Skip to main content

10. tbl. 37. árg. 2016

Page 1

• Fimmtudagurinn 10. mars 2016 • 10. tölublað • 37. árgangur

STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

Ölvaður með börn sín í bílnum

Súla, hvalir og ferðamenn í veislu

l Var sviptur ökuréttindum ævilangt Lögreglan á Suðurnesjum stöðva ð i í v i ku n n i ö ku m a n n s e m reyndist vera verulega ölvaður við aksturinn. Hann var með þrjú ung börn sín í bifreiðinni. Maðurinn, sem ók sendibifreið, sem einungis er ætluð fyrir tvo farþega, ók úr Hafnarfirði áleiðis til Keflavíkur. Á tímabili ók hann á mót i umferð á Reykjanesbraut við Straumsvík og skapaði með því stórfellda slysahættu. Nokkru síðar mætti lögregla bifreiðinni við Vogastapa. Ökumaður sinnti ekki stöðvunarmerkjum og er lögreglubifreið var ekið upp að hlið bifreiðar hans kom í ljós að hann var að tala í símann við aksturinn. Hann nam ekki staðar fyrr en lögregla þvingaði bifreið hans út í vegaröxlina. Ökumaðurinn sofnaði svo ölvunarsvefni í lögreglubifreiðinni á leið á lögreglustöð. Börn hans þrjú sem eru tveggja, fjögurra og átta ára, voru án viðeigandi öryggisbúnaðar í bifreiðinni sem einungis er ætluð fyrir tvo farþega. Þau voru flutt á lögreglustöð í annarri lögreglubifreið og sótti aðstandandi þau þangað. Barnavernd Reykjanesbæjar var gert viðvart um málið. Ökumaðurinn var sviptur ökuréttindum ævilangt.

Gríðarlegur fjöldi hnúfubaka var fyrir utan Reykjanesskagann í lok síðustu viku samfara stórri loðnutorfu. Öll hvalaskoðunarfyrirtækin sem gera öllu jöfnu út frá Reykjavík voru með skip í Sandgerðishöfn og fluttu rútur þéttsetnar ferðamönnum frá Reykjavík. Þá var fjöldi ferðamanna og heimamanna úti á Reykjanestá sem fyldist með súlum í þúsundavís stinga sér í sjóinn á milli hnúfubaka eftir loðnunni. Nánar er fjallað um málið og fleiri myndir má sjá í blaðinu í dag og í sjónvarpi Víkurfrétta í kvöld á ÍNN kl. 21:30.

Hafna beiðni Landsnets um yfirráð yfir jörðum á Reykjanesi l Hæstiréttur sker úr um mál 20. apríl nk. vegna lagningar Suðurnesjalínu II Héraðsdómur Reykjaness hafnaði í síðustu viku beiðni Landsnets hf. um yfirráð yfir fjórum jörðum á Reykjanesi vegna framkvæmda við Suðurnesjalínu II. Hæstiréttur mun skera úr um málið 20. apríl næstkomandi. Landeigendur jarðanna á Reykjanesi telja það fara gegn ákvæði í stjórnarskrá og meðalhófsreglu stjórnskipunar- og

stjórnsýsluréttar að Landsnet fái yfirráð yfir landi þeirra. Áætlað var að framkvæmdir við Suðurnesjalínu II myndu hefjast í þessari viku. Landsnet hyggst leggja 46 metra háspennubelti og sex metra breiðan vegslóða um jarðirnar. Með línunni er ætlunin að flytja rafmagn til tveggja kísilverksmiðja sem munu rísa í Helguvík.

Fjórir vilja byggja þjónustumiðstöð n Fjórar umsóknir bárust um lóð fyrir ferðaþjónustu við Reykjanesvita. Á dögunum var auglýst eftir áhugasömum aðilum til að reisa og reka þjónustumiðstöð við Reykjanesvita í kjölfar síðasta fundar stjórnar Reykjanes Geopark. Formanni Reykjanes Geopark, verkefnastjóra og sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs Reykjanesbæjar, hefur verið falið að ræða við umsækjendur í þessari viku.

Byggja fyrir fólk með fötlun l Mæta brýnni þörf fyrir húsnæði í Sandgerði l Íbúðakjarni með fimm íbúðum og þjónusturými l Landssamtökin Þroskahjálp og Sandgerðisbær í samstarf

FÍTON / SÍA

Landssamtökin Þroskahjálp og Sandgerðisbær undirrituðu í gær samkomulag um byggingu og rekstur íbúða fyrir fólk með fötlun að Lækjamótum 61 til 65 í Sandgerði. Um er að ræða íbúðakjarna með fimm íbúðum og þjónusturými. „Við erum afskaplega ánægð með að þetta samkomulag sé í höfn og erum með þessu að mæta brýnni þörf fyrir húsnæði meðal fatlaðra íbúa í bænum,“ sagði Sigrún Árnadóttir, bæjarstjóri í Sandgerði, við undirritun samkomulagsins. Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar, sagði að áætlað væri að byggingu íbúðanna yrði lokið á árinu 2017. „Það veltur þó á framgangi lagafrumvarpa

einföld reiknivél á ebox.is

um húsnæðismál sem eru til meðferðar á Alþingi hvenær hægt verður að hefja framkvæmdir en frumvörpin gera ráð fyrir betri kjörum fyrir leigjendur en núgildandi lög. Þannig er

gert ráð fyrir að hægt sé að sækja um til 18 prósent stofnkostnaðar til ríkis og 12 prósent til sveitarfélaga,“ sagði Árni Múli. n Skóla- og menntamálin voru í eldlínunni á íbúaþinginu í Stapa. VF-mynd/pket

Hundrað manns tóku þátt í íbúaþingi n Fulltrúar Sandgerðisbæjar og Landssamtakanna Þroskahjálpar á lóðinni við Lækjamót þar sem íbúðirnar munu rísa. VF-mynd: Hilmar Bragi

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

l Ræddu nýja menntastefnu fyrir Reykjanesbæ „Við erum alsæl með þessa frábæru þátttöku sem sýnir hversu mikinn áhuga fólk hefur á þessum mikilvæga málaflokki, menntamálum í víðum skilningi,“ sagði Helgi Arnarson, sviðsstjóri fræðslusviðs. Undanfarna mánuði hefur stýrihópur skipaður fulltrúum ýmissa hagsmunahópa unnið að nýrri menntastefnu fyrir Reykjanesbæ og má segja að íbúaþingið hafi verið ákveðinn hápunktur í þeirri vinnu. Helgi segir að nú taki við vinna við

að draga saman niðurstöður þingsins og munu þær verða kynntar opinberlega innan tíðar. Aðferðin sem notuð var á íbúaþinginu hefur verið nefnd „Heimskaffi“. Lögð var áhersla á að skapa frjálslegt og afslappað andrúmsloft, einskonar kaffihúsastemningu. „Óhætt er að segja að vel hafi tekist til og munu niðurstöður fjörugra umræðna án efa nýtast vel við mótun nýrrar menntastefnu fyrir Reykjanesbæ,“ sagði Helgi.


2

VÍKURFRÉTTIR

Litlar íbúðir við göngustíg en ekki götu

■■Sveitarfélaginu Vogum hefur borist fyrirspurn frá áhugasömum aðilum sem ráðgera að sækja um nokkrar lóðir á miðbæjarsvæðinu í sveitarfélaginu. Deiliskipulag er í gildi á miðbæjarsvæðinu, þ.e. svæðinu sem afmarkast af Iðndal, Vogabraut og Stapavegi. Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum, segir í fréttabréfi sveitarfélagsins að um sé að ræða áhugaverða lausn þar sem áhersla er lögð á að útbúa lítinn byggðakjarna, sem einkennist af litlum íbúðum sem standa við göngustíg, í stað götu. Gert er ráð fyrir að bílastæði verði á jaðri svæðisins. Þá er einnig gert ráð fyrir sameiginlegu rými, til dæmis leiksvæðum, svæðum undir grænmetisrækt og jafnvel sameiginlegt gróðurhús og samkomuhús fyrir íbúðakjarnann. Erindið verður kynnt á næsta fundi bæjarráðs, í framhaldinu má gera ráð fyrir að hinir áhugasömu aðilar muni beina formlegri fyrirspurn um málið til Umhverfis- og skipulagsnefndar sveitarfélagsins Voga.

Reyndi að sturta fíkniefnum niður

■■Lögreglan á Suðurnesjum haldlagði amfetamín og kannabisefni í íbúðarhúsnæði í umdæminu í síðustu viku. Efnunum hafði verið komið fyrir víðs vegar um íbúðina. Karlmaður og kona voru þar innan dyra þegar lögreglu bar að garði og reyndi maðurinn að sturta fíkniefnum niður í klósettið þegar hann varð lögreglumannanna var. Konan reyndi að kasta efnum út um glugga en þegar það tókst ekki reyndi hún að fela þau milli fóta sér. Fólkið var handtekið og flutt á lögreglustöð. Maðurinn játaði eign sína á megninu af þeim efnum sem fundust. Grunur leikur á að um dreifingu og sölu fíkniefna hafi verið að ræða.

fimmtudagur 10. mars 2016

Senda sex fulltrúa á vinabæjarmót

●●Áætlað að ferðin kosti eina milljón l Þessi samskipti hafa nýst okkur vel í gegnum tíðina, segir forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar Sex fulltrúar frá Reykjanesbæ taka þátt í vinabæjarmóti í Trollhattan í Svíþjóð sem hefst í dag, 10. mars og stendur fram á laugardag. Borgin fagnar á sama tíma aldarafmæli sínu. Á mótinu verður nýtt vinabæjarsamkomulag undirritað en í því verður kveðið á um næstu sameiginlegu verkefni vinabæjanna sem standa munu yfir í tvö ár. Áætlað er að kostnaður Reykjanesbæjar við ferð fulltrúanna sex verði um ein milljón króna. Þar af fer um hálf milljón í flugfargjöld. Ekki er flogið beint til Trollhättan og er gert ráð fyrir að lestarferðir og leigubílaferðir til og frá lendingarstöðum og Trollhattan kosti um 100 þúsund. Hótelkostnaður er greiddur af gestgjöfum. Engir dagpeningar verða greiddir en útlagður kostnaður endurgreiddur samkvæmt reikningi. Fulltrúar Reykjanesbæjar á vinabæjarmótinu verða þau Ásbjörn Jónsson, sviðsstjóri Stjórnsýslusviðs, Helgi Arnarson, sviðsstjóri Fræðslusviðs, Hera Ósk Einarsdóttir, sviðsstjóri Velferðarsviðs, Friðjón Einarsson, formaður bæjarráðs, Árni Sigfússon, bæjarfulltrúi minnihluta og Kristinn Þór Jakobsson, bæjarfulltrúi meirihluta. Ekki eru allir á eitt sáttir um þessa ráðstöfun á fjármagni bæjarins sem glímir við töluverðar skuldir og sköpuðust líflegar umræður um málið á Facebook í hópnum Reykjanesbær Gerum góðan bæ betri. Að sögn Guðbrands Einarssonar, forseta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, má vissulega hafa á því skoðun hvort ferðin kosti mikið eða lítið. „Ég vil í því samhengi benda á að ferðalög með flugi milli landshluta innanlands

Til vandræða í flugvél og leigubíl

Frá bæjarstjórnarfundi í Reykjanesbæ.

kosta ekkert minna en þetta. Það eru til dæmis haldnir sameiginlegir fundir sveitarfélaga á Akureyri sem geta kostað talsvert og það fettir enginn fingur út í það. Við komumst ekkert hjá samskiptum við aðra og ég veit ekki hvort að þeir fulltrúar sem eru að fara séu eitthvað öfundsverðir af því að eyða frítíma sínum í svona ferð. Fyrst og síðast er verið að horfa til þess hvort þetta gagnist sveitarfélaginu sem ég er handviss um að það gerir,“ segir hann. Aðspurður um helsta ávinninginn af slíku vinabæjarsamstarfi segir Guðbrandur hann vera af samskiptum yfirleitt þannig að fólk læri hvert af öðru. „Við höfum í áratugi verið í vinabæjarsamskiptum við nokkur sveitarfélög á Norðurlöndum og þessi samskipti hafa nýst okkur vel á margan hátt. Þessi samskipti hafa einnig verið nýtt til þess að unglingar í okkar sveitarfélagi hafa fengið að kynnast jafnöldrum sínum í vinabæjarsveitarfélögunum, meðal annars með þátttöku í íþróttamótum sem sveitarfélögin hafa staðið fyrir. Í þessu

tilfelli er um að ræða að eitt þessara sveitarfélaga fagnar 100 ára afmæli og býður hinum sveitarfélögunum til sín af því tilefni. Það er ekki síður mikilvægt að á þessum fundi er verið að fjalla um þrjú efnisatriði sem skipta okkur hér í Reykjanesbæ miklu máli, það er rafræna stjórnsýslu, brottfall úr skóla og móttaka erlendra íbúa. Þess vegna fara sviðstjórarnir sem þessi málaflokkar falla undir á þennan fund (velferðarsvið, fræðslusvið og stjórnsýslusvið). Til viðbótar fara þrír kjörnir fulltrúar. Það þótti eðlilegt að það færi fulltrúi frá meirihluta, ásamt fulltrúum þeirra stjórnmálaafla sem sitja í minnihluta.“ Guðbrandur segir ferðina eins ódýra og hægt er. Ekki séu greiddir dagpeningar og að makar fari ekki með sé nýmæli.

■■Lögreglan á Suðurnesjum var í síðustu viku kvödd á Keflavíkurflugvöll vegna farþega sem var að koma frá Boston og hafði látið ófriðlega í flugvélinni. Hann var mjög ölvaður og hafði verið með ógnandi tilburði við flugáhöfn og farþega allt flugið. Hann var ósamvinnuþýður við lögreglu og var því handtekinn og færður á lögreglustöð til yfirheyrslu. Að henni lokinni var honum ekið í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þar sem hann ætlaði að halda ferð sinni áfram. Degi síðar lenti svo leigubílstjóri í vandræðum með farþega sem hann hafði ekið um Reykjanesbæ ýmissa erinda en sá vildi ekki greiða fargjaldið við lok ferðar. Lögreglan var kvödd til og reyndist farþeginn vera sá sami og hafði látið ófriðlega í flugvélinni í fyrradag. Sátt náðist um að hann myndi greiða upp í gjaldið þá peninga sem hann hafði handbæra og hefur Lögreglan á Suðurnesjum ekki haft frekari fregnir af ferðasögu hans síðan.

Gagnlegur fundur með velferðarráðherra

Forsala á midi.is

KARLAKÓRINN HEIMIR TÓNLEIKAR W W W. H E I M I R . I S

FJÖLBREYTT OG SKEMMTILEG EFNISSKRÁ Einsöngur: Ari Jóhann Sigurðsson, Birgir Björsson og Einar Halldórsson Stjórnandi: Stefán R. Gíslason - Undirleikari: Thomas R. Higgerson

●●Hópur fólks reynir að tryggja rekstur Bjargarinnar

Hollvinir Bjargarinnar, þingmenn Suðurkjördæmis og forstöðumaður Bjargarinnar áttu í síðustu viku fund með Eygló Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra og fulltrúum Velferðarráðuneytis um leiðir til að tryggja áframhaldandi rekstur Bjargarinnar - Geðræktarmiðstöðvar Suðurnesja. Samkvæmt fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar er ekki gert ráð fyrir fjármagni frá bæjarfélaginu til rekstrar Bjargarinnar eftir 1. júlí næstkomandi og mun starfsemin því leggjast af að óbreyttu. Að sögn Hannesar Friðrikssonar, hollvinar Bjargarinnar, var fundurinn gagnlegur. „Ráðherrann tók erindi okkar vel og ætlar að kanna hvaða leiðir eru mögulegar til að koma að áframhaldandi rekstri Bjargarinnar. Málinu er ekki lokið en eftir þennan fund tel ég meiri ástæðu en minni til að álykta að reksturinn geti haldið áfram,“ segir hann.

