• Miðvikudagurinn 18. nóvember 2026 • 23. tölublað • 47. árgangur
DREIFT Á SUÐURNESJUM OG HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • DAGLEGAR FRÉTTIR Á VF.IS
Vel heppnuð HSS Úr flugherminum heima í háloftin söfnun fyrir SÍÐA 7 SÍÐA 9
SÍÐA 8
SÍÐA 10
Stundum eru orðin bara nógu sterk Leikarinn Fjölnir Gíslason ræðir nýtt leikverk um flugslys
Davíð Örn Óskarsson hlýtur Súluna Súlan, menningarverðlaun Reykjanesbæjar árið 2026, kemur að þessu sinni í hlut Davíðs Arnar Óskarssonar fyrir fjölbreytt og mikilvægt framlag hans til menningar- og listalífs í Reykjanesbæ Davíð hefur um árabil verið öflugur þátttakandi í menningarlífi bæjarins og komið að fjölmörgum verkefnum á sviði lista og menningar. Hann hefur meðal annars látið að sér kveða í leiklistarstarfi, leikmynda- og sviðshönnun, grafískri hönnun og myndbandagerð.
Næsta blað kemur út 2. desember
Sultublíða við smábátahöfnina Það var sannkölluð sultublíða við smábátahönina í Grófinni í Keflavík þegar ljósmyndari Víkurfrétta var þar í rjómalogni og fangaði þessa vetrarstemmningu á mynd. Síðustu dagar hafa verið kaldir en framundan er hlýrri tíð. VF/Páll Ketilsson
Alvarlegar athugasemdir við fyrirhugaðan reykháf í Bergvík Skipulagsráð Reykjanesbæjar gerir alvarlegar athugasemdir við fyrirhugaðan reykháf sorporkustöðvar í Bergvík sem samkvæmt skipulagsgögnum gæti náð í 150 metra hæð yfir sjávarmáli. Ráðið telur að hann gæti þar með orðið helsta kennileitið á Reykjanesi. Þetta kemur fram í umsögn ráðsins um tillögu Suðurnesjabæjar að nýju deiliskipulagi Bergvíkur. Málið var tekið fyrir á fundi skipulagsráðs 6. nóvember og ráðið
ítrekaði fyrri umsögn Reykjanesbæjar frá 2. júní. Reykjanesbær leggur áherslu á að iðnaður á svæðinu samræmist íbúðabyggð í bænum. Uppbygg-
ingin þurfi að uppfylla skilyrði um bestu aðgengilegu tækni, svonefnda BAT, og kröfur laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Í umsögninni er sérstaklega lögð áhersla á að íbúum í nágrenni iðnaðarsvæðisins verði tryggð heilnæm lífsskilyrði og ómengað umhverfi.
Skipulagsráð óskar einnig eftir samtali milli Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar um fráveitumál svæðisins og vegtengingar milli sveitarfélaganna. Afgreiðsla ráðsins er umsögn um skipulagstillögu Suðurnesjabæjar. Hún felur í sér ítrekun athugasemda Reykjanesbæjar við fyrirhugaða uppbyggingu.
1 6 S Í Ð U R • S TÆ R S T A F R É T T A - O G A U G LÝ S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M F R Á 1 9 8 0
2 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Tveir af hverjum þremur atvinnulausum með erlent ríkisfang Hlutfall íbúa með erlent ríkisfang hæst á Suðurnesjum Erlendir ríkisborgarar voru 66% þeirra sem voru á atvinnuleysisskrá á Suðurnesjum fyrstu sex mánuði ársins 2026. Hlutfallið var talsvert hærra en á landsvísu, þar sem það var 55%. Samstarfshópur um atvinnumál á Suðurnesjum telur mikilvægt að efla íslenskukennslu, raunfærnimat og starfsmenntun til að bæta stöðu atvinnuleitenda. Þetta kemur fram í minnisblaði sem samstarfshópurinn hefur tekið saman fyrir félags- og húsnæðismálaráðherra. Hann óskaði eftir því snemma á þessu ári að Vinnumálastofnun kæmi á fót og leiddi samstarfshóp vegna atvinnuleysis á Suðurnesjum og vinna sameiginlega að aðgerðum og undirbúa aðgerðaáætlun. Stjórnendur Vinnumálastofnunar kynntu niðurstöðurnar á fundi hjá SAR, Samtökum atvinnurekenda á Reykjanesi nýlega. Í minnisblaðinu er m.a. bent á að hlutfall íbúa með erlent ríkisfang sé hæst á Suðurnesjum miðað við önnur landssvæði. Erlendir ríkisborgarar geti átt erfiðara með að finna nýtt starf eftir atvinnumissi, meðal annars vegna takmarkaðrar
Sérstaklega er nefndur möguleiki á sérhæfðu iðn- og verknámi fyrir gagnavers- og matvælaiðnað.
Vilja greina stöðu atvinnuleitenda betur
íslenskukunnáttu, minna tengslanets og þess að fyrri menntun eða starfsreynsla hafi ekki verið formlega metin. Í minnisblaðinu kemur fram að þessi hópur sé í aukinni hættu á langtímaatvinnuleysi ef ekki sé gripið snemma inn í með markvissum stuðningi.
Þriðjungur fyrirtækja telur sig vanta menntað starfsfólk Í minnisblaðinu er einnig vísað til fyrirtækjakönnunar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum þar sem 30% fyrirtækja töldu sig vanta starfsfólk með ákveðna menntun. Af þeim fyrir tækjum sem töldu sig skorta starfsfólk með tiltekna menntun nefndu 37%
Opinber störf hlutfallslega færri á Suðurnesjum
iðnmenntun. Einnig kom fram eftirspurn eftir starfsfólki með menntun á sviði matreiðslu og matvælagreina, upplýsingatækni og verkfræði. Samstarfshópurinn telur því mikilvægt að tengja menntun og
starfsþjálfun betur við raunverulegar þarfir atvinnulífsins. Lagt er til að efla starfstengda íslenskukennslu, auðvelda mat á fyrri menntun og starfsreynslu og bjóða stuttar, hagnýtar námsleiðir sem tengjast störfum á svæðinu.
Samstarfshópurinn leggur jafnframt til að aukin verði einstaklingsmiðuð náms- og starfsráðgjöf. Þar verði meðal annars greint á milli fólks sem er tímabundið atvinnulaust milli árstíðabundinna starfa, einstaklinga sem þurfa aukinn stuðning eða endurhæfingu og tilvika þar sem kanna þurfi réttmæti bótaréttar. Í minnisblaðinu er einnig lögð áhersla á að eftirlit með bótagreiðslum verði faglegt og byggt á gögnum, án þess að umræðan verði stimplandi gagnvart atvinnuleitendum eða erlendum ríkisborgurum. Markmiðið sé að styðja fólk til atvinnuþátttöku og draga úr hættu á langvarandi atvinnuleysi.
Frá opnun Nettó við Aðaltorg en verslunin var mikið skreytt með grænum gasblöðrum.
Opinber störf á Suðurnesjum eru hlutfallslega færri en annars staðar á landinu, jafnvel þótt starfsmenn Isavia séu taldir með. Samstarfshópur um atvinnumál á Suðurnesjum vill að sérstaklega verði kannað hvernig fjölga megi opinberum störfum og efla þjónustu ríkisins á svæðinu. Þetta kemur fram í minnisblaði samstarfshópsins til félagsog húsnæðismálaráðherra, þar sem vísað er til upplýsinga frá Byggðastofnun. Stjórnendur Vinnumálastofnunar kynntu nýlega niðurstöður um stöðu atvinnuleysis á Suðurnesjum á fundi hjá SAR, Samtökum atvinnurekenda á Reykjanesi. Hópurinn leggur til að ráðherra beiti sér fyrir sérstakri greiningu á tækifærum til að fjölga störfum á vegum ríkisins á Suðurnesjum. Meðal þess sem lagt er til að verði skoðað er hvort hægt sé að flytja til Suðurnesja verkefni á sviði bakvinnslu, símaþjónustu, stafrænnar þjónustu og stjórnsýslu sem ekki þurfa að vera staðsett á höfuðborgarsvæðinu. Einnig er bent á möguleika á fjölgun opinberra starfa á sviði velferðar, menntunar og heilbrigðis, auk sérhæfðrar þjónustu sem tengist flugvellinum, landamærum, öryggismálum og alþjóðlegri starfsemi.
Ný störf ríkisins verði metin með tilliti til Suðurnesja Í minnisblaðinu er jafnframt lagt til að skoðað verði hvort ný störf á vegum ríkisins eigi sérstaklega að meta með tilliti til mögulegrar staðsetningar á Suðurnesjum. Markmiðið sé að opinber störf og þjónusta endurspegli betur íbúafjölda, sérstöðu og þarfir svæðisins. Fjölgun opinberra starfa gæti jafnframt dregið úr því hversu háð atvinnulíf Suðurnesja er árstíðabundinni starfsemi tengdri Keflavíkurflugvelli og ferðaþjónustu. Í forgangsverkefnum samstarfshópsins til næstu sex til tólf mánaða er sérstaklega gert ráð fyrir að greina fjölda opinberra starfa á hvern íbúa á Suðurnesjum í samanburði við önnur landssvæði og setja fram tillögur um fjölgun starfa og þjónustueininga. Ekki liggja enn fyrir tillögur um hvaða ríkisstofnanir eða verkefni gætu flust til Suðurnesja.
Innilegar þakkir til allra fyrir auðsýnda samúð, vináttu og einstaka hlýju vegna andláts og útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu
KATRÍNAR BJARKAR FRIÐJÓNSDÓTTUR DÆDÝ Innilegar þakkir til starfsfólks Hrafnistu fyrir kærleiksríka umönnun. Friðjón Viðar Pálmason Soffía Sveinsdóttir Ásdís Björk Pálmadóttir Páll H. Ketilsson Jóhanna Björk Pálmadóttir Arnar Aðalsteinsson barnabörn og barnabarnabörn
Ný og glæsileg Nettó verslun opnuð á Aðaltorgi 1.500 fermetra verslun, opin allan sólarhringinn og fyrsta snyrtivörudeild Nettó „Opnunin á Aðaltorgi heppnaðist ótrúlega vel og fjöldi gesta var langt umfram það sem við áttum von á. Það var bókstaflega troðfullt út að dyrum opnunarhelgina, rétt eins og allur bærinn hafi mætt,“ segir Katrín Hilmarsdóttir, verslunarstjóri í nýju Nettó-versluninni á Aðaltorgi í Reykjanesbæ en hún var opnuð 7. nóvember með pompi og prakt. „Það var mjög gaman að heyra hversu vel viðskiptavinum leist á nýju verslunina og ekki síst nýju snyrtivörudeildina. Stemningin var alveg frábær alla helgina og við erum ótrúlega þakklát fyrir móttökurnar,“ sagði Katrín. Verslunin, sem er 1.500 fermetrar er opin allan sólarhringinn og kemur í stað Nettó á Iðavöllum sem lokaði nýlega. Að sögn Katrínar eru á fjórða tug starfsmanna í versluninni. Katrín á sjálf fjórtán ára feril að baki í verslunargeiranum en hún bjó í Grindavík fyrir rýmingu en flutti þaðan til Sandgerðis þar sem hún býr núna.
Í nýju versluninni á Aðaltorgi er 130 fermetrar snyrtivörudeild sem er sú fyrsta sem Nettó opnar.
Fyrsta Nettó verslunin með snyrtivörudeild Í nýju versluninni á Aðaltorgi er 130 fermetrar snyrtivörudeild sem er sú fyrsta sem Nettó opnar, en á næstu mánuðum munu fleiri sambærilegar snyrtivörudeildir opna í verslunum Nettó um land allt.
Katrín Hilmarsdóttir, verslunarstjóri í nýju Nettó-versluninni á Aðaltorgi .
Snyrtivörudeildin mun bjóða upp á fjölda nýrra vörumerkja, sem sum hafa ekki verið fáanleg áður á Íslandi. Sérstök áhersla verður lögð á K-Beauty og alþjóðleg snyrtivörumerki á borð við TIRTIR, Anua, Medicube, Biodance og Beauty of Joseon. Auk allt frá vinsælli förðun til hárvara sem fagaðilar nota, ilmefna og snyrtitækja. Markmiðið er að skapa verslunarupplifun þar sem viðskiptavinir geta uppgötvað nýjar vörur, prófað sig áfram og fundið bæði hagstæðar og vandaðar snyrtivörur á einum stað, segir í frétt frá Nettó.
4 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Hvetja til þrýstings á þingmenn vegna sjúkraflutninga
Ungmennaráð Reykjanesbæjar fundaði með bæjarstjórn þriðjudaginn 3. nóvember. Ráðið stillti sér upp með bæjarstjórninni við það tækifæri.
