Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær
Hjá okkur njóta allir sérkjara af lyfjum utan greiðsluþáttöku
Sími: 421 0000
Félagar í FEB fá 12% afslátt af öllum vörum og góð kjör á lyfseðilsskyldum lyfjum
Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001
VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ
Hringbraut 99 - 577 1150
Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.
vf.is
f immtudagur inn 14. ágúst 2 0 14 • 3 1. TÖ LUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR
KEFLAVÍK MÆTIR KR Í BIKARNUM
Kemur sá fimmti til Keflavíkur á laugardaginn?
Mannlausan makrílbát rak upp í fjöru
K
eflvíkingar leika til úrslita í bikarkeppni KSÍ í tíunda skipti síðan keppnin var sett á fót árið 1960 en fjórum sinnum hafa þeir fagnað sigri í keppninni. Það var gullaldarlið Keflvíkinga sem reið á vaðið árið 1975 og landaði fyrsta bikartitlinum til Bítlabæjarins eftir sigur á frábæru Skagaliði. Það var svo 22 árum síðar, árið 1997 að glókollarnir undir stjórn Sigga Björgvins og Gunna Odds stálu bikarnum af gríðarsterku liði Eyjamanna eftir maraþon rimmu þar sem leika þurfti tvisvar, framlengja og klára dæmið með vítaspyrnukeppni. Árið 2004 fögnuðu Keflvíkingar aftur sigri í bikarnum að þessu sinni undir stjórn Milan Stefáns Jankovic, en þá vannst öruggur 3-0 sigur gegn KA-mönnum. Það var svo árið 2006 að liðin sem kljást á laugardaginn, Keflavík og KR, mættust í spennandi leik. Þar stóðu Keflvíkingar uppi sem sigurvegarar með tveimur mörkum gegn engu. Þessi lið eiga sér nokkra sögu og má segja að sérstakur rígur hafi myndast á milli félaganna í fótboltanum. Í veglegri umfjöllun í blaðinu í dag rifjum við upp sæta sigra Keflvíkinga í bikarnum í gegnum tíðina og tökum gamlar bikarhetjur tali. Leikurinn sjálfur er á laugardaginn og hefst klukkan 16:00 á Laugardalsvelli.
M
akrílbáturinn Siggi Gísla EA 255 strandaði í stórgrýttri fjöru við Keflavíkurhöfn á þriðja tímanum í gærdag. Hafnsögubáturinn Auðunn náði bátnum af strandstað skömmu síðar. Sigga Gísla EA rak frá bryggju í Keflavík og upp í stórgrýtta fjöruna. Enginn var um borð í bátnum þegar þetta gerðist. Nokkrir makrílbátar voru á veiðum á þessum slóðum en engan grunaði að báturinn væri mannlaus og á leið upp í fjöru. Lögregla kom fljótlega á staðinn og fór lögreglumaður um borð í bátinn við annan mann. Línu var skotið frá nálægum makrílbát og í land og taug dregin yfir í Sigga Gísla EA. Auðunn kom nokkru síðar á staðinn og var taug kastað þaðan yfir í hinn strandaða bát. Báturinn var svo dreginn af strandstað en þá slitnaði dráttartaugin og Sigga Gísla EA rak aftur upp í grýtta fjöruna. Fljótlega gekk að koma taug að nýju í hafnsögubátinn og náði hann Sigga Gísla EA aftur í tog. Ljóst er að báturinn er nokkuð skemmdur og leki kom að honum. Myndskeið frá björguninni í gærdag má sjá á vef Víkurfrétta, vf.is.
TILBOÐ! Alþrif á bifreið að innan sem utan Frá björgunaraðgerðum í stórgrýttri fjörunni um miðjan dag í gær. Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Allir bílar sem panta tíma í ágúst borga
FÍTON / SÍA
4.950 kr.
einföld reiknivél á ebox.is
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR
auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
Sími 7827600
2
fimmtudagurinn 14. ágúst 2014 • VÍKURFRÉTTIR
ATVINNA Leikskólinn Tjarnarsel Óskar eftir leikskólakennara eða öðrum uppeldismenntuðum starfsmanni í 100% stöðu. Nánari upplýsingar veitir Inga María Ingvarsdóttir leikskólastjóri í s. 420 3100 eða með tölvupósti á tjarnarsel@tjarnarsel.is Björgin - geðræktarmiðstöð Suðurnesja Auglýsir eftir háskólamenntuðum starfsmanni í fullt starf. Nánari upplýsingar veitir Hafdís Guðmundsdóttir, forstöðumaður Bjargarinnar í síma 420 3270, netfang: hafdis.gudmundsdottir@reykjanesbaer.is Holtaskóli Laus er staða kennara á miðstigi. Nánari upplýsingar veitir Eðvarð Þór Eðvarðsson skólastjóri í síma 420-3500 / 842-5640. Sækja skal um störfin rafrænt á vef Reykjanesbæjar þar sem einnig er að finna menntunar- og hæfniskröfur og nánari upplýsingar um störfin. http://www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf
-fréttir
700.000 gestir í Bláa lónið í ár
Á
ætlað er að gestafjöldi Bláa lónsins verið um 700.000 manns í ár. Aðsókn í Bláa lónið hefur nokkurn veg inn haldist í hendur við fjölg un ferðamanna til landsins. Sjö af hverjum tíu ferðamönnum sem koma til Íslands fara í Bláa lónið. Velta Bláa lónsins í fyrra var um fimm milljarðar króna og hagnaður eftir skatta 1,3 milljarðar króna. Reynt er að halda þeim fjölda sem fer ofan í lónið í um 3000 manns á dag en þá koma einnig fjölmargir á staðinn til að skoða lónið og umhverfi þess. Gjald er tekið af þeim gestum og það m.a. nýtt í umhverfisframkvæmdir á svæðinu og er uppbygging göngustíga milli Bláa lónsins og Grindavíkur dæmi um slíkt.
pósturu vf@vf.is
n Eftilitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga:
Garður glímir ekki við fjárhagserfiðleika V
– með fyrirsjáanlegum greiðsluerfiðleikum
ið skoðun Eftilitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga á fjármálum samstæ ðu Sveitarfélagsins Garðs kemur meðal annars fram að skuldastaða sveitarfélagsins er mjög góð. Skuldaviðmið samkvæmt ársreikningi 2013 er aðeins 3%, handbært fé er 623 m.kr. og veltufé frá rekstri er 99 m.kr. sem fer langt með að greiða fjárfestingu ársins og afborganir skulda og skuldbindinga. Þrátt fyrir að rekstrarniðurstaða sé neikvæð er niðurstaða nefndarinnar að sveitarfélagið glími ekki við
DUUSHÚS
fjárhagserfiðleika með fyrirsjáanlegum greiðsluerfiðleikum. Ve r k e f n i s v e i t a r stjórnar er samkvæmt sveitarstjórnarlögum að sjá til þess að jafnvægisreglu verði náð og ekki verður annað séð en sveitarstjórn hafi brugðist við neiðkvæðri rekstarniðurstöðu af ábyrgð og í samræmi við sveitarstjórnarlög. Nettó skuldir eru litlar og sveitarfélagið vel í stakk búið til að sinna lögbundu hlutverki sínu, segir í fundargerð bæjarráðs Sveitarfélagsins Garðs.
AG Seafood og Stolt Sea Farm í samstarf
DAGSKRÁ LAUGARDAGINN 16. ÁGÚST.
– Samningurinn mun tryggja ný störf í Sandgerði
A
Kl. 14.00 Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur, með leiðsögn um sýningu Karolínu Lárusdóttur, Dæmisögur úr sumarlandinu. Aðalsteinn mun jafnframt árita bók sína um Karolínu sem er til sölu á staðnum. Síðasta sýningarhelgi. Kl. 15.00 Hönnuðir taka á móti gestum í Gryfjunni. Síðasta sýningarhelgi sýningarinnar Hönnun á Suðurnesjum, sem er samstarfsverkefni með Hönnunarklasanum Marís. Allir hjartanlega velkomnir. Bíósalur Ljósmyndasýningunni Þrælkun, þroski, þrá frá Þjóðminjasafni Íslands lýkur einnig um helgina.
LJÓSANÓTT
SKRÁÐU ÞINN VIÐBURÐ Ert þú með viðburð á Ljósanótt? Sýningu, sölu, uppákomu, skemmtun… Mundu eftir að skrá viðburðinn á ljosanott.is Þannig birtist hann í dagskrá Ljósanætur. Berist hann fyrir 25. ágúst fer hann einnig í prentaða dagskrá.
NESVELLIR Fyrirhugað er að bjóða upp á námskeið í haust, í saumi á upphlut svo sem skyrtu, svuntu og/eða breytingum. jafnvel kemur til greina að sauma upphlut frá grunni. Áhugasamir hafi samband í síma 420-3447 eða í Listasmiðju á Nesvöllum fyrir 1. september.
STRÆTÓ REYKJANES Vetraráætlun tekur gildi 16. ágúst.
Kristinn Óskarsson framan við skrifstofu Securitas á Hafnargötu í Reykjanesbæ. VF-mynd: Hilmar Bragi
Kristinn tekur við Securitas á Reykjanesi
S
ecuritas er 400 manna fyrirtæki á öryggismarkaði og rekur öflugt tæplega fjörtíu manna útibú á Hafnargötunni í Reykjanesbæ. Kjartan Már Kjartansson hefur stýrt uppbyggingu útibúsins frá upphafi, en hann var nýlega ráðinn bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Við starfi hans tekur Kristinn Óskarsson en hann hefur átt sæti í framkvæmdastjórn Securitas í Reykjavík undanfarin ár og stýrt bæði gæslu- og starfsmannasviði félagsins með miklum myndarbrag. Kristinn er viðskiptafræðingur MBA og með gráðu í mannauðsstjórnun. Kristinn er Suðurnesjamönnum að góðu kunnur enda er hann úr Reykjanesbæ og kenndi m.a. í Heiðarskóla í mörg ár áður en
hann flutti sig um set til Securitas fyrir 6 árum. „Ég tel að hér á svæðinu séu gríðarleg tækifæri, m.a. í uppbyggingu í Helguvík, í vaxandi ferðamannaiðnaði einkum í flugstöðinni, í útgerð og gagnaverum svo eitthvað sé nefnt. Ég er þess fullviss að við munum halda áfram þróun útibús okkar á Reykjanesi og vera á pari við þjónustu og frábæran starfsanda sem ég þekki svo vel úr höfuðstöðvum okkar í Reykjavík,“ segir Kristinn og bætir því við að tilhlökkun fylgja því að koma til starfa á heimaslóðum: „Hér er frábært fólk og ég hlakka til að fá að vera virkur þáttakandi í atvinnulífinu hér á nýjan leik.“ Kristinn mun áfram eiga sæti í framkvæmdastjórn Securitas.
G Seafood í Sandgerði og Stolt Sea Farm á Reykjanesi hafa skrifað undir þriggja ára samning er varðar verktöku við framleiðslu á öllum afurðum Stolt Sea Farm á Reykjanesi. AG mun annast framleiðslu og pökkun á afurðum Stolt á Reykjanesi en þar hefur Stolt komið upp fullkomnu eldi á Senegal flúru en áætluð framleiðsla á árinu 2015 er um 500 tonn. Afurðirnar eru seldar ferskar á markaði bæði vestan hafs og austan. Langmesti hluti afurðanna verður fluttur út með flugi og mun framleiðslan hefjast seint á árinu 2014. AG Seafood sérhæfir sig að mestu við veiðar og framleiðslu á flatfisktegundum og er því reynsla félagsins mikil við meðhöndlun flatfiskafurða. Samningur félaganna mun tryggja nokkur ný störf við framleiðslu hjá AG Seafood í Sandgerði en fyrir starfa hjá félaginu um 50 manns við veiðar og vinnslu.
Stolt Sea Farm á Reykjanesi.