Leitað hefur verið til ýmissa félagasamtaka um aðstoð við að halda rekstri Bjargarinnar áfram. Hannes segir viðbrögðin hafa verið góð alls staðar. „Til dæmis hefur Rauði krossinn á Suðurnesjum tekið frá tvær milljónir sem fara til rekstrar Bjargarinnar haldi hann áfram.“ Björgin er rekin af Reykjanesbæ í samstarfi við önnur sveitarfélög á Suðurnesjum. Björgin á í samstarfi við geðteymi á HSS, geðsvið LSH, Samvinnu, félagsþjónustur sveitarfélaganna og fleiri. Björgin var opnuð árið 2005 og hefur fjöldi þeirra sem sækja þjónustuna aukist jafnt og þétt. Björgin er endurhæfingarúrræði, athvarf og þar er fólki veitt eftirfylgd eftir þörfum. Endurhæfing er einstaklingsmiðuð, haldið er utan um endurhæfingaráætlanir, fylgst með mætingu og árangur metinn.


vikurfrettir_heilsida:vikurfrettir

8.3.2016

09:25

Page 1

MENNING ER MANNSINS GAMAN

MENNINGArVIKA Í GRINDAVÍK 12.-20. MARS 2016

SJÁ GLÆSILEGA DAGSKRÁ Á

www.grindavik.is og GrindavíkurAppinu


4

VÍKURFRÉTTIR

STÖRF Í BOÐI Deildarstjóri. Leikskólinn Heiðarsel óskar eftir deildarstjóra í 100% stöðu sem fyrst. Umsóknarfrestur er til og með 23. mars 2016. Upplýsingar veitir Ólöf Guðmundsdóttir leikskólastjóri í síma 4203131/8917178 eða olof.gudmundsdottir@heidarsel.is. Leikskólakennararar. Leikskólinn Holt auglýsa eftir leikskólakennurum eða öðru starfsfólki í 75-100 % stöðu. Umsóknarfrestur er til 24. mars 2016. Upplýsingar veitir Heiða Ingólfsdóttir leikskólastjóri í síma 420-3175/896-6104 eða netfangið heida.ingolfsdottir@ leikskolinnholt.is. Félagsráðgjafi. Velferðarsvið Reykjanesbæjar óskar eftir félagsráðgjafa í 100% starf í barnavernd. Umsóknarfrestur er til og með 24. mars 2016. Upplýsingar veitir María Gunnarsdóttir forstöðumaður barnaverndar í síma 421 6700 eða netfangið maria.gunnarsdottir@reykjanesbaer.is. Deildarstjóri. Leikskólinn Hjallatún óskar eftir leikskólakennara í stöðu deildarstjóra á nýrri deild frá og með 1. maí nk. Einnig er óskað eftir leikskólakennurum, þroskaþjálfa eða starfsfólki með aðra uppeldismenntun frá sama tíma. Umsóknarfrestur er til og með 24. mars nk. Frekari upplýsingar veitir Ólöf Magnea Sverrisdóttir leikskólastjóri í síma 4203150/6986061 eða olof.sverrisdottir@hjallatun.is. Umsóknum í öll ofangreind störf skal skila rafrænt á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/stornkerfi/laus-storf, þar sem einnig er að finna nánari upplýsingar um störfin.

fimmtudagur 10. mars 2016

Safnahelgi á Suðurnesjum dagana 12. og 13. mars Söfn á Suðurnesjum hafa tekið höndum saman um að bjóða í áttunda sinn upp á sameiginlega dagskrá um næstu helgi, 12. til 13. mars. Markmiðið hefur frá fyrstu tíð verið hið sama þ.e. að kynna fyrir landsmönnum hin frábæru söfn og sýningar sem við bjóðum upp á Suðurnesjum. Þetta er liður í menningarferðaþjónustu svæðisins og upplagt fyrir íbúa næsta nágrennis, svo sem höfuðborgarinnar að renna í bíltúr hingað suður eftir um helgina og upplifa eitthvað af því fjölmarga sem hér verður í boði. Aðsóknin síðustu ár hefur alltaf verið að aukast og síðast komu rúmlega 4000 gestir í heimsókn. Söfn, setur og sýningar á svæðinu eru mörg og fjölbreytt og því verður margt á döfinni og fjölbreytt dagskrá. Auk þess eru ýmis gallerí opin þar sem handverk og listmunir eru til sýnis og sölu. Athygli er vakin á því að ókeypis er inn á öll söfnin af þessu tilefni og um leið á þá dagskrá sem er í boði á hverjum stað nema annað sé tekið fram. Sveitarfélögin fimm á Suðurnesjum hafa unnið sameiginlega að undirbúningi dagskrárinnar og er verkefnið stutt af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja. Sjá má alla dagskrána á safnahelgi.is. Dagskráin er afar fjölbreytt; alls kyns sýningar, tónleikar, fyrirlestrar og

margs konar uppákomur. Söfn, safnvísar og sýningar nálgast á annan tuginn og fjölbreytni safnanna er mjög mikil og í raun einstök á ekki stærra svæði. Fólk getur kynnst sögunni frá því fyrir landnám og til okkar tíma, margvíslegum atvinnuháttum, listum og náttúru. Sjósókn og vinnsla sjávaraflans er til dæmis kynnt á þremur söfnum í þremur mismunandi bæjarfélögum, Kvikunni í Grindavík, Byggðasafninu í Garði og Bátasafninu í Duus Safnahúsum. Einkasýning poppstjörnunnar Páls Óskars í hinu nýja Rokksafni í Hljómahöllinni var

DAGUR UM MÁLEFNI FÖLSKYLDUNNAR

Við viljum bara bjóða alla velkomna og hvetja fjölskyldur til að koma og njóta þess sem í boði er. Það er ókeypis inn á öll söfnin og sýningarnar og ótal margt að sjá, bæði fyrir börn og fullorðna. Að lokum má nefna að mörg gallerí og listhús eru líka opin og fólk verður bara að kíkja á safnahelgi.is.

Dagurinn verður haldinn hátíðlegar laugardaginn 12. mars nk. í Fjölskyldusetrinu Skólavegi 1 kl. 11.00 – 13:00. Erindi, kynningar og tónlistaratriði. Viðurkenningar verða veittar til fjölskylduvænna fyrirtækja og dagforeldra. Veitingar og barnagæsla á staðnum. Allir hjartanlega velkomnir.

WIKIPEDIAKVÖLD Hrafn H. Malmquist kennir gestum á frjálsa alfræðiritið Wikipediu miðvikudaginn 16. mars kl. 20:00 í Bókasafni Reykjanesbæjar. Enginn aðgangseyrir og allir velkomnir.

opnuð á síðasta ári og vekur mikla lukku og svo má nefna Gestastofu Reykjanes jarðvangs í Duus Safnahúsum sem kynnir náttúruna á Reykjanesi en í Duus Safnahúsum eru að auki fimm aðrar sýningar á vegum Listasafns Reykjanesbæjar og Byggðasafns Reykjanesbæjar. Að auki má nefna Íbúð Kanans og Leikfangasafn Helgu Ingólfs á Ásbrú, Slökkviliðsminjasafn Íslands í Safnamiðstöðinni í Ramma og í Þekkingarsetri Suðurnesja í Sandgerði eru fjórar sýningar og þar má meðal annars sjá lifandi sjávardýr. Í Vogunum er verið að opna skólasafn í Norðurkotsskóla sem nýbúið er að gera upp og þar er 144 ára skólasögu gerð skil. Menningarvika Grindavíkur hefst þessa sömu helgi og þar verður auðvitað fjöldi viðburða og sýninga í gangi um allan bæ. Þar má meðal annars nefna Guðbergsstofu og Jarðorkusýninguna í Kvikunni og listsýningar á Bókasafninu og Salthúsinu.

NÍUNDA

KENNSLUVÉLIN TIL KEILIS

NESVELLIR Léttur föstudagur 11. mars kl 14:00. Söngkonan Þorgerður Ása flytur lög úr ýmsum áttum. Allir hjartanlega velkomnir.

HLJÓMAHÖLL VIÐBURÐIR FRAMUNDAN

11. mars – Karlakórinn Heimir 17. mars – Helga Bryndís píanisti, einleikstónleikar 7. apríl – Söngvaskáld á Suðurnesjum – Jóhann Helgason 15. apríl – Jón Jónsson ásamt hljómsveit Allar nánari upplýsingar og miðasala á www.hljomaholl.is og í síma 420 1030.

Flugakademía Keilis hefur fengið nýja DA40 kennsluvél frá austurríska flugvélaframleiðandanum Diamond og lenti vélin á Keflavíkurflugvelli síðasta sunnudag. Fyrir hefur skólinn yfir að ráða átta flugvélum frá Diamond, fimm tveggja sæta DA20, tvær fjögurra sæta DA40 og eina tveggja hreyfla DA42. Nýja vélin hefur fengið auðkennisstafina TF-KFH og er með tæknivæddustu kennsluvélum á landinu, búin fullkomnum blindflugsbúnaði, stórum tölvuskjám og nútíma flugmælitækjum, sjálfstýringu og veðursjá. Magnús Þormar, flugkennari hjá Keili, tók við flugvélinni í Diamond verksmiðjunni í Austurríki 3. mars síðastliðinn. Floti kennsluvéla Flugakademíu Keilis er orðinn einn sá nýstárlegasti og yngsti í Evrópu, og er nýjustu vélinni ætlað að bregðast við aukinni eftirspurn eftir flugnámi við skólann. Þá tók skólinn einnig í notkun fullkominn flughermi á síð-

asta ári af gerðinni Redbird en um er að ræða hreyfanlegan hátækni flughermi sem þýður uppá fjölbreytta notkunarmöguleika í þjálfun flugnemenda skólans.

Tæknivæddustu kennsluvélar á landinu

Nú stunda hátt í tvö hundruð nemendur flugtengt nám við Keili, þar á meðal atvinnuflugmannsnám og flugvirkjanám. Flugakademía Keilis býður bæði upp á samtvinnað atvinnuflugmannsnám (sameinað einka- og atvinnuflugmannsnám) og ATPL nám, og eru teknir inn nýir nemendur í námið þrisvar á ári, í janúar, maí og ágúst. Fullskipað er í atvinnuflugmannsnám í vetur en næst verður tekið við nemendum maí. Vegna mikillar aðsóknar í flugnám hjá Flugakademíu Keilis er áhugasömum bent á að senda inn námsumsókn sem fyrst. Nánari upplýsingar um Flugakademíu Keilis má nálgast á www.flugakademia.is


markhönnun ehf

-20%

-20%

DANSKAR SVÍNALUNDIR

1.358 ÁÐUR 1.698 KR/KG

-40%

GRÍSABÓGUR HRINGSKORINN

LAMBABÓGUR KYLFA, 2 STK

599

848

ÁÐUR 998 KR/KG

ÁÐUR 998 KR/KG

-25% -20%

-50%

BAYONNESTEIK

998 ÁÐUR 1.996 KR/KG

TORTILLAS, 20 CM - 8 STK TORTILLAS, 25 CM - 6 STK TACO SHELLS - 135 G TACO SAUCE, MILD - 230 G TACO SAUCE, MED - 230 G TACO SAUCE, HOT - 230 G JALAPENO - 220 G GUACAMOLE DIP - 300 G CHUNKY SALSA, MED - 300 G CHUNKY SALSA, HOT - 300 G

NETTÓ KJÚKLINGUR HEILL

679 ÁÐUR 849 KR/KG

-50%

MELÓNA GRÆN

179 ÁÐUR 358 KR/KG

-23%

IRONMAXX HELLFIRE FATBURNER DRINK 500 ML

199 KR/STK

www.netto.is | Tilboðin gilda 10. – 13. mars 2016

BA FATBURNER DRINK EXOTIC 0,5LL

299 ÁÐUR 389 KR/STK

Mjódd · Salavegur · Búðakór · Grandi · Glerártorg · Hrísalundur · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss Tilboðin gilda meðan birgðir endast · Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl · Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.


6

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 10. mars 2016

RITSTJÓRNARPISTILL Páll Ketilsson

TVÖÞÚSUND OG SJÖ BARA EINS OG SUMARFRÍ „Þetta er svakalegt. Sumir taka svo sterkt til orða að ástandið núna sé eins og sumarfrí árið 2007. Gera bara grín að ástandinu 2007 miðað við núna. Við spyrjum liggur við næsta mann hvort hann sé ekki góður með skrúfjárn. Eftirlaunamenn eru kallaðir úr fríinu í vinnu en þetta dugar ekki til. Við erum búnir að panta útlendinga frá starfsmannaleigunni,“ sagði rafverktaki við leiðarahöfund í vikunni. Ástandið á vinnumarkaði er þannig að það er gargað á fólk til vinnu, það sárvantar iðnaðarmenn í öllum greinum og vonast er til að Íslendingar í Noregi hugsi sér hraðar til hreyfings heim á leið í ljósi verri aðstæðna þar með lækkandi norskri krónu og brjáluðu fjöri á Íslandi. Svona er staðan víða. Það vantar fólk á flesta staði, mest í fyrirtæki í ferðaþjónustu eða starfsemi tengdri henni. Bílaleigur eru búnar að kaupa upp eða leigja allt laust húsnæði fyrir þúsundir bíla sem rúlla út úr leigunum. Farþegaþjónustufyrirtæki í flugstöðinni eru að kaupa upp blokkir á Ásbrú og útlendingar munu brátt streyma til landsins til í vinnu. Einhvern veginn þarf að þjóna fljúgandi ferðafólki sem kemur til landsins í stríðum straumi og framundan er stærsta sumar í ferðaþjónustu í sögu landsins. Við ræddum við starfsmenn Isavia í flugstöðinni í vikunni. Þeir eru hvergi bangnir eins og sjá má í viðtali við einn þeirra í sjónvarpsþætti vikunnar. Isavia hefur unnið mikla undirbúningsvinnu og starfsmenn eru klárir í sumarið sem senn skellur á. Aðrir aðilar eru í svipuðum gír, að gera klárt. Það hefur reyndar lítið hægst á hjá flestum því vetrartraffíkin er búin að vera meiri en nokkru sinni fyrr. Enn eitt metið slegið núna í febrúar, um þriðjungi fleiri farþegar en í fyrra. Hvar endar þetta eiginlega? Þegar við vorum í flugstöðinni í byrjun vikunnar var mikið líf um alla stöð. Ferðamenn um allt. Einhverjir kannski nýkomnir frá Sandgerði úr ferð með Reyni Sveinssyni en hann fékk í síðustu viku Þakkarverðlaun ferðaþjónustunnar á Reykjanesi. Hann segist aðallega segja mannlífssögur og að ferðamenn kunni því vel og þeir vilja heyra um Hallgrím Pétursson og skoða Hvalsneskirkju. Nánar um það í sjónvarpsþætti vikunnar. Ferðamenn fjölmenntu út á Reykjanestá og fylgdust í síðustu viku með súlunni stinga sér í sjóinn og troða loðnu í gogginn. Það voru tugir hnúfubaka að gera líka. Gleypa loðnu í tonnavís. Náttúran í essinu sínu og ferðamennirnir fjölmenntu í marga hvalaskoðunarbáta og gátu hér um bil strokið hnúfubökunum svo nálægt fóru þeir skipunum. Allt að gerast á Reykjanesi.

AÐALFUNDUR Í SAMKAUPUM HF. Stjórn Samkaupa hf. boðar hér með til aðalfundar í félaginu fyrir rekstrarárið 2015. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 16. mars kl. 15.00 í sal Verslunarmannafélags Suðurnesja, Vatnsnesvegi 14, 230 Reykjanesbæ. Á dagskrá fundarins eru aðalfundarstörf samkvæmt 14. gr. samþykkta félagsins. Þá verður lögð fyrir fundinn tillaga um að félagið megi eignast og eiga allt að 10% hlutafjár í félaginu í 3 ár. Stjórn Samkaupa hf.

