Víkurfréttir
EIN MILLJÓN ÁHORF
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000
Á SJÓNVARP VÍKURFRÉTTA Á
Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001
Sláðu inn leitarorðið „Sjónvarp Víkurfrétta“ á Youtube.com og horfðu á eitthvað af 700 myndskeiðum og þáttum Sjónvarps Víkurfrétta
700 innslög s f.i í háskerpu á v
Sjónvarp Víkurfrétta
Sjónvarp Víkurfrétta er í páskafríi á ÍNN í þessari viku. Þú getur horft á eldri þætti í háskerpu á vef Víkurfrétta
– í HD á vf.is þegar þér hentar!
vf.is
MIÐ VIKUDAGINN 1. AP R ÍL 2 0 15 • 13 . TÖ LUBLA Ð • 36. Á RGA NGU R Norskur málsháttur úr einu af eggjunum.
Páskaleg vorsýning Vorsýning BRYN Listdansskóla Reykjanesbæjar var haldin í Andrews menningarhúsinu á Ásbrú um nýliðna helgi. Sýningin var fjölbreytt og skemmtileg þar sem nemendur á öllum aldri úr forskóla, grunnskóla- og framhaldsskóladeild sýndu listir sínar í klassískum ballett, táskótækni, nútímadansi, hip hop, nútímadjassdansi og fleira.
Sjáið fleiri myndir á vf.is.
Fengu 1000 norsk páskaegg Gleðilega páska fyrir mistök
Reykjanesbær skiptir um kennitölu og lækkar skuldir um 70% – íbúar geta sótt um lágmarksútsvar með rafrænum skilríkjum á bæjarskrifstofunni í dag
R
FÍTON / SÍA
eykjanesbær hefur skipt um kennitölu. Aðgerðin er möguleg vegna glufu í sveitarstjórnarlögum. Bæjarfélagið verður því framvegis rekið sem byggðarsamlag en ekki hefðbundið bæjarfélag. Sérfræðingar frá endurskoðunarskrifstofum hafa undanfarna mánuði unnið með bæjaryfirvöldum í Reykjanesbæ í lausn á skuldavanda sveitarfélagsins. Eins og kunnugt er af fréttum skuldar Reykjanesbær yfir 40 milljarða króna. Þegar nýr meirihluti tók við stjórnartaumum í sveitarfélaginu eftir kosningar síðasta vor var strax
einföld reiknivél á ebox.is
farið í vinnu við að leysa vanda Reykjanesbæjar. Unnið hefur verið eftir áætlun sem kallast Sóknin og þar hefur verið ráðist í nokkrar sársaukafullar aðgerðir til að rétta við hag bæjarins. Í allri þeirri vinnu sem þegar hefur verið unnin kom í ljós að glufa er í sveitarstjórnarlögum sem í raun heimilar sveitarfélagi að skipta um kennitölu. Kennitala Reykjanesbæjar er liðlega 20 ára gömul en hún verður í dag færð á sérstakan bókhaldslykil. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ,
segir að þetta þýði þó ekki a ð s v e i t a rfélagið sé orðið skuldl au s t . Hi ns vegar lækka skuldbindingar Reykjanesbæjar um 70% við þessa aðgerð. Munar þar mestu um skuldir hafnarinnar. Þessi breyting, að skipta um kennitölu og reka bæjarsjóð sem byggðarsamlag, þýðir að ekki þarf að hækka álögur eins
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR
auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
og útsvar á bæjarbúa. Reyndar ge t a út s v ar s g re i ð e n du r í Reykjanesbæ nú sótt um lágmarksútsvar með því að framvísa rafrænum skilríkjum. Það hefur verið mögulegt alla þessa viku, eins og greint var frá á vf.is á mánudaginn. Umsóknir um útsvarslækkun þurfa hins vegar að hafa borist fyrir páska. Í dag er því lokadagur fyrir útsvarslækkun. Fólk þarf að mæta á bæjarskrifstofurnar við Tjarnargötu með rafrænu skilríkin og sækja um lækkunina. Vegna páska er opið í þjónustuveri bæjarins til kl. 21:00 í kvöld.
eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
– verða gefin kátum krökkum í dag í íþróttahúsinu við Sunnubraut
N
ettó pantaði fyrr á árinu páskaegg frá sælgætisverksmiðju í Noregi. Þegar eggin skiluðu sér í hús kom í ljós að 1000 egg í sendingunni höfðu skandinavíska merkingu og innihéldu norska málshætti. Þar sem málshættir skipta mestu máli þegar páskaegg eru annars vegar var ákveðið að eggin 1000 færu ekki í sölu, heldur yrðu gefin nú á síðustu metrunum fyrir páska. „Okkur fannst rétt að leyfa fólki að njóta eggjanna, þó svo málshættirnir fari fyrir ofan garð og neðan,“ segir Ómar Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samkaupa, sem eiga og reka Nettó. Málsháttur eins og „Sjaldan fellur unginn langt frá hænunni“ kom úr páskaeggi sem var opnað í viðurvist ljósmyndara. Eggin eru troðin af sælgæti frá bæði Haribo og Mikla. Eggin 1000 verða gefin í dag í íþróttahúsinu við Sunnubraut í Keflavík. Það kom í hlut umsjónarfélaga Nettómótsins í körfubolta að dreifa eggjunum og hafist verður handa við að gefa eggin kl. 17 í dag.
Ómar Valdimarsson framkvæmdastjóri Samkaupa ehf. með eitt af norsku eggjunum sem verða gefin í dag.
2
miðvikudaginn 1. apríl 2015 • VÍKURFRÉTTIR
OPNUNARTÍMI YFIR PÁSKAHÁTÍÐINA Ráðhús – þjónustuver og Bókasafn Lokað 2. – 6. apríl. Ráðhúskaffi einnig lokað. Rokksafn Íslands Lokað föstudaginn langa og páskadag. Opið aðra daga kl 11:00-18:00. Duushús og Víkingaheimar Lokað föstudaginn langa og páskadag. Helgaropnun aðra daga Sundmiðstöð - Vatnaveröld Lokað föstudaginn langa og páskadag. Opið aðra daga kl. 09:00-17:00.
SAFNFULLTRÚAR ÓSKAST Í DUUS SAFNAHÚS Reykjanesbær óskar eftir að ráða tvo safnfulltrúa í Duus Safnahús. Um 55 % starf er að ræða eftir vaktavinnufyrirkomulaginu 2-2-3 frá kl. 11.30-17.30. Helstu verkefni: - Móttaka safngesta og leiðsögn um sýningarnar. - Umsjón með daglegum rekstri safnahússins. - Þátttaka og undirbúningur í framkvæmd sýninga og annarra viðburða í safnahúsinu. - Sala minjagripa og daglegt uppgjör. Menntunar- og hæfniskröfur: - Stúdentspróf eða annað sambærilegt - Reynsla af safnastarfi eða ferðaþjónustu æskileg - Gott vald á íslensku og ensku - Góð hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund - Tölvukunnátta Umsóknarfrestur er til og með 19. apríl nk. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á vef Reykjanesbæjar www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf. Nánari upplýsingar um starfið veitir Valgerður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri menningarsviðs, (valgerður.gudmundsdottir@reykjanesbaer.is)
VILT ÞÚ TAKA ÞÁTT Í BARNAHÁTÍÐ Markmið hátíðarinnar eru að: • Skapa vettvang fyrir börnin að koma fram og sýna afrakstur þess sem þau eru búin að vinna og æfa. • Skapa vettvang fyrir fjölskyldur að eiga saman skemmtilegar og skapandi stundir þeim að kostnaðarlausu. • Kynna fyrir bæjarbúum og öðrum það sem bærinn hefur að bjóða börnum og fjölskyldum. Hátíðin er kjörið tækifæri fyrir félagasamtök og aðra sem bjóða upp á þjónustu fyrir börn til að kynna starfsemi sína með skemmtilegum hætti. Hátíðin fer fram helgina 9.-10. maí á Duushúsasvæðinu og verða viðburðir jafnt innan húss sem utan. Áhugasamir hafi samband fyrir 10. apríl á netfangið menningarfulltrui@reykjanesbaer.is eða í s. 4216700.
-fréttir
pósturu vf@vf.is
■■Faðir í Reykjanesbæ ósáttur við svör og forgangsröðun:
Gagnrýnir aðgengi á vegum íþrótta- og tómstundaráðs „Það er verið að monta sig af því á Facebook að búið sé að opna Innileikjagarðinn en það eru bara ekkert allir sem geta notað hann. Á ég bara að láta 5 ára tvíburana mína eða 9 ára gamlan son minn bera mig þarna inn? Þetta er ekki bara brot á mínum mannréttindum heldur barnanna minna líka,“ segir Arnar Helgi Lárusson, íbúi í Reykjanesbæ. Hann segir farir sínar ekki sléttar í samskiptum við bæjarskrifstofuna þegar hann hefur kvartað undan slæmu aðgengi. Vel hægt með litlum tilkostnaði „Ég er alls ekki ánægður. Meira og minna allt sem íþrótta- og tómstundaráð gerir í Reykjanesbæ er óaðgengilegt. Sem dæmi er 88 Húsið algjörlega til skammar, þröskuldar hér og þar við innganga í æfingahúsnæðum í bænum og samkomusalur á 2. hæð í lyftulausri Reykjaneshöllinni. Varðandi Innileikjagarðinn ber bærinn fyrir sig að um sé að ræða tilraunaverkefni. Samt var hann rekinn í tvö ár áður. Arnar Helgi segist hafa spurt þá hvers vegna 50 þúsundkalli yrði ekki varið í að bæta aðgengið þar og hafa fengið þau svör að ekki væri til fjármagn í það og að garðurinn yrði aðeins opinn í tvo mánuði. „Þá greinilega skiptir engu máli þótt ég komist ekki þangað. Ég er sami þegninn og aðrir í þessu þjóðfélagi. Það eru margir fatlaðir á Suðurnesjum og kostnaðurinn er ekki það mikill að ekki sé ráðið við það. Það sem ég vil fyrst og fremst koma á framfæri er að það er víða hægt að bæta aðgengi fyrir ekki mikinn pening. Þetta er fyrst og fremst spurning um forgangsröðun.“ Getur ekki aðstoðað börnin sín Arnar Helgi segist ekki hafa fundið almennilega fyrir slæmu aðgengi í bænum fyrr en hann varð faðir sjálfur og langaði að mæta á viðburði og æfingar með börnum sínum. „Í Sókninni, sparnaðaraðgerð bæjarins, kemur fram að hún hafi ekki átt að bitna á þjónustu við íbúa. „Ef þetta bitnar ekki á þjónustunni á það þá bara að bitna á fötluðum? Ég er orðinn hundleiður á þessu og fæ engin almennileg svör nema t.d. að það sé gott hjá mér að benda á þetta og að ég geti komið inn um stóru dyrnar bakatil inn í 88 Húsið. Hvað á ég að gera þarna inni ef krakkarnir
Við aðalinngang inn í 88 Húsið.
mínir þurfa að fara á klósettið og geta ekki hjálpað sér sjálfir? Það er ekkert hugsað lengra en þetta. Ég ber ábyrgð á börnunum mínum og hvert þau fara. Ég er foreldri og ég á fullan rétt á því sem íbúi í þessu bæjarfélagi því ég borga gjöld, skatta og útsvar eins og allir aðrir,“ segir Arnar Helgi. Taka þarf afstöðu um framtíð 88 Hússins Guðlaugur H. Sigurjónsson, framkvæmdastjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjanesbæjar, segir að á undanförnum árum hafi verið unnið að því að bæta aðgengi við stofnanir bæjarins. „Árið 2013 fórum við í samstarf við Gott aðgengi sem tóku út allar stofnanir bæjarins, unnu skýrslu og út frá henni gerðum við kostnaðaráætlun á hve mikið fjármagn þyrfti til að bæta aðgengismál í Reykjanesbæ. Þarna er ekki einungis gerð úttekt á aðgengi fyrir hjólastólanotendur heldur er einnig könnuð aðstaða fyrir göngu- og handskerta, sjónskerta, heyrnarskerta, þá sem haldnir eru ofnæmi, einstaklinga með þroskahömlun og lestrarörðugleika. Alls voru um 60
milljónir áætlaðar í framkvæmdir og árið 2014 eyddum við rúmlega 23 milljónum. Til að byrja með voru áherslur á að tryggja aðgengi inn í stofnanir og að merkja bílastæði. Varðandi einstakar byggingar þá er það rétt að aðgengi í húsnæði t.d. eins og 88 Húsið algjörlega óásættanlegt miðað við notkun en þar er lyftukostnaður langstærstur í áætlun eða rétt tæpar 14 milljónir og þarf í raun að taka afstöðu til þess hvort þetta húsnæði verður nýtt áfram fyrir almenning.“ Aðgengi að Innileikjagarði bætt á næstu dögum Í samtali við Víkurfréttir segist Stefán Bjarkason, framkvæmdastjóri íþrótta- og tómstundasviðs Reykjanesbæjar harma mjög að Arnar og hans fjölskylda geti ekki á eðlilegan hátt sótt Innileikjagarðinn á Ásbrú eins og aðrir bæjarbúar. „Við þökkum honum fyrir ábendingarnar. Búið er að semja við verktaka um að ganga þannig frá málum við húsið að hjólastólar komist þar inn. Farið verður í verkið á næstu dögum.“
SLÆMT AÐGENGI SEM TENGIST ÍÞRÓTTUM OG TÓMSTUNDUM:
Skv. lögum má svona kantur ekki vera hærri en 2 1/2 cm.
