Skip to main content

49 tbl 2015 seinni

Page 1

Í efstu deild fyrir 30 árum

80 ár liðin frá brunanum í Skildi

GULLÖLD VÍÐISMANNA

HÚN VAR REGLUSÖM OG GOTT BARN

vf.is

FIMMTUDAGUR 17. D ESE MBE R 2 0 15 • 49. TÖ LUBL A Ð • 36. Á RGA NGU R

Gleðilega hátíð SEINNI HLUTI

Ævintýrafólkið Gunnar Örn Guðmundsson og Ásdís Friðriksdóttir

HJÓLA UM HELGA STÍGA SPÁNAR FATAHÖNNUÐURINN BERGLIND ÓSKARSDÓTTIR

Nemur tísku í Mílanó , u k í fr A í i r ý Ævint u í s A g o u í l a Ástr DÓTTIR

PÁLS ANÍTA MARCHER

SUÐURNES NJÓTA EKKI SKILNINGS Á ALÞINGI Ásmundur Friðriksson hrekkjalómur og þingmaður í viðtali

Una Sigurðardóttir

GAF SÉR NÝJAN LÍFSSTÍL OG

ENDAÐI SEM MARAÞONHLAUPARI

Lestur jólakortanna besta jólastundin

RAGNHEIÐUR ELÍN ÁRNADÓTTIR OG FJÖLSKYLDA LEGGJA MIKIÐ UPP ÚR JÓLAKORTUNUM OG SKRIFA PERSÓNULEGAN TEXTA TIL HVERS OG EINS


Norðlenskt hangikjöt á frábæru verði

1.998 kr. kg

1.998 kr. kg Fjalla Hangiframpartur Úrbeinaður

Kjarnafæði Hangiframpartur Kofareyktur, úrbeinaður

r Veislumatu rði á góðu ve

598 kr. kg

Ali Grísabógur Ferskur

erð v u r ö v a m Sa t l l a d n a l um

Verð í þessari auglýsingu gilda til og með 20. desember a.m.k.


i m í t r a n u Opn átíðir nar h r fi y g o r e b m e s e d í

ur 18. des. föstudag ur g 19. des. laugarda ur 20. des. sunnudag ur 21. des. mánudag gur 22. des. þriðjuda gur 23. des. miðvikuda gur 24. des. fimmtuda

10-20 10-20 11-19* 10-20 10-21 10-22 10-14

árs Milli jóla og ný ur 27. des. sunnudag ur 28. des. mánudag gur 29. des. þriðjuda gur 30. des. miðvikuda gur 31. des. fimmtuda

12-18 11-18:30 11-18:30 10-20 10-15

SPARAÐU MEÐ BÓNUS!

útuvogi * einnig opið í Sk

595 kr. 4x2 l

Pepsi Kippa, 4x2 lítrar

hluti Ómissandi um af jólun

698 kr. 2 l

Kjörís Mjúkís 4 tegundir, 2 l

1.598 kr. 900 g Mackintosh Konfekt, 900 g

ð Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00


42

fimmtudagur 17. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-jólin

Sendum Suðurnesjamönnum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt nýtt ár. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.

mín

Fékk frosin íslensk ýsuflök í jólagjöf „Ég held ég hafi aldrei verið eins hissa og meyr þegar ég fékk frosin íslensk ýsuflök í jólagjöf jólin 1987,“ segir Ingigerður Sæmundsdóttir sem þá var skiptinemi í Bandaríkjunum. Hún hlustar í dag mikið á jólatónlist, er heimakær og á mikið af góðum jóladiskum. Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið? Ég er í jólaskapi allan desember og geri það sem ég geri þegar ég get. Stundum er ég sein að kaupa jólagjafir eða skrifa jólakort en það hefst allt á endanum. Það er líka allt í lagi þó jólakortin nái ekki fyrir jól. Þau skila sér fyrir rest. Það eru fá ár síðan ég fór sérstaklega að horfa á jólamyndir. En núna held ég virkilega upp á tvær og horfi á þær á aðventunni. Þær eru Love Actually og gamla góða Christmas Vacation. Mig dreymir um að skreyta húsið mitt að utan einhver jólin eins og í myndinni. Sendir þú jólakort eða hefur Facebook tekið yfir? Ég held enn í þá hefð að senda jólakort og finnst dásamlegt að fá góða kveðju frá ættingjum og vinum sem hugsa til mín og minna yfir hátíðarnar. Ég sendi ýmist kort með ljósmynd eða kaupi kort af félagasamtökum og fæ enn kort en þeim fer fækkandi og finnst mér það miður.

H

F

IÐAVÖLLUM 6 - 230 KEFLAVÍK - SÍMI 421 4700 - FAX 421 3320

SENDUM ÍBÚUM Í VOGUM BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT NÝTT ÁR

2015 2015 2015 2015 2015 Víkurfrétta urVíkurfrétta Skafmiðaleikur Skafmiðaleik Víkurfrétta ur Skafmiðaleik Suðurnesjum á verslana og Víkurfrétta ur Skafmiðaleik Suðurnesjum áSuðurnesjum verslana ur ogverslana Víkurfrétta Skafmiðaleik og Suðurnesjum verslanaáááSuðurnesjum og verslana og

Ertu vanaföst um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar? Jólin og aðventan hafa yfirleitt verið notalegur tími og á lífsins göngu hef ég reynt að njóta þessa tíma með þeim sem standa mér næst. Ég held í ýmsar hefðir en er ekki mjög fastheldin heldur opin fyrir breytingum. Ég held að stundum geti hefðir verið óþægilegar og hamlandi. Það er gott að geta boðið fjölskylduvini sæti við matarborðið á aðfangadagskvöld. Þegar börnin voru lítil þá var oft mikil tilhlökkun til jólanna og ýmsar hefðir urðu óvart til. Ég fór t.d. margar ferðir í skógræktina Hamrahlíð við Úlfarsfell að ná í lifandi grenitré rétt fyrir jól. Mikill metnaður var lagður í að tréð væri sem hæst og oft var heilmikill karakter í trjánum. Fyrir nokkrum árum fjárfesti ég í gervitré en langar hver jól í lifandi tré, læt það kannski eftir mér í ár. Jólatréð fór aldrei upp fyrr en á Þorláksmessu en nú fer það upp miklu fyrr en ég er líka fljót að pakka öllu niður á þrettándanum. Ég hef alltaf bakað um hver jól, en sortunum fer fækkandi. I fyrra bakaði ég smákökurnar sem móðir mín bakaði alltaf en hún var mjög fastheldin á hefðir. Í dag erum við sonurinn og ömmustrákurinn helst að spá í piparkökuhús. Við eigum kannski eftir að mastera í því einn daginn en við erum búin að skreyta og græja eitt hús. Ég nýt þess að eiga stund með sjálfri mér á aðventunni, skrifa jólakort, hlusta á jólalög og hugsa til þeirra með hlýhug sem hafa á einhverjum tímapunkti verið samferða mér í lífinu. Ég opna engin jólakort fyrr en á Þorláksmessu, þá hlusta ég á Bubba í útvarpinu og opna kortin. Ég hlusta mikið á jólatónlist á aðventunni þar sem ég er mjög heimakær og á mikið af góðum jóladiskum. Já ég er enn með græjur og geisladiska. Mér finnst tilheyra jólunum að sækja það sem kirkjan hefur að bjóða. Fallega tónlist, hugvekju og gott samfélag. Jólatónleikar eru ómissandi á aðventunni en það er mjög mikið framboð af tónleikum hér í Reykjanesbæ. Heimsókn í kirkjugarðinn

er hluti af hefðum til að kveikja á jólaljósum ástvina. Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Ég held ég hafi aldrei verið eins hissa og meyr þegar ég fékk frosin íslensk ýsuflök í jólagjöf jólin 1987. Þá var ég skiptinemi í Sleepy Eye, MN. Amerískir vinir mínir og nágrannar i Sleepy Eye höfðu mikið fyrir því að fá þessi flök og voru svo spennt að gefa mér á jólunum. Gleði þeirra gladdi mig mikið og fiskurinn var ótrúlega góður. Þetta var eina ýsumáltíðin sem ég fékk á meðan dvöl minni stóð. Við héldum að sjálfsögðu veislu og suðum ýsuna á jóladag og borðuðum með kartöflum og smjöri. Er eitthvað eftirminnilegt í huga þér frá yngri árum þínum á jólum? Æskujólin eru í minningunni notaleg og hefðbundin. Maturinn góður, mamma í eldhúsinu, barnaefni í sjónvarpinu, aftansöngur í útvarpinu, jólin hringd inn, ilmurinn, tréð, fáir pakkar, bók frá ömmu. Tilhlökkun að hitta móðurfólkið á jóladag og föðurfólkið annan í jólum. Miðnæturmessa í Ytri Njarðvíkurkirkju á aðfangadagskvöld þar sem ég spilaði heims um ból á Trompet undir orgelleik og fjöldasöng.Útivist á annan í jólum og við höldum enn í þá hefð. Hvað er í matinn á aðfangadag? Hamborgarhryggur eins og var á æskuheimilinu en meðlætið er Waldorfsalat, rósakál, perur, kartöflustrá og brúnaðar kartöflur. Ég er alltaf með ís í eftirrétt. Máltíðin er einföld og helsta áskorunin er kjötsósan sem klikkar aldrei. Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Ég fæ enn sælutilfinningu þegar klukkurnar í útvarpinu hringja inn jólin á aðfangadag og allir sem eru staddir í húsinu faðmast og óska hvert öðru gleðilegra jóla. Síðan ómar messusöngur og jólaguðspjallið í útvarpinu á meðan við borðum hátíðarmatinn, þá eru jólin komin. Hefur þú verið eða gætir þú hugsað þér að vera erlendis um jólin? Ég hef verið með fjölskyldunni á Kanaríeyjum yfir jól og áramót og

það var dásamlegt frí. Við áttum okkar jólastund á jóladag með hátíðarmat og litlum jólagjöfum og það var það eina sem minnti á jólahátíðina. Ég gæti alveg hugsað mér að vera á skíðum um eða yfir jólin t.d. í ítölsku Ölpunum. Þangað hef ég komið og langar mikið aftur. Það er frí sem ég gæti hugsanlega dregið son minn, uppkomnar dætur mínar og fjölskyldur þeirra með. Ég held ég færi ekki ein í frí um jólin, þá vil ég frekar vera heima í eldhúsinu og hafa allt fólkið mitt í kringum mig. Hvernig brástu við þegar þú komst að leyndarmálinu um jólasveininn? Ég trúi enn á jólasveininn og þekki nokkra. En verð döpur þegar hann gleymir að færa leikskólabörnum glaðning. Langar stundum að taka í hnakkadrambið á honum, það er hægt að gleðja með smáu. Áttu þér uppáhalds jólaskraut? Mér þykir mjög vænt um jólaóróa sem ég á. Þeir voru keyptir til að minnast sérstakra ára eða tímabila. Ég á líka uppáhaldsskraut á jólatréð sem hefur fylgt mér í 26 ár eða frá því ég flutti að heiman. Skrautið og jólakúlurnar á jólatrénu er úr öllum áttum. Ég fengi seint verðlaun fyrir hreinan stíl en kannski persónulegan. Hvernig verð þú jóladegi? Alla mína æsku og æsku barna minna hittist fjölskyldan á jóladag í Heiðartúni í Garði hjá Ingu ömmu og Ögmundi afa. Eftir að þau féllu frá og fjölskyldan stækkaði færðist boðið á milli móðursystkina minna. Nú er jólaboð Heiðartúnsfjölskyldunnar á þriðja í jólum. Ég fer í Njarðvíkurkirkjugarðinn að leiði móður minnar um morguninn. Syng í messu kl.14 með kirkjukór Keflavíkursóknar og síðan ætla ég að njóta dagsins með fólkinu mínu. Ég verð með jólaboð á jóladag, býð í hangikjöt og vonast til að gestirnir mæti með fromage og heimatilbúin ís í eftirrétt. Um kvöldið kíki ég í bók með malt og appelsín í annarri og Nóa konfekt í hinni. Þetta eru jólin mín.


43

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 17. desember 2015

-mannlíf

pósturu vf@vf.is ● Allar bestu hárvörurnar á einum stað

HAFNAMENN FJÖLMENNTU Í AÐVENTUKAFFI OG JÓLAMARKAÐ

M

enningarfélag Hafnabúa bauð í aðventukaffi og jólagjafamarkað þann 6. desember 2015, í Safnaðarheimilinu í Höfnum. Fjölmargir fyrrverandi og núvernadi Hafnamenn kíktu við og áttu góða stund í kaffi og með því. Jólagjafamarkaður var í salnum þar sem handverksog listamenn víðsvegar af Suðurnesjunum buðu upp á fjölbreyttan og fallegan jólavarning. Allur ágóði Kaffisölunnar rann til styrktar viðhaldi Kirkjuvogskirkju og safnaðarheimilisins í Höfnum.

● Úrval af fallegum jólagjöfum ● Pantaðu í netverslun okkar og fáðu sent heim

www.sapa.is

Laugavegi 61

101 Reykjavík

Óskum viðskiptavinum og landsmönnum öllum

GLEÐILEGRA JÓLA

HS VEITUR HF hsveitur.is

s. 511-1141


44

fimmtudagur 22. október 2015 • VÍKURFRÉTTIR

GAF SÉR NÝJAN

lífsstíl

Í ÞRÍTUGSAFMÆLISGJÖF - endaði sem maraþonhlaupari

Una Sigurðardóttir er 44 ára og er ástríðuhlaupari. Hún byrjaði að hlaupa þegar hún var að reyna að ganga úr sér pirring sem kom þegar hún hætti að reykja fyrir 14 árum síðan. Nú eru hlaupin stór hluti af hennar lífi og lífsgæði sem henni eru kær. Una Sigurðardóttir ákvað að gefa sjálfri sér nýjan lífsstíl að gjöf þegar hún varð þrítug fyrir 14 árum síðan. Sú gjöf hefur heldur betur borið ávöxt því síðan þá hefur Una hlaupið fimm heil maraþon og fjölmörg hálf maraþon. „Ég reykti og drakk kók og hafði aldrei hlaupið né stundað íþróttir. Þegar ég sá konur í Kvennahlaupinu út um eldhúsgluggann var ég í hláturskasti yfir því að fólk færi í alvörunni út að hlaupa. Á þeim tíma hefði enginn trúað því að ég ætti eftir að verða hlaupari og þá síst af öllu ég sjálf. Núna finnst mér frábært að vera 44 ára og eiga áhugamál. Ég er ótrúlega heppin að hlaupin skyldu detta inn í mitt líf,“ segir hún. Eins og gengur og gerist með fólk sem hættir að reykja fann Una fyrir pirringi og vanlíðan fyrstu vikurnar eftir að hún hætti. Pirringurinn varð til þess að hún fór út að ganga til að líða betur. Með tímanum fór hún svo að hlaupa við fót, lengri og lengri hluta gönguferðarinnar.

Göngutúrarnir fóru fljótlega að þróast út í skokk og stuttu síðar fór Una að skokka þrisvar sinnum í viku. Þremur árum síðar tók hún svo þátt í Reykjavíkurmaraþoni í fyrsta sinn og hljóp þá 10 kílómetra. Í upphafi skellti Una sér út að hlaupa stuttan hring á meðan kartöflurnar voru að soðna en í dag fer töluvert meiri tími í æfingarnar eða allt frá fimm til átta klukkustundum á viku ef maraþon er í undirbúningi. Til að byrja með fannst Unu erfitt að hlaupa en ákvað samt að gefast ekki upp. „Þegar ég var að byrja að hlaupa árið 2001 þá sá maður ekki oft fólk úti að hlaupa í Reykjanesbæ. Það voru nokkrar konur sem ég hafði séð á hlaupum eins og Margrét Sanders og Una Steins. Hluti af jafnréttisbaráttunni Una er fjögurra barna móðir og á von á fyrsta barnabarninu á næstunni. Þegar hún byrjaði að hlaupa og börnin voru yngri reyndist henni oft snúið að sameina

Síðasta vor hljóp Una hálft maraþon á Kínamúr með dóttur sinni, Svölu Dís Sigurðardóttur.

móðurhlutverkið, fulla vinnu og hlaupin. „Það er mín tilfinning að almennt fari töluvert púður í það hjá útivinnandi mæðrum að ná að stunda áhugamál sín. Það er hluti af jafnréttisbaráttunni og láta húsverkin bara lönd og leið og fara út að hlaupa eða stunda önnur áhugamál. Ég er til dæmis löngu búin að segja upp því starfi að para alltaf saman sokkana á heimilinu, versla inn og elda. Við skiptumst á þar við hjónin en það gengur reyndar svolítið illa að fá hann í að para sokkana. Auðvitað lætur eitthvað undan en það verður bara að hafa það. Ég var alveg ákveðin í að sleppa þessu áhugamáli ekki. Ég varð mamma 19 ára og hefur því meiri partur tíma míns í gegnum árin farið í að hugsa um börn og heimili. En í dag er þetta orðið mikið minna mál þegar börnin eru orðin stór,“ segir Una. Hlaupin eru nú orðin hluti af lífi fjölskyldunnar og er eiginmaðurinn dyggasti stuðningsmaður Unu. Þessa dagana fer yngsti sonur hennar, 9 ára, stundum með út að hlaupa og hún hleypur mikið með dóttir sinni. Maraþon minnir á meðgöngu Eftir að hafa hlaupið 10 kílómetra í Reykjavíkurmaraþoni byrjaði Una að hlaupa enn meira og tók svo þátt í heilu maraþoni í Kaupmannahöfn árið 2009. Hún hafði rekist á æskuvin sinn, Guðjón

Vilhelm, í hálfu maraþoni og þau ákváðu saman að skella sér í heilt maraþon. Una segir fyrsta hlaupið hafa verið nokkuð erfitt enda liðu þrjú ár þar til hún hljóp næst heilt maraþon. „Fyrsta hlaupið gekk svolítið nærri mér. Ég hélt jafnvel að ég myndi ekki lifa það af. Það er misjafnt hvernig fólk kemst frá svo löngum hlaupum. Margir láta sér bara nægja að fara í eitt maraþon yf ir æ v ina.“ Aðspurð hvor t maraþonhlaup verði léttari með reynslunni segir hún svo ekki vera. „Þetta er alltaf jafn erfitt í lokin finnst mér. Síðustu tíu kílómetrana spyr maður sig aftur og aftur hvað maður sé nú búinn að koma sér út í. Manni er illt víða um líkamann og alveg að drepast. Svo um leið og ég hleyp yfir marklínuna er það gleymt og ég verð ótrúlega stolt af mér og byrja að skipuleggja næsta hlaup. Þetta er persónulegur sigur sem maður á með sjálfum sér og enginn getur tekið í burtu. Mér finnst hlaupin hafa gert mig að sterkari persónu og hjálpa mér að vera besta útgáfan af sjálfri mér. Þar þarf ég að beita mig aga, anda djúpt og klára það sem ég byrja á. Þetta gerir manni gott.“ Una segir maraþonhlaup að mörgu leiti minna á meðgöngu og fæðingu. „Þetta er eitthvað sem maður ákveður og undirbýr sig svo í nokkra mánuði. Svo verður maður spenntur þegar stóri dagurinn

nálgast en líka pínu kvíðinn en hlakkar mikið til að klára þetta. Maður veit að þetta verður vont en líka að maður mun sennilega ná sér að fullu. Það að eignast barn er lífið sjálft en hlaupin bara áhugamál en samt eru þessar tilfinningar svo líkar. Svo þegar ég hef verið búin að fá börnin mín í fangið hefur mig farið að langa í fleiri, alveg eins og ég hugsa um næsta maraþon þegar ég kem í mark.“ Sameinar hlaup og ferðalög Un a e r m an n au ð sstj ór i hj á Icelandair Technical Services, ITS, á Keflavíkurflugvelli og kveðst heppin að geta sameinað ferðalög og hlaup. Fyrir utan hlaupið í Kaupmannahöfn hefur hún hlaupið maraþon í París, New York, Reykjavík og nú síðast í Chicago. Í vor fór hún ásamt dóttir sinni hálft maraþon á Kínamúrnum. Stóri draumurinn hjá Unu er svo að taka þátt í Boston maraþoninu sem er elsta maraþon heims. Ná þarf ákveðnum lágmörkum til að taka þátt í því hlaupi. Stefnan er að ná lágmarkinu 2016 og taka þátt í Boston árið 2017. Parísarmaraþonið er eitt af þeim eftirminnilegustu sem Una hefur hlaupið. Í því hlaupi hljóp Gaui vinur hennar aftur með henni og einnig maðurinn hennar sem fór þá sitt fyrsta og eina maraþon. Í París er hlaupið meðfram Signu, fram