Ungmennin vilja sjá hugmyndir verða að veruleika Ungmennaráð Reykjanesbæjar fundaði með bæjarstjórn þriðjudaginn 3. nóvember þar sem ungmennin fluttu fjölbreytt og metnaðarfull erindi um málefni sem þeim eru hugleikin. Bæjarfulltrúar tóku afar vel í tillögurnar og hrósuðu ungmennunum sérstaklega fyrir málefnalega umræðu, raunhæfar hugmyndir og vandaðan undirbúning. Ungmennin ræddu meðal annars mikilvægi góðrar andlegrar heilsu, jafnt aðgengi að félagsmiðstöðvum, bættrar íþróttaaðstöðu, öruggra gönguleiða og fjölbreyttra tækifæra til útivistar, menningar og félagslífs. Meðal tillagna voru úrbætur á lýsingu og aðgengi að göngustígum, fjölnota útivistarsvæði fyrir ungmenni, betra skipulag æfingatíma íþróttafélaga og aukið aðgengi að stuðnings- og geðheil-
Öllum tilboðum í stækkun Suðurvalla hafnað Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga hefur hafnað öllum tilboðum í stækkun Heilsuleikskólans Suðurvalla þar sem þau voru töluvert yfir kostnaðaráætlun. Áfram er unnið að lausn til að fjölga leikskólarýmum en ekki liggur fyrir hvenær nýjar deildir geta tekið til starfa. Þetta kemur fram í tilkynningu sveitarfélagsins í kjölfar ákvörðunar bæjarráðs frá 13. nóvember. Útboðið tók til kaupa og uppsetningar færanlegra húseininga fyrir þrjár leikskóladeildir ásamt starfsmannaaðstöðu. Tilboðsfrestur rann út 5. nóvember. Eins og Víkurfréttir greindu nýverið frá á vf.is hafði bæjarstjórn samþykkt allt að 351 fermetra stækkun leikskólans. Sú samþykkt laut að afgreiðslu áformanna að lokinni grenndarkynningu. Í tilkynningu sveitarfélagsins er áréttað að með henni hafi hvorki verið samþykkt tilboð í framkvæmdina né ákveðið hvenær húsnæðið yrði tekið í notkun. Bæjarstjóra hefur nú verið falið að vinna áfram að lausn í samráði við sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs og starfshóp um stækkun leikskólans. Leggja á tillögu fyrir bæjarráð þar sem útfærsla, kostnaður og tímasetningar liggja fyrir. Jafnframt verður aflað upplýsinga um stöðu leik- og grunnskólalóðar í Grænuborgarhverfi. Sveitarfélagið segir þörfina fyrir fleiri leikskólarými brýna og kveðst gera sér grein fyrir þeirri óvissu sem biðin skapar fjölskyldum. Áhersla sé lögð á að finna raunhæfa leið til að fjölga rýmum sem fyrst og tryggja góða aðstöðu fyrir börn og starfsfólk. Foreldrar og aðrir íbúar verði upplýstir um framvinduna.
brigðisþjónustu. Einnig var vakin athygli á því sem vel hefur tekist í ungmennastarfi bæjarins, meðal annars vel heppnuðu Landsmóti Samfés sem haldið var í Reykjanesbæ fyrr á árinu og góðu samstarfi með umhverfis og skipulagssviði Reykjanesbæjar. Rauður þráður í erindum ungmennanna var mikilvægi þess að hugmyndir þeirra og sjónarmið leiði til raunverulegra umbóta. Ungmennaráðið kallaði jafnframt eftir auknum stuðningi við starfsemi ráðsins, meðal annars með fjármagni til verkefna og því að vinnuframlag ungmennanna væri metið að verðleikum.
Bæjarfulltrúar fagna auknu samtali Bæjarfulltrúar lýstu yfir mikilli ánægju með frammistöðu ungmennanna og þökkuðu þeim fyrir
vel ígrunduð erindi og mikilvægt framlag til umræðu um málefni sveitarfélagsins. Sérstaklega var hrósað fyrir hversu skýrar og raunhæfar tillögurnar voru og að margar þeirra væru vel framkvæmanlegar. Bæjarfulltrúar lögðu jafnframt áherslu á vilja sinn til áframhaldandi samtals og samstarfs við ungmennaráðið. Þau hvöttu ungmennin til að halda áfram að koma hugmyndum sínum á framfæri við ráð og nefndir sveitarfélagsins, þar sem hægt væri að ræða þær frekar og skoða möguleika á útfærslu og framkvæmd.
Virkt samráð og spennandi verkefni fram undan Ungmennaráðið lagði jafnframt fram sameiginlega yfirlýsingu þar sem bæjarstjórn, ráð, nefndir og starfsfólk sveitarfélagsins voru hvött til að leita reglulega eftir sjónarmiðum barna og ungmenna. Sérstök áhersla var lögð á að ungmenni fengju að taka þátt í samtalinu strax á undirbúningsstigi ákvarðana.
Fram undan eru fjölbreytt verkefni hjá Ungmennaráði Reykjanesbæjar, meðal annars samráðsfundur með umhverfis- og skipulagssviði, barna- og ungmennaþing í mars 2027, endurskoðun á erindisbréfi og verklagi ráðsins og virk þátttaka í verkefninu Barnvænt sveitarfélag. Fundurinn endurspeglaði mikilvægi þess að börn og ungmenni hafi vettvang til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og taka virkan þátt í þróun samfélagsins. „Við erum ekki aðeins framtíð Reykjanesbæjar – við erum líka hluti af samfélaginu í dag og viljum hafa áhrif á það,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu Ungmennaráðsins.
Tæplega þúsund nemendur í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar Alls eru 997 nemendur í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar á starfsárinu 2026–2027. Við skólann starfa 52 einstaklingar í 38 stöðugildum. Þetta kom fram í kynningu Haraldar Árna Haraldssonar skólastjóra á fundi menntaráðs Reykjanesbæjar 13. nóvember. Þar fór hann yfir starfsemi skólans og helstu upplýsingar um yfirstandandi starfsár. Menntaráð fagnaði nýsköpun í skólastarfinu og vísaði meðal annars til viljayfirlýsingar um samstarf Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, Norðuróps og Þjóðaróperunnar. Þá tekur skólinn þátt í Erasmus+ verkefni. Á fundinum komu jafnframt fram áskoranir varðandi menntun tónlistarkennara. Menntaráð óskaði eftir greinargerð frá skólastjóra um málið. Í fundargerðinni er ekki nánar greint frá því í hverju þær áskoranir felast. Ráðið leggur áherslu á að standa vörð um öflugt tónlistarnám og efla tengsl skólans við grunnskóla og
aðrar menningarstofnanir bæjarins. Í afgreiðslu þess er bent á gildi listnáms fyrir sköpun, sjálfstjáningu, aga og félagsfærni barna og ungmenna, auk mikilvægis þess fyrir menningarlíf bæjarins.
Reykjanesbær skoðar sölu fasteigna og áhuga á þróunarreitum Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur falið bæjarlögmanni að vinna áfram að mögulegri sölu fasteigna bæjarins og áhugakönnunum vegna þróunarreita í eigu sveitarfélagsins. Minnisblöð frá eignaumsýslu um málið voru lögð fyrir bæjarráð 12. nóvember. Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, og Unnar Steinn Bjarndal bæjarlögmaður sátu fundinn undir þessum lið.
Auglýsingar komi aftur fyrir bæjarráð Bæjarlögmaður á að vinna málið áfram í samstarfi við sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs og undirbúa drög að auglýsingum. Þau skulu lögð fyrir bæjarráð áður en auglýsingarnar verða birtar. Ekki er tilgreint í fundargerðinni hvaða fasteignir eða þróunarreitir eru til skoðunar. Afgreiðslan felur í sér áframhaldandi undirbúning en ekki endanlega ákvörðun um sölu.
Svavar Grétarsson, bæjarfulltrúi Samfylkingar og formaður bæjarráðs Suðurnesjabæjar, hvatti bæjarfulltrúa á fundi bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar á dögunum til að leita til þingmanna vegna málefna sjúkraflutninga á Suðurnesjum. Hann sagði málið vera verulegt hagsmunamál fyrir svæðið og ítrekaði bókun úr bæjarráði. Haukur Andreasson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, tók undir og sagði að verið væri að leggja kostnað á sveitarfélögin sem ætti að vera hjá ríkinu. Sveitarfélög á Suðurnesjum þyrftu að standa saman um að sækja um leiðréttingu. Ekki voru tilgreindar fjárhæðir eða nánar skýrt hvaða kostnaðarliðir væru umdeildir í umræðunni.
atNorth óskar eftir allt að 18 metra byggingarhæð við Sjónarhól Óskað er eftir að heimiluð hámarkshæð byggingar við Sjónarhól hækki úr 10 metrum í 17–18 metra. Kanon arkitektar lögðu fram frumdrög að deiliskipulagsbreytingu fyrir hönd atNorth á fundi skipulagsráðs Reykjanesbæjar 6. nóvember. Samkvæmt drögunum yrðu lóðirnar Sjónarhóll 2a, 2b og 2c sameinaðar í eina stærri lóð. Jafnframt er gert ráð fyrir að nýtingarhlutfall verði lækkað. Skipulagsráð frestaði afgreiðslu málsins. Ekki kemur fram í fundargerðinni hvers vegna afgreiðslunni var frestað eða hvenær tillagan verður tekin fyrir að nýju.
Breytingar á gjaldskrá og leiðum almenningssamgangna til skoðunar Breytingar á gjaldskrá og akstursleiðum almenningssamgangna í Reykjanesbæ eru til skoðunar í tengslum við fjárhagsáætlun næsta árs. Þetta kom fram í máli Gunnlaugs Kárasonar, bæjartulltrúa Miðflokks og formanns bæjarráðs, á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar 3. nóvember sl. Gunnlaugur sagði málið hafa verið til umfjöllunar í bæjarráði og því verið vísað til fjárhagsáætlunar 2027. Hann setti það í samhengi við þá forgangsröðun sem nú færi fram fyrir næsta ár. Ekki kom fram í umræðunum hvaða breytingar væru til skoðunar, hvort gjöld myndu hækka eða lækka eða hvaða leiðir gætu breyst.
6 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Fimmtíu til sextíu ungmenni hafa nýtt þjónustu Hlýjunnar Milli fimmtíu og sextíu börn og ungmenni nýttu þjónustu Hlýjunnar á fyrsta starfsárinu samkvæmt bráðabirgðatölum sem Díana Hilmarsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, kynnti á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar 3. nóvember sl. Óskað er eftir að fjárframlag til verkefnisins verði fjórar milljónir króna á næsta ári, tvöfalt framlag yfirstandandi árs. Díana sagði Hlýjuna hafa tekið formlega til starfa í október í fyrra. Þjónustan sé ætluð börnum og ungmennum á aldrinum 13 til 18 ára og meira en helmingur þeirra sem leitað hafi þangað hafi komið í fleiri en eitt viðtal. Aðdragandi verkefnisins nái til ársins 2021 þegar ungmenni í bænum kölluðu eftir auknum stuðningi við geðheilsu og andlega líðan. Starfsfólk sveitarfélagsins hafi brugðist við og unnið að því að koma þjónustunni á fót.
Díana lagði áherslu á að þegar ungmenni stigu það skref að leita aðstoðar þyrfti að vera hægt að taka á móti þeim. Stuðningurinn yrði að vera aðgengilegur og biðtími sem stystur. Hún sagði alla fulltrúa íþrótta-, tómstunda- og menningarráðs hafa tekið undir bókun um að tryggja Hlýjunni nauðsynlegar rekstrarforsendur. Hún vonaðist til að samstaðan skilaði sér við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.
Undirbúa stofnun Snjallveitu Reykjanesbæjar Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að hefja undirbúning að stofnun Snjallveitu Reykjanesbæjar. Henni er ætlað að bera ábyrgð á snjallinnviðum í götum og almenningsrýmum sveitarfélagsins. Erindi um stofnun veitunnar var tekið fyrir á fundi bæjarráðs 12. nóvember. Aron Heiðar Steinsson veitustjóri og Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, sátu fundinn við umfjöllunina.
Verkefnið til fjárhagsáætlunargerðar Undirbúningurinn verður undir umsjón veitustjóra. Bæjarráð vísaði erindinu jafnframt til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2027. Ekki kemur fram í fundargerðinni hvaða búnaður eða kerfi munu falla undir Snjallveituna, hver kostnaðurinn verður eða hvenær starfsemin gæti hafist.
Tuttugu milljóna styrkur til nýs björgunarskips Bæjarráð Grindavíkur samþykkti á fundi sínum 3. nóvember að veita 20 milljóna króna styrk til kaupa á nýju björgunarskipi fyrir björgunarsveitina Þorbjörn. Til grundvallar ákvörðuninni lá bréf frá stjórn sveitarinnar þar sem óskað var eftir stuðningi við kaupin. Útgreiðsla styrksins verður í samráði við stjórn björgunarbátasjóðsins.
smáauglýsingar
Gullmoli til sölu
Heyrðu umskiptin, fáðu heyrnartæki til reynslu
HEYRN.IS HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF Heyrn // Hlíðasmára 19 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is //
SsangYong Korando árg 2021, framdrifinn, bensín, er á heilsársdekkjum, ný sumardekk fylgja með. Skoðaður án athugasemda til maí 2027. AÐEINS EKINN 6.600 KM. Verð kr. 2.900.000 ATH. engin skipti. Bíllinn er staðsettur í Keflavík. Nánari upplýsingar í síma 857-7064 (aðeins á íslensku).
Bílaviðgerðir Smurþjónusta Varahlutir
Rétturinn
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
Opið:
sími 421 7979 www.bilarogpartar.is
Ljúffengur heimilismatur í hádeginu
11-13:30
alla virka daga
Fjölsmiðjan vill flytja í stærra húsnæði og óskar eftir auknum framlögum
Ár í Miðhúsum sýnd á Garðskaga Heimildarmyndin Ár í Miðhúsum eftir Hilmar Braga Bárðarson og Hörð Gíslason verður sýnd á Byggðasafninu á Garðskaga laugardaginn 21. nóvember klukkan 14. Aðgangur er ókeypis en aðeins fimmtíu sæti eru í boði. Hvatt er til þess að sæti séu bókuð fyrirfram á póstfangið hilmar@vf.is. Myndin fylgir lífinu í Miðhúsum í Garði í gegnum árstíðirnar og segir sögu fjölskyldunnar sem þar hefur búið um kynslóðir. Torfi og Margrét settust þar að um 1940 og ólu upp fjórtán börn. Þau ráku um árabil stærsta kúabú Garðsins með um þrjátíu mjólkandi kýr. Börnin tóku snemma þátt í bústörfunum en nutu jafnframt frelsis í fjörunni og við síkin. Í myndinni rifja þau upp bernskuna samhliða því sem fylgst er með sauðburði, heyskap og öðrum störfum á jörðinni. Þótt kúabúskap sé lokið hefur fjölskyldan haldið húsunum og jörðinni við. Gamla fjósinu og
hlöðunni hefur verið breytt í samkomustað þar sem ættin hittist meðal annars á ættarmótum og í skötuveislum. Afkomendur Torfa og Margrétar eru nú yf ir tvö hundruð. Í Miðhúsum eru einnig varðveittir um átta gamlir traktorar sem allir eru gangfærir og enn notaðir. Viðhald vélanna og húsanna skipar stóran sess í lífi fjölskyldunnar. Myndin fjallar jafnframt um framtíð staðarins og vilja yngri kynslóða til að varðveita tengslin við jörðina, sögu fjölskyldunnar og arfleifð Torfa og Margrétar.
