Skip to main content

Tímarit hjúkrunarfræðinga 2.tbl 2026

Page 1


Tímarit HJÚKRUNARFRÆÐINGA

The Icelandic Journal of Nursing | 2. tbl. 2026 | 102. árgangur

Hulda Hrönn Björgúlfsdóttir, meðeigandi Sunnu frjósemisstofu

„Það var stór ákvörðun og alls ekki eitthvað sem ég hafði planað. Ég var lengi ekki viss um hvort þetta væri rétt ákvörðun. Þetta var algjör kúvending frá því sem ég hafði verið að gera.“

Tími breytinga runninn upp

Nám í hjúkrunarfræði á Íslandi

RITRÝNDAR GREINAR

‒ Stuðningur eftir ofbeldi í starfi á geðdeild ‒

‒ Snemmbær hreyfing sjúklinga á gjörgæsludeild ‒

‒ Streita meðal nemenda í heilbrigðisvísindum við Háskóla Íslands ‒‒ UCEEM sem mælitæki í íslensku heilbrigðisvísindanámi ‒

‒ Orsakir svefntruflana á gjörgæslu og aðferðir til að bæta svefn sjúklinga ‒

‒ Heilsulæsi fullorðinna á Íslandi: Algengi lágs heilsulæsis og tengsl við lýðfræðilega þætti ‒

Saman í liði frá 1919

Árið 1919 var Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga stofnað. Sama ár hófst saga Icepharma með opnun Laugavegsapóteks.

Frá þeim tíma hefur hlutverk okkar verið að styðja við heilbrigðisþjónustu með lausnum, vörum og þjónustu sem fagfólk getur treyst á.

Á liðinni öld hefur hjúkrun á Íslandi þróast mikið, í takt við nýja þekkingu, breyttar þarfir og stærri verkefni. En kjarninn hefur staðið óhaggaður: umhyggja fyrir skjólstæðingnum og virðing fyrir lífi hans, velferð og mannhelgi.

Hjúkrun mun áfram taka mið af samfélaginu og mæta nýjum áskorunum. Þeim fylgja verkefni sem kalla á traust bakland og þar munum við leggja okkar af mörkum.

Efnisyfirlit

Stuðningur eftir ofbeldi í starfi á geðdeild: 14 24 20 32 6 16

6

10

14

16

- Guðbjörg Pálsdóttir, heiðursfélagi Fíh

Forsíðuviðtalið er við Huldu Hrönn Björgúlfsdóttur, hjúkrunarfræðing, sem hefur byggt upp nýja starfsemi á sviði frjósemisaðgerða

Leiðtoginn – Bryndís Rut Logadóttir, þjónustustjóri á hjúkrunarheimilinu Sléttunni

Vettvangsheimsókn, Fossvogsfléttan - bæklun á einum stað

Viðtal – Steinunn Ingvarsdóttir, hjúkrunarfræðingur, leiðir þjónustulínu geðhverfateymis LSH fyrir konur í barneignaferli

20 Háskólakennarinn – Hrafnhildur Snæfríðar- og Gunnarsdóttir, lektor og hjúkrunarfræðingur

24

28

30

Golfmót hjúkrunarfræðinga – Góð stemning

Trúnaðarmaðurinn Katla Marín Berndsen – „Kjararáðstefnan er hápunktur trúnaðarmannastarfsins“

Neminn – Hallgerður Höskuldsdóttir

31 Neminn – Margrét Unnur Ólafsdóttir

32 Tími breytinga runnin upp – Nám í hjúkrunarfræði á Íslandi

36

40

Fræðslugrein – Hreinar hendur, færri veikindi – mikilvægi handhreinsunar í skólum

Fræðslugrein – Hnippum í Þægindaknippið – drögum úr óþægindum gjörgæslusjúklinga 42

Ritrýnd grein: UCEEM (Undergraduate Clinical Education Environment Measure) sem mælitæki í íslensku heilbrigðisvísindanámi: og próffræðileg greining á íslensku útgáfunni: Próffræðileg greining og hagnýting í klínísku vinnuumhverfi

Snemmbær hreyfing sjúklinga á gjörgæsludeild: Hraðsamantekt á eigindlegum rannsóknum um hvetjandi og hindrandi þætti frá sjónarhorni hjúkrunarfræðinga

Orsakir svefntruflana á gjörgæslu og aðferðir til að bæta svefn sjúklinga. Samþætt fræðileg samantekt

Streita meðal nemenda í heilbrigðisvísindum

Heilsulæsi fullorðinna á Íslandi:

Algengi lágs heilsulæsis og tengsl við lýðfræðilega þætti

Sumarið er tíminn ...

... þegar hjartað verður grænt. Fyrir flest vekur þessi upphafslína úr klassískum sumarsmelli notaleg hugrenningatengsl við sumarið. Hugsanir um birtu, líf, gleði og náttúru. En fyrir þau sem starfa í heilbrigðiskerfinu hefur sumarið oft aðra merkingu. Þá tekur við sá tími ársins þegar undirmönnun verður hvað sýnilegust, álag eykst og hjúkrunarfræðingar leggja jafnvel eigin velferð undir til að tryggja að sjúklingar fái þá þjónustu sem þeir þurfa. Það finnst okkur ekki í góðu lagi.

Mönnunarviðmið skipta miklu máli í hjúkrun, bæði fyrir öryggi sjúklinga og starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga. Í síðasta kjarasamningi var samið um innleiðingu á verklagi um mönnunarviðmið í hjúkrun. Á grundvelli samkomulagsins skipaði heilbrigðisráðherra vinnuhóp með fulltrúum heilbrigðisyfirvalda, atvinnurekenda og hjúkrunarfræðinga til að útfæra verklagið. Starfi hópsins er nú lokið og niðurstöður hans hafa verið afhentar heilbrigðisráðuneytinu í skýrslu.

Skýrslan er afrakstur víðtæks samstarfs og vandaðrar faglegrar vinnu þeirra aðila sem komu að verkefninu og endurspeglar sameiginlegt faglegt mat vinnuhópsins. Því er brýnt að skýrslan sé aðgengileg og að heilbrigðisyfirvöld fylgi þeim tillögum sem þar eru lagðar fram.

Mönnunarviðmið ein og sér breyta þó litlu nema þeim fylgi raunhæf áætlun um fjármögnun og uppbyggingu mannauðs.

Í umsögn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um fjármálaáætlun 2027–2031 bentum við á að fyrirhugað aðhald samræmist illa þeim yfirlýstu markmiðum stjórnvalda að efla heilbrigðiskerfið. Á sama tíma og öldrun þjóðarinnar og aukin sjúkdómsbyrði kallar á fleiri hjúkrunarfræðinga og aukna sérþekkingu, gerir áætlunin ekki ráð fyrir þeirri mönnunaruppbyggingu sem nauðsynleg er og ítrekað hefur verið kallað eftir. Án raunhæfra fjárveitinga til reksturs og mannauðs er ómögulegt að tryggja öryggi sjúklinga eða sjálfbært starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga.

Hjúkrunarfræðingar stíga fram þegar á reynir. Við fyllum í skörðin, leysum vandann og leggjum okkur fram um að enginn verði út undan. Það er hluti af fagmennsku okkar.

Við megum þó ekki rugla saman fagmennsku og ábyrgð sem er ekki okkar.

Ábyrgð okkar hjúkrunarfræðinga er að veita örugga og faglega hjúkrun og láta vita þegar aðstæður eru ekki fullnægjandi til að tryggja þá þjónustu sem sjúklingar þurfa á að halda. Ábyrgðin á því að tryggja rétta mönnun í heilbrigðiskerfinu hvílir á þeim sem skipuleggja og fjármagna þjónustuna.

Í samræmi við áherslur sem samþykktar voru á nýliðnum aðalfundi mun Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga áfram beita sér fyrir því að fagleg mönnunarviðmið í hjúkrun verði innleidd og að þeim fylgi raunhæf fjármögnun.

Þegar sumarfríið loksins kemur hvet ég ykkur til að nýta það til fulls. Takið ykkur þá hvíld og endurheimt sem þið eigið rétt á. Njótið samverunnar með fjölskyldu og vinum, náttúrunnar og alls þess sem gefur ykkur orku.

Ég óska ykkur öllum gleðilegs sumars og vona að sumarið verði sannarlega sá tími þegar hjartað verður grænt.

formaður Fíh

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Suðurlandsbraut 22 · 108 Reykjavík

Sími: 540 6400

hjukrun.is

Útgefandi: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Helga Rósa Másdóttir

Ritnefnd: Hildur Dís Kristjánsdóttir, Sólveig Hauksdóttir, Ragnheiður Haralds Eiríksdóttir Bjarman

Ritstjóri ritrýndra greina: Herdís Sveinsdóttir

Ritnefnd ritrýndra greina: Sigrún Sunna Skúladóttir, Inga Valgerður Kristinsdóttir, Kristín Linda H. Hjartardóttir

Yfirlestur: Ragnheiður Linnet

Auglýsingar: Erna Sigmundsdóttir

Umbrot: Prentmet Oddi

Forsíðumynd: Helga Rósa Másdóttir

Prentun: Prentmet Oddi

ISSN 1022-2278

Pistill formanns

mTABLET spjaldtölva

12 leiðslu EKG

Ankle-Brachial index

SpO2

Toe-Brachial index

Hitamælir

Snjalllausn fyrir

nútíma heilbrigðisþjónustu

MESI mTABLET er þráðlaust greiningarkerfi sem sameinar margar mikilvægar rannsóknir í einu tæki. Með kerfinu er meðal annars hægt að framkvæma hjartalínurit, blóðþrýstingsmælingar, ABI/TBI æðamælingar, spirometriu og aðrar lífsmarkamælingar á einfaldan og fljótlegan hátt. MESI mTABLET einfaldar vinnuflæði, auðveldar rafræna skráningu niðurstaðna sem vistast sjálfkrafa í sjúkragögn. MESI mTABLET hentar jafnt á heilbrigðisstofnanir og í heimavitjanir.

Heiðursfélagi fallinn frá

Þann 15. maí síðastliðinn kvaddi Guðbjörg Pálsdóttir, heiðursfélagi í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, þennan heim. Með henni er farinn öflugur brautryðjandi og frumkvöðull úr hópi hjúkrunarfræðinga á Íslandi.

Guðbjörg Pálsdóttir lauk B.S.-gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 1986 og hóf þá þegar störf á gjörgæsludeild við Hringbraut. Fljótlega spratt fram áhugi Guðbjargar á sárameðferð og varð henni ljóst að talsvert vantaði upp á fagþekkingu hérlendis sem afla mætti annars staðar. Guðbjörg leitaði til Danmerkur, þar sem hún vissi að meiri þekking á sviðinu væri til staðar. Á þeim tíma stóð fræðslan einungis dönskum hjúkrunarfræðingum til boða en Guðbjörg lét það ekki stöðva sig og fékk að lokum pláss. Þetta gerði hún með því að ýta undir samvinnu félaganna milli landa, sem átti eftir að eflast og mótast og auka þekkingu á sárameðferð í þágu íslenskra hjúkrunarfræðinga.

Guðbjörg kláraði meistaranám árið 2009 frá Háskóla Íslands en aflaði sér auk þess sérþekkingar samhliða því í Háskólanum Hertfordshire, í Englandi. Hún fékk sérfræðiréttindi í hjúkrun sjúklinga með sár árið 2012.

Framsýni og ósérhlífni vörðuðu leið Guðbjargar í starfi og árið 2004 tók hún þátt í stofnun Samtaka um sárameðferð (SUMS) sem eru félagasamtök fagfólks með áhuga á sárameðferð. Samtökin hafa sannað gildi sitt og bæði eflt þekkingu á sárameðferð hérlendis auk þess að stuðla að öflugu alþjóðlegu samstarfi og útbreiðslu þekkingar.

Guðbjörg tók einnig í kjölfarið þátt í uppbyggingu og stofnun sáramiðstöðvar á Landspítala árið 2009 og hóf þar störf á sama tíma.

Það var leiðarstef hjá Guðbjörgu að hafa viljað deila sinni yfirgripsmiklu sérþekkingu sem víðast þar sem það átti við. Hún stóð fyrir námskeiðum um sár og sárameðferðir tvisvar á ári á vegum fagsviðs Fíh. Hafa þetta ávallt verið vinsælustu námskeiðin á vegum félagsins og var fullbókað á hvert eitt og einasta námskeið sem hún hélt. Gróflega má ætla að um eða yfir þúsund hjúkrunarfræðingar hafi nýtt sér dýrmæta leiðsögn Guðbjargar á þessum vettvangi.

Hjúkrunarfræðingar og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga standa í þakkarskuld við Guðbjörgu Pálsdóttur fyrir ómetanleg störf í þágu stéttarinnar og mikilvægt framlag til framgangs og eflingar hjúkrunarfræðinnar á Íslandi.

Blessuð sé minning Guðbjargar Pálsdóttur, sérfræðings í hjúkrun sjúklinga með sár.

Helga Rósa Másdóttir

formaður Fíh

Guðbjörg á Sáramiðstöð LSH.

Gegn flösu, kláða og flögnun í hársverði

Dermatín

20 mg/g hársápa

Dermatín inniheldur ketókónazól sem er sveppalyf og er notað við flösu og öðrum sveppasýkingum sem valda kláða og flögnun. Sýkt húðsvæði eða hársvörður er þveginn með hársápunni og hún látin liggja á húðinni í 3-5 mín. áður en skolað er. Hársápan notist tvisvar sinnum í viku í 2-4 vikur og síðan eftir þörfum. Dermatín er ætlað unglingum og fullorðnum. Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar, varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.

Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is

Markaðsleyfishafi: Teva B.V. Umboðsaðili á Íslandi: Teva Pharma Iceland ehf.

Hulda Hrönn Björgúlfsdóttir hjúkrunarfræðingur hefur byggt upp

nýja starfsemi á sviði frjósemismeðferða

„Hjúkrunarstarfið hefur gefið mér svo mörg tækifæri“

Hulda Hrönn Björgúlfsdóttir hjúkrunarfræðingur tók stórt skref á starfsferlinum árið 2024 þegar hún lét af störfum sem verkefnastjóri neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis á Landspítala og tók þátt í að stofna Sunnu frjósemi og byggja þar upp nýja þjónustu í frjósemismeðferðum frá grunni.

Á rúmlega tveggja áratuga starfsferli hefur Hulda starfað víða innan heilbrigðiskerfisins, meðal annars á BUGL, bráðamóttöku Landspítala, Reykjalundi og Neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis. Í dag er hún hluti af teymi sem hefur byggt upp nýja starfsemi á sviði frjósemismeðferða og tekið þátt í að móta þjónustuna frá fyrstu skrefum.

Hildur Dís Kristjánsdóttir úr ritnefnd Tímarits hjúkrunarfræðinga tók Huldu Hrönn tali á dögunum.

Hvað varð til þess að þú ákvaðst að verða hjúkrunarfræðingur?

Ég fór í hjúkrun árið 2003 eftir að hafa tekið hlé eftir framhaldsskóla og var að reyna gera upp við mig hvort ég ætti að fara í félagsráðgjöf eða hjúkrunarfræði. Amma mín var hjúkrunarkona og lá það alltaf í loftinu að ég ætti að verða það líka. Ég var ekki tilbúin að láta aðra ákveða það fyrir mig en á endanum ákvað ég að láta á það reyna og skráði mig í námið 2003. Þá voru 240 nemar skráðir í klásus.

„Það var áskorun út af fyrir sig að komast inn og þá kom keppnisskapið sér vel, því inn ætlaði ég.“

Ég er alin upp á Eskifirði til sex eða sjö ára aldurs. Amma og afi bjuggu á Seyðisfirði og starfaði amma sem hjúkrunarkona þar. Árið 1987 var ég hjá ömmu í nokkra mánuði á meðan afi var á spítala og mamma var hjá honum fyrir sunnan. Ég var svo heppin að fá að fylgja henni í vitjanir. Ég var víst mjög virkur þátttakandi í sáraskiptum og ýmsu öðru. Ég hef líklega verið fjögurra eða fimm ára gömul þegar ég fór fyrst með henni. Ég man sérstaklega eftir því að hún var með gamaldags sleða með skíðum aftan í, ég sat á eins konar stól á meðan hún ýtti mér áfram, mjög eftirminnilegt. Hún svo sótbölvaði þeim sem höfðu brætt snjóinn svo ekki var hægt að komast áfram á sleðanum.

Amma var frá Færeyjum, fædd 1920, ein af ellefu systkinum, og sú eina sem flutti til Íslands þegar hún var ung. Hún fór að vinna á sjúkrahúsinu á Seyðisfirði þar sem hún kynntist afa mínum sem var með berkla. Hún ólst upp í litlu þorpi í Færeyjum sem heitir Hvannasund við frekar kröpp kjör og bjó í húsi með moldargólfi þegar hún var lítil, ég allavega man þegar hún sagði mér það. Það er í raun magnað að amma mín sem ólst upp við þessar aðstæður í litlu sjávarþorpi í Færeyjum, hafi endað sem hjúkrunarkona á Íslandi. Það sýnir kannski líka hvað hjúkrunarstarfið hefur alltaf opnað margar dyr.

Hvernig hófst svo ferillinn?

Ég byrjaði að vinna á taugadeild eftir fyrsta eða annað árið í hjúkrunarnáminu og vann þar tvö sumur samhliða skólanum.

Síðar vann ég á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ á tíu rúma deild fyrir konur með alzheimer-sjúkdóm. Það var mjög lærdómsríkur tími og þar upplifði ég í fyrsta sinn að þurfa að búa um látinn einstakling. Ég var ein á næturvakt þegar kona lést. Þar sem hún deildi herbergi með annarri konu þá gat ég ekki látið hana vera þar inni eftir að hún var dáin, ef hin konan skyldi vakna. Ég sem sagt flutti hana fram á gang þar sem hún var alla nóttina. Það var frekar svona „draugalegt“ að hafa hana látna á ganginum því ég þurfti jú að fara reglulega og snúa hinum konunum og ganga því fram hjá rúminu hennar mörgum sinnum þá nótt. Eins var ég mjög stressuð um að hinar konurnar myndu vakna og fara fram, eins og oft gerðist og sjá hana þar í rúminu látna. Pínu kómískt eftir á og reynsla í bankann fyrir mig en ég var um 24 ára þarna.

Sumarið 2006 byrjaði ég að vinna á BUGL, á unglingadeildinni þar. Ég vann þar um sumarið og með skólanum fram að útskrift og fannst það einnig mjög lærdómsríkur tími. Þar kynntist ég mörgu fólki sem er enn vinir mínir í dag. Ég kynntist einnig frábæru fagfólki sem verið hefur mér fyrirmyndir síðan.

Eftir útskrift hóf ég störf á bráðamóttöku Landspítala í júlí 2007. Nokkrar vinkonur mínar úr náminu voru þegar farnar að vinna þar og höfðu sagt mér frá starfinu. Ég hafði einnig verið þar í verknámi í eina viku og eftir þá reynslu var ég eiginlega ákveðin í að mig langaði að prófa að starfa þar.

Það sem hefur alltaf heillað mig mest er að vinna með fólki sem er að takast á við erfið tímabil í lífinu. Á bráðamóttökunni eru einstaklega margir reyndir hjúkrunarfræðingar sem unun er að fylgjast með og læra af.

Ég starfaði á bráðamóttökunni í um tíu ár í fullu starfi. Á þeim tíma var ég lengi ein með son minn og fann að það varð sífellt erfiðara að samræma vaktavinnu og fjölskyldulíf. Það fylgir því mikið skipulag að vera einstætt foreldri og vinna kvöldvaktir, helgar- og

„Amma mín var hjúkrunarkona og lá það alltaf í loftinu að ég ætti að verða það líka.“

stundum næturvaktir. Ég var oft þreytt og í raun ekki að verða sá karakter sem ég vildi vera. Það er ekki gaman að vera mamma sem er alltaf þreytt og pirruð, alls ekki. Því ákvað ég þegar strákurinn minn var fimm ára að breyta til. Ég var að flytja í Mosfellsbæ og ákvað að sækja um á Reykjalundi.

Á Reykjalundi starfaði ég í um fimm ár. Eitt af því mikilvægasta sem ég tók með mér þaðan var mikilvægi teymisvinnu. Ég lærði hvað það getur skipt miklu máli fyrir skjólstæðinga að hafa ákveðið teymi í kringum sig og hvernig góð samvinna ólíkra fagstétta getur styrkt þjónustuna og upplifun fólks af henni.

Hvernig fer maður frá starfi hjá ríki og yfir í eitthvað alveg nýtt?

Á meðan ég starfaði á Reykjalundi hélt ég áfram að taka vaktir á bráðamóttökunni og tengingin við Landspítalann rofnaði aldrei. Þegar mér bauðst síðar staða verkefnastjóra á neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis ákvað ég að stíga það skref og sneri aftur á Landspítalann í fullt starf.

Í störfum mínum, bæði á bráðamóttökunni og Reykjalundi, mætti ég fólki sem hafði gengið í gegnum áföll og ýmiss konar erfiða lífsreynslu. Ég fann sífellt sterkari þörf fyrir að efla mig í mæta þessu fólki betur og öðlast meiri þekkingu á því hvernig best væri að mæta fólki í krísu. Það varð til þess að ég fór í sálgæslunám og kláraði það árið 2022.

Mig langaði að geta verið betur í stakk búin að styðja fólk á erfiðum tímum.

Mörg atvik á bráðamóttökunni hafa mótað mig en eitt atvik hafði sérstaklega mikil áhrif á mig. Ég lenti í mjög erfiðum aðstæðum þar sem mér leið eins og ég gæti hvorki sagt né gert neitt rétt. Þrátt fyrir að hafa starfað í nokkur ár og tekist á við margvíslegar

aðstæður vissi ég einfaldlega ekki hvernig ég ætti að vera til staðar. Þetta sat lengi í mér og situr jafnvel enn.

Ég hef lært mikið af samstarfsfólki mínu eins og hefur komið fram. Ég man sérstaklega eftir prestinum sem kom að þessu máli. Ég hlustaði á hana tala við fjölskylduna og hugsaði með mér: Mig langar að geta gert þetta.

Hún hafði tungumál sem mér hefði aldrei dottið í hug að nota og gat verið til staðar á svo fallegan og faglegan hátt. Það hafði mikil áhrif á mig að fylgjast með henni og sú reynsla hefur fylgt mér síðan.

Árin á Neyðarmóttökunni voru öðruvísi en allt annað sem ég hafði starfað við. Stór hluti vinnunnar fólst í umsjón með þjónustunni, miklu samstarfi við lögreglu og aðra aðila utan heilbrigðiskerfisins.

Þar mætir maður einstaklingum á þeirra verstu stundum. Málin voru mörg hver þung og maður sá vel hversu flókið og erfitt er fyrir þolendur kynferðisofbeldis að fara í gegnum dómskerfið.

Það var þó líka gefandi að fá að styðja fólk á þessum erfiða tíma og reyna að hjálpa því að komast eins heillega og mögulegt er í gegnum slíka lífsreynslu. Mér fannst líka mikilvægt að fá að taka þátt í stefnumótunarvinnu og þróun þjónustunnar í samstarfi við aðrar fagstéttir og stofnanir, með það að markmiði að bæta ferla og þjónustu fyrir þolendur.

Það var einmitt í gegnum tengsl og samstarf sem síðan opnaðist tækifæri til að taka þátt í að byggja upp nýtt fyrirtæki.

„Auðvitað nýtist reynslan mín vel, bæði sem hjúkrunarfræðingur sem hefur tekist á við ýmsar áskoranir á bráðamóttökunni og ekki síst að hafa farið í sálgæsluna.“

Hvernig er að taka þátt í uppbyggingu nýs fyrirtækis?

Það var stór ákvörðun og alls ekki eitthvað sem ég hafði planað. Ég var lengi ekki viss um hvort þetta væri rétt ákvörðun. Þetta var algjör kúvending frá því sem ég hafði verið að gera.

Ég vissi í raun mjög lítið um glasafrjóvganir áður en ég byrjaði, fyrir utan eigin reynslu sem skjólstæðingur. En til þess að eignast dóttur okkar þurftum við maðurinn minn að fara í frjósemismeðferð.

Ég gerði mér enga grein fyrir umfangi starfsins eða hvað það fæli raunverulega í sér.

Það sem heillaði mig var fyrst og fremst að fá að taka þátt í að byggja eitthvað upp frá grunni. Við vorum ekki einu sinni komin með fullbúið húsnæði. Mér fannst það mjög spennandi þótt ég vissi ekki nákvæmlega út í hvað ég væri að fara.

Ég hélt að þetta yrði rólegra starf og að það yrði kannski þægilegt að vera í dagvinnu og föstum takti. En ég komst fljótt að því að þetta er ekki rólegra starf, síður en svo. Dagarnir liðu ótrúlega hratt og starfið er miklu fjölbreyttara en ég hafði gert mér grein fyrir.

Eitt af því sem ég tók með mér frá Reykjalundi var mikilvægi teymisvinnu í kringum skjólstæðinga og fannst mér borðleggjandi að taka það upp fyrir skjólstæðinga Sunnu.

Huda Hrönn að störfum.

Við reynum því að hafa ákveðinn lækni, hjúkrunarfræðing og fósturfræðing í kringum hvert par eða hvern einstakling sem er í meðferð hjá okkur.

Mér fannst það mikilvægt vegna þess að ég hafði heyrt frá fólki sem hafði farið í gegnum frjósemismeðferðir að því fyndist það stundum vera eins og númer á blaði eða hlutur á færibandi. Mig langaði að reyna að skapa aðra upplifun.

Auðvitað veit ég ekki alltaf hvernig reynsla fólks hefur verið annars staðar en upplifun mín núna er að fólki finnist gott að hafa einn tengilið og greiðan aðgang að starfsfóli og leggjum við okkur fram um að uppfylla það. Einhvern sem þekkir málið þeirra og þau geta haft samband við og fengið svar frá. Mér finnst mikilvægt að fólk upplifi að það skipti máli sem einstaklingar, að fólki finnist það

Er einhver hluti starfsins meira krefjandi en aðrir þættir þess?

Það sem kom mér líklega mest á óvart þegar ég byrjaði að starfa við frjósemismeðferðir var hversu margir glíma við ófrjósemi, hversu fjölbreytt ástæðan getur verið og hversu langt og erfitt ferlið getur verið fyrir marga og í raun mjög marga.

Ég held að ég hafi ekki gert mér grein fyrir því í upphafi hversu stór hópur þetta er eða hversu langa og erfiða vegferð margir þurfa að fara.

Það sem mér finnst mest krefjandi er þegar fólk þarf að fara aftur og aftur í gegnum meðferðir án þess að fá þær niðurstöður sem það vonast eftir. Maður sér og finnur hve átakanlegt það er á fá endurtekið neikvæða niðurstöðu. Fólk byggir upp von, er með væntingar sem eru oft og tíðum skotnar niður endurtekið.

Ég get alla vega sagt að ég vildi ekki vera hér sem nýútskrifaður hjúkrunarfræðingur án reynslu í samskiptum við fólk í krísu.

Auðvitað nýtist reynslan mín vel, bæði sem hjúkrunarfræðingur sem hefur tekist á við ýmsar áskoranir á bráðamóttökunni og ekki síst að hafa farið í sálgæsluna.

Það sem maður getur gert hér er að vera til staðar, hlusta, vonandi leiðbeina og gera gagn.

Það sem mér finnst skemmtilegast við starfið í dag er þegar maður fær góðar fréttir. Þegar maður hefur fylgt fólki í gegnum langt og oft erfitt ferli og fær símtal um að meðferð hafi gengið vel eða að það sé komið með jákvætt þungunarpróf, þá eru það auðvitað mjög ánægjuleg augnablik og þær stundir sem standa mest upp úr. Stundum upplifi ég að ég sé að taka þungunarpróf nokkrum

Hvernig sérðu framtíðina fyrir þér?

Ég veit það svo sem ekki alveg, ég er mjög ánægð þar sem ég er núna. Ef eitthvað hefur komið mér á óvart í gegnum árin þá er það hvað hjúkrunarstarfið getur leitt mann á ólíka staði. Ég get ekki sagt að ég verði hér að eilífu, kannski sný ég aftur „heim“ á bráðamóttökuna, hver veit. Ég er alla vega hér núna og er ekki á leið burtu í bráð.

Þegar ég byrjaði í hjúkrunarnáminu hafði ég enga hugmynd um hvert það myndi leiða mig. Ég hef unnið með öldruðum, börnum og unglingum, á bráðamóttöku, í endurhæfingu, á neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis og nú við frjósemismeðferðir.

Þetta eru ólík störf en eiga það sameiginlegt að snúast um fólk og samskipti. Það hefur kannski komið mér mest á óvart hvað hjúkrunin er fjölbreytt og hversu mörg tækifæri hún getur gefið manni.

Gjöf sem skjólstæðingur Sunnu frjósemisstofu fékk.
Teymið á Sunnu frjósemisstofu.

Leiðtoginn Bryndís Rut Logadóttir þjónustustjóri

Leiðtogi þarf að hafa skýra framtíðarsýn og geta miðlað henni á skiljanlegan og hvetjandi hátt

Texti: Helga Rósa Másdóttir og Sigríður Elín Ásmundsdóttir | Myndir: Helga Rósa Másdóttir

Leiðtoginn: Bryndís Rut Logadóttir

Starfstitill: Þjónustustjóri á hjúkrunarheimilinu Sléttunni

Varaformaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga

Hvers vegna valdir þú að læra hjúkrunarfræði á sínum tíma, var einhver lífsreynsla eða fyrirmynd sem átti þátt í því vali? Ólíkt mörgum hjúkrunarfræðingum þá var það ekki draumur úr æsku að læra hjúkrun. Ég var mjög lengi óviss með hvað ég vildi verða þegar ég yrði stór. Mér hafði dottið margt í hug áður en ég ákvað að stefna á hjúkrunarnámið. Stefnan var sett á viðskiptafræði enda hafði ég unnið sem sölustjóri og fannst það bara eiga vel við mig. En þegar til stóð að skrá mig í nám þá var ég ófrísk að öðru barni mínu og fékk mikinn áhuga fyrir því að kynna mér ljósmóðurfræði. Ég kynnti mér hvaða leiðir þyrfti að fara til þess að verða ljósmóðir og sá þá að fyrst þyrfti ég að læra hjúkrun. Ég skoðaði kennsluskrána og sá að þetta var mjög fjölbreytt og áhugavert og tók þá ákvörðunina að fara þessa leið. Ég hafði aldrei unnið við aðhlynningu og vissi í raun ekkert hvað ég væri að fara út í. Ég hafði hins vegar unnið á leikskóla og fann þar að það átti vel við mig að vinna með fólki og vera í líflegu umhverfi þar sem maður veit aldrei hvað dagurinn ber í skauti sér.

Ég átti eina frænku, systur mömmu, sem var hjúkrunarfræðingur. Hún var alltaf í uppáhaldi hjá mér og við áttum gott samband. Hún lést fyrir aldur fram nokkrum árum áður en ég hóf nám við hjúkrun. Sennilega hefur það haft einhver áhrif á þessa ákvörðun mína.

Hvert lá leiðin eftir útskrift? Ég vann með náminu á Kvennadeild Landspítala enda stefnan tekin á ljósmóðurnám. Þar fannst mér ég vera að fá góðan undirbúning fyrir það. Ég vann líka fyrsta námsárið á Hrafnistu í Boðaþingi sem var mjög lærdómsríkt. Eftir námið tók ég hins vegar nýja stefnu. Ég réð mig til Vinnuverndar og vann þar fyrstu þrjú árin eftir útskrift við heilsufarsmælingar og heilsueflandi fræðslu í fyrirtæki. Leiðin lá síðan aftur á Boðaþing þar sem ég starfaði sem almennur hjúkrunarfræðingur í ár áður en ég tók við starfi hjúkrunardeildarstjóra á Mörkinni. Síðan þá hef ég starfað sem stjórnandi í öldrunarþjónustu eða í 10 ár á þessu ári.

Hvenær varstu ráðin deildarstjóri á Sléttunni?

Ég hóf störf sem deildarstjóri dagdvalar á Sléttunni í janúar 2020. Þá var húsið enn á byggingarstigi og stóð til að opna það í febrúar sama ár. Við byrjuðum því að vinna inn á Laugarási við undirbúning.

Hjúkrunarheimilið var opnað í lok febrúar, sama dag og fyrsta COVID-smitið greindist hér á landi. Það dróst því aðeins að opna dagdvölina en hún hóf starfsemi í maí sama ár. Í apríl 2022 tók ég svo við starfi þjónustustjóra Sléttunnar við sameiningu dagdvalar og þjónustumiðstöðvar undir minni stjórn.

Hvað felst í starfinu og hvernig er það frábrugðið þínu fyrra starfi?

Það sem mér finnst helst vera ólíkt er að nú er ég að vinna með fólk sem enn þá býr heima. Það eru töluvert aðrar áherslur. Ég legg mikla áherslu á að skapa umhverfi fyrir fólk þar sem það getur dafnað heima og hef oft sagt í gríni að markmið mitt sé að koma í veg fyrir að fólk þurfi að flytja á hjúkrunarheimili sem er svolítið kaldhæðnislegt þar sem ég vinn á Hrafnistu. En engu að síður er þetta dagsatt. Markmið starfseminnar er að viðhalda færni og rjúfa félagslega einangrun.

Hvað er það mikilvægasta sem hefur áunnist á þessum árum síðan þú tókst við starfinu?

Það er ótrúlega gaman að sjá hvað staðurinn hefur vaxið. Fyrstu árin varð töluvert hökt á starfseminni út af „dottlu“. En eftir að lífið fór að ganga sinn vanagang aftur eftir faraldurinn þá var almennilega hægt að vinna að þeim markmiðum sem við lögðum upp með í byrjun.

Hvaða eiginleika þarf góður leiðtogi í hjúkrun að hafa að þínu mati?

Að mínu mati þarf góður leiðtogi í hjúkrun að sameina faglega þekkingu, mannlega færni og skýra sýn. Hjúkrun er bæði krefjandi og mannleg starfsgrein. Góður leiðtogi þarf að geta stutt starfsfólk sitt á sama tíma og hann tryggir öryggi og gæði þjónustunnar. Mér finnst líka skipta miklu máli að leiðtogi sé fyrirmynd í dag-

„Ég legg mikla áherslu á að skapa umhverfi fyrir fólk þar sem það getur dafnað heima og hef oft sagt í gríni að markmið mitt sé að koma í veg fyrir að fólk þurfi að flytja á hjúkrunarheimili sem er svolítið kaldhæðnislegt þar sem ég vinn á Hrafnistu.“

legu starfi. Starfsfólk fylgir frekar leiðtoga sem sýnir ró, virðingu og jákvætt viðhorf í verki en þeim sem stjórnar eingöngu með fyrirmælum.

Áttu þér fyrirmynd, þ.e. er einhver leiðtogi í hjúkrun sem þér finnst skara fram úr í starfi?

Ég hef alltaf horft meira á ákveðna eiginleika en eina sérstaka fyrirmynd. Ég dáist mest að leiðtogum í hjúkrun sem ná að sameina fagmennsku, yfirvegun og mannleg samskipti — fólki sem skapar öryggi í kringum sig og hvetur aðra áfram án þess endilega að vera hæst í rýminu. Mér finnst bestu leiðtogarnir oft

að vinna að sameiginlegum markmiðum og halda í eldmóðinn í krefjandi umhverfi. Að hrífa fólk með sér, styðja við breytingar og skapa menningu þar sem starfsfólk fær tækifæri til að vaxa og blómstra. Það er mikilvægt að fólk finni að rödd þess skipti máli og að við séum öll að vinna í takt.

Þín helstu bjargráð í starfi?

Helstu bjargráð mín felast í góðum starfsanda, sífelldri endurmenntun og jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Ég sæki mikið í að þróa mig faglega og tel mikilvægt að halda áfram að læra og vaxa í starfi. Góður stuðningur samstarfsfólks og jákvæður starfsandi skipta mig líka miklu máli í daglegu starfi.

Í frítíma reyni ég að huga að eigin heilsu með hreyfingu og jóga, sem hjálpar mér að endurnæra bæði líkama og huga. Svo er fjölskyldan mín stærsta stoðin, með henni næ ég hvíld, gleði og jafnvægi.

Ertu meðvitað að vinna í því að efla leiðtogahæfileika þína til þess að verða betri yfirmaður?

Ég hef bætt við mig viðbótardiplómu í stjórnun og sótt marga fyrirlestra og námskeið tengt leiðtogafærni. Það er mjög mikilvægt að vera stöðugt að uppfæra þekkingu sína og rifja upp. Það er allt

of auðvelt að gleyma sér í amstri dagsins þannig að það er mjög gott að skerpa á sér reglulega.

Hvernig sérðu að hjúkrun hér á landi muni þróast á næstu tíu árum?

Ég vona við verðum búin að koma aftur á stöðu yfirhjúkrunarfræðings. Það er mjög mikilvægt fyrir bæði stéttina og heilbrigðiskerfið í heild. Yfirhjúkrunarfræðingur er mikilvægur hlekkur

Við þurfum að bæta kjör hjúkrunarfræðinga og bæta starfsaðstæður til muna. Þannig löðum við að fólk til þess að starfa við hjúkrun. Síðan þarf auðvitað að vera gott starfsfólk í brúnni til þess að öllum líði vel á vinnustaðnum. Þannig höldum við í starfsfólk.

Draumastarfið þitt ef þú ættir að skipta um starfsvettvang?

Mig hefur alltaf dreymt um að verða plötusnúður. Gæti svo sem gert það að aukastarfi en ég kann bara ekkert á svona DJ-græjur. Hvert fer maður á þannig námskeið?

Hvernig gengur þér að samræma vinnu og einkalíf?

Það gengur bara mjög vel. Ég á auðvelt með að setja mörk eftir að hafa brennt mig á því að gera það ekki í fyrra starfi. En auðvitað vill maður alltaf vera til staðar ef hægt er en maður þarf að passa að nýta það skynsamlega.

Þarft þú sem yfirmaður að eyða miklum tíma á skrifstofunni eða hefur þú tíma líka til að sinna starfsfólki og skjólstæðingum jafnvel líka?

Mér finnst það einmitt svo frábært við starfið að geta verið aðeins á hlaupum yfir daginn. Það hentar mér rosalega vel. Ég sest niður og reyni að vinna skipulega svo ég geti haft tíma til þess að vera sýnileg. Það er svo mikilvægt að vera sýnilegur í svona starfi.

Þú hefur stigið inn í stjórnmálin með því að vera á lista hjá Viðreisn í Kópavogi, hvers vegna ákvaðstu að taka þann slag og fyrir hvaða málefni brennur þú í því samhengi?

Ákvörðunin um að taka þátt í stjórnmálum byggist fyrst og fremst á þeirri sannfæringu að heilbrigðis- og velferðarmál þurfi sterkari tengingu við fagþekkingu þeirra sem starfa innan kerfisins. Reynslan hefur sýnt mér að ákvarðanir sem teknar eru af stjórnsýslunni og á pólitískum vettvangi hafa veruleg áhrif á starfsaðstæður, gæði þjónustu og öryggi sjúklinga.

Ég tel mikilvægt að þeir sem starfa í heilbrigðisþjónustu hafi skýra rödd í stefnumótun svo að ákvarðanir byggi ekki aðeins á tölum og á kerfislægum forsendum. Með þátttöku í stjórnmálum vil ég leggja áherslu á að brúa þetta bil og stuðla að faglegri ákvarðanatöku.

Ég brenn sérstaklega fyrir málefnum sem snúa að heilbrigðiskerfinu, þar á meðal starfsumhverfi heilbrigðisstarfsfólks, mönnun, nýtingu mannauðs og öryggi sjúklinga. Þá skiptir mig einnig máli að setja meira vægi á forvarnir og bæta samfellu í þjónustu, þannig að kerfið styðji betur við bæði notendur og starfsfólk.

Hvernig hlúir þú að þér og þínum?

Gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs er mikilvægt. Ég reyni að hreyfa mig reglulega, sofa vel og vera úti í náttúrunni, það hjálpar mér að halda jafnvægi.

Ég reyni að setja setja skýr mörk og forgangsraða verkefnum þannig að álag verði viðráðanlegt og að verja tíma með fjölskyldu og vinum sem hefur gefið mér orku og festu í tilveruna.

Ég reyni að vera vakandi fyrir eigin líðan og bregðast við ef ég þarf að stíga aðeins til baka. Enginn græðir á leiðtoga sem er alveg tómur, hvorki skjólstæðingarnir né samstarfsfólkið.

Ég reyni að komast í jóga eða út að ganga/hlaupa eftir vinnu. Annars er það bara þetta týpíska; fjölskylda, ferðalög, handavinna og góð ræma í sjónvarpinu.

Hvaða ráð myndir þú vilja gefa öðrum sem vilja efla sig frekar sem leiðtoga?

Ég myndi hvetja fólk til að taka þátt og láta sig málin varða. Stjórnar- og nefndarstörf eru mjög lærdómsrík og gefa tækifæri til að öðlast reynslu, víkka sýnina og hafa áhrif á til dæmis þróun fagsins og starfsumhverfisins. Sjálf hef ég meðal annars tekið þátt í stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og er formaður Félags stjórnenda í öldrunarþjónustu, sem hefur verið bæði krefjandi og afar gefandi reynsla.

„Að hrífa fólk með sér, styðja við breytingar og skapa menningu þar sem starfsfólk fær tækifæri til að vaxa og blómstra.“

Það er líka mikilvægt að hafa rödd, þora að tjá skoðanir sínar og taka þátt í samtalinu, jafnvel þegar breytingar eða nýjar áskoranir eru fram undan. Góður leiðtogi þarf ekki að hafa öll svörin, heldur vera tilbúinn að læra, þróast og vera óhræddur við breytingar. Að mínu mati verður leiðtogahæfni sterkust í gegnum samstarf, þátttöku og reynslu.

Hjúkrunarþing

2026

Fossvogsfléttan –bæklun á einum stað

Texti og myndir: Sólveig Auðar Hauksdóttir

Í byrjun maí urðu umtalsverðar breytingar á starfsemi skurðdeilda Landspítala í Fossvogi þegar svokallaðri Fossvogsfléttu var hrint í framkvæmd. Þá var ný og endurbætt bæklunarskurðdeild á sameinuðum A- og B-gangi fimmtu hæðar opnuð og allir bæklunarsjúklingar voru sameinaðir á einni einingu. Fram að því höfðu bæklunarsjúklingar legið á þremur deildum.

Samhliða þessum breytingum var dagdeild skurðlækninga flutt af fimmtu hæð niður á þá fjórðu og lýta-, HNE- og æðaskurðdeild sameinaðist heila- og taugaskurðdeild á B-6. Með breytingunum var stigið mikilvægt skref í átt að einfaldara skipulagi, betri nýtingu húsnæðis og fjölgun legurýma.

Þær Ingibjörg Guðmundsdóttir forstöðuhjúkrunarfræðingur skurðlækningaþjónustu, María Björg Kristjánsdóttir verkefnastjóri og deildarstjórarnir Dagrún Ása Ólafsdóttir, Magney Ósk Bragadóttir, Steinunn Arna Þorsteinsdóttir og Edda Dröfn Daníelsdóttir segja frá verkefninu.

Lengi hafði verið rætt um óhagræði þess að hafa bæklunarsjúklinga dreifða um Landspítala í Fossvogi. Haustið 2024 varð vendipunktur þegar Ingibjörg Guðmundsdóttir forstöðuhjúkrunarfræðingur og Hjörtur Friðrik Hjartarson forstöðulæknir skurðlækningaþjónustu ræddu stöðuna og komust að þeirri niðurstöðu að tími væri kominn til að láta verkin tala og kýla á breytingar. Í kjölfarið hófst greiningarvinna sem sýndi að breytingin gæti bæði bætt skipulag þjónustunnar og fjölgað legurýmum. Þar lá einn stærsti kostur verkefnisins enda hefur skortur á legurýmum lengi verið meðal stærstu áskorana Landspítala. Niðurstöðurnar

voru kynntar fyrir húsnæðisnefnd Landspítala sem samþykkti verkefnið í janúar 2025 og þá hófst undirbúningur af fullum krafti.

María Björg Kristjánsdóttir verkefnastjóri kom snemma að verkefninu og vann ásamt Ingibjörgu og deildarstjórum við undirbúning, skipulagningu og kynningu breytinganna.

Frá upphafi var lögð áhersla á samráð og upplýsingagjöf. Starfsfólk þeirra deilda sem breytingarnar snertu var upplýst um áformin með góðum fyrirvara og síðar haldnar vinnustofur þar sem kallað var eftir ábendingum og sjónarmiðum. Margar þeirra athugasemda sem þar komu fram nýttust við undirbúning og framkvæmd verkefnisins.

Þótt umfang breytinganna væri mikið ríkti almennt skilningur á markmiðunum. Samhliða sameiningum og flutningum var ráðist í umbætur á húsnæðinu, meðal annars með nýju lyfjaherbergi, bættri vinnuaðstöðu og stærri kaffistofu fyrir starfsfólk. Jafnframt skapaðist betri grunnur fyrir samfellu í meðferð bæklunarsjúklinga.

Verkefnið fól í sér mismunandi áskoranir milli mismunandi eininga, bæði vegna breytts verklags og sameiningar starfsmannahópa með ólíka reynslu og menningu. Stjórnendur lögðu ríka áherslu á að undirbúa breytingarnar vel og tryggja að starfsfólk hefði tækifæri til að taka þátt í ferlinu frá upphafi.

Ein helsta áskorunin sem starfsfólk benti á í undirbúningsferlinu var hvernig halda mætti utan um sérhæfða þekkingu á nýrri sameinaðri skurðlækningadeild sem þjónar fleiri sérgreinum en áður. Þar þarf starfsfólk að búa yfir breiðum þekkingargrunni til að sinna fjölbreyttum sjúklingahópi. Um leið er mikilvægt að

viðhalda og efla sérhæfða þekkingu. Stjórnendur líta ráðningu sérfræðinga í hjúkrun sem lykilþátt í þeirri vegferð. Þeir gegna mikilvægu leiðtogahlutverki í faglegri þróun, ráðgjöf og uppbyggingu hjúkrunarþjónustunnar á þessari nýju stóru einingu til framtíðar.

Undirbúningurinn fól einnig í sér umfangsmikla vinnu við húsnæði og aðstöðu. Ein af forsendum sameiningarinnar var að gera

Auk breytinga á húsnæði og skipulagi þurfti að samræma fjölda ferla og kerfa. Breytingar á skráningum í upplýsingakerfum, uppfærsla á Kanban-kerfi og endurskoðun verkferla voru meðal þeirra verkefna sem unnin voru samhliða sýnilegri þáttum breytinganna. Mikil vinna fór því fram á bak við tjöldin áður en nýtt skipulag tók gildi.

Ávinningur Fossvogsfléttunnar er þegar farinn að koma í ljós. Með breytingunum urðu til níu ný legurými og áform eru um frekari fjölgun á næstu misserum. Fjölgun legurýma er auðvitað háð því að nægt starfsfólk fáist til starfa og að nýir starfsmenn fái nauðsynlega þjálfun. Á undanförnum misserum hefur verið töluverð endurnýjun í starfsmannahópum deildanna og mikilvægt er að skapa svigrúm til að styrkja starfsemina samhliða vexti hennar.

Þótt breytingarnar hafi fyrst og fremst snúist um skipulag og húsnæði hafa þær einnig kallað á að nýir starfsmannahópar læri að starfa saman. „Fólki þykir vænt um vinnustaðinn sinn, deildina sína,“ hefur Ingibjörg á orði. Sameining deilda felur óhjákvæmilega í sér að samræma verklag, menningu og hefðir sem þróast hafa yfir langan tíma og sú vinna heldur áfram þótt formlegum flutningum sé lokið.

Fossvogsfléttan hefur þegar skilað áþreifanlegum árangri en um leið skapað dýrmæta reynslu fyrir næsta stóra umbreytingarverkefni Landspítala. Þegar starfsemin flytur í nýjan meðferðarkjarna við

Kátt starfsfólk.
Menn að störfum.
Nýtt lyfjaherbergi á AB-5.

- Ný þjónustulína geðhvarfateymis Landspítala fyrir konur í barneignarferli

Þegar móðurhlutverkið og geðhvörf mætast

Texti og myndir: Ragnheiður Haralds Eiríksdóttir Bjarman

Hjá flestum konum sem velja að verða mæður felur barneignarferlið í sér miklar líkamlegar og tilfinningalegar breytingar. Hjá konum með alvarlegar geðraskanir, til að mynda geðhvörf, getur barneignarferlið haft veruleg áhrif á sjúkdómsgang, geðhag og lífsgæði. Þannig hafa konur með geðhvörf oft þörf fyrir aukinn stuðning fagaðila í ferlinu. Rannsóknir sýna að tímabilið í kringum meðgöngu og fyrstu mánuðina eftir fæðingu er eitt það viðkvæmasta í sjúkdómsgangi geðhvarfa. Hætta á bakslagi eykst á þessum tíma og hluti kvenna fær alvarleg geðræn einkenni, svo sem geðrof eða djúpt þunglyndi, sérstaklega fyrstu vikurnar eftir fæðingu. Á sama tíma standa konur oft frammi fyrir flóknum ákvörðunum um lyfjameðferð, meðgöngu og stuðningsúrræði. Því skiptir miklu máli að fræðsla, undirbúningur og fagleg ráðgjöf hefjist áður en þungun verður að veruleika.

Í göngudeild geðþjónustu Landspítala hefur frá árinu 2017 verið starfrækt geðhvarfateymi sem þjónustar unga einstaklinga (18-50 ára) með nýgreind geðhvörf. Á síðustu misserum hefur verið þróuð ný þjónustulína innan teymisins sem miðar að því að styðja konur með geðhvörf í gegnum allt barneignarferlið – allt frá því að konur fara að íhuga barneignir og leita ráðgjafar áður en þær verða barnshafandi, í gegnum meðgöngu og fram á fyrstu mánuði í ævi barnsins. Þjónustan byggir á þeirri sýn að snemmtæk fræðsla, markviss undirbúningur og samfella í þjónustu geti haft veruleg áhrif á líðan móður, öryggi barns og stöðugleika fjölskyldunnar.

Verkefnið er leitt af Steinunni Ingvarsdóttur hjúkrunarfræðingi sem hefur unnið að því að innleiða þjónustuna sem hluta af umbóta- og þróunarstarfi innan spítalans. Markmiðið er að skapa samfellu í þjónustu, efla fræðslu og tryggja að konur með geðhvörf hafi aðgang að sérhæfðum stuðningi á einum viðkvæmasta og jafnframt mikilvægasta tíma lífs síns.

Hjúkrunarfræðingur af sannfæringu Áhugi Steinunnar á hjúkrun kviknaði snemma. Sem unglingur hafði hún áhuga á heilbrigðiskerfinu og þegar kom að því að huga að starfsferli og velja sér námsleið eftir menntaskóla fór hún að skoða mismunandi möguleika á heilbrigðissviðinu. Í fjölskyldu Steinunnar var einnig fyrirmynd í formi móðursystur sem starfaði sem hjúkrunarfræðingur.

En það var hennar eigin reynsla af veikindum sem hafði kannski mest áhrif. Fjórtán ára gömul lá Steinunn inni á Barnaspítala Hringsins í um mánuð. Hún rifjar upp að hjúkrunarfræðingarnir sem sinntu henni hafi haft djúpstæð áhrif:

„Ég man hvað mér fannst hjúkrunarfræðingarnir hugsa vel um mig. Ég fann hvað hjúkrunin skipti miklu máli fyrir upplifun mína af veikindunum. Þá hugsaði ég með mér að ég vildi verða eins og þær.“

Árið 2009 útskrifaðist Steinunn sem hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands og hóf störf á bráðamóttöku Landspítala. Þar fékk

hún strax innsýn í hraðan og fjölbreyttan veruleika heilbrigðisþjónustunnar. Síðar færði hún sig yfir á krabbameins- og lyflækningadeild þar sem hún starfaði í um sex ár.

„Geðheilsan fer ekki í frí“

Starfið á krabbameinsdeildinni mótaði sýn Steinunnar á hjúkrun. Þar varð henni sífellt ljósara að líkamleg veikindi og andleg líðan eru nátengd. Í starfi með sjúklingum með alvarlega líkamlega sjúkdóma var augljóst hversu mikil áhrif andleg líðan hefur á upplifun fólks af veikindum, bata og lífsgæðum:

„Geðið fer ekki í frí þegar fólk veikist líkamlega,“ segir hún, „öllum líkamlegum veikindum fylgja andlegar áskoranir, þó svo að fólk sé kannski ekki með alvarlegar geðraskanir“. Á krabbameinsdeild fékk Steinunn þannig dýrmæta reynslu sem vakti áhuga hennar á að skoða starf með skjólstæðingum þar sem geðrænar áskoranir eru meginviðfangsefnið.

Leiðin inn í umbótastarf

Áður en Steinunn rataði inn í geðþjónustuna ákvað hún að efla þekkingu sína enn frekar og bætti við sig tveggja ára meistaranámi í verkefnastjórnun: „Ég hafði, og hef, líka svo mikinn áhuga á þróun heilbrigðisþjónustu og sé svo sannarlega ekki eftir því að hafa tekið tíma til að bæta þeirri menntun við mig.“

Að því námi loknu starfaði hún í fjögur ár á sviðsskrifstofu Landspítala þar sem hún kom að fjölbreyttum umbóta- og þróunarverkefnum.

Verkefnin spönnuðu allt frá minni breytingum á verklagi til stærri umbótaverkefna sem höfðu áhrif á starfsemi heilla deilda.

Reynslan af því að leiða breytingar í stóru og flóknu heilbrigðiskerfi átti síðar eftir að reynast ómetanleg.

Nýr áhugi kviknar

Eftir að COVID-faraldurinn setti líf þjóðarinnar úr skorðum ákvað Steinunn að breyta til og prófa nýtt starfsumhverfi utan spítalans.

„Þarna

varð svo skýrt fyrir mér hvað geðheilsa skiptir miklu máli þegar fólk glímir við langvinna líkamlega sjúkdóma.“

Hún hóf störf í Þraut, sem er endurhæfingarúrræði fyrir einstaklinga með vefjagigt. Þar sinnti hún meðal annars einstaklingsviðtölum og hópfræðslu ásamt því að sjá um skipulag meðferðarinnar. Í samstarfi við sálfræðing tók hún einnig þátt í skimun fyrir þunglyndi.

Þessi reynsla styrkti enn frekar áhuga hennar á samspili líkamlegra og andlegra veikinda.

„Þarna varð svo skýrt fyrir mér hvað geðheilsa skiptir miklu máli þegar fólk glímir við langvinna líkamlega sjúkdóma.“

Þegar hugmynd verður að verkefni Steinunn hóf störf sem hjúkrunarfræðingur í geðhvarfateymi Landspítala árið 2023. Þar er hún hluti af þverfaglegu teymi sem þjónustar einstaklinga sem veikjast af geðhvörfum. Í teyminu hefur hún unnið að fjölbreyttum umbótaverkefnum til að mynda varðandi heilsufarsmat og lyfjavöktun og verið lykilmanneskja í að efla hlutverk hjúkrunar. Árið 2024 var tekin ákvörðun innan teymisins um að þróa nýja þjónustulínu sem miðar sérstaklega að konum með geðhvörf í tengslum við barneignir. Ástæður þess eru skýrar.

Rannsóknir sýna að tímabilið kringum barneignir er eitt það viðkvæmasta í sjúkdómsgangi geðhvarfa. Konur með geðhvörf eru þannig líklegri en aðrar konur til að upplifa versnun á meðgöngu og sömuleiðis alvarleg geðræn veikindi eftir fæðinguna.

Staðreyndir um geðhvörf og barneignir

• Hætta á bakslagi geðhvarfa eykst á meðgöngu og eftir fæðingu

• Hluti kvenna getur þróað með sér geðrof í kjölfar fæðingar

• Óskipulagðar þunganir eru algengari í þessum hópi

• Fræðsla og undirbúningur geta dregið úr áhættu

Samfella í þjónustu

Nýja þjónustulínan sinnir konum sem eru, eða hafa á einhverjum tímapunkti verið, í þjónustu geðhvarfateymis. Þannig geta konur sem hafa verið útskrifaðar úr teyminu haft samband aftur þegar þær byrja að huga að barneignum, eða uppgötva þungun. Biðlistinn er enginn og nóg fyrir konuna að einfaldlega hringja í okkur til að bóka fyrsta ráðgjafarviðtal.

Í ráðgjafarviðtali er meðal annars farið yfir:

• lyfjameðferð

• áhættuþætti

• stuðningsnet

• undirbúning fyrir meðgöngu

„Við viljum að konur fái tækifæri til að undirbúa sig og taka upplýstar ákvarðanir,“ segir Steinunn og bætir því við að helst vilji þau fá konur í ráðgjöf strax og byrjað er að huga að barneignum.

„Auðvitað er veruleikinn sá að þunganir eru oft óplanaðar og það er algengara hjá konum í okkar þjónustu en almennt gerist. En það er alltaf hagur af því að geta komið snemma í ráðgjöfina.“

Ef meðganga verður að veruleika getur konan komið aftur inn í þjónustu teymisins frá um tíundu viku meðgöngu og verið þar fram að sex mánaða aldri barnsins.

Dæmi úr klínísku starfi

Guðrún er 29 ára gömul og fékk greiningu um geðhvörf fyrir áratug. Hún var í þjónustu geðhvarfateymis og átti tímabil mikils óstöðugleika í nokkur ár eftir greiningu en útskrifaðist úr þjónustu teymisins 27 ára eftir að hafa náð góðum stöðugleika á lyfjameðferð. Sem stendur stundar hún nám og heilsugæsla sinnir nauðsynlegum stuðningi vegna lyfjameðferðarinnar, til dæmis reglulegum blóðprufum.

Guðrúnu hafði lengi langað til að eignast barn en upplifði mikla óvissu um hvernig best væri að undirbúa sig og hvort það væri yfirhöfuð góð hugmynd. Maki hennar var hræddur um að barneignir væru kannski ekki möguleiki vegna lyfjameðferðarinnar.

Í ráðgjafaviðtali með hjúkrunarfræðingi og geðlækni var farið yfir:

• lyfjameðferð og mögulegar breytingar á henni

• áhættu á veikindalotu

• stuðningsnet fjölskyldunnar

• áætlun um eftirfylgd á meðgöngu

Eftir að Guðrún varð barnshafandi kom hún reglulega í viðtöl hjá teyminu samhliða mæðravernd. Maki hennar kom oftast með í viðtölin.

Á síðari hluta meðgöngu var unnin ítarleg áætlun um fyrstu vikurnar eftir fæðingu með sérstakri áherslu á svefn og stuðning frá maka og fjölskyldu.

Guðrún viðhélt góðum stöðugleika á meðgöngu en um mánuði eftir fæðingu barnsins fór að bera á einkennum geðhæðar. Með viðeigandi stuðningi tókst þó að fyrirbyggja að hún þyrfti innlögn.

Samstarf þvert á einingar Þjónustan byggir á nánu samstarfi við aðra fagaðila sem koma að umönnun kvenna á meðgöngu og eftir fæðingu.

Í þróun verkefnisins hefur Steinunn meðal annars unnið með sérfræðiljósmóður sem hefur veitt fræðslu og ráðgjöf.

Einnig hafa geðlæknar með sérþekkingu á geðrænum breytingum eftir fæðingu komið að verkefninu.

Í undirbúningi verkefnisins var einnig farið í heimsókn til Danmerkur þar sem sambærileg þjónusta hefur verið þróuð.

Hlutverk maka

Maki eða stuðningsaðili gegnir mikilvægu hlutverki.

Í þjónustunni er:

• maki hvattur til að taka þátt í ráðgjafaviðtölum

• haldinn undirbúningsfundur fyrir fæðingu á um 30. viku meðgöngu

• rætt sérstaklega um stuðning fyrstu vikurnar eftir fæðingu Svefn og stuðningur geta haft lykiláhrif á geðheilsu móður.

Fyrsta reynsla af þjónustunni

Þjónustan er enn á þróunarstigi en fyrsta reynsla er jákvæð. Á fyrsta ári hafa sex konur fengið þjónustu í gegnum barneignar-

línuna. Þótt formleg þjónustukönnun hafi ekki enn verið framkvæmd hafa viðbrögð verið mjög jákvæð.

Konurnar hafa meðal annars lýst auknu öryggi og meiri ró í tengslum við barneignir.

Tækifæri til rannsókna

Steinunn bendir á að verkefnið skapi einnig tækifæri til vísindarannsókna.

Fylgst verður með:

• tíðni óskipulagðra þungana

• alvarlegum veikindalotum

• innlagnartíðni

Slík gögn geta veitt mikilvæga innsýn í árangur þjónustunnar.

Hjúkrunarfræðingar í lykilhlutverki

Að lokum leggur Steinunn áherslu á að hjúkrunarfræðingar gegni lykilhlutverki í þróun heilbrigðisþjónustu.

„Við sjáum þjónustuna frá mörgum hliðum og erum oft í góðri stöðu til að sjá hvað þarf að bæta.“

Hún hvetur hjúkrunarfræðinga til að vera óhrædda við að taka þátt í þróunarverkefnum.

LYFSEÐILSSKYLD

LYF FRÍTT HEIM

Í Lyfju appinu getur þú fengið lyfseðilsskyld lyf send frítt heim samdægurs eða sótt  þegar þér hentar.

Sækja Lyfju appið

Háskólakennarinn Hrafnhildur Snæfríðar- og Gunnarsdóttir

Það besta við starfið er þegar nýr skilningur kviknar hjá nemendum

Texti: Sigríður Elín Ásmundsdóttir | Myndir: Arnaldur Grétarsson

Nafn: Hrafnhildur Snæfríðar- og Gunnarsdóttir

Menntun: Hjúkrunarfræði, kynjafræði, aðferðafræði, fötlunarfræði, krítísk fræði

Starfsheiti: Lektor og hjúkrunarfræðingur

Hvernig myndir þú lýsa þér í fimm orðum?

Fróðleiksfús, réttlætissinnuð, einlæg, innhverf og fljótfær.

Af hverju hjúkrunarfræði?

Hjúkrunarfræði býður upp á spennandi og fjölbreyttan starfsvettvang með ótalmörgum möguleikum. Starfið felur í sér stöðug tækifæri til að læra, þróast og takast á við nýjar áskoranir. Jafnframt hefur það gefið mér færi á að láta gott af mér leiða og hafa raunveruleg áhrif á líf annarra. Svo er starfsöryggi að sjálfsögðu kostur.

Af hverju kennsla frekar en klíník?

Ég hef í raun enn ekki valið almennilega á milli því mér finnst styrkur í að sameina þetta tvennt. Klínísk reynsla styður kennsluna og hjálpar mér að tengja hana við raunverulegar aðstæður á meðan kennslan dýpkar skilning minn á klínísku starfi. En ég brenn mikið fyrir rannsóknir og því er háskólastarf mitt aðalstarf enda get ég þar sameinað alla þessa þætti.

Hver er þín sérgrein?

Ég er ekki með neina klíníska sérhæfingu – en mín sérhæfing í námi er á sviði krítískra fræða, fötlunarfræði og kynjafræði.

Hvað heillaði þig við þá sérgrein sem varð til þess að þá valdir hana frekar en aðra?

Áhugi minn á fötlunarfræðum kviknaði þegar ég var átján ára og starfaði á sambýli, þó að ég hafi þá ekki haft orð yfir það sem ég var að fást við, vissi ekki um fötlunarfræði sem fræðigrein. Ég velti mikið fyrir mér aðstæðum íbúanna og því hvernig daglegt líf þeirra mótaðist af verklagi og skipulagi þjónustunnar, hagsmunum þjónustuveitenda. Þarna bjó fullorðið fólk sem þurfti „gjörsvovel“ að fara að hátta fyrir klukkan 22 á kvöldin, áður en næturvaktin kæmi. Mér var þetta mjög hugleikið og þetta vakti hjá mér spurningar um valdamisræmi í samfélaginu og stöðu fatlaðs fólks sérstaklega. Þegar maður hefur svo einu sinni sett á sig svona gagnrýnin gleraugu og fer að rýna í valdatengsl

og undirliggjandi norm í samfélaginu verður erfitt að leggja þau frá sér. Þegar ég hóf störf á sjúkrahúsinu eftir útskrift úr hjúkrunarfræði velti ég mikið fyrir mér valdamisræmi og stigveldi sem mér fannst ég sjá í starfi mínu. Þetta leiddi mig áfram í kynjafræðina í háskólanum, svo fötlunarfræðina og krítísk fræði.

Þyrstir þig í fleiri háskólagráður, langar þig í meira nám?

Já, klárlega. Mér finnst svo merkilegt hvernig nám mótar okkur og gerir okkur kleift að sjá og skynja heiminn á nýjan hátt. Ég ákvað fyrir löngu að ég ætla að fara í bókmenntafræði þegar ég fer á eftirlaun. Svo ætla ég að lesa allar bækurnar aftur og sjá eitthvað nýtt í þeim. En það er svolítið í eftirlaunaaldurinn, mögulega finn ég mér eitthvert annað nám í millitíðinni.

Ef þú hefðir ekki lært hjúkrunarfræði hvað hefðir þú þá lært?

Ég hugsa að ég hefði farið í kynjafræði, fötlunarfræði og/eða félagsfræði. En ef ég þyrfti að velja eitthvað allt annað en það sem ég hef þegar lært, þá vandast málin. Ég man að mig langaði mikið að læra arkitektúr – fannst áhugavert að pæla í því hvernig manngert umhverfi hefur áhrif á mannlífið.

Hvaða fög kennir þú?

Ég kenni námskeiðið almenn hjúkrun I, sem er kennt á fyrsta ári og svo fjórða árs námskeiðið heilbrigði og siðfræði. Svo er ég einnig að fara að kenna námskeiðið um þverfræðilega samvinnu sem er kennt þvert á deildir heilbrigðisvísindasviðs.

Hvað er það besta við kennarastarfið?

Það besta er að mínu mati þegar ég er í samskiptum við nemendur eða í kennslu og sé að það kviknar nýr skilningur hjá nemendum. Þeir hafa lært eitthvað nýtt eða kannski öðlast nýja sýn á eitthvað, tileinkað sér gagnrýnið sjónarhorn og skilja allt í einu viðfangsefnið á nýjan hátt.

Þess vegna finnst mér mjög skemmtilegt að leiðbeina í lokaverkefnum því þar gefst meira rými til dýpri samtala og samvinnu við nemendur. Þá fæ ég að fylgjast með hugmyndum þeirra þróast og þroskast og styðja þau í að móta eigin rödd og fræðilega nálgun.

Hver var þinn uppáhaldskennari á námsárunum?

Þorgerður Einarsdóttir sem kenndi mér kynjafræði. Hún kynnti mér femínískar kenningar og hugtök um samfélagsleg valdatengsl sem vörpuðu nýju ljósi á ýmislegt, til dæmis reynslu sem ég hafði orðið fyrir sem kona og hluti sem ég hafði séð og fundið í starfi mínu með fötluðu fólki og gerðu mér kleift skilja á annan hátt.

Hún fékk oft alls kyns spurningar enda voru stundum nemendur gagnrýnir á það sem hún kenndi. En hún var alltaf svo pollróleg og að því er virtist með endalausa þolinmæði og náði að útskýra flókna hluti á mannamáli og á hispurslausan hátt.

Hverjar eru helstu áskoranir háskólakennarans? Tímaleysi.

Uppáhaldskennslustofan þín að kenna í og af hverju?

Enn sem komið er hef ég ekki kennt í mörgum kennslustofum en mér finnast færnistofurnar frábærar. Þar er svo mikið flæði milli kennara og nemenda, við öll virk og á hreyfingu, og það er skemmtilegast. Ég á stundum erfitt með að vera kyrr þegar ég er að kenna – hreyfing virðist knýja heilasellurnar mínar áfram.

Eitthvert fag sem þér finnst vanta í námið?

Mér finnst vanta meiri áherslu á jaðarsetta hópa, svo sem fatlað fólk, fólk af erlendum uppruna og fólk sem býr við fátækt. Þetta eru hópar sem oftar en aðrir búa við heilsuójöfnuð og mæta fordómum innan samfélagsins og innan heilbrigðiskerfisins. Besta leiðin til að draga úr þessum ójöfnuði og uppræta fordóma er að styrkja nám og fræðslu um aðstæður, reynslu og réttindi þessara hópa.

Hressasti kennarinn á kennarastofunni?

Þóra Jenný. Hún er alltaf brosandi og glaðlynd.

Eftirminnilegasta kennslustundin (eitthvað óvænt)?

Mér eru minnisstæðar margar kennslustundir í upphafi COVID, þegar ég var að kenna á Menntavísindasviði og var að læra almennilega á fjarfundakennslu og það var alltaf eitthvað sem klikkaði. Þetta var líka bara svo minnisstæður tími, nemendur komust ekki því þeir þurftu að fara í COVID-próf og ég að kenna heima í náttfötunum í sóttkví. Þetta var hálfspaugilegt en nemendur, og ég sjálf, höfðum alveg húmor fyrir þessu, það var ákveðinn slaki því samfélagið var jú allt einhvern veginn á hliðinni og svo gekk þetta allt vel á endanum.

Flottasta fyrirmyndin þín í hjúkrunarfræði?

Það eru svo margar flottar fyrirmyndir í hjúkrunarfræði. Ég var nýlega að hlusta á bók þar sem fjallað er um áhrifamikla hjúkrunarfræðinga í gegnum tímana, og þar er af miklu að taka. Þetta eru hjúkrunarfræðingar sem hafa greint þarfir í samfélagi sínu og tekið af skarið, byggt upp þjónustu í nærsamfélögum, stofnað samtök og skapað ný úrræði. Til dæmis má nefna Clöru Barton, hjúkrunarfræðing sem stofnaði bandaríska Rauða krossinn, sem í dag er hluti af einni stærstu alþjóðlegu mannúðarhreyfingu heims.

Ég verð samt að segja að fyrirmynd mín svona alla jafna í lífinu er móðir mín. Hún nær að flétta saman á svo fallegan hátt að vera beitt, gagnrýnin, diplómatísk og jákvæð. Það væri mín gæfa að ná að tileinka mér þetta jafnvægi.