Síðustu tíu kílómetrana spyr maður sig aftur og aftur hvað maður sé nú búinn að koma sér út í

hjá Notre Dame, Effell-turninum og fleiri sögufrægum stöðum. Reykjavíkurmaraþon er líka í miklu uppáhaldi. „Þar er maður á heimavelli, kannast við umhverfið og hittir marga s em maður þekkir. Í því hlaupi getur líka öll fjölskyldan komið og horft á. Þegar hlauparar koma yfir marklínuna í Reykjavíkurmaraþoni er lagt mikið upp úr því að kalla upp nafn hvers og eins. Það er alveg frábær tilfinning á lokasprettinum.“ Tekur hlaupin fram yfir golf E i g i n m a ð u r Unu , S i g u rð u r Haraldsson, er golfari en hljóp með henni, eins og áður sagði, í París. Þegar þau höfðu verið saman í 25 ár ákváðu þau að fagna tímamótunum með því að hlaupa saman maraþon í borg ástarinnar. „Samningurinn á milli okkar var þannig að hann færi í maraþon en hann hafði ekkert verið að hlaupa og ég myndi svo gefa golfíþróttinni tækifæri. Árangurinn hefur nú ekki verið mikill ennþá því ég tek hlaupin alltaf fram yfir á sumrin en ég er að reyna að vera líka í golfi.“ Una æfir með þríþrautarhóp 3N þrisvar sinnum í viku en fer líka ein á æfingar eða með börnum sínum og vinkonum. Þegar líða fer að maraþoni verða vegalengdirnar l e n g r i o g þ á h l e y p u r Un a yfirleitt tvisvar sinnum á undirbúningstímabilinu uppáhalds langhlaupshringinn sinn, úr Njarðvík til Sandgerðis, þaðan út í Hafnir og svo heim í Njarðvík, um 30 til 34 kílómetra.

Una með Hafþóri syni sínum. Hann er duglegur að hlaupa með mömmu sinni.

Ekki er hægt að ljúka viðtalinu án þess að biðja Unu um ráðleggingar til fólks sem er í sömu sporum og hún var fyrir 14 árum en langar að gera hlaupin að lífsstíl. „Það er bara að leggja af stað. Reima á sig skóna og fara út. Þegar maður er kominn af stað er þetta ekki neitt mál. Nú eru í boði alls konar námskeið og hlaupahópar og öpp í símanum til að hvetja sig áfram á æfingum og halda utan um þær. Fólk þarf ekkert endilega að fara í maraþon, maður getur alltaf skellt sér út, þó ekki sé nema í hálftíma,“ segir Una og óskar sem flestum þeirra lífsgæða að geta hlaupið. „Það er ótrúlega magnað að vera úti í náttúrunni með andardrættinum og fótstiginu. Hlaupin eru það dýrmætasta sem ég á, fyrir utan fólkið mitt.”

Una með heimilisvinunum fjórfættu. Hundurinn hefur oft hlaupið með henni en einnig sonurinn Hafþór.


46

fimmtudagur 17. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR

HÖNNUN

-viðtal

pósturu eythor@vf.is

R A D N I BERGL

VEKUR ATHYGLI

- Sækir einn virtasta hönnunarskóla heims í Mílanó

Berglind Óskarsdóttir er uppalin Keflavíkurmær og bjó þar til 18 ára aldurs. Í dag býr hún á Seltjarnarnesi með eiginmanni sínum Þórhalli Sævarssyni leikstjóra og börnum þeirra þremur. Eftir áramót liggur leið Berglindar til Milanó þar sem hún fékk nýlega skólastyrk í einum virtasta hönnunarskóla heims, Istituto Marangoni. Þar mun hún fara í mastersnám í fylgihlutahönnun með áherslu á lúxusvörur og gæðaframleiðslu. Berglind ústkrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2014 úr fatahönnun. Útskriftarlína hennar vakti mikla athygli og eftirspurn og nýlega fékk hún umfjöllun á heimasíðu ítalska Vogue.

Ég hef haft áhuga á hönnun og tísku alveg frá því ég man eftir mér


VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 17. desember 2015 Hvað hefur verið í gangi hjá þér eftir að þú útskrifaðist? „Ég eignaðist litlu stelpuna mína eftir útskrift og hef verið með hana og notið þess að vera í fæðingarorlofi. Ég hef hins vegar unnið strangt að mínum markmiðum á meðan og það er að skila sér.“ Hvenær kviknaði þessi áhugi á hönnun hjá þér? „Ég hef haft áhuga á hönnun og tísku alveg frá því ég man eftir mér. Ég hef alltaf haft mjög gott auga fyrir smáatriðum, það getur verið mikill kostur og stundum galli.“ Hvernig kom það svo til að þú ákvaðst að skella þér í þetta nám? „ Mé r f a n n s t l i s t a h á s k ó l i n n heillandi, fatahönnunardeildin þar er mjög metnaðarfull og kennararnir frábærir. Ég ákvað því að sækja um og komst inn.“ Hvað varstu búin að vera að brasa áður en þú fórst að læra fatahönnun? „Ég hafði starfað hjá Iceland Express í nokkur ár sem flugfreyja. Það var mjög skemmtilegt, þar kynntist ég ótrúlega góðu fólki og fékk tækifæri á að ferðast mikið.“ Hvernig er þessi bransi á íslandi eru miklir möguleikar á að koma sér á framfæri? „Bransinn hér heima er vissulega erfiðari en erlendis en ég held að fólk sé farið að versla meira við unga hönnuði. Það er mikil vitundarvakning hjá fólki um hvaðan flíkurnar koma, hvar þær eru framleiddar og hver kemur að því ferli. Þegar uppi er staðið þá endast vandaðar flíkur betur og verður þar af leiðandi umhverfisvænna

og minni peningasóun fyrir neytandann.“ Útskriftarlínan þín hlaut nokkra athygli, hvernig er það ferli að setja saman svona línu? „Þetta er heilmikið ferli sem margir kannski átta sig ekki á. Í byrjun safnar maður að sér myndum og býr til „moodboard“ til þess að setja saman réttu stemmninguna. Það er margt sem þarf að huga að, hver er týpan sem þú hannar fyrir, hvaða form eru spennandi, litir og fleira. Síðan tekur við skissuvinna og þegar maður hefur teiknað upp línuna og er ánægður með þá hefst sníðagerð og mátanir. Ótrúlega skemmtilegt.“ Hvað er næst á dagskrá hjá þér? „Eftir útskrift var mikil eftirspurn hjá mér og það var því annað hvort að stofna mitt eigið merki og fara í framleiðslu eða þá að fara í meira nám. Námið varð fyrir valinu og ætla ég að koma sterk til leiks á markaðinn í náinni framtíð. “

47


48

fimmtudagur 17. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-viðtal Guðmundur Sigurðsson rannsóknarlögreglumaður tók þátt í kyndilhlaupi í Kaliforníu:

Skokkað með kyndil yfir Golden Gate Bridge - fyrir Alþjóðaleika Special Olympics og gerður að heiðursborgara í Westminster í Kaliforníu

A

lþjóðaleikar Special Olympics (íþróttir þroskahamlaðra) fóru fram dagana 25. júlí til 2. ágúst 2015 í Los Angeles í Kaliforníu. Tíu iðkendur úr röðum NES, íþróttafélags fatlaðra á Suðurnesjum, tóku þátt í leikunum ásamt 32 öðrum keppendum frá Íslandi. Fyrir leikana fór fram Law Enforcement Torch Run for Special Olympics eða kyndilhlaup lögreglumanna fyrir Special Olympics (LETR). LETR eru alþjóðleg samtök lögreglumanna sem hafa tekið það að sér að hlaupa með Olympíulogann fyrir sumar- og vetrarleika Special Olympics, hvort sem það eru Alþjóðaleikar eða Evrópuleikar. Tilgangurinn er að auka almenningsvitund um Special Olympics og afla styrkja fyrir samtökin og hefur LETR safnað yfir 560 milljónum dollara fyrir samtökin sem hefur gert LETR að stærstu regnbogasamtökum heims fyrir Special Olympics. Guðmundur Sigurðsson er rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Hann hefur verið að innleiða kyndilhlaupið hjá lögreglunni á Íslandi síðustu ár. Guðmundur er jafnframt fyrrverandi formaður NES og faðir iðkanda sem tók þátt í Special Olympics. Guðmundur tók þátt í kyndilhlaupinu fyrir sumarleikana í Los Angeles hófst 13. júlí og lauk þegar 115 lögreglumenn og 10 Special Olympics iðkendur frá 48 ríkjum Bandaríkjanna og 24 löndum víðs vegar um heiminn, þar af 11 Evrópureíkjum, báru

Olympíulogann inn á Opnunarhátíð Alþjóðaleikanna 25. júlí í Memorial Colliseum í Los Angeles. Á þessu tímabili bar lögreglan logann inn á 118 borgir og bæi í Kaliforníu og byrjaði í Sacramento. Þessir Alþjóðaleikar Special Olympics voru stærsti íþróttaviðburður heims á þessu ári og stærsti einstaki íþróttaviðburður í Los Angeles síðan Olympíuleikarnir voru haldnir þar árið 1984. 7000 keppendur frá 177 löndum tóku þátt á leikunum þar af 41 keppandi frá Íslandi. „Það var ótrúlega gefandi að taka þátt í þessu verkefni. Það komu mikið af Special Olympics keppendum á atburðina sem voru 5-6 á hverjum degi og með aðstandendum sínum og margir með verðlaunapeningana sína til að sýna okkur. Þau voru svo þakklát að við skulum vera að vekja athygli á þeim. Það eru ekki til ljúfari, einlægari, heiðarlegri og jákvæðari keppendur en í Special Olympics. Þar er ekki aðalmálið að sigra andstæðinginn heldur frekar að sigrast á eigin takmörkunum, fara á sínum hraða og með sínum hætti. Um keppendur Special Olympics spyrjum við ekki hvernig við getum hjálpað þeim heldur hvernig þau geta hjálpað okkur. Við getum lært mikið af þeim,“ segir Guðmundir í samtali við blaðamann. Að hlaupa með kyndil í yfir 100 borgir og bæi hefur verið talsvert fyrirtæki. Hvernig fór þetta fram? „Kyndilhlaupið í Kaliforníu gekk vel fyrir sig og var með þeim hætti að okkur var ekið í rútu um 1-2

km frá miðbæ viðkomandi borgar eða bæjar. Við skokkuðum svo í miðbæinn í tveimur röðum og lögreglumaður og Special Olympics iðkandi í fararbroddi með kyndilinn. Í miðbænum var ávallt vel tekið á móti okkur og alltaf ræður þar sem sagt var frá upplifun af samsstarfi lögreglunnar við Special Olympics og svo var skipst á gjöfum. Ég var t.d. með ræður á tveimur stöðum, Palm Springs og Westminster. Að ræðuhöldum loknum blönduðumst við í hópinn og ræddum við fólkið og að endingu röðuðum við okkur aftur upp, skokkuðum 0.5-1 km upp í rútuna aftur og héldum á næsta stað og svo koll af kolli dagana 13.-25. júlí“. Hvernig móttökur voruð þið að fá þar sem þið komuð? „Það var mikið um að vera á hverjum degi og margir iðkendur Special Olympics á hverjum stað ásamt fólki sem vildi leggja málstaðnum lið og voru lögreglulið og slökkvilið þar ekki undanskilin. Strax á fyrsta degi í borginni Novato höfðu lögreglan og slökkvilið raðað bifreiðunum í göng, þar var lúðrasveit, dansað og fimleikasýning og í San Rafael hafði lögregla og slökkvilið gert það sama. Í Oakland tók hluti af fótboltaliðinu á móti okkur og það sama gerðist í San Francisco þegar við fórum á heimavöll San Francisco 49ers en á þessum velli verður spilaður Super Bowl 2016. Eitt af eftirminnilegustu augnablikunum var þegar við skokkuðum með kyndilinn yfir Golden Gate Bridge í San Francisco. Það vakti gríðarlega athygli og

Guðmundur Sigurðsson rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglunni á Suðurnesjum með kyndil Alþjóðaleika Special Olympic í Los Angeles í Kaliforníu í sumar. Guðmundur tók þátt í að hlaupa með kyndilinn til 118 bæja og borga fyrir leikana og segir hann það hafa verið mikla lífsreynslu.


49

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 17. desember 2015

pósturu vf@vf.is mikið fjallað um það, lögreglubátar undir brúnni og fréttaþyrlur fyrir ofan brúnna, í framhaldinu fórum við með lestarvögnum á bryggjuna Pier 39 með Alcatraz í bakgrunninum og heljarinnar hátíðarhöld á bryggjunni. Og á Union Square í San Francisco tók 40 manna sinfóníuhljómsveit á móti okkur“. Hvað var eftirminnilegast frá Kaliforníuferðinni? „Fyrir mig persónulega voru tvö eftirminnileg atvik. Annars vegar þegar mér var afhentur lykill að borginni Westminster í Kaliforníu en það atvikaðist þannig að ég hélt ræðu um Sigga son minn, slysið sem hann varð fyrir og hvernig aðstæður leiddu hann til Special Olympics og hvað Special Olympics gerði fyrir hann. Það urðu allir snortnir af sögunni og þegar ég var

að ræða við borgarstjórann eftir athöfnina tók hann þá ákvörðun að færa mér lykil að borginni, rauk inn í þinghúsið, sótti lykil og afhenti hann mér hann síðan með viðhöfn. Það var gríðarlegur heiður sem mér var sýndur með þessu og er því núna heiðursborgari í Westminster í Kaliforníu. „Thank you very much“. Og hins vegar þegar síðasta athöfnin var á síðasta deginum að ég hljóp með kyndilinn inn á Santa Monica Pier í Los Angeles og eiginkona mín og tveir synir voru þar ásamt fleirum Íslendingum veifandi íslenska fánanum og voru vitni að því sem ég var búinn að vera að gera í 12 daga“. Guðmundur segir að honum sé mikið í mun að vekja fólk til umhugsunar hvað Special Olympics er, fyrir hvað það stendur. „Hvaða

áhrif getum við haft til að efla það, gera það sterkara því það er vissulega þörf fyrir það. Ég á sjálfur tvo drengi sem eru iðkendur í Special olympics, ég hef verið með LETR hlaup á Íslandi meðal íslenskra lögreglumanna og margir sem vita ekki út á hvað þetta brölt gengur, að hlaupa eitthvað með kyndil en hafa upplifað hvaða áhrif þetta hefur fyrir Special Olympics þá er þetta þess virði. Ef þetta verður til þess að einhver byrjar í íþróttum hjá Special Olympics vegna LETR þá dugar það mér,“ segir Guðmundur Sigurðsson. Hann var á dögunum sæmdur Hvataverðlaunum Íþróttasambands fatlaðra fyrir árið 2015 vegna LETR í þágu fatlaðra. Þetta er í 3. skiptið sem þessi verðlaun eru afhent, t.d. fékk KSÍ þessi verðlaun 2014.

Hópurinn sem tók þátt í kyndilhlaupinu staddur rétt utan við Hollywood.

OP IÐ T TI IL L K JÓ L. LA 22 :0

0

Í hlaupinu var meðal annars komið við á herstöðvum. Hér er hlaupið framhjá herskipi í höfn einnar flotastöðvarinnar.

Full búð af fallegum skóm á alla fjölskylduna Gleðilega hátíð og takk fyrir viðskiptin á árinu. Hafnargötu 29, 230 Reykjanesbær - Sími 421 8585


50

fimmtudagur 17. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-viðtal

pósturu dagnyhulda@vf.is

Ingunn Pálsdóttir við þrjú húsanna. Þegar blaðamann bar að garði var Ingunn búinn að gefa hin sjö húsin.

Gefur börnunum piparkökuhús - Börnin velja sjálf lit á glimmeri

I

ngunn Pálsdóttir hefur í tæplega fjörutíu ár haft þá skemmtilegu hefð að baka piparkökuhús fyrir jólin og gefa börnum í fjölskyldunni. Í ár bakaði hún eitt til að hafa á sínu heimili og tíu í viðbótar til að gefa. „Börnin segja að jólin séu komin þegar ég kem með piparkökuhúsið,“ segir hún. Piparkökuhús Ingunnar eru alltaf skreytt með flórsykri og glimmeri á þakinu og ýmsu fallegu jólaskrauti í kring sem hún föndrar sjálf. Ingunn sigtar flórsykurinn aldrei á húsin fyrr en hún er búin að koma þeim til eigenda sinna því annars gæti hann fokið af á leiðinni. Börnin fá svo að velja um lit á glimmerinu sem fer yfir flórsykurinn á þakinu.

Ingunn hefur alltaf notað sömu uppskriftina sem hún fékk í Vikunni. Eitt sinn gerðist það svo í flutningum að uppskriftin týndist en þá hafði Ingunn samband við Vikuna og fékk nýja. Ekki er úr vegi að fá ráðleggingar frá Ingunni um það hvernig er best að bera sig við piparkökuhúsagerð. Hún segir best að vera alveg í næði á meðan baksturinn fer fram og sjálf svarar hún jafnvel ekki í símann. „Best er svo að nota sykur til að líma samskeytin saman. Ég er með breiða pönnu og dýfi samskeytunum ofan í sykurinn. Svo tekur bara augnablik fyrir sykurinn að grípa og kólna.“ Deigið gerir Ingunn daginn sem baksturinn fer fram og geymir það ekki inn í ísskáp áður. Hún segir best að móta deigið sé sá háttur hafður á. Fallegt piparkökuhús. Ingunn föndraði skrautið í kring.

Hús sem bíður þess að vera flutt á áfangastað. Þegar þangað verður komið setur Ingunn flórsykur og glimmer á þakið.

Ingunn hefur notað sömu uppskriftina í 39 ár. Hana fékk hún í Vikunni á sínum tíma.


51

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 17. desember 2015

-jólatónar

pósturu vf@vf.is

Ellý og smákökurnar hringja inn jólin

Ég veit að jólin eru að nálgast þegar ég heyri þessa plötu heima hjá mömmu og pabba. Yfirleitt fylgir þessari plötu smákökuilmur úr eldhúsinu hjá mömmu. The Ventures - Silver Bells

Fann þessa hrikalega fínu jólaplötu með The Ventures í búð í ameríku einu sinni. Eftir þau kaup hefur

mín

Flugfreyjudótið eftirminnilegasta jólagjöfin María Guðmundsdóttir leikskólakennari er félagi í Kór Keflavíkurkirkju og henni finnast jólin ekki komin fyrr en aftansöngurinn hefur verið sunginn.