Fjölsmiðjan á Suðurnesjum óskar eftir því að sveitarfélögin á svæðinu skoði hækkun árlegra framlaga til starfseminnar. Jafnframt er óskað eftir styrk vegna kostnaðar við fyrirhugaðan flutning í stærra húsnæði. Erindið var lagt fyrir velferðarráð Reykjanesbæjar 12. nóvember. Auk flutningskostnaðar vísar Fjölsmiðjan til almennrar hækkunar rekstrarkostnaðar og aukinnar þjónustuþarfar. Velferðarráð vísaði erindinu til fjárhagsáætlunargerðar velferðarsviðs. Með því hefur ekki verið tekin ákvörðun um aukin framlög eða styrk vegna flutninganna. Ekki kemur fram í fundargerðinni hversu hárrar fjárhæðar er óskað, hvert fyrirhugað er að flytja starfsemina eða hvenær flutningurinn gæti orðið.
vf is
Aflafréttamaður á slóðum Grímsa GK við Jökulsárlón AFLAFRÉTTIR Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is
Ansi oft meðan ég skrifa þessa pistla þá er ég staddur víðs vegar um landið eða þá jafnvel erlendis. Núna er ég staddur á hóteli við Jökulsárlón og títtnefndur netabátur, Grímsi GK, var um tíma við veiðar hérna á svæðinu frá Ingólfshöfða og að Jökulsárlóni. Dragnótabáturinn Sigurfari GK fór áleiðis hingað, en hann fór alla leið austur að Ingólfshöfða á veiðum á dragnót og kom til Sandgerðis með nokkuð góðan afla því að landað var úr bátnum 44 tonnum og af þeim afla var mest af ýsu eða rúm 40 tonn. Núna fer að líða að því að línubátarnir sem hafa verið á veiðum fyrir austan og norðan land fari að koma suður, og einn bátur er kominn núna suður, en það er Fjölnir GK sem reyndar kom við á Hornafirði, ekki langt frá þar sem ég er núna, og landaði þar 18 tonnum í tveimur róðrum. Fyrir sunnan þá eru tveir minni línubátar, Margrét GK og Dúddi Gísla GK. Hefur Dúddi Gísla GK landað 28 tonnum í fimm róðrum og mest 6 tonnum og Margrét GK hefur landað 37 tonnum í sjö róðrum og mest 7,7 tonnum. Það er byrjað að skána töluvert veiðin hjá netabátunum sem eru í Faxaflóanum og Erling KE er kominn á veiðar og hann byrjar nokkuð vel, 50 tonn í 5 róðrum og mest 22 tonn í einni löndun. Af öðrum bátum er Sunna Líf GK með 17,7 tonn í 8 og mest 5,2 tonn. Elley GK með 11,4 tonn í 9. Emma Rós KE með 11 tonn í 7 og Addi afi GK með 11,7 tonn í 7. Margrét með 8 tonn í 7 róðrum.
Það fór betur en á horfðist í óveðrinu sem var núna á föstudagsnóttina, þegar einn fingur við flotbryggju í Sandgerði brotnaði og við þennan fingur lá báturinn Trilla GK. Dragnótaveiðar í Faxaflóanum ganga áfram vel og er Aðalbjörg RE með 91 tonn í 9 róðrum. Stapafell SH 60 tonn í 5, en báturinn landar í Njarðvík. Benni Sæm GK 44 tonn í 6 og Siggi Bjarna GK 55 tonn í 7. Stóru línubátarnir frá Vísi hafa verið að landa til skiptis á Djúpavogi og í Grindavík, og er Sighvatur GK kominn með 268 tonn í 2 löndunum og mest 164 tonn í einni löndun, og Páll Jónsson GK með 365 tonn í 3 og mest 136 tonn. Þessi stóra löndun hjá Sighvati GK var að langmestu leyti þorskur, en af þessum 164 tonna afla var 161 tonn af þorski. Hjá bátunum sem eru fyrir norðan hefur verið frekar erfitt tíðarfarið, en þó hefur Guðbjörg GK komist í 10 róðra og með 56 tonna afla og mest 8,3 tonn, landar á Skagaströnd. Óli á Stað GK með 47 tonn í 5 róðrum og mest 12,6 tonn. Hópsnes GK 37 tonn í 8 og Geirfugl GK 34 tonn í 8, allir á Skagaströnd. Það fór betur en á horfðist í óveðrinu sem var núna á föstudagsnóttina, þegar einn fingur við flotbryggju í Sandgerði brotnaði og við þennan fingur lá báturinn
Trilla GK. Fingurinn brotnaði það illa að hann byrjaði að berjast utan í skrokkinn á Trillu GK sem endaði með því að gat kom á skrokkinn og sjór tók að leka inn í lúkarinn á bátnum. Jónína Hansen ásamt f jölskyldu sinni á bátinn og hún hafði það sem reglu að fara og líta eftir bátnum og á laugardagsmorgun tók hún eftir því að báturinn var frekar skítinn við bryggju og mjög framsiginn. Kom þá í ljós að lúkarinn var á kafi í sjó og sjór kominn inn í brúnna á bátnum. Björgunarsveitin Sigurvon í Sandgerði og menn frá Köfunarþjónustu Sigurðar, ásamt slökkviliðinu, komu og dældu úr bátnum og Jóhann Haukur, skipstjóri og eigandi af Hawkernum GK, dró svo Trillu GK yfir á norðurgarðinn í Sandgerði þar sem báturinn var hífður á land. Töluvert mikið tjón er á Trillu GK og til að mynda er allur tölvubúnaður ónýtur í bátnum. Núna er þetta í höndum tryggingarfélaga en Sandgerðishöfn er líklega skaðabótaskyld því þetta tjón gerist út af því að fingurinn brotnar við flotbryggjuna.
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319. Afgreiðsla og ritstjórn: Hólmbergsbraut 13, (bil 1), 230 Keflavík, sími 421-0000. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Prentun: Landsprent.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 7
Samfélagið var tilbúið að leggja sitt af mörkum „Fyllist hlýju og þakklæti“
HEILBRIGÐISMÁL Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
Söfnun fyrir nýju brjóstaskimunartæki á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja stefnir í að skila um 55 milljónum króna og fara þannig fram úr markmiðum. Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir forstjóri HSS segir þakklæti efst í huga. Framlögin, stór og smá, sýni bæði einstakan samtakamátt og traust sem stofnuninni beri að standa undir. „Það sem mér f innst skipta mestu máli er þessi víðtæka þátttaka í samfélaginu sem kemur svo vel í ljós í þessari söfnun,“ segir Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Þegar söfnuninni fyrir nýju brjóstaskimunartæki lýkur formlega 18. nóvember á vef sar.is stefnir í að um 55 milljónir króna hafi safnast. Markmiðið var að safna 50 milljónum fyrir kaupum á tækinu og uppsetningu þess. Söfnunin hófst í bleikri messu í Keflavíkurkirkju 18. október og á einum mánuði hefur samfélagið tekið höndum saman um að efla þjónustu við konur á Suðurnesjum. Fyrirtæki, félagasamtök og einstaklingar hafa lagt sitt af mörkum. Guðlaug Rakel segir að að baki árangrinum liggi vilji fólks til að taka þátt, hver með sínum hætti. „Hvað fólk vill leggja af mörkum og hvað fólk leggur af mörkum, hvort sem það er stór upphæð eða lítil upphæð,“ segir hún um það sem standi upp úr. Það sé einmitt
Ingvar Eyfjörð, Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, Erla Guðmundsdóttir og Konráð Lúðvíksson. VF/hilmarbragi þessi víðtæka þátttaka sem henni þyki svo vænt um. „Það er einmitt þessi víðtæka þátttaka sem henni þyki svo vænt um. Hver upphæð skiptir máli og hún er gefin með góðu hugarfari“
Traust sem fylgir ábyrgð Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi, SAR, hafa haldið utan um söfnunina í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, kirkjuna og fjölmarga velunnara. Guðlaug Rakel leggur áherslu á að árangurinn sé sameiginlegur. „Þetta er samstarfsverkefni,“ segir hún. Fyrir HSS felist þó meira í framlögunum en fjárhagslegur stuðningur við tækjakaup. Fólk sé að fela stofnuninni verkefni og sýna henni traust. Því fylgi ábyrgð. „Þetta byggir á því að fólk treysti stofnuninni fyrir þessu og fyrir
þessum fjármunum sem hafa verið lagðir í söfnunina. Að við munum halda úti brjóstaskimun hér og gera það vel og vera til fyrirmyndar.“ Hún lítur á verkefnið sem lið í uppbyggingu bæði stofnunarinnar og samfélagsins. Nýtt tæki skapi möguleika á betri þjónustu nær heimilum fólks, en árangurinn þurfi líka að birtast í því að fleiri konur mæti í skimun. Að hennar sögn er þátttaka í brjóstaskimun á svæðinu um 55 prósent. Hún vill sjá það hlutfall fara í að minnsta kosti 70 prósent og stefnir enn hærra. „Við náum skimunarhlutfallinu hérna upp yfir landsmeðaltalið og hækkum landsmeðaltalið,“ segir hún um markmiðið. Til þess þurfi áframhaldandi vitundarvakningu og samstarf. Atvinnurekendur og stofnanir samfélagsins geti þar gegnt mikil-
Ekki gefa bara eitthvað – gefðu frekar hvað sem er Með gjafakorti Landsbankans er auðvelt að velja réttu jólagjöfina. Þú ákveður upphæðina og sá sem þiggur velur gjöfina. Pantaðu gjafakort á landsbankinn.is
vægu hlutverki með því að hvetja konur til að mæta.
Samfélagið hefur áður svarað kallinu Konráð Lúðvíksson, fyrrverandi lækningaforstjóri HSS sem átti sæti í starfshópi sem kom að söfnuninni, segir viðbrögðin eiga sér skýrar rætur. Suðurnesjafólk hafi ítrekað stutt við heilbrigðisþjónustuna sína þegar á hafi þurft að halda. Hann rifjar upp stuðning við kaup á sneiðmyndatækjum, búnaði á skurðstofur, ómtækjum og öðrum tækjakosti. Í hvert sinn hafi samfélagið verið tilbúið að leggja sitt af mörkum. „Það gefur til kynna hug þessa samfélags til stofnunarinnar,“ segir Konráð. Heilbrigðiss tofnunin haf i gengið í gegnum hæðir og lægðir,
en vilji íbúanna til að styðja hana hafi haldist. Hún sé einn af þeim stöðum sem fólk sameinist um. Erla Guðmundsdóttir sóknarprestur Keflavíkurkirkju tekur undir að tengsl samfélagsins við stofnanir sínar skipti miklu máli. Hún segir breytingar á HSS undanfarin tvö ár hafa verið sýnilegar og að aukið traust og stolt fylgi þeim. „Við sjáum um okkur sjálf,“ segir hún og lýsir þannig þeim anda sem birtist í söfnuninni. Ingvar Eyfjörð frá SAR segir HSS vera kjarnastofnun í samfélaginu. Honum sé efst í huga að þakkirnar fyrir árangurinn nái til allra sem hafi tekið þátt. Í raun geti samfélagið þakkað sjálfu sér. Næsta verkefni er að byggja upp þjónustuna. Undirbúningur að komu tækisins er þegar hafinn og stefnt er að því að taka það í notkun á næsta ári og stefnt er á fyrsta ársfjórðung. Auk tækjakaupanna þarf að ráðast í breytingar á húsnæði og sinna þjálfun starfsfólks. Guðlaug Rakel segir næstu skref snúast um að byggja upp þjónustuna og standa undir væntingunum sem fylgja þessum mikla stuðningi. En þegar hún horfir yfir söfnunina og það sem samfélagið hefur áorkað á fáeinum vikum er þakklætið sterkast. „Fyrir hönd stofnunarinnar fyllist ég hlýju og þakklæti,“ segir hún. „Það er alveg einstakt hvað samfélagið hefur gert vel.“
8 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Hamarslög og handverkshefðir í Höfnum
Hnífar, skeið og næla urðu til úr hráum stálstöngum þegar Fornverk í Höfnum hélt sín fyrstu eldsmíðanámskeið fyrstu tvær helgarnar í nóvember. Eldsmíðin bætist nú við grjóthleðslu og grindarsmíði í starfseminni. Eldur logaði og hamarslög ómuðu þegar þátttakendur á tveimur þriggja daga byrjendanámskeiðum kynntust því hvernig móta má stál með eldi, hamri og steðja. Leiðbeinandi var Þröstur Sigmundsson, Norðurlandameistari í opnum flokki í eldsmíði 2026 og silfurverðlaunahafi á Íslandsmóti sama ár. Að sögn Sveins Enoks Jóhannssonar, sem stendur að baki Fornverki, var sköpunargleðin mikil og gripirnir ólíkir eftir hugmyndum og handbragði hvers og eins. „Það er ótrúlega gaman að sjá hvað fólk getur skapað á einni helgi. Þátttakendur byrjuðu með hráar stálstangir og fóru heim með hluti sem þeir höfðu smíðað sjálfir.
Frá að
Það er einmitt kjarninn í Fornverki – að gefa fólki tækifæri til að læra handverkið með því að prófa sjálft og halda þannig þekkingunni lifandi,“ segir Sveinn. Starfsemi Fornverks hófst með grjóthleðslunámskeiðum árið 2024. Síðan hafa þátttakendur unnið að endurhleðslu gamalla garða og tófta og kynnst hefðbundinni grindarsmíði. Með nám-
skeiðunum er varðveisla minja tengd verklegri kennslu og miðlun handverksþekkingar. Sveinn er fæddur og uppalinn í Höfnum. Markmið hans með Fornverki er að halda gamalli verkkunnáttu lifandi, skapa vettvang þar sem fólk lærir hvert af öðru og vekja áhuga á sögu og menningararfi þorpsins. Eldsmíðanámskeiðin eru nýjasta viðbótin við það starf.