Telur að verðgildi húseignar rýrni vegna hæðar iðnaðarhúsnæðis ●●Umhverfis- og skipulagsnefnd Voga segir verðgildi húseignar ekki rýrna þrátt fyrir 27 metra háan turn verksmiðju í 500 metra fjarlægð. l Húseigandi hefur áhyggjur. Umhverf is- og skipulagsnef nd Sveitarfélagsins Voga hefur brugðist við athugasemdum sem bárust vegna fyrirhugaðrar súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju sem stendur til að rísi við Vogabraut í Vogum. Tillaga að deiliskipulagi hefur verið auglýst og bárust nokkrar athugasemdir við hana frá bæði einstaklingum og fyrirtækjum. Meðal annars mótmælir íbúi við Lyngdal í Vogum með breytingu á deiliskipulaginu og segir: „Við þessa breytingu tel ég að verðgildi húseignar minnar rýrni vegna hæðar iðnaðarhúsnæðis (turn) og kemur það til að verða mjög sýnilegt frá mínu heimili.“ Þá segir íbúinn: „Þar að auki tel ég að mikill hávaði komi til með að verða með þessari verksmiðju sem er ekki nema 500 metra frá íbúðarbyggð.“ Í svari umhverfis- og skipulagsnefndar segir að á iðnaðarsvæðinu við Vogabraut er gert ráð fyrir allt að 13 m háum byggingum. Ljóst er að 27 m hár turn mun verða sýnilegur frá íbúðarbyggð í Vogum en ekki er talið að áhrifin verði þau að verðgildi húseigna muni rýrna. Þá segir nefndin að samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum mun hávaði við lóðarmörk frá fyrirhugaðri starfsemi vera undir viðmiðunarmörkum (70 db.) og að vegna ákvæða reglugerðarinnar er ekki talið að hávaði frá fyrirhugaðri starfsemi muni hafa áhrif á íbúðarbyggð í 500 m fjarlægð. Í annari athugasemd sem barst er spurt hvort tillaga deiliskipulagsins í samræmi við við stefnu aðalskipulags? Í svari umhverfis- og skipulagsnefndar segir að meginmarkmiðum greinargerðar aðalskipulagsins komi m.a. fram að í sveitarfélaginu þróist fjölbreytt atvinnulíf þar sem hugmyndaauðgi og framtak fólks njóti sín ásamt því sem stutt verði við frumkvæði og nýsköpun. Þá segir að í meginmarkmiðum fyrir iðnaðarsvæði

í greinargerð aðalskipulagsins kemur m.a. fram: - Að stuðla skuli að uppbyggingu iðnaðarsvæða til að renna styrkari stoðum undir byggð í sveitarfélaginu. - Að skilgreina afmörkuð iðnaðarsvæði í nægilegu umfangi til að svara eftirspurn miðað við forsendur hverju sinni. - Mikilvægt er að ráðstafa iðnaðarsvæðum markvisst m.t.t. eðlis þeirrar starfsemi sem þar á að fara fram. Þá er brýnt að í deiliskipulagi séu settar kvaðir sem tryggja ásættanlega ásýnd svæðanna, ekki síst þar sem iðnaðarsvæðin eru í nánd við byggð og þjóðvegi og hafa því afgerandi áhrif á útlit hennar og ímynd í augum vegfarenda.

Skv. gildandi deiliskipulagi er gert ráð fyrir nokkuð háum byggingum á svæðinu (13 m). Eðli málsins skv. er það ljóst að uppbygging á svæðinu mun því alltaf hafa einhver sjónræn áhrif og má álykta svo að áhrifin verði meiri með hærra mannvirki en ella. Engu að síður er það talið ásættanlegt að stakt mannvirki á svæðinu verði hærra en gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir. Skv. gildandi deiliskipulagi er gert ráð fyrir að þar sem klettar og klapparbungur ná ekki að milda ásýnd svæðisins verði byggðar upp jarðvegsmanir. Það er því talið að breyting á deiliskipulagi sé í samræmi við stefnu gildandi aðalskipulags.

■■Umhverfis- og skipulagsnefnd segir að umfjöllun um sjónræn áhrif breytingar mætti vera ítarlegri. Engu að síður er ljóst að uppbygging á svæðinu mun alltaf hafa sjónræn áhrif frá óbreyttu ástandi. Breyting á deiliskipulagi er unnin af skipulagsráðgjafa sveitarfélagsins sem er óháður sérfræðiaðili og að breyting á deiliskipulagi er talin í samræmi við gildandi aðalskipulag. Samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdaraðila er framleiðsluferlið eins konar eiming og þarf skiljanlega að vera þetta há til þess að hægt sé að ná réttum hreinleika á bæði súrefni og köfnunarefni. Þar sem vatn er notað til þess að kæla niður vélbúnað geta myndast sjáanlegar vatnsgufur við visst hita- og rakastig. Hvað varðar ráðstafanir til að draga úr neikvæðum áhrifum þá á verksmiðjan á að uppfylla öll lög og reglur þ.m.t kröfur um öryggi, hljóðvist o.fl.

Kvikmyndatónleikar Lúðrasveitar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar Kvikmyndatónleikar Lúðrasveitar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar verða haldnir í Stapa, Hljómahöllinni. miðvikudaginn 16. mars klukkan 18.00. Á tónleikunum koma fram yngsta, mið og elsta lúðrasveit skólans. Það kennir ýmissa grasa á efnisskrá tónleikanna, en þó einkennast þeir af kvikmyndatónlist sem er þema tónleikanna. Jafnframt verða sýnd myndskeið úr viðkomandi myndum. Sem dæmi, þá verður leikin tónlist úr kvikmyndunum Star

Wars, Toy Story og Mamma Mia og úr þáttaröðinni Game of Thrones. Stjórnendur lúðrasveitanna eru Harpa Jóhannsdóttir, Þorvaldur Halldórsson og Sandra Rún Jónsdóttir. Búast má við skemmtilegri stemmningu og líflegum tónleikum. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Allir áhugasamir eru eindregið hvattir til að mæta og taka með sér gesti.

Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, dagnyhulda@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 // Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.


magn Takmarkað mtur m fyrsti ska kar 55.000 po

skilar til viðskiptavina

ólöglegri gjaldtöku ríkisins við útboð á kjúklingakvóta til innflutnings á kjúklingakjöti*

1.279 kr. 900 g

2verð7læ0kkkur.n

Euro Shopper Kjúklingabringur Frosnar, 900 g - Verð áður 1549 kr.

GOTT VERÐ Í BÓNUS

enskt Ferskt Ísl slátruðu af ný grísakjöt

798 kr. kg

1Ís0lens0kt%

Bónus Grísahakk Ferskt

ungnautahakk

1.198 kr. kg

1Ís0lens0kt%

598

Bónus Grísakótilettur Ferskar

kr. kg

Reyktur ur Grísabóg

Ali Grísabógur Ferskur

ungnautahakk

200kr

kg verðlækkun pr.

579

kr. 2x140 g Íslandsnaut Ungnautaborgarar 2x140 g

1.698 kr. kg Íslandsnaut Ungnautahakk Verð áður 1898 kr. kg

1,5L

121

998 kr. kg

1.398 kr. kg

Kjarnafæði Grísabógur Reyktur, úrbeinaður

Kjarnafæði Heiðalamb Kryddað lambalæri, ferskt

900g

kr. 2 stk.

Gæða Hamborgarabrauð 2 stk.

140 g

auð

350kr. 2.598 kr. 1 kg

hamborgari+br

Sama vöruverð um land allt

Bónus Risaegg 1 kg

198 kr. 1,5 l

Coca Cola, 1,5 l

1.398 kr. 900 g Macintosh Konfekt 900 g

Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00 Verð gilda til og með 13. mars eða meðan birgðir endast - *Sjá dóm Hæstaréttar Íslands í máli nr. 317/2015 frá 21. janúar 2016


8

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 10. mars 2016

ATVINNA Farðaði einn

hrút úti í móa

Við leitum eftir duglegum einstaklingum í bílaþrif og önnur tilfallandi verkefni í nýja starfsstöð okkar í Keflavík. Stundvísi og heiðarleiki eru kostir sem við kunnum að meta. Þú þarft að vera með bílpróf og hafa góða almenna tölvukunnáttu. Áhugasamir sendi umsókn ásamt ferilsskrá á andrew@procar.is

●●Eddan kom Kristínu Júlla á óvart ●●Horfðu á logana frá Holuhrauni út um gluggana

Pracownik w Keflaviku poszukiwany.

Kristín Júlla Kristjánsdóttir, förðunarmeistari úr Garði, hlaut Edduna á dögunum fyrir gervi í kvikmyndinni Hrútum. Þetta er annað árið í röð sem Kristín hlýtur þessi virtu verðlaun. Í fyrra hlaut hún þau fyrir gervi í kvikmyndinni Vonarstræti. Við afhendingu verðlaunanna hélt Kristín ræðu þar sem hún meðal annars þakkaði Bárðdælingum kærlega fyrir samstarfið en kvikmyndin var tekin upp í Bárðardal. Þá tileinkaði hún sonum sínum, þeim Skarphéðni, Júlíusi og Víglundi Edduna. Í viðtali við Víkurfréttir kvaðst Kristín vera mjög þakklát fyrir að hafa hlotið Edduna enda sé það mikil viðurkenning. „Ég bjóst ekki við því að hljóta Edduna í ár en veit þó að ég átti hana alveg skilið fyrir gott starf. Satt best að segja fannst mér við þrjár sem tilnefndar vorum alveg koma jafn mikið til greina.“ Áslaug Dröfn Sigurðardóttir var tilnefnd fyrir gervi í kvikmyndinni Fúsa og Heba Þórisdóttir fyrir kvikmyndina Ant Man. Næstu verkefni Kristínar eru gervi í stuttmynd í leikstjórn Nönnu Kristínar Magnúsdóttur. Ólafur Darri Ólafsson mun leika aðalhlutverkið í myndinni. Á dagskránni eru svo ein til tvær bíómyndir sem Kristín getur ekki sagt nánar frá að svo stöddu þar sem hún er ekki búin að undirrita samninga enn. Kristín var orðin 35 ára þegar hún hóf nám í förðun. Áður vann hún á tannlæknastofu, sem stuðningsfulltrúi í Gerðaskóla og við ýmis störf. Kristín eignaðist sitt fyrsta barn þegar hún var 19 ára gömul. „Maðurinn minn er sjómaður og ég hélt utan um heimilið. Síðar fór mig svo að langa að breyta til og tók svo bara ákvörðun um að gera það.“ Kristín segir það ekki hafa legið beint við á þeim tíma að læra förðun heldur hafi það verið skyndiákvörðun. „Ég sá námið auglýst í blaði og ákvað

Nowo otwarty oddział wypożyczalni samochodów poszukuje energicznej osoby do pracy w garażu. Do obowiązków takiej osoby należy: -sprzątanie samochodów -sporządzenie oględzin aut -inne drobne prace związanie z wypożyczaniem samochodów Osoba na tym stanowisku powinna być punktualna oraz uczciwa. Wymagania: -prawo jazdy kat. B -podstawowa znajomość obsługi komputera Gwarantujemy: -pracę w miłej atmosferze -możliwość rozwoju Jeśli jesteś zainteresowany stanowiskiem, wyślij swoje CV na adres email: andrew@procar.is

HEFUR ÞÚ GAMAN AÐ BÍLUM? Þjónustufulltrúi

Bílabúð Benna óskar eftir þjónustufulltrúa í sölusal í Reykjanesbæ. Við leitum að drífandi og metnaðarfullum einstakling með þægilegt viðmót og ríka þjónustulund. Um er að ræða framtíðarstarf hjá spennandi og öflugu fyrirtæki í sókn. Starfssvið:

Hæfniskröfur:

• Aðstoð við sölu nýrra og notaðra bíla

• Þekking á bílum er kostur

• Þjónusta við viðskiptavini

• Hæfileikar í mannlegum samskiptum

• Þrif á bílum

• Frumkvæði, eldmóður og vinnusemi

• Önnur tilfallandi störf

• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Umsóknir berist á tölvupóstfangið svavarg@benni.is fyrir miðvikudaginn 16. mars. Nánari upplýsingar veitir Svavar Grétarsson í síma 420 3330.

OPEL

bara að gera þetta. Ég er svolítið hvatvís.“ Kristín hafði alltaf haft mikla sköpunarþörf og fannst spennandi að búa til karaktera. „Svo áttaði ég mig á því að þetta væri rétti vettvangurinn. Þetta var eitthvað sem bjó inni í mér og ég vissi ekki alveg hvað væri. Mig langaði ekki að læra förðun til að búa til glamúr. Ég geri það auðvitað líka en það er ekki þar sem áhuginn liggur,“ segir Kristín sem vill helst bara vinna við bíómyndir og sjónvarpsþætti og gerir líka gervi fyrir sjónvarpsauglýsingar. Það ferli að skapa persónur fyrir kvikmynd getur tekið langan tíma og vinnur Kristín þá í samstarfi við leikstjóra og búningahönnuði. „Ef leikstjórinn er löngu búinn að ákveða hvaða sminka starfar að kvikmynd þá byrjar fólk að kasta hugmyndum á milli allt að ári áður en tökur hefjast. Svo byrjar maður að vinna á launum um það bil mánuði áður en tökur byrja. Þá fer maður að hitta leikarana og fólk fer að vinna enn nánar saman við að búa til endanlegt útlit.“ Kristín segir starfið skiptast í tarnir og svo koma yfirleitt hlé inn á milli verkefna. Eins og áður sagði hlaut Kristín á dögunum Edduna fyrir gervi í kvikmyndinni Hrútum. Alls hlaut kvikmyndin 11 verðlaun á Eddunni. Kvikmyndin var öll tekin upp norður í Bárðardal. Allir sem að myndinni komu dvöldu að gistiheimilinu Kiðagili í dalnum og segir Kristín það hafa verið magnað að

Maðurinn minn er sjómaður og ég hélt utan um heimilið. Síðar fór mig svo að langa að breyta til og tók svo bara ákvörðun um að gera það. dvelja þar. „Það hefði nú átt að koma fram hjá einhverju okkar á Eddunni að við vorum í Bárðardal þegar eldgosið hófst í Holuhrauni. Við horfðum á logana út um gluggana og það stóð allan tímann sem við vorum í dalnum. Það var því alltaf yfir okkur. Það var mikil spenna að fylgjast með fréttum, til dæmis um það hvort það myndu verða flóð. Ég og Siggi Sigurjóns töluðum mikið um það að eldgosið hafi gefið myndinni einhvern yfirnáttúrulegan kraft. Þetta var magnað tímabil og maður komst í svo nána snertingu við náttúruna.“ Ekki er hægt að ljúka viðtalinu án þess að spyrja Kristínu hvort hún hafi farðað eitthvað af sauðfénu sem lék í Hrútum. „Já, reyndar gerði ég það. Það var einn hrútur sem í myndinni fannst dauður úti í móa. Ég þurfti að setja á hann blóð og froðu í munnvikin. Froðan var vegna þess að hann átti að vera með riðu.“

Umfangsmikil kannabisræktun stöðvuð ■■Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í síðustu viku umfangsmikla kannabisræktun í umdæminu. Hún var til staðar í íbúð sem hafði sýnilega verið leigð gagngert til þess að framleiða þar kannabisefni, því enginn bjó í henni. Karlmaður og kona voru handtekin á vettvangi og viðurkenndi karlmaðurinn að hafa staðið fyrir ræktuninni. Rökstuddur grunur leikur á að þarna hafi farið fram dreifing og sala fíkniefna. Fengin var dráttarbifreið með gám til að fjarlægja plönturnar og mikið magn tóla og tækja sem notuð höfðu verið við framleiðsluna. Málið telst upplýst.


HLAÐINN TILFINNINGU.

Nýr ŠKODA Superb. Stærri, rúmbetri og þægilegri. Superb er stærri og rúmbetri en áður og útbúinn þægindamöguleikum sem gera aksturinn draumi líkastan fyrir alla, jafnt ökumann sem farþega. Nýr ŠKODA Superb er tilkomumeiri og hlaðinn meiri tilfinningu en nokkru sinni fyrr. Komdu í reynsluakstur og gefðu gleðinni lausan tauminn.

HEKLA · Njarðarbraut 13 · Reykjanesbæ · Sími 590 5090 · heklarnb.is

www.skoda.is


10

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 25. febrúar 2016

Reynslusögur ekki góður mælikvarði á hollustu ●●Næringarfræðingurinn Ólafur Gunnar Sæmundsson ólst upp í Garði l Á margar góðar minningar þaðan úr eggjaleit og öðru bralli

Ólafur Gunnar Sæmundsson, næringarfræðingur, er fæddur og uppalinn í Garðinum. Á síðasta ári gaf hann út bókina Lífsþróttur, næringarfræði fróðleiksfúsra. Bókin er ein tíu bóka sem tilnefndar voru til verðlauna Hagþenkis árið 2015. Viðurkenningin er veitt fyrir fræðirit, námsgögn eða aðra miðlun fræðilegs efnis til almennings.

Indælt að alast upp í Garði

Ólafur fæddist í Lyngholti í Garði í september 1961 og er elsta barn hjónanna Soffíu G. Ólafsdóttur og Sæmundar Kr. Klemenssonar. Þremur árum síðar voru þeir bræðurnir orðnir þrír og árið 1970 bættist svo systir í hópinn. Fram til ársins 1968 bjó fjölskyldan í Lyngholti og þá í sambýli með móðurforeldrum Ólafs. Þá flutti kjarnafjölskyldan að Skólabraut 12 þar sem Ólafur bjó allt þar til hann hélt til Bandaríkjanna í háskólanám árið 1984. Ólafur segir það hafa verið indælt að alast upp í Garðinum í skjóli fjölskyldu, kunningja og góðra vina. „Þar var margt brallað eins og gengur. Úr Garðinum á ég margar góðar minningar sem tengjast ferðum upp í heiði í eggjaleit, veiði niðri á bryggju, brennusöfnun, Gerðaskóla, vinnu í ýmsum fiskverkunarhúsum og leikhússtarfi svo fátt eitt sér nefnt,“ segir hann. Þegar Ólafur kom heim úr námi í Bandaríkjunum árið 1989 fékk hann inni hjá ömmu sinni og afa í Garði og

bjó þar í um tvö ár áður en hann flutti til Reykjavíkur enda kominn þar með vinnu sem tengdist náminu og það á tveimur stöðum, á Landspítalanum, þar sem hann vann á Göngudeild sykursjúkra hálfan daginn og síðan á endurhæfinga- og forvarnarstöðinni Mætti hf. Á þessum tíma kynntist Ólafur konu sinni og árið 1994 fluttu þau á Seltjarnarnes og búa þar enn ásamt þremur börnum.