Eiginleikar sem þú vilt tileinka þér í kennarastarfinu?

Ég vil gjarnan vera kennari sem nær að hvetja nemendur til gagnrýnnar hugsunar þannig að ég sé ekki bara að miðla efni heldur hjálpi nemendum að greina sjálfir og nýta þekkinguna sér til gagns. Ég vil tengja fræðin við það sem er að gerast í samfélaginu og styðja nemendur í að nálgast þau viðfangsefni á faglegan hátt. Loks vil ég vera sanngjarn og þolinmóður kennari sem skapar traust og öruggt rými þannig að nemendur þori að spyrja, taka þátt og gera mistök.

Hvernig tilfinning er að útskrifa nemendur?

Ég var að útskrifa mína fyrstu B.S.-nemendur í hjúkrunarfræði sem skrifuðu hjá mér ritgerð og þetta er alveg merkilega tilfinningaþrungið. Ég er reyndar svolítið væmin týpa en mér finnst ég eiga svolítið í þeim og er mjög stolt.

Hvernig mætti bæta hjúkrunarfræðinámið að þínu mati?

Það mætti einnig endurskoða kennsluhætti þannig að þeir væru aðgengilegri sem og aðlaga húsnæðið. Eins og staðan er núna eru lykilsvæði sem notuð eru til kennslu óaðgengileg fötluðum nemendum.

Hvernig myndir þú sannfæra áhugasama um að skella sér í nám í hjúkrunarfræði?

Ég myndi segja að hjúkrunarfræði sé fag fyrir fólk sem vill vinna með fólki, takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni og hafa raunveruleg áhrif.

Hvernig nærir þú andann?

Ég hlusta mikið á hljóðbækur, hjóla og hekla. Fer á trúnó og hlæ með vinkonum, prjóna, dáist að köttum á samfélagsmiðla-feedinu mínu og svo stelst ég einstaka sinnum í nintendo-tölvu sonar míns.

Hvað gleður þig mest í lífinu?

Sonur minn, fyrsti kaffibolli dagsins og augnablikið þegar fyrstu laukarnir gægjast upp úr moldinni á vorin. Það gleður mig líka djúpt þegar fólk nær að mynda fallega samstöðu.

Hvað hryggir þig helst?

Ég finn til mikillar sorgar við að horfa upp á stríð, til dæmis þjóðarmorðið sem á sér nú stað af hendi Ísrael og þá miklu þjáningu sem fólk víðs vegar um heim býr við. Svo hryggir mig einnig vaxandi ósundrung og harðnandi orðræða í samfélaginu og fordómar.

Hvernig fáum við fleiri karlmenn til að læra hjúkrun?

Mig langar alltaf að ræða þessi mál í víðara samhengi fjölbreytni og aðgengis, því ólík reynsla styrkir fagið og bætir heilbrigðisþjónustu. Það á jafnt við um karla, konur, kvár og annað hinsegin fólk, einnig fatlað fólk og fólk af erlendum uppruna svo eitthvað sé nefnt. Það væri mikill ávinningur fyrir hjúkrunarfræði og heilbrigðiskerfið að fá fjölbreyttari hóp fólks til starfa og til þess þurfum við að rækta menningu og starfsumhverfi þar sem samstaða ríkir og fjölbreytni er metin og henni fagnað. Í þannig kúltúr líður öllum vel. Þannig að ég tel leiðina felast í því að hlúa vel að hjúkrunarfræðingum og menningu í starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga og halda uppi umræðu um samstöðu og fjölbreytni meðal hjúkrunarfræðinga og í náminu.

Ef þú ættir eina ósk fyrir heilbrigðiskerfið á Íslandi, hver væri hún?

Að þar væri enginn heilsuójöfnuður og að aðgengi að heilbrigðisþjónustu væri tryggt fyrir alla, óháð bakgrunni eða stöðu.

Falin perla í náttúru Íslands?

Ófeigsfjörður á Ströndum.

Að endingu, hvað er þitt mottó?

Læda slæda, er reyndar stolið frá Prinsinum, en ég gríp mikið í þetta þegar ég finn að ég er að taka hlutum of alvarlega sem skipta síðan kannski ekki svo miklu máli.

ÖRYGGISHNAPPURINN

Einföld leið til að búa lengur heima á öruggan máta

Hægt að fá um úlnlið eða háls

Einfaldur í notkun og

uppsetningu

Virkar innan veggja heimilisins

Vatnsþéttur og má fara með í sturtu

Golfmót hjúkrunarfræðinga

Texti: Helga Rósa Másdóttir | Myndir: Ýmsir

Á dögunum stóðu vaskir hjúkrunarfræðingar fyrir golfmóti hjúkrunarfræðinga á Hamarsvelli. Alls skráðu tæplega 90 hjúkrunarfræðingar sig til leiks og fylltu þar með öll þátttökupláss. Veðrið lék við keppendur, stemningin var frábær og dagurinn heppnaðist einstaklega vel, eins og meðfylgjandi myndir sýna. Að keppni lokinni komu þátttakendur saman til verðlaunaafhendingar og góðrar samveru.

Í punktakeppninni sigraði Margrét I. Hallgrímsdóttir með 36 punkta, Kristlaug Sigríður Sveinsdóttir hafnaði í öðru sæti með 35 punkta og Þórhildur Guðbjörg Hjaltadóttir varð í þriðja sæti með 34 punkta. Verðlaun fyrir lægsta skor hlaut Arna Magnúsdóttir sem lék á 92 höggum og verðlaun fyrir lengsta teighögg í kvennaflokki hlaut Guðrún Lovísa Ólafsdóttir. Nándarverðlaun á 2. holu hlaut Ásdís Árna með högg í 1,08 metra frá holu og á 8. holu sigraði Nanna K.J. með 2,40 metra.

Golfmótið er skemmtileg hefð sem styrkir tengsl hjúkrunarfræðinga og stuðlar að hreyfingu, heilbrigði og góðum félagsanda.

FRELSI FRÁ ÁHYGGJUM

Fækkaðu endurteknum þvagfærasýkingum

SagaCranberry+ sameinar klínískt rannsakað trönuberjaextrakt og hið þjóðþekkta SagaPro, sem hefur um árabil notið trausts Íslendinga til að draga úr óþægindum frá þvagfærum, svo sem tíðum þvaglátum.

Saman mynda þessi virku innihaldsefni öfluga lausn fyrir þá sem vilja vera skrefinu á undan og losna undan vítahring endurtekinna þvagfærasýkinga.

Klínískt rannsakað trönuberjaextrakt

Íslenskt hvannarextrakt

Þú færð SagaCranberry+ í matvöruverslunum, apótekum og á saganatura.is. Áfyllingarpoki sendur í áskrift. Áskrifendur fá 20% afslátt og fría heimsendingu.

Kjararáðstefnan er hápunktur trúnaðarmannastarfsins

Trúnaðarmaðurinn

Hulda Björg Óladóttir og Sigríður Elín Ásmundsdóttir | Myndir: Tara Katrín Sigursteinsdóttir

Hefur þú sótt þér fræðslu eða námskeið sem nýtist þér sem trúnaðarmaður?

Já, ég hef mikinn áhuga á kjaramálum og mannauðsmálum. Ég tók diplóma við HÍ í hjúkrunarstjórnun, mannauður og rekstur. Það nám gaf mér góða innsýn inn í rekstur heilbrigðisstofnanna ásamt stjórnunar hliðinni. Svo hef ég líka farið á trúnaðarmanna námskeið á vegum FÍH og að sjálfsögðu reyni ég að mæta árlega á kjararáðstefnu Fíh sem er algjör hápunktur trúnaðarmanna starfsins.

Hvaða fræðsla hefur gagnast þér best?

Mér finnst kjararáðstefnurnar á Selfossi síðustu ár hafa gagnast mér ótrúlega mikið. Bæði er þar mikil fræðsla en síðan einnig dýrmætar umræður við aðra trúnaðarmenn. Það er mjög lærdómsríkt að heyra hvað er að gerast á öðrum deildum og stofnunum og heyra hvernig hlutir eru tæklaðir annars staðar. Þetta samtal er dýrmætt og sérstaklega þegar maður hefur unnið lengi á sama staðnum.

Hvar og hvenær og hófst þú störf sem hjúkrunarfræðingur?

Ég útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur úr HÍ 2015 og hafði þá unnið 2 ár á Blóðlækningadeildinni. Mér leið svo vel þar að ég hélt áfram sem útskrifaður hjúkrunarfræðingur.

Ertu búin að vera lengi í því starfi sem þú gegnir í dag?

Ég hef unnið á sama stað meira og minna síðan 2013 en nú heitir deildin mín Blóð- og krabbameinslækningadeild 11EG. Hér er ennþá ótrúlega gott að vera og ég er ekkert á leiðinni í burtu í bráð!

Hversu lengi hefur þú verið trúnaðarmaður?

Ég byrjaði óvart sem trúnaðarmaður á minni deild 2017 svo bráðum verða þetta orðin 10 ár! Ótrúlegt að hugsa til þess en mér finnst samt mjög skemmtilegt að vera trúnaðarmaður og er alveg til í að gegna þessari stöðu áfram!

Hvað ertu tengiliður fyrir marga hjúkrunarfræðinga sem trúnaðarmaður? Samkvæmt teams erum við 76 hjúkrunarfræðingar og hjúkrunarnemar á deildinni! Kannski er þetta eitthvað aðeins +/- en alla jafna eru þetta c.a. 80 hjúkrunarfræðingar sem vinna hér á 11EG.

Hefur það eflt þig sem starfskraft og/eða manneskju að vera trúnaðarmaður?

Já alveg klárlega! Ég hef fengið tækifæri til að læra mikið um launamál og kjör í þessari stöðu. Í kjölfarið gerði ég vaktaskýrslu á deildinni í mörg ár og hef síðan verið í samninganefnd Fíh við ríkið í síðustu tveimur kjarasamningsviðræðum. Ég hefði líklega aldrei þorað að fara út í þessi störf ef ekki væri fyrir þá reynslu sem ég lærði af trúnaðarmannanámskeiðunum.

Hvaða áskorunum mætir þú helst sem trúnaðarmaður á vinnustað?

Mér finnst mikilvægt að vera til staðar fyrir nýtt starfsfólk og reyni að aðstoða það við að læra á launaseðilin, óska sér vaktir og læra á vaktahvata, svo eitthvað sé nefnt. Svo finnst mér mikilvægt sem trúnaðarmaður deildarinnar að vera „up to date“ í hinum ýmsu málum tengd vinnutíma, réttindum og kjaramálum. Ég reyni að mæta á fræðsluviðburði félagsins og fundi og get þá miðlað þeirri þekkingu áfram til samstarfsfélaga minna. Áskoranir eru líklega helst það þegar maður veit ekki alveg hvernig eigi að tækla málin, en þá er mikilvægt að vita hvert eigi að vísa starfsfólkinu og þekkja þá þjónustu sem er í boði, bæði innan stofnunarinnar og stéttarfélagsins.

Hvaða eiginleika þarf góður trúnaðarmaður að hafa?

Hann þarf að vera opinn, tilbúinn til að leita sér nýrrar þekkingar og einnig þekkja eigin takmarkanir og vita hvenær og hvert eigi að vísa starfsfólki ef vandamál koma upp.

Hvernig tekstu á við erfið mál sem koma upp á vinnustaðnum?

Ég reyni að hlusta á starfsfólkið og finna út lausn með þeim. Það getur verið mikilvægt að gefa sér tíma til að skoða hluti saman og oft er það ekkert endilega eitthvað sem ég get gert en þá get ég a.m.k. ráðlagt þeim hvert þau eigi að leita.

Hvað er það besta við starf þitt?

Það besta við starfið mitt sem hjúkrunarfræðingur á 11EG er að vinnan er aldrei eins og maður veit aldrei hvernig vaktin fer. Þessi ófyrirsjánanleiki er eitthvað sem heldur manni gangandi í þessu vaktaumhverfi og miklu starfsálagi. Samstarfsfólkið er líka klárlega það besta við vinnuna mína. Það besta við trúnaðarmannastarfið er tækifærið til að kynnast öðrum trúnaðarmönnum og fræðast um nýja hluti tengt starfinu.

Hver eru áhugamál þín utan vinnutíma?

Skemmtilegast finnst mér að gera eitthvað með fjölskyldunni minni og vinum! Ég er helst aldrei ein og elska félagsskap. Hvað maður gerir skiptir ekki öllu máli ef maður er með skemmtilegu fólki. Ég er mikil prjónakona og elska líka að baka súrdeigsbrauð! Svo er ég er óttalegur garðálfur og finnst hrikalega gaman að vera úti í garði að brasa, hvort sem það er að reita arfa eða vesenast í ræktuninni minni.

Hvaða hjúkrunarfræðingur /hjúkrunarfræðingar eru þínar helstu fyrirmyndir?

Ég myndi segja Ásta Ingibjörg og Elsa kollegar mínir fyrir endalausa lífsgleði sem þær smita alla í kringum sig af, bæði samstarfsfólk og sjúklinga. Svo eru líka endalaust fleiri aðdáunarverðir hjúkrunarfræðingar eins og Elva Þöll sérfræðingur í hjúkrun og baráttukona fyrir óráðsvitund fyrir þrautseigju, áhuga og fag-

mennsku. Guðbjörg Pálsdóttir fyrrum formaður fyrir ótrúlegan drifkraft og lífsgleði og Olga og Gauja á hjartadeildinni fyrir fagmennsku og framsýn í hjúkrun. Þetta er bara brot af þeim flottu kollegum sem ég gæti talið upp og sæki ég mikinn innblástur í að fylgjast með og sjá hvað aðrir eru að vinna að. Maður getur lært svo ótrúlega mikið af mörgum flottum hjúkrunarfræðingum sem eru að gera endalaust flotta hluti um allt land.

Fallegasti staður á Íslandi?

Ég mun seint kalla mig íslensku sumarkonuna og ferðast allt of lítið um landið. Svo er ég óttaleg miðbæjarrotta og elska bara að ganga um miðbæinn og njóta á góðum sumardegi. Að hjóla á næturvakt á fallegu sumarkvöldi yfir tjörnina er með því fallegasta sem ég geri! En fjölskyldan mín á bústað við Skorradalsvatn og þar finnst mér alveg einstakt að vera og klárlega með fallegustu stöðunum sem ég umgengst.

Hvernig ætlar þú að verja sumrinu /sumarfríinu?

Ég ólst upp í Svíþjóð og systir mín býr þar nú. Ég ætla að heimsækja hana í sumar og fá að njóta af sænska sumrinu eins og svo oft áður. Svo ætla ég að reyna að komast með bílveiku börnin mín að skoða landið eitthvað lengra en Borgarnes! Við verðum vel nestuð af ælupokum og getum vonandi sýnt þeim fallega fossa og stórbrotið landslag! En fyrst og fremst ætla ég bara að njóta!!

?

eitthvert annað nám?

Hef verið að stefna að þessu frá því í lok grunnskóla.

Gætir þú hugsað þér að starfa við fagið erlendis í framtíðinni?

Já alveg klárlega, held það væri mjög gaman að fá reynslu í faginu í einhverju öðru landi og sjá hvernig hlutirnir eru gerðir þar í samanburði við Ísland.

Skemmtilegasta fagið?

Er nú bara á 1 ári þannig hef ekki farið í þá marga en ætli ég segi ekki bara almenn hjúkrun, maður fær blöndu af bóklegu og verklegu sem er alltaf skemmtilegt.

Erfiðasta fagið?

Ónæmis- og meinafræði.

URKÚJH N ARFRÆÐINEMINN SITURFYR I

R VS MURÖ

Hallgerður Höskuldsdóttir

Háskóli Íslands

Eiginleikar sem þú vilt tileinka þér í starfi?

Samverustundir með vinum og

Öll þessi stríð sem eru í gangi í heiminum í dag og afleiðingar þeirra á fólk og þá

Hvernig fáum við fleiri karlmenn til að

Auka sýnileika karlmanna í hjúkrun og reyna betur að brjóta niður þá staðalímynd að hjúkrunarfræði sé bara

Þá myndi ég óska þess að allir i heiminum gætu bara lifað í sátt og samlyndi við aðra.

Eitthvað sem hefur komið á óvart í náminu?

Hversu ótrúlega fjölbreytt það er. Eitthvert fag sem þér finnst vanta í námið?

Eins og er finnst mér ekkert vanta og ég hef ekki skoðað komandi áfanga nógu vel til að geta sagt betur.

Ætlar þú að fara í framhaldsnám?

Er nú ekki komin það langt í planinu en það eru alveg ágætar líkur á því.

Hressasti kennarinn?

Sævar Ingþórsson.

Eftirminnilegasta kennslustundin til þessa?

Verklegu tímarnir í færnisetrinu standa helst upp úr.

Flottasta fyrirmyndin í faginu?

Frænka mín hún Helga Pálmadóttir, hún er algjör snillingur.

En í lífinu?

Ætli mamma og pabbi séu ekki ofarlega á lista þar.

Með jákvæðnina að vopni er allt betra, svo finnst mér líka mikilvægt að maður beri mikla virðingu hvort sem það er fyrir skjólstæðingum eða samstarfsfólkinu.

Uppáhalds sjónvarpsþáttur?

Brooklyn 99.

Besta ráðið við prófkvíða?

Að sofa vel fyrir prófdag og muna eftir því að taka sér pásur inná milli lærdómsins.

Kaffi, te, kók, orkudrykkir eða allt saman?

Orkudrykkir

Besta næðið til að læra?

Ég dett alltaf í ákveðinn gír upp á Þjóðarbókhlöðu.

Hvernig nærir þú andann?

Skelli mér í sund.

Líkamsrækt eða letilíf á frídögum?

Bara bæði betra.

Þrjú stærstu afrek í lífinu? Útskrifast sem sjúkraliði og stúdent úr framhaldsskóla og að komast í gegnum klásus eru sennilega mín helstu afrek hingað til.

Hefur þú áhyggjur af hlýnun jarðar? Já.

Fallegasta borg í heimi?

Af þeim sem ég hef komið til þá segi ég París.

Falin perla í náttúru Íslands?

Stokksnes í Hornafirði er alveg ægilega fallegt.

Besta baðið?

Heimasundlaugin á Selfossi á sérstakan stað í hjartanu.

Hvernig myndir þú lýsa þér í einni setningu?

Róleg og yfirveguð sveitagella.

Hvernig nemandi ertu?

Skipulögð.

Að lokum hvað finnst þér að stjórnvöld gætu gert til að hvetja fleiri til að læra hjúkrun?

Hækka launin og gera betur grein fyrir mikilvægi stéttarinnar í samfélaginu okkar.

Alveg að lokum hvað, ef eitthvað, finnst þér vanta í Tímarit hjúkrunarfræðinga?

Nei ég held barasta ekki.

Hafðir þú lengi stefnt að því að læra hjúkrunarfræði eða varstu að íhuga eitthvert annað nám?

Hjúkrun var aldrei fag sem ég sá fyrir mér að ég myndi velja. Ég hafði lengi stefnt að uppeldis- og menntunarfræðum en ákvað að taka U-beygju og velja hjúkrunarfræði sem er ákvörðun sem ég sé alls ekki eftir.

Gætir þú hugsað þér að starfa við fagið erlendis í framtíðinni?

Já ég hef stefnt á það í gegnum allt námið og ég er nú þegar farin að horfa út fyrir landsteinana. Ég fór í sex vikna klínískt nám í Oslo síðasta haust sem var mjög lærdómsríkt, en það sem er svo frábært við hjúkrunarfræði er að manni eru nær allir vegir færir úti um allan heim.

Skemmtilegasta fagið?

Hjúkrun fullorðinna með vefræna sjúkdóma II.

Erfiðasta fagið?

Vefja- og frumulíffræði var mjög krefjandi.

Eitthvað sem hefur komið á óvart í náminu?

Hversu ótrúlega fjölbreytt námið sem og starfsvettvangur hjúkrunar er í raun.

U N ARFRÆÐINEMINN SITURFYR

Eitthvert fag sem þér finnst vanta í námið?

Ekki beint vanta, en dýpri og ítarlegri lyfjafræði væri sterkur leikur.

Ætlar þú að fara í framhaldsnám?

Já, en ég hef enn ekki ákveðið mig innan hvaða sérgreinar.

Hressasti kennarinn?

Kristín Linda, geðhjúkrunarfræðingur! Eftirminnilegasta kennslustundin til þessa?

Þegar við vorum í verklegum tíma með sjúkraþjálfara að læra um hreyfiferla og ég fór upp á bekkinn fyrir sýnikennslu og komst að því að ég er mjög hyperflexible þar sem ég gat hreyft liðina á alla þá vegu sem sjúkraþjálfarinn ætlaði að sýna okkur að væri ekki hægt.

Flottasta fyrirmyndin í faginu?

Amma Rósa, sem var skurðhjúkrunarfræðingur.

Gott skipulag og að læra ekki langt fram á nótt kvöldið fyrir próf.

Kaffi, te, kók, orkudrykkir eða allt saman?

Kaffi, kaffi og einn kaffibolli til viðbótar.

Besta næðið til að læra?

Amtsbókasafnið er best fyrir gott næði.

Hvernig nærir þú andann?

Fer út að hreyfa mig, hitti vini og fer ein á kaffihús.

Líkamsrækt eða letilíf á frídögum?

50/50 jafnvægi.

Þrjú stærstu afrek í lífinu?

Að hafa farið 16 ára í skiptinám til Costa Rica og tekist á við allar áskoranirnar þar, ég keppti í þríþraut síðasta sumar og ég er alveg að verða búin að prjóna mína fyrstu lopapeysu!

Hefur þú áhyggjur af hlýnun jarðar?

Heldur betur, og ekki minni áhyggjur af því hvað við tölum lítið um það.

Hvað hryggir þig helst?

Þegar einstaklingar telja ekki allar manneskjur jafn mikils virði út frá uppruna þeirra

Hvernig fáum við fleiri karlmenn til að

Við að brjóta niður þær rótgrónu staðalímyndir sem fylgja þessari annars sterku, bráðgáfuðu, mikilvægu og ómissandi stétt.

Við hjúkrum einstaklingum úr öllum kimum samfélagsins og væri því kostur að hafa fjölbreyttan hóp sem veitir hjúkrun líka.

Ef þú ættir eina ósk?

Að lækning væri til við MND.

Fallegasta borg í heimi?

Lissabon í Portúgal.

Falin perla í náttúru Íslands?

Stórurð á allt mitt hjarta.

Hreppslaug í Borgarfirði, þú getur keypt þér ís á meðan þú liggur í pottinum!!

Hvernig myndir þú lýsa þér í einni

Réttsýn og ákveðin ung kona sem finnst mjög gaman að stíga langt út fyrir þægindarammann.

Hvernig nemandi ertu?

Ég er nemandinn með troðfulla pennaveskið af litríkum pennum og stílabók og dreg fram A3 teikniblokkina þegar próf nálgast til að glósa, skrifa og teikna allt upp.

Að lokum hvað finnst þér að stjórnvöld gætu gert til að hvetja fleiri til að læra hjúkrun?

Ef hjúkrunarfræðingar og hjúkrunarnemar væru metnir til verðleika sinna hvað varðar laun tel ég að þessi starfsvettvangur væri aðlaðandi fyrir fleiri.

Alveg að lokum hvað, ef eitthvað, finnst þér vanta í Tímarit hjúkrunarfræðinga? Í raun ekki neitt sem vantar. Væri samt ekki gaman að fá að fylgjast enn meira með því við hvað hjúkrunarnemar eru að sýsla, bæði í námi og starfi?

Tími breytinga runninn upp

– Nám í hjúkrunarfræði á Íslandi

Háskóli Íslands (HÍ), Háskólinn á Akureyri (HA) og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) telja tímabært að breyta námi til starfsréttinda hjúkrunarfræðinga í fimm ára nám sem skiptist í þriggja ára B.S.-nám og tveggja ára meistaranám. Námið yrði þá sambærilegt öðrum námsleiðum sem áður voru þrjú eða fjögur ár til starfréttinda s.s. sjúkraþjálfun, félagsráðgjöf, kennaranám og verkfræði, og yrði sambærilegra við nám helstu háskólamenntaðra samstarfsstétta í heilbrigðisvísindum á Íslandi. Fleiri þættir styðja breytta námsskrá s.s. samfélagsþættir og framtíðarþróun. Breytingar krefjast undirbúnings og því hafa verkefnishópar við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild HÍ og Hjúkrunarfræðideild HA unnið þétt saman að undirbúningi þessara breytinga síðastliðin tvö og hálft ár í samstarfi við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Ljósmæðrafélag Íslands, auk þess sem leitað hefur verið til forystu hjúkrunar í landinu.

Bakgrunnur

Akademískt nám í hjúkrunarfræði á sér langa sögu á Íslandi. Í rúm 40 ár hafa þau sem vilja mennta sig til starfsleyfis hjúkrunarfræðings á Íslandi eingöngu getað gert það með því að ljúka fjögurra ára B.S.-námi. Það að færa hjúkrunarfræðinám alfarið upp á háskólastig var framfararskref. Með því var bæði þekkingarþróun og klínísk hjúkrun efld og hefur hjúkrunarfræði á Íslandi skipað sér í fremstu röð á heimsvísu síðustu árin. Þróun háskólanáms í hjúkrunarfræði á Íslandi er rakin á Mynd 1. Með umræddum breytingum leitast forysta hjúkrunar á Íslandi við að viðhalda gæðum náms og hjúkrunar til framtíðar.

Þann 16. október 2024 samþykkti Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild HÍ og þann 30. september 2025 samþykkti Hjúkrunarfræðideild HA að stefna að því að nám í hjúkrunarfræði til starfsréttinda yrði fimm ár; þrjú ár á B.S.-stigi og tvö ár á meistarastigi. Jafnframt var ákveðið að stefnt skyldi að því að fyrsta inntaka í hjúkrunarnám samkvæmt nýrri námsskrá yrði við HÍ og ári síðar við HA.

Aðdraganda þessa má rekja aftur til ársins 1999 þegar ráðherrar 29 Evrópulanda undirrituðu Bologna yfirlýsinguna sem kvað á um fyrirkomulag náms í Evrópu. Þar er lagt til að nám til B.S.-prófs

sé þrjú ár, tvö ár til meistaraprófs og þrjú ár til doktorsprófs. Á þeim 27 árum sem liðin eru hafa miklar breytingar orðið á skipan menntunar á Íslandi en áður þótti nóg að hafa þriggja eða fjögurra ára B.S.-próf, eða minna, til að hljóta starfsréttindi í flestum starfsgreinum. Á þessum tíma hafa fjórar skýrslur verið ritaðar við HÍ (2003, 2007, 2009 og 2013) um hvort ætti að breyta námsfyrirkomulagi í hjúkrunarfræði til starfsréttinda, tvær þeirra í nánu samstarfi við Fíh og HA. Í þessum fyrri skýrslum var komist að þeirri niðurstöðu að ekki væri tímabært að breyta námi í hjúkrunarfræði en á það er bent að nýjasta skýrslan er vel yfir áratuga gömul. Nú er svo komið að hjúkrunarfræði er eina námsgreinin sem veitir starfsréttindi á grundvelli B.S.-prófs, að tannsmíði undanskilinni, sem er þriggja ára B.S.-nám. Aðrar greinar hafa breytt sínu fyrirkomulagi og engin þeirra stytt nám sitt til starfsréttinda.

Tillaga að nýju námsfyrirkomulagi

Tillaga að nýju námsfyrirkomulagi er með þeim hætti að leitast er við að styrkja bæði aðferðafræði hjúkrunar og klíníska færni. Með aukinni samþættingu fræðilegs náms og klínísks náms og með meira færni- og herminámi, verða nemendur betur undirbúnir og geta betur nýtt stundir á klínískum vettvangi. Meginþungi klínísks náms á stofnunum verður á meistarastigi en meginþungi

Mynd 1. Þróun háskólanáms í hjúkrunarfræði á Íslandi. BS-nám

1973 - Fjögurra ára B.S.-nám í hjúkrunarfræði hefst í HÍ

1986 - Hjúkrunarskóla Íslands lokað – nám í hjúkrunarfræði eingöngu á háskólastigi

1987 - Fjögurra ára B.S.-nám í hjúkrunarfræði hefst í HA

1989 - Nýja hjúkrunarskólanum lokað, viðbótar- og framhaldsmenntun flutt í HÍ

1996 - Ljósmóðurfræðinám flyst í HÍ sem framhaldsnám á meistarastigi (Cand Obs)

1997 - Hjúkrunarfræði sjálfstæð deild í HA

1997 – M.S.-nám í hjúkrunarfræði við HA í samstarfi við Royal College of Nursing og Manchester-háskóla

1998 – M.S.-nám hefst í hjúkrunarfræði í HÍ

2000 – Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild sjálfstæð deild í HÍ

2003 – M.S.-nám í heilbrigðisvísindum hefst í HA

2004 – Doktorsnám í Hjúkrunar- og ljósmóðurfræði hefst í HÍ

2017 – Doktorsnám í heilbrigðisvísindum hefst í HA

færni- og hermiþjálfunar í B.S.-náminu. Áfram er gert ráð fyrir að grunngreinar og almenn hjúkrun sé kennd á B.S.-stigi námsins en sérsvið hjúkrunar sem krefjast styrkingar hvað sjálfstæði og forystu varðar, verða á meistarastigi. Breytt námsskrá í hjúkrunarfræði var samþykkt á deildarfundi Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar HÍ 2. september 2025 (sjá Mynd 2), og lagðar fram námskeiðslýsingar og hæfniviðmið fyrir hvert námskeið. Unnið er að gerð nýrrar námskrár í hjúkrunarfræði við HA og gert er ráð fyrir að hún verði samþykkt í lok desember 2026.

Rökstuðningur fyrir breyttu fyrirkomulagi náms

Gild rök eru fyrir því að breytingar á námsskrá hjúkrunarfræðináms á Íslandi séu tímabærar. Á Mynd 3. eru helstu rök fyrir breytingunum dregin fram.

Nám í hjúkrunarfræði miðar að því hjúkrunarfræðingar geti tekist á við þær áskoranir sem felast í nútímaheilbrigðiskerfi. Tækniþróun, nýjar heilbrigðislausnir, nýsköpun í heilbrigðisþjónustu, þróun meðferða og aðrar nýjungar eru áskoranir sem eru samofnar nútímaheilbrigðisþjónustu. Samhliða þessum áskorunum þarf að huga að áhrifaþáttum félagslegs umhverfis, fjölbreyttrar lífsreynslu og menningarlegum bakgrunni. Einnig þarf að hafa í huga eðlilegt þroskaferli manneskjunnar frá fæðingu að dauða og frávikum á því auk umhverfisþátta sem hafa áhrif á líf og heilsu. Hjúkrunarfræðingar þurfa í störfum sínum að mæta skjólstæðingum þar sem þeir eru staddir í lífinu, í því umhverfi sem þeir búa, auk þess að geta átt í samstarfi við fagfólk úr fjölmörgum öðrum starfsstéttum. Þá þurfa hjúkrunarfræðingarnir sjálfir að endurspegla það samfélag sem þeir búa í m.t.t. til kyns og menningar. Störf hjúkrunarfræðinga eru þannig fjölþætt og viðfangsefni hjúkrunarfræðinga síbreytileg í takt við samfélagsbreytingar. Aukin meðallífslengd og hlutfallsleg fjölgun í aldurshópum eldra fólks verður til þess að skjólstæðingar hjúkrunar hafa enn flóknari hjúkrunarþarfir. Einnig hafa lífsstílssjúkdómar margvísleg áhrif á viðfangsefni

Haust Haust Haust 1. ár ECTS 2. ár ECTS

hjúkrunarfræðivísinda 2 10 fr

Inngangur að hjúkrunarfræði 6 fr Samskipti og fræðsla 4 (2 fr + 2 kl) Starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga

Líkaminn, bygging og þroskun 8 fr Almenn hjúkrun 2 8 (4 fr +4 kl)

Heilbrigði

Sálfræði og þroski yfir æviskeiðið 6 frHeilbrigðismat 6 (3 fr+ 3 kl)

Skjólstæðingar hjúkrunar, hagnýt siðfræði og sértæk hjúkrunarmeðferð

Vor Vor Vor

hjúkrun 1 12 (5 fr + 7 kl) Lyfjafræði 6 fr Almenn hjúkrun 3

Lífeðlisfræði 1 7 (5 fr + 2 kl) Næringarfræði4 frBarnahjúkrun

Ónæmis- og meinafræði 5 frSjúkdómafræði 12 fr Fjölskylduhjúkrun

(5 fr + 3 kl)

(4 fr + 4 kl)

Örveru- og sýklafræði 5 fr Hjúkrun eldra fólks 8 (5 fr + 3 kl) BS-verkefni10 fr

Inngangur í þverfræðileg heilbrigðisvísindi – heilbrigðisvísindadagurinn 1 fr

M.S./M.N.-nám í hjúkrunarfræði - 2 ár

Haust Vor

4. ár ECTS 4. ár ECTS

Klínísk hjúkrun bráð- og langveikra 1 13 (4 fr + 9 kl)

Hjúkrunarrannsóknir 15 fr

Þverfræðileg samvinna heilbrigðisvísinda 2 fr

Klínísk hjúkrun bráð- og langveikra 2 - Leiðtogi í starfi

5.ár 5. ár

M.S.-verkefni / Umbætur í klíník (M.N.-námskeið)

30 fr / 30 (10 fr + 20 kl)

Geð- og heilsugæsluhjúkrun –Forysta í starfi

Mynd 2. Samþykkt tillaga að breyttri námsskrá í hjúkrunarfræði við HÍ. fr=fræðilegar einingar / kl=klínískar einingar

30 (10 fr + 20 kl)

30 (10 fr + 20 kl)

hjúkrunar; kostnaður heilbrigðisþjónustu hækkar sífellt og huga þarf að breytingum á þjónustu, færa hana milli þjónustustiga og auka þannig hagkvæmni. Samtímis þarf að leggja áherslu á að fagfólk vinni í takt við hæfni sína og aukin þörf er á að hjúkrunarfræðingar sinni sjálfstæðum og sérhæfðum störfum. Stríð og hörmungar sem leiða til flótta fólks valda aukinni þörf fyrir menningarnæmi og hæfni í viðeigandi samskiptum sem og hjúkrun eftir áverka og áföll. Loftslagsbreytingar og náttúruhamfarir í kjölfar þeirra valda nýjum, öðrum og auknum heilsufarsvandamálum sem hjúkrunarfræðingar þurfa að hafa þekkingu og færni til að sinna. Eins hefur aukin skautun í samfélögum áhrif, þar sem hún getur valdið úlfúð, ofbeldi,

• Ákall WHO um styrkari og víðtækari menntun hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra vegna flóknari viðfangsefna í heilbrigðisþjónustu

• Vaxandi skortur á hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum, bæði til kennslu og klínískra starfa

• Viðhald gæðanáms – áframhaldandi forysta gæðanáms í Evrópu

• Auka ánægju og festu í starfi hjúkrunarfræðinga og lækna

• Jöfn staða hjúkrunarfræðináms og hjúkrunarfræðinga á við aðrar háskólamenntaðar stéttir á Íslandi – meira aðlaðandi nám fyrir ungt metnaðarfullt fólk af öllum kynjum – Bologna yfirlýsingin undirrituð 1999

• Styttir leiðina að doktorsnámi um eitt ár – jafnlangt að sérfræðiréttindum

• Örar samfélagsbreytingar staðbundið og hnattrænt, tækniþróun, umhverfisógn, stríðsógn, upplýsingaóreiða og flóknari meðferðarúrræði

• Fjölgun erlends starfsfólk og ófaglærðra í íslensku heilbrigðiskerfi – aukin þörf á menningarnæmi og eflingu hjúkrunarfræðinga

• Ísland dreifbýlt land – áfram þörf á vel menntuðum almennum hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum

• Streita og kulnun í námi og starfi nýliða í hjúkrunarfræði

• Stytting framhaldsskóla

• Aukið svigrúm innan kennslualmanaks til að kenna það sem þarf í akademísku klínísku námi

• Stutt skólaár á Íslandi

• Fjármögnun náms – nýtt fjármögnunarlíkan háskóla gerir ráð fyrir klínísku námi á meistarastigi

Mynd 3. Helstu rökin fyrir breytingunum.

mismunun og ójafnrétti sem hjúkrunarfræðingar mæta víða í störfum sínum.

Ísland er dreifbýlt og fámennt land. Skortur er á heilbrigðisstarfsfólki í svo til öllum starfstéttum og mikilvægt að þeir sem eru menntaðir til starfa í íslensku heilbrigðiskerfi fái breiða alhliða menntun sem gerir þeim fært að mæta þeim kröfum sem íslenskt samfélag gerir.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (World Health Organization [WHO]), hefur beint eindregnum tilmælum til ríkisstjórna, stjórnmálamanna, yfirvalda og vinnuveitenda um að styrkja hjúkrunarfræðistéttina og líta á það sem fjárfestingu en ekki kostnað. Gæði og aukin menntun hjúkrunarfræðinga stuðlar að öryggi sjúklinga og betri árangri einstaklinga, hópa og samfélaga. Framþróun í hjúkrun og efling starfa hjúkrunarfræðinga eru á heimsvísu talin mikilvæg til að auka aðgengi einstaklinga að alhliða heilbrigðisþjónustu en einnig sem svar við undirmönnun annarra heilbrigðisstétta.

Önnur rök fyrir breytingunum eru m.a. stytting framhaldsskólanna, kennslufyrirkomulag háskólanna og fjármögnun náms. Stytting framhaldskólanna gerir að verkum að nemendur koma nú yngri til náms í háskólum en með hærri aldri fylgir þroski til að takast á við krefjandi verkefni sem hjúkrun sannarlega er. Á Íslandi er skólaárið styttra en í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Skólaárið í HÍ og HA telur 32 vikur á meðan skólaárið annars staðar á Norðurlöndunum telur 40-44 vikur. Tafla 1. sýnir samanburð á lengd hjúkrunarfræðináms á Norðurlöndum.

Tafla 1. Samanburður á lengd hjúkrunarfræðináms á Norðurlöndunum

Nám Ísland Danmörk Finnland Færeyjar Grænland

Heildar- fjöldi ECTS- eininga 240210210240240180180

Lengd kennslumisseris í vikum 1622222020-2119+2120

Lengd náms í árum 43,53,54433

Heildarviku-fjöldi náms 128154154160 160164 120120

ECTSeiningar/viku 1,91,41,41,41,41,51,5

Með fjölgun nemenda síðustu árin í Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild HÍ, hefur ekki verið unnt að halda náminu innan kennslualmanaks HÍ og hefur deildin þurft að fá undanþágu frá skipulaginu og lengja misserin inn í hefðbundin sumarleyfistímabil, sem reynist óvinsælt hjá nemendum, kennurum og á klínískum vettvangi.

Enn ein rökin eru breytt fjármögnunarlíkan íslenskra háskóla. Nám í hjúkrunarfræði hefur ávallt verið vanfjármagnað og nýja líkanið styður hreinlega ekki við að klínískt nám sé á B.S.-stigi, þar sem nám á B.S.-stigi fær helmingi minna fjármagn en nám á meistara- og doktorsstigi samkvæmt því fjármögnunarlíkani sem tók gildi 2024.

Áskoranir

Við endurskoðunina sem og kynningar á samþykktum tillögum skólanna hafa áskoranir breytinganna verið skoðaðar og ræddar. Haghafar hafa í nokkrum mæli lýst yfir áhyggjum af áhrifum breytinganna og háskólarnir í samstarfi við Fíh og Ljósmæðrafélag Íslands hafa leitast við að leggja fram raunhæfar tillögur að lausnum afleiddra þátta. Samantekt á þeim tillögum hefur verið send ráðuneytum heilbrigðismála og háskólamála auk Embætti landlæknis. Hér er brugðist við nokkrum af þessum áskorunum.

Samanburður við nám í öðrum löndum

Hjúkrunarfræðinám á Íslandi sem og í Evrópu fylgir allt Evróputilskipun 2005/36/EC um innihald náms og gefur samevrópskt hjúkrunarleyfi en bent hefur verið á að nám annars staðar sé styttra en á Íslandi. Það er rétt í árum talið en ekki námslengd. Eins og sést í Töflu 1 er skólaárið styttra og þéttara á Íslandi og þurfa íslenskir nemendur að taka 1,9 einingu á viku á meðan nemendur annars staðar á Norðurlöndunum taka 1,41,5 einingar á viku. Til að uppfylla tilskyldar kröfur um klínískar stundir fyrir hjúkrunarleyfi er þess krafist hérlendis að nemendur í hjúkrunarfræði skili vinnustundum sem samsvara þriggja mánaða vinnu við hjúkrun undir handleiðslu hjúkrunarfræðings,

Noregur Svíþjóð

utan hefðbundins klínísks náms, fyrir útskrift. Auk þess vinna flestir nemendur á Íslandi með námi sem er fáheyrt annars staðar á Norðurlöndunum. Sú vinna er þó ekki undir stjórn menntastofnana og undir hælinn lagt hvað og hvernig nemendur bæta við sig klínískri þekkingu þar. Félagslegt nám (e. social learning) án stýringar er ekki alltaf besta leiðin til náms.

Áhyggjuraddir hafa heyrst um að umræddar breytingar leiði til þess að hjúkrunarfræðingar með nám frá öðrum löndum sem ekki er á meistarastigi muni ekki fá starfsleyfi hér á landi. Það verður ekki þannig. Sem fyrr munu hjúkrunarfræðingar sem uppfylla skilyrði tilskipunar 2005/36/EC með síðari breytingum, um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi áfram geta sótt um hjúkrunarleyfi á Íslandi. Bundið er í milliríkjasamninga að leyfi í einu aðildarlandi samningsins jafngildir leyfi í öðru landi og var því aldrei ætlunin að girða fyrir hjúkrunarleyfi þeirra sem menntast annars staðar en á Íslandi. Hér eftir sem hingað til munu hjúkrunarfræðingar frá öðrum löndum geta fengið hjúkrunarleyfi á Íslandi svo fremi þeir uppfylli Evrópureglugerðina. Breytingin er ekki talin íþyngjandi og talin standast meðalhófsprófun sem mælt er fyrir um í lögum nr. 79/2025 um breytingu á lögum nr. 26/2010 um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi. Dæmi um lengra nám og á öðrum námsstigum til starfsréttinda í öðrum fagstéttum eru þegar til staðar.

Sérfræðingar í hjúkrun

Mikilvægt er að sú góða menntun og þjálfun sem sérfræðingar í hjúkrun hafa í dag haldist óbreytt. Má segja að eitt af leiðarljósum endurskoðunar hafi verið að slá ekki af gæðum en jafnframt að gera ferlið að sérfræðiviðurkenningu ekki íþyngjandi. Sýn HÍ og HA ásamt forystu fagfélaga hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra, er að eitt ár í formlegu sérhæfðu námi bætist ofan á hið nýja almenna meistaranám og þar á eftir tveggja ára starfsþjálfun til sérfræðiréttinda eins og nú er. Þessi sýn er í takti við tillögur annarra fagstétta með fimm ára meistaranám til starfsréttinda, eins og félagsráðgjafa og sjúkraþjálfara. Í heild verða þetta átta ár frá upphafi náms, líkt og verið hefur. Unnið verður að útfærslu sérfræðináms í samstarfi við Fagdeild sérfræðinga, forstöðumenn fræðasviða og klínískar stofnanir.

Nýtt B.S.-nám í hjúkrunarfræði Þriggja ára B.S.-nám í hjúkrunarfræði er hluti af heildarnámi til starfsréttinda og þjónar fyrst og fremst þeim tilgangi að undirbúa nemendur fyrir meistaranám til starfsréttinda. Fyrirmyndir þessa fyrirkomulags eru m.a. sóttar til náms í sjúkraþjálfun, læknisfræði, lyfjafræði og félagsráðgjöf við HÍ. Þeir sem ljúka B.S.-prófi fá ekki hjúkrunarleyfi. Þar vantar upp á bæði klínískt og fræðilegt nám til að mæta skilyrðum Evróputilskipunarinnar og hæfniviðmiðum til starfsleyfis hjúkrunarfræðinga. Hins vegar munu B.S.-menntuð hafa hlotið nám í ýmsum undirstöðuþáttum hjúkrunar sem nýst gæti víða innan eða utan heilbrigðiskerfisins kjósi þeir einstaklingar að halda ekki áfram námi til starfsréttinda. Varað hefur verið við þeirri sviðsmynd að stjórnvöld verðfelli nám hjúkrunarfræðinga á einhvern hátt og bjóði upp á skemmri skírn til starfsréttinda. Við höfum enga trú á að stjórnvöld sem vilja tryggja gæði hjúkrunar til framtíðar, taki upp á því að gjaldfella íslenskt nám í hjúkrunarfræði og draga úr kröfum um hæfni.

Framhaldsnám erlendis

Nám til starfsréttinda í hjúkrunarfræði og hjúkrunarleyfi er almennt inntökuskilyrði í meistaranám í hjúkrunarfræði um heim allan. Hjúkrunarfræðingar framtíðarinnar með meistarapróf til starfs-

réttinda ættu því að hafa greiðan aðgang að meistaranámi í öðrum löndum. M.S.-prófið veitir aðgang að doktorsnámi erlendis eins og verið hefur. Hvort fólk með þriggja ára B.S.-próf í hjúkrunarfræði komist í frekara nám í öðrum löndum, veltur á því hvaða skilyrði skólar setja og má vænta þess að gerð sé krafa um hjúkrunarleyfi og þar með að skilyrðum Evrópureglugerðar sé fullnægt, til að komast í klínískt framhaldsnám fyrir hjúkrunarfræðinga.

Aðsókn í námið og festa í starfi

Undanfarin áratug hefur nemendum sem komast áfram í námi eftir samkeppnispróf í hjúkrunarfræði verið fjölgað um 50% auk þess sem HÍ hefur nú í nokkur ár boðið upp á hjúkrunarfræði fyrir fólk með annað háskólanám. Aðsókn hefur verið breytileg en enn eru það fyrst og fremst konur sem sækja í hjúkrunarfræðinám en jafna þyrfti hlut kynja sem gefur til kynna hvar sóknarfærin eru. Miðað við aðrar námsleiðir og starfstéttir s.s. sjúkraþjálfun og félagsráðgjöf, má gera ráð fyrir því að til lengri tíma litið muni aðsókn aukast. Við væntum þess að sama gildi um hjúkrunarfræðinga eins og aðrar stéttir þar sem meiri menntun fylgir aukin tryggð við fagið og að fleiri hjúkrunarfræðingar sjái starfsferil sinn í hjúkrun út starfsævina. Engar vísbendingar fundust um að stytting náms eða minna nám dragi úr brottfalli eða auki festu í starfi. Þvert á móti hafa fjölmargar rannsóknir víðs vegar í heiminum ítrekað sýnt fram fylgni milli betri menntunar hjúkrunarfræðinga og afdrifa sjúklinga s.s. að draga úr tíðni ótímabærs dauðdaga í kjölfar aðgerða (sjá rannsóknir Lindu Aiken og félaga). Einnig benda rannsóknir til þess að með lengra námi hjúkrunarfræðinga aukist starfsánægja þeirra og festa í starfi sem er meginmarkmið breytinganna.

Lokaorð

Sterk rök hníga að því að tímabært sé að breyta námsskrá í hjúkrunarfræði til samræmis við aðrar háskólamenntaðar stéttir á Íslandi. Vissulega fylgja breytingum áskoranir en við teljum hjúkrunarfræðinga fullfæra um að mæta þeim af skynsemi, rökfestu og einurð. Háskólarnir ásamt Fíh eru einhuga um að nú sé rétti tíminn til að breyta námsskrá hjúkrunarfræðináms á Íslandi og efla þannig hjúkrunarfræðinga með hag framtíðar skjólstæðinga að leiðarljósi.

Þessi grein byggir á skýrslum sem unnar voru í tengslum við endurskoðun námsskrár í hjúkrunarfræði og nálgast má hjá höfundum. Auk höfunda sátu eftirtaldir kennarar við HÍ og HA í undirbúningshópum um endurskoðunina: Brynja Örlygsdóttir (HÍ), Embla Ýr Guðmundsdóttir (HÍ), Gísli Kort Kristófersson (HA), Sigrún Sunna Skúladóttir (HÍ), Steinunn Jónatansdóttir (HA), Valgerður Lísa Sigurðardóttir (HÍ), Þóra Jenný Gunnarsdóttir (HÍ).

Höfundar:

Helga Bragadóttir1,2

Herdís Sveinsdóttir1

Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir1,2

Hafdís Skúladóttir3

Margrét Hrönn Svavarsdóttir3

Sigríður Sía Jónsdóttir3

1Háskóli Íslands

2Landspítali

3Háskólinn á Akureyri

Höfundur

DAGNÝ RÚN ÞORGRÍMSDÓTTIR

Hjúkrunarfræðingur, Heilsugæslu Stykkishólmi

Diplómapróf á meistarastigi í sýkingavörnum og smitsjúkdómahjúkrun

Hreinar hendur, færri veikindi – mikilvægi handhreinsunar í skólum

Smitsjúkdómar eru meðal algengustu heilsufarsvandamála barna á skólaaldri og hafa áhrif á bæði líðan þeirra og skólasókn. Í skólaumhverfi skapast kjöraðstæður fyrir útbreiðslu sýkla þar sem mörg börn, ásamt kennurum, eru saman komin í lokuðu rými og hafa tíða snertingu hvert við annað og sameiginlega snertifleti. Afleiðingarnar eru auknar veikindatengdar fjarvistir sem hafa áhrif á bæði börnin sjálf og fjölskyldur þeirra (Mo o.fl., 2022).

Handhreinsun er ein einfaldasta og árangursríkasta leiðin til að draga úr útbreiðslu smitsjúkdóma. Þrátt fyrir það sýna rannsóknir að börn fylgja ekki alltaf réttum handhreinsunarvenjum og eru ekki alltaf meðvituð um mikilvægi þeirra (Davies, 2023). Þetta skapar mikilvægt tækifæri til forvarna innan skólaumhverfisins.

Skólar gegna lykilhlutverki í heilsueflingu þar sem þeir ná til stórs hóps barna á mikilvægum þroskatíma þeirra. Með markvissum aðgerðum er ekki aðeins hægt að draga úr smiti til skamms tíma heldur einnig að móta heilsusamlegar venjur sem fylgja börnum til framtíðar (Ismail o.fl., 2024).

Smit í grunnskólaumhverfi

Börn á grunnskólaaldri eru sérstaklega viðkvæm fyrir smitsjúkdómum. Ónæmiskerfið þeirra er enn í þróun og hegðun þeirra einkennist af mikilli snertingu við umhverfið og aðra einstaklinga (McNicholl o.fl., 2024). Börn snerta oft andlit sitt, deila hlutum og eru í nánu sambandi við önnur börn, sem stuðlar að hraðri útbreiðslu sýkla. Grunnskólar eru því kjöraðstæður fyrir smitdreifingu. Þar safnast margir einstaklingar saman í lokuðu rými og deila sameiginlegum snertiflötum. Þetta getur leitt til aukinnar tíðni öndunarfæra- og meltingarfærasýkinga og haft áhrif á skólasókn og námsframvindu barna (Kumar o.fl., 2024). Veikindi barna geta einnig haft áhrif út fyrir skólaumhverfið. Þegar börn veikjast aukast líkur á smiti innan heimilis, til dæmis til systkina og foreldra, og slíkt hefur áhrif á daglegt líf fjölskyldna og fjarveru foreldra frá vinnu. Því geta markvissar forvarnir í skólum haft víðtækari samfélagsáhrif en eingöngu að draga úr veikindum einstakra barna.

Af hverju skiptir handhreinsun máli?

Hendur gegna lykilhlutverki í smitleiðum þar sem þær bera sýkla á milli einstaklinga og yfirborða. Smit getur til dæmis borist þegar einstaklingur hóstar eða hnerrar í hendurnar og snertir síðan aðra eða sameiginlega snertifleti. Börn eru sérstaklega líkleg til að snerta andlit sitt, faðmast, halda í hendur eða leika sér saman, sem eykur líkur á að sýklar berist á milli þeirra (McNicholl o.fl., 2024).

Í daglegu skólastarfi eru fjölmargir snertifletir sem geta miðlað smiti. Þar má nefna hurðarhúna, borð, blýanta, spjaldtölvur og leikföng. Einnig eru sameiginleg leiksvæði, bæði inni og úti, mikilvægir smitflutningsstaðir, til dæmis boltar í íþróttum, klifurgrindur á skólalóð og áhöld í leikfimisal. Börn snerta þessa hluti oft í röð og án handhreinsunar geta sýklar auðveldlega borist frá einum einstaklingi til annars (Kumar o.fl., 2024; McNicholl o.fl., 2024).

Handhreinsun gegnir lykilhlutverki í að rjúfa þennan smithring. Sérstaklega er mikilvægt að þvo hendur eftir salernisferðir, áður

en matar er neytt og eftir snertingu við sameiginlega hluti. Með því að hreinsa hendur á réttum tímum er hægt að draga verulega úr líkum á að sýklar berist í munn, nef eða augu og valdi sýkingu (Davies, 2023; Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, e.d.; Lýðheilsustöð, e.d.). Rannsóknir benda til þess að góð handhreinsun geti dregið verulega úr algengum smitsjúkdómum, svo sem niðurgangi og öndunarfærasýkingum (Davies, 2023). Einnig hafa rannsóknir sýnt að aukin handhreinsun tengist minni líkum á sýkingum í samfélaginu (Mo o.fl., 2022). Til dæmis hefur verið sýnt fram á að reglulegur handþvottur getur dregið úr útbreiðslu öndunarfærasýkinga innan fjölskyldna og skólasamfélaga, þar sem smit berst oft á milli einstaklinga í nánu sambandi. Þessar niðurstöður undirstrika að einfaldar aðgerðir geta haft víðtæk áhrif á lýðheilsu.

Mynd 1. Ottawa public health (E.d.) Mynd þýdd af höfundi greinar.

Reynsla frá COVID-19 faraldrinum sýndi einnig mikilvægi handhreinsunar í reynd. Aukið hreinlæti og notkun handspritts tengdist minnkandi útbreiðslu ýmissa smitsjúkdóma, ekki aðeins COVID-19 heldur einnig annarra öndunarfærasýkinga (Davies, 2023). Þetta undirstrikar að einfaldar hegðunarbreytingar geta haft veruleg áhrif á smitdreifingu í samfélaginu.

Fyrir skólahjúkrunarfræðinga felst áskorunin í því að yfirfæra þessa þekkingu í daglegt starf, þar sem tryggja þarf að börn hafi bæði aðgengi að handhreinsun og skilning á mikilvægi hennar. Einfaldar aðgerðir, svo sem að minna á handþvott fyrir matartíma og eftir frímínútur, geta haft raunveruleg áhrif á smitdreifingu innan skóla.

Hvað virkar í skólaumhverfi?

Rannsóknir sýna að handhreinsunaraðgerðir í skólum geta haft raunveruleg áhrif á heilsu barna. Sérstaklega virðast fjölþættar aðgerðir skila bestum árangri, þar sem fræðsla, aðgengi að handhreinsunaraðstöðu og hvatning fara saman (Ismail o.fl., 2024; Kumar o.fl., 2024).

Slík inngrip hafa verið tengd við fækkun sýkinga og veikindatengdra fjarvista, auk þess sem þau stuðla að bættri handhreinsunarhegðun barna, til dæmis með því að börn þvo sér oftar um hendur, nota sápu og fylgja réttum handþvottaraðferðum (Ismail o.fl., 2024). Í framkvæmd felst árangursrík innleiðing í því að samþætta handhreinsun inn í daglegt starf skólans. Þetta getur til dæmis falið í sér markvissa fræðslu í kennslustundum, sýnikennslu á réttum handþvotti og umræðu um smitleiðir, auk þess að nýta hópavinnu eða verkefni sem auka skilning barna. Einnig skiptir máli að tryggja gott aðgengi að handhreinsun, til dæmis með því að hafa handspritt í kennslustofum, við innganga og í matsölum, auk þess að tryggja að sápa og þurrkur séu alltaf aðgengileg á salernum.

Til að styðja við hegðunarbreytingar er mikilvægt að skapa umhverfi sem hvetur til handhreinsunar, meðal annars með sjónrænum áminningum, svo sem veggspjöldum við vaska, aldursmiðuðu fræðsluefni og reglulegri endurtekningu í daglegu skipulagi skóladagsins. Einnig er hægt að auka þátttöku barna með einföldum og skapandi leiðum, til dæmis með þemaviku um hreinlæti, leikjum eða keppnum sem tengjast handhreinsun, sem getur aukið áhuga þeirra og gert viðfangsefnið sýnilegra í skólastarfi (Ly o.fl., 2025).

Nýlegar rannsóknir benda einnig til þess að nýsköpun geti aukið árangur, til dæmis með notkun stafræns fræðsluefnis eða gagnvirkra lausna sem hvetja börn til þátttöku og gera handhreinsun sýnilegri og skemmtilegri (Graichen o.fl., 2024). Slíkar lausnir geta meðal annars falið í sér myndbönd, gagnvirka leiki eða stafræna endurgjöf sem sýnir hvort handþvottur sé framkvæmdur rétt, sem hefur reynst auka bæði gæði og tíðni handhreinsunar hjá börnum. Þetta undirstrikar mikilvægi þess að aðlaga aðgerðir að aldri og þroska barna til að ná sem bestum og varanlegum árangri.

Hlutverk skólahjúkrunarfræðings

Skólahjúkrunarfræðingar eru í lykilstöðu til að hafa áhrif á heilsu barna með einföldum en markvissum aðgerðum. Þeir gegna mikilvægu hlutverki í fræðslu, innleiðingu og eftirfylgd handhreinsunaraðgerða í skólum og geta þannig stuðlað að því að handhreinsun verði hluti af daglegum venjum barna (Ly o.fl., 2025). Í starfi sínu geta þeir frætt börn um mikilvægi handhreinsunar, kennt réttar handþvottaraðferðir, unnið með kennurum og foreldrum og stuðlað að reglubundinni eftirfylgd. Einnig geta þeir komið af stað markvissum átökum innan skólans, til dæmis með því að þróa eða nýta fræðsluefni sem hentar mismunandi aldri barna og styður við handhreinsun í daglegu skólastarfi.

Í íslenskum leiðbeiningum er mælt með fræðslu um handhreinsun á mismunandi skólastigum, þar sem lögð er áhersla á að kenna börnum hvenær og hvernig á að þvo hendur (Lýðheilsustöð, e.d.; Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, e.d.). Mikilvægt er þó að hafa í huga að sama nálgun hentar ekki öllum aldri. Börn á yngri stigum grunnskóla þurfa yfirleitt skýrari leiðsögn, sýnikennslu og einfaldar áminningar en eldri börn og unglingar geta frekar nýtt sér umræðu, ábyrgð og fræðslu sem tengir handhreinsun við eigið heilsufar og ábyrgð gagnvart öðrum (Graichen o.fl., 2024; McNicholl o.fl., 2024).

Skólahjúkrunarfræðingar hafa þó bent á að slík fræðsla geti verið tímafrek og að í stærri skólum fái hún ekki alltaf nægjanlegt vægi. Þetta undirstrikar mikilvægi þess að handhreinsun sé samþætt í daglegt starf skóla en ekki aðeins hluti af einstökum fræðslutímum. Með markvissri samvinnu við kennara og stjórnendur er líklegra að unnt sé að innleiða varanlegar venjur sem ná til allra aldurshópa innan skólans (Ly o.fl., 2025).

Hindranir og áskoranir Þrátt fyrir skýran ávinning handhreinsunaraðgerða eru ýmsar hindranir sem geta haft áhrif á árangur þeirra. Skortur á aðgengi að vatni, sápu eða öðrum búnaði getur takmarkað möguleika barna á að tileinka sér góðar venjur (Davies, 2023). Einnig getur verið erfitt að viðhalda hegðunarbreytingum til lengri tíma, þar sem áhrif fræðslu geta minnkað ef ekki er fylgt eftir með reglulegri endurtekningu og styrkingu (Prasad o.fl., 2025).

Venjur á heimili geta einnig haft veruleg áhrif á hegðun barna. Börn sem alast upp við reglulega handhreinsun, til dæmis fyrir máltíðir og eftir salernisferðir, eru líklegri til að tileinka sér slíkar venjur í skóla. Aftur á móti geta börn sem fá minni hvatningu eða leiðsögn heima síður fylgt handhreinsunarvenjum, jafnvel þótt fræðsla fari fram í skóla. Þetta undirstrikar mikilvægi þess að samræmi sé milli heimilis og skóla þegar kemur að hreinlætisvenjum (Ly o.fl., 2025).

Af þessum sökum er mikilvægt að foreldrar séu virkir þátttakendur í handhreinsunaraðgerðum. Með því að miðla upplýsingum

til foreldra, til dæmis í gegnum fræðsluefni, fundi eða rafræna samskiptamiðla, er hægt að styðja við að sömu venjur séu viðhafðar bæði heima og í skóla. Slík samvinna eykur líkur á að börn tileinki sér varanlegar handhreinsunarvenjur og styrkir áhrif fræðslu sem fram fer í skólaumhverfi (Ly o.fl., 2025).

Einnig geta félagslegir þættir haft áhrif, til dæmis hóphegðun og viðhorf jafnaldra. Börn eru líklegri til að þvo sér um hendur ef það er talið eðlilegur hluti af daglegum þætti innan hópsins. Á sama hátt getur tímapressa í skóladagskrá eða takmarkað aðgengi að handþvottaaðstöðu haft áhrif á hvort handhreinsun verði raunhæfur hluti af daglegum venjum barna (Ly o.fl., 2025).

Lokaorð

Handhreinsun er einföld en afar áhrifarík leið til að draga úr útbreiðslu smitsjúkdóma meðal barna. Niðurstöður sýna að markvissar handhreinsunaraðgerðir í skólum geta haft raunveruleg áhrif á heilsu barna og dregið úr veikindatengdum fjarvistum.

Árangur slíkra aðgerða er háður samspili fræðslu, aðgengis, hegðunar og skipulags. Með heildstæðri nálgun sem tekur mið af daglegu skólastarfi er hægt að stuðla að varanlegri hegðunarbreytingu.

Skólahjúkrunarfræðingar gegna lykilhlutverki í þessari vinnu og geta með einföldum, markvissum og aldursmiðuðum aðgerðum stuðlað að betri heilsu og velferð barna.

HEIMILDIR

Davies, K. (2023). 2023 hand hygiene research summary. Global handwashing partnership.

Graichen, J. Stingl, C., Pakarinen, A., Rosio, R., Terho, K., Günther, S. A., Salantera, s., og Staake, T. (2024) Improving hand hygiene of young children with a digital intervention: A cluster-randomised controlled field trial. Scientific reports, 14(1), 6157. https://doi.org/10.1038/s41598-024-56233-9

Ismail, S. R., Radzi, R., Megat Kamaruddin, P. S. N., Lokman, E. F., Lim, J. Y., Abdul Rahim, N., Yow, H. Y., Arumugam, D., Ngu, A., Low, A. C. Y. og Wong, E. H..(2024). The effects of school-based hygiene intervention programme: Systematic review and meta-analysis. Plos one, 19 e0308390. https://doi.org/10.1371/journal.pone.0308390

Kumar, V. og Kumar, S. (2024). Effectiveness of school-based interventions on hygiene and infection control among children. International journal of applied science, 10 https://doi.org/10.53555/a9s44y30

Ly, A. N., Craig, C., Maheia, D., Gongora, Y., Romero, V., Blanco, R., Lino, A., McDavid, K., Stewart, A., Trinies, V., Medley, A., Morey, F., Manzanero, R., Lozier, M., og Murray, K. O. (2025). Hand hygiene roles, challenges, and intervention feedback from school staff: A qualitative analysis, Belize, 2022-2023. International journal of environmental research and public health, 22 https://doi.org/10.3390/ijerph22060835

Lýðheilsustöð. (E.d.). Hreinlæti

McNicholl, J., Younie, S., Crosby, S., og Laird, K. (2024) A clinical trial evaluation of handwashing products and educational resources to improve hand hygiene in paediatric patients and school children. Frontiers in public health, 12, 1427749. doi: 10.3389/fpubh.2024.1427749

Mo, Y., Pham, T. M., Lim, C., Horby, P., Stewardson, A. J., Harbarth, S., Scott, G. M. og Cooper, B. S.(2022). The effect of hand hygiene frequency on reducing acute respiratory infections in the community: a meta-analysis. Epidemiology and infection, 150, e79. doi:10.1017/S0950268822000516

Ottawa public health. (E.d.). Chain of infection https://www.ottawapublichealth.ca/en/professionals-and-partners/chain-of-infection.aspx

Prasad S. K., Snyder, J. S., LaFon, E., O’Brien, L. A., Rogers, H. K., Cumming, O., Esteves Mills, J., Gordon, B., Wolfe, M. K., Freeman, M. C., og Caruso, B. A. (2025) Interventions to improve hand hygiene in community settings: A systematic review of theories, barriers and enablers, behaviour change techniques and hand hygiene station design features. BMJ global health, 10, e018928. https://doi.org/10.1136/bmjgh-2025-018928

Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu. (E.d.) Hreinlæti. Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu https://throunarmidstod.is/svid-thih/heilsuvernd-skolabarna/fraedsla/hreinlaeti/

Sérfræðingar í sjúkraflugi

Skjót og fagleg þjónusta þegar þú þarft mest á henni að halda

Sérútbúnar sjúkravélar til og frá íslandi fyrir liggjandi og/eða sitjandi sjúklinga.

Gæði og góð þjónusta alla leið

Fullkominn búnaður um borð

Læknateymi um borð

Áreiðanleiki

Fjöldi flugvéla til taks allan sólarhringinn.

Neyðarnúmer 24/7: 522-0000 - www.airbrokericeland.is

Höfundar

THEODÓRA TÓMASDÓTTIR

RANNVEIG J. JÓNASDÓTTIR

HELENE BERNTZEN

Hnippum í Þægindaknippið – drögum úr óþægindum gjörgæslusjúklinga

Þekkt er að sjúklingar upplifa mikil óþægindi í dvöl sinni á gjörgæsludeild. Óþægindin geta falist í upplifun þeirra á eigin líðan, umhverfinu og meðferðinni. Í Noregi var þróað Þægindaknippi (Komfort bundle) í því skyni að minnka óþægindi og bæta upplifun sjúklinga á meðan þeir eru á gjörgæsludeild en knippið er í notkun á mörgum norskum gjörgæsludeildum með góðum árangri.

Undanfarið hefur verið unnið að íslenskri þýðingu Þægindaknippisins af höfundum þessara fræðslugreinar en fyrsti og síðasti höfundur, þær Theodóra og Helene eru jafnvígar á íslensku og norsku. Theodóra er hjúkrunarfræðingur á gjörgæsludeild Landspítala Fossvogi og á heila- og taugagjörgæsludeild háskólasjúkrahússins í Ósló, Rannveig og Helene eru sérfræðingar í hjúkrun gjörgæslusjúklinga, Rannveig á gjörgæsludeild Landspítala Fossvogi og Helene við háskólasjúkrahúsið í Ósló.

Áætlað er að innleiða Þægindaknippið í hjúkrun gjörgæslusjúklinga á Landspítala árið 2026.

Af hverju Þægindaknippi?

Hjúkrunarfræðingarnir Helene Berntzen og Ann-Marie Storsveen hönnuðu Þægindaknippið árið 2022. Hönnun þess byggir á niðurstöðum doktorsrannsóknar Helene Berntzen í hjúkrunarfræði frá háskólanum í Ósló sem fjallar um upplifun gjörgæslusjúklinga af því að vera sjúklingar á gjörgæsludeild. Þar sýndi greining gagna að margir gjörgæslusjúklingar upplifa óþægindi líkt og að „vera sviptur virkum líkama, virkum huga og persónu sinni“ (Berntzen o.fl., 2020). Þannig reynast óþægindin vera af ýmsum öðrum toga heldur en eingöngu vegna líkamlegra verkja (Berntzen o.fl. 2018). Í rannsóknum Berntzen o.fl. (2019) kom í ljós að mat hjúkrunarfræðinga á óþægindum gjörgæslusjúklinga er sjaldan framkvæmt á skipulegan hátt, endurtekið eða miðlað til næstu vaktar, eins og við mat á líkamlegum verkjum sjúklinga.

Tilgangur Þægindaknippisins er því að draga úr þessum fjölmörgum óþægindum gjörgæslusjúklinga en hönnunin byggir jafnframt á alþjóðlegum leiðbeiningum (Borgert o.fl., 2017) að viðbættum fræðilegum grunni. Með einstaklingsbundnum verkþáttum sem miða að því að mæta óskum og þörfum sjúklinga og þannig efla sjálfsmynd þeirra og vernda gegn íþyngjandi umhverfi (einstaklingur), efla upplifun þeirra af virkni líkamans (líkami) og efla öryggi, skilning og upplifun þeirra af samhengi (hugur), má reyna að draga úr þessum óþægindum (Berntzen og Storsveen, 2023).

Hvernig er Þægindaknippið notað í gjörgæsluhjúkrun?

Sjálft Þægindaknippið er tússtafla sem hangir á eða er hallað að vegg við rúm sjúklings, sjá mynd 1. Knippið er fyrst og fremst hugsað fyrir sjúklinga sem þurfa að vera töluverðan tíma á gjörgæsludeild. Hjúkrunarfræðingur skráir atriði á tússtöfluna sem eru einstaklingsbundin fyrir hvern og einn sjúkling til að beina sjónum kerfisbundið að mögulegum óþægindum hans og að þáttum sem skipta sjúklinginn máli. Þetta getur til dæmis varðað umhirðu, þjálfun, hvað auki andlegan styrk, hvíldartíma sjúklings

og þátttöku hans í ákvörðunum. Upplýsingar geta komið frá sjúklingnum sjálfum, aðstandendum hans eða hjúkrunarfræðingi.

Atriðin í Þægindaknippinu eiga að innihalda óskir sjúklings en ekki viðkvæmar upplýsingar um sjúklinginn, fyrirmæli um ákveðin verk eða kröfur til starfsmanna. Knippið er ekki hluti af hjúkrunarskráningu sjúklings. Þægindaknippi getur hins vegar dregið sjónrænt fram þætti úr hjúkrunarskráningu og þannig gefið hjúkrunarfræðingi fyrr yfirsýn hvað er mikilvægt fyrir hvern og einn sjúkling. Reglulega þarf að uppfæra upplýsingar sem skráðar eru í Þægindaknippið.