Keilir semur við Hópferðir Sævars – Breytingar á rútuferðum á milli Reykjavíkur og Reykjanesbæjar „Keilir sem skóli hefur ekki lengur aðgang í ferðir sem Háskólavellir eru að greiða fyrir sína leigjendur. Þess vegna þurfti skólinn að finna leið til að koma nemendum sínum og starfsfólki hingað. Þetta snýst ekki um þá sem eru leigjendur á Ásbrú og stunda nám í skóla á höfuðborgarsvæðinu. Þetta snýst um að við höfum samið við Hópferðir Sævars um að flytja fólk til og frá skóla,“ segir Harpa Sævarsdóttir, fjármálastjóri Keilis, vegna misskilnings sem hefur gætt í kjöl-
far tilkynningar sem birt var á vefsíðu Keilis. Eins og fram kemur í tilkynningunni fá nemendur Keilis frítt í rútu á vegum Hópferða Sævars sem gengur milli Ásbrúar og höfuðborgarsvæðisins. Að auki er frítt í strætisvagna í Reykjanesbæ sem gengur samkvæmt áætlun um öll hverfi bæjarins. Breytingin á því einungis við um nemendur og starfsfólk skólans. Harpa segir einhverjar breytingar standa til á rútuferðum á milli
höfuðborgarsvæðisins og Reykjanesbæjar sem hún sé ekki alveg með á hreinu. Felldar hafi verið niður aukaferðir í sumar sem Háskólavellir kostuðu. Víkurfréttir höfðu samband við Ingva Jónasson, framkvæmdastjóra Klasa ehf, móðurfyrirtækis Háskólavalla, sem staðfesti þetta. „Það er unnið að meiri breytingum er varðar rútuferðir en ekkert hefur verið ákveðið eða staðfest í því sambandi,“ segir Ingvar.
3
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 14. ágúst 2014
FRAMTÍÐARSTÖRF HJÁ BLÁA LÓNINU ERT ÞÚ SÖLUMAÐUR AF GUÐS NÁÐ?
TVÖ STÖRF: Í ÞVOTTAHÚSI OG Í KARLAKLEFA
Við leitum að orkumiklum og metnaðarfullum sölumanni til starfa í verslun Blue Lagoon, í Bláa Lóninu. Um framtíðarstarf í vaktavinnu er að ræða.
Um er að ræða 100% framtíðarstörf í vaktavinnu. Æskilegt er að viðkomandi séu 20 ára eða eldri.
Hæfniskröfur: • Brennandi áhugi á húðvörum • Rík þjónustulund • Reynsla og áhugi á sölu- og ráðgjafastörfum • Áreiðanleiki og stundvísi • Sjálfstæð vinnubrögð • Góð samskipta- og samstarfshæfni • Góð enskukunnátta Snyrtifræðimenntun er kostur. Viðkomandi þarf að geta hafið störf strax. Nánari upplýsingar um starfið veitir Marisa Secat verslunarstjóri í síma 420-8800.
Hæfniskröfur í bæði störfin: • Þjónustulund og jákvæðni • Góð samskipta- og samstarfshæfni • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð • Samviskusemi • Áreiðanleiki og stundvísi • Góð enskukunnátta Nánari upplýsingar um störfin veita Lovísa vaktstjóri og Sylvía sérfræðingur á mannauðssviði í síma 420-8800. Umsækjendur eru beðnir um að fylla út rafræna umsókn á heimasíðu Bláa Lónsins, www.bluelagoon.is/atvinna. Umsóknarfrestur er til og með 25. ágúst 2014.
Umsækjendur eru beðnir um að fylla út rafræna umsókn á heimasíðu Bláa Lónsins, www.bluelagoon.is/atvinna. Umsóknarfrestur er til og með 25. ágúst 2014.
Bláa Lónið hefur margsinnis verið valinn einn besti spa staðurinn á heimsvísu og fékk nýverið nafnbótina sem eitt af 25 undrum veraldar að mati National Geographic. Bláa Lónið er tóbakslaus vinnustaður og þar starfa að jafnaði um 250 starfsmenn.
4
fimmtudagurinn 14. ágúst 2014 • VÍKURFRÉTTIR
Kræsingar & kostakjör
NAUTA T-BONE 450 G VERÐ PER STYKKI
KJÚKLINGABRINGUR ÍSFUGL KÍLÓVERÐ ÁÐUR 2.398
3.998,-
1.894,-
RAUÐSPRETTUFLÖK M/ROÐI VERÐ PER KÍLÓ ÁÐUR 998
-20%
699,-
PYLSUTVENNA FRANKFURTER&BRATWURST VERÐ PER KÍLÓ ÁÐUR 1.498
1.198,PÍTUBUFF 6STK M/BRAUÐI VERÐ PER PK ÁÐUR 1.271
979,-
-23% CARAMEL FIMM STYKKI Í PK VERÐ PER PK ÁÐUR 298
247,Appelsínur FRÁ SUÐUR AFRÍKU
VERÐ PER KÍLÓ ÁÐUR 239
-50%
120,Tilboðin gilda 31. júlí - 4. ágúst 2014 Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.
-30%
5
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 14. ágúst 2014
-30% LAMBAFILE M/FITURÖND Í VILLIKRYDDI KÍLÓVERÐ ÁÐUR 4.989
LAMBABÓGUR KRYDDAÐUR KÍLÓVERÐ
1.298,-
3.492,-
%
-25%
KJAVERÐ
GT STYK GÓÐ KAUP / LÁ
LAMBAKÓTELETTUR Í RASPI KÍLÓVERÐ ÁÐUR 2.459
1.844,-40%
STÓRIR KASSAR! PAMPERS BLEIUR 3/4/4+/5 VERÐ PER PK
CIABATTA - 300G TÓMAT&HVÍTLAUKS STYKKJAVERÐ ÁÐUR 398
2.498,-
239,HÁR & HÚÐVÖRUR
-20%
DORITOS - 3 TEG. STYKKJAVERÐ ÁÐUR 239
199,www.netto.is | Mjódd · Grandi · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |
6
fimmtudagurinn 14. ágúst 2014 • VÍKURFRÉTTIR
-ritstjórnarbréf
-viðtal
pósturu vf@vf.is
Eyþór Sæmundsson skrifar
Drullaðu þér í Laugardalinn! Kannski er ég að ganga of langt með fyrirsögninni en þeir notuðu þetta víst þegar þeir voru að tala um fótboltann fyrir vestan fyrir skömmu. Það að liðið þitt komist í úrslitaleikinn í bikarkeppninni í fótbolta er alls ekkert sjálfsagt. Þú getur ekki tekið því sem gefnu. Keflvíkingar hafa reyndar í gegnum tíðina verið fengsælir í bikarnum og leikið níu sinnum til úrslita frá því að bikarkeppnin hófst árið 1960. Þeir eru því að komast í úrslit á níu ára fresti ef stærðfræðin er ekki að svíkja mig, sem hún hefur reyndar oft gert. Það eru margir þarna úti sem þykir fótbolti og íþróttir vera leiðinleg fyrirbæri. Með þessum pistli ætlaði ég að reyna að hvetja bæjarbúa Reykjanesbæjar og fótboltafíkla til þess að mæta á völlinn og búa til stemningu og allar þær klisjur. Betur væri að reyna að sannfæra þá sem eru á móti fótbolta og öðru sprikli um að mæta á völlinn. Væri ekki tilvalið að skella sér í 10 stiga hitanum og 12 metrum á sekúndu (Norðanátt samkvæmt nýjustu spám) og sitja á rassgatinu í stúku í Laugardalnum í tæpa tvo klukkutíma? Þú getur svo keypt þér popp og upphitaða pizzu á uppsprengdu verði og hlustað á ókunnugt fólk öskra einhverja vitleysu. Nei, djók. Þetta er í alvöru æðislega skemmtileg upplifun. Það er sérstakur andi sem svífur yfir vötnum á svona leikjum, stundum er það nú vínandi, sem fær fólk til þess að sleppa fram af sér beislinu. Þarna er tilvalið tækifæri til þess að gefa söngröddinni lausan tauminn og njóta þess að hegða sér eins og fífl. Ég hef orðið var við það að á viðburðum sem þessum, þá mæta ansi oft einhverjir sem eru ekkert að spá í leiknum, heldur eru þeir þarna til þess að sletta úr klaufunum og taka þátt í stemningunni. Ég hef alltaf dáðst að þessu fólki. Það væri virkilega gaman að sjá sem flesta á leiknum og ég mæli eindregið með því að þið sem ætlið á leikinn dragið með ykkur einhvern sem aldrei hefur farið á bikarúrslitaleik. Að fara á bikarúrslitaleik í fótbolta er eitthvað sem allir ættu að prófa á ævinni, vertu nú eitt af þessum skemmtilegu fíflum í stúkunni á laugardaginn. Með bikarkveðju Eyþór Sæmundsson
Knús Caffé Til sölu vegna sérstakra ástæðna rekstur Knús Caffé við Hafnargötu 90, Keflavík, Reykjanesbæ. Knús Caffé er lokað í dag en öll leyfi, tæki og húsgögn til reksturs kaffihúss eru til staðar. Reksturinn er með vínveitingaleyfi II og má taka 100 manns í húsið. Nánar upplýsingar á skrifstofu Eignasölunnar Hafnargötu 90 (fyrir ofan Tölvulistann).
Eignasala
FASTEIGNASALA o FYRIRTÆKJASALA o LEIGUMIÐLUN o BÍLASALA
vf.is
SÍMI 421 0000
Strákur af Kirkjuteignum sem kann að spila á fiðlu - Hjartað slær hér segir nýr bæjarstjóri RNB í viðtali við Víkurfréttir
K
jartan Már Kjartansson er nýr bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Hann segir að ráðningin hafi ekki komið honum á óvart og kveðst spenntur fyrir því takast á við spennandi og krefjandi verkefni. Varðandi pólitíska fortíð sína þá segir Kjartan að hann hafi ekki verið viðloðinn stjórnmál um allnokkurt skeið og vonast til þess að hann verði ekki settur út af sakramentinu vegna starfa sinna fyrir Framsóknarflokkinn um 12 ára skeið. Hér slær hjartað Kom ráðningin þér í opna skjöldu? „Nei í sjálfu sér ekki. Ég átti alveg eins von á þessu. Ég uppfyllti öll skilyrði sem sett voru fram varðandi menntun og reynslu auk þess er ég innfæddur og þekki sveitarfélagið mitt vel, ég tel því mig hafa það sem þarf í starfið,“ segir Kjartan. „Mér þykir vænt um sveitarfélagið mitt og hér slær hjarta mitt. Þetta er spennandi og krefjandi verkefni sem ég ætla að nálgast af virðingu og með auðmýkt. Mér þykir vænt um sveitarfélagið mitt. Hér ætla ég mér að vera og gera eins vel og ég mögulega get. Mér líst vel á allt þetta góða fólk sem ég er að fara að starfa með. Þarna er blanda af reynsluboltum og nýju fólki. Fólk á ölllum aldri, bæði karlar og konur og tel ég þetta vera góðan þverskurð af okkar samfélagi. Þetta er
fólk sem vill bænum sínum vel og það verður spennandi að vinna með þeim,“ segir verðandi bæjarstjóri. Mörg ár án afskipta af stjórnmálum Varðandi fortíð sína í pólitík þá segir Kjartan að hann hafi sagt sig úr Framsóknarflokknum fyrir nokkrum árum. Ástæðuna segir hann vera að hann hafi viljað vera ópólitískur auk þess sem sumt í starfi flokksins hafi ekki verið samkvæmt hans sannfæringu. „Ég hef ekki skipt mér af stjórnmálum í nokkur ár en ég hef auðvitað mínar skoðanir. Ég ætla mér ekkert að opinbera þær en ég gæti unað við eitthvað í stefnuskrám allra flokka,“ segir Kjartan. Hann telur þó að þetta séu ákveðin skilaboð til unga fólksins sem er við störf hjá stjórnmálaflokkum. „Þó svo að þú takir
þátt í stjórnmálastarfi á einhverjum hluta ævinnar, eins og ég gerði í 12 ár, þá þýðir það ekki að þú verðir settur út af sakramentinu af öllum hinum það sem eftir er.“ Mun verða eins og framkvæmdastjóri En hver er nýr bæjarstjóri Reykjanesbæjar? „Hann er strákur af Kirkjuteignum sem kann að spila á fiðlu,“ segir Kjartan og hlær. „Ég ætla bara að halda áfram að vera sá sem ég er. Ég ætla ekkert að breyta mér neitt. Ég mun nota þekkingu mína til þess að gera gott og eiga samskipti við alla þá góðu starfsmenn sem að vinna hjá Reykjanesbæ,“ bætir hann við. Hvaða málefni eru nýjum bæjarstjóra ofarlega í huga? „Ég held að stóra málið séu fjármál sveitarfélagsins. Ég held að það muni fara mikil orka í þau mál fyrstu misserin og árin jafnvel. Við þurfum þó að sinna ýmsum góðum málum, ég og allir bæjarfulltrúar. Þeir leggja línurnar og ég sé svo um að framkvæma verkin.“ Varðandi starfssvið sitt þá telur Kjartan að best væri að líkja því saman við starf framkvæmdastjóra í fyrirtæki. „Ég mun starfa líkt og framkvæmdastjóri sem fer eftir stefnumörkun stjórnar og hrindi henni í framkvæmd. Þetta er í raun rekstur á stóru fyrirtæki í samvinnu við allan þann fjölda sem starfar hjá Reykjanesbæ og kemur að máli.“ Kjartan hefur síðustu sex ár gegnt stöðu framkvæmdastjóra Securitas á Suðurnesjum og er honum annt um fyrirtækið. „Mér er ekki sama hvernig ég skil við hér og hvernig fyrirtækinu reiðir af. Hér vinna núna 37 manns, en þau störf voru ekki til fyrir. Ég vona að hér komi góð manneskja í minn stað,“ segir Kjartan að lokum.