Næringarfræðin snýst um fjölbreytni

Í dag kennir Ólafur næringarfræði v i ð Há s k ó l a Reykjavíkur og sér um næringarráðgjöf hjá Skólamat ehf. Ólafur segir næringarfræðina ekki snúast um boð og bönn heldur f j ölbre yt ni og ákveðna hófsemi. Hann segir einnig að hafa megi í huga að orku- og næringarþörf fólks geti verið misjöfn og að neysla sem henti einum þurfi ekki endilega að henta öðrum. Þetta eigi ekki síst við í ljósi umræðunnar sem er oft einsleit. „Um-

fjöllun einskorðast allt of oft við svokallað megrunarfæði og öfgakenndan heilsufæðisboðskap þar sem fólk fær þau skilaboð að mest af því sem það er vant að borða sé óhollt og jafnvel stórskaðlegt,“ segir hann. Ólafur segir mataræði Íslendinga hafa batnað nokkuð undanfarin ár. „Við höfum til dæmis aukið neyslu á ávöxtum, grænmeti og grófkornmeti, þó þar megi enn gera betur. Við höfum einnig dregið úr drykkju sykraðra gosdrykkja en þess í stað aukið vatnsdrykkju og neysla mettaðrar fitu og transfitu hefur minnkað.“ Ólafur segir að þ r át t f y r i r a ð margt hafi færst til betri vegar sé ljóst að margir mættu bæta mataræði sitt. „Sem dæmi má nefna að margir borða því miður meira en þörfin segir til um á m e ð an a ð r i r borða minna en þörf er á. Ástæður þessa geta verið margar og oft er um flókið samspil að ræða sem tengist umhverfi, erfðum og samfélagslegum þáttum,“ segir hann.

Átak til atvinnusköpunar

Á markað með snjallt nýsköpunarverkefni?

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átaki til atvinnusköpunar. Veittir eru styrkir til nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja.

Ólafur var á dögunum tilnefndur til verðalauna Hagþenkis fyrir bók sína Lífsþróttur, næringarfræði fróðleiksfúsra.

Reynslusögur ekki góður mælikvarði

Aðspurður um hvert eigi að sækja eftir áreiðanlegum upplýsingum um hollustu segir Ólafur nærtækast að benda á vefsíðu Embættis landlæknis þar sem hægt sé að nálgast margs konar fræðsluefni sem tengist næringu og næringarfræði. „Fólk skyldi alltaf hafa varann á þegar til dæmis er fullyrt að einhver efni búi yfir undraverðum heilsufarslegum lækningamætti og þær fullyrðingar jafnvel bakkaðar upp með svokölluðum reynslusögum. Það að notast við reynslusögur sem sönnun fyrir virkni efnis á ákveðin heilsufarsvandamál er með öllu ómarktækt og flokkast undir gervivísindi og kukl!“

Útgáfan á bókinni Lífsþrótti á síðasta ári var sú þriðja en bókin kom einnig út árin 1999 og 2007 og hefur tekið miklum breytingum með hverri útgáfu. Ólafur segir bókina alfræðibók um hina fjölbreyttustu kima næringarfræðinnar en ekki um neinar töfraleiðir til megrunar. Í bókinni er fjallað um viss grunnatriði næringarfræðinnar, eins og hlutfall orkuefna, orkugildi, orkuþörf og ráðlagða dagskammta, átraskanir, íþróttir og næringu og margt fleira. Þá eru einnig teknar fyrir ýmsar mýtur varðandi mataræði. Til dæmis sú að brauð sé fitandi, kókosolía sé ofurfæða og að magnesíum og sítrónur séu allra meina bót.

VIÐ BYGGJUM UPP Á REYKJANESI

Markmið verkefnisins: Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari ármögnun sjóða og árfesta Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða frumkvöðla og fyrirtækja Sérstök áhersla er lögð á Verkefni sem eru nýjung og skapa ný störf Nýsköpun og/eða samstarfsverkefni sem byggir á hönnun Nýsköpun sem á sér stað í klasasamstarr Verkefni sem eru að stíga fyrstu skref á alþjóðamarkaði Nánari upplýsingar og rafræn umsóknareyðublöð eru á www.nmi.is Beiðni um upplýsingar og aðstoð má senda á netfangið: hildur@nmi.is

Umsóknarfrestur til kl. 12:00 á hádegi þann 30. mars

Fyrirtækið Friðrik VIII byggir glæsilegan þjónustu- og söluskála við Reykjanesvita. Það er okkur ánægja að tilkynna að allri undirbúningsvinnu er nú lokið og að framkvæmdir hefjast bráðlega. Friðrik VIII

Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,

Elínrós Jónsdóttir

Njarðarvöllum 2, Njarðvík, lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu, sunnudaginn 6. mars. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, þriðjudaginn 15. mars kl. 13:00. Þórður Ingimarsson, Margrét Skarphéðinsdóttir, Jónatan Ingimarsson, Erla Vigdís Óskarsdóttir, Guðmundur Jens Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn.


SAFNAHELGI Á SUÐURNESJUM

DAGANA 12. -13. MARS ÓKEYPIS Á ÖLL SÖFN

Garður

SÓKNARÁÆTLUN SUÐURNESJA

Sandgerði Reykjanesbær Keflavíkurflugvöllur

Reykjanesbraut

Vogar

Hafnir

Suðurstrandarvegur Reykjanestá

Grindavík

Sjá dagskrá á safnahelgi.is


ÓKEYPIS Á ÖLL SÖFN

SAFNAHELGI Á SUÐURNESJUM DAGANA 12. -13. MARS

Salthúsið

Stamphólsvegur 2 Opið laugardag og sunnudag frá kl. 13:00 Málverkasýning. Guðni Már Henningsson útvarpsmaður á Rás 2 með málverkasýningu. Sýningin ber heitið Pen in my heart og er sótt í texta Rolling Stones. Viðburður: Tónleikar laugardag kl. 21:00. Blítt og létt hópurinn flytur öll bestu Eyjalögin í þjóðhátíðarstíl. Aðgangseyrir kr. 2.500.

Garður Byggðasafnið á Garðskaga. Skagabraut 100. Opið laugardag og sunnudag kl.13:00 - 17:00. Leiðsögn verður um safnið. Ljósmyndasýningin: Bílar á ljósmyndum. Bílar Garðmanna í hálfa öld 1930-1980. Hólmsteinn og vitinn verður opinn ef veður leyfir. Viðburður; Frumsýning á stuttri heimildamynd um listahátíðina Ferska vinda laugardaginn 12. mars kl. 14:00.

Verslunarmiðstöðin

Víkurbraut 62 Opið laugardag og sunnudag kl. 13:00 – 17:00 Málverkasýning á 2.hæð á völdum verkum í eigu Grindavíkurbæjar. Heilsuskólinn Krókur, Leikskólinn Laut og Grunnskóli Grindavíkur sýna einnig verk nemenda sinna.

Skólabraut 9-10 Opið laugardag og sunnudag kl. 13:00 - 17:00 Handverksfélagið Greip með sýningu á útskurði og málverkum.

Verkalýðshúsið

Ljósmyndasýning: Útför Unu í máli og myndum. Heitt á könnunni og meðlæti í boði.

Sýning og sala á leðurvörum, skarti og fallegum hlutum.

Samsýning grindvískra málara. Anna María Reynisdóttir, Berta Grétarsdóttir, Lóa Sigurðardóttir, Sólveig Ólafsdóttir og Þóra Loftsdóttir sýna verk sín sem þær hafa málað undanfarin misseri.

Ævintýragarðurinn.

Grindavíkurkirkja

Til sýnis verða skúlptúrar stórir sem smáir eftir Helga Valdimarsson.

Star Wars og Harry Potter í kirkjunni. Óvæntar hliðar orgelsins. Bjartur Logi Guðnason organisti kynnir orgelið fyrir gestum og spilar skemmtileg og óvænt tóndæmi. Kynning á kirkjunni og starfsemi hennar.

Gallery Ársól.

Kothúsum. Opið laugardag og sunnudag kl.12:00 – 17:00

Urðarbraut 4 Opið laugardag og sunnudag kl.13:00 -17:00

Grindavík Kvikan, auðlindaog menningarhús Hafnargötu 2 Opið laugardag og sunnudag kl.11:00 - 17:00

Þrjár áhugaverðar sýningar um auðlindir í Grindavík; Guðbergsstofa, Jarðorkusýning og Saltfisksýning. Málverkasýning Halldórs Inga Emilssonar er á efri hæð. Verk hans eru innblásin af íslenskri náttúru.

Framsóknarhúsið

Víkurbraut 27 Opið laugardag og sunnudag kl.12:00 - 20:00 Grindvíkingurinn Rúnar Þór Þórðarson sýnir málverk af bátum og landslagi í Grindavík.

Bókasafnið

Ásabraut 2 Opið laugardag kl.12-16 og sunnudag kl.13:00 - 16:00 Myndlistarsýningar. Fannar Þór Bergsson leirlistamaður og popplistamaðurinn Hjalti Parelíus með sýningar.

Víkurbraut 58

Viðburður: Sunnudagur kl. 18:00. Ljóðakvöld. Allt milli hafs og himins. Félagar úr ritlistarhópi Kópavogs lesa úr verkum sínum.

Minja- og myndasýning Þorbjarnar hf Við Ægisgötu. Opið allan sólarhringinn.

Í gömlu fiskmóttökulúgunum við gamla salthúsið eru átta gluggar og einn gluggi að Hafnargötu 12, þar sem skrifstofa fyrirtækisins er. Í þessum gluggum er sýning á gömlum munum og myndum, sem safnast hafa upp hjá fyrirtækinu í gegnum árin bæði tengdum fiskveiðum og fiskvinnslu. Á flettiskjám eru sýndar gamlar myndir frá starfsemi fyrirtækisins.

Handverkshúsið

Söguhús Unu Guðmundsdóttur Gerðavegur 28a Opið laugardag og sunnudag kl.13:00 – 17:00

Geo hótel

Víkurbraut 46 Opið laugardag og sunnudag kl. 14:00 - 17:00

Reykjanesbær Duus Safnahús

Duusgötu 2-8, Keflavík Opið laugardag og sunnudag kl. 12:00 – 17:00 duusmuseum.is 6 sýningar Gestastofa Reykjanesjarðvangs Sýning um myndun og mótun Reykjanesskagans, lífríki og náttúrufar. Eitt af hlutverkum Reykjanes jarðvangsins er að auka þekkingu almennings á jarðminjum, sögu og menningu svæðisins. Viðburður: Laugardagur kl. 14:00. Kynning á nýju gönguleiðakorti fyrir Reykjanes UNESCO Global Geopark. Fyrirtækið Borgarmynd vinnur nú að nýju handteiknuðu gönguleiðakorti fyrir Reykjanesskagann. Kortagerðarfólkið verður á staðnum og sýnir kortið og ræðir ferlið frá hugmynd að útgáfu.

Opið hús laugardag kl. 14:00 - 16:00

Viðburður laugardag kl.17:00: Formleg setning Menningarviku í Grindavíkurkirkju. Á meðal atriða eru Barnakór Grindavíkur 1978-1981 sem kemur saman á ný. Bæjarlistamaður Grindavíkur verðlaunaður. Veitingar að lokinni athöfn. Viðburður sunnudag kl. 17:00: Söng vaskáld á Suðurnesjum, Sigvaldi Kaldalóns. Tónleikar í Grindavíkurkirkju. Aðgangseyrir kr. 1.500, selt við innganginn.

Bílabíó

Á horni Ægisgötu og Verbrautar Laugardag og sunnudag kl.18:00 og fram í birtingu Minja-og sögufélagið með ljósmyndasýningu á gafli fiskverkunarfyrirtækisins Þróttar.

Gjáin

Austurvegi 1-3. Opið sunnudag kl. 13:00 - 18:00 Handverkshátíð. Rúmlega 30 hand verksaðilar frá Grindavík og víðar að sýna og selja handverk í fremstu röð. Allir velkomnir.

Bátasalur: Bátafloti Gríms Karlssonar Rúmlega 100 líkön af bátum úr skipaflota landsmanna sem Grímur Karlsson fyrrverandi skipstjóri hefur smíðað. Einnig má sjá ýmsa gripi og ljósmyndir sem tengjast sjávarútvegssögu Íslendinga og koma frá Byggðasafni Reykjanesbæjar. Viðburður: Laugardagur kl. 15:00. Félag harmonikkuunnenda á Suðurnesjum leikur sjómannalög. Bíósalur: Íslensk náttúra, verk úr safneign Listasafns Reykjanesbæjar Verkin spanna yfir 100 ára sögu náttúrumyndlistar á Íslandi og þarna má sjá fjölbreytt verk eftir 15 listamenn m.a. Þórarin B. Þorláksson, Kjarval, Ásgrím Jónsson, Eirík Smith, Húbert Nóa og Arngunni Ýr. Listaverkin eru unnin í olíu, leir og textíl. Gryfjan: Herinn sem kom og fór Sýning Byggðasafns Reykjanesbæjar segir sögu rúmlega hálfrar aldar veru ameríska hersins á Keflavíkurflugvelli og hvað gerðist þegar stöðin lokaði og herinn fór. Á skjá veður sýnt sjónvarpsefni frá Víkurfréttum sem tekið var þegar stöðinni var lokað haustið 2006. Viðburður: Sunnudagur kl. 14:00. Leiðsögn sýningarstjóra. Sigrún Ásta Jónsdóttir safnstjóri Byggðasafns Reykjanesbæjar er sýningarstjóri þessarar sýningar og mun leiða gesti um sýninguna. Listasalur: ICELAND DEFENSE FORCE - ÁSBRÚ „Ára yfirgefinna staða“ er viðfangsefni Braga Þórs Jósefssonar ljósmyndara í myndröðinni sem sýnd er á vegum Listasafns Reykjanesbæjar. Flestar ljósmyndirnar tók Bragi á Keflavíkurflugvelli í kjölfar brottflutnings hersins árið 2006.


SAFNAHELGI Á SUÐURNESJUM DAGANA 12. -13. MARS

Viðburður: Sunnudagur kl. 15:00. Leiðsögn listamannsins. Bragi Þór Jósefsson hefur starfað við ljósmyndun frá árinu 1987. Ljósmyndirnar á sýningunni eru teknar á árunum 2006-2016. Miðloft: Þyrping verður að þorpi Grunnsýning Byggðasafns Reykjanesbæjar á Miðlofti í Bryggjuhúsi þar sem stiklað er á stóru um sögu svæðisins frá níundu öld til miðrar síðustu aldar. Bryggjuhúsið er elsta húsið af Duus Safnahúsum, byggt 1877 og búið er að endurgera húsið í upprunalegri mynd. Kaffihús með léttar veitingar er á staðnum.

Sýning þar sem aldarlöng saga slökkviliða á Íslandi er rakin eins og hún birtist í bílum og tækjabúnaði auk fjölda ljósmynda frá þessari sögu. Sýningin var sett upp og er rekin af slökkviliðsmönnum í sjálfboðastarfi.

Leikfangasafn Helgu Ingólfsdóttur

Virkjun, Flugvallarbraut 740, Ásbrú Opið laugardag og sunnudag kl.12:00 - 17:00 Brúðusýning. Kynning á leikfangasafni Helgu Ingólfsdóttur sem verið er að setja upp í Virkjun. Leikföngin eru bæði gömul og ný og spanna síðustu hundrað árin, allt frá þjóðbúningadúkkum til þekktra persóna úr Star Wars.

ÓKEYPIS Á ÖLL SÖFN

Listatorg

Garðvegi 1 Opið laugardag og sunnudag kl.13:00 - 17:00 Aftur til rótar: Sýning Nýrrar víddar um upphaf og sögu Listatorgs í Sandgerði. Myndir og listmunir frá upphafsárum listafélagsins Ný Vídd í Sandgerði.