Brynjar Leifsson, Gítarleikari hljómsveitarinnar Of Monsters And Men, hlustar alltaf á jólaplötu Sigurðar Guðmundssonar við jólahreingerningarnar. Hann veit að jólin eru að koma þegar Ellý Vilhjálms byrjar að hljóma heima hjá foreldrum hans og smákökuilmur fyllir húsið. Eftirlætis jólalagið er svo með hljómsveitinni Raveonettes Það eru að koma jól - Ellý Vilhjáms

-jólin

Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið? Christmas Vacation er mín ekta jólamynd í mörg ár og ótrúlega fyndin. Sendir þú jólakort eða hefur Facebook tekið yfir? Nei, Fésbókin er notuð villt út og suður til að senda vinum og vandamönnum jólakveðjur en þeir sem ekki eru með tölvur fá jólakort.

þessi plata verið fastur liður yfir hátíðarnar. Nóg af gítar og jólaklukkum, hvers annars gæti maður óskað sér yfir hátíðarnar?

Ertu vanafastur/-föst um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar? Syng yfirleitt alltaf við aftansöng kl. 18.

Sigurður Guðmundsson - Nú Mega jólin koma fyrir mér

Platan „Nú stendur mikið til“ er ein fallegasta jólaplata sem ég hef heyrt. Það er erfitt að velja eitt lag af plötunni en þetta lag er alltaf svo hrikalega gott í jólahreingerningunum. Sniglabandið Jólahjól

Þarf eitthvað að útskýra þetta?

Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Þegar ég var 11 ára fékk ég flugfreyjudót í jólagjöf frá Jóni frænda.

The Raveonettes - The Christmas song

Þetta er uppáhalds hljómsveitin mín og jafnframt uppáhalds jólalagið mitt. Jólin koma ekki án þess að setja þetta nokkrum sinnum á með heitu súkkulaði.

Hægt verður að nálgast jólatóna Víkurfrétta á vefsíðu okkar www.vf.is en þar má meðal annars hlusta á öll lögin á Spotify tónlistarveitunni.

ATVINNA

Er eitthvað eftirminnilegt í huga þér frá yngri árum þínum á jólum? Já, jólaballið og jólaboðið í fjölskyldunni var alltaf gaman. Hvað er í matinn á aðfangadag? Það voru rjúpur. Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Þegar sunginn er aftansöngur í kirkju kl. 18.

Hefur þú verið eða gætir þú hugsað þér að vera erlendis um jólin? Nei. En hef búið í útlöndum og kom heim um jólin. Hvernig brástu við þegar þú komst að leyndarmálinu um jólasveininn? Vonbrigði en samt léttir, það var ekki gaman að vita hvað hann fylgdist með manni hahaha. Áttu þér uppáhalds jólaskraut? Nei ekki í dag en átti lítið jólahús með nöfnu minni og barninu. Löngu týnt í flutningum. Hvernig verð þú jóladegi? Nú í seinni tíð hefur það verið söngurinn í Keflavíkurkirkju, elliheimili og sjúkrastofnun og svo jólaboð.

Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001

KEF seafood óskar eftir handflakara í fiskvinnslu okkar í Reykjanesbæ. Þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Upplýsingar í síma 892 2590, Einar

Óskum Suðurnesjamönnum

gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári

Óskum Suðurnesjamönnum

gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum samstarfið á árinu.


52

fimmtudagur 17. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-

jólaspurningar

Óskum Suðurnesjamönnum öllum

Fer alltaf á jólatónleika

með þökk fyrir árið sem er að líða

María Magdalena Birgisdóttir Olsen jógakennari er vanaföst á aðventunni og byrjar aldrei að skreyta fyrr en eftir 10. desember. Hún borðar alltaf lambakótilettur á aðfangadagskvöld og lætur þær malla frá hádegi. Faðir hennar hefur borðað lambakótilettur á aðfangadagskvöld síðan hann var barn og ætlar María að halda hefðinni við.

gleðilegra jóla, árs og friðar

Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið? Love Actually er alltaf jafn falleg og ómissandi sem jólamyndin ár eftir ár. Sendir þú jólakort eða hefur Facebook tekið yfir? Facebook hefur tekið voða mikið yfir en síðan sendi ég nokkur kort til fólks sem er ekki á Facebook. Ertu vanaföst um jólin, er eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar? Já ég er mjög vanaföst á aðventunni, til dæmis hringi ég í vini og ættingja sem búa erlendis eða ekki nálægt mér og óska þeim gleðilegra jóla. Ég fer alltaf á jólatónleika og byrja að skreyta um 10. desember en ekki fyrr. Ég les bók eða bækur sem ég fæ í jólagjöf. Yfir jólin fæ ég vini í kaffisopa og spjall. Á aðfangadag kenni ég Jóga eða Foam Flex í Sporthúsinu.

/Lobster-Hut // s. 772-1709

Kæru Suðurnesjamenn Hjartans oskir um gleðileg jol og farsælt nýtt ár Takk fyrir frabæra ljósanótt og hittumst vonandi hress og svöng á nýju ári. Jólakveðja stelpurnar í Lobster-Hut

Hvað er í matinn á aðfangadag? Á aðfangadag byrjum við að hlusta á klukkurnar hringja inn jólin í útvarpinu og óskum hvort öðru gleðilegra jóla með kossum og faðmlögum. Við byrjum á því að borða kaldan grjónagraut með safti og einni möndlu í og sá sem fær möndluna fær gjöf en það má ekki gefa upp hver fékk hana fyrr en allir eru búnir að borða grautinn. Síðan eru alltaf lambakótilettur í raspi sem eru látnar malla frá

Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um

gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári! Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða!

REYKJANESBÆ

Grindavík

klukkan 13:00. Þessi matur hefur verið í jólamatinn frá því að faðir minn var barn og held ég í hefðina. Meðlæti eru brúnaðar kartöflur, grænar baunir, rauðbeður og salat ásamt ýmsu öðru. Í eftirrétt eru svo kokteilávextir, ís og rjómi. Svo hlustum við á messu og byrjum að borða klukkan 18:00. Dætur mínar borða ekki kjöt og meðan þær bjuggu heima þá var hnetuhleifur með sveppasósu ásamt ýmsu öðru góðgæti eldaður fyrir þær. Ég hugsa að ég borði það einnig þessi jól þar sem ég er boðin í mat til yngri dóttur minnar og fjölskyldu á aðfangadag en tek kótiletturnar með fyrir pabba og mig. Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Á aðfangadag kl. 18:00. Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Gjöfin sem móðir mín gaf mér síðustu jólin hennar hjá mér og jólin þar á eftir þegar pabbi gaf mér hálsmen sem er eins og tár með demöntum í með þeim orðum að öll mín tár sem ég hef grátið um ævina væru í þessu hálsmeni. Áttu þér uppáhalds jólaskraut? Það er kirkja sem Olav Olsen afi smíðaði og hefur fylgt mér öll mín ár og einnig gamlir pappa jólasveinar sem einnig eru frá afa Olsen.

Hvernig verð þú jóladegi? Á jóladag fæ ég alla fjölskylduna mína til mín. Dóttur mína ásamt hennar fjölskyldu, bræður, systkinabörn og þeirra börn í mat. Fullt hús af fólki sem er mér svo kært og ég elska mest í heimi. Það er mikið hlegið og haft gaman þegar við öll hittumst og tók ég við hefðinni að hafa jólaboðið eftir að mamma kvaddi okkur.


2015 Skafmiðaleikur Víkurfrétta og verslana á Suðurnesjum

NÚ BORGAR SIG AÐ SKILA

Jólalukku miðum í Nettó eða Kaskó því það verður dregið 4 sinnum í desember og meðal vinninga eru

4 STK. IPHONE 6S 2 STK. 120.000,- KR GJAFABRÉF

FRÁ NETTÓ 4 STK. ICELANDAIR FERÐAVINNINGAR 10 STK. 10.000,- OG 4 STK. 15.000,- KR. GJAFABRÉF FRÁ NETTÓ Í NJARÐVÍK OG GRINDAVÍK 20 STK. KONFEKTKASSAR

MEÐAL 6.000 VINNINGA: 11 ICEALANDAIR ferðavinningar 55” Finlux LCD sjónvarp frá Nettó Vegleg gjafakort í Bláa Lónið 90 jólabækur m.a. eftir Arnald Indriaðson og Yrsu 60 KEA hamborgarhryggir og hangilæri 100 pulsur og kók á Pylsuvagninum 50 máltíðir á KFC 50 snúðar og Héðinsbollur frá Sigurjónsbakaríi

50 bíómiðar í Sambíó 4 þúsund 2 lítra Coca Cola eða Egils Appelsín Sporthúsið 12. stk mánaðarkort 200 ísar í brauðformi á Bitanum 15 Fjarþjálfun í 4 mánuði frá einka.is 30 pizzatilboð frá Langbest 20 pizzatilboð frá Fernando’s 10 samklokur og djúsar frá Lemon 20 Hlöllabátar 12” bátar og gos 15 Langloka og Coke Olsen Olsen og vegleg gjafabréf frá verslunum

VINNINGSHAFAR Í ÖÐRUM ÚTDRÆTTI Iphone 6s - Margrét Hróarsdótti, Grænásbraut 1218, Reykjanesbæ Icelandair ferðavinningur - Linda Agnarsdóttir, Sunnubraut 3, Grindavík 15 þús. kr. Nettó-gjafabréf - Sædís Jóhannsdóttir, Sjávargötu 30, Reykjanesbæ 10 þús. kr. Nettó-gjafabréf - Agnes María Pétursdóttir, Efstahrauni 9, Grindavík 10 þús. kr. Nettó-gjafabréf - Hrönn Ágústsdóttir, Heiðarhrauni 33 B, Grindavík

Dregið verður 4 sinnum og tilkynnt um vinningshafa á vf.is og í prentútgáfu Víkurfrétta.

TUTTUGU VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUAÐILAR Á SUÐURNESJUM BJÓÐA UPP Á JÓLALUKKU VF Í FIMMTÁNDA SINN.

Ef þú verslar fyrir 5.000,- kr. eða meira færðu skafmiða sem getur fært þér veglegan vinning. Skilaðu skafmiða með engum vinningi í verslun Nettó eða Kaskó og þú átt annan möguleika á úrdráttarvinningi.

FJÓRIR ÚRDRÆTTIR 9., 16., 21. OG 24. DESEMBER.


54

fimmtudagur 17. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-mannlíf

pósturu vf@vf.is

BJUGGU TIL PIPARKÖKUFLUGSTÖÐ

S

tarfsmenn á skrifstofu Isavia héldu á dögunum keppni um það hvaða deild gæti búið til bestu jólaskreytinguna. Starfsmenn hverrar deildar sköpuðu í sameiningu sína skreytingu og var skipuð sérstök dómnefnd sem skar úr um þá bestu. Mannauðssviðið bar sigur úr býtum en skreyting þeirra var jata með heyi, Jesú barni, vitringum og öðru tilheyrandi. Viðskiptadeildin hafnaði í öðru sæti og réðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur og endurgerði flugstöðina og allt hennar nánasta umhverfi í formi piparkökuflugstöðvar.

Viðskiptadeild Isavia á heiðurinn að piparkökuflugstöðinni.

Hér má sjá rana og suðurbyggingu og vél Icelandair.

Þotuhreiðrið á sínum stað við flugstöðina.

Starfsfólk mannauðssviðs bjó til jötu og brá sér í hlutverk Jesú barnsins, vitringa, Maríu og Jósefs.


55

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 17. desember 2015

-jólin

mín

Krump-lakkstígvél og veski í stíl

Sendum íbúum Sandgerðis bestu óskir um

gleðileg jól og farsælt nýtt ár

Rúna Kærnested Óladóttir var á því að vera bara titluð sem „amma gull“. Hún hefur aldrei getað hugsað sér að halda jólin erlendis og vill frekar vera í faðmi sinna nánustu. Hún notar einnig tækifærið til að senda öllum óskir um gleðilega hátíð. Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið? Það er óneitanlega The Holiday með Cameron Diaz og Kate Winslet. Sendir þú jólakort eða hefur facebook tekið yfir? Verð að viðurkenna að Facebook hefur algjörlega tekið yfir, eins og ég sendi alltaf mörg kort. Ertu vanaföst um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar? Já ég myndi segja að ég væri frekar vanaföst í samb við jólin, það er nánast allt sem ég geri jól eftir jól. Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Eftirminnilegasta gjöfin, þegar stórt er spurt… Ég held að ég fari bara aftur til 8 ára þegar ég plataði ömmu til að gefa mér hvítu „krump-lakk-stígvélin“ sem ég sá ekki sólina fyrir og hvítt veski í stíl. Er eitthvað eftirminnilegt í huga þér frá yngri árum þínum á jólum? Eiginlega ekkert sérstakt þannig, jólin voru bara alltaf yndisleg hjá mömmu og pabba með systkinum mínum, svo alltaf farið eftir pakkaopnun til afa og ömmu í stóra appelsínugula rjúpupottinn í eldhúsinu hjá ömmu þegar líða fór á kvöldið. Ógleymanlegt. Hvað er í matinn á aðfangadag? Alltaf rjúpur og líka hamborgarhryggur fyrir Sunnu Dís því henni finnast rjúpurnar ekkert spes. Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Jólin eru komin þegar rjúpu og rauðkáls lyktin fer að ilma um húsið á aðfangadag, ekki spurning. Hefur þú verið eða gætir þú verið hugsað þér að vera erlendis um jólin?

Ég hef aldrei getað hugsað mér að vera erlendis um jólin, alltaf viljað vera í faðmi minna nánustu, en hver veit ævina fyrr en öll er. Hvernig brástu við þegar þú komst að leyndarmálinu um jólasveininn? Ég varð ótrúlega sár, man það. Áttu þér uppáhalds jólaskraut? Jólatréð er eiginlega uppáhalds Hvernig verð þú jóladegi? Jóladagur... sef út, borða afganga og skoða gjafirnar og lesum jólakortin. Steini bróðir minn á afmæli á jóladag svo jóladagur er alltaf tvöfaldur hátíðardagur. Mamma og pabbi bjóða okkur systkinunum, mökum, börnum og nú barnabörnum í mat á jóladagskvöld sem er ómetanleg samverustund.

Bestu jóla- og nýárskveðjur sendum við til ættingja og vina með þakklæti fyrir liðnar stundir

Heimilisfólk og starfsmenn Hrafnistu Reykjanesbæ

Óskum Suðurnesjamönnum

gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári


56

fimmtudagur 17. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-viðtal

úr Garðinum FyrirþrjátíuárumkomustVíðismennuppíefstudeildkarlaíknattspyrnu.FélagiðvarnánasteingönguskipaðheimamönnumsemæfðuátúninuviðGarðskaga og spiluðu á malarvelli.Víðismenn léku í þrjú ár samfleytt í efstu deild, fjögur ár alls, og komust í sjálfan bikarúrslitaleikinn árið 1987. Það er ekki hægt annað en að tala um rómantík og öskubuskusögu þegar afrek Víðispilta eru rifjuð upp á þessum tíma.Með frábærum anda og eljusemi tókst þeim að komast í röð þeirra bestu. Guðjón Guðmundsson var fyrirliði liðsins á þessum árum en hann lék á miðjunni. Hann var mikill leiðtogi á velli og kraftmikill leikmaður sem spilaði stóra rullu í uppgangi félagsins, Hann rifjar þessa tíma upp með bros á vör og lygnir aftur augunum. Það er augljóst að hann á hlýjar minningar úr boltanum. Hann gantast og kallar úrklippubækurnar montbækur þegar hann flettir í gegnum þær og segir blaðamanni frá einstaka leikjum og afrekum. Strákar sem voru tilbúnir að leggja á sig Af hverju verða svona margir góðir leikmenn til á sama tíma þarna í Garðinum? „Síður en svo er það aðstöðunni að þakka. Ætli það sé ekki áhuginn á þessari blessuðu íþrótt. Þegar Eggert Jóhannsson kemur til okkar í kringum 1980 þá kemur hann með þetta rosalega æfingaálag með sér. Hann tekur í raun við keflinu af Sigurði Ingvarssyni sem sem hafði alið upp marga af þessum strákum sem voru að koma upp á þessum tíma. Eggert breytti viðhorfinu hjá okkur. Þarna koma bara margir strákar upp sem voru tilbúnir að leggja á sig. Við náðum þó ekki að komast langt undir hans stjórn og það var ekki fyrr en Haukur Hafsteins kom til okkar frá Keflavík árið 1982 sem árangur náðist. Hann kenndi okkur fótbolta. Þ.e.a.s. skipulag og varnarleik. Við flutum áfram á þessu sem hann kenndi okkur alveg öll þessi ár, það er bara staðreynd. Við fórum strax upp um deild með Hauki og vorum því komnir í næst efstu deild. Haukur fór þá yfir til Keflavíkur og ég fór nánast með honum. Ég fékk einhverja bakþanka og hætti við,“ segir Guðjón þegar hann rifjar upp upphafið að þessu öllu saman. „Við vorum bara þrælgóðir ef ég á að segja eins og er. Við náðum þeim góða árangri að spila 18 leiki, fengum 27 stig með markatöluna 14-12. Þá fóru allir leikir 1-0 eða 0-0,“ segir Guðjón og hlær. Það dugði þeim í þriðja sæti og ekki fóru þeir í efstu deild

það árið. „Þegar við lékum undir stjórn Hauks árið 1983 þá höfðum við getuna en höfðum ekki trú á þessu,“ bætir Guðjón við. Fótboltinn var eina íþróttin sem stunduð var í Garðinum á þessum tíma og mikill metnaður var lagður í starfið í kringum félagið. Það skýrir líklega að einhverju leyti þennan mikla uppgang. Liðið lék lengst af í 3. deild þar til árið 1982 að liðið vann sér sæti í 2. deild. Liðið náði 3.-4. sæti í deildinni árið 1983 og var grátlega nærri því að koma sér upp í 1. og efstu deild. Í deild þeirra bestu Framarinn og landsliðsmaðurinn Marteinn Geirsson tók við liðinu í næst efstu deild árið 1984 og kom því upp á meðal þeirra bestu á sínu fyrsta ári sem þjálfari. Hann lék einnig með liðinu. Liðið var í toppbaráttu allt tímabilið og það var allt undir þegar liðið mætti grönnum sínum frá Njarðvík í síðustu umferð. Víðismenn höfðu 2-1 sigur á heimavelli sínum. Þeir Klemenz Sæmundsson og Guðmundur Knútsson skoruðu fyrir Víði. Spilað á mölinni og úti á skaga Heimavöllurinn var úti við Garðskaga á þessum tíma, í námunda við þar sem æfingasvæðið hjá liðinu er núna. „Þarna var engin aðstaða. Ekki einu sinni eitt klósett. Þarna lékum við þrjá leiki í efstu deild við engin smá lið eins og Fram og Keflavík. Á þessum leikjum voru að mig minnir um 1500 manns. Maggi Gísla heitinn skrifaði í DV að fleiri áhorfendur

Víðsmenn fagna innilega sigri gegn Íslandsmeisturum Vals í bikarkeppninni 1987.

hefðu verið á leiknum en byggju í Garðinum,“ segir Guðjón. Það stendur heima. Magnús ritaði í DV árið 1985 að íbúar í Garðinum hafi verið þá 1028 en um 1500 manns hafi mætt á leik liðsins gegn Keflavík út við Garðskagavita. Að meðaltali mættu um 650 á leiki hjá Víðismönnum það árið. Fyrsti leikurinn í efstu deild var gegn FH á malarvellinum sáluga en Hafnfirðingar sigruðu þar 0-1 í hátíðarstemmningu. Svo var gefin

undanþága fyrir því að fara út á Garðskaga og spila á grasbalanum þar fremur en á mölinni. Skömmu áður hafði verið hafist handa við að leggja nýjan völl sem var tekinn í notkun seinna um sumarið 1985. Það er völlurinn sem leikið er á enn þann dag í dag. „Ég er þó ansi hræddur um að við fengjum ekki að spila í efstu deild þar í dag, eflaust þyrfti að bæta aðstöðuna enn frekar,“ segir Guðjón og hlær.