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 P Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 P Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is P Blaðamenn: Olga Björt Þórðardóttir, sími 421 0002, olgabjort@vf.is, Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is P Hönnun og umbrot: Þorsteinn Kristinsson, sími 421 0006, steini@vf.is, Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is Afgreiðsla: Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is, Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is P Prentun: Landsprent hf. P Upplag: 9000 eintök P Dreifing: Íslandspóstur Stafræn útgáfa: www.vf.is, www.kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Ekki er tekið á móti smáauglýsingum í síma. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
1 4 - 1 6 8 3 - H V Í TA H Ú S I Ð / S Í A
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 14. ágúst 2014
Spennandi störf á Keflavíkurflugvelli / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / /
VERKEFNASTJÓRI Í VIÐSKIPTADEILD Isavia leitar að metnaðarfullri og snjallri markaðsmanneskju í viðskiptadeild fyrirtækisins í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Gerð er krafa um háskólapróf á sviði viðskipta, markaðsmála eða þjónustu. Í boði er spennandi framtíðarstarf hjá fyrirtæki í miklum vexti. Á meðal verkefna eru: • Þátttaka í stefnumótun fyrir markaðsráð verslunar- og veitingasvæðis FLE • Framkvæmd á verkefnum fyrir markaðsráð • Mótun og framkvæmd viðburða • Umsjón með mati og greiningu á verslunar- og veitingaaðilum • Umsjón og ábyrgð á efni um verslunar- og veitingaaðila á vefsíðum og samfélagsmiðlum • Samvinna í teymi með markaðs- og viðskiptadeild
FLUGVALLARSTARFSMENN Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI Við leitum að kraftmiklu fólki til starfa á Keflavíkurflugvöll. Umsækjendur þurfa að vera heilsuhraustir og kröfur eru gerðar til líkamlegs atgervis. Aukin ökuréttindi og tölvukunnátta eru skilyrði auk þess sem iðnmenntun, vinnuvélapróf og reynsla af slökkvistörfum, snjóruðningi og hálkuvörnum eru kostir. Á meðal verkefna eru: • Viðhald flugvallar og umhverfis hans • Viðhald bifreiða, þungavinnuvéla og annarra tækja • Björgunar- og slökkviþjónusta • Snjóruðningur, hálkuvarnir og hreinsun aðskotahluta á flugvallarsvæðinu
Umsækjandur þurfa að standast bakgrunnsskoðun ríkislögreglustjóra vegna aðgangs að haftasvæði flugverndar. Isavia mun sjá umsækjendum fyrir þeirri þjálfun sem nauðsynleg er vegna starfsins. Þeir sem ráðnir verða munu hefja störf í dagvinnu en fara síðar á vaktir eftir atvikum.
Umsóknum skal skilað á rafrænu formi á www.isavia.is/atvinna. Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst. Gildi Isavia eru öryggi, þjónusta og samvinna Hjá Isavia og dótturfélögum starfa um 850 manns. Helstu verkefni fyrirtækisins eru umsjón með uppbyggingu og rekstri flugvalla og að veita flugleiðsöguþjónustu fyrir innanlandsflug, jafnt sem millilandaflug, auk yfirflugsþjónustu fyrir Norður-Atlantshafið. Isavia leggur áherslu á jafnan rétt karla og kvenna til starfa.
7
8
fimmtudagurinn 14. ágúst 2014 • VÍKURFRÉTTIR
-mannlíf
pósturu vf@vf.is
Lancaster vélin í öllu sínu veldi
STÖRF HJÁ IGS 2014 Við bjóðum fjölbreytileg og skemmtileg störf í spennandi umhverfi flugheimsins.
Glæsileg 69 ára gömul Lancaster flugvél úr seinni heimsstyrjöldinni lenti á Keflavíkurflugvelli í síðustu viku. Vélin sem kallast Mynarski Lancaster er önnur af tveimur Lancaster flugvélum í heiminum sem er í flughæfu ástandi. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra tók á móti áhöfn vélarinnar ásamt fríðu fylgdarliði. Vélin flaug frá Kanada í alls 7 klukkustundir og 40 mínútur en ferðin gekk vel að sögn áhafnarmeðlima en ferðinni er heitið til Bretlands.
IGS ehf. vill ráða fólk til vinnu. Um er að ræða störf við ræstingu flugvéla. Áhersla er lögð á reglusemi, stundvísi og árvekni. Lágmarksaldur 18 ár, almenn ökuréttindi skilyrði, íslenskuog/eða enskukunnátta skilyrði. Umsóknarfrestur til 21. ágúst 2014 Umsóknum er skilað inn rafrænt á heimasíðu IGS sjá www.igs.is
Lancaster flugvélar gegndu stóru hlutverki í flugflota Breta í stríðinu. Ferðin er farin til að heiðra minn-
ingu þeirra fjölmörgu bresku flugliða sem létu lífið í seinni heimsstyrjöldinni.
-aðsent
pósturu vf@vf.is
■■Ásmundur Friðriksson skrifar:
Heiðarbúar á Landsmóti skáta L
andsmót Skáta 2014 var haldið að Hömrum við Akureyri dagana 20. – 27. júlí sl. Það var merkileg reynsla fyrir mig sem hef þekkt skátastarf af því að heimsækja Landsmótið að Hömrum. Undraveröld gæti verið fyrsta orðið sem kemur upp í hugann þegar gengið er inn á glæsilegt L andsmótssvæðið. Baden Powell stofnandi skátahreyfingarinnar er trúlega upphafsmaður „ leikjagarðanna“ sem milljónir manna sækja um allan heim nema hvað skátarnir sjálfir byggja sína eigin leiktæki
Stolt Sea Farm er eitt af þróuðustu fiskeldisfyrirtækjum heims og hefur sérhæft sig í framleiðslu á hágæða sandhverfu, flúru og styrju. Stolt Sea Farm rekur fiskeldií 6 löndum; Bandaríkjunum, Frakklandi, Noregi, Portúgal, Spáni og nú á Íslandi. Stolt Sea Farm á Íslandi hefur þegar hafið uppbyggingu á 2000 tonna eldi á senegalflúru á Reykjanesi og er uppbygging þess vel á veg komin. Áætlað er að fyrsti fiskurinn verði seldur í lok ársins 2014 og að uppbyggingu verði endanlega lokið 2018.
Stolt Sea Farm leitar að áhugasömu almennu starfsfólki í fiskeldisstöð fyrirtækisins á Reykjanesi. Leitað er að jákvæðum, heiðarlegum, duglegum og útsjónarsömum einstaklingum sem hafa áhuga á að taka þátt í uppbyggingu á nýju fyrirtæki. Starfsreynsla í fiskeldi, fiskvinnslu og/eða sjómennsku er góður grunnur. Öllum umsóknum verður svarað. Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á ssficeland@stolt.com fyrir 21. ágúst.
sem eru til að þroska samstarfshæfileika þeirra og finna lausnir á vandamálum sem nýtist þeim í öllu þeirra lífi. Klifturnar úr spíru, brýr og ko d daslagsg rind allt gert af börnunum sjálfum til að leika sér í og við og þroska huga og hönd. Ég var satt best að segja undrandi á hvað svæðið var vel skipulagt, frábærlega fyrirkomið og áhugavert að sjá hvernig skátarnir höfðu byggt upp nytsöm tæki og tól til að þroska og efla getu þeirra. Kanóar, hjólabátar, tónlist, skátaklútar og kurteisi allra var yfirbragð sem við öll kunnum að meta. Yfir 200 skátar frá fimm heimsálfum voru þarna saman komnir til að efla vináttu og traust á milli manna. Þrátt fyrir að skátahreyfingin á Íslandi sé orðin 102 ára þá nýtur hún ekki þeirrar athygli og stuðnings sem hún ætti að njóta þegar litið er á mikilvægi hennar sem forvarnarog þroskandi samstarfsvettvangs barna og unglinga á öllum aldursskeiðum. Skátarnir læra að komast af, sinna nytsömum hlutum, bera virðingu hver fyrir öðrum og vera virkir samfélagsþegnar og sjálfir telja þeir vináttuna vera mikilvægasta þáttinn í starfinu. Þakklætið er líka mikilvægur þáttur sem þeim er
kenndur enda sagði leiðtoginn þeirra Bad en Powel l: „Gjöfin er þín þegar þú hefur þak kað fyrir hana“. Þessi orð eiga ekki síður við í dag en fyrir rúmum hundrað árum og ekki vanþörf á að minna alla á að þakklætið er ein mikilvægasta dyggðin. Á ferð minni um svæðið hitti ég Heiðarbúa úr Reykjanesbæ á lokakvöldvöku Landsmótsins. Þar fór flottur hópur skáta og foreldra saman. Allir vor klæddir í sín fínu ponsjó sem var þeirra einkennisklæðnaður. Þar var líf í tuskunum enda blómlegt skátastarf rekið í Reykjanesbæ. Ég er þakklátur fyrir boðið á Landsmótið sem gaf mér nýtt tækifæri til að sjá og átta mig á hvað skátastarf á Íslandi er vel gert, þroskandi, frábær forvörn og góð leið til að gera alla sem njóta að betri manni og konu. Ríki og sveitarfélög mega ekki gleyma mikilvægum þætti skáta þegar kemur að því að deila út fjármagni til íþrótta- og menningarmála. Ég tek undir mikilvægi vináttunnar og þakklætisins sem skátar tileinka sér í starfi sínu sem gerið það að verkum að einu sinni skáti verður alltaf skáti. Ásmundur Friðriksson alþingismaður.
9
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 14. ágúst 2014
-minning
Kristófer Örn Árnason
Kristófer Örn Árnason fæddist á Landspítalanum 19. júlí 1996. Hann lést 19. júlí 2014. Útför Kristófers fór fram frá Fossvogskirkju 6. ágúst 2014. „Sæll Kristófer, hvað segirðu, hvað er verið að bralla?“ „Allt gott, bara að chilla með Arnþóri frænda mínum.“ Þegar þeir voru saman virtist hann afslappaður og ánægður. En Kristófer var frá unga aldri með erfitt skap og ekki ánægður með hlutskipti sitt. Hann fann sig aldrei innan veggja grunnskólans. Við mótlæti, stríðni og erfiðleikum brást hann með reiði og neikvæðni. Hann virtist vera svo rifinn og tættur að innan alla tíð, eins og hann gat verið blíður og ljúfur drengur. Kristófer virtist vanta jarðtengingu, það var eins og hann gengi alltaf á marmara-
kúlum og öll orkan fór í að reyna að standa á fótunum. Eftir að pabbi hans ákvað að yfirgefa þennan heim sjálfur fengu tilfinningarnar reiði, hatur og neikvæðni mikið svigrúm. Skólagangan gekk öll úr skorðum, en skólakerfið virðist ekki hafa krafta né aðstöðu til að sinna þeim krökkum sem falla milli skips og bryggju. Samfélagið okkar leggur ekki mikla áherslu á að aðstoða krakka sem eru í svipaðri stöðu og hann var í. Í dag virðist neysla kannabisefna vera lítið mál hjá ungu fólki, engin lykt eins og af brennivíni (og foreldrar fatta ekkert). En þau sem eru viðkvæmari en ekki, með sálina rifna og tætta, sökkva mikið frekar í mótþróa og almennt neikvæða afstöðu til samfélagsins við neyslu á kannabisefnum. Kristófer var yndislegur drengur og eftir góða aðstoð á Lækjarbakka komst hann á Sel þar sem honum leið mjög vel, hann hændist að dýrum og kynntist því að bera ábyrgð á sjálfum sér og þeim verkum sem honum voru falin. Sagði hann við ömmu sína að þangað langaði hann að komast í sumar. Kristófer var vinamargur, hann var blátt áfram í samskiptum og sagði hiklaust sína skoðun á öðrum, hvíta lygi notaði hann ekki. Innan vinahópsins sé ég hann sem hrók alls fagnaðar, uppátækjasaman og til í allt. En hann var langrækinn og fyrirgaf engum sem gerðu á hans hlut eða komu illa fram við hann, enda fyrirgaf hann
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Sigurborg Jónsdóttir pabba sínum aldrei að hafa yfirgefið hann. Þó að lífið heimsæki okkur á misjafnan hátt og aðstæður okkar séu ólíkar þá ber hver og einn alfarið ábyrgð á gjörðum sínum og orðum, við þessi fullorðnu verðum að útskýra og leiðbeina þeim sem yngri eru. Mér fannst Kristófer vera frekar bjartsýnni og sáttari við sig en áður en það er oft hættulegasti tíminn hjá þeim sem passa ekki inn í ferkantað mót samfélagsins. Við sem samfélag verðum að gera betur við ungt fólk í vanda en þó að samfélagið nái ekki að hlúa að öllum, ber sá einn ábyrgðina á því að taka sitt eigið líf sem það gerir eins og Kristófer Örn. Núna geta þeir feðgarnir chillað saman eins og þeir gerðu svo oft.