Ástþór Óðinn snýr aftur með persónulegt lag Njarðvíkurrapparinn Ástþór Óðinn hefur sent frá sér lagið „Ég á mér stund“, þriðja lagið af væntanlegri plötu hans sem fyrirhugað er að komi út á næsta ári. Lagið fjallar um söknuð og samtal við látna móður. Ástþór hóf að semja á ný í febrúar eftir langt hlé frá textasmíðum. Hann hefur nú tekið upp samstarf við tónlistarmanninn og trommarann Ólaf Ingólfsson. Áður hafa komið út lögin „Telemakkos“ og „Áfram og áfram“ úr samstarfinu. Ólafur Ingólfsson Nýja lagið er að vissu leyti framhald af „Mamma“, sem Ástþór flutti ásamt Möggu Eddu á plötunni Both Ways árið 2009. Þar skrifaði hann móður sinni, sem lést úr krabbameini árið 1997, bréf í formi lags og sagði henni frá gangi lífsins. Í „Ég á mér stund“ tekur hann aftur upp þráðinn. Textinn lýsir því axð setjast við leiði ástvinar og eiga
samtal um lífið, segja frá því sem hefur gerst og því sem stendur yfir. Söknuðurinn er enn til staðar en reynsla og aukinn þroski setja mark sitt á frásögnina. Ástþór semur textann, rappar og syngur. Ólafur gerir taktinn undir listamannsnafninu Dögg og sér jafnframt um hljóðblöndun og útsetningu. Lagið var tekið upp í Dögg Stúdíó í Njarðvík, sem er í eigu Ólafs. Ástþór var áberandi í rappsenunni á Suðurnesjum frá aldamótum og fram undir 2010 og var meðal þeirra sem ruddu hipphoppi braut á svæðinu. Hann hefur gefið út þrjár plötur: Operation On The Mic undir nafninu Iceberg árið 2002, Í sitthvoru horninu með dúóinu 2 Leikmenn árið 2007 og Both Ways undir eigin nafni árið 2009. Ólafur á einnig langan feril að baki í tónlistarlífi Suðurnesja, einkum í rokki og þungarokki. Hann hefur meðal annars leikið með Tommy Gun Preachers, Hellvar og Rolf Hausbentner Band. „Ég á mér stund“ er aðgengilegt á helstu streymisveitum.
Ástþór Óðinn
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 9
„Ég er að lifa mínu draumalífi“ Fyrsta einflugið/soloflugið varð staðreynd þann 26. október sl. Þá var þessi mynd tekin.
Kacper Agnar Kozlowski er duglegur að æfa flug yfir heimabænum sínum, Reykjanesbæ, og notar tækifærið til að smella myndum af honum. Kacper Agnar Kozlowski er sautján ára Njarðvíkingur sem áður horfði á flugvélarnar af jörðu niðri en flýgur nú sjálfur yfir heimabyggðina. Eftir þúsundir klukkustunda við flugherminn heima fór hann einn í loftið eftir aðeins tíu daga í flugnámi. Stefnan er sett á starf atvinnuflugmanns.
VIÐTAL Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
„Ég er lentur, ég er kominn út í bíl.“ Þannig heilsar Kacper Agnar Kozlowski þegar blaðamaður nær tali af honum. Hann er nýkominn úr flugi og stutt í næsta verkefni á leiðinni að draumi sem hefur fylgt honum frá barnæsku. Nú er hann sjálfur við stjórnvölinn og fær að sjá kunnuglegar slóðir á Suðurnesjum frá nýju sjónarhorni. Hann hefur þegar flogið rúma tíu tíma einn, meðal annars yfir Keflavík, Njarðvík, Garð og Sandgerði, og æft snertilendingar á
Keflavíkurflugvelli. Fyrir strákinn sem fannst fátt skemmtilegra en að fara með pabba sínum upp á flugvöll er þetta stór breyting. „Ég er að lifa mínu draumalífi núna,“ segir hann. Að fá að fljúga nánast á hverjum degi sé einmitt það sem hann hafi dreymt um.
Flughandbækur með heimanáminu Enginn í fjölskyldu Kacpers er flugmaður. Áhuginn kviknaði hjá honum sjálfum en ferðirnar á flugvöllinn með föður hans áttu sinn þátt í að næra hann. „Pabbi tók mig alltaf upp á flugvöll og ég var að skoða flugvélar. Það var ógeðslega gaman að fara alltaf upp á flugvöll.“
Marcin Hubert Kozlowski og Anna Karolina Kozlowska eru hér stolt af syninum eftir sviflugprófið í sumar. Myndir úr einkasafni.
Árið 2018 byrjaði hann að fljúga í flughermi heima. Það sem hófst fyrir framan tölvuskjáinn varð fljótlega að miklu meira en dægradvöl. Kacper sökkti sér í flugið, kynnti sér vélarnar og las flughandbækur samhliða heimanáminu. Árið 2022, þegar hann var 13 ára, hafði hann varið um fimm þúsund klukkustundum í flughermi. Það vakti athygli fjölmiðla og í kjölfarið bauð Icelandair honum að prófa Boeing 737-flughermi félagsins. Heima gat hann skipt á milli flugvélategunda en farþegaþotur frá Airbus voru í sérstöku uppáhaldi. Að eigin sögn hefur hann flogið þeim í um þrjú þúsund klukkustundir í herminum. Nú nýtist þessi áhugi í náminu. Hann segir heimaherminn meðal annars góðan til að æfa verklag og viðbrögð við bilunum. Þar geti hann til dæmis stöðvað hreyfil og velt fyrir sér hvernig hann myndi bregðast við og hvar væri hægt að lenda. Tilfinningin sé þó önnur þegar komið er í alvöru flugvél. Hreyfingarnar, veðrið og ókyrrðin verði ekki upplifuð með sama hætti heima í herbergi.
Einn við stjórnvölinn eftir tíu daga Kacper steig stórt skref í sumar þegar hann fór sitt fyrsta einflug í svifflugu. Foreldrar hans komu og fögnuðu áfanganum með honum og hann fékk afhent A-prófsmerki hjá Svifflugfélagi Íslands. Í haust tók síðan næsti kafli við. Hann hóf verklega flugþjálfun hjá Flugskóla Reykjavíkur 16. október og fór í sitt fyrsta einflug á flugvél 26. október, aðeins tíu dögum síðar. Þótt reynslan úr sviffluginu og allar stundirnar í herminum hafi komið að gagni var sérstakt að taka á loft með sætið við hliðina á sér autt. „Þá fattar maður að maður er með mikla ábyrgð í höndunum,“ segir Kacper. Þarna þurfi að treysta á það sem maður hafi lært og æft. Kennarinn sé ekki lengur við hliðina á manni til að grípa inn í. „Þetta er bara ógleymanleg tilfinning,“ segir hann um fyrsta einflugið. „Maður þarf bara að treysta á sína kunnáttu.“ Það leynir sér ekki í frásögninni að augnablikið situr í honum. Að
stjórna sjálfur flugvél, taka á loft og lenda, er orðið hluti af daglegu lífi hans sautján ára gamals.
Fer þangað sem tækifærin bjóðast Kacper er í samþættu atvinnuflugmannsnámi hjá Flugskóla Reykjavíkur og stefnir að því að ljúka því á um átján mánuðum. Fram undan eru meðal annars næturflug, blindflug og þjálfun á fjölhreyflavélar. Lokamarkmiðið er skýrt: að starfa sem flugmaður hjá flugfélagi. Icelandair kemur til greina, en hann er opinn fyrir því að fara utan ef tækifærin bjóðast þar. Hvort framtíðarvinnustaðurinn verði í stjórnklefa Airbus eða Boeing muni einfaldlega ráðast af því hvar hann fær starf. „Þar sem ég fæ vinnu, þangað fer ég.“ En þótt hugurinn stefni til stærri véla og fjarlægari áfangastaða þarf Kacper ekki að bíða eftir fyrsta starfinu til að finna að draumurinn sé að rætast. Hann finnur það nú þegar, á flugi yfir heimabænum sínum.
10 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
„Stundum eru orðin bara nógu sterk“ Fjölnir Gíslason færir sögu íslenskra eftirlifenda flugslyssins á Srí Lanka á svið í Hörpu nú í desember og janúar næstkomandi. Hugmyndin kviknaði við lestur Útkallsbókar Óttars Sveinssonar en samtal við Oddnýju Björgvinsdóttur sem lifði slysið af varð til þess að hann fann hjartað í verkinu: mikilvægi þess að fá að tala um áföllin sín. VIÐTALIÐ Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
Þegar Fjölnir Gíslason leikari heimsótti Oddnýju Björgvinsdóttur ætlaði hann fyrst og fremst að segja henni frá fyrirhugaðri leiksýningu. Hún var ein fimm Íslendinga sem lifðu af þegar flugvélin Leifur Eiríksson brotlenti á Srí Lanka árið 1978. Nú hugðist hann færa sögu þeirra á svið. Hann vissi að efnið væri viðkvæmt. Eftirlifendurnir höfðu sagt frá reynslu sinni í viðtölum og bók og tilgangur heimsóknarinnar var ekki endilega að bæta við þær frásagnir. Í samtalinu fann hann hins vegar að Oddnýju langaði að tala. „Ég spurði hana bara hreint út hvort henni fyndist það óþægilegt að við værum að tala um slysið og rifja þetta upp. Þá sagði hún að það væri þvert á móti. Henni liði betur í hvert einasta skipti sem hún talaði um þetta.“ Svarið hafði áhrif á nálgun aðstandenda sýningarinnar. „Það höfum við notað sem hjartað í verkinu, að tala um áföllin.“ Heimildarleikverkið Útkall verður frumsýnt í Kaldalóni í Hörpu 10. desember. Fjölnir skrifar leikgerðina ásamt Magnúsi Thorlacius, sem jafnframt leikstýrir. Byggt er á bók Óttars Sveinssonar, Útkall – Leifur Eiríksson brotlendir, og á sviðinu segja fimm leikarar sögu íslensku eftirlifendanna.
Keflavík alltaf annað heimili Fjölnir er fæddur í Keflavík árið 1988. Fjölskyldan flutti í Borgarfjörð þegar hann var tveggja ára
og þar ólst hann upp, en tengslin við Keflavík héldust sterk. „Seinna skildu foreldrar mínir og þá voru pabbahelgarnar alltaf í Keflavík. Þannig að maður á sterkar rætur. Öll föðurættin er úr Keflavík og pabbi býr þar í dag og báðir bræður mínir.“ Keflavík var því alltaf annað heimili hans, þótt hversdagslífið væri í sveitinni. Elsta minningin um áhuga á leiklist er frá því hann var fimm eða sex ára og sat fyrir framan sjónvarpið. Þá rann upp fyrir honum að fólkið á skjánum væri að leika persónur. Þetta væri eitthvað sem hægt væri að hafa að atvinnu. Hann tilkynnti móður sinni að hann ætlaði að prófa þetta. Síðan liðu árin og áhuginn beindist fremur að tækni, tónleikum og því sem gerðist bak við tjöldin. Það var ekki fyrr en í Fjölbrautaskólanum á Akranesi sem leiklistin náði aftur taki á honum. Hann kom fyrst að uppsetningu skólans sem hljóðmaður en ákvað síðan að fara í prufu fyrir næsta leikrit. „Ég fæ hlutverk og þá fékk ég bara þvílíka leiklistarbakteríu.“ Þá var hann langt kominn með rafvirkjanám. Hann ákvað að ljúka því, bæta við stúdentsprófi og láta síðan reyna á leiklistarnámið.
Fór í prufu og flutti út viku síðar Fjölnir sótti um leiklistarnám bæði hér heima og í London. Hugurinn stefndi helst til Bretlands en tilviljun réð því að Kaupmannahöfn varð fyrir valinu. Hann var þar í fríi þegar hann rakst á auglýsingu um inntökupróf í danska leiklistarskólann CISPA. Einn daginn hafði hann
ekkert sérstakt fyrir stafni og ákvað að láta slag standa. Hann hugsaði prófið sem æfingu fyrir frekari umsóknir í London. „Ég var bara svo rólegur í þessari prufu af því að ég ætlaði mér ekkert að komast inn.“ En inn komst hann og námið átti að hefjast viku síðar. Við tók snörp atburðarás: heimferð, uppsögn í vinnunni, bílasala og flutningur til Danmerkur. Námið var þriggja ára og kennt á ensku. Með því vann hann sem ljósamaður hjá Nýja leikhúsinu í Kaupmannahöfn og nýtti þar reynsluna úr Borgarleikhúsinu, þar sem hann hafði áður starfað í nokkur ár. Eftir heimkomuna árið 2019 tók við blanda af leiklist og tæknivinnu. Hann hefur leikið, ljósahannað og unnið að sýningum í ólíkum leikhúsum. Tæknikunnáttan hefur líka komið honum út fyrir landsteinana, meðal annars í tónleikaferðir með Hatara. Ein slík ferð leiddi óvænt til leiksýningar. Á heimleið frá Tælandi urðu Fjölnir og ferðafélagi hans veðurtepptir í Danmörku í tvo sólarhringa. Til að nýta tímann fóru þeir í leikhús og sáu danska verkið Kannibalen. Fjölnir fór að kanna sýningarréttinn, keypti hann og setti verkið upp með félögum sínum í Tjarnarbíói. Þar unnu saman hann, Adolf Smári Unnarsson og Magnús Thorlacius og samstarfið hefur síðan leitt til fleiri verkefna. „Það er gott að vera með marga hatta stundum.“
Bókin sem hann gat ekki lagt frá sér Kveikjan að Útkalli kom þó úr annarri átt. Fjölnir heldur úti sagnfræðihlaðvarpinu Já OK ásamt Villa Neto, sem var með honum í leiklistarnáminu í Kaupmannahöfn. Við leit að efni í þátt rakst hann á bók Óttars um flugslysið á Srí Lanka. „Ég byrja að lesa og næ ekki að leggja hana frá mér fyrr en ég klára hana. Ég las hana held ég á einu kvöldi.“ Hann vann hlaðvarpsþátt upp úr bókinni en sagan fylgdi honum áfram. „Síðan þá hefur þessi saga bara alltaf verið inni í maganum og ég hef alltaf verið að segja fólki frá þessu.“ Hugmyndin um heimildarleiksýningu kviknaði en beið um sinn. Fyrir um ári sat hann síðan á sýningu í Þjóðleikhúsinu þegar hann fann að tími væri kominn til að taka hana upp aftur. Hann
„Við erum alls ekki að dramatísera flugslysið þannig að það komi flugvél úr loftinu. Leikmyndin er ekki gerð úr flugvélarbraki eða neinu svoleiðis. Þetta er sönn saga og svolítið brothætt. Við þurfum að nálgast þetta af mikilli virðingu.“
Fjölnir Gíslason (t.h.) skrifar leikgerðina ásamt Magnúsi Thorlacius, sem jafnframt leikstýrir. Myndir úr einkasafni.
hafði samband við Óttar, fékk leyfi til að vinna leikgerð og hóf skrifin með Magnúsi. „Maður veit aldrei hvar hugmyndirnar spretta upp.“
Rifja upp með áhorfendum Leifur Eiríksson brotlenti við flugvöllinn í Kólombó á Srí Lanka 15. nóvember 1978. Af 262 manns um borð komust 79 lífs af. Þrettán Íslendingar voru í vélinni og lifðu fimm þeirra slysið af. En hvernig færir maður slíkan atburð á svið? Fjölnir segir nálgunina felast í frásögn eftirlifendanna. Áhorfendur fylgi þeim við að rifja upp það sem gerðist. „Við erum alls ekki að dramatísera flugslysið þannig að það komi flugvél úr loftinu. Leikmyndin er ekki gerð úr flugvélarbraki eða neinu svoleiðis. Þetta er sönn saga og svolítið brothætt. Við þurfum að nálgast þetta af mikilli virðingu.“ Fimm leikarar fara í hlutverk íslensku eftirlifendanna og sagan er sögð í þátíð. „Við erum ekki að upplifa slysið í fyrsta sinn heldur erum við að rifja það upp.“ Leikhúsið bjóði upp á margar leiðir til að miðla slíkri reynslu. Ekki þurfi alltaf að sýna allt sem sagt er frá. „Stundum eru orðin bara nógu sterk til þess að það sé áhrifaríkast.“ Anna Róshildur Benediktsdóttir semur tónlist og hljóðmynd sýningarinnar og Flugfreyjukór Icelandair kemur einnig að henni. Fjölnir vill þó ekki gefa of mikið
upp um það hvernig einstakir þættir fléttast saman.