Vogar Norðurkotsskóli

Kálfatjörn Opið laugardag og sunnudag kl.13:00 - 15:00

Rokksafn Íslands

Hljómahöll, Hjallavegi 2, Ytri-Njarðvík Opið laugardag og sunnudag kl. 11:00 – 18:00. rokksafn.is Rokksafn Íslands er nýtt safn um sögu popp- og rokktónlistar á Íslandi. Þar er saga tónlistar á Íslandi sögð allt frá árinu 1830 til dagsins í dag á lifandi máta með aðstoð ljósmynda, skjáa og skjávarpa. Gestir fá afhenta spjaldtölvu svo þeir geti kafað enn dýpra í söguna. Á safninu er hljóðbúr þar sem gestir geta leikið lausum hala og prófað sig áfram á rafmagnstrommusett, gítar, bassa og hljómborð. Fyrsta sérsýning Rokksafnsins fjallar um stórsöngvarann Pál Óskar Hjálmtýsson og ber heitið „Páll Óskar - Einkasafn poppstjörnu“. Páll Óskar er mikill safnari og sjá má alls kyns gripi úr hans eigu sem spanna líf hans frá fyrstu tíð. Páll Óskar segir sjálfur frá hverju æviskeiði með hjálp tækninnar. Þá geta gestir skellt sér í söngklefa og sungið Pallalög í þar til gerðu hljóðveri og prófað að hljóðblanda vel valin Pallalög eftir upprunalegum hljóðrásum. Kaffihús með léttar veitingar er á staðnum.

Bókasafn Reykjanesbæjar

Ráðhúsinu Tjarnargötu 12, Keflavík. Opið laugardag: 11:00-17:00. bokasafn@reykjanesbaer.is Teiknimyndasögu-sýningin „Þetta er allt Viggó að kenna“. Teiknimyndasögur eftir Inga Jensson. Hinn klassíski evrópski/ belgíski myndasögustíll einkennir verk Inga og áhersla á húmor er alls ráðandi. André Franquin (höfundur Viggós viðutan) er hans helsti áhrifavaldur.

Skessan í hellinum Svarti hellir við smábátahöfnina í Gróf, Keflavík Opið laugardag og sunnudag kl. 10:00 – 17:00 ef veður leyfir. skessan.is

Skessan, persóna Herdísar Egilsdóttur úr bókunum Sigga og Skessan, er flutt til Reykjanesbæjar og hefur komið sér fyrir í Svarta helli í Gróf í Keflavík. Hún býður gestum og gangandi að heimsækja sig í hellinn.

Slökkviliðssafn Íslands

Safnamiðstöðin Rammi, Seylubraut 1, InnriNjarðvík. Opið laugardag og sunnudag 13:00 - 17:00

Íbúð kanans

Lífið á vellinum, Life on a Nato base Grænásbraut 607, West Avenue, Ásbrú Opið laugardag og sunnudag 13:00 -17:00 Sýning um hversdagslíf bandarískra hermanna á varnarstöðinni í Keflavík.

Opin vinnustofa Ljósops

Vatnsnes, Vatnsnesvegi 8, Keflavík Opið laugardag og sunnudag kl. 13:00 – 16:00. ljosop.is

Minja- og sögufélag Vatnsleysustrandar opnar skólasafnið í Norðurkotsskóla fyrir almenningi. Á safninu er 144 ára skólasögu Vatnsleysustrandahrepps, síðar Voga, gerð skil í máli og myndum. Ýmsir munir og ritaðar heimildir sem tengjast sögunni prýða safnið auk íbúðar kennara í risi.

Stóru-Vogaskóli

Bókasafnið, Tjarnargötu 2 Opið laugardag kl. 15:00 -16:30 Lestrarfélagið Baldur stendur fyrir kynningu á lokaskýrslu fornleifaskráningar í Vogum. Kristborg Þórsdóttir fornleifafræðingur hjá Fornleifastofnun Íslands kynnir þriðju og síðustu skýrsluna um fornleifar í sveitarfélaginu Vogum og sýnir myndir af áhugaverðum fornleifum og tekur þátt í umræðum. Boðið upp á kaffi og kleinur.

Ljósop, Félag áhugaljósmyndara í Reykjanesbæ verður með opið hús í vinnurými sínu í Vatnsnesi og býður alla gesti velkomna. Viðburður: Andlit bæjarins, áframhald á myndatöku laugardag 12. mars kl. 14:00.

Gallerí Svarta pakkhúsið Hafnargötu 2, Keflavík Opið laugardag og sunnudag kl.13:00 – 17:00

Alls kyns handverk og listmundir á góðu verði eftir íbúa á svæðinu. Gler, leir, prjón, fatnaður, skrautmunir, skartgripir o.fl.

Sandgerði Þekkingarsetur Suðurnesja,

Garðvegi 1. Opið laugardag og sunnudag kl.13:00 - 17:00 Fjórar sýningar í húsinu Náttúrugripasýning: Lifandi sjávardýr og ýmis uppstoppuð dýr sem gaman er að skoða. Heimskautin heilla: Glæsileg sýning sem fjallar um líf og dauða vísindamannsins og heimskautafarans Jean-Babtiste Charcot. Huldir heimar hafsins – Ljós þangálfanna: Falleg og áhugaverð sýning þar sem vísindalegum fróðleik um mikilvægi hafsins og hættur sem að því steðjar, er fléttað saman við ævintýraheim þangálfanna. Garðvegur 1 – Arfur breyttrar verkmenningar: Skemmtileg umfjöllun í máli og myndum um sögu húsnæðisins sem í dag hýsir þekkingarsetur Suðurnesja.

Bókasafn Sandgerðis

Grunnskólanum Opið laugardag og sunnudag kl.13:00 - 17:00 Sofðu unga ástin mín: Sýning á barnavögnum í eigu Gyðu Bjarkar Jóhannsdóttur.

Sundlaugin Vogum Hafnargötu 17 Opið laugardag 17:00 - 24:00

Ljósmyndasýning í félagsmiðstöð: Myndir af mannlífi og náttúru í Vogum fyrr og nú. Wipeoutbraut í sundlauginni, tímataka og brjálað fjör kl. 17:00 - 20:00. Aqua Zumba: Kynning á þessari frábæru hreyfingu í vatni. Tónlist og fjör kl.20:30 - 21:00. Samflot: Leiðbeinendur aðstoða fólk og kynna verkefnið. Lánshettur í boði. 21:30 - 22:00. Sundlaugin opin til miðnættis. Viðeigandi tónlist leikin og allir hvattir til að kíkja í kvöldsund.

Álfagerði

Akurgerði 25 Tónleikar sunnudag kl. 17:00 Sellótónleikar. Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir leikur einleik á selló og syngur einnig. Á efnisskrá eru gömul og ný verk fyrir einleiksselló, einstaklega vel skrifuð fyrir hljóðfærið, fjölskrúðug og ólík.


www.safnahelgi.is Skannið kóðann til þess að fá dagskrána í símann ÓKEYPIS Á ÖLL SÖFN

VERIÐ VELKOMIN Á SAFNAHELGI Á SUÐURNESJUM DAGANA 12. -13. MARS

Leturgerð: Letter Gothic STD Bold C 100 M 0 Y 16 K 11

PANTONE 3135

C 0 M 15 Y 70 K 50

PANTONE 4505


fimmtudagur 25. febrúar 2016

15

VÍKURFRÉTTIR

Tólf manns með sex málverkasýningar í Menningarviku

Blítt og létt hópurinn með gömlu og góðu Eyjalögin ●● Menningarvikan í Grindavík hefst á laugardag með pompi og pragt Grindvíkingar og Vestmanneyingar hafa ávallt tengst sterkum böndum enda myndarleg sjávarútvegspláss, öflugir íþróttabæir og menningin blómstrar á báðum stöðum. Í Menningarvikunni í Grindavík fá heimamenn góða heimsókn frá Vestmannaeyjum þegar sönghópurinn Blítt og létt mætir og verður með Eyjakvöld á Salthúsinu næsta laugardagskvöld klukkan 21:00. Þar verða leikin Eyjalög og textum varpað á skjá fyrir almenning til að syngja með. Eyjalögin eru dýrmætur menningararfur sem halda verður á lofti til framtíðar. Sönghópurinn Blítt og létt var Bæjarlistamaður Vestmanneyja 2015. Hópinn skipa valinkunnir Vestmanneyingar eins og Finnur á nikkunni, Óli í Laufási, Simmi og Unnur í Viking, Diddi í Logum, Biggi Nielsen, Davíð í Tölvun, Grímur kokkur, Páll Viðar, Tóti í Dans á Rósum og Helgi Tórshamar. Fjölmargir aðrir valinkunnir einstaklingar hafa síðan leikið og

sungið með hópnum og aldrei er að vita nema Grindvíkingar verði þar á meðal. Hópurinn hefur staðið fyrir svokölluðum Eyjakvöldum mánaðarlega í nokkur ár. Ávallt hefur verið húsfyllir. Að sögn Davíðs Guðmundssonar, eins af forsprökkum Blítt og létts, myndast ávallt góð stemmning. Allir geta sungið með því textinn er á skjánum og því getur hver og einn sungið með sínu nefi. Inn á milli eru sagðar skemmtilegar Eyjasögur sem tengjast lögunum á einn eða annan hátt. Sönghópurinn hefur slegið í gegn undanfarin ár og spilað í Hörpunni, í ráðherraveislu og á fleiri opinberum stöðum. Eyjalögin, til dæmis perlur þeirra Oddgeirs Kristjánssonar og Ása í bæ eru dýrmætur menningararfur sem Eyjamenn eru duglegir að halda á lofti. Blítt og létt hefur lagt sín lóð á vogarskálarnar til að svo megi verða. Færeyingar hafa fengið að njóta ljúfra tóna hópsins og í náinni framtíð stendur til að halda vestur um heim og kynna Eyjalögin þar. Miðaverð er 2.500 og er selt við innganginn.

Alls verða sex fjölbreyttar málverkasýningar í Menningarvikunni í Grindavík sem verður dagana 12. til 20. mars. Ásmundur Friðriksson alþingismaður verður með sýningu á kaffihúsinu Bryggjunni. Sýningin ber yfirskriftina „Blítt og létt við Suðurströndina” og opnar formlega næsta föstudag 11. mars klukkan 16.00. Sýningin verður opin út Menningarvikuna og jafnvel lengur. Ásmundur, sem fagnaði 60 ára afmæli sínu fyrir skömmu, hefur haldið nokkrar einkasýningar. „Þó engin mynd sé frá Grindavík, nema andlitsmynd af Palla í Vísi, þá eru tengingar Eyjanna og Grindavíkur sterkar og það er mér í huga með sýningunni. Ég ætla jafnframt að sitja við og mála mynd á sýningunni þegar ég hef tíma,” segir Ásmundur sem býður alla velkomna á sýninguna. Halldór Ingi Emilson verður með málverkasýningu í Kvikunni í Menningarvikunni en hann er búsettur í Grindavík. Halldór Ingi er 33 ára og stundaði myndlistanám við Myndlistadeild Fjölbrautarskólans í Breiðholti og lauk stúdentsprófi þaðan. Hann stundaði síðan nám í listfræði við Háskóla Íslands árið 2005 til 2006. Halldór hefur teiknað og málað frá barnsaldri. Verk hans eru gjarnan innblásin af íslenskri náttúru. Kemur víða fram næmni hans á stórkostlega liti náttúrunnar og samspil skugga og ljóss. Hann málar gjarnan myndir sínar á staðnum. Stillir upp trönunum og málar þær fyrirmyndir sem hann heillast af í náttúrunni. Halldór hefur líka stundað nám í tónlist við Tónlistaskóla FÍH og er eins og tónlistin komi oft fram í blæbrigðum myndanna. Halldór hefur haldið einkasýningu í Reykjavík. Sýningin verður opin á

opnunartíma Kvikunnar, 12. og 13. mars og 19. og 20. mars. Það verður stór stund fyrir brottflutta Grindvíkinginn Rúnar Þór Þórðarson frá Bræðratungu þegar hann opnar málverkasýningu í Menningarvikunni í Framsóknarhúsinu. Rúnar Þór, sem verður 65 ára í ár, opnar þá sýna fyrstu

einkasýningu en hann hefur áður tekið þátt í þremur samsýningum. „Það er smá kvíði í manni en það verður gaman að sjá hvernig tekið verður á móti brottfluttum Grindvíkingi,“ segir Rúnar Þór og hlær. Hann sýnir aðallega myndir af bátum og frá landslagi í Grindavík, hann málar bæði á striga og krossviðsplötur.„Mér var hent út af vinnumarkaðinum og byrjaði að fikta við þetta fyrir fimm árum eða svo. Í tvö ár var ég hjá Hlutverkasetrinu og þar var myndlistakona sem var að kenna og sótti ég tíma hjá henni í tvö ár. Við vorum fjögur sem stofnuðum svo saman myndlistaklúbb, leigðum okkur sal og þar höfum við málað frá tíu til þrjú einhverja daga í viku. Klúbburinn er enn starfandi,“ segir Rúnar Þór.Römm er sú taug og um leið og hann tók pensilinn í hönd leitaði hugurinn strax á heimaslóðir í Grindavík með viðfangsefni. „Ég er uppalinn í Grindavík, stundaði sjóinn

og var í slorinu. Um leið og ég fór að mála komu æskuslóðirnar strax fram. Ég á fullt af skyldfólki í Grindavík og því verður gaman að koma þangað og halda sína fyrstu einkasýningu,“ sagði Rúnar Þór.Sýningin verður opin frá laugardeginum 12. mars til föstudagsins 19. mars í Framsóknarhúsinu við Víkurbraut.Í Verkalýðshúsinu Víkurbraut 46 verður samsýning grindvískra málara. Anna María Reynisdóttir, Berta Grétarsdóttir, Lóa Sigurðardóttir, Sólveig Óladóttir og Þóra Loftsdóttir sýna verk sín sem þær hafa málað undanfarin misseri. Þær stöllur eru hluti af Handverksfélaginu Greip í Grindavík og hafa áður haldið skemmtilegar sýningar. Í Bókasafni Grindavíkur í Iðu, Ásabraut 2 eru tvær sýningar. Annars vegar Fannar Þór Bergsson leirlistamaður og eigandi „Leira meira“ sem verður með sýningu á fígúrum sem hann hefur leirað og tengjast þær allar teiknimyndum á einn eða annan hátt. Popplistamaðurinn Hjalti Parelíus verður með sýningu á myndum sínum og verða einhverjar þeirra til sölu ef fólk hefur áhuga á að næla sér í verk eftir einn af okkar áhugaverðustu samtíma listamönnum. Helga Kristjánsdóttir bæjarlistamaður Grindavíkur 2016 verður ekki með eiginlega myndlistasýningu heldur verður hún með opna vinnustofu að Vörðusundi 1 dagana 18. Og 19. mars frá kl. 13-18. Málverkasýning Gunnellu verður á Northern Light Inn alla Menningarvikuna. Guðrún Elín Ólafsdóttir sýnir verk sín en hún sækir efni mynda sinna í íslenska náttúru og sögu, þar sem íslenska bóndakonan skipar aðalhlutverkið.

Húsanes Verktakar ehf. kynna nýbygginguna Bjarkardalur 2 í Reykjanesbæ:

Nýjar fullbúnar 3ja – 4ra herbergja íbúðir með öllum gólfefnum sem afhendast í maí 2016. Einstaklega vandaðar íbúðir með sérinngangi og fyrsta lyftuhúsið í þessum hluta Reykjanesbæjar (Innri Njarðvík). Sérsmíðaðar innréttingar frá Parka, vandaðar flísar frá Álfaborg og AEG heimilistæki frá Ormsson. Húsið stendur við sömu götu og næsti grunnskóli hverfisins mun rísa og í næstu götu er einnig skipulagður nýr leikskóli.