Kirkjuvegi 5 Keflavík
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, mánudaginn 28. júlí. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, mánudaginn 18. ágúst kl: 13:00 Kærar þakkir til starfsfólks D-deildar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja sem voru öll alveg hreint yndisleg.
Guðrún Markúsdóttir Serafini, Jón Tómas Ásmundsson Richard Magnús Elliott og barnabörn.
Inga Lára Sædal Dorothea Róbertsdóttir
Þú áttir þá gnótt til að gefa aðeins guðirnir vissu‘ um það allt og minningar sorgina sefa en sýna hve gengið er valt. Þó fjöldinn af vinum þér fylgdi þú fannst enga samleið með þeim um ólgusjó ævinnar sigldir þú einmana á leiðinni heim. (Rut Gunnarsdóttir) Þín er sárt saknað. Þinn frændi, Ingvi Þór.
ERUM AÐ LEITA EFTIR STARFSFÓLKI SEM HEFUR ÁHUGA Á MATSELD, HEFUR MJÖG GÓÐA ÞJÓNUSTULUND OG GETUR AXLAÐ ÁBYRGÐ. EINGÖNGU ÍSLENSKUMÆLANDI. SENDU OKKUR UMSÓKN Á NETFANGIÐ RNB@SHIPOHOJ.IS
HÓLAGÖTU 15 // 421-6070 // VIÐ ERUM Á FACEBOOK
BÁTURS DAGSIN
Aðeins
549kr
Hver er bátur dagsins? MÁNUDAGAR
Sterkur ítalskur
ÞRIÐJUDAGAR
Kalkúnsbringa og skinka
MIÐVIKUDAGAR
Pizzabátur
FIMMTUDAGAR
Skinkubátur
FÖSTUDAGAR
Túnfiskbátur
LAUGARDAGAR
Ítalskur BMT
SUNNUDAGAR
Kjúklingabringa
Gildir eingöngu fyrir 6 tommu bát. Gildir ekki með öðrum tilboðum eða afsláttarkjörum.
10
fimmtudagurinn 14. ágúst 2014 • VÍKURFRÉTTIR
-íþróttir /bikarinn 2014 EINAR GUNNARSSON FYRIRLIÐI KEFLVÍKINGA ÁRIÐ 1975
Fremri röð talið frá vinstri: Friðrik Ragnarsson, Steinar Jóhannsson, Hjörtur Zakaríasson, Einar Gunnarsson fyrirliði, Ástráður Gunnarsson, Hörður Ragnarsson, Guðjón Guðjónsson, Kári Gunnlaugsson. Aftari röð: Jón Jóhannsson þjálfari, Árni Þorgrímsson formaður knattspyrnuráðs ÍBK, Þorsteinn Ólafsson, Þorsteinn Bjarnason, Hilmar Hjálmarsson, Grétar Magnússon, Ólafur Júlíusson, Karl Hermannsson, Gunnar Jónsson, Jón Ólafur Jónsson, Gísli Torfason og Guðni Kjartansson.
EFTIRMINNILEGASTA MARKIÐ Á FERLINUM Gunnarsson var fyrirliði Keflvíkinga árið 1975 þegar liðið varð fyrst bikarmeistari. Varnarmaðurinn sókndjarfi skoraði þá sigurE inar markið með þrumuskoti fyrir utan vítateig gegn gull-
aldarliði Skagamanna. „Það er fyrst og fremst mjög gaman að ná það langt að spila sjálfan úrslitaleikinn. Það var eins þá og er nú, við vorum ekki álitnir sigurstranglegir. Þeir áttu sterka leikmenn og voru líklega betra lið. En það skiptir ekki máli í bikarnum,“ rifjar fyrrum fyrirliðinn upp. Markið sem Einar skoraði varð frægt enda einkar glæsilegt. Þeir sem yngri voru og sáu ekki markið höfðu heyrt ýmsar tröllasögur af því, þar sem knötturinn sveif upp í samskeytin af 40 metra færi. Einar hlær við og segir það líklega byggt á misskilningi vegna veggplatta sem gerður var með markina góða á. „Þar var markið sett þannig fram að boltinn hefði hafnað í vinklinum, af því að það kom betur út á plattanum,“ segir Einar og hlær. „Þetta gleymist ekki, það er nú bara svoleiðis. Þetta er eftirminnilegasta markið á mínum ferli,“ segir Einar sem varð Íslandsmeistari með liðinu tvisvar sinnum. „Það var allt í lagi ef maður brá sér fram í sóknina, þá var bara einhver annar sem bakkaði. Við varnarmennirnir fórum líka oft fram í aukaspyrnum og slíku þar sem við vorum áræðnari, það gaf oft mörk,“ segir Einar sem reiknar með því að skella sér á völlinn á laugardag. „Ég vona svo sannarlega að þetta falli okkar megin.“
KEMUR SÁ FIMMTI TIL KEFLA
KEFLVÍKINGAR LEIKA ÖÐRU SINNI TIL ÚRSLITA GEGN KR KEFLVÍKINGAR HAFA ALDREI FENGIÐ Á SIG MARK Í ÚRSLITALEIKNUM Í VENJULE
eflvíkingar leika til úrslita í bikarkeppni KSÍ í tíunda skipti síðan keppnin var sett á fót árið K 1960 en fjórum sinnum hafa þeir fagnað sigri í
keppninni. Það var gullaldarlið Keflvíkinga sem reið á vaðið árið 1975 og landaði fyrsta bikartitlinum til Bítlabæjarins eftir sigur á frábæru Skagaliði. Það var svo 22 árum síðar, árið 1997 að glókollarnir undir stjórn Sigga Björgvins og Gunna Odds
HUNGRAÐIR Í TITILINN
Þar stóðu Ke með tveimur m nokkra sögu o myndast á mill umfjöllun rifju bikarnum í geg hetjur tali. Lei hefst klukkan 1
BRÆÐUR MUNU BERJAST
KR-INGURINN JÓNAS GUÐNI ÚTILOKAR EKKI ENDURKOMU Á HEIMASLÓÐIR
ók narmaðurinn Mag nús Þorsteinsson er að spila sinn S þriðja leik til úrslita í Bikar-
keppninni. Hvernig hagar hann undirbúningi fyrir svona stóra leiki? „Ég reyni að hafa undirbúning fyrir alla leiki svipaða, en auðvitað nálgast maður svona stóra leiki öðruvísi en aðra leiki. Aðalatriðið er að halda spennustiginu niðri og njóta þess að vera kominn í stærsta leik sumarsins. Dagsformið mun ráða miklu og held ég að leikurinn verði skemmtilegur fyrir áhorfendur og leikmenn, vonandi sýnum við nógu mikil gæði og baráttu til að vinna þetta KR-lið. Við mætum allavega vel undirbúnir og hungraðir í titil. Það er frábær tilfinning að komast í þennan leik og enn skemmtilegra að vinna hann. Sumir komast aldrei í úrslit bikarsins þannig að ég bíð bara spenntur eftir að spila minn þriðja bikarúrslitaleik. Vonandi fáum við bara sem flesta á völlinn og búum til alvöru keflvíska stemningu.“
stálu bikarnum af gríðarsterku liði Eyjamanna eftir maraþon rimmu þar sem leika þurfti tvisvar, framlengja og klára dæmið með vítaspyrnukeppni. Árið 2004 fögnuðu Keflvíkingar aftur sigri í bikarnum að þessu sinni undir stjórn Milan Stefáns Jankovic, en þá vannst öruggur 3-0 sigur gegn KA-mönnum. Það var svo árið 2006 að liðin sem kljást á laugardaginn, Keflavík og KR, mættust í spennandi leik.
Guðni Sævarsson er í ansi áhugaverðri stöðu. Hann er uppalinn Keflvíkingur Jsemónas tvisvar varð bikarmeistari með liðinu
Bikarmeistarar Keflavíkur 2004
JÓHANN ER MAÐUR ORÐA SINNA
araldur f yrirliði Guðmundsson var ör yggið H uppmálað þegar hann tryggði
Keflvíkingum endanlega sæti í úrslitum með frábærri vítaspyrnu gegn Víkingum á dögunum. Hann segir leik sem þennan hafa gríðarlega þýðingu fyrir félagið. Hvernig rífa Keflvíkingar upp stemninguna fyrir leikinn? „Við Keflavík sem lið þurfum svosem ekkert að gera neitt sérstakt til að búa til stemningu, það er góð stemning í hópnum og hefur verið allt frá því við hófum æfingar í vetur. Spennan mun svo eflaust stigmagnast fram að leik. En við komum til með að vera aðeins meira saman utan æfinga í vikunni en venjulega, komum t.d til með að borða saman á fimmtudaginn; stjórn, þjálfarar, leikmenn og makar. Ég vona að sjálfsögðu að það verði frábær
stemning í stúkunni á laugardaginn og fólk fjölmenni á völlinn.“ Hvaða þýðingu hefur leikur sem þessi fyrir félagið? „Leikurinn hefur að sjálfsögðu mikla þýðingu, það er frábært fyrir okkur sem félag að komast í úrslitaleikinn, við ætlum okkur sigur í leiknum og koma okkur í Evrópukeppni á næsta ári. Svo gefur þetta náttúrulega bæjarfélaginu mikla orku, leikurinn er á allra vörum og fólk er spennt fyrir laugardeginum.“ Finnst þér ekki að Jóhann eigi að standa við stóru orðinn og aflita á sér kollinn fyrir leikinn? „Ef Jói hefur sagt að hann ætli að aflita á sér hárið fyrir leikinn þá er mjög líklegt að hann standi við það, enda Jóhann maður orða sinna eins og ég þekki hann. Þannig að það sem ég vil segja um þetta er að við munum örugglega sjá Jóhann eins og árið ‘97, ef ekki hárið, þá allavega skeggið.“
(‘04og ‘06). Nú klæðist hann röndóttri treyju Vesturbæinga þar sem hann hefur einnig nælt sér í tvo bikarmeistaratitla (‘08 og ‘12). „Þetta er skemmtilegt hvernig þetta æxlast. Maður er bara með „flashback“ frá 2006 þegar ég lék með Keflavík einmitt á móti KR, en nú er maður einmitt í hinu liðinu, þannig að þetta er skemmtileg tilviljun,“ segir fyrrum fyrirliði Keflavíkurliðsins. Jónas á yngri bróður sem hefur verið að banka á dyrnar hjá meistaraflokki Keflavíkur, en sá er fæddur árið 1997 og heitir Fannar Orri Sævarsson. „Þetta verður afar erfitt fyrir foreldra okkar. Það er spurning hvort mamma sitji í Keflavíkurstúkunni og pabbi KR megin. Þau verða líklega bara að halda með liðinu sem vinnur,“ segir Jónas í léttum dúr. „Ég held að Fannar sé bara stoltur af bróður sínum og líti upp til hans. Auðvitað myndi hann vilja æfa með mér og spila með mér, það er aldrei að vita nema það verði einhvern tímann að veruleika. Það væri gaman að spila með litla bróður. Það kemur í ljós í framtíðinni en ég á eitt ár eftir af samningi mínum við KR.“ Þannig að þú lokar ekkert hurðinni á endurkomu á heimaslóðir? „Maður gerir það aldrei, það er ekki hægt að gera það,“ segir miðjumaðurinn sterki. Ég held að það sé frábær stemning í Keflavíkurliðinu og mér fannst t.d. ofboðslega skemmtilegt að sjá myndir frá Víkurfréttum þar sem þeir fögnuðu sigri gegn Víkingum. Það er jafnvel eitthvað sem við þurfum að vara okkur á. Þrátt fyrir að hafa leikið gegn þeim í deildinni á mánudaginn, þá erum við að fara að mæta allt öðru Keflavíkurliði á laugardaginn.“ Kom upp lítill Keflvíkingur í þér við það að sjá fagnaðarlæti þeirra? „Já það kom svona smá, maður hugsaði að þarna væri mikil stemning og maður vill vera þar sem stemningin er. Stemningin er líka frábær hérna hjá okkur og mikil spenna fyrir þennan leik, það er mikið í húfi fyrir okkur að vinna titil þar sem við verðum að treysta á aðra til þess að næla í Íslandsmeistaratitilinn,“ segir Jónas að lokum.