Fílhraustur Arnar Helgi kemst ekki yfir þennan þröskuld.
■ Vallarhúsið í Njarðvík ■ Efri hæð í Reykjaneshöllinni ■ Íþróttahúsið í Myllubakkaskóla ■ Innileikjagarðurinn ■ 88 húsið ■ Júdó-æfingaraðstaðan við Iðavelli ■ Box-aðstaðan í gömlu sumdhöllinni ■ Aðstsðan við golfherminn ■ Bryn ballett
3
VÍKURFRÉTTIR • miðvikudaginn 1. apríl 2015
-fréttir
pósturu vf@vf.is
„ÁTTI EKKI VONA Á ÞVÍ AÐ LIFA ÞETTA AF“
Ungu hjónin og börnin með þeim Nikola og Najdan og lögreglu og slökkviliðsmönnum. VF-myndir /pket.
-segir Alexandra Ósk Magnúsdóttir, ung móðir á Ásbrú sem lenti í bílveltu á veginum við Ósabotna, milli Hafnavegar og Stafness, með tvö börn sín í aftursæti. Tveir menn björguðu henni og börnunum. Alexandra lenti undir bílnum en slapp með lítil meiðsl. „Það var erfitt að liggja föst undir bílnum og heyra börnin hágráta og hrædd. Ég vonaðist eftir því að einhver kæmi og bjargaði þeim en átti sjálf alveg von á því að vera að enda lífið þarna,“ segir Alexandra Ósk Magnúsdóttir sem missti bíl sinn út af í lausamöl á veginum við Ósabotna, milli Hafnavegar og Stafness. Hún er þakklát þeim Nikola Tisma og Najdan Ilievski sem komu að slysinu og lyftu bílnum af henni og kölluðu til lögreglu og slökkvilið til hjálpar. Alexandra og Aron Arnbjörnsson, unnusti hennar, hittu björgunarmennina sem og lögreglu- og slökkviliðsmenn í húsnæði Brunavarna Suðurnesja á þriðjudagskvöld, til að þakka þeim. Þau færðu björgunarmönnum sínum viðurkenningarskildi og blóm en þeir Nikola og Najdan sem eru frá Serbíu komu líka með blóm til þeirra. Svo bakaði Aron pönnukökur og hópurinn fékk sér kaffi á slökkvistöðinni. „Þeir Nikola og Najdan voru ánægðir að sjá börnin okkar þau Díönu (3 ára) og Sigurð Mikael (1 árs) sem sluppu svo ótrúlega vel. Við erum þeim félögum svo óendalega þakklát,“ sögðu ungu hjónin. Alexandra segir þegar hún er spurð út í óhappið að hún hafi strax fundið að hún réði ekki við neitt þegar hún missti bílinn útaf.
„Ég man eftir fyrstu veltunni og svo eftir þá næstu flaug ég með hausinn út um bílrúðuna farþegamegin fram í og fann svo þakið detta ofan á hausinn á mér. Vinstri hendin lendi líka undir og þetta tvennt náði ég ekki að hreyfa en gat hreyft fætur og annað. Ég var að reyna að ná til barnanna og heyrði bara háværan grát og vildi því freista þess að róa þau. Það næsta sem ég man var þegar ég heyrði í björgunarmönnunum koma. Það gaf mér von. Svo var mikill léttir þegar þeir lyftu bílnum ofan af mér.“ Hún segist ekki vera alveg viss hvort hún hafi verið í öryggisbelti, hún hafi rætt það við prestinn eftir slysið. Hún hafi t.d. ekki losnað úr sætinu við fyrstu veltuna heldur í þeirri næstu. Hugsanlega hafi beltið gefið sig. „Ég var ekki í símanum þegar ég missti bílinn út af heldur að tala við dóttur mína og horfði á hana í baksýnisspeglinum. Börnin voru föst í sínum stólum aftur í og þau sluppu alveg ómeidd út þessu sem er ótrúlegt. Við vorum nýbúin að skipta um belti hjá stelpunni. Þau voru auðvitað mjög hrædd en sluppu alveg við meiðsli.“ Serbarnir, sem hafa búið og starfað á Suðurnesjum á annan áratug, sögðu þetta hafa tekið á andlega og þeir hafi verið í miklu uppnámi eftir slysið. Najdan segir að þeir hafi báðir grátið í bíl
sínum á leið heim. Najdan segir að tengdadóttir sín hafi verið ólétt og við það að fæða í síðustu viku og hann hafi því eflaust verið viðkvæmari en áður. Afabarnið kom svo í vikunni og hann væri alsæll eins og unga fjölskyldan með hvað allt fór vel.
Alexandra með Nikola og Najdan, björgunarmönnunum góðu.
GÖNGUFERÐ UM NÁGRENNI BLÁA LÓNSINS Á ANNAN Í PÁSKUM
Bláa Lónið og Grindavíkurbær bjóða upp á menningar- og sögutengda gönguferð mánudaginn 6. apríl, annan í páskum. Gangan hefst kl. 11.00 við bílastæði Bláa Lónsins og er áætlað að hún taki um 3 klukkustundir. Möguleiki er að fara rúmlega hálfan hring og fá akstur til baka. Leiðin sem farin verður er auðveld yfirferðar og hentar fyrir alla fjölskylduna. Sigrún Jónsdóttir Franklín verður leiðsögumaður í göngunni og mun hún fræða þátttakendur um leiðina með áherslu á náttúru og sögu svæðisins. Þátttakendur eru á eigin ábyrgð. Ekkert þátttökugjald er í gönguna og göngugarpar fá sérverð í Bláa Lónið að henni lokinni. Nánari upplýsingar á www.bluelagoon.is/ganga
Markhönnun ehf
4
miðvikudaginn 1. apríl 2015 • VÍKURFRÉTTIR
Páskar
Verðsprengja! hamborgarhryggur kjötsel
-50% 999
áður 1.998 kr/kg
lambalæri - goði
bayonneskinka/ bayonnesteik
sérmeyrnað - frosið
-40% 959
-
1.575
áður 1.598 kr/kg
áður 1.969 kr/kg
humar án skeljar
great taste 3 teg
1 kg - 20% íshúðun
225-350 gr
-42% 3.591
-36% 198
áður 6.191 kr/kg
áður 309 kr/pk
súkkulað
510 g -
pepsi/pepsi max
599 k
4x2 l
699
áður 799 k
áður 796 kr/pk
hátíðarblanda 0,5 l
89 áður 99 kr/stk
meðaN birgðir eNdast!
freyja páskaegg n
páskaegg nr 4 250 g - Ódýrt
700 kr/stk
draum/ævint
páskaegg/páskapoki only
139 kr/stk
Tilboðin gilda 01. - 06. apríl 2015 Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.
1.149
50% afsláTTur !
kjúklingabringur
Dagana 2.apríl til og með 6.apríl verður 50% afsláTTur á nammibar neTTó Granda oG neTTó mjódd
900gr, danskar
1.391 áður 1.761 kr/pk
grísahryggur
lambahryggur
pörusteik/beinlaus
ferskur-fylltur
-42% 1.383
2.572
áður 2.384 kr/kg
áður 3.215 kr/kg
ískaka - emmesís 800ml, 2 tegundir
-36% 799
áður 1.259 kr/stk Opnunartími Nettó um páskana:
súkkulaðikaka 510 g - mc cain
Nettó Akureyri Nettó Borgarnes Nettó Egilsstaðir Nettó Grandi Nettó Grindavík Nettó Hverafold Nettó Höfn Nettó Kópavogur Nettó Mjódd Nettó Reykjanesbær Nettó Selfoss
599 kr/stk
áður 799 kr/stk
a páskaegg nr.4 draum/ævintýra
1.149
freyja páskaegg nr.9 draum/ævintýra
2.069
jarðarber
250 gr í öskju
-50% 249
áður 498 kr/askjan
2.apríl 3.apríl 5.apríl 6.apríl skírdagur föstud.langi páskadagur annar í páskum 10.00-18.00 Lokað Lokað 10.00-18.00 10.00-18.00 Lokað Lokað 10.00-18.00 10.00-18.00 Lokað Lokað 10.00-18.00 Opið til miðnættis Lokað* Lokað* Opið 24. klst 10.00-18.00 Lokað Lokað 10.00-18.00 10.00-18.00 Lokað Lokað 10.00-18.00 10.00-18.00 Lokað Lokað 10.00-18.00 10.00-18.00 Lokað Lokað 10.00-18.00 Opið til miðnættis Lokað* Lokað* Opið 24. klst 10.00-18.00 Lokað Lokað 10.00-18.00 10.00-20.00 Lokað Lokað 10.00-20.00 *Lokum um miðnætti kvöldið áður og opnum aftur á miðnætti
! a k s á p a g e l i ð e l G
www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Grandi · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |
6
miðvikudaginn 1. apríl 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-ritstjórnarbréf
-viðtal
pósturu vf@vf.is
Olga Björt Þórðardóttir skrifar
Ný og óvænt Sókn! Góðar fréttir hafa streymt til skrifstofu Víkurfrétta undanfarna daga við vinnslu blaðins. Ber þar sérstaklega að nefna tímamótafrétt í sögu íslenskrar stjórnsýslu og fjársýslu um að loksins sé komin lausn fyrir Reykjanesbæ að losa sig undan sligandi 40 milljarða skuldaþunga. Skipt verður um kennitölu og hún færð á sérstakan bókhaldslykil. Líklega hefði fáum dottið í hug að þetta væri mögulegt en glufa í sveitarstjórnarlögum gerði ráðamönnum þetta kleift og verður bærinn framvegis rekinn sem byggðarsamlag. Bæjarbúar geta þá að vonum tekið gleði sína á ný því með þessari einföldu aðgerð lækka skuldbindingar bæjarins um 70% og íbúarnir geta sótt um lágmarksútsvar í þjónustuveri bæjarins með því að framvísa rafrænum skilríkjum. Það að skuldir Reykjanesbæjar lækki úr 40 milljörðum í 12 gefur stjórnendum ærlegan byr í seglin með að forgangsraða algjörlega upp á nýtt. Áhrifanna er strax farið að gæta því eins og fram kemur í frétt um aðgengismál á vegum íþrótta- og tómstundaráðs á bls. tvö í páskablaði Víkurfrétta verður farið í það á næstu dögum að bæta aðgengi við Innileikjagarðinn á Ásbrú. Eftir áberandi neikvæða umfjöllun í stærri fjölmiðlum á landinu á undanförnum mánuðum og árum um fjárhagsstöðu Reykjanesbæjar, eftir hrun og her, geta þeir mögulega aldeilis farið að taka eftir öllu því jákvæða sem gerist hér á svæðinu og sýna því meiri áhuga. Orðspor þess mun rísa á ný.