Nánast bara heimamenn Eins og áður segir var liðið bara skipað ungum uppöldum leikmönnum. „Ef ég er mjög grófur, ég veit að Óli Róberts verður ekki of ánægður með mig, ef ég tek hann ekki sem Garðmann á þeim tíma þó hann sé það vissulega í dag. Þá vorum við allir Garðbúar fyrir utan hann og Martein Geirsson sem fórum upp í efstu deild. Þegar við fórum svo upp þá bættust við Gísli Eyjólfsson frá Keflavík (Garð-


57

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 17. desember 2015

pósturu eythor@vf.is orði að það hefði verið slys að Víðismenn hafi farið upp í efstu deild, en það hafi verið stórslys að þeir hafi haldið sér þar uppi. Svo mega menn túlka þetta hvernig sem þeir vilja, hvort hann hafi verið að gera lítið úr okkur eða að upphefja okkur. Líklega var hann að gera bæði.“ Eins sagði Ellert Schram formaður KSÍ á þeim tíma, að þessi árangur Víðismanna væri ekki ósvipaður því að Ísland kæmist á stórmót í knattspyrnu, sem þótti óhugsandi árið 1984. Liðið var ungt og öflugt. Þegar liðið fór upp í efstu deild þá var Guðjón 24 ára og var hann þá þriðji elstur í liðinu, elsti maðurinn var 27 ára. Þetta voru bara einn og tveir strákar úr hverjum árgangi og þessir leikmenn voru kjarninn í þessu svokallaða gullaldarliði Víðis. Árið 1986 kemur Kjartan Másson til sögunnar og þjálfar liðið. „Þá vorum við aldrei í botnbaráttu. Við töpuðum nokkrum leikjum undir lokin en höfnuðum í 7. sæti,“ en það er besti árangur liðsins frá upphafi.

Fyrirliðarnir bregða á leik: Guðjón Guðmundsson Víðismaður og Pétur Ormslev Framari hita upp fyrir bikarúrslitin.

maður) Einar Ásbjörn og Rúnar Georgsson sem eru Keflvíkingar. Það varð allt vitlaust þegar þeir komu yfir. Það var mikið skrifað um þetta á sínum tíma í Víkurfréttum ef ég man rétt.“ Stórslys að þeir hafi haldið sér uppi

Víðismenn héldu sér naumlega uppi fyrsta árið og réðust úrslitin í fallbaráttunni ekki fyrr en í síðustu umferð. Guðjón man vel eftir því að þetta var talið þokkalegt afrek á sínum tíma þó margir hafi ekki haft hátt um það. „Ég lenti einu sinni á tali við nokkra stjórnarmenn Framara. Þar hafði einn á

Leiðin á Laugardalsvöll Víðsmenn héldu sér uppi tvö fyrstu árin, tímabilið 1985 og 1986. Svo kemur tímabilið 1987 þar sem Víðsmenn koma landsmönnum öllum algjörlega á óvart. Þá var Haukur Hafsteins kominn aftur við stjórnvölinn. Þá hófst bikarævintýri sem rennur Garðbúum, sem komnir eru á besta aldur, seint úr minni. Fyrst lá leiðin á Neskaupsstað þar sem Þróttarar voru til viðureignar. Garðbúarnir úr efstu deild voru nokkuð sigurvissir en þurftu að knýja fram sigur með

Silfurtúns bræður

B

ræðurnir Grétar, Halldór, Vilhjálmur og Daníel Einarssynir léku allir með liðinu þegar það fór upp í efstu deild. Reyndar voru þeir sex talsins bræðurnir sem léku með meistaraflokki nokkrum árum áður en þá voru þeir Snorri og Þorsteinn einnig í hópnum. Það hlýtur að vera einsdæmi að svo margir bræður leiki með einu og sama liðinu í nokkurri hópíþrótt hérlendis. „Ég held að það sé á engan hallað að segja að Grétar Einars hafi verið hæfileikaríkastur í þessum hópi. Grétar var okkar aðal ás. Svo var Danni þarna helvíti öflugur og Villi líka. Annars var þetta gríðarlega sterk liðsheild,“ segir fyrirliðinn fyrrum, Guðjón Guðmundsson.

Þar hafði einn á orði að það hefði verið slys að Víðismenn hafi farið upp í efstu deild, en það hafi verið stórslys að þeir hafi haldið sér þar uppi

framlengingu. Næstir í röðinni voru svo KR-ingar. „Það var bara nokkuð sannfærandi sigur gegn KR,“ rifjar Guðjón upp en Víðsmenn unnu 2-0 sigur á efsta liði deildarinnar með mörkum frá Hlíðari Sæmundssyni og Grétari Einarssyni. Valsmenn voru næstu fórnarlömb. Þeir voru Íslandsmeistarar á þessum tíma og með gríðarlega öflugt lið. Þeir pressuðu Víðismenn stíft allan leikinn en þeir náðu að hanga á sigri eftir að Vilberg Þorvaldsson hafði skorað eina mark leiksins. Enn eitt stórveldið var á vegi Víðismanna - en nú voru það Framarar í sjálfum úrslitaleiknum. „Að mínu mati voru þeir með langbesta lið landsins á þessum tíma. Pétur Ormslev var þarna upp á sitt besta. Pétur Arnþórs, Guðmundur Steinsson og Keflvíkingurinn Ragnar Margeirsson voru meðal lykilmanna.“ Fram vann leikinn 5-0 og áttu Víðismenn aldrei möguleika. Guðjón segir að þeir hafi hreinlega farið á taugum. Mun þetta vera stærsta tap í sögu bikarúrslitanna en Guðjón vill síður rifja það upp. „Jafn skart niður og við fórum upp“ Eftir bikarúrslitin féllu Víðismenn loks niður um deild. Það mátti engu muna en það var aðeins markatalan sem felldi Garðbúana. Þeir þurftu að vinna KR með þriggja marka mun í síðustu umferð en unnu aðeins 2-0. „Við vorum bölvaðir klaufar að skora ekki þriðja

markið því við vorum miklu betri í þessum leik. Hann hefði hæglega getað endað 6-0.“ Árið 1990 komu Víðismenn aftur upp í efstu deild með látum. Þeir slógu stigamet í 2. deild og skildu m.a. Keflvíkinga eftir í næstefstu deild. Stigametið lifði að vísu ekki lengi þar sem Skagamenn, með þá tvíburabræður Arnar og Bjarka í fararbroddi, slógu þeim við ári eftir. „Það var ofboðslega gaman þarna í 2. deildinni þegar við fórum upp. Sjálfstraustið var alveg í botni og maður sá hvað það hefur mikil áhrif, flytur fjöll alveg hreint.“ Seinna skiptið í efstu deild þá hrundi botninn úr þessu hjá Garðbúum. „Ég held að við höfum verið orðnir þreyttir hver á öðrum. Ég upplifði það þannig. Þetta hrundi hálfpartinn og við féllum með stæl. Árið eftir féllum við svo aftur um deild og því má segja að við höfum farið jafn skart niður og við fórum upp,“ segir Guðjón og hlær. „Það er ofboðslega ljúft að rifja þetta upp og gaman hvað strákarnir muna mikið eftir þessu,“ segir Guðjón en liðið hefur hist nokkrum sinnum og haldið upp á það þegar áfanginn náðist árið 1984. Hann segir að það sé þó orðið langt síðan síðast. „Þetta gaf okkur alveg helling, Við vorum saman alveg í áratug þessir strákar og það var mjög gaman. Við skemmtum okkur mikið saman. Þetta hefði aldrei dugað svona lengi ef hópurinn hefði ekki verið svona góður.“


58

fimmtudagur 17. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR Undir það síðasta: Liðið sem fór aftur upp í efstu deild árið 1990. Kjarninn ennþá sá sami og 1984.

Víðir Sigurðsson höfundur bókanna Íslensk knattspyrna, allt frá árinu 1983, telur afrek Víðsmanna vera meðal þeirra merkustu í íslenskri knattspyrnusögu:

Einstakt hjá Víði

Æ

vintýri Víðismanna á níunda áratug síðustu aldar var einstakt á þeim tíma því þeir voru fyrsta liðið sem hafði verið venjulegt 3. deildarlið frá stofnun sem fór upp í efstu deild. Þeir gerðu meira en að fara upp því þvert ofan í allar spár voru þeir í þrjú ár samfleytt í efstu deild, fjögur ár alls, og komust í bikarúrslitaleik sem þýddi að þeir voru einum leik frá Evrópukeppni. Nú eru liðnir þrír áratugir frá þessum gullárum Víðismanna en það er fyllsta ástæða til þess að halda árangri þeirra á þessum tíma á lofti. Þetta gerðu þeir með öflugum kjarna af heimamönnum sem ég

kynntist sjálfur með því að spila nokkrum sinnum á móti þeim á þessum árum og Garðurinn komst þarna á Íslandskortið með eftirminnilegum hætti. Afrekið hjá þessu litla en öfluga félagi, sem náði að vera sjöunda besta lið landsins árið 1986 er meira en margir átta sig á. Þetta var gert með dugnaði, fórnfýsi og harðfylgi þessara stráka sem voru tilbúnir til að leggja á sig það sem þurfti. Um leið held ég að þeir hafi vakið mörg önnur minni félag til vitundar um að það væri hægt að komast í hóp „stóru liðanna,“ enda áttu fleiri lið eftir að fylgja í kjölfarið á næstu árum, eins og Grindavík, Fylkir, Leiftur og Skallagrímur, svo einhver séu nefnd.

Grétar Einarsson skorar gegn KR. Guðjón Guðmundsson er tilbúinn að fagna.

Eftir sigur í Njarðvík 1984: Þessir piltar sáu um að koma Víðismönnum í efstu deild.

Þ

að er athyglisvert að nokkrir þessara leikmanna léku enga leiki í yngri flokkum m.a. Guðjón og Daníel Einarsson sem aldrei léku með yngri flokkum Víðis á Íslandsmóti. „Ég fékk að fara á æfingar með meistaraflokki 14 ára gamall. Annars var það bara bolti á túnum þar sem við spiluðum út í eitt. Jafnan var farið og spilað á móti strákum í Vesturbænum í Keflavík á túnum þar sem Grófin er núna,“ segir Guðjón. Það er líka áhugavert að hugsa til þess að bestu leikmenn Víðismanna frá upphafi voru ekki hluti af þessum liði. Jóhann Birnir Guðmundsson hóf ferilinn með Víði áður en hann fór til Keflavíkur og síðar í atvinnumennsku. Guðjón Árni Antoníusson hefur svo átt mjög farsælan feril í úrvalsdeild. Eftirtaldir leikmenn skipuðu hópinn fyrsta sumarið í efstu deild

árið 1985, en það er skemmtilegt að sjá hvernig þetta var sett upp í DV á sínum tíma með starfsheitum leikmanna: Gísli Heiðarsson, 20 ára verslunarmaður, markvörður. Sævar Júlíusson, 25 ára trésmiður, markvörður. Helgi Sigurbjörnsson, 22 ára verkamaður, varnarmaður. Gísli M. Eyjólfsson, 30 ára sölustjóri, varnarmaður. Sigurður Magnússon, 24 ára trésmiður, varnarmaður. Ólafur Róbertsson, 22 ára rafvirki, varnarmaður. Rúnar Georgsson, 21 árs verslunarmaður, varnarmaður. Hjörtur Davíðsson, 19 ára verkamaður, varnarmaður. Halldór Einarsson, 27 ára verkamaður, varnarmaður. Guðjón Guðmundsson, 25 ára trésmiður, tengiliður og fyrirliði liðsins. Daníel Einarsson, 25 ára verkamaður, tengiliður.

Einar Ásbjörn Ólafsson, 26 ára lögreglumaður, tengiliður. Vilhjálmur Einarsson, 24 ára verkamaður, tengiliður. Vilberg Þorvaldsson, 22 ára sjómaður, tengiliður. Klemens Sœmundsson, 21 árs nemi, tengiliður. Björn Vilhelmsson, 20 ára trésmiður, tengiliður. Pálmi Einarsson, 30 ára trésmiður, tengiliður. Grétar Einarsson, 20 ára verkamaður, framlínumaður. Sverrir Þorsteinsson, 18 ára nemi, framlínumaður. Guðmundur Jens Knútsson, 29 ára rafvirki, framlínumaður. Marteinn Geirsson, fyrrum landsliðsmaður úr Fram, þjálfari. Sigurður Ingvarsson aðstoðarþjálfari. Gunnar Hasler liðsstjóri. Tryggvi Einarsson liðsstjóri. Magnús Þór Magnússon liðsstjóri. Júlíus Baldvinsson formaður knattspyrnudeildar.

Garðurinn komst þarna á Íslandskortið með eftirminnilegum hætti. Afrekið hjá þessu litla en öfluga félagi, sem náði að vera sjöunda besta lið landsins árið 1986 er meira en margir átta sig á.


59

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 17. desember 2015

-

jólin mín

Er mjög dugleg að borða í eldhúsinu yfir hátíðarnar

FRÍTT Á LEIKINN Í BOÐI

María Rose Bustos er 19 ára Keflavíkurmær. Hún var að útskrifast úr FS og ætlar sér að vera dugleg að borða yfir hátíðarnar. Die Hard er uppáhalds jólamyndin og hún ætlar sér ekki að borða skötu á Þorláksmessu. Jólahefðir hjá þér? Ég er ekki beint vanaföst manneskja en það er sumt sem ég hreinlega get ekki sleppt að gera á jólunum. Ég þarf t.d. alltaf að horfa á Breakfast at Tiffany‘s á aðfangadegi og borða Mars kökurnar hennar mömmu á meðan. Síðan er eitt sem fjölskyldan hefur alltaf gert frá því að ég man eftir mér en það er að við vöknum eldsnemma á jóladag og kíkjum í sokkinn okkar þar semvið fáum að sjálfsögðu líka frá bandaríska jólasveininum. Ertu dugleg í eldhúsinu yfir hátíðarnar? Ég er mjög dugleg að borða í eldhúsinu yfir hátíðarnar. Telst það með? Hvar kaupir þú jólagjafirnar? Það fer eiginlega eftir ýmsu, ég get ekki sagt að ég sé með einhverja ákveðna staði þar sem ég kaupi alltaf jólagjafirnar. Gefur þú mikið í jólagjöf? Í allri hreinskilni sagt þá þarf ég alveg að fara að bæta jólagjafakaupin mín. Þetta er orðið það slæmt að ef að mér tekst að gefa mömmu jóla-

gjöf þá er ég sátt. Ég verð vonandi orðin betri í þessu eftir nokkur ár, en örugglega ekki samt. Hver er besta jólamyndin? Ég verð eiginlega að segja Die Hard. Ég elska samt líka Grinch því hann er krúttlegur og grænn. Hvaða lag kemur þér í jólaskap? Besta jólalag allra tíma er án efa Baby, It‘s Cold Outside með Dean Martin og Martina McBride. Það er algörlega ómögulegt að hlusta á þetta lag án þess að komast í jólagírinn. Hvernig er dæmigerður aðfangadagur hjá þér? Ég leyfi mér oftast að sofa smá fram eftir og síðan förum við fjölskyldan til ömmu í matarboð. Eftir það förum við oftast að skutla pökkunum á rétta staði ef það er eftir (og það er oftast) og síðan horfi ég á Breakfast at Tiffany‘s með Mars kökurnar í rólegheitunum á meðan restin af fjölskyldunni er sveitt við að undirbúa jólin. Varstu ekki annars bara að tala um daginn eða líka kvöldið hehe?

Hvað er í matinn á aðfangadag? Þetta eru fyrstu jólin mín sem grænmetisæta þannig að ég ætla að elda mér hnetusteik. Ég er að biðja til Guðs að það heppnist hjá mér. Hvað langar þig í jólagjöf? Ég er það mikill lúði að mig langar alveg gríðarlega mikið í safapressu, hef samt ekki hugmynd af hverju og ég kem mest líklegast aldrei til með að nota hana. Eru einhverjar hefðir í kringum Þorláksmessu hjá þér? (Borðar þú skötu?) Nei, í rauninni ekki og þar sem ég er grænmetisæta þá borða ég ekki skötu en ég gerði það ekki heldur áður en ég varð það. Oj, lyktin er nógu vond.

FIMMTUDAGINN,

17. DESEMBER KL. 19:15 GRILLAÐIR HAMBORGARAR FYRIR ALLA HEIMALEIKI

www.vf.is

OPNUNARTÍMI VERSLANA

VERSLUM HEIMA! -HAGUR Í HEIMABYGGÐ

JÓLASVEINAR SPRELLA UM BÆINN Föstudaginn 18. des. Laugardaginn 19. des. Þriðjudaginn 22. des. Miðvikudaginn 23. des. og kl. 20:00 - 23:00

kl. 15.00-17.00 kl. 15.00-17.00 kl. 15.00-17.00 kl. 15.00-17.00

FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER LAUGARDAGUR 19. DESEMBER SUNNUDAGUR 20. DESEMBER MÁNUDAGUR 21. DESEMBER ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER

KL. 10:00-22:00 KL. 10:00-22:00 KL. 10:00-22:00 KL. 13:00-22:00 KL. 10:00-22:00 KL. 10:00-22:00 KL. 10:00-23:00 KL. 10:00-12:00

Stærstu styrktaraðilar jóladaga eru:


60

fimmtudagur 17. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-jólin

mín

Ef þú lendir í tjóni þá sér Bílnet um málin ! Hjá Bílneti færð þú bestu viðgerð og þjónustu sem völ er á. Bílnet er gæðavottað verkstæði og með 5 stjörnur frá Sjóvá. Bílnet leggur áherslu á fagleg og snögg vinnubrögð. Við notum einungis vottað hágæða lakk frá Du Pont í samstarfi við Poulsen.

Gleðileg jól og farsælt komandi ár Þökkum viðskiptin á árinu sem eru að líða Þjónusta í boði hjá Bílneti

Bílasprautun - Bílaréttingar - Tjónaskoðun - Plastviðgerðir Bílrúðuskipti - Mössun - Sprautulökkun

• Brekkustíg 38 • 260 Reykjanesbær • Sími: 420-0040 • GSM: 698-5693 • Bílasprautun • Réttingar • Sprautulökkun • Plastviðgerðir • Mössun • Bílrúðuskipti

Jólin byrja strax eftir verslunarmannahelgi

Bílnet ehf. - 420 0020 - Brekkustíg 38 - 260 Reykjanesbæ - www.bilnet.is

Atli Sigurður Kristjánsson er mikið jólabarn. Hann á það til að halda fast í hefðir. Þannig þykir honum notalegt að hitta fjölskylduna og horfa á myndir á Þorláksmessu eins sem hann telur að jólakortagerð sé nauðsynlegur hluti af jólunum. Hvaða jólamynd kemur þér í jólaskapið? Þetta er erfið spurning, en ég verð að segja It's a wonderful life. Sá hana ekki alls fyrir löngu og hún er afskaplega falleg. Home Alone er svo nauðsynlegur partur af jólunum. Sendir þú jólakort eða hefur facebook tekið yfir? Að skrifa jólakort er nauðsynlegur partur af jólum, sjálfur er ég ekki byrjaður en það er eitthvað töfrandi við það að setjast við skriftir og hlýða á fallega jólasöngva, svo má ekki gleyma að brenna smá greni með. Að því sögðu, mun ég aldrei notast við Facebook til að senda jólakveðjur, skemmtilegra er að gefa sér tíma til að gera þetta aðeins persónulegra. Ertu vanafastur/föst um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar? Ég á það alveg til að halda í sumar hefðir, en dæmi um það er að mér finnst nauðsynlegt að horfa á jólamyndir og hitta fjölskylduna á Þorláksmessu. Svo er bráðnauðsynslegt að grípa í gítarinn og syngja jólalög með fjölskyldunni.