Dalvegi 10-14 / 595 0570 / Parki.is

Verð frá 24.9 m.kr. og allt að 98% fjármögnun og útborgun frá 498 þús. Sölusýning þann 19. mars og 20. mars kl. 14.00 – 16.00. Nánar um skil vísast til skilalýsingar hússins á heimasíðunni husanes.is eða hjá fasteignasölunum á eignasala.is og alltfasteignir.is Nánari upplýsingar má nálgast á skrifstofu Eignasölu.is að Hafnargötu 90a, 2h. S: 420-6070 eða eignasala@eignasala.is og hjá Jóni P. hjá Allt Fasteignum, Bæjarhrauni 12 í Hafnarfirði, í síma 772-1757 eða jonni@alltfasteignir.is


16

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 10. mars 2016

Farþegar ánægðir með Keflavíkurflugvöll ●●Keflavíkurflugvöllur lendir í þriðja sæti í alþjóðlegri þjónustukönnun

Keflavíkurflugvöllur er í hópi bestu flugvalla Evrópu árið 2015 samkvæmt þjónustukönnun sem gerð var á vegum alþjóðasamtaka flugvalla, ACI. Könnunin er viðamikil og gerð á öllum helstu flugvöllum heims. Fimm flugvellir voru jafnir að stigum í þriðja sætinu en ásamt Keflavíkurflugvelli voru Kaupmannahafnarflugvöllur, Heathrow flugvöllur í London, flugvöllurinn í Porto og Vínarflugvöllur í þriðja sæti. Í fyrsta sæti voru þrír flugvellir jafnir, Sheremetyevo flugvöllur í Moskvu, Pulkovo flugvöllur í Pétursborg og Sochi flugvöllur. Í könnuninni voru farþegar spurðir um sína upplifun af þjónustu flugvallarins og gefa einkunn í fjölmörgum flokkum. Könnunin nær yfir alla þætti ferðarinnar um flugvöllinn, hvort sem er innritun, öryggisleit, þjónusta í verslunum og veitingastöðum, vegabréfaeftirlit, tollskoðun og aðra þjónustu. Keflavíkurflugvöllur hefur náð góðum árangri í þjónustukönnunum ACI undanfarin ár og þrisvar sinnum endað í fyrsta sæti, árin 2009, 2011 og 2014. Þá var flugvöllurinn valinn á heiðurslista samtakanna árið 2014 fyrir samfelldan góðan árangur og situr þar á meðal 32 flugvalla í heiminum. Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia: „Árið 2015 var stærsta ár í sögu flugvallarins og háannatímar sumarsins voru á stundum erfiðir fyrir farþega og starfsfólk vegna mikils farþega-

Stígandi VE keyptur til Suðurnesja ●●Fær nafnið Marberg

Það var líf og fjör í flugstöðinni í vikunni og hefur verið í allan vetur.

fjölda og yfirstandandi framkvæmda. Starfsfólk Isavia og rekstraraðila í flugstöðinni stóð sig frábærlega í að takast á við þá áskorun og það sést glögglega í því að þrátt fyrir að komið hafi upp tímabil þar sem raðir voru lengri en við viljum sjá og þrengslin stundum mikil þá höldum við okkur í toppsæti yfir flugvelli Evrópu. Ljóst er samkvæmt nýjustu farþegaspá okkar að farþegum um flugvöllinn mun enn fjölga og nú gerum við ráð fyrir 37 prósent fleiri farþegum í ár en fóru um flugvöllinn í fyrra. Við höfum undirbúið okkur vel undir sumarið,

bæði með miklum framkvæmdum og fjölgun starfsfólks og við viljum auðvitað halda okkur áfram í toppnum.“ „Árangur flugvallarins í þjónustukönnun ACI ber vott um fagmennsku ykkar, staðfestu og árangur í því að bjóða viðskiptavinum upp á hágæðaþjónustu. Flugvöllurinn er til sóma fyrir okkar fag og ég þakka starfsfólki ykkar fyrir þennan stórkostlega árangur,“ segir Angela Gittens, framkvæmdarstjóri ACI World, í yfirlýsingu sem hún sendi Isavia í tilefni af niðurstöðunum.

■■Báturinn Stígandi VE hefur verið seldur til Suðurnesja. Kaupandi er Marbrá ehf. í eigu Bergs Þórs Eggertssonar, aðstoðarframkvæmdastjóra Nesfisks í Garði. Frá þessu var greint á vefnum Aflafréttir. Í viðtali við Aflafréttir segir Bergur

að ekki hafi verið tekin ákvörðun um það hvernig báturinn verði nýttur. Bátnum fylgja nokkur veiðarfæri og er hann svo til klár til veiða. Báturinn mun fá nafnið Marberg og einkennisstafina GK 717.

Gera ekki athugasemd við leit að málmum ■■Bæjarstjórn Voga gerðir ekki athugasemd við erindi Iceland Resources ehf. um leyfi til leitar og rannsókna á málmum á Reykjanesskaga. Bæjarráð og bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga fékk á dögunum erindi Orkustofnunar vegna málmleitarinnar til umsagnar. Sveitarfélagið Vogar áréttar þó að það áskilji sér allan rétt til að taka afstöðu til einstakra rannsókna, framkvæmda eða vinnslu með tilliti til áhrifa þeirra á viðkomandi svæði. Þá áréttar sveitarfélagið að umsækjandi þarf, áður en til nokkurra rannsókna eða framkvæmda kemur, að ná samningum við landeigendur um rannsóknir og eða framkvæmdir á eignarlandi.

SJÓNVARP

sg a d u t öll fimm . 21:30 kvöld kl

V I K U L E G U R F R É T TA M AG A S Í N Þ Á T T U R F R Á S U Ð U R N E S J U M Í S J Ó N VA R P I

DÚKKUR&DREKAR

HOLLARI FÆÐA

Helga Ingólfsdóttir safnar leikföngum og sýnir þau í Virkjun á Safnahelginni.

Ásdís Ragna kennir okkur að búa til hollari rétti á fimm mínútum!

NETTÓ-MÓTIÐ Í KÖRFU

Falur Harðarson segir áhorfendum frá stærsta körfuboltamóti Íslands í Reykjanesbæ.

FJÖR Í FLUGSTÖÐ

Hönnunarmars og háannatími í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Allt um það í þættinum.

VILTU AUGLÝSA Í SJÓNVARPI VÍKURFRÉTTA? SÚLUKAST

og hnúfubakar í magnaðri náttúru á Reykjanesi.

FRÉTTAPAKKINN

Ný búsetuúrræði fyrir fatlaða einstaklinga í Sandgerði og m.fl.

Sjónvarp Víkurfrétta er vikulegur fréttamagasínþáttur frá Suðurnesjum sem er sýndur á sjónvarpsstöðinni ÍNN og er einnig aðgengilegur á netinu í háskerpu. Ýmsir auglýsingamöguleikar eru í boði í tengslum við þáttinn. Hafðu samband við auglýsingadeild á póstfangið fusi@vf.is eða í síma 421 0001

Sjónvarp Víkurfrétta - eitthvað fyrir alla!


FISKTÆKNI ER HAGNÝTT NÁM SEM TEKUR EINUNGIS TVÖ ÁR

VEIÐAR VINNSLA FISKELDI

www.fiskt.is Starfstengt nám á framhaldsskólastigi

Spennandi starfsnám fyrir ungt fólk á aldrinum 16 - 25 ára Grunnnám í fisktækni er hagnýtt tveggja ára nám með fjölbreytta starfsmöguleika. Að námi loknu er einnig opin leið til frekara framhaldsnáms og/eða háskólanáms. Fisktækninámið skiptist í þrjár línur eftir áhugasviði nemenda: veiðar, vinnslu og fiskeldi. Náminu er skipt upp í annir og er önnur hver önn bókleg, en hinar kenndar á völdum vinnustöðum í samræmi við áherslur námsins. Á meðan á námstímanum stendur er mikið um heimsóknir í stofnarnir og fyrirtæki tengdum sjávarútvegi. Farið verður í tvær námsferðir erlendis í samstarfi við samstarfsskóla okkar í Danmörku og Portúgal. Kynnið ykkur námið á Facebook og á heimasíðunni www.fiskt.is Innritun fer fram á Menntagátt á www.menntagatt.is Skólaakstur af Suðurnesjum. Þeir nemendur sem þess óska geta einnig verið skráðir í Fjölbrautaskóla Suðurnesja en taka þá faggreinar námsins og verklega þjálfun samhliða í Fisktækniskóla Íslands.

www.fiskt.is

//

info@fiskt.is

//

412 5966


18

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 10. mars 2016

Tugir hnúfubaka og súlur í loðnuveislu á Reykjanesi

Gríðarlegur fjöldi hnúfubaka var fyrir utan Reykjanesskagann í lok síðustu viku samfara stórri loðnutorfu. Öll hvalaskoðunarfyrirtækin sem gera öllu jöfnu út frá Reykjavík voru með skip í Sandgerðishöfn og fluttu rútur þéttsetnar ferðamönnum frá Reykjavík. Þá var fjöldi ferðamanna og heimamanna úti á Reykjanestá sem fyldist með súlum í þúsundavís stinga sér í sjóinn á milli hnúfubaka eftir loðnunni. Að sögn Ara Steinarssonar, framkvæmdastjóra ferðaþjónustufyrirtækisins Reykjavík Sailors, hefur jafn stór hópur ekki sést í háa herrans tíð. „Við töldum örugglega 50 dýr en það er ákaflega sjaldgæft að sjá svona marga hnúfubaka saman. Þetta var einstök upplifun sem fólkið sem var um borð hjá okkur mun aldrei gleyma. Menn náðu þarna einstökum myndum,“ sagði Ari. Hnúfubakur þekkist einna helst á gríðarlega löngum bægslum sem hann sveiflar gjarnan svo því fylgir mikill buslugangur. Hann getur orðið allt að 17 metra langur og þyngstu dýrin vega um 40 tonn (samkvæmt Wikipedia).

Ferðamennirnir á valaskoðunarbátunum voru í nánd við hnúfubakana.

Fjöldi ferðamanna, útlendinga sem Íslendinga fylgdust með sjónarspilinu úti á sjó þar sem súlur og hnúfubakar börðust um ætið.

TÓNLISTARSKÓLI REYKJANESBÆJAR

KVIKMYNDATÓNLEIKAR LÚÐRASVEITARINNAR

Eitthvað áhugavert framundan

Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar heldur kvikmyndatónleika í Stapa, Hljómahöllinni, miðvikudaginn 16. mars kl.18.00. Fram koma yngsta-, mið- og elsta sveitin. Þema tónleikanna verður kvikmyndatónlist af ýmsum toga sem leikin verður með stiklum úr viðeigandi bíómyndum. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Skólastjóri ■■Þessir ungu herramenn voru á göngu um hafnarsvæðið í Grindavík á blíðviðrisdegi nýlega. Af myndinni að dæma er eitthvað áhugavert framundan og ungi maðurinn sem bendir í átt til hafnar er greinilega eitthvað að fara að eiga við fisk, kominn í gúmmíhanska.

Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson


fimmtudagur 10. mars 2016

19

VÍKURFRÉTTIR

LEIKFÖNG ERU STÓR HLUTI AF SÖGUNNI ●● Helga Ingólfsdóttir sýnir hluta af leikfangasafni sínu í Virkjun á Ásbrú ●● Á þann draum að sett verði á stofn safnasafn Helga Ingólfsdóttir þroskaþjálfi heldur sýningu á leikföngum í Virkjun á Ásbrú núna um Safnahelgina. Helga hefur undanfarin ár safnað gömlum leikföngum og segir mikilvægt að varðveita leikfangamenningu enda séu leikföng stór en jafnframt svolítið vanmetinn hluti af sögu okkar. „Börn læra í gegnum leik með leikföng. Til dæmis læra þau hlutverkaleiki og að setja sig í spor annarra og að eiga í samskiptum,“ segir Helga og nefnir sem dæmi að sum börn eigi erfitt með að tjá líðan sína en geti tjáð hana með því að segja að bangsanum sínum líði illa. „Bangsar eru mikið notaðir í samskiptum við börn, til dæmis af lögreglunni og sjúkraflutningafólki og oft með góðum árangri.“ Á sýningunni verða ýmis gömul leikföng, svo sem dúkkur, Star Wars dót, bangsar og annað. Sólveig Sveinbjörnsdóttir, myndlistarkona, hefur aðstoðað Helgu við uppsetningu sýningarinnar en hún hefur mikla reynslu af hönnun og uppsetningum sýninga, bæði hér á Íslandi erlendis. Eins og áður sagði verður leikfangasýningin haldin í Virkjun við Flugvallarbraut 740 á Ásbrú. Virkjun er staður þar sem fólk hittist og vinnur að ýmsum verkefnum og er mikið af eldri borgurum sem þangað sækja reglulega. Helga hefur notið liðsinnis marga þar

og kveðst afskaplega þakklát fyrir þá hjálp sem og að fá þar húsnæði til að setja sýninguna upp.

Byrjaði að sauma þjóðbúninga á dúkkur

Eitt barna Helgu er með fötlun svo hún var mikið heima við á tímabili. Þá byrjaði hún að prjóna og sauma þjóðbúninga á dúkkur. Helga hélt svo brúðusýningu á Ólafsfirði árið 2014. Nokkrar litlar brúður í þjóðbúningum verða á leikfangasýningunni í Virkjun núna um helgina. Síðar átti Helga eftir að dvelja mikið í Svíþjóð þar sem leikfangaáhuginn kviknaði fyrir alvöru. „Á þeim tíma var mikið um að gömul leikföng væru seld á mörkuðum í Svíþjóð og fyrir þau fékk fólk dágóðan pening. Þá var slíkt ekki byrjað hér á Íslandi. Þar byrjaði ég að safna og mörg leikfanganna í safninu mínu er þaðan.“ Flest leikföngin á sýningunni nú keypti Helga á nytjamörkuðum og á netinu. Meðal leikfanga á sýningunni eru postulínsdúkkur frá fyrri hluta síðustu aldar sem Helga fékk úr dánarbúi.

Varasamt að ánetjast tölvunni

Helga segir það áhyggjuefni að mörg börn leiki sér nær eingöngu í tölvum í dag en síður með leikföng. „Það er

hið besta mál að börn læri á tölvur, það er þáttur í þróuninni en það má ekki ganga alla leið og leyfa þeim að ánetjast þessum tækjum. Oft eru tölvuleikir þannig að börn skjóta niður heilan her án afleiðinga og það er skrítin upplifun fyrir þau. Að vísu er það líka hægt með dúkkur en það er samt mín tilfinning að í dúkkuleikjum sé ekki eins mikið um dráp og í tölvuleikjum.“ Hún segir það því miður gerast allt of oft að börn ánetjist tölvum. „Það þekkja sennilega flestir að ef maður situr of lengi við tölvuna þá verður maður að passa sig því það er oft erfitt að standa upp aftur. Börn eiga auðveldara með að leggja frá sér leikföng en ókláraðan tölvuleik.“

Vill að stofnað verði safnasafn

Helga fagnar sjötugsafmæli sínu síðar á árinu. Hún á sér þann draum að leikföngin sem hún hefur safnað verði fólki til sýnis í framtíðinni. „Draumurinn er að það verði stofnað safnasafn hér á Suðurnesjum. Það eru svo margir sem eiga merkileg söfn. Það er draumurinn minn að það sem ég hef safnað hverfi ekki heldur að fólk geti notið þess áfram eftir minn dag. Ég held að nú um stundir séu síðustu tækifærin til að halda í þessa gömu leikfangahefð. Það er þeirra sem eiga ung börn að taka við keflinu af mér. Ég er búin að halda á því lengi og vil koma því áfram.“

Um Creative Take Off: ■■CREATIVE TAKE OFF er nýr vettvangur fyrir hönnuði til að koma verkum sínum á framfæri, staðsettur í brottfararsal Keflavíkurflugvallar. Frábærar hugmyndir fá byr undir báða vængi og þeir sem fara um flugstöðina á leið sinni til annarra landa geti gripið með sér íslenska hágæðahönnun og borið hróður listamannanna út fyrir landsteinana.

Gunnhildur Vilbergsdóttir og Ólöf Steinunn Lárusdóttir, báðar frá Isavia fyrir framan hönnunarsvæðið.

Tíu íslenskir hönnuðir sýna á Keflavíkurflugvelli í mars Íslensk hönnun verður sett í öndvegi á Keflavíkurflugvelli í tilefni HönnunarMars en Isavia í samstarfi við Hönnunarmiðstöð Íslands býður íslenskum hönnuðum að selja hönnun sína á besta stað á verslunarsvæðinu 7. til 22. mars. Auglýst var eftir umsóknum frá íslenskum hönnuðum og um 100 umsóknir bárust frá breiðum hópi hönnuða.

Að sögn Gunnhildar Vilbergsdóttur hjá Isavia var hönnuðum sem hafa ekki verið með vörur sínar í sölu í flugstöðinni boðið að taka þátt. Fulltrúar frá Hönnunarmiðstöð Íslands fóru yfir umsóknir og völdu 10 hönnuði sem munu selja vörur sínar í tímabundnu rými sem ber nafnið Creative Take Off. Gríðarleg gróska er í íslenskri hönnun þannig að valið var erfitt. Áhersla var lögð á að vör-

urnar endurspegli breidd og gæði íslenskrar hönnunar auk þess sem reynt var að gæta að innbyrðis jafnvægi. Í boði verða fjölbreyttar vörur sem gefa ferðamönnum tækifæri til að kynna sér gróskuna í íslenskri hönnun á HönnunarMars. Verk hönnuðina munu prýða sérstakt sölusvæði á besta stað í marsmánuði þar sem þúsundir ferðamanna fara um á degi hverjum.