■■Fyrsta sýningin í Stapa eftir opnun Hljómahallar:
Ferill, tónlist og bransasögur Rúna Júl „Þetta verða ekki bara tónleikar, þetta verður sýning þar sem farið verður í söguna að baki hverju lagi og ferli pabba gerð góð skil. Þetta verður líka fyrsta sýningin sem haldin hefur verið í Stapa eftir að Hljómahöll opnaði. Við völdum líka Stapa og persónulega umgjörð í stað þess að hafa þetta stóran viðburð t.d. í Hörpu því við viljum efla menningu í heimabænum okkar,“ segja bræðurnir Baldur og Júlíus Guðmundssynir. Faðir þeirra, keflvíska rokkgoðið Rúnar Júlíusson, hefði orðið sjötugur 13. apríl og af því tilefni verða haldnir í Stapa, Hljómahöll, 11. apríl og bera þeir nafnið Sveitapiltsins draumur - Rúnar Júl 70. Bestu söngvarar landsins
Á tónleikunum verður ferill Herra Rokks rakinn í Við getum því sannarlega litið framtíðarinnar björtum máli, myndum og músik undir léttri leiðsögn fjölaugum með vor í hjörtum. skyldu Rúnars ásamt einvala liði söngvara og hljóðfæraleikara. Spurðir um hvort kappkostað hefði verið Gleðilega páska!
#vikurfrettir
Mynd: Dóra Ársælsdóttir
vf.is
SÍMI 421 0000
að fá heimafólk í lið með fjölskyldunni til að troða upp, segjast þeir einfaldlega hafa viljað fá besta fólkið. „Valdimar er besti söngvari á landinu og Salka Sól líka. Það vill svo bara til að Valdmar er mjög tengdur fjölskyldunni okkar á ýmsan hátt og það er því bara mjög ánægjulegt. Fyrsta plata hljómsveitarinnar Valdimar var t.a.m. tekin upp í Geimsteini.“ Auk Valdimars og Sölku Sólar flytja Stefán Jakobsson og Magni Ásgeirsson öll bestu lög Rúnars ásamt sérvalinni rokksveit undir styrkri stjórn Jóns Ólafssonar.
„Við ákváðum líka að hafa ungt fólk með okkur í þessu í stað gömlu kempanna sem störfuðu mikið með pabba“
Einstakur viðburður Rúnar var þekktur fyrir söng og bassaleik með mörgum af þekktustu rokkhljómsveitum Íslandssögunnar en hans er einnig minnst fyrir elju, hvatningu til ungra listamanna, húmor og einstaka ljúfmennsku. Á tónleikunum fáum við að heyra hvaðan lögin koma, nokkrar góðar bransasögur og ekki síst söguna á bak við manninn. Nær uppselt er á tónleikana og segjast bræðurnir ekki hafa haft áhyggjur af miðasölu. „Það verða engir aukatónleikar, þetta er einstakur viðburður sem ekki verður endurtekinn. Við ákváðum líka að hafa ungt fólk með okkur í þessu í stað gömlu kempanna sem störfuðu mikið með pabba. Þær skiluðu sínu vel á minningartónleikunum sem haldnir voru skömmu eftir andlát hans. Margar þeirra koma líka fram á afmælistónleikum Gunnars Þórðarsonar í Hörpu,“ segir Baldur og bætir við að Suðurnesjamenn gætu alveg verið meðvitaðri um alla þá menningarviðburði sem sem sé boði á svæðinu og vera duglegri við að sækja þá. „Eitt fimmtudagskvöldið voru hér a.m.k. fimm viðburðir í gangi í Reykjanesbæ, flestir stórir. Það segir heilmikið.“
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 P Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 P Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is P Blaðamenn: Olga Björt Þórðardóttir, sími 421 0002, olgabjort@vf.is, Sigurður Friðrik Gunnarsson, siddi@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is P Hönnun og umbrot: Þorsteinn Kristinsson, sími 421 0006, steini@vf.is, Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is, Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is P Prentun: Landsprent hf. P Upplag: 9000 eintök P Dreifing: Íslandspóstur P Stafræn útgáfa: www.vf.is, www.kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Ekki er tekið á móti smáauglýsingum í síma. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
7
VÍKURFRÉTTIR • miðvikudaginn 1. apríl 2015
-fréttir
pósturu vf@vf.is
Formenn deilda KSK fengu blómvendi.
Frá aðalfundi KSK í síðustu viku.
■■Aðalfundur Kaupfélags Suðurnesja:
Félagsmenn nýttu félagsmannaafslætti fyrir 243 milljónir króna í fyrra - Kaupfélag Suðurnesja 70 ára síðar á árinu
K
aupfélag Suðurnesja (KSK) hagnaðist um 834 milljónir króna á síðasta ári. Í KSK eru 4677 félagar sem eru eigendur félagsins. Aðalfundur þess var haldinn í síðustu viku, en félagið verður 70 ára þann 13. ágúst. Kaupfélag Suðurnesja er stærsti eigandi Samkaupa, á 62% hlutafjár í gegnum eigið félag og dótturfélögin Fagurey og KB Framfarafélag. Jafnframt er Kaupfélag Suðurnesja 69% eigandi fasteigafélagsins Urtusteins. Á aðalfundinum kom fram, eins og áður segir, að hagnaður móðurfélagsins var 834 milljónir á síðasta ári og hagnaður samstæðunnar var 2347 milljónir króna. Fjárhagslegri endurskipulagningu lauk á árinu 2014 og er bókfærð eiginfjárstaða KSK jákvæð. Lán félagsins eru í langtímagreiðsluferli. Tvær stærstu eignir KSK eru Samkaup og Urtusteinn. Fjárfestingar í verslunum Samkaupa á árinu 2014 við endurnýjun verslana um 180 millj. Rekstur Samkaupa 2014 var góður. Fyrri hluti ársins undir áætlun en sumarið var mjög gott. Engar nýjar verslanir opnuðu á árinu og markaðshlut-
Skúli Þ Skúlason formaður Kaupfélags Suðurnesja.
deild stóð í stað. Alls voru 47 verslanir í rekstri í lok árs og meðalfjöldi starfsmanna 865. Launagreiðslur námu 2.422 milljónum króna. Gert er ráð fyrir 4% aukningu í veltu á þessu ári og vörusala á árinu áætluð 23,2 milljarðar króna. Áfram verður unnið að innra skipulagi félagsins, rekstrarstjórn verslana, innkaupasviðs og starfsmannasviðs. Helstu verkefni Samkaupa á síðasta ári voru stækkun og endurnýjun verslunarinnar á Höfn, afgreiðslubúnaður í verslunum var endurnýjaður og þá var lýsing endurnýjuð í nokkrum búðum, m.a. verslun Nettó í Reykjanesbæ. Þá var haldið áfram að setja lok á djúpfrysta í verslunum en með þeim aðgerðum hefur náðst fram orkusparnaður sem svarar til notkunar 250 heimila og auka vörugæði. Hin stóra eign KSK er Urtusteinn ehf. Tekjur þess félags voru 482 milljónir á síðasta ári. Eignir voru upp á 4,1 milljarð og hagnaður félagsins var 1,2 milljarðar króna í fyrra. Veltufé frá rekstri var 193 milljónir. Urtusteinn á samtals 31.000
Margrét Sanders, formaður Samtaka verslunar og þjónustu.
fermetra af húsnæði sem er í 96% nýtingu en félagið er með leigusamninga við 95 aðila. Hagnaður félagsins skýrist helst af bakfærslu virðisrýrnunar frá fyrri árum. Kaupfélag Suðurnesja er með vildarkerfi fyrir 4677 félagsmenn sína í formi afsláttar í verslunum Samkaupa. Í hverjum mánuði nýta félagsmenn sér félagsmannaafslætti fyrir tæplega 10 milljónir króna. Þrír stórir toppar voru í félagsmannaafsláttum á síðasta ári og var stærsti toppurinn í desember þegar félagsmenn fengu samtals 60 milljónir króna í afslátt. Alls voru afslættir til félagsmanna kaupfélaga um allt land rúmar 243 milljónir króna á síðasta ári. Nokkrar athyglisverðar tölur úr rekstri KSK síðustu sex ára voru nefndar á aðalfundinum í síðustu viku. Þannig hefur félagið greitt 12,4 milljarða króna í laun á síðustu sex árum, fasteignagjöld upp á 363 milljónir, Virðisaukaskatt upp á 698 milljónir króna, tekjuskatt upp á 263 milljónir og tryggingagjald upp á 960 milljónir.
ATVINNA
RÉTTURINN LEITAR EFTIR STARFSFÓLKI Í VINNU Rétturinn auglýsir eftir duglegu og afkastamiklu starfsfólki í kvöldvinnu í sumar. Tíminn sem um ræðir er frá kl. 17:00 - 21:00 virka daga. Til greina kemur að vinna 2 - 3 kvöld í viku. Þetta hentar framhaldsskólafólki sérstaklega vel þar sem það getur fengið áframhaldandi kvöldvinnu með skólanum. Upplýsingar veitir Magnús á Réttinum.
8
miðvikudaginn 1. apríl 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-fréttir
pósturu vf@vf.is
MEIRI FRAMTÍÐ Í FERÐAÞJÓNUSTU EN STÓRIÐJU - segir Skúli Mogensen hjá Wow flugfélaginu sem tók nýja flugvél í notkun og hóf flug til Bandaríkjanna
Flugvélin fékk viðeigandi mótttökur á Reykjavíkurflugvelli. VF-myndir/pket.
„Ferðaþjónustan er framtíðar atvinnugrein Íslendinga og orðin sú stærsta nú þegar. Við eigum að gefa henni meiri gaum en stóriðju. Wow stefnir að því að stækka mjög mikið á næstu árum enda mun ferðaþjónusta stækka um helming á næstu fjórum árum,“ sagði Skúli Mogensen eigandi Wow flugfélagsins en fyrsta flugferð þess til Bandaríkjanna var farin í gær. Var því fagnað í Flugstöð Leifs Eiríkssonar með tilheyrandi húllumhæi í stíl við léttleika Wow. Ný 15 milljarða Airbus 321 flugvél var „frumsýnd“ á Reykjavíkurflugvelli en daginn áður hafði hún lent á Keflavíkurflugvelli. Forsetafrúin Dorrit Moussaeiff gaf vélinni nafnið Freyja og allsherjargoðinn Hilmar Örn Hilmarsson blessaði vélina. Önnur ný vél er væntanleg á næstu dögum.
Farþegar í fyrstu ferð Wow til Boston nutu glæsilegra veitinga í tilefni þess að Wow hefur hafið flug til Bandaríkjanna. Hlynur Sigurðsson framkvæmdastjóri Keflavíkurflugvallar og Skúli Mogensen klipptu á borða í tilefni áfangans. Margir Suðurnesjamenn starfa sem stjórnendur Wow flugfélagsins, m.a. Björn Ingi Knútsson sem er framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs, Arngrímur Guðmundsson og Egill Reynisson. Þá eru margir flugliðar í hópi félagsins frá Suðurnesjum. Myndirnar hér að neðan voru teknar við komu vélarinar og svo fyrir fyrsta flugið frá Keflavík. Fleiri myndir má sjá í ljósmyndavef vf.is.
Þröstur Söring frá Isavia færði Skúla skemmtilegar gjafir í tilefni nýju flugvélanna.
Keflavíkurmærin Írmý Ósk Róbertsdóttir, ein fjölmargra flugliða hjá Wow.
Starfsmenn Isavia gengu fylktu liði í flugstöðinni með lúðrasveit áður en Wow fór í fyrsta skipti til Boston.
Suðurnesjamennirnir Björn Ingi og Arngrímur Guðmundsson á spjalli við flugstjórann eftir lendingu í Reykjavík.
Skúli með foreldrum sínum, Brynjólfi Mogensen og Önnu Skúladóttur en hún er fædd og uppalin í Keflavík.