Starfsfólk Olís óskar Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári með þökk fyrir viðskiptin og samskiptin á árinu sem er að líða.

ódýrt bensín Fitjabakka 2-4

Fitjabakka Njarðvík

Básinn Vatnsnesvegur 16

Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Ég á margar eftirminnilegar en sú minning sem er mér nærst er þegar ég var 5 ára, þá fengum ég og Ívar, tvíburabróðir minn, bílabraut í jólagjöf frá Mömmu og Pabba. Að auki var okkur boðið að vaka lengur til að leika okkur með bílabrautina, þannig við drifum okkur í náttfötin og hlupum niður til að hjálpa Pabba að setja brautina saman. Það var því ansi erfitt að koma okkur í svefn þetta kvöld. Hvað er í matinn á aðfangadag? Það er ávallt hamborgarhryggur í matinn, ásamt sykurbrúnuðum kartöflum, grænum baunum, rauðkáli og að ógleymdri sveppasósunni a la mamma sem fullkomnar diskinn. Hvenær eru jólin komin fyrir þér?

Fljótlega eftir verslunarmannahelgi þá er nauðsynlegt að fara að huga að jólum! Hefur þú verið eða gætir þú verið hugsað þér að vera erlendis um jólin? Ég hef aldrei verið erlendis um jólin sjálf en áramótin hef ég þó upplifað erlendis. En ég gæti vel eytt jólunum erlendis ef ég væri umkringdur fjölskyldunni. En að eyða jólunum einn í útlöndunum hljómar ekki vel og því gæti ég nú ekki hugsað mér það. Hvernig brástu við þegar þú komst að leyndarmálinu um jólasveininn? Á mínu heimili var oft mikil spenna vegna jólasveinsins og því lítið um svefn. Stundum var stofan í rústi, skítug spor og annað slíkt eftir heimsókn sveinanna. En í Myllubakkaskóla 1997, var mikil umræða komin í gang um tilveru þeirra og ég átti því erfitt með að kyngja því, enda voru sönnunargögnin á heimilinu augljós. Fljótlega var ég farinn að telja mandarínurnar kvöldið fyrir svefn og svo aftur um morguninn til að athuga hvort einhver „tilfærsla“ hafi orðið. Svo var auðvitað, en að sjálfsögðu lét ég sem ég vissi ekki neitt og fékk áfram þessar dýrindis mandarínur í sokkinn við arininn. Áttu þér uppáhalds jólaskraut? Nei, get ekki sagt það. En þar sem afi minn var garðyrkjubóndi og var með blómabílinn við stapann á sínum tíma, sem móðir mín og bróðir seinna tóku við, þá þykir mér ávallt vænt um að hafa jólastjörnu heima. Hvernig verð þú jóladegi? Frá unga aldri hefur jóladagur litast af jólaboðum og því er engin breyting á. Á þessu ári er byrjað á því að fara í jólaboð hjá bróðir pabba, en þeir skiptast á að halda boðin, pabbi og bróðir hans. Eftir það er boð hjá tengdafjölskyldunni, eitt að degi svo annað að kveldi. Sem mikill fjölskyldumaður þá þykir mér ekki leiðinlegt að eyða jóladeginum í faðmi fjölskyldunnar.


tm.is/jolakvedja

Tryggðarjól

Það verður allt í góðu lagi Starfsfólk TM óskar viðskiptavinum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi árum. Hvað sem verður… þá er betra að vera í hópi ánægðra viðskiptavina TM.

Tryggingamiðstöðin

tm@tm.is

tm.is


62

fimmtudagur 17. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-viðtal

Ásdís og Gunnar í byrjun ferðarinnar í Cambrils.

Ævintýrafólkið Gunnar Örn Guðmundsson og Ásdís Friðriksdóttir:

HJÓLA UM HELGA STÍGA SPÁNAR

Hjónin Ásdís Friðriksdóttir og Gunnar Örn Guðmundsson, íbúar í Innri-Njarðvík, hafa tvisvar sinnum hjólað um þúsund kílómetra langar pílagrímaleiðir á Spáni. Þau segja ekkert mál að hjóla um Spán og að yndislegt sé að upplifa náttúruna og mannlífið hjólandi. Lendi þau í vandræðum er hjálpin aldrei langt undan enda trúa þau því að englarnir séu ekki með vængi, heldur séu þeir oft fólkið í næsta umhverfi.

Æ

vintýrafólkið Gunnar Örn Guðmundsson og Ásdís Friðriksdóttir eru á besta aldri, hann er sjötugur og hún 65 ára. Þau eru þó ekki farin að huga að því að setjast í helgan stein, heldur er ofar í huga þeirra að hjóla um helga stíga á Spáni. Undanfarin tvö sumur hafa þau hjólað pílagrímaleiðir á Spáni, um þúsund kílómetra í hvort skipti. Árið 2014 hjóluðu þau þann hluta Jakobsvegarins sem hvað þekktastur er, frá Frakklandi og núna í haust fáfarnari leið. Þau segjast ekki finna fyrir því að aldurinn geri hjólreiðarnar erfiðari. „Þetta er hægt ef maður er við góða heilsu. Við eigum ekki að láta aldurinn skipta máli. Það er svo rosalega gaman að fara út að hjóla. Mér finnst eins og ég verði aftur krakki á hjólinu,“ segir Ásdís.

Gunnar segir hjólreiðaferðirnar óborganleg ævintýri sem ekki sé nokkur möguleiki að bera saman við hefðbundna sólarlandaferð. „Þegar fólk fer í sólarlandaferðir heldur það oft að það hafi komið til Spánar en það er ekki alvöru Spánn. Uppi í fjöllunum upplifir maður raunverulegan Spán og enga fulla Breta,“ segir hann. Vinsælustu pílagrímaleið Evrópu, sem nefnd er franska leið Jakobsvegarins, hjóluðu hjónin í fyrra. Þá lá leiðin frá Frakklandi, yfir Pýreneafjöllin og til spænsku borgarinnar Santiago de Compostela. Leiðin var ein helsta pílagrímaleið kristinna manna á miðöldum og var ein af mörgum slíkum sem veittu syndaaflausn samkvæmt kaþólsku kirkjunni. Sú leið er mjög fjölfarin og er talið að um 600.000

pílagrímar leggji hana að baki ár hvert. Leiðin sem þau hjóluðu í ár kallast Katalónska leiðin. Hún hófst í Barcelona og lauk í Léon og er hún mun fámennari en sú franska. Þau hittu einungis þrjá pílagríma, en þar að auki fjöldann allan af fólki sem býr í bæjunum sem þau hjóluðu í gegnum, enda gáfu þau sér góðan tíma til að skoða hin ýmsu þorp og bæi sem á leið þeirra varð og lögðu oft krók á leið sína ef eitthvað spennandi var að sjá utan pílagrímaleiðarinnar. Fólk hefur oft á orði við þau Gunnar og Ásdísi að það sé mikill dugnaður að fara í svo langa hjólaferð en Ásdís segir þetta ekki snúast um dugnað. „Þetta er frekar spurning um að langa til að taka á móti hverjum degi og að hafa hugrekki


63

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 17. desember 2015

pósturu vf@vf.is til að leyfa honum að koma eins og h a n n e r, “ s e g i r hún. Þekkt er að fólk gangi eða hjóli Jakobsveginn þegar það stendur á tímamótum í lífi sínu, en þau hjónin hjóla til að þakka fyrir það hve gott líf þau hafa átt. „Í svona ferð er fólk eitt með sjálfu sér og í okkar tilfelli líka með sínum besta vini. Maður er ekki að tala allan daginn og er því mikið einn með sjálfum sér,“ segir Ásdís. Þau hjónin hafa prufað að fara í sólar- og hópferðir til útlanda og segja það ekki nándar nærri eins skemmtilegt eins og að hjóla saman á vit ævintýranna. Sterk fjölskyldubönd á Spáni Núna síðasta haust hófu Gunnar og Ásdís ferðina rétt fyrir utan Barcelona, nánar tiltekið á fjallinu Montserrat. Fjallið er ansi bratt og gengur lest þangað upp. Þau segja það hafa verið mikla upplifun að fara upp Montserrat en þar eru falleg klaustur. Þau mæla með að allir sem eigi leið til Barcelona kíki við upp á Montserrat. Pílagrímaleiðin liggur á milli þorpa og borga. Segjast þau aldrei hafa pantað gistingu fyrirfram heldur þar sem þau listi hverju sinni. Þau voru með leiðarbók og lista yfir öll gistiheimili með sér og lentu nær aldrei í vandræðum við að finna sér næturstað. Hægt er að láta ferja farangurinn fyrir sig, en að þeirra mati vantar hluta af þeim ef þau eru ekki með farangurinn sinn meðferðis og reiddu þau því allan farangurinn á hjólunum. Guðmundur Stefán, sonur Gunnars og Ásdísar, hafði þrjár au-pair á heimili sínu síðasta árið og eru þær allar spænskar. Því skipulögðu þau ferðina í ár þannig að þau byrjuðu að heimsækja þær allar. Þá fyrstu, Cörlu hittu þau í bænum Cambrils, sunnan við Barcelona. Þaðan fóru þau með lest til Montserrat og hófu sjálfa pílagrímsferðina. Frá Montserrat hjóluðu þau til Saragozza og þaðan til fjallaþorpsins Sarvise sem staðsett er við rætur Pýreneafjallanna þar sem þau hittu Raquel og gistu þar í þrjár nætur og gáfu sér tíma til að upplifa náttúrufegurð fjallanna. Þaðan héldu þau í vestur til Burgos til Ángelu, þriðju au-pair stúlkunnar. Hjónin fengu góðar móttökur hjá fjölskyldum stúlknanna og segja áberandi hversu sterk fjölskyldutengslin eru þar í landi. „Við fórum í matarboð þar sem var langborð yfir stofuna og öllum ömmum og öfum, frænkum og frændum var boðið. Við vorum eiginlega orðin hálf þreytt á öllum matnum um miðnætti,“ segir Ásdís. Týnast aldrei í útlöndum Á leiðinni hjóluðu Ásdís og Gunnar meðfram maísökrum, eplalundum, vínberjaekrum og piparökrum. Ávextina týndu þau volga af trjánum og gæddu sér á. „Þetta er eitthvað sem aðeins er hægt að upplifa þegar maður er hjólandi eða gangandi. Maður upplifir dýraríkið, mannfólkið og jurtirnar. Svona upplifir maður ekki í bílferð,“ segir Gunnar. Merki pílagríma er skel sem þeir bera um hálsinn og voru Gunnar og Ásdís einnig með þannig.

Alla leiðina eru svo gular örvar eða skeljar sem vísa veginn. Þau segja mikla virðingu borna fyrir pílagrímum á Spáni og er það gömul trú að ekki megi gera þeim mein heldur auðvelda þeim leiðina sem mest. Skemmtilegast af öllu segja þau að hitta og tengjast fólkinu sem þau hittu á leiðinni. „Maður hittir þarna fólk sem maður þekkir ekki neitt og það verður nákomið manni á augnabliki, næstum því eins og fjölskylda,“ segir Gunnar. Á leiðinni hjóluðu þau yfir ævafornar steinhlaðnar brýr frá Rómartímanum og um þrönga dali og upplifðu mannlífið í spænskum smábæjum. Ýmislegt getur út af brugðið í þúsund kílómetra hjólaferð og segja hjónin það hluta af upplifuninni. Til að mynda sprungu öll dekkin og eyðilögðust þegar þau hjóluðu yfir lítil, beitt gróðurkorn við árbakka sem stungust inn í dekkin. Þá voru þau stödd í litlu þorpi, 20 kílómetrum frá næstu hjólabúð og góð ráð dýr. „Þá kom þarna maður sem vildi hjálpa okkur. Honum fannst það akkúrat ekkert mál að keyra okkur í hjólabúðina. Ef maður bara gáir að því, þá eru englarnir ekkert endilega með vængi. Þeir eru fólkið í kringum okkur. Það er sama í hverju maður lendir, þá er alltaf einhver nálægur sem vill hjálpa,“ segir Ásdís. Þau segja það sama gilda með að það rata, það sé ekki hægt að týnast í útlöndum því alltaf sé fólk nálægt sem vilji hjálpa og gildir þá einu hvort það tali sama tungumál og týndu ferðamennirnir. Þau voru þó alltaf með orðabók með sér til að bjarga sér ef í harðbakkann slægji. „Þá var oft gott að kíkja í bókina og finna þetta eina orð sem skiptir öllu máli,“ segir Ásdís. Gunnar segir hjálpsemi Spánverja alveg með eindæmum. „Maður lendir nær aldrei í veseni og það er ekki séns að týnast. Það er bara þannig.“ Einu sinni gerist það á hjólunum að villisvín hljóp í loftköstum fyrir þau og var Ásdís nærri fyrir því. Þau segja villisvínin mjög spretthörð og minna helst á ketti, svo hröð og lipur eru þau. Ætla í þriðju hjólaferðina til Spánar Hérna á Íslandi hjóla Ásdís og Gunnar töluvert yfir sumartímann og segja meir en nóg af skemmtilegum hjólaleiðum að velja úr. Oft fara þau í ferðalög innanlands með hjólin aftan á bílnum. Stundum hjóla þau lengri leiðir og hafa þá tjald og svefnpoka með á hjólunum. Hjónin eru hvergi nærri hætt að hjóla um Spán og stefna þangað enn á ný á næsta ári. Þá ætla þau að hjóla leið sem heitir Vía de la Plata eða Andalúsíuleið Pílagrímsleiðarinnar og liggur frá Sevilla í suðri til Santiago de Compostella í norðri. Sú leið er einnig gömul og fáfarin pílagrímaleið og um 1200 kílómetra löng. Það má því búast við fleiri ævintýrum hjá hjónunum í nýju ári.

Maður hittir þarna fólk sem maður þekkir ekki neitt og það verður nákomið manni á augnabliki, næstum því eins og fjölskylda Hér eru hjónin að hjóla meðfram maísakri.

Gunnar og Ásdís í Lion við lok ferðarinnar. Eins og sjá má eru þau með skeljarnar um hálsinn en þær tákna að þau séu pílagrímar.

Með Angelu í Burgos. Hún var au-pair hjá Guðmundi, syni þeirra.

Í Montserrat utan við Barcelona. Þar eru fallegar klausturbyggingar.


64

fimmtudagur 17. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-mannlíf

pósturu vf@vf.is

Óskum bæjarbúum gleðilegra jóla með ósk um friðsæla jólahátíð og farsælt komandi ár Þökkum fyrir ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða.

Authorized Service Contractor Fálkavöllur 7 - 235 Keflavíkurflugvelli - Sími 420 0900 - www.express.is

SENDUM BÆJARBÚUM OKKAR BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR

Suðurnesjadeild RKÍ styrkir Velferðarsjóð Suðurnesja S

uðurnesjadeild Rauða kross Íslands afhenti í síðustu viku 350.000 kr. framlag til Velferðarsjóðs Suðurnesja. Deildin hefur afhent rausnarlegt framlag í sjóðinn undanfarin ár.

Það var Guðmundur Þ. Ingólfsson, gjaldkeri Suðurnesjadeildarinnar, sem afhenti framlagið sem Þórunn Þórisdóttir hjá Velferðarsjóði Suðurnesja veitti viðtöku. VFmynd: Hilmar Bragi

350.000 kr. frá VSFK til Velferðarsjóðs Suðurnesja V

erkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis, VSFK, hefur undanfarin ár lagt Velferðarsjóði Suðurnesja lið fyrir jólin. VSFK heldur uppteknum hætti og hefur afhent sjóðnum framlag upp á 350.000

krónur í formi inneignarkorta í Nettó. Á myndinni eru þau Guðbjörg Kristmundsdóttir og Jóhann Rúnar Kristjánsson frá VSFK að afhenda Ólafi Magnússyni frá Velferðarsjóði Suðurnesja framlagið. VF-mynd: Hilmar Bragi

Jólatrésskemmtun í Garði 27. desember XKvenfélagið X G efn býður Garðmönnum nær og fjær á jólatrésskemmtun sem haldin verður í Miðgarði Gerðaskóla í Garði sunnudaginn 27. des. nk. frá kl. 15.00 – 17.00. Nú eins og ævinlega ætlum við að dansa í kringum jólatréð við fjöruga tónlist og söng og njóta veitinga í boði kvenfélagskvenna.

Að venju kemur jólasveinninn í heimsókn með glaðning í poka handa kátum krökkum. Garðbúar, gestir og gangandi, mætum öll í jólaskapi með börnunum og höfum gaman saman. Frír aðgangur. Með jólakveðju frá kvenfélaginu Gefn.


65

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 17. desember 2015

Fleiri hlynntir breytingum á deiliskipulagi XFleiri X íbúar eru hlynntir breytingum á deiliskipulagi í Helguvík en þeir sem eru á móti, þótt mjótt sé á munum. Alls 471 íbúi eða 50.4% er hlynntur breytingunni og þar með uppbyggingu kísilvers Thorsil ehf. við Berghólabraut en 451 eða 48,3% á móti. Samtals skiluðu 12 auðu atkvæði sem gera 1,3%. Rafrænar íbúakosningar um breytingar á deiliskipulagi vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar kísilvers í Helguvík hófust 24. nóvember sl. Tæplega 2800 íbúar höfðu fyrr á árinu skrifað undir áskorun til bæjaryfirvalda í Reykjanesbæ þess efnis að efnt yrði til íbúakosningar um breytingar á deiliskipulagi í Helguvík. Einungis þriðjungur þess fjölda tók þátt í kosningunni.

Gott fyrir heimilið I Ð R E V R A Ð Ú B R Ú M Á

Kaffivél með Thermo hitakönnu 10-12 bolla, 900w

2.690

Spandy heimilisryksugan • 1600W • mikill sogkraftur > 18KPA • margnota poki

6.990

3.942

„Þessi dræma kjörsókn þykir óheppileg þar sem rafrænar kosningar eru tæki sem Reykjanesbær hyggst nota í ríkari mæli í framtíðinni til eflingar íbúalýðræði og voru nýafstaðnar kosningar liður í því lærdómsferli,“ segir í tilkynningu Reykjanesbæjar.