Samtölin urðu hluti af úrvinnslunni Við undirbúninginn hefur Fjölnir verið í sambandi við eftirlifendur og aðstandendur. Hann nefnir einnig aðstoð Katrínar Fjeldsted læknis, sem fór til Srí Lanka eftir slysið til að sinna þeim sem komust af. Hann segir skipulagða áfallahjálp, eins og fólk þekki hana í dag, ekki hafa staðið eftirlifendunum til boða. Stuðningur hafi meðal annars falist í nærveru og samtölum. Þegar heim var komið hafi spurningar samstarfsfólks líka gefið þeim tækifæri til að segja frá. Þar sér hann aftur tenginguna við það sem Oddný sagði honum. Að fá að tala geti skipt máli. Um leið geri hann sér grein fyrir því að fólk hafi ólíkar þarfir og að upprifjunin sé mörgum erfið. Við undirbúning sýningarinnar hitti hann mann á Flugsafninu á Akureyri sem hafði ferðast með vélinni en farið frá borði áður en hún lagði upp í síðasta legginn. Orð hans sátu í Fjölni: Sagan væri þung og brothætt, en það þýddi ekki að grafa ætti yfir hana. Forsýning Útkalls verður 9. desember og frumsýning daginn eftir. Fyrirhugaðar eru sex sýningar í desember og janúar. Þótt efniviðurinn sé átakanlegur segir Fjölnir fegurðina líka eiga sinn stað í verkinu. „Ég get eiginlega lofað bæði áhrifamiklu verki og mjög fallegri sýningu.“
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 11
Marta Karlsdóttir, Hrafnhildur Stígsdóttir og Rannveig Lilja Garðarsdóttir, betur þekkt sem Nanný, eru meðal þeirra nærri 30 prjónara víðs vegar um landið sem taka þátt í verkefninu
Þrjár konur af Reykjanesi taka þátt í nýrri alþjóðlegri markaðsherferð Íslandsstofu, AI Knittakers
Prjónarar af Reykjanesi leysa fólk af á óþörfum fundum Þrjár konur af Reykjanesi taka þátt í nýrri alþjóðlegri markaðsherferð Íslandsstofu, AI Knittakers, þar sem íslenskir prjónarar leysa fólk af á fjarfundum og prjóna fundarpunkta úr íslenskri ull. Herferðin er hluti af kynningu á Íslandi sem áfangastað fyrir vellíðan, hvíld og endurnæringu. Marta Karlsdóttir, Hrafnhildur Stígsdóttir og Rannveig Lilja Garðarsdóttir, betur þekkt sem Nanný, eru meðal þeirra nærri 30 prjónara víðs vegar um landið sem taka þátt í verkefninu. Þær eru fulltrúar Reykjaness í þessari óvenjulegu herferð, sem hófst 29. október og stendur til 20. nóvember.
Prjónaskapur, hugarró og tengsl við Reykjanes Ma r t a K a r l s d ó tt i r b j ó í Grindavík fyrir eldgosin en er nú búsett í Njarðvík. Móðir hennar kenndi henni að prjóna þegar hún var um átta ára og hefur prjónaskapur fylgt henni síðan. „Það sem mér finnst best við prjónaskapinn er róin og slökunin sem hann veitir. Ég get hægt á mér, lagt frá mér símann og tölvuna og einfaldlega notið augnabliksins,“ segir Marta. Hrafnhildur Stígsdóttir er búsett í Reykjanesbæ og hefur prjónað frá unglingsárum. Hún hefur gaman
af því að skapa nýja hluti og segir prjónaskapinn góða leið til að njóta augnabliksins. Þegar hún er spurð hverju hún mæli með fyrir ferðafólk sem heimsækir Ísland nefnir hún sérstaklega Reykjanesskagann og heimsóknir í sundlaugar og heilsulindir. Rannveig Lilja Garðarsdóttir, eða Nanný, býr í Njarðvík og hefur prjónað í 60 ár. Amma hennar kenndi henni að prjóna þegar hún var níu ára og hefur handverkið fylgt henni alla tíð. Hún lýsir prjónaskap sem uppsprettu gleði, hugarróar og núvitundar. Meðal uppáhaldsstaða hennar eru Reykjanesviti og Garðskagi,
þar sem hún nýtur kraftmikillar náttúru, útsýnis og fuglalífs.
Heimafólk í alþjóðlegri kynningu á Íslandi Markaðsstofa Reykjaness hefur tekið virkan þátt í undirbúningi herferðarinnar í samstarfi við Íslandsstofu, meðal annars með því að finna prjónara af svæðinu og aðstoða við undirbúning og framkvæmd verkefnisins. Garnið sem prjónararnir nota er m.a. útvegað í gegnum Stapafell í Keflavík. „Það er sérstaklega ánægjulegt þegar landshlutarnir fá tækifæri til að taka svona virkan þátt í alþjóðlegum kynningarherferðum fyrir Ísland. Með því fáum við ekki aðeins tækifæri til að koma Reykjanesi á framfæri heldur líka að kynna fólkið okkar og sögurnar sem gera svæðið einstakt. Mér finnst sérstaklega skemmtilegt við þessa herferð að fólk úti í heimi fær tækifæri til að hitta og kynnast heimafólki með óvenjulegum og persónulegum hætti. Það er ein-
Frístundamiðstöðin Sólborg í Suðurnesjabæ formlega opnuð Logi Þór Ágústsson er hér með félögum sínum úr meirihluta Sjálfstæðisflokksins á fundinum.
Logi Þór yngstur til að taka sæti í bæjarstjórn Reykjanesbæjar Logi Þór Ágústsson sat sinn fyrsta bæjarstjórnarfund í Reykjanesbæ 3. nóvember sl. Margrét Þórarinsdóttir forseti bæjarstjórnar kynnti hann við upphaf fundar sem yngsta einstaklinginn sem tekið hefði sæti í bæjarstjórn sveitarfélagsins. Logi Þór sat fundinn sem varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stað Alexanders Ragnarssonar, sem hafði boðað forföll. Forseti bauð hann sérstaklega velkominn og sagði ánægjulegt að sjá ungt fólk taka virkan þátt í sveitarstjórnarmálum. Í fyrstu ræðu sinni í bæjarstjórn fjallaði Logi Þór um leikskólamál og aðstæður barnafjölskyldna. Hann sagðist vilja að Reykjanesbær yrði besti staðurinn á Íslandi til að stofna fjölskyldu og ala
upp börn. Við ákvarðanir um menntamál, skipulag og þjónustu ætti að hor fa til áhrifa á fjölskyldur. Hann lagði einnig áherslu á s t a r f s a ðstæður starfsfólks leikskóla og fagnaði samvinnu meiri- og minnihluta um tillögur að breytingum á leikskólaþjónustunni. Nokkrir bæjarfulltrúar buðu Loga Þór velkominn til starfa í ræðum sínum. Guðbergur Reynisson greindi frá því að Logi væri systursonur sinn og lýsti stolti yfir því að fá hann til starfa við hlið sér.
Formleg opnun frístundamiðstöðvarinnar Sólborgar í Suðurnesjabæ fór fram miðvikudaginn 12. nóvember síðastliðinn. Alexandra Jóhannesdóttir bæjarstjóri flutti ávarp við tilefnið þar sem hún óskaði börnum, ungmennum, starfsfólki og íbúum til hamingju með þennan mikilvæga áfanga og þá auknu þjónustu sem nú stendur til boða. Frístundamiðstöðin Sólborg hefur fengið nýtt hlutverk sem miðstöð fjölbreytts frístunda- og
mitt fólkið, menningin og upplifanirnar sem skapa sterkustu tengslin við áfangastaðinn,“ segir Þuríður H. Aradóttir Braun, sérfræðingur í markaðs- og ferðamálum hjá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum og forsvarsmaður Markaðsstofu Reykjaness.
Í s l e n s k i r p rj ó n a ra r í s t a ð gervigreindar Herferðin gengur undir nafninu AI Knittakers – Authentic Icelandic Knittakers og beinir sjónum að sítengdri fundamenningu nútímans og aukinni notkun gervigreindar við fundarritun. Í stað þess að fá gervigreind til að taka niður fundargerð býðst fólki að bóka íslenskan prjónara til að sitja fjarfund fyrir sig. Prjónarinn hlustar, fylgist með því sem fram fer og prjónar eitt orð sem endurspeglar inntak fundarins. Hugmyndin er að minna á að tíminn sé dýrmætur og að stundum sé betra að verja honum í eitthvað annað en enn einn fundinn – til dæmis
að njóta náttúrunnar, hvílast eða ferðast til Íslands. „Samkeppnin um ferðamenn hefur aldrei verið harðari og fleiri keppa um athygli fólks en nokkru sinni. Þess vegna þarf markaðssetning Íslands að vekja athygli. Við vitum hvað fólkið sem við tölum við vantar: tíma, hvíld, náttúru og fólk sem hlustar,“ segir Daði Guðjónsson, forstöðumaður markaðssamskipta hjá Íslandsstofu. Þjónustan er ókeypis á lykilmörkuðum herferðarinnar og stendur til 20. nóvember, en kynningarefni hennar mun áfram nýtast til að vekja athygli á Íslandi. Herferðin er hluti af markaðsverkefninu Ferðaþjónusta til framtíðar, sem Íslandsstofa rekur fyrir hönd íslenskrar ferðaþjónustu í samstarfi við stjórnvöld, Samtök ferðaþjónustunnar og markaðsstofur landshlutanna. Nánari upplýsingar um herferðina og prjónarana má finna á www.AIKnittaker.com.
Alexandra Jóhannesdóttir bæjarstjóri Suðurnesjabæjar og nemendur úr Skólaseli.
tómstundastarfs fyrir börn og ungmenni í Suðurnesjabæ, en áður var leikskólastarfsemi í húsinu. Með breytingunum hefur starfsemi sem áður fór fram á fleiri en einum stað verið sameinuð undir einu þaki. Þar má meðal annars nefna Skólasel fyrir yngstu börn grunnskóla, Skýið sem er eftirskólaúrræði fyrir nemendur með fötlun og félagsmiðstöðina Skýjaborg.
Heiða Ingólfsdóttir sviðsstjóri mennta- og tómstundasviðs Suðurnesjabæjar, Heiða Rafnsdóttir deildastjóri frístundastarfs, Elín Björg Gissurardóttir forstöðumaður félagsmiðstöðva, og Bylgja Baldursdóttir skólastjóri Sandgerðisskóla.
Markmiðið með þessari uppbyggingu er að skapa heildstæða og góða umgjörð fyrir börn og ungmenni þar sem þau geta notið fjölbreyttrar þjónustu, tekið þátt í félagsstarfi og átt góðar stundir í öruggu og uppbyggilegu umhverfi. Með flutningi starfseminnar í Sólborg skapast jafnframt betri aðstaða fyrir bæði börn og starfsfólk. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á húsnæðinu þar sem lögð var áhersla á vandaða vinnu og að skapa aðstöðu þar sem börn, ungmenni og starfsfólk geta notið sín sem allra best. Opnun Sólborgar markar mikilvægan áfanga í uppbyggingu frístundaþjónustu í Suðurnesjabæ og er liður í því að efla tækifæri barna og ungmenna til þátttöku í fjölbreyttu og gefandi frístundastarfi. Með nýju hlutverki Sólborgar hefur orðið til öflugur vettvangur fyrir frístunda- og félagsstarf þar sem velferð, samvera og þarfir barna og ungmenna eru í forgrunni.