Skúli og Björn Ingi Knútsson framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs rétt eftir komu vélarinnar til Reykjavíkur.
9
VÍKURFRÉTTIR • miðvikudaginn 1. apríl 2015
-mannlíf
pósturu vf@vf.is Þátttakendur í úrslitunum í Duus-húsum.
-páskaspjall
pósturu vf@vf.is
■■Jónína Magnúsdóttir, náms- og starfsráðgjafi MSS
GÓÐUR GÖNGUTÚR Á GARÐSKAGA Birgitta Rós sigraði í Stóru upplestrarkeppninni
L
okahátíð Stóru upplestrarkeppninnar var haldin í DUUS húsum 24. mars. Þar kepptu fulltrúar grunnskólanna í Reykjanesbæ og Sandgerði alls 13 nemendur. Keppendur lásu texta úr bók Guðrúnar Helgadóttur, Öðruvísi fjölskylda, ljóð eftir Anton Helga Jónsson og ljóð að eigin vali. Lesturinn var glæsilegur að vanda og keppendur vel undirbúnir. Tveir verðlaunahafar frá því í fyrra, Jóhanna Lilja Pálsdóttir og Kristján Jón Bogason, kynntu rithöfund og skáld keppninnar í ár. Skúli Guðmundsson, keppandi úr Grunnskóla Sandgerðis, flutti frumsamið ljóð eftir hann og móður hans, ort í tilefni af keppninni í ár. Birgitta Rós Ásgrímsdóttir úr Holtaskóla sigraði, Olga Nanna Corvetto, Akurskóla varð í 2. sæti og Erna Rós Agnarsdóttir, Holtaskóla varð í 3. sæti. Hátíðarbragur var á lokahátíðinni. Gylfi Jón Gylfason flutti ávarp og afhenti nemendum bókagjöf. Al-
exander Frydryk Grybos, nemandi í 7. bekk Holtaskóla flutti ljóð á pólsku og nemendur Tónlistarskóla Reykjanesbæjar fluttu tónlist. Að lokum flutti ávarp Ingibjörg Einarsdóttir, formaður dómnefndar
Á að ferðast eitthvað yfir páskahelgina? - Ef ekki, hvernig á að verja helginni? Verð í Berlín fram á skírdag. Helginni verður varið með fjölskyldunni þar sem lagt verður upp úr mat, samveru og kósýheitum. Skellum okkur eins og einn dag á skíði ef viðrar og góður göngutúr út á Garðskagavita er á dagskránni.
og morgunsólin hreinlega át það Í dag er ég spenntust að fela eggin fyrir strákunum mínum og set ég oft vísbendingar úti og inni til að gera leitina enn meira spennandi.
Áttu þér einhverjar hefðir sem tengjast páskunum? Hefðirnar eru tengdar samveru með fjölskyldunni, rólegheitum og mat. Sem barn var leitin að Nóa og Síríus páskaegginu mest spennandi fyrir utan eitt skipti þegar pabbi var svo sniðugur að setja það út í glugga
Hvernig páskaegg ætlar þú að fá þér í ár? Ég hef ekki keypt mér eggið svo það verður örugglega keypt korter í páska. Mér finnst nú einhvern veginn að ég breyti nú ekki miklu og skelli í eitt Nóa og Síríus nr. 4.
Hvað er borðað á þínu heimili á páskadag? Það eru engar hefðir hjá mér í mat á páskadag, en í ár verður það lambalæri.
■■ Rúnar Ingi Erlingsson, flugumferðarstjóri og körfuboltamaður
HORFI ALLTAF Á JESUS CHRIST SUPERSTAR Birgitta Rós Ásgrímsdóttir úr Holtaskóla sigraði.
og fulltrúi Radda, og óskaði viðstöddum til hamingju með velheppnaða listahátíð unga fólksins. Litla upplestrarkeppnin er nú að festa sig í sessi í 4. bekk grunnskólanna á svæðinu og eru lokahátíðir hennar haldnar í hverjum skóla fyrir sig þar sem nemendur lesa sögur og ljóð, einir sér eða í talkór.
Á að ferðast eitthvað yfir páskahelgina? - Ef ekki, hvernig á að verja helginni? Nei ég hugsa að það verði bara góð páskahelgi hérna í Njarðvíkunum. Það er alltaf nóg að gera og gott að geta opnað páskaeggið heima í stofu. Áttu þér einhverjar hefðir sem tengjast páskunum? Svona fyrir utan almennt súkkulaðiát þá horfi ég alltaf á Jesus Christ Superstar bíómyndina. Keypti mér hana fyrir mörgum árum og finnst
Afkoma Festu lífeyrissjóðs 2014 í milljónum króna
2013 í milljónum króna
5.303 2.826 7.302 106 106 9.566 89.388 98.954
4.755 2.550 7.787 99 102 9.791 79.598 89.388
Fjárfestingar
14 19 40.291 53.979 3.598 15 97.916
15 12 33.564 52.282 3.418 15 89.305
Annað Hrein eign til greiðslu lífeyris
960 590 (512) 1.038 98.954
1.024 584 (1.525) 83 89.388
8,0% 6,7% 4,4% 1,6% -2,6% 5,8% 4,6%
9,5% 5,5% 2,0% 1,7% -3,8% 9,7% 5,7%
Iðgjöld Lífeyrir Fjárfestingatekjur Fjárfestingargjöld Rekstrarkostnaður Hækkun á hreinni eign á árinu Hrein eign frá fyrra ári Hrein eign í árslok til greiðslu lífeyris
Hvað er borðað á þínu heimili á páskadag? Það er afar mismunandi , ekki jafn niðurneglt og jólin. Síðustu ár höfum við verið í kalkún eða hamborgarahrygg , en núna er stefnan held ég grillaðar nautalundir ala Elli Hannesar. Hvernig páskaegg ætlar þú að fá þér í ár? Keypti eitt Drauma páskaegg handa syni mínum en hugsa að ég splæsi í Nizza lakkrís páskaegg svo maður
sé líka með Nóa Síríus með sér. Súkkulaði og lakkrís er náttúrulega „deadly combo.“
Ársfundur 2015
Sameinaður Lífeyrissjóður Suðurlands, Suðurnesja og Vesturlands
Breytingar á hreinni eign
fátt betra á páskunum en að setja hana í gang og hækka í botn.
Ársfundur Festu lífeyrissjóðs verður haldinn þriðjudaginn 28. apríl nk. Fundarstaður: Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38. Fundarstörf hefjast kl. 18:00
Dagskrá ársfundar 2015:
1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins 3. Önnur mál, löglega upp borin
Efnahagsreikningur Fjárfestingar Húseignir og lóðir Hlutdeildarfélög Verðbréf með breytilegum tekjum Verðbréf með föstum tekjum Veðlán Bundin innlán og aðrar fjárfestingar
Annað Kröfur á viðskiptamenn Aðrar eignir Viðskiptaskuldir
Ýmsar kennitölur Nafnávöxtun Hrein raunávöxtun Hrein raunávöxtun, meðaltal síðustu fimm ára Hrein raunávöxtun, meðaltal síðustu tíu ára Tryggingafræðileg staða Nafnávöxtun séreignardeildar Hrein raunávöxtun séreignardeildar
www.festa.is Stjórn Festu lífeyrissjóðs: Ólafur S. Magnússon, stjórnarformaður Guðmundur Smári Guðmundsson, varaformaður Björg Bjarnadóttir, meðstjórnandi Dagbjört Hannesdóttir, meðstjórnandi Garðar K. Vilhjálmsson, meðstjórnandi Halldóra Sigr. Sveinsdóttir, meðstjónandi
Framkvæmdastjóri: Gylfi Jónasson
Traust - Ábyrgð - Festa
10
miðvikudaginn 1. apríl 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-mannlíf
pósturu vf@vf.is
■■Ungir Suðurnesjamenn sópuðu til sín verðlaunum á Músíktilraunum:
„Eins og að vera með þrjú bingóspjöld“
„Takið þið eftir því að þetta er meira og minna sama fólkið sem er að taka á móti verðlaununum hérna?“ sagði Ólafur Páll Gunnarsson á úrslitakvöldi Músiktilrauna sem haldið var um helgina. Keppninni var útvarpað beint á Rás 2 og reyndust þrjár hljómsveitir tengdar Suðurnesjum, SíGull, AvÓka og Par Ðar afar sigursælar. Reykjanesbæingarnir Sævar Helgi Jóhannsson, sem er bæði í SíGull og Par Ðar og Arnar Ingólfsson, sem er í Sígull, Par Ðar og AvÓkA, ræddu við Víkurfréttir um árangurinn. Fengu nánast öll verðlaunin „Við erum ennþá í sæluvímu. Það er mjög einstakt að sömu manneskjurnar séu í tveimur eða þremur hljómsveitum í þessari keppni og vinni svona mörg verðlaun,“ segja félagarnir. Par Ðar hreppti 2. sætið og AvÓkA það þriðja, auk þess sem Arnar var valinn besti bassaleikarinn og Eyþór Eyjólfsson besti trommuleikarinn. „Eyþór hljóp í skarðið fyrir bróður minn því hann var kominn yfir aldurstakmarkið, orðinn 27 ára. Eyþór er vanur að vera í „frontinum“ með hristur og það kom honum því skemmtilega á óvart að fá þessi verðlaun. Hann ætlar að fá sér bongótrommur fyrir verðlaunaféð,“ segir Arnar og hlær. Þá fékk Par Ðar verðlaun fyrir íslenskan texta og SíGull var valin hljómsveit fólksins, sem valin var af salnum og með símakosningu. „Það voru skemmtileg verðlaun. Það voru svo margar flottar og jafn-
ar hljómsveitir með sína hverja tónlistarstefnuna og við gerðum okkur engar sérstakar vonir. Við sögðum við sjálfa okkur allt kvöldið: Við vitum ekkert hvað er að gerast! Við vorum mjög sáttir sáttir með 2. og 3. sætið því við fengum nánast allt hitt,“ segir Sævar Helgi. Glæsilegir vinningar Aðspurðir sögðust þeir að eðlilega hafi menn verið mjög stressaðir fyrir keppnina því æft var og keppt með þremur hljómsveitum. „Það þarf bara sjálfstraust, trú á því sem maður er að gera og bara hafa gaman af þessu. Svo er þetta líka bara eins og að vera með þrjú bingóspjöld. Þá eru meiri möguleikar á verðlaunum,“ segir Arnar brosandi, en um var að ræða upptökutíma í hljóðveri, þátttaka á Iceland Airwaves, upptökutæki og 30 þúsund króna inneignir í Tónastöðinni, spilun í Popplandi og stafli af bókaverðlaunum.
Arnar Ingólfsson og Sævar Helgi Jóhannsson.
Nýta öll tækifæri sem berast Arnar og Sævar Helgi stunda báðir nám í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og segja það mikilvægan grunn að svona árangri. Svo hafi tækifærið komið. „Þetta byrjaði allt sem stúdíóvinna hjá Kristjóni Frey Hjaltested, gítar- og harmoniumleikara. Hann var búinn að taka upp formið af flestum lögunum og hafði samið þau flest sjálfur. Svo fékk hann bassa-input frá mér og ég fór að hanga með honum eftir að hann kom úr upptökuskóla í Los Angeles og kynnti hann svo fyrir Sævari og Eyþóri. Hann var eiginlega búinn að missa trú á því að byrja í hljómsveit,“ segir Arnar og bætir við að framtíðarplön séu að klára lögin sem þeir hafa unnið að síðastliðin tvö ár. „Við erum líka að vinna að nýju lagi og einbeita okkur að nýju efni. Það eru pælingar með að gera litla plötu með gamla efninu eða stóra með blönduðu efni. Við erum allavega ákveðnir í að vekja athygli á okkur og nýta öll tækifæri sem berast,“ segja félagarnir að lokum.
P áskahátíð
í Keflavík
Sérstakur gestur okkar er Keith Wheeler, sem hefur í 25 ár ferðast um heiminn og borið kross, í fullri stærð.. og oftast farið á staði þar sem hann telur að Jesús myndi hafa farið á.
