðvitað uppi fótur og fit og við hentumst út um allan bæ – á lögreglustöðina á Hverfisgötu, á nokkur bílaplön þar sem bíllinn mögulega gæti verið. Ég skildi ekkert í þessu, var sannfærð um að ég hefði lagt fullkomlega löglega. Eftir mikið þref kom í ljós að bíllinn hafði verið dreginn í burtu þar sem von var á Ronald Reagan til landsins þennan eftirmiðdag. Sendiráð Bandaríkjanna var á Laufásveginum og allir bílar á götunni höfðu verið fjarlægðir. Mér til hryllings var mér svo sagt að ég fengi bílinn ekki fyrr en eftir helgina þar sem það væri orðið svo áliðið. Það hentaði mér auðvitað alls ekki – foreldrarnir voru að koma heim á mánudagsmorgni og ég varð bara að fá bílinn! Eftir mikið japl, jaml og fuður náði ég loksins að grenja bílinn út og var mjög fegin þegar ég lagði honum óskemmdum eftir þetta ævintýri í innkeyrslunni á Garðaveginum. Ég var varla komin inn þegar síminn hringdi – það var pabbi. Á þessum tíma var fólk ekki mikið að hringja á milli landa nema mikið lægi við og var ég því aðeins hissa á þessu tilefnislausa símtali. Og það var einmitt eins og það væri ekkert tilefni. Pabbi spurði hvernig ég hefði það, hvernig hefði gengið í skólanum, hvort það hefði gengið vel með bílinn o.s.frv. Ég hélt það nú og dáðist að honum þarna í innkeyrslunni. En þá kom ástæðan fyrir símtalinu. Pabbi sagði mér nefnilega að hann hefði verið að horfa á CNN og fréttir af leiðtogafundinum, þar sem fallegt skot af Tjörninni og Fríkirkjuveginum birtist. Og þar var hann – Ö1330 í eftirdragi dráttarbílsins! Ég var sem sagt „böstuð“ í beinni á CNN! Leiðtogafundurinn í Höfða lagði vissulega grunninn að lokum kalda stríðsins – en í mínum huga er þetta hin stóra fréttin af fundinum!