Merktu
11
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 14. ágúst 2014
pósturu eythor@vf.is
ELÍAS MÁR ÓMARSSON
STUÐNINGSMAÐURINN JÓNÍNA STEINUNN HELGADÓTTIR
SPENNTUR FYRIR UPPLIFUNINNI Á LAUGARDALSVELLI
FLAVÍKUR?
GN KR Í VENJULEGUM LEIKTÍMA
ar stóðu Keflvíkingar uppi sem sigurvegarar með tveimur mörkum gegn engu. Þessi lið eiga sér okkra sögu og má segja að sérstakur rígur hafi myndast á milli félaganna í fótboltanum. Í veglegri mfjöllun rifjum við upp sæta sigra Keflvíkinga í ikarnum í gegnum tíðina og tökum gamlar bikaretjur tali. Leikurinn sjálfur er á laugardaginn og efst klukkan 16:00 á Laugardalsvelli.
SIGURINN ÁRIÐ ‘97 VAR SÆTASTUR
„Þetta er virkilega stór leikur fyrir okkur yngri leikmennina sem ekki höfum upplifað þetta áður. Þetta leggst mjög vel í mig og ég er virkilega spenntur,“ segir framherjinn ungi Elías Már Ómarsson. Hann segist hafa hugað að þessum leik allt frá því að sigur vannst á Víkingum í undanúrslitum. „Þegar kemur að svona leikjum þá verð ég frekar spenntur en stressaður,“ bætir Elías við en þó segir hann að með auknum spilatíma í sumar sé reynslan að síga inn og taugarnar að styrkjast. „Ég er þokkalega sáttur við það sem ég hef verið að
ELÍAS ER TVÍFARI TORRES - Spilar betur síðhærður! „Torres hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér, sérstaklega þegar hann var hjá Liverpool sem er mitt lið. Ég lít mikið upp til hans. Ég hef oftast verið með sítt hár allt frá unga aldri. Mér finnst ég alltaf spila betur þegar ég er með sítt hár, það er eitthvað við það,“ segir framherjinn hárprúði. Hártíska hefur loðað við úrslitaleikina í bikarnum og Keflavíkurliðið. Árið 1997 voru glókollarnir áberandi á vellinum, sem og sem skeggið var litað. Árið 2006 voru menn rakaðir ansi skrautlega. „Ég er svo sem til í eitthvað flippað ef það er málið fyrir þennan leik,“ segir Elías léttur í lundu.
gera í sumar. Auðvitað vil ég gera betur og stefni að því að bæta mig í hverjum leik,“ segir framherjinn efnilegi. Elías hefur verið ýmist í framlínunni eða úti á kanti hjá Keflvíkingum í sumar. Elías er ekki mikið að spá í því hvar hann spilar, heldur hvort hann spili. „Ég hef alltaf verið framherji og kann best við mig þar. Það er þó betra að vera á kantinum en á bekknum.“ Eldri leikmennirnir í liðinu sem hafa unnið bikarinn tala mikið um hvernig tilfinningin er þegar bikarinn fer á loft og Elías segir það vera hvetjandi fyrir þá yngri í hópnum. „Það kitlar óneitanlega að fá að upplifa það sama og þeir hafa gert áður, þessa sigurtilfinningu. Ég get ekki ímyndað mér hvernig er að spila svona leik. Það verður spennandi að ganga inn á völlinn en ég hugsa að stressið fari þegar flautað verður til leiks,“ segir hinn eldfljóti framherji að lokum.
Merktu myndirnar á bikarúrslitaleiknum #vikurfrettir á Instagram
„Ég vona svo sannarlega að Keflvíkingar komi með bikarinn heim, hvernig sem þ eir fara að því. En til að segja einhverjar tölur skulum við hafa það 1-2 fyrir Keflavík,“ segir Jónína Steinunn Helgadóttir sem er dyggur stuðningsmaður Keflavíkurliðsins. Hvað kemur til með að ráða úrslitum í svona stórleik? „Kristján og strákarnir þurfa að gíra sig upp í góða stemningu. Þeir verða að hafa trú á verkefninu en mega ekki verða yfirspenntir. Síðast en ekki síst verðum við stuðningsmennirnir að láta vel í okkur heyra, það skilar sér inná völlinn sem 12. leikmaðurinn.“ Jónína segist örugglega hafa farið á alla bikarúrslitaleiki hjá Keflavík eftir að hún komst til vits og ára, en þeir eru þó mis eftirminnilegir að hennar mati. „Ég held að sigurinn 1997 sé sá eftirminnilegasti þar sem dramatíkin var allsráðandi. Tveir leikir, framlenging og vítakeppni til að knýja fram úrslit - ekkert eins sætt. Bikarinn 2006 er líka minnisstæður, skemmtilegar móttökurnar við Sparisjóðinn sáluga þar sem allir vildu „Kristján sem forseta". Nú er hins vegar kominn tími til að hampa bikarnum á svölunum við Sunnubrautina.“ STUÐNINGSMAÐURINN EYGLÓ EYJÓLFSDÓTTIR
GARÐBÚINN SKORAR MARK Í LEIKNUM „Við vinnum 2-1. Liðsandinn og þetta stóra Keflavíkurhjarta sem við eigum munu skila okkur sigri. Við verðum að hafa trú á okkur og taka þetta bara,“ segir Eygló. Hún spáir því að Garðbúinn Jóhann Birnir skori eitt mark í leiknum en hinn ungi Elías Már setji svo hitt. Hvað varðar eftirminnilega bikarúrslitaleiki þá rifjar Eygló upp leik þar sem hún var ekki einu sinni stödd á landinu. „Árið 2006 lá ég á sundlaugarbakkanum á Florida í vinnuferð að fylgjast með Keflavík sigra KR. Það er mér mjög minnistsætt.“
BIKARMOLAR XKeflvíkingar X hafa orðið Bikarmeistarar fjórum sinnum. Fyrst árið 1975 eftir 1-0 sigur gegn Skagamönnum. Næsti sigur kom svo gegn Eyjamönnum árið 1997 eftir tvo framlengda leiki og vítaspyrnukeppni. Árið 2004 unnu Keflvíkingar sigur á KA með öruggum 3-0 sigri. KR-ingar voru svo mótherjar Keflvíkinga í bikarúrslitum árið 2006, en þar höfðu Keflvíkingar 2-0 sigur. XKR-ingar X hafa unnið bikarkeppnina oftast allra félaga eða 13 sinnum XKR-ingar X urðu bikarmeistarar fyrst árið 1964 en þá urðu Keflvíkingar einnig fyrst Íslandsmeistarar. Liðin verða bæði heiðruð á laugardag vegna þessa áfanga. XKeflvíkingar X hafa ekki fengið á sig mark í bikarúrslitum í venjulegum leiktíma, það gerðist þó árið 1997 gegn ÍBV að Keflvíkingar fengu á sig mark í framlengingu. XMagnús X Þorsteinsson er sá leikmanna í Keflavíkurliðinu í dag sem spilað hefur flesta bikarleiki. Hann á að baki 30 leiki í bikarnum þar sem hann hefur skorað 10 mörk, en hann er einnig markahæstur núverandi leikmanna í bikarnum. Magnús er einnig sá eini í leikmannahópnum sem hefur tvisvar orðið bikarmeistari með Keflavík, árin 2004 og 2006. Aðrir sem unnið hafa bikarinn áður eru: Jóhann Birnir sem vann bikarinn með Keflavík árið 1997, fyrir 17 árum síðan. Haraldur Freyr og Hörður Sveinsson urðu bikarmeistarar árið 2004 og Einar Orri Einarsson árið 2006. XFyrsti X Íslandsmeistarartitill Keflvíkinga kom í hús 1964 og svo aftur 1969. Þriðji titillinn kom 1971 og sá fjórði 1973. Árangur Keflvíkinga í bikarnum í gegnum tíðina: 1973 Úrslit 1975 Meistarar 1982 Úrslit 1985 Úrslit 1988 Úrslit 1993 Úrslit 1997 Meistarar 2004 Meistarar 2006 Meistarar 2007 8 liða 2008 8 liða 2009 Undanúrslit 2010 16 liða 2011 8 liða 2012 32 liða 2013 32 liða
12
fimmtudagurinn 14. ágúst 2014 • VÍKURFRÉTTIR
-íþróttir /bikarinn 2014
pósturu eythor@vf.is
Keflvíkingar fagna bikarsigri á Laugardalsvelli gegn KA árið 2004. Þórarinn er annar frá hægri.