Keith Wheeler
SíGull var valin hljómsveit fólksins.
Par Ðar hrepptu 2. sætið.
Njarðvíkurkirkju skírdag kl. 20.00
En sjón er sögu ríkari, við bjóðum þér að koma og hlusta. Það verður einnig boðið upp á Gospel Söng…. Hópur úr Gospel kór Fíladelfíu, kirkjukór Keflavíkurkirkju, Páll Rósinkranz og fl. Samkomur verða í: Njarðvíkurkirkju skírdag kl.20:00 Keflavíkurkirkju föstudaginn langa kl.14:00 Hvítasunnukirkjunni páskadag kl.11:00
Keflavíkurkirkju föstudaginn langa kl. 14.00
AvÓkA lenti í 3. sæti.
Hvítasunnukirkjunni páskadag kl. 11.00
Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001 Eyþór var bestitrommuleikarinn.
Arnar tekur við verðlaunum sem besti bassaleikarinn.
11
VÍKURFRÉTTIR • miðvikudaginn 1. apríl 2015
-aðsent
pósturu vf@vf.is
■■Drífa B. Gunnlaugsdóttir, móðir iðkanda í NES skrifar:
Ha? Barnið mitt? É
g hef ávallt talið mig vera frekar fordómalausa, vel félagslega þenkjandi og almennt vel upplýstan einstakling. Ég er félagsráðgjafi að mennt og var að klára námið þegar sonur minn Leó Austmann fór í greiningu. Þegar Leó var 5 ára fékk hann formlega greiningu hjá Greiningarstöð ríkisins, dæmigerð einhverfa og þroskahömlun. Áfallið var mikið í byrjun, við vissum ávallt að eitthvað var að en þarna varð það eitthvað svo endanlegt. Við hjónin settumst fljótlega eftir greiningu niður og fórum yfir allt umhverfið í kringum strákinn, hverju þyrfti að breyta, hvað væri gott eins og það væri og fleira. Fórum yfir búsetu okkar, vinnutíma okkar, dvöl og aðstoð á leikskólanum, vini og allt sem tengdist hans félagslegu stöðu. Aldrei ræddum við um íþróttir fyrir hann eða veltum því fyrir okkur hvar væri best fyrir hann að æfa íþróttir, við töldum bara einhverra hluta vegna að íþróttir yrðu ekki hluti af hans umhverfi. Oft verða tilviljanir í lífinu sem breyta miklu Oft verða tilviljanir í lífinu sem breyta miklu og svo varð hjá okkur sem betur fer. Sumarið áður en Leó átti að hefja nám í grunnskóla var auglýst sundnámskeið fyrir börnin í Vogunum. Sá sem var með sundnámskeiðið hét Ingi Þór Einarsson sem margir þekkja er tengjast sundi fatlaðra. Ég mæti með Leó á námskeiðið full efasemda um hvort hann geti verið með hinum börnunum og hvort þjálfarinn ráði við eða skildi fötlun hans. Ingi er fljótur að taka hann í laugina og vísa mér frá á meðan æfingin var með orðunum „hvað af hverju ætti hann ekki að geta verið með“. Þar með var sundáhugi Leós komin og sáum við foreldrar hvað hann naut þess að vera
á æfingum. Þá fyrst fórum við að ræða um hvort íþróttir ættu að vera hluti af hans félagslega umhverfi og hversu gott það væri fyrir hann. En efinn var mikill þar sem við sáum fyrir okkur að það eina sem væri í boði væri að æfa með almennu félagi þar sem önnur börn væru almennt getumeiri en hann. Hræðslan var að sá áhugi sem var komin myndi hverfa hratt ef hann væri ávallt síðastur að öllu á æfingum. Sonur okkar er með mikið keppniskap og hjá honum skiptir alltaf miklu máli í hvað sæti hann er, hvort sem það er á æfingu eða móti þá er árangurinn skráður. Þegar sundnámskeiðinu lauk talaði Ingi við okkur foreldrana og hvort við vildum ekki koma með strákinn í NES- Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum. Viðbrögð okkar beggja var „Ha – Barnið okkar, af hverju?“ Aldrei hafði hvarflað að okkur að hann ætti rétt á eða erindi í að æfa íþróttir með fötluðum. Eftir að hafa rætt þetta aðeins og Ingi sannfært okkur um að sonur okkar ætti fullt erindi inn í það íþróttafélag ákváðum við að mæta á kynningarkvöld hjá NES og í kjölfarið ákváðum við að prófa að leyfa honum að æfa einn vetur hjá NES. Besta ákvörðun sem við gátum tekið. Sundtökin á vatnsheldum miðum Hann var rosa ánægður þegar hann byrjaði að æfa sund með NES, en átti erfitt með að taka við munnlegum leiðbeiningum frá þjálfara og muna þær alla leiðina yfir sundlaugina. Við vorum svo heppin að Katrín Ruth Þorgeirsdóttir, þroskaþjálfi, sem er aðstandandi og ritari stjórnar NES bauðst til þess að aðstoða við að finna lausn. Hún hannaði vatnshelda miða sem voru með sundtök framan á og broskarl aftan á, hver sundgrein var með sérstakan lit og prófaði Ingi að nota þetta kerfi og þetta var algjör bylting. Hann varð miklu öruggari á æfingum og fékk hvatningu eftir hverja ferð, nokkuð sem hann þurfti á að halda. Hann notar ekki mið-
ana lengur enda búinn að æfa sund í bráðum 4 ár hjá NES en hann notar ennþá litaflokkunina á sundgreinum. Ég er enn stundum spurð að því af hverju strákurinn minn æfir ekki sund í sínu bæjarfélagi, yrði svo miklu einfaldara fyrir okkur. Jú það má vera að það sé rétt en þetta snýst ekki um okkur foreldrana heldur um hvað er best fyrir hann og það er klárlega að æfa með íþróttafélagi fatlaðra að okkar mati. Hann þarf að vera á æfingum þar sem honum er mætt á þeim stað sem hann er á hverju sinni, þar sem æfingar eru einstaklingsmiðaðar og iðkendur fá þann stuðning og umhverfi sem þau þurfa hverju sinni. Almennu félögin eru flest mjög góð en það eru almennt fleiri börn að æfa á móti hverjum þjálfara en hjá íþróttafélögum fatlaðra og er það vegna þess að þau þurfa meiri stuðning og aðstoð á æfingum, sérstaklega þegar þau eru minni. Sumir eiga við líkamlega fötlun að stríða og aðrir við andlega fötlun en öll þurfa þau yfirleitt einhvern stuðning til að læra að æfa íþróttir. Þegar um er að ræða andlega fötlun eins og hjá okkar barni þá sést það kannski ekki alltaf á þeim og þess vegna held ég að ég fái svona oft þessa spurningu um af hverju hann æfi með NES og er eflaust líka ástæðan fyrir okkar eigin efa um að hann ætti erindi að æfa með íþróttafélag fatlaðra. Sonur minn hefði alveg getað æft með almennu félagi en ég tel að hann hefði aldrei náð þeim árangri sem hann hefur náð í sundi í dag og íþróttaáhugi hans hefði ekki orðið svona mikill. Hann talar um að það er gaman að æfa íþróttir en ekki í skólanum og ekki í frímínútum sem staðfestir þá skoðun okkar að hann þurfi og eigi að æfa með íþróttafélagi fatlaðra þar sem hann fær að njóta sín á jafnréttisgrundvelli og á möguleika á að vera góður, jafnvel fyrstur. Hann er svo upptekinn af því að æfa íþróttir í dag að hann er líka í frjálsum og í íþróttaskóla þar sem þemabundnar æfingar eru.
Mikil þekking til innan íþróttafélaga fatlaðra Það er mikil þekking til innan íþróttafélaga fatlaðra og tel ég að það er einn auka bónus af því að fara með barnið mitt á æfingar hjá NES. Ég hitti aðra foreldra sem skilja mig svo vel, hafa gengið í gegnum svipaða hluti oft og það er ómetanlegt. Foreldrar skiptast á reynslu, vitneskju um réttindi, deila sigra barna sinna og fleira. Þetta tengslanet er og á ávallt að vera hluti af svona starfsemi að mínu mati. Þó svo að fjölskyldur flestra sýni mikin skilning og stuðning þá er ýmislegtsem þeir skilja ekki sem eiga ekki fatlað barn. Við höfum líka verið mjög heppin með NES, það er mikið félagslíf innan félagsins. Mánaðarlegir hittingar sem auka tengsl og samskipti á milli iðkenda og aðstandenda sem er bara af hinu góða. Mikið er í boði fyrir iðkendur og hefur Leó verið duglegur að nýta sér það flest og þykir fátt skemmtilegra en að fara til NES hvort sem það er á æfingu eða hitting, skiptir ekki öllu máli, bara að vera með. Hann hefur eignast marga góða vini í gegnum NES sem er mikil styrking fyrir hann félagslega. Hann
hefur líka farið tvisvar til Malmö að keppa í sundi með NES og ferðirnar verið alveg frábærar og mikil upplífun. Það er erfitt að koma því til skila með orðum hvað sundið og æfingarnar hjá NES hafa gefið honum. Hann hefur fengið mikla sjálfsstyrkingu, sjálfsaga og mikilvæga hreyfingu og er þá fátt eitt talið. Hann veit að hann getur verið góður í íþróttum, hann veit að hann er ekki sá eini sem er ekki að passa inn í „normal“ kassann, hann er sem sagt ekki einn í sinni stöðu. Hann hefur hitt aðra krakka sem eru eins og hann eða hafa aðrar fatlanir en geta samt gert allt eins og hann, það er mjög þroskandi að upplifa það. Hann lýsir því best sjálfur af hverju hann á að æfa með NES. Þegar tveir vinir hans voru að spyrja hann af hverju hann vildi æfa með NES en ekki Þrótti (sem er í okkar bæjarfélagi) svaraði hann fljótt og örugglega: „Af því það er betra fyrir mig, ég er sko líka góður í íþróttum.“ Drífa B. Gunnlaugsdóttir Móðir iðkanda í NES
■■Helga Jóhanna Oddsdóttir skrifar:
Frábært starfsfólk á lausu Á
árinu 2006 stýrði undirrituð Ráðgjafarstofu fyrir starfsfólk varnarliðsins vegna brotthvarfs þess. Ánægjulegur hluti starfseminnar var að hafa milligöngu um ný störf fyrir starfsfólk, störf sem urðu m.a. til við flutning á starfsemi fyrirtækja eins og Já og vöruhúss Pennans til Reykjanesbæjar. Um þessar mundir, tæpum níu árum seinna, hefur markaðsumhverfi Já breyst og Já hefur því ákveðið að loka þjónustuveri sínu í Reykjanesbæ. Eftir standa átta starfsmenn, konur, sem flestar hafa starfað hjá fyrirtækinu lungann af þeim tíma sem þjónustuverið í Reykjanesbæ hefur verið starfrækt. Já stendur ekki á sama um afdrif starfsfólksins og fékk fyrirtæki mitt, Carpe Diem markþjálfun og ráðgjöf, til að veita starfsfólki stuðning
og ráðgjöf við atvinnuleit. Er þetta ekki í fyrsta sinn sem Já leitar til okkar með verkefni sem þetta og er virðingarvert að skynja þann velvilja sem að baki býr er breytingar knýja að dyrum. Tilefni þessara skrifa er að vekja athygli á því frábæra starfsfólki sem verður á lausu frá og með 1. júní nk. Þær eiga það sameiginlegt að vera einstaklega þjónustulundaðar og fullar tilhlökkunar fyrir nýjum áskorunum og tala af virðingu um vinnuveitandann þó skilji nú leiðir. Flestar eru þær konur á besta aldri sem standa sína plikt og leggja alúð í störf sín. Vanti þig starfsmann í gestamóttöku, á skrifstofu eða annað, ekki hika við að leita þær uppi eða hafa samband við undirritaða. Þeir vinnustaðir sem njóta krafta þeirra í framtíðinni njóta góðs af áralangri reynslu og metnaði. Helga Jóhanna Oddsdóttir Carpe Diem markþjálfun og ráðgjöf
HEILSUHORNIÐ Möndlu- og hindberjamuffins Framundan er páskafrí með börnunum í góðu yfirlæti og þá getur verið notalegt að nostra svolítið í eldhúsinu og baka fyrir heimilisfólkið. Þessar muffins eru mjög gómsætar fyrir smáa sem stóra og tilvalið að skella í eina svona uppskrift og taka t.d. með í sumarbústaðinn eða ferðalagið. Gleðilega páska!