20

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 10. mars 2016

Söngleikurinn Frelsi settur upp í annað sinn Föstudaginn 11. mars, munu nemendur úr 8. til 10. bekkjum Heiðarskóla frumsýna söngleikinn Frelsi á árshátíð unglingadeildar skólans. Verkið er eftir Skagamennina Flosa Einarsson og Gunnar Sturlu Hervarsson og var síðast sett upp fyrir sex árum, á 10 ára afmælisári skólans. Sló það rækilega í gegn og muna leikararnir sjálfir vel eftir sér sönglandi lögin með stjörnur í augunum yfir leikurunum á göngum skólans, þá töluvert lægri í loftinu en nú. Guðný Kristjánsdóttir og María Óladóttir annast leikstjórn verksins í annað sinn. Almennar sýningar verða mánudaginn 14. mars klukkan 20.00 og þriðjudaginn 15. mars klukkan 20.00. Miðaverð er 1000 krónur en 500 krónur fyrir nemendur skólans. Sýningin stendur yfir í rúma klukkustund.

Á myndinni eru Herborg Hjálmarsdóttir starfsmaður Landsbankans, Jóhann Geirdal, skólastjóri Gerðaskóla og Einar Hannesson, útibússtjóri Landsbankans í Reykjanesbæ.

Styrkja heimildamynd um Gulldrengina Gerðaskóli fær tölvuskjái

að gjöf frá Landsbankanum

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Garðs hefur samþykkt samhljóða að styrkja framleiðslu heimildamyndarinnar „Gulldrengirnir“. Þeir Þorsteinn Surmeli og Eyþór Sæmundsson munu framleiða myndina. Samþykkt var að veita verkefninu styrk að fjárhæð kr. 500.000, með fyrirvara um fjármögnun verkefnisins. Helmingur fjárhæðar verði greiddur út við upphaf verksins og helmingur við lok þess.

Landsbankinn gaf á dögunum Gerðaskóla í Garði sextán tölvuskjái að gjöf. Skjáirnir voru ekki lengur í notkun í bankanum en voru nýlegir og í góðu ástandi. Jóhann Geirdal, skólastjóri Gerðaskóla, segir að gjöfin komi sér einstaklega vel því tölvubúnaðurinn í skólanum hafi verið úr sér genginn.

Lífið með Lindu Maríu

V

iðfangsefni þessa pistils er eitthvað sem ég þekki á eigin skinni, það er eitthvað sem mér finnst ég hafa fengið með móðurmjólkinni. Þetta er sannkallað eitur fyrir mannleg samskipti, þetta litar okkur bæði sem persónur og hefur áhrif á okkur, oft meira en við gerum okkur grein fyrir. Ósætti er fylgifiskur tilfinninga sem eru óuppgerðar, þungar og erfiðar viðureignar. Ekki er þó hægt að halda áfram án þess að viðurkenna að ekki eru allar þessar tilfinningar af sama toga, sem betur fer. Í öllum samböndum hvort sem þau eru fjölskyldubönd, vina eða ástarsambönd þá vottar alltaf af einhvers konar ósætti á einhverjum tímapunkti. Það er prófraun á öll þessi sambönd að vinna sig út úr þessu ástandi, kom-

ast yfir hinum megin eins og Adele syngur hástöfum í storminum. Við megum ekki gleyma því að það er ávallt stutt á milli ástar og haturs, ekki nema þunnur þráður. Ekkert gæti verið eðlilegra en að reiðast stundum eða sárna yfir hlutum sögðum eða gerðum. Oft upplifum við okkur ein í lífsins ólgusjó, heimurinn missir festu sína og við upplifum okkur í frjálsu falli. Við erum illa upplögð, undir álagi eða ekki alveg tilbúin í aðstæðurnar sem við upplifum. Við förum að efast um að viðbrögð okkar hafi átt rétt á sér og gefum okkur falleinkunn. Oft er það okkar Akkilesarhæll, það að við dæmum okkur sjálf alltaf harðast. Það er alls ekki þannig, við mættum standa oftar með sjálfum okkur, við eigum það alveg skilið.

ÆVINTÝRAGARÐUR

HJÁ HELGA VALDIMARSSYNI

„Við vorum að endurnýja tölvuverið og gjöfin varð til þess að við gátum keypt fleiri nýjar tölvur þar sem við þurftum ekki að kaupa nýja skjái,“ segir Jóhann. Alls hefur Landsbankinn gefið 75 tölvuskjái til grunnskóla og félagasamtaka víða um land á undanförnum vikum.

Heimildamynd um Ferska vinda Lífið er samt of stutt til að taka ekki upp tólið og leggja ekki okkar af mörkum til að hreinsa loftið. Ef vilji er fyrir þá er hægt að laga allar brotnar brýr, það er hægt að vinna í öllum vandamálum og ekkert er óyfirstíganlegt. Það þarf bara að taka skrefið, hætta að hræðast og spyrja sig, hvað er það versta sem gæti gerst? Ást og friður Linda María

Heimildamynd um Ferska vinda í Garði verður aðgengileg þegar hún er fullbúin á heimasíðu Sveitarfélagsins Garðs. Guðmundur Magnússon kvikmyndagerðarmaður í Garði vann að upptökum í heimildamyndinni. „Það er mikilvægt að safna heimildum um slíka viðburði og halda þeim til haga. Guðmundur hefur lagt mikið af mörkum í þeim efnum, bæði við gerð

kvikmynda um Garðinn og íbúana og eins hefur hann safnað miklu magni ljósmynda um sögu byggðarlagsins. Hann vinnur að því að gera þetta efni aðgengilegt fyrir almenning. Guðmundur er því einn þeirra listamanna sem vann að listsköpun meðan listahátíðin stóð yfir,“ segir Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í Garði, í pistli sem hann skrifar á vef Sveitarfélagsins Garðs.

Skal heita Norðurljósavegur Nýjasta gatan í Sveitarfélaginu Garði fær nafnið Norðurljósavegur. Gatan er á nýju skipulagssvæði við Garðskaga þar sem m.a. er gert ráð fyrir hótelum og gistihúsum. Þetta var samþykkt í bæjarstjórn Garðs fyrir helgi. Þar var jafnframt samþykkt deiliskipulag fyrir svæðið. Bæjarstjórn samþykkti með 6 atkvæðum úthlut-

unarskilmála fyrir skipulagssvæðið, eins og þeir liggja fyrir í drögum með áorðnum breytingum frá Skipulagsog bygginganefnd sveitarfélagsins. Gísli Heiðarsson bæjarfulltrúi tók ekki þátt í umræðum og afgreiðslu en fyrirtæki sem hann á hlut í hefur fengið úthlutað lóð undir gististað á skipulagssvæðinu.

FUNDARBOÐ OPIÐ Á SAFNAHELGI föstudag, laugardag og sunnudag kl. 13:00 -17:00 í ævintýragarðinum hjá Helga Valdimarssyni að Urðarbraut 4 í Garði.

Stjórn hestamannafélagsins Mána boðar til félagsfundar í reiðhöll Mána mánudaginn 21. mars 2016 kl. 20.00. Efni fundarins: 1. Framtíð félagsheimilis (kaup/sala) 2. Önnur mál Stjórn Mána


fimmtudagur 10. mars 2016

21

VÍKURFRÉTTIR

Sóknarfærin á Suðurnesjum nær endalaus ●● Leiðsögumaður úr Sandgerði ● segir frekar sögur af mannlífi en hraunum ●● Listamenn á Ferskum vindum tala um að ● hafa endurfæðst eftir dvölina í Garði Alþjóðlega listahátíðin Ferskir vindar hlaut í síðustu viku Hvatningarverðlaun ferðaþjónustunnar á Reykjanesi 2016 og Reynir Sveinsson, leiðsögumaður og ljósmyndari úr Sandgerði, hlaut Þakkarverðlaun ferðaþjónustunnar. Verðlaunin voru afhent á vetrarfundi Markaðsstofu Reykjaness í Hljómahöll. Stjórnir Reykjanes UNESCO Global Geopark og Markaðsstofu Reykjaness stóðu að útnefningunni.

Listamenn heillaðir af náttúru og mannlífi

Listahátíðin Ferskir vindar er haldin annað hvert ár í Garði og stendur í fimm vikur yfir háveturinn. Á listahátíðina koma um fimmtíu listamenn víða að úr heiminum. Að sögn Mireyu Samper, listræns stjórnanda Ferskra vinda, hafa verðlaunin mikla þýðingu

fyrir Ferska vinda. „Þetta er merki um að við séum að vinna gott starf og að fólk taki eftir því. Verðlaunin eru ekki síður mikilvæg gagnvart samfélaginu og sýna fram á það að bæjarfélagið er að gera þetta með okkur. Með samstöðu er hægt að gera og góða hluti þó að bæjarfélagið sé lítið,“ segir hún. Mireya er myndlistarmaður og sýnir verk sín um allan heim. Hún segir það mikla gæfu því að á ferðum sínum kynnist hún listamönnum sem hún svo býður að taka þátt í Ferskum vindum. Mireyja segir listamennina oft orðlausa yfir umhverfinu á Suðurnesjum. „Einu sinni kom til okkar maður frá Víetnam sem hafði aldrei áður farið til útlanda. Hann skildi ekkert í því að það væri ekkert af fólki hérna og allt svo berangurslegt. Ótrúlega margir tala líka um að þeir

endurfæðist við að dvelja hérna. Fólk er hrifið af náttúrunni, fuglalífinu og mannlífinu enda er svæðið einstakt. Þegar ég kom hingað á skagann í fyrsta sinn hugsaði ég með mér að sóknarfærin væru á hverju strái.“

Segir mannlífssögur

Reynir Sveinsson hlaut í síðustu viku Þakkarverðlaun ferðaþjónustunnar á Reykjanesi. Hann segir það hafa verið góða tilfinningu að taka við verð-

Reynir og Mirea fengu Þekkingar- og Þakkarverðlaun ferðaþjónustunnar á Suðurnesjum.

SMÁAUGLÝSINGAR Þjónusta

SUNNUDAGURINN 13. MARS KL. 11:00 Messa og sunnudagaskóli. Súpa og brauð í boði. Sr. Eva Björk Valdimarsdóttir MIÐVIKUDAGURINN 15. MARS KL. 12:00 Kyrrðarstund í kapellu vonarinnar. Súpa og brauð 500 kr. FIMMTUDAGURINN 17. MARS Helgistund á Nesvöllum kl. 13:30 Helgistund á Hlévang kl. 14:00 Sr. Erla Guðmundsdóttir FIMMTUDAGURINN 17. MARS KL. 20:00 Sorgarhópur

Ljósanæturspákonan í Keflavík. Tímapantanir á: Bryggjubásar/ZOO sjopp (facebook).

Helsti kostur FS? Nefndaskrifstofan

sími 421 7979

LAGNA ÞJÓNUSTA SÍMI 789 1525

www.bilarogpartar.is

Verið velkomin

á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84

Hvalsneskirkja og Hallgrímur Pétursson vekja alltaf vekja mesta athygli, enda er stórkostleg saga allt í kringum Hvalsnes, að sögn Reynis. Hann er bjartsýnn á framtíð Reykjaness og segir sóknarfærin mikil. Aðspurður um hvað sé skemmtilegast á Suðurnesjum segir Reynir náttúruna úti á Reykjanesi stórkostlega en þangað hefur hann farið nokkrum sinnum frá áramótum. Þar þurfi þó að bæta aðgengi, salernisaðstöðu og fleira. „Ferðaþjónustan í Sandgerði hefur vaxið mikið að undanförnu og hjá okkur er komið mjjög gott tjaldsvæði. Þar er verið að byggja fjögur ný þjónustuhús. Svo eru eigendur Veitingahússins Vitans að fara að endurgera

æskuheimilið mitt og gera úr því gistiheimili.“ Reynir segir sóknarfærin á Suðurnesjum alls staðar og að fólk þurfi að standa saman en ekki hver og einn í sínu horni. „ Við eigum framtíðina bjarta fyrir okkur.“

Fjöldi erlendra listamanna sótti Ferska vinda heim fyrr í vetur.

Hræðist að ala upp mitt fyrsta barn

Á hvaða braut ertu? Félagsfræðabraut

Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ

laununum og að hann sé þakklátur. Reynir hefur verið leiðsögumaður í yfir tuttugu ár. „Mér er alltaf minnisstætt þegar ég fór í rútuferð með Jóni Böðvarssyni, þáverandi skólameistara FS. Við keyrðum um Reykjanesskagann og ferðin tók nær allan daginn. Á leiðarenda sagðist hann næst vilja fara í ferð út í Leiru, Garð og Sandgerði því þar væri svo mikil saga. Það er sú saga sem ég hef verið að segja sem leiðsögumaður. Ég tíunda ekki hvað hraunin heita því þau hafa verið hér alla tíð. Ég krydda allar sögurnar mínar með mannlífssögum og það hefur reynst vel.“

FS-INGUR VIKUNNAR

Blaðberi óskast til að bera út morgunblaðið í Ynnri Njarvík. allar uppl gefur Kristrún í síma 8620382

Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla

Hvalsneskirkja og Hallgrímur Pétursson vekja mesta athygli í Sandgerði.

Hvaðan ertu og aldur? Ég er úr Njarðvík og er 18 ára Áhugamál? Sofa og borða Hvað hræðistu mest? Að ala upp mitt fyrsta barn. Að klúðra eitthverju því maður er að sjá fullt af krökkum sem hafa farið út á ranga braut í lífinu og ég hugsa alltaf strax til mæðra þeirra og finn til með þeim. Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur og hvers vegna? Aníta Lóa verður frægur samkvæmisdansari Hver er fyndnastur í skólanum? Hlæ mest af Lovísu og Írisi, þær geta verið virkilega steiktar og það er yfirleitt einkahúmor Hvað sástu síðast í bíó? Dirty Grandpa Hvað finnst þér vanta í mötuneytið? Kók í dós Hver er þinn helsti galli? Resting bitch face, feimin við fyrstu kynni og dæmi oft of fljótt Hvaða þrjú öpp eru mest notuð í símanum hjá þér? Snapchat, Twitter og Messenger

Hverju myndirðu breyta ef þú værir skólameistari FS? Leyfa böll á föstudögum og að láta skólann byrja kl 9. Hvaða frasa eða orð notar þú oftast? Orðin „great“ eða „haa?“

Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum? Mér finnst það gott, en félagslíf getur ekki orðið gott ef að fólk tekur ekki þátt í því Hvert er stefnan tekin í framtíðinni? Mig langar að vinna við eitthvað sem tengist að hjálpa börnum, barnageðlæknir eða barnasálfræðingur. Hver er best klædd/ur í FS? Azra Crnac

Ingunn Kara Gunnarsdóttir vill að skólinn byrji ekki fyrr en kl. 9 á morgnana og áhugamál hennar eru að sofa og borða. Ingunn er FS-ingur vikunnar.

Eftirlætis:

Leikari: Josh Hutchersson

Kennari: Hörður

Vefsíður: Twitter

Fag í skólanum: Félagsfræði

Flíkin: Svört rúllukragapeysa úr H&M

Sjónvarpsþættir: Greys Anatomy Kvikmynd: Burlesque og Harry Potter Hljómsveit/tónlistarmaður: Kanye West, Drake og Rihanna

Skyndibiti: Búllan Hvaða tónlist/lag fílarðu í laumi (gulity pleasure)? Taylor Swift og Ariana Grande


22

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 10. mars 2016

ÍÞRÓTTIR

Á þriðja þúsund krakkar og gestir á Nettó mótinu

Sumarstörf í boði UPS óskar eftir starfsmanni á tollafgreiðslusvið og bílstjóra í sumar.

Hátt í 1300 krakkar léku 575 körfuboltaleiki í íþróttahúsum Reykjanesbæjar og í Garði á stærsta körfuboltamóti landsins, Nettó-mótinu um síðustu helgi. Með foreldrum er ekki ólíklegt að vel á þriðja þúsund manns hafi komið til Suðurnesja vegna mótsins.

Meðal verkefna tollafgreiðslusviðs eru: Tollskjalagerð, skráning gagna, símsvörun, og önnur tilfallandi störf. Enskukunnátta, töluð og rituð, reynsla af tollskjalagerð og gott vald á Navision æskileg. Meðal verkefna bílstjóra eru: Útkeyrsla sendinga á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu. Innheimta greiðslna og samskipti við viðskiptavini. Mikilvægt er að umsækjendur séu jákvæðir og þjónustulundaðir. Vinsamlega sendið inn umsókn í gegnum heimasíðu okkar www.express.is fyrir 18. mars 2016. UPS er stærsta og öflugasta hraðsendingafyrirtæki heims með þjónustunet til rúmlega 220 landa um allan heim. Undanfarin ár hefur UPS verið í mikilli sókn í Evrópu. Daglega eru afhentir tæplega 16 milljónir pakka um allan heim.