Fleiri hlynntir breytingum á deiliskipulagi XXFleiri íbúar eru hlynntir breytingum á deiliskipulagi í Helguvík en þeir sem eru á móti, þótt mjótt sé á munum. Alls 471 íbúi eða 50.4% er hlynntur breytingunni og þar með uppbyggingu kísilvers Thorsil ehf. við Berghólabraut en 451 eða 48,3% á móti. Samtals skiluðu 12 auðu atkvæði sem gera 1,3%. Rafrænar íbúakosningar um breytingar á deiliskipulagi vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar kísilvers í Helguvík hófust 24. nóvember sl. Tæplega 2800 íbúar höfðu fyrr á árinu skrifað undir áskorun til bæjaryfirvalda í Reykjanesbæ þess efnis að efnt yrði til íbúakosningar um breytingar á deiliskipulagi í Helguvík. Einungis þriðjungur þess fjölda tók þátt í kosningunni. „Þessi dræma kjörsókn þykir óheppileg þar sem rafrænar kosningar eru tæki sem Reykjanesbær hyggst nota í ríkari mæli í framtíðinni til eflingar íbúalýðræði og voru nýafstaðnar kosningar liður í því lærdómsferli,“ segir í tilkynningu Reykjanesbæjar.

Stöðvaður með níu MDMA-pakkningar innvortis XXLögreglan á Suðurnesjum rannsakar nú mál tæplega þrítugs Íslendings sem reyndi að smygla 220 grömmum af MDMA - fíkniefni til landsins. Tollverðir stöðvuðu manninn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar um miðjan síðasta mánuð, þegar hann var að koma frá Berlín, vegna gruns um að hann væri með fíkniefni í fórum sínum. Sá grunur fékkst staðfestur, því maðurinn reyndist vera með níu pakkningar af MDMA - efni, samtals 220 grömm, innvortis. Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 5800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

Öflugur djús/ávaxtablandari með 1,3 l glerkönnu

Drive ryksuga í bílskúrinn Spandy Cyclon ryksuga Model-LD-620N • Pokalaus umhverfisvæn • 1200W • 2,5 lítrar • Sía HEPA • raf snúra 4,8 metrar

11.990

• 1200W • 20 lítra • sogkraftur > 16KPA • fjöldi fylgihluta

7.590 Spandy handryksuga LD627X

6.990

Spandy Cyclon ryksuga Model-LD627X • Pokalaus umhverfisvæn • 500W • 0,5 lítrar • Sía HEPA • raf snúra 9 metrar

Rafmagnshitablásari 2Kw

1.990

Góður í kuldanum

Fuglavík 18. Reykjanesbæ

Töfrasproti – Blandari

Hentugt til jólagjafa!

1.867

Opið 8-18 virka daga Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is

Neytendur athugið! Múrbúðin selur allar vörur sínar á lágmarksverði fyrir alla, alltaf. Gerið verð- og gæðasamanburð!

Nýr& betri opnunartími

Virka daga 9-20

Helgar 10-20 Nettó reykjaNesbæ


66

fimmtudagur 17. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-mannlíf

pósturu vf@vf.is Í úrslitaeinvíginu söng Ellert lagið Bed of roses með Bon Jovi.

Grindvíkingurinn Ellert Heiðar í öðru sæti The Voice Ísland:

G

PERSÓNULEGUR SIGUR OG SVAKALEG RÚSSÍBANAREIÐ

r i n d v í k i ng u r i n n E l l er t Heiðar Jóhannsson hafnaði í öðru sæti í söngkeppni The Voice Ísland sem lauk í Atlantic studios á Ásbrú sl. föstudagskvöld. Í úrslitaeinvíginu söng Ellert lagið Bed of roses með Bon Jovi en áður hafði hann sungið Queen-slagarann Don't stop me now. Það var Hjörtur Traustason frá Bolungarvík sem bar sigur úr bítum í keppninni eftir að hafa flutt lagið sívinsæla Ferðalok (Ég er kominn heim). Fjórir söngvarar tóku þátt í lokaþætti The Voice Ísland sem sendur var út í beinni útsendingu frá Atlantic Studios á Ásbrú. Þátturinn var risastjór sjónvarpsviðburður en sviðsmyndin skartaði sínu fegursta og um 1000 manns voru í salnum. Eftir að allir fjórir höfðu sungið eitt lag voru tveir söngvarar valdir

Helgi Björns og Unsteinn Manúel taka lagið saman.

til úrslita í símakosningu. Ellert og Hjörtur komust í lokaumferðina en þar hafði Hjörtur betur í símakosningunni. „Fyrir mér er þetta persónulegur sigur,“ skrifar Ellert á fésbókarsíðu sína eftir úrslitakvöldið. Hann segist síður en svo tapsár en hann hafi þurft að ná sér niður á jörðina „eftir þessa allsvakalegu rússíbanareið.“ Hann segist ekki geta orða bundist yfir þeim stuðningi sem hann fékk í gegnum alla keppnina. „Þetta er bara rugl hvað þið eruð búin að standa við bakið á mér. Ég fékk drauminn uppfylltan að fá að syngja Bed of roses fyrir þjóðina.“ Ákveðið hefur verið að ráðast í framleiðslu á annarri þáttaröð á The Voice Ísland. Ellert segir við þá sem langar að taka þátt: „Go for it þið munið ekki sjá eftir því.“

Ellert Heiðar Jóhannsson fagnar með Hirti Traustasyni.

Ellert Heiðar Jóhannsson á sviði í Atlantic Studios. Spennan var óbærileg þegar úrslita var beðið.


VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 17. desember 2015

Þú getur verslað með Jólareikning Netgíró í þessum verslunum í Reykjarnesbæ

Þú borgar jólareikning Netgíró í febrúar, vaxtalaust. Þú borgar aðeins 195 kr. tilkynningar- og greiðslugjald (ef fjárhæð er yfir 3.000 kr., annars 0 kr.) og 3,95% lántökugjald.

VALGEIRSBAKARI 45 ÁRA NÝIR EIGENDUR BJÓÐA TIL VEISLU Í TILEFNI AFMÆLISINS OG ÞAKKA VALGEIRI OG FJÖLSKYLDU FYRIR

ÁRIN 45. Boðið verður upp á afmælistertu og snittur frá kl. 10:00 – 16:00 á laugardaginn 19. desember. Gosdrykkir í boði Vífilfells

67


68

fimmtudagur 17. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-jólin

mín

Jólin koma með jólasýningu Fimleikadeildar Keflavíkur Jane Petra Gunnarsdóttir býr í Montreal í Kanada ásamt eiginmanni sínum og þremur börnum. Þau ætla að dvelja á Íslandi yfir jólin, enda getur Jane Petra ekki hugsað sér jólin í útlöndum fjarri fjölskyldu og vinum. Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið? Engin ein sérstök en það er mjög notalegt að eiga kósýkvöld með börnunum og horfa á jólamynd í desember. Við reynum að hafa svona kósýkvöld tvisvar til þrisvar sinnum fyrir aðfangadag. Sendir þú jólakort eða hefur facebook tekið yfir? Í fyrra gafst enginn tími til að græja jólakort því við vorum að undirbúa flutninga til Montreal, sendum þess vegna facebook-jólakort. Það verður sko ekki gert aftur, mér finnst svo gaman að senda og fá jólakort. Ertu vanaföst um jólin, er eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar? Já, ég er mjög vanaföst. Ég mæti í fullt af jólaboðum svona eins og flestir gera og nýt þess að vera með fjölskyldunni. Síðan um jólin 2001 hef ég og þrjár vinkonur mínar úr Íþróttakennaraskólanum og makar verið með jólamatarboð.Það sem

-jólin

er svo frábært við þetta matarboð, fyrir utan hvað það er alltaf gaman hjá okkur, er að þetta er ekkert stress því við hjálpumst að með veitingarnar þannig að þetta lendir ekki allt á hjónunum sem bjóða heim til sín. Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Það eru tvær gjafir sem standa uppúr; aðfangadagskvöldið 1997 voru tveir hringar í jólapakkanum frá Ella mínum og þá trúlofuðum við okkur og svo er það KitchenAid hrærivélin sem ég fékk líka frá Ella. Sakna þess einmitt mjög mikið að hafa ekki hrærivélina hjá mér hér í Montreal, elska að nota hana þegar ég baka. Hvað er í matinn á aðfangadag? Hamborgarhryggur og meðlæti. Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Fyrir mér byrja jólin þegar ég fer á jólasýningu hjá Fimleikadeild Keflavíkur. Síðastliðin 30 ár hef ég

tekið þátt sem iðkandi, þjálfari eða áhorfandi. Ég er svo glöð að ég verð komin til Íslands rétt fyrir jólasýninguna þetta árið. Hefur þú verið eða gætir þú hugsað þér að vera erlendis um jólin? Ég hef aldrei verið erlendis yfir jólin og gæti ekki hugsað mér það þrátt fyrir að hafa búið á Flórída í þrjú ár og svo núna búum við í Montreal. Ég vil bara vera með fjölskyldunni minni og vinum yfir hátíðirnar. Áttu þér uppáhalds jólaskraut? Ó já, hvít keramik jólatré sem ég keypti í Minneapolis þegar ég var í vinnuferð með starfsfólki Heiðarskóla haustið 2005. Hvernig verð þú jóladegi? Ég fer alltaf í fjölmennt jólaboð með stórfjölskyldunni hennar Gunnu ömmu. Þar er spilað spil sem heitir púkk og þar alltaf mikið stuð. Svo er farið í hangikjöt hjá tengdó eða hjá foreldrum mínum.

mín

DYNAMO REYKJAVIK

Þykir vænt um 50 ára gamalt jólaskraut foreldra sinna Svandís Georgsdóttir og fjölskylda borða alltaf rjúpu á aðfangadagskvöld og þegar matarlyktin berst um húsið finnst þeim jólin vera komin.

Sími 420 2500

www.skolamatur.is

Skólamatur ehf. | Iðavellir 1 | 230 Reykjanesbær

SKÖTUHLAÐBORÐ Í GARÐI Föstudaginn 18. desember verður Skötuhlaðborð unglingaráðs Víðis haldið í Samkomuhúsinu í Garði. Á boðstólnum verður meðal annars saltfiskur, plokkfiskur, siginn fiskur að ógleymdri skötunni ásamt tilheyrandi meðlæti. Verðinu er stillt í hóf og kostar aðeins kr. 3000 á manninn. Hádegishlaðborðið er opið milli kl. 11:00 og 14:00 og kvöldborðið milli kl. 17:00 – 20:00.

Jólabíómyndin sem kemur þér í jólaskapið? Miracle on 34th Street er jólamyndin sem kemur mér í jólaskap. Sendir þú jólakort eða hefur Facebook tekið yfir? Ég sendi jólakort. Ertu vanafastur/-föst um jólin, er eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar? Já ég er frekar vanaföst, held í ákveðnar hefðir; rjúpurnar, mömmukökurnar og hyasintuskreyting er algjört möst. Og svo að sjálfsögðu stórfjölskyldu jólaboðið á annan í jólum. Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Ég held að eftirminnilegasta jólagjöfin sem ég man eftir sé lítil vagga með dúkku í sem ég fékk frá mömmu þegar ég var 7 ára. Hvað er í matinn á aðfangadag? Rjúpur í matinn á aðfangadag.

Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Það er mjög sérstök lykt sem kemur þegar verið er að byrja að steikja rjúpurnar og þá segja allir á heimilinu: nú eru jólin komin. Áttu þér uppáhalds jólaskraut? Ég á nú svo mikið jólaskraut að ég gæti skreytt þrjú hús en mér þykir voða vænt um eitt lítið jólaskraut sem foreldrar mínir áttu og er örugglega orðið 50 ára gamalt Svo finnst mér voða gaman að setja upp jólaþorpið mitt. Hefur þú verið eða gætir þú hugsað þér að vera erlendis um jólin? Ég bjó í Danmörku í tvö ár og var þar um jólin. Það voru mjög róleg jól og að sjálfsögðu mikill söknuður eftir fjölskyldunni og á annan í jólum var fjölskylduboðið á Skype. Hvernig verð þú jóladegi? Jóladegi er varið í miklum rólegheitum og jafnvel á náttfötunum mest allan

ÞAÐ GETUR FYLGT ÞVÍ MIKIL LUKKA AÐ GERA JÓLAINNKAUPIN Á SUÐURNESJUM

daginn við lestur góðrar bókar eða horft á góða mynd eða tónleika þar sem eldri börnin eru hjá sínu tengdafólki þann dag.

2015 Skafmiðaleikur Víkurfrétta og verslana á Suðurnesjum


69

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 17. desember 2015

Fagna byggðakvótaþorski XAtvinnuvegaX og nýsköpunarráðuneyti hefur fallist á umsókn Sveitarfélagsins Garðs um úthlutun byggðakvóta. Alls er úthlutað 107 þorskígildistonnum til sveitarfélagsins. Bæjarstjórn Garðs hefur samþykkt afgreiðslu bæjarráðs þar sem lagt var til að úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa verði með sama hætti og var á síðasta fiskveiðiári. 50% úthlutaðs byggðakvóta verði skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðar nr. 605/2015 og lönduðu botnfiskafla á fiskveiðiárinu 2014/2015 og 50% verði skipt hlutfallslega, til sömu skipa, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið á tímabilinu 1. september 2014 til 31. ágúst 2015. Jafnframt er ítrekað að þar sem ekki er löndunarhöfn í Garði verði fullgilt að fiskiskip landi afla í öðru sveitarfélagi, en til vinnslu í Garði. Sveitarfélagið Vogar hefur fengið úthlutað 23 þorskígildistonna byggðakvóta vegna fiskveiðiársins 2015 til 2016. Þetta kemur fram í erindi atvinnuog nýsköpunarráðuneytisins til sveitarfélagsins. Kvótinn verður auglýstur til úthlutunar hjá Fiskistofu, sem annast úthlutun kvótans á grundvelli þeirra reglna sem um það gilda. Í fundargerð bæjarráðs Sveitarfélagsins Voga frá því í síðustu viku er úthlutun 23.000 þorskígildiskílóa fagnað.

Grindvíkingar orðnir 3118 XGrindvíkingum X fjölgar enn. Alls hefur fjölgað um 230 íbúa síðan í janúar 2014, eða um 7%. Það sem af er þessu ári, í lok nóvember, er fjölgunin 4%. Grindvíkingar með erlent ríkisfang eru 351, þar af eru pólskir Grindvíkingar 228. Íbúafjöldinn í Grindavík þann 1. desember sl. var 3118. Þann 8. janúar sl. kom þjúþúsundasti Grindvíkingurinn í heiminn. Þeir urðu reyndar tveir en þessa nótt komu tvíburar í heiminn sem deila því titlinum 3.000. Grindvíkingurinn. Foreldrar tvíburanna eru þau Sigrún Ísdal Guðmundsdóttir og Steinar Nói Kjartansson.

Heilsugæslan flutt og fundaraðstaðan bætt XÚtibú X heilsugæslunnar í Vogum er nú flutt úr Iðndal í aðstöðu sem hefur verið útbúin í Álfagerði. Móttaka heilsugæslulæknis er sem fyrr árdegis á þriðjudögum og eru tímar bókaðir hjá HSS í Reykjanesbæ. Framkvæmdir eru þegar hafnar við breytingu á húsnæðinu sem heilsugæslan var í áður. Í nýja rýminu verður m.a. nýr fundarsalur bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga og aðstaða fyrir starfsemi félagsþjónustunnar. Fram til þessa hefur fundaraðstaða á bæjarskrifstofunum verið bágborin, eina fundarherbergið á skrifstofunni er jafnframt kaffistofa starfsfólks. Það er því löngu tímabært að bæta úr aðstöðuleysinu og fagnaðarefni að lausn sé í sjónmáli, segir Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum í vikulegu fréttabréfi sínu.

Óskum öllum Suðurnesjamönnum

gleðilegrar hátíðar

Ómissandi á jólunum Sérvalin blanda af bestu kaffiuppskerum ársins.

Metaðsókn á tjaldsvæðið í Grindavík XXMetaðsókn var á tjaldsvæðið í Grindavík í sumar, frá miðjum maí og til loka september, bæði hvað varðar gesti og gistinætur. Aukningin á gistinóttum á milli ára er um 35% og aukning gesta um 34%. Alls komu 9120 gestir á tjaldsvæðið í sumar frá maí til september en gistinætur voru 10.449. Helmings aukning var í septembermánuði.

Þetta kom fram í skýrslu um starfsemi tjaldsvæðisins sumarið 2015 sem lögð var fram á fundi frístunda- og menningarnefndar á dögunum.

kaffitar.is


70

fimmtudagur 17. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-viðtal Árni og eiginkona hans Sólveg Steinunn á heimili sínu í Njarðvík.

Amma Árna var Ch erokee indjáni. Þessa my nd af ömmu sinni og afa fék Árni frá systrum sín k um.

FANN SYSTUR SÍNAR Í BANDARÍKJUNUM Árni Júlíusson frétti af því árið 1979 að hann ætti tvær systur í Bandaríkjunum. Langþráð ósk um að hitta þær rættist svo í vor eftir að barnabarn hans leitaði þær uppi með hjálp tölvutækninnar. Þær höfðu ekki hugmynd um að þær ættu bróður á Íslandi og tóku honum opnum örmum.

Á

rni Joseph Michael Júlíusson, eða Árni Júll úr Njarðvík, fæddist í september árið 1943. Faðir hans var James Earl Welchel, bandarískur hermaður, sem um tíma var búsettur á Keflavíkurflugvelli. James hélt sambandi við mæðginin á meðan hann dvaldi á Íslandi og mætti í skírn sonar síns og valdi á hann millinöfnin tvö Michael og Joseph. Í janúar 1944 var James sendur til Englands en skrifaðist á við barnsmóður sína á Íslandi fram í mars árið 1945. Eftir það slitnaði sambandið og fram til ársins 1979 var samband feðganna ekkert. Árni leitaði föður sinn uppi og fór til Atlanta í Bandaríkjunum árið 1979 ásamt Sólveigu Steinunni Jónsdóttur eiginkonu sinni og þremur af fjórum börnum þeirra. Þeir hittust í stutta stund og áttu gott spjall saman. „Þá sagði pabbi

mér að hann væri kvæntur ætti tvær dætur. Við ætluðum svo að hittast aftur næsta dag og hann kvaddi mig hlýlega. Svo komst hann ekki að hitta okkur daginn eftir og nokkrum mánuðum síðar sendi hann mér bréf og sagði að við gætum ekki verið í sambandi. Svo heyrði ég ekki meira frá honum,“ segir Árni. Hugsaði stöðugt um systurnar Það voru mikil vonbrigði fyrir Árna að faðir hans skyldi hafna áframhaldandi sambandi en hann ákvað að reyna að láta allar ósvöruðu spurningarnar um afstöðu föður síns ekki trufla sig. Hann gat þó aldrei hætt að hugsa um systur sínar tvær. „Ég hugsaði með mér að ég yrði að hafa uppi á þeim. En öll árin sem liðu þangað til það varð að veruleika var ég samt oft hálf partinn búinn að gefa upp vonina.“ Það var svo einhvern tíma eftir árið

2000 að séra Þorvaldur Karl Helgason, prestur í Njarðvík, komst að því að James Earl hafði látist árið 1995. Þær upplýsingar fann Þorvaldur á vefnum www.findagrave. com. Í gegnum tíðina hafði Árni oft nefnt það við börn sín að gaman væri að finna systurnar en enginn hafði tekið hann alvarlega. Það var svo dóttursonur Árna, Bjarni Benediktsson, meistaranemi í tölvunarfræði í Swiss, sem ákvað að ganga í málið fyrir afa sinn. Í vor bar leit Bjarna árangur þegar hann hafði samband við starfsmann kirkjugarðsins þar sem James Earl hvílir og fékk þar netfang hjá frænku hans. Sú hafði svo samband við systurnar og sagði þeim að þær ættu bróður á Íslandi sem væri að leita að þeim. „Þær héldu fyrst að þetta væri kannski Nígeríu-svindl,“ segir Árni og hlær. Hann sendi þeim svo skírnarvottorðið sitt með

nafni föður síns á og önnur gögn til að sýna fram á að þau væru samfeðra. „Eftir það opnuðust allar gáttir og við skrifuðumst mikið á í tölvupósti.“ Grátur og gleði Í ágúst síðastliðnum fór Árni svo ásamt eiginkonu sinni og börnunum fjórum svo til Atlanta að hitta systur sínar í fyrsta sinn. „Það var ógleymanleg stund að hitta þær loksins. Þær tóku okkur svo vel. Við grétum og hlógum til skiptis. Það var eins og við hefðum alltaf þekkst og það var skrítin tilfinning,“ segir Árni. Systurnar heita Donna og Sharon og eru 65 og 67 ára gamlar. Árni og fjölskylda vörðu fimm dögum með þeim í Atlanta. „Við vorum öll saman frá morgni til kvölds og ræddum um heima og geima og það var ekki vitund vandræðalegt. Við erum mis góð í ensku en einhvern veginn björguðum við okkur öll.“ Saman

skoðaði nýsameinaða fjölskyldan söfn, CNN fréttastofuna, fór upp fjall, í vínsmökkun, út að dansa og ýmislegt fleira. Árni og fjölskylda hittu einnig börn systranna og fengu sömu hlýju móttökurnar hjá þeim. Systur Árna höfðu sett saman möppu með myndum af pabba þeirra og systkinum hans átta og af ömmu þeirra og afa. Föðuramma Árna var Cherokee indíáni og getur hann því stoltur sagst vera af indíánaættum. Systkinin og fjölskyldur halda núna sambandinu áfram með tölvupóstsamskiptum og á Facebook. Þau hafa stofnað hóp þar og eru dugleg að setja þangað inn myndir úr daglega lífinu. Til að mynda fóru Árni og fjölskylda í sumarbústað um daginn og gerðu jólakonfekt. Þau deildu myndum af konfektgerðinni með systrunum og ætla


71

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 17. desember 2015

pósturu dagnyhulda@vf.is

SENDUM BÆJARSENDUM BÆJARBÚUM OKKAR BESTU ÓSKIROKKAR UM GLEÐILEG BÚUM BESTU JÓL OG FARSÆLT ÓSKIRKOMANDI UM GLEÐILEG ÁR Árni ásamt systrum sínum við leiði föður þeirra.

JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR Óskum bæjarbúum

gleðilegra jóla með ósk um friðsæla jólahátíð og farsælt komandi ár

Fjölskyldurnar hittust í fyrsta sinn síðasta sumar í Atlanta. Í efri röð frá vinstri er Donna systir Árna, Sólveig Steinunn eiginkona Árna, Árni, Guðfinna og Jón Júlíus Árnabörn, Todd, systursonur Árna. Í neðri röð eru Sherri, systir Árna og Inga og Arna Árnadætur.

Þökkum fyrir ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða.

Fálkavöllur 7 - 235 Keflavíkurflugvelli - Sími 420 0700 - www.airportassociates.

svo að senda þeim mola og leyfa þeim að njóta góðgætisins. Bæta upp liðinn tíma Börn Árna voru spennt að sjá hvort hann væri líkur systrum sínum en voru svo sammála um að svo væri ekki. Donna og Sharon höfðu aftur á móti orð á því að ýmsir taktar hjá Árna væru líkir töktum hjá föðurbróður þeirra. Systurnar eru góðar vinkonur og hafa oft ferðast saman til Evrópu og vissu því ýmislegt um Ísland. Þegar dvölin í Atlanta í ágúst var á enda vildu systurnar ekki sleppa bróður sínum. Þau eru öll ákveðin í því að nýta næstu ár vel til að bæta um öll árin sem þau þekktust ekki. Í febrúar ætla þau að hittast í Boston. Svo er líklegt að þær komi til Íslands næsta sumar og eru Árni og fjölskylda full eftirvæntingar að taka á móti þeim. Önnur systir Árna á einn son og eitt barnabarn og hin tvær dætur

og eiginmann. Árni og fjölskylda eru hins vegar um 30 talsins þegar Breytingar börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn eru talin með. Það Virkir má því segja að17:30. þær systur dagar 7:00 til hafi heldur betur fengið viðbót við sínaÞorláksmessa fjölskyldu þegar þær kynnt7:00 til 17:30. ust bróður sínum frá Íslandi. Hvað Árna verður varðar25,þá26fann loksins Lokað og 27.hann desember bitana tvo í lífsins púsl sem hann hafði í 37 ár langað að finna.

Við grétum og hlógum til skiptis. Það var eins og við hefðum alltaf þekkst og það var skrítin tilfinning

Óska öllum Suðurnesjamönnum gleðilegra hátíðar og velferðar á nýju ári. Opnunartíminn yfir hátíðarnar: Virkadaga kl. 7:00 - 17:30. Laugardaga kl. 8:00 - 16:00 og sunnudaga kl. 9:00 - 16:00. Þorláksmessa kl. 7:00 - 17:30. Aðfangadagur jóla kl. 7:00 - 13:00 . Lokað verður 25., 26. og 27. desember. Sigurjónsbakarí // Hólmgarður 2 // 230 Reykjanesbæ // Sími 421-5255


72

fimmtudagur 17. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-mannlíf

pósturu vf@vf.is

Hún Stefanía Guðnadóttir úr Garðinum eða aðdáandi Páls Óskars nr. eitt. Hér er hún með átrúnaðargoði sínu eftir ballið.

Óskum félagsmönnum okkar og Suðurnesjamönnum öllum gleðilegra jóla með þökk fyrir samskiptin á árinu sem er að líða

PÁLL ÓSKAR

LEYNIGESTUR HJÁ ÁSTVALDI OG FÉLÖGUM

P

áll Óskar Hjálmtýsson gerði mikla lukku hjá fötluðum á Suðurnesjum um helgina en hann var leynigestur á „Ástvaldarballinu“ sem haldið var í Oddfellowsalnum á laugardag. Ballið fékk reyndar nýtt nafn í ár og kallaðist „Ég er eins og ég er“ sem er vísun í eitt af lögum Páls Óskars. Ástvaldur Ragnar Bjarnason átti hugmyndina að ballinu sem haldið var í fyrsta skipti fyrir síðustu jól en honum innan handar voru þeir

Örlygur Örlygsson og Eiður Eyjólfsson. Boðið var upp á pizzur og gos og voru allir vel mettir þegar Páll Óskar kom á svið og gerði stormandi lukku. Helstu styrktaraðilar skemmtunarinnar eru Ungó, Hljómahöll, Ölgerðin, Nettó og Oddfellow. Ballið er fyrir fatlaða einstaklinga á Suðurnesjum og voru allir velkomnir. Meðfylgjandi myndir voru teknar á skemmtuninni.

Óskum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári Páll Óskar á sviðinu í Oddfellowsalnum þar sem Ástvaldur bauð til dansleiks um síðustu helgi.

Ástvaldur Ragnar (til hægri) ásamt gestum á ballinu.


73

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 17. desember 2015

-fréttir

pósturu vf@vf.is

Sendum íbúum allra sveitarfélaga á Reykjanesi okkar bestu jóla- og nýárskveðjur. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum.

Geoparkar á norðurslóðum funduðu í Grindavík

R

eykjanes Geopark er þátttakandi í alþjóðlegu verkefni sem nefnist Drifting Apart. Verkefnið er styrkt af Norðurslóðaáætlununinni 2014-2020 (Northern Periphery and Arctic 20142020). Verkefnið stendur yfir á árunum 2015-2018 og er ætlunin að undirstrika og styrkja skilning á sameiginlegri jarðfræðiarfleið á norðurslóðum, og þær mörgu tengingar sem jarðfræðiarfleiðin hefur við náttúru og menningu. Geoparkar skipta miklu máli í því samhengi. Verkefninu er m.a. ætlað að styðja við geoparka sem eru að stíga sín

fyrstu skref, kynningu á nýjum vörum og þjónustu sem ætlað er að styrkja þá innan frá, m.a. með námsefnisgerð sem og að styrkja þá sem áfangastaði fyrir ferðamenn. Þá verður byggt upp sterkt samstarfsnet geoparka á norðurslóðum. Að verkefninu standa aðilar frá Norður Írlandi, Írlandi, Skotlandi, Noregi, Íslandi, Kanada og Rússlandi. Í vikunni funduðu 14 fulltrúar þeirra geoparka og stofnana sem standa að verkefninu í Grindavík. Skemmst er frá því að segja að fundargestir voru í skýjunum með móttökurnar á Reykjanesinu.

Þá lýstu þeir yfir mikilli ánægju með aðstöðuna sem byggð hefur verið upp í Grindavík sem þeim þótti henta vel til fundahalda sem þessara. Gestirnir gistu á Geo Hotel en funduðu í Gjánni, nýrri fundaraðstöðu í íþróttamiðstöðinni í Grindavík. Þá nutu þeir veitinga frá Salthúsinu og Hjá Höllu.

Vetrardekk og heilsársdekk fyrir allar tegundir bíla

10% afsláttur af öllum dekkjum og frí umfelgun ef keypt eru 4 ný dekk

Gildir til 24. desember

Fulltrúarnir ásamt fleiri starfsmönnum geoparkanna munu sækja Reykjanesið aftur heim snemma árs 2018 þegar hér fer fram alþjóðleg ráðstefna um árangur verkefnisins á vegum Reykjanes Geopark.

Njarðarbraut 11 í Reykjanesbæ 421 1251 - 861 2319

Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um

gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári! Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða!

Tannlæknastofa

Kristínar Geirmunds og Kristínar Erlu Ólafsdóttur

Tannlæknastofan Tjarnargötu 2

Radíonaust

Norðurtúni 2 - Reykjanesbær sími 421 3787

Vökvatengi 421 4980

Tannlæknastofan Skólavegi 10


74

fimmtudagur 17. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-viðtal

HAFIÐ GAF

&

HAFIÐ TÓK Gæi í Koti er enn að róa og býr til sinn eigin harðfisk. Þrátt fyrir að vera 85 ára er hann ekkert á því að leggja árar í bát. Hafið hefur sannarlega verið örlagavaldur í hans lífi.

B

árurnar bönkuðu nánast á svefnherbergisgluggann hjá Garðari Magnússyni þegar hann var að alast upp á Sjávargötunni í Njarðvík. Margir þekkja Garðar betur sem Gæa í Koti, Höskuldarkoti nánar til tekið. Hann er einn af þessum upprunalegu Njarðvíkingum. Forfeður hans komu í plássið rétt fyrir árið 1800 og hafa haldið þar til síðan. Hafið hefur alltaf spilað stóra rullu í lífi Garðars. Hann var rétt um fimm ára aldur þegar hann og félagar hans fóru að leika sér á árabátum í höfninni. „Svo var maður á bryggjunni, alltaf dettandi í sjóinn,“ segir Garðar og hlær. Garðar er hláturmildur og glaðlyndur. Hann hefur sannarlega lifað tímana tvenna en tekur lífinu ekki of alvarlega. Hann fór ungur að stunda sjómennsku sem átti eftir að verða ævistarfið. Hann var skipstjóri um áratugaskeið, rak útgerð og átti fjölda báta. Hann hefur ekki enn sleppt takinu á sjónum. Hann er enn að róa gamli maðurinn, 85 ára að aldri. Nú fer hann aðallega til sjós til þess að ná í hráefni í harðfiskinn sinn sem hefur vakið þónokkra athygli. Fyrir rúmum tíu árum fór hann að dunda sér við að gera harðfisk. Hann hefur komist

Mér leiðist auðvitað að hanga og gera ekki neitt. Að vera einn að gaufa hér og telja á mér tærnar.

upp á lagið með að verka fiskinn á sinn einstaka hátt og afraksturinn er hreint unaðslega góður. Það getur blaðamaður vottað um. Hjartað gaf sig á sextugu Hann átti á sínum tíma sex 200 tonna báta. Hann rak einnig frystihúsið sem sjá má út um eldúsgluggann á heimili hans. Húsið gekk undir heitinu Sjöstjarnan. Það er því óhætt að segja að sjávarútvegurinn hafi átt hug hans alla tíð. „Sjómennskan já, það er fínt að vera á sjó. Þetta var nú bara lifibrauðið og gaf ágætlega af sér ef maður fiskaði vel,“ segir Garðar. Hann horfir á vinnuvélar sem grafa stóran skurð fyrir utan gluggann hjá honum og rifjar upp þegar faðir hans vann að hafnargarðinum þarna skammt frá á sínum tíma. Þá voru notaðir hakar og skóflur og grjótin voru hýfð upp á höndum „Þetta var ekkert nema þrældómur frá vöggu til grafar. Enda voru margir þessir menn bara búnir um fertugt eða fimmtugt,“ segir hann ofan í kaffibollann. Eftir allt hans streð, af hverju er hann þá enn í fullu fjöri, að sækja sjóinn og vinnandi? „Ég var búinn um sextugt skal ég segja þér. Það var bara út af

matnum sem ég var að éta, hvað ég hirti lítið um að borða hollan mat. Þá fór hjartað, hjáveitu-vesen og ég veit ekki hvað. Ég fór til London og lét blása mig og pældi lítið í þessu eftir það. Svo skömmu síðar datt ég niður í frystihúsinu þegar ég var að moka ís,“ segir hann og hlær dátt. „Ég komst þar inn á skrifstofu og fór svo heim á bílnum. Ég fór svo upp í bæli en var allur orðinn rennandi blautur af svita. Þá sagði ég við frúna að kalla á sjúkrabíl, það væri eitthvað ekki alveg eins og það ætti að vera,“ og hann hlær enn frekar. Þetta reyndist vera hjartaáfall sökum kransæðastíflu. Það kom dauður blettur í hjartað og hann var skorinn tveimur dögum síðar. Eftir þetta fór hann að borða hollari mat. Þetta var árið 1993 og Garðar hefur ekki fundið fyrir þessu síðan hann var skorinn upp. Vill vinna meðan heilsan leyfir Garðar vill hafa eitthvað fyrir stafni og hefur gaman af því að vinna. „Mér leiðist auðvitað að hanga og gera ekki neitt. Að vera einn að gaufa hér og telja á mér tærnar. Meðan maður hefur heilsu þá vil ég vinna.“ Hann hefur aðeins leitt hugann að því að fara á elliheimili en finnst það þó ekki tímabært.

Garðar borðar fisk fimm sinnum í viku og er við hestaheilsu.


pósturu eythor@vf.is Ljósmynd: Eyþór Sæm.

„Ég hef nú ekki verið í þessu eldriborgara veseni, ég hef ekki nennt því. Ég hef bara haft það mikið að gera,“ segir sá gamli. Garðar er jú við hestaheilsu, en smá aðgerð á öxlinni aftrar honum frá því að komast á sjóinn. Það þykir honum miður og talar um að hann sé í smá veikindaleyfi frá vinnu. Ef frá er talið hjartavesenið þetta nauðsynlega viðhald eins og hann segir sjálfur, þá er heilsan góð. Fimm daga vikunnar borðar hann fisk og þykir alltaf jafn góður. Hann virðist lunkinn að gera góðan fisk og hann sýnir blaðamanni stærðarinnar pönnu með steiktum og fallegum fisk. Sá skammtur dugar víst fyrir vikuna. Harðfiskurinn hans þykir góður og er til sölu á nokkrum stöðum. Nýlega tók veitingastaðurinn Matur og drykkur í Reykjavík harðfiskinn inn til sín en þar þykir þetta dýrindis forréttur með einhverju sósujukki, samkvæmt lýsingum Garðars. „Ég gæti eflaust selt miklu meira af þessu en þá þarf ég að vera allan sólarhringinn að þessu helvíti,“ segir Garðar og hlær enn og aftur. Furða hve fáir fórust Garðar og kona hans Arndís Lára Tómasdóttir eignuðust átta börn. Ein af þeim var stúlka sem dó við fæðingu. Árið 1971 drukknaði svo Njörður sonur þeirra við bryggjuna í Njarðvík. Sex börn eru á lífi og barnabörnin orðin fleiri en hann hefur tölu á. Jón Sighvatsson keypti Hölskuldarjörð af Duus fjölskyldunni árið 1795 en jörðin var þá eyðijörð. „Við höfum verið hérna síðan. Ég keypti húsið ári eftir að faðir minn dó eða árið 1965. Ég

var með svo marga krakka að þetta passaði ágætlega,“ segir hann og skellir upp úr. Sjálfur er Garðar tvíburabróðir og átti sjö systkini. Tveir bræður hans drukknuðu við bryggjuna í Njarðvík. „Hafið gaf og það tók líka. Svona er þetta með þessi atvik. Maður ræður ekki við það. Maður var alltaf að leika sér þarna við sjóinn. Það er í raun furða hvað það fórust fáir. Ég var nærri því drukknaður hérna sjálfur þegar ég var fimm eða sex ára. Júlli gamli í Hlíð sá mig kominn á kaf og kom og dró mig upp,“ rifjar Garðar upp. Hér áður fyrr var hann manna harðastur í að róa og fór jafnan út þegar aðrir sátu heima. Hann hefur þó ekki lent í sjávarháska á sinni löngu starfsævi. Garðar man þá tíð þegar tæknin var ekki til staðar um borð í bátunum. „Mönnum þótti ég róa heldur stíft. Ég man eftir einum sem sagði að hann vildi ekki vera með mér lengur á bátnum. Ég réri of mikið. Það er bara eins og með krákuna, sitjandi kráka sveltur en fljúgandi fær.“ Það var algjör bylting þegar dýptarmælirinn kom til sögunnar rifjar Garðar upp. Nú er þetta allt meira og minna sjálfstýrt og búið tólum og tækjum. „Nú get ég verið að gera að á meðan sjálfstýringin sér um að koma mér í land.“ Garðar á ekki von á að leggja árar í bát og hætta að sækja sjóinn fyrr en skrokkurinn fer að gefa sig. „Ég verð klár í slaginn í vor. Ég hef bara gaman að þessu og þykist vera að gera góða hluti,“ segir hann að endingu.

Gleðilega hátíð kæru viðskiptavinir bæði til sjávar og sveita Við vildum minna ykkur á það að fara varlega í jólaösinni nú í desember. Klikkið nú ekki á því að nærast vel skammdeginu því maturinn bætir, hressir og kætir. Við ætlum að hafa lokað daganna 24. desember til 2. janúar og eiga góða stund þá með fjölskyldu og vinum. Við vonum innilega að jólahatíðin verði einnig ánægjuleg hjá ykkur. Einnig viljum við minna á skötuna hjá okkur bæði í hádeginu og um kvöldið á Þorláksmessu. Starfsfólkið á Réttinum

Lokað 24., 25., 26. og 31. desember


76

fimmtudagur 17. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-viðtal

FORRÉTTINDI AÐ HAFA FÆÐST Á ÍSLANDI Aníta Marcher Pálsdóttir fór í ævintýraferð sem breytti lífi hennar Hin 22 ára Aníta Marcher Pálsdóttir ákvað að söðla heldur betur um á þessu ári. Hún ákvað að stíga stórt skref út fyrir þægindahringinn sinn þegar hún hélt í ævintýraferð sem átti eftir að breyta lífi hennar. Njarðvíkingurinn Aníta ferðaðist um Afríku, Ástralíu og Asíu þar sem hún vann sjálfboðastörf og lenti í ótal hremmingum og mögnuðum upplifunum. Aníta stundar nám í hjúkrunarfræði og í framtíðinni stefnir hún á að taka þátt í heilbrigðistengdum verkefnum víðsvegar um heiminn. Hún segir forréttindi að búa á Íslandi en á ferðalögum sínum hefur hún öðlast aðra sýn á lífið.