Er ávinningur af notkun Þægindaknippis?

Hjúkrunarfræðingar á þremur gjörgæsludeildum í Noregi hafa deilt reynslu sinni af notkun Þægindaknippisins í daglegri hjúkrun gjörgæslusjúklinga (Berntzen og Storsveen, 2026). Að mati hjúkrunarfræðinganna er Þægindaknippið þýðingarmikið því notkun þess auðveldar einstaklingsbundna umönnun og styrkir þannig getu starfsfólks til að mæta heildarþörfum sjúklinga. Jafnframt er það reynsla hjúkrunarfræðinga að notkun knippisins styrkir aðstandendur og auðveldar samskipti við þá á meðan dvöl sjúklingsins stendur. Virkjun sjúklinga og aðstandenda í miðlun upplýsinga um líðan og óskir þeirra virðist einnig geta gefið þeim viðurkenningu á að á þau sé hlustað og að þeim sé sýndur áhugi.

Hjúkrunarfræðingunum fannst hins vegar að innleiðing á Þægindaknippinu hefði getað verið betri til þess að knippið nýttist og gagnaðist sem best. Eftir endurgjöf hjúkrunarfræðinganna var Þægindaknippið því endurbætt árið 2025 með nýjum leiðbeiningum. Einnig hefur verið útbúið rafrænt námskeið sem er ætlað hjúkrunarfræðingum sem hafa í hyggju að nýta sér Þægindaknippið (Berntzen og Storsveen, 2026).

Samantekt

Þægindaknippið er nýjung í hjúkrun sjúklinga á gjörgæsludeild. Knippið felur í sér skráningu atriða á tússtöflu sem hangir hjá sjúklingi og er byggt á gagnreyndri þekkingu. Markmiðið er að

Daglegt líf

Mikilvægar manneskjur

Umhverf Persónulegumhirða

Andlegtog menningarlegt

E I N STAKLINGUR

ÞÆGINDI

HVAÐ SKIPTIR ÞIG MÁLI?

HUGUR

Afþreying

Svefnoghvíld

Vellíðan

Öryggi

Samskipti

Lega, hreyfng og þjálfun

DAGSÁÆTLUN

Matur og drykkur

Skilningur og innsæi

Upphafsdagsetning:

Munið að hjúkrunarskráning á að vera í samræmi við viðeigandi verkþætti!

Unnið af Helene Berntzen og Ann-Marie Storsveen við vöknunar- og gjörgæsludeildir háskólasjúkrahússins Osló (OUS). Hönnun: Melkeveien Designkontor.

Mynd 1. Þægindaknippið, myndin er framhlið á tússtöflu.

efla upplifun sjúklinga og vernda þá gegn íþyngjandi umhverfi gjörgæsludeilda með einstaklingsbundinni nálgun. Þannig er hugsanlega hægt að draga úr óþægindum gjörgæslusjúklinga

HEIMILDASKRÁ

Berntzen, H., Bjørk, I. T., Storsveen, A. M., & Wøien, H. (2020). "Please mind the gap": A secondary analysis of discomfort and comfort in intensive care. Journal of Clinical Nursing, 29 (13-14), 2441–2454. https://doi.org/10.1111/jocn.15260

Berntzen, H., Bjork, I. T., & Woien, H. (2018). "Pain relieved, but still struggling"-Critically ill patients experiences of pain and other discomforts during analgosedation. Journal of Clinical Nursing, 27(1-2), e223-e234. https://doi.org/10.1111/jocn.13920

Berntzen, H., Bjork, I. T., & Woien, H. (2019). "Having the compass-drawing the map": Exploring nurses' management of pain and other discomforts during use of analgosedation in intensive care. Nursing Open, 6(2), 453-462. https://doi.org/10.1002/nop2.227

Berntzen, H. & Storsveen, A.M. (2023). Utvikling av Komfort bundle – et hjelpemiddel for å minske ubehag hos intensivpasienter. Sykepleien 2023;111(93717):e-93717 https://doi.org/10.4220/Sykepleiens.2023.93717

og aðstandenda þeirra. Með innleiðingu þægindaknippisins á gjörgæsludeildum Landspítala má mögulega efla gæði hjúkrunar og stuðla að bættri upplifun gjörgæslusjúklinga.

Berntzen, H., & Storsveen, A. M. (2026). Minor things of major importance-nurses' experience of using the Komfort Bundle when caring for critically ill patients: A qualitative study. Australian Critical Care, 39(2), 101532. https://doi.org/10.1016/j.aucc.2026.101532

Borgert, M., Binnekade, J., Paulus, F., Goossens, A., & Dongelmans, D. (2017). A flowchart for building evidence-based care bundles in intensive care: based on a systematic review. International Journal for Quality in Health Care, 29(2), 163–175. https://doi.org/10.1093/intqhc/mzx009

UCEEM (Undergraduate Clinical Education Environment Measure) sem mælitæki

í íslensku heilbrigðisvísindanámi: og próffræðileg greining á íslensku útgáfunni: Próffræðileg greining og hagnýting í klínísku vinnuumhverfi

doi: 10.33112/th.102.2.1

ÚTDRÁTTUR

Tilgangur

Klínískt nám er mikilvægur þáttur í menntun nemenda í heilbrigðisvísindum og mikilvægt að meta upplifun þeirra. UCEEM-mælitækið (The Undergraduate Clinical Education Environment Measure) samanstendur af fjórum undir-kvörðum (26 atriðum). Þeir eru (1) tækifæri til náms og leiðsögn, (2) móttaka nemenda, (3) samskipti og þátttaka á vinnustað, (4) fordómaleysi. Rannsóknir hafa sýnt að þessir þættir skipta miklu máli fyrir upplifun nemenda af gagnsemi náms og líðan á vinnustað. Markmið þessarar rannsóknar var að þýða og aðlaga listann, skoða áreiðanleika og réttmæti hans og kanna hversu gagnlegur íslenski listinn væri til að meta gæði klíníska námsins með því að skoða niðurstöður tveggja nemendahópa í klínísku námi.

Aðferðir

UCEEM-IS listinn var þýddur beint úr sænsku samkvæmt þýðingarferli og lækna- og hjúkrunarfræðinemum (n=1,222) í klínísku námi á vegum Heilbrigðisvísindasviðs HÍ á vor- og haustmisserum 2023 og 2024 boðið að taka þátt í netkönnun. Af þeim svöruðu 375 nemendur. Staðfestandi þáttagreining (CFA) var framkvæmd ásamt tölfræðiprófum sem skoða áreiðanleika og réttmæti mælitækisins. Reiknuð voru meðaltöl og staðalfrávik fyrir alla þátttakendur og síðan gerð sundurliðun eftir deildum.

Niðurstöður

Sex af 26 atriðum voru tekin út þar sem þau mættu ekki skilyrðum staðfestandi þáttagreiningar. Tuttugu atriði þessara fjögurra þátta UCEEM bjuggu yfir mjög góðum innri áreiðanleika, ásamt góðu samleitni-, aðgreiningar- og innihaldsréttmæti. Niðurstöður voru almennt góðar en sýndu þó að leiðbeinendur beggja deilda gætu gert betur varðandi hæfniviðmið klíníska námsins og einnig við að skapa umhverfi þar sem nemendur upplifðu að þeir væru hluti af teymi.

Ályktanir

UCEEM-IS-mælitækið, aðlagað og stytt úr 26 atriðum í 20 atriði, sýndi að gögnin eru áreiðanleg og styðja við réttmæti. Svör þátttakenda gefa skýrar vísbendingar um hvar mikilvægt sé að bregðast við til að efla gæði klínísks náms. Höfundar leggja til að UCEEM-IS verði nýtt reglulega við mat á upplifun nemenda af klínísku námi.

Lykilorð

próffræðilegir eiginleikar, nemar í heilbrigðisvísindum, leiðsögn í klínísku námi, persónuleg ánægja, mat á klínísku námi

HAGNÝTING

RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA

Nýjungar: Sýnt er fram á áreiðanleika og réttmæti gagna í íslenskri þýðingu og aðlögun á mælitæki sem metur upplifun nemenda í heilbrigðisvísindum af námsumhverfi sínu.

Hagnýting: Mælitækið er gagnlegt til reglulegra mælinga á upplifun nemenda á gæðum þess námsumhverfis þar sem nemendur stunda klínískt nám.

Þekking: Mælitækið gefur þeim sem kenna og móta klínískt nám tækifæri til að skoða styrkleika þess námsumhverfis sem hjúkrunarfræðinemar læra í og hvar mætti breyta og bæta.

Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga: Þegar gæði klínísks náms aukast má ætla að útskrifaðir nemendur verði hæfari þegar þeir hefja störf sem fullnuma hjúkrunarfræðingar.

Höfundar

ABIGAIL GROVER SNOOK

sjúkraþjálfari, Ph.D., aðjúnkt1

ÁSTA B. SCHRAM

sálfræðingur, Ph.D. í námssálarfræði, dósent og kennsluþróunarstjóri2

GUÐFINNA BJÖRNSDÓTTIR

sjúkraþjálfari, M.S., verkefnastjóri1

1Námsbraut í sjúkraþjálfun, Háskóli Íslands

2 Heilbrigðisvísindasvið, Háskóli Íslands

UCEEM (Undergraduate Clinical Education Environment Measure) sem mælitæki í íslensku heilbrigðisvísindanámi:

Próffræðileg greining og hagnýting í klínísku vinnuumhverfi

INNGANGUR

Klínískt nám, þar sem nemendur læra með því að starfa með reyndum klínískum leiðbeinendum, er ómissandi þáttur í menntun heilbrigðisvísindanema. Fræðimenn innan klíníska námsumhverfisins tala um að skoða þurfi vel samspil og innbyrðis tengsl nemandans, klíníska leiðbeinandans og aðstæðna á vinnustað (Barrett o.fl., 2021; Plack, 2008; Snowdon o.fl., 2019; Strand o.fl., 2013). Athuga þurfi hvaða þættir ýta undir jákvæða upplifun og hverjar áskoranir nemenda séu. Eftir því sem best er vitað er ekkert staðlað mælitæki til á íslensku til að meta upplifun nemenda í heilbrigðisvísindum af því klíníska umhverfi þar sem nám þeirra fer fram. Mikilvægt er að þróa og innleiða slíkt mælitæki, því gæði náms í klínísku umhverfi getur skipt sköpum fyrir hæfni útskrifaðra nemenda.

Sænska mælitækið UCEEM (The Undergraduate Clinical Education Environment Measure), var þróað sem hluti af doktorsverkefni Piu Strand (Strand, 2017), þar sem hún lýsti andstæðum frásögnum af reynslu læknanema á klínískum vettvangi. Þessi ólíka reynsla læknanemanna snerist oft um félagsmenningarlega þætti vinnustaðarins, svo sem hversu velkomna nemarnir upplifðu sig, hversu sterkt þeim fannst þeir tilheyra hópnum, og hversu vel þeim var leiðbeint, auk þeirra námsmöguleika sem þeim stóðu til boða. Strand (2017) vísar til vinnustaðakenninga þar sem fram kemur að námsumhverfi vinnustaðarins sé frábrugðið og flóknara því umhverfi þar sem bóknám fer fram enda mótað af fjölmörgum aðstæðubundnum breytum sem geta verið kerfislægar, skipulagslegar og menningarlegar (Billett, 2002; Bleakley, 2006). Þar sem einstaklingsmiðaðar aðferðir og nálganir reyndust oft ófullnægjandi varð ljóst að þörf var á sérstöku mælitæki byggðu á námi á klínískum vettvangi (Strand o. fl., 2013).

UCEEM hefur reynst áreiðanlegt og réttmætt við mat á upplifun læknanema af mörgum hliðum klínísks námssamfélags (Strand o.fl., 2013). Sérfræðingar hafa bent á að skoða þurfi fjögur svið þegar klínískt námsumhverfi er metið – persónulegt, félagslegt, skipulagslegt og aðstöðubundið (Irby o.fl., 2021). Að þeirra mati var UCEEM eitt af sex tækjum sem hægt væri að skilgreina sem klínískt miðað mælitæki fyrir námsumhverfi og eitt af tveimur mælitækjum sem náði yfir öll fjögur sviðin (Irby o.fl., 2021; Jones o.fl., 2023). Mælitækið samanstendur af fjórum undirþáttum sem meta 1) tækifæri til náms og gæði leiðsagnar; 2) móttöku nemenda; 3) samskipti og þátttöku á vinnustað og 4) fordómalaus samskipti, óhlutdrægni og jafnræði (Strand o.fl., 2013). Það hefur verið notað til að greina tækifæri til umbóta og til samanburðar milli mismunandi greina innan heilbrigðisvísinda (Sellberg o.fl., 2021; Strand o.fl., 2013). Þótt upphaflega hafi UCEEM verið þróað fyrir læknanema hefur það verið prófað og notað meðal margra annarra heilbrigðisstétta, svo sem geislafræðinema (O'Connor o.fl., 2024), tannlæknanema (Sghaireen o.fl., 2025) og hjúkrunarfræðinema (Xu Y o.fl., 2025; Sharifipour o.fl., 2020). Höfundar rannsóknar meðal hjúkrunarfræðinema komust að þeirri niðurstöðu að mikilvægt væri að vinna að úrbótum á klíníska námsumhverfinu, þar sem slíkar úrbætur styrktu jákvætt samband sjálfstjórnunar í námi og klínískrar hæfni (Vasli og Asadiparvar-Masouleh, 2023). Strand (2013) bendir á að notkun mælitækisins UCEEM sé vel til þess fallið að draga fram styrkleika námsins en niðurstöður leiðbeini einnig varðandi þætti sem mætti styrkja til að byggja upp virkara og gagnlegra námsumhverfi.

Markmið þessarar rannsóknar var tvíþætt: Í fyrsta lagi að þýða og aðlaga sænska spurningalistann, UCEEM, að íslensku námsumhverfi í heilbrigðisvísindum og skoða áreiðanleika og réttmæti UCEEM-IS með þeim gögnum sem safnað var frá nemendum í klínísku námi; í öðru lagi að sýna fram á gagnsemi mælitækisins til að greina jákvæða þætti námsumhverfisins og þá sem þarfnast umbóta, með því að skoða niðurstöður tveggja deilda Heilbrigðisvísindasviðs HÍ. Þótt sænska mælitækið hefði fyrst verið prófað meðal læknanema var ákveðið að fá einnig hjúkrunarfræðinema í hópinn, bæði til að ná nægilega miklum fjölda til tölfræðiprófa og til að afla gagnlegra upplýsinga um nám þeirra enda námsumhverfi beggja hópa að mörgu leyti svipað.

AÐFERÐIR

Rannsóknarsnið

Notuð var þversniðsrannsóknarhönnun. Spurningalistinn var lagður fyrir einu sinni á hverju af fjórum samfelldum misserum (vor og haust 2023 og 2024) hjá nemendum sem voru í klínísku námi. Litið var á gögn hvers misseris sem sjálfstætt þversniðsúrtak nemenda.

UCEEM-listinn (Strand o.fl., 2013), sem var þróaður í Svíþjóð, samanstendur af fjórum þáttum (26 atriðum) og hafa þýðingar listans á fjölmörg tungumál reynst bæði réttmætar og áreiðanlegar (Lund University Libraries, 2025). Fylgt var þýðingarferli þannig að íslenska útgáfan var þýdd beint úr sænsku yfir á íslensku af tveimur tvítyngdum sérfræðingum sem unnu síðan saman að því að samræma íslenska útgáfu (Beaton o.fl., 2000). Að því loknu var UCEEM-IS bakþýddur (af íslensku yfir á sænsku) af tveimur öðrum tvítyngdum sérfræðingum og borinn saman við sænska frumtextann til að tryggja merkingarlegt samræmi. Eftir þýðingu og bakþýðingu var spurningalistinn forprófaður með fjórum sjúkraþjálfunarnemum til að meta skýrleika spurninga og túlkun þeirra. Þátttakendur voru beðnir um að lýsa hvernig þeir skildu hverja spurningu og að leggja til breytingar á orðalagi þar sem þörf var á. Þetta ferli þjónaði sem hugræn forprófun (e. cognitive pretesting) á mælitækinu. Þessi aðferð gefur vísbendingar um réttmæti við þróun og aðlögun mælitækja (American Educational Research Association, American Psychological Association, og National Council on Measurement in Education, 2014). Með hliðsjón af athugasemdum þeirra og eftir samanburð við frumtexta UCEEM var Likert-kvarðanum sem notaður var í upprunalega UCEEM-IS lítillega breytt og eftirfarandi kvarði notaður (með vægisgildum fyrir meðaltalsútreikninga): Mjög ósammála=1, ósammála=2, hlutlaus=3, sammála=4, mjög sammála=5. UCEEMIS er aðgengilegt í viðauka.

Þýði og úrtak Í þýði rannsóknarinnar voru allir hjúkrunarfræði-, sjúkraþjálfunarog læknanemar við Háskóla Íslands sem stunduðu klínískt nám á vor- og haustmisserum 2023 og 2024. Gögn frá sjúkraþjálfunarnemum voru þó ekki tekin með í greininguna, þar sem talið var að klínískt námsumhverfi sjúkraþjálfunarnema væri verulega frábrugðið. Hver sjúkraþjálfunarnemi hefur sinn ákveðna klíníska leiðbeinanda og klínískir leiðbeinendur í sjúkraþjálfun eru launaðir og starfa oft á einkareknum stofum. Þetta er ólíkt aðstæðum hjá hjúkrunarfræði- og læknanemum sem sinna klínísku námi á kennslusjúkrahúsum, þar sem leiðbeinendur eru margir. Samtals voru 1.222 boð send út yfir þessi fjögur misseri til hjúkrunarfræðinema (3. og 4. ár) og læknanema (4. og 5. ár). Úrtaksútreikningur benti til þess að 293 svör væru nauðsynleg til

að ná 95% öryggisstigi með ±5% skekkjumörkum (Adcock, 1997). Svör voru 375.

Framkvæmd könnunar

Könnunin var lögð fyrir í gegnum SurveyMonkey með netföngum sem deildirnar útveguðu. Könnunin stóð opin í einn mánuð á hverju af þessum fjórum misserum og áminningar voru sendar bæði af rannsakendum og viðkomandi deildum. Til að koma í veg fyrir tvítekna þátttöku var aðeins heimilt að svara könnuninni einu sinni fyrir hvert netfang og þeir sem þegar höfðu svarað fengu ekki frekari áminningu.

Siðfræði

Rannsóknin fylgdi íslenskum lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018, í samræmi við leiðbeiningar Persónuverndar (2024), og framkvæmd í samræmi við Helsinki-yfirlýsinguna (World Medical Association, 2024). Alþjóðlegum viðmiðum var fylgt til að tryggja nafnleynd og til að vernda réttindi þátttakenda (Council for International Organizations of Medical Sciences, 2016). Spurningalistinn var sendur til Siðanefndar háskólanna um vísindarannsóknir til skoðunar [SHV2022-066]. Þátttakendur fengu upplýsingar um markmið rannsóknarinnar og þátttaka í rannsókninni gilti sem upplýst samþykki. Líkt og í upprunalega UCEEM höfðu nemendur kost á að tilgreina hvar þeir stunduðu klínískt nám, sem dró úr nafnleynd. Þessar upplýsingar voru þó ekki notaðar við greiningu gagna. Verkefnið hlaut styrk úr Kennslumálasjóði Háskóla Íslands.

Gagnagreining

Tölfræðileg úrvinnsla var framkvæmd með forritinu SAS 9.4. Leitandi þáttagreiningu (e. exploratory factor analysis, EFA) var beitt til að kanna hvort undirliggjandi þáttabygging væri sambærileg við upprunalega útgáfu UCEEM. Skilyrði fyrir innlimun atriða voru að þau sýndu þáttahleðslu sem væri hærri en 0,5 (Stevens, 2009), að þáttahleðslur atriðanna væru ekki álíka sterkar fyrir fleiri en einn þátt og að þáttahleðslurnar væru í samræmi við upprunalega þáttabyggingu UCEEM. Eftir að þessum skilyrðum var mætt voru þau atriði sem eftir stóðu könnuð með staðfestandi þáttagreiningu (e. confirmatory factor analysis; CFA) til að meta áreiðanleika og réttmæti. Þáttahleðslurnar þurftu að vera hærri en 0,5 til að teljast gildar (Stevens, 2009).

Stöðluð fylgni milli þátta (e. standardized factor correlations) var reiknuð til að meta aðgreiningarréttmæti (e. discriminant validity). Samræmi í svörum (e. internal consistency) undirliggjandi þátta í UCEEM-IS-kvarðanum var metið með samsettum áreiðanleika (e. composite reliability; CR) og hugtakaréttmæti (e. construct validity) var metið með skýrðri dreifni (e. average variance extracted; AVE) í samræmi við ráðleggingar fyrir formgerðargreiningu (e. structural equation modeling, SEM) (Fornell & Larcker, 1981).

Brottfall reyndist ekki vandamál þar sem yfir 99% þátttakenda sem kláruðu könnunina svöruðu öllum spurningunum. Reiknuð voru meðaltöl og staðalfrávik fyrir alla þátttakendur og síðan gerð sundurliðun eftir deildum.

NIÐURSTÖÐUR

Lýðfræðilegir þættir

Tafla 1 sýnir lýðfræðilegar upplýsingar um úrtakið sem samanstóð af 375 svörum. Meirihluti þátttakenda var á aldrinum 18 til 34 ára og hlutfall læknanema og hjúkrunarfræðinema var nánast jafnt. Þrátt

fyrir að mikill meirihluti svarenda hafi verið konur, endurspeglar það kynjahlutfallið meðal nemenda í læknisfræði (um 2:1 konur á móti körlum) og í hjúkrunarfræði, þar sem nemendur eru nánast eingöngu kvenkyns. Svarhlutfall læknanema var 37% en svarhlutfall hjúkrunarfræðinema var 25%.

Tafla 1. Lýðfræðilegar upplýsingar LýðfræðiAllsKarlkynKvenkyn3. ár4. ár5. ár

Kyn

Karlkyn 7373073531

Kvenkyn30103019815548

Aldur

18–24 ára16430133559118

25–34 ára18040140408258

35 ára og eldri3022810173

Námsbraut

Læknisfræði17761114 * 9879

Hjúkrunarfræði 1981118510593 * *Á ekki við.

Leitandi þáttagreining (EFA)

Þættir voru dregnir út með meginþáttagreiningu (e. principal components analysis). Fjórir þættir voru hafðir til grundvallar í samræmi við upprunalega þætti UCEEM sem kröfðust eigingildis (e. eigenvalue) yfir 0,9. Hornskökk snúningsaðferð (e. promax) var notuð með hornréttum (e. varimax) forsnúningi til að bæta túlkun. Þáttahleðslur (e. factor loadings) yfir 0,50 voru taldar fullnægjandi (Brown, 2015). Hins vegar voru sumar hleðslur undir 0,50, aðrar hlóðust á fleiri en einn þátt og sumar voru ólíkar þeim þáttum sem upphaflega voru skilgreindir í UCEEM. Af þessum ástæðum voru eftirfarandi atriði undanskilin frá frekari greiningu. Tafla 2 sýnir þessi atriði ásamt skýringum á útilokun þeirra.

mínum.

14 Mér er óhætt að spyrja leiðbeinendur mína um hvað sem er.

15 Í samtali við leiðbeinendur fæ ég tækifæri til að útskýra hvernig ég hugsa. Hlóðst ekki á neinn þátt >0,5 og hlóðst á fleiri en einn þátt >0,3

18 Ég hef tækifæri til að læra með öðrum nemendum. Hlóðst ekki á neinn þátt >0,5

7 Ég er með greiðan aðgang að vinnutölvu. Hlóðst á sérstakan þátt (með #8)

8 Hér er nægilegt rými (pláss) fyrir nemendur í klínísku námi. Hlóðst á sérstakan þátt (með #7)

Staðfestandi þáttagreining (CFA) Til að meta þáttabyggingu þeirra 20 atriða sem eftir stóðu í UCEEM-IS var framkvæmd staðfestandi þáttagreining (CFA) með SAS 9.4. Líkanið byggði á niðurstöðum úr leitandi þáttagreiningunni (EFA) og upphaflegri útgáfu UCEEM. Kaiser-Meyer-Olkin (KMO) mælikvarði á úrtakshæfni var 0,92 sem gefur til kynna mjög góða hæfni úrtaksins. Niðurstöður Bartlett’s prófs fyrir kúlulögun (test

of sphericity) voru marktækar (p <0,001), sem gaf til kynna að fylgni milli atriða væri nægilega mikil.

Líkanið innihélt fjóra dulda þætti (aðlagaða frá upprunalega UCEEM):

• Tækifæri til náms í gegnum klíníska vinnu (7 atriði) (TN)

• Móttaka nemenda og gæði leiðsagnar (6 atriði) (MN)

• Samskipti og þátttaka nemenda á vinnustað (4 atriði) (SV)

• Fordómalaus samskipti, óhlutdrægni og jafnræði (3 atriði) (FS)

Atriðunum var leyft að hlaðast á samsvarandi þætti og undirliggjandi þættir máttu sýna fylgni sín á milli. Hámarkslíkindamati (e. maximum likelihood estimation) var beitt við staðfestandi þáttagreininguna (CFA) til að meta mátgæði líkansins. Ólíkir mátstuðlar (e. fit indices) gáfu til kynna að líkanið félli miðlungi vel (e. moderate fit) til vel (e. good fit) að gögnunum (Hu & Bentler, 1999).

• Chi-Square (χ²)=721,86, df=164, p <0,001

• Comparative Fit Index (CFI): 0,90

• Tucker-Lewis Index (TLI): 0,91

• Root Mean Square Error of Approximation (RMSEA): 0,09

• Standardized Root Mean Square Residual (SRMR): 0,06

Staðlaðar þáttahleðslur (e. standardized factor loadings) voru allar marktækar (p <0,001) og spönnuðu frá 0,66 til 0,89. Öll atriðin voru með þáttahleðslur hærri en 0,7 sem bendir til þess að atriðin séu sterkar birtingarmyndir fyrir viðkomandi undirliggjandi þætti. Sjá töflu 3 fyrir raunverulegar þáttahleðslur. Engar frekari breytingar voru taldar nauðsynlegar til að samræma UCEEM-IS við upprunalega útgáfu UCEEM.

Tafla 3. Staðlaðar þáttahleðslur (n=375)

Staðlaða fylgnifylkið (e. standardized factor correlation matrix) milli þáttanna fjögurra má sjá í fyrstu fimm dálkum töflu 4. Allar fylgnitölur voru marktækar og lægri en 0,85 sem bendir til að þættirnir séu aðgreindir og styður við aðgreiningarréttmæti (e. discriminant validity) (Brown, 2015).

Tafla 4. Fylgni milli þátta, samsettur áreiðanleiki (CR) og skýrð dreifni (AVE)

ÞátturTNMNSV FS Samsettur áreiðanleiki (CR)

Skýrð dreifni (AVE)

TN** 0,91 (mjög góður) 0,58

MN0,80** 0,90 (mjög góður) 0,60

SV0,660,73** 0,88 (góður) 0,65

FS 0,580,620,76** 0,90 (mjög góður) 0,75

TN – tækifæri til náms; MN – móttaka nemenda og leiðsögn; SV – samskipti á vinnustað; FS – fordómalaus samskipti; **sami þáttur.

Áreiðanleiki og réttmæti Í töflu 4 má einnig sjá samsettan áreiðanleika (CR) fyrir hvern kvarða. Þessar tölur gefa til kynna að duldu þættirnir hafi góðan til mjög góðan innri áreiðanleika (e. internal consistency). Tafla 4 sýnir einnig skýrða dreifni (AVE) fyrir hvern kvarða, sem bendir til nægjanlegs (AVE >.5) samleitniréttmætis (e. convergent validity), þar sem hugsmíðin skýrir að minnsta kosti helming breytileika atriðanna.

Innihaldsréttmæti (e. content validity) upprunalegu útgáfunnar (UCEEM) var staðfest í rannsóknum Strand o.fl. (2013) með fræðilegri samantekt, eigindlegri greiningu, og mati á tengingu spurninga við efni og endurgjöf frá hagsmunaaðilum. Rannsóknir þar sem UCEEM var notað á ólíkum tungumálum styrktu einnig innihaldsréttmæti (Lund University Libraries, 2025).

Hugtakaréttmæti (e. construct validity) UCEEM-IS var einnig staðfest með þáttahleðslum sem voru sambærilegar við upprunalega útgáfu UCEEM, góðum til mjög góðum samsettum áreiðanleika (e. composite reliability), aðgreindum (e. divergent) þáttahleðslum (tafla 3), fylgni milli þátta (tafla 4) og ásættanlegum mátgæðum í staðfestandi þáttagreiningu (CFA).

Gagnsemi mælitækisins UCEEM-IS Tafla 5 inniheldur öll atriði, vegin meðaltöl atriða og kvarða ásamt staðalfráviki fyrir þátttakendur í heild en einnig fyrir hvorn hóp fyrir sig. Niðurstöður hjúkrunarfræðinema voru almennt góðar, eða yfir fjórir að meðaltali (sammála) á fimm punkta Likert-skala. Báðir hópar gáfu þættinum fordómalaus samskipti, óhlutdrægni og jafnræði (FS) hæstu einkunn „sammála“ en lægstu einkunnir fengu eftirfarandi tvær staðhæfingar:

• „Ég tek eftir því að leiðbeinendur mínir hafa kynnt sér hæfniviðmiðin“

• „Mér finnst ég vera hluti af starfshópnum hérna.“

Niðurstöðurnar gefa skýrt til kynna að hvaða þáttum mætti vinna til að efla gæði námsins.

UMRÆÐA

Þessi rannsókn var framkvæmd til að bregðast við þörf fyrir mælitæki – byggt á áreiðanlegum gögnum sem styðja við réttmæti – fyrir klínískt námsumhverfi íslenskra heilbrigðisvísindanema.

Tafla 5. Meðaltöl og staðalfrávik atriða og kvarða Niðurstöður deilda

Þættir og atriði M allsSF allsM LNSF LNM HJSF HJ

TN 1 Viðfangsefni mín eru í samræmi við hæfniviðmiðin 3,911,023,761,034,041,00

TN 2 Ég hef nóg af lærdómsríkum viðfangsefnum 3,861,083,741,063,961,10

TN 3 Viðfangsefnin eru hæfilega krefjandi miðað við þekkingu mína og færni 3,960,983,980,893,941,05

TN 4 Ég fæ hvatningu til að taka virkan þátt í starfinu hér 3,831,073,541,084,091,00

TN 5 Hæfni mín til að leysa vandamál eflist á þessum stað 4,070,944,080,804,061,05

TN 6 Ég fæ tækifæri til að nýta fræðilega þekkingu mína á hagnýtan hátt 3,970,993,850,934,091,02

TN 7 Ég finn að ég get haft áhrif á hvernig og/ eða hvað ég læri hérna 3,841,083,701,073,971,07

TN kvarði – tækifæri til náms í og með vinnu 3,920,823,810,734,030,88

MN 1 Ég fékk gagnlega kynningu á staðnum í upphafi 3,861,213,34 1,324,330,88

MN 2 Leiðbeinendur mínir voru undirbúnir fyrir komu mína 3,971,143,611,194,280,99

MN 3 Ég er með leiðbeinanda sem ég get leitað til 3,791,243,231,294,290,95

MN 4 Ég hef nægilega gott aðgengi að leiðsögn 3,991,023,671,074,290,89

MN 5 Leiðbeinendurnir eru vel undirbúnir undir að leiðbeina mér 3,991,033,760,984,191,04

MN 6 Ég tek eftir því að leiðbeinendur mínir hafa kynnt sér hæfniviðmiðin 3,251,332,651,183,801,22

MN kvarði – Móttaka nemenda og leiðsögn 3,810,953,380,924,200,79

SV 1 Starfsfólkið tekur mér vel sem nemanda 4,101,003,841,024,340,91

SV 2 Mér finnst ég vera hluti af starfshópnum hérna 3,201,342,891,273,481,34

SV 3 Ég finn að ég er velkomin(n/ð) á kaffistofunni/í matsalnum 3,971,113,711,194,190,98

SV 4 Samskipti milli starfsfólks eru góð 4,140,894,010,874,260,90

SV kvarði – samskipti á vinnustað og þátttaka nemenda 3,850,933,610,914,070,89

FS 1 Öllum er mætt af sömu vinsemd og virðingu hér, óháð menningarlegum uppruna 4,250,894,020,954,460,77

FS 2 Öllum er mætt af sömu vinsemd og virðingu hér, óháð kynvitund 4,270,874,080,934,440,78

FS 3 Öllum er mætt af sömu vinsemd og virðingu hér, óháð fagstétt 4,011,123,681,214,300,94

FS kvarði – jafnrétti og virðing 4,180,873,930,924,400,77

M-meðaltal; SF-staðalfrávik; LN-læknanemar; HJ-hjúkrunarfræðinemar; TN – tækifæri til náms; MN – móttaka nemenda og leiðsögn ; SV – samskipti á vinnustað; FS – fordómalaus samskipti; Likert kvarði: mjög ósammála=1, ósammála=2, hlutlaus=3, sammála=4, mjög sammála=5.

Niðurstöðurnar benda til þess að UCEEM-IS geti þjónað því hlutverki. Auk þess gefa niðurstöður deilda gagnlegar upplýsingar um upplifun nemenda af klínísku námi og þeim þáttum sem beina þarf athygli að til þess að efla gæði náms, eins og Strand (2013) leggur til.

Erfitt er að meta hversu vel úrtakið endurspeglar þýðið en dreifing kynja í úrtakinu samræmist þó þekktum kynjahlutföllum í læknisfræði og hjúkrunarfræði. Upprunalega útgáfan af UCEEM var einungis prófuð á læknanemum en í þessari rannsókn var UCEEM-IS lagt fyrir læknanema, sjúkraþjálfunarnema og hjúkrunarfræðinema en gögn sjúkraþjálfunarnema ekki notuð af ástæðum sem tilgreindar voru hér að ofan. Heildarfjöldi svara fór fram úr áætlaðri lágmarksúrtaksstærð og samræmdist því viðmiðum í sambærilegum rannsóknum með staðfestandi þáttagreiningu (CFA) (Snook, o,fl., 2019).

Við leitandi þáttagreiningu (EFA) komu fram nokkrar áskoranir sem leiddu til þess að sex atriði voru útilokuð frá frekari greiningu. Fjórum þáttum var haldið til samræmis við upprunalegt UCEEM en tvö atriði mynduðu ítrekað sjálfstæðan þátt, þ.e. hvort aðgengi væri að vinnutölvu og hvort um nægilegt rými væri að ræða fyrir nemendur. Í upprunalega UCEEM voru þessi atriði flokkuð undir kvarða um samskipti á vinnustað, þó að höfundar hafi gert ráð fyrir að þau gætu einnig fallið undir TN-þáttinn (tækifæri til náms) (Strand o.fl., 2013). Það má færa rök fyrir því að miðað við öll þau tæki sem nemendur hafa aðgang að í dag, þá sé aðgangur að vinnutölvum ekki lengur jafn mikilvægur þáttur og þegar UCEEM var þróað og að þessi tvö atriði séu því mjög háð aðstæðum. Atriði 18, sem snýr að því að læra með öðrum nemendum, gæti einnig verið mjög aðstæðubundið, þar sem fjöldi heilbrigðisvísindanema á Íslandi er talsvert minni en í Svíþjóð og skipulag náms ef til vill ólíkt.

Hin þrjú atriðin sem voru útilokuð hlóðust á tvo þætti með þáttahleðslu undir 0,5. Þessi þrjú atriði voru hluti af upprunalega UCEEM-kvarðanum „tækifæri til náms og gæði leiðsagnar“ en hlóðust bæði á þann kvarða og á kvarðann „móttaka nemenda“ (MN) í þessari rannsókn. Fimm af sex fullyrðingum í MN-kvarðanum snúa að sambandi nemanda og leiðbeinanda (sjá töflu 5). Þegar horft er á þau þrjú atriði sem voru útilokuð („fæ gagnlega endurgjöf frá leiðbeinendum“, „óhætt að spyrja leiðbeinendur“ og „ég fæ tækifæri til að útskýra“), þá snúast þau einnig um samband nemanda og leiðbeinanda. Þetta gæti skýrt hvers vegna atriðin hlóðust á báða kvarðana án þess að skýrt væri hvorum þeirra þau tilheyrðu betur. Önnur möguleg skýring er sú að nemendur líti á leiðbeinanda sinn sem miðpunkt námsferlisins á öllum stigum, sem gerir það erfitt að aðgreina upphafsleiðsögn frá áframhaldandi leiðsögn (Salminen o.fl., 2016). Eftir að þessi atriði voru útilokuð var ákveðið að fjarlægja „og leiðsögn“ úr TN-kvarðanum og bæta því við MN-kvarðann, þar sem hann innihélt þegar atriði sem tengjast sambandi nemanda og leiðbeinanda. Þótt þessi atriði hafi verið útilokuð frá kvörðunum er samt mjög mikilvægt að fá svör við þeim. Þau mætti nota sem hluta af UCEEM-IS en ættu ekki að vera hluti af eiginlegum kvarða.

Að þessum atriðum undanskildum, sýndi staðfestandi þáttagreining (CFA) ásættanlega aðlögun og 20 atriðin í UCEEM-IS sýndu góðan til mjög góðan innri áreiðanleika ásamt góðu samleitni-, aðgreiningar- og innihaldsréttmæti (e. content validity). Þetta bendir til þess að atriðin geti nýst til að meta þessa þætti.

Vegin meðaltöl atriða og þátta gefa einnig vísbendingar um hvar þörf er á úrbótum í klínísku námsumhverfi. Fróðlegt er að bera niðurstöður íslenskra hjúkrunarfræðinema saman við niðurstöður hjúkrunarfræðinema í Svíþjóð og Íran. Karimi Mirzanezam (2024) greindi frá nokkuð lágum meðaltalstölum fyrir ýmis atriði hjá hjúkrunarfræðinemum í Íran. Þessar tölur eru lægri en meðaltöl íslenskra hjúkrunarfræðinema fyrir sömu atriði. Mesti munurinn var á fullyrðingunum „Samskipti milli þeirra sem starfa hér eru góð“ og „Mér finnst ég vera hluti af teyminu sem starfar hér“, en þær fengu lægstu meðaltalstölurnar hjá írönskum hjúkrunarfræðinemum. Selberg o.fl. (2021) greindu frá örlítið lægri en að öðru leyti svipuðum meðaltölum hjá sænskum nemendum og komu fram í íslensku niðurstöðunum fyrir bæði lækna- og hjúkrunarfræðinema. Líkt og í íslensku könnuninni voru lægstu meðaltalstölurnar hjá þeim á fullyrðingunni „Það er ljóst að leiðbeinendur mínir þekkja hæfniviðmiðin“. Hins vegar gáfu sænskir hjúkrunarfræðinemar fullyrðingunni „Mér finnst ég vera hluti af teyminu sem starfar hér“ hærri stig en íslenskir hjúkrunarfræðinemar en þessi fullyrðing fékk lægsta meðaltalið hjá þeim. Mikilvægt er að þessir tveir þættir í íslenska hjúkrunarfræðináminu verði bættir. Fyrri rannsóknir í hjúkrunarfræði hafa lagt áherslu á að árangursrík klínísk kennsla krefjist þess að leiðbeinendur hafi góðan skilning á hæfniviðmiðum klínískrar starfsþjálfunar svo þeir geti leiðbeint nemendum í verkefnum þeirra og hjálpað þeim að tengja fræðilega þekkingu við klíníska framkvæmd (Cooke o.fl., 2021; Al-Rawajfah o.fl., 2022). Fyrri rannsóknir á hjúkrunarnámi hafa einnig undirstrikað að sú tilfinning að tilheyra klíníska umhverfinu geti stutt við virkt nám. Rannsóknir hafa sýnt að hjúkrunarfræðinemar sem upplifa að þeir séu hluti af klínísku teymi greini frá jákvæðari námsreynslu og meira sjálfstrausti í klínísku starfi (Levett-Jones & Lathlean, 2008; Levett-Jones o.fl., 2009; Liljedahl o.fl., 2016). Það gæti því stuðlað að frekari umbótum í klínísku námsumhverfi að auka tækifæri nemenda til þátttöku í klínísku teymi og styrkja þá upplifun að þeir séu þar velkomnir.

Íslensku niðurstöðurnar benda til þess að styrkja megi klínískt umhverfi með því að leiðbeinendur tileinki sér betur hæfniviðmið og leitist við að virkja nemendur betur sem hluta af teymi heilbrigðisstarfsfólks.

Rannsóknin hafði nokkrar takmarkanir. Hlutfall kvenna í úrtakinu var mjög hátt sem gæti dregið úr alhæfingargildi gagnanna gagnvart karlkyns nemendum. Einnig er ljóst að betra hefði verið að halda atriðunum sex í mælitækinu en mynstrið var stöðugt yfir öll fjögur misserin. Þótt mælitækið hafi farið í gegnum þýðingu, bakþýðingu og forprófun með nemendum, eins og mælt er með, voru hugræn viðtöl ekki framkvæmd (e. cognitive interviewing). Í framtíðarrannsóknum mætti styrkja ferlið við þvermenningarlega aðlögun með því að skipuleggja hugræn viðtöl til að kanna frekar hvernig svarendur túlka einstök atriði í spurningalistanum (Meadows o.fl., 2025). Loks hefur UCEEM-mælitækið verið gagnrýnt að einhverju leyti í fræðilegum heimildum fyrir að skoða ekki reynsluna sem heild (Irby o.fl., 2021), að vera ekki nægilega næmt fyrir breytileika í klínískum aðstæðum og að það leggi takmarkaða áherslu á þann sálræna og tilfinningalega stuðning sem nemendur þarfnist (Xu o.fl., 2025). Hér væri hægt að gera úrbætur með því að sameina UCEEM öðrum mælitækjum sem tækju inn þessa þætti.

ÁLYKTUN

Höfundar álykta að UCEEM-IS sé gagnlegt mælitæki til að skoða ákveðna þætti í upplifun nemenda af klínísku námsumhverfi. Próffræðileg greining á gögnunum sýnir bæði réttmæti og áreiðanleika. Höfundar leggja til að UCEEM-IS verði notað reglulega til að fylgjast með og bæta klínískt námsumhverfi íslenskra heilbrigðisvísindanema. Þrátt fyrir að aðeins hafi verið notuð úrtök lækna- og hjúkrunarfræðinema í greiningunni er líklegt að aðrar heilbrigðisgreinar, svo sem sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun, geti einnig notið góðs af því að nota UCEEM-IS til að meta og bæta eigið klínískt nám.

ÞAKKARORÐ

Höfundar færa þeim nemendum sem gáfu sér tíma til að taka þátt í rannsókninni bestu þakkir. Sömuleiðis þakka höfundar verkefnastjórum deildanna fyrir veitta aðstoð.

VIÐAUKI

1. Veltu fyrir þér eftirfarandi fullyrðingum og láttu skoðun þína í ljós með því að merkja við það sem þú telur að endurspegli þinn skilning á aðstæðunum í því klíníska námi sem þú ert í núna.

Mjög ósammála Frekar ósammála Hlutlaus Frekar sammála Mjög sammála

Leiðbeinendur mínir voru undirbúnir fyrir komu mína.

Ég hef nóg af lærdómsríkum viðfangsefnum.

Ég fæ hvatningu til að taka virkan þátt í starfinu hér.

Hér er nægilegt rými (pláss) fyrir nemendur í klínísku námi.

Ég hef nægilega gott aðgengi að leiðsögn.

Ég tek eftir því að leiðbeinendur mínir hafa kynnt sér hæfniviðmiðin.

Mér er óhætt að spyrja leiðbeinendur mína um hvað sem er.

Hæfni mín til að leysa vandamál eflist á þessum stað.

Ég hef tækifæri til að læra með öðrum nemendum.

Mér finnst ég vera hluti af starfshópnum hérna.

Samskipti milli starfsfólks eru góð.

Öllum er mætt af sömu vinsemd og virðingu hér, óháð kynvitund.

Ég finn að ég get haft áhrif á hvernig og/eða hvað ég læri hérna.

1. Ef þú hefur einhverjar athugasemdir við þitt klíníska námsumhverfi, þá máttu gjarnan segja frá því hér.

ENGLISH SUMMARY

Cross-Cultural Adaptation of the Undergraduate Clinical Education Environment Measure (UCEEM) and the Psychometric Evaluation of the Icelandic version

doi: 10.33112/th.102.2.1

ABSTRACT

Aim

Clinical placements are a valuable part of health science students‘ education, and their experience is of great importance. The UCEEM (the Undergraduate Clinical Education Environment Measure) consists of 26 items divided into four subscales: 1) opportunities to learn in and through work, including quality of supervision; 2) preparedness for student entry; 3) workplace interaction patterns and student inclusion; and 4) equal treatment. Research has shown that these factors make a significant difference in students‘ perceptions of the usefulness of their studies. The aim of this study was to translate and adapt UCEEM, examine its reliability and validity, and assess the Icelandic measure‘s usefulness in identifying areas for growth.

Methods

After cross-cultural translation/back-translation of the Swedish UCEEM to Icelandic, medical and nursing students at the University of Iceland (n=1,222) during four different semesters (2023-2024) were invited to participate, of which 375 answered the online survey. Confirmatory factor analysis (CFA) was performed along with tests for reliability and validity. For all items and scales, averages and standard deviations were calculated for all participants and then split by department.

Results

Six of the 26 items were excluded because they did not meet the CFA inclusion criteria. The remaining 20 items, with four scales, showed good to excellent internal consistency and good convergent, discriminant, and content validity. Both medical and

nursing environments could benefit if supervisors familiarized themselves with the learning objectives and included students as part of the healthcare team.

Conclusions

The data from the UCEEM-IS, modified to include 20 items, was found to have good to excellent internal consistency and good validity. Respondent data clearly indicated where improvements were needed. The authors suggest that the UCEEM-IS be administered regularly to students to monitor and improve the clinical learning environment.

Keywords

psychometrics, health occupation students, preceptorship, personal satisfaction, program evaluation

Correspondence

astabryndis@hi.is

HEIMILDIR

Adcock, C. J. (1997). Sample size determination: A review. Journal of the Royal Statistical Society: Series D (The Statistician), 46(2), 261–283. https://doi.org/10.1111/1467-9884.00082

Al-Rawajfah, O. M., Al Hadid, L., Madhavanprabhakaran, G. K., Alhyari, R. og Alshraideh, J. (2022). Predictors of effective clinical teaching: Nursing educators’ perspective. BMC Nursing, 21, 55. https://doi.org/10.1186/s12912-022-00836-y

American Educational Research Association, American Psychological Association of National Council on Measurement in Education. (2014). Standards for educational and psychological testing

Barrett, E. M., Belton, A. og Alpine, L. M. (2021). Supervision models in physiotherapy practice education: Student and practice educator evaluations. Physiotherapy Theory and Practice, 37, 1185–1198. https://doi.org/10.1080/09593985.2019.1692393

Beaton, D. E., Bombardier, C., Guillemin, F. og Ferraz, M. B. (2000). Guidelines for the process of cross-cultural adaptation of self-report measures. Spine, 25(24), 3186–3191. https://doi.org/10.1097/00007632-200012150-00014

Billett, S. (2002). Workplace pedagogic practices: Co-participation and learning. British Journal of Educational Studies, 50(4), 457–481. https://doi.org/10.1111/1467-8527.t01-2-00214

Bleakley, A. (2006). Broadening conceptions of learning in medical education: The message from teamworking. Medical Education, 40(2), 150–157. https://doi. org/10.1111/j.1365-2929.2005.02371.x

Brown, T. A. (2015). Confirmatory factor analysis for applied research (2. útg.). Guilford Press. Cooke, J., Greenway, K. og Schutz, S. (2021). Learning from nursing students’ experiences and perceptions of their clinical placements in nursing homes: An integrative literature review. Nurse Education Today, 100, 104857. https://doi.org/10.1016/j.nedt.2021.104857

Council for International Organizations of Medical Sciences. (2016). International ethical guidelines for health-related research involving humans (4. útg.).

Fornell, C. og Larcker, D. F. (1981). Evaluating structural equation models with unobservable variables and measurement error. Journal of Marketing Research, 18(1), 39–50. https://doi.org/10.2307/3151312

Hu, L. og Bentler, P. M. (1999). Cutoff criteria for fit indexes in covariance structure analysis: Conventional criteria versus new alternatives. Structural Equation Modeling, 6(1), 1–55. https://doi.org/10.1080/10705519909540118

Irby, D. M., O’Brien, B. C., Stenfors, T. og Palmgren, P. J. (2021). Selecting instruments for measuring the clinical learning environment of medical education: A four-domain framework. Academic Medicine, 96(2), 218–225. https://doi.org/10.1097/

ACM.0000000000003551

Jones, A., Hartley, J. og Jones, N. (2023). Validity of the UCEEM in use: How does it triangulate with qualitative data in measuring the effect of an educational intervention? Journal of Medical Education and Curricular Development, 10, 23821205231202335. https://doi.org/10.1177/23821205231202335

Karimi Mirzanezam, A., Ghahramanian, A., Ghafourifard, M., Davoodi, A., Bagheriyeh, F., og Hajieskandar, A. (2024). Nursing students’ perception of the clinical learning environment and its impact on academic adjustment: A cross-sectional descriptive study. BMC Medical Education, 24, 1543. https://doi.org/10.1186/s12909-024-06562-0

Levett-Jones, T. og Lathlean, J. (2008). Belongingness: A prerequisite for nursing students’ clinical learning. Nurse Education in Practice, 8(2), 103–111. https://doi.org/10.1016/j.nepr.2007.04.003

Levett-Jones, T., Lathlean, J., Higgins, I. og McMillan, M. (2009). Staff–student relationships and their impact on nursing students’ belongingness and learning. Journal of Advanced Nursing, 65(2), 316–324. https://doi.org/10.1111/j.1365-2648.2008.04865.x

Liljedahl, M., Björck, E., Kalén, S., Ponzer, S. og Bolander Laksov, K. (2016). To belong or not to belong: Nursing students’ interactions with clinical learning environments. BMC Medical Education, 16, 197. https://doi.org/10.1186/s12909-016-0721-2

Lund University Libraries. (2025). UCEEM – Reports of the use of UCEEM from the following universities and countries. Sótt á https://libguides.lub.lu.se/UCEEM

Meadows, K. A., Ferrante, N. og Geršić, T. (2025). Cognitive interviews: Recommendations for best practices in clinical outcome assessment (COA) measure development and validation. The Patient, 18(6), 609–621. https://doi.org/10.1007/s40271-025-00752-8

O’Connor, M. og McNulty, J. P. (2024). Radiography students’ viewpoints of the clinical learning environment: A cross-sectional study. Radiography, 30(1), 367–374. https://doi.org/10.1016/j.radi.2023.12.005

Plack, M. M. (2008). The learning triad: Potential barriers and supports to learning in the physical therapy clinical environment. Journal of Physical Therapy Education, 22(3), 7–18. https://doi.org/10.1097/00001416-200810000-00002

Salminen, H., Öhman, E. og Stenfors-Hayes, T. (2016). Medical students’ feedback regarding their clinical learning environment in primary healthcare: A qualitative study. BMC Medical Education, 16, 313. https://doi.org/10.1186/s12909-016-0837-4

Sellberg, M., Palmgren, P. J. og Möller, R. (2021). A cross-sectional study of clinical learning environments across four undergraduate programs using the undergraduate clinical education environment measure. BMC Medical Education, 21, 258. https://doi.org/10.1186/s12909-021-02687-8

Sghaireen, M. G., Kanwal, H., Shah, S. A., Bader, A. K., Almaeen, S. H., Khan, Z. A., Issrani, R. og Prabhu, N. (2025). Undergraduate clinical education environment measure (UCEEM) of a dental program in Jouf University and Qassim University: A bi-institutional study. Work, 81(2), 2553–2562. https://doi.org/10.1177/10519815241311753

Sharifipour, F., Heydarpour, S. og Salari, N. (2020). Nursing and midwifery students’ viewpoints of clinical learning environment: A cross-sectional study. Advances in Medical Education and Practice, 11, 447–454. https://doi.org/10.2147/AMEP.S253782

Snook, A. G., Schram, A. B., Jones, B. D. og Sveinsson, T. (2019). Factors predicting identity as educators and openness to improve: An exploratory study. Medical Education, 53, 788–798. https://doi.org/10.1111/medu.13909

Snowdon, D. A., Sargent, M., Williams, C. M., Maloney, S., Caspers, K. og Taylor, N. F. (2019). Effective clinical supervision of allied health professionals: A mixed methods study. BMC Health Services Research, 20(1), 2. https://doi.org/10.1186/s12913-019-4873-8

Strand, P. (2017). Situating faculty development in the clinical workplace [Doktorsritgerð, Lund University]. Lund University Faculty of Medicine.

Strand, P., Sjöborg, K., Stalmeijer, R., Wichmann-Hansen, G., Jakobsson, U. og Edgren, G. (2013). Development and psychometric evaluation of the undergraduate clinical education environment measure (UCEEM). Medical Teacher, 35(12), 1014–1026. https://doi.org/10.3109/0142159X.2013.835389

Stevens, J. P. (2009). Applied multivariate statistics for the social sciences (5. útg.). Routledge. Vasli, P. og Asadiparvar-Masouleh, H. (2023). Self-directed learning and clinical competence: The mediating role of the clinical learning environment. Journal of Taibah University Medical Sciences, 19(2), 221–232. https://doi.org/10.1016/j.jtumed.2023.11.004

World Medical Association. (2024). WMA declaration of Helsinki – Ethical principles for medical research involving human participants. Sótt á https://www.wma.net/policies-post/ wma-declaration-of-helsinki/

Xu, Y., Wang, Q. og Wei, Q. (2025). Research progress of measuring tools for nursing students’ clinical learning environment. Frontiers in Medicine, 12, 1458823. https://doi.org/10.3389/fmed.2025.1458823

Snemmbær hreyfing sjúklinga á gjörgæsludeild: Hraðsamantekt á eigindlegum rannsóknum um hvetjandi og hindrandi þætti frá sjónarhorni hjúkrunarfræðinga

doi: 10.33112/th.102.2.2

ÚTDRÁTTUR

Tilgangur

Að lýsa reynslu hjúkrunarfræðinga af framkvæmd snemmbærrar hreyfingar sjúklinga á gjörgæsludeildum. Snemmbær hreyfing er lykilþáttur í endurhæfingu og langtímalífsgæðum gjörgæslusjúklinga en framkvæmd hennar í klínísku starfi getur verið flókin. Mikilvægt er því að greina þætti sem hvetja og hindra framkvæmd hennar.

Aðferð

Hraðsamantekt var framkvæmd í samræmi við leiðbeiningar Cochranestofnunarinnar. Gagnaúrvinnsla byggðist á samþættri heildarmynd (e. meta-aggregation) samkvæmt aðferðafræði Joanna Briggs-stofnunarinnar. Aðleiðsla var notuð við greiningu gagna. Leitað var í rafrænum gagnagrunnum (CINAHL, PubMed, Scopus, Web of Science og Leitir.is) án tímamarka og var leitin síðast uppfærð í janúar 2025. Tveir rýnar mátu gæði rannsóknanna og unnu sameiginlega að samþættingu gagna. Gögnum var raðað eftir innihaldi og þeim lýst með orðum (e. narrative) og í töflu sem gerði kleift að greina samspil hvetjandi og hindrandi þátta.

Niðurstöður

Tólf eigindlegar rannsóknir uppfylltu inntökuskilyrðin. Alls voru 217 hvetjandi og 242 hindrandi þættir. Þættirnir sameinuðust í eitt meginþema: „Áhrif einstaklingsbundinna, faglegra og skipulagslegra þátta á framkvæmd snemmbærrar hreyfingar“, með fjórum undirþemum: (a) Einstaklingsbundnir þættir – innri trú og viðhorf sem drifkraftur; (b) Fræðsla og ytri hvatning – aðgangur að þekkingu og fyrirmyndum; (c) Skipulagsþættir og umhverfi – samhæfing, verklag og aðstæður sem mótandi afl og (d) Samskiptamynstur og samvinna – teymisvinna og þátttaka sjúklinga og aðstandenda.

Ályktanir

Framkvæmd snemmbærrar hreyfingar á gjörgæsludeildum ræðst af fjölmörgum einstaklingsbundnum, faglegum og skipulagslegum þáttum í klínísku starfi hjúkrunarfræðinga. Draga má úr hindrunum með markvissri fræðslu, þjálfun starfsfólks og skýrri stefnu í hjúkrun gjörgæslusjúklinga. Framsetning á hvetjandi og hindrandi þáttum getur verið gagnleg til að styðja árangursríka framkvæmd snemmbærar hreyfingar gjörgæslusjúklinga í klínísku starfi hjúkrunarfræðinga.

Lykilorð snemmbær hreyfing, gjörgæsla, hjúkrun, hvetjandi, hindrandi, eigindlegar rannsóknir

HAGNÝTING

RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA „Hvers vegna ættir þú að lesa þessa grein?“

Greinin er fyrsta eigindlega hraðsamantektin sem varpar ljósi á sjónarhorn hjúkrunarfræðinga á snemmbæra hreyfingu sjúklinga á gjörgæsludeild. Fram kemur hvernig trú og viðhorf, fræðsla og þjálfun, skipulag, umhverfi og þverfagleg samvinna fléttast saman og ráða framkvæmd snemmbærrar hreyfingar. Niðurstöðurnar má hagnýta í þróun klínískra leiðbeininga, verkferla og markvissrar fræðslu á gjörgæsludeildum. Rannsóknin styrkir leiðtogahlutverk hjúkrunar við innleiðingu gagnreyndra meðferða og getur aukið faglegt öryggi og samræmi í hjúkrun gjörgæslusjúklinga. Að lokum koma fram umbótatækifæri til að brúa bilið milli þekkingar og framkvæmdar sem styðja bata og auka lífsgæði gjörgæslusjúklinga.

Höfundar

BIRNA ÁSGEIRSDÓTTIR

hjúkrunarfræðingur, M.S. 1

MARIANNE ELISABETH KLINKE

sérfræðingur í hjúkrun, Ph.D., prófessor 2,3

RANNVEIG J. JÓNASDÓTTIR

sérfræðingur í hjúkrun, Ph.D., dósent 2,3

1Sjúkrahúsið á Akureyri

2Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands

3Landspítali

Snemmbær hreyfing sjúklinga á gjörgæsludeild: Hraðasamantekt á eigindlegum rannsóknum um hvetjandi og hindrandi

þætti

frá sjónarhorni

hjúkrunarfræðinga

INNGANGUR

Örar framfarir á sviði vísinda, tækni og umönnunar hafa leitt til aukinnar lifunar einstaklinga eftir alvarleg veikindi á gjörgæsludeild (Chander o.fl., 2023; Clarissa o.fl., 2019). Lifun ein og sér er þó ekki nægjanlegur mælikvarði á árangur meðferðar. Mikilvægt er að beina sjónum að lífsgæðum gjörgæslusjúklinga, þar sem margir þeirra glíma við langvarandi líkamlega, sálræna og félagslega fylgikvilla eftir útskrift af gjörgæsludeild (Clarissa o.fl., 2019; Flaws o.fl., 2024; Gravante o.fl., 2024; Voiriot o.fl., 2022). Rannsóknir sýna að snemmbær hreyfing, getur dregið úr þessum fylgikvillum, hraðað bataferlinu og stuðlað að bættum lífsgæðum til lengri tíma (Clarissa o.fl., 2019; Wang o.fl., 2020).

Þrátt fyrir þróun í tækni og læknisfræðilegri meðferð standa fagaðilar enn frammi fyrir áskorunum sem snúa að langtímaafleiðingum gjörgæslumeðferðar (Voiriot o.fl., 2022; Maley og Mikkelsen, 2020). Rannsóknir benda til þess að endurhæfing gjörgæslusjúklinga þurfi að hefjast snemma til að hámarka batalíkur þeirra (Vollman o.fl., 2024; Wang o.fl., 20204; Zhang o.fl., 2022). Ýmis inngrip, svo sem þátttaka aðstandenda í meðferð og snemmbær hreyfing, hafa sýnt jákvæð áhrif á meðvitund, líðan og virkni sjúklinga (Cussen o.fl., 2024; Muawanah og Sulastri, 2023; Vollman o.fl., 2024). Snemmbær hreyfing getur nýst mörgum sjúklingum á gjörgæsludeildum en sjúklingar glíma margir hverjir við skerta hreyfigetu vegna alvarlegs líkamlegs ástands síns (Verceles og Hager, 2015; Wang o.fl., 2020). Snemmbær hreyfing getur einnig dregið úr líkum á alvarlegum fylgikvillum, eins og gjörgæslumáttminnkun, öndunarvélartengdri lungnabólgu og langvarandi öndunarvélarstuðningi, blóðsegamyndun, þrýstingsskaða, lengri legutíma og skertum lífsgæðum (Clarissa o.fl., 2019; Vollman o.fl., 2024; Wang o.fl., 2020; Zhang o.fl., 2022). Jafnframt getur snemmbær hreyfing aukið vöðvastyrk og göngustyrk og dregið úr endurinnlögnum innan sex mánaða frá gjörgæsluútskrift (Tipping o.fl., 2017). Snemmbær hreyfing ætti því að vera samþættur hluti af meðferð og hafa sama vægi og önnur meðferð sem veitt er sjúklingum á gjörgæsludeild (Bunzel o.fl., 2020). Það sem skilgreinir snemmbæra hreyfingu eru allar þær óvirku eða virku hreyfingar sem framkvæmdar eru fyrir eða með sjúklingi og hefjast innan 72 klukkustunda frá gjörgæsluinnlögn eða um leið og lífeðlisfræðilegt ástand sjúklings leyfir (Clarissa o.fl., 2019; Lee o.fl., 2025; Matsuoka o.fl., 2023; Tipping o.fl., 2017).

Snemmbær hreyfing er þó flókið meðferðarúrræði sem krefst samvinnu nokkurra faghópa og innleiðing hennar er oft vandasöm og háð fjölmörgum hindrunum svo sem alvarleika veikinda sjúklinga, skorti á mannafla og búnaði, óöryggi og skorti á fræðslu til starfsfólks og óskýrum verkferlum. Menning deildar og teymisvinna, þar á meðal leiðtogahlutverk, þverfagleg samskipti og stuðningur stjórnenda, hafa einnig áhrif (Hodgson o.fl., 2018; Sui

o.fl., 2024; Wang o.fl., 2020; Zhang o.fl., 2022). Hjúkrunarfræðingar gegna lykilhlutverki í að skipuleggja, framkvæma og meta árangur snemmbærrar hreyfingar. Viðhorf þeirra, reynsla og faglegt innsæi geta haft afgerandi áhrif á hvort og hvernig slík hreyfing er innleidd (Lee o.fl., 2025; Nobahar o.fl., 2023). Nauðsynlegt er því að greina þætti sem styðja eða hindra framkvæmd snemmbærrar hreyfingar, ekki síst í ljósi þess að hjúkrunarfræðingar eru í lykilstöðu til að leiða verklagsbreytingar.

Til að snemmbær hreyfing verði varanleg meðferð fyrir sjúklinga á gjörgæsludeild, þarf að vinna með þessa áhersluþætti samtímis, bæði í klínísku starfi og á sviði stefnumótunar og fræðslu. Þess vegna er brýnt að greina og skilja hindranir og hvetjandi þætti sem hjúkrunarfræðingar upplifa í tengslum við snemmbæra hreyfingu sjúklinga á gjörgæsludeild. Eigindleg nálgun getur veitt djúpa innsýn í þetta flókna samhengi og varpað ljósi á umbótatækifæri sem styðja við örugga, skilvirka og sjúklingamiðaða framkvæmd. Rannsóknarspurning hraðsamantektarinnar er: Hver eru viðhorf og reynsla hjúkrunarfræðinga af framkvæmd snemmbærrar hreyfingar hjá sjúklingum á gjörgæsludeild og hvaða þættir hafa áhrif á framkvæmdina og skilning þeirra á eigin hlutverki samkvæmt eigindlegum rannsóknum?

Rannsóknin byggir einnig á eftirfarandi undirspurningum:

• Hvaða einstaklingsbundnu þættir hafa áhrif á viðhorf hjúkrunarfræðinga til snemmbærrar hreyfingar?

• Hvaða samskiptatengdu þættir hafa áhrif á viðhorf hjúkrunarfræðinga til snemmbærrar hreyfingar?

• Hvaða stofnanatengdu og umhverfislegu þættir hafa áhrif á viðhorf hjúkrunarfræðinga til snemmbærrar hreyfingar?

• Hvaða siðferðislegu og menningartengdu þættir hafa áhrif á viðhorf hjúkrunarfræðinga til snemmbærrar hreyfingar?

AÐFERÐ

Rannsóknarsnið

Hraðsamantekt (e. rapid review) var notuð til að greina viðhorf og reynslu hjúkrunarfræðinga til snemmbærrar hreyfingar.

Hraðsamantekt byggir á sömu meginforsendum og kerfisbundnar fræðilegar samantektir en er framkvæmd innan styttri tímaramma og með markvissari aðferðafræðilegri afmörkun (Garritty o.fl., 2021). Slík nálgun var talin viðeigandi þar sem markmiðið beindist að því að draga saman gagnlega og tímabæra klíníska þekkingu. Aðferðin byggðist á leiðbeiningum Cochrane Rapid Reviews Methods Group (Garritty o.fl., 2021), en við eigindlega samþættingu niðurstaðna og gæðamat var stuðst við aðferðafræði Joanna Briggs Institute (JBI) um samþætta heildarmynd (meta-aggregation) (Lockwood o.fl., 2015). Við framsetningu samantektarinnar var stuðst við PRISMA (Preferred Reporting Items for Systematic Reviews and Meta-Analyses) til að tryggja gagnsæi í framsetningu efnisins (Page o.fl., 2021).

Gagnasöfnun

Framkvæmd var kerfisbundin leit í gagnagrunnunum CINAHL, Leitir. is, PubMed, Scopus og Web of Science, án tímamarka og síðast uppfærð 30. janúar 2025. Átta lykilgreinar fundust við upphafsleit og voru nýttar til að hanna sérsniðna leitaraðferð í gagnasöfnunum. Leitarstrengir voru þróaðir með aðstoð frá bókasafnsfræðingi og aðlagaðir að hverju gagnasafni með því markmiði að ná yfir lykilhugtökin „early mobilizasion“ „early ambulation“ og „intensive care unit“. Ekki reyndist unnt að bæta við hugtökunum „qualitative“

eða „experience“ þar sem þau takmörkuðu leitina of mikið. Gætt var að því að tveir rannsakendur kæmust að sömu niðurstöðum við notkun leitastrengjanna (BÁ, MEK). Tafla 1 sýnir yfirlit yfir leitarstrengi í gagnasöfnunum.

Tafla 1. Yfirlit yfir leitarstrengi í gagnasöfnum

Gagnagrunnur

Leitarorð Niðurstöður

PubMed MESH leitarorð: „intensive care unit“ AND „early ambulation“ 449 greinar

CINAHL

Web of Science

Scopus

Leitir.is

„intensive care unit“ AND „early mobilization“ AND „early ambulation“ 435 greinar

„intensive care unit“ AND „early mobilization“ AND „early ambulation“ 148 greinar

„intensive care unit“ AND „early mobilization“ AND „early ambulation“ 660 greinar

„intensive care unit“ AND „early mobilization“ AND „early ambulation“ 457 greinar

Alls 2.149 greinar

Leitin var afmörkuð við rannsóknir á ensku eða tungumálum Norðurlanda, birtum í ritrýndum tímaritum og nýttu IMRaD -uppsetningu (e. Introduction, Methods, Results and Discussion). Inntöku- og útilokunarskilyrðum var fylgt samkvæmt SPIDER (e. Sample, Phenomenon of Interest, Design, Evaluation og Research type) (Korstjens og Moser, 2017):

• Úrtak (S=Sample): Hjúkrunarfræðingar sem störfuðu á gjörgæsludeild. Viðhorf sjúklinga og aðstandenda voru einnig tekin til greina ef þau höfðu skírskotun í hjúkrun.

• Viðfangsefni (Pi=Phenomenon of Interest): Samantektin beindist að reynslu og viðhorfum hjúkrunarfræðinga til snemmbærar hreyfingar sem hófst innan 72 klukkustunda frá innlögn sjúklings á gjörgæsludeild fullorðinna. Útilokaðar voru rannsóknir sem fjölluðu um snemmbæra hreyfingu í COVID-19 faraldrinum, sérstaka sjúkdómahópa eða sértækar aðstæður, svo sem heila- og taugasjúklinga eða hreyfingu sjúklinga í hjartaog lungnavél (ECMO).

• Rannsóknarsnið (D=Design): Öll eigindleg rannsóknarsnið. Frumrannsóknir með blönduðum aðferðum voru einnig teknar til greina, að því gefnu að eigindlegi hlutinn væri aðgreindur og veitti dýpri innsýn í viðfangsefnið. Rannsóknir sem voru framkvæmdar í heilbrigðiskerfum eða umhverfi sem verulega skáru sig frá vestrænum kerfum og höfðu takmarkað yfirfærslugildi á íslenskar aðstæður, voru útilokaðar. Engin tímamörk voru sett á birtingu greina.

• Mat á niðurstöðum (E=Evaluation): Greiningin var byggð á samþættingu með orðum og þemagreiningu (e. Narrative synthesis) og lýsir reynslu, viðhorfi, samhengi (s.s. umhverfi, stjórnun og fræðslu) og hvetjandi og hindrandi þáttum sem höfðu áhrif á hjúkrunarfræðinga þegar þeir hugsa um snemmbæra hreyfingu sjúklinga á gjörgæsludeild.

• Rannsóknartegund (R=Research type): Hraðsamantekt og samþætting af eigindlegum frumrannsóknum.

Val á rannsóknum og gæðamat

Skimun á titli, útdrætti og heildartexta greina var framkvæmd af tveim aðilum (BÁ, MEK).