12 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Gunnar Þórarinsson látinn Gunnar Þórarinsson viðskiptafræðingur lést mánudaginn 3. nóvember á hjúkrunarheimilinu Nesv ö l l u m í Re y k j anesbæ. Gunnar fæddist í Reykjavík 11. apríl 1949 og var elstur fimm systkina. Foreldrar hans voru hjónin Guðlaug Sæmundsdóttir og Þórarinn Jens Óskarsson. Gunnar var viðskiptafræðingur og húsasmiður að mennt. Hann var lengst af búsettur ásamt fjölskyldu sinni í Njarðvík en þau fluttu suður árið 1976. Fyrstu árin syðra kenndi hann viðskiptagreinar við Fjölbrautaskóla Suðurnesja eða frá 1977 til ársloka 1990. Hann stofnaði fyrirtækið Rekstrarþjónustuna og rak ásamt eiginkonu sinni um áratugaskeið. Gunnar kom talsvert að félagsmálum. Hann var virkur í starfi UMFN allt frá því að hann flutti suður. Fyrst sem leikmaður Njarðvíkur árið 1976 en áður hafði Gunnar spilað knattspyrnu með Breiðablik og spilaði m.a. fyrsta bikarúrslitaleik Breiðabliks árið 1971. Gunnar fór í stjórn knattspyrnudeildar UMFN árið 1976 og var formaður árin 1982–1988. Gunnar var formaður Íþróttabandalags Suðurnesja árin 1979–1984. Þá sat hann í stjórn
körfuknattleiksdeildar UMFN frá 1996–1998. Gunnar var formaður G olfklúbbs Suðurnesja árin 2002– 2008. Gunnar hlaut ý m s a r v i ð u r k e n ningar fyrir störf sín í íþróttahreyfingunni, m.a. Silfurmerki KSÍ, Starfsmerki UMFÍ og gullmerki með lárviðarsveig UMFN (æðstu viðurkenningu). Gunnar sat í sóknarnefnd Ytri Njarðvíkurkirkju til fjölda ára. Gunnar var bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ í tólf ár, árin 2010–2022. Fyrsta kjörtímabilið fyrir Sjálfstæðisflokkinn en tvö seinni kjörtímabilin fyrir bæjarmálaaflið Frjálst afl sem hann stofnaði til með góðu fólki árið 2014. Gunnar var um skeið forseti bæjarstjórnar, átti sæti í bæjarráði og sat í ýmsum nefndum. Hann var í stjórn HS veitna og formaður stjórnar árin 2015–2019. Eiginkona hans er Steinunn Sighvatsdóttir, fædd 11. nóvember 1950. Börn þeirra: Guðni Þór, fæddur 1971, Sighvatur Ingi fæddur 1975 og Sunna fædd 1979. Gunnars var minnst á bæjarstjórnarfundi í Reykjanesbæ í vikunni. Viðstaddir stóðu upp og heiðruðu minningu hans í þagnarstund.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNAR ÞÓRARINSSON viðskiptafræðingur
lést á Hrafnistu, Nesvöllum þriðjudaginn 3. nóvember. Útför fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju 18. nóvember klukkan 14:00
Steinunn Sighvatsdóttir Guðni Þór Gunnarsson Guðrún Pálsdóttir Sighvatur Ingi Gunnarsson Þóra Kristín Sveinsdóttir Sunna Gunnarsdóttir Bjarni Sæmundsson barnabörn og barnabarnabarn
„Við treystum ykkur ekki“
Hiti á íbúafundi í Grindavík:
Það hefur verið mikið um ferðamenn í Grindavík eftir eldgos. Hér má sjá nokkra skoða ljósmyndasýningu í sumar. VF/pket.
Kalla eftir meira svigrúmi til heimkomu Kaupverð, fjárhagsleg áhætta og fyrirhuguð lok hollvinasamninga vöktu hörð viðbrögð á fjölmennum íbúafundi um endurkaupaáætlun Þórkötlu í Grindavík. Fundargestir vildu geta nýtt fyrri heimili sín áfram án þess að skuldbinda sig strax til kaupa. Engar breytingar á áætluninni voru tilkynntar á fundinum. Forsætisráðuneytið og Fasteignafélagið Þórkatla boðuðu til fundarins þar sem Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóri félagsins, kynnti fyrirhugaða kaupleiguleið. Hún á að gera Grindvíkingum kleift að reyna aftur búsetu í bænum með tímabundinni fjármögnun frá félaginu og skilarétti. Framkvæmdin krefst lagabreytingar sem stefnt er að að Alþingi afgreiði fyrir áramót. Margir fundargestir töldu leiðina ekki taka nægilegt mið af stöðu fjölskyldna sem hefðu þegar bundið eigið fé í húsnæði annars staðar. Þeir kölluðu eftir auknum stuðningi við þá sem fyrstir flyttu heim og tækju þar með mesta áhættu. Grunnkaupverð á að vera sama krónutala og Þórkatla greiddi fyrir eignirnar. Frá því dragist greiddar tjónabætur og tekið verði tillit til viðgerðarþarfar vegna skemmda sem orðið hafi í umsjón félagsins. Kostnaður við meiri háttar endurbætur geti hins vegar bæst við. Örn sagði verðið um 12–15 prósentum lægra en samkvæmt núverandi kauprétti, sem miðast við uppfært brunabótamat. Fundargestir töldu samanburðinn ekki svara því hvort verðið endurspeglaði markaðsvirði í bæ þar sem enn ríkti náttúruvá og þjónusta væri önnur en áður.
„Ég stend með Grindavík en ég verð að hugsa um mína fjárhagslegu áhættu með því og börn sem ég þarf að hugsa um,“ sagði Bryndís Gunnlaugsdóttir. Kaupleiguleiðin gerir ráð fyrir fimm prósenta upphafsgreiðslu og þriggja prósenta óverðtryggðum vöxtum á eftirstöðvar. Árið 2027 verði upphafsgreiðslunni skipt í tvennt og fyrstu fjórir mánuðir samnings án kaupleigugreiðslna. Samningunum á að ljúka 31. janúar 2030. Kaupendur geti skilað eign á samningstímanum og fengið upphafsgreiðslu endurgreidda. Sá hluti mánaðarlegra greiðslna sem annars reiknast til eignamyndunar fáist þó ekki endurgreiddur, né kostnaður við eigin endurbætur.
Mótmæla lokum hollvinasamninga Fyrirhuguð lok hollvinasamninga og gistiheimilda í janúar 2027 voru meðal helstu ágreiningsefna. Fundargestir sögðu tímasetninguna setja fjölskyldur undir þrýsting á miðjum skólavetri og hvöttu til þess að þeim yrði gefið svigrúm fram á vor eða sumar. Örn sagði fyrirkomulagið hafa verið tímabundið tilraunaverkefni. Lagaleg óvissa væri um samningana og félagið teldi óábyrgt að halda þeim áfram óbreyttum.
Bryndís Gunnlaugsdóttir gagnrýndi endurkaupaáætlun Þórkötlu harðlega. Hún sagði kaupverð ekki endurspegla aðstæður í bænum og kallaði eftir því að hollvinasamningum yrði framlengt til 1. júní. „Við treystum ykkur ekki,“ sagði Bryndís og kallaði eftir betri og tíðari samskiptum við Grindvíkinga. Hún sagði þá sem flyttu fyrst heim taka mesta fjárhagslega áhættu og eiga því að njóta mests stuðnings. Fjölskyldur þyrftu að horfa til fjárhags, skólagöngu barna og breyttrar þjónustu samhliða lönguninni til heimkomu. Bryndís gagnrýndi sérstaklega fyrirhuguð lok hollvinasamninga í janúar, á miðjum skólavetri. Samningarnir hefðu gert fólki kleift að prófa búsetu og viðhalda tengslum við heimilin. Með vorinu skapaðist meira svigrúm fyrir flutninga og aukinn kraftur í samfélaginu.
Nokkrir lögðu til að fyrri eigendur gætu áfram nýtt húsin gegn greiðslu rekstrarkostnaðar eða hóflegrar leigu. Þannig mætti styðja heimkomu fjölskyldna, skólastarf og félagslíf um leið og dregið væri úr hættu á að hús stæðu auð og rýrnuðu. Þórkatla hyggst bjóða tilteknar íbúðir í fjölbýli til almennrar leigu á markaðskjörum. Fundargestir spurðu hvers vegna sambærilegur kostur stæði ekki til boða í öðru húsnæði. Einnig kom fram gagnrýni á samráðið við Grindvíkinga. Fulltrúi stjórnar Járngerðar sagði stjórnina hafa óskað eftir að nafn félagsins yrði ekki tengt áætluninni þar sem takmarkað hefði verið hlustað á sjónarmið hennar. Örn baðst afsökunar og sagði ekki hafa verið ætlunina að gera félagið samábyrgt. Ástand eigna, viðhald og tryggingar voru sömuleiðis til umræðu. Örn sagði ástandsskoðun fara fram við afhendingu og að ágreiningur um tjónamat yrði skoðaður með matsmönnum. Fyrir þá sem vilja bíða með ákvörðun er fyrirhugað að hægt verði að taka fyrri eign frá út árið 2027. Sú leið feli þó ekki í sér heimild til gistingar, að minnsta kosti fyrst um sinn.Undir lok fundarins viðurkenndi Örn að viðbrögðin hefðu verið önnur en hann átti von á. Farið yrði yfir athugasemdirnar og rætt innan félagsins hvað hægt væri að gera. Engin tiltekin breyting á kjörum eða tímasetningum var þó kynnt.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GRÉTA KRISTÍN INGÓLFSDÓTTIR Njarðarvöllum 6
lést í faðmi ástvina á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtudaginn 29. október. Útför fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Kristinn Arnar Sigurðsson Racquel Flores Sigurðsson Hallgrímur Ingiberg Sigurðsson Hildur Þóra Stefánsdóttir Þór Sigurðsson Hildigunnur Jónsdóttir Inga Rós Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn
Andlátstilkynningar og minningagreinar eru líka á vf.is
Útför Katrínar Bjarkar gerð frá Ytri-Njarðvíkurkirkju Katrín Björk Friðjónsdóttir, fyrrverandi dreifingarstjóri Víkurfrétta, andaðist á hjúkrunarheimilinu Nesvöllum 21. október sl. Hún var jarðsungin frá Ytri-Njarðvíkurkirkju 11. nóvember. Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir, prestur í Njarðvík, stjórnaði útförinni og kór Fóstsbræðra söng við undirleik Rafns Hlíðkvist, organista. Barnabörn Dædýjar, eins og hún var kölluð, báru ömmu sína út úr kirkju.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 13
Krefjast breytinga á áætlun Þórkötlu og aðkomu Grindvíkinga Bæjarstjórn Grindavíkur krefst þess að Grindvíkingar fái að koma að endurskoðun áætlunar Þórkötlu. Í pistli bæjarstjórnar frá 16. nóvember segir að bæjarstjórnin hafi lýst yfir vantrausti á vinnubrögð félagsins og að það verði að vinna traust íbúa á ný með þéttu og góðu samráði. Í pistlinum er vísað til íbúafundar í Gjánni 11. nóvember, þar sem fundarmenn settu fram ýmsar tillögur að breytingum á áætluninni. Bæjarstjórn hefur tekið saman níu helstu tillögurnar og segir Þórkötlu og stjórnvöld verða að ræða þær af fullri alvöru við íbúa. Meðal tillagnanna er að upphafi áætlunarinnar verði seinkað svo barnafjölskyldur þurfi ekki að flytja á miðju skólaári. Þá er lagt til að hollvinasamningar verði framlengdir og boðið verði upp á leigu á kostnaðarverði þar til atburðinum lýkur. Einnig vilja fundarmenn að verð taki mið af stöðunni í dag, sömu reglur gildi um ástand húsa í báðar áttir og greiðslubyrði verði léttari í upphafi. Aðrar tillögur snúa að lengri forkaupsrétti, niðurfellingu stimpil- og þinglýsingargjalda og beinni aðkomu Grindvíkinga að endurskoðun áætlunarinnar. Bæjarstjórn segir sterka samstöðu hafa komið fram á fundinum um að Grindvíkingar fái að móta eigin framtíð. Hún hyggst fylgja tillögunum eftir við Þórkötlu og stjórnvöld. „Grindavík verður ekki byggð upp án Grindvíkinga,“ segir í lok pistilsins.
Fimm milljónir til vinnustaðaklasa í Grindavík og Reykjanesbæ Vilja fjölga heilsársstörfum og styrkja atvinnulíf á Suðurnesjum Samstarfshópur um atvinnumál á Suðurnesjum leggur til að unnið verði markvisst að fjölgun heilsársstarfa, eflingu starfsmenntunar, bættum samgöngum og fjölgun opinberra starfa á svæðinu. Atvinnuleysi hefur um langt skeið verið meira á Suðurnesjum en annars staðar á landinu og árstíðarsveiflur eru þar jafnframt meiri. Þetta kemur fram í minnisblaði sem samstarfshópurinn hefur tekið saman fyrir félags- og húsnæðismálaráðherra undir yfirskriftinni Suðurnes – tengdara og sterkara vinnusvæði. Hópurinn var settur á laggirnar að ósk ráðherra í mars síðastliðnum og er leiddur af Vinnumálastofnun. Í honum eiga meðal annars sæti fulltrúar sveitarfélaga, atvinnurekenda og stéttarfélaga á Suðurnesjum. Forstjóri Vinnumálastofnunar og sérfræðingur frá VMA kynntu nýlega niðurstöðurnar fyrir SAR, Samtökum atvinnurekenda á Reykjanesi. Í minnisblaðinu er bent á að atvinnulíf Suðurnesja sé mjög háð Keflavíkurflugvelli, flugtengdri starfsemi og ferðaþjónustu. Þessar atvinnugreinar séu að hluta árstíðabundnar og því verði sveiflur í atvinnuleysi meiri en víða annars staðar. Fjölgun heilsársstarfa lykilatriði Samstarfshópurinn telur mikilvægt að horfa ekki eingöngu til þess að fjölga störfum heldur sér-
staklega að skapa fleiri heilsársstörf. Slík störf geti aukið stöðugleika heimila og dregið úr því að atvinnurekendur þurfi að segja upp starfsfólki á lágannatíma og ráða það aftur þegar umsvif aukast. Horft er til nýrra atvinnutækifæra, meðal annars í landeldi, gagnaverum og atvinnuuppbyggingu á þróunarsvæðum Kadeco í nágrenni Keflavíkurflugvallar. Einnig er lagt til að þróaðar verði sérstakar ráðningarleiðir í samstarfi við atvinnurekendur. Þar komi meðal annars til greina starfsþjálfun, starfstengd íslenskukennsla, nám samhliða hlutastarfi og úrræði sem auðveldi fyrirtækjum að halda starfsfólki milli annatímabila.
Suðurnes og höfuðborgarsvæðið verði eitt vinnusóknarsvæði Ein megináhersla minnisblaðsins er að líta beri á Suðurnes og höfuðborgarsvæðið sem eitt sameiginlegt vinnusóknarsvæði.
Til þess þurfi að tryggja að fólk geti sótt störf milli svæðanna án þess að ferðatími, ferðakostnaður eða takmarkaðar almenningssamgöngur standi í vegi. Sérstaklega er bent á mikilvægi þess að tímasetningar almenningssamgangna henti vaktavinnufólki og að bæta þurfi tengingar við ný atvinnusvæði, meðal annars þar sem landeldi er í uppbyggingu.