ÁSDÍS GRASALÆKNIR SKRIFAR
2 b heilar möndlur ½ b kókósflögur 1 tsk vínsteinslyftiduft ½ b kókóspálmasykur 1 tsk vanilluduft eða dropar ½ b fljótandi kókósolía ½ b fersk eða frosin hindber 4 egg • • • • • • • • •
Hitið ofninn í 170°C. Raðið 12 stk muffins formum á bökunarpappír. Malið möndlur fínt í matvinnsluvél. Blandið saman í skál þurrefnum. Pískið saman í sér skál eggjum, olíu, vanillu og sætuefni. Hægt að nota önnur sætuefni eins og sukrin gold, sugarless sugar, erythriol eða xylitol ef vill. Blandið eggjablöndu út í skál með þurrefnum. Hellið deiginu í muffins form og bætið hindberjum ofan á (þrýsta þeim létt ofan í deigið). Bakið í 20 mín eða þar til muffins kökurnar eru orðnar gylltar. Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir.
www.facebook.com/grasalaeknir.is, www.pinterest.com/grasalaeknir
12
miðvikudaginn 1. apríl 2015 • VÍKURFRÉTTIR
STARFSFÓLK ÓSKAST
Í GRUNNSKÓLUM REYKJANESBÆJAR HEIÐARSKÓLI
Heiðarskóli óskar eftir að ráða áhugasama og metnaðarfulla kennara til starfa á næsta skólaári í íslenskukennslu á unglingastigi, stærðfræðikennslu á unglingastigi, náttúrufræðikennslu á mið- og unglingastigi og umsjónarkennslu á yngsta stigi og miðstigi. Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2015. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sóley Halla Þórhallsdóttir skólastjóri í síma 8944501 eða 4204500.
NJARÐVÍKURSKÓLI
Njarðvíkurskóli óskar eftir áhugasömum kennurum til starfa á næsta skólaári. Aðallega er um að ræða kennslu á yngra- og miðstigi en einnig heimilisfræðikennara og sérkennara sem hefur umsjón með námsveri eldra stigs. Hluti af störfunum er afleysing vegna ársleyfa og fæðingarorlofs. Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl nk. Nánari upplýsingar veitir Ásgerður Þorgeirsdóttir, skólastjóri, í síma 4203000/8632426 eða í gegnum tölvupóst: asgerdur.thorgeirsdottir@njardvikurskoli.is.
-páskaspjall ■■Helgi Rafn Guðmundsson - Taikwondo þjálfari
FASTA STUNDUM Á FÖSTUDAGINN LANGA Á að ferðast eitthvað yfir páskahelgina? - Ef ekki, hvernig á að verja helginni?
Á þriðjudag og miðvikudag verða páskaæfingabúðir í Ármanni þar sem fjöldi fólks er að koma. Svo eftir það fer ég til Akureyrar og ver nokkrum dögum í faðmi fjölskyldunnar.
LEIKSKÓLINN HOLT
AÐSTOÐ Í ELDHÚSI Auglýsum eftir aðstoðarmatráð í 60-70% stöðu tímabundið vegna veikinda. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Eldhús leikskólans leitast við að bjóða börnum og starfsfólki hollan, bragðgóðan og einfaldan mat. Unnin matvara er í algjöru lágmarki en boðið er upp á gott úrval af ávöxtum og grænmeti. Helstu verkefni: Að annast öll almenn störf í eldhúsi og þvottahúsi í samvinnu við matráð leikskólans. Hæfniskröfur: Óskað er eftir sjálfstæðum, ábyrgum og jákvæðum einstaklingi, sem á auðvelt með samskipti og er tilbúinn að takast á við krefjandi og skemmtilegt starf. Snyrtimennska áskilin.
Yfirleitt æfi ég vel. Annars bara að borða góðan mat og fasta stundum á föstudaginn langa. Hvað er borðað á þínu heimili á páskadag?
Ég er sjaldan heima hjá mér á páskunum, yfirleitt erum við hjá
tengdarforeldrunum á Akureyri og þar er yfirleitt borðað lamb. Hvernig páskaegg ætlar þú að fá þér í ár?
Lítið með súkkulaðibragði.
HÆTT AÐ LEITA AÐ PÁSKAEGGJUM Á að ferðast eitthvað yfir páskahelgina? - Ef ekki, hvernig á að verja helginni?
Nei, ég mun ekkert ferðast um páskahelgina, verð að vinna á laugardeginum, annars verð ég bara heima með fjölskyldu og vinum.
Holtaskóli leitar eftir áhugasömum kennurum í 3 stöður umsjónarkennara og stöðu heimilisfræðikennara fyrir næsta skólaár. Hjá umsjónarkennurum er að ræða kennslu á yngsta stigi og miðstigi en heimilisfræðikennari kennir á öllum stigum.
Sækja skal um öll störfin á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf þar sem einnig er að finna ítarlegri upplýsingar um menntunarog hæfniskröfur og áherslur skólanna. Öllum umsóknum skulu fylgja leyfisbréf og ferilskrá ásamt upplýsingum um umsagnaraðila. Fyrir frekari upplýsingar má benda á heimasíður skólanna.
Áttu þér einhverjar hefðir sem tengjast páskunum?
■■Bryndís Björk Sveinbjörnsdóttir, nemi
HOLTASKÓLI
Umsóknarfrestur er til og með 24. apríl nk. Nánari upplýsingar veita Eðvarð Þór Eðvarðsson, skólastjóri í síma 420-3500 eða 842-5640 og Helga Hildur Snorradóttir aðstoðarskólastjóri í síma 420-3500 og 848-1268. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á netföngin edvard.t.edvardsson@holtaskoli.is og helga.h.snorradottir@holtaskoli.is
pósturu vf@vf.is
Áttu þér einhverjar hefðir sem tengjast páskunum?
Mamma og pabbi földu alltaf páskaeggin sem ég og systir mín
fengum og við leituðum að þeim þegar við vöknuðum, við erum samt hættar því núna. Hvað er borðað á þínu heimili á páskadag?
Það er ekkert sérstakt sem við borðum en það er alltaf eitthvað gott. Hvernig páskaegg ætlar þú að fá þér í ár?
Lakkrís páskaegg frá Freyju.
■■ Jakob Hafsteinn Hermannsson, annar eigandi Humarsölunnar
HÓTEL SKÓGAR OG CROSSFIT Á að ferðast eitthvað yfir páskahelgina? - Ef ekki, hvernig á að verja helginni?
Páskahelgin mín mun byrja á einum af mínum uppáhaldsstöðum í Ljónagryfjunni á skírdag þar sem ég ætla að horfa á mína menn í Njarðvík tryggja sér sæti í undanúrslitum Domino’s deildarinar. Á föstudaginn er mín heitt elskaða búin að bjóða mér á Hótel Skóga þar sem við ætlum að njóta dagsins í góðu yfirlæti. Restin af helginni er óráðin en það er alveg bókað að maður detti inná eina til tvær æfingar hjá Crossfit Suðurnes og dusti jafnvel 20 ára ryk af skíðunum ef veður leyfir og sýni
fólki hvernig á að haga sér í brekkunum. Áttu þér einhverjar hefðir sem tengjast páskunum?
Páskanir hafa verið með töluvert léttara yfirbragði heldur en jólahátíðin hjá mér þannig að maður hefur ekki beint myndað sér miklar hefðir aðrar en páskaeggjaleit á páskadag og of mikið át eins og um flestar aðrar hátíðar. Hvað er borðað á þínu heimili á páskadag?
Hamborgarahryggur er skylda, helst engin undantekning frá því
Hvernig páskaegg ætlar þú að fá þér í ár?
Hef ekki verið duglegur að kaupa mér sjálfur páskaegg en stelst til að narta í eggin hjá börnunum. Ef ég kaupi egg þetta árið þá er 100% að það verði lakkrís í því.
■■Brynjar Magnússon, einkaþjálfari og starfsmaður Duty Free
VONA AÐ MÉR VERÐI BOÐIÐ Í MAT koma fram í Hörpunni. Föstudagurinn langi verður rólegur eins og lög gera ráð fyrir en mögulega verða smakkaðir sérstakir páskadrykkir eftir miðnætti. Annað kemur í ljós þegar nær dregur hátíðinni.
Sækja skal um starfið á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf. Umsóknarfrestur er til og með 10.apríl nk.
Áttu þér einhverjar hefðir sem tengjast páskunum?
Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri, Kristín Helgadóttir (kristin.helgadottir@leikskolinnholt.is), sími:4203175, 8966104. Á að ferðast eitthvað yfir páskahelgina? - Ef ekki, hvernig á að verja helginni?
Stefni á að ferðast til Reykjavíkur á skírdag til að kíkja á tónleika þar sem Jesús, Júdas og fleiri góðir
Man ekki í fljótu bragði eftir einhverri sérstakri hefð sem ég held í um páskana. Líklegt að nýti árið í ár til að koma mér upp góðri hefð. Spurðu mig aftur eftir nokkur ár. Hvað er borðað á þínu heimili á páskadag?
Geri ráð fyrir að foreldrar mínir verði upp í bústað þessa helg-
ina, ólíklegt að ég nenni að fara þangað til að sníkja mat en vona innilega að þau komi með afganga til mín daginn eftir. Þannig væri gaman ef einhver stórkostlegur lesandi myndi nýta tækifærið og bjóða mér í góðan páskamat, er til í góðan grillmat eða jafnvel ljúffengt lasagna. Sérhæfi mig í að hrósa góðum mat. Hvernig páskaegg ætlar þú að fá þér í ár?
Ætla að sleppa páskaegginu í ár, enda vonandi á leiðinni í veislu ársins um kvöldið. Þá er ekki gott að vera með fullan maga af súkkulaði.
13
VÍKURFRÉTTIR • miðvikudaginn 1. apríl 2015
-ung
Pabbi frægastur í símanum
Höfum opnað nýja
hundasnyrtistofu & gæludýraverslun Fitjum 2, Njarðvík
Arnór Daði Jónsson er í 8. bekk í Njarðvíkurskóla. Hann væri til í að geta orðið ósýnilegur og segir Gauju húsvörð vera það skemmtilegasta við skólann. Hvað gerirðu eftir skóla?
Borða og fer síðan á körfuboltaæfingu. Hver eru áhugamál þín?
Körfubolti er það skemmtilegasta sem ég geri í lífinu Uppáhalds fag í skólanum?
Ég held að ég taki stærðfræði hjá Hófý. En leiðinlegasta?
Mér finnst danska og enska mjög leiðinleg fög. Ef þú gætir hitt einhvern frægan, hver væri það?
Russel Westbrook topp maður og fyrirmynd í körfunni. Ef þú gætir fengið einn ofurkraft hver væri hann?
Að geta orðið ósýnilegur þegar mig langar. Hvað er draumastarfið í framtíðinni?
Hvað myndirðu gera ef þú mættir vera ósýnilegur í einn dag?
Úff það er svo margt
Hvað er uppáhalds appið þitt?
Klárlega snapchat
Hvernig myndirðu lýsa fatastílnum þínum?
Ég held að ég verði að segja pabbi minn.
S: 5373730
Rosalega venjulegum, jogging buxur og flottur bolur. Hvernig myndirðu lýsa þér í einni setningu?
Strákur með miklar vonir. Hvað er skemmtilegast við Njarðvíkurskóla?
Gauja húsvörður er það skemmtilegasta við Njarðvíkurskóla klárt mál. Sjálfselskan í mér segir Legend með Drake.
Hver er frægastur í símanum þínum?