Til að leggja mat á gæði rannsóknanna og mögulegar aðferðafræðilegar skekkjur var notað matstæki fyrir eigindlegar rannsóknir frá JBI (e. critical appraisal checklist for qualitative studies), sem

samanstendur af 10 matsþáttum (Lockwood o.fl., 2015). Engar rannsóknir voru útilokaðar út frá gæðamati en matið hafði áhrif á túlkun rannsóknanna og vægi niðurstaðna. Ef ósamræmi kom upp í skimun eða niðurstöðum gæðamats voru niðurstöðurnar ræddar ítarlega við þriðja aðila (RJJ) þar til komist var að sameiginlegri niðurstöðu.

Gagnagreining

Við úrvinnslu gagna var fylgt þriggja þrepa nálgun JBI við eigindlega samþættingu (meta-aggregation) (Lockwood o.fl., 2015). Nálgunin gerði kleift að greina sameiginlega og ólíka þætti milli rannsóknanna án þess að raska upprunalegu samhengi (Porritt o.fl., 2024).

Þriggja þrepa nálgun JBI var eftirfarandi:

1. Frumvinnsla niðurstaðna: Mikilvægir þættir í hverri rannsókn voru dregnir fram og kóðaðir sem hvetjandi eða hindrandi.

2. Flokkun: Svipaðar niðurstöður voru sameinaðar í yfirflokka sem endurspegluðu endurtekin mynstur, bæði hvetjandi og hindrandi.

3. Samþætting: Yfirflokkar voru sameinaðir í heildstæðar niðurstöður og var lýst með orðum og bornar saman við frumheimildir. Lokaniðurstöður voru yfirfarnar af öllum höfundum.

NIÐURSTÖÐUR

Niðurstöður leitar

Heimildaleitin skilaði 2.149 greinum. Eftir skimun titla voru 409 greinar teknar til nánara mats, 168 tvítekningar fjarlægðar og 241 grein var þá eftir. Mat á útdrætti þeirra leiddi til þess að 32 greinar voru lesnar í heild sinni auk einnar viðbótargreinar. Að lokum uppfylltu 12 greinar inntökuskilyrðin. Yfirlit leitarferlisins kemur fram á mynd 1.

Prisma – flæðirit yfir heimildaleit

Heimildir fundnar í:

PubMed (n=449)

Chinal (n=435)

Web of Science (n=148)

Scopus (n=660)

Leitir.is (n=457)

Samtals greinar = 2.149

Titlar skimaðir:

PubMed (n=54)

Chinal (n=93)

Web of Science (n=18)

Scopus (n=164)

Leitir.is (n=80)

Samtals greinar = 409

Útdrættir lesnir (n=241)

Heildartexti lesinn ítarlega (n=32)

Greinar teknar með í samantekt (n=12)

Rannsóknirnar voru framkvæmdar í Bretlandi (n=3), Ástralíu (n=3), Bandaríkjunum (n=2), Kanada (n=1), Danmörku (n=1), Kína (n=1) og Singapore (n=1). Samtals voru 307 þátttakendur í rannsóknunum, þar af 170 hjúkrunarfræðingar. Þrjár voru rýnihóparannsóknir, ein blönduð rýnihópa- og hálfstöðluð viðtöl, ein spurningakönnun með opnum spurningum og sjö rannsóknir með hálfstöðluðum viðtölum. Sjá töflu 2 um yfirlit rannsóknanna.

Tafla 2. Yfirlit rannsókna í hraðsamantektinni (N=12)

Anekwe o.fl., 2020 Kanada

Barber o.fl., 2015 Ástralía

Boehm o.fl., 2021 Bandaríkin

Chaplin og McLuskey, 2020 Bretland

Curtis og Irwin, 2017 Bretland

Skoða hindrandi og hvetjandi þætti við innleiðingu snemmbærrar hreyfingu

Eakin o.fl., 2015 Bandaríkin

Goddard o.fl., 2018 Ástralía

Jiang ofl., 2022 Kína

Tvítekningar innan og milli gagnagrunna fjarlægðar (n=168)

Útdráttur uppfyllir ekki viðmið rannsóknar (n=209)

Heimildartexti útilokaður: (n=20) Þar af:

Grein ekki aðgengileg (n=1)

Sjónarhorn sjúklings (n=10)

Sértæk meðferð (n=4)

Frábrugðnar aðstæður (n=1)

Sjónarhorn aðstandenda (n=1)

Innleiðing á verkferli (n=2) Mat á eftirliti (n=1)

Lehmkuhl o.fl., 2024. Danmörk

Liew, o.fl., 2021 Singapore

Mukpradab, o.fl., 2023 Ástralía

33 (18 hjfr*, 6 sjþj, 3 öþj, 6 læk) Rýnihópar

Finna hvetjandi og hindrandi þætti varðandi snemmbæra hreyfingu 25 (6 hjfr, 7 sjþj, 12 læk) Rýnihópar

Kanna viðhorf þvegfaglegra starfsstétta til snemmbærar hreyfingar

95 (63 hjfr, 9 sjli, 6 sjþj, 17 öþj)

Spurningakönnun með opnum spurningum

Kanna ákvörðunartöku hjúkrunarfræðinga um hreyfingu og þættir sem hafa áhrif á hana 12 (hjfr)Hálfstöðluð viðtöl

Kanna upplifun hjúkrunarfræðinga á snemmbærri hreyfingu 8 (hjfr)Hálfstöðluð viðtöl

Markmiðið var að lýsa frá sjónarhorni þvergfaglegs teymis hvernig eigi að innleiða og viðhalda árangursríkri endurhæfingaráætlun

Kanna hindrandi og hvetjandi þætti sem hafa áhrif á snemmbæra endurhæfingu/ hreyfingu

40 (10 hjfr, 10 sjþj, 10 öþj, 10 læk)

Hálfstöðluð viðtöl

20 (5 hjfr, 6 sjþj, 1 öþj, 6 læk, 2 aðrir)

Hálfstöðluð viðtöl

Kanna þekkingu og viðhorf nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga til snemmbærar hreyfingar 15 (hjfr)Hálfstöðluð viðtöl

Kanna framkvæmd hreyfingar hjá sjúklingum, með meðvitund og ífarandi öndunarvélarstuðning og samspil sjúklinga, hjúkrunarfræðinga og sjúkraþjálfara

10 (4 hjfr, 6 sjþj)

Hálfstöðluð viðtöl og rýnihópaviðtöl

Kanna upplifun hjúkrunarfræðinga á snemmbærri hreyfingu 13 (hjfr)Rýnihópaviðtöl

Kanna upplifun heilbrigðisstarfsfólks á þátttöku fjölskyldu í snemmbærri hreyfingu

Woodbridge, o.fl., 2023 Bretland

Kanna upplifun sjúklinga, ættingja/ umönnunaraðila og lækna á hindrunum fyrir snemmbærri hreyfingu

20 (11 hjfr, 5 sjþj, 4 læk)

16 (5 hjfr, 7 sjþj, 4 læk)

Hálfstöðluð viðtöl

Hálfstöðluð viðtöl

*hjfr: hjúkrunarfræðingar; læk: læknar; sjli: sjúkarliðar; sjþj: sjúkraþjálfarar; öþj: öndunarþjálfarar.

Samþykki
Auðkenning
Skimun

Samþætting niðurstaðna

Samtals voru borin kennsl á 459 hvetjandi (n=217) og hindrandi (n=242) þætti, sem flestir komu fram í Anekwe o.fl. (2020) og Woodbridge o.fl. (2023), sjá nánar töflu 3.

Tafla 3. Fjöldi hvetjandi og hindrandi þátta í rannsóknum hraðsamantektarinnar

Rannsóknagreinar Fjöldi hvetjandi þátta Fjöldi hindrandi þátta Heildarfjöldi hvetjandi og hindrandi þátta

Anekwe o.fl.,2020 32 43 75

Barber o.fl., 2015 15 16 31

Boheim o.fl., 202113 16 29

Chapling og McLuskey, 2020 5 18 23

Curtis og Irwin, 2017 11 19 30

Eakin o.fl., 2015 31 7 38

Goddard o.fl., 201816 17 33

Jiang o.fl., 2022 9 17 26

Lehmkuhl o.fl., 2024 19 5 24

Liew o.fl., 2021 15 18 33

Mukpradab o.fl., 2023 19 27 46

Woodbridge o.fl., 2023 32 39 71

Þáttunum var skipt niður í 50 flokka eftir innihaldi, sem síðan voru sameinaðir í 16 undirflokka. Út frá þeim mótuðust fjögur undirþemu: (a) Trú og viðhorf starfsfólks sem drifkraftur; (b) Þekking, fræðsla og fyrirmyndir sem styðja framkvæmd; c) Umhverfi og skipulag sem áhrifavaldar og d) Samskiptamynstur og samvinna – bæði innan teymis fagaðila og við sjúklinga og aðstandendur. Undirþemun voru sameinuð í eitt meginþema „Áhrif einstaklingsbundinna, faglegra og skipulagslegra þátta [hjá hjúkrunarfræðingum] á framkvæmd snemmbærrar hreyfingar“, sem endurspeglaði hvernig trú og jákvæð reynsla starfsfólks ásamt góðri skipulags- og teymisvinnu, mótuðu framkvæmd meðferðarinnar. Lykilþættir eins og þekking, fræðsla, fyrirmyndir, starfsumhverfi, stofnanamenning og samskipti innan teymis réðu því hvort snemmbærri hreyfingu var forgangsraðað. Í næstu undirköflum voru lykilniðurstöður samþættar, hvetjandi og hindrandi þættir dregnir fram og samspil þeirra sett upp í töflu. a. Trú og viðhorf starfsfólks sem drifkraftur

Trú á gildi snemmbærrar hreyfingar mótaði jákvæð viðhorf, jók líkur á samþættingu hennar í daglegu verklagi og hafði bein áhrif á ákvarðanatöku og forgangsröðun í gjörgæsluumhverfi.

Starfsfólk sem upplifði ávinning hreyfingar hvatti frekar til þátttöku sjúklinga og tryggði framkvæmd íhlutunar, þrátt fyrir hindranir eins og tímaskort og aðstöðuvanda: „Ekkert getur stoppað mig í því að koma þeim á fætur ef þeir geta … sama hvað“ (Anekwe o.fl., 2020, bls. 125). Bjartsýni og trú á árangur hreyfingar reyndist lykildrifkraftur framkvæmdar: „… mikið af þessu hefur að gera með viðhorf einstakra starfsmanna, hversu mikið frumkvæði þeir hafa og hversu mikið þeir trúa á snemmbæra hreyfingu sem lykilatriði“ (Woodbridge o.fl., 2023, bls. 6). Að verða vitni að jákvæðum áhrifum jók áhuga

og klínískt sjálfstraust hjúkrunarfræðinga og varð hvati til að gera snemmbæra hreyfingu að hluta af daglegri umönnun: „Þegar öllu er á botninn hvolft þá líður þér betur eftir það sem þú hefur gert fyrir sjúklinginn“ (Eakin o.fl., 2015, bls. 702).

Þrátt fyrir vitneskju um ávinning reyndust ótti og óöryggi letjandi fyrir framkvæmd. Áhyggjur beindust einkum að öryggi sjúklings og óvissu um áhrif hreyfingar, sem skapaði togstreitu milli áhættu og ávinnings. Sumir töldu ávinninginn ekki ávallt réttlæta áhættuna: „Jafnvel sjúklingar með ífarandi öndunarstuðning sem eru léttslævðir með fullt af slöngum og eftirlitsbúnaði tengdum við sig. Ég er hrædd um að ég óvart fjarlægi barkatúbu (e. extubation) úr sjúklingnum. Ávinningurinn er ekki áhættunnar virði. Snemmbær hreyfing og öryggi stangast á“ (Jiang o.fl., 2022, bls. 5).

Þegar sjúklingar sýndu bætta líðan og meiri þátttöku í eigin meðferð varð það starfsfólki innblástur: „Að sjá allar þessar smávægilegu framfarir hjá sjúklingnum skapar mikla starfsánægju – þetta er gefandi tilfinning“ (Eakin o.fl., 2015, bls. 702). Sýnilegur árangur dýpkaði faglegt innsæi, styrkti trú á meðferðina og beindi athyglinni að fíngerðum merkjum, bæði beinum og óbeinum, í svörum sjúklinga. Afleiðingin var markviss en varfærin hvatning: „… þú þarft örugglega að ýta sjúklingunum örlítið áfram til að sjá hvort þeir geti það. Þú þarft að trúa því fyrir þá …“ (Lehmkuhl o.fl., 2024, bls. 1.498).

b. Þekking, fræðsla og fyrirmyndir sem styðja framkvæmd Fræðsla gegndi lykilhlutverki við að samþætta snemmbæra hreyfingu í klínísku starfi og birtist í þremur meginþáttum: (1) þekkingu og menntun, (2) hlutverki frumkvöðla, reyndra fagmanna og sérfræðinga og (3) vinnustaðamenningu sem styður breytingar. Fjölbreyttar kennsluaðferðir, þar á meðal hagnýtar vinnustofur, handleiðsla við rúm sjúklings, klínísk verkfæri og fræðileg umræða, efldu faglega færni, öryggiskennd og dómgreind hjúkrunarfræðinga og annarra fagaðila.

Markviss fræðsla og miðlun nýjustu rannsókna gerðu það að verkum að starfsfólk taldi sig betur í stakk búið til að beita snemmbærri hreyfingu: „Áframhaldandi fræðsla fyrir starfsfólk er mikilvæg svo við lærum ekki aðeins hvað nýjar aðferðir fela í sér, heldur einnig hvort einhverjar breytingar hafi verið gerðar“ (Eakin o.fl., 2015, bls. 701). Hins vegar töldu þeir sem skorti slíkan aðgang vanta skýr vísindaleg rök sem staðfestu ávinning. Þetta undirstrikaði þörf fyrir þverfaglega, endurtekna fræðslu og markvissa verklega þjálfun: „[Það] vantar meiri upplýsingar um bestu aðferðirnar … við fáum í raun enga þjálfun í hvernig á að koma alvarlega veikum sjúklingi á fætur“ og „markviss þjálfun væri gríðarlega gagnleg … við ættum að þróa kennsluáætlun þar sem sjúkraþjálfarar væru einnig með“ (Chaplin og McLuskey, 2020, bls. 257). Í samræmi við það kom fram að aðkoma sjúkraþjálfara á vettvangi jók öryggi hjúkrunarfræðinga: „Ég held að með sjúkraþjálfara til staðar myndu margir hjúkrunarfræðingar finna fyrir meira öryggi“ (Anekwe o.fl., 2020, bls. 125).

Aðstandendur sem fengu fræðslu stuðluðu að markvissari hreyfingu sjúklings með aukinni þátttöku og hvatningu. Einnig efldi þekking hjúkrunarfræðinga á verkferlum og tilvist skýrra ferla, öryggi í framkvæmd, en skortur á slíku skapaði óvissu og hik, jafnvel án læknisfræðilegra frábendinga: „Stundum hika hjúkrunarfræðingar við að hreyfa sjúkling með lungnaslagæðarlegg [e. pulmonary artery catheter] þótt engar

raunverulegar frábendingar séu til staðar og blóðrás hans sé stöðug“ (Anekwe o.fl., 2020, bls. 124). Þeir sem nýlega höfðu lokið þjálfun í snemmbærri hreyfingu voru gjarnan hvetjandi fyrirmyndir og höfðu frumkvæði að meðferðinni. Mikilvægt bakland voru reynslumiklir hjúkrunarfræðingar, einkum sérfræðingar í hjúkrun, sem veittu markvissa handleiðslu; reynsla þeirra auðveldaði mat á hvenær sjúklingar væru tilbúnir til hreyfingar: „Ég hef lent í aðstæðum þar sem það hefur aðallega verið óreyndara fólk og það var skelfilegt. En þegar einhver reyndari er til staðar er það betra“ (Woodbridge o.fl., 2023, viðauki: bmjopen-2023-073061supp002, tilvitnun 23). Sérfræðingar í hjúkrun ýttu þannig undir hreyfingu sjúklinga.

Vettvangsmiðuð þjálfun í rauntíma dýpkaði skilning og færni starfsfólks og var áhrifaríkari en almenn fræðsla: „Það sem hjálpaði mér mest var handleiðsla og vinna með reyndari aðila sem hefur unnið við þetta lengi“ (Goddard o.fl., 2018, bls. 5).

Rótgróin vinnustaðarmenning hafði áhrif á viðhorf hjúkrunarfræðinga. Þar sem snemmbær hreyfing var ekki hluti af daglegum vinnubrögðum þurfti markvissa breytingu á vinnustaðarmenningu. Áhrifavaldar innan teymisins (e.opinion leaders) gegndu lykilhlutverki í að móta viðhorf og hvetja til breytinga en vikulegir fundir þar sem starfsfólk deildi reynslu og rýndi í framkvæmd reyndust árangursríkir til að viðhalda einbeitingu og styðja þróun meðferðarinnar.

Varanleg innleiðing snemmbærrar hreyfingar krafðist nægrar mönnunar og faglegs stuðnings stjórnenda. Kerfisbundin fræðsla, reglulegir fundir og aðgengi að úrræðum drógu úr hindrunum, sem annars hefðu getað torveldað framkvæmdina: „Yfirhjúkrunarfræðingurinn okkar er framhaldsmenntuð. Hún finnur efni um gjörgæslumeðferðir og sendir okkur til að fræðast ...“ (Jiang o.fl., 2022, bls. 5). Þátttaka lækna reyndist einnig mikilvæg og styrkti samstarf milli fagstétta: „Einn læknirinn er sérstaklega góður, svo ég reyni alltaf að fá hann með okkur í lið og framkvæma [snemmbæra hreyfingu] þegar hann er á staðnum“ (Jiang o.fl., 2022, bls. 5).

c. Umhverfi og skipulag sem áhrifavaldar

Snemmbær hreyfing reyndist oft tímafrek og flókin í skipulagi. Samræma þurfti mönnun, klíníska tímaáætlun og tímasetningar rannsókna, endurraða búnaði við rúm til að tryggja nægilegt vinnusvæði og kalla saman viðeigandi fagfólk á sama tíma. Þetta skipulag gerði framkvæmdina krefjandi (Anekwe o.fl., 2020).

Á gjörgæsludeildum þar sem snemmbær hreyfing var skilgreind sem nauðsynleg meðferð, fremur en valkvætt inngrip, var framkvæmdin markvissari og tíðari. Þegar snemmbær hreyfing var samþætt í viðtekin vinnubrögð og viðhorf starfsfólks endurspegluðu klínískt gildi hennar, varð hún eðlilegur hluti af umönnun: „Þetta er svo mikill hluti af menningunni að þetta er eins og að kenna þeim að setja upp sýklalyf eða blóðþrýstingslyf“ (Eakin o.fl., 2015, bls.702). Þegar hreyfing var fastur liður í formlegum umræðum, til dæmis daglegri yfirferð sjúklinga, morgunfundum, jukust líkur á framkvæmd. Skilvirkni jókst með verklagsreglum þar sem var lögð áhersla á samábyrgð fagstétta: „Allir eru mikilvægir. Sjúkraþjálfarar, hjúkrunarfræðingar, læknar … ég held að allir þurfi að taka þátt“ (Eakin o.fl., 2015, bls. 700).

Gagnsæ hjúkrunarskráning veitti einnig yfirsýn og tryggði samfellu: „Þú bara veist það ... af því að þeir [hjúkrunarfræðingarnir] eins og ... jæja, ég sá í gær að þú hafðir gert svona og svona og svo gerðum við bara svona í gærkvöldi. Þá ertu bara, vá, þú hefur lesið rapportið mitt“ (Lehmkuhl o.fl., 2024, bls.1.497).

Ófyrirsjáanlegt starfsumhverfi og óstöðugt ástand sjúklinga sköpuðu áskoranir fyrir snemmbæra hreyfingu. Vegna þess hversu hratt aðstæður gátu breyst, var erfitt að halda sig við fyrir fram skilgreinda dagskrá. Tímapressa, mikið álag og takmarkað aðgengi að stuðningi höfðu áhrif á hvort og hvenær hreyfingin fór fram: „Gjörgæsla er frekar erilsöm þannig að þú hefur ekki starfsfólk hjá þér allan tímann þannig að þú verður ... að láta alla vita að það eigi að framkvæma hreyfingu á þessum tíma ... En stundum þegar að það eru óvæntir hlutir að gerast, það eyðileggur öll plön“ (Curtis og Irwin, 2017, bls.7).

Hávaði, lýsing og fjöldi tækja á gjörgæsludeild höfðu áhrif á möguleika sjúklinga til hreyfingar. Aðgengi að viðeigandi hjálpartækjum skipti einnig sköpun. Þegar nauðsynlegur búnaður var til staðar þá jókst framkvæmd. Algeng hindrun var hins vegar skortur á hjálpartækjum og mannafla, einkum samspili milli þeirra: „Ef þú ert með nægilega mikið af fólki þá geturðu látið einhvern elta með hjólastól og bara látið þá [sjúklinga] setjast ef upp kemur vandamál. Ég held ekki að hjálpartækin séu stærsta vandamálið heldur að geta fengið alla á sama stað á sama tíma“ (Barber o.fl., 2015, bls. 180). Á annasömum gjörgæsludeildum gat þessi samhæfingarvandi sérstaklega valdið töf (Chaplin og MCLuskey, 2020).

Skýr viðmið um frábendingar, áhættumat og framkvæmd veittu hjúkrunarfræðingum öryggi og stuðning, sérstaklega þeim sem höfðu minni starfsreynslu. Vel útfærð verklagsregla studdi faglega dómgreind og tryggði samræmi: „Verkferill um snemmbæra hreyfingu myndi hjálpa okkur (hjúkrunarfræðingum og öðrum heilbrigðisstéttum) að meta hvort sjúklingur er hæfur fyrir hreyfingu. Að minnsta kosti getur verkferill leiðbeint okkur“ (Liew o.fl., 2021, bls. 4).

d. Samskipti og samvinna – innan teymis og við sjúklinga og aðstandendur

Öflugt þverfaglegt teymi ólíkra fagstétta hafði afgerandi áhrif og stuðlaði að öryggi, skilvirkni og samhæfingu í umönnun sjúklinga og tryggði að ábyrgð þess hvíldi ekki einvörðungu á einni fagstétt, svo sem hjúkrunarfræðingum eða sjúkraþjálfurum. Samheldni og stöðugleiki teyma með reyndum fagaðilum tryggðu fremur reglubundna framkvæmd en teymi með mikla starfsmannaveltu. Jafnframt skipti máli að fá sjúklinga og aðstandendur til liðs við teymin og þessi áhrif endurspegluðust í frásögn sjúklings: „Ég man þegar að ég tók nokkur skref í fyrsta skiptið og hjúkrunarfræðingurinn sagði við mig: Við gerum þetta með eiginmanni þínum og maðurinn minn stóð við hliðina á mér og hjúkrunarfræðingurinn sagði: Við skulum fara í gönguferð með manninum þínum ... og þetta var besta tilfinning allra tíma. Allt í höfðinu á mér lokaðist bara, hjúkrunarfræðingurinn hvarf, deildin hvarf, það voru bara ég og maðurinn minn að fara í göngutúr“ (Woodbridge o.fl., 2023, viðauki bmjopen-2023-073061supp002.pdf/quote 22).

Skýr hlutverkaskipting, sameiginleg ábyrgð og opin samskipti byggð á trausti, auðvelduðu reglubundna framkvæmd og festu snemmbæra hreyfingu í sessi sem hluta af meðferð. Hjúkrunarfræðingar og sjúkraþjálfarar gegndu lykilhlutverki; þegar þeir unnu saman að skýrri meðferðaráætlun með sameiginleg markmið varð framkvæmdin markvissari og reglulegt þverfaglegt samstarf tryggði að teymið í heild studdi og fólk innan þess hvöttu hvert annað áfram: „… þetta er umræða á milli allra í teyminu, lækna, sjúkraþjálfara og hjúkrunarfræðinga til að ákveða hver áætlunin er“ (Goddard o.fl., 2018, fylgiskjal 5).

Hins vegar gat skortur á þekkingu eða ótti um að hreyfingin gæti skaðað sjúklinginn dregið úr þátttöku og samþykki aðstandenda en markviss fræðsla og stuðningur reyndust nauðsynleg til að auka skilning og draga úr óöryggi. „Fyrir aðstandendur er þörf á að fræðast um ... af hverju það er mikilvægt að þeir taki þátt ... hver er ávinningurinn og hvert er hlutverk okkar (fagaðila) ... til að skilja betur hvernig þau geta tekið þátt“ (Mukpradab o.fl., 2023, bls. 6.580). Aðrir aðstandendur sýndu mikinn áhuga og vildu taka virkan þátt í endurhæfingu sjúklingsins og þegar þeir fengu tækifæri til að aðstoða við hreyfingu undir leiðsögn teymisins urðu þeir öruggari í hlutverki sínu og veittu sjúklingnum betri stuðning. Sumum hjúkrunarfræðingum fannst nærvera fjölskyldu erfið vegna ótta við að valda þeim óþarfa áhyggjum. „Ég held að við [stundum] séum oft að setja markmiðið of lágt, í raun að gera minna til að … ekki hræða fjölskylduna“ (Goddard o.fl., 2018, tafla 2, bls. 5).

Yfirlit yfir hindrandi og hvetjandi þætti frá frumgögnum

Þekking, menntun og samþætting teymisvinnu höfðu jákvæðustu áhrif á notkun snemmbærrar hreyfingar. Hins vegar takmarkaði mönnun, þekking, búnaður og ástand sjúklings framkvæmd. Niðurstöðurnar undirstrikuðu samspil fjölda þátta sem þurfti að taka tillit til við framkvæmd snemmbærrar hreyfingar sjúklinga á gjörgæsludeild, sjá töflu 4.

Lykilhugtök á borð við jákvæðni, hugarfarsbreytingu, fræðslu, þjálfun og samvinnu endurspeglaði sterka hvatningu. Til að snemmbær hreyfing yrði framkvæmd þurfti fagfólk að trúa á gildi

hennar; jákvæð reynsla og sjáanlegur árangur styrktu öryggi, juku starfsánægju og gerðu hana hluta af daglegu verklagi. Þverfagleg samvinna, skýr verkaskipting og sameiginleg markmið studdu við árangur, sem og markviss þjálfun, verklagsreglur og verkleg kennsla. Skipulag og umhverfi höfðu afgerandi áhrif. Réttur búnaður, tími og rými voru forsenda framkvæmdar en skortur á þessum þáttum, ásamt ófyrirsjáanlegu vinnuumhverfi, drógu úr getu og vilja til að hreyfa sjúklinga snemma. Einnig hömluðu þekkingarleysi, skortur á fræðslu og verkferlum, líkurnar á snemmbærri hreyfingu og ýttu undir óöryggi hjúkrunarfræðinga. Viðhorf og vankunnátta fjölskyldu sjúklings gátu enn fremur haft letjandi áhrif á snemmbæra hreyfingu.

UMRÆÐA

Tilgangur þessarar hraðsamantektar var að varpa ljósi á reynslu hjúkrunarfræðinga af snemmbærri hreyfingu sjúklinga á gjörgæsludeild og greina þá þætti sem hafa áhrif á framkvæmd hennar í klínísku umhverfi. Þrátt fyrir vaxandi þekkingu á mikilvægi hreyfingar eru hagnýtar, gagnreyndar leiðbeiningar af skornum skammti og staðlaðar verklagsreglur víða óaðgengilegar (Lang o.fl., 2020; Singam, 2024). Í nýlegri samantekt Zhang o.fl. (2024) var upplifun sjúklinga af snemmbærri hreyfingu á gjörgæsludeild athuguð en að okkar bestu vitund hefur ekki áður verið gerð eigindleg samantekt sem tekur mið af sjónarhorni hjúkrunarfræðinga, þrátt fyrir að þeir gegni lykilhlutverki í mati, ákvörðun og framkvæmd meðferðar.

Niðurstöðurnar sýna að framkvæmd mótast af fjórum samtvinnuðum þáttum: trú og viðhorfum fagaðila sem drifkrafti; þekkingu, fræðslu og fyrirmyndum sem styrkja faglegt öryggi; umhverfi og skipulagi sem ýtir undir eða hindrar framkvæmd og loks; samskiptum og samvinnu, bæði innan teymis og við sjúklinga og aðstandendur. Þessir þættir hafa víxlverkandi áhrif og undirstrika mikilvægi þess að styðja við fagmennsku, skapa jákvæða menningu og tryggja góðan aðbúnað til að snemmbær hreyfing verði hluti af daglegu starfi.

Viðhorf og trú á gagnsemi hreyfingar reyndust lykilatriði. Í níu af tólf rannsóknum kom fram að jákvæð reynsla og sjáanlegur árangur eykur áhuga, sjálfstraust og faglegt öryggi fagaðila, sem styrkir vilja til að hefja og viðhalda framkvæmd snemm-

Tafla 4. Yfirlit yfir helstu hvetjandi og hindrandi þætti sem hafa áhrif á framkvæmd snemmbærrar hreyfingar hjá gjörgæslusjúklingum

Trú og viðhorf starfsfólks sem drifkraftur Trú á gildi hreyfingar, jákvæð reynsla, faglegt sjálfstraust

Þekking, fræðsla og fyrirmyndir sem styðja framkvæmd

Umhverfi og skipulag sem áhrifavaldar

Samskiptamynstur og samvinna – innan teymis og við sjúklinga og aðstandendur

Fræðsla, verkleg þjálfun, leiðtogar og fyrirmyndir, vinnustaðamenning

Samþætting í meðferð, mannafli, tími, aðstaða, búnaður, verkferlar

Þverfaglegt samstarf, samskipti, meðferðaráætlanir, þátttaka sjúklings og fjölskyldu

Trú á gildi snemmbærrar hreyfingar, jákvæð reynsla af árangri, faglegt sjálfstraust, frumkvæði starfsfólks, hvatning til þátttöku sjúklinga

Markviss fræðsla, verkleg þjálfun, handleiðsla við rúm sjúklings, aðgangur að klínískum leiðbeiningum og rannsóknum, stuðningur sérfræðinga í hjúkrun, klínískir frumkvöðlar, styðjandi vinnustaðamenning

Hluti af meðferð með skýrum verkferlum og verklagsreglum, nægum mannafla, tíma til framkvæmdar, stuðningi stjórnenda, aðgengi að viðeigandi búnaði, nægilegu rými, skipulögðu vinnuumhverfi

Sameiginleg meðferðaráætlun, skýr hlutverkaskipting, gagnkvæm virðing, sameiginleg ábyrgð innan teymis, fræðsla til sjúklinga og fjölskyldu, þátttaka aðstandenda, stuðningur við sjúklinga

Ótti við að valda skaða, áhyggjur af slöngum og búnaði, óvissa um öryggi sjúklings, tregða til að hefja hreyfingu, togstreita milli áhættu og ávinnings

Skortur á þekkingu, þjálfun og vísindalegum gögnum, skortur á fyrirmyndum, ekki styðjandi vinnustaðamenning

Óvirkur hluti meðferðar, skortur á mannafla, tíma, búnaði og rými, samhæfingarvandi, ófyrirsjáanlegt starfsumhverfi, skortur á verkferlum

Samskiptaörðugleikar milli fagstétta, andvíg eða óörugg fjölskylda, ástand sjúklings sem takmarkar þátttöku og framkvæmd

Athugasemd. Áhrifaþættir framkvæmdar snemmbærar hreyfingar virkuðu í gagnvirku samhengi. Einstaklingsbundnir þættir, svo sem viðhorf og faglegt sjálfstraust starfsfólks, tengdust aðgengi að fræðslu og faglegum stuðningi. Samskipti og þverfaglegt samstarf höfðu jafnframt afgerandi áhrif á hvort hægt var að nýta þekkingu og jákvæð viðhorf í klínísku starfi. Skipulag og starfsumhverfi mótuðu raunverulegt svigrúm til framkvæmdar, meðal annars með tilliti til mannafla, tíma og búnaðar. Ástand sjúklings og klínískt mat á hverjum tíma höfðu einnig áhrif á ákvarðanatöku og framkvæmd hreyfingar. Þetta endurspeglar flókið ferli þar sem margir þættir þurfa að vinna saman til að styðja við örugga og árangursríka framkvæmd snemmbærrar hreyfingar.

bærrar hreyfingar. Þetta er í samræmi við niðurstöður Wang o.fl. (2024) þar sem jákvæð endurgjöf jók starfsánægju, fagmennsku og umbótavilja. Trú á árangur meðferðar tengdist jafnframt kjarnahlutverki hjúkrunar – að styðja sjúkling í átt að bata og sjálfstæði. Þetta samræmist hjúkrunarkenningum um sjálfsumönnun og virkni sjúklinga, þar sem lögð er áhersla á að efla getu einstaklings til að taka þátt í eigin bataferli (Gligor og Domnariu, 2020).

Helsta hindrunin var einstaklingsbundið óöryggi, einkum tengt öryggi sjúklinga og meðferð. Hjúkrunarfræðingar lýstu kvíða við að aftengja slöngur og tæki, í samræmi við rannsókn Anekwe o.fl. (2019) þar sem 58% töldu slíka áhættu hamla framkvæmd. Til að mæta þessu þarf markvissa fræðslu, verklega þjálfun, stöðugan stuðning og aðgengi að leiðtogum, svo sem sérfræðingum í hjúkrun og frumkvöðlum. Slík fagleg nærvera getur haft víðtæk áhrif á einstaklinga, fagmenningu og stuðlað að jákvæðum breytingum (Lang o.fl., 2020).

Þekking á mikilvægi snemmbærrar hreyfingar nægir ekki ein og sér. Til að ná árangri þarf að efla hana með markvissri þjálfun, faglegri leiðsögn og menningu sem styður nýsköpun. (Gabbard o.fl., 2021; Jokiniemi o.fl., 2023). Hjúkrunarfræðingar – þar með talið sérfræðingar í hjúkrun – eru í einstakri stöðu til að leiða slíka vinnu, þar sem þeir hafa stöðugt eftirlit með líkamlegu ástandi sjúklinga, þekkja takmarkanir þeirra og verja tíma í umönnun (Anekwe o.fl., 2019; Bunzel o.fl., 2020; Gabbard o.fl., 2021; Nobahar o.fl., 2023). Markviss fræðsla og verkleg þjálfun eykur sjálfstraust og þar með líkur á framkvæmd (Castro o.fl., 2015). Einnig getur sýnilegur árangur eflt jákvæða hringrás sem eykur klínískt öryggi, styrkir faglegt stolt og stuðlar að áframhaldandi umbótastarfi í hjúkrun (Judi o.fl., 2025). Niðurstöðurnar undirstrika jafnframt mikilvægi klínískra leiðbeininga og verkferla sem styðja við meðferð (Wang o.fl., 2020).

Flestar hindranir í framkvæmd snemmbærrar hreyfingar má rekja til menningar og stjórnunar, þar sem mannekla, skortur á búnaði og óhentugt umhverfi hamla framkvæmd en þeim má mæta með kerfisbundinni skráningu mannafla og tímaþarfa, góðri vinnutilhögun, skýrri tímastjórnun og samhæfingu (Dafoe o.fl., 2015). Þegar stjórnendur forgangsraða hreyfingunni og jákvæð stofnanamenning er til staðar aukast líkur á framkvæmd en óformleg viðmið eins og „við höfum alltaf gert þetta svona“ geta hins vegar dregið úr sveigjanleika (Kok o.fl., 2025). Þverfaglegt samstarf hjúkrunarfræðinga, sjúkraþjálfara og annarra fagaðila getur tryggt samræmi og gæði, þar sem föst staða sjúkraþjálfara styður mat, meðferðaráætlanir og skráningu árangurs sem eykur samfellu og faglegt öryggi (Barros-Poblete o.fl., 2022; Hodgson o.fl., 2021; Lang o.fl., 2020; Schallom o.fl., 2020).

Einungis þrjár rannsóknir í samantektinni fjölluðu um áhrif fjölskyldu á framkvæmd snemmbærrar hreyfingar (Barber o.fl., 2015; Goddard o.fl., 2018; Mukpradab o.fl., 2023). Þar komu fram tvíþætt áhrif: annars vegar sem hvatning fyrir sjúklinga og óbeint fyrir hjúkrunarfræðinga en hins vegar sem orsök óöryggis og aukins álags á hjúkrunarfræðinga vegna væntinga eða þrýstings frá fjölskyldu. Líkamlegt og sálrænt ástand sjúklinga reyndist þó langstærsta hindrunin en eins og kom fram hjá Anekwe o.fl. (2019), töldu 88,5% hjúkrunarfræðinga lífeðlisfræðilegan óstöðugleika sjúklings hamla hreyfingu hans. Nokkrar rannsóknir bentu jafnframt á að mótstaða sjúklinga væri stundum notuð sem ómeðvituð afsökun til að sleppa hreyfingu, mögulega sem viðbragð við tímaskorti eða óöryggi starfsfólks

(Anekwe o.fl., 2020; Liew o.fl., 2021; Mukpradab o.fl., 2023; Woodbridge o.fl., 2023). Þetta kallar á frekari umræðu um hvernig hægt er að mæta slíkum hindrunum með markvissri fræðslu, handleiðslu og einstaklingsmiðaðri nálgun. Í doktorsrannsókn Ólafar Rögnu Ámundadóttur (2020) kom í ljós að mikilvægt væri að sjúkraþjálfarar nýttu sér einstaklingsmiðaða nálgun við framkvæmd snemmbærrar hreyfingar sem einmitt byggðu á viðbrögðum sjúklingsins frekar en skipulagðar verklagsreglu sjúkraþjálfara. Slík sveigjanleg nálgun stuðlar að hámarks bata, eykur öryggi og hvetur sjúklinginn til virkrar þátttöku í eigin endurhæfingu og sömu atriði gætu hjúkrunarfræðingar þurft að hafa í huga við umönnun.

Niðurstöður hraðsamantektarinnar sýna að framkvæmd snemmbærrar hreyfingar ræðst af fjölbreyttum, samtvinnuðum þáttum. Sumir eru óbreytanlegir, svo sem lífeðlisfræðilegt ástand sjúklings en aðrir eru breytanlegir, eins og aðgengi að búnaði, rými og mannafla. Þættirnir eru gagnverkandi og mikilvægt er að skoða þá í heildstæðu samhengi. Þrátt fyrir aukna þekkingu á mikilvægi snemmbærrar hreyfingar sýna niðurstöður einnig að það skortir skýra verkferla og útfærslu til að auðvelda hjúkrunarfræðingum að samþætta hana daglegri hjúkrun á gjörgæsludeild (Hodgson, o.fl., 2018; Sui, o.fl., 2024). Niðurstöðurnar eru alþjóðlegar því þær rannsóknir sem hraðsamantektin byggir á koma frá sjö þjóðlöndum. Stjórnun stofnana og gjörgæsludeilda gegna lykilhlutverkum með því að tryggja aðstæður, búnað og forgangsröðun sem styðja framkvæmd. Sérfræðingar og reynslumiklir hjúkrunarfræðingar geta einnig verið forsprakkar með því að miðla þekkingu, hafa yfirsýn og leiða breytingar innan þverfaglegra teyma. Með faglegri leiðsögn, skýrum verkferlum og jákvæðri menningu verður snemmbær hreyfing samþætt sem hluti af hefðbundinni gjörgæslumeðferð.

STYRKLEIKAR OG TAKMARKANIR

Rannsóknin byggir á gagnsærri aðferðafræði samkvæmt leiðbeiningum Cochrane og JBI þar sem leitin var framkvæmd í fimm rafrænum gagnagrunnum. Takmarkanir væru að eingöngu var unnið með rannsóknir á ensku og Norðurlandamálum sem getur dregið úr alhæfingargildi. Einnig voru rannsóknir sem beindust að afmörkuðum sjúklingahópum útilokaðar sem minnkaði innsýn í sértækar aðstæður. Breytilegur frásagnarstíll frumrannsókna gerði samþættingu flóknari og niðurstöður endurspegla því fyrst og fremst raunveruleika gjörgæsludeilda, svipuðum og sést í vestrænum heilbrigðiskerfum.

ÁLYKTANIR

Niðurstöður hraðsamantektarinnar sýna að framkvæmd snemmbærrar hreyfingar sjúklinga á gjörgæsludeild er háð flóknu samspili einstaklingsbundinna, faglegra og skipulagslegra þátta. Hjúkrunarfræðingar gegna lykilhlutverki en fræðsla, leiðsögn og trú á árangur efla faglegt öryggi og jákvæð viðhorf. Þverfaglegt samstarf og skýr verkferill styrkja framkvæmdina en skortur á mannafla, búnaði og rými getur virkað hamlandi. Með markvissum aðgerðum má samþætta hreyfingu og styðja bata sjúklinga. Niðurstöður samantektarinnar gefa tækifæri til umbóta og frekari rannsókna til að styrkja snemmbæra hreyfingu sjúklinga á gjörgæsludeildum sem hluta af daglegri hjúkrun.

ENGLISH SUMMARY

Early mobilisation in intensive care units: A rapid qualitative review of challenges and opportunities from the perspective of nurses

doi: 10.33112/th.102.2.2

ABSTRACT

Aim

To describe nurses’ experiences of implementation of early mobilisation in intensive care units (ICU). Rehabilitation and long-term quality of life are increasingly important elements of recovery after intensive care. Early mobilisation plays a key role in the rehabilitation and long-term quality of life of ICU patients. However, its implementation in clinical practice can be complex. It is therefore important to identify factors that either facilitate or hinder successful integration of its implementation.

Methods

A rapid review was conducted in accordance with the Cochrane Collaboration guidelines. Qualitative studies were synthesised using meta-aggregation following the Joanna Briggs Institute methodology and analysed with an inductive approach. Electronic databases (CINAHL, PubMed, Scopus, Web of Science, and Leitir.is) were searched without time restrictions, and last updated January 2025. Two reviewers independently assessed study quality and jointly synthesised the findings. Data were categorised by content and presented narratively and in a matrix, allowing for the dynamic interplay of facilitators and barriers to be identified.

Results

Twelve qualitative studies met the inclusion criteria. In total, 217 facilitators and 242 barriers were identified. These were integrated into one overarching theme: “The influence of individual, professional, and organisational factors on the implementation of early mobilisation”, with four subthemes: a) Individual factors –innerbeliefs and attitudes as a driving force; b) Education and external motivation – access to knowledge and role models; c) Organisational and environmental factors – coordination,

routines, and contextual conditions as shaping forces, and d) Communication patterns and collaboration – teamwork and the involvement of patients and relatives.

Conclusions

The implementation of early mobilisation in intensive care is shaped by a wide range of individual, professional, and organisational factors. The findings highlight the importance of tailoring mobilisation to each patient’s condition. Barriers can be reduced through targeted education, staff training, and clear policies for intensive care nursing. Facilitators and barriers may serve as a useful tool to support effective implementation in clinical practice.

Keywords

early mobilisation, Intensive Care Unit, nursing, facilitators, barriers, qualitative research

Correspondence rannveigj@hi.is

HEIMILDIR

Anekwe, D. E., Koo, K. K. Y., de Marchie, M., Goldberg, P., Jayaraman, D. og Spahija, J. (2019). Interprofessional survey of perceived barriers and facilitators to early mobilization of critically ill patients in Montreal, Canada. Journal of Intensive Care Medicine, 34(3), 218-226. https://doi.org/10.1177/0885066617696846

Anekwe, D. E., Milner, S. C., Bussières, A., de Marchie, M. og Spahija, J. (2020). Intensive care unit clinicians identify many barriers to, and facilitators of, early mobilisation: a qualitative study using the Theoretical Domains Framework. Journal of Physiotherapy, 66(2), 120-127. https://doi.org/10.1016/j.jphys.2020.03.001

Barber, E. A., Everard, T., Holland, A. E., Tipping, C., Bradley, S. J. og Hodgson, C. L. (2015). Barriers and facilitators to early mobilisation in Intensive Care: A qualitative study. Australian Critical Care, 28(4), 177-182. https://doi.org/10.1016/j.aucc.2014.11.001

Barros-Poblete, M., Bernardes Neto, S. C., Benavides-Cordoba, V., Vieira, R. P., Baz, M., Martí, J. D., Spruit, M. A. og Torres-Castro, R. (2022). Early mobilization in intensive care unit in Latin America: A survey based on clinical practice. Frontiers in Medicine, 9 https://doi.org/10.3389/fmed.2022.1005732

Bunzel, A. M. G., Weber-Hansen, N. og Schantz Laursen, B. (2020). Tso stay in touch –intensive care patients’ interactions with nurses during mobilisation. Scandinavian Journal of Caring Sciences, 34(4), 948-955. https://doi.org/10.1111/scs.12802

Castro, E., Turcinovic, M., Platz, J. og Law, I. (2015). Early mobilization: Changing the mindset. Critical Care Nurse, 35(4), e1-e5. https://doi.org/10.4037/ccn2015512

Chander, S., Kumari, R., Sadarat, F. og Luhana, S. (2023). The evolution and future of intensive care management in the era of telecritical care and artificial intelligence. Current Problems in Cardiology, 48(10), 101805. https://doi.org/10.1016/j.cpcardiol.2023.101805

Chaplin, T. og McLuskey, J. (2020). What influences nurses' decision to mobilise the critically ill patient? Nursing in Critical Care, 25(6), 353-359. https://doi.org/10.1111/nicc.12464

Clarissa, C., Salisbury, L., Rodgers, S. og Kean, S. (2019). Early mobilisation in mechanically ventilated patients: a systematic integrative review of definitions and activities. Journal of Intensive Care, 7(1), 1-19. https://doi.org/10.1186/s40560-018-0355-z

Curtis, L. og Irwin, J. (2017). Ambulation of patients who are mechanically ventilated: Nurses' views. Nursing Management, 24(4), 34-39. https://doi.org/10.7748/nm.2017.e1599

Cussen, J., Mukpradab, S., Tobiano, G., Haines, K. J., O'Connor, L. og Marshall, A. P. (2024). Exploring critically ill patients’ functional recovery through family partnerships: A descriptive qualitative study. Australian Critical Care https://doi.org/10.1016/j.aucc.2024.06.007

Dafoe, S., Chapman, M. J., Edwards, S. og Stiller, K. (2015). Overcoming barriers to the mobilisation of patients in an intensive care unit [Article]. Anaesthesia and Intensive Care, 43(6), 719-727. https://doi.org/10.1177/0310057x1504300609

Eakin, M. N. P., Ugbah, L. M. H. S., Arnautovic, T. M. H. S., Parker, A. M. M. D. og Needham, D. M. M. D. P. (2015). Implementing and sustaining an early rehabilitation program in a medical intensive care unit: A qualitative analysis. Journal of Critical Care, 30(4), 698-704. https://doi.org/10.1016/j.jcrc.2015.03.019

Flaws, D., Fraser, J. F., Laupland, K., Lavana, J., Patterson, S., Tabah, A., Tronstad, O. og Ramanan, M. (2024). Time in ICU and post-intensive care syndrome: how long is long enough? Critical Care, 28(1), 34. https://doi.org/10.1186/s13054-024-04812-7

Gabbard, E. R., Klein, D., Vollman, K., Chamblee, T. B., Soltis, L. M. og Zellinger, M. (2021). Clinical nurse specialist: A critical member of the ICU team. Critical Care Medicine, 49(6), e634-e641. https://doi.org/10.1097/CCM.0000000000005004

Garritty, C., Gartlehner, G., Nussbaumer-Streit, B., King, V. J., Hamel, C., Kamel, C., Affengruber, L. og Stevens, A. (2021). Cochrane Rapid Reviews Methods Group offers evidence-informed guidance to conduct rapid reviews. Journal of Clinical Epidemiology, 130, 13-22. https://doi.org/10.1016/j.jclinepi.2020.10.007

Gligor, L. og Domnariu, C. D. (2020). Patient care approach using nursing theoriesComparative analysis of Orem’s Self-Care Deficit Theory and Henderson’s Model. Acta Medica Transilvanica, 25(2), 11-14. https://doi.org/10.2478/amtsb-2020-0019

Goddard, S. L., Lorencatto, F., Koo, E., Rose, L., Fan, E., Kho, M. E., Needham, D. M., Rubenfeld, G. D., Francis, J. J. og Cuthbertson, B. H. (2018). Barriers and facilitators to early rehabilitation in mechanically ventilated patients-a theory-driven interview study. Journal of Intensive Care, 6, 4. https://doi.org/10.1186/s40560-018-0273-0

Gravante, F., Trotta, F., Latina, S., Simeone, S., Alvaro, R., Vellone, E. og Pucciarelli, G. (2024). Quality of life in ICU survivors and their relatives with post-intensive care syndrome: A systematic review. Nursing in Critical Care, 29(4), 807-823. https://doi.org/10.1111/nicc.13077

Hodgson, C. L., Capell, E. og Tipping, C. J. (2018). Early mobilization of patients in intensive care: Organization, communication and safety factors that influence translation into clinical practice. Critical Care, 22(1), 77. https://doi.org/10.1186/s13054-018-1998-9

Hodgson, C. L., Schaller, S. J., Nydahl, P., Timenetsky, K. T. og Needham, D. M. (2021). Ten strategies to optimize early mobilization and rehabilitation in intensive care. Critical Care, 25(1), Article 324. https://doi.org/10.1186/s13054-021-03741-z

Jiang, J., Zhao, S., Han, P., Wu, Q., Shi, Y., Duan, X. og Yan, S. (2022). Knowledge, attitude, and perceived barriers of newly graduated registered nurses undergoing standardized training in intensive care unit toward early mobilization of mechanically ventilated patients: A Qualitative Study in Shanghai. Frontiers in Public Health, 9. https://doi.org/10.3389/fpubh.2021.802524

Jokiniemi, K., Kärkkäinen, A., Korhonen, K., Pekkarinen, T. og Pietilä, A. M. (2023). Outcomes and challenges of successful clinical nurse specialist role implementation: Participatory action research. Nursing Open, 10(2), 704-713. https://doi.org/10.1002/nop2.1336

Judi, A., Parizad, N., Mohammadpour, Y. og Alinejad, V. (2025). The relationship between professional autonomy and job performance among Iranian ICU nurses: the mediating effect of job satisfaction and organizational commitment. BMC Nursing, 24(1), 20. https://doi.org/10.1186/s12912-024-02551-2

Kok, N., Hoedemaekers, C., Fuchs, M., Cornet, A. D., Ewalds, E., Hom, H., Meijer, E., Meynaar, I., van Mol, M., van Mook, W., van der Steen-Dieperink, M., van Zanten, A., van der Hoeven, H., van Gurp, J. og Zegers, M. (2025). The interplay between organizational culture and burnout among ICU professionals: A cross-sectional multicenter study. Journal of Critical Care, 85 https://doi.org/10.1016/j.jcrc.2024.154981

Korstjens, I. og Moser, A. (2017). Series: Practical guidance to qualitative research. Part 2: Context, research questions and designs. European Journal of General Practice, 23(1), 274-279. https://doi.org/10.1080/13814788.2017.1375090

Lang, J. K., Paykel, M. S., Haines, K. J. og Hodgson, C. L. (2020). Clinical practice guidelines for early mobilization in the ICU: A Systematic Review. Critical Care Medicine, 48(11), e1121-e1128. https://doi.org/10.1097/ccm.0000000000004574

Lee, J., Kim, Y. og Lee, H. J. (2025). Nurse-involved early mobilization in the intensive care unit: A systematic review and meta-analysis. Nursing in Critical Care, 30(2), e13278. https://doi.org/10.1111/nicc.13278

Lehmkuhl, L., Dreyer, P., Laerkner, E., Olsen, H. T., Jespersen, E. og Rothmann, M. J. (2024). Mobilisation during mechanical ventilation: A qualitative study exploring the practice of conscious patients, nurses and physiotherapists in intensive care unit. Journal of clinical nursing, 33(4), 1493-1505. https://doi.org/10.1111/jocn.16950

Liew, S. M., Mordiffi, S. Z., Ong, Y. J. A. og Lopez, V. (2021). Nurses’ perceptions of early mobilisation in the adult intensive care unit: a qualitative study. Intensive and Critical Care Nursing, 66. https://doi.org/10.1016/j.iccn.2021.103039

Lockwood, C., Munn, Z. og Porritt, K. (2015). Qualitative research synthesis: methodological guidance for systematic reviewers utilizing meta-aggregation. JBI Evidence Implementation, 13(3). https://journals.lww.com/ijebh/ fulltext/2015/09000/qualitative_research_synthesis__methodological.10.aspx

Maley, J.H. og Mikkelsen, M.E. (2020). The Post-Intensive Care Syndrome. In R.C. Hyzy og J. McSparron (Eds.), Evidence-Based Critical Care: A Case Study Approach (pp. 813-817). Springer International Publishing. https://doi.org/10.1007/978-3-030-26710-0_109

Matsuoka, A., Shodai, Y., Shida, H., Aikawa, G., Fujinami, Y., Kawamura, Y., Nakanishi, N., Shimizu, M., Watanabe, S., Sugimoto, K., Taito, S. og Inoue, S. (2023). Effects of mobilization within 72 h of ICU admission in critically ill patients: An updated Systematic Review and Meta-Analysis of Randomized Controlled Trials. Journal of Clinical Medicine, 12(18), 5888. https://doi.org/10.3390/jcm12185888

Muawanah, K. og Sulastri, S. (2023). Controlling post-operative pain with early mobilization and music therapy. Jurnal Kesehatan, 14, 150. https://doi.org/10.26630/jk.v14i1.3746

Mukpradab, S., Cussen, J., Ranse, K., Songwathana, P. og Marshall, A. P. (2023). Healthcare professionals perspectives on feasibility and acceptability of family engagement in early mobilisation for adult critically ill patients: A descriptive qualitative study. Journal of clinical nursing, 32(17-18), 6574-6584. https://doi.org/10.1111/jocn.16685

Nobahar, M., Ameri, M. og Goli, S. (2023). The relationship between teamwork, moral sensitivity, and missed nursing care in intensive care unit nurses. BMC Nursing, 22(1), 241. https://doi.org/10.1186/s12912-023-01400-y

Ólöf Ragna Ámundadóttir (2020). Vakandi og virkur og í uppréttri stöðu á gjörgæsludeild. [doktorsritgerð] Háskóli Íslands.

Page, M. J., McKenzie, J. E., Bossuyt, P. M., Boutron, I., Hoffmann, T. C., Mulrow, C. D., Shamseer, L., Tetzlaff, J. M., Akl, E. A., Brennan, S. E., Chou, R., Glanville, J., Grimshaw, J. M., Hróbjartsson, A., Lalu, M. M., Li, T., Loder, E. W., Mayo-Wilson, E., McDonald, S., Whiting P. og Moher, D. (2021). The PRISMA 2020 statement: an updated guideline for reporting systematic reviews. Systematic Reviews, 10(1), 89. https://doi.org/10.1186/s13643-021-01626-4

Porritt, K., Evans, C., Bennett, C., Loveday, H., Bjerrum, M., Salmond, S., Munn, Z., Pollock, D., Pang, D., Vineetha, K., Seah Betsy og Lockwood, C. (2024) Systematic reviews of qualitative evidence. Aromataris, E., Lockwood, C., Porritt, K., Pilla, B., Jordan, Z. editors. JBI Manual for Evidence Synthesis. https://doi.org/10.46658/JBIMES-24-02

Schallom, M., Tymkew, H., Vyers, K., Prentice, D., Sona, C., Norris, T. og Arroyo, C. (2020). Implementation of an interdisciplinary AACN early mobility protocol. Critical care nurse, 40(4), e7-e17. https://doi.org/10.4037/ccn2020632

Singam, A. (2024). Mobilizing progress: A comprehensive review of the efficacy of early mobilization therapy in the intensive care unit. Cureus, 16(4). https://doi.org/10.7759/cureus.57595

Sui, W., Gong, X. og Zhuang, Y. (2024). Impact of knowledge, attitudes and self-reported practices of nurses on early mobilization of mechanically ventilated patients in the ICU. Nursing in Critical Care, 29(3), 573-583. https://doi.org/10.1111/nicc.13041

Tipping, C. J., Harrold, M., Holland, A., Romero, L., Nisbet, T. og Hodgson, C. L. (2017). The effects of active mobilisation and rehabilitation in ICU on mortality and function: a systematic review. Intensive Care Medicine, 43(2), 171-183. https://doi.org/10.1007/s00134-016-4612-0

Verceles, A. C. og Hager, E. R. (2015). Use of Accelerometry to Monitor Physical Activity in Critically Ill Subjects: A Systematic Review. Respiratory Care, 60(9), 1330-1336. https://doi.org/10.4187/respcare.03677

Voiriot, G., Oualha, M., Pierre, A., Salmon-Gandonnière, C., Gaudet, A., Jouan, Y., Kallel, H., Radermacher, P., Vodovar, D., Sarton, B., Stiel, L., Bréchot, N., Préau, S., Joffre, J. og Crt, S. (2022). Chronic critical illness and post-intensive care syndrome: from pathophysiology to clinical challenges. Annals of Intensive Care, 12(1). https://doi.org/10.1186/s13613-022-01038-0

Vollman, K.M., Correll-Yoder, N. og Giuliano, K.K. (2024). Early and progressive mobility in the ICU: A balanced approach to improve outcomes for both patients and staff. Journal of Nursing Care Quality, 39(1), 7-9. https://doi.org/10.1097/NCQ.0000000000000722

Wang, J., Xiao, Q., Zhang, C., Jia, Y. og Shi, C. (2020). Intensive care unit nurses' knowledge, attitudes, and perceived barriers regarding early mobilization of patients. Nursing in Critical Care, 25(6), 339-345. https://doi.org/10.1111/nicc.12507

Wang, J., Shi, C., Xiao, Q. og Jia, Y. (2024). ICU nurses' practice and intention to implement early mobilization: A multi-centre cross-sectional survey. Nursing in Critical Care, 29(5), 1067-1077. https://doi.org/10.1111/nicc.13100

Woodbridge, H. R., Norton, C., Jones, M., Brett, S. J., Alexander, C. M. og Gordon, A. C. (2023). Clinician and patient perspectives on the barriers and facilitators to physical rehabilitation in intensive care: a qualitative interview study. BMJ Open, 13(11). https://doi.org/10.1136/bmjopen-2023-073061

Zhang, H., Liu, H., Li, Z., Li, Q., Chu, X., Zhou, X., Wang, B., Lyu, Y. og Lin, F. (2022). Early mobilization implementation for critical ill patients: A cross-sectional multi-center survey about knowledge, attitudes, and perceptions of critical care nurses. International Journal of Nursing Sciences, 9(1), 49-55. https://doi.org/10.1016/j.ijnss.2021.10.001

Zhang, H., Sheng, Y., Yu, C. og Cheng, Q. (2024). Understanding the needs and perceptions of early mobilization for critically ill patients: A systematic review of qualitative studies. Intensive and Critical Care Nursing, 81. https://doi.org/10.1016/j.iccn.2023.103584

Orsakir svefntruflana á gjörgæslu og aðferðir til að bæta svefn sjúklinga.

Samþætt fræðileg samantekt

doi: 10.33112/th.102.2.3

ÚTDRÁTTUR

Tilgangur

Að greina þá þætti sem hafa mest truflandi áhrif á svefn gjörgæslusjúklinga og hvaða aðferðum hægt er að beita til að bæta hann. Leitast var við að svara rannsóknarspurningunum „Hvað veldur svefntruflunum fullorðinna sjúklinga á gjörgæsludeild?“ og „Hvaða aðferðum er hægt að beita til að bæta svefn fullorðinna sjúklinga á gjörgæsludeild?“ og setja fram tillögur að aðferðum sem hjúkrunarfræðingar geta beitt til að lágmarka svefntruflanir gjörgæslusjúklinga.

Aðferð

Notast var við aðferðafræði samþættra fræðilegra samantekta (e. integrative review). Leit að greinum fór fram í PubMed, Scopus og Web of Science sem birtar voru árin 2018 til 2023. Gæði rannsóknanna voru metin með gæðaviðmiðum frá Joanna Briggs-stofnuninni og notast við „matrix“-töflu til að lýsa og samþætta niðurstöður þeirra.

Niðurstöður

Fjórtán rannsóknir stóðust inntökuskilyrði samantektarinnar. Helstu orsakir svefntruflana á gjörgæslu voru hávaði, lýsing, líðan og inngrip og/ eða íhlutir. Aðferðir til að bæta svefn gjörgæslusjúklinga skiptust í fjóra flokka: Aðferðir sem draga úr áhrifum hávaða á svefn; Aðferðir sem draga úr áhrifum lýsingar á svefn; Aðferðir sem draga úr áhrifum vanlíðanar á svefn og Margþættar aðferðir sem draga úr áhrifum umhverfisáreitis á svefn. Niðurstöður sýndu að með því að draga úr samtölum starfsfólks, líkja eftir dægursveiflu birtu með lýsingu, bregðast við kvíða sjúklinga og takmarka meðferðartengd inngrip yfir nótt mátti draga úr svefntruflunum gjörgæslusjúklinga. Greinin varpar þannig ljósi á aðferðir sem starfsfólk á gjörgæslu getur nýtt sér til að stuðla að bættum svefni sjúklinga.

Ályktanir

Orsakir svefntruflana gjörgæslusjúklinga eru margþættar og persónubundnar. Hjúkrunarfræðingar þurfa að horfa heildrænt á svefnvandamál og beita einstaklingsbundnum aðferðum til að draga úr þeim.

Lykilorð svefntruflanir, gjörgæslusjúklingar, umhverfisáreiti, hjúkrun, einstaklingsbundin meðferð

HAGNÝTING

RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA „Hvers vegna ættir þú að lesa þessa grein?“

Nýjungar: Lítið er vitað um hvað hefur mest truflandi áhrif á svefn sjúklinga á gjörgæslu. Mikilvægt er að taka saman þá þekkingu sem er til um efnið og setja fram meginniðurstöður rannsókna á því efni og gera aðgengilegar fyrir hjúkrunarfræðinga.

Hagnýting: Niðurstöður samantektarinnar geta nýst til að efla þekkingu og öryggi hjúkrunarfræðinga á gjörgæsludeildum og annars staðar þar sem umhverfið hefur áhrif á svefn sjúklinga.

Þekking: Niðurstöður sýna fram á mikilvægi þess að hjúkrunarfræðingar þekki hvaða þættir trufla svefn sjúklinga á gjörgæslu og hvað hægt er að gera til að draga úr áhrifum þeirra á svefn. Í greininni eru teknar saman niðurstöður úr rannsóknum sem geta nýst hjúkrunarfræðingum.

Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga: Mikilvægt er að hjúkrunarfræðingar og annað heilbrigðisstarfsfólk hafi þekkingu á því hvernig bæta má svefn sjúklinga á gjörgæslu með það að markmiði bæta líðan þeirra og meðferð.

Höfundar

EYRÚN CATHERINE FRANZDÓTTIR

Hjúkrunarfræðingur, M.S.1

ÞÓRA JENNÝ GUNNARSDÓTTIR

prófessor og forstöðumaður fræðasviðs í almennri hjúkrun fullorðinna2

1Landpítali

2 Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild

Háskóla Íslands

Orsakir svefntruflana á gjörgæslu og aðferðir til að bæta svefn sjúklinga

Samþætt fræðileg

samantekt

INNGANGUR

Svefn er lífsnauðsynlegur fyrir alla og getur ófullnægjandi svefn haft slæmar afleiðingar á líðan og heilsu (Ramar o.fl., 2021). Í svefni vinnur heilinn úr upplýsingum (Girardeau og Lopes-dos-Santos, 2021), ónæmiskerfið eflist (Irwin, 2019) og endurnýjun verður á vefjum líkamans (Elkhenany o.fl., 2018). Svefn er sérstaklega mikilvægur fyrir þá sem eru veikir (Kaplow, 2017), þar sem hluti bataferils fer fram í svefni (Elkhenany o.fl., 2018).

Að jafnaði eru veikustu sjúklingarnir innan sjúkrahúsa þeir sem þurfa á gjörgæslumeðferð að halda (Groenland o.fl., 2019). Svefnþörf þeirra er oft vanmetin (Mattiussi o.fl., 2019; Medrzycka-Dabrowska o.fl., 2018) og svefn þeirra ólíkur þeim svefni sem heilbrigðir einstaklingar þekkja (Chang o.fl., 2020; Medrzycka-Dabrowska o.fl., 2018). Meðal annars verður breyting á lengd ólíkra svefnstiga (Chang o.fl., 2020; Medrzycka-Dabrowska o.fl., 2018) og svefn verður brotakenndur (Chang o.fl., 2020) sem getur valdið því að gjörgæslusjúklingar upplifa oft svefnleysi (Mattiussi o.fl., 2019; Medrzycka-Dabrowska o.fl., 2018). Þessar svefntruflanir hafa verið tengdar óæskilegum útkomum, svo sem auknum líkum á óráði, hærri dánartíðni og lengri sjúkrahúslegu (Kaplow, 2017).

Það er því mikilvægt að reyna að koma í veg fyrir svefntruflanir gjörgæslusjúklinga. Það verkefni er að mestu í höndum hjúkrunarfræðinga sem bera almennt ábyrgð á daglegri meðferð og eftirliti þeirra (Ervin o.fl., 2018). Til þess að hjúkrunarfræðingar á gjörgæslu geti haft áhrif á svefn sjúklinga þurfa þeir að vera meðvitaðir um þá þætti sem geta skert svefn á gjörgæslu og hvernig hægt er að lágmarka svefntruflanir vegna þeirra (Medrzycka-Dabrowska o.fl., 2018).

Gjörgæsluumhverfið getur haft mikil áhrif á sjúklingana sem þar liggja (Alsulami o.fl., 2019; Groenland o.fl., 2019; Medrzycka-Dabrowska o.fl., 2018). Hávaði á gjörgæsludeildum mælist reglulega yfir viðmiðum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar (e. World Health Organization, WHO) um hávaða innan sjúkrastofnana (Alsulami o.fl., 2019; Medrzycka-Dabrowska o.fl., 2018). Einnig er birta á gjörgæslu oft ónáttúruleg. Bæði eru ljós oft kveikt á nóttunni og náttúruleg birta yfir daginn skert (Knauert o.fl., 2019). Birtustig hefur mikil áhrif á dægursveiflu svefns og vöku (Medrzycka-Dabrowska o.fl., 2018; Telias og Wilcox, 2019; Vasey o.fl., 2021) en helsta hormónið sem tengist þessu er melatónín. Styrkur þess í blóði eykst í myrkri, sem ýtir undir svefn, og minnkar við birtu, sem stuðlar að vöku. Truflanir á svefni geta valdið því að losun melatóníns hættir að svara breytingum í umhverfinu á sama hátt og áður (Vasey o.fl., 2021) auk þess sem skortur á merkjum frá umhverfinu getur valdið breytingum á losun melatóníns sem orsakar brenglun á dægursveiflunni (Telias og Wilcox, 2019). Loks má nefna að gjörgæslusjúklingar þurfa margir ýmsa íhluti meðan á gjörgæslumeðferð þeirra stendur (Galazzi o.fl., 2019) og að meðferðinni fylgja ýmis inngrip sem geta verið truflandi (Groenland o.fl., 2019).

Ýmsar samantektarrannsóknir hafa verið gerðar um svefn á gjörgæslu. Samantekt Honarmand o.fl. (2020) sýndi fram á að hávaði, kvíði, verkir, umönnunarþættir, almennar svefnvenjur og veikindi sjúklinga höfðu áhrif á svefngæði þeirra á gjörgæslu. Mesta áhersla hefur verið á að skoða áhrif hávaða á svefn gjörgæslusjúklinga og aðferðir til að draga úr

þeim (Alway o.fl., 2013; Horsten o.fl., 2018; Locihová o.fl., 2018; Riedy o.fl., 2021). Horsten o.fl. (2018) töldu að erfitt væri að aðgreina truflun af hávaða á svefn sjúklinga frá öðum truflandi þáttum á gjörgæslu og að notkun eyrnatappa til að draga úr trufluninni gagnaðist lítið. Alway o.fl. (2013) og Locihová o.fl. (2018) skoðuðu áhrif notkunar eyrnatappa ásamt augngríma á svefn gjörgæslusjúklinga. Niðurstöður Locihová o.fl. (2018) bentu til mögulegrar gagnsemi eyrnatappa og augngríma en niðurstöður rannsóknar Alway o.fl. (2013) varðandi gagnsemina voru ekki afgerandi. Loks má nefna kerfisbundna samantekt Riedy o.fl. (2021) þar sem skoðuð voru áhrif þess að nota bakgrunnshljóð svo sem snjósuð (e. white noise) til að draga úr áhrifum hávaða á svefn gjörgæslusjúklinga. Rannsóknirnar sem samantektin byggði á skorti margar gæði og því gátu höfundar ekki dregið sterkar ályktanir af þeim. Þær samantektir sem hafa verið nefndar hér byggja á rannsóknum sem gefnar eru út á löngu tímabili (Alway o.fl., 2013; Honarmand o.fl., 2020; Horsten o.fl., 2018; Locihová o.fl., 2018; Riedy o.fl., 2021) og því erfiðara að yfirfæra niðurstöður þeirra yfir á gjörgæslusjúklinga dagsins í dag með fullri vissu. Markmið þessarar samþættu fræðilegu samantektar er því að skoða hvaða þættir valda helst svefntruflunum á gjörgæslu og hvaða aðferðum hægt er að beita til að lágmarka truflun þeirra á svefn sjúklinga sem byggist á nýlegum rannsóknum sem uppfylla gæðamat. Settar voru fram tvær rannsóknarspurningar:

1. Hvað veldur svefntruflunum fullorðinna sjúklinga á gjörgæsludeild?

2. Hvaða aðferðum er hægt að beita til að bæta svefn fullorðinna sjúklinga á gjörgæsludeild?

AÐFERÐ

Þessi rannsókn er samþætt fræðileg samantekt (e. integrative review) sem er ein gerð yfirlits- eða samantektarrannsókna. Yfirlitsrannsóknir eru gerðar í þeim tilgangi að samþætta niðurstöður nokkurra rannsókna og veita þannig dýpri þekkingu á því fyrirbæri sem verið er að skoða (Polit og Beck, 2017). Samþættar fræðilegar samantektir eru opnasta gerðin af yfirlitsrannsóknum þar sem þær geta byggt á rannsóknum með ólíku sniði, kenningum og greinum byggðum á reynslu. Þær henta oft vel í hjúkrun því þær geta veitt innsýn í flóknar kenningar, hugtök og vandamál heilbrigðisvísindanna (Whittemore og Knafl, 2005). Whittemore og Knafl (2005) hafa sett fram leiðbeiningar um aðferðina og mæla með að rannsóknir sem samantekt á að byggja á, séu kóðaðar á ákveðinn hátt og settar upp í samþættingartöflur (e. matrix) þar sem ákveðnir þættir eru dregnir fram úr hverri rannsókn. Með því er hægt að bera saman rannsóknirnar á einfaldan og skipulegan hátt. Farið var eftir leiðbeiningum Whittemore og Knafl (2005) og ferlinu skipt niður í fjögur skref: Greining rannsóknarefnis, söfnun gagna, greining gagna og birting niðurstaðna. Greint hefur verið frá rannsóknarefni, markmiðum og rannsóknarspurningum í inngangi og í næstu köflum verður greint frá öðrum skrefum ferlisins.