Ellefu verkefni til næstu 6–12 mánaða Í minnisblaðinu eru sett fram ellefu forgangsverkefni til næstu sex til tólf mánaða. Meðal þeirra eru greining á fjölda opinberra starfa, mótun nýrra ráðningarleiða, aukin íslenskukennsla, raunfærnimat og betri greining á stöðu atvinnuleitenda. Einnig er lagt til að skoða hvernig fjölga megi ríkisstofnunum og opinberum þjónustueiningum á Suðurnesjum. Samstarfshópurinn hefur haldið fimm fundi en hefur enn ekki sett fram endanlegar tillögur eða tekið formlega afstöðu til einstakra aðgerða. Minnisblaðið er því liður í áframhaldandi vinnu að aðgerðaáætlun gegn atvinnuleysi á svæðinu.
Tvö verkefni á Suðurnesjum hafa fengið samtals fimm milljónir króna í styrki frá innviðaráðuneytinu til uppbyggingar og reksturs vinnustaðaklasa. Golan í Grindavík fær fjórar milljónir króna og Konvin-setrið á Ásbrú í Reykjanesbæ eina milljón. Grindavíkurbær er umsækjandi vegna Golunnar og er styrkurinn ætlaður til nýrrar uppbyggingar vinnustaðaklasa á forgangssvæði. Konvin ehf. fær styrk til að styðja við rekstur Konvin-setursins á Ásbrú. Styrkirnir eru hluti af úthlutun Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra til 14 verkefna um land allt. Heildarupphæð úthlutunarinnar nemur rúmum 27 milljónum króna. Úthlutað er á grundvelli byggðaáætlunar 2022–2036, samkvæmt aðgerð B.7 um óstaðbundin störf. Markmið hennar er að fjölga atvinnutækifærum og auka fjölbreytni starfa á landsbyggðinni. Vinnustaðaklasar eru samnýtt vinnurými þar sem einstaklingar og fyrirtæki geta nýtt sameiginlega aðstöðu. Uppbygging þeirra getur auðveldað fólki að sinna störfum óháð staðsetningu og skapað vettvang fyrir samstarf og nýsköpun.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum Brekkustíg 39 - 260 Reykjanesbæ - Sími 444 2200
TÍMABUNDIÐ LEYFI TIL SÖLU SKOTELDA Í SMÁSÖLU OG LEYFI TIL SKOTELDASÝNINGA Upplýsingar til umsækjanda tímabundins leyfis fyrir sölu skotelda í smásölu og leyfis til skoteldasýninga frá og með 28. desember 2026 til og með 6. janúar 2027. Upplýsingar til umsækjanda tímabundins leyfis fyrir sölu skotelda í smásölu og leyfis til skoteldasýninga frá og með 28. desember 2026 til og með 6. janúar 2027. Þeir aðilar sem hyggjast sækja um leyfi fyrir sölustað skotelda í smásölu og vegna skoteldasýninga í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ, Grindavík og Vogum fyrir og eftir áramót 2026-2027, ber að sækja um slíkt leyfi inn á Island.is með rafrænum skilríkjum í síðasta lagi þriðjudaginn 1. desember 2026. Leyfi eru veitt að fullnægðum skilyrðum vopnalaga nr. 16/1998 og gildandi reglugerðar um skotelda. Athugið: • Umsóknaraðilar skila inn umsókn í síðasta lagi 1. desember 2026, á sudurnes@logreglan.is. • Fylgigögn umsókna skulu berast slökkviliði viðkomandi sveitarfélags með rafrænum hætti. • Umsóknir um sölustaði sem berast eftir 1. desember 2026 verða ekki teknar til afgreiðslu. • Umsóknaraðilar skulu vera komnir með leyfin í hendur sunnudaginn 27. desember 2026. • Óheimilt er að hefja sölu, nema söluaðilar hafi í höndum leyfisbréf frá lögreglu. • Söluaðilar fá send leyfisbréf með rafrænum hætti. • Sækja þarf um skoteldasýningar með 5 vikna fyrirvara – vegna skyldu HES til að auglýsa starfsleyfi.
Sérstök athygli er vakin á eftirfarandi: 1. Leyfi eru aðeins veitt fyrir sölu skotelda að fyrir liggi umsögn viðkomandi slökkviliðs til aðstöðu og sölu skotelda, pökkunar- og geymslustaði. Einnig liggi fyrir leyfi lóðareiganda, húseiganda eða húsfélags ef umsækjandi er ekki umráðamaður lóðar eða húsnæðis þar sem sala á að fara fram og staðfesting tryggingafélags vegna sölu, geymslu og notkun skotelda. 2. Ef fyrirhugað er að selja úr skúrum eða gámum, skal vera búið að ganga frá slíkum sölustöðum fyrir kl. 16:00, föstudaginn 18. desember 2026 svo lokaúttekt geti farið fram á aðstöðu og öryggisþáttum. Sölustaðir skulu vera minnst 25 fermetrar og búnir samkvæmt kröfum slökkviliðs viðkomandi sveitarfélags.
Tilgreina þarf ábyrgðarmann fyrir sölustað, sem hefur sérþekkingu á skoteldum og hefur náð 18 ára aldri. Að gefnu tilefni skal vakin athygli á að sala og meðferð skotelda er einungis heimil á tímabilinu frá og með 28. desember 2026 til og með 6. janúar 2027. Reykjanesbær 16. nóvember 2026. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum.
14 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Krefjast breytinga á áætlun Þórkötlu og aðkomu Grindvíkinga Bæjarstjórn Grindavíkur krefst þess að Grindvíkingar fái að koma að endurskoðun áætlunar Þórkötlu. Í pistli bæjarstjórnar frá 16. nóvember segir að bæjarstjórnin hafi lýst yfir vantrausti á vinnubrögð félagsins og að það verði að vinna traust íbúa á ný með þéttu og góðu samráði. Í pistlinum er vísað til íbúafundar í Gjánni 11. nóvember, þar sem fundarmenn settu fram ýmsar tillögur að breytingum á áætluninni. Bæjarstjórn hefur tekið saman níu helstu tillögurnar og segir Þórkötlu og stjórnvöld verða að ræða þær af fullri alvöru við íbúa. Meðal tillagnanna er að upphafi áætlunarinnar verði seinkað svo barnafjölskyldur þurfi ekki að flytja á miðju skólaári. Þá er lagt til
að hollvinasamningar verði framlengdir og boðið verði upp á leigu á kostnaðarverði þar til atburðinum lýkur. Einnig vilja fundarmenn að verð taki mið af stöðunni í dag, sömu reglur gildi um ástand húsa í báðar áttir og greiðslubyrði verði léttari í upphafi. Aðrar tillögur snúa að lengri forkaupsrétti, niðurfellingu stimpil- og þinglýsingargjalda og beinni aðkomu Grindvíkinga að endurskoðun áætlunarinnar. Bæjarstjórn segir sterka samstöðu hafa komið fram á fundinum um að Grindvíkingar fái að móta eigin framtíð. Hún hyggst fylgja tillögunum eftir við Þórkötlu og stjórnvöld. „Grindavík verður ekki byggð upp án Grindvíkinga,“ segir í lok pistilsins.
Veita 1,5 milljónir í tímabundið félagsstarf við Njarðvíkurskóla Vilja tryggja aðgengi almennings við uppbyggingu við Seltjörn Skipulagsráð Reykjanesbæjar gerir ekki athugasemd við fyrirhugaða landnýtingu Sólbrekku ehf. við Seltjörn en leggur áherslu á að uppbygging taki tillit til aðgengis almennings og þeirrar starfsemi sem þegar er á svæðinu. Félagið hefur óskað eftir þróunarsamningi til 24 mánaða um landsvæði við og í kringum Seltjörn. Bæjarráð vísaði erindinu til umsagnar hjá skipulagsráði,
umhverfis- og framkvæmdaráði og íþrótta-, tómstunda- og menningarráði. Í umsögn skipulagsráðs frá 6. nóvember er sérstaklega vísað til samkomulags við Jarðvang um sama svæði. Ekki er nánar lýst í fundargerðinni hvers konar uppbyggingu Sólbrekka ehf. hyggst ráðast í. Afgreiðsla skipulagsráðs er umsögn um erindið en ekki samþykkt þróunarsamnings.
Iðngarðar í Garði Ráðhús í Garði og lífsgæðakjarni í Vörðunni SuðurnesjaDaði Bergþórsson, loksins í auglýsingu Ráðhús bæjarfulltrúi Miðbæjar verður stað-
Breyting á deiliskipulagi Iðngarða í Garði verður auglýst og kynnt samkvæmt samhljóða ákvörðun bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar. Bergný Jóna Sævarsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingar, sagði málið hafa verið í vinnslu frá 2019 og því væri um langþráðan áfanga að ræða. Í umræðum var lögð áhersla á þörf fyrir iðnaðarlóðir og mikilvægi atvinnuuppbyggingar. Haukur Andrésson sagði Iðngarða einkum ætlaða léttari iðnaði en Bergvík gæti þjónað stærri iðnaði. Daði Bergþórsson, bæjarfulltrúi Miðflokks, velti upp áhrifum á ásýnd við innkomu í Garð og spurði hvort vinna við bæði svæðin gæti dreift kröftunum. Bergný sagði breytinguna einnig skapa tækifæri til að bæta ásýnd og vegi að fyrirtækjum sem þegar væru á svæðinu.
sett við Sunnubraut 4 í Garði samkvæmt tillögu sem bæjarstjórn samþykkti 4. nóvember. Þar eru stjórnsýslusvið og framkvæmdaog skipulagssvið þegar til húsa. Samhliða á starfshópur að leggja fram tillögur að lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara í Vörðunni við Miðnestorg 3 í Sandgerði, þar sem ráðhús er nú. Bæjarstjóra var falið að leggja fram tillögu að fyrirkomulagi starfshóps og tímalínu verkefnisins. Áformin voru hluti stærri tillögu um íþróttamannvirki, ráðhús og lífsgæðakjarna. Sá pakki var samþykktur með atkvæðum Bog S-lista gegn atkvæðum D- og M-lista. Ágreiningur umræðunnar snerist einkum um gervigrasvöll á aðalvelli Reynis. Endanlegur kostnaður og útfærsla húsnæðisbreytinganna komu ekki fram á fundinum.
flokksins, óskaði á bæjarstjórnarfundi eftir upplýsingum um húsnæðisþörf og kostnað við að sameina stjórnsýslu Suðurnesjabæjar við Sunnubraut 4 í Garði.Daði sagðist fagna sameiningu stjórnsýslunnar á einum stað en ekki hafa séð útfærslur verkefnisins. Hann hefði heyrt frá starfsmönnum að húsnæðið rúmaði ekki alla starfsemina. Hann spurði hvort gerð hefði verið húsnæðisþarfagreining og hvort sveitarfélagið þyrfti að auka eignarhlut sinn í fasteignafélaginu eða greiða meiri leigu. Anton Kristinn Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar, sagði vinnu við hönnun og kostnaðargreiningu hafa verið komið af stað fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar. Málið væri í vinnslu og nánari svör um kostnað kæmu við fjárhagsáætlunargerð. Engar endanlegar kostnaðartölur voru kynntar.
Aukin aðsókn til félagsmiðstöðva Alls sóttu 615 ungmenni í 8.– 10. bekk félagsmiðstöðvastarf í Reykjanesbæ að minnsta kosti einu sinni frá 1. september til 11. nóvember. Til samanburðar voru þau 620 á öllu síðasta skólaári. Tö l u r n a r ko m u f ra m v i ð umfjöllun velferðarráðs um fundargerð Samtakahópsins á fundi ráðsins 12. nóvember. Í afgreiðslu ráðsins kemur fram að góð þátttaka eftir opnun félagsmiðstöðva við Akurskóla og Stapaskóla bendi til þess að nálægð við skóla skipti máli fyrir þátttöku ungmenna.
Samningur við Íþróttafélagið Nes endurnýjaður Áframhaldandi samningur við íþróttafélagið Nes um eflingu íþróttastarfs fyrir fatlaða hefur verið samþykktur í íþrótta-, tómstunda- og menningarráði Reykjanesbæjar. Þetta kom fram í máli Díönu Hilmarsdóttur, bæjarfulltrúa Framsóknarflokks, á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar 3. nóvember sl. Díana greindi frá samningnum við yfirferð á fundargerð ráðsins frá 22. október. Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri fagnaði einnig endurnýjun samningsins í umræðum um fundargerðina.
Kynna uppbyggingaráform við Hafnargötu 101 fyrir íbúum Grínsýningin FramtÝð Íslands í Frumleikhúsinu Allt öðruvísi grínsýning þar sem þú veist ekkert hvað gerist næst! Leikarinn Jóel Sæmundsson mætir í Frumleikhúsið í Keflavík næstkomandi laugardag, 21. nóvember kl. 20:00, með nýja grínsýningu sem ber heitið FramtÝð Íslands. Um er að ræða 90 mínútna óvissuferð þar sem líkamlegur húmor, absúrd og vandræðalegheit og óútreiknanleiki ráða ríkjum. Sýningin er byggð á fyrirlestrum Jóels sem hafa vakið mikla lukku!
Hún hefur þegar vakið mikla lukku og áhorfendur hafa sagt „Fersk, fyndin og grilluð sýning.“ „Var enn hlæjandi þegar ég fór að sofa.“ „Eitt það fyndnasta sem er í boði á Íslandi í dag.“ Það stefnir í mikið gaman í Frumleikhúsinu á laugardagskvöldið og því um að gera að tryggja sér miða og hlýja sér með miklum hlátri! Barinn verður opinn og því tilvalið að mæta snemma og ná sér í drykk fyrir. Fréttatilkynning.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga hefur samþykkt að halda kynningarfund fyrir íbúa og aðra hagsmunaaðila um tillögu að skipulagi Hafnargötu 101. Ákvörðunin var samþykkt samhljóða með sjö atkvæðum. Tillagan hefur verið uppfærð og byggingarmassanum skipt í þrjár byggingar í stað einnar. Þá hefur fyrirkomulagi bílastæða og staðsetningu bílskúra verið breytt. Við kynningu skipulagslýsingar bárust meðal annars umsagnir frá Vegagerðinni og Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja. Vegagerðin lagði áherslu á að tekið yrði mið af sjávarflóðahættu, land- og gólfhæðum og eftir atvikum varnargörðum og öðrum hafnarmannvirkjum. Heilbrigðiseftirlitið vakti athygli á
nálægð uppbyggingarinnar við athafnastarfsemi og mikilvægi þess að skipulagsskilmálar tækju mið af mögulegum áhrifum hennar. Samkvæmt fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar hefur verið brugðist við umsögnum og ábendingum við vinnslu tillögunnar og skipulagsgögn uppfærð eftir því sem við á. Bæjarstjórn leggur áherslu á að íbúar og aðrir hagsmunaaðilar fái tækifæri til að kynna sér áformin og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Að loknum kynningarfundi verður tillagan lögð aftur fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu vegna auglýsingar og síðan fyrir bæjarstjórn til samþykktar.
Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að verja 1,5 milljónum króna til að styrkja félagsstarf við Njarðvíkurskóla tímabundið. Tillagan var samþykkt með öllum fimm atkvæðum ráðsins á fundi 12. nóvember. Ákvörðunin byggist á minnisblaði um tímabundið félagsmiðstöðvarstarf við skólann. Gert er ráð fyrir að úrræðið verði endurmetið í janúar 2027. Fjárveitingunni verður mætt með viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026. Á móti henni koma útsvarstekjur sem eru umfram áætlun.
Guðjón endurkjörinn Guðjón Skúlason var endurkjörinn formaður SAR, Samtaka atvinnurekenda á Reykjanesi, á aðalfundi þe irra nýlega . Samtökin voru stofnuð árið 2010 í kjölfar bankahrunsins og eru yfir 200 félög úr öllum greinum atvinnulífsins tengd SAR. Á aðalfundi sagði Guðjón að SAR hefði lagt mikinn tíma í að finna samstarfsvettvang og leiða saman aðila í hin ýmsu verkefni á svæðinu. Öll helstu félög atvinnulífsins eru samstarfsaðilar SAR en líka verkalýðs- og fagfélög, bankastofnanir og fjárfestar. Þá er stöðugt samstarf við sveitarfélögin og ríkisvaldið. Guðjón sagði sérstöðu Suðurnesja mikla og nefndi forskot í tengslum við alþjóðaflugvöll og stórskipahöfn í Helguvík, tæknivæddasta varmaorkuver á landinu og gagnaver sem fari fjölgandi. Þá fari ferðaþjónustan sívaxandi. Vinna er hafin við ímyndarsköpun og hvernig snertiflötum í sameiginlegum hagsmunamálum er fyrir komið. Stjórn SAR 2026-2027 Guðjón Skúlason, formaður, Guðbergur Reynisson, varaformaður Heiður Björk Friðbjörnsdóttir, féhirðir Ingvar Eyfjörð Jónsson, meðstjórnandi Heiðar Rafn Eiríksson, meðstjórnandi. Varastjórn: Rúnar Helgason, Guðmundur Ingólfsson, Bjarni Páll Tryggvason, Páll Ketilsson, Bjarni M. Húnfjörð, Guðmundur Pétursson og Sigrún Inga Ævarsdóttir.
Þrjú verkefni fengu 1,4 milljónir úr Hvatasjóði
Þrjú verkefni íþróttafélaga á Suðurnesjum fengu úthlutað samtals 1,4 milljónum króna úr Hvatasjóði íþróttahreyfingarinnar í síðustu viku. Öll verkefnin eru í Reykjanesbæ. Fimleikadeild Keflavíkur hlaut tvo styrki upp á 500 þúsund krónur hvorn. Annar er fyrir verkefnið Með í leiknum – stuðningur á fimleikaæfingum og hinn fyrir verkefnið Pláss fyrir öll – jöfn tækifæri fyrir öll í fimleikum. Judofélag Reykjanesbæjar hlaut 400 þúsund krónur fyrir verkefni sem miðar að því að fjölga börnum af erlendum uppruna í júdó.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 15
Keflvíkingar Íslandsmeistarar liða í 16. sinn Hulda María ein af Keflvíkingar vörðu Íslandsmeistaratitil sinn í liðakeppni á Íslandsmótinu í taekwondo sem fram fór um helgina. Þetta er í 16. sinn sem Keflavík fagnar Íslandsmeistaratitli liða.
Það bar helst til tíðinda að feðginin Heiða Dís Helgadóttir, Vignir Nói Helgason og faðir þeirra, Helgi Rafn Guðmundsson, yfirþjálfari Keflavíkur, sigruðu öll í sínum flokkum og urðu Íslandsmeistarar.
Heiða Dís var jafnframt valin besti kvenkeppandi mótsins. Íslandsmeistarar Keflavíkur í einstaklingskeppni voru: Magnús Máni Guðmundsson Amir Maron Ninir Viktor Berg Stefansson
Nawar Abo Assaf Ahmad Batal Helgi Rafn Guðmundsson Vignir Nói Helgason Heiða Dís Helgadóttir Myndir: Taekwondosambandið og úr safni.
Sigmundur dæmdi sinn 2500. leik Körfuknattleiksdómarinn Sigmundur Már Herbertsson dæmdi sinn 2500. leik á Sauðárkróki í gærkvöldi þegar heimamenn mættu ÍR. „Ég byrjaði að dæma árið 1994 og ennþá er jafn gaman að vera á gólfinu. Á ferlinum hafa verið ógleymanleg augnablik. Vonandi verða þau bara miklu fleiri! Kvöldið í kvöld var einnig sérstakt þar sem leikurinn var góðgerðarleikur til styrktar Einstökum börnum. 2.500 leikir – og við höldum áfram,“ sagði Simmi í Facebook færslu eftir leikinn, Njarðvíkingurinn er leikjahæsti dómari landsins en og sá besti því hann hefur 17. sinnum verið valin dómari ársins, síðast tímabilið 2025-2026. Úrslit leikja og fréttir birtast á
sport vf.is
VERNE GLOBAL STYRKIR KEFLAVÍK
Ve r n e G l o b a l h e f u r ge r t styrktar- og samstarfssamning við knattspyrnu- og körfuknattleiksdeildir Keflavíkur. Með samningnum leggur fyrirtækið sitt af mörkum til öflugs íþróttastarfs í Reykjanesbæ og styður við starfsemi tveggja stærstu íþróttagreina félagsins, segir í frétt frá Verne og Keflavík. Verne Global rekur gagnaver á Ásbrú og hefur um árabil verið hluti af atvinnulífi Suðurnesja. Með samstarfinu vill fyrirtækið
styrkja tengsl sín við nærsamfélagið og styðja við það mikilvæga starf sem unnið er innan íþróttahreyfingarinnar. „Við hjá Verne Global leggjum mikla áherslu á að vera virkur þátttakandi í því samfélagi sem við störfum í. Íþróttafélögin gegna þar gríðarlega mikilvægu hlutverki, ekki síst í starfi með börnum og ungmennum. Keflavík á sér ríka sögu í bæði knattspyrnu og körfuknattleik og við erum stolt af því að geta lagt okkar af
þeim sem tók fyrstu skóflustunguna að nýrri þjóðarhöll
Njarðvíkingurinn Hulda María Agnarsdóttir var ein meðal ungs afreksíþróttafólks úr landsliðum og félögum sem tók fyrstu skóflustunguna að nýrri þjóðarhöll Íslands í Laugardal. Hulda rauf jörð og henni til aðstoðar var Kristinn Albertsson formaður Körfuknattleikssambands Íslands. Hulda sem er ein af efnilegustu körfuboltakonum landsins, aðeins 16 ára og lykilmaður í Bónus-deildarliði Njarðvíkur gekk vasklega til verks eins og alla jafna á vellinum að því er fram kemur á heimasíðu Körfuknattleiksdeildar UMFN.
mörkum til þess að styðja við það öfluga starf sem þar fer fram,“ segir Styrmir Hafliðason, framkvæmdastjóri Verne Global. Báðar deildir Keflavíkur halda úti umfangsmiklu íþróttastarfi, allt frá yngstu iðkendum til meistaraflokka karla og kvenna. Samstarf við fyrirtæki á borð við Verne Global er mikilvægur þáttur í áframhaldandi uppbyggingu starfsins og því að skapa góða umgjörð um iðkendur á öllum aldri.
Frans yfir til Njarðvíkur
Blakdeild Keflavíkur í sókn – iðkendum fjölgar Helgina 30. október til 1. nóvember fór fram fyrsta umferð Íslandsmóts yngri flokka. Blakdeild Keflavíkur sendi alls 22 iðkendur til leiks, sem er mesti fjöldi iðkenda sem deildin hefur sent á mót til þessa. Þátttaka hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár.
Mótið var það stærsta sem haldið hefur verið í yngri flokkum til þessa, en alls tóku 72 lið þátt og spilaðir voru 206 leikir yfir helgina. Í frétt frá blakdeildinni segir að það ánægjulegt að sjá U14 stelpulið frá Keflavík aftur á Íslandsmóti. „Það er orðið langt síðan deildin hefur getað sent eigið lið í þessum
flokki. Í fyrra þurfti að leita til annars félags eftir samstarfi til að ná saman liði, en nú sendum við átta stelpur til leiks í okkar eigin liði. Þær stóðu sig virkilega vel og enduðu í öðru sæti í B-riðli.“ Það hefur einnig orðið mikil fjölgun hjá U14 strákunum. Í fyrra var í fyrsta sinn sent eitt lið til keppni í þessum flokki en nú er
félagið með tvö lið en annað fékk liðsstyrk. Strákarnir tóku einnig þátt í U16 flokki, þar sem tveir leikmenn frá Aftureldingu bættust í hópinn. Þeir spiluðu samtals 11 leiki á laugardegi og sunnudegi. Framfarirnar voru mjög sýnilegar.
Frans Elvarsson, leikmaður Keflavíkur síðustu sext án árin hefur gengið til liðs við nágrannana í Njarðvík um að leika með liðinu í Lengjudeildinni auk þess að sinna styrktarþjálfun meistaraflokks karla. Frans er upprunalega frá Hö f n í Ho r n a f i rð i o g h ó f meistaraflokksferil sinn með Sindra áður en hann gekk til liðs við Njarðvík frá Sindra árið 2007, og lék með UMFN allt til ársins 2011 þegar hann fór yfir í Keflavík. Frans er hefur borið fyrirliðabandið hjá Keflavík síðustu ár og á yfir 500 meistaraflokksleiki á vegum KSÍ. Hann kom lítið við sögu í leikjum Keflavíkur á nýafstaðinni leiktíð nema í síðustu leikjunum.
ÍRISAR VALSDÓTTUR
Lifum
Litla stúlkan með hnífapörin
vel
Tilboð gilda 12.-22. nóvember
Ýsa í raspi Hafið
Sætar kartöflur í lausu
Kjúklingastrimlar Iceland, 5 teg, 500g
Pepsi Max 24x330ml dós
Opnunartímar í Nettó
Eitt fagur t desemberkvöld sat ung stúlka fyrir framan spegilinn, setti stút á rauðar varirnar og brosti. Fram undan var fyrsta jólaboðið í nýju vinnunni hjá kærastanum og því mikilvægt að koma vel fyrir. Undirbúningurinn hafði gengið vonum framar. Liðirnir í hárinu höfðu aldrei heppnast jafn vel, gyllti augnskugginn tónaði fullkomlega við kjólinn og augnblýanturinn hafði runnið í fallega línu í fyrstu tilraun. Hvað gæti svo sem klikkað? Þau stigu út úr bílnum við hótelið og gengu inn í fallegri snjókomu sem glitraði í jólaljósadýrðinni. Með fiðrildi í maganum tók hún í hendur nýju yfirmanna kærastans, kynnti sig kurteislega og kyssti konur þeirra á kinnarnar. Allt gekk eins og í sögu. Ekki leið á löngu þar til forrétturinn var borinn á borð, lax og laufabrauð. Hún tók sér hníf og gaffal en varð skyndilega litið í kringum sig. Allir við borðið héldu eins á hnífapörunum. Gafflarnir sneru öfugt. Hún sem hafði alla tíð haldið á gafflinum með krepptum hnefa. Hvernig hafði þetta farið fram hjá henni öll þessi ár? Hún reyndi að bera sig virðulega og lét sem ekkert væri. Sem betur fer voru einhverjir þegar farnir að narta í matinn með höndunum svo hún gerði slíkt hið sama og slapp þar með fyrir horn. Ekki gat hún látið þetta fólk halda að hún væri algjörlega ósiðuð. Einhverra hluta vegna hafði það þó gleymst í uppeldinu að kenna henni að halda almennilega á hnífapörum. Ekki hafði skort lesturinn, mannasiðina eða annað sem prýða mátti unga stúlku. En einhvers staðar á leiðinni hafði þessi mikilvæga lexía fallið milli skips og bryggju. Feginleikinn dugði þó skammt. Næst var borinn fram hamborgarhryggur með kartöflum og öllu tilheyrandi. Nú yrði hún að láta á þennan nýja hnífaparaleik reyna. Þetta gat nú ekki verið svo flókið. Hún sneri gafflinum við og hófst handa við að skera kjötið. En þar sem hana skorti margra ára æfingu gekk ekki betur en svo að kjötið rann af stað, þvert yfir diskinn, í gegnum sósuna og kartöflurnar, og endaði öll dýrðin beint framan á kjólnum. Eftir sat hún með hnífinn í annarri hendi, gaffalinn í hinni og tvær grænar baunir á diskinum. Í bílnum á heimleiðinni sat hún í útötuðum kjólnum, með rauðkál í hárinu og sósu í skónum. Hún kveikti á útvarpinu. Lagið Aðfangadagskvöld hljómaði svo fallega og fékk hana til að gleyma óförum kvöldsins. Hún þyrfti nú kannski ekki að kunna allt í heiminum en þetta lag kunni hún þó og söng hástöfum með: „Þetta aðfangadagskvöld, fyrsta aðfangadagskvöld er eldvarnahátíðin mest, la la la la eldvarnahátíðin best.“
Nettó Krossmóa 7:30-24:00 og Nettó Aðaltorgi 24/7
Mundi Íris mín, hvernig smakkaðist hamborgarhryggurinn?