FÉLAGSÞJÓNUSTA SANDGERÐISBÆJAR, SVEITARFÉLAGSINS GARÐS OG SVEITARFÉLAGSINS VOGA

Félagsráðgjafi Félagsþjónusta Sandgerðisbæjar, Garðs og Voga óskar eftir að ráða félagsráðgjafa í fullt starf í barnavernd Hæfniskröfur: · Starfsréttindi í félagsráðgjöf · Reynsla af vinnslu barnaverndarmála · Færni í skriflegri framsetningu gagna · Geta og vilji til að vinna undir álagi · Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum Umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað á netfangið kristin@sandgerdi.is í sl. fimmtudaginn 17. mars nk.

Ke f lv í k i ng ar o g Njarðvíkingar sameinast í utanumhaldi mótsins og Falur Harðarson, mótsstjóri sagði það mjög ánægjulegt hve samstarf Keflavíkur og Ungmennafélags Njarðvíkur gengi vel í þessu stóra móti. Það var fyrst haldið árið 1990 en hét þá Samkaups-mótið. Því hefur vaxið fiskur um hrygg og stækkað í áranna rás. Krakkarnir gista mörg hver í Reykjanesbæ en auk körfuboltafjörs fara þau í bíó, sund og hoppikastalar eru í boði fyrir þau líka. Falur sem hefur verið mótsstjóri í fimmán ár ætlar nú að stíga til hliðar og hann sagði meðal annars við það tækifæri á Facebook síðu sinni: „Nú

15 mótum síðar, ætla ég að stíga til hliðar sem mótsstjóri. Ég ætla ekki að telja upp allan þann her manna sem ég hef starfað með að þessu mótum, en frekar að þakka öllum þeim sem ég hef einhvern tíma starfað með að Nettómótinu kærlega fyrir samstarfið, án ykkar er þetta ekki hægt!“ Meðfylgjandi myndir voru teknar síðastliðinn sunnudag en í þætti vikunnar hjá Sjónvarpi Víkurfrétta verða krakkarnir og Falur í sviðsljósinu.

Þrír Suðurnesjaskólar efstir Stemningin var rafmögnuð í íþróttahúsinu við Sunnubraut sl. fimmtudag þegar fram fór undankeppni í Skólahreysti. Riðillinn á Reykjanesi og Hafnarfirði hefur löngum verið talinn sá sterkasti á landinu enda oftar en ekki hafa tvö lið komist í úrslitin og oftar en ekki unnið þar til verðlauna. Svo fór að Holtaskóli sigraði, Stóru Vogaskóli hafnaði í öðru sæti og Njarðvíkurskóli varð í þriðja sæti. Þetta er í sjötta skipti sem Holtaskóli hefir komist í í úrslit en þar af hefur skólinn sigrað fjórum sinnum og hafnað einu sinni í öðru sæti. Keppnin var hörð en lið Holtaskóla var efst með 77 stig. Lið Stóru-Vogaskóla varð í öðru sæti með 68 stig og lið Njarðvíkurskóla í þriðja sæti með 65 stig. Áhorfendamet voru slegin og mikil spenna og gleði einkenndi daginn.

Liðsmenn Holtaskóla glaðbeittir eftir sigurinn. VF-myndir/Eyþór.

Njarðvíkingar höfnuðu í þriðja sæti.

Stóru Vogaskóli hafnaði í öðru sæti og gæti farið áfram í úrslit.

VÖRÐUNNI MIÐNESTORGI 3 – 24 SANDGERÐI – SÍMI 420 7555

ATVINNA

Óskum eftir trésmið eða vönum byggingaverkamanni, íslensku eða enskukunnátta skilyrði. Upplýsingar ásamt ferilskrá sendist á netfangið andres@hjalti.is

Víkurbraut 3 - 230 Reykjanesbæ - Sími 421 4443

Akurskóli og Holtaskóli sigruðu í grunnskólakeppni í sundi Grunnskólakeppni Íslands í sundi fór fram í Laugardalslaug á þriðjudag og sigruðu skólar úr Reykjanesbæ í báðum flokkum. Akurskóli sigraði í yngri flokki, 5. til 7. bekk en Holtaskóli í eldri flokki, 8. til 10. bekk. Þetta var annað árið í röð sem Holtaskóli

sigrar í eldri flokki. Akurskóli hafnaði í 3. sæti í eldri flokki. Grunnskólinn í Sandgerði, Heiðarskóli og Njarðvíkurskóli úr Reykjanesbæ sendu einnig lið til þátttöku og stóðu þau sig með miklum sóma. Keppnin var haldin á vegum Sundsambands Íslands og var þetta sú

þriðja í röðinni. Alls voru 34 skólar skráðir til leiks með 64 lið í heildina. Góð stemning myndaðist í Laugardalslauginni en um 550 börn mættu þangað ásamt fylgdarfólki. Áhorfendur settu mikinn svip á mótið voru hátt í 200.


fimmtudagur 10. mars 2016

23

VÍKURFRÉTTIR

DANÍEL ARNAR ÍÞRÓTTAMAÐUR SANDGERÐIS ●●Vann til 16 verðlauna á síðasta ári

Taekwondomaðurinn Daníel Arnar Ragnarsson, 14 ára, var um síðustu helgi kjörinn íþróttamaður Sandgerðis 2015. Viðurkenniningin var veitt í Samkomuhúsinu í Sandgerði. Við sama tækifæri var afhent viðurkenning frístunda-, forvarna- og jafnréttisráðs fyrir störf að íþróttaog æskulýðsmálum í Sandgerði og var það Guðmundur Einarsson sem hlaut viðurkenninguna. Daníel Arnar átti gott keppnisár 2015 og vann til 16 verðlauna. Hann sýndi góðan árangur

sér í lagi á opna skoska meistaramótinu. Daníel Arnar mætir á allar æfingar og alla taekwondoviðburði sem í boði eru á Íslandi og er einn allra virkasti iðkandinn í taekwondo deild Keflavíkur. Daníel Arnar er duglegur og efnilegur íþróttamaður sem sinnir íþrótt sinni af mikilli alúð og einlægni. Hann er fyrirmynd yngri iðkenda og hjálpar iðulega til við útbreiðslu íþróttarinnar til dæmis með því að vera aðstoðarþjálfari á námskeiðum, æfingum og í æfingabúðum.

Mottur & málning 20% afsláttur af

MÚRBÚÐARVERÐI

GILDIR 3.-15. MARS

Gúmmí gatamottur 2.190 100 x 100cm x 12mm kr. 3.390 100 x 150cm x 22mm Kr. 6.990 60 x 80cm x22mm kr. 2.690 100 x 150cm x 16mm kr. 5.790 61x91cm 12mm kr.

Ragnari Erni Péturssyni veitt Gullmerki Keflavíkur Einar Haralds endurkjörin formaður á aðalfundi Keflavíkur ■■Einar Haraldsson, formaður Keflavíkur og Kári Gunnlaugsson, varaformaður heimsóttu Ragnar Örn Pétursson á heimili hans til að heiðra hann fyrir vel unnin störf fyrir Keflavík í gegnum tíðina. Ragnar Örn glímir við veikindi og átti því ekki heimagengt á aðalfund Keflavíkur til að taka á móti viðurkenningunni. Á aðalfundinum var Einar Haraldsson endurkjörinn formaður félagsins og stjórn félagsins hélst óbreytt. Gullheiðursmerki Keflavíkur var veitt Ragnari Erni og Ellerti Eiríkssyni. Sigríður Jónsdóttir ritari ÍSÍ veitti blakdeild Keflavíkur fyrstu vottun sína sem fyrirmyndarfélag/deild ÍSÍ einnig var endurnýjuð vottun badminton-, fimleika-, knattspyrnu-, körfuknattleiks-, skot, og sunddeilda. Eru þá allar deildir félagsins með gæðavottun ÍSÍ. Auður Inga Þorsteinsdóttir framkvæmdastjóri UMFÍ sæmdi Einar Helga Aðalbjörnsson og Odd Sæmundsson starfsmerki UMFÍ á aðalfundinum. Starfsbikar félagsins var veittur Ólafi S. Guðmundssyni. Rekstur félagsins er góður og er rekstrar niðurstaðan jákvæð. Stjórnir deilda félagsins eiga mikið hrós skilið fyrir gott starf og góða stjórnun á fjármálum deilda. Starfsmerki Keflavíkur fyrir stjórnarsetu voru veitt á aðalfundum deilda. Gullmerki: Þorsteinn Magnússon knattspyrnudeild. Silfurmerki : Ásdís Júlíusdóttir badminton, Halldóra B. Guðmundsdóttir fimleikum, Júlíus Friðriksson sund/ fimleikum og Hjördís Baldursdóttir knattspyrnu. Bronsmerki: Guðný Magnúsdóttir og Hilmar Örn Jónasson sund, Jónas Andrésson skot, Margeir Einar Margeirsson körfu, Mikael Þór Halldórsson taekwondo og Gunnlaugur Kárason fimleikadeild.

Bása gúmmímotta

Dregill dökk grár

122x183cm x12mm

1.790

(drain undir mottunni)

með PVC undirlagi, 90cm

7.495 5.996

pr. lm.

1.432

4.312

4.956

5.592

Deka Project grunnur. 10 lítrar

6.295

5.390

6.195

6.990

5.036

Deka Projekt 02, 10 lítrar (stofn A)

Deka Projekt 05, 10 lítrar (stofn A)

Deka Projekt 10, 10 lítrar (stofn A)

3.996

25cm Málningarrúlla og grind

840

Bostik spartl 250ml

672 Landora 7% Veggmálning 9 lítrar Litur: Starbright

5.9954.796

590

472

Bostik medium LH spartl 5 lítrar

2.890

Deka Gólfmálning grá 3 lítrar

4.995

2.312

1.512

Breidd: 1 metri Verð pr. lengdarmeter

1.890

2.195

1.756

45x75cm kr.

Breidd: 67cm Verð pr. lengdarmeter

1.595 Reykjavík

Kletthálsi 7

Opið virka daga kl. 8-18, laug. 10-16

Reykjanesbær

Fuglavík 18

Opið virka daga kl. 8-18

472 Deka Meistaralakk 70 Akrýllakk. hvítt. 1 líter

King-Pvc undirlagsmottur

792 990 60x90cm kr. 1.290 1.032 90x150cm kr. 2.990 2.392

1.752 2.712 5.592 2.152 4.632

1.276

392

Yfirbreiðsla Fleece 1x3m

590 1x5m kr. 825

Mako 12 lítra fata

490

Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is

Neytendur athugið! Múrbúðin selur allar vörur sínar á lágmarksverði fyrir alla, alltaf. Gerið verð- og gæðasamanburð!


Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001

Mundi

STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

facebook.com/vikurfrettirehf

VIKAN Á VEFNUM

Var þetta „Euro trash“ sem var á ferðinni í Garðinum?

twitter.com/vikurfrettir

instagram.com/vikurfrettir

ÞAÐ ER ALLT ÞRÁÐLAUST Á ÞESSUM BÆNUM

Tómas Knútsson Þetta var mikil og skemmtileg lífsreynsla að fara á fótboltaleik um helgina,Come on you Spurs glymur ennþá í höfðinu á mér. Ég ætla aftur og það jafnvel á næsta ári ef Guð lofar.

Glæsileg og öflug

TILBOÐ

119.900Verð áður 139.900-

Hulda G. Geirsdóttir Ekki sátt við að liggja heima í hálsbólgu og hori þegar ég ætlaði að vera að ríða út í allan dag! arg.

Uppfærðu í SSD disk

Eysteinn Eyjólfsson Morgunstilla og fuglasöngur dag eftir dag. Vorið vaknar og við til þess.

HP Probook

455 A8-7410 15,6” Örgjörvi:

AMD Quad Core A8-7410 2.2 GHz, Turbo Speed: 2.5 GHz Vinnsluminni: 8GB (1x8GB) 1600MHz (Max 16GB) Geymslumiðlar: 500GB 7200RPM harður diskur Skjákort: Radeon R6 með 2GB minni Geisladrif: DVD+/-RW SuperMulti DL skrifari Lyklaborð: Í fullri stærð með talnaborði, vökvavarið. Íslenskir stafir Rafhlöðuending: Allt að 8 klst.

Stækkaðu vinnsluminni í 16GB. 7.500 kr. Stækkaðu harða diskinn í 240GB SSD og fáðu 500 GB flakkara frítt með. 20.000 kr. Stækkaður harða diskinn í 480GB SSD og fáðu 500 GB flakkara frítt með. 35.000 kr.

Til í hvítu eða gráu

Friðrik K. Jónsson Við fórum í smá göngutúr um daginn og þá hringdi s í m i n n hj á Si g u r bj ör n Bæjarstjóri Arnar Jónsson. Það hefur svo sem gerst áður! Þau sem þekkja hann vita að hann er nú ekki sá tæknilegasti þegar kemur að farsímum ..........en COME ON Sibbi!! Þetta er móðir allra loftneta!!!

LENOVO

LENOVO

DELL

YOGA3 14 FHD I3 5005

G50-80

Inspirion 15 (3551)

Verð 119.900 kr.

Verð 84.900 kr.

Verð 69.990 kr.

Snilldar vél með snertiskjá og frábærum eiginleikum

Kraftmikil vél á frábæru verði fyrir vinnuna eða skólann

Inspirion 15 úr 3000 línunni frá Dell býður gæða frammistöðu.

Örgjörvi: Intel Core i3 5005u 2,0GHz dual core 3MB HT. Minni: 4GB 1600MHz DDR3L (stækkanlegt í 8GB, 1 rauf). Skjár: 14" IPS LED 10 punkta snertiskjár m. myndavél og Gorilla glass vörn. Upplausn: FHD IPS 1920x1080 punkta. Diskur: 256GB SSD 2,5" 5mm. Skjákort: Intel HD5500. Rafhlaða: Innb. LiPol 4 sellu, allt að 7 klst hleðsla. Netkort: þráðlaust AC/b/g/n, Bluetooth 4.0. Ábyrgð: 2 ár, 1 ár á rafhlöðu. Stýrikerfi: Windows 10 64 bita (home)

Örgjörvi: Intel® Pentium TM 3805U Processor 1,9GHz dual core 2MB. Minni: 8GB 1600MHz DDR3L (8GB mest). Skjár: 15,6” HD m. myndavél. Upplausn: 1366x768 punkta. Diskur: 500GB 5400sn. Skjákort: Intel HD. Rafhlaða: Innb. LiIon 4 sellu, allt að 4 klst hleðsla. Netkort: þráðlaust 3160 AC/b/g/n og Bluetooth 4.0. Ábyrgð: 2 ár, 1 ár á rafhlöðu. Stýrikerfi: Windows 10 64bita (home)

Örgjörvi: Intel Celeron N2840 (2.58GHz, 1MB, Dual Core). Vinnsluminni: 4GB 1600MHz DDR3L. Diskur: 500GB Serial ATA 5400rpm harður diskur. Skjástærð: 15.6” HD WLED True-Life skjár

Haukur Harðarson Óska Holtaskóla innilega til hamingju með enn einn sigurinn í Skólahreysti! #KefEffect #skolahreysti Anna Pála Magnúsdóttir Kennarastarfið hefur breyst mikið á stuttum tíma. Kennarar eru undir foreldrasmásjá í formi endalausra samskipta. Þeir kenna börnum sem hafa alist upp við að þau eigi alltaf rétt á skoðunum og megi alltaf tjá þær – og í mörgum tilfellum hafi alltaf rétt fyrir sér. Ungæðisleg réttlætiskennd undir ofverndun ofurforeldra. Leiðin til að vinna við slík skilyrði hlýtur að vera skapgelding og karakterseyðing. Ég myndi alla daga frekar vilja klessa á vegg.” Akkúrat, tek ofan fyrir fólki, og er endalaust þakklát fyrir að einhverjir yfirhöfuð kjósi þetta sem ævistarf. En ef við ætlum ekki að horfa uppá fjöldaflótta úr stéttinni þá VERÐUM við foreldrar að hysja rækilega upp um okkur í uppeldinu......

SONY

BOSE

SONY

PLANTRONICS

BLUETOOTH SRX55

SoundLink ll Mini

Bluetooth heyrnartól

BackBeat FIT

Verð 27.900 kr.

Verð 34.900 kr.

Verð 17.990 kr.

Verð 15.990 kr.

Mögnuð hljómtæki fyrir snjallsímann og fleira. Einnar snertingar tenging með NFC og Bluetooth

Frábær Bluetooth hátalari. UPPLIFÐU BOSE GÆÐI

Flott þráðlaus heyrnartól með míkrófóni. Rafhlaða allt að 30 klst.

Þráðlaust stereo BlueTooth heyrnartól frábært í ræktina sem þolir bæði svita og raka

HAFNARGATA 40 - S. 422 2200

Úrvalið af tölvu og fylgihlutum eru í Omnis

REYKJANESBÆ


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
10. tbl. 37. árg. 2016 by Víkurfréttir ehf - Issuu