Gagnasöfnun og leitarorð

Gagnasöfnun fór fram í janúar og febrúar 2023. Leitarorð voru valin út frá rannsóknarspurningum mótuðum með „PICOT“-viðmiðum. Þýðið (P=population) í báðum rannsóknarspurningunum var skilgreint með orðunum „fullorðinna gjörgæslusjúklinga“ og átt við einstaklinga 18 ára og eldri sem lágu á gjörgæsludeild. Íhlutanir eða áhrif sem leitað var eftir (I=intervention) voru skilgreind

með orðunum „hvað veldur“ í fyrri rannsóknarspurningunni, og þá átt við hver orsök vandans væri, og „verkþáttum er hægt að beita“ í seinni rannsóknarspurningunni. Útkoman (O=outcome) var skilgreind með orðinu „svefntruflunum“ í fyrri rannsóknarspurningunni og þá verið að skoða hvaða íhlutanir leiddu til þeirrar útkomu, og „bæta svefn“ í seinni rannsóknarspurningunni. Í báðum rannsóknarspurningunum var tími (T=time) skilgreindur með orðunum „á gjörgæsludeild“ og átt við þann tíma sem sjúklingar lágu á gjörgæsludeild (Polit og Beck, 2017).

Leit var gerð rafrænt í gagnagrunnum PubMed, Scopus og Web of Science. Yfirlit yfir leitarorð má sjá í töflu 1. Leitað var eftir 52 samsetningum leitarorða og haldið utan um niðurstöður leitar með töflum í Excel-forriti.

Tafla 1. Leitarorð í PubMed, Scopus og Web of Science

Þátttakendur

Einkenni / meðferð / útkoma

Sleep

Sleep Wake Disorders

Sleep Disorders

Sleep Disorders, Intrinsic

Sleep Disorders, Circadian Rhythm

Circadian Rhythm

Critical Care

Intensive Care

Sleep Quality

Sleep Hygiene

Critical Care Nursing Dyssomnias

Sleep Deprivation

Sleep Duration

Critical Care Outcomes

Sleep-Wake Transition Disorders

Sleep Initiation and Maintenance Disorders

Sleep Duration

Inntöku- og útilokunarskilyrði rannsókna

Inntöku- og útilokunarskilyrði sem notast var við í leit og skimun rannsókna fyrir samantektina má sjá í töflu 2. Mynd 1 sýnir flæðirit (PRISMA) yfir leit, skimun og val á greinum í samantektina.

Tafla 2. Inntöku- og útilokunarskilyrði rannsókna

Inntökuskilyrði Útilokunarskilyrði

Greinar eldri en frá 2018

Greinar frá 2018-2023

Áhrifaþættir á svefn Læknisfræðilegar meðferðir við svefnvanda

Meðferðir við svefnvanda sem hjúkrunarfræðingar geta veitt

Sjúklingar fyrir eða eftir gjörgæslulegu

Sjúklingar lágu á gjörgæslu Börn og unglingar (yngri en 18 ára)

Fullorðnir (18 ára og eldri)

Frumrannsóknir

Greinar á ensku

Samantektarrannsóknir

Greinar á öðrum tungumálum en ensku

Auðkenning

Auðkenning rannsókna úr gagnagrunnum

Greinar fengnar frá: PubMed (n=50) Scopus (n=531) Web of Science (n=264)

Greinar teknar út fyrir skimun: Tvíteknar greinar fjarlægðar: (n=544)

Titlar og útdrættir

skimaðir og metnir út frá inntöku- og útilokunarskilyrðum: (n=301)

Greinar sóttar í fullri lengd: (n=21)

Greinar í fullri lengd sem voru lesnar: (n=21)

Rannsóknir sem stóðust inntökuskilyrði: (n=14)

Mynd 1.

Val á heimildum og gæðamat

Greinar útilokaðar eftir skimun titla og útdrátta: (n=280)

(Polit og Beck, 2017). Tafla 3 sýnir yfirlit yfir gæðamatskvarða sem notaðir voru. Hámarksstig voru á bilinu 9 til 13. Til að einfalda gæðasamanburð ólíkra rannsókna voru stigin reiknuð yfir í prósentur og miðað við að aðeins rannsóknir með yfir 65% stiga væru teknar með í samantektina. Fjórar rannsóknir sem teknar voru með í samantektina voru samanburðarrannsóknir með slembiröðun og fimm tilraunarannsóknir án slembiröðunar sem eru þau rannsóknarsnið sem eru talin gefa áreiðanlegustu niðurstöðurnar (Polit og Beck, 2017). Fjórar rannsóknir voru svo lýsandi og ein eigindleg en þau rannsóknarsnið teljast minna áreiðanleg en geta gefið ákveðna dýpt á rannsóknarefnið (Polit og Beck, 2017). Þessi blanda af rannsóknum gefur því samantektinni áreiðanleika og dýpt sem stuðlar að heildrænni sýn á viðfangsefnið.

Gagnagreining

Greinar ekki sóttar í fullri lengd: (n=0)

Greinar í fullri lengd sem voru útilokaðar: Uppfyllti ekki inntökuskilyrði: (n=7)

Upphafleg leit skilaði 301 grein og var flestum greinanna hafnað við skimun titla og útdrátta. Tuttugu og ein grein var lesin í fullri lengd og eftir tvær yfirferðir var sjö greinum hafnað þar sem þær þóttu ekki standast inntökuskilyrðin nægilega vel. Fjórtán greinar uppfylltu skilyrðin og voru teknar með í þessa samantekt.

Notast var við gæðamatskvarða frá Joanna Briggs Institute (JBI Critical Appraisal Tools, 2021) til að meta gæði rannsóknanna sem teknar voru með í samantektina. Þrír aðilar framkvæmdu gæðamatið og var það gert til að auka réttmæti samantektarinnar

Tafla 3. Gæðamatskvarðar

Rannsóknargerð Rannsóknir í samantekt Gerð gæðamatskvarða Heimild fyrir gæðamatskvarða

Tilraunarannsókn án slembiröðunar

Samanburðarrannsókn með slembiröðun

Lýsandi rannsókn

Eigindleg rannsókn

Beltrami o.fl., 2021 Hsu o.fl., 2019 Pagnucci o.fl., 2018 Warjri o.lf., 2022 Younis o.fl., 2019a

Akpinar o.fl., 2021 Lee og Kang, 2020 Lin o.fl., 2022 Pamuk o.fl., 2022

Carrera-Hernández o.fl., 2018 Sayılan o.fl., 2020 Younis o.fl., 2019b Younis o.fl., 2020

Lewandowska o.fl., 2020

JBI Critical Appraisal Checklist for Quasi Experimental Studies (non-randomized experimental studies)

Tufanaru o.fl., 2020

JBI Critical Appraisal Checklist for Randomized Controlled Trials Barker o.fl., 2023

JBI Critical Appraisal Checklist for Studies Reporting Prevalence Data Munn o.fl., 2020

JBI Critical Apraisal Checklist for Qualitative Research Lockwood o.fl., 2015

Við gagnagreiningu og flokkun gagna var stuðst við leiðbeiningar Whittmore og Knafl (2005) um gerð samþættra fræðilegra samantekta. Til að fá yfirsýn yfir innihald rannsóknanna var gerð tafla (matrix) þar sem fram komu upplýsingar um höfunda, útgáfuár, staðsetningu, rannsóknarsnið, tilgang, íhlutun, úrtak, mælitæki, tímasetningar mælinga og niðurstöður (sjá töflu 4). Samhliða þessu voru sameiginlegar breytur í rannsóknunum metnar.

Siðferðileg álitamál

Ekki þurfti að sækja um leyfi fyrir samantektinni þar sem rannsóknirnar sem hún byggir á hafa allar verið birtar áður sem rannsóknargreinar.

NIÐURSTÖÐUR

Af þeim 14 rannsóknum sem teknar voru með í samantektina voru 13 megindlegar rannsóknir og ein eigindleg og voru þær birtar á árunum 2018-2022. Í heildina voru þátttakendur í rannsóknunum 1.256 gjörgæslusjúklingar og voru þeir frá Spáni (n=125), Póllandi (n=23), Ítalíu (n=74 ), Tyrklandi (n=343), Jórdaníu (n=309 ), Taívan (n=167), Indlandi (n=54), Suður-Kóreu (n=48) og Brasilíu (n=113). Fimm rannsóknir fjölluðu um þætti sem valda svefntruflunum fullorðinna gjörgæslusjúklinga (Carrera-Hernández o.fl., 2018; Lewandowska o.fl., 2020; Sayılan o.fl., 2020; Younis o.fl., 2019b; Younis o.fl., 2020). Eftir greiningu gagna var niðurstöðum skipt niður í flokkana „Áhrif hávaða á svefn gjörgæslusjúklinga“, „Áhrif lýsingar á svefn gjörgæslusjúklinga“, „Áhrif líðanar gjörgæslusjúklinga á svefn þeirra“ og „Áhrif inngripa og/eða íhluta á svefn gjörgæslusjúklinga“. Níu rannsóknir fjölluðu um aðferðir sem hægt er að beita til að bæta svefn fullorðinna gjörgæslusjúklinga (Akpinar o.fl., 2022; Beltrami o.fl., 2021; Hsu o.fl., 2019; Lee og Kang, 2020; Lin o.fl., 2022; Pagnucci o.fl., 2019; Pamuk og Turan, 2022; Warjri o.fl., 2022; Younis o.fl., 2019a). Eftir greiningu gagna var niðurstöðum skipt niður í flokkana: „Aðferðir til að draga úr áhrifum hávaða á svefn gjörgæslusjúklinga“, „Aðferðir til að draga úr áhrifum lýsingar á svefn gjörgæslusjúklinga“, „Aðferðir til að hafa áhrif á vanlíðan gjörgæslusjúklinga til að bæta svefn þeirra“ og „Margþættar aðferðir til að draga úr áhrifum umhverfisáreitis á svefn gjörgæslusjúklinga“.

Áhrif hávaða á svefn gjörgæslusjúklinga og aðferðir til að draga úr þeim

Fimm rannsóknir fjölluðu um áhrif hávaða á svefn gjörgæslusjúklinga (Carrera-Hernández o.fl., 2018; Lewandowska o.fl., 2020;

Samþykki
Skimun

Niðurstöður

Sjúklingar sem voru ekki með útlægan æðalegg sváfu marktækt betur en þeir sem voru með útlægan æðalegg. Áhyggjur, kvíði, verkir og umhverfishljóð (meðal annars raddir starfsfólks) höfðu marktæk áhrif á svefngæði sjúklinga.

Fimm þemu sem ollu svefntruflunum voru greind: kvíði, hávaði, ljós, heilbrigðisstarfsfólk og það er enginn staður eins og heima.

Hávaði mældist að meðaltali 63,05 dB yfir nóttina og 70,00 dB yfir daginn. Sterk marktæk fylgni var á milli styrks hávaða og undirflokka RCSQ. Marktækt tengsl voru á milli hávaða og RCSQ.

Ljós yfir nóttina mældist á bilinu 3-271 lx (104,1 lx að meðaltali). Neikvæð fylgni var á milli magn ljóss og svefngæða sjúklinga. Hávaði yfir nóttina mældist á bilinu 29,4-102 dB (63,9 dB að meðaltali). Neikvæð fylgni var á milli magns hávaða og svefngæða sjúklinga.

Marktæk neikvæð fylgni var á milli upplifun sjúklinga af svefngæðum sínum samkvæmt RCSS og hávaða, ljóss, hjúkrunarinngripa, mælinga lífsmarka, lyfjagjafa, tals og símhringinga samkvæmt FQSS.

Tilraunahópurinn var með marktækt hærri meðalstig á RQSC miðað við samanburðarhópinn eftir fyrstu og aðra nóttina með íhlutun. Marktækur munur var á meðal stigum á RCSQ í tilraunahópnum. Marktækur munur var á milli upplifun tilraunahóps og samanburðarhóps á hávaða. Marktækur munur var á upplifun sjúklinga af hávaða í tilraunahópnum.

Mælitæki, tímasetningar mælinga

Tafla 4. Rannsóknir í yfirlitsgrein

Höfundar, ár, land, rannsóknarsnið Tilgangur, íhlutun Úrtak

Richards-Campbell Sleep Questionnaire (RCSQ). Spurningalisti með níu spurningum um þætti sem taldir eru hafa mest áhrif á svefninn.

125 gjörgæslusjúklingar sem gátu skilið og talað spænsku og voru meðvitaðir og áttaðir.

Að lýsa upplif un sjúklinga sem leggjast inn á gjörgæslu af svefni yfir nótt.

Carrera-Hernández o.fl., 2018, Spánn, lýsandi framskyggn rannsókn.

Einstaklingsviðtöl byggð á tíu spurningum sem tveir rannsakendur framkvæmdu og voru þemagreind. Viðtöl fóru fram eftir útskrift sjúklinga af gjörgæslu.

Að lýsa upplifun sjúklinga á gjörgæslu af svefni og hvíld yfir nóttina og tengslum við áframhaldandi áhrif á svefn eftir útskrift af sjúkrahúsi. 23 sjúklingar sem lágu á gjörgæslu í að minnsta kosti sjö daga án slævingar sem töluðu pólsku.

Lewandowska o.fl., 2020, Pólland, eigindleg rannsókn byggð á fyrirbærafræði.

Benetech Gm1351 hávaðamælar. Visual Analog Scale (VAS). Richards-Campbell Sleep Questionnaire (RCSQ). Spielberger State Anxiety Inventory (SAI). Stöðugt mat á hávaða með hávaðamælum yfir 24 klst. tímabil.

111 fullorðnir sjúklingar sem lágu á gjörgæslu í að minnsta kosti tvo daga, samvinnuþýðir og með meðvitund, töluðu tyrknesku, og voru ekki með geðsjúkdóm eða þekkt svefnvandamál.

Að meta sambandið á milli hávaða á gjörgæslu og verkja, kvíða og svefngæða sjúklinga.

Sayılan o.fl., 2020, Tyrkland, lýsandi áhorfsrannsókn ( e. observational study ).

Richards-Campbell Sleep Questionnaire (RCSQ). Mælingar á hávaða með TES 1351b hljóðmæli. Mælingar á ljósi með TES1335 ljósmæli. RCSQ var lagður fyrir einu sinni.

103 fullorðnir gjörgæslusjúklingar sem voru með Glasgow Coma Scale (GCS) yfir 12 fyrstu tvær nætur gagna-söfnunar, gátu heyrt, skrifað og talað arabísku.

Younis o.fl., 2019, Jórdanía, þversniðsfylgnikönnun ( e. cross-sectional explor atory correlational design ). Að meta fylgni hávaða og ljóss á gjörgæslu við upplifun sjúklinga af svefni sínum.

Freedman Quality of Sleep Scale (FQSS). Richards-Campbell Sleep Scale (RCSS). FQSS og RCSS var svarað daginn eftir nótt á gjörgæslu.

103 fullorðnir gjörgæslusjúklingar sem voru með Glasgow Coma Scale (GCS) 13 eða hærra, gátu heyrt, skrifað og talað arabísku.

Að meta lýðfræðilegaog umhverfisþætti sem gætu haft neikvæð áhrif á svefngæði sjúklinga.

Ricards-Campbell Sleep Questionnaire (RCSQ).

Intensive Care Delirium Screening Checklist (ICDSC). Sjúklingar svöruðu RCSQ og ICDSC morguninn eftir fyrstu, aðra og þriðju nóttina á gjörgæslu.

Modified Sleep in the Intensive Care Unit Questionnaire (SICUQ). Spurningalistum svarað um morgun eftir hverja nótt á gjörgæslu. Hávaði ljós og verkir höfðu mest truflandi áhrif á svefn gjörgæslusjúklinga fyrir og eftir innleiðingu svefnverkferilsins. Hljóð sem höfðu mest áhrif á svefngæði sjúklinga voru viðvörunarhljóð frá hjartasíritum, lyfjadælum og öndunarvélum. Marktæk áhrif voru af innleiðingu verkferilsins á alla þætti RCSQ.

Richards-Campbell Sleep Questionnaire (RCSQ).

Svefngæði voru marktækt betri hjá tilraunahópnum miðað við samanburðarhóp eftir aðra og þriðju nótt með íhlutun skv. VSH, snjallúri og mati hjúkrunarfræðinga.

Verran & Snyder-Halpern Sleep Scale (VSH). Mælingar á svefn-vöku hringjum með snjallúri. Mat hjúkrunarfræðinga á hversu margar klst. á milli kl. 22:00 og 06:00 sjúklingar sváfu. Hospital Anxiety and Depression Scale (HADS). Mat á fjölda inngripa á milli kl. 22:00 og 06:00. Mat sjúklinga á áreiti sem inngrip ollu á svefni á skala 1-5.

Younis o.fl., 2020, Jórdanía, þversniðsfylgnikönnun.

84

fullorðnir gjörgæslusjúklingar sem höfðu ekki fengið slævingu eða ópíóíða seinustu 24 klst. gátu sett upp eyrnatappa og augngrímur sjálfstætt og voru ekki með greint svefnvandamál. Skipt í samanburðarog tilraunahóp.

Að meta áhrif þess að nota eyrnatappa og augngrímur yfir nótt á svefngæði og þróun óráðs meðal gjörgæslusjúklinga. Notkun eyrnatappa og augngríma yfir nótt tvö og þrjú í gjörgæslulegunni (ca á milli kl. 22:30 og 06:30).

Akpinar o.fl., 2021, Tyrkland, samanburðarrannsókn með tilraunasniði og slembiröðun ( e. randomized controlled experimental study ).

113 fullorðnir gjörgæslusjúklingar sem voru að minnsta kosti eina nótt á gjörgæslu sem voru ekki í öndunarvél eða með skerta meðvitund. Skipt í samanburðarog tilraunahóp.

Að meta svefngæði gjörgæslusjúklinga og hvort marghliða svefnverkferill myndi bæta svefngæðin. Svefnverkferill sem fól í sér takmörkun á hávaða og ljósi, að bregðast við sársauka og aðra almenna þætti.

60 fullorðnir gjörgæslusjúklingar með meðvitund sem áttu ekki erfitt með heyrn eða sjón og tóku ekki svefnlyf fyrir innlögn á gjörgæslu. Skipt í samanburðarog tilraunahóp.

Að skoða áhrif baknudds á svefngæði, kvíða og þunglyndi meðal gjörgæslusjúklinga. 15 mín baknudd kl. 21:00. Meðferð endurtekin fyrir þrjár nætur.

Beltrami o.fl., 2021, Brasilía, tilraunarannsókn án slembiröðunar ( e. quasi-experimental study ).

o.fl., 2019, Taívan, tilraunarannsókn án slembiröðunar.

Hsu

Niðurstöður

Svefngæði tilraunahópsins eftir íhlutun voru marktækt meiri en hjá samanburðarhópnum samkvæmt Korean Sleep Scale A. Sjúklingar í tilraunahópnum voru vakandi í marktækt styttri tíma eftir að hafa sofnað. Sjúklingar í tilraunahópnum voru með marktækt meiri djúpsvefn og skilvirkari svefn.

Mælitæki, tímasetningar mælinga

Úrtak

48 fullorðnir gjörgæslusjúklingar sem fengu ekki slævandi-, vöðvaslakandieða verkjalyf eftir innlögn, áttu ekki erfitt með heyrn eða sjón og þurftu ekki stuðning við líffæri með vélum. Skipt í samanburðarog tilraunahóp. Pittsburgh Sleep Quality Index (PSQI). Korean Sleep Scale A. Hlutlægar mælingar á svefni með snjallúri. Sjúklingar svöruðu PSQI daginn sem þeir lögðust inn á gjörgæslu. Korean Sleep Scale A var svarað morguninn eftir að íhlutun var veitt.

Richards-Campbell Sleep Questionnaire (RCSQ). MT6 mældur í þvagi safnað á milli kl. 22:00 og 07:00 Lífsmörk mæld með sírita. Hljóðmælingar með hljóðmæli festum á vegg. Mat á fjölda hjúkrunarinngripa á klst. fresti á milli kl. 22:00 og 07:00. RCSQ fyrir svefninn heima fyrir innlögn svarað eftir minni við innlögn á gjörgæslu. Á degi tvö og þrjú eftir innlögn svöruðu sjúklingar RCSQ kl. 10. Ekki var marktækur munur á breytingunni á RCSQ, MT6 í þvagi eða lífsmörkum á milli hópa fyrir og eftir íhlutun.

107 fullorðnir gjörgæslusjúklingar með meðvitund, sem gátu lesið og tjáð sig, voru ekki slævðir með lyfjum og voru ekki í öndunarvél. Skipt í samanburðarog tilraunahóp.

Höfundar, ár, land, rannsóknarsnið Tilgangur, íhlutun

Lee og Kang, 2020, Suður-Kórea, samanburðar-rannsókn með slembiröðun ( e. randomoized controlled trial ). Að meta áhrif hugleiðslu með sýndarveruleikagleraugum á svefn gjörgæslusjúklinga og hvort notkun þeirra væri fýsileg sem svefninngrip. NOON PRO-sýndarveruleikagleraugu sem útiloka ytra áreiti (sjón og heyrn) notuð til að spila 30 mín. hugleiðslumyndband. Sjúklingar völdu úr átta myndböndum sem fólu í sér náttúrumyndir, bakgrunnshljóð og róandi tónlist til að horfa á 30 mín. áður en þeir fóru að sofa (á milli kl. 21:00 og 23:00).

Marktækt betri svefngæði voru eftir íhlutun miðað við fyrir íhlutun þar sem marktækt fleiri sjúklingar voru með meiri djúpsvefn, áttu auðveldara með að sofna, vöknuðu sjaldnar og urðu fyrir færri hávaðatruflunum.

Stress factors in the ICU questionnaire (SEDAICU). Modified Richards-Campbell Sleep Questionnaire (Modified RCSQ). Báðum svarað eftir eina nótt á gjörgæslu án íhlutunar og aftur eftir nótt á gjörgæslu eftir íhlutun.

Djúpsvefn, léttur svefn og heildarsvefn var marktækt meiri í tilraunahópnum. Öndunartíðni sjúklinga í tilraunahópnum var marktækt lægri eftir 48 klst. á gjörgæslu.

Hlutlægar mælingar á svefni með snjallúri, mat á svefnmynstri, svefnmagni og svefngæðum. Lífsmörk.

Fyrir íhlutun mátu marktækt fleiri í tilraunahópnum svefngæði sín upp á 38 eða meira á Likert-skalanum. Marktæk breyting varð á svefngæðum í tilraunahópnum eftir allar nætur með íhlutun. Hávaði í gjörgæslunni mældist reglulega yfir 60 dB.

Fjögurra skrefa Likert-skali með 14 þáttum notaður til að meta svefngæði. Mælingar á hávaða innan gjörgæsludeildar með hljóðmæli.

Marktækur munur var á öllum þáttum svefngæða. Upplifun sjúklinga í tilraunarhópnum á heildar svefngæðum var marktækt betri eftir nótt með íhlutun. Allir þættir svefngæða skv. RCSQ voru marktækt betri í tilraunahópnum eftir nótt með íhlutun og tilraunahópurinn svaf marktækt fleiri klst. yfir nótt með íhlutun.

Richards-Campbell Sleep Scale (RCSS). Sjálfsmat sjúklinga á fjölda klst. sem þeir sváfu. RCSQ og sjálfsmat framkvæmt eftir fyrstu og aðra nóttina á gjörgæslu.

Lin o.fl., 2022, Taívan, samanburðarrannsókn með slembiröðun. Að meta áhrif þess að nota eyrnatappa á svefn gjörgæslusjúklinga. Notkun eyrnatappa á milli kl. 22:00 og 07:00 aðra nótt sjúklinga á gjörgæslu.

Að meta hvort viðbótarmeðferðir hefðu áhrif á upplifun gjörgæslsjúklinga með meðvitund á streituþáttum og svefngæðum. 20 mín. fótaog fótleggjanudd með möndluolíu með viðbættri lofnarblómaog sítrónuilmolíu. Sjúklingar hlustuðu á tónlist að eigin vali eða róandi náttúruhljóð á meðan nuddið átti sér stað og á milli kl. 23:00 og 07:00. 74 fullorðnir gjörgæslusjúklingar með meðvitund sem voru ekki með taugaskaða eða greind svefnvandamál og voru ekki í öndunarvél.

Pagnucci o.fl., 2019, Ítalía, tilraunarannsókn án slembiröðunar með fyrirog eftirsniði.

148 fullorðnir gjörgæslusjúklingar sem voru ekki með vandamál tengd meðvitund eða skynfærum, voru á gjörgæslu í a.m.k. 48 klst. Skipt í samanburðarog tilraunahóp.

Að meta áhrif ljóss á svefngæði og lífeðlisfræðilegar breytur sjúklinga á gjörgæslu og til leiðbeiningar fyrir hjúkrun. Ljósakerfi með 9 mismunandi ljósstyrkjum var sett upp. Ljósin vísuðu upp og voru kveikt í 24 klst. og breyttust á ákveðnum tímum til að líkja eftir náttúrulegri dægursveiflu birtu yfir sólarhringinn.

Pamuk og Turan, 2022, Tyrkland, samanburðarrannsókn með tilraunasiði og slembiröðun.

Warjri o.fl., 2022, Indland, tilraunarannsókn án slembiröðunar með fyrir og eftir sniði ( e. quasi-experimental time series per-test-post-test control group design ). Að meta hagkvæmni og notkun snjósuðs ( e. white noise ) snjallforrits til þess að stjórna hljóðstyrk á gjörgæslu sem getur komið í veg fyrir svefngæði gjörgæslusjúklinga. Notkun snjallforrits sem spilaði snjósuð í mismunandi tíðni (20-20.000 Hz). Forritið var notað tvisvar á dag, seinni partinn og um kvöld í þrjá daga. 54 fullorðnir gjörgæslusjúklingar sem voru áttaðir og með meðvitund, stöðug lífsmörk, heyrn sem skynjaði a.m.k. 20 dB hljóðstyrk og voru ekki í öndunarvél, með slævingu eða geðsjúkdóm. Skipt í samanburðarog tilraunahóp.

Að meta áhrif þess að nota augngrímur og eyrnatappa á upplifun gjörgæslusjúklinga af svefni sínum. Notkun augngrímu og eyrnatappa yfir nótt á gjörgæslu á milli kl. 22:00 og 06:00. 103 fullorðnir gjörgæslusjúklingar sem töluðu arabísku, með eðlileg lífsmörk, notuðu ekki svefnlyf eða voru slævðir, voru ekki í öndunarvél, voru ekki með geðsjúkdóm eða langvarandi svefnvandamál sem voru tvær nætur á gjörgæslu. Skipt í samanburðarog tilraunahóp.

Younis o.fl., 2019, Jórdanía, tilraunarannsókn án slembiröðunar með fyrirog eftirsniði.

Sayılan o.fl., 2020; Younis o.fl., 2019b; Younis o.fl., 2020) og tóku 465 gjörgæslusjúklingar þátt. Niðurstöður þeirra bentu til þess að hávaði var einn af þeim þáttum sem sjúklingum fannst mest truflandi fyrir svefn sinn á gjörgæslu (Carrera-Hernández o.fl., 2018; Lewandowska o.fl., 2020) og að um helmingur þeirra sjúklinga sem fannst hávaði á gjörgæslu vera mjög truflandi, sváfu illa (Carrera-Hernández o.fl., 2018). Hávaði mældist að meðaltali um 63 dB yfir nótt (Sayılan o.fl., 2020; Younis o.fl., 2019b), en sýnt var fram á tengsl á milli hávaðastyrks og skerðingar á svefngæðum sjúklinga þar sem aukinn hávaði leiddi til skertra svefngæða (Sayılan o.fl., 2020; Younis o.fl., 2019b; Younis o.fl., 2020). Svefngæði urðu marktækt betri þegar hávaðinn fór undir 61 dB (Sayılan o.fl., 2020). Orsakir hávaða sem sjúklingar töldu truflandi voru raddir og samtöl starfsfólks (Carrera-Hernández o.fl., 2018; Lewandowska o.fl., 2020; Younis o.fl., 2020), símhringingar (Younis o.fl., 2020), viðvörunarbjöllur eftirlitsskjáa og hávaði tengdur meðferð sem verið var að veita öðrum sjúklingum (Lewandowska o.fl., 2020).

Tvær rannsóknir skoðuðu aðferðir sem gætu dregið úr áhrifum hávaða á svefn gjörgæslusjúklinga (Lin o.fl., 2022; Warjri o.fl., 2022) og tóku 161 gjörgæslusjúklingur þátt í þeim. Rannsóknirnar skoðuðu notkun eyrnatappa (Lin o.fl., 2022) og snjósuðs (e. white noise) (Warjri o.fl., 2022). Ekki var hægt að sýna fram á að notkun eyrnatappa bætti svefn sjúklinga. Auk þess kom í ljós að meirihluta sjúklinga fannst notkunin óþægileg og afþökkuðu jafnvel þeir sem upplifðu betri svefn með notkun eyrnatappa frekari notkun (Lin o.fl., 2022). Notkun snjósuðs sem spilað var seinni partinn og um kvöld sýndi fram á betri áhrif á svefn sjúklinga. Prófuð var mismunandi tíðni snjósuðs (20-20000 Hz) og sýnt var fram á bætt svefngæði með notkuninni (Warjri o.fl., 2022).

Áhrif lýsingar á svefn gjörgæslusjúklinga og aðferðir til að draga úr þeim

Þrjár rannsóknir fjölluðu um áhrif lýsingar á svefn gjörgæslusjúklinga (Lewandowska o.fl., 2020; Younis o.fl., 2019b; Younis o.fl., 2020) og tóku 229 gjörgæslusjúklingar þátt í þeim. Sýnt var fram á neikvæða fylgni á milli styrkleika ljóss yfir nótt og svefngæða sjúklinga þar sem aukinn ljósstyrkur leiddi til verri svefngæða (Younis o.fl., 2019b; Younis o.fl., 2020). Einnig kom í ljós að sjúklingar upplifðu svefntruflanir af ljósum sem kveikt voru yfir nótt og af dagsbirtu á daginn sem þeim fannst koma í veg fyrir hvíld (Lewandowska o.fl., 2020).

Aðeins ein rannsókn skoðaði aðferðir sem gætu dregið úr áhrifum lýsingar á svefn gjörgæslusjúklinga (Pamuk og Turan, 2022), en í henni tóku 148 gjörgæslusjúklingar þátt. Rannsóknin skoðaði notkun ljósakerfis sem líkir eftir náttúrulegri dægursveiflu birtustigs. Sýnt var fram á að notkun ljósakerfisins stuðlaði að lengri djúpsvefni, lengri léttum svefni og auknum heildarsvefntíma sjúklinga (Pamuk og Turan, 2022).

Áhrif líðanar gjörgæslusjúklinga á svefn þeirra og aðferðir til að draga úr vanlíðan til að bæta svefn Niðurstöður tveggja rannsókna fjölluðu um áhrif líðanar gjörgæslusjúklinga á svefn þeirra (Carrera-Hernández o.fl., 2018; Lewandowska o.fl., 2020) og tóku 148 gjörgæslusjúklingar þátt. Sýnt var fram á að kvíði og áhyggjur höfðu neikvæð áhrif á svefn sjúklinga (Carrera-Hernández o.fl., 2018; Lewandowska o.fl., 2020). Einnig kom í ljós að um helmingur sjúklinga taldi verki hafa neikvæð áhrif á svefn sinn (Carrera-Hernández o.fl., 2018). Annað sem hafði áhrif á svefn sjúklinga var hversu ólíkar aðstæður þeirra

á gjörgæslu voru miðað við venjulegar aðstæður þeirra heima. Sjúklingar lýstu vanlíðan vegna skertra samskipta við fjölskyldur sínar og þreytu vegna langvarandi skerðingar á svefngæðum. Sjúklingar upplifðu betri svefn eftir gjörgæsluleguna þegar þeir komust aftur í sína eigin rútínu og töldu að hægt hefði verið að bæta svefn þeirra á gjörgæslu með því að mæta betur einstaklingsbundnum þörfum þeirra (Lewandowska o.fl., 2020).

Í þremur rannsóknum voru skoðaðar aðferðir sem gætu haft áhrif á vanlíðan gjörgæslusjúklinga til að stuðla að bættum svefni þeirra (Hsu o.fl., 2019; Lee og Kang, 2020; Pagnucci o.fl., 2019) og tóku 182 gjörgæslusjúklingar þátt í þeim. Skoðuð voru áhrif nudds (Hsu o.fl., 2019), nudds með ilmolíum og tónlist (Pagnucci o.fl., 2019) og hugleiðslu (Lee og Kang, 2020). Sýnt var fram á bætt svefngæði sjúklinga eftir baknudd tvö kvöld í röð (Hsu o.fl., 2019).

Sjúklingar sem fengu fóta- og fótleggjanudd með möndluolíu með viðbættum lofnarblóma- og sítrónuilmolíum og hlustuðu á tónlist eða náttúruhljóð meðan á nuddinu stóð og fram til morguns upplifðu einnig aukin svefngæði og minni truflun af umhverfinu (Pagnucci o.fl., 2019). Hugleiðsla með sýndarveruleikagleraugum þar sem sjúklingar horfðu á 30 mínútna hugleiðslumyndbönd með náttúrumyndum og róandi tónlist 30 mínútum fyrir svefninn jók svefngæði þeirra. Einnig vöknuðu sjúklingar minna yfir nóttina og fengu meiri djúpsvefn eftir hugleiðsluna (Lee og Kang, 2020).

Áhrif inngripa og/eða íhluta á svefn gjörgæslusjúklinga Í þremur rannsóknum sem náðu til 251 gjörgæslusjúklings var fjallað um áhrif inngripa og/eða íhluta á svefn (Carrera-Hernández o.fl., 2018; Lewandowska o.fl., 2020; Younis o.fl., 2020). Niðurstöður þeirra bentu til að meðferðartengd inngrip sem veitt voru yfir nótt og íhlutir höfðu neikvæð áhrif á svefn sjúklinga (Carrera-Hernández o.fl., 2018; Lewandowska o.fl., 2020; Younis o.fl., 2020). Meðal annars kom í ljós að sjúklingar sváfu marktækt betur þegar þeir voru ekki með útlæga æðaleggi (Carrera-Hernández o.fl., 2018). Hraði meðferðar á gjörgæsludeild og fjöldi inngripa sem þurfti að veita sjúklingnum sjálfum og öðrum í kring hafði einnig neikvæð áhrif á hvíld sjúklinga yfir nótt (Lewandowska o.fl., 2020). Inngrip sem höfðu marktækt truflandi áhrif á svefngæði voru hjúkrunarmeðferðir, lífsmarkamælingar og lyfjagjafir (Younis o.fl., 2020).

Margþættar aðferðir til að draga úr áhrifum umhverfisáreitis á svefn gjörgæslusjúklinga Í þremur rannsóknum voru skoðaðar margþættar aðferðir sem gætu dregið úr áhrifum umhverfisáreitis á svefn gjörgæslusjúklinga (Akpinar o.fl., 2022; Beltrami o.fl., 2021; Younis o.fl., 2019a) og tóku 300 gjörgæslusjúklingar þátt í þeim. Notkun eyrnatappa og augngríma saman leiddi til aukinna svefngæða sjúklinga (Akpinar o.fl., 2022; Younis o.fl., 2019a). Hávaði hafði minni áhrif á svefn þeirra (Akpinar o.fl., 2022) og sjúklingar upplifðu svefn sinn almennt betri með notkuninni þar sem þeir voru fljótari að sofna, vöknuðu sjaldnar yfir nóttina, svefndýpt jókst og þeir sváfu fleiri klukkustundir (Younis o.fl., 2019a). Einnig hafði svefnverkferill með mörgum íhlutunum sem fól í sér takmörkun á hávaða og ljósi, viðbrögð við verkjum og aðra almenna þætti jákvæð áhrif á svefn sjúklinga. Takmörkun hávaða fól í sér að bjóða sjúklingum eyrnatappa, loka sjúklingatjöldum, lækka hljóð í símum og eftirlitsskjáum og takmarka tal starfsfólks nálægt sjúklingum. Takmörkun á ljósi fól í sér að bjóða sjúklingum augngrímur og minnka umhverfisljós. Almennir þættir voru að bjóða sjúklingum nikótínplástra, meta þörf á svefnlyfjum, bjóða sjúklingum teppi, skipta á lyfjadreypum áður en viðvörunarhljóð

heyrðust og að takmarka meðferðir og inngrip yfir nóttina. Þessar íhlutanir leiddu til þess að sjúklingar áttu auðveldara með að sofna og vöknuðu sjaldnar yfir nóttina, fengu meiri djúpsvefn og upplifðu aukin svefngæði (Beltrami o.fl., 2021).

UMRÆÐUR

Tilgangur þessarar fræðilegu samantektar var að greina þá þætti sem hafa mest truflandi áhrif á svefn gjörgæslusjúklinga og hvaða aðferðum hægt er að beita til að bæta hann, með áherslu á aðferðir sem hjúkrunarfræðingar geta beitt sjálfstætt. Leitað var að rannsóknargreinum sem byggðu á gagnreyndri þekkingu sem uppfylltu gæðastaðal. Greindar voru fjórar meginástæður fyrir svefntruflunum gjörgæslusjúklinga út frá niðurstöðum samantektarinnar. Þær voru hávaði, lýsing, líðan og inngrip og/ eða íhlutir sem orsakir svefntruflana á gjörgæslu. Eins voru greindir fjórir flokkar af aðferðum sem nýta má til að bæta svefn gjörgæslusjúklinga. Þeir voru aðferðir til að draga úr áhrifum hávaða á svefn, aðferðir til að draga úr áhrifum lýsingar á svefn, aðferðir til að hafa áhrif á vanlíðan til að bæta svefn og margþættar aðferðir til að draga úr áhrifum umhverfisáreitis á svefn. Í töflu 5 má sjá tillögur að aðferðum sem hjúkrunarfræðingar geta nýtt til að draga úr svefntruflunum gjörgæslusjúklinga.

Sýnt hefur verið fram á að hávaði hefur truflandi áhrif á svefn gjörgæslusjúklinga (Carrera-Hernández o.fl., 2018; Lewandowska o.fl., 2020; Sayılan o.fl., 2020; Younis o.fl., 2019b; Younis o.fl., 2020) og að hávaði á gjörgæslu mælist reglulega yfir æskilegum hávaðamörkum (Sayılan o.fl., 2020; Younis o.fl., 2019b). Hávaði var sá þáttur sem truflaði svefn sjúklinga einna mest (Lewandowska o.fl., 2020). Þó kom í ljós að sjúklingar sem fundu ekki fyrir truflun af hávaða upplifðu einnig svefntruflanir (Carrera-Hernández o.fl., 2018) en það samræmist niðurstöðum annarra rannsókna þar sem erfitt hefur verið að greina einn mögulegan orsakavald fyrir svefntruflunum gjörgæslusjúklinga (Horsten o.fl., 2018). Styrkur hávaða virðist hafa áhrif á hversu mikilli truflun hann veldur á svefni sjúklinga þar sem aukinn hávaði leiðir til verri svefns (Sayılan o.fl., 2020; Younis o.fl., 2019b; Younis o.fl., 2020). Einnig kom í ljós að tal og raddir starfsfólks var helsti truflandi hávaðavaldurinn (Carrera-Hernández o.fl., 2018; Lewandowska o.fl., 2020; Younis o.fl., 2020) en aðrir truflandi hávaðavaldar voru símhringingar, almennur hávaði (Younis o.fl., 2020) og hávaði frá viðvörunarbjöllum (Lewandowska o.fl., 2020). Hjúkrunarfræðingar á gjörgæslu þurfa því að einbeita sér að því að draga úr þessum hávaðavöldum til að stuðla að bættum svefngæðum sjúklinga. Mest rannsakaða íhlutunin sem aðferð til að koma í veg fyrir áhrif hávaða á svefn gjörgæslusjúklinga er notkun eyrnatappa (Akpinar o.fl., 2022; Beltrami o.fl., 2021; Lin o.fl., 2022; Younis o.fl., 2019a). Í þessari samantekt var rannsókn Lin o.fl. (2022) sú eina þar sem eyrnatappar voru skoðaðir sem eina inngripið til að hafa áhrif á svefninn. Þar kom í ljós að eyrnatappar höfðu engin áhrif og að sjúklingar upplifðu óþægindi við notkunina. Þetta eru svipaðar niðurstöður og hafa komið fram í öðrum rannsóknum um notkun eyrnatappa til að draga úr áhrifum hávaða á svefn gjörgæslusjúklinga (Horsten o.fl., 2018). Þrátt fyrir þetta er notkun eyrnatappa einfalt og ódýrt inngrip sem hægt er að bjóða sjúklingum þar sem það gæti mögulega gagnast einhverjum. Mikilvægt er þó að hafa í huga takmörkuð áhrif inngripsins til að bæta svefn og þörfina á að nýta önnur úrræði til að draga úr hávaða samhliða notkuninni. Til dæmis væri hægt að nota snjósuð og önnur bakgrunnshljóð þar sem sýnt hefur verið fram á árangur þess til að draga úr áhrifum hávaða á

Tafla 5. Tillögur að aðferðum sem hjúkrunarfræðingar geta nýtt til að draga úr svefntruflunum gjörgæslusjúklinga

Aðferðir til að draga úr hávaða og/eða minnka áhrif hávaða á svefn gjörgæslusjúklinga

Takmarka samtöl milli starfsfólks í rými sjúklinga

Lækka hljóðstyrk í símum

Lækka hljóðstyrk viðvörunarbjalla í eftirlitsskjáum, lyfja- og vökvadælum og öðrum tækjum eins og hægt er

Bjóða notkun eyrnatappa sem viðbót við önnur úrræði

Nýta bakgrunnshljóð eins og snjósuð (e. white noise) yfir stutt tímabil seinni partinn og/eða á kvöldin til að stuðla að ró og ýta undir svefn

Aðferðir til að draga úr lýsingu og/eða minnka áhrif lýsingar á svefn gjörgæslusjúklinga

Huga að því að birta yfir sólarhringinn líkist dægursveiflunni eins og hægt er, til dæmis með því að draga frá gluggum og hafa bjart yfir daginn og takmarka ónáttúrulega birtu yfir nóttina

Innleiða hvíldartíma þar sem dregið er úr ljósi og hávaða yfir ákveðið tímabil á daginn, helst seinni partinn og á kvöldin fyrir svefn sjúklinga

Reyna að takmarka inngrip yfir nótt sem krefjast sterks ljóss eins og hægt er

Draga fyrir sjúklingatjöld ef ástand sjúklings leyfir

Bjóða notkun augngríma sem viðbót við önnur úrræði

Aðferðir til að minnka áhrif af vanlíðan gjörgæslusjúklinga á svefn þeirra

Draga úr kvíða og áhyggjum sjúklinga með því að stuðla að viðveru aðstandenda

Draga úr kvíða og áhyggjum sjúklinga með því að veita nærveru, útskýra meðferð, veita upplýsingar og auðvelda tjáskipti við sjúklinga

Veita einstaklingsbundna meðferð og huga að svefnvenjum sjúklinga eins og hægt er, til dæmis með því að leyfa sjúklingum að ráða hvenær þeir fara að sofa og bjóða aukaábreiður og -kodda

Veita nudd í 15-20 mínútur fyrir svefninn, bjóða sjúklingum krem eða olíu með/án lofnarblómailmolíu fyrir nuddið

Bjóða upp á hugleiðslumyndbönd á spjaldtölvu fyrir svefninn

Aðferðir til að draga úr inngripum og/eða minnka áhrif inngripa og/eða íhluta á svefn gjörgæslusjúklinga

Fjarlægja útlæga æðaleggi og aðra íhluti um leið og hægt er

Takmarka hjúkrunarinngrip yfir nótt við þau sem eru nauðsynleg fyrir fullnægjandi meðferð sjúklinga

Skipuleggja hjúkrunarinngrip yfir nótt þannig að margt sé gert samtímis þegar þörf er á inngripi, helst þegar sjúklingar rumska sjálfir og/eða með að minnsta kosti 90 mínútum af ótruflaðri hvíld á milli inngripa

svefn gjörgæslusjúklinga (Warjiri o.fl., 2022). Rannsóknir gefa þó misvísandi niðurstöður varðandi notkunina. Riedy o.fl. (2021) mæltu ekki með notkun bakgrunnshljóða til að bæta svefn sjúklinga þar sem margar rannsóknir sem skoða inngripið skortir gæði og stöðug hljóð gætu haft neikvæð áhrif á svefninn. Almennt hefur þó verið sýnt fram á að snjósuð geti dregið úr áhrifum hávaða á svefn (Ebben o.fl., 2021). Því þarf að huga að því hvernig nota á snjósuð og bakgrunnshljóð til að draga úr áhrifum hávaða á svefn gjörgæslusjúklinga. Hægt er að nota þau yfir ákveðið tímabil seinni part og um kvöld líkt og í rannsókn Warjiri o.fl. (2022) og þannig fá fram jákvæð áhrif á svefninn ásamt því að koma í veg fyrir möguleg neikvæð áhrif stöðugs hljóðs.

Gjörgæslusjúklingar upplifa svefntruflanir af breytilegri lýsingu bæði yfir nóttina og á daginn (Lewandowska o.fl., 2020). Því þarf

að huga að svefni þeirra allan sólarhringinn. Nýta þarf dagsbirtu á viðeigandi tímum dags til að stuðla að réttri dægursveiflu sjúklinga. Því hefur verið mælt með hvíldartímum þar sem dregið er úr umhverfisáreiti svo sem ónáttúrulegu ljósi og hávaða seinni part dags til að stuðla að betri svefni (Chang o.fl., 2020). Slæm áhrif ljóss yfir nótt á svefn gjörgæslusjúklinga eru augljósari þar sem svefngæði þeirra versna eftir því sem styrkur ljóssins eykst (Younis o.fl., 2019b; Younis o.fl., 2020) en truflun af ljósi fer helst eftir því hvenær það er kveikt, hversu lengi það er til staðar og hversu sterkt það er (Lusczek og Knauert, 2021). Því þarf að reyna að takmarka þörf á lýsingu á gjörgæslu yfir nótt eins og hægt er. Notkun ljósakerfis sem líkir eftir náttúrulegri dægursveiflu birtu getur verið gagnlegt til að draga úr neikvæðum áhrifum lýsingar á svefn sjúklinga (Pamuk og Turan, 2022). Þetta er í samhengi við það sem áður hefur komið fram um að það skipti máli fyrir svefn gjörgæslusjúklinga hvenær dagsbirta er nýtt (Lewandowska o.fl., 2020). Út frá niðurstöðum Pamuk og Turan (2022) væri hægt að miða við að styrkur birtu væri minnstur rétt áður en sjúklingar færu að sofa til að stuðla að betri svefni.

Gjörgæslusjúklingar upplifa oft neikvæðar tilfinningar svo sem kvíða (Alsulami o.fl., 2019; Medrzycka-Dabrowska o.fl., 2018) sem geta haft neikvæð áhrif á svefn þeirra (Carrera-Hernández o.fl., 2018; Lewandowska o.fl., 2020). Mikilvægt er því að hjúkrunarfræðingar séu meðvitaðir um kvíðavaldandi þætti og reyni að draga úr kvíða sjúklinga, til dæmis með nærveru og upplýsingagjöf (Mattiussi o.fl., 2019). Rannsóknir hafa sýnt fram á að hávaði og röskun á dægursveiflu séu kvíðavaldandi þættir við innlögn á sjúkrahús (Lewandowska o.fl., 2020) sem geta þannig haft neikvæð áhrif á svefn sjúklinga. Rannsókn Lewandowska o.fl. (2020) sýndi að sjúklingar töldu að hægt hefði verið að bæta svefngæði þeirra á gjörgæslu ef þörfum þeirra hefði verið mætt meira einstaklingsbundið og almennt er aukin áhersla farin að vera á einstaklingsbundna hjúkrun. Hjúkrunarfræðingar á gjörgæslu upplifa ákveðnar hindranir til þessa, svo sem skipulag deildar, erfiðleika við að hafa samskipti við sjúklinga vegna ástands þeirra og hugmyndafræði gjörgæsludeilda (Jakimowicz o.fl., 2017). Mikilvægt er að hjúkrunarfræðingar á gjörgæslu láti þessar hindranir ekki koma í veg fyrir að þeir veiti sjúklingum einstaklingsbundna meðferð fyrir svefninn þegar mögulegt er. Þetta geta verið litlir þættir eins og að aðlaga dagskipulag deildar að þörfum hvers og eins og nýta viðeigandi samskiptaform eftir ástandi sjúklings hverju sinni. Inngrip sem geta haft áhrif á líðan gjörgæslusjúklinga geta haft jákvæð áhrif á svefn þeirra. Sýnt hefur verið fram á að nudd bæði eitt og sér (Hsu o.fl., 2019) og ásamt tónlist/náttúruhljóðum og lofnarblóma- og sítrónuilmolíum (Pagnucci o.fl., 2019) getur stuðlað að bættum svefni sjúklinga. Notast var við nudd í 15-20 mínútur (Hsu o.fl., 2019; Pagnucci o.fl., 2019) sem bendir til þess að inngrip sem tekur stuttan tíma getur haft jákvæð áhrif. Því ættu hjúkrunarfræðingar að geta innleitt nudd í meðferð sjúklinga á gjörgæslu fyrir svefninn. Hægt væri að bjóða krem, mögulega með slakandi ilmolíum eins og lofnarblómum (Antonelli og Donelli, 2020), til nuddsins fyrir þá sjúklinga sem þola það til að stuðla enn frekar að slökun og þægindum sjúklinga fyrir svefninn (Chang o.fl., 2020). Önnur aðferð sem bætti líðan gjörgæslusjúklinga fyrir svefninn var hugleiðsla með sýndarveruleikagleraugum (Lee og Kang, 2020). Sýnt hefur verið fram á kosti hugleiðslu til slökunar og til að ýta undir svefn almennt (Rusch o.fl., 2019) og því líklegt að það sama eigi við á gjörgæslu. Ekki er hægt að gera ráð fyrir að gjörgæsludeildir hafi aðgengi að sýndarveruleikagleraugum og því

þarf að finna aðrar leiðir til að nýta hugleiðslu fyrir svefninn. Sem dæmi væri hægt að nýta spjaldtölvur þar sem búið væri að setja upp hugleiðslumyndbönd og hægt að hlusta með heyrnatólum sem útiloka önnur umhverfishljóð. Þetta væri lítið inngrip sem hjúkrunarfræðingar á gjörgæslu ættu að geta nýtt sér auðveldlega til að stuðla að bætum svefni sjúklinga.

Gjörgæslumeðferð krefst oft margra íhluta. Rannsókn CarreraHernández o.fl. (2018) sýndi fram á að gjörgæslusjúklingar upplifðu helst svefntruflanir af útlægum æðaleggjum. Þessar niðurstöður eru nokkuð jákvæðar þar sem oftast er auðveldara að takmarka notkun og/eða fjarlægja útlæga æðaleggi heldur en aðra íhluti sem gjörgæslusjúklingar þurfa að hafa fyrir meðferð sína þar sem þeir eru flestir með annað æðaaðgengi fyrir lyf og vökva, svo sem miðlæga æðaleggi eða PICC-línur (e. peripherally inserted central catheters) (Cotogni og Pittiruti, 2014). Almennt væri hægt að mæla með því að fjarlægja íhluti um leið og kostur er til að auka þægindi gjörgæslusjúklinga og mögulega bæta svefn þeirra þó að niðurstöður rannsóknar Carrera-Hernández o.fl. (2018) hafi ekki sýnt fram á að það bæti svefn þeirra marktækt. Gjörgæslumeðferð krefst einnig margra hjúkrunarinngripa (Groenland o.fl., 2019) en bæði inngrip sem veitt eru sjálfum sjúklingnum og öðrum sjúklingum í kring geta haft truflandi áhrif á svefninn (Lewandowska o.fl., 2020). Helstu svefntruflandi inngripin í rannsókn Younis o.fl. (2020) voru mælingar lífsmarka, lyfjagjafir og almenn hjúkrunarinngrip, svo sem legubreytingar og blóðprufur (Hofhuis o.fl., 2018). Hjúkrunarfræðingar á gjörgæslu þurfa að spyrja sig hvaða inngrip teljast nauðsynleg yfir nóttina fyrir útkomur sjúklinga og hvort hægt sé að aðlaga meðferð þannig að margt sé gert í einu þegar sjúklingar rumska sjálfir. Mikilvægt er að reyna að leyfa sjúklingum að ná að minnsta kosti heilum svefnhring á milli inngripa, eða um 90 mínútna svefni, til að lágmarka áhrif truflunarinnar á svefn þeirra (Alsulami o.fl., 2019). Þessi nálgun hefur verið nýtt lengi á nýburagjörgæslum með góðum árangri (Phillips, 2015) og því ætti að vera hægt að nýta sömu aðferðir fyrir fullorðna gjörgæslusjúklinga.

Eins og fram hefur komið þarf að huga að mörgum þáttum til að bæta svefn gjörgæslusjúklinga. Því getur verið nauðsynlegt að nýta margþættar aðferðir til að stuðla að bættum svefni. Sjúklingar mátu svefngæði sín betri eftir notkun eyrnatappa og augngríma saman (Akpinar o.fl., 2022; Younis o.fl., 2019a) heldur en eftir notkun eyrnatappa einna og sér (Lin o.fl., 2022). Samantektir sem gerðar hafa verið á áhrifum eyrnatappa og augngríma benda ýmist til jákvæðra áhrifa með notkuninni á svefn gjörgæslusjúklinga (Alway o.fl., 2013; Locihová o.fl., 2018) eða engra áhrifa (Alway o.fl., 2013). Ekki hafa komið fram neikvæð áhrif með notkuninni og því hægt að mæla með því að bjóða sjúklingum upp á augngrímur og/eða eyrnatappa þar sem inngripið gæti bætt svefn einhverra sjúklinga og auðvelt að fjarlægja það ef það veldur óþægindum. Best gæti verið að skoða heildrænan verkferil þar sem umhverfisáreiti eins og hávaði og ljós er takmarkað, brugðist er við verkjum og aðrir almennir þættir skoðaðir til að stuðla að bættum svefni sjúklinga líkt og Beltrami o.fl. (2021) gerðu. Með því væri hægt að sameina marga af þeim þáttum sem fjallað hefur verið um hér á undan og stuðla heildrænt að bættum svefngæðum sjúklinga. Innleiðing verkferilsins leiddi til almennt aukinna svefngæða gjörgæslusjúklinga. Sjúklingar gátu valið hvaða þætti þeir vildu nýta úr verkferlinum og völdu helst þætti sem höfðu áhrif á líðan þeirra (Beltrami o.fl., 2021). Út frá þessu má velta fyrir sér hvort líðan sé sá þáttur sem hefur mest áhrif á upplifun gjörgæslusjúklinga á svefngæðum.

Niðurstöður Beltrami o.fl. (2021) sýna fram á mikilvægi þess að veita einstaklingsmiðaða meðferð þegar kemur að svefni sjúklinga og að hjúkrunarfræðingar vita ekki endilega hvað hver og einn sjúklingur þarf helst á að halda fyrir svefninn. Hjúkrunarfræðingar þurfa því að eiga í góðum samskiptum við sjúklinga og gæta að einstaklingsbundnum þörfum þeirra.

ÁBENDINGAR FYRIR HJÚKRUN

Hjúkrunarfræðingar á gjörgæslu geta haft mikil áhrif á svefngæði sjúklinga. Því verða þeir að vera meðvitaðir um flókið samspil allra orsakavalda svefntruflana og hvað þeir geta gert til að draga úr áhrifum þeirra á svefn gjörgæslusjúklinga. Upplifun sjúklinga af umhverfinu er einstaklingsbundin og hjúkrunarfræðingar ættu því að nýta margþættar og einstaklingsbundnar aðferðir til að draga úr áhrifum þess á svefninn (sjá töflu 5).

STYRKLEIKAR

OG TAKMARKANIR RANNSÓKNAR

Helsti styrkleiki samantektarinnar er að hún var unnin á kerfisbundinn hátt eftir viðurkenndri aðferðafræði. Notast var við nýlegar rannsóknir sem stóðust gæðamat og var stór hluti þeirra samanburða- eða tilraunarannsóknir sem teljast gefa sterkar niðurstöður (Polit og Beck, 2017). Veikleikar samantektarinnar eru að erfitt er að draga sterkar ályktanir þar sem efnið sem hún skoðar er fjölbreytt og því lítið af rannsóknum sem skoða hvern efnisþátt, auk þess sem hætta er á skekkju við samþættingu ólíkra rannsóknarsniða. Einnig voru rannsóknirnar með lítil úrtök sem útilokuðu stóran hluta gjörgæslusjúklinga sem gerir það að verkum að niðurstöðurnar eiga aðeins við um ákveðinn hluta þeirra.

ÁLYKTANIR

Orsakir svefntruflana á gjörgæslu eru margþættar og eru gjörgæslusjúklingar misjafnlega viðkvæmir fyrir þeim. Aðferðir sem hjúkrunarfræðingar nýta til að bæta svefn sjúklinga þurfa því að vera margþættar og einstaklingsbundnar. Með því að bæta þekkingu hjúkrunarfræðinga á ólíkum orsökum og aðferðum til að draga úr svefntruflunum á gjörgæslu er unnið markvisst að því að stuðla að bættum svefni, líðan og meðferð gjörgæslusjúklinga.

ENGLISH SUMMARY

Causes of sleep disturbances in the intensive care unit and methods to improve patients’ sleep: An Integrative Review

doi: 10.33112/th.102.2.3

ABSTRACT

Aim

To identify the factors that have the most disruptive effects on intensive care patients’ sleep and which methods can be used to improve it. The research questions discussed in this review are “What causes sleep disturbances in adult intensive care patients while in intensive care?” and “What methods can be used to improve sleep in adult intensive care patients while in intensive care?”. The review also proposes interventions nurses can use to minimize sleep disturbances for intensive care patients.

Methods

The methodology of integrative review was used. PubMed, Scopus and Web of Science were used to look for articles published in the years 2018 to 2023. The quality of the studies was assessed with quality standards from the Joanna Briggs institute and a “matrix” table was used to describe and integrate their results.

Results

Fourteen studies qualified for inclusion in the review. The main causes of sleep disturbances in the intensive care unit were noise, light, condition and interventions and/or indwelling devices. Methods that can be used to improve sleep quality of intensive care patients were divided into four categories: Methods that decrease the effects of noise on sleep; Methods that decrease the effects of light on sleep; Methods that decrease the effect of distress on sleep and, Multifaceted methods that decrease the effects of environmental stimuli on sleep. The results showed that by decreasing staff conversations, simulating the circadian rhythm with light, responding to patients’ anxiety and limiting interventions overnight it was possible to decrease intensive care patients’ sleep disturbances. This review highlights methods that intensive care personnel can use to promote better sleep for intensive care patients.

Conclusion

The causes of sleep disturbances of intensive care patients are multifaceted and vary between patients. Thus, nurses need to use multifaceted and personalized methods to decrease sleep disturbances.

Keywords

sleep disturbances, intensive care patients, environmental stimuli, nursing, personalized care

Correspondence franzdot@landspitali.is

HEIMILDIR

Akpinar, R. B., Aksoy, M. og Kant, E. (2022). Effect of earplug/eye mask on sleep and delirium in intensive care patients. Nursing in Critical Care, 27(4), 537-545. https://doi.org/10.1111/nicc.12741

Alsulami, G., Rice, A. M. og Kidd, L. (2019). Prospective repeated assessment of self-reported sleep quality and sleep disruptive factors in the intensive care unit: Acceptability of daily assessment of sleep quality. BMJ Open, 9(6), 1-11. https://doi.org/10.1136/bmjopen-2019-029957

Alway, A., Halm, M. A., Shilhanek, M. og St. Pierre, J. (2013). Do earplugs and eye masks affect sleep and delirium outcomes in the critically ill? American Journal of Critical Care, 22(4), 357-360. https://doi.org/10.4037/ajcc2013545

Antonelli, M. og Donelli, D. (2020). Efficacy, safety and tolerability of aroma massage with lavender essential oil: An overview. International Journal of Therapeutic Massage and Bodywork, 13(1), 32-36.

Barker, T. H., Stone, J. C., Sears, K., Klugar, M., Tufanaru, C., Leonardi-Bee, J., Aromataris. E. og Munn, Z. (2023). The revised JBI critical appraisal tool for the assessment of risk of bias for randomized controlled trials. JBI Evidence Synthesis, 21(3), 494-506. https://doi.org/10.11124/jbies-22-00430

Beltrami, F. G., John, Â. B., de Macedo, B. R., Corrêa Júnior, V., Nguyen, X. L., Pichereau, C., Maury, E., Fleury, B., Gus, M. og Fagondes, S. C. (2021). A multi-intervention protocol to improve sleep quality in a coronary care unit. European Journal of Cardiovascular Nursing, 21(5), 464-472. https://doi.org/10.1093/eurjcn/zvab099

Carrera-Hernández, L., Aizpitarte-Pejenaute, E., Zugazagoitia-Ciarrusta, N. og Goñi-Viguria, R. (2018). Patients’ perceptions of sleep in a critical care unit. Enfermería Intensiva (English Edition), 29(2), 53-63. https://doi.org/10.1016/j.enfie.2018.01.002

Chang, V. A., Owens, R. L. og LaBuzetta, J. N. (2020). Impact of sleep deprivation in the neurological intensive care unit: A narrative review. Neurocritical Care, 32(2), 596-608. https://doi.org/10.1007/s12028-019-00795-4

Cotogni, P. og Pittiruti, M. (2014). Focus on peripherally inserted central catheters in critically ill patients. World Journal of Critical Care Medicine, 3(4), 80-94. https://doi.org/10.5492/wjccm.v3.i4.80

Ebben, M. R., Yan, P. og Krieger, A. C. (2021). The effects of white noise on sleep and duration in individuals living in a high noise environment in New York City. Sleep Medicine, 83, 256-259. https://doi.org/10.1016/j.sleep.2021.03.031

Elkhenany, H., AlOkda, A., El-Badawy, A. og El-Badri, N. (2018). Tissue regeneration: Impact of sleep on stem cell regenerative capacity. Life Sciences, 214, 51-61. https://doi.org/10.1016/j.lfs.2018.10.057

Ervin, J. N., Kahn, J. M., Cohen, T. R. og Weingart, L. R. (2018). Teamwork in the intensive care unit. American Psychologist, 73(4), 468-477. https://doi.org/10.1037/amp0000247

Galazzi, A., Adamini, I., Consonni, D., Roselli, P., Rancati, D., Ghilardi, G., Greco, G., Salinaro, G. og Laquintana, D. (2019). Accidental removal of devices in intensive care unit: An eight-year observational study. Intensive and Critical Care Nursing, 54, 34-38. https://doi.org/10.1016/j.iccn.2019.06.002

Girardeau, G. og Lopes-dos-Santos, V. (2021). Brain neural patterns and the memory function of sleep. Science, 374(6567), 560-564. https://doi.org/10.1126/science.abi8370

Groenland, C. N. L., Termorshuizen, F., Rietdijk, W. J. R., van den Brule, J., Dongelmans, D. A., de Jonge, E., de Lange, D. W., de Smet, A. M. G. A., de Keizer, N. F., Weigel, J. D., Jewbali, L. S. D., Boersma, E. og den Uil, C. A. (2019). Emergency department to ICU time is associated with hospital mortality: A registry analysis of 14,788 patients from six university hospitals in the netherlands*. Critical Care Medicine, 47(11), 1564-1571. https://doi.org/10.1097/CCM.0000000000003957

Hofhuis, J. G. M., Rose, L., Blackwood, B., Akerman, E., McGaughey, J., Egerod, I., Fossum, M., Foss, H., Georgiou, E., Graff, H. J., Kalafati, M., Sperlinga, R., Berardo, A., Schäfer, A., Wojnicka, A. G. og Spronk, P. E. (2018). Clinical practices to promote sleep in the ICU: A multinational survey. International Journal of Nursing Studies, 81, 107-114. https://doi.org/10.1016/j.ijnurstu.2018.03.001

Honarmand, K., Rafay, H., Le, J., Mohan, S., Rochwerg, B., Devlin, J. W., Skrobik, Y., Weinhouse, G. L., Drouot, X., Watson, P. L., McKinley, S. og Bosma, K. J. (2020). A systematic review of risk factors for sleep disruption in critically ill adults. Critical Care Medicine, 48(7), 1066-1074. https://doi.org/10.1097/ccm.0000000000004405

Horsten, S., Reinke, L., Absalom, A. R. og Tulleken, J. E. (2018). Systematic review of the effects of intensive-care-unit noise on sleep of healthy subjects and the critically ill. British Journal of Anaesthesia, 120(3), 443-452. https://doi.org/10.1016/j.bja.2017.09.006

Hsu, W. C., Guo, S. E. og Chang, C. H. (2019). Back massage intervention for improving health and sleep quality among intensive care unit patients. Nursing in Critical Care, 24(5), 313-319. https://doi.org/10.1111/nicc.12428

Irwin, M. R. (2019). Sleep and inflammation: Partners in sickness and in health. Nature Reviews Immunology, 19(11), 702-715. https://doi.org/10.1038/s41577-019-0190-z

Jakimowicz, S., Perry, L. og Lewis, J. (2017). An integrative review of supports, facilitators and barriers to patient-centred nursing in the intensive care unit. Journal of Clinical Nursing, 26(23-24), 4153-4171. https://doi.org/10.1111/jocn.13957

JBI Critical Appraisal Tools. (2021). The University of Adelaide. https://jbi.global/critical-appraisal-tools

Kaplow, R. (2017). Sleep disturbances and critical illness. Journal of Intensive and Critical Care, 3(4), 1-5. https://doi.org/10.21767/2471-8505.100098

Knauert, M. P., Pisani, M., Redeker, N., Murphy, T., Araujo, K., Jeon, S. og Yaggi, H. (2019). Pilot study: An intensive care unit sleep promotion protocol. BMJ Open Respiratory Research, 6(1), 1-6. https://doi.org/10.1136/bmjresp-2019-000411

Lee, S. Y. og Kang, J. (2020). Effect of virtual reality meditation on sleep quality of intensive care unit patients: A randomised controlled trial. Intensive and Critical Care Nursing, 59, 1-7. https://doi.org/10.1016/j.iccn.2020.102849

Lewandowska, K., Mędrzycka-Dąbrowska, W., Pilch, D., Wach, K., Fortunato, A., Krupa, S. og Ozga, D. (2020). Sleep deprivation from the perspective of a patient hospitalized in the intensive care unit—qualitative study. Healthcare, 8(3), 1-10. https://doi.org/10.3390/healthcare8030351

Lin, Y.-C., Lin, T.-J., Liu, C.-H., Chen, Y.-T. og Lai, H.-L. (2022). Effects of an earplug placement intervention on sleep quality in patients in a medical intensive care unit: A randomized controlled trial. International Journal of Nursing Practice, 28(2), 1-10. https://doi.org/10.1111/ijn.13016

Locihová, H., Axmann, K., Padyšáková, H. og Fejfar, J. (2018). Effect of the use of earplugs and eye mask on the quality of sleep in intensive care patients: A systematic review. Journal of Sleep Research, 27(3), 1-12. https://doi.org/10.1111/jsr.12607

Lockwood, C., Munn, Z. og Porritt, K. (2015). Qualitative research synthesis: methodological guidance for systematic reviewers utilizing meta-aggregation. International Journal of Evidence-Based Healthcare, 13(3), 179–187. https://doi.org/10.1097/XEB.0000000000000062

Lusczek, E. R. og Knauert, M. P. (2021). Light levels in icu patient rooms: Dimming of daytime light in occupied rooms. Journal of Patient Experience, 8, 1-4. https://doi.org/10.1177/23743735211033104

Mattiussi, E., Danielis, M., Venuti, L., Vidoni, M. og Palese, A. (2019). Sleep deprivation determinants as perceived by intensive care unit patients: Findings from a systematic review, meta-summary and meta-synthesis. Intensive and Critical Care Nursing, 53, 43-53. https://doi.org/10.1016/j.iccn.2019.03.006

Medrzycka-Dabrowska, W., Lewandowska, K., Kwiecień-Jaguś, K. og Czyż-Szypenbajl, K. (2018). Sleep deprivation in intensive care unit – systematic review. Open Medicine, 13(1), 384-393. https://doi.org/doi:10.1515/med-2018-0057

Munn, Z., Moola, S., Lisy, K., Riitano, D. og Tufanaru C. (2020). Chapter 5: Systematic reviews of prevalence and incidence. Í Aromataris, E. og Munn, Z. (ritstjórar), JBI Manual for Evidence Synthesis. JBI. https://doi.org/10.46658/JBIMES-20-06

Pagnucci, N., Tolotti, A., Cadorin, L., Valcarenghi, D. og Forfori, F. (2019). Promoting nighttime sleep in the intensive care unit: Alternative strategies in nursing. Intensive and Critical Care Nursing, 51, 73-81. https://doi.org/10.1016/j.iccn.2018.11.010

Pamuk, K. og Turan, N. (2022). The effect of light on sleep quality and physiological parameters in patients in the intensive care unit. Applied Nursing Research, 66, 1-7. https://doi.org/10.1016/j.apnr.2022.151607

Phillips, R. M. (2015). Seven core measures of neuroprotective family-centered developmental care: Creating an infrastructure for implementation. Newborn and Infant Nursing Reviews, 15(3), 87-90. https://doi.org/10.1053/j.nainr.2015.06.004

Polit, D. F. og Beck, C. T. (2017). Nursing Research. Generating and Assessing Evidence for Nursing Practice (11. útgáfa). Wolters Kluwer.