Hundasnyrting Hundavörur Kattavörur Nagdýravörur Hestavörur Fuglavörur
Páll Óskar er það fyrsta sem mig dettur í hug
Hvaða lag myndi lýsa þér best?
Atvinnumaður í körfu.
-fs-ingur
Hver er merkilegastur sem þú hefur hitt?
Hvaða sjónvarpsþáttur myndi lýsa þér best?
Haha mér dettur enginn í hug.
Besta:
ATVINNA
Bíómynd? Born2race. Sjónvarpsþáttur? Hawaii-FiveO. Tónlistarmaður/Hljómsveit? Rihanna er rosalega góð. Matur? Nautasteik hjá pabba er best. Drykkur? Ég er kókisti. Leikari/Leikkona? Adam Sandler klikkar seint Fatabúð? Forever 21. Vefsíða? Karfan.is Bók? Suarez er góð.
Go2 flutningar óska eftir að ráða bílstjóra og ýmisstörf innan fyrirtækisins. Skilyrði er að viðkomandi hafi meira próf. Upplýsingar í síma 770 3571
vikunnar
Mögulega mesti mömmustrákur sem til er
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Lúðvík Ágústsson,
Steinn Alexander Einarsson er á félagsfræðibraut í FS. Hann keyrir alltaf í skólann þótt hann sé í göngufæri. Hann er hræddastur um að eitthvað meira komi þegar hann prumpar. Hvaðan ertu og aldur?
Fæddur og uppalinn í 230 KefCity, 20 ára Helsti kostur FS?
Það að hann er í göngufæri, keyri samt alltaf. Áhugamál?
Ætli það sé ekki kvikmyndagerð og að fíflast með boiz. Hvað hræðistu mest?
Að prumpa og það komi aðeins meira. :/ Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur og hvers vegna?
Ætla segja Theodór Már Guðmundsson fyrir kvikmyndagerð, hrikalega drifinn maður.
Hver er fyndnastur í skólanum?
Hverju myndirðu breyta ef þú værir skólameistari FS?
Hvað sástu síðast í bíó?
Hvaða frasa eða orð notar þú oftast?
Hvað finnst þér vanta í mötuneytið?
Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum?
Heyrðu þarna verð ég að setja jafntefli á tvo meistara. Þorgils og Markús, hrikalega skemmtilegir karakterar. Inner scar. Mæli ekki með henni. Ískaldur Pilsner væri vel séð. Hver er þinn helsti galli?
Ætli það sé ekki að ég sé mögulega mesti mömmustrákur sem til er, kann ekki einu sinni að búa um mitt eigið rúm. Hvaða þrjú öpp eru mest notuð í símanum hjá þér?
Þetta klassíska bara, Facebook, Snapchat og Twitter.
Ef ég væri skólameistari þá væru allir miðvikudagar wifebeater wednesday! Þannig á það að vera. T3kinn og étin!
Heyrðu þetta er búið að vera roslega flott núna upp á síðkastið og á bara eftir að verða betra. Hvert er stefnan tekin í framtíðinni?
Stefnan er sett á leikaranám. Hver er best klædd/ur í FS?
Ég er voða lítið í þessum geira, en ætla segja Hjörtur.
Eftirlætis Kennari
Íris, alveg hreint yndisleg kona. Fag í skólanum
LIM103 hjá Guðmundi Rúnari var skemmtilegasti áfangi sem ég hef tekið í skólanum.
Kvikmynd
Semi Pro, tímalaus klassík. Hljómsveit/tónlistarmaður
Kid cudi er í svakalegu uppáhaldi. Leikari
Will Ferrell klikkar ekki. Vefsíður
Facebook, Reddit og Nba Flíkin Sjónvarpsþættir
Entourage allan daginn!
Lakers nærbuxurnar. Fer í þær fyrir öll stór kvöld!
Skyndibiti
Köffsarinn.
Hvaða tónlist/lag fílarðu í laumi (gulity pleasure)?
fyrrverandi skipstjóri og forstjóri, Melteigi 6, Keflavík,
andaðist á Landspítalanun v/Hringbraut, miðvikudaginn 25. mars. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, þriðjudaginn 7. apríl kl.13:00. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeim sem vildu minnast Lúðvíks er bent á Félag nýrnasjúkra. Guðlaug Jónasdóttir, Ágúst Lúðvíksson, Jónas Lúðvíksson, Unnur Kristrún Lúðvíksdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
-
Honey Lore Sales, Bryndís Heimisdóttir, Elmar Ingibergsson,
smáauglýsingar TIL LEIGU
Á Faxabraut, stutt í alla þjónustu. 84 fm á annari hæð, 130 þús pr mánuð með hússjóð og hita. Aðeins greiðsluþjónusta í gegnum banka. 2 mánuðir fyrirfram og bankatrygging. Fjölskyldustærð og meðmæli sendist á eheidar@simnet.is
Verið velkomin á samkomu kl. 11.00
Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla
Taylor Swift.
Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ
sími 421 7979 www.bilarogpartar.is
Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84 www.keflavikgospel.is
www.vf.is
14
miðvikudaginn 1. apríl 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-íþróttir
Varð svolítið hissa þegar nafn mitt var kallað Laufey Ingadóttir varð um helgina Íslandsmeistari í 1. þrepi kvenna í áhaldafimleikum. Laufey, sem er á tólfta aldursári, hefur átt frábært keppnistímabil fyrir fimleikadeild Keflavíkur og ofan á titil helgarinnar vann hún bæði innanfélagsmót fimleikadeildarinnar og varð svo bikarmeistari ásamt liðsfélögum sínum í þrepinu í febrúar. Á Íslandsmótinu atti hún kappi við sér mun eldri stúlkur og sigraði þar með einkunnina 56,034 sem var rúmlega heilu stigi á undan næsta keppanda. Blaðamaður gerði sér ferð í æfingahúsnæði fimleikadeildarinnar og hitti fyrir þessa ungu, lífsglöðu stúlku sem slær ekki slöku við þótt að hún sé nýbúinn að sigra á Íslandsmóti og er strax farinn að æfa fyrir næsta keppnistímabil. Hvenær byrjaðir þú að æfa fimleika? Ég held að ég hafi verið 5 ára gömul. Hvað varð til þess að þú byrjaðir að æfa fimleika en ekki eitthvað annað? Ég æfði sund einu sinni af því að pabbi minn er að þjálfa sund. Æfði það í ca. 1 og hálft ár. Byrjaði svo að æfa fimleika af því að systir mín var að æfa. Þá æfði ég bæði sund og fimleika í 1 og hálft ár. Hvað æfirðu oft í viku og hvernig er æfingum háttað hjá þér? Ég æfi 6 sinnum í viku í þrjá tíma í senn. Við byrjum á trampólíninu áður en æfing byrjar og þaðan förum við í upphitun eða þrek. Svo vindum við okkur beint í æfingar á áhöldum þar sem við eyðum mestum tíma æfingarinnar. Núna erum við t.d. byrjaðar að æfa nýja hluti fyrir næstu keppnir. Hvert er uppáhalds áhaldið þitt? Jafnvægissláin finnst mér skemmtilegust. Ég er ekki hrædd við að gera nýja hluti á henni og það er mikill plús í fimleikum. Áttu þér einhverjar fyrirmyndir í íþróttinni? Íslenskar eða erlendar? Já, Margrét Lea og Kristjana Ýr sem æfa með Björk finnst mér alveg frábærar. Þær eru mjög öflugir fimleikamenn og ég lít mikið upp til þeirra jafnvel þótt að Margrét sé
bara einu ári eldri en ég. Svo er það Shawn Johnson, sem er reyndar hætt núna. Hún lenti í 2. sæti á ÓL í Peking 2008. Mér finnst hún alltaf flottust. Hvernig leið þér þegar nafn þitt var kallað upp og þú vissir að þú værir orðinn Íslandsmeistari? Ég varð svolítið hissa af því að ég var að keppa á móti svo mörgum eldri stelpum en ég varð mjög glöð þegar ég áttaði mig á þessu. Áttirðu von á því að þér myndi ganga svona vel? Ég átti kannski ekki von á því að standa uppi sem Íslandsmeistari í þrepinu, en mér fannst ég eiga góða möguleika á því að standa mig vel í yngri flokknum. Er tími fyrir eitthvað annað en fimleika þegar maður er Íslandsmeistari? Já, ég eyði töluverðum tíma með vinum mínum áður en ég fer á æfingar. Við förum svolítið mikið í sundlaugina og svo sinni ég heimavinnunni áður en ég fer á æfingar. Áttu þér einhver markmið sem að þér langar að ná í fimleikum? Ég á mér landsliðsdrauma. Það að komast í landsliðið væri frábært og markmiðin mín snúa að því að komast á EM eða NM á þeim vettvangi.
Hvað er svo á dagskránni í sumar? Eru þrotlausar æfingar allt árið um kring? Nei, það er ekki alveg þannig. Þjálfararnir mínir fara alltaf til Rússlands í sumarfrí í júní og þá tökum við okkur frí frá fimleikum. Þá eyði ég meiri tíma með vinum mínum og fjölskyldu og nýt sumarsins.
Laufey Ingadóttir með Íslandsmeistarabikarinn sl. laugardag.
ÞJÁLFARAHORNIÐ // HELGI RAFN GUÐMUNDSSON
6 algeng mistök byrjenda í ræktinni
Þ
egar fólk er að leggja af stað í ræktina þá eru margir hlutir sem þarf að hafa í huga til að ná árangri. Hérna eru algeng mistök byrjenda (og oft lengra komna líka) sem ég sé alltof oft í ræktinni og hvernig skal komast hjá þeim. Hvað aðrir halda Eru allir að horfa á mig? Hvað ef ég geri þessa æfingu vitlaust? Ég er of þung/ur, á ekki réttu fötin. Ég þori ekki í þessi tæki, ég kann ekkert á þau o.s.fv. Þessir einstaklingar eru líklegir til að halda sig bara á brennslutækjunum og/eða rúnta í öll fótatækin hvert á eftir öðru, 10x hvert til þess að verða sér nú ekki til skammar. Þeir eru einnig líkleg til að byrja aldrei í ræktinni því þau eiga ekki réttu skóna eða kunna ekki nógu mikið til að byrja. Þetta er þvæla! Þú ert þarna fyrir sjálfan þig og til að ná þínum eigin markmiðum. Í þeirri flóru sem er í líkamsræktarstöðvum landsins eru allar stærðir, gerðir og tegundir af fólki sem þér getur dottið í hug og örugglega af fleiri ástæðum heldur en þú getur ímyndað þér. Það góða við þessar stöðvar er að það er pláss fyrir allar gerðir. Þó ber að minnast á almennar kurteisis- og snyrtireglur. Þið verðið ekki vinsæl ef þið syngið playlistann ykkar hástöfum eða skiljið hálfa stöðina eftir í svitapolli eftir æfinguna. Besservisserinn Varast ber að hugsa að þið vitið allt, sérstaklega þegar kemur að því að æfa með öðrum. Allir þurfa aðstoð og allir geta lært betur. Að hafa horft á eitthvað á youtube eða lesið greinar á vöðvabloggi gerir mann ekki að sérfræðingi í ræktinni og í guðanna bænum ekki halda að þið séuð hæfir þjálfarar bara því ykkur finnst þið vera „meðedda“. Ég sæki mér kunnáttu út um allt í þjálfunarfræðunum og í hverjum mánuði þá er ég að læra eitthvað nýtt eða betrumbæta það sem ég kann nú þegar. Vertu tilbúin/n að spyrja spurninga, viðurkenna að þú veist kannski minna en þú hélst og leita þér aðstoðar. Það eru fullt af færum þjálfurum í flestum líkamsræktarstöðvum landsins.