Aníta á ströndinni Fraser Island, Ástralíu.


pósturu eythor@vf.is Hvað var það við Afríku sem heillaði þig svo þú ákvaðst að fara þangað? „Áfangastaðurinn sjálfur var ekki það sem dró mig útí heim, heldur var það upplifunin sem ég var að sækjast eftir. Ég hafði samband við ferðaskrifstofuna Kilroy og fékk minn eigin ráðgjafa. Ferðaráðgjafinn minn kom með hugmyndir að áfangastöðum, ævintýraferðum og sjálfboðaliðaverkefnum. Á mettíma vorum við komin með tröllvaxna ferð sem innihélt m.a. tjaldferðalag í Afríku, tvenn sjálfboðaliðastörf, námskeið, köfunarskóla, ævintýraferð í Ástralíu og eyjahopp á Fiji eyjum. Er ekkert erfitt að láta vaða og fara í svona ferðalag? „Fyrir mér var ekkert svo erfitt að láta vaða í svona ferðalag, ég vissi að ferðalagið sjálft yrði erfitt en ég var alltaf föst á mínu á að fara ein útí heim. Tilgangur ferðarinnar var að skora á sjálfa mig og einmitt rekast á erfiða hluti sem tókst nú bara svona ljómandi vel, þessi ferð var hvorki átakalaus né áfallalaus!“. Teygjustökk við Vikoríufossa Þetta er ekkert eðlilegur ferðamáti, af hverju ákvaðstu að fara til þessara landa og gista m.a. í tjaldi? „Það er ekki auðvelt að ferðast ein á milli landa í Afríku svo ég leitaði mér að hópferð. Ég féll strax fyrir tjaldferðalagi á vegum G Adventures vegna þess hve fjölbreytt sú ferð var. Það sem stóð uppúr í þessari ferð var Kande ströndinni við Lake Malawi. Á Kande fórum við í göngutúr um þorpið, skoðuðum kirkjuna, spítalann, skólann og fengum að sjá hvernig þau lifa. Dagurinn endaði svo með heimalöguðum kvöldmat og danskennslu í afrískum dansi. Maturinn í þessari ferð var ekki sá besti en það er kanski ekki að marka þar sem ég er mjög matvönd svo þetta var mikil áskorun fyrir mig, en það var víst ekkert annað í boði. Ferðin endaði með miklu adrenalíni

í Livingstone við Viktoríufossa þar sem ég fór meðal annars í river rafting og teygjustökk.“ Bjargaði mannslífum í Tælandi Hvað stendur upp úr eftir svona ferðalög? „Í Eþíópíu komst ég ekki inní landið því að ég var ekki með áritun, þau hleyptu mér að vísu í gegn eftir um 21 klukkustunda bið þegar ég setti upp hvolpaaugun og sýndi þeim mynd af SOS styrktarbarninu mínu sem ég var að fara heimsækja. Ég var án matar, með enga svefnaðstöðu og í mjög takmörkuðu sambandi við fjölskyldu og vini. Þessi bið og óvissa var alveg þess virði því ég fékk að heimsækja SOS þorpið, styrktarbarnið mitt hann Alebes Mammo og SOS fjölskylduna hans. Nálægðin við dýrin var svakaleg og þá sérstaklega í tjaldferðalaginu. Hádegismatnum var stolið úr höndunum mínum af risa fugli, bavíani braust inn í tjaldið mitt og stal af mér snakki. Ég vaknaði einn morguninn í spreng en ákvað að halda í mér þegar ég sá nashyrning í um 20 metra fjarlægð frá tjaldinu. Skandaalkamp er þorp í Suður Afríku þar sem ég vann sem sjálboðaliði á leikskóla. Á þessum tíma var að kólna í veðri svo ég lagði til að safnað yrði fyrir vetrarfötum, það gekk bara svona rosalega vel, ég ásamt börnunum máluðum og skrifuðum á boli og ég seldi í gegnum Facebook. Ég vil nota tækifærið og þakka fyrir alveg ómetanlegan stuðning. Öll börnin fengu vetrarfatnað og fór um helmingur í neyðarsjóð sem er notaður þegar börnin þurfa að sækja sér læknisaðstoðar.“ „Í Tælandi varð ég ásamt fjórum öðrum vitni af hræðilegu mótorhjólaslysi. Leigubílstjórinn gerði lítið úr þessu og hálf glotti en við börðumst fyrir því að hann mundi stöðva bílinn sem hann gerði. Við vorum fyrst á vettvang, á götunni lá kona og karl meðvitundarlaus. Við fórum strax í að tékka púls og öndunarveg og báðum leigubílstjórann um að hringja á sjúkrabíl. Það kom sér vel að ég er menntaður sjúkraliði og hef unnið víða í heilbrigðiskerfinu, ég náði að halda ró minni og tók strax stjórn á vettvangi. Þau voru bæði með veikan púls og hæga öndun, á tímapunkti átti ég ekki von á að þau mundu lifa þetta af. Við gerðum allt sem við gátum í þessum aðstæðum, en á meðan umkringdi fólk okkur og tók myndir. Eftir nokkrar mínútur rönkuðu þau við sér og okkar verkefni var að reyna að halda þeim kyrrum þar sem þau voru augljóslega illa brotin. Ég sat hjá konunni allan tímann til að ganga í skugga um að öndunarvegurinn væri opinn og hún myndi

ekki að færa sig til. Það var ekki auðvelt þar sem leigubílstjórinn lamdi í mig margsinnis og ýtti mér í burtu en ég barðist fyrir mínu og neitaði að fara frá konunni þar til sjúkrabíllinn kæmi. Fólk veltir því kannski fyrir sér afhverju leigubílstjórinn hafi verið að lemja mig, jú menningarheimar okkar eru mismunandi, ef þau hefðu ekki verið tryggð hefði ég líklegast borið ábyrgð á lækniskostnaði þeirra. Um fjórum dögum eftir slysið hringdi ég á sjúkrahúsið og óskaði eftir upplýsingum um þau. Ég fékk þær upplýsingar að maðurinn hafi verið ílla brotinn á annari löppinni og farið úr axlarlið en konunni var hinsvegar haldið sofandi í öndunarvél, rifbeinsbrotin, hryggbrotin og fótbrotin. Læknirinn á sjúkrahúsinu þakkaði svo innilega fyrir, hann spurði mig hvort ég gerði mér grein fyrir því hvað við hefðum gert fyrir þetta fólk. Annars væru þau sennilega ekki á lífi í dag.“ Finnst þér þú hafa lært mikið af þessari lífsreynslu og hefur þetta breytt þér? „Þetta ár hefur verið mjög lærdómsríkt, sjálfstraust mitt hefur aukist mikið og ég hef fengið nýja innsýn inní lífið. Ég þurfti svo sannalega að standa á eigin fótum og læra að bjarga sjálfri mér. Á Balí fór ég í einkameðferð hjá Ósk þerapista og jógakennara. Þar lærði ég aðferðir til að elska sjálfa mig, auka sjálfstraust mitt og öðlast meiri lífgæði.“ Ísland er öruggur staður Í framtíðinni sér Aníta fyrir sér að starfa sem hjúkrunarfræðingur og taka þátt í heilbrigðistengdum verkefnum víðsvegar um heim. Hún hefur nú þegar tekið fyrsta skrefið í átt að því markmiði þegar hún hóf fjarnám í hjúkrunarfræði við háskólann á Akureyri nú s.l. haust. „Eftir að hafa í rúma fjóra mánuði ferðast um heiminn kom ég heim en ég fann fljótt að ég var ekki komin með nóg og ákvað að fara aftur út eftir aðeins fimm vikna stopp á Íslandi. Ég tók skólabækurnar með mér til Cape Town í SuðurAfríku, stundandi námið af kappi og aðstoðaði svo á leikskólanum sem ég hafði verið að vinna sem sjálfboðaliði nokkrum mánuðum áður. Tæpum tveimur mánuðum síðar neyddist ég hreinlega til að koma aftur heim.“ Sennilega hefur þú lært að meta eða horfa öðruvísi á Ísland eftir af hafa verið á öllum þessum ólíku stöðum? „Ísland er öruggur staður, samfélagið og þjónustan sem við búum við er ekki sjálfgefin. Við ættum að líta á það sem forréttindi að hafa fæðst hér og fá að búa á þessu landi.“

Börnin í sjálfboðaliðastarfinu í Cape Town, Suður-Afríku.

Á röltinu með apa á öxlinni á Balí. Eins og ekkert sé sjálfsagðara.

Það þarf að höggva bananatré fyrir filana, Aníta í sjálfboðaliðastarfinu í Tælandi.

Daglegur göngutúr í sjálfboðaliðastarfinu í Tælandi.


78

fimmtudagur 17. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-jólin

mín fjölskylduna og systkini mín tóku þátt í því. Mikið stuð. Er eitthvað eftirminnilegt í huga þér frá yngri árum þínum á jólum? Það var auðvitað pakkarnir sem voru í tugum talið, enda stór fjölskylda sem ég á. Það var líka alltaf tilhlökkun að taka þátt í getraununum sem lögreglan stóð á bakvið. Sá sem var dreginn út fékk afhenda bók að verðlaun á aðfangadagsmorgni. Ég vann þrjú ár í röð og má segja að það hafi orðið að smá hefð hjá mér.

ÓSKUM HEIMAMÖNNUM

GLEÐILEGRA JÓLA

OG FARSÆLDAR Á NÝJU ÁRI

Hvað er í matinn á aðfangadag? Léttreyktur hamborgarhryggur.

Fékk jólagjöf frá löggunni þrjú ár í röð Björn Bergmann Vilhjálmsson er varaformaður Björgunarsveitarinnar Ægis í Garði. Hann hefur staðið í ströngu með félögum sínum í björgunarsveitinni síðustu daga en gaf sér þó tíma til að svara nokkrum léttum jólaspurningum. Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið? Home alone myndirnar koma mér alltaf í jólaskapið. Sendir þú jólakort eða hefur facebook tekið yfir? Við sendum nokkur jólakort, annars fá allir jólakveðju á facebook. Ertu vanafastur um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar?

Við fjölskyldan borðum og opnum pakkana heima, svo er flakkað á milli foreldrahúsa í matarboðum yfir hátíðina. Svo er það bara tærnar uppí loft og notið þess að vera með börnunum. Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Ætli það hafi ekki verið Mikka mús trommusett þegar ég var í kringum 6 ára. Þá var stillt sér uppá stofuborði og haldnir tónleikar fyrir

Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Ætli það sé ekki bara á Þorláksmessu. Yfirleitt vinn ég rétt framyfir hádegi þann dag og svo kominn í jólafrí. Hefur þú verið eða gætir þú verið hugsað þér að vera erlendis um jólin? Ég hef aldrei verið erlendis um jól, en gæti alveg hugsað mér að prufa það í framtíðinni.

Hamradal 11 – 260 Reykjanesbæ Aðsetur: Rauðagerði 25 – 108 Reykjavík // Sími:517 0900 - 695 3770 www.kaelivirkni.is

Hvernig brástu við þegar þú komst að leyndarmálinu um jólasveininn? Það hefur sjálfsagt verið mikið áfall á þeim tíma.

2015 2015 2015 2015 2015

Áttu þér uppáhalds jólaskraut? Það er ekkert sem kemur í staðinn fyrir jólatréið góða.

Víkurfrétta SkafmiðaleikurrVíkurfrétta Skafmiðaleiku Víkurfrétta r Skafmiðaleiku Suðurnesjum verslanaáár ogverslana Víkurfrétta Skafmiðaleiku Suðurnesjum og Víkurfrétta r Skafmiðaleiku Suðurnesjum verslana áSuðurnesjum ogverslana og verslana ááSuðurnesjum og

Hvernig verð þú jóladegi? Við förum í mat til foreldra minna í hádeginu, svo er matarboð hjá tengdaforeldrum mínum um kvöldið. Þess á milli er ég yfirleitt að setja eitthvað dót saman fyrir börnin.

Skötuhlaðborð

í Officeraklúbbnum 23. desember frá kl. 11:30 - 14:00 Forréttir Síldarsalöt 3 teg Reyktur lax með Piparótarsósu Grafinn lax með sinnepssósu Sjávarrétta Salat Heitreyktur lax með kornasinnepshjúp Villibráðar pate Aðalréttir Kæst skata og tindabykkja Skötu stappa

Siginn fiskur Plokkfiskur Saltfiskur Hangikjöt með uppstúf Meðlæti Hnoðmör, Hamsatólg, lauksmjör, hrásalat, Laufabrauð, rúgbrauð, kartöflusalat, grænar baunir, rauðkál, Eftirréttur Ris Almande

Borðapantanir í síma 421 4797

Verð kr. 3700,-

Grænásbraut 619. 230 Reykjanesbæ // veislur@simnet.is // Tel 4214797 / 8613376


79

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 17. desember 2015

Ísaga ehf. vill umsögn Vogamanna um verksmiðju

Brunnstígur í vetrarskrúða

XXHljóðstig frá fyrirhugaðri starfsemi ÍSAGA ehf. á iðnaðarsvæði við Voga verður innan viðmiðunarmarka reglugerðar um hávaða. Þetta sýna kort sem umhverfis- og skipulagsnefnd Voga hefur undir höndum. Nefndin tekur jákvætt í breytingu á deiliskipulagi sem þarf að gera vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar. Nefndin hefur erindi Ísaga ehf. til meðferðar þessa dagana. Í erindinu er lýst áformum fyrirtækisins um uppbyggingu nýrrar súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju á iðnaðarsvæði við Vogabraut, ásamt því að starfsemi fyrirhugaðrar verksmiðju er lýst nánar. Í erindinu er þess farið á leit við Sveitarfélagið Voga að það gefi á þessu stigi umsögn um fyrirhugaða framkvæmd og þeirri breytingu sem fyrirséð er að gera þurfi á deiliskipulagi vegna hæðar kæliturns og tanka, áður en lengra er haldið í undirbúningi.

Jákvæðar niðurstöður úr markþjálfunartilraun meðal nemenda XXHópur ástríðufullra markþjálfa, sem starfa saman undir heitinu Mark þjálfahjartað, hefur í haust unnið að tilraunaverkefni í samstarfi við nokkra grunnskóla á Suðurnesjum. Markþjálfahjartað bauð nemendum í 8.-10.bekk að kynnast aðferðum markþjálfunar til að setja sér uppbyggileg markmið í daglegu lífi og bæta þannig lífsgæði sín og námsárangur. Markmið Markþjálfahjartans er að gera markþjálfun að nærtæku og uppbyggilegu afli í skólastarf ungmenna, þeim til heilla í námi sem og í daglegu lífi þeirra utan skólans. Það er stutt frá því að segja að nemendur tóku marþjálfunartækninni með opnum huga. Þeir blómstruðu í samtölum sínum við markþjálfana og nutu þess að fá að tjá sig um hjartfólgin mál á eigin forsendum. „Umsagnir nemenda að loknu þessu tilraunaverkefni voru mjög jákvæðar að okkar mati, og glöddu okkur sem vinnum með og nýtum samskonar aðferðir í okkar lífi,“ segir Ásta Guðrún Guðbrandsdóttir verkefnisstjóri og ACC markþjálfi. Dæmi um umsagnir nemenda eftir samtöl: „Þau minntu mig á að vera alltaf góð við sjálfa mig, að mínir helstu draumar í framtíðinni geta ræst með góðu hugarfari og standa alltaf með mér. Mér fannst líka gott að heyra falleg hrós. Þau eru stundum sjaldgæf. Takk fyrir að hjálpa mér.“ „Þau hjálpuðu mér að tala opinberlega um vandamál mín og áhugamál mín og hjálpuðu mér að velja áhugastarf mitt.“ „Gáfu mér sjálfstraust til að bæta mig og sýna mína styrkleika í fótbolta, og að sjá það sem ég vil í framtíðinni.“ „Ég fékk miklu skýrari sýn um hvað ég vil gera í framtíðinni, fann leiðir til þess að ná því, er strax búin að ná nokkrum markmiðum, fékk meira sjálfsöryggi og svo er líka bara geðveikt skemmtilegt að fá svona. Takk æðislega fyrir allt!“ „Að mati okkar sem tókum þátt í verkefninu fyrir hönd Markþjálfahjartans á markþjálfun fullt erindi inn í skólastarf. Þjálfunin er öflugt verkfæri og góð viðbót við allt það faglega starf sem þegar er unnið í grunnskólum landsins. Markviss þjálfun í líflsleikni og námsfærni getur fært okkur öll enn nær því framúrskarandi skólaumhverfi sem við að sjálfsögðu stefnum að,“ segir Ásta Guðrún Guðbrandsdóttir.

SUMARSTÖRF HJÁ AVIS OG BUDGET

Bílaleigur Avis og Budget óska eftir að ráða starfsfólk í sumarafleysingar á leigustöð félagsins á Keflavíkurflugvelli:

SÖLUFULLTRÚAR Starfið felur í sér afgreiðslu á bílaleigubílum. Unnið er samkv. 2-2-3 vaktakerfi á dag-, kvöld- og næturvöktum.

Helstu verkefni: • Afhending og móttaka bílaleigubíla • Gerð leigusamninga • Samskipti við erlenda og innlenda viðskiptavini • Sala til erlendra og innlendra viðskiptavina

Almennar hæfniskröfur: • Bílpróf er skilyrði • Tungumálakunnátta er skilyrði (helst 2 tungumál) • Tölvuþekking • Lipurð í mannlegum samskiptum, ásamt framúrskarandi þjónustulund og söludrifni • Hreint sakavottorð • Jákvæðni, frumkvæði og dugnaður • Snyrtimennska • 20 ára lágmarksaldur

ÞRIF Á BÍLUM Starfið felur í sér þrif á bílaleigubílum. Unnið er samkv. 2-2-3 vaktakerfi á dag-, kvöld- og næturvöktum.

Helstu verkefni: • Þrif á bílum – að innan og utan • Yfirferð á ástandi bíls • Akstur

Almennar hæfniskröfur: • Bílpróf er skilyrði • Lipurð í mannlegum samskiptum, ásamt framúrskarandi þjónustulund • Hreint sakavottorð • Enskukunnátta • Jákvæðni, frumkvæði og dugnaður • Snyrtimennska • 20 ára lágmarksaldur

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um störfin inn á heimasíðu Avis, avis.is Umsóknarfrestur er til 25.janúar 2016

Bílaleigur AVIS og Budget eru meðal stærstu bílaleiga í heimi og starfa í 180 löndum með yfir 5.000 leigustöðvar. Á Íslandi er AVIS og Budget ört vaxandi fyrirtæki með leigustöðvar um allt land og geta viðskiptavinir AVIS og Budget leigt bíla við öll tækifæri. Hjá AVIS og Budget starfar öflugur og reyndur hópur fólks sem vinnur ávallt með þjónustu og áreiðanleika að leiðarljósi. Leitast er við að skapa starfsfólki gott starfsumhverfi og aðstöðu en ánægja starfsfólks og viðskiptavina er lykilatriði í velgengni AVIS og Budget.


Hlýjar hátíðarkveðjur Kadeco, þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, sendir landsmönnum öllum hlýjar óskir um gleðilega hátíð með þakklæti fyrir árið sem er að líða.

PIPA

PIPAR \ TBWA

•

SÍA

Það eru ótal tækifæri í kortunum fyrir Reykjanesið á nýju ári og við munum halda áfram að efla blómlegt samfélag frumkvöðla, fræða og atvinnulífs á Ásbrú.

Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar Sími 425 2100 | www.kadeco.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
49 tbl 2015 seinni by Víkurfréttir ehf - Issuu