Ramar, K., Malhotra, R. K., Carden, K. A., Martin, J. L., Abbasi-Feinberg, F., Aurora, R. N., Kapur, V. K., Olson, E. J., Rosen, C. L., Rowley, J. A., Shelgikar, A. V. og Trotti, L. M. (2021). Sleep is essential to health: An american academy of sleep medicine position statement. Journal of Clinical Sleep Medicine, 17(10), 2115-2119. https://doi.org/doi:10.5664/jcsm.9476

Riedy, S. M., Smith, M. G., Rocha, S. og Basner, M. (2021). Noise as a sleep aid: A systematic review. Sleep Medicine Reviews, 55, 1-12. https://doi.org/10.1016/j.smrv.2020.101385 Rusch, H. L., Rosario, M., Levison, L. M., Olivera, A., Livingston, W. S., Wu, T. og Gill, J. M. (2019). The effect of mindfulness meditation on sleep quality: A systematic review and meta-analysis of randomized controlled trials. Annals of the New York Academy of Sciences, 1445(1), 5-16. https://doi.org/10.1111/nyas.13996

Sayılan, A. A., Kulakaç, N. og Sayılan, S. (2020). The effects of noise levels on pain, anxiety, and sleep in patients. Nursing in Critical Care, 26(2), 79-85. https://doi.org/10.1111/nicc.12525

Telias, I. og Wilcox, M. E. (2019). Sleep and circadian rhythm in critical illness. Critical Care, 23(1), 1-8. https://doi.org/10.1186/s13054-019-2366-0

Tufanaru, C., Munn, Z., Aromataris, E., Campbell, J. og Hopp, L. (2020). Chapter 3: Systematic reviews of effectiveness. Í Aromataris E. og Munn, Z. (ritstjórar), JBI Manual for Evidence Synthesis. JBI. https://doi.org/10.46658/JBIMES-20-04

Vasey, C., McBride, J. og Penta, K. (2021). Circadian rhythm dysregulation and restoration: The role of melatonin. Nutrients, 13(10), 1-21. https://doi.org/10.3390/nu13103480

Warjri, E., Dsilva, F., Sanal, T. S. og Kumar, A. (2022). Impact of a white noise app on sleep quality among critically ill patients. Nursing in Critical Care, 27(6), 815-823. https://doi.org/10.1111/nicc.12742

Whittemore, R. og Knafl, K. (2005). The integrative review: updated methodology. Journal of Advanced Nursing, 52(2), 546-553. https://doi.org/10.1111/j.1365-2648.2005.03621.x

Younis, M. K. B., Hayajneh, F. A. og Alduraidi, H. (2019a). Effectiveness of using eye mask and earplugs on sleep length and quality among intensive care patients: A quasi-experimental study. International Journal of Nursing Practice, 25(3), 1-9. https://doi.org/10.1111/ijn.12740

Younis, M. B., Hayajneh, F. og Alshraideh, J. A. (2019b). Effect of noise and light levels on sleep of intensive care unit patients. Nursing in Critical Care, 26(2), 73-78. https://doi.org/10.1111/nicc.12490

Younis, M. B., Hayajneh, F. og Rubbai, Y. (2020). Factors influencing sleep quality among jordanian intensive care patients. British Journal of Nursing, 29(5), 298-302. https://doi.org/10.12968/bjon.2020.29.5.298

Streita meðal nemenda í heilbrigðisvísindum við Háskóla Íslands

doi: 10.33112/th.102.2.4

ÚTDRÁTTUR

Tilgangur

Háskólanám er krefjandi og hefur streita mælst mikil meðal háskólanema á alþjóðlega vísu. Nemendur sem leggja stund á heilbrigðisvísindi þurfa flestir að leggja stund á klínískt nám á heilbrigðisstofnunum, samhliða bóklegu námi, sem virðist sérstakur streituþáttur meðal nemendahópsins.

Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna streitu, bjargráð og þörf fyrir faglega þjónustu hjá nemendum í heilbrigðisvísindum við Háskóla Íslands.

Aðferð

Spurningalisti var lagður fyrir nemendur í heilbrigðisvísindum við HÍ (N=360) á vormisseri 2018. Hann innihélt meðal annars mælitæki fyrir streitu (Perceived Stress Scale, PSS), spurningar um námsstreitu, bjargráð og spurningar tengdar þörfum fyrir faglega þjónustu ásamt spurningum um bakgrunn. Notast var við aðferðir lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði við greiningu gagnanna.

Niðurstöður

Svarhlutfall var 58%. Mikill meirihluti (77%) var kvenkyns, flestir voru í aldurshópnum 20-24 ára (44%) og algengast var að nemar væru í grunnnámi (68%). Meðalstreitustig var 18,7 (6,1) með miðgildi 19 (spönn 4-37). Flestir nemendur upplifðu miðlungs streitu eða alvarlega streitu (80%, n=289). Um 36% (n=129) töldu sig hafa þörf fyrir faglega þjónustu vegna sálrænnar vanlíðanar. Reyndust nemendur með hærra streitustig hafa marktækt meiri þörf fyrir faglega þjónustu samanborið við nemendur sem töldu sig ekki hafa slíka þörf ((t (297)=13,04, p <0,001). Algengasta viðbragðið við streitu var sjálfsgagnrýni (60%). Kostnaður og tímaskortur hindraði aðsókn í faglega þjónustu vegna streitu og annarra einkenna sálrænnar vanlíðanar.

Ályktanir

Háskólanám er krefjandi og nemendur í heilbrigðisvísindum upplifa mikla streitu, líkt og aðrir háskólanemar. Þeir nemendur sem hafa mesta þörf fyrir faglega þjónustu eru þeir sem eru haldnir alvarlegri streitu. Þörf er fyrir markvissar forvarnir og sérhæfð úrræði fyrir nemendur í heilbrigðisvísindum til að takast á við streitu, ásamt því að greiða leið nemenda að slíkri þjónustu. Þar sem fagleg þjónusta við nemendur hefur aukist frá því að þessi rannsókn var framkvæmd er nú tímabært að endurtaka sambærilegar rannsóknir meðal nemenda í heilbrigðisvísindum.

Lykiorð

fagleg þjónusta, háskólanemar, heilbrigðisvísindi, sálræn vanlíðan, streita

HAGNÝTING RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA

Nýjungar: Streita nemenda í heilbrigðisvísindum er lítt rannsakað efni á Íslandi. Tiltölulega stór hópur nemenda í heilbrigðisvísindagreinum upplifir miðlungs til alvarlega streitu samkvæmt innlendum rannsóknum.

Hagnýting: Niðurstöðurnar nýtast hjúkrunarfræðingum, sérfræðingum í geðhjúkrun og öðrum fagaðilum, ásamt skólayfirvöldum, við þróun úrræða til að takast á við streitu og sálræna líðan nemenda í heilbrigðisvísindum og styðja þannig við bætta heilsu háskólanema og námsárangur.

Þekking: Rannsóknin lýsir tíðni og stigi streitu og veitir innsýn í þörf nemenda fyrir faglega þjónustu og notkun árangursríkra bjargráða.

Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga: Hjúkrun styður við einstaklinga og heilbrigði þeirra í víðum skilningi og er málsvari fyrir jöfnu aðgengi að heilbrigðisþjónustu, einstaklingsmiðaðri nálgun og nýtingu bjargráða. Mikilvægt er að hjúkrunarfræðingar sem veita leiðsögn til nemenda á klínískum vettvangi beri skynbragð á upplifaða streitu nemenda og geti veitt þeim stuðning og ráðgjöf með tilliti til árangursríkra og viðeigandi bjargráða.

Höfundar

ÞÓREY RÓSA EINARSDÓTTIR

sérnámshjúkrunarfræðingur1

ÓLÖF BIRNA KRISTJÁNSDÓTTIR sérfræðingur í hjúkrun2

JÓHANNA BERNHARÐSDÓTTIR

hjúkrunarfræðingur og fyrrverandi dósent3

1Landspítali

2Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, geðheilsuteymi Vestur

3Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands

Streita meðal nemenda í heilbrigðisvísindum við Háskóla Íslands

INNGANGUR

Streita hefur verið skilgreind sem upplifun einstaklingsins á umhverfi sínu, hvort ytri þættir fari fram úr bjargráðum hans og hversu mikið þættir í umhverfinu ógna velferð hans (Lazarus og Folkman, 1984). Streita felst í huglægu mati og það er einstaklingsbundið hvað veldur streitu hjá hverjum og einum. Sem viðbragð við streitu breyta einstaklingar hegðun sinni og/eða hugsun með það að markmiði að draga úr streitu og nefnist slíkt viðbragð bjargráð (Lazarus og Folkman, 1984). Rannsóknir hafa sýnt fram á tengsl streitu við kvíða og þunglyndi (Alwhaibi o.fl., 2023; Fauzi o.fl., 2021; Onieva-Zafra o.fl., 2020) og hafa einkenni streitu, kvíða og þunglyndis stundum verið nefnd einu nafni sálræn vanlíðan (e. psychological distress) (APA, 2018). Samkvæmt Talnabrunni Embætti landlæknis (2025) metur yngra fólk andlega líðan sína verr ásamt því að það upplifir meiri einmanaleika og streitu í daglegu lífi samanborið við þá sem eldri eru. Stærsti hluti háskólanema er ungt fólk, á aldrinum 18-25 ára (Hagstofa Íslands, e.d.) og því má leiða að því líkur að andleg heilsa þeirra sé einnig viðkvæm, líkt og andleg heilsa jafnaldra þeirra. Ýmsar rannsóknir hafa þó gefið til kynna að vandinn sé jafnvel stærri hjá háskólanemum og fari vaxandi, meðal annars vegna álags sem fylgir krefjandi háskólanámi (Auerbach o.fl., 2018; Bernharðsdóttir o.fl. 2021; Sivertsen o.fl., 2023; Bantjes o.fl., 2023; Ramón-Arbués o.fl., 2020; Beiter o.fl., 2015).

Á Íslandi hefur komið fram að 88% háskólanema finna fyrir einkennum streitu og af þeim upplifa 17% alvarlega streitu (Karen Rós Brynjarsdóttir og Rakel Jónasdóttir, 2020). Telja má að háskólanemar sem leggja stund á heilbrigðisvísindi glími við sömu streituvalda en kennsla og starfsnám á heilbrigðisstofnunum, sem er hluti af námi margra greina innan heilbrigðisvísinda, getur valdið viðbótarálagi (Mazalová o.fl., 2022; Chaabane o.fl., 2021). Tengist það meðal annars návígi við erfiðar aðstæður skjólstæðinga, neikvæðum upplifunum á borð við dauðsföll og skort á færni við úrlausn klínískra viðfangsefna (Chaabane o.fl., 2021; Chachula, 2022, Labraque o.fl., 2018; Mazalová o.fl., 2022; McKerrow o.fl., 2020).

Fjölmargar erlendar rannsóknir sýna skýrt að stór hluti nemenda sem leggur stund á heilbrigðisvísindi upplifir streitu sem gjarnan er flokkuð sem væg, miðlungs eða alvarleg streita (Cohen og Williamson, 1988). Má nefna rannsókn Fauzi o.fl. (2021) sem sýnir að 65% nemenda í heilbrigðisvísindum eru með einkenni streitu samkvæmt Depression Anxiety Stress Scale (DASS) og Alwhaibi o.fl. (2023), þar sem kemur fram að 73% nema í heilbrigðisvísindum séu haldin streitu, allt frá vægri og yfir í alvarlega, eins og mæld er og flokkuð með Perceived Stress Scale (PSS). Í rannsókn Melnyk o.fl. (2021) var notast við stutta útgáfu PSS (PSS-4) og þar var niðurstaðan að 29% bandarískra nemenda í heilbrigðisvísindum eru haldin miðlungs til alvarlegri streitu en ekki kom fram hversu margir voru með væg einkenni. Streita meðal nemenda í einstökum deildum innan heilbrigðisvísinda hefur verið skoðuð og má nefna að Onieva-Zafra o.fl. (2020) könnuðu streitu meðal 190 spænskra hjúkrunarfræðinema með PSS-kvarðanum og reyndist tæplega helmingur haldinn miðlungs streitu og 25% töldust með alvarlega streitu. Samkvæmt danskri rannsókn olli háskólanám streitu hjá 83% læknanema (Kjær o.fl., 2022) og í rannsókn McKerrow o.fl. (2020) mældist streita bandarískra læknanema há öll námsárin.

Íslensk rannsókn á streitu meðal hjúkrunarnema leiddi í ljós að 63% nemenda voru haldin miðlungs streitu og 11% alvarlegri streitu samkvæmt PSS-kvarðanum. (Hrund Sch. Thorsteinsson o.fl., 2022). Sami kvarði var notaður í rannsókn Birnu G. Flygenring o.fl. (2021) á hjúkrunarnemum á lokaári við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri og reyndust 80% þeirra vera með streitustig yfir viðmiðunarmörkum (>13 stig).

Streita meðal háskólanema í heilbrigðisvísindum virðist því vera til staðar í töluverðum mæli og nemendur bregðast við henni með því að nýta eigin bjargráð, svo sem að passa upp á svefn, temja sér jákvæð viðhorf og lausnamiðaða hugsun (Shan o.fl., 2022). Aðrar rannsóknir hafa sýnt fram á að nemendur í heilbrigðisvísindum sem hafa neikvæðari afstöðu til námsstreitu bregðist frekar við með sjálfsgagnrýni en aðrir (Canjuga o.fl., 2025). Vísbendingar eru um að nemendur fái ekki þá aðstoð sem þeir þurfa til að draga úr streitu, til dæmis bjóðist þeim ekki fagleg aðstoð, þó að margar leiðir séu færar til að veita slíka þjónustu innan háskóla (Cuijpers o.fl., 2019). Hefur meðal annars verið sýnt fram á að úrræði byggð á núvitund og hugrænni atferlismeðferð, ásamt stafrænum lausnum, geti borið árangur og stuðlað að bættri líðan háskólanema (Worsley o.fl., 2021). Þegar hindranir nemenda við að sækja sér faglega aðstoð hafa verið skoðaðar sést að þær eru helst kostnaður, óaðgengilegar samgöngur, tímaskortur og skortur á þekkingu á því hvert eigi að leita. Eins er algengt að nemendur vilji ná bata án hjálpar og finnist erfitt að biðja um aðstoð (Bernhardsdóttir o.fl., 2013; Bantjes o.fl., 2023). Hjúkrunarfræðingar, ásamt öðrum starfstéttum, hafa hlutverki að gegna við að stuðla að bættri lýðheilsu einstaklinga, styðja við aðgengi að þjónustu og eflingu bjargráða (International Council of Nurses 2025).

Rannsóknir á streitu og streitutengdum þáttum hjá nemendum í háskólanámi almennt, sem og innan einstakra greina, hafa verið gerðar á Íslandi. Ekki hefur þó verið framkvæmd rannsókn á streitu meðal nemenda í heilbrigðisvísindum sérstaklega, svo vitað sé. Eftirfarandi rannsóknarspurningar voru lagðar fram í þessari rannsókn í þeim tilgangi að skoða streitu nemenda í heilbrigðisvísindum við Háskóla Íslands (HÍ) og þætti sem tengjast henni.

1. Hvernig meta nemendur í heilbrigðisvísindum við HÍ eigin streitu samkvæmt PSS-skalanum?

2. Hvernig upplifa nemendur streitu tengda háskólanáminu sjálfu?

3. Hvernig meta nemendur á Heilbrigðisvísindasviði HÍ þörf sína fyrir faglega aðstoð vegna andlegrar heilsu og tengist það mat upplifun á streitu? Hvað hindrar nemendur í að leita sér faglegrar aðstoðar?

4. Eru tengsl milli bjargráða og streitu?

AÐFERÐ

Rannsóknarsnið

Rannsóknin var þversniðsrannsókn þar sem spurningalisti sem metur almenna streitu og námsstreitu ásamt sálfélagslegum spurningum og spurningum um bakgrunn var lagður fyrir nemendur á öllum fræðasviðum HÍ, þar á meðal á Heilbrigðisvísindasviði, í janúar og febrúar 2018. Spurningalistinn samanstóð af kvörðum til að meta þunglyndis- og kvíðaeinkenni ásamt streitu. Einnig voru spurningar sem tengdust andlegri líðan, bjargráðum og þörf fyrir faglega þjónustu. Könnunin innihélt 64 spurningar. Rannsóknin var hluti af stærri rannsókn þar sem sömu listar voru lagðir fyrir úrtak allra háskólanema við HÍ (Jóhanna Bernharðsdóttir o.fl., 2021).

Þátttakendur

Þátttakendur frá öllum sviðum HÍ voru valdir af handahófi en samtals voru valdir 3.000 nemendur á aldrinum 20-45 ára. Í þessum hluta rannsóknarinnar var einungis unnið með gögn

frá nemendum á Heilbrigðisvísindasviði. Í úrtakinu voru 653 nemendur. Samtals tóku 360 nemendur þátt og var svarhlutfallið því 58%.

Framkvæmd

Alls voru tekin þrjú rýnihópaviðtöl í fráteknum herbergjum á vinnustað hjúkrunarfræðinganna frá apríl til maí 2021. Viðtölin voru framkvæmd af tveimur aðilum, einum stjórnanda og einum aðstoðarmanni, og tók hvert viðtal um það bil eina klukkustund. Viðtölin voru tekin upp og þau síðan skráð. Fyrsti höfundur, sem er aðalrannsakandi, undirbjó öll viðtölin sjálfur og tók þau á gjörgæsludeild við Hringbraut og á gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri. Þar sem hann starfar á gjörgæsludeild í Fossvogi voru leiðbeinandi og annar hjúkrunarfræðingur með þekkingu og reynslu af viðtölum fengnir til að taka viðtalið þar og var sá hjúkrunarfræðingur einnig með rannsakanda í hinum viðtölunum. Viðtölin voru að mestu óstöðluð eða hálfstöðluð. Opnar spurningar voru notaðar til að fá flæði í umræðuna og hálfopnar spurningar mótaðar að vissu leyti að þeim þáttum sem hafa komið fram í fyrri rannsóknum. Viðtalsrammi var hafður til hliðsjónar (sjá töflu 2). Þátttakendum var bent á að ræða saman sín á milli frekar en beint við rannsakanda og beðnir um að tjá sig ekki annars staðar um efnið sem rætt var í hópnum.

Matstæki

Til að mæla streitu var Perceived Stress Scale (PSS)-spurningalistinn lagður fyrir. PSS-kvarðinn er sjálfsmatslisti eftir Cohen o.fl. (1983) sem inniheldur 10 spurningar sem eiga að fanga upplifun viðkomandi á því hversu óútreiknanlegt, óviðráðanlegt og ofhlaðið lífið sé. Spurningarnar snúast um hugsanir og tilfinningar síðastliðinn mánuð og bjóða alltaf upp á sömu fimm svarmöguleika á Likert-kvarða: „Aldrei“, „Næstum aldrei“, „Stundum“, „Nokkuð oft“ og „Mjög oft“. Sex spurningar eru neikvætt staðhæfðar og fjórar eru jákvætt staðhæfðar. Dæmi um neikvætt staðhæfða spurningu er: „Hversu oft síðastliðinn mánuð hefur þú farið úr jafnvægi vegna einhvers óvænts sem kom upp á?“ Dæmi um jákvætt staðhæfða spurningu er: „Hversu oft síðastliðinn mánuð hefur þér fundist hlutirnir ganga þér í hag?“ Fleiri stig á kvarðanum gefa vísbendingu um meiri streitu (spönn 0-40) og niðurstöður hafa verið flokkaðar í væga (<13 stig), miðlungs (1326 stig) og alvarlega (27-40 stig) streitu (Sheroun o.fl., 2020). Í íslenskri rannsókn meðal hjúkrunarnema reyndist Chronbach-s alpha-listans vera 0,68 sem bendir til ásættanlegs innri áreiðanleika matstækisins (Hrund Sch. Thorsteinsson o.fl., 2022).

Til að mæla námsstreitu voru lagðar fyrir fjórar spurningar sem byggðu á spurningum þróuðum út frá niðurstöðum rannsóknar þeirra Guðrúnar Bjartmarz og Steinunnar Birnu Aðalsteinsdóttur (2007). Nemendur voru spurðir að því hversu mikla eða litla streitu þeir höfðu upplifað sem tengdist námskröfum, ástundun háskólanáms, samkeppni við samnemendur, samskiptum við kennara og skorti á námsleiðbeiningum. Svarmöguleikar voru á fjögurra bila Likert-kvarða (spönn 4-16).

Þátttakendur voru beðnir um að leggja mat á þörf fyrir faglega þjónustu í gegnum tvíkosta spurningu sem var svohljóðandi: „Telur þú þig vera í þörf fyrir faglega aðstoð vegna andlegrar heilsu?“ Þeir þátttakendur sem svöruðu játandi en fengu ekki aðstoð voru beðnir um að svara hálfopinni spurningu um ástæður þess að þeir fengju ekki aðstoð. Haka mátti við fleiri en eina ástæðu og í lokin var boðið upp á að skrifa svar ef ástæðan var ekki ein af þeim sem gefnar voru upp.

Þátttakendur voru loks spurðir að því hvernig þeir brygðust við ef þeir fyndu fyrir streitu. Gefin voru upp 16 möguleg bjargráð og mátti haka við fleira en eitt. Hægt var að haka við „Annað“ og voru þátttakendur svo beðnir að lýsa því nánar með frjálsum texta.

Framkvæmd

Félagsvísindastofnun HÍ sá um útsendingu kynningabréfs, spurningalistans og ítrekana. Spurningalistinn var sendur á nemendur í gegnum netið með Qualtricks-hugbúnaðinum og ítrekun send í tvígang ef svar barst ekki. Gagnasöfnun stóð yfir í sex vikur.

Siðfræði

Leyfi fyrir rannsókninni var fengið hjá rektor HÍ og hjá Vísindasiðanefnd (VSNb2017100015/3.01). Nemendaskrá var falið að draga út úrtak með tilviljanakenndum hætti og valdar voru 2.000 konur og 1.000 karlar. Fleiri konum var boðin þátttaka þar sem til stóð að bjóða þeim sem uppfylltu skilyrði um sálræna vanlíðan þátttöku í forvarnarnámskeiði fyrir kvenstúdenta.

Gagnagreining

Við greiningu gagna var notast við tölfræðiforritið SPSS (29. útgáfa). Gerð var grein fyrir niðurstöðum með lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði. Dæmi um framsetningu með lýsandi tölfræði er lýsing á þátttakendum og mat á þörf fyrir faglega þjónustu. Dæmi um framsetningu með ályktunartölfræði er kynja- og aldursmunur á meðaltali streitustiga (t-próf óháðra hópa og ANOVA). Í tilgátuprófunum voru marktektarmörk miðuð við p ≤0,05.

NIÐURSTÖÐUR

Almennar niðurstöður

Svarhlutfall var 58% (n=360). Meirihluti (77%) var kvenkyns, flestir í aldurshópnum 20-24 ára (44%) og algengast var að nemar væru í grunnnámi (68%). Stór hluti (67%) þátttakenda var í vinnu samhliða námi. Fullt nám stunduðu 85% þátttakenda. Sjá nánari bakgrunnsupplýsingar í töflu 1.

Streita

Væg streita mældist hjá 19% þátttakenda (n=69), miðlungs streita hjá 69% (n=249) og alvarleg streita hjá 11% (n=41). Meðalstreitustig var 18,7 (6,1). Skoðað var hvort munur væri á meðalstreitustigi eftir bakgrunnsbreytum (sjá töflu 1). Streitustig var marktækt hærra hjá konum (meðalstreitustig 19,4 (6,2)) en körlum (16,4 (5,3), (t(358)=-2,99, p <0,001)). Streitustig var einnig marktækt hærra hjá nemendum í grunnnámi (19,2, (6) en í framhaldsnámi (17,7, (6,2) (t(358) =2,10,, p <0,018)). Ekki var marktækur munur á meðalstreitustigi og öðrum bakgrunnsbreytum.

Kyn

Tafla 1. Bakgrunnur (N=360)

Foreldri

Atvinnuþáttaka

Hlutfall náms

Námslán

Þegar nemendur svöruðu PSS var algengast að þátttakendur upplifðu óöryggi vegna eigin getu til að fást við vandamál (57%) og að þeir teldu sig oft vera taugaóstyrka eða stressaða (57%). Sjá nánar á mynd 1. Chronbach-s-alfa-stuðull var fundinn fyrir PSS og reyndist ɑ=0,85.

Streita tengd háskólanámi

Flestir nemendur upplifðu frekar eða mjög mikla streitu tengda háskólanámi almennt (80%, n=289). Þar á eftir upplifðu flestir nemendur frekar eða mjög mikla streitu sem tengdist því að standast námskröfur (77%, n=277) (sjá mynd 2). Konur upplifðu

Mynd 1. Svör nemenda á PSS-kvarðanum.

marktækt meiri almenna streitu tengda ástundun háskólanáms en karlar (t(352)= -2,97, p=0,002). Ekki var marktækur munur á meðalnámsstreitustigi eftir því hvort nemendur voru í grunn- eða framhaldsnámi (t(352)= 0,87, p=0,192). Chronbach-s alfa-stuðullinn fyrir spurningar um námsstreitu var ɑ=0,78.

Meirihluti nemenda (69%, n=247) taldi sig hafa nægan stuðning við námið og 37% (n=133) töldu sig nær alltaf/oftast hafa nægan tíma til að stunda námið. Mikill meirihluti nemenda leitaði sér stuðnings vegna námsins úr sínu nærumhverfi, ýmist hjá fjölskyldu (73%, n=264), samnemendum (68%, n=246), maka (57%, n=205) eða vinum (54%, n=139).

Þörf fyrir faglega þjónustu og hindranir fyrir nýtingu þjónustunnar

Af nemendum á Heilbrigðisvísindasviði töldu 36% (n=129) sig hafa þörf fyrir faglega þjónustu vegna andlegrar heilsu sinnar og 16% (n=58) voru ekki viss. Streitustig var að meðaltali hærra hjá þeim sem töldu sig hafa þörf fyrir faglega aðstoð vegna andlegrar heilsu. (22,7, sf=5,2) miðað við þá sem töldu sig ekki í slíkri þörf (15,1, sf=4,8) og var munurinn marktækur ((t (297) =3,04, p <0,001).

Af þeim nemendum sem haldnir voru miðlungs eða alvarlegri streitu voru 17% (n=50) nú þegar að nýta sér faglega þjónustu. Algengustu hindranirnar fyrir því að sækja sér faglegra þjónustu voru kostnaður (51%, n=66), tímaskortur (27%, n=35) og að vita ekki hvert hægt væri að leita (18%, n=23) (Sjá mynd 3).

3.

Bjargráð

þörf fyrir faglega þjónustu en fær hana ekki – Ástæður.

Þegar nemendur upplifðu streitu var sjálfsgagnrýni algengasta viðbragðið (60%). Þar á eftir kom bjargráðið að tala við einhvern (54%) og svo að hreyfa sig (51%). Fæstir brugðust við með því að reykja (6%) og/eða drekka áfengi (8%) sjá mynd 4. Bjargráð nemenda voru svo skoðuð eftir stigi streitu og reyndist algengasta bjargráðið meðal þeirra sem haldnir voru alvarlegri streitu vera að neyta áfengis og þar á eftir að forðast vandann. Þeir nemendur

sem haldnir voru vægri streitu voru líklegri til að skipuleggja tímann sinn betur og stunda slökun eða íhugun sem viðbragð við streitu. Sjá bjargráð og stigskiptingu streitu á mynd 5.

UMRÆÐUR

Markmið þessarar rannsóknar var að skoða streitu og streitutengda þætti hjá nemendum í heilbrigðisvísindum við HÍ. Streitustig nemenda samkvæmt PSS-kvarðanum reyndist tæplega 19 stig, sem fellur undir miðlungs streitu (13-26 stig) og var meðaltalið marktækt hærra hjá konum og nemendum í grunnnámi. Meirihluti (80%) nemenda var með miðlungs (69%) eða alvarlega (11%) streitu.

Var streitustigið í þessari rannsókn nokkuð svipað og meðalstreitustig hjá hjúkrunarnemum í rannsókn Hrundar Sch. Thorsteinsson o.fl. (2022) sem var rúmlega 18 stig. Í þeirri rannsókn reyndist hátt hlutfall (74%) nemenda glíma við miðlungs eða alvarlega streitu samkvæmt sama kvarða, líkt og í þessari rannsókn (80%). Rannsókn Birnu G. Flygenring o.fl. (2021) leiddi einnig í ljós sambærilega niðurstöðu hjá hjúkrunarnemum þar sem 80% nemenda voru með streitustig yfir viðmiðunarmörkum (>13 stig) á PSS-kvarðanum og meðalstreitustigið var tæplega 18 stig.

Niðurstöður varðandi streitu samkvæmt þessari rannsókn eru einnig sambærilegar við ýmsar erlendar rannsóknaniðurstöður. Má nefna rannsókn Othman o.fl. (2019), sem er rannsókn sem var gerð meðal kanadískra nemenda í heilbrigðisvísindum en þar reyndist sama hlutfall, 80%, nemenda vera haldið miðlungs og alvarlegri streitu. Meðal bandarískra nema í hjúkrunar-, sálfræðiog félagsráðgjafanámi var meðalstreitustig einnig hliðstætt, eða

Mynd 2. Námsstreita.
Mynd
Hefur
Mynd 4. Bjargráð við streitu.
Mynd 5. Bjargráð eftir stigi streitu.

18 stig (Enns o.fl. 2018). Í rannsókn Onieva-Zafra o.fl. (2020) var meðalstreitustig spænskra hjúkrunarnema ívið hærra eða 23 stig (sf=8,6). Streitu íslenskra nemenda í heilbrigðisvísindum virðist því svipa til streitu sambærilegra nemendahópa erlendis.

Eins og þessi rannsókn sýnir var háskólanámið sjálft algengur streituvaldur hjá nemendum almennt, þegar námstengdir þættir streitu voru skoðaðir, en þær niðurstöður eru því svipaðar og niðurstöður danskra læknanema, eða 83% (Kjær o.fl., 2022). Hér voru samskipti við kennara meðal þeirra þátta sem voru almennt taldir lítið streituvaldandi og hefur komið fram í öðrum rannsóknum að góð tengsl við kennara, sérstaklega í klínísku námi, dragi úr streitu (Mazalová, 2022). Leiða má líkur að því að góð tengsl við klínískan kennara á heilbrigðisstofnunum séu líkleg til að draga úr streitu vegna krefjandi aðstæðna og óöryggis sem nemendur geta upplifað í nýjum hlutverkum inni á heilbrigðisstofnunum, eins og hefur áður verið bent á (Chaabane o.fl., 2021; Chachula, 2022; Labraque o.fl., 2018; Mazalová o.fl., 2022; McKerrow o.fl., 2020).

Nemendur nýta ólík bjargráð til að takast á við streitu, eins þessi rannsókn sýnir. Í um og yfir helmingi tilfella nýttu nemendur sér bjargráð á borð við að tala við einhvern, að hreyfa sig, að leita lausna og skipuleggja tíma sinn betur. Nemendur sem haldnir voru alvarlegri streitu voru líklegri til að leita í bjargráð eins og áfengisdrykkju, að forðast vandann og sjálfsgagnrýni. Sjálfsgagnrýni sem tengdist námsstreitu kom einnig fram í rannsókn Canjuga o.fl. (2025), meðal nemenda í hei brigðisvísindum. Einnig mátti sjá að nemendur sem voru haldnir vægri streitu voru líklegri til að nýta sér bjargráð á borð við að leita lausna, slaka á/íhuga og skipuleggja tíma sinn betur. Í rannsókn Enns o.fl. (2018) kom fram að nemendur sem mælst höfðu með háa tilfinningagreind mældust með lægra streitustig, auk þess sem þeir voru líklegri til að nýta sér bjargráð á borð við hreyfingu og lausnarleit. Benda þeir því á að úrræði sem ætluð eru til að styðja við streitustjórn nemenda gætu reynst gagnleg ef þau miða að því að auka tilfinningalæsi nemenda. Aðrir þættir sem virðast spá fyrir um betri nýtingu bjargráða eru hærri aldur og framgangur náms (Labrague o.fl., 2018) en eins og þessi rannsókn sýnir einnig þá glíma nemendur í framhaldsnámi við lægra stig streitu samanborið við nemendur í grunnnámi. Sýnir það enn frekar hvar þörfin er mest fyrir úrræði og stuðning, þ.e. meðal nemenda í grunnnámi. Þegar viðbrögð við streitu voru nánar greind út frá svörum á PSS-kvarðanum sást að algengast (60%) var að nemendur merktu við sjálfsgagnrýni og kom svo hátt hlutfall nokkuð á óvart. Hvað varðar upplifaða streitu þátttakenda var algengast að nemendur fyndu fyrir taugaóstyrk eða stressi/streitu (57%) og sama hlutfall upplifði óöryggi vegna eigin getu til að takast á við vandamál.

Niðurstöðurnar benda til þess að liðlega einn af hverjum þremur nemendum í heilbrigðisvísindum á Íslandi telji sig hafa þörf fyrir faglega aðstoð vegna andlegrar heilsu. Það skal þó tekið fram að fagleg aðstoð var ekki skilgreind sérstaklega í spurningalistanum. Þessir nemendur upplifa mun meiri streitu (23 stig) en hinir sem telja sig ekki hafa slíka þörf (15 stig). Í rannsókn Jóhönnu Bernharðsdóttur o.fl. (2013) kom fram að kvenstúdentar sem töldu sig þarfnast faglegrar aðstoðar fengu hana oftast frá sálfræðingum, geðlæknum og einstaklingum sem stunda óhefðbundnar íhlutanir. Mikill meirihluti háskólanema er á snemmfullorðinsárum og hefur verið bent á aðkallandi þörf fyrir forvarnir og bætt aðgengi að sálrænum stuðningi fyrir ungt

fólk (Goodwin o.fl., 2022; Wiens o.fl., 2020). Á sama tíma benda rannsóknir til þess að ungmenni nýti sálræna þjónustu í minna mæli en eldri einstaklingar (National Institute of Mental Health, 2021, Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, 2023, Solmi o.fl., 2022). Niðurstöðurnar varpa mikilvægu ljósi á ástæður þess að nemendur sækja ekki faglega þjónustu. Kostnaður er helsta hindrunin, auk tímaskorts og vegna þess að nemendur vita ekki hvert eigi að leita. Er það í samræmi við aðrar rannsóknarniðurstöður (Jóhanna Bernharðsdóttir o.fl., 2021; Ebert o.fl., 2019; Bantjes o.fl., 2023) og því aðkallandi að bæta úr aðgengi að þjónustu í nærumhverfi og tryggja að aðgangur sé óháður fjárhag. Velta má fyrir sér hvort stuðningur í nærumhverfi við þá nemendur sem mennta sig til umönnunarstarfa geti dregið úr streitu og skapað vitund um sálræn einkenni og þannig auðveldað samtal og snemmbúin viðbrögð við þeim. Í þessari rannsókn var fagleg aðstoð ekki skilgreind sérstaklega og því skortir hér upplýsingar um það til hvaða fagaðila var leitað og hvort faglega aðstoðin var veitt innan HÍ eða utan. Frá því að þessi rannsókn var framkvæmd árið 2018 hafa orðið töluverðar úrbætur á aðgengi nemenda við Háskóla Íslands að faglegum stuðningi og úrræðum sem eru til þess fallin að stuðla að bættri andlegri heilsu. Ber þar helst að nefna sálfræðiþjónustu sem í boði er gjaldfrjálst hjá náms- og starfsráðgjöf skólans, ásamt meðferðarþjónustu nemenda í klínísku meistaranámi í sálfræði. Einnig hafa félagsráðgjafar boðið upp á sambærilega þjónustu frá sínum meistaranemendum og er þar, líkt og meðal meistaranema í sálfræði, unnið undir handleiðslu klínískra sérfræðinga (Háskóli Íslands, 2026). Mikilvægt er að skoða áhrif aukins aðgengis að faglegri þjónustu á vegum háskólans á streitu og líðan háskólanema.

Hátt hlutfall ungmenna á Íslandi stundar krefjandi háskólanám og hafa brautskráningar nemenda úr grunnnámi nær tvöfaldast á síðustu tveimur áratugum (Hagstofa Íslands, e.d.). Háskólar eru því ört stækkandi vettvangur ungs fólks. Fjölmargar alþjóðlegar rannsóknir hafa sýnt að streita hjá nemendum í greinum heilbrigðisvísinda sé mikil, líkt og hjá háskólanemum almennt. Þessi rannsókn leiddi í ljós að hátt hlutfall nemenda sem leggja stund á heilbrigðisvísindi á Íslandi upplifir streitu og þörf fyrir faglega aðstoð sem þeir telja ekki auðsótta, meðal annars vegna kostnaðar og aðgengis.

STYRKLEIKAR OG TAKMARKANIR RANNSÓKNAR

Algengt er í rannsóknum meðal háskólanema að nýta PSS-listann fyrir mælingar á streitu og hefur hann reynst ásættanlegt mælitæki (Hrund Sc. Thorsteinsson o.fl., 2022; Enns, 2018). Í þessari rannsókn var Chronbach-s alfa-stuðullinn fyrir mælitækið 0,85 sem bendir til góðs innri áreiðanleika. Notkun sama mælitækis fyrir streitu nemenda gerir samanburð á milli rannsókna markvissari. Mismunandi úrtök, m.a. vegna mismunandi námsgreina sem flokkast til heilbrigðisvísinda, getur þó torveldað samanburð milli rannsókna. Úrtakið var valið handahófskennt og svarhlutfallið var fremur hátt. Hér er byggt á gögnum úr þversniðsrannsókn og því ekki hægt að draga ályktanir um orsakasambönd. Gögnin eru frá árinu 2018 og því ljóst að umtalsverðar breytingar hafa orðið á námsumhverfi og aðgengi að þjónustu (Háskóli Íslands, 2026). Við túlkun niðurstaðna þarf að taka tillit til áhrifa mögulegrar svarskekkju þar sem ekki er þekkt hvort hópurinn sem valdi að taka ekki þátt í rannsókninni sé að einhverju leyti frábrugðinn

þátttakendahópnum. Sjálfsmatskvarðar fela svo í sér þekktar takmarkanir, svo sem mistúlkun spurninga og að svör endurspegli ekki ávallt raunverulega líðan.

ÁLYKTANIR

Niðurstöður þessarar rannsóknar sýna að streita er mikil meðal nemenda í heilbrigðisvísindum, líkt og hjá háskólanemum almennt. Áhugavert væri að skoða enn frekar hvort sértækir streituvaldar séu til staðar hjá þessum nemendahópi með tilliti til uppsetningar námsins. Einnig væri upplýsandi að skoða viðhorf nemendanna sjálfra varðandi það hvers konar sálrænan stuðning þeir telja sig þurfa. Háskólanemar eru sífellt stækkandi lýðheilsuhópur með fjölbreyttar heilsufarslegar áskoranir sem taka þarf tillit til, meðal annars með forvörnum og vitundarvakningu. Samkvæmt niðurstöðum þessarar rannsóknar er æskilegt að slík inngrip fari fram snemma á námsferlinum. Þverfagleg teymi fagstétta ættu að leggja hér sameiginlega hönd á plóg. Sem dæmi um hlutverk sérfræðinga í geðhjúkrun við þróun slíkrar þjónustu má nefna eflingu geðheilsulæsis og heilbrigðra lífshátta meðal nemenda, ráðgjöf er varða árangursrík bjargráð og aukið aðgengi nemenda í heilbrigðisvísindum að geðheilbrigðisþjónustu (International Counsil of Nurses (2025). Alþjóðlegar samantektarrannsóknir hafa sýnt fram á góðan árangur inngripa sem hjúkrunarfræðingar hafa veitt háskólastúdentum vegna sálrænnar vanlíðanar í víðum skilningi (Russell o.fl., 2025).

ENGLISH SUMMARY

Psychological distress among health science students at the University of Iceland

doi: 10.33112/th.102.2.4

ABSTRACT

Aim

University studies are demanding, and high levels of stress have been reported among students worldwide. Health science students often engage in clinical training within healthcare settings alongside theoretical studies, which has been identified as a source of stress. The aim of this study was to examine stress, coping strategies, and need for professional services among health science students at the University of Iceland.

Methods

A quantitative research design was used. A questionnaire was distributed to health science students at the University of Iceland (N=360) in the spring semester of 2018. It included the Perceived Stress Scale (PSS), questions about coping strategies, educational stress, questions regarding the need for professional support, as well as background information. As professional services for students have increased since this cross-sectional study was conducted, it is now time to repeat similar studies among health science students. Descriptive statistics and hypothesis testing were used for data analysis.

Results

Response rate was 58%. The majority of participants were women (77%), most aged 20–24 years (44%), and the largest proportion were undergraduate students (68%). Mean stress score was 18.7 (SD=6.1) with a median of 19 (range 4–37). Most students experienced moderate or high stress (80%, n=289). Over a third of health science students (36%, n=129) reported needing professional support due to psychological distress. Students with higher stress levels had a significantly greater need for professional services compared to those who did not report such a need (t (297)=13.04, p <0.001). The

most common stress response was self-criticism (60%). Financial constraints and lack of time were the main barriers to seeking professional help.

Conclusions

University studies are demanding and health science students experience high stress compared to other university students. Those in the greatest need for professional support are students experiencing severe stress. There is a clear need for targeted prevention and tailored support services for health science students to help manage stress, and efforts should be made to improve access to such services. Since professional services for university students have expanded since this study was conducted, it is now appropriate to replicate similar studies among health science students.

Keywords

University students, health science students, professional support, psychological distress, stress

Correspondence thoreyre@landspitali.is

HEIMILDIR

Auerbach, R. P., Mortier, P., Bruffaerts, R., Alonso, J., Benjet, C., Cuijpers, P., Demyttenaere, K., Ebert, D. D., Green, J. G., Hasking, P., Murray, E., Nock, M. K., Pinder-Amaker, S., Sampson, N. A., Stein, D. J., Vilagut, G., Zaslavsky, A. M., Kessler, R. C., og WHO WMH-ICS Collaborators (2018). WHO World Mental Health Surveys International College Student Project: Prevalence and distribution of mental disorders. Journal of abnormal psychology, 127(7), 623–638. https://doi.org/10.1037/abn0000362

American Psychological Association (APA) (2018). Psychological distress https://dictionary.apa.org/psychological-distress

Alwhaibi, M., Alotaibi, A. og Alsaadi, B. (2023). Perceived Stress among Healthcare Students and Its Association with Anxiety and Depression: A Cross-Sectional Study in Saudi Arabia. Healthcare (Basel, Switzerland), 11(11), 1625. https://doi.org/10.3390/healthcare11111625

Bantjes, J., Kessler, M. J., Hunt, X., Stein, D. J. og Kessler, R. C. (2023). Treatment rates and barriers to mental health service utilisation among university students in South Africa. International Journal of Mental Health Systems 17(1), 38. https://doi.org/10.1186/s13033-023-00605-7

Bernhardsdottir, J. og Vilhjálmsson, R. (2013). Psychological distress among university female students and their need for mental health services. Journal of psychiatric and mental health nursing, 20(8), 672–678. https://doi.org/10.1111/jpm.12002

Beiter, R., Nash, R., McCrady, M., Rhoades, D., Linscomb, M., Clarahan, M. og Sammut, S. (2015) The prevalence and correlates of depression, anxiety, and stress in a sample of college students. Journal of Affective Disorders, 173, 90-96 https://doi.org/10.1016/j.jad.2014.10.054

Birna G. Flygnering, Herdís Sveinsdóttir, Rakel Dís Björnsdóttir og Salome Jónsdóttir (2021). Streita og kulnun hjúkrunarfræðinema á lokaári við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri. Tímarit íslenskra hjúkrunarfræðinga, 97(3), 77-85

Canjuga, I., Kozina, G., Mijoc, V., Dretar, E., Brecek, A., Novak, V. og Kelecic. (2025).

Self-criticism, self-encouragement and test emotions: A cross-sectional study of Croatian health students. Teaching and Learning in Nursing, 20(3), e736–e744. https://doi.org/10.1016/j.teln.2025.02.015

Chaabane, S., Chaabna, K., Bhagat, S., Abraham, A., Doraiswamy, S., Mamtani, R. og Cheema, S. (2021). Perceived stress, stressors, and coping strategies among nursing students in the Middle East and North Africa: an overview of systematic reviews. Systematic reviews, 10(1), 136. https://doi.org/10.1186/s13643-021-01691-9

Chachula, K.M. (2022). A comprehensive review of compassion fatigue in pre-licensure health students: antecedents, attributes, and consequences. Current Psychology, 41, 6275 –6287. https://doi.org/10.1007/s12144-020-01122-3

Cohen, S., & Williamson, G. M. (1988). Perceived stress in a probability sample of the United States. In S. Spacapan & S. Oskamp (Eds.), The social psychology of health: Claremont Symposium on Applied Social Psychology (pp. 31–67)

Cuijpers, P., Auerbach, R. P., Benjet, C., Bruffaerts, R., Ebert, D., Karyotaki, E. og Kessler, R. C. (2019). Introduction to the special issue: The WHO World Mental Health International College Student (WMH-ICS) initiative. International Journal of Methods in Psychiatric Research, 28(2) https://doi.org/10.1002/mpr.1762

Ebert, D. D., Franke, M., Kählke, F., Küchler, A. M., Bruffaerts, R., Mortier, P., Karyotaki, E., Alonso, J., Cuijpers, P., Berking, M., Auerbach, R. P., Kessler, R. C., Baumeister, H., og WHO World Mental Health - International College Student collaborators (2019). Increasing intentions to use mental health services among university students. Results of a pilot randomized controlled trial within the World Health Organization's World Mental Health International College Student Initiative. International journal of methods in psychiatric research, 28(2), e1754. https://doi.org/10.1002/mpr.1754

Enns, A., Eldridge, G.D., Montgomery, C. og Gonzalez, V.M. (2018). Perceived stress, coping strategies, and emotional intelligence: A cross-sectional study of university students in helping disciplines. Nurse Education Today, 68, 226-231.

Fauzi, M. F., Anuar, T. S., Teh, L. K., Lim, W. F., James, R. J., Ahmad, R., Mohamed, M., Abu Bakar, S. H., Mohd Yusof, F. Z., og Salleh, M. Z. (2021). Stress, Anxiety and Depression among a Cohort of Health Sciences Undergraduate Students: The Prevalence and Risk Factors. International journal of environmental research and public health, 18(6), 3269. https://doi.org/10.3390/ijerph18063269

Goodwin, R. D., Dierker, L. C., Wu, M., Galea, S., Hoven, C. W. og Weinberger A. H. (2022). Trends in U.S. Depression Prevalence from 2015 to 2020: The Widening Treatment Gap. American Journal of Preventive Medicene 63(5), 726-733. doi: 10.1016/j.amepre.2022.05.014 Hagstofa Íslands (e.d.). Brautskráningar á háskólastigi. Háskólastig - Hagstofa Íslands. Hagstofa Íslands (e.d.). Skólasókn á háskólastigi eftir aldri, kyni og lögheimili 1995-2023 https://px.hagstofa.is/pxis/pxweb/is/Samfelag/Samfelag__skolamal__4_haskolastig__0_ hsNemendur/SKO04108.px/table/tableViewLayout2/ Háskólastig - Hagstofa Íslands Háskóli Íslands (2026). Sálfræðiþjónusta Háskóla Íslands. Sálfræðiþjónusta Háskóla Íslands | Háskóli Íslands

Hrund Sch. Thorsteinsson, Jóhanna Bernharðsdóttir, Margrét Hrönn Svavarsdóttir, Erla Kolbrún Svavarsdóttir, Gísli Kort Kristófersson, Herdís Sveinsdóttir og Birna G. Flygenring (2022). Streita nemenda í hjúkrunarfræði í fyrstu bylgu Covid-19: Þversniðsrannsókn. Tímarit hjúkrunarfræðinga, 98(1), 65-71.

International Counsil of nurses (2025). Current nursing definitions. Current nursing definitions | ICN - International Council of Nurses Jóhanna Bernharðsdóttir, Rúnar Vilhjálmsson og Guðný Bergþóra Tryggvadóttir (2021). Sálræn líðan kvenstúdenta á barneignaraldri. Ljósmæðrablaðið 99(1), 10-14. Kjær, J.N., Molodynski, A., Bhugra, D. og Lewis, T. (2022). Wellbeing, psychiatric morbidity and psychological distress amongst medical students in Denmark. International Journal of Social Psychiatry, 68(6), 1289-1294. doi:10.1177/00207640221074916

Labraque, L. J., McEnroe-Petitte, D. M., Papathanasiou, I. V., Edet, O. B., Tsaras, K., Leocadio, M. C., Colet, P., Kleisiaris, C. F., Fradelos, E. C., Rosales, R. A., Vera SantosLucas, K. og Velacaria, P. I. T. (2018). Stress and coping strategies among nursing students: an international study. Journal of Mental Health, 27(5), 402-408. https://doi.org/10.1080/09638237.2017.1417552

Embætti landlæknis (2025). Líðan fullorðina 2024. Talnabrunnur - Fréttabréf Landlæknis um heilbrigðisupplýsingar, 19(6). TALNABRUNNUR FRÉTTABRÉF LANDLÆKNIS UM HEILBRIGÐISUPPLÝSINGAR

Lazarus, R. og Folkman, S. (1984). Stress, Appraisal, and Coping. New York: Springer. Mazalová, L., Gurková, E. og Štureková, L. (2022). Nursing students' perceived stress and clinical learning experience. Nurse education in practice, 64, 103457. https://doi.org/10.1016/j.nepr.2022.103457

McKerrow, I Carney, P.A., Caretta-Weyer, H., Furnari, M. og Miller, A.J. (2020) Trends in medical students’ stress, physical, and emotional health throughout training, Medical Education Online, 25(1) DOI: 10.1080/10872981.2019.1709278

Melnyk, B. M., Hsieh, A. P., Tan, A., Gawlik, K. S., Hacker, E. D., Ferrell, D., Simpson, V., Burda, C., Hagerty, B., Scott, L. D., Holt, J. M., Gampetro, P., Farag, A., Glogocheski, S. og Badzek, L. (2021). The state of mental health and healthy lifestyle behaviors in nursing, medicine and health sciences faculty and students at Big 10 Universities with implications for action. Journal of Professional Nursing, 37(6), 1167-1174. https://doi.org/https://doi.org/10.1016/j.profnurs.2021.10.007

Onieva-Zafra, M. D., Fernández-Muñoz, J. J., Fernández-Martínez, E., García-Sánchez, F. J., Abreu-Sánchez, A. og Parra-Fernández, M. L. (2020). Anxiety, perceived stress and coping strategies in nursing students: a cross-sectional, correlational, descriptive study. BMC medical education, 20(1), 370. https://doi.org/10.1186/s12909-020-02294-z

Othman, N., Ahmad, F., El Morr, C. og Ritvo, P. (2019). Perceived impact of contextual determinants on depression, anxiety and stress: a survey with university students. International Journal of Mental Health Systems, 13(1), 17. https://doi.org/10.1186/s13033-019-0275-x

Phillips, M.S., Steelesmith, D.L., Guy, B., Benedict, J., Munoz. og Fontanella, C.A. (2022). Mental Health Service Utilization Among Medical Students with a Perceived Need for Care. Academic Psychiatry, 46, 223-227. https://doi.org/10.1007/s40596-021-01584-y

Rakel Jónasdóttir og Karen Rós Brynjarsdóttir (2020). Streita og kulnun meðal háskólanema: Tengsl við vinnu með námi og námsörðugleika. [Bakkalár ritgerð, Háskóli Íslands]. Skemman. Lokaskil-part-7.pdf

Ramón-Arbués, E., Gea-Caballero, V., Granada-López, J. M., Juárez-Vela, R., Pellicer-García, B. og Antón-Solanas, I. (2020). The Prevalence of Depression, Anxiety and Stress and Their Associated Factors in College Students. International Journal of Environmental Research and Public Health, 17(19), 7001. https://www.mdpi.com/1660-4601/17/19/7001

Russel, N., Rodney, T., Peterson, J, Baker, A. og Francis, L. (2025). Nurse-led Mental Health Internventions for College Students: A Systematic Revicew. Preventing Chronic Diseases, 22, 240200. http://dx.doi.org/10.5888/pcd22.240200

Shan, Y., Ji, M., Xie, W., Li, R., Qian, X., Zhang, X. og Hao, T. (2022). Interventions in Chinese Undergraduate Students' Mental Health: Systematic Review. Interactive journal of medical research, 11(1), e38249. https://doi.org/10.2196/38249

Sheroun, D., Wankahar, D.D., Devrani, A., PV, L., Gita, S. og Chatterjee, K. (2020). A Study to Assess the Perceived Stress and Coping Strategies among B.Sc. Nursing Students of Selected Colleges in Pune during COVID-19 Pandemic Lockdown. International Journal of Science and Healtcare Research, 5(2), 280- 288. https://ijshr.com/IJSHR_Vol.5_Issue.2_April2020/IJSHR0038.pdf

Sivertsen, B., Knudsen, A. K. S., Kirkøen, B., Skogen, J. C., Lagerstrøm, B. O., Lønning, K.-J., Kessler, R. C. og Reneflot, A. (2023). Prevalence of mental disorders among Norwegian college and university students: a population-based cross-sectional analysis. The Lancet Regional Health – Europe, 34. https://doi.org/10.1016/j.lanepe.2023.100732

Solmi, M., Radua, J., Olivola, M., Croce, E., Soardo, L., de Pablo, G., Shin, J., Kirkbride, J., Jones, P., Kim, H.J., Kim, Y.J., Carvalho, A., Seeman, M., Correll, C. og Fusar-Poli, P (2022). Age at onset of mental disorders worldwide: large-scale meta-analysis of 192 epidemiological studies. Molicular Psychiatry 27, 281–295. https://doi.org/10.1038/s41380-021-01161-7

Worsley, J.D., Pennington, A. og Corcoran, R. (2022). Supporting mental health and wellbeing of university and college students: A systematic review of review-level evidence of interventions. PLoS One, 17(7). https://doi.org/10.1371/journal.pone.0266725

Heilsulæsi fullorðinna á Íslandi: Algengi lágs heilsulæsis og tengsl við lýðfræðilega þætti

ÚTDRÁTTUR

Tilgangur

Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna algengi lágs heilsulæsis meðal fullorðinna á Íslandi og greina tengsl þess við lýðfræðilega þætti.

Aðferð

Þversniðsrannsókn var framkvæmd með netkönnun Félagsvísindastofnunar

Háskóla Íslands í desember 2023, byggð á tilviljunarúrtaki fullorðinna (≥18 ára). Svarhlutfall var 42% (n=1027). Heilsulæsi var metið með

BRIEF-kvarðanum og gilt heildarskor reiknað fyrir 998 þátttakendur. Niðurstöður voru vigtaðar eftir kyni, aldri, menntun og búsetu. Leiðrétt líkindahlutföll (aOR) voru reiknuð með vigtaðri tvíkosta lógistískri aðhvarfsgreiningu. Næmnigreiningar voru framkvæmdar og mátgæði líkans metin.

Niðurstöður

HAGNÝTING

RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA „Hvers vegna ættir þú að lesa þessa grein?“

Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga: Hjúkrunarfræðingar þurfa að taka tillit til félagslegra áhrifaþátta heilsu, þar með talið heilsulæsis, við miðlun heilbrigðisupplýsinga. doi: 10.33112/th.102.2.5

Vigtað algengi lágs heilsulæsis var 39,5% (95% ÖB: 35,5-43,7). Lægri menntun tengdist auknum líkum á lágu heilsulæsi samanborið við háskólamenntun (grunnskóli aOR = 3,86; framhaldsskóli aOR = 1,77). Heimilistekjur ≤ 900 þús. kr./mán. tengdust einnig auknum líkum á lágu heilsulæsi (aOR = 1,77). Aldur 18-29 ára (aOR=3,91) og 45-59 ára (aOR 1,86) tengdust hærri líkum miðað við ≥60 ára. Þátttakendur utan sambúðar/hjónabands höfðu auknar líkur á lágu heilsulæsi (aOR = 1,77) samanborið við þá sem voru í sambúð/ hjónabandi. Kyn, búseta og börn á heimili tengdust ekki lágu heilsulæsi eftir leiðréttingu. Mátgæði líkansins voru viðunandi.

Ályktanir

Lágt heilsulæsi mældist hjá fjórum af hverjum tíu fullorðinna á Íslandi og er algengið í samræmi við erlendar rannsóknir. Lægri menntun, lakari efnahagur, yngri aldur og að vera utan sambúðar tengdust auknum líkum á lágu heilsulæsi. Niðurstöður kalla á aðgerðir til að efla heilsulæsi og tryggja jafnræði í aðgengi að skýrum heilbrigðisupplýsingum.

Lykilorð heilsulæsi, félags- og efnahagsþættir, fullorðnir, lýðheilsa, þversniðsrannsóknir

Nýjungar: Í þessari fyrstu rannsókn um heilsulæsi meðal almennings á Íslandi kom í ljós að um fjórir af hverjum tíu höfðu lágt heilsulæsi og líkurnar tengdust lægri menntun, lægri tekjum, yngri aldri og því að búa utan sambúðar en ekki kyni, búsetu eða börnum á heimili.

Hagnýting: Niðurstöður má nýta við skipulag og framkvæmd heilbrigðisfræðslu sem tekur tillit til heilsulæsis, til dæmis með því að innleiða almennar varúðarreglur (e. universal precautions) þar sem gert er ráð fyrir að allir geti átt í erfiðleikum með að skilja eða nýta heilbrigðisupplýsingar.

Þekking: Niðurstöðurnar styrkja þekkingu á mikilvægi heilsulæsis við heilbrigðisfræðslu í störfum hjúkrunarfræðinga.

Höfundar

NANNA FRIÐRIKSDÓTTIR

M.S., sérfræðingur í hjúkrun, aðjúnkt1,2

BJÖRK BRAGADÓTTIR

M.A., hjúkrunarfræðingur, aðjúnkt2

JÓHANNA ÓSK EIRÍKSDÓTTIR

M.S., sérfræðingur í hjúkrun, aðjúnkt1,2

JÓNÍNA SIGURGEIRSDÓTTIR

PhD, sérfræðingur í hjúkrun3

KATRÍN BLÖNDAL

M.S., sérfræðingur í hjúkrun, aðjúnkt2,4

MARGRÉT HRÖNN SVAVARSDÓTTIR

PhD., sérfræðingur í hjúkrun, prófessor5

ÞORGERÐUR RAGNARSDÓTTIR

hjúkrunarfræðingur, M.A.4

BRYNJA INGADÓTTIR

PhD, sérfræðingur í hjúkrun, prófessor2,4

1Krabbameinsþjónusta Landspítala

2Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands

3Reykjalundur

4Miðstöð sjúklingafræðslu Landspítala

5Hjúkrunarfræðideild Háskólans á Akureyri

Heilsulæsi fullorðinna á Íslandi: Algengi lágs heilsulæsis og tengsl við

lýðfræðilega þætti

INNGANGUR

Heilsulæsi er fjölþætt hugtak sem lýsir hæfni fólks til að nálgast, skilja, meta og nota heilsutengdar upplýsingar og heilbrigðisþjónustu til að styðja við upplýsta ákvarðanatöku um eigin heilsu (Batterham o.fl., 2016; World Health Organization [WHO], 2022). Heilsulæsi er þannig ein af grunnforsendum virkrar þátttöku einstaklinga í eigin heilbrigðisþjónustu og hefur víðtæk áhrif á heilsufar og nýtingu heilbrigðiskerfisins.

Rannsóknir sýna að lágt heilsulæsi tengist fjölmörgum óhagstæðum heilsuútkomum, þar á meðal lakari sjálfsmetinni heilsu og lífsgæðum, minni þátttöku í heilsutengdum forvörnum, verri aðheldni við sjálfsumönnun, aukinni félagslegri einangrun og minni félagslegri virkni (Berkman o.fl., 2011; Fan o.fl., 2021; Geboers o.fl., 2016; Miller, 2016; Svendsen o.fl., 2020). Þá hefur lágt heilsulæsi einnig verið tengt aukinni nýtingu bráðaþjónustu, lengri sjúkrahúslegu og hærri dánartíðni sem undirstrikar mikilvægi heilsulæsis bæði frá klínísku og lýðheilsusjónarhorni.

Í fyrstu samanburðarrannsókninni á heilsulæsi í Evrópu (HLS-EU) reyndust um 47% fullorðinna vera með ófullnægjandi eða takmarkað heilsulæsi, með verulegum breytileika á milli landa (29%-62%) (Sørensen o.fl., 2015). Í kerfisbundinni yfirlitsgrein og metagreiningu frá Evrópu er algengi lágs eða takmarkaðs heilsulæsis á bilinu 27-48%, mismunandi eftir löndum, þýðum og mælitækjum, sem undirstrikar bæði umfang vandans og breytileika í niðurstöðum (Baccolini o.fl., 2021).

Á Íslandi er þekking á stöðu heilsulæsis meðal almennings enn takmörkuð. Í staðfærslu og prófun á íslenskri þýðingu HLS-EU-Q16-spurningalistans mældust 27,5% fullorðinna með ófullnægjandi eða takmarkað heilsulæsi og meðal eldri einstaklinga (65–92 ára) var hlutfallið 35% (Gústafsdóttir o.fl., 2020; Gústafsdóttir o.fl., 2022). Klínískar íslenskar rannsóknir benda jafnframt til verulegs breytileika milli sjúklingahópa, þar sem algengi ófullnægjandi eða takmarkaðs heilsulæsis hefur mælst á bilinu 10–48%, allt eftir sjúkdómi, aðstæðum og aðferð (Brynja Ingadóttir o.fl., 2025; Erlingsdóttir o.fl., 2023; Ingadóttir o.fl., 2023). Þessar niðurstöður sýna að lágt heilsulæsi er ekki einungis lýðheilsuvandi, heldur einnig mikilvægt klínískt viðfangsefni innan íslenskrar heilbrigðisþjónustu.

Lægra heilsulæsi mælist almennt algengara meðal fólks með minni menntun og lægri tekjur, en niðurstöður um tengsl annarra lýðfræðilegra þátta, eins og aldurs, kyns og hjúskaparstöðu, eru misvísandi og breytilegar (Baccolini o.fl., 2021; Berkman o.fl., 2011; Geboers o.fl., 2016). Þetta sýnir hversu brýnt það er að meta algengi lágs heilsulæsis og tengsl þess við lýðfræðilega þætti í tilteknu menningarlegu og samfélagslegu samhengi.

Á undanförnum árum hefur á alþjóðavettvangi verið aukin áhersla lögð á hlutverk heilbrigðisstofnana og heilbrigðisstarfsfólks í því að efla heilsulæsi notenda heilbrigðisþjónustunnar (Agency for Healthcare Research and Quality [AHRQ], 2025; Batterham o.fl., 2016; Frederiksen og Wangdahl, 2022; Kickbusch o.fl., 2013; WHO, 2022). Á Íslandi hefur hugtakið jafnframt verið kynnt og fest í sessi í stefnumótun heilbrigðismála (Heilbrigðisráðuneytið, 2019; Frederiksen og Wangdahl, 2022). Áhersla á heilsulæsi endurspeglast einnig í nýrri skilgreiningu Alþjóðaráðs hjúkrunarfræðinga á hjúkrun, þar sem efling heilsulæsis skjólstæðinga er skilgreind sem órjúfanlegur hluti heildrænnar hjúkrunar (White o.fl., 2025). Hjúkrunarfræðingar gegna því mikilvægu hlutverki í að stuðla að jöfnuði í

heilbrigðiskerfinu, styrkja sjálfræði einstaklinga og styðja við upplýsta ákvarðanatöku um heilbrigði og meðferð með því að miðla upplýsingum á skýran, aðgengilegan og einstaklingsmiðaðan hátt.

Markmið þessarar rannsóknar var að kanna algengi lágs heilsulæsis meðal fullorðinna einstaklinga á Íslandi og greina tengsl þess við helstu lýðfræðilega þætti.

AÐFERÐ

Rannsóknarsnið og þátttakendur

Rannsóknin var þversniðsrannsókn og hluti af netkönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands (FVS-HÍ) sem fór fram í desember 2023. Úrtakið er tilviljunarúrtak fullorðinna einstaklinga (≥18 ára) úr þjóðskrá, lagskipt eftir kyni, aldri, menntun og búsetu (N=2.452). Heildarfjöldi svarenda var 1.027, sem samsvarar 42% svarhlutfalli.

Mælitæki og útkomubreyta

Heilsulæsi var metið með Brief Health Literacy Screening Tool (BRIEF), fjögurra atriða skimunarkvarða sem metur læsi, skilning, samskipti og sjálfsöryggi í tengslum við heilsutengdar upplýsingar (Haun o.fl., 2009; Haun o.fl., 2012). Kvarðinn hefur sýnt ásættanlega próffræðilega eiginleika (Haun o.fl., 2014) og var valinn þar sem hann er stuttur og hentar vel í stórar netkannanir með takmörkuðu spurningarými. Stuttur kvarði dregur úr svarþreytu og líkum á atriðamissi, þó að hann nái ekki yfir allar víddir heilsulæsis. Spurningalistinn hafði áður verið þýddur á íslensku með tvöfaldri framþýðingu, þýðingar bornar saman og samræmdar og síðan bakþýddur af óháðum þriðja aðila (Ingadóttir, 2016).

Hverju atriði er svarað á fimm stiga Likert-kvarða þar sem hærra gildi táknar betra heilsulæsi. Þrjú atriði meta tíðni erfiðleika (svarmöguleikar: alltaf, oft , stundum, sjaldan, aldrei) og fjórða atriðið metur öryggi við að fylla út eyðublöð (svarmöguleikar: alls ekki örugg/ur, lítið örugg/ur, hvorki né, nokkuð öruggur/ur og mjög örugg/ur). Atriðin eru:

1. Hversu oft færðu aðstoð annarra t.d. ættingja, vina, aðstoðarmanns eða heilbrigðisstarfsfólks við að lesa fræðsluefni frá heilbrigðiskerfinu?

2. Hversu oft lendir þú í vandræðum með að fræðast um sjúkdómsástand þitt vegna erfiðleika við að skilja skriflegar upplýsingar?

3. Hversu oft lendir þú í vandræðum með að skilja það sem þér er sagt um sjúkdómsástand þitt?

4. Hversu örugg/ur ertu í því að fylla út eyðublöð á vegum heilbrigðiskerfisins eða sem tengjast heilsu þinni?

Heildarskor er reiknað sem summa allra fjögurra atriða (bil 4-20), þar sem hærra skor táknar betra heilsulæsi. Skor voru flokkuð sem ófullnægjandi (4-12), takmarkað (13-16) og fullnægjandi (17-20) heilsulæsi og lágt heilsulæsi var skilgreint sem skor ≤16 (ófullnægjandi + takmarkað), í samræmi við fyrri rannsóknir (Haun o.fl., 2014). Svarmöguleikinn ,,á ekki við“ var meðhöndlaður sem ,,vantar“ (e. missing) við útreikning skora. Heildarskor var reiknað ef að minnsta kosti þrjú af fjórum atriðum höfðu gilt svar.

Lýðfræðilegar breytur

Lýðfræðilegar breytur í þessari könnun voru aldur, kyn, menntun, hjúskaparstaða, atvinnuþátttaka, einstaklingstekjur, heimilistekjur, fjöldi barna og fjöldi barna yngri en 18 ára á heimili. Allar

breytur voru settar fram sem flokkabreytur.

Í þessari greiningu voru eftirtaldar breytur notaðar: Kyn (karl/kona), aldur (18-29, 30-44, 45-59, ≥60 ára), menntun (grunn-, framhaldsog háskólamenntun), hjúskaparstaða (ekki í sambúð, í sambúð), búseta (landsbyggð vs. höfuðborgarsvæði), heimilistekjur (≤ 900.000 kr./mán. vs. >900.000 kr./mán) og fjöldi barna á heimili (engin vs. ≥1). Flokkun breyta byggði á fyrri rannsóknum, dreifingu gagna og þörf fyrir nægjanlega stóra undirhópa til að tryggja stöðugleika í aðhvarfsgreiningu.

Í aðhvarfslíkani voru eftirfarandi viðmiðshópar notaðir: konur, ≥60 ára, háskólamenntun, í sambúð, búseta á höfuðborgarsvæði, heimilistekjur >900 þús./mán. og ≥ 1 barn á heimili. Allar breytur voru meðhöndlaðar sem flokkabreytur.

Tölfræðileg úrvinnsla

Vigtun og hönnunarrétting (e. design correction): Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands reiknar spurningavægi fyrir netkannanir sínar til að leiðrétta fyrir frávikum milli úrtaks og þýðis. Í þessari rannsókn voru notuð tilbúin spurningavægi frá FVS-HÍ, byggð á kyni, aldri, menntun og búsetu, til að endurspegla þýði fullorðinna á Íslandi.

Við tölfræðilega úrvinnslu var tekið tillit til lagskipts úrtakssniðs og vigtunar með því að nota SPSS Complex Samples-greiningu, þar sem beitt var Taylor-línun til að leiðrétta staðalvillur og prófstærðir fyrir flókna úrtakshönnun.

Lýsandi tölfræði: Í töflum er sýndur óvigtaður fjöldi (n) og óvigtað hlutfall með Wilson 95% öryggisbili (ÖB), ásamt vigtuðu hlutfalli sem aðalmati, reiknuðu með Wald 95% ÖB. P-gildi byggðust á Rao-Scott aðlöguðu kí-kvaðratprófi, sem tekur tillit til vigtunar og flókinnar úrtakshönnunar.