Mataræðið Þetta er það atriði sem mér finnst ótrulega margir klikka á. Margir halda að þeir geti náð sínum markmiðum í ræktinni án þess að vera með gott mataræði. Í sumum tilfellum getur fólk gert það en það mun þó taka lengri tíma en í langflestum tilfellum þá mun fólk standa í stað eftir örfáar vikur ef mataræðið er ekki tekið alvarlega. Til að breyta einhverju þarfnast róttækra aðgerða og í mörgum markmiðum sem fólk setur sér í ræktinni er mataræðið jafnmikilvægt, ef ekki mikilvægara, en æfingarnar. Finndu út hvaða mataræði hentar þínum markmiðum. Næringarfræðingar víða sem og þjálfarar geta hjálpað þér með þetta. Einnig er mikið til um fræðslu víðs vegar um netið, en fólk þarf að vita nokkurn veginn hvert skal leita ef farið er á netið varðandi fræðslu. Einbeitingin Í ræktinni þarf hugurinn að vera við það sem er að gerast á æfingunni. Alltof oft sé ég fólk búið að koma sér þæginlega fyrir í axlarpressueða fótapressutækinu að senda sms, uppfæra facebook eða taka „selfie“ fyrir instagram. Eins og einn frægasti styrktarþjálfari Bandaríkjanna sagði: „Ef þú getur sent læsileg textaskilaboð á milli setta þá ertu alveg örugglega ekki að reyna nóg á þig“. Það sama á við með langa spjallið við félagana á milli æfinga eða löngu gönguna í átt að vaskinum þegar þú verður þreytt/ur. Auðvitað er hvíld á milli æfinga mikilvæg og eftir markmiðum og áætlunum hvernig það skal gert en reyndu að halda einbeitingu á það sem er að gerast á æfingunni, hugsa um ástæðuna fyrir því að þú sért þarna og halda ákefðinni réttri. Geymdu símann og skráðu árangurinn í æfingadagbók í staðinn. Hægt og bítandi Þetta þekkjum við eflaust öll. Við ætlum að sigra heiminn á einum degi, verslum hálfan grænmetiskælinn í Bónus, kaupum árskort, mætum þrisvar á dag og áður en við vitum
af þá komust við að því að þetta er ekki fyrir okkur. Breytingar taka tíma og það þarf að varast að fara of geyst af stað því þá er hætt að maður brenni út og vilji ekki halda áfram. Listaðu niður þau atriði sem þú ætlar að laga og farðu rólega í gegnum listann. Taktu kannski 1-5 atriði í gegn á viku, en það fer eftir hversu stór og erfið þau eru hversu mörg þú getur unnið í á sama tíma. Byrjaðu að koma þér í ræktina og vinna í helstu göllunum í mataræðinu og smám saman verða hinir hlutirnir auðveldari. Handahófskennt Þegar fólk er að byrja í ræktinni þá er líka algengt að gera bara einhverjar æfingar í einhverri röð og hafa ekki hugmynd um hvað á að gera næst eða hvað var gert síðast. Það er mikilvægt að halda skrá um það sem er gert hverju sinni til að geta ákvarðað hvað skal gert næst. Nú eða vera með æfingaáætlun þar sem það er fyrirfram ákveðið hvað skal gert á hverri æfingu. Fáið prógramm og fylgið því í nokkrar vikur. Algengt er að prógramm dugi í c.a. 6-8 vikur fyrir byrjendur og svo þurfi að breyta því og aðlaga til að halda áfram að ná árangri. Þjálfarar geta hjálpað til við þetta. Þegar kemur að því að byrja í ræktinni þá mæli ég eindregið með því að fá sér einkaþjálfara eða koma í góða hóptíma sem henta þér og þínum markmiðum. Það getur sparað þér mikinn tíma og höfuðverk sem og stillt áttavitann enn betur.
Helgi Rafn Guðmundsson
Íþróttafræðingur Yfirþjálfari taekwondo deildar Keflavíkur Superform þjálfari í Sporthúsinu
15
VÍKURFRÉTTIR • miðvikudaginn 1. apríl 2015
pósturu siddi@vf.is
RAGNHEIÐUR SARA Í 3. SÆTI Á HEIMSVÍSU! O
Síðasti séns hjá Suðurnesjaliðunum Í
kvöld lýkur deildarkeppni Domino´s deildar kvenna þar sem Grindavíkurstúlkur leika hreinan úrslitaleik við Val í Röstinni um sæti í úrslitakeppninni. Grindavíkurstúlkur hafa verið í mikilli lægð undanfarið og þurfa að rífa sig upp til að fara ekki í sumarfrí snemma í ár. Keflavíkurstúlkur leika við Hamar í Hveragerði í leik sem skiptir hvorugt lið máli þar sem úrslit hafa engin áhrif á stöðu þeirra í deildinni. Á skírdag kemur í ljós hvort Suðurnesin komi til með að eiga fulltrúa
pinni undankeppni heimsleikanna í Crossfit er nú lokið en keppendur þurftu að skila inn skori úr 5 æfingum á 5 vikna tímabili. Sara hefur verið á topp 10 listanum frá því í fyrstu æfingu og náði hæst 4. sætinu í síðustu viku. Að sögn Söru er þessi árangur framar hennar björtustu vonum en hún hafði sett sér markmið að sigra í einni af 5 greinum á Evrópulistanum. Sara gerði gott betur en það og sigraði í tveimur og varð svo í 3. sæti og 4. sæti í tveimur æfingum. Sara er þó ekki búin að tryggja sér sæti á heimsleikunum sem fara fram í sumar í Carson í Kaliforníufylki. Til þess þarf hún að landa einu af fimm efstu sætunum á svæðismóti Evrópudeildarinnar sem að fram fer í Ballerup Arena í Kaupmannahöfn í enda maímánaðar. Þar eigast við
30 efstu konurnar úr opnu undankeppninni og miðað við árangur hennar þar er ljóst möguleikar Söru á að vinna sér inn sæti á Heimsleikunum verða að teljast nokkuð góðir. Stúlkan er í feykilega góðu formi og aðeins tvöfaldur heimsleikameistari, Annie Mist Þórisdóttir, er fyrir ofan hana á Evrópulistanum í ár. Nú þegar er hópur stuðningsmanna að skipuleggja ferð til Kaupmannahafnar að fylgjast með svæðismótinu í maí. Flestir þeirra eru iðkendur hjá Crossfit Suðurnes, þar sem að Ragnheiður Sara er yfirþjálfari. Víkurfréttir munu að sjálfsögðu halda áfram að fylgjast með framgangi mála hjá Ragnheiðu Söru sem að fer nú á fullt að undirbúa sig fyrir keppnina í Danmörku.
í undanúrslitum Domino´s deildar karla þegar Njarðvík tekur á móti Stjörnunni og Keflvíkingar sækja Hauka heim. Leikirnir eru 5. leikir liðanna í 8 liða úrslitum og fara þau lið áfram sem vinna sína leiki. Njarðvík og Stjarnan hafa skipst á að vinna leiki í sínu einvígi sem hefur verið spennandi frá fysta uppkasti og er hefur því verið fleygt á kaffistofum landsins að sorglegt verði að sjá á eftir öðru hvoru liðinu enda bæði lið verið að spila frábærlega. Það má því búast við því að Ljónagryfjan titri annað kvöld.
Geisladiskur með Guðmundi Hauki Þórðarsyni XXÞann 4. apríl næstkomandi kemur út CD safndiskur með Guðmundi Hauki Þórðarsyni í tilefni af 85 ára afmæli hans. Tuttugu og eitt lag er á disknum en upptökur eru frá árunum 1967 til 2010 ýmist á tónleikum, í sjónvarpi, útvarpi eða í hljóðveri. Með Guðmundi Hauki koma fram ýmsir aðilar, m.a. synir hans Þórður og Steinar, Inga María Eyjólfsdóttir, Keflavíkurkvartettinn, Karlakór Keflavíkur og Karlakórinn Þrestir. Reiknað með að diskurinn komi í verslanir eftir páska.
VORTILBOÐ Í NUDD Mánudaga til föstudaga. Kl.8:00 - 12:00. kr. 5.000 tíminn. Frá kl. 12:00 kr. 8.000 tíminn. Tímapantanir í síma 867-4866.
VERKSTJÓRI Vísir leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starf verkstjóra í nýja hátæknivinnslu félagsins í Grindavík. Vísir hf. gerir út fimm línuskip og rekur tvær fiskvinnslur í Grindavík. Meginverkefni verkstjóra eru dagleg umsjón og skipulagning á fiskvinnslu félagsins í samvinnu við aðra stjórnendur. Menntunar- og hæfniskröfur: > Reynsla af stjórnun > Góð tölvukunnátta > Hæfni í mannlegum samskiptum > Stundvísi og reglusemi Nánari upplýsingar veitir rekstrarstjóri frystihúss, Ingólfur Hjaltalín, á ingi@visirhf.is eða í síma 856-5754. Í umsókn þurfa að koma fram ítarlegar upplýsingar um menntun, reynslu og fyrri störf. Umsóknir óskast sendar á visir@visirhf.is merkt „Umsóknir – verkstjóri“. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum svarað. Umsóknarfrestur er til 19.apríl 2015.
Iðavellir 7 // Keflavík (bakvið Nýmynd)
bæta við Keflavík aftan við Iðavelli og í tímasetningunni fyrir ofan, frá kl. 12
Vísir hf.
Hafnargötu 16
240 Grindavík
Sími: 420-5700
vf.is
MIÐVIKUDAGINN 1. APRÍL • 13. TÖLUBLAÐ • 36. ÁRGANGUR
-mundi Er þetta ekki lygileg forsíða?
VIKAN Á VEFNUM Valdimar Guðmundsson Jæja fólk, þetta verður í síðasta skipti sem ég minni ykkur á þetta. Blásturshljóðfærið sem ég spila á þarna með sleðanum HEITIR EKKI FOKKING TROMPET! ÞAÐ HEITIR BÁSÚNA! Annar misskilningur sem er mjög algengur er að Valdimar sé sólóverkefni þar sem ég sem öll lögin, alla texta og spila jafnvel á flest hljóðfæri en Valdimar ER FOKKING HLJÓMSVEIT ÞAR SEM 6 GAURAR GERA FOKKING MÚSÍK Í SAMEININGU! FOKK! En ég skal kannski taka það á mig þar sem ég asnaðist til að nefna bandið í höfuðið á mér. Annars er ég bara góður. Ragnheiður Elín Árnadóttir Í dag eru akkúrat nokkur ár síðan ég fermdist...en það var 29. mars fyrir nokkrum árum. Að vandlega yfirlögðu ráði hef
ákveðið að birta ekki fermingarmynd af mér af þessu tilefni. Dagný Gísladóttir „Getur þú nokkuð geymt þetta fyrir mig? Ég hef gleymt veskinu heima“, sagði ég afsakandi við afgreiðsludömuna í Kaskó áðan. Það var alveg sjálfsagt mál. Var því mjög hissa þegar ég var að starta bílnum að daman kom hlaupandi að og fór að berja á bílrúðuna hjá mér. Þá var hún með veskið í hendinni en það var að sjálfsögðu í innkaupakerrunni. Eitt núll fyrir Kaskó. Ég ætti að safna þessu saman í bók.
Margeir Einar Margeirsson Ást við fyrstu sýn í gær
Appelsínugul sigruðu í starfshlaupi FS Starfshlaup Fjölbrautaskóla Suðurnesja fór fram sl. föstudag en Starfshlaupið er nú haldið í 20. sinn. Starfshlaupið er n.k. boðhlaup þar sem keppt er í flestum þeim námsgreinum sem kenndar eru við skólann auk ýmissa þrauta. Allir nemendur skólans skipta sér í sex lið sem takast á um farandbikar. Starfshlaupið hófst með keppni í íþróttum og þrautum. Að því loknu hófst sjálft boðhlaupið sem fer fram um allan skólann. Keppt er í nokkrum greinum á sal skólans eins og hárgreiðslu, fatahönnun, að leggja á borð o.fl. Keppni var jöfn en úrslit fóru þannig að appelsínugula liðið fór með sigur af hólmi. Það græna fylgdi fast á eftir og hin liðin voru ekki langt undan.
Meðfylgjandi myndir tók Hilmar Bragi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja þegar starfshlaupið stóð sem hæst.
Gleðilega Páska verslun okkar á
hringbraut er opin:
Pálma sun. Skírdagur föstud.langi Páskadagur Annar í páskum
hefðb. 10-22 10-22 10-22 10-22