KEFLAVÍKURHJARTAÐ MUN RÁÐA FÖR - Skemmtilegast að vinna KR segir „Bjargvætturinn“ Þórarinn Kristjánsson
argur Keflvíkingurinn man eflaust eftir afrekum Þórarins KristjánsM sonar á knattspyrnuvellinum. Framherjinn
kom ungur fram á sjónarsviðið og skoraði á ferli sínum mörg mikilvæg mörk fyrir Keflvíkinga. Þórarinn sem er 34 ára hefur haldið til í Noregi undanfarin fimm ár en ferill hans var helst til of stuttur, enda var hann að glíma við erfið meiðsli frá 25 ára aldri. Þórarinn þekkir það heldur betur að leika á Laugardalsvelli. Þar hefur hann þrisvar sinnum fagnað sigri en framherjinn fyrrum segir upplifunina ógleymanlega. Hann ætlar að sjálfsögðu að fylgjast með sínum mönnum á laugardaginn gegn KR, en hann fylgist með öllum leikjum liðsins. Þórarinn rifjar upp þegar hann var 17 ára gutti og lék fyrst á Laugardalsvelli gegn ÍBV. „Maður fór bara inn í þetta eins og hvern annan leik. Maður var ungur og vitlaus og
lét bara vaða. Þetta var bara í manni að spila fótbolta og taka á því. Seinna meir þegar við lékum til úrslita þá var maður kominn með meiri ábyrgð í liðinu þá gerði maður þetta allt öðruvísi og maður skynjaði þetta öðruvísi, ég sá hvað það er virkilega þýðir að vera Keflvíkingur. Það var tvennt ólíkt að vera þarna sem pjakkur og svo seinna meir,“ segir Þórarinn sem man vel eftir því hvernig stemningin í bænum breyttist umtalsvert þegar nálgaðist úrslitaleikinn. Framherjinn hefur fengið að upplifa það að skora í úrslitaleiknum, en hann skoraði tvö mörk gegn KA árið 2004. Eins skoraði hann sigurmarkið í undanúrslitum gegn Leiftursmönnum í blálokin árið 1997. „Það er svakalegt að skora í svona leik enda er það draumur íslenskra knattspyrnumanna að spila svona leiki, hvað þá að skora.“ Með markinu í undanúrslitum árið 1997 hélt hann nafninu „Bjargvætturinn“ á lofti en það
viðurnefni hafði hann fengið tímabilið áður eftir að hafa bjargað Keflvíkingum frá falli. „Það nafn er ekki ennþá farið, maður heyrir þetta ennþá,“ segir Þórarinn léttur í bragði. „Þetta nafn var hundleiðinlegt á sínum tíma en það er gaman að þessu núna,“ segir hann og hlær. Þórarinn segir eitthvað sérstakt við það að leika gegn KR. Það sé lið sem Keflvíkingar elski að vinna. „Ég man þegar við unnum KR árið 2006. Fullur völlur og gargandi trylltir áhorfendur. Það var sérstaklega gaman að vinna þá. Ég get ímyndað mér hvernig leikmönnum líður núna að lenda á móti KR í svona leik. Þetta er líklega langstærsti leikur sem Keflvíkingar munu leika í langan tíma. Það er líklega skemmtilegast að vinna á móti KR, ég get alveg viðurkennt það. Maður leggur sig alltaf aðeins meira fram gegn þeim. Ég man þegar ég var að spila að
LOFAÐI LJÓSU LOKKUNUM EF KEFLVÍKINGAR KÆMUST Í ÚRSLIT - 17 ár á milli bikarúrslitaleikja hjá Jóhanni Birni að eru liðin 17 ár frá því að Jóhann Birnir Guðmundsson spilaði síðast úrslitaleik á LaugardalsÞ velli. Þá var hann kornungur og efnilegur leikmaður
sem átti framtíðina fyrir sér í boltanum. Síðar hélt hann í atvinnumennsku þar sem hann átti farsælan feril. Á meðan hann dvaldi erlendis missti Jóhann af tveimur bikartitlum sem féllu Keflvíkingum í skaut. Hann er núna 37 ára gamall á lokametrunum á ferlinum og tekur þessu tækifæri fegins hendi. „Ég er spenntari fyrir leiknum núna en þá og kann fremur að meta þetta tækifæri. Manni fannst ungum að árum að maður ætti eftir að spila fjölda svona leikja en það er ekkert gefið að spila svona leiki.“ Jóhann fylgdist með bikartitlunum 2004 og 2006 og gladdist fyrir hönd félaga sinna. Hvernig eru minningarnar frá leiknum árið 1997? „Þetta eru ógleymanlegir úrslitaleikir báðir tveir og ótrúlega gaman að spila þessa leiki. Stemningin var frábær og margir á vellinum. Maður var það ungur og vitlaus að ekkert hafði of mikil áhrif á mann. Ég hafði ótrúlega gaman af þessu.“ Skömmu fyrir þann leik höfðu Eyjamenn unnið öruggan sigur á Keflvíkingum í deildinni og þóttu ansi sigurstranglegir. „Fyrir leik var verið að spá okkur 5-0 tapi og þar fram eftir götunum, þannig að pressan var engin fyrir þann leik,“ segir Jóhann en hann viðurkennir að staðan sé svipuð núna enda eru KRingar núverandi Íslandsmeistarar og nýbúnir að sigra Keflvíkinga í deildinni. „Þeir eiga að vera sigurstranglegri. Það hefur ekkert gengið neitt svakalega vel hjá okkur upp á síðkastið.“ Jóhann segir að í raun hafi ekki annað verið hægt en að láta leikinn gegn KR í deildinni hafa áhrif á sig. Við þurftum að hvíla menn og það er ekkert hægt að neita því að þetta hafði áhrif. Leikurinn á laugardaginn verður allt
öðruvísi þegar allir eru komnir inn í liðið og spennustigið verður miklu hærra, það verður allt öðruvísi stemning.“ Bikarhafarnir árið 1997 voru sælla minninga með aflitað hár sem vakti mikla lukku. Jóhann segist ekki vera tilbúinn að mæta svoleiðis í leikinn þrátt fyrir að hafa lofað því í vor. „Ég var búinn að lofa því að aflita á mér hárið ef við kæmust í úrslitaleikinn, en ég held að það verði ekki,“ segir Jóhann kíminn. „Í fyrri leiknum gegn ÍBV vorum við með litað rautt skegg þannig að ég ætla að fá að spila einn úrslitaleik í bikarnum þokkalega eðlilegur í útliti,“ bætir Jóhann við og hlær. „Ég hugsa að ég sleppi því en þó er aldrei að vita.“ Kominn tími á bikarinn heim Margir leikmanna Keflavíkur eru að fara að spila sinn stærsta leik á ferlinum. Jóhann hvetur þá til þess að njóta hverrar mínútu á vellinum á laugardag. „Þeir eiga bara að njóta þess að spila fótbolta fyrir framan fjölda stuðningsmanna okkar. Aðalatriðið er að vera í núinu en ekki vera að spá í fortíð eða framtíð. Þetta gerist ekkert á hverjum degi og því er um að gera að gefa allt í þetta.“ Jóhann segir fólk í Reykjanesbæ þegar vera orðið spennt og hann heyrir mikið talað um leikinn. „Það er gaman og ég efast ekki um að að Keflvíkingar fjölmenni á völlinn. Það er kominn tími á bikarinn heim,“ segir Jóhann að lokum.
við höfðum tak á þeim, við töpuðum ekki mörgum leikjum gegn þeim.“ Hvernig telur Þórarinn að leikurinn fari á laugardaginn? „KR eru vel mannaðir með fyrrum Keflvíkingana Baldur og Jónas og atvinnumenn í flestum stöðum. Ég held hins vegar að Keflavíkurhjartað muni ráða för á laugardaginn. Hjartað skiptir máli svona leikjum og það hefur Keflavík fram yfir þá. Maður fær auka orku í svona leikjum og ég tel að það muni tryggja okkur sigur á laugardaginn,“ segir Keflvíkingurinn. Bikarreynsluboltinn Þórarinn hefur einfaldar ráðleggingar fyrir þá ungu Keflvíkinga sem stíga í fyrsta sinn á Laugardalsvöll um helgina. „Besta ráðleggingin sem ég hef er að fara með hjartað í þetta. Vera ekki að spá í því að þetta sé KR í svokölluðum risaleik, heldur taka þessu eins og hverjum öðrum leik. Vaða óhræddir í þetta verkefni,“ segir Bjargvætturinn að lokum.
GÓÐA FERÐAHELGI! VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 14. ágúst 2014
G F
Sýnum varúð í umferðinni og munum að áf 13 Verum til
ÁFRAM KEFLAVÍK
umferðinni og munum að áfengi og akstur fara ekki saman. Verum tillitssöm og brosum í umferðinni.
GÓÐ FERÐAHE
Akið varlega
Sýnum varúð í umferðinn
Sýnu
Sýnum varúð í umferðinni og munum að áfengi og akstur Verum tillitssöm og bro
BIKARINN HEIM Allir á Laugardalsvöllinn laugardaginn 16. ágúst kl. 16:00
LÖGREGLAN Á SUÐURNESJUM
LÖGREGLAN Á SUÐURNESJUM
LÖGREGLAN Á SUÐURNESJUM
K. STEINARSSON REYKJANESBÆ
LÖGR Á SUÐU
REYKJANESBÆ REYKJANESBÆ
REYKJANESBÆ
REYKJ
14
fimmtudagurinn 14. ágúst 2014 • VÍKURFRÉTTIR
-mannlíf
pósturu vf@vf.is
■■Af Fésbókinni:
Náttúruundur við bæjardyrnar
„Höskuldarvellir eru eitt af fegurri náttúruundrum þessa lands. Þaðan er stutt í nokkrar náttúruperlur, s.s. Keili, Sogin og Lambafellsgjá. Þvílík forréttindi að hafa þessar perlur í aðeins um hálftíma akstursfjarlægð að heiman,“ segir Hjálmar Árnason skólamaður á Fésbókarsíðu sinni. Hann birtir nokkrar myndir úr ferð sinni um svæðið um síðustu helgi og segir: „Skruppum í Lambafellsgjá í dag. Á heimleið ókum við framá skessumóður vera að sýna tröllabarni sínu heiminn og tilveruna“. Ljósmyndir: Hjálmar Árnason
SKÓLABYRJUN Stóru-Vogaskóli, Vogum Skólaárið 2014-2015 Skólasetning verður föstudaginn 22. ágúst í Tjarnarsal. 1.-5.bekkur mæti kl. 10. 6.-10. bekkur mæti kl. 11. Foreldrar/forráðamenn eru velkomnir með nemendum.
RÉTTURINN ATVINNA Starfstúlku vantar í eldhús og afgreiðslu á Réttinn. Gott er að hafa reynslu á eldhússtörfum. Ekki er um aukavinnu að ræða.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 25. ágúst. Skólastjórnendur
Rétturinn veisluþjónusta - Hafnargötu 51 - 230 Reykjanesbæ - Sími: 421 8100
15
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 14. ágúst 2014
-mannlíf
pósturu vf@vf.is
Gáfu bekk í minningu Ólafs og Hallberu
Afkomendur þeirra hjóna ásamt Eysteini Eyjólfssyni og Önnu Lóu Ólafsdóttur forseta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar á bekknum góða. XXÞann 5. ágúst voru liðin 100 ár frá fæðingu Ólafs A. Þorsteinssonar. Ólafur var einn af hvatamönnum þess að stofnað yrði Byggðasafn Keflavíkur og ötull baráttumaður fyrir vexti og þróun safnsins sem nú heitir það Byggðasafn Reykjanesbæjar. Afkomendur Ólafs og Hallberu konu hans komu saman á afmælisdaginn til þess að afhenda bæjarfélaginu bekk merktan þeim hjónum, gestum og gangandi til þæginda. Ólafur var borinn og barnfæddur í félagsstarfi og einnig lagði hann Keflvíkingur, sonur Þorsteins bæjarmálum lið. Ólafur hafði Þorvarðarsonar og Bjargar Arin- mikinn áhuga á ljósmyndum og bjarnardóttur í Þorvarðarhúsi sem eru fjöldi mikilvægra mynda fyrir er elsta íbúðarhús Keflavíkur sem sögu samfélagsins sem hann safnenn stendur. Ólafur tók virkan þátt aði í Byggðasafninu.
-
smáauglýsingar TIL SÖLU
Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla
Til sölu Saab 9-3 árg. 00. Sjálfskiptur, ekinn um 125 þús km. Heillegur og fallegur bíll sem er töluvert endurnýjaður. Uppl í síms 866-9675 og 777-9464
sími 421 7979
ÓSKA EFTIR
ÞJÓNUSTA
Óska eftir góðum vélamanni góð laun fyrir góðan mann. uppl í síma 892 8043. Guðni.
Tek að mér að klippa og snyrta smáhunda. Sjá Facebook undir hundasnyrting. Góð reynsla.Kristín S.897 9002.
Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ
Hvalaskoðun, Coke og Alþingi hjá Björginni H
ópur skjólstæ ðinga frá Björgin Geðræktarmiðstöðinni í Reykjanesbæ, alls 30 manns, fóru í hvalaskoðun með Andreu frá Reykjavík í vikunni. Fyrirtækið Special Tours gerði þeim sem standa að Skötumessunni í Garði kleift að bjóða hópnum í hvalaskoðun. Að lokinni þriggja klukkustunda hvalaskoðun var hópnum boðið í aðalstöðvar Vífilfells upp á veitingar og kynningu á fyrirtækinu undir leiðsögn Jón Viðar Stefánsson. Að því loknu fór hópurinn í Alþingishúsið.
www.bilarogpartar.is
Miðilsfundir Þórhallur Guðmundsson verður með einkafundi miðvikudaginn 20. ágúst. Nánari upplýsingar og tímapantanir í síma 421-3348.
RAUÐAKROSSBÚÐIN Smiðjuvöllum 8, Reykjanesbæ Opnunartímar Fimmtudagar frá kl. 13:00 – 17:00 Föstudagar frá kl. 13:00 – 17:00 Fatnaður, skór og gjafavara Rauði krossinn á Suðurnesjum
GERÐASKÓLI
Virðing – ábyrgð – árangur - ánægja Gerðaskóli í Garði auglýsir eftirfarandi stöður:
Fjölskylduhjálp Íslands er opin í allt sumar að Baldursgötu 14. Tökum á móti fatnaði og öðrum nytjavörum alla virka daga frá kl. 13 - 18. Verið velkomin og gerið góð kaup til styrktar matarsjóði Fjölskylduhjálparinnar. Nánari upplýsingar í síma 421-1200 eða 897-8012.
Kennsla yngri barna – 100% starf Þroskaþjálfi – 100% starf Starfsmaður í síðdegisgæslu – 50% starf Bókavörður – 50% starf Upplýsingar um störfin veitir Ágúst Ólason skólastjóri í símum 422-7020 og/eða 777-9904. Umsóknir skulu sendar á netfangið agust@gerdaskoli.is
16
fimmtudagurinn 14. ágúst 2014 • VÍKURFRÉTTIR
-viðtal
pósturu vf@vf.is
■■Öryrkjar með fimm börn safna fé fyrir barnaheimili í Paraguay:
Viljum leggja okkar af mörkum
„Við höfum fundið okkur vel innan Hjálpræðishersins og höfum aðstoðað m.a. við að gefa þeim sem minna mega sín mat á aðfangadag og hjálpum börnum og unglingum við nám og annað. Það hefur gert okkur að miklu betri manneskjum að gera það sem við getum til að gefa öðrum betra líf,“ segja hjónin Sigurvin Hreinsson og Ágústa Kristín Jónsdóttir, sem hafa hrundið af stað söfnun fyrir barnaheimili í Paraguay og verða með bingó í húsnæði Hjálpræðishersins að Flugvallarbraut 731 á Ásbrú næsta fimmtudag, 21. ágúst.