Leiðrétt tengsl: Aðalgreining var vigtað tvíkosta lógistískt aðhvarfslíkan (SPSS Complex Samples), þar sem lágt heilsulæsi (skor ≤16) var skilgreint sem útkomubreyta (1 = lágt heilsulæsi). Allar áhrifsbreytur voru settar inn samtímis. Niðurstöður eru settar fram sem leiðrétt líkindahlutföll (aOR) með Wald 95% ÖB. Fyrir fram skilgreind víxlhrif (kyn × aldur, menntun x tekjur, menntun x aldur) voru prófuð en náðu ekki tölfræðilegri marktækni og voru því ekki höfð í lokalíkani.

Vöntun gagna: Vöntun gagna var á bilinu 2,7-6,1%, en mest fyrir heimilistekjur þar sem vöntun var 18,2%. Gilt heilsulæsisskor var reiknað fyrir 998 þátttakendur (97,2%) sem höfðu gilt svar við að minnsta kosti þremur af fjórum BRIEF-atriðum. Greining á tengslum voru framkvæmdar á complete-case-grunni.

Mátgæði og samanburðarlíkan: Fyrir vigtaða aðhvarfslíkanið eru birtir mælikvarðar á mátgæði, þ.e. Cox–Snell og Nagelkerke R² ásamt heildarlíkansprófi (Wald F). AUC og Hosmer-Lemeshow voru metin í óvigtuðu líkani þar sem þessir mælikvarðar eru ekki aðgengilegir á sambærilegan hátt í Complex Samples í SPSS.

Næmnigreiningar: Framkvæmdar voru næmnigreiningar með (i) notkun annarra skurðpunkta fyrir lágt heilsulæsi (≤15 og ≤17) og (ii) útilokun aldurshópsins 18-29 ára.

Öll próf voru tvíhliða og marktækni skilgreind sem ɑ=0,05.

Tölfræðileg úrvinnsla var framkvæmd í IBM SPSS Statistics for Windows, útgáfu 29.0.2.0 (IBM Corp., Armonk, NY, USA).

Siðferðileg atriði

Þátttakendur komur úr netpanel Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands og höfðu áður veitt upplýst samþykki fyrir þátttöku í netkönnunum á vegum stofnunarinnar. Þátttaka var valfrjáls og svör voru meðhöndluð án persónugreinanlegra upplýsinga. Samkvæmt verklagi Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands er almennt ekki sótt um leyfi til siðanefndar vegna slíkra kannana nema þegar um sérstaklega viðkvæm rannsóknarefni er að ræða.

NIÐURSTÖÐUR

Þátttakendur

Heildarfjöldi svarenda var 1.027. Hlutfall karla og kvenna var jafnt og helmingur þátttakenda var 18-44 ára. Um 37% höfðu lokið háskólamenntun og meirihluti bjó á höfuðborgarsvæðinu (65%). Óvigtað lágt heilsulæsi (ófullnægjandi og takmarkað heilsulæsi) mældist hjá 32% þátttakenda. Nánari lýsing á þátttakendum er í töflu 1.

(óvigtuð gild svör; heildarúrtak n=1027)

Menntun

Búseta

Hjúskaparstaða

Grunnskólamenntun

Framhaldsmenntun 375 37,8

Háskólamenntun 366 36,8

Höfuðborgarsvæði 668 65,1

Landsbyggð 359 34,9

Í sambúð/hjónabandi 659 65,6

Ekki í sambúð/ hjónabandi

Börn á heimili (≤17 ára)

Heimilistekjur (kr./mán.)

Heilsulæsi (BRIEF-skor)

≤900.000

Ófullnægjandi (4-12)

Takmarkað (13-16) 206 20,7

Fullnægjandi (17-20) 670 67,5

Ath: Tölur sýna óvigtaðan fjölda og hlutfall með gild svör fyrir hverja breytu; fjöldi gildra svara var breytilegur milli breyta.

Algengi lágs heilsulæsis

Gilt heildarskor BRIEF var reiknað fyrir 998 þátttakendur (97%).

Vigtað algengi lágs heilsulæsis var 39,5%, sem var marktækt hærra en óvigtað mat (32,5%; p=0,002). Vigtað hlutfall lágs heilsulæsis var marktækt hærra meðal yngri aldurshópa samanborið við ≥60 ára (p<0,001), meðal þátttakenda með lægri menntun en háskólamenntun (p<0,001), meðal þeirra sem voru með lægri heimilistekjur en 900.000 kr./mán. (p=0,027) og meðal þeirra sem voru ekki í sambúð/hjónabandi (p=0,032). Það reyndist ekki marktækur munur eftir kyni (p=0,503), búsetu (p=0,593) eða því hvort börn voru á heimili eða ekki (p=0,378). Tafla 2 lýsir niðurstöðum úr óvigtuðu og vigtuðu mati.

Tafla 2. Algengi lágs heilsulæsis (≤16) eftir bakgrunnsþáttum (óvigtuð og vigtuð gögn)

BreytaFlokkurn Lágt heilsulæsi óvigtað % (95% ÖB) p

Framhaldsskóli350

(20,4–27,7)

(19,9–28,2)

Höfuðborgarsvæði 632 32,1 (28,6–35,9) 38,8 (33,8–44,0)

Landsbyggð361 33,2 (28,6-38,3) 40,9 (34,0-48,1)

Í sambúð717 31,4 (28,1–34,9) 36,3 (31,9–41,0)

Ekki í sambúð259 34,4 (28,8–40,3) 45,4 (37,3–53,8)

Börn á heimili (≤17 ára) 0,251

≥1 barn330 30,0 (25,3–35,4) 34,4 (28,1–41,2)

Engin börn630 33,7 (30,1–37,4) 42,5 (37,2–48,0)

Heimilistekjur (kr./mán.) <0,001 0,027

≤900 þús. / mán. 323 37,8 (32,7–43,2) 46,4 (39,2–53,8)

>900 þús. / mán. 501 26,3 (22,7–30,4) 28,8 (24,0–34,0)

Ath: n sýnir fjölda þátttakenda með gild svör í hverjum samanburði; p-gildi byggja á Ras-Scott aðlöguðu kí-kvaðrat prófi. Vigtuð hlutföll eru aðalmælikvarði.

Vigtað meðaltal BRIEF-skors var 17,96 (sf=2,38) og óvigtað 16,33 (sf=4,04). Miðgildi skors var 18 (Q1-Q3: 14-19: IQR=5). Alls höfðu 23,5% þátttakenda hæsta mögulega skor (20) og 43,4% skor ≥19,

Tafla 1. Lýðfræðileg einkenni þátttakenda og heilsulæsi

sem bendir til áberandi þakáhrifa, þ.e. að stór hluti þátttakenda mælist nálægt eða við hæsta mögulega skor kvarðans.

Leiðrétt tengsl (aOR)

Í fjölbreytulíkani (Complex Samples tvíkosta lógistísk aðhvarfsgreining) tengdust lægra menntunarstig, lægra heimilistekjustig, yngri aldur og það að vera ekki í sambúð, sjálfstætt auknum líkum á lágu heilsulæsi. Samanborið við háskólamenntun var leiðrétt líkindahlutfall (aOR) 3,86 (95% ÖB: 2,16-6,90) fyrir grunnskólamenntun og 1,77 (95% ÖB: 1,16-2,69) fyrir framhaldsskólamenntun. Lægri heimilistekjur (≤900.000 kr./mán.) tengdust einnig auknum líkum á lágu heilsulæsi (aOR = 1,77; 95% ÖB:1,07-2,95).

Í samanburði við aldurshópinn ≥60 ára var aOR = 3,91 (2,08-7,36) meðal 18-29 ára og 1,86 (95% ÖB 1,09-3,16) meðal 45-59 ára en aldurshópurinn 30-44 ára náði ekki tölfræðilegri marktækni. Þátttakendur sem voru ekki í sambúð höfðu auknar líkur á lágu heilsulæsi samanborið við þá sem voru í sambúð (aOR = 1,77; 95% ÖB 1,05-3,00). Kyn, búseta og tilvist barna á heimili tengdust ekki lágu heilsulæsi eftir leiðréttingu (sjá mynd 1).

Mynd 1. Leiðrétt líkindahlutföll (aOR) og 95% öryggisbil fyrir lágt heilsulæsi (≤16) samkvæmt vigtaðri tvíkosta lógistískri aðhvarfsgreiningu. Viðmiðunarhópar eru konur, ≥60 ára, háskólamenntun, heimilistekjur >900.000 kr./mán., í sambúð, höfuðborgarsvæðið og ≥1 barn á heimili.

Innri áreiðanleiki, mátgæði og næmnigreiningar

Innri áreiðanleiki BRIEF í úrtakinu var ásættanlegur (Cronbach´s ɑ=0,71, bæði vigtað og óvigtað) (sjá töflu 3).

3. Innri áreiðanleiki og atriðagreining BRIEF (óvigtuð gögn, n=796)

Atriði M sf Leiðrétt atriði–heild r ɑ ef fjarlægt

1. Aðstoð við lestur (snúið) 4,860,520,33 0,74

2. Skilja skriflegt (snúið)4,730,660,65 0,57

3. Skilja munnlegt (snúið)4,650,700,62 0,57

4. Öryggi við eyðublöð 4,060,980,48 0,70

Ath.: Heildaráreiðanleiki: Cronbach’s ɑ=0,71 (k=4). BRIEF = Brief Health Literacy Screening Tool; M = meðaltal; sf = staðalfrávik; r = fylgnistuðull; ɑ= Cronbach’s alfa; k = fjöldi atriða. „Snúið“merkir að svörun atriðis var endurkóðuð þannig að hærra skor táknaði betra heilsulæsi. Greining byggir á þátttakendum með gild svör við öllum fjórum atriðum. Dreifing skora sýndi þakáhrif.

Mátgæði óvigtaðs grunnlíkans voru hófleg, með AUC=0,63 (95% ÖB: 0,59-0,67) sem bendir til meðalgreiningarhæfni. Hosmer–

Lemeshow-próf gaf til kynna gott samræmi milli spáðra og raunverulegra hlutfalla (p=0,242).

Í vigtaða líkaninu var Nagelkerke R²=0,161, Cox Snell R²=0,118 og heildarlíkanspróf (Wald F) var marktækt (p <.001), sem bendir til betri mátgæða en í óvigtaða líkaninu (Nagelkerke R²=0,072).

Næmnigreiningar með öðrum skurðpunktum fyrir lágt heilsulæsi (≤ 15 og ≤ 17) og eftir útilokun aldurshópsins 18-29 ára leiddu til sambærilegra niðurstaðna og aðallíkan. Lægra menntunarstig og lægri heimilistekjur tengdust áfram auknum líkum á lágu heilsulæsi í öllum líkönum, sem og yngri aldur. Tengsl kyns, búsetu og barna á heimili við lágt heilsulæsi voru ómarktæk í öllum næmnigreiningum. Mátgæði líkansins voru breytileg milli greininga en í samræmi við aðallíkan (sjá töflu 4).

Tafla 4. Næmnigreiningar og mátgæði: leiðrétt líkindahlutföll (aOR, 95% öryggisbil) fyrir lágt heilsulæsi (vigtað líkan)

Breyta (samanburður) Aðallíkan ≤16 Skurðpunktur ≤15 Skurðpunktur ≤17 Útilokun 18–29 ára

Kyn: karlar vs. konur 0,87 (0,59–1,30) 1,02 (0,74–1,39) 0,99 (0,73–1,34) 0,91 (0,65–1,28)

Aldur: 18–29 vs. ≥60 3,91 (2,08–7,36) 2,92 (1,80–4,73) 3,24 (2,00–5,24)

Aldur: 30–44 vs. ≥60 1,78 (0,94–3,35) 1,78 (1,09–2,93) 1,53 (0,96–2,45) 1,60 (0,98–2,62)

Aldur: 45–59 vs. ≥60 1,86 (1,09–3,16) 1,89 (1,16–3,07) 1,65 (1,05–2,62) 1,74 (1,09–2,80)

Menntun: grunn- vs. háskóli 3,86 (2,16–6,90) 3,26 (2,09–5,09) 3,74 (2,43–5,74) 2,65 (1,67–4,22)

Menntun: framhaldsvs. háskóli 1,77 (1,16–2,69) 1,73 (1,16–2,59) 1,70 (1,17–2,46) 1,93 (1,27–2,92)

Tekjur: ≤900 þús. / mán. vs. >900 þús. / mán. 1,77 (1,07–2,95) 1,87 (1,21–2,88) 1,76 (1,16–2,67) 1,84 (1,17–2,89)

Hjúskaparstaða: ekki vs. í sambúð 1,77 (1,05–2,98) 1,5 (1,03–2,38) 1,48 (0,99–2,23) 1,56 (0,99–2,53)

Búseta: landsbyggð vs. höfuðborgarsvæði 1,12 (0,74–1,70) 1,07 (0,77–1,49) 0,99 (0,72–1,36) 1,17 (0,82–1,67)

Börn á heimili: ≥1 vs. ekkert 0,79 (0,48–1,33) 0,74 (0,49–1,12) 0,75 (0,51–1,12) 0,89 (0,57–1,37)

Mátgæði vigtaðs líkans: Nagelkerke R² 0,1610,1320,1630,076

UMRÆÐA

Aðalniðurstaða þessarar rannsóknar er að lágt heilsulæsi er algengt meðal fullorðinna á Íslandi, þar sem nær tveir af hverjum fimm (39,5%) mældust með ófullnægjandi eða takmarkað heilsulæsi. Munur á vigtuðu og óvigtuðu mati (39,5% vs. 32,5%; p=0,002) undirstrikar mikilvægi vigtunar til að endurspegla betur stöðu í þýðinu með nákvæmari hætti, þar sem hópar með lægra heilsulæsi virðast hafa verið vanmetnir í hráum svörum.

Algengi lágs heilsulæsis í þessari rannsókn er í samræmi við erlendar niðurstöður. Í Evrópu hefur hlutfallið mælst á bilinu 2748% (Baccolini o.fl., 2021) og á Norðurlöndunum á bilinu 21-44% (Baccolini o.fl., 2021; Svendsen o.fl., 2020). Í Bandaríkjunum hafa rannsóknir sýnt að einungis lítill hluti fullorðinna hefur fullnægjandi heilsulæsi (Kutner o.fl., 2006). Beinn samanburður á milli landa er þó erfiður vegna mismunandi mælitækja og aðferða við mat á heilsulæsi (Baccolini o.fl., 2021; Sorensen o.fl., 2015).

Tafla

Hlutfall þeirra sem voru með lágt heilsulæsi í þessari rannsókn er hærra en í fyrri íslenskum rannsóknum meðal almennings þar sem 27,5% fullorðinna og 35% eldri einstaklinga mældust með lágt heilsulæsi (Gústafsdóttir o.fl., 2020, Gústafsdóttir o.fl., 2022). Í samanburði við klínískar íslenskar rannsóknir var hlutfallið í þessari rannsókn hærra en meðal kransæðasjúklinga (29%) (Brynja Ingadóttir o.fl., 2025) og einstaklinga í eftirliti vegna COVID-19 (10%) (Ingadóttir o.fl., 2023) en lægra en meðal einstaklinga með gáttatif (48%) (Erlingsdóttir o.fl., 2023). Þetta undirstrikar að heilsulæsi er breytilegt eftir þýðum og aðstæðum en jafnframt að lágt heilsulæsi er bæði lýðheilsu- og klínískt viðfangsefni á Íslandi. Munur milli rannsókna getur endurspeglað ólík mælitæki, samsetningu úrtaks eða breytingar í aðgengi að heilbrigðisupplýsingum og væntingum notenda heilbrigðisþjónustunnar. Niðurstöðurnar styðja því að lágt heilsulæsi sé raunverulegt lýðheilsuviðfangsefni á Íslandi, líkt og annars staðar (Frederiksen og Wangdahl, 2022; Sørensen o.fl., 2021; WHO, 2022).

Eftir leiðréttingu tengdust lægra menntunarstig, lægri heimilistekjur, yngri aldur og það að vera utan sambúðar sjálfstætt auknum líkum á lágu heilsulæsi. Þessi tengsl eru í samræmi við fyrri rannsóknir sem sýna stöðug tengsl lágs heilsulæsis við félagslega og efnahagslega stöðu (Berkman o.fl., 2011; Flearey og Ettienne, 2019; Haun o.fl., 2012; Simpson o.fl., 2020; Sørensen o.fl., 2015).

Tengsl aldurs og heilsulæsis hafa verið breytileg í fyrri rannsóknum en niðurstöður þessarar rannsóknar samræmast bæði danskri rannsókn sem notaði HLS-EU-Q16 (Svendsen o.fl., 2020) og rannsóknum þar sem BRIEF-kvarðinn var notaður (Haun o.fl., 2012) þar sem yngsti aldurshópurinn reyndist líklegastur til að hafa lágt heilsulæsi. Þetta kann að endurspegla minni reynslu ungs fólks af heilbrigðiskerfinu og aukna notkun stafrænnar og óformlegrar upplýsingaleitar, meðal annars í gegnum samfélagsmiðla (Levin-Zamir og Bertschi, 2018).

Í þessari rannsókn mældist heilsulæsi einnig lægra meðal einstaklinga sem voru utan sambúðar/hjónabands heldur en hjá fólki í sambúð/hjónabandi. Sambærilegar niðurstöður hafa komið fram í fyrri rannsóknum og benda til þess að félagslegur stuðningur geti haft verndandi áhrif á heilsulæsi, bæði í almennu þýði og meðal einstaklinga með langvinna sjúkdóma (Berkman o.fl., 2011; Dinh og Bonner, 2023; Geboers o.fl., 2016; Nielsen o.fl., 2024; Simpson o.fl., 2020). Sambúð/hjónaband kann hér að endurspegla félagslegan stuðning og aðgengi að aðstoð við að leita, meta og nýta upplýsingar.

Mátgæði líkansins voru í meðallagi, sem endurspeglar að heilsulæsi er margþætt hugtak sem mótast einnig af þáttum sem voru ekki mældir í þessari rannsókn. Dreifing BRIEF-skora sýndi áberandi þakáhrif, sem getur dregið úr næmni kvarðans til að greina miðlungs skert heilsulæsi. Þrátt fyrir það komu fram stöðug og marktæk tengsl við lykilbakgrunnsþætti og niðurstöður héldust í næmnigreiningum með mismunandi skurðpunktum, sem styrkir ályktanir rannsóknarinnar.

BRIEF er stuttur og hagnýtur skimunarkvarði og innri áreiðanleiki hans í þessari rannsókn var ásættanlegur. Notkun stutts skimunartækis felur þó í sér ákveðnar takmarkanir, þar sem kvarðinn nær ekki yfir allar víddir heilsulæsis. Hins vegar hefði notkun lengri mælitækja líklega aukið atriðamissi og svarþreytu í þessari netkönnun. Þjónustumiðuð framsetning BRIEF kann að hafa áhrif á túlkun niðurstaðna en einstaklingar með litla eða enga reynslu af heilbrigðisþjónustu voru ekki kerfisbundið útilokaðir. Þó ekki

sé hægt að útiloka að vöntun gagna endurspegli að hluta til litla þjónustunotkun, bendir lágt hlutfall gagna til þess að slík skekkja hafi líklega takmörkuð áhrif á niðurstöður rannsóknarinnar.

Niðurstöður rannsóknarinnar styðja að hjúkrunarfræðingar og annað heilbrigðisstarfsfólk ásamt heilbrigðisstofnunum, beiti almennum varúðarreglum (e. universal precautions) í daglegri upplýsingagjöf og þjónustu sem tengist heilsu, óháð mati á heilsulæsi einstakra einstaklinga (AHRQ, 2025). Slíkar aðferðir fela í sér að gera ráð fyrir mismunandi heilsulæsi allra notenda heilbrigðisþjónustu og beita kerfisbundnum leiðum til að tryggja skilning og þátttöku, til dæmis með skýru tungutaki, myndrænni framsetningu og endursagnaraðferð (e. teach-back) (Brynja Ingadóttir o.fl., 2024). Að efla hæfni heilbrigðisstarfsfólks í heilsulæsisnálgunum er lykilatriði til að styðja við jöfnuð, sjálfræði og virka þátttöku í ákvarðanatöku og meðferð (AHRQ, 2025; Brach o.fl., 2012; Frederiksen og Wangdahl, 2022).

STYRKLEIKAR OG TAKMARKANIR

Styrkleikar þessarar rannsóknar felast í vönduðu úrtaki, staðlaðri gagnaöflun og notkun vigtaðrar greiningar með hönnunarréttingu sem eykur alhæfingargildi niðurstaðna. Þá styrkja næmnigreiningar stöðugleika og áreiðanleika helstu niðurstaðna.

Takmarkanir rannsóknarinnar felast fyrst og fremst í þversniðssniði hennar, sem gerir ekki kleift að draga ályktanir um orsakasambönd. Svarhlutfallið var 42% sem getur valdið valbjögun, sérstaklega ef þeir sem ekki svöruðu eru kerfisbundið frábrugðnir svarendum. Notkun complete case-aðhvarfsgreiningar getur einnig leitt til bjögunar ef vöntun gagna er ekki tilviljunarkennd.

BRIEF-kvarðinn er stuttur skimunarkvarði og nær ekki yfir allar víddir heilsulæsis. Þá var ekki spurt sérstaklega hvort þátttakendur hefðu nýlega þurft að lesa eða nota heilsutengt fræðsluefni vegna eigin heilsu eða nákominna, sem gæti haft áhrif á hvernig þeir svöruðu einstökum BRIEF-atriðum. Þakáhrif sem komu fram í dreifingu skora geta einnig takmarkað næmni kvarðans til að greina miðlungs skert heilsulæsi og breytingar yfir tíma. Að lokum geta netkannanir stuðlað að vanmati á hópum með veikara stafrænt heilsulæsi og takmarkaðan aðgang að tækni, sem ber að hafa í huga við túlkun niðurstaðna.

ÁLYKTANIR

Lágt heilsulæsi mældist algengt meðal fullorðinna á Íslandi. Lág menntun, lægri heimilistekjur, yngri aldur og það að vera utan sambúðar tengdust sjálfstætt auknum líkum á lágu heilsulæsi. Þrátt fyrir að meirihluti þátttakenda mældist með fullnægjandi heilsulæsi, er hlutfall þeirra sem búa við ófullnægjandi eða takmarkað heilsulæsi umtalsvert þar sem nær tveir af hverjum fimm fullorðnum falla undir skilgreindan skurðpunkt fyrir lágt heilsulæsi. Þetta telst hátt hlutfall í lýðheilsusamhengi og er sambærilegt við það sem sést í öðrum Evrópulöndum.

Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi markvissra aðgerða bæði innan og utan heilbrigðisþjónustu til að efla heilsulæsi einstaklinga og tryggja jafnræði í aðgengi að skiljanlegum heilbrigðisupplýsingum og heilbrigðisþjónustu, einkum meðal hópa í aukinni áhættu á lágu heilsulæsi. Þær hafa jafnframt skýra þýðingu fyrir

hjúkrun, þar sem hjúkrunarfræðingar eru oft í lykilstöðu við fræðslu, samskipti og stuðning við ákvarðanatöku óháð starfsvettvangi. Þegar allt að tveir af hverjum fimm kunna að hafa takmarkað eða ófullnægjandi heilsulæsi er ljóst að hefðbundin upplýsingagjöf dugar ekki öllum.

Framtíðarrannsóknir ættu að beinast að víðari og fjölþættari mælingum á heilsulæsi, þar á meðal stafrænu heilsulæsi, hlutverki tungumáls og talnaskilnings og þróun og prófun markvissra íhlutana með skýrt skilgreindum og mælanlegum árangursbreytum. Við áframhaldandi notkun BRIEF-kvarðans væri æskilegt að kanna jafnframt hvort þátttakendur hafi nýlega þurft að lesa, meta eða nýta heilsutengt fræðsluefni vegna eigin heilsu eða heilsu nákominna.

ENGLISH SUMMARY

Health literacy among adults in Iceland: Prevalence of low health literacy and associations with sociodemographic factors

doi: 10.33112/th.102.2.5

Friðriksdóttir, N, Bragadottir, B, Eiriksdottir, J.O, Sigurgeirsdottir, J, Blondal, K, Svavarsdottir, M.H, Ragnarsdottir, Þ, Ingadottir, B.

ABSTRACT

Aim

The aim of this study was to estimate the prevalence of low health literacy among adults in Iceland and to examine associations with sociodemographic factors.

Method

A cross-sectional study was conducted using data from an online survey administered by the Social Science Research Institute of the University of Iceland in December 2023, based on a random sample of adults (≥18 years). The response rate was 42% (n= 1,027). Health literacy was assessed using the Brief Health Literacy Screening Tool (BRIEF), with valid scores from 998 participants. Results were weighted by gender, age, education, and residence. Adjusted odds ratios (aORs) were estimated using weighted binary logistic regression. Sensitivity analyses were performed, and model fit assessed.

Results

The weighted prevalence of low health literacy was 39.5% (95% CI: 35.5–43.7). Lower educational attainment was associated with increased odds of low health literacy (primary education aOR= 3.86; secondary education aOR=1.77, compared with university education). Household income ≤900,000 ISK per month was also associated with higher odds (aOR=1.77). Participants aged 18–29 years (aOR=3.91) and 45–59 years (aOR=1.86) had higher odds of low health literacy compared with those aged ≥60 years. Individuals

not living with a partner were more likely to have low health literacy (aOR=1.77). Gender, place of residence, and having children in the household were not associated with low health literacy after adjustment. Model fit was acceptable.

Conclusions

Low health literacy affected four in ten adults in Iceland, comparable to international findings. Lower education, poorer economic status, younger age, and not living with a partner were associated with increased odds. These findings highlight the need for actions to strengthen health literacy and ensure equitable access to clear and understandable health information.

Keywords

health literacy, adults, socioeconomic factors, cross-sectional studies, public health

Correspondence nannafri@landspitali.is

HEIMILDIR

Agency for Healthcare Research and Quality [AHRQ]. (2025). Health Literacy Universal Precautions Toolkit (3rd ed.). U.S. Department of Health and Human Services. Baccolini, V., Rosso, A., Di Paolo, C., Isonne, C., Salerno, C., Migliara, G., Prencipe, G. P., Massimi, A., Marzuillo, C., De Vito, C., Villari, P. og Romano, F. (2021). What is the prevalence of low health literacy in European Union member states? A systematic review and meta-analysis. Journal of General Internal Medicine, 36(3), 753–761. doi:10.1007/S11606-020-06407-8

Batterham, R. W., Hawkins, M., Collins, P. A., Buchbinder, R. og Osborne, R. H. (2016). Health literacy: Applying current concepts to improve health services and reduce health inequalities. Public Health, 132, 3–12. doi:10.1016/j.puhe.2016.01.001

Berkman, N. D., Sheridan, S. L., Donahue, K. E., Halpern, D. J. og Crotty, K. (2011). Low health literacy and health outcomes: An updated systematic review. Annals of Internal Medicine, 155(2), 97–107. doi:10.7326/0003-4819-155-2-201107190-00005

Brach, C., Keller, D., Hernandez, L. M., Baur, C., Parker, R., Dreyer, B., Schyve, P., Lemerise, A. J. og Schillinger, D. (2012). Ten attributes of health literate health care organizations. NAM Perspectives, June, 1-26.

Brynja Ingadóttir, Jóhanna Ósk Eiríksdóttir, Nanna Friðriksdóttir, Katrín Blöndal, Björk Bragadóttir, Jónína Sigurgeirsdóttir, Hildur Einarsdóttir og Margrét Hrönn Svavarsdóttir (2024). Endursagnaraðferðin í sjúklingafræðslu: Gagnreynd leið til að kanna skilning og bæta heilsulæsi. Tímarit hjúkrunarfræðinga, 32(2), 92-96.

Brynja Ingadóttir, Bettý Grímsdóttir og Margrét Hrönn Svavarsdóttir (2025). Heilsulæsi fólks með kransæðasjúkdóm: Þversniðsrannsókn. Tímarit hjúkrunarfræðinga, 3(101), 104–113. doi:10.33112/TH.0101.3.4

Dinh, T. T. H. og Bonner, A. (2023). Exploring the relationships between health literacy, social support, self-efficacy and self-management in adults with multiple chronic diseases. BMC Health Services Research, 23(1):923. doi:10.1186/s12913-023-09907-5

Erlingsdottir, H. Y., Ketilsdottir, A., Hendriks, J. M. og Ingadottir, B. (2023). Disease-related knowledge and need for revision of care for patients with atrial fibrillation: A cross-sectional study. Patient Preference and Adherence, 17, 2621- 2630. doi:10.2147/PPA.S428444

Fan, Z.Y., Yang, Y. og Zhang, F. (2021). Association between health literacy and mortality: a systematic review and meta-analysis. Archives of Public Health, 79(1), 119. doi:10.1186/s13690-021-00648-7

Fleary, S. A. og Ettienne, R. (2019). Social disparities in health literacy in the United States. Health Literacy Research and Practice, 3(1), e47–e52. doi:10.3928/24748307-20190131-01

Frederiksen, N. og Wangdahl, J. (2022). Health literacy in the Nordic countries: Not only a determinant of health, but also a tool for health promotion. Nordic Welfare Centre. https://nordicwelfare.org/wp-content/uploads/2022/06/Health-Literacy-11.pdf

Geboers, B., Reijneveld, S. A., Jansen, C. J. M., og de Winter, A. F. (2016). Health literacy is associated with health behaviors and social factors among older adults: Results from the LifeLines Cohort Study. Journal of Health Communication, 21(sup2), 45-53. doi:10.1080/10810730.2016.1201174

Gustafsdottir, S. S., Sigurdardottir, A. K., Arnadottir, S. A., Heimisson, G. T. og Mårtensson, L. (2020). Translation and cross-cultural adaptation of the European Health Literacy Survey Questionnaire, HLS-EU-Q16: The Icelandic version. BMC Public Health, 20(1), 61. doi:10.1186/s12889-020-8162-6

Gustafsdottir, S. S., Sigurdardottir, A. K., Mårtensson, L. og Arnadottir, S. A. (2022). Making Europe health literate: including older adults in sparsely populated Arctic areas. BMC Public Health, 22(1), 511. doi:10.1186/s12889-022-12935-1

Haun, J., Luther, S., Dodd, V. og Donaldson, P. (2012). Measurement variation across health literacy assessments: Implications for assessment selection in research and practice. Journal of Health Communication, 17(Supp 3), 141-159. doi:10.1080/10810730.2012.712615

Haun, J. N., Valerio, M. A., McCormack, L. A., Sørensen, K. og Paasche-Orlow, M. K. (2014). Health literacy measurement: an inventory and descriptive summary of 51 instruments. Journal of Health Communication, 19(Supp2), 302–333. doi:10.1080/10810730.2014.936571

Haun, J., Noland-Dodd, V., Varnes, J., Graham-Pole, J., Rienzo, B. og Donaldson, P. (2009). Testing the BRIEF health literacy screening tool. Federal Practitioner, 26(12), 24-31. Heilbrigðisráðuneytið (2019). Heilbrigðisstefna til 2030. https://www.stjornarradid. is/ library/04-Raduneytin/Heilbrigdisraduneytid/ymsar-skrar/Heilbrigdisstefna_4. juli.pdf

Ingadottir, B., Blondal, K., Jaarsma, T. og Thylen, I. (2016). Perceptions about traditional and novel methods to learn about postoperative pain management: a qualitative study. Journal of Advanced Nursing, 72(11), 2672–2683. doi: 10.1111/jan.13021

Ingadottir, B., Bragadottir, B., Zoëga, S., Blondal, K., Jonsdottir, H. og Hafsteinsdottir, E. J. G. (2023). Sense of security during COVID-19 isolation improved with better health literacy: a cross-sectional study. Patient Education and Counseling, 114, 107788. doi:10.1016/j.pec.2023.107788

Kickbusch, I., Pelikan, J. M., Apfel, F. og Tsouros, A. D. (ritstj.). (2013). Health literacy: The solid facts. WHO Regional Office for Europe. https://iris.who.int/handle/10665/326432

Kutner, M., Greenberg, E., Jin, Y., og Paulsen, C. (2006). The health literacy of America’s adults: Results from the 2003 National Assessment of Adult Literacy (NCES 2006–483). National Center for Education Statistics. https://nces.ed.gov/pubs2006/2006483.pdf

Levin-Zamir, D. og Bertschi, I. (2018). Media health literacy, eHealth literacy, and the role of the social environment in context. International Journal of Environmental Research and Public Health, 15(8), 1643. doi:10.3390/ijerph15081643

Miller, T. A. (2016). Health literacy and adherence to medical treatment in chronic and acute illness: A meta-analysis. Patient Education and Counseling, 99(7), 1079–1086. doi:10.1016/j.pec.2016.01.020

Nielsen, A. S. M., Maindal, H. T. og Valentin, G. (2024). The role of health literacy in the association between social support and self-rated health: a Danish population-based study in 10,787 individuals with a long-term condition. BMC Public Health, 24(1), 2739. doi:10.1186/S12889-024-20223-3

Simpson, R. M., Knowles, E. og O’Cathain, A. (2020). Health literacy levels of British adults: a cross-sectional survey using two domains of the Health Literacy Questionnaire (HLQ). BMC Public Health, 20(1), 1819. doi:10.1186/S12889-020-09727-W

Sørensen, K., Pelikan, J. M., Rothlin, F., Ganahl, K., Slonska, Z., Doyle, G., Fullam, J., Kondilis, B., Agrafiotis, D., Uiters, E., Falcon, M., Mensing, M., Tchamov, K., Broucke, S. V. D. og Brand, H. (2015). Health literacy in Europe: comparative results of the European health literacy survey (HLS-EU). The European Journal of Public Health, 25(6), 1053–1058. doi:10.1093/eurpub/ckv043

Sørensen, K., Levin-Zamir, D., Duong, T. V., Okan, O., Brasil, V. V. og Nutbeam, D. (2021). Building health literacy system capacity: a framework for health literate systems. Health Promotion International, 36 (Supp1). I13-i23. doi:10.1093/heapro/daab153

Svendsen, M. T., Bak, C. K., Sørensen, K., Pelikan, J., Riddersholm, S. J., Skals, R. K., Mortensen, R. N., Maindal, H. T., Bøggild, H., Nielsen, G. og Torp-Pedersen, C. (2020). Associations of health literacy with socioeconomic position, health risk behavior, and health status: A large national population-based survey among Danish adults. BMC Public Health, 20(1), 565. doi:10.1186/s12889-020-08498-8

White, J., Gunn, M., Chiarella, M., Catton, H. og Stewart, D. (2025). Renewing the definitions of 'nursing' and 'a nurse'. Final project report, June 2025. International Council of Nurses. World Health Organization [WHO] (2022). Health Literacy Development for the Prevention and Control of Noncommunicable Diseases: Volume 2. Geneva: World Health Organization.

Stuðningur eftir ofbeldi í starfi á geðdeild: Hraðsamantekt

doi: 10.33112/th.102.2.6

ÚTDRÁTTUR

Tilgangur

Að samþætta þekkingu um stuðning við starfsfólk eftir ofbeldi á geðdeild sem getur dregið úr neikvæðum afleiðingum þess. Ofbeldi gagnvart heilbrigðisstarfsfólki er vaxandi áhyggjuefni, sérstaklega á geðdeildum. Slík atvik geta haft bæði líkamlegar og sálrænar afleiðingar, þar á meðal þunglyndi, kvíða, svefntruflanir og áfallastreituröskun. Því er mikilvægt að tryggja viðeigandi stuðning í kjölfar ofbeldis til að draga úr langtímaafleiðingum og stuðla að bættri líðan og starfsgetu.

Aðferð

Hraðsamantekt eigindlegra og megindlegra rannsókna var gerð eftir ráðleggingum Cochrane og Joanna Briggs-stofnunarinnar (JBI). PRISMAyfirlýsing var notuð til að setja fram gagnsæja lýsingu á samantektinni. Heimildaleit var framkvæmd í gagnasöfnum CINAHL, PsycInfo og PubMed. Skilgreind inntökuskilyrði ákvörðuðu inntöku rannsókna. Gæðamat var framkvæmt samkvæmt matslistum JBI. Niðurstöður voru settar fram í töflum og samþættar í texta.

Niðurstöður

Tólf rannsóknir voru teknar með í samantektinni, sex megindlegar og sex eigindlegar. Samtals voru 1.437 þátttakendur í úrtökum megindlegra rannsókna og 71 í eigindlegum. Niðurstöður sýndu að aukinn stuðningur dró úr afleiðingum ofbeldis. Starfsfólk vildi aukinn stuðning frá yfirmönnum, samstarfsfélögum, fjölskyldu og vinum. Margir leituðu þó ekki eftir aðstoð að eigin frumkvæði. Tvö sértæk stuðningsinngrip, lífendurgjöf og EMDR–áfallameðferð, sýndu hvetjandi niðurstöður. Aðrar gagnlegar stuðningsleiðir voru stuðningshópar, fræðsla fyrir starfsfólk og fjölskyldur þeirra eftir ofbeldi, áfallamiðaðar viðranir og jafningjastuðningur.

Ályktanir

Þörf er á fjölbreyttum og markvissum stuðningi við starfsfólk sem verður fyrir eða vitni að ofbeldi í starfi. Jafnframt þarf að tryggja fræðslu og þjálfun stjórnenda í áfallamiðaðri nálgun og efla stuðningsmenningu innan vinnustaðar. Ljóst er að viðeigandi stuðningur getur dregið úr líkamlegum og sálrænum afleiðingum og þannig stuðlað að bættri líðan og starfsgetu. Niðurstöðurnar skapa grundvöll fyrir skýrari stefnumótun, umbætur í klínísku starfi og vinnuumhverfi heilbrigðisstarfsfólks.

Lykilorð

ofbeldi á vinnustað, geðhjúkrun, félagslegur stuðningur, sálræn vanlíðan, vinnuumhverfi

HAGNÝTING

RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA „Hvers vegna ættir þú að lesa þessa grein?“

Nýjungar: Greinin sameinar fyrirliggjandi fræðilega þekkingu á stuðningi eftir ofbeldi í starfi og varpar nýju ljósi á afleiðingar og möguleg stuðningsúrræði.

Hagnýting: Niðurstöðurnar geta nýst til að þróa markviss stuðningsúrræði fyrir hjúkrunarfræðinga og annað heilbrigðisstarfsfólk sem verður fyrir ofbeldi í starfi.

Þekking: Rannsóknin dýpkar skilning á sálrænum afleiðingum ofbeldis fyrir hjúkrunarfræðinga og mikilvægi fjölbreytts stuðnings í kjölfarið.

Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga: Rannsóknin getur stuðlað að bættri líðan, öryggi í starfi, aukinni vinnustaðahelgun og vitundarvakningu um mikilvægi þess að fá stuðning í kjölfar þess að verða fyrir ofbeldi í starfi.

Höfundar

GUÐFINNA BETTY HILMARSDÓTTIR

deildarstjóri, M.S., geðhjúkrun1

HELGA SIF FRIÐJÓNSDÓTTIR

sérfræðingur í hjúkrun, Ph.D., klínískur lektor1,2

MARIANNE ELISABETH KLINKE

sérfræðingur í hjúkrun, Ph.D., prófessor 1,2

1Landspítali

2 Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild, Háskóli Íslands

Stuðningur eftir ofbeldi í starfi á geðdeild: Hraðsamantekt

INNGANGUR

Ofbeldi gagnvart starfsfólki í heilbrigðisþjónustu er vaxandi áhyggjuefni um allan heim. Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur lýst yfir áhyggjum af þessari þróun og samkvæmt gögnum þeirra hafa allt að 62% heilbrigðisstarfsmanna orðið fyrir ofbeldi á vinnustað (Liu o.fl., 2019; World Health Organization, n.d.). Áætlað er að um 38% þeirra verði fyrir líkamlegu ofbeldi (World Health Organization, 2023a). Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin skilgreinir ofbeldi á vinnustað sem atvik þar sem starfsfólki er sýnd vanvirðing, því hótað eða það beitt líkamlegu ofbeldi í starfi sínu, þar á meðal á leið til og frá vinnu. Ofbeldi á vinnustað getur því verið allt frá hótunum og munnlegu ofbeldi til líkamlegra árása sem í verstu tilfellum gætu endað með andláti (Occupational Safety and Health Administration, 2023). Slík atvik ógna beint öryggi, velferð og heilsu starfsfólks (World Health Organization, 2002).

Viðamikil fræðileg samantekt, sem byggði á 253 rannsóknum með samtals 331.544 þátttakendum, leiddi í ljós að 61,9% heilbrigðisstarfsmanna höfðu orðið fyrir einhvers konar ofbeldi á vinnustað síðastliðna 12 mánuði (Liu o.fl., 2019). Þar af höfðu 42,5% upplifað munnlegt ofbeldi, hótanir eða kynferðislega áreitni og 24,4% greindu frá líkamlegu ofbeldi. Tíðni ofbeldis í heilbrigðisþjónustu er hæst á geðdeildum og er talið að um 40% ofbeldisatvika verði þar en næst á eftir koma bráðamóttökur og öldrunardeildir (Phillips, 2016). Hjúkrunarfræðingar á geðdeildum eru taldir þrisvar sinnum líklegri til að verða fyrir líkamlegu ofbeldi en þeir sem starfa á öðrum deildum (Edward o.fl., 2016). Rannsóknir sýna einnig að starfsfólk sem sinnir beinni hjúkrun er í meiri hættu á að verða fyrir ofbeldi samanborið við aðrar fagstéttir innan heilbrigðisþjónustu (Jón Snorrason og Jón F. Sigurðsson, 2022; Phillips, 2016). Nýleg íslensk rannsókn á 226 starfsmönnum geðdeildar Landspítala sýnir að tíðni ofbeldis gagnvart starfsfólki þar sé sambærileg við erlendar rannsóknir (Jón Snorrason og Jón F. Sigurðsson, 2022). Á síðustu 12 mánuðum höfðu 23,5% orðið fyrir líkamlegu ofbeldi, 60,4% fyrir munnlegu ofbeldi og 18,9% fyrir kynferðislegu ofbeldi. Tíðnin var hæst meðal ráðgjafa/stuðningsfulltrúa, þar sem 44,3% greindu frá líkamlegu ofbeldi, samanborið við 25,8% hjúkrunarfræðinga.

Afleiðingar ofbeldis á vinnustað geta verið líkamlegar og sálrænar, bæði fyrir starfsfólk sem verður fyrir ofbeldi en einnig þau sem verða vitni að ofbeldi (Ham o.fl., 2022; Seto o.fl., 2020; World Health Organization, 2023a). Líkamlegar afleiðingar geta meðal annars falið í sér sársauka og geta leitt til varanlegrar örorku í sumum tilfellum (Lim o.fl., 2023). Sálrænar afleiðingar geta verið ótti, streita, depurð, kvíði, þunglyndi, svefntruflanir, sektarkennd, félagsleg einangrun og jafnvel þróast yfir í áfallastreituröskun (PTSD) (Jang o.fl., 2022; Jón Snorrason og Jón F. Sigurðsson, 2022; Lim o.fl., 2023). Rannsókn sem gerð var á starfsfólki geðdeilda í Kanada sýndi að 16% þátttakenda uppfylltu greiningarskilmerki áfallastreituröskunar (Hilton o.fl., 2020), sem telst gífurlega há tíðni þar sem algengi PTSD í heiminum er talið vera um 3,9% á meðal almennings og 5,6% á meðal fólks sem hefur upplifað áföll í kjölfar náttúruhamfara (World Health Organization, 2023b).

Ofbeldisatvik geta dregið úr afköstum starfsmanna og starfsánægju, sem og valdið aukinni fjarveru eða kulnun og þar með leitt til aukinnar starfsmannaveltu. Sé ekki gripið til viðeigandi aðgerða getur myndast vítahringur sem dregur úr gæðum þjónustunnar (Zhao o.fl., 2018).

Þrátt fyrir háa tíðni ofbeldis á geðdeildum er mikilvægt að hafa í huga að einungis lítill hluti sjúklinga með geðsjúkdóma beitir ofbeldi. Ýmsir þættir innan geðdeilda, svo sem skerðing á ferðafrelsi, innlögn gegn vilja sjúklings, nauðungarlyfjagjöf og aðrar þvingandi meðferðir, geta aukið líkur á ofbeldishegðun meðal sjúklinga (Iozzino o.fl., 2015; Pelto-Piri o.fl., 2020).

Ofbeldisatvik eru þó oft vanskráð af ýmsum ástæðum, til dæmis vegna þess að starfsfólk telur ofbeldi tilheyra eðli starfsins, upplifir að sjúklingar hafi ekki stjórn á gjörðum sínum vegna veikinda, óttast álit annarra eða hefur áhyggjur af að skráning geti haft áhrif á meðferðarsamband (Lim o.fl., 2023; Phillips, 2016; Rodrigues o.fl., 2021).

Flestar rannsóknir hafa beinst að forvörnum gegn ofbeldi á geðdeildum, en minna hefur verið fjallað um áhrif stuðnings við starfsfólk eftir slík atvik og hvaða inngrip reynast árangursrík í því samhengi (D'Ettorre og Pellicani, 2017). Berry o.fl. (2024) skoðuðu stuðning við starfsfólk geðdeilda eftir áföll í starfi á heilbrigðisstofnunum í Englandi. Niðurstöður sýndu að einungis um helmingur stofnana veitti sálfræðilegan stuðning og aðeins fimmtungur beitti aðferðum á borð við viðrun eftir atvik.

Vegna alvarlegra afleiðinga sem ofbeldi getur haft fyrir starfsfólk er nauðsynlegt að tryggja viðeigandi og árangursríkan stuðning, eftir að ofbeldisatvik hefur átt sér stað, með það að markmiði að draga úr neikvæðum afleiðingum þess. Tilgangur þessarar hraðsamantektar var að kanna hvaða stuðning starfsfólk geðdeilda telur sig þurfa og hvaða stuðningsinngripum hefur verið lýst í rannsóknum sem draga úr sálrænum afleiðingum í kjölfar ofbeldis í starfi.

AÐFERÐIR

Rannsóknarsnið

Hraðsamantekt (Rapid Review, RR) var framkvæmd til að draga saman fyrirliggjandi og hagnýta þekkingu um stuðning við starfsfólk geðdeilda eftir ofbeldi í starfi (Garritty o.fl., 2021; Tricco o.fl., 2022). Aðferðin byggir á sömu meginreglum og kerfisbundin fræðileg samantekt en einstök skref eru afmörkuð eða einfölduð til að draga fram nothæfa þekkingu innan skemmri tíma (Hamel o.fl., 2021; Tricco o.fl., 2022; Smela o.fl., 2023). Áhersla var þó áfram lögð á gegnsæi í leit, vali rannsókna, gæðamati og framsetningu niðurstaðna. Unnið var eftir ráðleggingum Cochrane varðandi gerð RR (Garritty o.fl., 2021). Til að lýsa leitarferlinu og vali á greinum var notast við PRISMA (Preferred Reporting for Systematic Review and Meta Analysis) flæðirit (Page o.fl., 2021).

Efnisleit og leitarorð

Átta lykilgreinar fundust við upphafsleit og voru nýttar til að hanna sérsniðna leitaraðferð í gagnasöfnunum CINAHL, PsycInfo og PubMed. Leitað var til bókasafnsfræðings Landspítala til að fá aðstoð við að móta næman leitarstreng og tryggja að leitin yrði einföld og áhrifarík. Samantektin tók til rannsókna sem birtust frá janúar 2013 til mars 2025 og var leitin síðast uppfærð 15. mars 2025. Til að uppfylla inntökuskilyrði þurftu rannsóknir að fylgja IMRaDuppbyggingu og vera ritrýndar fræðigreinar á ensku. Aðeins voru teknar til greina frumheimildir þar sem úrtakið samanstóð

af starfsfólki geðdeilda og áherslan var á stuðning eftir ofbeldi í starfi. Útilokaðar voru greinar sem fjölluðu um ofbeldi og stuðning almennt í heilbrigðiskerfinu, höfðu megináherslu á afleiðingar ofbeldis eða sneru að starfsfólki samfélagsgeðþjónustu. Einnig voru undanskildar greinar sem fjölluðu um fyrirbyggingu ofbeldis, ofbeldi á tímum COVID-19 eða í tengslum við stríðsástand. Nákvæma leitarstrengi má finna í töflu 1.

Val á rannsóknum

Við kerfisbundna leit voru leitarorð sett í hvern gagnagrunn og allar heimildir fluttar yfir í EndNote til að fjarlægja tvítekningar (e. duplicates). Titlar og útdrættir voru skimaðir út frá inntöku- og útilokunarskilyrðum og metnir af tveimur rannsakendum (GBH/ MEK). Ef útdráttur uppfyllti inntökuskilyrði var greinin lesin í heild sinni og metin eftir sömu skilyrðum. Snjóboltaleit var framkvæmd með því að skoða heimildaskrár valinna greina og beita „citation tracking“ í Google Scholar til að rekja tilvísanir og útvíkka leitina (Wohlin, 2014; Tricco o.fl., 2021). Ein grein bættist við með snjóboltaleit en það var grein Andersen o.fl. (2021). Flæðirit yfir niðurstöður leitarinnar má sjá á mynd 1.

PRISMA flæðirit, greinir frá heimildaleit og skimun

Greinar fundnar í eftirfarandi gagnagrunnum: Gagnagrunnar (n=3)

Chinal: 297

PsychInfo: 184 PubMed: 542 Samtals (n=1023)

Heildar greinar skimaðar (n=762)

Greinar lesnar í fullri lengd fyrir nánari skimun með tilliti til inntöku- og útilokunarskilyrða (n=35)

Heildargreinar (n=11)

Heildargreinar heimildaleitar í gagnagrunnum og greinar sem bættust við með snjóboltaleit (n=12)

Heildargreinar samþykktar í samantekt (n=12)

Greinar fjarlægðar fyrir skimun: Tvítekningar fjarlægðar, innan gagnagrunna og á milli gagnagrunna (n=261)

Greinar fjarlægðar eftir skimun á titlum og útdráttum og metnar með tilliti til inntöku- og útilokunarskilyrða (n=727)

Greinar fjarlægðar við nánara mat:

• Áhersla ekki á stuðningsþörf/stuðningsinngrip (n=15)

• Úrtak ekki einungis starfsmenn geðdeilda (n=3)

• Nemaritgerð (n=2)

• Ekki IMRaD uppbygging (n=1)

• Áhersla á COVID-faraldur (n=1)

• Metinn of mikill menningarmunur (n=1)

• Grein ófáanleg og ekki hægt að kaupa (n=1)

Heildargreinar útilokaðar eftir lestur í fullri lengd: (n=24)

Snjóboltaleit gerð á greinum: Afturvirk snjóboltaleit (n=510) Framvirk snjóboltaleit (n=430)

Heildargreinar sem bættust við eftir snjóboltaleit og uppfylltu inntöku- og útilokunarskilyrði: (n=1)

Leitarstrengur fyrir PubMed

Leitarstrengur fyrir

CINAHL og PsycInfo

((workplace violence[MeSH Terms]) OR (violence) OR ("patient violence") OR ("workforce violence") OR ("Work-related violence") OR ("patient assault") OR ("occupational violence")) AND (("psychiatric nurs*") OR ("psychiatric staff") OR ("mental health nurs*") OR ("psychiatric mental health nurses") OR ("mental health workers") OR ("psychiatric wards") OR ("mental health staff*")) AND ((support) OR ("social support") OR (intervention) OR (barrier))

((workplace violence) OR (violence) OR ("patient violence") OR ("workforce violence") OR ("Work-related violence") OR ("patient assault") OR ("occupational violence")) AND (("psychiatric nurs*") OR ("psychiatric staff") OR ("mental health nurs*") OR ("psychiatric mental health nurses") OR ("mental health workers") OR ("psychiatric wards") OR ("mental health staff*")) AND ((support) OR ("social support") OR (intervention) OR (barrier))

Mat á gæðum rannsókna

Notuð voru JBI-matstæki fyrir þversniðsrannsóknir, tilfellarannsóknir, hálftilraunasnið og eigindlegar rannsóknir (Lockwood o.fl., 2015; Joanna Briggs Institute, 2020). Tveir aðilar mátu greinar sjálfstætt og báru saman niðurstöður (GBH/MEK). Gæðamatið var notað til að meta mögulega skekkju og aðferðafræðilega styrkleika rannsóknanna sem höfðu áhrif á vægi og túlkun niðurstaðna.

Tafla 1. Leitarstrengir gagnaleitar
Mynd 1. PRISMA flæðirit.
Samþykki
Auðkenning
Skimun

Tafla 2. Yfirlit yfir rannsóknir

Megindlegar rannsóknir –lýsandi

Úrtak/Svörun

Niðurstöður

Matstæki/ Spurningalistar

Stuðningur á T1 spáði fyrir um ↓þunglyndi 3 mán. eftir ofbeldi, p= 0.040 H1 með ↓ stuðning sýndu ↑ þunglyndi á T1 og T2 H3 með ↑ stuðning sýndu ↓ stig þunglyndis bæði á T1 og T2 H3 með ↑ stuðning, var með ↓ þunglyndi en hinir tveir hóparnir á T1, p=.000 Á T2 var þunglyndi ↓ í H2+H3, p=.004

CSS: krísu og félagslegur stuðningur

MDI: þunglyndi

Tímasetning mælinga/ Gerð úrtaks

R annsóknarsnið/ Tími gagnasöfnunar Viðf angsefni

Höfundir/Ár/ Land/Fræðasvið

Hópurinn sem fékk mjög ↑ stuðning frá yfirmanni mældist með ↑ vinnustaðahelgun á öllum tímapunktum, p=0.000 Sá hópur sem mældist með mjög háan eða háan stuðning frá yfirmanni eftir ofbeldi eða hótun mældist með ↑ vinnustaðahelgun eftir 1 og 3 mánuði, p=0.000 og 0.002, en eftir 6 og 12 mánuði, p=0.197 og 0.108

Stuðningur yfirmanns mældur á 7 punkta Likert-kvarða –Viðbrögð við atviki (1=mjög illa, 7=frábærlega) –Öryggistilfinning (1=ekki til staðar, 7=frábært)

Vinnustaðahelgun: 6 atriði, 5 punkta Likert (mjög ósammála –mjög sammála)

Stuðningsnotkun og hindranir eftir áfall í starfi 67% höfðu orðið fyrir beinu áfalli; aðeins 38% þeirra leituðu aðstoðar 58% töldu sig ekki þurfa stuðning eftir ofbeldi 62% sóttu engan stuðning; 22% notuðu eitt úrræði, 16% notuðu 2–5 Algengustu úrræði: heimilislæknir (47%), net (36%), fræðsla (33%), lyf (30%), samtalsmeðferð (25%), starfsmannastuðningur (20%), vímuefnameðferð (4%) Stm. með PTSD, kvíða eða þunglyndi notuðu fleiri úrræði (79% notuðu 1-8) 56% greindu frá hindrunum; 38% nefndu hagnýtar (t.d. barnapössun) Algengar hindranir: kostnaður (12%), greiðsluþátttaka (19%), tryggingar, tímaskortur, staðsetning (7%), opnunartímar, aðgengi (t.d. fjarlægð) Karlmenn sóttu síður stuðning og nefndu oftar viðhorfstengdar hindranir Allar hindranir voru marktækar (< 0.001; OR 95%)

Andleg heilsa: –PTSD (PCL-5) –Þunglyndi (PHQ-9) –Kvíði (GAD-7) Aðstoð sótt (síðustu 12 mán.): Upplýsingar, meðferð, lyfjameðferð, starfsmannastuðningur, vímuefnameðferð, sjálfshjálp Hindranir við að leita aðstoðar: Skynjun á alvarleika, fordómar, uppbyggingarog hagnýtar hindranir

T1: < 1. mán. eftir atvik T2: 3 mán. eftir atvik Sent á stm. sem höfðu atvikaskráð ofbeldi/ hótun á tímabilinu (N=443)

Áhrif félagslegs stuðnings á þunglyndi eftir hótanir/ofbeldi Þrír hópar: H1: Minnkandi stuðningur H2: Stöðugur stuðningur H3: Aukinn stuðningur

Langtímarannsókn

Geðdeildir og göngudeildir eins fylkis í Danmörku 2012-2015

Andersen o.fl./2023/ Danmörk Sálfræði, læknisfræði

T1: < 1. mán. eftir atvik T2: 3 mán. eftir atvik T3: 6 mán. eftir atvik T4: 12 mán. eftir atvik Sent á stm. sem höfðu atvikaskráð ofbeldi/hótun á tímabilinu (N=443) Sama skráningarkerfi og að ofan N=377 T2: N=225 T3: N=186 T4=N=164 +-

Stuðningur yfirmanns og vinnustaðahelgun innan 1, 3, 6 og 12 mán. eftir ofbeldi/hótanir

Langtímarannsókn Allar geðdeildir og göngudeildir geðdeilda eins fylkis í Danmörku 2012-2015

Andersen o.fl./2021/ Danmörk Sálfræði, læknisfræði

Þversniðsrannsókn

N=761

Legudeildir á 3 geðspítölum, réttarog almenn geðþjónusta Vantar uppl um tíma gagnasöfnunar PTSD, þunglyndi, kvíði og úrræðanotkun eftir áföll á geðdeildum T1 Allir stm. geðdeilda sem starfa við hjúkrun

o.fl./ 2020/ Kanada Sálfræði

Seto

Ofbeldi*
Afleiðingar**

Megindlegar rannsóknir –lýsandi, framhald

Úrtak/Svörun

Niðurstöður

Matstæki/ Spurningalistar

Stuðningsóskir, árangur og tengsl við heilsu Helst óskað eftir stuðningi frá: samstarfsfólki (58%), yfirmönnum (56%), fjölskyldu (48%) Stuðningur sem bar helst árangur: samstarfsfólk (52%), fjölskylda (51%), vinir (41%) Minnstur árangur fannst af stuðningi frá stjórnendum (5%) og yfirmönnum (27%) 71% vildu stuðning; 72% töldu stuðning hafa borið árangur Marktæk tengsl milli árangursríks stuðnings á vinnustað og: –↓ áhyggjum af öryggi (p <0.01)

líkamlegum einkennum (p=0.04)

↓ svefnerfiðleikum (p=0.011)

↓ þunglyndi (p=0.012) Ósk um stuðning utan vinnustaðar tengdist ↑ áhyggjum af öryggi (p=0.011) Stuðningur eingöngu frá samstarfsfólki tengdist ↓ öryggisáhyggjum (p=0.044), ↓ heilsubrestum (p=0.045), ↓ svefnerfiðleikum (p=0.007) Stuðningur frá bæði yfirmönnum og samstarfsfólki tengdist: –↓ öryggisáhyggjum og ↑ verndartilfinningu (p=0.004) –↓ líkamlegum einkennum (p=0.039)

↓ reiði (p=0.004)

↓ þunglyndi (p=0.002)

GHQ-12: Geðræn einkenni

PSQI: Svefn

HSCL: Heilsufar Vinnusaga (þ.m.t. reynsla á geðsviði) Heilsuv enjur: áfengi, koffín, hreyfing, mataræði Líkamlegt ofbeldi síðastliðið ár Viðbrögð við ofbeldi: 5 punkta Likert (0= ekki stressandi, 5=yfirþyrmandi) F élagslegur stuðningur: 7 stuðningsgjafar metnir (t .d. yfirmenn, samstarfsfólk, fjölskylda). Hvort stuðnings var óskað og hvort hann bar árangur Öryggistilfinning í vinnu: 5 punkta skali + mat á öryggisráðstöfunum (4 punktar)

N=242+-

Tímasetning mælinga/ Gerð úrtaks

R eiði: tíðni upplifunar

Tilkynning, viðhorf og stuðningur eftir ofbeldi: Aðeins 24% hjúkrunarfræðinga sem urðu fyrir ofbeldi tilkynntu atvikið (10/42) –Helstu ástæður: nenntu ekki að skrá (32%), vildu ekki gera mál úr því (32%), „of mikið vandamál“ (14%), ótti við vanmat á hæfni (4%) Viðhorf til ofbeldis á geðdeildum: 88% töldu ofbeldi vera fyrirsjáanlegt á bráðageðdeild 34% töldu að einhverju leyti að ofbeldi mætti líðast Stuðningur eftir ofbeldi: 12% fengu formlegan stuðning 37% fengu óformlegan stuðning 88% sögðu að ekkert formlegt inngrip hafi verið í boði 51% fengu hvorki formlegan né óformlegan stuðning Áhugi á stuðningshópum: 76% vildu frekari upplýsingar 57% mögulega áhugasamir 41% höfðu skýran áhuga

16 já/nei spurningar með fylgjandi Likert-skala. Dæmi: „Skráðir þú atvikið?“ –neikvæð svör leiddu til frekari spurninga um ástæður Spurt var um áhuga á sértækum stuðningshópum fyrir hjúkrunarfræðinga eftir ofbeldi 20 atriða kvarði (4-punkta Likert): mat á sálfélagslegum afleiðingum Boðið var upp á eigindlega frásögn um persónulega reynslu af ofbeldi

Viðf angsefni

R annsóknarsnið/ Tími gagnasöfnunar

Höfundi / Ár/ Land/Fræðasvið

Þversniðsrannsókn

T1 Stm. sem höfðu orðið fyrir líkamlegu ofbeldi sl. ár og svöruðu varðandi stuðning eftir ofbeldi

Stuðningsgjafar og tengsl við heilsu, reiði, svefn og öryggisskynjun

Stór geðspítali, algengasta innlagnaástæða með dómsúrskurði 2011

Kelly o.fl./2017/ Bandaríkin Sálfræði, heimspeki

Þversniðsrannsókn þar sem einnig var boðið upp á textareit til að dýpka svör. Ýmiss konar tegundir af geðdeildum Vantar uppl um tíma gagnasöfnunar Áhugi hjúkrunarfræðinga á sértækum stuðningshópum eftir ofbeldi T1 Geðhjfr. sem höfðu á starfsferli sínum orðið fyrir ofbeldi í starfi sínu N= 57

Moylan o.fl./2016/ Bandaríkin

Hjúkrunarfræði

T1
Ofbeldi*

Megindlegar

Tímasetning mælinga Úrtak

Íhlutun

Hópur 1: ↓ þunglyndi (p <0.001), ↑ seigla (p <0.001), ↓ öndunartíðni (p < 0.001) Hópur 2: ↓ þunglyndi (p <0.001), ↓ str eita (p=0.013), ↑ seigla (p <0.001), ↓ öndunartíðni (p=0.002) Hópur 3 (samanburðarhópur): ↓ þunglyndi (p <0.001) Í samanburði v oru hópar 1 og 2 með marktækt meiri seiglu en hópur 3 (p <0.001) Hópur 2 hafði marktækt minni streitu en hópur 3 Bæði hefðbundin og snjallsímamiðuð lífendurgjöf bættu þunglyndi, seiglu og öndunartíðni

CES-D: Þunglyndi OSI-2: Streita RS: Seigla Endurhæfinga styrkleikamat Heilsumat Púls og öndunartíðni

Hópur 2 n=47 60 mín. vikuleg sjálfsþjálfun með myndbandi (MP4) í 6 vikur

Inngrip

Snið/Umhv erfi/ Tími/Þátttaka Viðf angsefni

Höfundir/ Ár/ Land/Fræðasvið

Snjallsímainngrip dró einnig úr vinnustaðastreitu

Niðurstöður

Snjallsíma-BF: stutt hugleiðsla og rauntímamæling 1x í viku Eftirfylgd í gegnum skýjaþjónustu til að staðfesta þátttöku Hópur 3 n=39 Fékk enga BF-þjálfun, hvorki í persónu né með snjallsíma

Hópur 1 n=49 60 mín. persónulegir BF tímar vikulega í 6 vik ur Innihald: vöðvaslökun, þindaröndun, öndun með stút á vörum og æfingar til að örva sinustengda hjartsláttarbreytileika

T1=fyrir inngrip (vika 0) T2=eftir inngrip (vika 6)

BF og snjall- símamiðuð BF BF hjálpar einstaklingum að greina og stýra lífeðlisfræðilegum viðbrögðum (t.d. púls og öndun) með æfingum og fræðslu Snjallsímaútgáfa nýtir tækni til að veita leiðbeiningar og endurgjöf í rauntíma

Lífendurgjöf (BF) með/án snjallsíma: áhrif á streitu og líðan eftir ofbeldi +inngrip

Hálftilraunasnið 3 geðsjúkrahús Klasa slembi úrtak Hjfr. sem höfðu upplifað ofbeldi í starfi sl. ár og áttu snjallsíma

Hsieh o.fl./2020/ Taívan Hjúkrun

Líkamleg áhrif Varandi einkenni: marblettir, bitför, verkir Sumir urðu fyrir varanlegum líkamlegum afleiðingum Sálræn áhrif Áfallahugsanir, stöðugt á varðbergi, dauðakvíði Reiði, löng fjarvera, ótti og vonleysi Skortur á öryggistilfinningu Viðhorf Gert lítið úr ofbeldi; starfsfólk dregur sig í hlé Ofbeldi talið „hluti af starfinu“ Vinnuog starfsumhverfi Óöruggt umhverfi Reykingatakmarkanir og geðrofseinkenni auka hættu Þvinguð innlögn tengd auknu ofbeldi Atvik ekki skráð vegna ótta við ásakanir Námskeið eftir atvik í stað fyrirbyggjandi stuðnings

Stuðningur og bjargráð eftir ofbeldi

Samræður við samstarfsfólk hjálpuðu Húmor minnkaði streitu Stuðningur frá yfirmanni, fjölskyldu, vinum og samstarfsfólki Símtal frá yfirmanni eftir atvik metið jákvætt Þörf fyrir aðgengilega fagaðstoð strax eftir atvik –án þess að starfsmaður þurfi að óska eftir henni sjálfur

Eigindlegar rannsóknir

Þátttakendur

Höfundir/ Ár/ Land/Fræðasvið Aðf erð/Umhverfi/ Tími gagnasöfnunar

5 þemu: 1. Ofbeldi upplifað sem partur af vinnunni. 2. Áhrifamiklir þættir sem hafa áhrif á ofbeldishegðun sjúklinga. 3. Líkamlegar og sálrænar afleiðingar fyrir hjfr. 4. Góð og slæm bjargráð 5. Upplifaður stuðningur frá vinnustað

N=14 Hjfr. og aðstoðarmenn hjfr.

Upplifun hjfr. af ofbeldi á bráðageðdeild: upplifun, bjargráð og stuðningur

Hálfstöðluð viðtöl Þema greining Tilgangsúrtak 6 bráða-geðdeildir innan 3 geðsjúkrahúsa ágú –okt 2019

Bekelepi og Martin / 2022 / Suður-Afríka Hjúkrun

Matstæki
Niðurstöður
Samanburður

rannsóknir, framhald

Eigindlegar

Áskoranir

Sálrænt Vanlíðan eftir að hafa séð sjúkling beittan líkamlegri þvingun Óþægilegt að svara persónulegum spurningum í návist jafningja Viðhorf Móttaka inngrips tengdist því hver jafninginn var 20% hafnaði stuðningi; helstu ástæður; –Taldi sig ekki þurfa aðstoð –Átti von á ofbeldi og taldi stuðning óþarfan –Seigla og góð líðan útilokuðu þörf –Ótti við að vera talinn veikur eða vanhæfur Vinnuumhverfi Þvingaður jafningjastuðningur ekki gagnlegur

Niðurstöður

Þátttakendur

þættir

Hvetjandi

Reynsla af jafningjastuðningi og eftirfylgd Ræða við utanaðkomandi og slökun hjálpuðu Stuðningur frá jafningja veitti viðurkenningu og minnkaði álag Jafningi greindi þörf fyrir sérhæfðari stuðning og sá um tengingu Strax aðgengilegur stuðningur sýndi að stofnuninni væri ekki sama Fræðsla eftir atvik, m.a. bæklingur fyrir fjölskyldur, var gagnleg Spurningalisti um áfallseinkenni veitti yfirsýn og sýnilegar framfarir Einn tengiliður fylgdi stöðugt eftir með samtölum og stuðningi Mikilvægt að jafninginn þekki vinnuumhverfið, hlusti vel og sýni samhygð

Sálrænar afleiðingar Kvíði, þunglyndi, kulnun, vantraust, svefntruflanir, ótti, martraðir PTSD-einkenni með áhrif á einkalíf og vinnuframmistöðu Viðhorf Vanmat á þörf fyrir stuðning Óvissa um hvenær og hvernig á að biðja um hjálp Skömm og tilhneiging til að gera lítið úr ofbeldinu Skortur á tíma vegna undirmönnunar Vantraust til innri stuðningsaðila Stjórnendur kenna starfsfólki um ofbeldið

Viðhorf og merking Mikilvægt að skilja að ofbeldi sé ekki persónulegt, heldur tengist ástandi sjúklings

Stuðningur og aðgengi

Aðgangur að stuðningsaðila utan vinnutíma/ fá símanúmer eftir atvik Lengra tímabil til að fá stuðning

Svigrúm frá deild til að ná bata

Stjórnendur og skipulag Upplýsingar um úrræði (t.d. í símtali eða skilaboðum) Meiri fræðsla og sýnileiki stjórnenda Fundur um seiglu; stuðningur frá yfirmönnum og samstarfsfólki Opnari umræða um ofbeldi í starfi

Kerfisleg atriði

Fjármögnuð meðferð utan spítala

Skýrari lagarammi og fræðsla um réttindi starfsfólks

Liðsheild og teymisvinna talin lykilatriði

Viðhorf Stuðningur eftir atvik talinn merki um veikleika eða skömm Skortur á trausti í litlu samfélagi –ótti við að þekkja meðferðaraðila Ofbeldisatvik –oft gert lítið úr Vinnuumhverfi Vöntun á sértækum stuðningi eftir áföll Ófullnægjandi viðrun og skortur á eftirfylgd Viðrun snérist frekar um að finna sökudólg en að styðja og læra Stuðningsteymi spítalans óviðeigandi fyrir geðdeildir –skorti skilning á aðstæðum

Stuðningur Vinir og fjölskylda hvöttu til að leita stuðnings Mikilvægt að fá félagslegan stuðning frá samstarfsfólki með svipaða reynslu Validering og stuðningur frá stjórnendum lykilatriði Þörf fyrir skipulagðan jafningjastuðning og óháðan meðferðaraðila á vinnustað Viðbrögð og fræðsla Áfallamiðuð viðrun eftir alvarleg atvik Fræðsluþörf fyrir: Starfsfólk um einkenni áfalla og hvernig aðstoða samstarfsfólk, stjórnendur um stuðningshlutverk eftir áföll

Tilgangur

Aðf erð/Umhverfi/ Tími gagnasöfnunar

Höfundir/Ár/ Land/Fræðasvið

Þemu/kóðun

4 þemu: 1. Bregðast við tilfinningalegri vanlíðan 2. Styrkja starfsmenn með hagnýtum stuðningi 3. Hinn góði stuðningsaðili 4. Seigla

Upplifun starfsmanna af jafningjastuðningi eftir ofbeldi: upplifun, ástæður afþökkunar af stuðningi + inngrip N=13 Hjfr (n=10) Félagsráðgjafi (n=1) Sálfræðingur (n=1) Iðjuþjálfi (n=1)

Hálfstöðluð viðtöl Þema greining

Tilgangsúrtak Öryggisog réttargeðdeild Tími gagnasöfnunar ekki tilgreindur

Bakes-Denman o.fl./2021/ Ástralía Hjúkrun

í starfi

6 þemu: 1. Að reyna að skilja ofbeldi

2. Hindranir að aðgengi stuðningsúrræða 3. Tíð útsetning ofbeldis í starfi 4. Auka stuðning frá stjórnendum 5. Þörfin fyrir stuðningsúrræðum 6. Ofbeldi í starfi hefur skaðleg áhrif á ýmsa þætti

N = 17 Geðhjfr. sem allir höfðu upplifað ofbeldi í starfi

Skilningur á áhrifum ofbeldis og þörf fyrir stuðningsúrræði hjá geðhjúkrunar- fræðingum Jafnframt að bera kennsl á hjálplega þætti og hindranir við stuðningsúrræði

Blönduð rannsókn, fjallað um eigindlegar niðurstöður Rafrænn spurningalisti með opnum spurningum Efnisgreining Tilgangsúrtak Geðsjúkrahús sem sinnir bæði bráðaog almennum inniliggjandi tilfellum blandaðra geðsjúkdóma mars-apríl 2020

Dean, o.fl./ 2021/ Bandaríkin Hjúkrun

4 þemu: 1. Validering hvatning til að leita sér stuðnings 2. Fordómar ákveðin hindrun við að leita sér stuðnings

3. Gap í þjónustunni sem er veitt 4. Aukið aðgengi og árangursríkur stuðningur og fræðsla við áföllum

Hálfstöðluð viðtöl Þemagreiningaðleiðsla

3 geð-sjúkrahús, 2 í dreifbýli og 1 í þéttbýli maí –ágúst 2018 Skoða reynslu starfsmanna og greina bjargráð og hindranir í að fá stuðning eftir ofbeldi í starfi N=12 Stm. geðdeilda í þörf fyrir stuðning eftir áfall í starfi

Partur af blandaðri rannsókn

Rodrigues o.fl./2021/ Kanada

Sálfræði

Eigindlegar rannsóknir, framhald

Niðurstöður

Áskoranir

Þátttakendur

Hvetjandi þættir

áhrif

Líkamleg

Heilahristingur, 10 brotnar tennur, langvarandi kjálkaverkir Sálræn áhrif

Greind með PTSD; fyrri áföll í æsku höfðu samverkandi áhrif Tilfinningaleg einangrun, hjónaband endaði Lífshlaup breyttist verulega eftir atvikið

Skortur á skilningi frá fjölskyldu og vinum; fengu aðeins yfirborðsleg viðbrögð („þú ert á lífi“ o.þ.h.)