Vanhæfir foreldrar og fátækt mikil Forsaga málsins er sú að fyrir einu og hálfu ári fluttu fyrrum foringjar Hjálpræðishersins í Reykjanesbæ, Ester Daníelsdóttir van Gooswilligen og Wouter J. Van Gooswilligen, ásamt börnunum sínum þremur til að taka við stjórn á barnaheimilinu El Redil í hjarta höfuðborgar Paraguay, Asuncion. „Barnaheimilið hefur starfað í 70 ár en á nú við fjárhagserfileika að stríða. Enga opinbera styrki er að fá og 35 börn búa á heimilinu sem flest eiga fjölskyldur eða foreldra sem eru vanhæf um að sjá um þau. Erfiðar aðstæður eru þarna úti, ekkert velferðarkerfi og mikil fátækt. Á síðasta ári reið svo flóð yfir stórt svæði í Paraguay og 180.000 manns misstu heimili sín,“ segir Sigurvin. Vilja leggja sitt af mörkum „Þessi fjölskylda er einstök og fór upphaflega út til að nýta sumarfríið sitt í að hjálpa til, áður en þau ákváðu að flytja út. Ég og konan höfum verið að halda sambandi við þau gegnum netið og þegar
Ester sagði okkur frá ástandinu langaði okkur að leggja þessu lið á einhvern hátt. Við erum öryrkjar með fimm börn og lítið á milli handanna og eigum erfitt. En við viljum samt gera það sem við getum,“ segir Sigurvin. Ágústa er gigtar- og offitusjúklingur en ákvað samt að ganga ein á Esjuna upp að Steini, í fyrsta sinn á ævinni, til að safna áheitum fyrir mál-
staðinn og safnaði um 60 þúsund krónum. Þá langaði Sigurvin að gera eitthvað líka og fór á milli fyrirtækja sem nánast öll tóku vel í að gefa vinninga í bingói. „Allur ágóði mun renna óskiptur til þessa barnaheimilis í Paraguay. Einnig verður pottur fyrir frjáls framlög og unglingarnir verða með sjoppu og ágóðinn rennur í sama sjóð,“ segir Sigurvin.
Enga opinbera styrki er að fá og 35 börn búa á heimilinu sem flest eiga fjölskyldur eða foreldra sem eru vanhæf um að sjá um þau
■■Skefur af sér kílóin fyrir gott málefni
Vilt þú leggja heiminn að vörum Íslendinga með Kaffitári? Kaffitár leitar að kröftugum einstaklingi í söludeild okkar til að starfa sem sölu- og þjónustufulltrúi á fyrirtækjamarkaði. Hæfniskröfur: • Reynsla af sölumennsku • Hæfni og áhugi á mannlegum samskiptum • Áhugi fyrir kaffi • Góð almenn tölvukunnátta • Tæknilega þenkjandi • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð Helstu verkefni: • Viðhald og öflun nýrra viðskiptavina • Heimsóknir í fyrirtæki (sölu og þjónustuheimsóknir) • Áætlanagerð • Undirbúningur og eftirfylgni Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Kaffitárs, www.kaffitar.is Umsóknarfrestur er til 22. ágúst. Frekari upplýsingar veitir Guðbjörg Ásbjörnsdóttir í s: 420 2703 Kaffitár framleiðir og selur einungis úrvalskaffi. Við leggjum áherslu á gæði og ferskleika. Við erum skemmtileg, alúðleg, umhverfisvæn, litaglöð og líka röff og töff. Við setjum fók í fyrirrúm og opnum hjarta okkar til að koma boðskap Kaffitárs til skila og tengjast viðskiptavinum okkar traustum böndum. Við kaupum kaffi án krókaleiða til að stuðla að því að við fáum besta kaffi sem völ er á og að bændurnir fái sanngjarnt verð fyrir vöru sína.
Styrkir Einstök börn í átakinu K eflvíkingurinn Einar Skaftason hefur ákveðið að láta gott af sér leiða um leið og hann etur kappi við aukakílóin. Friðrik Bergmannsson vinur hans skoraði á hann að huga aðeins að heilsunni og um leið myndu nokkur kíló líklega hverfa á braut. Vinur Einars ætlar að borga sjálfur 500 krónur fyrir hvert kíló sem Einar missir þangað til 17. janúar á næsta ári, en sjálfur ætlar Einar að borga 1000 krónur á kílóið. Hann ætlar um leið að skora á aðra að gefa til góðra málefna, en Einar ætlar að styrkja Einstök börn sem er stuðningsfélag barna og ungmenna með sjaldgæfa, jafnvel ógreinda sjúkdóma eða skerðingar. Öllum er frjálst að styrkja málefnið og hvetja Einar áfram í leiðinni. Einar starfar sem flugöryggisvörður hjá Isavia og er þegar byrjaður að æfa af fullum krafti í Sporthúsinu sem ætlar að styrkja Einar vel í baráttunni með vænum framlögum, en þeir félagar vonast eftir því að fleiri fyrirtæki fylgi í kjölfarið. Þegar átakið hófst var
Einar 131,9 kg og mældist með 34,5 fituprósentu. Tekin voru af honum mál og ástandið kannað á kappanum í bak og fyrir. Hann féllst á að leyfa okkur á Víkurfréttum að fylgjast með ferlinu en hann vonast til þess að fleiri taki þátt og styrki góð málefni.
Þeir sem vilja svo taka þátt í þessu með Einari geta sent póst á rikkibe@gmail.com
HEILSUHORNIÐ 15 leiðir til að hreinsa líkamann 1. Drekktu glas af volgu sítrónuvatni. Gott að bæta smá cayenne pipar við til að auka blóðflæðið og frekari hreinsun. 2. Fáðu þér ferskan grænmetissafa. Einn sem er vinsæll á mínu heimili er rauðrófa, gulrætur, engifer, sellerí, grænt epli og sítróna. 3. Sötraðu á hreinsandi jurtate eins og t.d. brenninettlu, vallhumalste, grænu te og rauðrunnate. 4. Bættu við eplaediki í morgunrútínuna þína en eplaedik er talið hafa basísk og hreinsandi áhrif á líkamann. 5. Borðaðu hreinsandi fæðu. Bættu inn í fæðuna hvítlauk, turmerik, grape ávexti, steinselju, sölvum, brokkolí, grænkáli og sítrusávöxtum. 6. Notaðu í lágmarki hvítt hveiti, sykur, áfengi, koffín og aukaefni. 7. Svitnaðu! Það að svitna er mikilvægt fyrir losun toxískra efna úr líkamanum. Hreyfðu þig kröftuglega og/eða farðu reglulega í gufu til að auka úthreinsun í gegnum húðina. ÁSDÍS 8. Bættu meltinguna. Góð melting og reglulegar hægðir er lykilatriði þegar kemur að hreinsun og hægt að bæta við trefjum eins og husk dufti, triphala jurt, aloe vera safa, aci- GRASALÆKNIR SKRIFAR dophilus gerlum, magnesíum dufti og meltingarensímum til að örva meltinguna. 9. Þurrburstaðu húðina. Gott að gera áður en farið er í sturtu frá toppi til táar í strokum í átt að hjarta. Þetta örvar sogæðakerfið og úthreinsun. 10. Prófaðu tungusköfu. Tungan safnar úrgangsefnum yfir nóttina og því gott að skafa tunguna í upphafi dags. Líkami þinn mun þakka þér fyrir að kúpla þessum venjum inn í lífsstílinn þinn! Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir.
www.facebook.com/grasalaeknir.is, www.pinterest.com/grasalaeknir
17
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 14. ágúst 2014
-mannlíf
pósturu vf@vf.is
Óð í óperur
Leiðsögn, ljósmyndir og Suðurnesjahönnuðir – í Duushúsum um helgina
Um helgina lýkur sýningu á verkum Karolínu Lárusdóttur, Dæmisögur úr sumarlandinu.
U
m helgina lýkur sýningu á verkum Karolínu Lárusdóttur, Dæmisögur úr sumarlandinu. í sýningarsla Listasafnsins. Í tilefni þess verður Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur með leiðsögn um sýninguna kl. 14.00 á laugardag. Einnig mun hann árita bók sína um Karolínu sem er til sölu á staðnum.
Um helgina lýkur einnig sýningunni Hönnun á Suðurnesjum sem er samstarfsverkefni með hönnunarklasanum Marís. Á laugardag kl. 15.00 verða hönnuðirnir á staðnum og bjóða gesti og gangandi velkomna til að skoða hönnunina og spjalla. Í Bíósal lýkur senn ljósmyndasýningunni Þrælkun, þroski, þrá
Starf í eldhúSi
þar sem gefur að líta valdar ljósmyndir eftir íslenska ljósmyndara sem varðveittar eru í Ljósmyndasafni Íslands í Þjóðminjasafni. Þar er fjallað um börn við vinnu á sjó og í landi. Sýningin vekur upp spurningar um vinnumenningu og barnauppeldi á Íslandi á fyrri hluta 20. aldar, hvernig ljósmyndir geta breytt viðhorfi okkar til fortíðarinnar eftir því samhengi sem þær eru skoðaðar í. Þær kveikja umhugsun um vinnu barna, aðbúnað þeirra og vinnuskilyrði og samskipti sjómanna og barna. Hvenær breytast ævintýri og heilbrigð vinnumenning í þrælkun? Hvenær verða aðstæðurnar óyfirstíganlegar fyrir lítil börn, líkamlega og tilfinningalega. Hvar liggja mörkin?
Skólamatur ehf. óskar eftir að ráða aðstoðarmann í eldhús, við framleiðslu á sérfæði. Um er að ræða aðstoð við undirbúning, matreiðslu og skipulagningu í sérfæðisdeild Skólamatar. Menntun og reynsla af matreiðslu er kostur en áhugi á matargerð er nauðsynlegur. Umsóknir og fyrirspurnir sendist á fanny@skolamatur.is
Sími 420 2500 I skolamatur@skolamatur.is skolamatur.is
Hollt, gott og heimilislegt
Hittingur með hönnuðum í Duushúsum XXNú líður að lokum sýningarinnar Hönnun á Suðurnesjum sem Maris hönnunarklasi Suðurnesja stendur fyrir í samstarfi við Reykjanesbæ. Af því tilefni verða hönnuðir í klasanum á staðnum laugardaginn 16. ágúst og kynna þar verk sín áhugasömum. Þeir sem hafa áhuga á hönnun eru hvattir til þess að líta á sýninguna þessa síðustu sýningarhelgi.
Söngkonan Bylgja Dís Gunnarsdóttir segist vera alæta á tónlist. Hún hlustar þó mikið á óperutónlist enda hefur hún töluverða reynslu í þeim geira sjálf. Bylgja les mikið bækur sem tengjast tónlistinni en hún kennir við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar en hefur undanfarin tvö ár búið í Hafnarfirði. Þegar kemur að sjónvarpsglápi þá verða heimildarmyndir oft fyrir valinu.
Bókin Síðasta sumar kynntist ég bókunum hans Guðna Gunnarssonar Máttur athyglinnar og Máttur viljans og hef verið að lesa í þeim aftur og aftur, mæli eindregið með þeim. Textinn hjá Guðna er stílhreinn, meitlaður og áhrifamikill. Í kjölfarið fór ég að lesa bækur Eckhart Tolle og er á síðustu blaðsíðunum á bók hans Ný jörð. Verdi with a Vengeance eftir W. Berger, sem fjallar um líf og óperur Verdis, er líka á náttborðinu. Næst í röðinni hjá mér er bókin Everything is Connected - The Power of Music eftir Daniel Barenboim sem er einn af fremstu hljómsveitarstjórnendum í heiminum í dag, mjög spennt fyrir henni. Tónlistin Ég hlusta á nánast allar tegundir af tónlist. Nýjasta uppgötvunin hjá mér er samt Philipp Glass og Steve Reich sem semja minimalíska tónlist. Ég er svo lánsöm að vera gift manni sem er alltaf að fara inn á nýjar brautir músíklega og þetta er dæmi um eitthvað sem hann setur í spilarann og ég heillast með. Mæli með: Heroes sinfóníunni sem byggð er á samnefndri plötu David Bowie og Tehilim. Annars hlusta ég mjög mikið á óperutónlist og ljóðatónlist frá öllum tímabilum og á uppáhalds söng vara þar í löngum röðum. Ég er líka alltaf með bunka af tónlist sem ég er að læra, nótur og orð sem þarf að leysa úr álögum og það er fátt meira gaman en það.
Maris.is
KEF RESTAURANT óskar eftir starfsmanni í þjónustustarf Vinnutími 17:00-22:00 u.þ.b. 15 daga í mánuði og önnur hvor helgi. Einungis er sóst eftir 20 ára og eldri með góða íslenskukunnáttu. Áhugasamir sendi umsókn til: jenny@kef.is
-afþreying
Sjónvarpsþátturinn Í sumar hef ég verið að horfa á heimildaþætti sem BBC gerði um málara, Van Goch og fleiri. Stuttir en afar áhugaverðir og vel gerðir þættir um líf og list hvers og eins sem varpar ljósi á svo margt í sögunni. Svo finnst mér gaman að horfa á Would I lie to you? á BBC Entertainment, ég og fjölskyldan hlægjum mikið yfir þeim. Annars er gaman að heyra viðtölin við Friðrik Þór á RÚV og rifja upp kvikmyndir hans, þær eru bara flottari og betri þegar maður horfir á þær í annað sinn. Svo er ég nýbúin að horfa á Woody Allen myndina Matchpoint sem var frábær, sterk skírskotun þar í óperur og eina af mínum uppáhaldsbókum, Glæpur og refsing eftir Dostojevskí.
póstur u eythor@vf.is
18
fimmtudagurinn 14. ágúst 2014 • VÍKURFRÉTTIR
-íþróttir
pósturu eythor@vf.is
Fyrsti sigur Keflvíkinga í tvö ár Ekki unnið síðan í ágúst 2012
Vertu með í besta sundliði landsins Skráning er hafin á sundæfingar hjá Sundráði ÍRB. Allar upplýsingar á www.keflavik.is/sund og www.umfn.is/sund Nýir sundmenn Fyrsti matsdagur verður föstudaginn 15. ágúst kl. 14 - 16 í Vatnaveröld. Næsta mat er laugardaginn 23. ágúst kl. 12:30 - 14:30 í Vatnaveröld.
K
eflvíkingar unnu á sunnudag sinn fyrsta sigur í deildarkeppni kvenna í knattspyrnu síðan í ágúst árið 2012. Sigurinn langþráði kom gegn BÍ/Bolungarvík á útivelli en lokatölur urðu 0-1. Það var Marín Rún Guðmundsdóttir sem skoraði mark Keflvíkinga í leiknum. Liðið sem leikur í 1. deild vann ekki einn einasta leik á tímabilinu í fyrra og ekki hafði tekist að innbyrða sigur í ár. Skiljanlega voru stúlkurnar því ánægðar með
sigurinn. „Þetta var mikil gleði og þær fögnuðu vel og lengi. Við fengum bara eitt stig í fyrra þannig að þetta er töluverð bæting,“ sagði Heiðar Birnir þjálfari liðsins
léttur í bragði í samtali við blaðamann Víkurfrétta. Hann segir að liðið hafi verið að leika vel að undanförnu en úrslitin hafi ekki verið eftir því. „Nú gekk allt upp og sigurinn hefði hæglega getað orðið mun stærri enda átti markvörður þeirra stórleik. Ég var mjög ánægður með stelpurnar í þessum leik,“ bætti þjálfarinn við.
■■Höfnuðu í 3. sæti á næststærsta móti heims
Keflvíkingar á Norway-cup Efnilegir knattspyrnustrákar úr Keflavík gerðu góða ferð til Noregs á dögunum á risastóru alþjóðlegu móti. Strákarnir gerðu sér lítið fyrir og höfnuðu í 3. sæti á Norway-cup í keppni A-liða 14 ára. Alls mæta 32 þúsund keppendur til Noregs á mótið, sem er það næststærsta mót yngri flokka í knattspyrnuheiminum, en keppendur eru á aldrinum 10-19 ára. Í undanúrslitum mættu Keflvíkingar liði frá Filippseyjum en þar máttu þeir sætta sig við ósigur. Engu að síður er árangurinn frábær enda voru um 150 lið sem léku bara í þeirra aldursflokki.
Fyrrum tengdadóttir Michael Jordan til Keflavíkur XXKvennalið Keflavíkur í körfuknattleik gekk um helgina frá samningi við Carmen TysonThomas. Carmen er 177 cm bakvörður frá Syracuse háskólanum í Bandaríkjunum en á lokaári sínu í skóla skoraði hún tæplega 11 stig í leik að meðaltali og tók 6 fráköst. Þess má til gamans geta að Thomas þessi er fyrrverandi kærasta dóttur Michael Jordan.
Annars er það að frétta af liðinu að um miðjan september halda þær í æfingaferð til Spánar og ættu þær því að koma undirbúnar og sólbrúnar fyrir komandi átök í Domino's deildinni í körfuboltanum.
HEYRNARÞJÓNUSTA Kæru Suðurnesjamenn Verðum á heilsugæslunni í Keflavík fimmtudaginn 21. ágúst. Verið velkomin
Ellisif Katrín Björnsdóttir Heyrnarfræðingur veitir faglega ráðgjöf
Heyrðu umskiptin Fáðu heyrnartæki til reynslu Heyrn, Hlíðasmára 11, Kópavogur
Tímapantanir - 534 9600
Sundþjálfari óskast!
Grindvíkingar á sigurbraut
G
rindvíkingar unnu 0-2 sigur á Víkingum frá Ólafsvík á útivelli þegar liðin áttust við í 1. deild karla í knattspyrnu um sl. helgi. Bæði mörk Grindvíkinga komu í seinni hálfleik en það voru
þeir Tomislav Misura og Björn Berg Bryde sem sáu um að skora. Með sigrinum komu Grindvíkingar sér í áttunda sæti deildarinnar en fyrir leikinn var liðið í fallsæti. Grindvíkingar hafa nú
sigrað tvo leiki í röð. Næsti leikur Grindvíkinga er á föstudaginn 15. ágúst en þá kemur lið KV í heimsókn á Grindavíkurvöll.
Þróttur Vogum auglýsir eftir sundþjálfara fyrir yngri hópa. Við leitum eftir faglegum einstakling sem er tilbúin að vinna með okkur í uppbyggilegu starfi í Vogunum. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. september. Starfið felst í almennri þjálfun, ásamt því að fara með hópana á mót. Menntun í íþróttafræðum og/eða sundþjálfun er skilyrði. Umsóknarfrestur er til föstudagsins 21. ágúst 2014 Frekari upplýsingar fást hjá framkvæmdastjóra félagsins í síma 868-5508 eða á netfangið throttur@throttur.net Umsóknir sendast á throttur@throttur.net
19
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 14. ágúst 2014
-mannlíf
pósturu vf@vf.is
SKÓLASETNING
Skrautleg höfuðföt á púttvellinum Þ
að var létt yfir kylfingum sem viðruðu sig á púttvellinum á Mánagötu í Reykjanesbæ á dögunum. Þá var haldið sérstakt hatta-púttmót þar sem allir þátttakendur mættu með skrautleg höfuðföt af ýmsu tagi. Mótið hefur verið haldið í nokkur ár og myndast alltaf skemmtileg stemning á þessu litríka móti. Eins og gefur að skilja mættu margir með ansi frumleg og skemmtileg höfuðföt sem sjá má.
Skólasetning grunnskóla Reykjanesbæjar verður föstudaginn 22. ágúst. Foreldrar eru hvattir til að koma með börnum sínum á skólasetningu. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 25. ágúst. Starfsmenn mæta til starfa 15. ágúst og hefst starfið með starfsmannafundi kl. 9. Akurskóli Kl. 09:00 2. – 10. bekkur Kl. 10:00 1. bekkur Fjölskyldur eru hvattar til að koma gangandi/hjólandi á skólasetningu Akurskóla. Háaleitisskóli Kl. 11:00 2. - 7. bekkur Kl. 13:00 1. bekkur Heiðarskóli kl. 09:00 2.,3. og 4. bekkur kl. 10:00 5.,6. og 7. bekkur kl. 11:00 8.,9. og 10. bekkur Holtaskóli kl. 09:00 2.,3. og 4. bekkur kl. 10:00 5.,6. og 7. bekkur kl. 11:00 8.,9. og 10. bekkur kl. 12:00 1. bekkur. Njarðvíkurskóli kl. 09:00 2.,3. og 4. bekkur kl. 10:00 5.,6. og 7. bekkur kl. 11:00 8. 9. og 10. bekkur kl. 13:00 1. bekkur Myllubakkaskóli kl. 09:00 2., 3. og 4. bekkur kl. 10:00 5., 6. og 7. bekkur kl. 11:00 8., 9. og 10. bekkur kl. 13:00 1. bekkur Frístundaskóli Foreldrar nemenda í 1.- 4. bekk, sem óska eftir frístundavistun fyrir börn sín, eru beðnir að sækja um fyrir skólabyrjun í gegnum Mitt Reykjanes eða á skrifstofum skólanna. Athugið að sækja þarf um fyrir börnin fyrir hvert nýtt skólaár.
Freyjuvellir 1
230 Reykjanesbær Bjart og vel skipulagt einbýli
Stærð: 242 fm Fjöldi herbergja: 7 Byggingarár: 1985 Fasteignamat: 34.300.000 Bílskúr: Já
Alpha
FÖRUM VARLEGA Í UMFERÐINNI - SKÓLAR AÐ HEFJAST!
Ökumenn sýnum sérstaka varúð við skóla og skólaleiðir og munum 30 km hámarkshraða.
30 Einbýlishús með 5 svefnherbergjum.
Verð: 46.900.000
RE/MAX Alpha kynnir: Fjölskylduvænt einbýlishús við Freyjuvelli í Reykjanesbæ. Stór og björt stofa með mikilli lofthæð. Í húsinu eru 5 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Mögulegt er að breyta hluta hússins í sér íbúð. Bjartur garðskáli, heitur pottur og afgirt verönd. Upplýsingar veitir Davíð Ólafsson lög.fast. í síma 897 1533 eða david@remax.is
Davíð Ólafsson Lögg. fasteignasali 897 1533 david@remax.is
Sýnum tillitssemi – ökum varlega.
vf.is
fimmtudagurinn 14. ágúst 2014 • 31. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR
-mundi
Eru líka stundaðar strandveiðar á makríl?
VIKAN Á VEFNUM Ragnheiður Elín Árnadóttir Helgi Matthías er búinn að ákveða hvað hann ætlar að verða þegar hann er orðinn stór. Hann ætlar að vera vísindaráðherra. Þeir finna upp hluti. Fyrsta uppfinningin hans á að vera vasahnífur með fullt af hættulegu sem er líka geisli. Ég held að það sé ekki búið að finna það upp. Árni Sigfússon Elsta setningin í pólitísku leikarabókinni þegar skipt er um meirihluta að „staðan sé mun verri en áætlað var“. En staðreyndin var hinsvegar lögð fram í Rekstraruppgjöri í bæjarráði í síðustu viku - fyrir fyrstu 5 mánuði ársins - þar sem rekstrarstaðan reynist vera MUN BETRI en áætlað var- Þetta eru opinber gögn frá bæjarráði. En hver nennir að rífast um þetta? - og hver trúir hverju? Nilla Einarsdóttir Loksins komin heim eftir ólýsanlega og ógleymanlega helgi á Þjóðhátíð. Ég hef að ég held aldrei sagt jafnoft "Váááááhhh!!!" Og "Vúúúhúúú!!!" Í lífinu. Eins á ég aldrei eftir að gleyma upplifuninni við að sitja uppí Brekku umvafin söng, hamingjusömu fólki og góðum vinum, með tárin í augunum, af einskærri gleði við að vera til! Onelove á allt og alla og alla með skalla!! — feeling super at Nillukot.
Næstum
l t al fyrir
skólann
Fartölvur af öllum stærðum og gerðum
Davíð Örn Óskarsson Getur einhver skilgreint það hvað þýðir að vera ópólitískur?
Sigurlín Bjarney Gísladóttir Nýjasta lífsmottóið er einfalt og handhægt: Aldrei drekka morgunkaffið án þess að skilja eftir varalitaskán á bollanum!!! Mæli með þessu fyrir alla, konur og karla :) Lísbet Helga Pirrar mig ýkt þeir sem eru töff á rúntinum.. og hætta ekki að spóla, heyri þetta heim til mín hættið að vera svona kúl
Akranesi Dalbraut 1
Borgarnesi Borgarbraut 61
Reykjanesbæ Tjarnargötu 7
www.omnis.is
Víkurfréttir koma næst út fimmtudaginn 21. ágúst.
Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001