Viðhorf fagfólks

Geðlæknir greindi PTSD og hvatti til að „læra að lifa með því“, bar hana saman við aðra Vinnuumhverfi

Atvikið átti sér stað rétt fyrir flutning til Kanada –skammvinnur stuðningur Mikil reiði gagnvart geðlækni sem brást ekki við í aðstæðum

Stuðningur og bataferli Samstarfsfélagar veittu hlýjan, raunverulegan stuðning (blóm, fylgd, forðuðust klisjur)

Vinnuveitandi krafðist geðlæknaheimsóknar ári eftir atvikið Kírópraktór kynnti EMDR-meðferð Fór í EMDR-meðferð fimm árum síðar; fann fyrir miklum bata eftir fjóra tíma

Líðan batnaði, reiði og neikvæðar hugsanir hurfu og von til framtíðar sneri aftur

Þemu/kóðun

Aðf erð/Umhverfi/ Tími gagnasöfnunar Tilgangur

Höfundir/Ár/ Land/Fræðasvið

áhrif

Líkamleg

Mar, verkir, höfuðáverkar, kyngingarerfiðleikar, trufluð skynjun Sálræn áhrif

Hræðsla, kvíði, pirringur, streita, reiði, vanlíðan innan og utan vinnu Minnkað sjálfstraust, öryggi og kulnun Viðhorf Ofbeldi óvelkomið en talið „hluti af starfinu“ í geðþjónustu Vinnuumhverfi Munnlegt ofbeldi nær daglegt Áhersla á að ofbeldi megi ekki normalisera eða samþykkja

Stuðningur eftir atvik Aðgengilegur jafningjastuðningur strax eftir atvik

Persónulegur stuðningur frá stjórnanda mikilvægur Viðrun gagnleg ef starfsfólk er tilbúið Góð og markviss eftirfylgd flýtir bata og endurkomu til vinnu

3 þemu: 1. Eðli ofbeldis 2. Afleiðingar ofbeldis 3. Stuðningsáætlanir

N=1 Kvk hjfr. með 12 ára reynslu í geðhjúkrun Sj. beitti hana alvarlegu líkamlegu ofbeldi

Saga hjfr. sem varð fyrir alvarlegu líkamlegu ofbeldi í starfi –afleiðingar, viðbrögð og bjargráð. Hjfr. var kastað upp að vegg og kýlt í höfuð og andlit inni á einangrunarherbergi við þvingaða innlögn. Geðlæknir brást ekki við; aðstoð kom eftir að hún öskraði. + inngrip

Tilfella rannsókn

Almenn geðdeild

Graham/2017/ Kanada Hjúkrun

N=14

Hjfr starfandi á geðþjónustu, sem höfðu orðið fyrir ofbeldi

Upplifun geðhjfr. af ofbeldi frá sjúklingum

Geðdeildir og geðsamfélagsþjónusta Tími gagnasöfnunar ekki tilgreindur

Sálfræði, læknisfræði Hálfstöðluð viðtöl Þema greining

Baby o.fl./2014/ Nýja-Sjáland

BF: Lífendurgjöf / Biofeedback; CES-D: the Centre for Epidemiologic Studies Depression scale; CSS: Crises and Social Support Scale; GAD-7: General Anxiety Disorder-7; GHQ-12: The twelve-item General Health

Questionnaire-9; PSQI: Pittsburgh Sleep Quality Index; RS: the Resilience Scale

Questionnaire; HSCL: Hopkins Symptom Checklist; MDI: Major Depression Inventory; OSI-2: the Occupational Stress Indicator-2; PCL-5: PTSD Checklist for DSM-5; PHQ9: Patient Health

Gagnagreining

Við gagnagreiningu voru töflur notaðar til að draga fram lykilupplýsingar úr hverri rannsókn. Í töflunum voru upplýsingar um höfunda, birtingarár, land og fræðasvið höfunda, rannsóknarsnið, umhverfi og tíma gagnasöfnunar, tilgang, inngrip, tímasetningu mælinga og gerð úrtaka, matstæki, þemu og helstu niðurstöður. Vegna ólíks rannsóknarsniðs og mismunandi eðlis gagna voru megindlegar og eigindlegar niðurstöður fyrst greindar og settar fram aðskildar. Að því loknu voru niðurstöður samþættar á lýsandi hátt með því að greina sameiginleg mynstur og meginþemu þvert á rannsóknarsnið (Flanagan og Beck, 2024; Garrard, 2020).

NIÐURSTÖÐUR

Niðurstöður leitar og gæðamat Heimildaleitin skilaði 1.023 niðurstöðum en eftir að tvítekningar voru fjarlægðar stóðu 762 greinar eftir. Skimun titla og útdrátta skilaði 35 greinum í fullan lestur en eftir útilokun voru 11 greinar valdar. Snjóboltaleit bætti við einni grein og var heildarfjöldi greina því 12: sex megindlegar og sex eigindlegar rannsóknir. Yfirlit yfir rannsóknirnar má finna í töflu 2 og niðurstöður gæðamats eru birtar í fylgiskjali 1. Flestar rannsóknir voru af miklum gæðum en í sumum tilfellum vantaði gagnsæi í framsetningu niðurstaðna og umfjöllun um truflandi breytur. Sérstaklega átti þetta við eigindlegar rannsóknir þar sem ekki var gerð grein fyrir stöðu rannsakenda gagnvart viðfangsefninu og fræðilegum forsendum þeirra.

Samanburður á rannsóknum

Rannsóknirnar 12 voru framkvæmdar víðs vegar í heiminum, flestar í Bandaríkjunum og Kanada, eða þrjár rannsóknir í hvoru landi. Tvær rannsóknir voru frá Danmörku en báðar voru framkvæmdar af sama rannsóknarteyminu. Þá voru síðustu fjórar rannsóknirnar frá Ástralíu, Nýja-Sjálandi, Suður-Afríku og Taívan.

Megindlegar rannsóknir

Sex megindlegar rannsóknir voru teknar með í samantektina, þar af ein hálftilraunarannsókn. Tvær rannsóknir voru langtímarannsóknir, þrjár þversniðsrannsóknir og ein hálftilraunarannsókn. Tvær rannsóknir voru unnar af hjúkrunarfræðingum (Hsieh o.fl., 2020; Moylan o.fl., 2016). Rannsóknirnar voru framkvæmdar á blönduðum geðdeildum þar sem kannanir voru lagðar fyrir starfsfólk mismunandi deilda.

Tilgangur, úrtök og tímasetning mælinga í megindlegum rannsóknum

Þótt tilgangur rannsóknanna væri mismunandi var það sameiginlegt markmið með þeim að varpa ljósi á hvernig stuðningur getur dregið úr neikvæðum afleiðingum ofbeldis. Andersen o.fl. (2023) skoðuðu áhrif félagslegs stuðnings á þunglyndi, en Andersen o.fl. (2021) rannsökuðu tengsl stuðnings frá yfirmanni við vinnustaðahelgun. Seto o.fl. (2020) könnuðu algengi afleiðinga meðal starfsfólks og hindranir við að nýta sér stuðningsúrræði. Kelly o.fl. (2017) og Moylan o.fl. (2016) greindu mismunandi stuðningsinngrip og skoðuðu áhuga hjúkrunarfræðinga á sértækum stuðningshópum í kjölfar ofbeldisatvika. Hsieh o.fl. (2020) rannsökuðu áhrif lífendurgjafar, bæði í eigin persónu og með snjallsímamiðaðri sjálfsþjálfun, á streitu, þunglyndiseinkenni og seiglu hjá geðhjúkrunarfræðingum sem höfðu orðið fyrir ofbeldi í starfi.

Úrtökin samanstóðu af starfsfólki geðdeilda sem sinnir umönnun og meðferð sjúklinga. Flestar rannsóknir kröfðust þess að þátttakendur hefðu orðið fyrir ofbeldi, nema Seto o.fl. (2020), sem skoðuðu bæði stuðningsúrræði og algengi afleiðinga. Úrtaksstærðir voru á bilinu 57 til 761 þátttakanda, samtals 1.437 einstaklingar. Þar sem Andersen o.fl. notuðu sama úrtak í báðum rannsóknum (N=443), var það aðeins talið einu sinni. Andersen

Tafla 3. Tíðni og gerð ofbeldis

Spurningar notaðar til að spyrja um ofbeldi Svör þátttakenda

Hvers konar ofbeldi eða hótanir höfðu stm. upplifað?

Andersen o.fl., 2023; Andersen o.fl., 2021

Seto o.fl., 2020

Hótanir, 6 spurningar: hótað að beita ofbeldi með hlutum, hótað líkamlegu ofbeldi, skriflegar hótanir, hótanir í síma, hótanir á móðgandi hátt, hótun gegn fjölskyldu.

Ofbeldi, 11 spurningar: líkamlegt ofbeldi með því að vera sleginn, laminn, hrækt á, ýtt, haldið fast, kýlt með hnefa, sparkað í, bitið í, laminn með hörðum hlut.

Bein eða óbein upplifun af árás, hótunum eða öðru ofbeldi á vinnustað Líkamlegt ofbeldi frá sjúklingi, ekki líkamleg meiðsl Líkamlegt ofbeldi frá sjúklingi, sem leiðir af sér meiðsl Meiðsl við að beita sjúkling líkamlegri þvingun

Kynferðislegt ofbeldi frá sjúklingi

Hótun um líflát eða alvarlegt ofbeldi til stm. Hótun um líflát eða alvarlegt ofbeldi til fjölskyldu stm.

Ofbeldi eða dauði af slysförum Sjálfsvíg (eða alvarleg sjálfsvígstilraun)

Svör voru: „það gerðist fyrir mig beint“, „ég kom þegar það var kallað eftir hjálp“, „ég varð vitni að því“, „ég heyrði að það hafði gerst fyrir náinn samstarfsmann“, „ég var endurtekið að heyra nákvæmar sögur af því sem part af vinnunni minni“, eða „þetta á ekki við um mig“

„Á síðastliðnu ári, í vinnunni, hversu oft varðstu vitni að eftirfarandi hegðun hjá sjúklingum?“

Svör voru á 7 punkta skala frá „aldrei“ til „á hverjum degi“

Eyðileggja herbergi

Drekka úr klósetti

Að borða hluti sem er ekki matur

Strok af deild

Að láta vatn flæða yfir herbergið Hamstra hluti til sín

Líkamlega að berjast gegn meðferð

Stöðug öskur

Sjálfsskaði með eða án sjálfsvígstilgangi

Kynferðisleg hegðun á almannafæri

Smurning hægða

Ráfandi

Munnlegt ofbeldi

Líkamlegt ofbeldi

Kelly o.fl., 2017

Moylan o.fl., 2016

Reynsla af líkamlegu ofbeldi í starfi af völdum sjúklings sl. ár með 7 atriða, 4 punkta Likert-skala (0=aldrei, til 3=6 sinnum eða oftar)

Spurt um fjölda ofbeldisatvika Boðið upp á eigindlega frásögn í tengslum við reynslu þeirra af ofbeldi

Munnlegt ofbeldi: 45,2% - algengast að vera hótað á móðgandi hátt (18,5%) eða hótað líkamlegu ofbeldi (12,9%)

Líkamlegt ofbeldi: 46,1%

- algengast að vera ýtt (15,7%) eða sleginn/laminn (10,2%) Annað 8,4%

67% höfðu orðið fyrir beinu áfalli í vinnu

96% greindu frá að hafa orðið fyrir einu eða fleirum áföllum í vinnu, beint eða óbeint Óbein áföll flokkast sem partur af því að bregðast við útkalli í vinnu, verða vitni að atburði, að atburður kæmi fyrir náinn samstarfsfélaga, eða verða endurtekið fyrir nánum upplýsingum af erfiðum atburði vegna vinnunnar Ekki kom fram í niðurstöðum greinar hversu oft stm. urðu vitni að mismunandi hegðun sjúklinga

242 (69,5%) af 348 stm. sögðust hafa orðið fyrir líkamlegu ofbeldi sl. ár Staða þeirra sem höfðu orðið fyrir ofbeldi í vinnu: - Almennir starfsmenn geðdeilda (76%) - Faglært starfsfólk (21%) - Yfirmenn (3%)

Fjöldi ofbeldisatvika (N=57): 1 skipti: 14 hjfr. (25%) 2 eða fleiri skipti: 28 hjfr. (49%) Ekkert svar: 15 hjfr. (26%)

o.fl. (2021) söfnuðu gögnum á fjórum tímapunktum (1, 3, 6 og 12 mánuðum eftir atvik), en Andersen o.fl. (2023) á tveimur (1 og 3 mánuðum eftir atvik).

Tíðni og gerð ofbeldis í megindlegum rannsóknum

Allar rannsóknir skoðuðu ofbeldi, tegundir þess og tíðni. Algengast var líkamlegt ofbeldi, eins og að vera ýtt, sleginn eða laminn (46,1%) og munnlegt ofbeldi, s.s. hótanir (45,2%) (Andersen o.fl., 2021; 2023). Í rannsókn Kelly o.fl. (2017) höfðu 69,5% starfsmanna orðið fyrir líkamlegu ofbeldi síðastliðið ár. Seto o.fl. (2020) greindu frá því að 96% starfsfólks höfðu upplifað bein eða óbein áföll í starfi, þar sem óbein áföll fólust í því að verða vitni að atviki, sjá samstarfsfólk verður fyrir ofbeldi eða heyrir ítrekað um alvarleg atvik annarra. Moylan o.fl. (2016) rannsökuðu hjúkrunarfræðinga sem höfðu orðið fyrir ofbeldi í starfi, þar af höfðu 49% þeirra orðið fyrir ofbeldi tvisvar eða oftar. Flestar rannsóknir skilgreindu ofbeldi sem líkamlegt eða munnlegt (Andersen o.fl., 2021; 2023; Seto o.fl., 2020; Kelly o.fl., 2017) en Seto o.fl. (2020) tóku einnig til hegðunar á borð við skemmdarverk, sjálfsskaða og óvenjulega hegðun, svo sem að drekka úr klósetti. Nánara yfirlit má finna í töflu 3 um tíðni og gerð ofbeldis.

Sálrænar afleiðingar ofbeldis í megindlegum rannsóknum Þrjár rannsóknir könnuðu sálrænar afleiðingar ofbeldis í starfi. Seto o.fl. (2020) greindu frá því að 29% af 761 starfsmanni geðdeilda uppfylltu greiningarskilmerki fyrir áfallastreituröskun (PTSD), þunglyndi eða kvíða. Þar af hafði yfir helmingur bæði PTSD og þunglyndi/kvíða. Alvarlegt líkamlegt eða hótandi ofbeldi sem ógnaði lífi, sem og kynferðislegt ofbeldi, tengdist marktækt þessum einkennum. Starfsmenn upplifðu svefnerfiðleika (45%), reiði (63%) og ófullnægjandi öryggi á vinnustað (92%). Kelly o.fl. (2017) sýndu að ofbeldi í starfi tengdist aukinni upplifun óöryggis en Moylan o.fl. (2016) fundu að hjúkrunarfræðingar sem höfðu

Tafla 4. Sálrænar afleiðingar ofbeldis

Afleiðingar ofbeldis

1 af 6 stm. sem höfðu orðið fyrir ofbeldi náðu PTSD-greiningaskilmerkjum

1 af 5 stm. sem höfðu orðið fyrir ofbeldi náðu greiningaskilmerkjum þunglyndis

Seto, o.fl., 2020

Kelly o.fl., 2017

1 af 6 stm. sem höfðu orðið fyrir ofbeldi náðu greiningaskilmerkjum kvíða 29% náðu greiningaskilmerkjum PTSD, þunglyndis og kvíða Yfir helmingur þeirra sem náðu PTSD-greiningaskilmerkjum náðu einnig greiningaskilmerkjum þunglyndis og kvíða

Að verða fyrir hótunum eða líkamlegu ofbeldi, lífshættu, eða kynferðislegu ofbeldi tengdist marktækt:

- PTSD, r(759)=0.40, p <0,001 - þunglyndi, r(752)=0,24, p <0,001 - kvíða, r(750)=0,22, p <0,001 PTSD-einkenni voru marktækt og sérstaklega tengd upplifun á áfalli, β=0.429, öfugt við þunglyndi og kvíða, β=-0,038 og -0,001

R2=0,164, F=48,75, p <0,001

GHQ-12 skor voru í meðallagi lág (M=1,46, SD=0,35) og einungis 5% höfðu verulegar áhyggjur af geðheilsu Stm. greindu frá miklu óöryggi varðandi öryggi þeirra, 54% stm. fannst það vera óöruggt eða mjög óöruggt í vinnu

92% stm. fannst að öryggi þeirra ætti að vera betur tryggt

Svefnerfiðleikar voru algengir (45%)

Flestir stm. urðu einstaka sinnum reiðir (63%) en 16% oft eða mjög oft reiðir

Líkamleg heilsa var góð

Stm. með fleiri ofbeldisatvik greindu frá meiri áhyggjum af öryggi (r=0,29)

Endurteknar hugsanir (65%)

Endurupplifun (31%)

Ótti (87%)

Reiði (71%)

Skortur á stjórn (71%)

Sektarkennd (20%)

Skömm (29%)

Svefnerfiðleikar (31%)

Draumar um ofbeldið (24%)

Minnkandi starfsánægja ( 46%)

Neikv. afleiðingar á vinnu þeirra (25%)

orðið fyrir ofbeldi upplifðu minni starfsánægju (46%), endurteknar hugsanir um atburðinn (65%), reiði (71%), skerta stjórn á aðstæðum (71%) og ótta (87%). Yfirlit um sálrænar afleiðingar ofbeldis má finna í töflu 4.

Matstæki megindlegra rannsókna Samtals voru notuð átta þekkt mælitæki til að meta líðan starfsfólks. Félagslegur stuðningur var mældur með CSS-kvarðanum (Crises and Social Support Scale) í einni rannsókn (Andersen o.fl., 2023). Þunglyndi var skoðað með MDI (Major Depression Inventory) hjá Andersen o.fl. (2023), PHQ-9 (Patient Health Questionnaire-9) hjá Seto o.fl. (2020) og CES-D hjá Hsieh o.fl. (2020). Áfallastreita var metin með PCL-5 (PTSD Checklist for DSM-5) og kvíði með GAD-7 (General Anxiety Disorder-7), bæði í rannsókn Seto o.fl. (2020). Geðræn einkenni voru mæld með GHQ-12 (General Health Questionnaire-12) í rannsókn Kelly o.fl. (2017), sem einnig notaði HSCL (Hopkins Symptom Checklist) til að meta almenna heilsu og PSQI (Pittsburgh Sleep Quality Index) til að mæla svefngæði. Í hálftilraunarannsókn Hsieh o.fl. (2020) voru auk þess notaðir kvarðarnir OSI-2 til að meta streitu og RS til að meta seiglu, ásamt mælingum á púlsi og öndunartíðni. Flestar rannsóknir nýttu jafnframt spurningalista sem voru aðlagaðir að rannsóknartilgangi.

Lýsing á niðurstöðum megindlegrar rannsókna

Niðurstöður sýndu fram á leiðir til að draga úr neikvæðum afleiðingum ofbeldis í starfi á geðdeild en vörpuðu einnig ljósi á hindranir við að sækja sér stuðning.

Áhrif stuðnings eftir ofbeldi: Að fá félagslegan stuðning í vinnu dró úr einkennum þunglyndis hjá starfsfólki sem hafði orðið fyrir ofbeldi (Andersen o.fl., 2023) og stuðningur frá yfirmanni jók vinnustaðahelgun (Andersen o.fl., 2021). Starfsmenn með PTSD, kvíða og þunglyndi nýttu stuðningsúrræði mest; algengast var að leita til heimilislæknis (47%), afla upplýsinga á netinu (36%) eða lesa útgefið efni (33%), en árangur þessara úrræða var óljós (Seto o.fl., 2020). Af þeim sem höfðu orðið fyrir líkamlegu ofbeldi vildi 71% fá stuðning, helst frá samstarfsfólki (58%), yfirmönnum (56%) og fjölskyldu (48%) (Kelly o.fl., 2017). Þar kom fram að 72% töldu stuðning hafa skilað árangri, sérstaklega frá samstarfsfólki (52%) og fjölskyldu (51%), en aðeins 27% fundu gagn af stuðningi frá stjórnendum. Árangursríkur stuðningur tengdist minni áhyggjum af eigin öryggi, færri heilsubrestum, minni reiði og þunglyndi. Í rannsókn Moylan o.fl. (2016) höfðu 12% hjúkrunarfræðinga fengið formlegan stuðning og 37% óformlegan, þó að ekki hafi verið skilgreint nánar hvað sá stuðningur fól í sér. Sömuleiðis höfðu 57% mögulegan áhuga á sértækum stuðningshópum eftir ofbeldi og 41% skýran áhuga. Í hálftilraunarannsókn Hsieh o.fl. (2020) kom fram að bæði lífendurgjöf í eigin persónu (n=49) og snjallsímamiðuð sjálfsþjálfun (n=47) höfðu jákvæð áhrif á líðan þátttakenda. Báðir íhlutunarhóparnir sýndu meiri seiglu en viðmiðunarhópur og snjallsímainngripið tengdist jafnframt minni streitu. Auk þess drógu bæði inngripin úr þunglyndiseinkennum og lækkuðu öndunartíðni.

Hindranir við að sækja stuðning: Af þeim sem höfðu orðið fyrir ofbeldi töldu 58% sig ekki þurfa aðstoð (Seto o.fl., 2020). Algengustu hindranir við að sækja stuðning voru kostnaður, takmörkuð greiðsluþátttaka vinnuveitanda, tryggingarvandamál, tímaskortur, óhentugur opnunartími og erfiður aðgangur að þjónustu. Karlmenn voru marktækt ólíklegri en konur til að leita sér stuðnings, oft vegna viðhorfs um að þeir þyrftu ekki stuðning eða vildu ekki að aðrir vissu af því. Moylan o.fl. (2016) greindu einnig frá því að 88%

Moylan o.fl., 2016

hjúkrunarfræðinga teldu ofbeldi eðlilegt á geðdeildum og 34% sögðu að það ætti að einhverju leyti að teljast í lagi.

Eigindlegar rannsóknir

Niðurstöður sex eigindlegra rannsókna voru samþættar. Flestar voru unnar af hjúkrunarfræðingum og byggðu á hálfstöðluðum djúpviðtölum sem greind voru með þemagreiningu. Dean o.fl. (2021) framkvæmdu blandaða rannsókn en hér er einungis fjallað um eigindlegar niðurstöður sem voru greindar með efnisgreiningu. Ein tilfellarannsókn lýsti sálrænum og líkamlegum afleiðingum alvarlegs ofbeldis og stuðningsþörfum einstaklingsins í kjölfarið (Graham, 2017). Þátttakendur störfuðu á almennum geð- og bráðageðdeildum (Dean o.fl., 2021; Graham, 2017; Rodrigues o.fl., 2021), öryggis- og réttargeðdeild (Bakes-Denman o.fl., 2021) og bráðageðdeildum (Bekelepi og Martin, 2022).

Tilgangur og úrtök eigindlegra rannsókna Eigindlegu rannsóknirnar skoðuðu upplifun og reynslu geðhjúkrunarfræðinga og annarra starfsmanna af ofbeldi í starfi (Baby o.fl., 2014; Bekelepi og Martin, 2022; Rodrigues o.fl., 2021). Einnig var greint frá stuðningi í kjölfar ofbeldis, auk hvetjandi og hindrandi þátta (Bekelepi og Martin, 2022; Dean o.fl., 2021; Rodrigues o.fl., 2021). Bakes-Denman o.fl. (2021) fjölluðu um reynslu starfsmanna af jafningjastuðningi eftir ofbeldi, sem og ástæður þess að sumir afþökkuðu slíkan stuðning. Í tilfellarannsókn Graham (2017) var rakin saga konu sem varð fyrir alvarlegu líkamlegu ofbeldi á vinnustað, með áherslu á afleiðingar þess á líðan og starfsgetu.

Úrtök allra rannsóknanna samanstóðu af starfsfólki geðdeilda sem hafði orðið fyrir líkamlegu eða munnlegu ofbeldi á vinnustað. Tvær þeirra tóku til bæði hjúkrunarfræðinga og annars heilbrigðisstarfsfólks (Bekelepi og Martin, 2022; Rodrigues o.fl., 2021). Bakes-Denman o.fl. (2021) könnuðu reynslu hjúkrunarfræðinga (n=10), félagsráðgjafa (n=1), sálfræðings (n=1) og iðjuþjálfa (n=1). Aðrar rannsóknir beindust eingöngu að geðhjúkrunarfræðingum (Baby o.fl., 2014; Dean o.fl., 2021; Graham, 2017). Úrtaksstærð var á bilinu 12-17, nema í tilfellarannsókninni sem lýsti einum einstaklingi. Heildarfjöldi þátttakenda var 71.

Inngrip eigindlegra rannsókna

Tvær rannsóknir fjölluðu um sértæk stuðningsinngrip. BakesDenman o.fl. (2021) skoðuðu skipulagðan jafningjastuðning, upplifun starfsmanna af inngripinu og ástæður fyrir höfnun þess.

Tafla 5. Inngripum eigindlegra rannsókna lýst

Inngripi lýst

Jafningjastuðningur

- The peer support programme (PSP) Hannað eftir fyrirmynd Assaulted Staff Action Program (ASAP)

Stuðningur frá öðrum stm. sem hefur boðið sig fram í þetta verkefni sem jafningi

Graham (2017) lýsti tilfelli hjúkrunarfræðings sem fékk EMDRáfallameðferð til að draga úr afleiðingum ofbeldis í starfi. Tafla 5 sýnir yfirlit yfir inngripin.

Lýsing á niðurstöðum eigindlegra rannsókna Þemu rannsóknanna spönnuðu frá þremur til sex. Sameiginlega þætti var hægt að greina þvert yfir þemun: 1) ofbeldi hluti af starfinu, 2) afleiðingar ofbeldis, 3) stuðningur og 4) hindranir.

Ofbeldi hluti af starfinu: Rannsóknirnar endurspegluðu hversu algengt ofbeldi er á geðdeildum og að oft sé litið á það sem hluta af starfinu. Þemu eins og „Ofbeldi upplifað sem partur af vinnunni“ (Bekelepi og Martin, 2022) og „Tíð útsetning ofbeldis í starfi“ (Dean o.fl., 2021) lýstu þessari upplifun. Jafnframt var reynt að skilja eðli ofbeldisins með þemum eins og „Áhrifamiklir þættir sem hafa áhrif á ofbeldishegðun“ (Bekelepi og Martin, 2022), „Að reyna að skilja ofbeldi í starfi“ (Dean o.fl., 2021) og „Eðli ofbeldis“ (Baby o.fl., 2014).

Afleiðingar ofbeldis: Neikvæðar afleiðingar ofbeldis í starfi komu skýrt fram í nokkrum þemum, svo sem „Líkamlegar og sálrænar afleiðingar“ (Bekelepi og Martin, 2022), „Bregðast við tilfinningalegri vanlíðan“ (Bakes-Denman o.fl., 2021), „Ofbeldi í starfi hefur skaðleg áhrif á ýmsa þætti“ (Dean o.fl., 2021) og „Afleiðingar ofbeldis“ (Baby o.fl., 2014).

Stuðningur eftir ofbeldi: Rannsóknirnar sýndu að þörf er á auknum stuðningi eftir ofbeldi í starfi. Þemu eins og „Góð og slæm bjargráð“ (Bekelepi og Martin, 2022), „Þörf fyrir stuðningsúrræði“ (Dean o.fl., 2021) og „Gap í þjónustunni“ (Rodrigues o.fl., 2021) endurspegluðu þetta. Einnig komu fram hugmyndir og áætlanir um betri stuðning, með þemum eins og „Upplifaður stuðningur frá vinnustað“ (Bekelepi og Martin, 2022), „Styrkja starfsmenn með hagnýtum stuðningi“ (Bakes-Denman o.fl., 2021), „Auka stuðning frá stjórnendum“ (Dean o.fl., 2021) og „Stuðningsáætlanir“ (Baby o.fl., 2014).

Hindranir: Hindranir við að sækja sér stuðning komu fram í tveimur þemum: „Hindranir í aðgengi stuðningsúrræða“ (Dean, o.fl., 2021) og „Fordómar eru ákveðin hindrun við að leita sér stuðnings“ (Rodrigues o.fl., 2021).

Hvetjandi þættir

Bakes-Denman o.fl., 2021

Jafningjar fá hálfs dags þjálfun í áfallanálgun og sálrænni skyndihjálp

Boðið upp á 3 stuðningstíma, sama dag og atvikið verður, 3 dögum seinna og 10 dögum eftir atvik

Jafningi biður stm. um að fylla út matslista: Impact of Events Scale (revised) Öllum boðið upp á fræðslupakka fyrir það sjálft og aðstandendur, einnig þó jafningjastuðningur sé afþakkaður

EMDR: Afnæming og endurvinnsla í gegnum augnhreyfingar (e. eye movement desensitization and reprocessing)

Graham., 2017

Er samþætt inngrip sem sameinar margar samtalsmeðferðir Meðferð hönnuð til að draga úr áfallatengdri streitu, kvíða og þunglyndiseinkennum sem tengjast PTSD

Markmið með EMDR er að vinna markvisst með þá reynslu sem er að valda vandanum

Hvetjandi þættir og stuðningsúrræði: Niðurstöður sýndu að aukinn stuðningur gæti dregið úr afleiðingum ofbeldis í starfi. Sérstaklega skipti stuðningur yfirmanna máli, m.a. símtöl eftir atvik (Bekelepi og Martin, 2022), upplýsingagjöf um stuðningsúrræði (Dean o.fl., 2021) og persónuleg nálgun (Baby o.fl., 2014; Rodrigues o.fl., 2021). Óskað var eftir sýnileika yfirmanna á deildum við krefjandi aðstæður (Dean o.fl., 2021). Jafningjastuðningur reyndist afar mikilvægur (Bekelepi og Martin, 2022; Bakes-Denman o.fl., 2021; Dean o.fl., 2021; Graham, 2017; Rodrigues o.fl., 2021). Starfsfólk taldi það róandi og gagnlegt að ræða við jafningja utan eigin deildar, einkum þar sem slíkur stuðningur gat vísað áfram í sérhæfðari úrræði (Bakes-Denman o.fl., 2021). Strax eftir atvik reyndist eftirfylgni og fræðsla gagnleg fyrir bæði starfsfólk og aðstandendur. Þeir sem svöruðu spurningalistum um líðan yfir tíma töldu gagnlegt að sjá jákvæðar breytingar sjónrænt (Bakes-Denman o.fl., 2021). Þá var mikil eftirspurn eftir sérstökum stuðningsaðila utan deildar sem væri aðgengilegur strax eftir atvik og kæmi þannig í veg fyrir að starfsmaður þyrfti að leita aðstoðar sjálfur (Bekelepi og Martin, 2022; Rodrigues o.fl., 2021).

Einnig var kallað eftir símanúmeri stuðningsaðila til að hringja í utan vinnutíma eða möguleikanum á greiddri meðferð utan deildar (Dean o.fl., 2021). Stuðningur frá fjölskyldu og vinum reyndist einnig mikilvægur, einkum þegar þeir hvöttu til nýtingar stuðningsúrræða (Bekelepi og Martin, 2022; Rodrigues o.fl., 2021).

Fræðsla og viðhorfsbreytingar: Starfsfólk lýsti þörf fyrir fræðslu um afleiðingar ofbeldis og áfalla (Bakes-Denman o.fl., 2021; Rodrigues o.fl., 2021), auk upplýsinga um möguleg stuðningsúrræði (Dean o.fl., 2021). Fræðslubæklingur fyrir aðstandendur var vel metinn (Dean o.fl., 2021). Einnig þótti mikilvægt að starfsfólk fengi leiðsögn um hvernig styðja mætti samstarfsfólk eftir ofbeldi og að yfirmenn væru þjálfaðir í að veita árangursríkan stuðning (Rodrigues o.fl., 2021). Viðrun eftir atvik var talin gagnleg ef hún var áfallamiðuð (Rodrigues o.fl., 2021) en starfsmenn þurfa að vera sálrænt tilbúnir til að viðra atvik (Baby o.fl., 2014). Jafnframt var lögð áhersla á að skapa rými fyrir opinskáa umræðu um ofbeldi og efla þekkingu á lagaumhverfi (Dean o.fl., 2021).

Aðrir hvetjandi þættir: Húmor reyndist gagnlegur (Bekelepi og Martin, 2022), teymisvinna skipti miklu máli (Dean o.fl., 2021) og mikilvægt var að starfsfólk fengi svigrúm til að jafna sig eftir atvik (Dean o.fl., 2021). Persónulegur stuðningur flýtti fyrir bata og hjálpaði fólki að snúa aftur til vinnu (Baby o.fl., 2014).

EMDR-áfallameðferð: Tilfellarannsókn Graham (2017) sýndi að EMDR-áfallameðferð hafði jákvæð áhrif. Eftir fjóra meðferðartíma batnaði líðan, reiði og neikvæðar hugsanir minnkuðu og viðkomandi upplifði von um framtíðina.

Áskoranir

Niðurstöðurnar bentu á ýmsar áskoranir tengdar afleiðingum ofbeldis, líðan, viðhorfum og vinnuumhverfi sem var flokkað í fjóra meginþætti: 1) líkamlegar, 2) sálrænar, 3) viðhorf og 4) vinnu- og umhverfisþætti.

Líkamlegar áskoranir: Ofbeldi hafði margvíslegar líkamlegar afleiðingar, þar á meðal marbletti, verki, áverka, bitför, kyngingarerfiðleika og skyntruflanir (Baby o.fl., 2014; Bekelepi og Martin, 2022). Í alvarlegu tilfelli greindi hjúkrunarfræðingur frá heilahristingi, 10 brotnum tönnum og langvarandi kjálkaverkjum (Graham, 2017).

Sálrænar áskoranir: Starfsmenn upplifðu stöðuga árvekni, áfallatengdar hugsanir um dauðann, kvíða, reiði, ótta og vonleysi, auk langvarandi fjarveru frá vinnu (Bekelepi og Martin, 2022). Mikil vanlíðan fylgdi því jafnframt að verða vitni að líkamlegri þvingun á vinnustað (Bakes-Denman o.fl., 2021). Neikvæðar afleiðingar ofbeldis voru margvíslegar, þar á meðal kvíði, þunglyndi, kulnun, vantraust, svefnerfiðleikar, martraðir og fleiri áfallaeinkenni (Dean o.fl., 2021). Í alvarlegu tilfelli leiddi ofbeldi til greiningar á áfallastreituröskun þar sem fyrri áföll höfðu einnig áhrif og hjúkrunarfræðingurinn fjarlægðist fjölskyldu og vini (Graham, 2017). Afleiðingar ofbeldis náðu bæði til vinnu og einkalífs og lýstu sér m.a. í hræðslu, pirringi, viðkvæmni, streitu, reiði, skertu sjálfstrausti, óöryggi og kulnun (Baby o.fl., 2014).

Viðhorf: Niðurstöðurnar endurspegluðu fjölbreytt viðhorf til ofbeldis á geðdeildum og stuðnings í kjölfarið. Starfsfólki fannst gert lítið úr ofbeldi, sem gat leitt til tilfinningalegrar fjarlægðar gagnvart sjúklingum (Bekelepi og Martin, 2022). Margir sáu ekki þörf á stuðningi, vissu ekki hvenær ætti að leita aðstoðar eða upplifðu skömm og veikleikamerki við að þiggja hann (Dean o.fl.,

2021; Rodrigues o.fl., 2021). Skortur á trausti í litlu samfélagi olli ótta við að þekkja meðferðaraðila (Rodrigues o.fl., 2021). Við innleiðingu jafningjastuðnings fannst sumum of persónulegt að svara spurningalista í viðurvist jafningja og 20% höfnuðu inngripinu, annaðhvort vegna þess að þeir töldu sig ekki þurfa stuðning eða óttuðust að það sýndi veikleika (Bakes-Denman o.fl., 2021). Í tilfelli hjúkrunarfræðings sem varð fyrir alvarlegu ofbeldi og greindist með áfallastreituröskun mælti geðlæknir með að hún einfaldlega „lærði að lifa með“ atburðinum (Graham, 2017). Fjölskylda og vinir sýndu takmarkaðan skilning, þrátt fyrir hughreystingar höfðu orð þeirra lítil áhrif (Graham, 2017).

Vinnuumhverfi: Starfsfólk upplifði ofbeldi sem hluta af vinnunni og fannst vinnuumhverfið óöruggt (Bekelepi og Martin, 2022). Ýmsir óviðráðanlegir þættir juku ofbeldishættu, svo sem takmarkanir á reykingatímum, geðrofseinkenni og nauðungarinnlagnir. Atvik voru stundum ekki skráð af ótta við yfirheyrslur eða ásakanir (Bekelepi og Martin, 2022). Þvingaður stuðningur við innleiðingu jafningjastuðnings var illa metinn og máli skipti hver veitti stuðninginn (Bakes-Denman o.fl., 2021). Undirmönnun gerði það erfitt fyrir að sækja sér stuðning og sumir treystu ekki stuðningsaðilum innan vinnustaðar (Dean o.fl., 2021). Starfsfólki fannst lítið gert úr ofbeldisatvikum, skortur á sértækum stuðningi og kaldhæðnislegt að geðheilsa starfsmanna væri ekki í forgangi á geðdeild (Rodrigues o.fl., 2021). Viðrun eftir atvik var oft gagnrýnd fyrir að beina sjónum að sök frekar en stuðningi og lærdómi, auk þess sem eftirfylgni vantaði (Rodrigues o.fl., 2021). Í tilfelli hjúkrunarfræðings sem varð fyrir alvarlegu líkamlegu ofbeldi hvarf stuðningur samstarfsfólks fljótt þar sem viðkomandi hætti störfum viku síðar (Graham, 2017). Munnlegt ofbeldi var daglegt en starfsfólk lagði áherslu á að það mætti ekki teljast eðlilegur hluti starfsins (Baby o.fl., 2014).

Samþætting niðurstaðna Þrátt fyrir ólík rannsóknarsnið kom fram samhljómur í niðurstöðum. Ofbeldi var oft litið á sem hluti af starfinu, sem gat dregið úr líkum á að starfsfólk leitaði sér stuðnings. Niðurstöðurnar sýndu einnig að ofbeldi í starfi hafði bæði líkamlegar og sálrænar afleiðingar. Stuðningur frá yfirmönnum, samstarfsfólki og aðstandendum reyndist mikilvægur en aðgengi að formlegum stuðningsúrræðum var oft ófullnægjandi. Jafnframt bentu rannsóknir til þess að markviss og skjót áfallamiðuð eftirfylgni gæti dregið úr neikvæðum afleiðingum ofbeldis í starfi.

UMRÆÐA

Ofbeldi í starfi getur haft alvarlegar afleiðingar á bæði starf og einkalíf (Baby o.fl., 2014; Dean o.fl., 2021). Ef ekki er gripið inn í með fyrirbyggjandi hætti geta afleiðingarnar leitt til áfallastreituröskunar (Hilton o.fl., 2020; Lim o.fl., 2023). Huga þarf einnig að sálrænum afleiðingum fyrir þá sem verða vitni að ofbeldi í starfi sínu (Ham o.fl., 2022; Seto o.fl., 2020). Markmið þessarar hraðsamantektar var að greina árangursríkar leiðir til að draga úr sálrænum afleiðingum ofbeldis og leiddi samantektin í ljós að nauðsynlegt er að leita leiða til að draga úr mögulegum afleiðingum. Niðurstöðurnar sýna að þörf er á markvissum úrræðum í klínísku umhverfi hér á landi, með áherslu á stuðning frá yfirmönnum, jafningjastuðning og aukna fræðslu til að styðja starfsfólk geðdeilda í kjölfar ofbeldisatvika.

Yfirlit yfir eftirsótt stuðningsúrræði er að finna á mynd 2. Áhersla var lögð á þær áskoranir sem starfsfólk mætir við að leita sér

stuðnings, sem og á þau tækifæri sem stjórnendur geðdeilda hafa til úrbóta. Algengustu óskir starfsfólks sneru að auknum stuðningi frá yfirmönnum (Bekelepi og Martin, 2022; Dean o.fl., 2021; Rodrigues o.fl., 2021).

Niðurstöður sýndu að árangursríkur stuðningur eftir ofbeldi í starfi getur aukið vinnustaðahelgun og dregið úr starfsmannaveltu, sem ella getur haft neikvæð áhrif á gæði þjónustunnar og eykur tíðni ofbeldisatvika (Andersen o.fl., 2021; Chen o.fl., 2022; Jang o.fl., 2022). Veikur stuðningur yfirmanna var endurtekið þema í rannsóknum og bent var á mikilvægi þess að stjórnendur fái viðeigandi þjálfun í áfallamiðaðri nálgun og fræðslu um afleiðingar ofbeldis og viðeigandi stuðningsúrræði (Baby o.fl., 2014; Ham o.fl., 2022; Rodrigues o.fl., 2021). Stuðningur þarf að vera persónulegur, veittur fljótt eftir atvik og aðgengilegur utan vinnutíma (Bekelepi og Martin, 2022; Dean o.fl., 2021).

Jafningjastuðningur reyndist árangursríkur og hafði jákvæð áhrif á sálræna líðan og líkamlega heilsu (Andersen o.fl., 2023; Kelly o.fl., 2017). Skipulagður jafningjastuðningur, þar sem sami einstaklingur fylgdi starfsmanni eftir, var sérstaklega gagnlegur (Bakes-Denman o.fl., 2021). Hjúkrunarfræðingar sýndu einnig áhuga á stuðningshópum, þó gæti skortur á trausti í smærri samfélögum torveldað slíkan stuðning í framkvæmd (Moylan o.fl., 2016; Rodrigues o.fl., 2021).

Fjölskylda og vinir voru mikilvægir stuðningsaðilar en oft skorti skilning á áhrifum ofbeldis á starfsmanninn (Kelly o.fl., 2017). Þörf var á fræðslu fyrir aðstandendur og væri upplýsingabæklingur um mögulegar afleiðingar ofbeldis ákjósanleg lausn í því samhengi (Bakes-Denman o.fl., 2021). Stuðningur utan vinnu hafði þó minni áhrif á afleiðingar ofbeldis en stuðningur á vinnustað (Kelly o.fl., 2017) en aðrir sýndu þó fram á að stuðningur frá fjölskyldu drægi verulega úr þunglyndiseinkennum (Hsieh o.fl., 2018).

Sértæk stuðningsinngrip, lífendurgjöf og EMDR-áfallameðferð sýndu jákvæð áhrif á afleiðingar ofbeldis (Graham, 2017; Hsieh o.fl., 2020). Snjallsímaútgáfa lífendurgjafar reyndist sérstaklega árangursrík við að draga úr streitu, mögulega vegna þess að þátttakendur gátu valið öruggt umhverfi til að framkvæma æfingarnar (Hsieh o.fl., 2020). Snjalltækni hefur verið vaxandi í sálrænum inngripum og gæti verið hagkvæm leið til að veita stuðning (Can o.fl., 2020; Torous o.fl., 2019).

Viðrun eftir atvik hefur notið vinsælda á undanförnum árum, hér á landi og erlendis. Hins vegar byggir sú aðferð ekki á sterkum vísindalegum grunni og þörf er á frekari rannsóknum til að meta hvort og hvernig slíkt inngrip skili árangri (Berry o.fl., 2024; Billings o.fl., 2023). Sérstaklega er mikilvægt að horfa til niðurstaðna sem benda til að viðrun geti haft neikvæð áhrif á náttúrulega aðlögun og bataferli eftir áfall (Van Emmerik o.fl., 2002).

Viðhorf til ofbeldis á geðdeildum var mikil áskorun. Margir töldu það hluta af starfinu og sáu ekki þörf fyrir stuðning (Moylan o.fl., 2016; Seto o.fl., 2020). Skömm, tímaskortur og undirmönnun hindruðu einnig stuðningsleit (Bekelepi og Martin, 2022; Rodrigues o.fl., 2021). Karlmenn voru ólíklegri til að leita sér aðstoðar og töldu það frekar veikleikamerki (Seto o.fl., 2020), sem er í samræmi við fyrri rannsóknir á kynjamun í hjálparleit (Call og Shafer, 2018; Yousaf o.fl., 2015). Þar sem karlmenn verða oftar fyrir líkamlegu ofbeldi (Jón Snorrason og Jón F. Sigurðsson, 2022; Renwick o.fl., 2019) er mikilvægt að stuðningsúrræði nái jafnt til allra starfsmanna.

STYRKLEIKAR OG VEIKLEIKAR

Þrátt fyrir að um hraðsamantekt hafi verið að ræða var stuðst við staðlaða aðferðafræði og viðurkenndar leiðbeiningar. Saman-

Fræðsla og stuðningsúrræði reyndust oft óaðgengileg og starfsfólk leitaði til heimilislækna eða sótti upplýsingar á netinu (Seto o.fl., 2020). Vinnustaðir þurfa að bjóða aðgengilega fræðslu um afleiðingar ofbeldis og þau stuðningsúrræði sem eru í boði (Mistry o.fl., 2022). Skýrari vinnuleiðbeiningar eru nauðsynlegar og þurfa þær að aðlagast hverjum vinnustað (Dean o.fl., 2021; Rodrigues o.fl., 2021).

Mynd 2. Yfirlit yfir eftirsóttan stuðning.

FYLGISKJAL 1 – Gæðamat greina eftir JBI-matslistum (Grænt: Já, rautt: nei, appelsínugult: óljóst)

JBI - gæðamat fyrir þversniðsrannsóknir (e. JBI critical appraisal checklist for analytical cross sectional studies)

1. Voru viðmið fyrir inntöku í úrtaki vel skilgreind?

2. Var vel skýrt frá rannsóknarefni og aðferð?

3. Var útsetning (e. exposure) mæld á gildan og áreiðanlegan hátt?

4. Voru hlutlæg, stöðluð viðmið notuð til að mæla ástand?

5. Voru gruggandi (e. confounding) þættir tilgreindir?

6. Voru aðferðir til að takast á við gruggandi breytur nefndar?

7. Voru niðursdtöður mældar á gildan og áreiðanlegan hátt?

8. Voru viðeigandi tölfræðilegar aðferðir notaðar?

Heildarstig (%):

JBI - gæðamat fyrir hálftilraunasnið (e. JBI appraisal checklist for quasi-experimental studies)

1. Er skýrt í rannsókninni hver orsökin sé og hver sé afleiðingin (s.s. það er enginn ruglingur á hvor breytan kemur fyrst)

2. Voru þátttakendur í samanburðahópi svipaðir?

3. Fengu þáttakendur í samanburðahópi svipaða meðferð/inngrip, aðra en þá sem verið var að skoða?

4. Var viðmiðunarhópur (e. control group)?

5. Voru margar mælingar á útkomu bæði fyrir og eftir meðferð/inngrip?

6. Var eftirfylgni lokið og ef ekki, var mismunur á milli hópa hvað varðar eftirfylgni þeirra lýst og greint frá á viðeigandi hátt?

7. Voru niðurstöður þátttakenda hafðar með í samanburði mælinga á sama hátt?

8. Voru niðurstöður mældar á áreiðanlegan hátt?

9. Var viðeigandi tölfræðigreining notuð?

Heildarstig (%):

Hsieh
o.fl, 2020

JBI - gæðamat fyrir eigindlegar rannsóknir (e. JBI critical appraisal checklist for qualitative research)

1. Er samræmi milli hugmyndafræði og aðferðafræði?

2. Er samræmi milli aðferðafræði og rannsóknarspurningar/tilgangs?

3. Er samræmi milli aðferðafræði og gagnnasöfnunaraðferða?

4. Er samræmi milli aðferðafræði og greiningu gagna?

5. Er samræmi milli aðferðafræði og túlkunar á niðurstöðum?

6. Er menningarleg og kenningarleg staða rannsakenda útskýrð?

7. Eru áhrif rannsakenda á rannsókn skilgreind, og öfugt?

8. Koma þátttakendur, og raddir þeirra, fram á fullnægjandi hátt?

9. Uppfyllir rannsóknin siðferðilegar kröfur, og liggur fyrir samþykki siðanefndar?

10. Kemur ályktun sem dregin er fram frá greiningu, eða túlkun á gögnum?

Heildarstig

JBI - gæðamat fyrir tilfellarannsókn (e. JBI critical appraisal checklist for case reports)

1. Var bakgrunnsupplýsingum sjúklings vel lýst?

2. Var skýrt sagt frá sögu sjúklings og sett fram í tímalínu?

3. Var núverandi klínísku ástandi sjúklings vel lýst?

4. Var skýrt sagt frá greiningu og mat á viðkomandi, og þeim niðurstöðum?

5. Var inngripi eða meðferð vel lýst?

6. Var greint frá aukaverkunum eða óvæntum atburðum, og þeim vel lýst?

7. Hefur tilfellarannsóknin eitthvert kennslugildi?

Heildarstig (%):

ENGLISH SUMMARY

Support following workplace violence in Psychiatric wards: A Rapid Review

doi: 10.33112/th.102.2.6

ABSTRACT

Aim

To synthesize existing knowledge on support mechanisms for staff exposed to violence in psychiatric wards, with the aim of mitigating its physical and psychological consequences. Violence against healthcare workers, especially in psychiatric settings, is a growing concern, often resulting in depression, anxiety, sleep disturbances, and post-traumatic stress. Timely and appropriate support is crucial to reduce these adverse outcomes.

Method

A rapid review of qualitative and quantitative studies was conducted following Cochrane and Joanna Briggs Institute (JBI) guidelines. The PRISMA framework was applied to ensure transparency. Literature was searched in CINAHL, PsycInfo, and PubMed. Inclusion criteria guided study selection, and JBI checklists were used for quality appraisal. Findings were presented in tables and narratively synthesized.

Results

Twelve studies met the criteria: six quantitative and six qualitative. Quantitative samples included 1,437 participants; qualitative studies involved 71. Findings showed that increased support reduced the impact of workplace violence. Staff expressed a need for greater support from supervisors, colleagues, family, and friends, though many did not actively seek help. Two targeted interventions, biofeedback and trauma-focused therapy (EMDR), yielded promising outcomes. Additional supportive strategies included peer support, staff and family education, traumainformed debriefings, and support groups.

Conclusions

Healthcare staff exposed to violence require diverse, structured, and accessible support. Supervisors must be trained in trauma-informed approaches, and workplaces should foster a supportive culture. Appropriate support can significantly reduce the physical and emotional toll of violence, improving staff well-being and professional functioning. These findings inform policy development, clinical practice, and workplace improvements in healthcare settings.

Keywords

workplace violence, psychiatric nursing, social support, psychological distress, work environment

Correspondence gudfinna@landspitali.is

HEIMILDIR

Andersen, L. P., Elklit, A., og Pihl-Thingvad, J. (2021). Work-related violence and organizational commitment among health care workers: Does supervisor's support make a difference? International Archives of Occupational and Environmental Health, 94(7), 1645–1657. https://doi.org/10.1007/s00420-021-01749-0

Andersen, L. P., Elklit, A., og Pihl-Thingvad, J. (2023). Crisis social support after work-related violence and threats and risk for depressive symptoms: A 3-months follow-up study. BMC Psychology, 11(1), 42. https://doi.org/10.1186/s40359-023-01081-x

Baby, M., Glue, P., og Carlyle, D. (2014). ‘Violence is not part of our job’: A thematic analysis of psychiatric mental health nurses’ experiences of patient assaults from a New Zealand perspective. Issues in Mental Health Nursing, 35(9), 647–655. https://doi.org/10.3109/01612840.2014.892552

Bakes-Denman, L., Mansfield, Y., og Meehan, T. (2021). Supporting mental health staff following exposure to occupational violence – Staff perceptions of 'peer' support. International Journal of Mental Health Nursing, 30(1), 158–166. https://doi.org/10.1111/inm.12767

Bekelepi, N., og Martin, P. (2022). Experience of violence, coping and support for nurses working in acute psychiatric wards. The South African Journal of Psychiatry, 28, 1700. https://doi.org/10.4102/sajpsychiatry.v28i0.1700

Berry, K., Allsopp, K., Gaskin, F., og Price, O. (2024). Staff support for workplace trauma: A freedom of information act request survey for NHS trusts providing mental health care in England. Journal of Mental Health, 33(6), 701–705.

Billings, J., Zhan Yuen Wong, N., Nicholls, H., Burton, P., Zosmer, M., Albert, I., Grey, N., El-Leithy, S., Murphy, D., Tehrani, N., Wheatley, J., Bloomfield, M. A. P., og Greene, T. (2023). Post-incident psychosocial interventions after a traumatic incident in the workplace: A systematic review of current research evidence and clinical guidance. European Journal of Psychotraumatology, 14(2), 2281751.

https://doi.org/10.1080/20008066.2023.2281751

Call, J. B., og Shafer, K. (2018). Gendered Manifestations of Depression and Help Seeking Among Men. American Journal of Men's Health, 12(1), 41–51.

https://doi.org/10.1177/1557988315623993

Can, Y. S., Iles-Smith, H., Chalabianloo, N., Ekiz, D., Fernández-Álvarez, J., Repetto, C., Riva, G., og Ersoy, C. (2020). How to relax in stressful situations: A smart stress reduction system. Healthcare, 8(2), 100. https://doi.org/10.3390/healthcare8020100

Chen, Y., Wang, P., Zhao, L., He, Y., Chen, N., Liu, H., Liu, Y., Liu, T., Tang, Y. L., Jiang, F., og Zhu, J. (2022). Workplace violence and turnover intention among psychiatrists in a national sample in China: The mediating effects of mental health. Frontiers in Psychiatry, 13, 855584. https://doi.org/10.3389/fpsyt.2022.855584

Dean, L., Butler, A., og Cuddigan, J. (2021). The impact of workplace violence toward psychiatric mental health nurses: Identifying the facilitators and barriers to supportive resources. Journal of the American Psychiatric Nurses Association, 27(3), 189–202. https://doi.org/10.1177/10783903211010945

d'Ettorre, G., og Pellicani, V. (2017). Workplace violence toward mental healthcare workers employed in psychiatric wards. Safety and Health at Work, 8(4), 337–342. https://doi.org/10.1016/j.shaw.2017.01.004

Edward, K. L., Stephenson, J., Ousey, K., Lui, S., Warelow, P., og Giandinoto, J. A. (2016). A systematic review and meta-analysis of factors that relate to aggression perpetrated against nurses by patients/relatives or staff. Journal of Clinical Nursing, 25(3–4), 289–299. https://doi.org/10.1111/jocn.13019

Flanagan, J. M., og Beck, C. T. (2024). Nursing research: Generating and assessing evidence for nursing practice (12. útg.). Wolters Kluwer. Garrard, J. (2020). Health sciences literature review made easy: The matrix method (6. útg.). Jones and Bartlett, Burlington, MA.

Garritty, C., Gartlehner, G., Nussbaumer-Streit, B., King, V. J., Hamel, C., Kamel, C., Affengruber, L., og Stevens, A. (2021). Cochrane Rapid Reviews Methods Group offers evidence-informed guidance to conduct rapid reviews. Journal of Clinical Epidemiology, 130, 13–22. https://doi.org/10.1016/j.jclinepi.2020.10.007

Graham, H. (2017). The impact of a violent physical assault on a registered nurse: Her healing journey and return to work. Journal of Forensic Nursing, 13(2), 81–86. https://doi.org/10.1097/JFN.0000000000000142

Ham, E., Ricciardelli, R., Rodrigues, N. C., Hilton, N. Z., og Seto, M. C. (2022). Beyond workplace violence: Direct and vicarious trauma among psychiatric hospital workers. A qualitative study. Journal of Nursing Management, 30(6), 1482–1489. https://doi.org/10.1111/jonm.13420

Hamel, C., Michaud, A., Thuku, M., Skidmore, B., Stevens, A., Nussbaumer-Streit, B., og Garritty, C. (2021). Defining rapid reviews: A systematic scoping review and thematic analysis of definitions and defining characteristics of rapid reviews. Journal of Clinical Epidemiology, 129, 74–85. https://doi.org/10.1016/j.jclinepi.2020.09.041

Hilton, N. Z., Ham, E., Rodrigues, N. C., Kirsh, B., Chapovalov, O., og Seto, M. C. (2020). Contribution of critical events and chronic stressors to PTSD symptoms among psychiatric workers. Psychiatric Services, 71(3), 221–227. https://doi.org/10.1176/appi.ps.201900226

Hsieh, H. F., Wang, H. H., Shen, S. H., og Li, Y. C. (2018). Predictors of depressive symptoms among psychiatric nurses who suffered from workplace violence. Journal of Advanced Nursing, 74(2), 425–432. https://doi.org/10.1111/jan.13451

Hsieh, H. F., Huang, I. C., Liu, Y., Chen, W. L., Lee, Y. W., og Hsu, H. T. (2020). The effects of biofeedback training and smartphone-delivered biofeedback training on resilience, occupational stress, and depressive symptoms among abused psychiatric nurses. International Journal of Environmental Research and Public Health, 17(8), 2905. https://doi.org/10.3390/ijerph17082905

Iozzino, L., Ferrari, C., Large, M., Nielssen, O., og de Girolamo, G. (2015). Prevalence and risk factors of violence by psychiatric acute inpatients: A systematic review and meta-analysis. PLOS ONE, 10(6), e0128536. https://doi.org/10.1371/journal.pone.0128536

Jang, S. J., Son, Y. J., og Lee, H. (2022). Prevalence, associated factors and adverse outcomes of workplace violence towards nurses in psychiatric settings: A systematic review. International Journal of Mental Health Nursing, 31(3), 450–468. https://doi.org/10.1111/inm.12951

Joanna Briggs Institute. (2020). Critical appraisal tools https://jbi.global/critical-appraisal-tools

Jón Snorrason og Jón F. Sigurðsson. (2022). Ofbeldi gagnvart starfsfólki geðdeilda Landspítala. Tímarit hjúkrunarfræðinga, 98(2).

Kelly, E. L., Fenwick, K. M., Brekke, J. S., og Novaco, R. W. (2017). Sources of social support after patient assault as related to staff well-being. Journal of Interpersonal Violence, 36(1–2), NP1003–NP1028. https://doi.org/10.1177/0886260517738779 (Birt 2021-original work published 2021) Lim, Z. Y., Idris, D. R., Abdullah, H. M. A. L., og Omar, H. R. (2023). Violence toward staff in the inpatient psychiatric setting: Nurses’ perspectives: A qualitative study. Archives of Psychiatric Nursing, 46, 83–90. https://doi.org/10.1016/j.apnu.2023.08.008

Liu, J., Gan, Y., Jiang, H., Li, L., Dwyer, R., Lu, K., Yan, S., Sampson, O., Xu, H., Wang, C., Zhu, Y., Chang, Y., Yang, Y., Yang, T., Chen, Y., Song, F., og Lu, Z. (2019). Prevalence of workplace violence against healthcare workers: A systematic review and meta-analysis. Occupational and Environmental Medicine, 76(12), 927–937. https://doi.org/10.1136/oemed-2019-105849

Lockwood, C., Munn, Z., og Porritt, K. (2015). Qualitative research synthesis: Methodological guidance for systematic reviewers utilizing meta-aggregation. International Journal of Evidence-Based Healthcare, 13(3), 179–187. https://doi.org/10.1097/XEB.0000000000000062

Mistry, D., Gozna, L., og Cassidy, T. (2022). Psychological and the physical health impacts of forensic workplace trauma. Journal of Forensic Practice, 24(1), 18–33. https://doi.org/10.1108/JFP-05-2021-0027

Moylan, L. B., McManus, M., Cullinan, M., og Persico, L. (2016). Need for specialized support services for nurse victims of physical assault by psychiatric patients. Issues in Mental Health Nursing, 37(7), 446–450. https://doi.org/10.1080/01612840.2016.1185485

Occupational Safety and Health Administration. (2023). Workplace violence https://www.osha.gov/healthcare/workplace-violence/

Page, M. J., McKenzie, J. E., Bossuyt, P. M., Boutron, I., Hoffmann, T. C., Mulrow, C. D., Shamseer, L., Tetzlaff, J. M., Akl, E. A., Brennan, S. E., Chou, R., Glanville, J., Grimshaw, J. M., Hróbjartsson, A., Lalu, M. M., Li, T., Loder, E. W., Mayo-Wilson, E., McDonald, S., … Moher, D. (2021). The PRISMA 2020 statement: An updated guideline for reporting systematic reviews. BMJ, 372, n71. https://doi.org/10.1136/bmj.n71

Pelto-Piri, V., Warg, L. E., og Kjellin, L. (2020). Violence and aggression in psychiatric inpatient care in Sweden: A critical incident technique analysis of staff descriptions. BMC Health Services Research, 20(1), 362. https://doi.org/10.1186/s12913-020-05239-w

Phillips, J. P. (2016). Workplace violence against health care workers in the United States. The New England Journal of Medicine, 374(17), 1661–1669. https://doi.org/10.1056/NEJMra1501998

Renwick, L., Lavelle, M., James, K., Stewart, D., Richardson, M., og Bowers, L. (2019). The physical and mental health of acute psychiatric ward staff, and its relationship to experience of physical violence. International Journal of Mental Health Nursing, 28(1), 268–277. https://doi.org/10.1111/inm.12530

Rodrigues, N. C., Ham, E., Kirsh, B., Seto, M. C., og Hilton, N. Z. (2021). Mental health workers’ experiences of support and help-seeking following workplace violence: A qualitative study. Nursing & Health Sciences, 23(2), 381–388. https://doi.org/10.1111/nhs.12816

Seto, M. C., Rodrigues, N. C., Ham, E., Kirsh, B., og Hilton, N. Z. (2020). Post-traumatic stress disorder, depression, anxiety symptoms and help seeking in psychiatric staff: Trouble de stress post-traumatique, dépression, symptômes d’anxiété et recherche d’aide chez le personnel psychiatrique. Canadian Journal of Psychiatry, 65(8), 577–583. https://doi.org/10.1177/0706743720916356

Smela, B., Toumi, M., Świerk, K., Francois, C., Biernikiewicz, M., Clay, E., og Boyer, L. (2023). Rapid literature review: Definition and methodology. Journal of Market Access & Health Policy, 11(1). https://doi.org/10.1080/20016689.2023.2241234

Torous, J., Wisniewski, H., Bird, B., Carpenter, E., David, G., Elejalde, E., Fulford, D., Guimond, S., Hays, R., Henson, P., Hoffman, L., Lim, C., Menon, M., Noel, V., Pearson, J., Peterson, R., Susheela, A., Troy, H., Vaidyam, A., … Keshavan, M. (2019). Creating a digital health smartphone app and digital phenotyping platform for mental health and diverse healthcare needs: An interdisciplinary and collaborative approach. Journal of Technology in Behavioral Science, 4(2), 73–85. https://doi.org/10.1007/s41347-019-00095-w

Tricco, A. C., Langlois, E. V., og Straus, S. E. (2021). Rapid reviews to strengthen health policy and systems: A practical guide (2017). World Health Organization. https://iris.who.int/bitstream/handle/10665/258698/9789241512763-eng. pdf?sequence=1&isAllowed=y

Tricco, A. C., Khalil, H., Holly, C., Feyissa, G., Godfrey, C., Evans, C., Sawchuck, D., Sudhakar, M., Asahngwa, C., Stannard, D., Abdulahi, M., Bonnano, L., Aromataris, E., McInerney, P., Wilson, R., Pang, D., Wang, Z., Cardoso, A. F., Peters, M. D. J., Marnie, C., … Munn, Z. (2022). Rapid reviews and the methodological rigor of evidence synthesis: A JBI position statement. JBI Evidence Synthesis, 20(4), 944–949. https://doi.org/10.11124/JBIES-21-00371

van Emmerik, A. A., Kamphuis, J. H., Hulsbosch, A. M., og Emmelkamp, P. M. (2002). Single session debriefing after psychological trauma: A meta-analysis. The Lancet, 360(9335), 766–771. https://doi.org/10.1016/S0140-6736(02)09897-5

Yousaf, O., Grunfeld, E. A., og Hunter, M. S. (2015). A systematic review of the factors associated with delays in medical and psychological help-seeking among men. Health Psychology Review, 9(2), 264–276. https://doi.org/10.1080/17437199.2013.840954 Wohlin, C. (2014). Guidelines for snowballing in systematic literature studies and a replication in software engineering. Proceedings of the 18th International Conference on Evaluation and Assessment in Software Engineering https://doi.org/10.1145/2601248.2601268

World Health Organization. (n.d.). Violence and harassment. Sótt á: https://www.who.int/tools/occupational-hazards-in-health-sector/violence-harassment World Health Organization. (2002). Framework guidelines for addressing workplace violence in the health sector https://iris.who.int/bitstream/handle/10665/42617/9221134466.pdf?sequence=1 World Health Organization. (2023a). Preventing violence against health workers https://www.who.int/activities/preventing-violence-against-health-workers World Health Organization. (2023b). PTSD https://applications.emro.who.int/docs/WHOEMMNH235E-eng.pdf?ua=1 Zhao, S. H., Shi, Y., Sun, Z. N., Xie, F. Z., Wang, J. H., Zhang, S. E., Gou, T. Y., Han, X. Y., Sun, T., og Fan, L. H. (2018). Impact of workplace violence against nurses’ thriving at work, job satisfaction and turnover intention: A cross-sectional study. Journal of Clinical Nursing, 27(13–14), 2620–2632. https://doi.org/10.1111/jocn.14311

Takk fyrir stuðninginn

Fermentation

Nokkrir góðir punktar:

• Þjónustuborð á vellinum í Búdapest

• Akstur frá velli á samstarfshótelið og til og frá stofunni

• Íslenskumælandi ráðgjafar á staðnum

• Öll gögn á Íslensku

• 28 ára rekstrarsaga

• Fjöldi alþjóðlegra verðlauna og viðurkenninga

• Ábyrgðir sem halda

• 50-70% lægra verð

• Eftirfylgni á Íslandi

Grímur Axelsson

Tengiliðurinn þinn á Íslandi

Attila (Atli) Korsós Íslenskumælandi þjónustustjóri á stofunni

Kreativ Dental er með iso 9001-vottun sem tryggir gæðin í öllu þínu ferli.

Bjartara bros í Búdapest og verð sem kallar það fram!

28 ár frá stofnun og í 10 ár höfum við talað íslensku og verið með íslenskumælandi ráðgjafa á íslandi og í Búdapest, sem þýðir að þú hefur milliliðalaus samskipti við eina virtustu tannlæknastofu Evrópu

Ekki spillir að við höfum náð að halda verði nær óbreyttu í yfir 10 ár

Verð í mars 2016 ... og í dag

Millistykki Innifalið í verði

Zirkonium króna 490 Evrur

Tannplanti 680 Evrur

Sláðu á þráðinn í síma 859 9403 eða sendu okkur póst á grimur@kreativdentalclinic.eu Heimasíða okkar er www.kreativdental.is Svo getur þú alltaf fundið okkur á Facebook facebook.com/kreativdentalisland

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook