Skip to main content

Tímarit hjúkrunarfræðinga 1.tbl 2026

Page 1


Tímarit HJÚKRUNARFRÆÐINGA

The Icelandic Journal of Nursing | 1. tbl. 2026 | 102. árgangur

Guðbjörg Pálsdóttir, brautryðjandi í sárahjúkrun á Íslandi

„Sjálf er ég hætt að kenna en ég hef verið í liði með góðu fólki sem nú tekur við kyndlinum og ég er ótrúlega stolt af því. Það er svo dýrmætt að hafa náð að vekja áhuga á sárafræðunum hjá svona mörgum, nú þegar ég stíg til hliðar.“

„Það er seiglan sem kemur manni í mark.“

Ingibjörg Lára Símonardóttir, yfirhjúkrunarfræðingur

RITRÝNDAR GREINAR

‒ Áhrif innleiðingar stafrænnar tækni á störf hjúkrunarfræðinga á hjúkrunarheimilum‒

‒ „Þetta gerir mig bara að betri deildarstjóra“ - Reynsla deildarstjóra af áhrifum faghandleiðslu ‒

‒Að líknin hafi meira vægi við lok lífs - Hlutverk og reynsla hjúkrunarfræðinga á gjörgæsludeild ‒

‒ Kapphlaupið við tímann - Starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga á skurðlækningadeildum Landspítala‒

‒ Að ráða við ummönnun sjúklinga í óreiðukenndu umhverfi - Sjúkraliðar á skurðdeildum Landspítala‒

LSR er til staðar fyrir þig á mörgum helstu tímamótum ævinnar. Sem sjóðfélagi öðlastu víðtæk réttindi – kynntu þér þau á lsr.is.

Hjá okkur geturðu líka fengið séreignarsparnað, sem er ekki aðeins bein launahækkun fyrir þig, heldur líka ein besta sparnaðarleið sem völ er á. Við bjóðum einnig fasteignalán, bæði verðtryggð og óverðtryggð.

Nú geturðu sótt um bæði séreignarsparnað og fasteignalán á vefnum okkar. Kynntu þér málið á lsr.is.

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

Efnisyfirlit

Ritrýnd grein: Hlutverk og reynsla hjúkrunarfræðinga á gjörgæsludeild 30 10 14 40 22 26

10

14

Viðtal – Elísa Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur setur markið hátt og ætlar að reyna að innleiða heilsugæslu í Þýskalandi

Leiðtoginn – Ragna Gústafsdóttir, hjúkrunardeildarstjóri á blóð- og krabbameinslækningadeild LSH

Forsíðuviðtalið er við Guðbjörgu Pálsdóttur, sérfræðing í hjúkrun sjúklinga með sár, sem stígur nú til hliðar og fer yfir farsælan ferilinn

20 Vaktin mín – Nanna Bryndís Snorradóttir, hjúkrunarfræðingur og flæðissstjóri skurðlækningasviðs í Fossvogi

22 Leiðtoginn – Ingibjörg Lára Símonardóttir, yfirhjúkrunarfræðingur svæðis HSN Akureyri

26 Nýtt námskeið fyrir hjúkrunarfræðinga – Áföll, streita og taugakerfið

30 Háskólakennarinn – Eydís Kristín Sveinbjarnardóttirhefur kennt í tæp fjörutíu ár

34 Neminn – Þóra Erlingsdóttir er spennt að fara að starfa erlendis

36 Upplýsingafundur um framtíðarsýn hjúkrunarfræðináms á Íslandi

40 Trúnaðarmaðurinn Heiða Hauksdóttir – segir valdeflandi að skilja hvernig kerfið virkar

42 Neminn – Sandra Aradóttir segir bráðahjúkrun vera skemmtilegasta fagið

44 Viltu verða skurð- eða svæfingahjúkrunarfræðingur?

46 Nýtt örnám á meistarastigi í hjúkrun verður í boði haustið 2026

48 Mín skoðun – Helga Bragadóttir

50 Fræðslugrein – Hjúkrun sjúklinga í einangrun, hvað getum við gert betur?

54

64

74

84

94

Ritrýnd grein: Að ráða við umönnun sjúklinga í óreiðukenndu umhverfi. Rýnihóparannsókn meðal sjúkraliða á skurðdeildum Landspítala

Ritrýnd grein: Kapphlaupið við tímann: Rýnihóparannsókn á starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga á skurðlækningadeildum Landspítala

Ritrýnd grein: „Þetta gerir mig bara að betri deildarstjóra“ Reynsla deildarstjóra hjúkrunar af áhrifum faghandleiðslu á líðan þeirra og störf

Ritrýnd grein: Að líknin hafi meira vægi við lok lífs

Kraftaverk með súkkulaði

Kæri lesandi, líklega ertu hjúkrunarfræðingur og mögulega hjúkrunarfræðingur í páskafríi og þá er ekki ólíklegt að gómsætt súkkulaðiegg sé innan seilingar og jafnvel líka ilmandi kaffibolli. Ég vona að minnsta kosti að þú sért að njóta lestursins og hafir nægan tíma til að drekka í þig fróðleik því þetta fyrsta blað ársins telur 104 blaðsíður. Fræðandi, faglegar og sumar meira segja skemmtilegar þótt ég segi sjálf frá. Nú og ef hvorki viðtölin né fimm ritrýndu fræðigreinarnar höfða til þín, lesandi góður, þá eru margar fallegar myndir sem prýða síðurnar og flestar af hjúkrunarfræðingum sem hafa skarað fram úr, látið draumana rætast eða rutt brautina eins og sú sem er á forsíðu blaðsins. Það er Guðbjörg Pálsdóttir, frumkvöðull í hjúkrun sjúklinga með sár hér á landi. Áhugi hennar á sárameðferð kviknaði fyrst þegar hún upplifði vanþekkingu og hversu flókið ferli sárgræðsla er. Vanþekkingin sáði má segja frumkvöðlafræi því Guðbjörg fór þá að leita sé þekkingar og að frekara námi sem myndi nýtast henni í hjúkrun sjúklinga með sár. Hún fann nám í Danmörku og komst inn en námið var samt eingöngu ætlað dönskum hjúkrunarfræðingum. Hvernig hún fór að því, verandi íslensk, má lesa um í viðtalinu en hún gafst ekki upp þrátt fyrir mótvind í upphafi. Námið í Danmörku reyndist mikið gæfuspor og þar með hófst vegferð og frumkvöðlastarf Guðbjargar sem snýr að sjúklingum með sár og að kennslu og fræðslu um sárameðferð. Námskeiðin hennar hafa verið þau vinsælustu hjá Fíh um áraraðir en hún hélt ekki einungis námskeið því hún var líka farin að kenna hjúkrunarfræðinemum við Háskóla Íslands megnið af því sem var til náms um almenna sárameðferð. Það hvatti hana svo til þess að fara í meistaranám því henni fannst hún þurfa að hafa meistaragráðu til að vera háskólakennari. Guðbjörg fékk svo sérfræðiréttindi í hjúkrun sjúklinga með sár árið 2012 og var lengi vel sú eina með þessi sérfræðiréttindi hér á landi. Mögnuð kona með góða nærveru og mikla þekkingu og ég mæli með viðtalinu við hana hér í blaðinu.

Það eru fleiri frumkvöðlar í þessu fyrsta blaði ársins því Elísa Jóhannsdóttir réðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur en hún hefur það risavaxna verkefni að innleiða heilsugæslu í Þýskalandi. Já þið lásuð rétt, öflugur hjúkrunarfræðingur frá Íslandi flutti til Þýskalands fyrir aldamótin og hefur þar unnið fjölmörg störf, meðal annars var hún aðstoðarhjúkrunarforstjóri á Klinik Löwenstein-lugnasjúkrahúsinu og hjúkrunarforstjóri á almennu sjúkrahúsi. Fyrir áratug gerðist svo eitthvað innra með henni. Hún var búin að fá sig fullsadda af heilbrigðiskerfinu í Þýskalandi þar

sem mannekla, niðurskurður og erfið dómsmál átti allt sinn þátt í því að hún ákvað að hætta. „Við vorum í fríi heima á Íslandi þegar ég fann það bara að ég gat ekki hugsað mér að snúa til baka, ég var orðin örmagna og búin að fá nóg. Ég var þarna 46 ára og ákvað að ég vildi gera eitthvað annað,“ sagði Elísa þegar ég hitti hana á kaffihúsi í Reykjavík snemma á árinu. Hún ákvað að söðla um og vera sinn eigin herra og stofnaði fyrirtæki.

Árið 2021 var hún svo farin að kenna stjórnun í heilbrigðiskerfinu í tveimur háskólum norðan München og sérhæfði sig m.a. í hagfræði heilbrigðiskerfisins. Þá kom að máli við hana kona sem var þá yfir Rauða kross sjúkrahúsunum í Þýskalandi sem sagðist vilja sækja um styrk hjá heilbrigðisráðuneytinu í Bæjaralandi til að setja á laggirnar heilsugæslu. Hún vildi fá Elísu til að halda utan um verkefnið, ásamt annarri konu, sækja um styrk, teikna upp og skipuleggja hvernig hægt væri að innleiða heilsugæslu í 10.000 manna bæjarfélagi. Á þessum tíma var hugtakið heilsugæsluhjúkrun má segja óþekkt í Þýskalandi en Elísa var tilbúin í þessa áskorun, bretti upp ermar og drakk í sig þekkingu. Þær bjuggu til líkan, fengu 70 milljóna króna styrk og fóru í samstarf við stóra heimilislæknastofu í Bæjaralandi. Í maí á síðasta ári hóf svo fyrsta heilsugæslan í Þýskalandi starfsemi og er tilraunaverkefni til tveggja ára.

Ég tek hatt minn ofan fyrir þessum frumkvöðlakrafti og seiglu en Elísa er hvergi nærri hætt því núna eru þær stöllur að vinna að því að finna fjármögnum til að halda áfram eftir að tilraunaverkefninu líkur. „Markmiðið er að koma á heilsugæslum í sem flestum bæjum og borgum í Þýskalandi og við erum í samtali við stjórnmálafólk og fleiri áhrifaríka aðila til í að reyna að láta það verða að veruleika,“ segir Elísa brött og stolt í mjög skemmtilegu og hvetjandi viðtali í blaðinu. Mæli með því og öllu hinu sem fyllir síður þessa fyrsta tölublaðs ársins. Það er smekkfullt af frábæru efni, fræðigreinum, frumkvöðlum og faglegum fyrirmyndum.

Að lokum verð ég að minnast á nýtt námskeið um áföll, streitu og taugakerfið sem tveir framúrskarandi hjúkrunarfræðingar voru að byrja með og vekur mikla lukku. Það fjallar um afleiðingar áfalla og streitu á heilsuna og hvernig er hægt að efla seiglu til að takast á við áföll og öldugang lífsins og styrkja taugakerfið með hugleiðslu, þakklæti og jákvæðu hugarfari svo fátt eitt sé nefnt. Það er alveg magnað hvað jákvætt hugarfar og hugleiðsla kemur manni langt á erfiðum stundum og það að iðka þakklæti getur gert kraftaverk segja sumir. Ef það virkar og eykur vellíðan segi ég, já takk og ekki er verra að fá páskasúkkulaði með því.

Gleðilega páska og hafið það sem best, kæru hjúkrunarfræðingar, nær og fjær og ... takk fyrir ykkur!

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Suðurlandsbraut 22 · 108 Reykjavík

Sími: 540 6400

hjukrun.is

Útgefandi: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigríður Elín Ásmundsdóttir

Ritnefnd: Hildur Dís Kristjánsdóttir, Sólveig Hauksdóttir, Ragnheiður Haralds Eiríksdóttir Bjarman

Ritstjóri ritrýndra greina: Sigrún Sunna Skúladóttir

Ritnefnd ritrýndra greina: Herdís Sveinsdóttir, Inga Valgerður Kristinsdóttir, Kristín Linda H. Hjartardóttir

Yfirlestur: Ragnheiður Linnet

Auglýsingar: Erna Sigmundsdóttir

Umbrot: Prentmet Oddi

Forsíðumynd: Sigríður Elín Ásmundsdóttir

Prentun: Prentmet Oddi

ISSN 1022-2278

Pistill ritstjóra

Nokkrir góðir punktar:

• Þjónustuborð á vellinum í Búdapest

• Akstur frá velli á samstarfshótelið og til og frá stofunni

• Íslenskumælandi ráðgjafar á staðnum

• Öll gögn á Íslensku

• 28 ára rekstrarsaga

• Fjöldi alþjóðlegra verðlauna og viðurkenninga

• 50-70% lægra verð

Grímur Axelsson

Tengiliðurinn þinn á Íslandi

Attila (Atli) Korsós

Íslenskumælandi

þjónustustjóri á stofunni

Kreativ Dental er með iso 9001-vottun sem tryggir gæðin í öllu þínu ferli.

Bjartara bros í Búdapest

og verð sem kallar það fram!

28 ár frá stofnun og í 10 ár höfum við talað íslensku og verið með íslenskumælandi ráðgjafa á íslandi og í Búdapest, sem þýðir að þú hefur milliliðalaus samskipti við eina virtustu tannlæknastofu Evrópu

Ekki spillir að við höfum náð að halda verði nær óbreyttu í yfir 10 ár

Verð í mars 2016 ... og í dag

Millistykki

Innifalið í verði

Zirkonium króna 490 Evrur

Tannplanti 680 Evrur

Sláðu á þráðinn í síma 859 9403 eða sendu okkur póst á grimur@kreativdentalclinic.eu Heimasíða okkar er www.kreativdental.is

Svo getur þú alltaf fundið okkur á Facebook

Raunveruleiki hjúkrunarfræðinga

Kæru hjúkrunarfræðingar.

Íslenskt heilbrigðiskerfi stendur á ákveðnum tímamótum. Fyrir liggur alvarlegur vandi: skortur á hjúkrunarrýmum fyrir aldraða. Þessi staða kemur þó ekki á óvart. Um árabil hefur öllum verið ljóst að stórir árgangar fólks, sem fæddust fyrir 80–90 árum, myndu á þessum tíma þurfa í auknum mæli á umönnun og hjúkrun að halda. Þróunin hefur því verið fyrirsjáanleg.

Hjúkrunarfræðingar, og annað fagfólk, hafa ítrekað varað við þessari stöðu og bent á að ef ekki yrði fjárfest markvisst í innviðum og hjúkrunarþjónustu myndi skortur á úrræðum verða verulegur. Sú fjárfesting hefur hins vegar ekki orðið í þeim mæli sem þörf var á. Afleiðingin er sú að veikt og hrumt fólk fær annaðhvort þjónustu á röngu þjónustustigi eða fær einfaldlega ekki þá þjónustu sem það þarf. Sú staða sem lengi hefur verið varað við er nú orðin að veruleika.

Því vaknar eðlileg spurning: ef vandinn hefur verið öllum ljós svo lengi, hvers vegna hefur ekki fyrir löngu verið gripið til nægjanlegra aðgerða og tryggt fjármagn til að mæta honum?

Ríkisstjórnir hafa á hverjum tíma lagt áherslu á að segja frá því sem gert hefur verið í þeirra tíð. En það breytir ekki stöðunni eins og hún er í dag. Fyrir þá sem þurfa á hjúkrun að halda er ástandið einfaldlega óviðunandi. Þegar staðan er með þeim hætti sem raun ber vitni er lítil huggun í því að telja upp það sem hefur verið gert. Það er augljóst að það var ekki nóg. Íslenskir hjúkrunarfræðingar hafa um áratugaskeið sýnt seiglu, frumkvæði og framsýni. Þeir hafa skapað nýja þekkingu, sótt sér þekkingu erlendis og innleitt hana hér á landi af eigin rammleik, knúnir áfram af hugsjón, fagmennsku og metnaði.

Við megum ekki gleyma því að íslenskt heilbrigðiskerfi stendur á margan hátt framarlega á heimsvísu. Það er mikilvægt að halda þeirri staðreynd til haga. Sú staða er fyrst og fremst fólkinu að þakka sem starfar innan kerfisins.

Það vekur þó spurningar hvers vegna við stöndum framarlega á sumum sviðum heilbrigðisþjónustunnar en mun verr á öðrum og hvar við stöndum verst að vígi.

Svarið er skýrt: neyðin er mest þar sem skortur er á hjúkrun. Hjúkrun hefur ekki fengið það vægi í skipulagi og uppbyggingu heilbrigðisþjónustunnar sem þörf er á.

Fjárfesting í hjúkrun, bæði í mannauði og innviðum, hefur ekki fylgt þeirri þróun sem lengi var fyrirsjáanleg. Afleiðingin er sú að skortur á hjúkrunarfræðingum og hjúkrunarrýmum hefur víðtæk áhrif um allt heilbrigðiskerfið.

Skortur á yfirsýn, stefnumótun og samræmdum áætlunum í málefnum hjúkrunar á Íslandi er sláandi, sérstaklega síðustu árin, einmitt þann tíma sem liðinn er síðan embætti yfirhjúkrunarfræðings var lagt niður.

Á þessum tíma hefur hjúkrun ítrekað verið vanmetin. Hún hefur verið útþynnt í umræðunni, eins og hún sé sjálfsögð, sjálfvirk og þurfi hvorki uppbyggingu, þróun né faglegan grunn.

Raunin er sú að hjúkrun er einn af hornsteinum heilbrigðiskerfisins. Hún krefst sérfræðiþekkingar, menntunar og gagnrýnnar hugsunar. Hún krefst framþróunar og fagmennsku.

Þegar horft er til stöðunnar á Íslandi er mikilvægt að stofnað verði embætti yfirhjúkrunarfræðings í stjórnsýslunni að nýju, samkvæmt tilmælum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Embættið myndi veita yfirvöldum faglega leiðsögn og hafa yfirsýn yfir stefnumótun sem tryggir gæði, öryggi og aðgengi að heilbrigðisþjónustu, auk þess að móta framtíðarsýn um sjálfbæra þróun heilbrigðiskerfisins með hagsmuni samfélagsins að leiðarljósi.

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga mun áfram tala fyrir því að embætti yfirhjúkrunarfræðings verði innleitt hér á landi, því með réttri hjúkrun farnast fólki betur. Það er ekki skoðun heldur margrannsökuð staðreynd.

Það er mikilvægt að halda því til haga að þegar hjúkrunarfræðingar tala fyrir hjúkrun og öruggu starfsumhverfi sínu eru þeir ekki aðeins að tala fyrir eigin starfsstétt, heldur einnig fyrir auknum lífsgæðum og betri lifun þeirra sem þurfa á hjúkrun að halda.

Undanfarið hafa borist alvarlegar fréttir af málum þar sem hjúkrunarfræðingar hafa sætt ásökunum um saknæmar gjörðir og sætt afar íþyngjandi meðferðum. Slík mál eru erfið og sársaukafull fyrir alla sem að þeim koma, hjúkrunarfræðinginn sjálfan og fjölskyldu hans, sjúklinginn, fjölskyldur hans og annað starfsfólk.

Hjúkrunarfræðingar eru í sérstaklega viðkvæmri stöðu við að sinna veiku og stundum deyjandi fólki þar sem atvik geta virst með þeim hætti að tortryggni vakni. Enginn heldur því fram að heilbrigðisstarfsfólk eigi að vera undanþegið ábyrgð þegar það hefur sannanlega brotið af sér en það er lágmarkskrafa að umgjörð starfsins og ferli við rannsókn mála sé skýr, fagleg og sanngjörn.

Það er því miður ekki staðan í dag.

Í desember 2023 var gerð lagabreyting sem Fíh fagnaði á sínum tíma en taldi þó að löggjafinn hefði getað gengið lengra. Markmið lagabreytinganna var að efla öryggi sjúklinga með sterkari öryggis-

Pistill

menningu innan heilbrigðiskerfisins og fækka þeim málum sem færu til lögreglu, auk þess að bæta starfsumhverfi heilbrigðisstarfsmanna með auknu réttaröryggi. Til þess var meðal annars lögfest hlutlæg, uppsöfnuð refsiábyrgð rekstraraðila heilbrigðisþjónustu, rannsókn alvarlegra atvika hjá embætti landlæknis styrkt og lögð áhersla á að heilbrigðisstofnanir skipuleggi starfsemi sína þannig að heilbrigðisstarfsmenn geti staðið við lögbundnar skyldur sínar. Í framhaldi af lagabreytingunni skyldi skipa starfshóp sem falið yrði að greina fyrirkomulag rannsókna á alvarlegum atvikum í heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að greina hvaða fyrirkomulag sé best til þess fallið að tryggja óháða málsmeðferð.

Nú, rúmum tveimur árum eftir að lagabreytingin tók gildi, hefur þessi starfshópur ekki enn hafið störf. Að auki er eftirliti með þjónustunni ábótavant og starfsumhverfi langt frá því sem ásættanlegt er hjá stórum hluta hjúkrunarfræðinga. Við þessar aðstæður vaknar spurningin: eiga hjúkrunarfræðingar einir að bera ábyrgð á því sem miður fer þegar umgjörðin sjálf er brotin?

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga mun beita sér af festu fyrir því að rannsókn alvarlegra atvika, eftirlit og samspil ábyrgðar og löggæslu fari í skýran og sanngjarnan farveg. Bæði fyrir hjúkrunarfræðinga og ekki síður fyrir öll þau sem þurfa á hjúkrun að halda.

Hjúkrun og heilbrigðisþjónusta verður sífellt flóknari. Til að sinna hjúkrun þarf þekkingu, þroska og hugrekki. Hjúkrunarfræðingar standa daglega frammi fyrir erfiðum aðstæðum þar sem þeir leggja allt kapp á að gera sitt besta fyrir fólk sem er veikt, viðkvæmt eða á síðustu stundum lífs síns. Í krefjandi starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga þarf styrkan, faglegan og viðamikinn þekkingargrunn til að standa á. Þess vegna skiptir góð menntun hjúkrunarfræðinga gríðarlegu máli.

Í þessu tímariti og einnig í því næsta, verður fjallað sérstaklega um framtíðarsýn fyrir menntun hjúkrunarfræðinga á Íslandi. Það er mikilvægt að hjúkrunarfræðingar kynni sér þá umræðu, myndi sér skoðun og taki þátt í henni.

Ef hjúkrunarfræðingar taka ekki sjálfir forystu um menntun sinnar eigin stéttar munu aðrir gera það á forsendum sem ekki endilega þjóna hjúkrunarfræði eða þeim sem á hjúkrun þurfa að halda.

Verkefnin fram undan eru mörg og krefjandi. Hjúkrunarfræðingar á Íslandi hafa lengi sýnt framsýni og þrautseigju þegar kemur að því að standa vörð um góða heilbrigðisþjónustu. Ég mun leiða þá vegferð af ákveðni fyrir hönd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og treysti á áframhaldandi samstöðu og þátttöku ykkar í því mikilvæga starfi.

formaður Fíh

Aðalfundur 2026

Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verður haldinn

þriðjudaginn 19. maí 2026 á Grand Hótel og á Teams

Óskað eftir framboðum

Kjörnefnd Fíh auglýsir eftir framboðum fyrir kjörtímabilið 2026-2028. Óskað er eftir:

• Þremur aðalmönnum og einum varamanni í stjórn Fíh

• Þremur aðalmönnum í ritnefnd

• Tveimur skoðunarmönnum reikninga

Framboð tilkynnist til kjörnefndar í netfangið kjornefnd@hjukrun.is. Framboðsfrestur er til og með 21. apríl, kosning fer fram á aðalfundi. Frambjóðendur eru beðnir um að skila til kjörnefndar fullu nafni, kennitölu, símanúmeri og netfangi.

Tilnefningar fyrir hvatningarstyrki

Óskað er eftir tilnefningum fyrir hvatningarstyrki. Tilnefningum ber að skila inn fyrir 24. apríl og senda á formann Fíh, formadur@hjukrun.is.

Nánar á hjukrun.is

Tilnefning heiðursfélaga

Óskað er eftir tilnefningum til heiðursfélaga Fíh. Tilnefningum ber að skila inn fyrir 24. apríl og senda á formann Fíh, formadur@hjukrun.is.

Elísa Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur setur markið hátt og ætlar að innleiða heilsugæslu í Þýskalandi

Stærsta áskorunin að fá fólk

til að trúa á verkefnið

Texti og myndir: Sigríður Elín Ásmundsdóttir

Lítill fugl hvíslaði því ritstýrunni að Elísa Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur hefði áhugaverða sögu að segja en hún væri að vinna mikið frumkvöðlastarf við innleiðingu heilsugæslu í Þýskalandi þar sem hún er búsett. Við slógum á þráðinn til Elísu og svo heppilega vildi til að hún var einmitt stödd hér á landi. Við mæltum okkur því mót á kaffihúsi einn ískaldan janúarmorgun þar sem ritstýran rakti úr henni garnirnar yfir ilmandi heitu súkkulaði með rjómaslettu.

Fyrsta spurning vekur forvitni til að byrja með: Er virkilega ekki heilsugæsla í Þýskalandi? „Nei,“ svarar hún og bætir við að því sé engin skólahjúkrun í Þýskalandi og ung- og smábarnavernd sé alfarið í höndum lækna. „Heilbrigðiskerfið þarna úti er mjög læknamiðað. Hjúkrunarnámið er ekki á háskólastigi og innan við 1% hjúkrunarfræðinga í Þýskalandi eru með B.S.-gráðu. Hjúkrunarfræðingar í Þýskalandi eru heldur ekki með eigið stéttarfélag og launin eru langt fyrir neðan það sem við þekkjum í Skandinavíu. Hjúkrunarnámið er þrjú ár eftir grunnskóla og þar af leiðandi er mjög takmarkað sem hjúkrunarfræðingar mega gera; þeir mega til að mynda ekki taka blóðprufur, gefa í æð eða endurlífga,“ útskýrir hún og undrun ritstýrunnar leynir sér ekki.

Við ætlum að spóla alveg aftur til þess tíma þegar Elísa flutti til Þýskalands. Hvenær var það og hvers vegna Þýskaland? „Kærastinn minn, Kjartan, sem í dag er eiginmaður minn, var að fara í framhaldsnám, við vorum þá bara búin að vera saman í eitt ár, og ég ákvað að fara með honum.“

Elísa kláraði hjúkrunarfræðinámið 1997 og vann á hjartadeildinni í rúmt ár áður en hún flutti svo út haustið 1998. „Ég fór að starfa á milligjörgæsludeild (intermediate care) á stóru 2.500 rúma sjúkrahúsi sem heitir Klinikum Großhadern. Það reyndist mér erfitt að mega ekki sinna sömu störfum og ég var vön að mega sinna heima á Íslandi. Ég varð svo fljótlega ólétt og eignaðist Freyju Rún, frumburðinn okkar, árið 2000 og ákvað í fæðingarorlofinu að fara í fjarmeistaranám í stjórnun við háskóla í London. Ég varð svo aftur ólétt af Jóhanni Erni stuttu seinna og var heimavinnandi til ársins 2003,“ segir hún þegar hún rifjar upp þessi fyrstu ár sem fjölskyldan var búsett í Þýskalandi.

Aðstoðarhjúkrunarforstjóri á lungnasjúkrahúsi Elísa fór aftur út á vinnumarkaðinn árið 2003, þá tveimur börnum og einni meistaragráðu ríkari. Hún fékk þá stöðu sem aðstoðarhjúkrunarforstjóri á Klinik Löwenstein lugnasjúkrahúsinu þar sem hún starfaði í fjögur ár, til ársins 2007. „Þá réði ég mig á almennt sjúkrahús þar sem ég var hjúkrunarforstjóri til 2010, fór svo aftur á lugnasjúkrahúsið og var þar hjúkrunarforstjóri til lok árs 2016. Þá var ég komin með upp í kok af heilbrigðiskerfinu þarna úti; mannekla, endalaus niðurskurður og erfið dómsmál sem komu

upp, allt átti þetta sinn þátt í því að ég ákvað að segja upp. Við vorum í fríi heima á Íslandi þegar ég fann það bara að ég gat ekki hugsað mér að snúa til baka, ég var orðin örmagna og búin að fá nóg. Ég var þarna 46 ára og ákvað að ég vildi gera eitthvað annað. Ég hætti um áramót og tók mér frí í þrjá mánuði til að hugsa málið og meta stöðuna.“

Elísa ákvað í kjölfarið að söðla um, venda kvæði sínu í kross og vera sinn eigin herra. „Ég dreif mig í að læra markþjálfun og stofnaði fyrirtækið mitt sem heitir EJ-Pflegekompetenz þar sem ég einbeiti mér að stjórnendum í heilbrigðiskerfinu, að námskeiðum fyrir þann hóp. Ég er með námskeið, markþjálfun og ráðgjöf þar sem stjórnun er rauði þráðurinn. Ég er samt ekki eingöngu að sinna fólki úr heilbrigðiskerfinu því ég hef líka verið með ráðgjöf og námskeið fyrir til að mynda verkfræðinga og skólastjóra en ég er samt mest með fólk sem starfar innan heilbrigðiskerfisins. Sjúkrahúsin fá mig gjarnan til að taka að mér einstaklinga eða hópa og oftar en ekki tengist það samskiptum á einn eða annan hátt. Oft er ég beðin um að stíga inn og aðstoða þegar erfið samskiptamál koma upp en einnig mikið þegar verið er að sameina deildir og það þarf að stokka upp stjórnun eða skipulag,“ útskýrir hún og klárar kaffibollann.

Heilsugæsla í litlu bæjarfélagi tilraunaverkefni

Elísa hefur frá 2017 sinnt sínu fyrirtæki og alla tíð verið eini starfsmaðurinn. „Árið 2021 var ég svo farin að kenna stjórnun í heilbrigðiskerfinu í tveimur háskólum norðan München og sérhæfði mig svolítið í hagfræði heilbrigðiskerfisins. Þetta sama ár kom að máli við mig og Dr. Christine Aumer, samstarfskonu mína í háskólanum í Deggendorf, kona sem var þá yfir Rauða kross sjúkrahúsunum í Þýskalandi. Hún sagðist vilja sækja um styrk hjá heilbrigðisráðuneytinu í Bæjaralandi til að setja á laggirnar heilsugæslu í Lindenberg im Allgäu. Þessi ágæta kona sem heitir Edith Dürr vildi fá okkur til að halda utan um verkefnið, búa til umsókn um styrk og teikna upp og skipuleggja hvernig hægt væri að innleiða heilsugæslu í þessu rúmlega 10.000 manna bæjarfélagi sem er ekki langt frá Bodensee. Á þessum tíma var hugtakið community health nursing eða heilsugæsluhjúkrun má segja óþekkt í Þýskalandi. Við Christine hittumst svo í júní þetta sama

„Þann

2. maí hóf svo fyrsta heilsugæslan í Þýskalandi starfsemi sem er tilraunaverkefni til tveggja ára.“

ár og byrjuðum að skipuleggja. Við vildum byggja þetta upp fræðilega, lásum mjög mikið af fræðigreinum og kynntum okkur vel hvað væri að gerast í heilsugæsluhjúkrun í heiminum og hvernig þróunin væri. Ég hafði líka samband við vinkonur mínar til fjölda ára, þær Heiðlóu Ásvaldsdóttur sem er hjúkrunarforstjóri á heilsugæslunni Kirkjusandi og Sólrúnu Ólínu Sigurðardóttur sem starfar hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og fékk að kynnast þeirra störfum. Ég fylgdi þeim eftir á þeirra vinnustöðum og tók við þær viðtöl og svona unnum við Christine þetta.

Eftir tæp tvö ár þegar ég var búin að taka viðtöl við marga hjúkrunarfræðinga og við Christine vorum búnar að lesa ógrynni af efni og kynna okkur hugmyndafræði og annað varðandi heilsugæslu og hjúkrun. Bjuggum við til líkan sem lýsir hvernig heilsugæsluhjúkrunarfræðingar gætu starfað. Við skiptum líkaninu í fernt; upplýsingasöfnun, meðhöndlun krónískra sjúkdóma, eflingu heilsulæsis, lífsstílsráðgjöf og samræmingu þjónustu. Yfir þessum grunnþáttum, stendur heilbrigðisvaldefling sem á ensku er Empowerment. Við erum samhliða að skrifa fræðigrein þar sem líkanið vegur þungt og stefnum á að fá hana birta í fagtímariti í Skandinavíu,“ útskýrir Elísa og það fer ekki á milli mála að hún brennur fyrir þetta heilsugæsluverkefni.

„Markmiðið

er að koma á heilsugæslum í sem flestum bæjum og borgum í Þýskalandi og við erum í samtali við stjórnmálafólk og fleiri áhrifaríka aðila til að reyna að láta það verða að veruleika.“

Þær stöllur sendu heilbrigðisyfirvöldum í Bæjaralandi 60 blaðsíðna umsókn þar sem þær sóttu um styrk upp á 90 milljónir til að innleiða heilsugæslu með tveimur hjúkrunarfræðingum og fjórum læknum. Við fengum 70 milljóna króna styrk og fórum þá í samstarf við stóra heimilislæknastofu í Bæjarlandi. Þann 2. maí hóf svo fyrsta heilsugæslan í Þýskalandi starfsemi sem er tilraunaverkefni til tveggja ára og klárast næsta haust. Heilsugæslan er að þjónusta ellefu þúsund manna bæjarfélag og verkefnið gengur mjög vel. Vandamálið er að heilsugæslan er í raun einungis að þjónusta þá einstaklinga sem eru skráðir á þessa læknastofu sem við erum í samstarfi við og í fjármögnun er ekki gert ráð fyrir að hjúkrunarfræðingar séu í störfum í primary care, það þekkist ekki. Þar sem þetta er tilraunaverkefni erum við núna að vinna að því að finna fjármögnum til að halda áfram eftir að því líkur. Markmiðið er að koma á heilsugæslum í sem flestum bæjum og borgum í Þýskalandi og við erum í samtali við stjórnmálafólk og fleiri áhrifaríka aðila til í að reyna að láta það verða að veruleika.“

Yfir 800 sjúkrahús í Þýskalandi hafa hætt starfsemi Þær ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur en hvernig fara þær að því að sannfæra ráðamenn í Þýskalandi um að byggja upp heilsugæslu í landinu? „Heilbrigðiskerfið í Þýskalandi er í raun löngu sprungið og þegar því var breytt fyrir um 20 árum fór allt að snúast um fjármögnun og hver borgar brúsann. Sjúkrahúsin ráða illa við þetta kerfi og eru mörg hver að bugast, það er mikil mannekla og frá árinu 2004 hafa yfir 800 sjúkrahús lokað eða farið á

hausinn í Þýskalandi en þarna eru einkarekin sjúkrahús, sjúkrahús sem ríkið rekur og svo sveitafélögin en einkareknu sjúkrahúsin eru stærsta kakan. Ég er verkefnisstjóri yfir þessu verkefni og er mikið inni á læknastofunni þar sem tilraunaheilsugæslan er og mitt hlutverk felst mikið í því að skilgreina hlutverk heilsugæsluhjúkrunarfræðingsins og ýta undir gott samstarf lækna og hjúkrunarfræðinga. Ég er að vinna að doktorsverkefni samhliða og ætla að reyna að skila því inn í október þegar verkefninu líkur,“ útskýrir Elísa hress í bragði og lætur engan bilbug á sér finna. Aðspurð segir hún að rannsóknarspurningin í doktorsritgerðinni sé hvernig sé hægt að innleiða heilsugæslu í Þýskalandi og að hlutverk hjúkrunarfræðinga á heilsugæslustöðvum verði skilgreint sem best. Hún segir að verkefnið sem sé núna í gangi þjónusti bara fullorðna einstaklinga en hugmyndin sé að útfæra það frekar með tímanum ef allt gengur upp. Ung- og smábarnavernd, skólahjúkrun og annað myndi þá bætast við svo eitthvað sé nefnt.

Hver er stærsta áskorunin? „Að fá fólk til að trúa á verkefnið, aðallega lækna. Ég er búin að vera í mikilli sannfæringarvinnu því læknar halda að þetta muni taka frá þeim verkefni en þeir læknar sem taka þátt í verkefninu hafa talað vel um sína reynslu og vilja að þetta sé komið til að vera. Það þarf að halda áfram að byggja þetta upp og aðaláskorunin þar er eins og fyrr segir fjármögnunin.“

Markmiðið tíu heilsugæslur í Bæjaralandi

Áhugavert og metnaðarfullt verkefni en Elísa segist alla tíð hafa sett markið hátt, hún ólst upp á landsbyggðinni nánar tiltekið Neskaupstað en endaði í Þýskalandi. Hvernig var æskan og grunaði þig að þú myndir enda í allt öðru og miklu stærra landi? „Ég er fædd og uppalinn í Neskaupstað og þegar ég var 18 ára var ég komin með mikla útþrá og flutti til Reykjavíkur. Ég kláraði stúdentspróf frá Flensborg 1992 og fór svo austur og vann sem gangastúlka á fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað þar til ég byrjaði í hjúkrun ári seinna. Ég vann alltaf í fiski en þetta sumar sem ég vann sem gangastúlka á sjúkrahúsinu í Neskaupstað kynntist ég sérfræðingum í hjúkrun sem voru og eru enn miklar fyrirmyndir og þá kviknaði áhugi minn á að læra hjúkrun. Ég kynnist svo Kjartani árið 1997 og ég var alveg staðföst í því að vera bara í þrjú ár úti á meðan hann var í sínu námi og hefði aldrei getað ímyndað mér að ég væri enn þá þar 28 árum seinna,“ segir hún og hlær. Ég bið Elísu að lýsa sjálfri sér en hún á erfitt með það og fær að hringja í fjölskyldumeðlim sem þarf ekki að hugsa sig lengi. Elísa er þrautseig, jákvæð, hlý og staðföst.

Hvert er langtímamarkmið þitt, til tíu ára til dæmis? „Draumastaðan væri að þá væru komnar tíu heilsugæslur í Bæjaralandi og það væri komin fjármögnum fyrir störfum heilsugæsluhjúkrunarfræðinga,“ svarar hún að bragði og að lokum spyr ég hana hvers hún sakni mest frá Íslandi? „Fjölskyldunnar, náttúrunnar og sundlauganna. En það besta við Þýskaland er að það er gaman að vera svona miðsvæðis í Evrópu, það er stutt í sólina, í fjöllin ef við viljum fara á skíði og í borgir og menningu. Þjóðverjar eru mjög skipulagðir sem passar mér mjög vel,“ segir hún að endingu og við ákveðum að fá okkur bíltúr út í Gróttu til að taka mynd af henni í íslenskri náttúru til að skreyta viðtalið.

„ ... þetta sumar sem ég vann sem gangastúlka á sjúkrahúsinu í Neskaupstað kynntist ég sérfræðingum í hjúkrun sem voru og eru enn miklar fyrirmyndir og þá kviknaði áhugi minn á að læra hjúkrun.“

Leiðtoginn Ragna Gústafsdóttir hjúkrunardeildarstjóri

Leiðtogi þarf að hafa skýra framtíðarsýn og geta miðlað henni á skiljanlegan og hvetjandi hátt

Texti og myndir: Sigríður Elín Ásmundsdóttir

Leiðtoginn: Ragna Gústafsdóttir

Starfstitill: Hjúkrunardeildarstjóri á blóð- og krabbameinslækningadeild Landspítala

Nám: B.S.-gráða í hjúkrunarfræði

Hvers vegna valdir þú að verða hjúkrunarfræðingur?

Ég var barn þegar ég ákvað að verða hjúkrunarfræðingur og það kom aldrei neitt annað til greina, ég var alltaf ákveðin í því.

Er starfið gefandi?

Já, það er mjög gefandi en það getur líka verið krefjandi. Það er gefandi að finna að maður skiptir máli á þann hátt að maður finnur tilgang með starfinu.

Hvert lá leiðin eftir útskrift?

Ég hóf þá störf á Landakoti, sem þá var bráðaspítali, og starfaði þar í tíu ár. Þar vann ég á deild 1A, lyflækningadeild, bæði sem hjúkrunarfræðingur og síðar sem deildarstjóri. Á þeim tíma mynduðust sterk vináttubönd og þar eignaðist ég mínar bestu vinkonur sem ég hef haldið góðu sambandi við síðan. Að þeim tíma loknum lá leiðin á slysadeildina í Fossvogi, sem í dag er bráðamóttakan, þar sem ég starfaði í 28 ár, lengst af sem deildarstjóri. Tíminn á bráðamóttökunni var mér afar dýrmætur og þar vann ég með frábæru og yndislegu samstarfsfólki. Þaðan fór ég á blóð- og krabbameinslækningadeild Landspítala þar sem ég starfa í dag. Þar ríkir mikill metnaður og fagmennska og starfsfólkið er einstaklega gott. Ég tel mig hafa verið afar lánsama í starfi alla tíð því ég hef fengið að vinna með frábæru samstarfsfólki sem mér þykir mjög vænt um. Það er dýrmætt.

Hvenær tókst þú við stöðu deildarstjóra á krabbameinsdeildinni?

Ég hóf störf á blóð- og krabbameinslækningadeild árið 2020, eftir að ráðningartíma mínum á bráðamóttöku lauk. Mér fannst spennandi að takast á við nýjar áskoranir í nýju starfi þegar ég fékk stöðu deildarstjóra á þessari sérhæfðu deild.

Hvað er það mikilvægasta sem hefur áunnist á þessum árum síðan þú varðst deildarstjóri á krabbameinsdeildinni?

Á þeim árum sem ég hef starfað sem deildarstjóri á 11EG hefur margt áunnist, ekki síst þegar horft er til þeirrar stöðu sem var á deildinni þegar ég hóf störf. Krabbameinsdeild og blóðlækninga-

deild höfðu verið sameinaðar í lok árs 2019 og sameiningin var enn sár og umdeild. Óánægja ríkti meðal starfsfólks og margir upplifðu sig ekki sem hluta af einni heild. Mitt hlutverk var því fyrst og fremst að skapa traust, byggja upp samstöðu og leiða deildina í gegnum breytingar að nýjum veruleika.

Megináhersla mín í uppbyggingu deildarinnar hefur verið að skapa sterkt og öruggt starfsumhverfi þar sem starfsfólk upplifir sig metið, séð og að á það sé hlustað. Ég hef lagt mikla áherslu á að manna deildina með hæfu, áhugasömu og vel þjálfuðu starfsfólki og að hlúa að því starfsfólki sem fyrir starfaði á deildinni. Góð mönnun er grundvallarforsenda þess að hægt sé að veita örugga og faglega þjónustu.

Leiðtogastíll minn hefur byggst á því að efla umbótamenningu og skapa rými fyrir fræðslu og framþróun. Með markvissri þjálfun, skýru verklagi og sameiginlegri sýn hefur tekist að festa í sessi vinnubrögð sem miða að því að allir vinni í takt. Umhyggja fyrir starfsfólki hefur verið leiðarljós í þeirri vegferð enda er ljóst að vellíðan starfsfólks skilar sér beint til sjúklinganna okkar.

Hverju ertu stoltust af í þessu samhengi?

Að sjá deild sem hefur náð að rísa upp úr erfiðu ástandi þróast í samheldna, faglega og sterka heild. Deild þar sem starfsfólk treystir hvert öðru, finnur til ábyrgðar og vinnur saman af metnaði. Að fá að leiða slíka vegferð hefur verið bæði krefjandi og afar gefandi og fyllir mig stolti.

Hvaða eiginleika þarf góður leiðtogi í hjúkrun að hafa?

Góður leiðtogi þarf að búa yfir góðri færni til að hlusta og sýna starfsfólkinu sem hann leiðir raunverulegan áhuga. Að hlusta af einlægni á sjónarmið, áhyggjur og hugmyndir starfsfólks er grundvöllur trausts og forsendan fyrir því að hægt sé að byggja upp öflugt teymi. Leiðtogi þarf að hafa skýra framtíðarsýn og geta miðlað henni á skiljanlegan og hvetjandi hátt, þannig að allir viti hvert stefnir og hvers vegna. Mikilvægt er líka að fá starfsfólk með sér í lið til að ná þeirri sýn. Skýrt hlutverk og ábyrgð hvers og eins er lykilatriði í árangursríkri hjúkrunarstjórnun. Verkferlar þurfa að vera skýrir, verkefnum og ábyrgð deilt og treysta þarf

„...

búa sig undir verulega aukningu krabbameinssjúkra á næstu árum og þróa lausnir til að mæta þeirri þörf.“

starfsfólki til að axla ábyrgð á þeim hlutverkum og verkefnum sem því eru falin. Leiðtogi þarf að vera skipulagður, agaður og hafa góða yfirsýn, sérstaklega í flóknu og krefjandi starfsumhverfi heilbrigðiskerfisins. Umhyggja fyrir starfsfólki er einn af hornsteinum góðrar leiðtogafærni í hjúkrun. Að sýna mannlegan skilning, veita stuðning og skapa öruggt vinnuumhverfi þar sem fólk þorir að tjá sig og læra af mistökum er lykill að árangri. Góður leiðtogi leitast við að laða fram það besta í hverjum og einum og einnig er mikilvægt að hafa hugrekki til að taka á erfiðum málum og vera tilbúinn að læra og þróast í starfi. Gegnsæi og góð upplýsingagjöf þarf að vera til staðar.

Hverjar eru helstu áskoranirnar í þínu starfi?

Að tryggja góða mönnun er og verður áfram ein helsta áskorun mín sem hjúkrunardeildarstjóra. Mér finnst mikilvægt að viðhalda háum gæðaviðmiðum og stöðlum í starfi ásamt öflugri umbótamenningu. Jafnframt þarf að búa sig undir verulega aukningu krabbameinssjúkra á næstu árum og þróa lausnir til að mæta þeirri þörf. Innleiðing nýjunga í hjúkrun og tæknilausna er lykilatriði, sem og að fylgjast náið með þróun fagsins og innleiða nýjungar í samræmi við þá þróun. Einnig tel ég mikilvægt að stuðla að nýsköpun.

Bjargráð í starfi?

Mikilvæg bjargráð í starfi felast í því að umkringja sig fólki með fjölbreytta hæfni og byggja upp sterka liðsheild sem vinnur saman

að lausnum. Einnig finnst mér vera mikilvægt að útdeila verkefnum á markvissan hátt og vera meðvituð um eigin mörk. Nauðsynlegt er líka að greina umhverfið hratt og grípa tímanlega inn í með skjótum viðbrögðum ef þörf er á. Jafningjahandleiðsla hefur hjálpað mér sem stuðningur í starfi og má segja að sé bjargráð í mínu starfi sem deildarstjóra.

Ertu meðvitað að vinna í því að efla leiðtogahæfileika þína til þess að verða betri yfirmaður?

Ég vinn markvisst að því að efla leiðtogahæfileika mína til að verða betri yfirmaður. Ég nýti mér til dæmis niðurstöður úr Moodup-starfsánægjukönnunum til að fá endurgjöf og leiðsögn í starfi. Áratugalöng reynsla mín í stjórnunarstörfum hefur kennt mér hvað skilar árangri og hvað ekki og ég fylgist vel með þróun og straumum í leiðtogafræðum. Ég legg líka áherslu á að læra af mistökum og nýta þau til að gera betur og bæta mig sem stjórnanda. Hvernig sérðu að hjúkrun hér á landi muni þróast á næstu tíu árum?

Ég sé fyrir mér að hjúkrun hér á landi muni þróast á spennandi og uppbyggilegan hátt á næstu árum. Þrátt fyrir áskoranir, svo sem skort á hjúkrunarfræðingum, mun það kalla á nýjar lausnir og jákvæðar breytingar í starfsumhverfinu. Hlutverk hjúkrunarfræðinga munu þróast, verkefni verða endurskipulögð og aukin samvinna við aðrar fagstéttir mun skapa ný tækifæri. Mikilvægt er að þróunin haldi í við samfélagsbreytingar og ég held að þessi

næstu ár verði áhugaverður og lærdómsríkur tími. Það verður spennandi, ekki síst fyrir unga hjúkrunarfræðinga, að taka virkan þátt í að móta framtíð hjúkrunar.

Hvernig leysum við, eða minnkum, mönnunarvandann að þínu mati?

Eins og staðan er í dag og þróunin bendir til þarf að endurskilgreina hlutverk hjúkrunarfræðinga og annarra fagstétta innan heilbrigðiskerfisins. Ég legg áherslu á að nýta tækninýjungar til að bæta þjónustu. Jafnframt þarf að tryggja góða umönnun sjúklinga og vellíðan starfsfólks. Mikilvægt er að stuðla að starfsánægju, halda góðu starfsfólki lengur í starfi og efla starfsþróun. Þá má ekki gleyma því að kaup og kjör skipta gríðarlega miklu máli og heilbrigðiskerfið þarf að vera samkeppnishæft við störf annars staðar.

„Að sýna mannlegan skilning, veita stuðning og skapa öruggt vinnuumhverfi þar sem fólk þorir að tjá sig og læra af mistökum en þetta er lykill að árangri.“

Draumastarfið þitt ef þú ættir að skipta um starfsvettvang?

Það er gaman að segja frá því að eftir rúma tvo mánuði verð ég 67 ára. Þar sem ég er þegar í draumastarfi mun ég halda áfram að starfa og njóta þess að vinna á 11EG eitthvað áfram. Það er einstök upplifun að sjá afrakstur þeirrar vinnu sem hefur verið lögð í uppbyggingu deildarinnar og fá að takast á við áframhaldandi gæðamál og þá umbótavinnu sem fram undan er.

Hvernig gengur þér að samræma vinnu og einkalíf?

Ég hef alla tíð verið í krefjandi starfi ásamt því að vinna mikið. Á síðustu árum hef ég samt gefið því meiri gaum að huga jafnt að vinnu og fjölskyldulífi því það er gríðarlega mikilvægt að hafa jafnvægi þarna á milli.

Áttu þér faglega fyrirmynd í starfi?

Þarft þú sem yfirmaður að eyða miklum tíma í skriffinnsku og skipulag?

Sem yfirmaður legg ég metnað í að skipuleggja deildina vel og sjá til þess að allt gangi smurt fyrir sig. Það gerir mér kleift að grípa inn í þegar eitthvað fer úrskeiðis, styður starfsfólkið í að sinna sínum verkefnum og skapar jákvætt og faglegt vinnuumhverfi á vinnustaðnum. Ég tel því mikilvægt að verja nauðsynlegum tíma í stjórnun.

Hvernig myndir þú vilja bæta þjónustu við krabbameinssjúklinga?

Ég myndi bæta þjónustuna með einstaklingsmiðaðri nálgun og öflugri samvinnu fagstétta. Mikilvægt er að sjúklingar og aðstandendur fái greiðan aðgang að þjónustu, fræðslu og stuðningi.

Hvernig hlúir þú að þér og þínum?

Ég hlúi að mér með því að passa upp á þessa klassísku grunnþætti; svefn, hreyfingu og hollt mataræði. Jafnframt gef ég mér tíma til að sinna fjölskyldu og vinum sem gefur mér jafnvægi og endurnærir orkuna. Þannig get ég verið til staðar bæði fyrir sjúklinga og samstarfsfólk mitt með gleði og fagmennsku.

Ég hef verið svo lánsöm að starfa með mörgu frábæru fagfólki í gegnum árin og hef því sótt mér fyrirmyndir í fleiri en einn einstakling. Það samstarfsfólk mitt sem hefur alltaf sett skjólstæðinginn í forgang, sýnt starfsfólki skilning og skapað traust vinnuumhverfi hefur haft mikil áhrif á mig í starfi og eru góðar fyrirmyndir.

Og að lokum, þar sem þú ert líklega farin að huga að starfslokum, hvað ætlar þú að gera þegar þú hættir að vinna eftir öll þessi ár í krefjandi starfi?

Ég er lítið farin að huga að starfslokum og kvíði þeim alls ekki. Ég horfi á þetta sem skemmtilegt tímabil fram undan þar sem ég get sinnt sjálfri mér og fjölskyldunni enn betur. Ég veit að mér mun ekki leiðast og hlakka til að gera margt skemmtilegt og njóta lífsins.

Guðbjörg Pálsdóttir - sérfræðingur í hjúkrun sjúklinga með sár

Brautryðjandi í sárahjúkrun á Íslandi

Texti: Sigríður Elín Ásmundsdóttir | Myndir af Guðbjörgu við Vífilstaðavatn: Sigríður Elín Ásmundsdóttir

Guðbjörg Pálsdóttir hjúkrunarfræðingur er frumkvöðull í hjúkrun sjúklinga með sár hér á landi. Áhuginn á sármeðferð kviknaði þegar hún starfaði á Heilsugæslustöðinni á Seltjarnarnesi og upplifði vanþekkingu og hversu flókið ferli sárgræðsla er. Þá má segja að frumkvöðlafræi hafi verið sáð því Guðbjörg hóf að lesa sér til, afla sé þekkingar og kanna möguleika á frekara námi í sárameðferð. Námið fann hún í Danmörku en sá hængur var á að það var eingöngu ætlað dönskum hjúkrunarfræðingum. Hún fékk því neitun en lét það ekki stoppa sig og með góðri hjálp tókst henni að komast inn í námið. Þar með hófst hennar vegferð og frumkvöðlastarf sem snýr að sjúklingum með sár og kennslu og fræðslu um sárameðferð.

Nú aldarfjórðungi seinna hefur mikið vatn runnið til sjávar og áhugavert að fá að staldra við með Guðbjörgu og líta yfir sviðið, ferilinn og frumkvöðlastarfið. Hún tók vel í ósk um viðtal og bauð í tesopa heim til sín á Grettisgötuna. Nokkrum dögum seinna, einn ískaldan janúardag þegar sólin skein glatt og lognið heiðraði bæjarbúa með nærveru sinni var ritstýran mætti í miðbæinn til Guðbjargar. Lagði bílnum fyrir utan ljósmálað, huggulegt bárujárnshús sem augljóslega hafði verið nostrað við og reyndist vera heimili Guðbjargar. Ég stóðst ekki mátið og byrjaði á því að spyrja hana út í sjarmerandi húsið sem hýsir hlýlegt heimili fjölskyldunnar.

„Hér höfum við fjölskyldan búið frá 1988,“ segir hún brosandi og sýnir mér heimilið sem smekklegt en þarna inni er líka einhver notaleg ró. Guðbjörg hitar vatn í eldhúsinu sem er á neðri hæðinni og við tyllum okkur svo í betri stofuna á efri hæðinni með tebolla og hefjum spjallið.

Gangastúlka á Húsavík

„Ég ákvað að fara í hjúkrun vegna þess að mig langaði að vinna við eitthvað sem gæfi mér frelsi til að starfa hvar sem væri, ég vildi ekki vera bundin því að starfa á Íslandi. Ég ólst upp á Húsavík og fékk vinnu sem gangastúlka á sjúkrahúsinu þar þegar ég var unglingur. Ekki veit ég hvort að það hafði áhrif á ákvörðun mína að læra hjúkrun, líklega var það frekar það, að móðir mín heitin var hjúkrunarfræðingur,“ segir hún hugsi þegar hún rifjar upp fyrstu skrefin á þeirri vegferð sem varð raunin. En hver var móðir Guðbjargar? „Mamma var ótrúlega dugleg og starfaði víða. Þegar hún var nýútskrifuð, vann hún á sjúkrahúsinu á Húsavík. Hún hafði fengið þjálfun í svæfingum hjá svæfingalækni á Landspítalanum og sinnti því meðal annarra starfa á Húsavík. Hún giftist síðan föður mínum, Páli Þór Kristinssyni og eignaðist börn. Mamma var ekki í fullu starfi sem hjúkrunarfræðingur á þeim árum sem við systkinin vorum að alast upp en í minningunni var hún samt oft að taka vaktir ef það vantaði. Um fertugt fór hún svo til Noregs í nám í heilsugæsluhjúkrun og í kjölfarið endurskipulagði hún heilsugæslustarfið á Húsavík og lagði grunn að ungbarnavernd, þar með talið heimavitjanir til ungra fjölskyldna. Mamma hafði mikinn metnað til að sinna starfinu í takt við það sem hún hafði lært í heilsugæslunáminu og hún var bara svo frábær á margan hátt,“

segir Guðbjörg um móður sína, Aldísi Friðriksdóttur hjúkrunarfræðing, sem lést fyrir ári síðan, þá 92 ára að aldri.

Föðurmissir og framhaldsnám

Það er ljóst að Guðbjörg hefur ekki langt að sækja frumkvöðlaog drifkraftinn og móðir hennar var þar án efa góð fyrirmynd „Faðir minn lést skömmu eftir að mamma kom heim frá Noregi aðeins 45 ára gamall. Það var okkur öllum erfitt en móðir mín ákvað samt að taka boði um frekara framhaldsnám og hóf meistaranám í Englandi 1976. Við yngri börnin fórum með henni og settumst á skólabekk í Manchester, ég var 15 ára og bróðir minn 12 ára. Þetta var mikil áskorun og ég var óánægð í skólanum. Þessi mikla breyting og föðurmissir og makamissir er sennilega ástæða þess að mamma ákvað að snúa aftur heim til Íslands áður en hún kláraði námið. Að hausti, ári síðar, fluttum við til Reykjavíkur og mamma fór þá að vinna á Borgarspítalanum, auk þess að kenna við Hjúkrunarskóla Íslands. Hún fór í kennaranám fyrir hjúkrunarfræðinga og stjórnunarnám nokkru síðar. Í framhaldinu vann hún við að undirbúa starfsemi nýrrar heilsugæslustöðvar sem var einkarekin og hét þá Heilsugæslan Álftamýri. Síðustu 10 árum starfsævinnar varði hún svo á Sjúkrahúsinu á Húsavík sem hjúkrunarforstjóri,“ segir hún og fær sér tesopa.

Guðbjörg fór í Menntaskólann í Reykjavík og í framhaldinu í hjúkrunarfræði í HÍ þaðan sem hún útskrifaðist árið 1986. „Þá fór ég að vinna á gjörgæslunni við Hringbraut og á tímabili vann ég eingöngu næturvaktir til þess að geta stundað nám í söngskóla á daginn,“ útskýrir hún og ég spyr hana hvort hún hefði kannski orðið söngkona ef hún hefði ekki orðið hjúkrunarfræðingur. Hún brosir og neitar því en segist hafa gaman af því að syngja og að hún hafi lengi sungið með Mótettukórnum. „Þar kynntist ég eiginmanninum, Sverri Guðmundssyni. Við sungum í kórnum í yfir tuttugu ár og síðar aftur í öðrum kórum. Maðurinn minn lærði á óbó og spilar í frístundum með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna í Reykjavík. Hans atvinna er hljóðfæraviðgerðir og verkstæðið hans er hér í kjallaranum á húsinu okkar þar sem allt er fullt af blásturshljóðfærum. Aðalstarf hans í dag er þó í HÍ við námsbraut

„Mér hefur alla tíð þótt mjög skemmtilegt að kenna hjúkrunarfræðinemum og það hvatti mig í rauninni til þess að fara í meistaranám því mér fannst ég þurfa að hafa meistaragráðu til að vera að kenna í háskóla.“

í efnafræði,“ segir hún og eftir spjallið fékk ritstýran að gægjast inn á hljóðfæraverkstæðið sem minnti á ævintýraheim hljóðfæraunnanda.

Sölufólk sáraumbúða sá um fræðsluna

Guðbjörg segir starfið á gjörgæslunni hafa verið mjög skemmtilegt og lærdómsríkt en segist á endanum hafa fengið nóg af því að vinna kvöld- og næturvaktir og hætti þar árið 1990 og fór þá að starfa á Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í ung- og smábarnavernd. „Það var skemmtilegur tími, frábær starfsandi og bara alveg ógleymanlegur tími þótt stuttur væri, því ári seinna fékk vinkona mín, Sigrún Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur, mig til að koma yfir á Heilsugæsluna á Seltjarnarnesi þar sem hún starfaði. Það var að mörgu leyti fjölbreyttara starf því þar vorum við að sinna fólki á öllum aldri og þar má segja að sáraáhugi minn hafi kviknað. Mér þótti svo merkilegt þetta ferli sem sárgræðsla er og ég fór að lesa mér til; hvers vegna sum sár gróa en ekki önnur. Það var svo lítil þekking um þetta á þessum tíma en þarna voru nútímasáraumbúðir að koma á markað og sölufólkið sem var að selja þær sá í raun um fræðsluna og þau voru ekki endilega hjúkrunarmenntuð. Það var því lítil grunnþekking á sárgræðslu. Systir mín, Geirþrúður, sem er líka hjúkrunarfræðingur, vann á þessum tíma hjá dönsku fyrirtæki sem heitir Coloplast og er meðal annars leiðandi í þróun og framleiðslu á sáravörum. Við systur höfðum þennan sameiginlega sáraáhuga og í Danmörku var á þessum tíma farið að bjóða upp á sérstakt nám um sárameðferð eða hjúkrun sjúklinga með sár. Það var hins vegar aðeins opið fyrir danska hjúkrunarfræðinga og ekki nema 24 pláss í boði á hverju ári. Ég sótti um námið en fékk neitun af því ég er ekki í danska hjúkrunarfélaginu. Mér fannst svo mikilvægt að nám sem þetta stæði íslenskum hjúkrunarfræðingum til boða og fékk Aðalbjörgu Finnbogadóttur sem sinnti þá fræðslumálum hjá Fíh í lið með mér. Hún skrifaði danska félaginu bréf þar sem hún óskaði eftir því að ég kæmist að í náminu til að dreifa þekkingunni víðar. Ein af stjórnendum námsins, Kirsten Müller sárahjúkrunarfræðingur, tók jákvætt í að fá utanaðkomandi nemanda og það varð úr að bætt var við einu námsplássi og ég fékk 25. plássið. Það var mikil lukka að kynnast Kirsten og hennar kollegum, yndisleg kona og góð vinkona, sem átti eftir að vera mér eins og móðir meðan ég dvaldi í Danmörku, “ segir Guðbjörg brosandi.

„Fyrir hennar orð fékk ég að fara í mánaðarlangt verknám á sáramiðstöðinni á Bispebjerg-spítalanum eftir að sáranáminu lauk. Námið tók einn vetur og var staðbundin lotukennsla þar sem ég fór fjórum sinnum út til Kaupmannahafnar og var í viku í senn. Kennt var frá átta á morgnana til átta á kvöldin og þetta var alveg rosalega flott og metnaðarfullt nám. Ári seinna hittumst við svo hér á Íslandi, allar sem vorum saman í náminu, ásamt umsjónarkennurunum. Þar deildum við reynslu okkar af náminu og hvernig það hafði nýst okkur í starfi. Við vorum með tveggja daga kennslutörn í húsnæði félagsins við Suðurlandsbraut og þar með lauk náminu formlega. Þetta var svo gaman,“ segir hún þegar hún rifjar upp fyrstu skrefin á þeirri vegferð sem sáraþekking hennar átti eftir að leiða hana, því fljótlega eftir þetta spurðist það út að Guðbjörg hefi lokið námi í sárameðferð og væri farin að vera með fræðslu um sár.

Lykilatriði að komast að orsökinni fyrir sáramyndun Það fer ekki á milli mála að það vantaði fræðslu um sárameðferðir hér á landi því fyrirspurnunum rigndi inn og Guðbjörg fékk fjölda

beiðna um að vera með fræðslu og kennslu. „Ég fór út um allt land og hélt námskeið því þörfin og eftirspurnin var mikil. Sár eru algeng og allir hjúkrunarfræðingar fást einhvern tíma við að sinna sjúklingi með sár. Sem betur fer gróa þau flest án inngripa en önnur þarfnast sérmeðferðar og margir fá einhvern tíma á lífsleiðinni sár sem þarf að skoða og rannsaka. Undirliggjandi sjúkdómar sem og lífsstílstengdir þættir geta haft mikil áhrif á sáramyndun og gróanda og nútímaumbúðir duga ekki einar og sér, heldur þarf þekkingu til að komast að raunverulegri orsök sáranna,“ útskýrir hún og það fer ekki á milli mála að Guðbjörg er algjör viskubrunnur um sár.

Aðspurð segir hún að sár á fótum séu algengustu langvinnu sárin. „En þau geta verið misalvarleg og af ólíkum gerðum og krefjast öll ólíkrar meðferðar. Það er alltaf lykilatriði að komast að orsökinni fyrir því að sár myndast en þekkingin á sárum, orsökum þeirra og meðferð er mun betri í dag en fyrir áratug eða tveimur. En það má samt alltaf gera betur,“ segir hún brosandi og Guðbjörg hefur sannarlega lagt sitt af mörkum því hún er hefur haldið fjölmörg námskeið um sár og sárameðferð fyrir fagfólk sem greinilega þyrstir í þekkingu hennar. Þess má geta að sáranámskeið Guðbjargar hafa verið ein þau vinsælustu hjá Fíh í mörg herrans ár og oft komast færri að en vilja.

Háskólakennsla hvati að meira námi

Guðbjörg hefur ekki einungis verið með námskeið um allt land. „Ég var líka farin að kenna hjúkrunarfræðinemum við Háskóla Íslands megnið af því sem var til náms um almenna sárameðferð,“ segir hún og bætir við að til að byrja með hafi hún haft efasemdir um að hún ætti heima í háskólakennslu: „Svo hugsaði ég með mér að ef mér væri treyst fyrir því að kenna nemum ætti ég hlusta á það. Mér hefur alla tíð þótt mjög skemmtilegt að kenna hjúkrunarfræðinemum og það hvatti mig í rauninni til þess að fara í meistaranám því mér fannst ég þurfa að hafa meistaragráðu til að vera að kenna í háskóla. Ásta Thoroddsen hafði mörgum árum áður en ég skellti mér í meistaranám skrifað meistararitgerð um algengi þrýstingssára. Ég leitaði því til hennar með leiðsögn í mínu meistaranámi en Ásta hafði líka sinnt kennslunni um sár og sárameðferð í hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og hún bað mig síðar um að taka við þeirri kennslu. Ásta var góður mentor og það var gott að njóta hennar leiðsagnar í frumskógi vísindanna. Meistararannsóknin mín fjallaði um algengi fótasára á Íslandi, orsakir þeirra og meðferð og meðfram meistaranáminu í HÍ fékk ég styrk til að sækja 60 eininga námskeið við Háskólann í Hertfordshire í Englandi undir handleiðslu Madeleine Flanagan, sérfræðings í hjúkrun sjúklinga með sár.“

Guðbjörg segir að námið hafi verið eitt af verkefnum EWMA í samvinnu við háskóla víða í Evrópu. „Kynni mín og samvinna við Madeleine leiddi meðal annars til þess að hún hefur komið til Íslands í allnokkur skipti og haldið erindi á ráðstefnum og fundum.“

Guðbjörg kláraði meistaranámið árið 2009 og fékk sérfræðiréttindi í hjúkrun sjúklinga með sár árið 2012. Lengi vel var hún sú eina með þessi sérfræðiréttindi hér á landi en hægt og rólega hefur sérfræðingum í hjúkrun sjúklinga með sár fjölgað hér á landi. „Þegar ég kláraði mitt meistaranám hlakkaði ég til að halda áfram að starfa hjá heilsugæslunni sem sárahjúkrunarfræðingur,“ segir hún og fær sér tesopa.

Dýrmætt samstarf

Guðbjörg tók þátt í að stofna Samtök um sárameðferð (SUMS) á Íslandi árið 2004 en það eru þverfagleg félagasamtök fagfólks með áhuga á sárameðferð. „Þessi samtök eru alveg frábær, hafa haldið yfir 20 ráðstefnur og fundi hér á landi og gert mikið til að efla þekkingu. Meðal annars hvöttu samtökin til stofnunar Sáramiðstöðvar á Landspítala. Sams konar samtök starfa í Danmörku og við sniðum okkar samtök alveg eftir þeim, þegar við stofnuðum SUMS – það var mikil gæfa. Auk þess höfum við EWMA, sem eru regnhlífarsamtök sárasamtaka í Evrópu. Það hefur verið mjög dýrmætt að vera partur af því samstarfi, sem meðal annars snýst um þróun samræmdra leiðbeininga um gagnreynt verklag við sárameðferð. Einnig er starfshópur þar sem vinnur að gerð námsskrár fyrir hjúkrunar- og læknanema; hvað er til að mynda mikilvægt að kenna í grunn- og framhaldsnámi,“ útskýrir hún.

Þess má geta að rúmlega 300 manns eru skráð í SUMS og um 90% af þeim eru hjúkrunarfræðingar. Guðbjörg hefur verið í stjórn frá upphafi og lagt mikið af mörkum til að dreifa þekkingunni. Hún er núna hætt í stjórn og lætur aðra sjá um að miðla þekkingunni og halda skipinu á floti. Hún tekur fram að án sterkra og dyggra styrktaraðila sem hafa stutt samtökin frá upphafi hefði ekki verið hægt að fjármagna 300 manna ráðstefnur nær árlega. Þessi stuðningur hafi skipt samtökin sköpum.

Guðbjörg hóf störf hjá sáramiðstöð Landspítala árið 2009 eða sama ár og hún var stofnuð. „Þegar mér bauðst að taka þátt í uppbyggingu og þróun sáramiðstöðvar á Landspítala gat ég ekki annað en sagt já, þó svo ég hafi ekki verið á leiðinni að hætta hjá heilsugæslunni á þessum tímapunkti. Það varð þó úr og ég hef starfað hjá sáramiðstöð síðan eða þar til ég hætti störfum.“

Kóngulóarbit og flugnalirfur

Það er tímabært að fara í aðeins aðra sárasálma, ég spyr Guðbjörgu hvort hún muni eftir einhverju óvæntu eða eftirminnilegu sem hafi komið upp og hún svarar brosandi: „Það kom eitt sinn maður á sáramiðstöðina með óvenjulegt sár á fæti sem reyndist vera kóngulóarbit og þarfnaðist mjög sérstakar meðferðar. Það sem maður gerir vanalega þegar það er drep í sári, er að klippa drepið í burtu en það átti ekki við í þessu tilfelli. Það mátti alls ekki því sú erting hefði gert meiri skaða. Þetta dæmi er svo eftirminnilegt af því það sýnir svo vel hvað það er mikilvægt að greina sár rétt. Svo man ég eftir öðru tilfelli þar sem við vorum að nota flugnalirfur til að hreinsa drep úr sári en það er aldagömul aðferð allt frá tímum Florence Nightingale. Ég hafði lært og prófað að leggja lirfur í sár þegar ég var í verknámi á Sáramiðstöðinni í Kaupmannahöfn 2003. Þessi tiltekni sjúklingur var inniliggjandi á Landspítala en hafði verið sendur heim með lirfurnar í sárinu. Ég var á bakvakt og var stödd í matarboði þegar hjúkrunarfræðingur í heimahjúkrun hringir í mig í uppnámi því þá hafði sjúklingurinn farið á stjá þannig að umbúðirnar losnuðu. Þegar ég svo mætti á staðinn höfðu lirfurnar komist úr sárinu og út um allt rúm,“ segir hún og hlær innilega.

En finnst henni vanta eitthvað upp á í kennslu um sárameðferð í grunnnáminu í hjúkrunarfræði hérlendis? „Á þeim tíma sem ég hef starfað við kennslu, hefur sárameðferðin fengið aukið pláss í námskránni og ég myndi vilja sjá þá aukningu halda áfram. Sjálf er ég hætt að kenna en ég hef verið í liði með góðu fólki sem nú tekur við kyndlinum og ég er ótrúlega stolt af því. Það er svo dýrmætt að hafa náð að vekja áhuga á sárafræðunum hjá svona mörgum, nú þegar ég stíg til hliðar,“ segir hún sátt.

Markmiðið að njóta lífsins

Guðbjörg er jákvæð og yfirveguð, hefur góða nærveru og er bara einstaklega vönduð manneskja, eins og ein vinkona hennar orðaði það þegar það barst í tal að ég væri að fara að hitta hana fyrir viðtal. Guðbjörg segir hreinskilin að hún hafi ekki verið á leiðinni að hætta störfum þegar upp komu veikindi. „Mitt markmið núna er bara að njóta lífsins eins og ég get,“ segir hún einlæg. „Ég get ekki arkað á fjöll eins og ég gerði en nýt útivistar, ekki síst í sumarbústað okkar fjölskyldunnar. Einnig hlustum við hjónin mikið á tónlist og förum mjög oft á tónleika t.d. á sinfóníutónleika,“ segir hún brosandi. Ég spyr hana í framhaldinu hvernig hún næri andann. „Ég hef stundað jóga í nokkur ár og finnst gott að fara í jóga nidra og jóga þerapíu eða slökun með áherslu á öndun. Ég finn hvað það gerir mér gott að stunda jóga,“ segir hún og þá verð ég að spyrja hana út í stóra púslið sem er fullklárað á borði í stofunni og telur örugglega nokkur þúsund bita. Hún hlær og segir að þau hjónin púsli alltaf á jólum. Það er hluti af jólahefðunum þeirra og ljóst að þessi hjón búa yfir innri ró sem er ekki öllum gefin eða hvað? „Maðurinn minn er mjög stóískur og býr yfir mikilli innri ró, ég geri það líka en ég þarf samt alltaf að vera að gera eitthvað og er farin að prjóna svolítið,“ segir Guðbjörg sem er í fallegu prjónavesti sem reynist vera prjónað af húsfreyjunni sem býr í fallega bárujárnshúsinu við Grettisgötu. Sólin skín inn um gluggana og eftir áhugavert spjall og mjög notalega stund í stofunni hjá Guðbjörgu kveðjumst við með faðmlagi og ég spyr hana að endingu hverju hún sé stoltust af þegar hún lítur yfir starfsferilinn? „Ég er stoltust af því að hafa náð að vekja áhuga annarra hjúkrunarfræðinga á hjúkrun sjúklinga með sár og mikilvægi gagnreyndrar þekkingar á sárgræðslu og sárameðferð.“ Og við látum það vera lokaorðin og nokkrum dögum seinna mælum við okkur móts við Vífilstaðavatn í hávaðaroki.

Guðbjörg og Sverrir, eiginmaður hennar.
Guðbjörg með fjölskyldunni.
Guðbjörg og Madeleine Flanagan.
Guðbjörg og Kirsten Müller.
Myndir úr einkasafni.

Vaktin mín

Nanna Bryndís Snorradóttir

-hjúkrunarfræðingur og flæðisstjóri skurðlækningasviðs í Fossvogi

Alltaf læknisfræðilegt mat og ákvörðun, ef hætta á við aðgerðir vegna plássleysis

Umsjón: Sólveig Auðar Hauksdóttir

Ég byrja flesta morgna á að fara út með Dimmu hundinn okkar sem er border collie-tík. Morgunganga áður en aðrir fjölskyldumeðlimir vakna hefur vanist furðu vel og það er farið út í öllum veðrum, enda er oftast versta veðrið í forstofunni. Því næst kem ég börnunum á fætur og geri það sem þarf að gera daglega. Bílferðin á Landspítala í Fossvogi að heiman tekur 15-25 mínútur og sá tími er oftast nýttur til að hlusta á sögu eða morgunútvarpið.

Ég hóf störf sem flæðistjóri skurðlækningasviðs í Fossvogi fyrir tæpu ári og tók þar að mér nýtt hlutverk, án þess að vita alveg út í hvað ég væri að fara. Ég tilheyri dagdeild skurðlækninga í Fossvogi (A5) og hef aðsetur þar, þó að ég starfi þvert á deildir innan sviðsins í Fossvogi og sé á töluverðu flakki á milli deilda.

Vaktin hefst oftast með því að ræða við vaktstjóra á deild A5 og athuga hvort það þurfi að flagga einhverju vandamáli eða áskorun í byrjun dags. Því næst opna ég tölvuna og byrja að skoða verkefni dagsins. Það er í mörg horn að líta og byrja ég að fara yfir skjáborð bráðamóttökunnar, athuga hvort að sjúklingar sem liggja á vegum skurðlækninga (SKUGG) í Fossvogi séu tilbúnir til innlagna eða mögulega fyrirhugaðar innlagnir. Undir þau svið falla HNE-, æða-, lýta-, bæklunar, heila- og taugaskurðlækningar. Þennan morgun eru tveir sjúklingar sem tilheyra bæklun og einn sjúklingur sem tilheyrir heila- og taugaskurðlækningum.

„... gaman að fá tækifæri til að þróa og móta nýtt starf sem mér var treyst fyrir og stundum er bara best að henda sér út í djúpu laugina og byrja að synda.“

Næst er að yfirfara Orbit, en það er kerfi sem heldur utan um allar fyrirliggjandi skurðaðgerðir. Á áætlun eru 28 aðgerðir og fyrirséð að átta þeirra krefjast innlagna. Undir eðlilegum kringumstæðum er sá innlagnafjöldi ekki áhyggjuefni en þar sem Landspítalinn hefur glímt við flæðisvanda og aðflæði á bráðamóttökuna verið mjög mikið, er fyrirséð að dagurinn verður áskorun. Þessar fyrir-

huguðu innlagnir eru fjölbreyttur hópur; fjórir sjúklingar á bæklun (tvær skipulagðar mjaðmaprótesu-aðgerðir, ein hnéprótesu-aðgerð og einn sjúklingur sem þarfnast innlagnar vegna upphandleggsbrots). Tveir sjúklingar á vegum HNE sem eru að fara í skjaldkirtilsaðgerðir og önnur þeirra er líklega vegna illkynja æxlis. Einn sjúklingur á vegum heila- og taugaskurðlækna sem er að fara í heilaskurðaðgerð og einn sjúklingur á vegum æðaskurðlækna sem er að fara í æðastíflubrottnám (TEA).

Í kjölfarið skoða ég skjáborð deildanna; A4, A5, B5 og B6. Þar fer ég yfir fyrirhugaðar útskriftir og athuga hvort sjúklingar sem eru inniliggjandi bíði eftir aðgerðum. Samskipti mín við vaktstjóra deildanna eru mjög mikil og eru símtölin ófá yfir daginn. Ég heyri líka í vaktstjóra gjörgæslunnar, þar liggja tveir sjúklingar sem tilheyra fyrrnefndum deildum og einn af þeim sem tilheyrir heila- og taugadeild er tilbúinn til útskriftar. Starfið mitt sem flæðistjóri er samofið innlagnastjórum Landspítalans og eftir samtal þangað er ljóst að SKUGG fær úthlutað tveimur endurhæfingarplássum á Landakoti.

Annar af sjúklingunum sem liggja á bráðamóttökunni er með lærleggsbrot og er kominn upp á skurðprógramm kvöldsins. Eftir samtal við vaktstjóra A5 er pláss fyrir þann sjúkling og heyri ég í vaktstjóra bráðamóttökunnar. Kallað er eftir sjúklingnum upp á dagdeild og loftdýna pöntuð. Sjúklingurinn mun bíða þar eftir aðgerðinni sem er áætluð síðar um kvöldið. Það skiptir miklu máli að sjúklingar séu fluttir sem fyrst af bráðamóttökunni, þó að það sé því miður ekki alltaf mögulegt. Eins og staðan er á þessum tímapunkti eru líkur á að dagurinn muni ekki ganga upp eftir áætlun.

Daglega stýri ég TEAMS-fundi með öllum vaktstjórum legudeilda og vöknunar, flæðistjóra, innlagnastjórum og forstöðumönnum. Sá fundur er klukkan rúmlega tíu og eftir þann fund kemur í ljós að aðeins tíu útskriftir séu fyrirhugaðar á deildum en tólf sjúklingar þurfi innlögn. Við slíkar áskoranir er ljóst að hugsanlega þurfi að hætta við (seponera) aðgerðir. Þessir fundir og samvinna á milli deilda gegna lykilhlutverki í að teymisvinnan gangi upp. Þar sjá líka aðrar deildir í hvaða sporum kollegar þeirra eru í næstu deild og geta rétt fram hjálparhönd ef hægt er.

„Það er mjög leiðinlegt að færa sjúklingum þær fréttir að aðgerð sem þeir hafa beðið eftir verði ekki. Fólk verður fyrir vonbrigðum, finnur fyrir kvíða og óvissu og oft hafa verið gerðar ráðstafanir sem verða að engu.“

Það er ávallt læknisfræðilegt mat og ákvörðun, ef hætta á við aðgerðir vegna plássleysis. Ráðgefandi sérfræðingar taka slíkar ákvarðanir og skipta þeir milli sín vikum. Þessa vikuna er það yfirlæknir bæklunar. Ég hef samband við ráðgefandi sérfræðing og við setjumst niður og hver einn og einasti sjúklingur er yfirfarinn ítarlega og við skoðum hvort hægt sé að endurskoða útskriftir á deildum eða hvort að mögulega séu önnur úrræði í boði. Ráðgefandi sérfræðingur ræðir jafnframt við yfirlækna annarra deilda. Oft er þetta gert undir pressu, þar sem skurðstofur vilja halda prógramminu gangandi og ekki standa auðar. Í samráði við prógrammstjóra skurðstofugangs er ákveðið að færa eina mjaðmaprótesuaðgerð á stofu eitt aftast á prógrammið og kaupa tíma á meðan allir möguleikar eru skoðaðir. Jafnframt er ákveðið

að fresta þurfi skjaldkirtilsaðgerðinni á stofu sex ef engar lausnir finnast. Það er mjög leiðinlegt að færa sjúklingum þær fréttir að aðgerð sem þeir hafa beðið eftir verði ekki. Fólk verður fyrir vonbrigðum, finnur fyrir kvíða og óvissu og oft hafa verið gerðar ráðstafanir sem verða að engu.

Eftir hádegi mæti ég á stöðufundi á A4 og B5. Þar kemur margt fram sem skiptir máli fyrir skipulagið næstu daga, t.d. fyrirséðar útskriftir. Útskriftarhjúkrunarfræðingar sjá um að meta sjúklinga og setja á lista og koma þeim í viðeigandi úrræði í samráði við vaktstjóra viðkomandi deilda. Samskipti okkar eru einnig mikilvæg. Á stöðumatsfundinum fæ ég símtal frá innlagnastjóra með góðar fréttir; einn af okkar SKUGG-sjúklingum hefur fengið úthlutað plássi á HSS og þá losnar eitt pláss. Í kjölfarið liggur fyrir að skjaldkirtilsaðgerðin geti farið fram og upplýsi ég prógrammstjóra um það. Á þessum tímapunkti er ljóst að ekkert pláss er í sjónmáli fyrir síðustu aðgerðina. Ég heyri í deildarstjóra á vöknun og fæ samþykki fyrir að sjúklingurinn sem fer í mjaðmaprótesuaðgerðina dvelji þar yfir nóttina, svokölluð vöknunarflétta. Það er neyðarúræði sem við höfum þurft að nota þegar ástandið hefur verið krefjandi. Sjúklingurinn klárar aðgerð og flyst á vöknun, fer síðan á dagdeild A5 fram að lokun deildarinnar. Þá flyst hann aftur á vöknun yfir nóttina og til baka aftur á dagdeild að morgni, þar sem hefðbundin útskrift og fræðsla fer fram. Vissulega óheppilegra fyrirkomulag en hefðbundið og verður til þess að aðgerðin er framkvæmd. Fjölmargir einstaklingar eru á bið eftir slíkum aðgerðum í marga mánuði, ef ekki ár.

Í lok dags næ ég aðeins að kíkja yfir skipulag morgundagsins, sex innlagnir eru áætlaðar og líklegt er að einn sjúklingur á gjörgæslu verði tilbúinn til útskriftar. Jafnframt sé ég að tveir aldraðir sjúklingar hafa innritast nýlega á bráðamóttökuna en ekki lokið uppvinnslu. Líklega eru þeir beinbrotnir eftir byltu. Fyrirséð er að ekkert pláss er fyrir þessa sjúklinga á legudeildum innan spítalans næsta sólarhringinn.

Ég lýk vinnudeginum og það er enn bjart úti, þessi dagur gekk að lokum upp. Líklegast verður morgundagurinn ekkert minni áskorun. Starf flæðisstjóra á skurðlækningasviði í Fossvogi er krefjandi og skemmtilegt. Það er gaman að fá tækifæri til að þróa og móta nýtt starf sem mér var treyst fyrir og stundum er bara best að henda sér út í djúpu laugina og byrja að synda.

Leiðtoginn Ingibjörg Lára Símonardóttir yfirhjúkrunarfræðingur

„Það er seiglan sem kemur manni í mark.“

Texti: Sigríður Elín

Leiðtoginn: Ingibjörg Lára Símonardóttir

Fæðingardagur: 22 nóvember 1974

Stjörnumerki: Sporðdreki

Menntun: Hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri 2003. Diplómanám í bráðahjúkrun frá Háskóla Íslands 2011

Starfstitill: Yfirhjúkrunarfræðingur svæðis, HSN Akureyri

Fjölskylduhagir: Gift Kára Má Jósavinssyni sem er rafveituvirki. Við Kári eigum þrjú börn, þau Matthildi, Sunnevu og Lúkas og þrjú tengdabörn. Við erum svo rík að eiga líka tvö barnabörn, Bjart Kára og Hrannar Jaka

Hvers vegna valdir þú að læra hjúkrunarfræði á sínum tíma, var einhver lífreynsla eða fyrirmynd sem átti þátt í því vali?

Frá því ég var barn vissi ég að hjúkrun yrði mitt ævistarf. Heilbrigðisþjónusta hefur alltaf heillað mig og snemma kviknaði hjá mér sterk tilfinning fyrir mikilvægi umönnunar, samkenndar og fagmennsku. Ég hóf feril minn sem sjúkraliði og í kjölfarið varð hjúkrunarfræði eðlilegt næsta skref. Sem ungur sjúkraliði kynntist ég hjúkrunarfræðingum sem voru sannar fyrirmyndir. Þær hvöttu mig áfram í frekara nám og sýndu mér hvað hjúkrun er mikilvægt og víðfeðmt fag. Við sem störfum í hjúkrun getum haft mikil áhrif þegar við kynnum starfið fyrir ungu fólki, þar skiptir miklu máli að sýna einlægan áhuga á starfinu og hafa fagmennsku, jákvæðni og gleði að leiðarljósi. Til dæmis vann ég eitt sumar á hjúkrunarheimili en þar féll ég algjörlega fyrir hjúkruninni og þeirri nálægð sem starfið felur í sér við skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra. Ég hef aldrei séð eftir því að hafa valið hjúkrun og mér þykir afar vænt um starfið og upplifði mikilvægi þess alla daga.

Hvert lá leiðin eftir útskrift? Ég útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur árið 2003 og hóf þá störf á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri þar sem ég starfaði í 15 dásamleg ár. Ég var einnig í hlutastarfi á bráðamóttöku Land spítala í tvö ár sem var bæði lærdómsríkur og dýrmætur tími. Ég lauk diplómanámi í bráðahjúkrun 2011 en sú menntun hefur nýst mér afar vel.

Strax í verknámi á fjórða ári fann ég að bráðamóttakan átti hug minn allan. Það átti vel við mig að vinna í hröðu umhverfi þar sem verkefnin voru fjölbreytt og bregðast þurfti hratt og faglega við bráðum veikindum og lífshættulegum aðstæðum. Í þessu hraða umhverfi er mannlegi þátturinn líka afar mikilvægur og stuðningur, fræðsla og samúð skipta þar sköpum.

Á þessum árum starfaði ég einnig við sjúkraflug milli Íslands og Grænlands og fór í fjölmargar krefjandi og ógleymanlegar ferðir

til Grænlands að sækja sjúklinga. Aðstæður í þessum sjúkraflugum voru oft krefjandi en þessi reynsla mótaði mig bæði faglega og persónulega og þroskaði mig mikið sem hjúkrunarfræðing.

Ég starfa, jafnframt mínu starfi sem yfirhjúkrunarfræðingur svæðis, sem leiðbeinandi í ALS- og ILS-kennslu og reyni að gefa mér tíma til að sinna því vel þrátt fyrir stjórnunarstarfið. Mér finnst mikilvægt að halda mér faglega við og alltaf gefandi að miðla og eiga í krefjandi umræðum um öryggi í bráðaaðstæðum.

Hvenær varstu ráðin yfirhjúkrunarfræðingur svæðis á HSN?

Ég hóf störf hjá HSN-Heilsugæslunni á Akureyri árið 2016 þar sem mér var afar vel tekið. Strax fann ég mig í starfinu og það kom mér skemmtilega á óvart hversu fjölbreytt og krefjandi heilsugæslan er og hversu mikil nálægð er við skjólstæðinga. Starf hjúkrunarfræðinga í heilsugæslu hefur þróast mikið á undanförnum árum. Þjónustuþörf hefur aukist verulega og hlutverk hjúkrunarfræðinga orðið sjálfstæðara og víðtækara með heildræna sýn á skjólstæðinga.

Ég var svo ráðin yfirhjúkrunarfræðingur svæðis haustið 2021. Ég hafði ekki gengið með stjórnandadraum í maganum en hér er ég og kann því vel. Það er dýrmætt að fá að hafa stefnumótandi áhrif á þjónustu við skjólstæðinga sem á að vera lykilþáttur í öllum ákvörðunum. Á sama tíma er svo gefandi að vinna með góðu fólki, eins og ég er svo heppin með. Það hefur jafnframt skipt höfuðmáli fyrir mig, sem tiltölulega nýjan stjórnanda, að hafa fengið stuðning til að vaxa í starfi. Hvort sem það er stuðningur frá samstarfsfólki eða stjórnendum á HSN. Ég hef til dæmis tekið þátt í markvissri stjórnendaþjálfun og innleiðingu á teymisvinnu og þetta hefur án efa eflt mig sem stjórnanda.

Hvað felst í starfinu og hvernig er það frábrugðið þínu fyrra starfi?

Starf yfirhjúkrunarfræðings svæðis er afar fjölbreytt, skemmtilegt og krefjandi. Þar sameinast fagleg forysta, mannauðsmál, skipulag þjónustu og stefnumótun. Engir tveir dagar eru eins og verk-

Ásmundsdóttir | Myndir: Sigríður Elín Ásmundsdóttir og úr einkasafni

„Teymisvinnan hefur bætt starfsumhverfi, aukið valdeflingu milli starfstétta og stuðlað að betri upplifun skjólstæðinga og starfsfólks.“

efnin eru mörg og misjöfn en við á heilsugæslunni leysum þau í sameiningu. Hefðbundin heilsugæsluverkefni eins og skólahjúkrun og heimahjúkrun heyra undir mitt starf.

Það sem er helst frábrugðið mínu fyrra starfi er fjarlægðin frá daglegri beinni umönnun skjólstæðinga. Það var breyting að stíga frá mikilli nálægð við skjólstæðinga yfir í stjórnunarhlutverk. Á móti kemur tækifærið til að hafa víðtæk áhrif á gæði þjónustunnar og starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga og annars starfsfólks. Ég reyni svo að taka þátt í klínísku starfi þegar þörf er á og mér þykir dýrmætt að fá að hlaupa í skarðið og vera nálægt starfseminni.

Hvað er það mikilvægasta sem hefur áunnist á þessum árum síðan þú varðst yfirhjúkrunarfræðingur?

Ég tók við starfinu í lok Covid-tímabilsins þegar mikil þreyta var í starfsfólki og þá var mikilvægt að skapa rými fyrir enduruppbyggingu og að styrkja liðsheildina.

Stórt verkefni var líka flutningur heilsugæslunnar í nýtt húsnæði þar sem stjórnendur og starfsfólk komu að hönnun og mótun vinnuumhverfisins. Við höfum lagt áherslu á að skapa aðstæður sem styðja faglega vinnu og vellíðan starfsfólks.

Innleiðing teymisvinnu á stórri heilsugæslu með um 24 þúsund skjólstæðinga hefur verið sérstaklega ánægjuleg og krefjandi vegferð. Enn er unnið að aðlögun en árangurinn er sýnilegur. Allir íbúar svæðisins tilheyra nú heilbrigðisþjónustuteymi, erindi hafa skýran viðtakanda og ábyrgðaraðila, bið eftir úrlausnum hefur styst og samfella í þjónustu hefur aukist. Teymisvinnan hefur bætt starfsumhverfi, aukið valdeflingu milli starfstétta og stuðlað að betri upplifun skjólstæðinga og starfsfólks.

Hvaða eiginleika þarf góður leiðtogi í hjúkrun að hafa að þínu mati?

Góður leiðtogi þarf að vera mannlegur, faglega sterkur, skýr í samskiptum og hugrakkur. Hann þarf að geta tekið ákvarðanir og vera næmur fyrir þörfum bæði starfsfólks og skjólstæðinga. Traust, virðing og heiðarleiki eru lykilatriði. Mikilvægt er að sjá styrkleika samstarfsfólks og skapa umhverfi þar sem hæfileikar fá að njóta sín. Góður leiðtogi fer reglulega í sjálfsskoðun, er mannlegur og óhræddur við að taka samtalið og velta við steinum. Aðeins þannig verður framþróun.

Áttu þér fyrirmynd, er einhver leiðtogi í hjúkrun sem þér finnst skara fram úr í starfi?

Ég hef átt þess kost að vinna með mörgum öflugum leiðtogum í hjúkrun. Fremur en að nefna einn einstakling sæki ég innblástur í þá fjölmörgu sem leiða með fagmennsku, auðmýkt og skýrri sýn. Hverjar eru helstu áskoranirnar í þínu starfi?

Helstu áskoranir snúa að aukinni þjónustuþörf, mönnun og álagi í síbreytilegu umhverfi heilbrigðisþjónustunnar. Styttri vinnutími vegna 36 tíma vinnuviku er enn áskorun þar sem fagstéttunum fjölgaði ekki um 10% við þá breytingu. Mikilvægt er að finna jafnvægi milli þjónustuframboðs/gæða sem og mönnunar þar sem hætt er við að fólk finni til streitu þegar undirmönnun er viðvarandi og verkefnin mörg. Líðan í starfi er lykilatriði og við þurfum að komast út úr þeim spíral sem má segja að sé ríkjandi í heilbrigðiskerfinu; álag - veikindi - undirmönnun.

Þín helstu bjargráð í starfi?

Ég er einstaklega heppin með fólkið í kringum mig, samstarfsfólk, yfirmenn, samstjórnendur, vini og fjölskyldu. Það er ómetanlegt að geta leitað til reyndra stjórnenda sem eru styðjandi og hafsjór af

góðum ráðleggingum. Að vinna í teymi þar sem traust og virðing ríkir skiptir öllu máli og maður er gripinn þegar á reynir. Jafnframt tel ég að hreyfing sé lykilþáttur til að hlaða orkuna eftir oft annasama daga og hreyfi ég mig flesta daga og þá helst úti.

Ertu meðvitað að vinna í því að efla leiðtogahæfileika þína?

Já, ég lít á leiðtogahlutverkið sem sífellda þróun. HSN hefur lagt mikla áherslu á stuðning, fræðslu og eftirfylgd við stjórnendur sem hefur styrkt mig mikið í starfi. Að hitta aðra stjórnendur reglulega og læra af öðrum hefur reynst mér afar dýrmætt.

Hvernig sérðu að hjúkrun hér á landi muni þróast á næstu tíu árum?

Framtíð hjúkrunar er björt. Aukin sérhæfing, samþætt þjónusta og sterkari rödd hjúkrunar í stefnumótun munu móta næstu ár. Hjúkrunarfræðingar eru duglegir að sækja sér framhaldsmenntun og sú fagþekking styrkir heilbrigðiskerfið enn frekar.

Hvernig leysum við, eða minnkum, mönnunarvandann að þínu mati?

Mikið hefur áunnist í kjaramálum en baráttunni er hvergi nærri lokið miðað við ábyrgð, menntun og störf hjúkrunarfræðinga. Við þurfum jafnframt að einbeita okkur að starfsumhverfi og líðan í starfi. HSN hefur innleitt verkefnið Vellíðan á vinnustað, sem er heildrænt verkefni til að styðja starfsfólk og stuðla að góðri vinnustaðarmenningu. Jafnframt erum við heilsueflandi vinnustaður. Þessir þættir, teymisvinna og fjölmörg önnur atriði sem snúa að því að fólk hafi nokkuð um vinnuna sína að segja og upplifi að það sé metið, skiptir miklu máli. Starfsaðstæður skipta einnig miklu máli en í nýju húsnæði höfum við lagt áherslu á að skapa aðstæður sem styðja bæði líkamlega og andlega vellíðan. Við þurfum einnig að vera sýnilegri og segja frá því sem vel gengur í starfinu, það er ekki hjálplegt að tala alla daga um álag, þó svo að það sé sannarlega kerfislægur vandi sem þarf að vinna markvisst með.

Draumastarfið þitt ef þú ættir að skipta um starfsvettvang?

er mitt mat að við erum enn að læra af þeirri reynslu og sjá áhrifin sem virðast ætla að verða meiri en við áttuðum okkur fyrst á.

Hver eru áhugamál þín utan vinnutíma?

Ég sé mig áfram innan heilbrigðiskerfisins. Ég hef einlægan áhuga á þróun þess og sé ekki fyrir mér að starfa við neitt annað.

Hvernig gengur þér að samræma vinnu og einkalíf? Það er jafnvægislist. Í upphafi tók vinnan mikið pláss en ég hef markvisst sett mér reglur til að ná betra jafnvægi. Það er mikilvægt að geta kúplað sig frá vinnu þegar heim er komið og hafa mörkin sín skýr. Það hefur þróast í rétta átt hjá mér með góðum stuðningi samstarfsfólks og fjölskyldu.

Þarftu sem yfirmaður að eyða miklum tíma á skrifstofunni eða hefurðu tíma einnig til að sinna starfsfólki og skjólstæðingum?

Starfið krefst vissulega skrifstofuvinnu en ég legg mikla áherslu á að vera sýnileg og aðgengileg og í góðum tengslum við starfsfólk og starfsemina. Þegar vantar starfsfólk í klíníska vinnu fer ég að sjálfsögðu og leysi af. Mér finnst nauðsynlegt að halda mér við í klínískri vinnu.

Var covid-tímabilið dýrmætur lærdómur eða lífreynsla sem þurfti að vinna úr?

Covid var bæði lærdómsríkt og krefjandi. Það sýndi styrk heilbrigðisstarfsfólks og mikilvægi samstöðu en undirstrikaði jafn-

Það er nú eiginlega þannig að ég á allt of mörg áhugamál. Ég fór að stunda fjallahlaup fyrir nokkrum árum og það er alveg ótrúlega nærandi og gefandi íþrótt. Ég æfi með frábærum hópum á Akureyri þar sem ég hef kynnst góðu fólki. Skemmtilegast finnst mér að taka þátt í hlaupum í náttúru íslands og erlendis. Auk þess hef ég gaman af skíðamennsku, veiði og að njóta lífsins með góðum vinum.

Hvernig hlúir þú að þér og þínum?

Eftir langan og strangan vinnudag finnst mér nauðsynlegt að fara út, anda að mér fersku lofti og hreinsa hugann. Horfa á fallega umhverfið og njóta. Þetta er eitthvað sem allir vita en er nauðsynlegt að framkvæma.

Fjölskyldan er mér dýrmætust og ekkert jafnast á við tíma með barnabörnunum. Einnig nýt ég þess að sitja með prjónana og góðan kaffibolla og fara út að hlaupa með eiginmanninum eða góðum vinum. Seiglan sem fylgir hlaupunum á vel við bæði í vinnu og einkalífi – það er seiglan sem kemur manni í mark.

Að lokum, hvað er það besta við að búa á Akureyri?

Akureyri býður upp á einstakt jafnvægi milli öflugs samfélags og stórbrotinnar náttúru. Hér eru stuttar vegalengdir, barnvænt umhverfi og gott aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Það eru forréttindi að búa og starfa í hjarta Norðurlands. Ég hvet þá sem hafa tækifæri til að búa á landsbyggðinni að að athuga hvort lífsgæði sem viðkomandi sækist eftir liggi kannski þar.

Hjúkrunarfræðingar taka höndum saman og halda námskeið sem hefur slegið í gegn

Áföll, streita og taugakerfið

Áföll, streita og taugakerfið heitir námskeið sem Sigrún Sigurðardóttir, doktor í hjúkrunarfræði, og Margrét Grímsdóttir geðhjúkrunarfræðingur hafa boðið upp á síðan síðan í apríl 2025. Námskeiðið fjallar um afleiðingar áfalla og langvinnrar streitu á andlega og líkamlega heilsu og kennir leiðir til að vinna með afleiðingar áfalla, kulnunar og/eða örmögnunar sem er því miður raunveruleiki sem margir eru að takast á við. Ritstýran heyrði í Sigrúnu og Margréti sem voru staddar á Heilsustofnun í Hveragerði en áttu lausa stund fyrir spjall um þetta áhugaverða námskeið.

Hvernig kom það til að þið ákváðuð að bjóða upp á námskeið um áföll og streitu?

„Eftir að ég fór að vinna á Heilsustofnun kom upp þessi hugmynd, ég er með sérfræðiþekkingu á áföllum og Margrét á streitu og við fundum að það talaði mjög vel saman. Það var vel tekið í þessa hugmynd hér á Heilsustofnun í Hveragerði og þetta er frábært tækifæri fyrir okkur að bjóða upp á námskeið og tengja saman okkar sérsvið,“ segir Sigrún og Margrét bætir við að hún sé í meistaranámi þar sem hún hafi tekið áfanga Sigrúnar um áföll og ofbeldi: „Hugmyndin og undirbúningurinn að þessu námskeiði varð að lokaverkefni mínu í áfanganum. Þegar við auglýstum námskeiðið fyrst var áhuginn langt umfram væntingar og það var orðið fullbókað á tveimur dögum. Síðan þá höfum við haldið fjögur námskeið og erum alltaf með biðlista á næstu námskeið þannig að það er ljóst að þörfin er fyrir hendi.“

Nú eruð þið að stefna að því að halda námskeið fyrir hjúkrunarfræðinga, hvað getið þið sagt mér um það? „Við hjúkrunarfræðingar þekkjum vel mikið álag í starfi og afleiðingar þess eins og kulnun og örmögnun. Mörg okkar erum með áföll á bakinu og höfum upplifað ýmsa erfiðleika í lífinu sem geta haft áhrif á seigluna okkar til að takast á við krefjandi aðstæður í vinnu. Markmið okkar með námskeiðinu fyrir hjúkrunarfræðinga er að auka þekkingu á samspili áfalla og álags í starfi og læra leiðir til að takast á við það. Við skoðum ýmislegt sem hefur áhrif á okkur í starfi, krefjandi aðstæður í vinnu, samskipti á vinnustað o.fl. og hvernig okkur tekst að halda góðu jafnvægi svo við getum starfað lengur á þessu sviði. Námskeiðið verður í haust og koma dagsetningar á næstu dögum,“ segir Sigrún brosandi.

Hver er ykkar bakgrunnur og hvers vegna urðu áföll eða streita rauði þráðurinn á ykkar starfsferli? „Ég útskrifaðist úr hjúkrunarfræði frá HÍ 1996 og hafði strax mikinn áhuga á geðheilbrigði og áhrifum veikinda og áfalla á einstaklinginn og fjölskyldur þeirra. Ég fór síðan í meistaranám í klínískri félagsráðgjöf í Bandaríkjunum og eftir útskrift starfaði ég þar í nokkur ár við stuðning og meðferð fjölskyldna sem voru að fara í gegnum erfið veikindi, missi og önnur áföll. Þar fór ég að skoða hvernig þessar krefjandi aðstæður hafa áhrif á streitukerfið okkar, hvernig við bregðumst öll ólíkt við og vakti það athygli mína hvernig sagan okkar, persónuleiki, seigla og ýmsar aðstæður

spila inn í hvernig við tökumst á við streitu og álag. Þegar ég byrjaði síðan að vinna á Heilsustofnun 2012 fékk ég tækifæri til að sérhæfa mig enn frekar í meðferð einstaklinga sem eru að takast á við sjúklega streitu, kulnun eða örmögnun og er það hluti af starfi mínu á Heilsustofnun í dag,“ svarar Margrét og Sigrún segir frá sínum bakgrunni en hún útskrifaðist úr hjúkrunarfræði frá HA árið 2001 og með meistaragráðu í heilbrigðisvísindum frá sama skóla sex árum síðar. „Ég lauk doktorsprófi í hjúkrunarfræði frá HÍ 2017 og í mínu meistara- og doktorsnámi rannsakaði ég reynslu karla og kvenna af kynferðislegu ofbeldi í æsku, afleiðingar á heilsufar og líðan og þróaði heildrænt meðferðarúrræði fyrir konur sem höfðu orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi; Gæfusporin hjá Starfsendurhæfingu Norðurlands. Ég hafði því reynslu af því að vinna með einstaklingum eftir slík áföll og veit hvað þarf að gera og hvað virkar. Ég starfaði einnig sem lögreglumaður áður fyrr þar sem áföll komu mikið við sögu og má segja þar hafi sú vinna hafist,“ segir Sigrún en hún hefur haft umsjón með námskeiði á meistarastigi við HA um áföll og ofbeldi frá árinu 2010 og segir að vinsældir þess hafi aukist með hverju árinu.

Áföll og áfallasaga hefur verið áberandi í umræðunni undanfarið, upplifið þið vitundarvakningu, að fólk geri sér almennt betur grein fyrir áhrifum áfalla á taugakerfið og andlega líðan en áður?

„Já, ekki spurning,“ svarar Sigrún að bragði. Hún segir að heilmikið hafi breyst síðustu tuttugu árin síðan hún lauk sínu meistaranámi en samt vanti töluvert upp á menntun fagfólks á þessu sviði. „Það vantar að leggja meiri áherslu á það í grunnnáminu, það dugar ekki að hafa það sem valáfanga í meistaranámi,“ segir Sigrún og Margrét bætir við að sem betur fer sé umræðan að opnast í samfélaginu. Fólk sé farið að tala um afleiðingar áfalla á líf og heilsu. „Þegar ég var að byrja að kynna mér þetta upp úr aldamótum vorum við varla komin með orð yfir þetta en sem betur fer erum við núna farin að taka afleiðingar áfalla heildrænt inn í endurhæfingu einstaklinga. Við sjáum í starfi okkar hvernig afleiðingar áfalla, kulnunar og örmögnunar geta spilað inn í veikindi og birst í til dæmis langvinnum verkjum, kvíða og svefnerfiðleikum. Það er mikið búið að rannsaka áhrif áfalla og streitu á taugakerfið sem við nýtum okkur til að styðja þá vinnu sem við erum að vinna og þá þekkingu sem við komum áleiðis í námskeiðinu,“ útskýrir Margrét.

Hefur fólk mismikið þol fyrir áföllum og streitu því sumir virðast þola endalausa ágjöf meðan aðrir brotna við fyrsta brotsjó?

Margrét grípur boltann og svarar: „Það er svo margt sem spilar inn í hvernig við tökumst á við streitu og áföll. Persónuleikinn okkar, sagan okkar, fyrri áföll, stuðningur úr umhverfi, seigla, viðhorf, lífssýn og fleira skipta þarna máli. Eitt af því sem við fjöllum um á námskeiðinu er hvernig við getum eflt seiglu hjá okkur til að geta tekið á móti þeim áskorunum sem lífið óhjákvæmilega hendir í okkur. Þarna vinnum við með leiðir til að styrkja taugakerfið í gengum fræðslu, hugleiðslu, jóga nidra, öndunaræfingar, þakklæti og jákvæðan hugsunarhátt.“ Sigrún tekur undir þetta og segir að við séum með breytilegt taugakerfi hvað varðar hve sterkt það sé og þolum því mismikið, einnig geti verið dagamunur á fólki eftir aðstæðum. „Við þolum minna ef við erum undir álagi og eins getum við aukið þetta þol með því að vinna í okkur, róa taugakerfið, virkja eða vekja Vagus- taugina með til dæmis hugleiðslu, jóga nidra, djúpslökun og fleiru. Þá er einnig mikilvægt að horfa á kynslóða áföll, eða áföll sem erfast á milli kynslóða, því þau geta haft áhrif á okkur og okkar líðan. Einnig geta áföll á meðgöngu, í fæðingu og á fyrstu árunum haft áhrif á líf okkar og líðan og hvernig við bregðumst við áföllum og streitu,“ bætir Sigrún við.

Fyrir hvern er þetta námskeið ykkar hugsað og hverju á það að skila?

„Það er opið öllum en það komast 12 að á hvert námskeið. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem eru að takast á við afleiðingar áfalla, sjúklegrar streitu, kulnunar eða örmögnunar. Markmið okkar með námskeiðinu er að þátttakendur fái verkfæri til að stíga út úr vanlíðan eða erfiðum tilfinningum og nýti aðferðir sem við kennum til að róa taugakerfið. Við erum ekki að vinna með áfallið sjálft eða ástæður kulnunar/örmögnunar nema að litlu leyti en leggjum þeim mun meiri áherslu á fræðslu, áhrif náttúrunnar á líðan og hugleiðslu,“ svarar Margrét.

Námskeiðið er nokkrir dagar, hvers vegna ekki bara hálfur dagur eða einn heill? Skiptir máli að ná hópnum saman í ákveðinn tíma og upplifa eitthvað saman sem skilar sér í betri núvitund eða?

„Eitt af því sem þeir sem koma til endurhæfingar á Heilsustofnun segja okkur er mikilvægi þess að komast í það skjól sem hún veitir. Við teljum að við myndum ekki ná þeim árangri, samkennd og tengingu við þátttakendur eða þeir sín á milli ef fólk væri að fara heim í lok dags eða fengju fræðsluna á styttri tíma. Það að hafa tækifæri til að kúpla sig út úr daglegu lífi, koma í skjól Heilsustofnunar þar sem er hlúð að þér og þú færð tækifæri til að vinna með þína líðan og fá hvíld frá daglegu lífi teljum við að sé lykilatriði í að ná þeirri vellíðan eða bata sem þátttakendur ná á námskeiðinu,“ segir Margrét og Sigrún bætir því við að einnig myndist oft tengsl innan hópsins sem sé mikilvægt í batanum og til að jafnvel rjúfa félagslega einangrun sem hún segir að sé að verða algengt vandamál í dag. „Það má segja að þar komi jafningjastuðningur inn í þar sem einstaklingar geta stutt hver annan, þó svo að við séum ekki að deila persónulegum sögum á námskeiðinu,“ segir Sigrún og þá verð ég að spyrja hana örlítið út í bókina sem hún var að gefa út.

Þú varst að gefa út bók sem heitir Áfall,hvaðsvo?

Fyrir hvern er bókin skrifuð og hvað hvatti þig til að skrifa bók um þetta efni?

„Bókin er skrifuð fyrir almenning, fólk eins og áttræða móður mína og börnin mín á þrítugsaldri og allt þar á milli og fyrir fagfólk sem þarf að vita hvernig það bregst við einstaklingum eftir áföll og jafnvel til að vinna með sjálft sig eftir áföll, hvort sem það er í einkalífinu eða starfi. Aðalhvatningin var að mér fannst vanta efni á mannamáli um áföll, afleiðingar og úrræði, einnig langaði mig til að skilja eitthvað eftir mig til að geta bent fólki á efni til að læra af,“ svarar hún og sýnir ritstýrunni bókina sem hefur hlýlega kápumynd af tré.

Að lokum, hvernig nærið þið sjálfar andann og róið taugakerfið ef álagið er mikið og áföll verða í ykkar lífi?

Margrét byrjar: „Ég er mjög meðvituð um að halda jafnvægi í lífi mínu. Þegar koma álagstoppar sem eðlilega verða í lífi okkar allra er ég með ofarlega í huga þá þætti sem næra mig og verða því mótvægi við álaginu. Þetta eru þættir eins og að fara út í náttúruna, komast í vatn, eins og sund eða heitan pott. Eiga notalega stund með fjölskyldunni minni eða bara sitja og prjóna í algjöru tímaleysi. Fyrir þetta reyni ég eftir fremsta megni að búa til pláss í lífinu til að halda jafnvægi.“

„Ég knúsa börnin mín og hundinn minn og fer út með hann. Ég hugleiði, ég fer út í náttúruna og nýt hennar og geng mikið, ég nýt þess sérstaklega að komast í kyrrðina fyrir vestan í sumarbústað fjölskyldunnar þar sem ég næ nánast að slökkva á streitukerfinu. Ef álagið er mikið eða áföll banka upp á fer ég í dáleiðslu eða heilun. Ég legg mikla áherslu á að vera í samskiptum við fólk sem nærir mig og forðast því aðstæður sem ræna mig orku eða næra mig ekki. Það er mjög mikilvægt fyrir okkur öll að spyrja okkur reglulega: Hvað nærir mig? Og fylgja því og forðast að fara í meðvirkni með fólki sem hefur ekki góð áhrif á líðan okkar,“ segir Sigrún og við látum það verða lokaorðin og hvetjum öll til að hlúa að taugakerfinu og að gleyma ekki að gefa sér tíma til að slaka og

Hjúkrunarfræðingarnir Margrét og Sigrún í nærandi umhverfi á námskeiðinu.

„Við sjáum í starfi okkar hvernig afleiðingar áfalla, kulnunar og örmögnunar geta spilað inn í veikindi og birst í t.d. langvinnum verkjum, kvíða og svefnerfiðleikum.“

Umburðarlyndi, góðsemi og virðing fyrir nemendum

Verið viðloðandi kennslu í tæp fjörutíu ár

Texti og myndir: Sigríður Elín Ásmundsdóttir

Nafn: Eydís Kristín Sveinbjarnardóttir

Fæðingardagur og ár: 24. júní 1961

Menntun

B.S. í hjúkrunarfræði frá HÍ (1987). Kennslufræði til kennsluréttinda HÍ frá (1988). M.S.N. í geðhjúkrun frá Háskólanum í Pittsburgh Bandaríkjunum (1990). Diplóma í fjölskyldumeðferð (meðfram námskeiðum hittu nemendur fjölskyldur/pör og fengu handleiðslu á klínískan þátt námsins einu sinni í viku í tvö ár). Kaþólski háskólinn í Leuven, Belgíu (1996). Diplóma í stjórnun og rekstri í heilbrigðisþjónustu frá HÍ og Norræna heilsuháskólanum í Gautaborg Svíþjóð (2001). Ph.D. í hjúkrunarfræði með áherslu á fjölskylduhjúkrun innan geðheilbrigðisþjónustu (2012).

Starfsheiti

Prófessor og forstöðumaður fræðasviðs geðhjúkrunar HÍ/Landspítala.

Hvernig myndir þú lýsa þér í fimm orðum?

Marksækin, áræðin með blöndu af varkárni, frekar skipulögð, þrautseig, hlustandi.

Af hverju hjúkrunarfræði?

Ég held að það hafi verið örlögin sem réðu því. Móðir mín heitin, Anna Huld Lárusdóttir, ætlaði að fara í Hjúkrunarskóla Íslands en hún varð barnshafandi af mér 16 ára gömul og þá rættist því miður sá draumur hennar ekki en hann rættist má kannski segja í gegnum mig mörgum árum seinna.

Hver er þín sérgrein?

Geðhjúkrun og fjölskylduhjúkrun.

Hvað heillaði þig við þá sérgrein og varð til þess að þá valdir hana frekar en aðra?

Ég byrjaði að vinna sem stuðningsfulltrúi/hjúkrunarnemi á geðdeildinni í Borgastpítalanum og á BUGL á sumrin meðfram námi og þá var ekki aftur snúið. Ég hef aldrei efast um að geðhjúkrun er mín sérgrein í hjúkrunarfræði. Fjölskyldurnar komu svo til mín seinna í tengslum við sjálfboðaliðastarf hjá Geðhjálp um árabil og eftir frekara nám í fjölskyldumeðferð.

Af hverju kennsla frekar en klíník?

Ég hef verið í stundakennslu frá árinu 1990. Mín fyrsta kennsla í hjúkrunarfræði var með Herdísi Sveinsdóttur prófessor. Það var á námskeiði í handlækningahjúkrun þar sem við vorum að kenna hjúkrunarnemum hvernig hægt væri að kenna sjúklingum öndunaræfingar fyrir aðgerðir. Ég hef síðan þá verið viðloðandi kennslu í hjúkrunarfræði, mest í geðhjúkrun, í rúma þrjá áratugi bæði við HÍ og HA. Ég hef aðeins verið háskólakennari í 100% starfi frá 1991-1994 og svo aftur núna frá 2021. Af þessum 39 árum sem ég hef starfað við hjúkrunarfræði hef ég verið í stjórnendahlutverkum í samtals 24 ár innan Landspítala og Háskólans á Akureyri. Meðfram stjórnendahlutverki mínu á geðsviði Landspítala þá var klínísk aðkoma mín gjarnan meðferðarsamræður við aðstandendur og fjölskyldur, með eða án þjónustuþega, bæði börn og fullorðnir. Þess má geta að 100% starf í háskólakennslu felur í sér kennslu, rannsóknir og stjórnun en rannsóknir kennara í hjúkrunarfræði eru gjarnan um hvernig má bæta gæði klínískrar þjónustu hjúkrunar.

Þyrstir þig í fleiri háskólagráður, langar þig í meira nám?

Áhugaverð spurning – svo lengi lærir sem lifir. Mig þyrstir kannski ekki í fleiri háskólagráður en mér finnst alltaf gaman að bæta við mig þekkingu og þjálfun. Já, mig langar í nám í handleiðslu en það hefur ekki verið í boði hjá Endurmenntun HÍ um tíma.

Ef þú hefðir ekki lært hjúkrunarfræði hvað hefðir þú þá lært?

Ég held að ég hefði farið í einhvers konar lífvísindi eða erfðafræði en iðjuþjálfun eða félagsráðgjöf hefðu líka komið til greina.

Hvaða fög kennir þú?

Ég hef umsjón með og kenni bóklega og klíníska geðhjúkrun í grunnnáminu í hjúkrunarfræði. Einnig kenni ég í bóklegri fjölskylduhjúkrun og klínískri fjölskylduhjúkrun. Ég hef umsjón með námskeiði á meistarastigi

Eydís Kristín Sveinbjarnardóttir í Eirbergi.

í fjölskylduhjúkrun sem heitir sérhæfð fjölskylduhjúkrun. Ég leiðbeini líka í lokaverkefnum til B.S.- og M.S.-gráðu í hjúkrunarfræði. Ég sit einnig í doktorsnefndum og er nýorðin aðalleiðbeinandi doktorsnema í geðhjúkrun við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild.

Hvað er það besta við kennarastarfið?

Fjölbreyttur nemendahópur sem þráir að læra hjúkrunarfræði og þá sérstaklega geðhjúkrun. Umræðufundir í klínískri geðhjúkrun með B.S.- nemendum og leiðbeining lokaverkefna eru sérstaklega skemmtileg viðfangsefni.

Hver var þinn uppáhaldskennari á námsárunum?

Stefán B. Sigurðsson prófessor sem kenndi lífeðlisfræði við HÍ. Ég kynntist honum aftur mörgum árum seinna þegar ég var sviðsforseti Heilbrigðisvísindasviðs HA (2016-2021) og hann þá fyrrverandi rektor HA. Þá rifjaðist upp fyrir mér hversu góður kennari Stefán var, ég komst einnig að því hvað það var gjöfult að taka samtalið með honum, spegla aðkallandi flókin málefni og ræða mögulegar lausnir.

Hverjar eru helstu áskoranir háskólakennarans?

Eins og áður segir er hlutverk háskólakennarans þríþætt; kennsla, rannsóknir og stjórnun. Mér finnst helsta áskorunin vera að sinna öllum þremur þáttunum vel ásamt því að vera forstöðumaður fræðasviðs geðhjúkrunar og vera í samvinnu við stjórnendur, fagfólk og hjúkrunarfræðinga á geðsviði Landspítala. Það krefst ákveðinnar útsjónarsemi og vinnusemi að sinna nemendum vel, uppfylla rannsóknarskylduna og taka þátt í stjórnun Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar. Þetta verður gjarnan meira en 100% starf.

Uppáhaldskennslustofan þín að kenna í?

Uppáhaldskennslustofurnar mínar eru 321 og 325 í Eirbergi, það eru minni stofur og þá færri nemendur sem gerir kennsluna persónulegri. Mér finnst langskemmtilegast þegar hægt er að sitja í hring með nemendum og ræða saman um klínísk tilfelli og námsefnið en það er t.d. hægt i Kristalnum 308B og í kennara-

Eitthvert fag sem þér finnst vanta í grunnnámið?

Þetta er stór spurning. Nú verð ég að vera heimóttarleg og segja að mér finnst vanta hermikennslu í grunnnámið í geðhjúkrun þ.e. að nemendur fái að framkvæma alvörugeðskoðun í hermikennslu áður en þeir fara á deildir í klínískt nám. Námsstjórn í klínísku meistaranámi í geðhjúkrun hefur þróað hermikennslu í geðhjúkrun frá 2022 þegar nýja námið okkar fór af stað þá um haustið og hefur verið afar vel tekið af nemendum.

Hressasti kennarinn á kennarastofunni?

Það er dálítið misjafnt og fer svolítið eftir dagsformi kennara. Mín upplifun er að allir hafi verið hressasti kennarinn einhvern tíma á misserinu. Það hefur enginn tekið þetta hlutverk að sér alla leið að vera alltaf hressasti kennarinn.

Eftirminnilegasta kennslustundin?

Ég hef ekki enn orðið fyrir því af því að fá teiknibólu í sætið mitt. Það sem hefur verið eftirminnilegast og dýrmætast í kennslu er þakklæti vegna leiðbeiningar eða kennslu sem ég hef komið nálægt frá nemendum sem hafa gefið óvænt hrós. Það hittir mig beint í hjartastað.

Flottasta fyrirmyndin þín í hjúkrunarfræði?

Ég hef aldrei átt eina ákveðna fyrirmynd í hjúkrunarfræði. Ég hef oftast verið heppin og getað litið upp til minna yfirmanna í hjúkrun og nánustu samstarfsmanna í gegnum tíðina. Ég lærði vinnusemi, þrautseigju og hugrekki af Önnu Stefánsdóttur, fyrrverandi hjúkrunarforstjóra Landspítala, sem lengi vel var yfirmaður minn í hjúkrun (1997-2012). Erla Kolbrún Svavarsdóttir, prófessor og aðalleiðbeinandi minn í doktorsnáminu (2007-2012), lagði grunninn að framtíðarvísindastarfi mínu í hjúkrun og á hún þakkir skilið fyrir það. Ég á einnig erlendar fyrirmyndir í hjúkrunarfræði þ.e. Lorraine M. Wright, prófessor emerita við Háskólann í Calgary í Kanada, sem sat í doktorsnefndinni minni og vinkona mín til áratuga Sabina De Geest, prófessor við Háskólann í Basel í Sviss, sem ég kynntist árið 1995. Þær eru allar hjúkrunarfræðingar sem hafa haft umtalsverð áhrif á mig.

Eiginleikar sem þú vilt tileinka þér í kennarastarfinu?

Það er skemmtilegast að kenna vel undirbúin bæði hvað varðar inntak og útfærslu kennslunnar. Umburðarlyndi, góðsemi og virðing fyrir nemendum þarf einnig að vera með í farteskinu og skýrar leiðbeiningar til nemenda varðandi til hvers er ætlast af þeim, bæði í verkefnum og klínísku námi.

Hvernig tilfinning er að útskrifa nemendur?

Það er góð tilfinning og ég fyllist gjarnan stolti þegar nemendur brautskrást úr hjúkrunarfræði eða framhaldsnámi í hjúkrun. Ég upplifði það sérstaklega þegar ég tók þátt í brautskráningarathöfninni við HA þegar ég var sviðsforseti Heilbrigðisvísindasviðsins þar (2016-2021) og var að brautskrá bæði iðjuþjálfa og hjúkrunar-

samstarfsgreinar í heilbrigðisvísindum, félagsráðgjöf, sálfræði, iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun o.fl. fög, sem miða starfsréttindin við M.S.-gráðu eftir fimm ára nám – svokölluð „þrír tveir leið.“ Ég er fylgjandi nýrri námsskrá sem hefur verið í undirbúningi við Hjúkrunar- og ljósmóðurdeild HÍ í samvinnu við Hjúkrunarfræðideild HA og Fíh undanfarið. Hvernig myndir þú sannfæra áhugasama um að skella sér í nám í hjúkrunarfræði? Nám í hjúkrunarfræði er kennt í tveimur háskólum á Íslandi sem fara yfir sama inntakið skv. Evrópuviðmiðum um nám í hjúkrunarfræði. Við HA er áhersla á fjarnám en við HÍ er áhersla á staðnám. Nám í hjúkrunarfræði fléttar saman fræðilegt og klínískt nám sem líkur með starfsleyfi. Það vantar fólk til starfa í flestar heilbrigðisvísindagreinar og nýútskrifaður hjúkrunarfræðingur getur valið úr verkefnum og fjölbreyttum störfum til að starfa við. Hjúkrunarfræðingar vinna sjálfstætt en einnig náið með öðrum, t.d. í teymum, veita fólki á öllum aldri og öllum þjóðfélagsstigum flókna heilbrigðisþjónustu. Störf hjúkrunarfræðinga eru því mjög fjölbreytt.

Hvernig nærir þú andann?

Ég les töluvert, bæði skáldsögur og allt efni sem tengist geðhjúkrunar- og fjölskyldufræðum. Mig langar til að skrifa eitthvað annað en ritrýndar greinar því mér finnst svo nærandi að skrifa. Ég fer í göngur í flatlendi, á fjöll og í fluguveiði með eiginmanni, barnabörnum og vinum. Það sem heldur mér á lífi í hversdeginum

er sundleikfimi sem ég fer í með mágkonum mínum tvisvar í viku í Seltjarnarnesslaug. Ég fer svo í World Class þegar ég má vera að og lyfti lóðum, þar heldur eiginmaður minn, Sigurður Snævarr

Að fara í bústaðinn minn í Svarfhólsskógi í Svínadal, sem heitir

Hvað hryggir þig helst?

Ætli það sé ekki heimsástandið um þessar mundir.

Hvernig fáum við fleiri karlmenn til að læra hjúkrun?

Ég er búin að vera í verkefnum með Gísla Kort Kristóferssyni, prófessor í geðhjúkrun við HA, í rúm 10 ár þar sem markmiðið er að fjölga karlmönnum í hjúkrunarfræði. Síðustu tvö verkefni hafa verð norræn verkefni þ.e. „Men in Nursing“ og „Share the Care“ sem hafa verið styrkt af Norræna jafnréttissjóðnum (NIKK). Við erum með þrjár ritrýndar greinar í bígerð um þetta afar mikilvæga efni. Ætli ég láti ekki greinarnar tala sínu máli þegar að þeim kemur.

Ef þú ættir eina ósk fyrir heilbrigðiskerfið á Íslandi?

Að skóflustunga og bygging nýs geðhúss í Fossvogi verði að veruleika sem fyrst.

Falin perla í náttúru Íslands?

Ég og eiginmaður minn uppgötvuðum náttúrufegurð Stórurðar, þegar við gengum Víknaslóð árið 2024. Þangað til var þetta falin perla fyrir okkur.

Að endingu, þitt mottó?

Ég elska Disney-teiknimyndir enda að hluta til alin upp í Gamla bíói hjá afa og ömmu sem bjuggu í íbúðinni þar, sem nú kallast Petersen svítan, í 40 ár. Mottóið mitt kemur úr bíómyndinni Lion King og er Hakuna Matata.

?

URKÚJH N ARFRÆÐINEMINN SITURFYR I

Þóra

R VS MURÖ

Erlingsdóttir

Spennandi að fara erlendis að starfa sem hjúkrunarfræðingur

kemur í ljós hvað framtíðin ber í skauti sér. Hafðir þú lengi stefnt að því að læra hjúkrunarfræði eða varstu að íhuga eitthvert annað nám?

Ég var aldrei staðráðin í því en vissi alltaf að ég vildi hjálpa fólki. Síðan fór ég að vinna á spítalanum og þá féll ég alveg fyrir starfi hjúkrunarfræðinga.

Gætir þú hugsað þér að starfa við fagið erlendis í framtíðinni?

Já klárlega, mér finnst mjög spennandi að fá reynslu af því að starfa sem hjúkrunarfræðingur erlendis.

Skemmtilegasta fagið?

Það er erfitt að velja eitthvert eitt fag en ég verð þó að segja að þótt lyfjafræðin hafi verið erfið þá kom hún skemmtilega á óvart og ég segi því lyfjafræði.

Erfiðasta fagið?

Örveru- og sýklafræði.

Aldur 24 ára

Stjörnumerki Vatnsberi

Eiginleikar sem þú vilt tileinka þér í starfi?

Að vera stanslaust að afla mér meiri þekkingar og sinna símenntun af metnaði.

Gæðastundir með fjölskyldu og vinum.

Hvað hryggir þig helst?

Að sjá mínum nánustu líða illa og öll þessi ónauðsynlegu stríð sem eru núna í heiminum.

Hvernig fáum við fleiri karlmenn til að læra hjúkrun?

Með því að sýna fram á jákvæðar hliðar starfsins og mikilvægi stéttarinnar, sem mér finnst ekki vera endurspeglað nógu mikið í almennri umræðu og fjölmiðlum.

Ef þú ættir eina ósk?

Ég myndi óska þess að enginn þyrfti að flýja heimili sitt.

Fallegasta borg í heimi?

Laugarvatn, það er ekki borg en klárlega fallegasti staðurinn.

Falin perla í náttúru Íslands? Þórufoss.

Eitthvað sem hefur komið á óvart í náminu? Hversu fjölbreytt starf hjúkrunarfræðinga er.

Eitthvert fag sem þér finnst vanta í námið?

Meiri grunnkennsla í sálfræði held ég að myndi nýtast okkur vel.

Ætlar þú að fara í framhaldsnám?

Ég veit að mig langar í meira nám en núna hef ekki hugmynd um í hverju.

Hressasti kennarinn?

Sigrún Sunna eða Þorsteinn Jónsson. Eftirminnilegasta kennslustundin til þessa?

Escape room-tíminn sem var partur af verknáminu í heimahjúkrun.

Flottasta fyrirmyndin í faginu?

Amma mín, Margrét Ólafsdóttir, sem starfaði sem skólahjúkrunarfræðingur í fjölda ára.

En í lífinu?

Ég á mér margar fyrirmyndir á mismunandi sviðum svo sem foreldra mína, systkini og vinkonur.

Uppáhalds læknadrama?

Chicago Med.

Besta ráðið við prófkvíða?

Að minna sig á maður er að gera sitt besta. Kaffi, te, kók, orkudrykkir eða allt saman? Í rauninni allt nema te.

Besta næðið til að læra? Ég get lært nánast hvar sem er svo lengi sem ég er með hljóðeinangrunar heyrnatólin mín með mér.

Hvernig nærir þú andann?

Með því að fara út að hlaupa, horfa á þætti og eyða tíma í eldhúsinu.

Líkamsrækt eða letilíf á frídögum? Misjafnt, er jafnvægið ekki líka best?

Þrjú stærstu afrek í lífinu?

Að hafa hlaupið hálfmaraþon, að búa ein á Ítalíu og að hafa lifað af flutning á höfuðborgarsvæðið.

Hefur þú áhyggjur af hlýnun jarðar? Já, klárlega.

Besta baðið?

Laugarás Lagoon.

Hvernig myndir þú lýsa þér í einni setningu?

Yfirveguð, með hárið út um allt og set tómatsósu á flestallan mat.

Hvernig nemandi ertu?

Dugleg, skipulögð og ferköntuð.

Að lokum hvað finnst þér að stjórnvöld gætu gert til að hvetja fleiri til að læra hjúkrun?

Hærri laun, betri vinnuaðstæður og jákvæðara viðhorf til starfsins almennt þarf til.

Alveg að lokum hvað, ef eitthvað, finnst þér vanta í Tímarit hjúkrunarfræðinga? Sudoku.

Tímamótarannsókn

61% kvenna með þvagfærasýkingu náðu fullum bata með Lyngonia*

Tvíblind, slembiröðuð samanburðarrannsókn með lyfleysu sýndi að með því að nota Lyngonia* sem upphafsmeðferð við þvagfærasýkingum hjá konum dró úr sýklalyfjaávísunum um 63,6%.

Lyngonia er ætlað til meðferðar við endurteknum þvagfærasýkingum hjá konum. Lyfið hefur bakteríudrepandi verkun og verkar staðbundið í þvagrás. Fæst án lyfseðils.

Virka efnið: Arbútín. Hver tafla inniheldur 361-509 mg af þurrum útdrætti af Arctostaphylos uva-ursi (sortulyngslauf), sem jafngildir 105 mg af hýdrókínónafleiðu reiknað sem vatnsfrítt arbútín. Ábending: Jurtalyf sem hefð er fyrir, notað til að draga úr einkennum vægrar, endurtekinnar sýkingar í neðri hluta þvagfæra, svo sem brunatilfinningu við þvaglát og/eða auknum þvaglátum hjá konum, eftir að alvarleg veikindi hafa verið útilokuð af lækni. Þetta lyf er jurtalyf sem hefð er fyrir og tilgreinda ábendingin fyrir notkun þess er eingöngu byggð á langri sögu um notkun lyfsins. Frábendingar: Ofnæmi fyrir innihaldsefnum eða truflun á nýrnastarfsemi. Markaðsleyfishafi: Florealis ehf. Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá - www.serlyfjaskra.is. Samantekt á eiginleikum lyfs (SmPC) dags. 04. maí 2022. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum er hægt að hafa samband á info@florealis. com. Rannsóknin var framkvæmd samkvæmt gildandi reglum um klínískar rannsóknir.

Heimild: Ildikó G, et al. Clin Microbiol Infect. 2021; 27 (10): 1441-1447. *Lyngonia er markaðssett undir heitinu Arctuvan í Þýskalandi.

Framtíðarsýn hjúkrunarfræðináms á Íslandi

Texti: Helga Pálmadóttir og Ari Brynjólfsson | Myndir: Sigríður Elín Ásmundsdóttir

Þann 4. febrúar síðastliðinn stóð Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga fyrir upplýsingafundi þar sem kynnt var framtíðarsýn hjúkrunarfræðináms á Íslandi. Á fundinum var rætt um áform um að endurskipuleggja hjúkrunarfræðinám hér á landi með því að taka upp fimm ára samfellda námsleið sem lyki með meistaragráðu til starfsleyfis.

Framsögumenn á fundinum voru Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Helga Bragadóttir, deildarforseti Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar Háskóla Íslands, Sigríður Sía Jónsdóttir, dósent við hjúkrunarfræðideild Háskólans á Akureyri, og Ólafur G. Skúlason, framkvæmdarstjóri hjúkrunar á Landspítala. Að erindum loknum fóru fram pallborðsumræður þar sem frummælendur tóku þátt ásamt fulltrúum nemenda frá báðum háskólunum, þeim Söndru Aradóttur og Margréti Unni Ólafsdóttur. Fundurinn var vel sóttur en um 150 manns tóku þátt í honum.

Forsaga og núverandi fyrirkomulag

Fundurinn hófst á erindi Helgu Rósu þar sem hún fór yfir helstu rök og forsendur fyrir afstöðu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um að brýnt sé að innleiða fimm ára hjúkrunarfræðinám sem ljúki með meistaragráðu til starfsleyfis. Hún lagði áherslu á að slík námsleið samræmist betur þeim auknu kröfum sem gerðar eru til menntunar og sérþekkingar háskólamenntaðra heilbrigðisstétta á Íslandi og styrki hjúkrunarfræðinga í að takast á við síbreytilegt og krefjandi starfsumhverfi.

Helga Rósa fór yfir þróun hjúkrunarfræðináms á háskólastigi á Íslandi, sem hófst árið 1973 og var þar með áratugum á undan sambærilegri þróun annars staðar á Norðurlöndunum. „Íslenskir hjúkrunarfræðingar hafa alltaf verið framsýnir, sýnt frumkvæði og hugrekki,“ sagði hún.

Í framhaldinu fjallaði hún um þær breytingar sem orðið hafa á háskólaumhverfinu á undanförnum árum og benti á að aðdragandi núverandi hugmynda um endurskipulagningu hjúkrunarfræðináms hér á landi hafi verið langur. Hann megi rekja allt aftur til undirritunar Bologna-yfirlýsingarinnar árið 1999 um samræmingu háskólanáms í Evrópu auk annarra breytinga sem hafa orðið í háskólaumhverfinu. Á þeim tíma þótti ekki tímabært að ráðast í breytingar á hjúkrunarfræðináminu hér á landi. Á meðan fóru aðrar heilbrigðisfagstéttir í þá vegferð að skipuleggja nám sitt í samræmi við yfirlýsinguna í þriggja ára grunnnám (B.S.) og tveggja ára meistaranám til starfsleyfis.

Í dag er hjúkrunarfræði, auk náms í tannsmíði eina nám heilbrigðisfagstétta sem veitir starfsleyfi eftir B.S.-próf. „Sálfræðingar, lyfjafræðingar, félagsráðgjafar og sjúkraþjálfarar, þau eru öll komin í þessa þrír plús tveir breytingu,“ sagði Helga Rósa. Í framhaldinu spurði hún hvort óbreytt hjúkrunarfræðinám væri í boði og lagði áherslu á að fjölmörg rök mæltu með endurskipulagningu þess. Hún sagði hjúkrunarfræðinám í dag vera á skjön við annað háskólanám á Íslandi og vísaði til þess að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin kalli eftir aukinni og víðtækari menntun hjúkrunarfræðinga vegna sífellt flóknari viðfangsefna.

Helga Rósa lagði áherslu á að landfræðilegar aðstæður á Íslandi kalli á sterkt og víðtækt grunnnám. „Ísland er strjálbýlt og það er mikil þörf á sterkum og sjálfstæðum hjúkrunarfræðingum með

Lyfjafræðingar

Félagsráðgjafar

Sjúkraþjálfarar

Næringarfræðingar

Talmeinafræðingar

Iðjuþjálfun

Geislafræði

3 ár B.S. + 2 ár M.S.

3 ár B.S. + 2 ár M.S.

3 ár B.S. + 2 ár M.S.

3 ár B.S. + 2 ár M.S.

3 ár B.S. + 2 ár M.S.

3 ár B.S. +60 ECTS á meistarastigi

3 ár B.S. +60 ECTS á meistarastigi

Í umræðunni vék Helga Rósa að vaxandi þörf fyrir hjúkrunarfræðinga hér á landi og benti á að fjölgun þeirra kalli jafnframt á fleiri kennara í hjúkrunarfræði. „Með því að fjölga þeim sem eru með meistaragráðu þá fjölgum við líka þeim sem eru með doktorsgráðu og þannig fjölgum við kennurum, það er eðlilegt að álykta það,“ sagði hún.

Aðspurð um kjaramál sagði hún að breytingin væri ekki drifin áfram af launasjónarmiðum. Hún taldi þó að samræmd fimm ára menntun myndi auðvelda samanburð við aðrar háskólastéttir og

allt öðruvísi, þar var farið úr þremur árum upp í fimm ár og jafnframt gerðar umtalsverðar breytingar á námsskrá sem við þurfum ekki að gera núna,“ sagði hún og bætti við að einkum væri horft til reynslu sjúkraþjálfara við undirbúning breytinganna, þar sem sambærileg endurskipulagning gafst vel. Sjúkraþjálfarar breyttu sínu námi úr fjögurra ára B.S.-námi til starfsleyfis, í þriggja ára B.S.-nám og tveggja ára meistaranám til starfsleyfis. Aðsókn í sjúkraþjálfaranámið hafi staðið í stað í fyrstu en aukist jafnt og þétt á undanförnum árum.

Helga Rósa fjallaði einnig um áhyggjur af því að bil gæti myndast í útskrift hjúkrunarfræðinga við innleiðingu nýs námsfyrirkomulags. Háskólarnir hyggjast milda áhrifin með því að byrja ekki á námskrárbreytingunni á sama tíma heldur á sitt hvoru árinu og þannig jafna framboð nýrra hjúkrunarfræðinga á aðlögunartímanum.

Þá hefur sá ótti verið nefndur að nemendur leiti frekar erlendis í nám þar sem það er styttra. „Námið er nú þegar styttra í löndunum í kringum okkur og við erum ekki að sjá straum þangað

M.N.-nám þar sem megináhersla verður lögð á klínískt nám og aukna starfshæfni.

Jafnframt var fjallað um afleidda þætti breytinganna, meðal annars aukið og formlegra samstarf háskólanna, sameiginlega umsóknargátt fyrir hjúkrunarfræðinám og sameiginlegt samkeppnispróf. Þá var einnig rætt um áhrif breytinganna á framhaldsnám, svo sem nám í ljósmóðurfræði, sérnám og sérfræðimenntun í hjúkrun, auk annarra sérhæfðra námsleiða innan fagsins.

Í lok erindisins lögðu þær áherslu á mikilvægi samstöðu og að allir hagsmunaaðilar ynnu saman að farsælli innleiðingu breytinganna. Ítarlega verður fjallað um námskrárbreytingarnar í næsta tölublaði Tímarits hjúkrunarfræðinga.

Hægt að girða fyrir margvíslegar áhyggjur

Ólafur G. Skúlason, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala, fjallaði um fyrirhugaðar námskrárbreytingar frá sjónarhóli hagaðila í heilbrigðisþjónustu.

yfir. Það vakni einnig upp spurningar um hvað verði um þann hóp sem myndi klára grunnnám en ekki halda áfram í meistaranám í hjúkrun. Þá vakni upp spurningar um framhaldsnám erlendis þar sem gerð er krafa um starfsleyfi. „Að því sögðu þá er hægt að girða fyrir margar af þessum áhyggjum með fyrirvara,“ sagði hann.

Það var víða komið við í pallborðsumræðunum að erindunum loknum. Spurningum var meðal annars beint að fulltrúum nemenda sem nefndu það að breytingarnar myndu minnka álag á nemendur. „Við erum að útskrifa mjög marga flotta hjúkrunarfræðinga en það eru líka rosalega margir þreyttir nemar sem eru mjög vel nýttir inni á stofnunum eða í starfi með námi, sem flestir gera,“ sagði Sandra Aradóttir frá HÍ. Margrét Unnur Ólafsdóttir frá HA tók í sama streng. „Við búum í þannig samfélagi og það er erfitt að stunda háskólanám án þess að vinna með. Okkur er kennt frá fyrsta árinu í hjúkrun að hafa bjargráð gegn streitu og kulnun og komum ekki út á vinnumarkað í kulnun, tel ég að þessar breytingar muni hafa jákvæð áhrif á þetta.“

Hjúkrunarfræðingar geta nálgast upptöku af fundinum á Mínum síðum fram til 1. júní 2026.

Trúnaðarmaðurinn

Heiða Hauksdóttir, trúnaðarmaður hjúkrunarfræðinga á SAk

Valdeflandi að skilja hvernig kerfið virkar

Heiða Hauksdóttir hjúkrunarfræðingur á geðdeild.

Hvar og hvenær og hófst þú störf sem hjúkrunarfræðingur?

Ég hóf störf á bráðamóttökunni á Sjúkrahúsinu á Akureyri eftir útskrift árið 2003 en skipti fljótlega yfir á speglunardeild. Þaðan fór ég síðan á skurðstofurnar og náði mér í diplóma í skurðhjúkrun samhliða. Ég starfaði sem skurðhjúkrunarfræðingur á Akureyri í nokkur ár en flutti síðan til Noregs og starfaði sem skurðhjúkrunarfræðingur á bæklunarskurðstofum á Ullevål-sjúkrahúsinu í sjö ár. Ég flutti svo aftur heim og starfa núna á geðdeild á SAk.

Ertu búin að vera lengi í þessu starfi?

Dálítið skemmtilegt frá því að segja að ég ætlaði bara að breyta til eitt sumarið og leysa af í geðinu en er núna búin að vera þar í nærri sex ár. Ég heillaðist algjörlega af því starfi sem þar er verið að vinna og hef enn þá ekki fengið mig fullsadda, ég er alltaf að læra eitthvað nýtt, alla daga.

Hversu lengi hefur þú verið trúnaðarmaður?

Ég hef verið trúnaðarmaður á SAk í fimm ár.

Hvað ertu tengiliður fyrir marga hjúkrunarfræðinga sem trúnaðarmaður?

Á SAk starfa um 250 hjúkrunarfræðingar og þrír trúnaðarmenn. Við höfum reynt að virkja tengilið trúnaðarmanna við flestar ef ekki allar deildar á SAk þannig að það ætti að vera þétt net trúnaðarmanna sem tekur vel utan um hjúkrunarfræðinga sem starfa á SAk.

Hefur þú sótt þér fræðslu eða námskeið sem nýtist þér sem trúnaðarmaður?

Já, ég hef tekið grunnnámskeið trúnaðarmanna hjá Fíh og mætt á að minnsta kosti þrjár kjararáðstefnur sem félagið hefur haldið á Selfossi.

Hvaða fræðsla hefur gagnast þér best?

Trúnaðarmannanámskeiðin hafa verið mjög gagnleg og einnig kjararáðstefnurnar þar sem trúnaðarmenn alls staðar af landinu hittast og bera saman bækur sínar. En það sem ég hef lært mest af er sú samvinna og sá stuðningur sem ég hef fengið frá þeim sem starfa á kjarasviði Fíh. Það er alltaf hægt að leita til þeirra með álitamál og fá aðstoð við að leysa úr málum.

Hefur það eflt þig sem starfskraft og/eða manneskju að vera trúnaðarmaður? Já, ekki spurning. Áður en ég varð trúnaðarmaður fyrir sex árum fylgdist ég vel með og myndaði mér skoðanir á kjaramálum og málefnum er varða hjúkrunarfæðinga dálítið út frá umfjöllun í fjölmiðlum. Auk þess hefur líðan hverju sinni haft einhver áhrif líka. Eftir að ég varð trúnaðarmaður gat ég farið meira á dýptina í mörgum málum, skilið mun betur hvers vegna sumt er eins og það er og hvaða verkfæri er hægt að nota í baráttunni til breytinga. Mér finnst það vera valdeflandi að skilja betur hvernig kerfið virkar og hvað er hægt að gera til að hafa áhrif á það. Vissulega gerast hlutirnir hægt og það þarf að forgangsraða hvaða barátta er tekin í kjaramálum hverju sinni. En krafturinn sem leynist meðal hjúkrunarfæðinga þegar þeir standa saman er einstakur og ef það tekst að virkja hann þá náum við bestum árangri. Það er sú tilfinning sem eflir mann; þessi neisti sem kveikir samstöðu og vekur hjá manni löngun til að vilja standa sig í þágu stéttarinnar.

Hvaða áskorunum mætir þú helst sem trúnaðarmaður á vinnustað?

Yfirleitt eru hjúkrunarfræðingar að velta fyrir sér kjaramálum er varða laun, orlof, réttindi, skyldur og slíkt. En mín upplifun er sú að oft snýst þetta meira um samskiptavanda frekar en kjaramálin sjálf. Það er að segja að samtalið er ekki nógu skýrt, það er ýmist of eða van og mikill tími getur farið í að vinda ofan af flóknum samskiptum eða aðstoða við að komast á þann stað að hægt sé að eiga í faglegum samskiptum þar sem væntingar aðila geta farið fram úr hófi. Bæði vinnuveitandi sem ætlast til of mikils eða starfsmaður telur sig hlunnfarinn. Væntingastjórnun er því stór hluti af starfi mínu sem trúnaðarmaður.

Nýlega kynnti ríkisstjórnin áform sín um afnám áminningarskyldu ríkisstarfsmanna sem ég tel að yrði stórt skref aftur á bak því að áminningarskyldan er mikilvægt stjórntæki sem miðar að því að leiðrétta frammistöðu og gefa starfsfólki raunhæft tækifæri til að bæta sig. Með henni er tryggt að mál séu leyst með málefnalegum og faglegum hætti áður en gripið er til frekari aðgerða. Við hjúkrunarfræðingar þurfum að standa saman og verja þau réttindi sem hafa náðst og tryggja að starfsfólk fái ávallt málefnalega meðferð.

Nefndu þrjá eiginleika sem góður trúnaðarmaður þarf helst að hafa?

Það er mikilvægt að viðkomandi sé heiðarlegur og traustur, búi yfir virkri hlustun en sé einnig lausnamiðaður. Það þarf að ljúka málum í eins mikilli sátt og hægt er.

Það besta við starf þitt?

Hljómar kannski klisjukennt en það er bara þannig að mannlegi þátturinn er ástæðan fyrir því að ég er enn að vinna á geðdeild eftir að hafa bara ætlað að stoppa þar stutt og leysa af í eitt sumar. Það er gefandi að fá að vera með skjólstæðingum þegar þeir koma kannski á sínu viðkvæmasta tímabili í lífinu og treysta manni fyrir því að hlusta, hlúa að og vera til staðar fyrir þá. Á bráðageðdeild sjáum við ýmislegt og það má eiginlega segja að þar komi í gegn þverskurður af okkar samfélagi með sín brothættustu vandamál. Oftar en ekki getum við hjálpað að leysa úr eða getum bent á úrræði til að halda áfram veginn en stundum tekur það langan tíma og maður nánast missir vonina um að nokkuð sé hægt að gera en þá bara gerist eitthvað og viðkomandi finnur að hann getur spyrnt við fótum. Það eru bestu augnablikin í starfi mínu.

Hvernig tekstu á við erfið mál sem upp koma á vinnustaðnum?

Á mínum vinnustað starfar frábær hópur starfsfólks í teymi og við erum heppin að hafa framúrskarandi leiðtoga, þau Bernard Gerristma og Valborgu Lúðvíksdóttur sem leiða það starf sem þar er unnið. Erfið mál koma sannarlega upp á mínum vinnustað eins og á öðrum. Þá skiptir miklu máli að halda vel utan um hópinn og að starfsfólk finni að á það sé hlustað og að úrræði séu til staðar til að leysa úr málum. Ég hef reynt að tileinka mér þau vinnubrögð í mínu starfi sem trúnaðarmaður sem viðhöfð eru á minni deild og hef einnig getað leitað til Fíh ef á þarf að halda.

Hver eru áhugamál þín utan vinnutíma?

Ég hef farið á nokkur byrjendanámskeið í golfi og mögulega er mér eitthvað að fara fram í því. En ég útskrifaðist úr MBA-námi frá Háskóla Íslands 2019 og það má eiginlega segja að allt sem kemur að stjórnun og innleiðingu breytinga sé sérstakt áhugamál hjá mér og ég les mikið um slíkt í frítíma mínum. Ég hef einnig mikinn áhuga á samskiptum og hvernig megi bæta þau. Oft þarf lítið til að allt fari úrskeiðis en einnig þarf oft lítið til stórbæta samskipti. Samningagerð og sáttamiðlun er líka ofarlega á baugi hjá mér og draumurinn er að bæta við mig þekkingu þar. Mér finnst svo gaman að vera komin á þann aldur að geta látið áhugamál og nám mætast.

Hver er þín fyrirmynd í lífinu?

Mig langar að nefna þrjár vinkonur mínar sem eru allar hjúkrunarfræðingar, Rannveig Birna Hansen er æskuvinkona mín og vissi hún löngu áður en ég vissi hvað ég vildi verða, að hún ætlaði að verða hjúkrunarfræðingur. Ég fylgdist með henni í námi og hún varð mér síðar hvatning til að læra hjúkrunarfræði. Hún starfar í Heimahlynningu á Akureyri og er núna að bæta við sig sálgæslu. Rannveig er mín fyrirmynd vegna þess að hún hefur alltaf verið fylgin sér, hefur sterka réttlætiskennd og berst fyrir sína hvort heldur sem það eru skjólstæðingar, fjölskyldan eða vinirnir. Síðan eru það skólasystur mínar Þórdís Rósa Sigurðardóttir og Sólveig Tryggvadóttir. Við skrifuðum lokaverkefnið saman og útskrifuðumst allar frá HA árið 2003. Þórdís er fyrirmynd mín þegar kemur að hreyfingu og heilsu og hvetur mig til dáða í hreyfingu og hollum lífsháttum. Hún er algjör nagli og gefst aldrei upp á mér þó að ég sé nánast vonlaust tilfelli. Sólveig er mín fyrirmynd í mennskunni; að bera virðingu fyrir fólki og aðstæðum þess, sama hvað. Hún hjálpar mér stundum með sinni hlýju að rétta af áttavitann minn ef hann er eitthvað skakkur. Við erum báðar trúnaðarmenn á SAk og vinnum þétt saman og hjúkrunarfræðingar vita að það er alltaf hægt að leita til hennar. Þessar þrjár konur eru mínar fyrirmyndir alla daga.

Fallegasti staður á Íslandi?

Ég bý í Vaðlaheiði og hef ofboðslega fallegt útsýni yfir Akureyri, mér finnst ég horfa inn í málverk alla daga. Eftir að hafa ferðast mikið um landið og séð marga fallega staði þá enda ég alltaf á hlaðinu heima sem mér finnst vera fallegasti staður í heimi.

Markmið fyrir 2026?

Bæta mig í golfinu og eiga fleiri gæðastundir með fjölskyldunni. Ég ætla að heimsækja ömmustrákana mína til Kaupmannahafnar eins oft og ég get. Síðan er 2026 árið þar sem ég mun mantra setninguna „ég er nóg“ aftur og aftur þegar mér dettur í hug að skrá mig í enn eitt námið verandi í 100% vinnu með sex manns í heimili. Þetta er orðið gott því það er hægt að lesa og læra án þess að vera endalaust að bæta við sig verkefnaskilum.

Á hvaða ári ertu í hjúkrun?

Fjórða ári.

Ertu búin að ákveða hvar þú vilt starfa eftir útskrift?

Ég hef starfað á blóð- og krabbameinslækningadeild 11EG í nokkur ár og stefni á að starfa þar áfram fyrst um sinn eftir útskrift að minnsta kosti.

Hafðir þú lengi stefnt að því að læra hjúkrunarfræði eða varstu að íhuga eitthvert annað nám?

Ég hafði lengi stefnt að námi í heilbrigðisgeiranum en ég tók ákvörðun um að skrá mig í hjúkrunarfræði eftir að hafa unnið með nokkrum frábærum hjúkrunarfræðingum á Ási í Hveragerði.

Gætir þú hugsað þér að starfa við fagið erlendis í framtíðinni?

Já, fyrir nokkrum árum fór ég á kynningu hjá Læknum án landamæra og fannst mjög áhugavert hversu margar fjölbreyttar starfsstéttir starfa með þeim samtökum, þar á meðal hjúkrunarfræðingar. Ég gæti hugsað mér að starfa með þeim einn daginn.

Skemmtilegasta fagið?

Bráðahjúkrun er klárlega eitt af skemmtilegustu námskeiðunum í náminu.

Erfiðasta fagið?

Lífeðlisfræði.

Eitthvað sem hefur komið á óvart í náminu?

Það kom mér á óvart hversu fljótt maður nær að byggja ofan á þekkingu þegar grunnurinn eru góður.

Eitthvert fag sem þér finnst vanta í námið?

Mér finnst að allir ættu fá að fara á námskeiðin sem kallast meðferðir til heilsueflingar og hjúkrun, menning og margbreytileiki. Í dag eru þetta valnámskeið á fjórða ári en mér finnst að þau ættu að vera skyldunámskeið fyrir alla í grunnnáminu.

Ætlar þú að fara í framhaldsnám?

Ég gæti hugsað mér að fara í framhaldsnám annaðhvort í skurðhjúkrun eða krabbameinshjúkrun.

Hressasti kennarinn?

Sigrún Sunna.

Eftirminnilegasta kennslustundin til þessa?

HERMÍS færnisetrin með Þorsteini og Ásdísi eru alltaf mjög eftirminnileg.

Aldur 25 ára

Stjörnumerki

Steingeit

Eiginleikar sem þú vilt tileinka þér í starfi?

Að halda áfram að afla mér alltaf nýjustu og bestu þekkingarinnar.

Uppáhalds læknadrama?

Gray‘s Anatomy og The Resident.

Besta ráðið við prófkvíða? Ég hef lengi verið mikill kvíðapési. Mér finnst gott að handskrifa allt sem ég man upp úr námsefninu og skoða svo námsefnið og leiðrétta eða bæta við það sem ég hafði skrifað. Ég endurtek þetta nokkrum sinnum þar til ég man mikilvægustu atriði námsefnisins. Þá átta ég mig á því að ég man meira en ég held. Svo að muna að anda djúpt, sofa vel fyrir próf og að borða vel.

Kaffi, te, kók, orkudrykkir eða allt saman?

Ég er mikil Nocco-kona.

Besta næðið til að læra?

Curator er með litla gluggalausa skrifstofu í kjallaranum í Eirbergi. Það er mjög auðvelt að missa alveg af deginum þegar maður lærir þar niðri.

Hvernig nærir þú andann?

Ég fer í jóga og svo finnst mér mjög gott að hlusta á hljóðbók með prjónaverkefni í höndunum.

Líkamsrækt eða letilíf á frídögum? Ég nota frídagana mína helst í það að slaka á og að skipuleggja næstu daga.

Mér fannst það stórt afrek þegar ég gekk Laugaveginn fyrir nokkrum árum. Mér finnst líka það vera afrek að komast í gegnum klásusinn í hjúkrunarfræði. Svo hef ég verið í björgunarsveit í mörg ár og fannst það mikið afrek þegar ég komst í

Já, mér finnst það vera eitthvað sem allir

Ég reyni að ganga frekar en að fara á bíl stuttar vegalengdir, ég var grænmetisæta í nokkur ár og svo flokka ég auðvitað.

Að eyða tíma með fjölskyldunni eða vinum. Ég er líka alltaf glöð þegar ég næ að afreka eitthvað sem ég hélt að ég myndi ekki ná

Þegar fólk sýnir skort á tillitsemi eða þegar misrétti er beitt. Einnig þegar ég næ ekki að vera til staðar fyrir fólkið mitt þegar það þarf á því að halda.

Hvernig fáum við fleiri karlmenn til að læra hjúkrun?

Sýnum að hjúkrunarfræði sé fyrir öll, ekki bara eitt kyn. Byrjum fyrr að sýna það, til dæmis með kynningum fyrir grunn- eða framhaldsskóla.

Ef þú ættir eina ósk?

Ég myndi óska þess að enginn þyrfti að upplifa hungur, óöryggi eða fátækt.

Hvernig myndir þú lýsa þér í einni setningu?

Ég er mjög skipulögð, samviskusöm og mjög stjórnsöm, á góðan hátt.

Hvernig nemandi ertu?

Ég vil sinna öllu mjög vel en er með töluverða fullkomnunaráráttu. Oft eyði ég allt of miklum tíma í að reyna að fullkomna eitthvað sem þarf alls ekki að vera fullkomið. Ég verð að skila öllum verkefnum á réttum tíma og ég reyni að mæta í alla tíma. Ef glósurnar mínar eru ekki fallegar að horfa á, þá mun ég aldrei nenna að lesa þær aftur.

Að lokum hvað finnst þér að stjórnvöld gætu gert til að hvetja fleiri til að læra hjúkrun?

Stjórnvöld gætu hvatt fleiri í hjúkrun með fjárhagslegum stuðningi í þessu námi, þau geta bætt starfsaðstæður í heilbrigðisþjónustunni og sýnt í verki hversu mikilvægir hjúkrunarfræðingar eru fyrir samfélagið.

Birkenstock Professional er sérhönnuð vörulína fyrir krefjandi vinnuumhverfi í heilbrigðisgeiranum. Skórnir sameina hinn þekkta Birkenstock innsóla með endurbættum ytri sóla sem býr yfir rennivörn, antistatic eiginleikum og er auðveldur í þrifum. Birkenstock Pro eru því frábær kostur fyrir þau sem standa lengi í vinnunni og vilja ekki fórna þægindum fyrir öryggi. Fjölbreyttar týpur og litir í boði.

20% afsláttur við framvísun nemendaskírteinis í verslun

Höfðabakki 7, 110 Reykjavík | fastus.is

Viltu

verða skurð- eða svæfingahjúkrunarfræðingur?

Texti: Sólveig Hauksdóttir | Myndir: Úr einkasafni

Diplómanám í skurð- og svæfingahjúkrun er tveggja ára launað starfsnám sem kennt er við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands. Diplómanámið er í heild 80 einingar, þar af eru 50 einingar fræðileg námskeið á meistarastigi og 30 einingar verklegar. Haustið 2026 verður í fyrsta sinn boðið upp á þá nýbreytni að nemendur geta skráð sig beint í 120 eininga meistaranám og lokið því á ýmist tveimur eða þremur árum. Áfram verður líka boðið upp á tveggja ára diplómanám.

Við tókum púlsinn á tveimur nemendum í skurð- og svæfingahjúkrun sem eru að ljúka diplómanámi í vor til þess að fá örlitla innsýn í námið.

Heillaðist strax af skurðstofunum og ákvað að læra meira

Fanney Jónasdóttir er að ljúka námi í skurðhjúkrun. Hún er 35 ára og lauk grunnámi í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri árið 2021. Áður starfaði hún á heila-, tauga- og bæklunarskurðdeild á Landspítalanum.

Hvernig datt þér í hug að fara í skurðhjúkrun?

Ég kynntist skurðhjúkrunarfræði fyrst í verknámi á Akureyri. Ég heillaðist strax af skurðstofunum. Fannst svo spennandi að sjá anatómíuna. Ég var meðal annars viðstödd keisaraskurðaðgerð og að sjá barn koma í heiminn var ótrúleg lífsreynsla. Eftir það var ekki aftur snúið og ég stefndi á skurðhjúkrunarfræði frá þessum tímapunkti. Mér var ráðlagt að starfa fyrst sem hjúkrunarfræðingur í nokkurn tíma eftir útskrift til að eflast sem slíkur áður en ég færi áfram í nám. Sem ég gerði og sé ekki eftir þeirri reynslu sem ég náði mér í.

Hvaða möguleika sérð þú fyrir sjálfa þig að námi loknu?

Ég sé fyrir mér að starfa áfram í Fossvogi að námi loknu en það opnast ýmsir aðrir möguleikar. Skurðhjúkrunarfræðingar starfa meðal annars á einkareknum skurðstofum, hjá fyrirtækjum sem flytja inn lækningatæki og ýmsar vörur fyrir skurðstofur svo að ef maður hefur áhuga á að skipta alfarið um starfsvettvang getur námið komið að góðum notum.

Hvað hefur komið þér mest á óvart í náminu hingað til?

Hvað það er fjölbreytt. Við vinnum með mörg sérsvið á skurðstofunum og sjáum ólíka sjúklingahópa. Við þurfum að mæta hjúkrunarþörfum fólks á öllum aldri og með margvísleg heilsufarsvandamál. Það er mjög skemmtilegt ef maður vill ekki einskorða sig við eitt sérsvið. Á skurðstofunum er maður stöðugt að læra eitthvað nýtt, það er mikil framþróun í gangi og engar tvær aðgerðir eins. Það krefst lausnamiðaðrar hugsunar og að vera tilbúinn til að mæta hinu óvænta.

Hvaða reynsla stendur upp úr?

Það sem stendur helst upp úr er skiptinám sem ég tók í Stavanger í Noregi í janúar á þessu ári. Þar fékk ég smá innsýn í framtíðina við sameiningu spítalanna hjá okkur. Nýr spítali var tekinn í notkun í Stavanger í nóvember 2025 svo að starfsemin var ný og ýmislegt enn að slípast til. Það var gríðarlega áhugavert að fá samanburð á störfunum á milli landa. Ég verð að hrósa okkar góða fólki og störfum á Íslandi eftir þessa reynslu. Ég held að við séum að gera margt vel. Það er ómetanlegt tækifæri að fá að fara út fyrir landsteinana í skiptinám.

Er eitthvað sem þér finnst sérstaklega spennandi eða skemmtilegt í starfinu?

Úff, þetta er erfið spurning því það er svo margt sem er spennandi og skemmtilegt í þessu starfi. Ég heillast mjög af heila- og taugaskurðaðgerðum. Hjartað slær svolítið í þeirri sérgrein, sérstaklega eftir að hafa unnið með þann sjúklingahóp á legudeild. Einnig finnst mér opnar kviðarholsaðgerðir sérlega skemmtilegar. Þó að kviðarholsskurðaðgerðir séu almennt gerðar á Hringbraut fáum við af og til þannig tilfelli til okkar með þyrlunni í kjölfar slysa.

Hvar sérðu þig eftir fimm ár?

Þá ætla ég að vera búin að klára meistaranám í skurðhjúkrun og að starfa með öllu frábæra starfsfólkinu á E-5. Ég mun líka vera opin fyrir þeim tækifærum sem gætu boðist og halda áfram að vaxa í starfi.

Næsta haust verður í fyrsta sinn boðið upp á að skrá sig beint í meistaranám í skurðhjúkrun. Hefðir þú viljað að sá möguleiki hefði verið í boði þegar þú byrjaðir í náminu?

Ég sé þessa breytingu sem mjög jákvæða þróun og hefði gjarnan viljað hafa þennan möguleika. Í nágrannalöndum okkar er námið sett upp sem meistaranám en við klárum bara diplómanám.

Eitthvað að lokum?

Ég hvet alla sem hafa áhuga á líffærafræði og vilja kynnast skurðhjúkrunarfræði til að koma til okkar og prófa að vinna við þetta. Ég byrjaði sjálf að vinna á skurðstofunum áður en ég fór í námið til að máta mig við þetta hlutverk og fannst það dýrmæt reynsla.

Ábyrgðin, hraðinn og nákvæmnin heillandi

Andri Rafn Sveinsson er 37 ára nemi í svæfingahjúkrun. Hann starfaði á bráðamóttökunni áður en hann hóf nám í svæfingahjúkrun og sem aðstoðardeildarstjóri á K1 á Landakoti. Hvernig datt þér í hug að læra svæfingahjúkrun? Ég þekkti til fyrrum samstarfsfélaga á bráðamóttökunni sem fóru í svæfingahjúkrun og hafði rætt við þá áður en ég sótti um. Áhuginn á faginu kviknaði þó strax í grunnnáminu. Maður fær mjög litla og stutta kynningu á svæfingahjúkrun í grunnnáminu svo að ég leitaði mér upplýsinga á netinu. Ég sá alltaf fyrir mér að þetta væri sú sérhæfing sem væri mest hagnýt þvert á deildir þar sem maður verður fljótt fjölhæfur og eftirsóttur. Ég sá ekki síður fyrir mér að þetta nám nýttist vel í utanspítalaþjónustu hvort sem er hér heima eða erlendis.

Hvaða möguleika sérð þú fyrir sjálfan þig að námu loknu?

Sérhæfing í svæfingahjúkrun miðast mjög við spítalaumhverfið en maður verður líka mjög fær í klíník sem gerir mann öruggari í starfi á ýmsum sviðum; eflir sjálfstæð vinnubrögð og ákvarðanatöku.

Hvað hefur komið þér mest á óvart í náminu hingað til?

Hversu fjölbreytt og krefjandi starfið er en jafnframt skemmtilegt.

Hvað finnst þér mest heillandi við starfið? Ábyrgðin, hraðinn og nákvæmnin. Sérhæfingin í öndunarveginum, lífeðlisfræðin og traustið sem sjúklingar bera til manns þegar þeir koma í svæfingu.

Hvar sérðu þig í starfi eftir fimm ár?

Vonandi að flytja inn í nýja meðferðarkjarnann við Hringbraut en ef ekki þá verð ég örugglega á einhverjum góðum stað á Landspítalanum með Propofol og Remifentanyl í dælunum og vonandi ekki of stressaður yfir mónitorunum.

Í haust verður í fyrsta sinn boðið upp á að skrá sig beint í meistaranám í svæfingahjúkrun. Hefðir þú viljað að sá möguleiki hefði verið í boði þegar þú byrjaðir í náminu? Það er áhugaverð þróun sem mun eflaust efla fræðastarf innan fagsins.

• Tveggja ára diplómanám eða þriggja ára meistaranám í boði

• Launað starfsnám

• Móttöku umsókna lýkur 15. apríl 2026

Frétt frá Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands

Örnám á meistarastigi í hjúkrun

haustið 2026

Haustið 2026 hefjast þrjár örnámsnámsleiðir, áður diplómanám, á meistarastigi á sérsviðum hjúkrunar: hjúkrun lungnasjúklinga, hjúkrun nýrnasjúklinga og sýkingavarnir og smitsjúkdómahjúkrun

Markmið námsleiðanna er að veita hjúkrunarfræðingum tækifæri til að efla þekkingu sína og hæfni á viðkomandi sérsviðum og styrkja þannig sérhæfingu innan hjúkrunar. Námið er 30 ECTS-einingar og skipulagt með starfi yfir eitt og hálft ár. Það er ætlað hjúkrunarfræðingum um allt land, meðal annars á sjúkrahúsum, hjúkrunarheimilum, heilsugæslustöðvum, í heimahjúkrun og á endurhæfingarstofnunum. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort eða hvenær námsleiðirnar verða í boði aftur.

Samsetning náms

Í öllum námsleiðum eru sérkennd námskeið á viðkomandi sérsviði. Þau eru opin nemendum í meistaranámi í Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild. Einnig eru námskeið sem eru sameiginleg öðru námi í deildinni s.s. námskeiðið Klínísk lífeðlis- og meinafræði í námsleiðum um hjúkrun nýrna- og lungnasjúklinga og námskeið um örverufræði í Lyfjafræðideild fyrir námsleiðina sýkingavarnir og smitsjúkdómahjúkrun. Auk þessa eru valnámskeið. Kennarar eru sérfræðingar í viðkomandi greinum innlendir sem erlendir. Sérkennd námskeið eru:

Hjúkrun lungnasjúklinga

Respiratory Nursing

7,5 ECTS samnorrnænt námskeið

Mat og hjúkrunarmeðferð lungnasjúklinga 6 ECTS

Kennsluaðferðir

Hjúkrun nýrnasjúklinga

Hjúkrun nýrnasjúklinga I 4 ECTS

Hjúkrun nýrnasjúklinga II 6 ECTS

Sýkingavarnir og smitsjúkdómahjúkrun

Faraldsfræði, útbreiðsla smitsjúkdóma og sóttvarnir

6 ECTS

Sýkingavarnir og smitsjúkdómahjúkrun

8 ECTS

Námið er blandað með staðkennslu, upptökum og streymi. Við kennsluna verða notaðar fjölþættar aðferðir ―fyrirlestrar, umræðufundir, tilfellakynningar og verkefnavinna með áherslu á virka þátttöku nemenda. Jafnframt verður námsmat fjölþætt ― próf, kynningar, þátttaka í umræðum og skrifleg verkefni.

Inntökuskilyrði

Umsækjendur þurfa að hafa lokið B.S.-prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands eða öðru sambærilegu prófi, með að lágmarki 6,5 í aðaleinkunn og hafa gilt íslenskt hjúkrunarleyfi. Jafnframt þarf nemandi að búa yfir góðri íslensku- og enskukunnáttu.

Skannið QR-kóðann hér að neðan fyrir frekari upplýsingar:

Námsnefndir

Hjúkrun lungnasjúklinga

Helga Jónsdóttir, prófessor og forstöðumaður hjúkrunar langveikra fullorðinna

Jónína Sigurgeirsdóttir, sérfræðingur í hjúkrun

Sigríður Heimisdóttir, sérfræðingur í hjúkrun

Hjúkrun nýrnasjúklinga

Þóra Jenný Gunnarsdóttir prófessor

Margrét Björnsdóttir, sérfræðingur í hjúkrun

Selma Maríusdóttir hjúkrunarfræðingur

Helga Jónsdóttir, prófessor og forstöðumaður hjúkrunar langveikra fullorðinna

Sýkingavarnir og smitsjúkdómahjúkrun

Anna Tómasdóttir sérnámshjúkrunarfræðingur

Berglind Chu, sérfræðingur í hjúkrun

Helga Jónsdóttir, prófessor og forstöðumaður hjúkrunar langveikra fullorðinna

Tækniþjónusta Icepharma

Ef lækningatækin þín þurfa viðhald eða viðgerð þá tryggjum við faglega lausn

Við bjóðum upp á þjónustusamninga fyrir reglubundið eftirlit á lækningatækjum til að tryggja langvarandi öryggi og virkni. Reglubundið eftirlit með tækjum og búnaði er lykilatriði til að tryggja öruggan rekstur í heilbrigðisþjónustu og framfylgja lögum um lækningatæki.

icepharma.is/thjonusta

FINE – Evrópusamtök kennara í hjúkrunarfræði

Höfundur: Helga Bragadóttir

European Federation of Educators in Nursing Science (FINE) eru alþjóðleg óháð samtök sem stofnuð voru árið 1995 í þeim tilgangi að efla hjúkrunarmenntun í Evrópu og um heim allan. Í byrjun tíunda áratugar síðustu aldar höfðu kennarar í hjúkrunarfræði nokkurra landa í Evrópu greint þörf á að beita sér innan Evrópusambandsins í málefnum hjúkrunarnáms og menntunar hjúkrunarfræðinga sem þau hafa gert allar götur síðan. Þátttakendur í FINE eru á fimmta hundrað frá fjölmörgum löndum Evrópu og er Ísland þar á meðal en haustið 2024 gerðist Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands aðili að FINE, fyrst deilda skóla á Norðurlöndunum. Finnland hefur nú einnig bæst við, en enn vantar upp á að öll, eða a.m.k. flest lönd Evrópu, taki þátt í FINE. Þátttakendur geta verið einstaklingar, skólar eða félög hjúkrunarfræðinga.

Með þessum skrifum vil ég vekja athygli hjúkrunarfræðinga á starfsemi FINE og hvetja til þátttöku í samtökunum og viðburðum á vegum þeirra. FINE einbeitir sér að vinnu með þeim sem koma að og stýra kennslu í hjúkrunarfræði, sem á Íslandi eru meirihluti starfandi hjúkrunarfræðinga. Sérstök athygli er vakin á vinnudögum FINE sem haldnir eru árlega og ráðstefnu FINE sem haldin er annað hvert ár.

FINE er vettvangur gagnkvæms lærdóms, samstarfs, tengslamyndunar og stefnumótunar hjúkrunarnáms með það að mark-

Gildi

Gæði hjúkrunarfræðináms

Sameiginleg stjórnun og forysta

Víðsýni

Siðferði og heiðarleiki

Þverfaglegt samstarf

Rannsóknir og nýsköpun sem grunnur að gagnreyndri kennslu og hjúkrun

Sjálfbærni í kennslu og klíník

miði að allt hjúkrunarnám sé á háskólastigi. Í þeim tilgangi að efla rannsóknatengt háskólanám í hjúkrun beita samtökin sér á pólitískum vettvangi innan Evrópusambandsins. Samtökin beina sjónum sérstaklega að því að efla kennara í hjúkrunarfræði sem leiðtoga og þátttakendur í ákvörðunum er varða hjúkrunarmenntun og störf hjúkrunarfræðinga. Stjórn FINE skipa nú níu fulltrúar frá jafnmörgum löndum, sem eru Belgía, Frakkland, Grikkland, Ísland, Ítalía, Malta, Portúgal, Slóvenía og Sviss.

Gildi FINE lúta að gæðum hjúkrunarfræðináms, sameiginlegri stjórnun og forystu, víðsýni, siðferði og heiðarleika, þverfaglegu samstarfi, rannsóknum og nýsköpun sem grunni að gagnreyndri kennslu og hjúkrun og sjálfbærni í kennslu og klíník (sjá töflu 1 og heimasíðu FINE https://fine-europe.eu/?page_id=816&lang=en)

FINE hefur sett fram stefnuáætlun fyrir hjúkrunarfræðimenntun í Evrópu fyrir tímabilið 2025-2035 (sjá töflu 2). Með stefnuáætlun sinni vill FINE undirstrika meginmarkmið sitt að allt hjúkrunarfræðinám í Evrópu sé á háskólastigi þar sem reglugerðir náms og námsskrár byggja á gagnreyndri þekkingu. Með þessu áréttar FINE hlutverk sitt sem leiðandi afl í að tryggja gæðamenntun í hjúkrunarfræði og þar með að styrkja stöðu hjúkrunarfræðinga í síbreytilegum og meira krefjandi heimi fjölbreytni og fjölveikinda.

Inntak

FINE beitir sér fyrir samræmi námsskráa alþjóðlega og að nýttar séu nútímalegar náms- og kennsluaðferðir. Þetta felur í sér kröfu um umbætur í stefnumótun, sjálfbærni vinnuafls og sjúklingamiðaða umönnun.

FINE stuðlar að virkri þátttöku og forystu hjúkrunarfræðikennara í stjórnun, stefnumótun og ákvarðanatöku. Slíkt leiðir til aukinnar inngildingar og sjálfbærra framfara í hjúkrunarfræðinámi.

FINE vinnur að því að hjúkrunarmenntum samræmist Evrópska hæfnirammanum (EQF) og Bolognaferlinu. Með samræmingu er ákveðin hæfni tryggð sem eykur á viðurkenningu og hreyfanleika nemenda og starfandi hjúkrunarfræðinga milli landa. FINE styður jafnframt sértækar aðgerðir um bætt vinnuskilyrði, starfsþróun og æðri menntun hjúkrunarfræðinga.

FINE leggur ríka áherslu á siðferðilega ákvarðanatöku, heiðarleika og gegnsæ samskipti sem standast ströngustu kröfur um fagmennsku. Námsskrár í hjúkrunarfræði þurfa að taka til menningarnæmi, jafnréttis, starfrænnar siðfræði og sjálfbærni til að nemendur og kennarar geti tekist á við fjölbreytt og krefjandi verkefni.

FINE hvetur til þverfaglegs samstarfs þar sem hjúkrunarfræðingar vinna markvisst með öðrum stéttum að gæðaheilbrigðisþjónustu. Þetta krefst leiðbeiningar, starfsþróunar og þjálfunar til forystu og fullrar þátttöku hjúkrunarfræðinga, svo þeir geti stuðlað að hágæða námi í hjúkrunarfræði.

FINE er leiðandi afl sem vinnur að því að hjúkrunarfræðimenntun byggi á vísindalegum vinnubrögðum og gagnreyndri þekkingu þar sem doktorsnám er drifkraftur nýsköpunar í hjúkrun og heilbrigðisþjónustu.

FINE hvetur til sjálfbærrar hjúkrunar með starfsþróun og vaxandi hæfni út starfsævina. Í samræmi við Sjálfbærnimarkmið Sameinuðu þjóðanna, gerir FINE kröfu um sjálfbæra og réttláta heilbrigðisþjónustu þar sem barist er gegn heilsufarslegri mismunun og umhverfisskaða með því að tryggja gæðamenntun í heilbrigðisvísindum.

Tafla 1. Gildi FINE

Tafla 2. Áhersluþættir í stefnuáætlun FINE 2025-2035

1. Að efla gæði hjúkrunarfræðimenntunar

2. Að styrkja stöðu hjúkrunar í æðri menntastofnunum í Evrópu

3. Að efla hjúkrunarstéttina og auka sýnileika hennar í Evrópu

4. Að verja hagsmuni nemenda og kennara í hjúkrunarfræði

5. Að hafa áhrif á stefnu í menntamálum og alþjóðlegu samstarfi

6. Að efla forystu og rannsóknir í hjúkrunarfræðinámi

7. Að styrkja klíníska þjálfun og undirbúning starfa

8. Að samræma hjúkrunarfræðimenntun við hnattræn forgangsmál í heilbrigðisþjónustu

Á vinnudögum FINE í Lúxemborg í desember 2024, sem deildarforsetar í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri tóku þátt í, var unnið að Lúxemborgaryfirlýsingu FINE um framtíð hjúkrunarmenntunar í Evrópu (sjá https://www.fine-europe.eu/?p=4428&lang=en). Yfirlýsingin er ákall FINE um brýna þörf á endurbótum á menntun hjúkrunarfræðinga svo tryggja megi hágæða og sjálfbæra heilbrigðisþjónustu til framtíðar í Evrópu og alþjóðlega. Kallað er eftir tafarlausum aðgerðum ráðamanna til að samræma og nútímavæða menntun í hjúkrunarfræði um alla Evrópu (sjá töflu 3).

Þrátt fyrir að mikilvægt hlutverk hjúkrunarfræðinga í heilbrigðisþjónustu stendur stéttin frammi fyrir viðvarandi áskorunum sem m.a. birtast í vannýttri hæfni hjúkrunarfræðinga, misræmi í kennslu, námi og störfum hjúkrunarfræðinga milli skóla og landa, viðvarandi lítilsvirðingu faglegrar hjúkrunar og erfiðleikum við að laða að og halda í hæfileikaríka nemendur og hjúkrunarfræðinga. Bent er á að Evrópureglugerðin European Directive 2005/36/EC (endurskoðuð 2013 og með viðbótum frá 2024, sjá https://eur-lex. europa.eu/legal-content/EN/TXT/HTML/?uri=PI_COM:Ares(2024) 299927) sem útlistar m.a. kröfur sem gerðar eru til hjúkrunarnáms,

Tafla 3. Aðgerðir sem FINE kallar tafarlaust eftir af hálfu ráðamanna

• Evrópureglugerðin um hjúkrunarnám verði nútímavædd með því að gera kröfu um að nám til starfsréttinda almennra hjúkrunarfræðinga sé að lágmarki á stigi 6 (B.S.), að skilgreining klínískrar þjálfunar nái yfir herminám og notkun hugtaka sé uppfærð

• Hjúkrunarfræðinám verði staðlað að því leyti að eingöngu þeir sem lokið hafa menntun á að lágmarki stigi 6 (B.S.) geti notað starfsheitið hjúkrunarfræðingur og að nám á lægri stigum verði lagt af

• Stutt verði við kennara í vísinda- og kennslustörfum þeirra með því að gera kröfu um að lágmarki meistaragráðu þeirra sem kenna hjúkrunarfræði

• Þverfaglegt nám og fjölbreytni verði efld með auknu kennslusamstarfi sem felur í sér siðferði og jöfnuð, menningarnæmi og inngildingu

samræmist illa Evrópska hæfnirammanum (EQF) og Bolognaferlinu um æðri menntun. Þetta misræmi eitt og sér er til þess fallið að halda hjúkrunarmenntun niðri og vanvirða störf hjúkrunarfræðinga og þátt þeirra í heilbrigðisþjónustu.

Ljóst er að hjúkrunarfræðingar, og þar með heilbrigðisþjónustan öll, stendur frammi fyrir áskorunum sem ekki verður mætt með óbreyttu fyrirkomulagi. Hjúkrunarfræðingar í Evrópu verða að taka höndum saman og sýna þor til að stíga mikilvæg skref til að styrkja faglega hjúkrun til framtíðar. Með öflugu námi í hjúkrunarfræði er staðinn vörður um gæði þjónustunnar til handa sjúklingum.

Ég hvet hjúkrunarfræðinga á Íslandi til að taka þátt í FINE og viðburðum samtakanna, og að deila með kollegum í öðrum löndum upplýsingum um FINE. Sameinuð er hjúkrunarstéttin sterk og sá máttarstólpi heilbrigðisþjónustunnar sem henni er ætlað að vera.

Helga Bragadóttir, prófessor, deildarforseti, forstöðumaður fræðasviðs hjúkrunarstjórnunar, Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands og Landspítala.

Skoðun höfundar endurspeglar ekki endilega stefnu/skoðun Fíh.

Takk fyrir stuðninginn

Höfundar

SÓLVEIG GYLFADÓTTIR, M.S. sérnámshjúkrunarfræðingur, smitsjúkdómadeild Landspítala

BERGLIND GUÐRÚN CHU, M.S. aðjúnkt, sérfræðingur í hjúkrun á Landspítala

Hjúkrun sjúklinga í einangrun,

hvað getum við gert betur?

Að vera sjúklingur í einangrun

Hugsum okkur sjúkling sem er nýkominn á spítala. Hann fær að vita að hann sé með sýkingu og þurfi að fara í einangrun.

Sjúklingur fer oft með skömmum fyrirfara í einangrun. Starfsfólk klæðist hlífðarbúnaði, sjúklingnum er rétt bjalla og hann hvattur til þess að hringja þegar þörf er á aðstoð. Starfsfólk stoppar oft stutt hjá sjúklingi og sameinar ferðir inn á stofuna svo innlit verða færri. Hurðum er síðan lokað svo sjúklingur er aleinn inni á stofu. Sjúklingurinn veit lítið hvað þetta þýðir, hversu lengi þetta stendur yfir eða hvort hann geti fengið heimsóknir. Hann verður kvíðinn, óöruggur og finnur fyrir einmanaleika.

Þessi mynd er raunveruleiki margra sem þurfa að fara í einangrun. Rannsóknir sýna að einangrun getur haft neikvæð áhrif á andlega og líkamlega líðan, seinkun á meðferð og rannsóknum, meiri hættu á atvikum og helsta ástæða óánægju sjúklinga í einangrun er skortur á upplýsingum og fræðslu (Gaube o.fl., 2022).

Einangrun sjúklinga sem bera smitsjúkdóma er einn af lykilþáttum í því að koma í veg fyrir smit á milli einstaklinga. Slík aðferð hefur verið viðhöfð í árhundruð og má rekja hugmyndina allt aftur til tíma Gamla testamentisins, löngu áður en þekking á bakteríum og meðferð gegn þeim var komin fram (Gammon, 1991). Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) bendir á að í dag standi heilbrigðiskerfið fyrir verulegum áskorunum vegna smitsjúkdóma, heimsfaraldra og aukningu á ónæmum bakteríum. Í þeirri baráttu gegna hjúkrunarfræðingar mikilvægu hlutverki sem þarf að styrkja og efla í samræmi við auknar kröfur um faglega hjúkrun. Hlutverk hjúkrunarfræðinga er margþætt, þeir búa yfir faglegri þekkingu,

þeir bera ábyrgð á sýkingavörnum, tryggja öryggi og gæði þjónustu, sinna fræðsluhlutverki og stuðningi við sjúklinga og aðstandendur (Wu o.fl., 2021).

Áhrif einangrunar á sjúklinginn og meðferð hans Sjúklingar sem greinast með smitsjúkdóm geta upplifað áfall, kvíða og óöryggi. Einangrun, minni samskipti og það að starfsfólk þurfi að sinna þeim í hlífðarbúnaði getur aukið þessar tilfinningar (Gammon, 1999). Í einangrun eykst hætta á byltum, þrýstingssárum og spítalasýkingum (Stelfox, 2003). Legutími verður oft lengri, innlit færri, skráning minni, endurinnlagnir tíðari og áhætta á alvarlegum atvikum tvöfaldast (Newton o.fl., 2021). Þar sem heimsóknir eru oft takmarkaðar til að fyrirbyggja útbreiðslu sýkinga upplifa sjúklingar oft félagslega einangrun sem getur leitt til einmanaleika, skammar og tilfinningu um að heilbrigðisstarfsfólk gleymi þeim. Heimsóknir eru þó yfirleitt leyfðar en aðstandendur hafa oft veigrað sér við að koma í heimsókn vegna hræðslu og óöryggis um smithættu, þess vegna er mikilvægt að við upplýsum aðstandendur um einangrun, smitleiðir og af hverju einangrun er beitt. Rannsóknir hafa sýnt að óánægja sjúklinga í einangrun tengist oft skorti á upplýsingum og fræðslu. Þegar fræðsla er ófullnægjandi leita sjúklingar oftar upplýsinga annars staðar, til dæmis á netinu, sem getur aukið kvíða og óöryggi auk þess sem upplýsingar geta verið misvísandi eða jafnvel rangar (Gaube o.fl., 2022). Sjúklingar hafa lýst upplifun sinni á einangrun sem stimplun og fundist þeir vera óhreinir þegar einangrunarskilti er sett framan á sjúkrastofuna og starfsfólk sinni þeim aðeins í gegnum hlífðarfatnað. Þeir hafa einnig lýst vanlíðan og að þeir upplifi sig ekki fá sömu meðferð og aðrir (Gammon, 2019). Sjúklingarnir hafa lýst hegðun starfsfólks til að komast hjá því að nota hlífðarfatnað með því að tala við þá í

dyragættinni þar sem einungis höfuð starfsmannsins birtist frekar en að koma inn á herbergið sem sérkennilegri hegðun (Smith og Rey-Barruel, 2022). Auk alls ofangreinds þá getur hlífðarfatnaður haft áhrif á samskipti þar sem líkamstjáning og raddblær breytist og sjúklingar eiga erfiðara með að heyra, sjá og þar með túlka líkamstjáningu starfsfólks.

Heildrænn stuðningur og upplýsingagjöf Hjúkrunarfræðingar gegna lykilhlutverki í að tryggja að sjúklingar í einangrun fái fræðslu. Sjúklingafræðsla miðar að því að efla þekkingu og færni einstaklinga til að taka upplýstar ákvarðanir um eigið heilsufar og meðferð. Fræðslan gegnir jafnframt mikilvægu hlutverki í að draga úr óvissu og stuðla að betri skilningi sjúklings á aðstæðum sínum og tilgangi einangrunar. Hún þarf að vera aðgengileg, bæði munnleg og skrifleg, og byggja á virðingu fyrir sjálfræði sjúklings. Til þess þarf þekkingu, tíma og hæfni til að miðla upplýsingum á einstaklingsmiðaðan hátt. Með markvissri fræðslu og þjálfun hjúkrunarfræðinga í sjúklingafræðslu er því hægt að efla gæði hjúkrunar og bæta upplifun sjúklinga af einangrun (Brynja Ingadóttir o.fl., 2019).

Innleiðing á Landspítala

Til að bæta gæði hjúkrunar í einangrun var þróuð og innleidd fræðslumeðferð sem byggir á samtali, virkri hlustun og skriflegu fræðsluefni. Fræðslumeðferð var formlega innleidd á smitsjúkdómadeild vorið 2024. Fylgt var sjö fasa innleiðingarlíkani JBI (Joanna Briggs istitute) og var innleiðingarferlið rannsakað (Porritt o.fl., 2023). Markmiðið var að efla færni hjúkrunarfræðinga í að veita fræðslu, bæta gæði og tryggja samræmda upplýsingagjöf til þess að efla líðan og öryggi sjúklinga.

Fræðslumeðferð var þróuð að þörfum sjúklinga með það að markmiði að koma í veg fyrir neikvæðar afleiðingar einangrunar. Fræðslubæklingur er hluti af fræðslunni en bæklinginn skal hafa til hliðsjónar þegar munnleg fræðsla er veitt. Í fræðslubæklingnum kemur meðal annars fram ástæða einangrunar, smitleiðir, reglur um heimsóknir og hvernig sjúklingur getur sjálfur stuðlað að öryggi og bættri líðan.

Við hönnun fræðslubæklingsins var haft samráð við sjúklinga og aðstandendur. Þeir voru spurðir hvaða upplýsingar þeim þættu mikilvægar í tengslum við einangrun. Einnig var tekið mið af rannsóknum sem fjalla um neikvæð áhrif einangrunar. Læknir, sjúkraþjálfari, hjúkrunarfræðingar á sýkingavarnadeild, sérfræðingur í hjúkrun og starfsfólk á miðstöð sjúklingafræðslu á Landspítala fóru yfir fræðsluefnið og lögðu til úrbætur. Fræðslumeðferðin er hugsuð fyrir sjúklinga en einnig var hannaður fræðslubæklingur fyrir aðstandendur þar sem farið er yfir ástæður einangrunar, smitleiðir o.fl. Það hafa eflaust margir hjúkrunarfræðingar velt því fyrir sér hvers vegna aðstandendur í einangrun komi stundum fram í „óhreinum“ hlífðarfatnaði eða fari með hanska ofan í vasann til að sækja t.d. síma. Líklegasta skýringin er einfaldlega sú að fræðsla eða upplýsingagjöf hafi ekki verið næg.

Mikilvægt er að meta hvernig sjúklingur eða aðstandandi meðtekur fræðslu og aðlaga hana að heilsulæsi þess sem hlýtur fræðsluna. Þar sem ástand og líðan getur haft áhrif á skilning er oft nauðsynlegt að endurtaka fræðsluna. Í fræðslubæklingi fyrir aðstandendur er lögð áhersla á sýkingavarnir og því er mikilvægt að hjúkrunarfræðingar veiti skýrar leiðbeiningar og útskýri reglur sem tengjast þeim. Sýkingavarnir eru nefnilega ekki sjálfsagður hlutur fyrir fólk að þekkja.

Áður en formleg innleiðing á deild hófst fengu átta sjúklingar og fjórir aðstandendur fræðsluna. Enginn sjúklinganna hafði áður fengið formlega fræðslu, fjórir vissu ekki að þeir mættu fá heimsóknir og þrír vissu ekki af hverju þeir voru í einangrun. Reyndist efnið sem þeir fengu í fræðslumeðferðinni mjög gagnlegt og nauðsynlegt að þeirra sögn. Einn aðstandandi benti jafnframt á að ef fræðslan hefði komið fyrr í sjúkrahúslegunni hefði það dregið úr mikilli óvissu og andlegri vanlíðan, bæði hjá aðstandendum og sjúklingnum sjálfum. Fræðsla getur þannig aukið ánægju sjúklinga og aðstandenda, auk þess sem hún tryggir að fólk sé meðvitað um reglur og verklag.

Fræðslumeðferðin felur í sér:

• Munnlega og skriflega fræðslu

• Samtal þar sem hjúkrunarfræðingur notar spurningar til að kanna skilning og veita upplýsingar eftir þörfum. Nota endursagnaraðferðina (teach-back method) til að tryggja skilning

• Nærveru, virka hlustun og andlegan stuðning

Markmiðið er ekki aðeins að upplýsa, heldur að vera til staðar fyrir sjúklinginn, mæta honum þar sem hann er staddur og ræða það sem skiptir hann máli. Fræðslumeðferð getur því dýpkað meðferðarsambandið og haft jákvæð áhrif á traust og samskipti. Fræðslan er einnig kjörið tækifæri til að upplýsa bæði sjúklinga og aðstandendur um að einangrun á sjúkrahúsi þýði ekki endilega að sjúklingur þurfi að vera í stöðugri einangrun eða að hún haldi áfram eftir útskrift, í flestum tilvikum er það ekki þannig. Einangrun á sjúkrahúsi er fyrst og fremst beitt til að vernda viðkvæma hópa innan stofnunarinnar sem eru í aukinni hættu á sýkingum.

Hjúkrunarfræðingar hafa nefnt að það sé oft óljóst hvernig þeir eigi að veita fræðslu og margir upplifa ákveðið óöryggi í þeim hluta hjúkrunar. Fræðslubæklingurinn var hannaður fyrst og fremst fyrir sjúklinga í einangrun, en einnig til að styðja við hjúkrunarfræðinga með aðgengilegu fræðsluefni. Hann er ætlaður til hliðsjónar við samtal og notaður til að fara yfir helstu atriði með sjúklingnum á einfaldan og aðgengilegan hátt.

Að veita fræðslumeðferð er jafnframt tækifæri til faglegrar þróunar fyrir hjúkrunarfræðinga. Hún stuðlar að aukinni þekkingu og bættri hjúkrun sjúklinga í einangrun. Við undirbúning fræðslu fer hjúkrunarfræðingur yfir hvaða smitsjúkdóm sjúklingur er með og hvernig hann smitast. Gagnlegt er að fara í gæðaskjölin í gæðahandbók Landspítala til að rifja upp smitleiðir og aðrar upplýsingar um ákveðinn sjúkdóm. Þannig eykur hjúkrunarfræðingurinn þekkingu sína samhliða fræðslumeðferðinni.

Hjúkrunarfræðingar voru boðaðir á fræðslufundi áður en þeir hófu að veita sjúklingum formlega fræðslu þar sem farið var yfir innleiðinguna, hagnýt atriði um sjúklingafræðslu, sýkingavarnir, hvernig fræðsla ætti að vera skráð, upplýsingar í gæðahandbók og stutt vinnusmiðja. Hjúkrunarfræðingarnir fengu senda þrjá spurningalista yfir innleiðingartímabilið en vegna dræmrar þátttöku var ekki hægt að draga ályktanir af niðurstöðum. Helmingur sjúklinga í einangrun á þessu tímabili fékk fræðslumeðferð og er stefnan að efla sjúklingafræðslu enn frekar á deildinni.

Framtíðarsýn Fræðslubæklingarnir tveir voru gefnir út formlega í gæðahandbók Landspítala í september 2024 eftir samvinnu og samráð við miðstöð sjúklingafræðslu á Landspítala.

Víða á spítalanum er verið að dreifa fræðslubæklingunum. Meðal annars fá aðstandendur sem koma í heimsókn til sjúklinga í einangrun á bráðamóttöku skriflega fræðslu þegar þeir tilkynna komu sína hjá ritara. Ekki er sjálfgefið að allir þekki sýkingavarnir, örverur, reglur spítalans eða ástæðurnar fyrir því að einangrun er beitt. Fræðslubæklingarnir eru til á íslensku en unnið er að þýðingu yfir á ensku. Höfundar eru bjartsýnir að þeir verði í framhaldi af enskri þýðingu þýddir yfir á fleiri tungumál svo þeir nýtist sem best. Markmiðið er að allir sjúklingar í einangrun og aðstandendur fái þessa fræðslu hvar sem þeir liggja.

Leiðir til að bæta gæði hjúkrunar í einangrun

Eins og má sjá hér að ofan getur einangrun haft víðtækar neikvæðar afleiðingar andlega, líkamlega og félagslega. Hjúkrunarfræðingar gegna lykilhlutverki í að milda neikvæð áhrif einangrunar (Hsiao o.fl., 2021). Sjúklingafræðsla er ein af mörgum hjúkrunarmeðferðum sem hægt er að beita og kalla sjúklingar eftir þessu skv. fyrrgreindum rannsóknum. Með einföldum og markvissum aðgerðum er hægt að bæta líðan sjúklinga og efla gæði hjúkrunar til þessa hóps:

• Veita reglulega fræðslu, til sjúklinga og aðstandenda, bæði munnlega og skriflega

• Tryggja skilning með því að nota endursagnaraðferðina (teachback method)

• Skrá fræðslu og upplýsingagjöf sem hluta af hjúkrunarmeðferð

• Fara reglulega inn til sjúklings, til að veita nærveru og virka hlustun til að minnka félagslega einangrun

• Styðja tengsl við aðstandendur, t.d. með símhringingu eða myndsímtali og upplýsa að heimsóknir séu leyfðar

• Hvetja til hreyfingar, fylgja sjúkling í göngu (aðstoða sjúkling fyrst í viðeigandi hlífðarfatnað ef hann fer fram á gang) og benda á hreyfirásina í sjónvörpum Landspítala

• Auka öryggi, t.d. með reglulegum innlitum og að tryggja að bjalla sé alltaf aðgengileg þegar farið er frá sjúklingi

• Koma í veg fyrir frestun rannsókna með því að skrá einangrun á rannsóknarbeiðnir

• Ræða bjargráð, t.d. að fá tölvu eða bækur til að stytta sér stundir

• Bjóða sálgæslu eða andlegan stuðning ef þörf er á

Lokaorð

Fræðslumeðferð fyrir sjúklinga í einangrun er einfalt en áhrifaríkt inngrip sem getur breytt upplifun þeirra af einangrun og dregið úr óvissu, kvíða og félagslegri fjarlægð sem margir upplifa. Með þessari fræðslu eykst öryggi, smithætta minnkar og þjónustan verður í heildina betri. Undirbúningur fyrir fræðslu er einnig kjörið tækifæri fyrir hjúkrunarfræðinga til þess að auka faglega færni og þekkingu þeirra á sýkingavörnum og smitsjúkdómum. Fræðslubæklingar fyrir bæði sjúklinga og aðstandendur bæta samræmi, gera upplýsingagjöf aðgengilegri og tryggja að fólk skilji betur af hverju einangrun er beitt og hvernig hún verndar bæði sjúklinga og aðra innan spítalans. Með þessari fræðslu eykst upplýsingaflæði og sjálfsöryggi sjúklinga, sem auðveldar jafnframt störf heilbrigðisstarfsfólks og getur dregið úr óþarfa bjölluhringingum. Þegar sjúklingur útskrifast er mikilvægt að útskýra fyrir honum að þó svo hann hafi verið í einangrun á spítala er hann oftast ekki í einangrun þegar heim er komið, t.d. sjúklingar sem eru með fjölónæmar bakteríur eins og BBL og MÓSA.

Fræðslumeðferðin sýnir að þegar við gefum okkur tíma til að upplýsa, hlusta og vera til staðar er hægt að gera einangrun ekki aðeins örugga, heldur líka manneskjulegri. Hún minnir okkur á að á bak við sýkingavarnir, verklag og hlífðarbúnað er einstaklingur sem þarf skýrar upplýsingar, stuðning og samskipti sem byggja á virðingu.

Að lokum er rétt að benda á að fyrsti höfundur veitir ráðgjöf og leiðsögn fyrir þá sem óska eftir frekari upplýsingum eða stuðningi tengdum hjúkrun sjúklinga í einangrun. Fræðslubæklingana má finna á vef Landspítala undir sjúklingafræðslu og í gæðahandbók Landspítala. Áhugasömum er einnig velkomið að hafa samband við fyrsta höfund til að fá aðgengi að þessum bæklingum (solveigy@landspitali.is)

HEIMILDIR

Barratt, R., Shaban, R. og Moyle, W. (2011). Patient experience of source isolation: Lessons for clinical practice. Contemporary nurse, 39(2). 180–193. doi:10.5172/conu.2011.180

Brynja Ingadóttir, Hrund Sch. Thorsteinsson, Herdís Sveinsdóttir og Katrín Blöndal. (2019). Mat hjúkrunarfræðinga á skurðlækningasviði Landspítala á eigin hæfni – Lýsandi þversniðsrannsókn. Tímarit hjúkrunarfræðinga, 95(3), 96–105.

Dóra Björnsdóttir. (2015). Mat hjúkrunarfræðinga á bráðamóttöku Landspítala á eigin hæfni [Meistararitgerð: Háskóli Íslands]. https://skemman.is/handle/1946/23290

Gammon, J., Hunt, J. og Musselwhite, C. (2019). The stigmatisation of source isolation: a literature review. Journal of Research in Nursing, 24(8), 677-693. https://doi.org/10.1177/1744987119845031

Gammon, J. (1999). The psychological consequences of source isolation: a review of the literature. Journal of Clinical Nursing, 8(1), 13-21. https://doi.org/10.1046/j.1365-2702.1999.00201.x

Gaube, S., o.fl. (2022). Patients with multi-drug resistant organisms feel inadequately informed about their status: adverse effects of contact isolation. The Journal of Hospital Infection. https://doi.org/10.1016/j.jhin.2022.11.021

Hsiao, C., Sun, J., Chiang, Y., Chen, H. og Liu, T. (2021). Experience of patients with COVID-19 in hospital isolation in Taiwan. Nursing and Health Sciences, 23(4), 888–897. https://doi.org/10.1111/nhs.12878

Newton, J. T., Constable, D. og Senior, V. (2001). Patients' perceptions of methicillin-resistant Staphylococcus aureus and source isolation: a qualitative analysis of source-isolated patients. Journal of Hospital Infection, 48(4), 275–280. https://doi.org/10.1053/jhin.2001.1019

Porritt, K., McArthur, A., Lockwood, C. og Munn, Z. (2023). JBI's approach to evidence implementation: A 7-phase process model to support and guide getting evidence into practice. JBI Evidence Implementation 21(1), 3–13. doi:10.1097/XEB.0000000000000361

Sólveig Gylfadóttir. (2024). Mat á árangri innleiðingar á fræðslumeðferð fyrir sjúklinga í einangrun á smitsjúkdómadeild Landspítala [meistararitgerð, Háskóli Íslands].

Stelfox, H. T. (2003). Safety of Patients Isolated for Infection Control. JAMA, 290(14), 1899. https://doi.org/10.1001/jama.290.14.1899

Wu, C., Yan, J., Wu, J., Wu, P., Cheng, F., Du, L., Du, Y., Lei, S. og Lang, H. (2021). Development, reliability and validity of infectious disease specialist Nurse's Core competence scale. BMC Nursing, 20(1), 231. https://doi.org/10.1186/s12912-021-00757-2

Paratabs

Verkjastillandi og hitalækkandi

Paratabs eru filmuhúðaðar töflur, innihalda 500 mg af virka efninu parasetamól.

Paratabs er notað gegn vægum til miðlungs miklum verkjum og til að lækka hita. Paratabs má nota gegn höfuðverk, tannpínu, tíðaverkjum, vöðvaverk og hita í tengslum við kvef. Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar, varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.

Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is

Markaðsleyfishafi er Teva B.V. Umboðsmaður á Íslandi: Teva Pharma Iceland ehf.

Að ráða við umönnun sjúklinga í óreiðukenndu umhverfi- Rýnihóparannsókn meðal sjúkraliða á skurðdeildum Landspítala.

doi: 10.33112/th.102.1.1

ÚTDRÁTTUR

Tilgangur

Að lýsa reynslu sjúkraliða af sjúklingamiðaðri hjúkrun aðgerðasjúklinga og hvernig starfsumhverfi og aðstæður geta skipt máli við að veita hágæða og örugga hjúkrun.

Aðferð

Notuð var eigindleg aðferðafræði þar sem tekin voru þrjú rýnihópaviðtöl við þrettán sjúkraliða sem starfa á skurðlækningadeildum Landspítala. Þátttakendur voru valdir með hentugleikaúrtaki. Viðtölin voru hljóðrituð, vélrituð orðrétt upp og til að fá dýpri skilning á umræðunum voru gögnin dregin saman og þau þemagreind og yfirheiti rannsóknar fundið.

Niðurstöður

Eitt yfirheiti og tvö meginþemu voru sett fram. Yfirheitið var „Að setja sjúkling, gæði og öryggi hjúkrunar í öndvegi.“ Fyrra meginþemað var „Að líða vel í starfi“, þar sem undirþemun voru, „samvinna, virðing og skilningur skilar betri hjúkrun“, „að tengjast sjúklingunum og vinna með þeim“ og „gaman þegar vel gengur.“ Seinna meginþemað var „Þegar á móti blæs“ og þar voru undirþemun „maður vill náttúrlega geta gefið hverjum og einum tíma og þekkt þarfir þeirra“, „að hlaupa á eftir hjúkrunarfræðingum„ og „óljóst vinnuskipulag, húsakostur og óbein verkefni draga úr gæðum hjúkrunar og auka álag.“

Atriði sem sjúkraliðarnir mátu mikilvæg til að setja sjúklinginn í öndvegi voru mönnun, samskipti, verkskipulag og starfsánægja. Þá fannst þeim mikilvægt að hafa tíma til að sinna nærhjúkrun og andlegum stuðningi.

Ályktanir

Þörf er á umbótum í starfsumhverfi sjúkraliða á skurðdeildum. Auka þarf tækifæri þeirra til að vaxa í starfi og að beita hæfni sinni að fullu. Innleiða þarf aðgerðir til að fækka verkefnum sem snúa ekki að nærhjúkrun ásamt því að auka nýliðun í stéttinni og halda sjúkraliðum í starfi. Frekari rannsókna er þörf á starfsumhverfi sjúkraliða til að meta hvað hefur áhrif á getu þeirra til að veita hágæða hjúkrun og setja sjúklinginn í öndvegi.

Lykilhugtök

Sjúkraliðar, hjúkrun, aðgerðasjúklingar, starfsumhverfi, starfsánægja

HAGNÝTING

RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA

Nýjungar: Niðurstöður rannsóknarinnar veita áður óþekkta innsýn í störf sjúkraliða á skurðlækningasviði Landspítala og það krefjandi og fjölbreytta starfsumhverfi sem þar ríkir og áhrifum þess á samstarf við hjúkrunarfræðinga.

Hagnýting: Nota má niðurstöður rannsóknarinnar sem innlegg í gerð hæfniviðmiða fyrir sjúkraliða á skurðsviði Landspítala.

Þekking: Niðurstöður bæta við þekkingu hvað það er í starfi sjúkraliða sem þeir telja að skipti mestu máli fyrir sjúklinga og stuðlar að ánægju í starfi.

Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga: Rannsóknin dregur fram mikilvægi og inntak þeirrar hjúkrunar sem sjúkraliðar vilja og geta veitt sjúklingum.

Höfundar

KATRÍN BLÖNDAL

hjúkrunarfræðingur, M.S., sérfræðingur í hjúkrun aðgerðasjúklinga1, aðjunkt2

ERNA GUÐRÚN HALLDÓRSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, B.S.3

SILJA RÓS ÞORSTEINSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, B.S.3

THEODÓRA TÓMASDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, B.S.3

HERDÍS SVEINSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Ph.D., prófessor4

1Menntadeild Landspítala

2Hjúkrunarfræðideild, Háskóla Íslands

3Landspítala

4Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands

Að ráða við umönnun sjúklinga í óreiðukenndu umhverfi - Rýnihóparannsókn

meðal sjúkraliða á

skurðdeildum Landspítala

INNGANGUR

Í maí 2020 undirrituðu rektor Háskóla Íslands og forstjóri Landspítala samninginn Fagráð og stefnuráð hjúkrunar á Landspítala. Samningurinn er einn af undirsamningum heildarsamnings þessara tveggja stofnana um samstarf þeirra. Samkvæmt samningnum eru fagráð mynduð utan um sérgreinar hjúkrunar og ljósmóðurfræða á Landspítala, eru vettvangur faglegrar umfjöllunar og samstarfsvettvangur Landspítala og Hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands. Þau starfa samkvæmt sýn og stefnu hjúkrunar á Landspítala, stefnu Landspítala, stefnu Háskóla Íslands og Hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands og er meðal annars ætlað að hafa forystu um og vinna að rannsóknum og þverfaglegu rannsóknarstarfi og styðja við rannsakendur í hjúkrun og ljósmóðurfræðum.

Til að fá yfirsýn yfir verkefni í gangi á deildum skurðlækningaþjónustu og til að undirbyggja störf í nýju skipulagi fagráðs hjúkrunar aðgerðasjúklinga tóku Herdís Sveinsdóttir, forstöðumaður fræðasviðs hjúkrunar aðgerðasjúklinga, og Katrín Blöndal, formaður fagráðsins, viðtöl við alla hjúkrunardeildarstjóra á skurðlækningaþjónustu (Katrín Blöndal og Herdís Sveinsdóttir, 2021) þar sem m.a. var spurt um hjúkrunarrannsóknir og vísindastarf. Margt kom til umræðu, svo sem álag, starfsumhverfi, starfsánægja og gegnumflæði sjúklinga. Rannsóknarverkefni sem flestir deildarstjórar höfðu áhuga á var starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða, hvort og hvernig umhverfið hefði áhrif á líðan sjúklinga og ekki síst hvernig hægt væri að setja sjúklinginn í öndvegi í því starfsumhverfi sem hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar búa við (Katrín Blöndal og Herdís Sveinsdóttir, 2021). Í ljósi þessa voru unnar tvær rannsóknir, annars vegar á starfsumhverfi sjúkraliða, og er hún til umfjöllunar hér, og hins vegar hjúkrunarfræðinga og afstöðu þessara tveggja stétta til þess hvernig hægt er að tryggja gæði hjúkrunar og öryggi sjúklinga í starfsumhverfi spítalans.

Fræðilegur bakgrunnur

Að setja sjúklinginn í öndvegi, þ.e. miða þjónustuna út frá sjúklingnum er aðalsmerki hágæðaheilbrigðisþjónustu en sjúklingamiðuð þjónusta felur í sér að bera virðingu fyrir og taka tillit til óska, þarfa og gilda hvers og eins. Í dag er viðurkennt að sjúklingamiðuð þjónusta hefur bein áhrif á hvernig sjúklingnum farnast (Larson o.fl., 2019; Ortiz, 2018). Hlutverk sjúkraliða er að veita einstaklingum nærhjúkrun, aðstoð við athafnir daglegs lífs, umönnun og endurhæfingu. Þeir starfa í mikilli nánd við skjólstæðinga sína og þeim ber að hafa hagsmuni þeirra að leiðarljósi, leggja áherslu á að hjúkrunin sé einstaklingsmiðuð og að sjúklingnum sé sýnd virðing og nærgætni (Sjúkraliðafélag Íslands, SLFÍ, e.d.). Ekki fundust margar rannsóknir á starfsumhverfi sjúkraliða. Rannsóknir á hjúkrunarfræðingum hafa sýnt að starfsumhverfi getur aukið eða dregið úr getu þeirra til að veita gæðahjúkrun og þar með á áhrif hjúkrunar á afdrif sjúklinga (Aiken o.fl., 2013; Brešan o.fl., 2021; Dunton o.fl., 2007; Tervo-Heikkinen o.fl., 2008). Ætla má að niðurstöður rannsókna á hjúkrunarfræðingum taki að einhverju leyti til sjúkraliða. Samkvæmt samantektarrannsókn

á því hvað einkennir starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga starfandi á spítölum þá einkennist það af þátttöku hjúkrunarfræðinga í málefnum spítalans, áhrifum þeirra á gæði umönnunar, stuðningi stjórnenda, mönnun, sambandi við samstarfsfólk og sjálfræði hjúkrunarfræðinganna (Lee og Scott, 2016). Hérlendis stóð Sjúkraliðafélag Íslands (SLFÍ) nýlega fyrir tveim könnunum á líðan sjúkraliða, sýn þeirra á launakjör, starfsumhverfi og mönnun og tóku um 50% sjúkraliða þátt (Sjúkraliðafélag Íslands 2022a; 2022b). Meginniðurstöður voru að 80% þátttakenda finna fyrir álagi, 70% streitu og 31% alvarlegri eða miðlungs kulnun í starfi. Þessir þættir, álag, streita og kulnun, hafa allir áhrif á áætlanir um að hætta í starfi eða skipta um starfsvettvang og hafa verið tengdir hnignandi gæðum hjúkrunar (Abraham o.fl., 2021), óframkvæmdri hjúkrun (Marczak og Milecka, 2024) og minni umhyggju (Labrague, 2024). Ætla má að allir þessir þættir hafi áhrif á hvernig sjúkraliðar ná að setja sjúklinginn í öndvegi. Í könnun SLFÍ sögðu um 16% þátttakenda starfsandann vera frekar eða mjög slæman, um 64% töldu að það væri mjög oft eða nokkuð oft borin virðing fyrir störfum þeirra á vinnustaðnum og um 16% töldu að stundum sé litið niður á þá á vinnustaðnum af hálfu yfirmanna. Leiðtogastíll hefur bein og óbein áhrif á starfsumhverfi og á velfarnað sjúklinga og er talinn einn grundvallarþátta samræmdrar og samþættrar umönnunar að mati jafnt sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks (Sfantou o.fl., 2017). Um 97% í könnun SLFÍ sögðu samskipti við samstarfsfélaga frekar eða mjög góð (Sjúkraliðafélag Íslands, 2022a). Líðan í starfi og samskipti samstarfsfélaga skiptir máli en samskipti og samstarf hefur áhrif á afdrif sjúklinga. Má nefna að í rannsóknum greina sjúkraliðar og hjúkrunarfræðingar frá því mati sínu að ef þeim þyki samstarfið gott þá séu gæði hjúkrunar betri. Slíkt endurspeglast í færri byltum og þrýstingssárum, aukinni ánægju sjúklinga, færri mistökum, minna sé um óframkvæmda hjúkrun, óheppileg atvik og endurinnlagnir sjúklinga (Moore o.fl., 2019; Prentice o.fl., 2020). Stofnanavenjur hafa áhrif á hvernig sjúkraliðar meta starf sitt. Vinnustaðahættir sem styðja við samstarf, viðurkenningu og að vera tekinn inn í hópinn leiða til aukinnar starfsánægju. Í könnun SLFÍ töldu 20% þátttakenda að menntun þeirra og reynsla væri vannýtt og um 52% að ekki væru nægileg tækifæri til framþróunar í starfi á þeirra vinnustað (Sjúkraliðafélag Íslands, 2022a). Niðurstöður rannsóknar á starfsumhverfi sjúkraliða á bráðalegudeildum Landspítala sýndu að sjúkraliðar töldu að þörf væri á aukinni skilvirkni í störfum þeirra og að of mikið væri um verkefni sem ekki krefðust fagþekkingar (Alda Ásgeirsdóttir og Helga Bragadóttir, 2011). Sambærilegt kom fram í viðtalsrannsókn við átta karlkyns sjúkraliða (Hermína Huld Hilmarsdóttir og Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 2021). Niðurstöður þar voru að þátttakendur vildu sjá verkferla um störf sjúkraliða og hvert þeirra hlutverk væri. Að þeir sem menntaðir sjúkraliðar gætu borið meiri ábyrgð og staðið nær sviði hjúkrunarfræðingsins, létt undir með honum og samvinnan yrði meiri. Þá nefndu þeir vanvirðingu sem fylgir því að enginn munur sé á þeim störfum sem þeim eru falin og þeim sem ófaglærðir vinni. Sýnt hefur verið fram á að hjúkrunarfræðingar hérlendis séu líklegri til þess að hætta á vinnustað ef ekki eru næg viðfangsefni sem reyna á (Herdís Sveinsdóttir og Katrín Blöndal, 2014). Ef til vill er hægt að yfirfæra það á sjúkraliða enda tengjast möguleikar til starfsþróunar hjá heilbrigðisstarfsfólki því að hyggja síður á að hætta störfum eða að yfirgefa sitt fag (Peter o.fl., 2024). Um 52% þátttakenda í könnun SLFÍ (2022b) sögðu að á síðustu tólf mánuðum hefðu þeir íhugað af alvöru að hætta störfum.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (e. World Health Organization) skilgreinir sjúklingaöryggi sem ramma utan um skipulagðar aðgerðir sem skapa viðhorf, verkferla, framkvæmd, hegðun, tækni og umhverfi. Þessar aðgerðir draga úr skaða og koma í veg fyrir mistök sem hægt er að fyrirbyggja (World Health Organization, 2021). Gott starfsumhverfi og góð samskipti eru lykilatriði í að tryggja öryggi sjúklinga og að heildarþörfum þeirra sé sinnt. Því er mikilvægt að sjúkraliðar séu meðvitaðir um það sem getur ógnað öryggi sjúklinga (VanDenKerkhof o.fl., 2017).

Markmið rannsóknarinnar var að lýsa reynslu sjúkraliða af sjúklingamiðaðri hjúkrun aðgerðasjúklinga og hvernig starfsumhverfi og aðstæður geta skipt máli við að veita hágæða og örugga hjúkrun.

AÐFERÐ

Aðferð rannsóknarinnar var eigindleg. Gögnum var safnað með rýnihópaviðtölum en með þeim fæst betri skilningur á viðhorfum eða reynslu ákveðins hóps gagnvart viðfangsefninu (Sóley S. Bender, 2021). Lítið hefur verið fjallað um reynslu íslenskra sjúkraliða af starfsumhverfi þeirra og hvernig það hefur áhrif á hjúkrun sjúklinga. Því voru rýnihópar taldir kjörin gagnasöfnunaraðferð. Með upplýsingum frá þátttakendum verða til eigindleg gögn í formi orðrétts texta sem byggja á reynslu þeirra, líkt og ef um einstaklingsviðtöl væri að ræða (Sóley S. Bender 2021).

Þátttakendur og framkvæmd

Þýði rannsóknarinnar voru íslenskumælandi sjúkraliðar með gilt starfsleyfi starfandi á eftirfarandi skurðdeildum Landspítala: A4, A5, B5, B6, 13D, 13EG og 12G. Úrtakið var hentugleikaúrtak. Deildarstjórar deildanna fengu kynningu á rannsókninni og ósk um að kynna hana fyrir sjúkraliðum. Ekki var gerð krafa um aldur þátttakenda, starfsaldur eða starfshlutfall. Þrettán sjúkraliðar frá fimm skurðdeildum samþykktu þátttöku og voru þrjú rýnihópaviðtöl tekin í febrúar 2024 með fjórum til fimm þátttakendum hvert. Tveir hópar hittust í Eirbergi, húsnæði Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar, einn á Landspítala, Fossvogi. Fyrsti og síðasti höfundar stýrðu viðtölunum, hinir þrír fylgdust með, tóku upp viðtölin, skráðu þau og eyddu að skráningu lokinni. Hvert viðtal tók um 60 mínútur. Viðtalsramma rannsóknarinnar má sjá í töflu 1.

Tafla 1. Spurningar í viðtalsramma rannsóknar

1. Hvernig setjið þið sjúklinginn í öndvegi í ykkar daglegu hjúkrun?

2. Hvernig mynduð þið lýsa vinnuumhverfi ykkar?

3. Hvernig er umræðan á ykkar deild um sjúklinginn?

4. Hvaða þættir í vinnuumhverfi ykkar eru hvetjandi varðandi að setja sjúklinginn í öndvegi?

5. Hvaða þættir í vinnuumhverfi ykkar eru hindrandi varðandi að setja sjúklinginn í öndvegi?

6. Hugsaðu um síðustu viku: Lýstu aðstæðum sem þú lentir í þar sem þú veittir hjúkrun sem þú varst sátt/ur/t við.

7. Hugsaðu um síðustu viku: Lýstu aðstæðum sem þú lentir í þar sem þú veittir hjúkrun sem þú varst ósátt/ur/t við.

Siðfræði

Siðanefnd stjórnsýslurannsókna á Landspítala (nr. 8/2022) veitti leyfi fyrir rannsókninni. Þátttakendur fengu kynningarblað við upphaf viðtalanna og undirrituðu upplýst samþykki. Þar kom fram að allar upplýsingar sem þátttakendur veittu yrðu meðhöndlaðar af fyllsta trúnaði og nafnleynd.

Gagnagreining

Viðtölin voru afrituð orð fyrir orð. Að því loknu voru gögnin dregin saman og flokkuð í þemu líkt og kemur fram í kafla Sóleyjar S. Bender (2021) á gagnagreiningu rýnihópaviðtala. Hvert viðtal var greint annars vegar af fyrsta og síðasta höfundi og hins vegar af hinum þremur. Greining gagnanna hófst með því að textinn var lesinn endurtekið yfir til að fá fram heildarmynd af upplifun þátttakenda. Eftir yfirlesturinn var merkt við það í textanum sem tengist viðfangsefninu og talið mikilvægast. Öllum heitunum var síðan safnað saman og raðað upp með það í huga að draga fram rauða þræði eða meginþemu og hvernig þau tengjast. Að því loknu voru niðurstöðurnar bornar saman við rannsóknargögnin og yfirheiti rannsóknar fundið.

Réttmæti og áreiðanleiki

Til að tryggja réttmæti rannsóknar voru lýsingar, skilningur og túlkun rannsakenda borin undir þátttakendur í seinni hópum til að fá fram hvort þær niðurstöður samræmdust þeirra reynslu. Þá var leitað eftir dæmigerðum og ódæmigerðum þáttum við greiningu gagna og slík gögn birt þegar við á. Tvær mismunandi greiningar (samþætting rannsakenda) voru gerðar á hverju viðtali. Til að forðast hlutlægni var leitast við að nálgast þátttakendur með opnum huga og án fyrirframgefinna hugmynda um svör. Þá var þess gætt að þeir fengju góðan tíma til að tjá sig (Margrét Hrönn Svavarsdóttir og Sigríður Halldórsdóttir, 2021) en nefna má að rannsakendur hafa víðtæka reynslu af viðtalsrannsóknum. Loks þarf að geta þess að óvíst er hvort gagnamettun hafi verið náð því færri þátttakendur fengust í rannsóknina en áætlað var (Morse, 2015).

NIÐURSTÖÐUR

Þrettán sjúkraliðar frá fimm mismunandi skurðlækningadeildum á Landspítala tóku þátt í rýnihópaviðtölunum. Aldur þátttakenda var á breiðu bili svo og starfsaldur en þeir voru allt frá nýútskrifuðum sjúkraliðum í að nálgast starfslok. Vegna fárra þátttakenda og þar með rekjanleika svara eru nákvæmar upplýsingar um þá ekki gefnar.

Gagnagreining leiddi í ljós tvö meginþemu og sex undirþemu, sjá töflu 1.

Tafla 1. Yfirheiti, megin- og undirþemu rannsóknar

YfirheitiMeginþemu Undirþemu

• Samvinna, virðing og skilningur skilar betri hjúkrun

hjúkrunar og auka álag.“ Yfirþema rannsóknarinnar var „Að setja sjúkling, gæði og öryggi hjúkrunar í öndvegi“ sem gefur til kynna viðleitni sjúkraliða til að veita hverjum sjúklingi það sem hann þarfnast í síbreytilegu umhverfi sem oft vinnur gegn sjúklingum.

„Að líða vel í starfi“

Þetta meginþema stendur fyrir þætti í starfsumhverfi sjúkraliða sem vörðuðu getu þeirra til að sinna sjúklingum á fullnægjandi hátt þannig að gæði hjúkrunar og öryggi þeirra væri tryggt.

Samvinna, virðing og skilningur skilar betri hjúkrun Hér kemur fram hvernig samskipti við sjúklinga og samstarfsmenn höfðu áhrif á líðan sjúkraliða en þeir drógu fram að samskipti væru stór hluti starfa þeirra. Oft getur sjúklingur ekki annað en lagt allt sitt traust á heilbrigðisstarfsmenn. Þá þarf sjúkraliðinn að geta veitt stuðning og verið til staðar fyrir sjúkling til að byggja upp traust og láta honum líða sem best:

... náttúrlega hluti af okkar starfi er ekki bara svona hörð hjúkrun, það er líka bara einmitt að spjalla og ... vera til staðar ... Þetta er rosaleg persónuleg svipting að vera sjúklingur.

Þeir lögðu áherslu á að reyna að setja sig í spor sjúklings en sögðu jafnframt að sumir væru meira krefjandi en aðrir. Sjúkraliðunum fannst mikilvægt að gera sér grein fyrir stöðu og ástandi sjúklinga og að ýmislegt gæti haft áhrif á hugarfar þeirra og hegðun:

... hann er bara veikur, getur verið stressaður, óöruggur. Þetta er bara eitthvað sem, þó að hann hreyti þá er þetta kannski bara sprottið af kvíða eða einhverjum erfiðleikum.

Þannig gat heilabilun eða annað sjúkdómstengt ástand kallað fram tímabundna breytingu á hegðun, t.d. þegar um óráð var að ræða:

Svo þegar að hann kemur úr lyfjaruglinu og svæfingunni, þá bara kemur eitthvað ljúfmenni í ljós ... Og ekki vera að dæma manneskjuna.

Þá kom fram að þeim fannst mikilvægt að leita til annarra sjúkraliða vegna krefjandi sjúklinga og að allir á deildinni væru meðvitaðir um hegðun sjúklinga: … svo enginn haldi að þetta sé bara hjá mér.

Krefjandi sjúklingum fylgdi þó oft neikvæðara umtal og benti hluti sjúkraliðanna á að slíkar umræður gæfu oft ranga mynd af þeim og stundum væri verið að hræða að óþörfu milli vakta:

Að líða vel í starfi

„Að setja sjúkling, gæði og öryggi hjúkrunar í öndvegi“

Þegar á móti blæs

• Að tengjast sjúklingunum og vinna með þeim

• Gaman þegar vel gengur

• Maður vill náttúrlega geta gefið hverjum og einum tíma þekkt þarfir þeirra

• Að hlaupa á eftir hjúkrunarfræðingum

• Óljóst vinnuskipulag, húsakostur og óbein verkefni draga úr gæðum hjúkrunar og auka álag

Annað meginþemað var „Að líða vel í starfi“ með undirþemunum: „samvinna, virðing og skilningur skilar betri hjúkrun“; „að tengjast sjúklingunum og vinna með þeim“ og „gaman þegar vel gengur.“ Hitt meginþemað var þar „Þegar á móti blæs“ með undirþemun: „maður vill náttúrlega geta gefið hverjum og einum tíma og þekkt þarfir þeirra“; „að hlaupa á eftir hjúkrunarfræðingum“ og „óljóst vinnuskipulag, húsakostur og óbein verkefni draga úr gæðum

... Það breytir upplifuninni þinni á sjúklingnum, þú ákveður það svona fyrir fram bara ósjálfrátt, já, hann er erfiður ... síðan er hann bara allt í lagi á vaktinni.

Þegar kom að samskiptum við aðrar stéttir voru flestir ánægðir með samstarf við hjúkrunarfræðinga og lögðu mikið upp úr góðu upplýsingaflæði milli starfstéttanna.

... Mér finnst rosalega gaman að vinna með hjúkrunarfræðingunum ... maður er alltaf að segja frá mismunandi hlutum og fá til baka um hvað maður á að gera eða ekki gera ....

Margir sjúkraliðanna höfðu þó fundið fyrir stéttaskiptingu og lítilsvirðingu, einkum af hálfu eldri lækna og hjúkrunarfræðinga. Það birtist t.d. sem skipanir um að ganga frá eftir þá eða að ekki var hlustað á sjónarmið þeirra og reynslu.

Að tengjast sjúklingunum og vinna með þeim Hér koma fram leiðir sem sjúkraliðar nota til að styðja sjúklinga og auka þátttöku þeirra í meðferð. Þeir lýstu mikilvægi stuðnings og nokkrir nefndu að andleg hjúkrun stæði upp úr þegar þeir hugsuðu um hjúkrun sem þeir höfðu veitt:

... ég er alltaf rosa ánægð þegar ég gef góða andlega hjúkrun ... Þá bara að ljá eyra, hlusta, ræða, spyrja hvernig þeim líður við ákveðnar aðstæður.

Þannig drógu þeir fram hversu áríðandi væri að tala við sjúklingana, hrósa þeim, leyfa þeim að tjá sig, hughreysta og veita nærveru, jafnvel þótt það sé ekkert sérstakt að fara að gerast. Þá opna sjúklingar sig oft varðandi sínar aðstæður þó að þeir stoppi stutt við. Það geti til dæmis haft þau áhrif að þeir fari rólegir í aðgerð. Einn sjúkraliðanna lýsti því hvað fælist í hughreystingu:

... þetta er bara að halda ró, hughreysta og taka bara rólegt spjall ... að leggja höndina kannski aðeins á [öxlina] ... Og þá nær maður sambandinu og, hérna, þá fer hann að hlusta ... og bara róandi rödd eða bara að vera róleg ... Þá kom einnig fram mikilvægi hvatningar og að hrósa fyrir það sem sjúklingar gera og geta því það hvetur þá og gleður. Þeir minntust einnig á hvernig andleg hjúkrun getur hjálpað í líkamlegri hjúkrun:

... bara núna í vikunni, sjúklingur var rosa órólegur og var að stressast yfir að standa upp eftir aðgerð ... [Sjúkraliðinn segir:] „Nú ætla ég að biðja þig um að anda djúpt og segja mér hvað ertu hræddur við?“ ... hann segir mér bara beint út: „Ég er hræddur við verkinn.“

Sjúkraliðarnir töluðu um að sjúklingar finni oft mikla persónulega sviptingu eða vanmátt við innlögn á spítala. Þeim líði þá oft eins og allar ákvarðanir séu í höndum heilbrigðisstarfsfólks og að þeir hafi lítið val eins og hér kemur fram:

... þetta fólk kemur inn og það leggst í rúm sem við viljum að það leggist í, það fer í föt sem við viljum að þau séu í og það borðar það sem við viljum, ef að við viljum að það borði ... Og það er sett ... upp í rúm við hliðina á einhverri manneskju sem það þekkir ekki neitt.

Þeir töldu það vera til hagsbóta fyrir sjúkling ef hann fengi tækifæri til að taka þátt í ákvörðunum varðandi hans legu, til dæmis fengi að velja mat af matseðli þegar hægt væri.

Gaman þegar vel gengur Í þessu undirþema kemur fram hvaða þættir í starfi sjúkraliða stuðla að starfsánægju. Allir voru ánægðir með sína deild og töldu sjúkraliðastarfið skemmtilegt, ekki síst þegar vel gekk og þeir náðu að klára vinnudaginn sáttir. Einn sagði frá þakklæti sínu yfir að geta veitt góða hjúkrun:

... ef að sjúklingurinn er ánægður bara með það sem við gerum ... og maður komist í gegnum daginn til þess að sinna fólkinu ... fyrir það að geta veitt fólki bara stuðning og ánægju á meðan að ég er á vaktinni.

Sumir lýstu því að eftir krefjandi vakt væru þeir yfirleitt sáttir ef vaktin hefði gengið vel, alveg sama þó að þeir væru alveg útkeyrðir eftir vaktina því ... þá er bara gaman í vinnunni. Annar tók í sama streng og lýsti ánægju sinni þegar vaktin hafði gengið smurt fyrir sig:

... bara búin að gera fjölbreytt, eitthvað smart fyrir sjúklinginn ... snyrtilegt í kringum hann, ég er búin að skrifa fallega um hann, faglega ... geta náð að ... lesa um hann og ræða við hjúkkuna mína, bara alls konar hlutir tikka saman í box og valda því svona að maður trítlar út jákvæður eftir vakt.

En það var einnig mjög gefandi að skynja þakklæti sjúklinga og aðstandenda þeirra með þá hjúkrun sem þeir veittu og einn sjúkraliðanna sagði frá þegar hann hitti aðstandanda utan spítalans:

„Þú varst að sinna honum pabba mínum og þú gerðir það svo yndislega að ég verð að fá að knúsa þig og þakka þér fyrir.“

„Þegar á móti blæs“

Þetta meginþema stendur fyrir þau atriði í vinnuumhverfinu sem hindra sjúkraliða í að setja sjúkling í öndvegi og draga þannig úr öryggi og gæðum hjúkrunar og starfsánægju þeirra.

Maður vill náttúrlega geta gefið hverjum og einum tíma og þekkt þarfir þeirra

Sérstaklega var nefnt hversu mikilvægt væri að sjúklingar fyndu til vellíðanar og öryggis, að þörfum þeirra væri sinnt og allir fengju þann tíma sem þeir þörfnuðust:

Sjúklingurinn í öndvegi er náttúrlega bara að sinna honum og gefa honum tíma. Það er náttúrlega bara þannig.

Það gat þó reynst erfitt þegar mannekla var t.d. vegna veikinda og enginn fékkst á vakt og sjúkraliðarnir nefndu gjarnan að góð mönnun væri lykillinn að því að hægt væri að setja sjúklinginn í öndvegi í daglegum störfum. Of margir sjúklingar á deild miðað við legupláss samfara manneklu dró úr starfsánægju og leiddi til skertra gæða hjúkrunar þar sem minni tími gafst fyrir hvern sjúkling. Sjúkraliðunum fannst erfitt þegar þeir náðu ekki að klára verkin sín sökum of margra sjúklinga. Þó að það væri ekki áberandi á öllum deildum létu margir þeirra í ljós óánægju með ástandið eins og sést í þessu dæmi:

… og svo stóð ég bara … með tárin í augunum … þarna fannst mér ég ekki vera að sinna vinnunni minni á réttan hátt … þetta var bara svona færibandavinna ... Maður náttúrlega vill gefa hverjum og einum tíma ef að það er fáliðað, sko, þá nær maður þessu ekki þó að maður vilji það.

Sérstaklega var fjallað var um sjúklinga sem tilheyrðu öðrum sérsviðum og voru tilkomnir vegna skorts á sjúkraplássum á öðrum deildum og yfirfullum spítala:

… að sinna svona mikið fólki sem að við þekkjum ekki almennilega að hjúkra og höfum eiginlega ekki mannskap í það þá auðvitað er það auðvitað öfugt við allt sem ætti að vera að gerast í hjúkrun ... það er bara ekki sérlega gaman að hjúkra þegar að maður er ekki með ... getu til þess að sinna fólki almennilega og það er bara mjög sorglegt.

Þannig gat það að sinna sjúklingum sem tilheyrðu ólíkum sérgreinum haft neikvæð áhrif á starfsfólk og sjúklinga:

Við erum með svo mikið af sjúklingum sem eru ekki okkar sérgrein ... auðvitað sinnum við þeim með hjúkrun og gerum allt sem við getum fyrir þá ... það er svo langt frá þjónustunni þeirra einhvern veginn til okkar sjúklinga og hún getur komið eftir dúk og disk ... Mér finnst þetta bara ekki í lagi því að ég veit að sjúklingurinn á betra skilið.

Bent var á að afleiðing manneklu og álags var að þreytu var farið að gæta meðal starfsfólks og það því síður „tilbúið til að hlaupa alltaf á aukavaktir“. Þó kom fram að ástandið væri misslæmt og betra nú en oft áður. Búið væri að ráða marga sjúkraliða, hjúkrunarnema og sums staðar ófaglært starfsfólk (hlaupara) til starfa. Þetta létti vinnuálag og stuðlaði að því að sjúkraliðarnir gætu sinnt alvarlega veikum sjúklingum betur. Sumum fannst þó verksvið aðstoðarfólks óskýrt auk þess sem þjálfun þess lenti oft á sjúkraliðum. Þannig gat ráðning aðstoðarfólks aukið vinnuálag sjúkraliða tímabundið þar sem þeir voru: … allt í einu komin með tvö hlutverk. Að vera hlaupari og sjúkraliði.

Að hlaupa á eftir hjúkrunarfræðingum Þótt margir lýstu góðri samvinnu við hjúkrunarfræðinga var hún alls ekki algild og oft eyddu sjúkraliðarnir miklum tíma í að leita að hjúkrunarfræðingnum og voru „endalaust að hlaupa á eftir þeim“ til að koma upplýsingum til skila. Einhverjir nefndu síðan neikvæð áhrif aukinnar tölvuvinnu hjúkrunarfræðinga á teymisvinnu og hjúkrun við rúm sjúklings.

… Það var svona þegar að ég byrjaði á þessari deild, alltaf fórum við (hjúkrunarfræðingurinn) saman og hittum sjúklinginn … Og svo að geta farið saman í umönnunina ... Svo er bara alltaf meiri og meiri tölvuvinna (hjá hjúkrunarfræðingnum).

Þá var oft erfitt að ná sambandi við hjúkrunarfræðingana á meðan á stofugangi stóð, ekki síst þegar þeir voru uppteknir vegna stofugangs með mismunandi sérfræðigreinum: Það er rosalega erfitt að ... ná saman.

Við þessar aðstæður komast skilaboð ekki nógu vel til skila og sjúkraliðinn fær ekki þær upplýsingar sem hann þarfnast. Jafnframt þurftu sjúkraliðarnir í auknum mæli að sinna morgunaðhlynningu án hjúkrunarfræðinga.

Einnig gat verið mismunandi eftir hjúkrunarfræðingum til hvers þeir ætluðust af sjúkraliðunum og oft fór mikill tími í að sækja þá til að framkvæma verk sem sjúkraliðar gætu sjálfir séð um:

... við erum endalaust að hlaupa á eftir hjúkrunarfræðingunum.

Sem er óþarfi, við kunnum þetta, við getum þetta.

Sumum fannst þó þeir ekki geta tekið að sér fleiri sérhæfð verk meðan staðan væri sú að það fengjust ekki sjúkraliðar.

Óljóst vinnuskipulag, húsakostur og óbein verkefni draga úr gæðum hjúkrunar og auka álag Í rýnihópunum kom fram að hæfni og þekking sjúkraliða væri oft ekki notuð og það mætti rekja til óljósra verklýsinga og misræmis á vinnuskipulagi milli deilda. Þannig mega þeir „flusha“ í æðaleggi eða taka niður vökva á einni deild en ekki á þeirri næstu. Þá tóku önnur verkefni en bein hjúkrun upp tíma þeirra, eins og að skipta á rúmum, þrífa kaffistofuna, sjá um skolið, fylla á, ganga frá vörum og vinna störf ritara þegar hann er veikur. Samhljómur var um að þessi störf ykju álag:

… Mér finnst mikilvægara að sinna sjúklingnum heldur en vinna önnur verk ... Mér finnst allt í lagi að þau sitji eftir ef að maður getur sett sjúklinginn í fyrsta sæti.

Flestir töldu vinnuskipulag sem miðaði að því að þeir væru með sömu sjúklinga nokkra daga í röð auðvelda þeim að vera betri talsmenn sjúklinga og mynda við þá meðferðarsamband:

Þú lærir á manneskjuna og hans þarfir ef að þú ert með hann nokkrar vaktir í röð ... Þetta er öryggi, þetta faglega verður held ég bara miklu betra.

Slík samfella sparaði þeim einnig tíma við að lesa um sjúkling í byrjun vaktar en stundum gafst þeim ekki nægilegur tími til þess auk þess sem truflanir voru tíðar:

Og þú ert endalaust að truflast þegar [þú ert] að lesa um sjúklinginn ... maður hefur alveg lent í því að labba inn og ekki vitað hvað er að gerast og manneskjan, þú veist, ósátt með það.

Þeir bentu þó á að það væri ekki alltaf hægt að tryggja slíka samfellu og einn minntist á að það gæti verið sjúklingnum til hagsbóta að sami sjúkraliði sinnti ekki sama sjúklingi margar vaktir í röð því þeir gætu misst af einhverju ef þeir væru komnir í einhverja rútínu og fersk augu væru því gagnleg. Aðrir nefndu nauðsyn þess að skiptast á þegar um væri að ræða krefjandi sjúklinga því það gæti reynt mjög á, ekki síst andlega.

Einnig var nefnt að vinnuskipulag innan deilda ylli því að sinna þyrfti mörgum verkum í einu innan þröngs tímaramma, til dæmis á morgunvöktum:

... vigta alla og stixa alla fyrir klukkan átta ... síðan þarf hann líka að ná að lesa um sína sjúklingana ... En á sama tíma ertu líka að svara bjöllum.

Þeir nefndu einnig húsakost spítalans, plássleysi og þrengsli, sem álagsþátt í starfi sem kæmi niður á hjúkrun sjúklinga. Sem dæmi var nefnt að ekki væri hægt að koma fólki sem er í hjólastól að klósettinu án þess að „lyfta sér upp á tærnar og draga svona andann inn til þess að komast á milli til þess að færa sjúklinginn.“

UMRÆÐA

Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að flestir sjúkraliðanna voru ánægðir í starfi, sérstaklega þegar þeim þótti þeir hafa nægan tíma og úrræði til að veita sjúklingum gæðahjúkrun sem stuðlaði að bættri velferð og ánægju sjúklinga.

Þessi afstaða endurspeglast í yfirheiti rannsóknarinnar, þ.e. að setja sjúkling, gæði og öryggi hjúkrunar í öndvegi. Samskipti eru veigamikill þáttur í daglegu starfi á sjúkrahúsum en rannsóknir sýna að góð samvinna leiðir til meiri bata sjúklinga og aukinnar ánægju þeirra með heilbrigðisþjónustuna (Martsolf o.fl., 2016; Prentice o.fl., 2020). Annað meginþema rannsóknarinnar var að líða vel í starfi og þar skipti samvinna og samskipti við sjúklinga og samtarfsfólk miklu máli. Sjúkraliðarnir lögðu áherslu á mikilvægi góðra samskipta við sjúklinga og nefndu hversu mikilvægt væri að gefa færi á sér, vera sýnilegir, hrósa og bjóða aðstoð að fyrra bragði. Sjúklingar njóta góðs af sterkum samskiptaleiðum auk þess að starfsánægja eykst, starfsmannavelta minnkar og veikindadögum fækkar þegar samskipti innan stofnunar eru góð (Moore o.fl., 2019). Áberandi þráður í umræðum sjúkraliðanna var að þeir starfi sífellt oftar einir vegna aukinna verkefna hjúkrunarfræðinga og að stundum væri erfitt að koma skilaboðum á milli. Þeim fannst þessi þróun hafa neikvæð áhrif á hjúkrunina. Líðan sjúklinga var ofarlega í huga sjúkraliðanna og að mannlegi þáttur starfsins væri stór hluti af starfsánægju. Þeir lýstu því hvernig þeir tókust á við krefjandi sjúklinga en þeim fannst mikilvægt að geta sett sig í spor þeirra ásamt því að meta þarfir hverrar manneskju fyrir sig til að öðlast betri skilning á líðan þeirra og hegðun. Samkennd felur í sér

að setja sig í spor sjúklings og vísar til hæfileika manneskju til að skynja tilfinningar annarra, ásamt getu til að ímynda sér hugsanir og líðan þeirra (Decety, 2020; Graham o.fl., 2019). Umræður um stuðning við sjúklinga komu oft fram í rýnihópunum og töluðu sjúkraliðarnir sérstaklega um mikilvægi andlegs stuðnings og þess að gefa sér tíma fyrir hvern sjúkling. Þó fannst þeim mikilvægt að vera meðvitaðir um að sjúklingahópar séu ólíkir og höfði misvel til fólks. Lykilþættir í sjúklingamiðaðri þjónustu eru meðal annars samskipti, virðing fyrir óskum og þörfum sjúklings, andlegur og líkamlegur stuðningur og aðgerðir sem draga úr ótta og kvíða (Ortiz, 2018). Sjúkraliðarnir sammæltust um mikilvægi þess að sjúklingum finnist ekki að þeir missi öll völd þó að þeir leggist inn og reyndu að bjóða sjúklingnum val, t.d. um mataræði eða klæðnað. Í rannsóknum hafa sjúklingar lýst skýrri löngun til að taka þátt í ákvarðanatöku sem viðkemur heilsu þeirra og líðan (Graham o.fl., 2019). Mikilvægt er að stuðla að jákvæðri reynslu sjúklinga þar sem aðstæður á sjúkradeildum geta verið framandi og ógnvekjandi. Jákvæð reynsla sjúklinga stuðlar að meiri ánægju þeirra, lægri dánar- og sjúkdómstíðni, styttri legutíma og aukinni meðferðarheldni. Rannsókn á reynslu sjúklinga af meðferð á bráðadeild sýndi að samskipti við heilbrigðisstarfsfólk væri veigamikill þáttur í því hvernig sjúklingurinn upplifir sjúkrahúsleguna (Decety, 2020; Graham o.fl., 2019). Rannsókn á kvíða sjúklinga fyrir skurðaðgerð sýndi að samkennd var sá þáttur sem sjúklingar óskuðu helst eftir frá heilbrigðisstarfsfólki (Salzmann o.fl., 2023). Að mati sjúkraliðanna voru hughreysting og stuðningur óaðskiljanlegur hluti af þeirri hjúkrun sem þeir veita sjúklingum. Hitt meginþema rannsóknarinnar, þegar á móti blæs, vísar til hindrana í vinnuskipulagi og umhverfinu almennt.

Sjúkraliðunum fannst hjálplegt að geta leitað til samstarfsfólks varðandi erfiða hegðun sjúklinga og voru flestir sammála um að þeim fyndist gott að vinna með hjúkrunarfræðingum og að samvinna við þá væri almennt farsæl. Út frá frásögn sjúkraliðanna var hins vegar greinilegt að umhverfisaðstæður leiddu til truflunar á boðskiptaleiðum og samskiptum og slíkt hefur neikvæð áhrif á sjúklinginn. Færri mistök, fylgikvillar og endurinnlagnir sjúklinga fylgja í kjölfar bættra samskipta (Moore o.fl., 2019; Prentice o.fl., 2020). Því þarf að veita áðurtöldum aðstæðum sérstaka athygli.

Sjúkraliðarnir voru ánægðir með vaktina ef þeir höfðu náð að gefa hverjum og einum sjúklingi tíma en voru ósáttir þegar þeir náðu ekki að klára verkefni sín og fannst þeir ekki hafa haft nægan tíma til að sinna sjúklingunum. Út frá frásögn sjúkraliðanna mátti greina að öryggi sjúklinga væri stundum ógnað vegna tímaskorts. Þeir höfðu oft lítinn tíma til að lesa um sjúklingana og undirbúa daginn vegna annarra verka sem þurfti að sinna innan þröngs tímaramma sem leiddi til þess að þeir gátu þurft að ganga inn til sjúklings án þess að þekkja til sjúkrasögu hans.

Í viðtölunum mynduðust talsverðar umræður um stöðu mönnunar á deildunum og hvernig hún hefði áhrif á afdrif sjúklinga. Kannanir sýna að um helmingur sjúkraliða hefur íhugað að hætta störfum, meðal annars vegna manneklu. Þá telur um helmingur sjúkraliða sem starfar á Landspítala að mönnun sé aldrei eða sjaldan fullnægjandi (Phillips o.fl., 2022; Sjúkraliðafélag Íslands, 2022a). Flestir þátttakenda voru sammála um að skortur á sjúkraliðum á Landspítala hefði áhrif á gæði hjúkrunar. Lágmarksviðmið um mönnun sjúkraliða á heilbrigðisstofnunum hafa ekki verið skilgreind en reglugerðir þess efnis hafa jákvæð áhrif á mönnun og farsæld sjúklinga ásamt því að auka hagkvæmni í rekstri spítala (McHugh o.fl., 2021). Fram kom í umræðunum að

skortur á leguplássum og húsnæðisþrengsli væru hindrandi þættir í að setja sjúklinginn í öndvegi. Þá töldu þeir að álag hefði verulega neikvæð áhrif á gæði hjúkrunar og að umbóta væri þörf á því sviði. Niðurstöður rannsóknarinnar ríma við eldri íslenskar rannsóknir sem sýna að sjúkraliðar finna til álags í starfi og að þörf sé á að auka skilvirkni í störfum þeirra til að nýta þekkingu þeirra og reynslu betur (Alda Ásgeirsdóttir og Helga Bragadóttir, 2011; Hermína Huld Hilmarsdóttir og Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 2021). Þetta er í samræmi við umfjöllun Jennýjar Jóhannesdóttur (2023) sjúkraliða um plássleysi og úrelt húsnæði víða í heilbrigðiskerfinu.

Flestir töldu að verklýsingar og verkskipulag mætti bæta. Með því myndi hæfni sjúkraliða nýtast betur í starfi ásamt því að auðveldara væri að setja sjúklinginn í öndvegi. Sumum fannst þekking þeirra vannýtt og jafnframt að þekkingin væri misnýtt á milli deilda. Eitt má hér sem er bannað þar og þetta þótti ekki gott. Mikilvægt er að stofnanir séu með skýrar verklýsingar og þeim sé fylgt eftir. Sýnt hefur verið fram á tengsl óskýrra verklýsinga við minni gæði hjúkrunar sem leiðir til að sjúklingunum farnast verr (Havaei o.fl., 2019; McHugh o.fl., 2021). Því er mikilvægt að útbúa hæfnistjórnunarkerfi fyrir sjúkraliða með skilgreindum grunnog sérhæfðum hæfniviðmiðum. Með því geta sjúkraliðar öðlast sérhæfða þekkingu á verkefnum innan deilda og fengið tækifæri til að nýta hæfni sína í starfi (Sigríður Gunnarsdóttir, 2022).

Styrkur rannsóknarinnar felst í því að þátttakendur spönnuðu breitt aldursbil og höfðu mismikla starfsreynslu, allt frá nýútskrifuðum sjúkraliðum í að nálgast starfslok. Þá má nefna að reyndir rannsakendur og hjúkrunarfræðingar tóku viðtölin. Mögulega er takmörkun að allt að fimm aðilar tóku viðtölin. Aðrar takmarkanir eru lítið úrtak (N=13) og að ekki fengust þátttakendur frá öllum skurðdeildum Landspítala. Því má vera að mettun hafi ekki náðst með fjölda þátttakenda. Ef fleiri þátttakendur hefðu fengist, gæti verið að aðrar eða fleiri skoðanir, umræður og hugmyndir hefðu komið fram. Almennt er veikleiki rýnihópa sá að fárra spurninga er spurt miðað við stórar kannanir. Þátttakendur geta einnig átt það til að verða sammála hver öðrum en í kjölfarið verður umræðan ekki jafn veigamikil og annars hefði getað verið (Sóley S. Bender, 2013).

ÁLYKTUN

Aðstæður í starfsumhverfi hafa áhrif á hjúkrun sjúkraliða á skurðdeildum en þeir þurfa iðulega að laga sig að óreiðukenndu umhverfi til að geta haft sjúkling í öndvegi. Þörf er á umbótum í starfsumhverfinu og leita þarf leiða til að sjúkraliðar geti hjúkrað á þann hátt að þeir geti nýtt þekkingu sína og þeim gert kleift að beita hæfni sinni til fulls. Rannsaka þarf nánar atriði sem hafa áhrif á líðan sjúkraliða og tengsl þeirra við gæði og öryggi. Meginályktun er þó að sjúkraliðar eru í heildina ánægðir í starfi og takast á við áskoranir á þeim vettvangi.

ENGLISH SUMMARY

Managing patient care in a chaotic environment.

Focus group discussion with Licensed Practical Nurses in Surgical Wards at The National University Hospital of Iceland

doi: 10.33112/th.102.1.1

Blöndal, K., Halldorsdottir, E.K., Þorsteinsdottir, S.R., Tomasdottir, T., Sveinsdottir, H.

ABSTRACT

Aim

To describe LPNs experience of patient centred care and how the work environment and conditions can make a difference in providing high-quality and safe nursing care.

Methods

A qualitative methodology was used, where three focus group interviews were conducted with thirteen LPNs working in surgical departments at Landspitali Universitiy Hospital. A convenience sample was used to recruit participants. Interviews were audio-recorded, transcribed verbatim and to gain a deeper understanding of the discussions, they were thematically analysed.

Results

One overarching theme and two main themes were presented. The overarching theme was Placing patients, quality and safety of nursing at the forefront. The former main theme was “Feeling good at work” where the subthemes were, "collaboration, respect and understanding deliver better nursing", "connecting with patients and working with them" and "enjoyable when things are going well". The other main theme was "When the going gets tough" and the subthemes were "one naturally wants to be able to give everyone time and know their needs", "running after nurses" and "unclear work arrangements, housing and indirect tasks reduce the quality of nursing and increase stress".

Conclusions

There is a need for improvements in the working environment of LPNs within surgical departments. Their opportunities to grow professionally and to fully utilize their skills need to be increased. Actions need to be implemented to reduce the number of tasks that are unrelated to bedside nursing as well as increase retention rates and recruitment in the profession. Further research is needed on LPNs work environment to assess what affects their ability to provide high-quality care and put the patient first.

Keywords

Licensed practical nurses, nursing, surgical patients, work environment, job satisfaction

Correspondent katrinb@landspitali.is

HEIMILDASKRÁ

Abraham, C. M., Zheng, K., Norful, A. A., Liu, J. og Poghosyan, L. (2021). Primary care nurse practitioner burnout and perceptions of quality of care. Nursing Forum, 56(3), 550-559. https://doi.org/10.1111/nuf.12579

Aiken, L. H., Sloane, D. M., Bruyneel, L., Van der Heede, K. og Sermeus, W. (2013). Nurses’ reports of working conditions and hospital quality of care in 12 countries in Europe. International Journal of Nursing Studies, 50(2), 143-153. https://doi.org/10.1016/j.ijnurstu.2012.11.009

Alda Ásgeirsdóttir og Helga Bragadóttir. (2011). Rannsókn á vinnu og vinnuumhverfi sjúkraliða á bráðalegudeildum Landspítala. Tímarit hjúkrunarfræðinga, 87(5), 48-55. https://timarit.is/page/6655802#page/n51/mode/2up

Brešan, M., Erčulj, V., Lajovic, J., Ravljen, M., Sermeus, W. og Grosek, Š. (2021). The relationship between the nurses’ work environment and the quality and safe nursing care: Slovenian study using the RN4CAST questionnaire. PLOS ONE 16(12). https://doi.org/10.1371/journal.pone.0261466

Decety, J. (2020). Empathy in medicine: what it is, and how much we really need it.

The American Journal of Medicine, 133(5), 561-566. https://doi.org/10.1016/j.amjmed.2019.12.012

Dunton, N., Gajewski, B., Klaus, S. og Pierson, B. (2007). The relationship of nursing workforce characteristics to patient outcomes. The Online Journal of Issues in Nursing, 12(3). https://doi.org/10.3912/OJIN.Vol12No03Man03

Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, Hulda Ringsted, Erla Björnsdóttir, Elín Jóhanna G. Hafsteinsdóttir, Ólafur Guðbjörn Skúlason og Magnús Benedikt Sigurðsson (2024). Mönnunarviðmið í hjúkrun, Reykjavík, heilbrigðisráðuneytið. Graham, B., Endacott, R., Smith, J. E. og Latour, J. M. (2019). ‘They do not care how much you know until they know how much you care’: a qualitative metasynthesis of patient experience in the emergency department. Emergency Medicine Journal, 36(6), 355-363. https://doi.org/10.1136/emermed-2018-208156

Havaei, F., MacPhee, M., og Dahinten, V. S. (2019). The effect of nursing care delivery models on quality and safety outcomes of care: a cross-sectional survey study of medical-surgical nurses. Journal of Advanced Nursing, 75(10), 2144-2155. https://doi.org/10.1111/jan.13997

Herdís Sveinsdóttir og Katrín Blöndal. (2014). Surgical nurses’ intention to leave a workplace in Iceland: A questionnaire study. Journal of Nursing Management, 22(5), 543-552. https://doi.org/10.1111/jonm.12013

Hermína Huld Hilmarsdóttir og Ingólfur Ásgeir Jóhannesson (2021). „Margir ungir karlmenn vita ekki að það er hægt að vera karlkyns sjúkraliði.“ Áskoranir og tækifæri í starfi karlkyns sjúkraliða. Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun https://netla.hi.is/greinar/2021/rynd/08.pdf

Jenný Jóhannsdóttir (2023). Vinnuumhverfi og hlutverk sjúkraliða í teymisvinnu. Sjúkraliðinn, 37(2), 27-29. https://www.slfi.is/wp-content/uploads/2023/07/ sjukralidinn_2023_web.pdf

Katrín Blöndal og Herdís Sveinsdóttir. (2021). Verkefni hjúkrunar á deildum skurðlækningaþjónustu. Niðurstöður funda með deildarstjórum. Óbirt skýrsla.

Labrague, L. J. The impact of job burnout on nurses’ caring behaviors: Exploring the mediating role of work engagement and job motivation. (2024). International Nursing Review. 71(3), 653-660. doi: 10.1111/inr.12899. Epub 2023 Oct 31. PMID: 37908133. Larson, E., Sharma, J., Bohren, M. A., Tunçalp, Ö. (2019). When the patient is the expert: Mmeasuring patient experience and satisfaction with care. Bulletin of the World Health Organization 97(8), 563-569. doi: 10.2471/BLT.18.225201

Lee, S.E. og Scott, L.D. (2016). Hospital Nurses’ Work Environment Characteristics and Patient Safety Outcomes: A Literature Review. Western Journal of Nursing Research. 40(1):121-145. doi:10.1177/0193945916666071

Marczak, P. og Milecka, D. (2024). Professional burnout of nurses and the level of rationing of nursing care: An observational preliminary study. BMC Nursing 23, 269. https://doi.org/10.1186/s12912-024-01940-x

McHugh, M. D., Aiken, L. H., Sloane, D. M., Windsor, C., Douglas, C. og Yates, P. (2021). Effects of nurse-to-patient ratio legislation on nurse staffing and patient mortality, readmissions, and length of stay: a prospective study in a panel of hospitals. The Lancet, 397(10288), 1905-1913. https://doi.org/10.1016/S0140-6736(21)00768-6

Margrét Hrönn Svavarsdóttir og Sigríður Halldórsdóttir. (2021). Réttmæti og áreiðanleiki í megindlegum og eigindlegum rannsóknum. Í Sigríður Halldórsdóttir (ritstjóri), Rannsóknir – Handbók í aðferðafræði rannsókna (bls. 219-254). Háskólinn á Akureyri, Háskólaútgáfan.

Martsolf, G. R., Gibson, T. B., Benevent, R., Jiang, H. J., Stocks, C., Ehrlich, E. D., Kandrack, R. og Auerbach, D. I. (2016). An examination of hospital nurse staffing and patient experience with care: Differences between cross-sectional and longitudinal estimates. Health Services Research, 51(6), 2221-2241. https://doi.org/10.1111/1475-6773.12462

Moore, J., Prentice, D., Crawford, J., Lankshear, S., Limoges, J. og Rhodes, K. (2019). Collaboration among registered nurses and practical nurses in acute care hospitals: A scoping review. Nursing Forum, 54(3), 376-385. https://onlinelibrary.wiley.com/doi/10.1111/nuf.12339

Morse, J. M. (2015). Critical analysis of strategies for determining rigor in qualitative inquiry. Quality Health Research, 25(9), 1212-1222.

Ortiz, M. R. (2018). Patient-centered care: nursing knowledge and policy. Nursing Science Quarterly, 31(3), 291–295. https://doi.org/10.1177/0894318418774906

Peter, K. A., Voirol, C., Kunz, S. o.fl. Factors associated with health professionals’ stress reactions, job satisfaction, intention to leave and health-related outcomes in acute care, rehabilitation and psychiatric hospitals, nursing homes and home care organisations. (2024). BMC Health Services Research 24, 269 https://doi.org/10.1186/s12913-024-10718-5

Phillips, L. A., de Los Santos, N., Ntanda, H. og Jackson, J. (2022). The impact of the work environment on the health-related quality of life of licensed practical nurses: a cross-sectional survey in four work environments. Health and Quality of Life Outcomes, 20(44). https://doi.org/10.1186/s12955-022-01951-9

Prentice, D., Moore, J., Crawford, J., Lankshear, S. og Limoges, J. (2020). Collaboration among registered nurses and licensed practical nurses: A scoping review of practice guidelines. Nursing Research and Practice, 2020. https://doi.org/10.1155/2020/5057084

Salzmann, S., Euteneuer, F., Kampmann, S., Rienmüller, S. og Rüsch, D. (2023). Preoperative anxiety and need for support – a qualitative analysis in 1000 patients. Patient Education and Counseling, 115. https://doi.org/10.1016/j.pec.2023.107864

Sfantou, D. F., Laliotis, A., Patelarou, A. E., Sifaki-Pistolla, D., Matalliotakis, M., Patelarou, E. (2017). Importance of leadership style towards quality of care measures in healthcare settings: A systematic review. Healthcare, 5(4), 1-17. https://doi.org/10.3390/healthcare5040073

Sigríður Gunnarsdóttir (2022). Hjúkrun á Landspítala: Skýrsla um stöðu og þróun hjúkrunar á Landspítala 2012-2022. https://www.landspitali.is/library/Sameiginlegar-skrar/ Rit-og-skyrslur/arsskyrslur/Fagrad-Landspitala/Skyrsla_hjukrunar_2012-2023 Sjúkraliðafélag Íslands. (e.d.). Siðareglur sjúkraliða. Sjúkraliðafélag Íslands. https://www.slfi.is/sidareglur-sjukralidafelags-islands/ Sjúkraliðafélag Íslands. (2022a, 1. júlí). Niðurstöður könnunar – ánægja, en töluvert álag: vannýtt tækifæri. Sjúkraliðafélag Íslands. https://www.slfi.is/nidurstodur-konnunar/ Sjúkraliðafélag Íslands. (2022b, 28. október). 52% sjúkraliða hafa íhugað af alvöru að hætta í starfi. Sjúkraliðafélag Íslands. https://www.slfi.is/52-sjukralida-hafa-ihugad-af-alvoru-ad-haetta-i-starfi Sóley S. Bender. (2021). Rýnihóparannsóknir. Í Sigríður Halldórsdóttir (ritstjóri), RannsóknirHandbók í aðferðafræði rannsókna (bls. 277-295). Hákólinn á Akureyri, Háskólaútgáfan. Tervo-Heikkinen, T., Partanen, P., Aalto, P. og Vehviläinen-Julkunen, K. (2008). Nurses’ work environment and nursing outcomes: A survey study among Finnish university hospital registered nurses. International Journal of Nursing Practice, 14(5), 357-365. https://doi.org/10.1111/j.1440-172X.2008.00707.x

Tonkikh, O., Zisberg, A. og Shadmi, E. (2020). Association between continuity of nursing care and older adults' hospitalization outcomes: a retrospective observational study. Journal of Nursing Management, 28(5), 1062–1069. https://doi.org/10.1111/jonm.13031

VanDenKerkhof, E., Sears, N., Edge, D. S., Tregunno, D. og Ginsburg, L. (2017). Patient safety in practical nurses’ education: A cross-sectional survey of newly registered practical nurses in Canada. Nurse Education Today, 51, 48-56. https://doi.org/10.1016/j.nedt.2017.01.003

World Health Organization. (2021). Global Patient Safety Action Plan 2021–2030: Towards eliminating avoidable harm in health care. https://iris.who.int/bitstream/ handle/10665/343477/9789240032705-eng.pdf?sequence=1

Kapphlaupið við tímann: Rýnihóparannsókn á starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga á skurðlækningadeildum

Landspítala

doi: 10.33112/th.102.1.2

ÚTDRÁTTUR

Tilgangur

Að kanna mat hjúkrunarfræðinga á því hvaða áhrifaþættir, hvetjandi eða letjandi, eru til staðar í starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga á skurðlækningadeildum Landspítala sem geta haft áhrif á þeirra störf og öryggi sjúklinga á þeirra deildum.

Aðferð

Eigindleg aðferð þar sem tekin voru þrjú rýnihópaviðtöl við tíu hjúkrunarfræðinga frá sex deildum á skurðlækningaþjónustu Landspítalans. Þátttakendur voru valdir með hentugleikaúrtaki. Viðtölin voru hljóðrituð, vélrituð orðrétt upp og til að fá dýpri skilning á umræðunum voru gögnin dregin saman og þau þemagreind og yfirheiti rannsóknar fundið.

Niðurstöður

Greind voru fjögur meginþemu, ásamt einu yfirþema. Yfirþema rannsóknarinnar var: „Sjúklingurinn er í fyrsta sæti þegar þú hefur tíma til að sinna honum.“ Heiti meginþemanna voru: „Kapphlaupið við tímann“, „Að gefa sér tíma sparar tíma“, „Talsmaður sjúklings eða stofnunar?“og „Erilsamt umhverfi sem hvetur og letur.“ Hjúkrunarfræðingar beita aðferðum eins og skipulagningu og forgangsröðun verkefna, ýmiss konar samskiptatækni, líkamsmati og samfellu í umönnun til þess að veita góða og örugga hjúkrun en stundum stönguðust hagsmunir sjúklinga og stofnunar á. Styðjandi atriði í starfsumhverfinu voru m.a. góð samskipti innan og milli teyma, samvinna við aðrar fagstéttir, gæðaskjöl og rafrænir samskiptamöguleikar. Letjandi þættir voru t.d. truflanir og að sinna verkefnum utan ábyrgðarsviðs, takmarkandi skráningarkerfi, tímaskortur, vinnuálag og flæðisvandi.

Ályktun

Niðurstöður benda til þess að hjúkrunarfræðingar í skurðlækningaþjónustu Landspítala starfi undir miklu álagi og ýmsir þættir í starfsumhverfi þeirra aftri þeim frá því að geta haft sjúklinginn í öndvegi og valdi þeim siðferðislegri togstreitu. Ýmsir þættir, sem hægt er að efla, auðvelda þeim þó að láta daginn ganga upp og hafa sjúklinginn í öndvegi þrátt fyrir tímaskort og óreiðukennt umhverfi. Finna þarf leiðir til að bæta starfsumhverfið, draga úr álagi og gera hjúkrunarfræðingum frekar kleift að veita hágæða hjúkrun.

Lykilorð

Aðgerðasjúklingar, hjúkrunarfræðingar, starfsumhverfi, starfsánægja, öryggi sjúklinga

HAGNÝTING

RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA

Nýjungar: Niðurstöður rannsóknarinnar gefa nýja sýn á hvernig hjúkrunarfræðingar meta hæfni sína og þekkingu til að veita gæðaumönnun í starfi sínu og við hvaða aðstæður þeir telja sig geta veitt hágæða hjúkrun og örugga hjúkrun.

Þekking: Niðurstöður rannsóknarinnar bæta við þekkingu á því hvernig hjúkrunarfræðingar bregðast við erfiðum aðstæðunum á skurðlækningasviði, hvaða aðferðum þeir beita til þess og hvaða leiðir þeir telja æskilegar til að stuðla að öryggi og ánægju sjúklinga.

Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga:

Niðurstöður gefa deildarstjórum og öðrum stjórnendum Landspítala innsýn í sýn hjúkrunarfræðinga á starf sitt, starfsumhverfi og þá hjúkrun sem þeir veita. Þessar niðurstöður er hægt að nýta til úrbóta á starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga á skurðlækningaþjónustu Landspítala.

Höfundar

HERDÍS SVEINSDÓTTIR

hjúkrunarfræðingur, Ph.D., prófessor1

ALMAR ÖRN WATHNE hjúkrunarfræðinemi1

FRIÐRIK FRANK WATHNE hjúkrunarfræðingur, B.S.2

SIGRÚN HILMARSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, B.S.3

KATRÍN BLÖNDAL

séfræðingur í hjúkrun, M.S. 1,2

1Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands

2Landspítali

3Mörk, hjúkrunarheimili

Kapphlaupið við tímann: Rýnihóparannsókn á starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga á skurðlækningadeildum Landspítala

INNGANGUR

Hjúkrunarfræðinga vantar til starfa, hérlendis og erlendis (Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir o.fl., 2024). Skorturinn er langvarandi og unnar hafa verið fjölmargar skýrslur til að greina vandann og koma með úrlausnir (WHO, 2020). Þær hafa ekki fundist. Hjúkrunarfræðingar, sem starfa við beina umönnun sjúklinga, verða varir við skortinn í daglegum störfum og fréttir af starfsumhverfi þeirra og álagi við störf er reglubundið fréttaefni. Vaxandi áhyggjur eru meðal hjúkrunarfræðinga á heimsvísu vegna þessa, þ.e. aukinna veikinda sjúklinga, vinnuálags, tímaskorts og takmarkaðs aðbúnaðar (Shah o.fl., 2021). Rannsóknir sýna að langvarandi skortur á hjúkrunarfræðingum og meðfylgjandi álag hefur áhrif á m.a. starfsánægju og kulnun sem getur ógnað öryggi sjúklings og gæðum hjúkrunar (Brooks o.fl., 2021).

Árið 2021 var samþykkt nýtt skipulag fagráða á Landspítala. Til að undirbyggja störf í fagráði hjúkrunar aðgerðasjúklinga og til að fá yfirsýn yfir umbótaverkefni í gangi á deildum skurðlækningaþjónustu voru tekin viðtöl við alla hjúkrunardeildarstjóra á skurðlækningaþjónustu (Katrín Blöndal og Herdís Sveinsdóttir, 2021, Landspítali, óbirt skýrsla). Meðal annars var fjallað um hjúkrunarrannsóknir og vísindastarf. Rannsóknarverkefni sem flestir deildarstjórar höfðu áhuga á var starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða, þá sérstaklega hvort og hvernig umhverfið hefði áhrif á afdrif sjúklinga (Katrín Blöndal og Herdís Sveinsdóttir, 2021). Í ljósi þessa voru unnar tvær rannsóknir, annars vegar á starfsumhverfi sjúkraliða (Katrín Blöndal o.fl. 2025) og hins vegar starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga og er sú rannsókn kynnt hér.

Fræðilegur bakgrunnur

Gæði hjúkrunar vísa til getu hjúkrunar til að veita örugga, árangursríka, siðferðilega og einstaklingsmiðaða umönnun sem stuðlar að heilsu, vellíðan og bata. Bandaríska hjúkrunarfélagið leggur áherslu á að gæði hjúkrunar felist í ábyrgð hjúkrunarfræðinga á að viðhalda faglegum stöðlum, fylgja siðareglum og tryggja öryggi og árangur í umönnun (American Nurses Association, 2015). Gæði hjúkrunar er margþætt og byggir á samspili skipulags (t.d. mönnun og aðbúnaður), ferla (fagleg vinnubrögð) og útkomu (t.d. heilsufar og ánægja sjúklinga) (Donabedian, 1988). Gæðin eru nátengd starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga en rannsóknir sýna að þættir eins og mönnun, faglegt sjálfstæði, stuðningsrík forysta, jákvæð vinnustaðamenning og tækifæri til fagþróunar hafa bein áhrif á öryggi og árangur hjúkrunar (Aiken et al., 2013; Lake, 2002). Skortur á þessum þáttum getur leitt til aukins vinnuálags og lægri gæðaviðmiða í umönnun (Kutney-Lee et al., 2016). Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) felur gæðameðferð í sér að þjónusta sé örugg, árangursrík, skilvirk, réttlát, tímanleg og einstaklingsmiðuð (WHO, 2018). Í hjúkrun er þetta útfært með

áherslu á öryggi sjúklinga, faglega hæfni hjúkrunarfræðinga, virðingu fyrir mannréttindum og þátttöku sjúklinga í ákvörðunum um meðferð (European Federation of Nurses Associations, 2022).

Magnet-líkanið um hágæða sjúkrahús, leggur áherslu á faglegt sjálfstæði, þátttöku í ákvarðanatöku, stuðningsríka forystu, jákvætt starfsumhverfi og menningu sem styður gæði og öryggi (Abuzied o.fl., 2022). Í niðurstöðum hugtakagreiningar Pereira o.fl. (2024) á jákvæðu starfsumhverfi í hjúkrun kveður við svipaðan tón en þar koma þó fram enn fleiri atriði sem vert er að gefa gaum. Samkvæmt þeirra skilgreiningu eru þau atriði sem einkenna slíkt starfsumhverfi eins og stuðningur við að veita hágæða hjúkrunarþjónustu, stuðningur við fagfólk og þátttaka í ákvarðanatöku, efling samvinnu, árangursríkra samskipta, sjálfstæðis og faglegrar þróunar. Þá byggir það á grunnviðmiðum hjúkrunar og gagnreyndri þekkingu og er og öruggt bæði fyrir sjúklinga og fagfólk auk þess sem einstaklingsmiðaðri hjúkrun er forgangsraðað. Jákvætt starfsumhverfi er því lykilatriði til að tryggja gæði hjúkrunar, bæta heilsufarslega útkomu og stuðla að öryggi sjúklinga.

Störf hjúkrunarfræðinga hafa orðið umfangsmeiri undanfarna áratugi og þess krafist að þeir auki þekkingu sína með því að ná tökum á flókinni færni til að fullnægja kröfum tæknisamfélagsins (Jalilian o.fl., 2019). Hjúkrunarfræðingar finna jafnframt fyrir tímaskorti og kröfu um að vinna verk innan ákveðins tíma frekar en kröfu um að veita gæðahjúkrun (Gillet o.fl. 2020). Þá getur starfsumhverfið falið í sér hættu á að þeir sýkist vegna smitefna eða stunguóhappa, hljóti ýmsa líkamlega áverka vegna þungrar hjúkrunar eða verði fyrir líkamlegu eða munnlegu ofbeldi (Dressner og Kissinger, 2018). Hjúkrunarfræðingar eru ábyrgir fyrir því að skipuleggja og stýra starfi sínu, faglegri framkomu og gæðum þeirrar hjúkrunar sem þeir veita sjúklingum. Þessi ábyrgð felur í sér árverkni, mat og eftirlit með heilsufari sjúklings, umönnun og klíníska þekkingu á veikindum hans ásamt þekkingu á umhverfi starfsins (Mitchell, 2008). Í starfsumhverfi, þar sem er mannekla, vanhæfir starfsmenn, óskilvirkni sem einkennist af tímaþröng, þurfa hjúkrunarfræðingar að forgangsraða verkefnum sínum en það getur verið flókið í framkvæmd (Vryonides o.fl., 2015). Forgangsröðun umönnunar krefst þekkingar og færni sem byggist á klínískri þekkingu og reynslu og getur við erfiðar aðstæður ögrað faglegum og siðferðilegum gildum hjúkrunarfræðinga (Suhonen o.fl., 2018; Tønnessen o.fl., 2020). Sé forgangsröðun röng er hætt við að gæði hjúkrunar minnki, hætta á skaðlegum afleiðingum fyrir sjúklinga aukist og öryggi þeirra sé almennt ógnað (Suhonen o.fl., 2018). Ókláruð hjúkrunarverk er öll sú umönnun sem hjúkrunarfræðingar taka meðvitaða ákvörðun um að veita ekki vegna tímaskorts eða óviðunandi aðbúnaðar í starfsumhverfinu og hafa verið nefnd sem afleiðing óskilvirkrar forgangsröðunnar (Jones o.fl. 2015). Sýnt hefur verið fram á að ókláruð hjúkrun hefur neikvæð áhrif á bata sjúklinga og getur aukið hættu á ótímabæru andláti auk neikvæðra áhrifa á andlega líðan hjúkrunarfræðinga (Aiken o.fl., 2018; Melnyk o.fl., 2018).

Samskipti er hluti af vinnuumhverfi allra sem starfa í heilbrigðiskerfinu og er rauði þverfaglegi þráðurinn í gegnum öll stig meðferðar sjúklings (Kourkouta og Papathanasiou, 2014). Góð samskipti milli hjúkrunarfræðinga og lækna og sjúkraliða eru tvíhliða ferli sem felur í sér að senda skýr og viðeigandi skilaboð sem aðrir geta móttekið og skilið og stuðla þau að árangursríku starfsumhverfi og öryggi sjúklinga (Saiki o.fl., 2020). Ófullnægjandi samskipti hjúkrunarfræðinga og lækna leiða til óánægju og skorts á faglegu sjálfræði meðal hjúkrunarfræðinga sem hefur tilhneigingu

til að hafa neikvæð áhrif á gæði umönnunar og öryggi sjúklinga (Wieke Noviyanti o.fl., 2021). Slæm samskipti hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða bera að sama brunni en ófullnægjandi upplýsingar milli þeirra sem veita sjúklingum grunnaðhlynningu hafa neikvæð áhrif á útkomu sjúklinga (Potter o.fl., 2010). Ófullnægjandi samskipti er talin vera orsakavaldur í um tveim þriðju hluta atvika í heilbrigðisþjónustu (Wieke Noviyanti o.fl., 2021).

Krefjandi starfsumhverfi eins og því er lýst að ofan getur verið uppspretta verulegrar streitu enda álag sem fylgir því að sinna mikið veikum sjúklingum samfara undirmönnun og tímaskorti. Kerfisbundin samantekt á sambandi starfsumhverfis og vinnutengdrar streitu hjúkrunarfræðinga sýnir að styðjandi stofnanamenning tengist aukinni starfsánægju hjúkrunarfræðinga á vinnustað og minni vinnutengdri streitu en neikvæð stofnanamenning tengist sterklega vinnutengdri streitu hjúkrunarfræðinga (Kiptulon o.fl., 2024).

Byggt á ofangreindu má ætla að ýmsir þættir hafi áhrif á getu hjúkrunarfræðinga til að setja sjúklinginn í öndvegi og mikilvægt að skoða að áhyggjur deildarstjóra á skurðlækningasviði Landspítala af áhrifum starfsumhverfis á öryggi sjúklinga. Megintilgangur þessarar rannsóknar er að kanna mat hjúkrunarfræðinga á því hvaða áhrifaþættir, hvetjandi eða letjandi, eru til staðar í starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga á skurðlækningadeildum Landspítala sem geta haft áhrif á þeirra störf og á öryggi sjúklinga.

AÐFERÐ

Snið rannsóknarinnar er eigindlegt og var gögnum safnað með rýnihópaviðtölum. Eigindlegar rannsóknir leitast við að fá svar við spurningum og fá innsýn í reynsluheim einstaklinga og hópa (Rasmussen og McLiesh, 2019). Markmiðið með rýnihóparannsóknum er að þátttakendur endurspegli fjölbreytta breidd í viðhorfum og að á þann hátt sé hægt að fá nýja innsýn í afstöðu fólks til tiltekinna aðstæðna (Sóley S. Bender, 2021).

Þátttakendur og framkvæmd Þátttakendur rannsóknarinnar voru hjúkrunarfræðingar starfandi á legudeildum á skurðlækningasviði Landspítala. Úrtakið var hentugleikaúrtak. Deildarstjórar fengu kynningu á rannsókninni og óskað var eftir að þeir kynntu rannsóknina fyrir hjúkrunarfræðingum en skilyrði fyrir þátttöku í rannsókninni var að vera hjúkrunarfræðingur, starfa sem slíkur á skurðlækningasviði Landspítala og tala íslensku. Erfiðlega gekk að finna tíma sem hentaði fyrir viðtölin enda var mikið álag á deildum þann tíma sem gagnasöfnun stóð yfir. Tíu hjúkrunarfræðingar tóku á endanum þátt og voru þrjú rýnihópaviðtöl tekin í febrúar 2024, með tveimur upp í sex þátttakendum. Viðtölin fóru fram í Eirbergi, Fossvogi og á Hringbraut. Fyrsti og síðasti höfundur stýrðu viðtölunum. Hinir þrír fylgdust með, tóku upp viðtölin, skrifuðu þau orðrétt upp og eyddu að skráningu lokinni. Viðtölin voru frá um 50 til 80 mínútur að lengd. Notaður var hálfstaðlaður viðtalsrammi, sjá töflu 1.

Siðfræði

Farið var eftir lögum um persónuvernd og reglum um trúnað og nafnleynd fylgt. Þátttakendur fengu afhent bréf með upplýsingum um rannsóknina og undirrituðu upplýst samþykki. Þar kom fram að ekki yrði hægt að rekja svör þeirra til einstakra þátttakanda. Einnig voru þeir upplýstir um að þeir gætu hætt í rannsókninni hvenær sem væri og látið taka út sinn hluta í viðtali. Til að gæta nafnleyndar og draga úr hættu á að hægt væri að rekja niðurstöður til einstakra þátttakenda eru upplýsingar um aldur eða aldursbil

ekki gefnar þar sem þær geta gefið til kynna um hverjir tóku þátt í rýnihópunum. Til að mæta þeim möguleika að umræður gætu vakið upp erfið tilfinningaleg viðbrögð hjá hjúkrunarfræðingunum fengu allir upplýsingar um hvert þeir gætu leitað til að ræða þau nánar eða leita úrlausnar við þeim.

Siðanefnd stjórnsýslurannsókna á Landspítala veitti leyfi fyrir rannsókninni (nr. 8/2022.

Tafla 1. Spurningar í viðtalsramma rannsóknar

1. Hvernig setjið þið sjúklinginn í öndvegi í ykkar daglegu hjúkrun?

2. Hvernig mynduð þið lýsa vinnuumhverfi ykkar?

3. Hvernig er umræðan á ykkar deild um sjúklinginn?

4. Hvaða þættir í vinnuumhverfi ykkar eru hvetjandi varðandi að setja sjúklinginn í öndvegi?

5. Hvaða þættir í vinnuumhverfi ykkar eru hindrandi varðandi að setja sjúklinginn í öndvegi?

6. Hugsaðu um síðustu viku: Lýstu aðstæðum sem þú lentir í þar sem þú veittir hjúkrun sem þú varst sátt/ur/t við.

7. Hugsaðu um síðustu viku: Lýstu aðstæðum sem þú lentir í þar sem þú veittir hjúkrun sem þú varst ósátt/ur/t við.

Gagnagreining

Viðtölin voru þemagreind og fór greiningin þannig fram að hvert viðtal var lesið margsinnis yfir til að finna rauða þræði eða þemu í samræðunum og hverju þeirra síðan gefið heiti (Sóley S. Bender, 2021). Fyrsta greining hvers viðtals var gerð af höfundum tvö til fjögur en þá tóku næstu tveir við. Niðurstöður greininga rannsakenda voru síðan bornar saman og ræddar á fundi allra til að komast að sameiginlegri niðurstöðu. Loks var gerður samanburður á rannsóknargögnum og niðurstöðum og teiknuð upp mynd sem sýnir yfirþema og þemu rannsóknarinnar og tengsl þeirra (mynd 1).

Réttmæti og áreiðanleiki

Staðfestingaraðferð (Morse, 2015) var notuð til að reyna að koma í veg fyrir og draga úr þeim hættum sem steðja að eigindlegum rannsóknum. Rannsakendur hlustuðu af athygli og með opnum hug á þátttakendur, og gáfu þeim góðan tíma til að tjá sig um reynslu, og spurðu nánar út í óljósa þætti viðtalsins til þess að fá staðfestingu þátttakanda á þeirra eigin skilningi. Einnig voru þátttakendur spurðir út frá svörum þátttakanda úr öðrum viðtölum til að fá staðfestingu á þeim. Þar sem rannsakendur voru fleiri en einn var samþættingu einnig beitt enda geta umræður rannsakenda varpað fleiri sjónarhornum fram við gagnagreiningu og dregið úr hættu á ónógri gagnagreiningu (premature closure) (Margrét Hrönn Svavarsdóttir og Sigríður Halldórsdóttir (2021).

NIÐURSTÖÐUR

Alls tóku 10 hjúkrunarfræðingar frá sex skurðlækningadeildum á Landspítala þátt í rannsókninni. Meðalaldur var 46,5 ár og meðaltal starfsreynslu 16,4 ár. Vegna fárra þátttakenda eru frekari bakgrunnsupplýsingar ekki birtar.

Við þemagreiningu voru sett fram yfirþema og fjögur meginþemu sem lýsa því hvað í starfsumhverfinu hvetur eða letur hjúkrunarfræðinga við að setja sjúklinga í öndvegi. Yfirþema rannsóknarinnar „Sjúklingurinn er í fyrsta sæti þegar þú hefur tíma til að sinna honum“ er bein tilvitnun í einn þátttakanda þegar hann greindi frá afstöðu sinni í hnotskurn: „Sjúklingurinn er í fyrsta sæti

þegar þú hefur tíma til að sinna honum og hann er númer eitt, tvö og tíu.“

Kapphlaup við tímann

Að gefa sér tíma sparar tíma

Sjúklingurinn í fyrsta sæti þegar þú hefur tíma til að sinna honum

Talsmaður sjúklings eða stofnunar?

Erilsamt umhverfi hvetur og letur

Mynd 1. Yfirlit yfir heiti þeirra þema sem greind voru og tengsl þeirra.

Kapphlaupið við tímann Fyrsta þemað lýsir hvernig hjúkrunarfræðingar keppa sífellt við tímann við að komast yfir öll sín verk. Í huga hjúkrunarfræðinganna voru „bestu dagarnir þegar allt gengur smurt“. Þá voru þeir með góða yfirsýn og náðu að framkvæma allt sem áætlað var í byrjun vaktar, ásamt því að hafa tíma til að gefa sig að sjúklingum og spjalla. En stundum var „sjúklingum ofaukið“ þegar hjúkrunarfræðingarnir voru komnir með of marga sjúklinga í sína umsjá og voru því „á haus“.

Einn hjúkrunarfræðingur lýsti ástandi sem getur skapast á annasömum vöktum sem „næstum ómanneskjulegu“ því þeir höfðu ekki fulla stjórn á aðstæðum og fannst þeir aðeins ná að „slökkva elda“. Þá var hætt við að fyrirferðarlitlir sjúklingar gleymdust og einnig komust hjúkrunarfræðingarnir ekki yfir mikilvæg verkefni:

„Ég fór ekki til [sjúklings] fyrr en að verða 11 til að athuga þetta og flutti hann yfir á loftdýnu og þá var hann orðinn aumur í hælnum, með byrjandi þrýstingssár ... Þetta var eitthvað sem ég vissi og var ofarlega í forgangsröðuninni en ég komst ekki í strax. Þetta var hryllilega svekkjandi og ömurlegt.“

Við þessar aðstæður skipti öllu máli að vera agaður, skipulagður og beita forgangsröðun svo sjúklingur gæti verið í öndvegi og þannig létu hjúkrunarfræðingarnir verkefni sem ekki sneru beint að sjúklingnum „sitja á hakanum“. Að afhenda hjúkrunarfræðingum næstu vaktar óunnin verkefni olli sumum samviskubiti: „Sko, ef vaktin er að klárast hjá mér og ég þarf að setja mikið yfir á þann sem tekur við af mér, mér finnst það líka leiðinlegt.“ En aðrir bentu á að það væri önnur vakt sem kæmi og tæki við og fannst mikilvægt að reyna að horfa á það jákvæða í lok vaktar: „ég náði alla vega að gera þetta, ég stóð mig vel í þessu – þó maður hafi yfir heildina kannski ekki verið ánægður.“

Að gefa sér tíma sparar tíma

Hér kemur fram hvaða aðferðum hjúkrunarfræðingar beittu til að spara tíma en það fól í sér að tengjast og mynda samband við sjúklinga strax í upphafi: „spara sér tíma með því að gefa sér tíma ... þótt maður hafi ekki tíma. Í staðinn fyrir að hlaupa fram og til baka og alltaf að vera að elta skottið á sjálfum þér.“

Slík tengsl lögðu grunn að góðum samskiptum sem skapaði traust og þeir fengu betri upplýsingar um þarfir og ástand sjúklinga því það leiddi til þess að þeir gátu betur greint það sem var ekki í lagi. Margir hjúkrunarfræðinganna spurðu um uppruna sjúklings og gáfu sér tíma í spjall um hversdagslega hluti en þá urðu samskiptin einnig persónulegri og skemmtilegri. Fleiri aðferðir sem hjúkrunarfræðingar beittu til að tengjast sjúklingunum var til dæmis að taka mjög vel á móti sjúklingnum við komu, heilsa fallega og fræða:

„Maður kemur bara góðum samskiptum á strax og þá gengur allt bara miklu betur og hraðar fyrir sig. Reyna að spjalla og mynda svona meðferðarsamband og vísa honum inn í stofu og svona útskýra fyrir honum hvernig ferlið er hjá okkur.“

Aðrir lögðu áherslu á að upplýsa sjúkling um hvað væri fram undan og „útskýra allt vel hvað maður er að gera“. Meðan á fræðslunni stóð skapaðist einnig tækifæri til að meta andlegt og líkamlegt ástand þeirra: „þú ert náttúrlega alltaf að observera á meðan þú ert að gefa þig að sjúklingnum.“

Allir voru sammála um gildi virkrar hlustunar, þess að gefa sjúklingi færi á að tjá sig, gefa af sjálfum sér en einnig að sýna hlýju, skilning og samhygð í stöðunni:

„Bara, tala við hann og horfa í augun á honum, muna nafnið hans. Sýna smá svona hlýju og skilning hvað hann er að ganga í gegnum. Þó það sé kannski lítilvægt eða lítil aðgerð getur það verið stórt fyrir hann. Maður reynir bara að einbeita sér að honum eins og að hann sé aðalmálið þann daginn.“

Þá var húmor einnig mörgum hjúkrunarfræðingum ofarlega í huga til að létta dvöl sjúklinga og eigin vinnu: „húmor er bara risa verkfæri í okkar tösku finnst mér.“

Samfella í hjúkrun gat líka sparað tíma. Þegar hjúkrunarfræðingur gat myndað samband við sjúkling og fjölskylduna, sem hélst meðan á innlögn stóð, gengu hlutirnir oft betur, „... svo maður sé ekki alltaf á núllpunkti einhvern veginn“. Slík samfella gat þó reynt á þegar sjúklingar voru til dæmis þungir og kröfðust mikillar hjúkrunar. Þá þurfti hjúkrunarfræðingur að „fá aðeins, smá pásu ... þekkja sín takmörk ... maður gerir ekkert gott gagn þegar maður er of þreyttur og hefur ekki þolinmæðina“.

Talsmaður sjúklings eða stofnunar?

Í þriðja þemanu birtist togstreita milli þess að vera málsvari sjúklings eða stofnunar. Eitt af því sem olli slíkri togstreitu var þegar allar sjúkrastofur voru orðnar yfirfullar og sjúklingar þurftu að liggja á gangi. Einum hjúkrunarfræðinganna fannst öryggi sjúklinga hreinlega ógnað við þannig aðstæður: „við endum oft með sjúklinga frammi á gangi, maður vill náttúrlega að sjúklingur komist á eigin stofu ... svona er auðvitað öryggisatriði.“ Hjúkrunarfræðingarnir töldu að þeir ættu að vera talsmenn sjúklings, en við svona aðstæður voru þeir á báðum áttum hvort þeir væru talsmenn stofnunar eða sjúklings: „það er alltaf pressa, við erum vaktstjórar og við finnum fyrir því. Þetta er bara svona á öllum deildum. Allar deildir að kafna ... og þá er kannski sjúklingurinn hættur að vera í öndvegi“.

Þeir bentu á að stundum væri starfsfólki hreinlega „stillt upp á móti hvort öðru“ eins og varðandi innlagnir og útskriftir yfir á aðrar deildir og þá gátu orðið leiðindi við þær deildir út af pressu við „að koma fólkinu frá sér“. Útskriftir voru tíðræddar en sumum stóð ekki á sama um að útskrifa sjúklinga: „ótímabærar útskriftir þar sem maður stendur eftir með svona smá hnút og kveður fólk og vonar að allt gangi vel.“ Þá finnst þeim útskriftin ekki vera í hag sjúklingins heldur stofnunarinnar og það var slæm upplifun:

„Það er sett ótrúlega mikla pressa á að útskrifa ... það koma bara inn fimm og svo næsta dag fimm og svo fimm í aðgerðir og þá er svakaleg pressa á að útskrifa og hætta á endurinnlögnum. Þá spyr maður sig oft hvað er í öndvegi.“

Hjúkrunarfræðingarnir reyndu þó að láta sjúklinga ekki verða vara við útskriftarpressu heldur reyndu að „fara fínt í þetta … að fólk

finni ekki einhverja útskriftarpressu eins og það sé ekki pláss fyrir þig.“ Þeir reyndu einnig að skýla sjúklingum fyrir öllu því sem gekk á frammi á deild og heyrir til stofnunar: „maður reynir að láta erilinn og stressið á vaktinni ekki koma með sér inn á sjúkrastofuna, skiljið þið, þá er maður bara kominn þangað inn til þessarar manneskju og reynir aðeins bara að geyma hitt.“

Hjúkrunarfræðingarnir sögðust stundum þurfa að berjast fyrir því að sjúklingar fái það sem þeir þurfa, til dæmis að útvega endurhæfingarpláss eða flýta rannsóknum eða röntgenmyndatökum. Annað atriði sem var til baga og lýtur að stofnuninni var þegar sjúklingar koma inn á þeirra deild en tilheyra deildum annarra sérgreina en þeirrar sem þeir liggja á. Þeirra hjúkrunarþarfir gátu verið talsvert frábrugðnar því sem hjúkrunarfræðingarnir á viðkomandi deild voru vanir og þeir því óöruggir í umönnun þeirra, jafnvel þannig að það hefði áhrif á öryggi þeirra. Þá er hætt við að þeir missi af stofugangi þegar mörg teymi koma á sama tíma: „Þá þarf maður bara pínu að velja með hverjum maður gengur stofugang … þá er einhvern veginn meiri hætta á, finnst mér, að ég gleymi því sem ég gerði á fyrsta stofuganginum“.

Einnig varð samvinna við aðra umönnunaraðila erfiðari, samfellan minni, og því meiri hætta á mistökum. Allir hjúkrunarfræðingarnir voru sammála um að þegar deildin vinnur sem ein heild og samskipti milli allra sem koma að málum sjúklings eru góð, þá skili það sér í bestu mögulegu umönnun sem sjúklingurinn getur fengið: „að öll samskipti milli stétta séu jákvæð og góð, það bara skiptir öllu máli ... að það séu allir að vinna að sama markmiði: að hjálpa sjúklingnum í átt að bata, það sé númer eitt, tvö og tíu.“

Oft fengu hjúkrunarfræðingarnir svo umbun fyrir allt erfiðið og það veitti þeim gleði að upplifa þakklæti þegar þeir gerðu eitthvað „gott fyrir sjúklinginn“, eða þegar sjúklingarnir spurðu hvenær þeir kæmu á vakt aftur og einnig þegar þeir komu gangandi í heimsókn á deildina eftir útskrift í kjölfar erfiðra veikinda.

Erilsamt umhverfi sem hvetur og letur

Hér er vísað til þess hvernig vinnuumhverfið mótaði skipulag og dagleg störf og líðan hjúkrunarfræðinga. Erill og truflanir voru áberandi eða eins og einn þeirra sagði: „Dagurinn er bara ein stór truflun.“ Oft fannst þeim þeir eina fólkið sem hefði öll svörin og að aðgengi að þeim væri óheft:

„Við sem hjúkrunarfræðingar erum svona safn, við vitum allt … höfum samband við læknana og … varðandi útskriftirnar … jákvætt að við vitum allt en það er líka eins og stoðdeildirnar haldi að þær hafi stundum veiðileyfi á okkur án þess að þurfa að bíða eftir að við klárum verkefnin okkar.“

Eins skapaðist ókyrrð vegna umgangs ýmissa stoðstétta, t.d. vegna ræstinga og vöruflutninga, og það var „allt of margt fólk á litlum fleti sem er að koma og fara“ sem jók spennuna á deildinni. Skráning á hjúkrunarmeðferð var álitin mikilvæg en tímafrek vegna þeirra mörgu kerfa sem þarf að vinna í, auk þess að meðan á skráningu og lestri stóð voru þeir ekki sýnilegir sjúklingunum: „við erum í þessum fjandans tölvum alltaf að skrá sem tekur allt of mikinn tíma frá okkur.“ Á sama tíma er það hluti starfsins og önnur hraðvirkari lausn ekki í boði. Þeir bentu þó á að betri notkun tækni, svo sem tölvur á stofum sjúklinga, gætu verið lausn á mörgum vandamálum. Rauntímaskráning þýddi að þeir gætu eytt tíma með sjúkling án utanaðkomandi truflana.

Notkun ýmissar tækni var bæði af hinu góða og slæma en „það koma meiri kröfur með tækninni“. Vaktaðar spjallrásir reyndust hjúkrunarfræðingum vel en nýjungar eins og Landspítalaappið reynast sjúklingum vel en geta skapað auka vinnu fyrir hjúkrunarfræðinga.

„Við fáum ótrúlegt magn af símtölum frá ættingjum því að aðgerðin er búin. Appið sendir upplýsingar um leið og aðgerðin er búin og þá eru náttúrlega eftir tveir til þrír tímar áður en þú kemur inn á deild til mín.“

Einnig fór tími í að hjálpa sjúklingum með hluti eins og fjarstýringar, síma og spjaldtölvur. Hjúkrunarfræðingarnir tóku flestir fram að annað starfsfólk gæti unnið mörg verk sem krefðust ekki sérkunnáttu hjúkrunarfræðinga, eins og að „búa um rúm, sækja vatn, fylla inn á vökvaskrá og útvega sjúklingi betri dýnu.“

Aftur á móti er ýmislegt í umhverfinu sem hjálpar hjúkrunarfræðingum að sinna sínum störfum á skilvirkan hátt, eins og aðgengileg gæðaskjöl, gátlistar fyrir skurðaðgerðir, öryggisinnlit og notkun taflna á sjúkrastofum þar sem nöfn starfsfólks eru skrifuð á ásamt markmiðum dagsins fyrir sjúkling. Að þeirra mati var þetta einnig mikilvægt vegna þess að „þetta er fyrir öryggi sjúklings og líka bara okkar“.

Vinnuálag er hluti af starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga. Þegar vantaði á vaktir bar hver hjúkrunarfræðingur ábyrgð á fleiri sjúklingum og kennsla nema olli síðan viðbótarálagi.

„Ég var líka með nema og ég bara grét, það var rosalega streituvaldandi, því fyrir þá var ég með sex sjúklinga, einn í einangrun og ekki með sjúkraliða með mér fyrstu tvær klukkustundirnar.“

Nemar eru líka mismunandi og sumir þeirra þurfa töluvert meira en þeir næstu.

„Ég var með sjö sjúklinga á morgunvakt sem er alveg mikið á legudeild og ég var með nema sem voru að byrja í verknámi. Maður var bara: „hvernig á ég að bara að fara í gegnum daginn þar sem að neminn fái sitt og sjúklingurinn fái sitt.“

Þá gátu góðir vaktstjórar hjálpað mikið og tekið ákveðin verk af þeim: „vaktstjóri sem ekki er með sjúklinga geti kannski hoppað inn í og tekið þann bolta.“

Þrátt fyrir allt þótti öllum hjúkrunarfræðingunum vænt um starfið og voru almennt ánægðir á sínum vinnustað og í faginu. Einn þeirra sem hafði langa starfsreynslu í hjúkrun orðaði það þannig: „ekki hefur mér leiðst í öll þessi ár sem ég hef starfað við hjúkrun … bara aldrei“.

UMRÆÐA

Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að tími sem hjúkrunarfræðingar hafa til umráða og umhverfið sem þeir starfa í hefur megináhrif á hvernig þeim vegnar við að setja sjúklinginn í öndvegi.

Að jafnaði er stök vakt hjúkrunarfræðinga um átta klukkustundir en hlutfallslega mestum tíma eyða þeir í óbeina umönnun sem er vinna í þágu sjúklings án þess að hann sé viðstaddur (Sigrún Gunnarsdóttir og Helga Bragadóttir, 2012). Þetta getur til dæmis verið tölvuvinna en þátttakendur í rýnihópunum voru ósáttir við þann mikla tíma sem þeir eyða við tölvuna, tíma sem nýtist þá minna í bein samskipti við sjúklinga. Í viðtölunum settu hjúkrunar-

fræðingarnir fram tillögur um hvernig þeir gætu notað tíma sinn betur, t.d. að hafa tölvur í sjúkrastofum. Þá nefndu þeir að það væru of mörg kerfi sem þyrfti að þjóna. Iðunn er nýtt skráningarforrit sem er í þróun og hefur verið tekið upp á nokkrum hjúkrunarheimilum hér á landi. Því er ætlað að stytta tímann sem fer í skráningu, bæta heildarskráningu og jafnframt efla alla starfsmenn til að skrá veitta hjúkrun og þar með létta skráningarbyrði hjúkrunarfræðinga (Elfa Ólafsdóttir, 2024). Þannig gefst hjúkrunarfræðingum aukinn tími til að sinna sjúklingum. Ef til vill er þetta eitthvað sem skurðlækningasvið getur skoðað hvort nýtist þar. Hjúkrunarfræðingar verða varir við ýmsar kröfur í sínum daglegu störfum sem ýta undir vanlíðan. Þar má til dæmis nefna vinnuálag en það nær yfir þætti sem lúta að tímaleysi og snýst um þau verk sem þarf að vinna innan ákveðins tíma frekar en gæði verkanna sjálfra (Gillet o.fl., 2020). Að hluta til er þetta samhljóma okkar niðurstöðum, þar sem hjúkrunarfræðingarnir töluðu um að á sumum vöktum gæti verið mikið að gera og þeir voru í kapphlaupi við tímann að klára sín verk. Aftur á móti minntust þeir aldrei á að gæði verkanna yrðu minni þegar þau urðu fleiri, öfugt við það sem Gillet og félagar (2020) tala um, heldur væri önnur vakt sem kæmi á eftir þeirra og gæti tekið við því sem ekki náðist að klára. Hér er líka vísað í traust á milli hjúkrunarfræðinga sem er grundvallarþáttur í góðu samstarfi fólks almennt.

Þátttakendur rannsóknarinnar nefndu að við mikið annríki gætu nemar valdið streitu og hafa rannsóknir sýnt að sú getur verið raunin (Sveinfríður Sigurpálsdóttir o.fl., 2012). Aukin streita veldur svo auknum líkum á kulnun og brotthvarfi úr starfi meðal hjúkrunarfræðinga (Wei o.fl., 2018) ásamt því að nemendur líða af meiri streitu, ánægja með nám minnkar og kulnun eykst (Sveinsdóttir o.fl., 2021). Mikilvægt er að gert sé ráð fyrir kennslu nemenda í klínísku starfi en því miður er því ekki þannig farið víðast hvar í Evrópu (Dobrowlska o.fl., 2016).

Í starfsumhverfi þar sem ríkir mannekla, óskilvirkni eða tímaþröng þurfa hjúkrunarfræðingar að forgangsraða í starfi sínu og það getur verið flókið verkefni (Vryonides o.fl., 2015) og ögrað faglegum og siðferðilegum gildum hjúkrunarfræðinga (Suhonen o.fl., 2018; Tønnessen o.fl., 2020).

Í rýnihópunum var forgangsröðun talsvert til umræðu og fannst flestum hjúkrunarfræðingum skipta máli að vera agaðir og forgangsraða verkefnum sínum í þágu sjúklinga. Að þurfa að taka ákvarðanir þar sem umönnunarþarfir eru metnar og settar í forgang, takast á við breyttar aðstæður eða brýnar þarfir, getur ögrað faglegum og siðferðilegum gildum hjúkrunarfræðinga (Suhonen o.fl., 2018; Tønnessen o.fl., 2020). Þátttakendum fannst þeir oft með marga bolta á lofti og á hlaupum fram og aftur til að sinna þörfum sjúklinganna. Það varð til þess að verk sem voru ekki beintengd sjúklingnum voru frekar látin sitja á hakanum. Slíkt getur valdið því að mikilvægum verkum er sleppt, ákveðnir sjúlingar fá minni forgang, oft þeir sem hafa sig lítt í frammi, og gæði umönnunar minnka og öryggi sjúklinga er ógnað (Vryonides o.fl., 2015; Suhonen o.fl., 2018). Óunnin hjúkrunarverk hafa verið nefnd sem afleiðing óskilvirkrar forgangsröðunar, en það er öll sú umönnun sem hjúkrunarfræðingar taka meðvitaða ákvörðun um að veita ekki eða seinka vegna tímaskorts eða óviðunandi aðbúnaðar í starfsumhverfinu (Jones o.fl., 2015). Hjúkrunarfræðingar sem segja frá færri óunnum verkum finna fyrir meiri starfsánægju (Bragadóttir o.fl., 2020) og endurspeglaðist það í rýnihópunum. Forgangsröðun og tímastjórnun eru því

þættir sem mikilvægt er að rækta og ætti kennsla og þjálfun í þeim fræðum að vera grundvallarþættir í námi og starfsþjálfun hjúkrunarfræðinga (Vizeshfar, 2022).

Þrýstingur á að útskrifa og innskrifa vó þungt á þátttakendum, sérstaklega ótímabærar útskriftir og að útbúa rými fyrir nýja sjúklinga á óviðeigandi stöðum (t.d. á gangi). Þarna birtist togstreita sem sneri að því hvort hjúkrunarfræðingar væru talsmenn sjúklinga eða stofnunar.

Skortur á sjúkrastofum hefur neikvæð áhrif á friðhelgi sjúklings, á getu til að viðhalda persónulegu hreinlæti og viðkvæm samtöl um heilsu sjúklings (Eriksson o.fl., 2018). Þá kom fram að það væri hindrandi þáttur þegar sjúklingar sem tilheyra öðrum sérgreinum liggja inni á þeirra deildum. Hjúkrunarþarfir geta verið frábrugðnar og getur það valdið óöryggi við umönnun. Flutningur sjúklinga milli deilda og plássleysi geta orðið kveikur að neikvæðum samskiptum milli eininga þar sem ekki var litið til álags á deildum heldur einungis lausra leguplássa (Sharma o.fl., 2020). Þátttakendur nefndu að leiðindauppákomur við aðrar deildir kæmu upp sökum þrýstings á að útskrifa. Þetta virkaði þó í báðar áttir því þátttakendur þurftu sjálfir að berjast fyrir endurhæfingarplássum og setja þrýsting á aðrar deildir að taka við þeirra sjúklingum.

Hjúkrunarfræðingar eru hornsteinn heilbrigðiskerfisins en þeir sjá um að hjúkrun sé skipulögð, samhæfð, veitt og að lokum metin. Það eru fá verk sem fara ekki um hendur hjúkrunarfræðinga í meðferð sjúklings (Jones o.fl., 2015). Í viðtölunum mátti skynja að þetta væri veruleiki hjúkrunarfræðinganna. Það voru margbreytt verk sem þeir þurftu að vinna, vita svör við hinu og þessu og þyrftu helst að vera á mörgum stöðum í einu til að geta sinnt öllum sínum verkum og orðið við óskum allra. Þetta samrýmist niðurstöðum rannsóknar á miðstöðu hjúkrunarfræðinga innan heilbrigðiskerfisins, sem setur þá í lykilstöðu í tengslum við annað heilbrigðisstarfsfólk. Þessi lykilstaða og auknar kröfur á hjúkrunarfræðinga geta orðið til þess að þeir lendi í hringiðu krafna sem heyra ekki undir þeirra ábyrgðarsvið og þurfi að sinna verkum utan síns starfssviðs til þess að koma í veg fyrir að þau hafi áhrif á hjúkrunina. Þannig er hlutverk hjúkrunarfræðinga oft og tíðum sveigjanlegt (Felder o.fl., 2024).

Niðurstöður rannsóknarinnar benda á mikilvægi góðs vaktstjóra þegar mikið er að gera og deila þarf út verkum. Hjúkrunarfræðingar fundu öryggi í að hafa einhvern til að leita til og fá aðstoð þegar annríki var, en undirstaða þess eru góð samskipti og teymisvinna. Niðurstöður benda jafnframt til þess að huga þurfi að gæðum og skilvirkni hjúkrunar þar sem niðurstöður benda til að skipulag og tímastjórnun megi bæta.

Styrkur rannsóknarinnar felst í því að þátttakendur spönnuðu breitt aldursbil og höfðu mismikla starfsreynslu. Megintakmarkanir eru lítið úrtak (N=10) og að ekki fengust þátttakendur frá öllum skurðdeildum Landspítala. Ef fleiri þátttakendur hefðu fengist, gæti verið að aðrar eða fleiri skoðanir, umræður og hugmyndir hefðu komið fram, í stuttu máli að betri mettun hefði náðst.

ÁLYKTUN

Hjúkrunarfræðingar á skurðlækningadeildum Landspítala vinna í krefjandi starfsumhverfi sem hefur afgerandi áhrif á hvernig þeim tekst að hafa sjúklinga í öndvegi og tryggja öryggi þeirra í daglegum störfum. Hjúkrunarfræðingarnir hafa skýra sýn á starfshlutverk sitt og leggja hart að sér við að ná að veita gæðahjúkrun enda finna þeir fyrir siðferðislegri togstreitu þegar hagsmunir sjúklinga og stofnunar rekast á.

Ljóst er að endurskoða þarf vinnuskipulag hjúkrunar og mönnunarviðmið í hjúkrun til að tryggja frekar gæði hjúkrunar og starfsánægju hjúkrunarfræðinga. Vert er þó að viðhalda skipulagi þar sem vaktstjórar geta stutt við hjúkrunarfræðinga og veitt aðstoð þegar annríki er og rækta þætti eins og skipulagningu, forgangsröðun og tímastjórnun. Þannig ætti að efla kennslu og þjálfun í þeim fræðum í námi og starfsþjálfun hjúkrunarfræðinga en einnig hlúa að samskiptaleiðum sem vel hafa reynst til að mynda meðferðartengsl við sjúkling og hvetja hann til samvinnu.

Skoða þarf sérstaklega álag vegna nema á deild, hvernig hægt er að fækka verkefnum sem ekki lúta að beinni hjúkrun, draga úr truflunum í umhverfinu og nota tækniframfarir til að færa hjúkrunarfræðinga nær sjúklingum. Einnig þarf að efla frekar samvinnu innan og milli deilda og teyma til að byggja frekar upp heildræna þjónustu við sjúklingana.

Rannsaka þarf nánar samspil starfsumhverfis og starfsánægju hjúkrunarfræðinga og hvernig nota má tækniframfarir til að létta álag og bæta árangur hjúkrunar.

ENGLISH SUMMARY

The Race Against Time: A Focus Group Study on Nurses’ Work Environment in Surgical Departments of Landspítali University Hospital

doi: 10.33112/th.102.1.2

ABSTRACT

Background

The work environment and well-being of nurses at work has been studied widely. Discussions in 2021with Nurse Managers within the Surgical services of Landspitali University Hospital revealed concerns about how patients fare in environment characterized by workload and rapid flow of patients, and whether patients are always put in the forefront.

Purpose

To investigate nurses' assessments of what factors, enabling or disabling, are present in the working environment of nurses in the surgical departments of Landspitali that can affect their work and the safety of patients.

Method

Qualitative methodology. Three focus group interviews were conducted with ten nurses from six departments in the surgical services of Landspitali University Hospital. Participants were recruited through convenience sampling. Interviews were audio-recorded and transcribed verbatim. To achieve a deeper understanding of the discussions, the data were summarized, analyzed thematically and an overarching theme for the study identified.

Results

Four main themes were identified, along with an overarching theme. The overarching theme was: “The patients come first when you have time to care for them”. The main themes were: “Race against time”, “Allocating time saves time”, “Advocate of the patient or the hospital?” and “A busy environment that supports and impedes”. Nurses use methods such as planning and prioritizing tasks, various communicational skills, physical assessment and continuity of care

to provide safe, quality nursing care, but sometimes the interests of patients and the hospital compete. Supporting aspects of the work-environment included good communication within and between teams, collaboration with other health professions, quality documents and options for electronic communication. Discouraging factors included interruptions and performing tasks outside your scope of responsibility, incomplete systems for documentations, lack of time, workload and problems with patient flow.

Conclusions

Results indicate that paritipants work under great pressure and elements, that may cause moral distress, interfere with prioritizing the patient. Many aspects can however assist in achieving quality care, despite lack of time and chaotic environment. New options must be found to enhance their work-environment and enable nurses to provide high-quality nursing care.

Keywords

Surgical patients, nurses, work environment, job satisfaction, patient safety.

Correspondent herdis@hi.is

HEIMILDASKRÁ

Aiken, L. H., Sloane, D. M., Ball, J., Bruyneel, L., Rafferty, A. M. og Griffiths, P. (2018). Patient satisfaction with hospital care and nurses in England: An observational study. BMJ Open, 8(1), e019189. https://doi.org/10.1136/bmjopen-2017-019189

Abuzied, Y., Al-Amer, R., Abuzaid, M. og Somduth, S. (2022). The Magnet Recognition Program and quality improvement in nursing. Global Journal on Quality and Safety in Healthcare, 5(4), 106–108. doi: 10.36401/JQSH-22-12

Aiken, L. H., Sloane, D. M., Bruyneel, L., Van den Heede, K., og Sermeus, W.; RN4CAST Consortium (2013). Nurses' reports of working conditions and hospital quality of care in 12 countries in Europe. Int J Nurs Stud. Feb;50(2):143-53. doi: 10.1016/j.ijnurstu.2012.11.009.

American Nurses Association. (2015). Code of ethics for nurses with interpretive statements. https://www.nursingworld.org/practice-policy/nursing-excellence/ ethics/code-of-ethics-for-nurses/coe-view-only/. Sótt 3. desember 2025.

Bragadóttir, H., Burmeister, E. A., Terzioglu, F. og Kalisch, B. J. (2020). The association of missed nursing care and determinants of satisfaction with current position for direct-care nurses—An international study. Journal of Nursing Management, 28(8), 1851-1860. https://doi.org/10.1111/jonm.13051

Brooks Carthon, J. M., Hatfield, L., Brom, H., Houton, M., Kelly-Hellyer, E., Schlak, A. og Aiken, L. H. (2021). System-level improvements in work environments lead to lower nurse burnout and higher patient satisfaction. Journal of Nursing Care Quality, 36(1), 7-13. https://doi.org/10.1097/NCQ.0000000000000475

Dobrowolska, B., McGonagle, I., Kane, R., Jackson, C. S., Kegl, B., Bergin, M., Cabrera, E., Cooney-Miner, D., Di Cara, V., Dimoski, Z., Kekus, D., Pajnkihar, M., Prlić, N., Sigurdardottir, A.K., Wells, J. og Palese, A. (2016). Patterns of clinical mentorship in undergraduate nurse education: A comparative case analysis of eleven EU and non-EU countries. Nurse Education Today, 36, 44-52. https://doi.org/10.1016/j.nedt.2015.07.010

Donabedian, A. (1988). The quality of care: How can it be assessed? JAMA, 260(12), 1743–1748. DOI: https://doi.org/10.1001/jama.1988.03410120089033 [scirp.org]

Dressner, M. A. og Kissinger, S. P. (2018). Occupational injuries and illnesses among registered nurses. Monthly Labor Review, U.S. Bureau of Labor Statistics. (November, 2018). https://doi.org/10.21916/mlr.2018.27

Elfa Ólafsdóttir. (2024). Hvernig getur tækni haft áhrif á störf hjúkrunarfræðinga? https://www.helixhealth.is/pulsinn/hvernig-getur-taekni-haft-ahrif-a-storf-hjukrunarfraedinga Eriksson, J., Gellerstedt, L., Hillerås, P. og Craftman, Å. G. (2018). Registered nurses’ perceptions of safe care in overcrowded emergency departments. Journal of Clinical Nursing, 27(5-6), e1061-e1067. https://doi.org/10.1111/jocn.14143

European Federation of Nurses Associations. (2022). EFN policy statements https://efn.eu/wp-content/uploads/2022/04/EFN-Policy-Statement-on-Buildingand-Sustaining-a-Resilient-EU-Nursing- Workforce-in-the-EU-and-EuropeApril-2022.pdf . Sótt 3. desember 2025

Felder, M., Kuijper, S., Allen, D., Bal, R., Wallenburg, I. og RN2Blend consortium (2024).

Job crafting as retention strategy: An ethnographic account of the challenges faced in crafting new nursing roles in care practice. International Journal of Health Planning. Manager, 39 (3), 722-739, doi: 10.1002/hpm.3780

Gillet, N., Huyghebaert-Zouaghi, T., Réveillère, C., Colombat, P. og Fouquereau, E. (2020). The effects of job demands on nurses’ burnout and presenteeism through sleep quality and relaxation. Journal of Clinical Nursing, 29(3-4), 583-592. https://doi.org/10.1111/jocn.15116

Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, Hulda Ringsted, Erla Björnsdóttir, Elín Jóhanna G. Hafsteinsdóttir, Ólafur Guðbjörn Skúlason og Magnús Benedikt Sigurðsson (2024). Mönnunarviðmið í hjúkrun, Reykjavík, heilbrigðisráðuneytið.

Jalilian, H., Shouroki, F. K., Azmoon, H., Rostamabadi, A. og Choobineh, A. (2019). Relationship between job stress and fatigue based on job demand-control-support model in hospital nurses. International Journal of Preventive Medicine, 10(1) 56. https://doi.org/10.4103/ijpvm.IJPVM_178_17

Jones, T. L., Hamilton, P. og Murry, N. (2015). Unfinished nursing care, missed care, and implicitly rationed care: State of the science review. International Journal of Nursing Studies, 52(6), 1121-1137.https://doi.org/10.1016/j.ijnurstu.2015.02.012

Katrín Blöndal og Herdís Sveinsdóttir. (2021). Verkefni hjúkrunar á deildum skurðlækningaþjónustu. Niðurstöður funda með deildarstjórum. Óbirt skýrsla.

Kiptulon, E.K., Elmadani, M., Limungi, G.M., Simon, K., Tóth, L., Horvath, E., Szöllösi, A., Galgalo, D.A., Maté, O. Og Siket, A.U. (2024). Transforming nursing work environments: the impact of organizational culture on work-related stress among nurses: a systematic review. BMC Health Services Research, 24:1526. https://doi.org/10.1186/s12913-024-12003-x

Kourkouta, L. og Papathanasiou, I. V. (2014). Communication in nursing practice. Materia Socio-Medica, 26(1), 65-67. https://doi.org/10.5455/msm.2014.26.65-67

Kutney-Lee A, Wu ES, Sloane DM, Aiken LH. (2016). Changes in hospital nurse work environments and nurse job outcomes: an analysis of panel data. International Journal of Nursing Studies, 50(2), 195-201. doi: 10.1016/j.ijnurstu.2012.07.014. Lake ET. Development of the practice environment scale of the Nursing Work Index. (2002). Research in Nursing & Health, 25(3):176-88. doi: 10.1002/nur.10032.

Margrét Hrönn Svavarsdóttir og Sigríður Halldórsdóttir. (2021). Réttmæti og áreiðanleiki í megindlegum og eigindlegum rannsóknum. Í Sigríður Halldórsdóttir (ritstjóri), Rannsóknir – Handbók í aðferðafræði rannsókna (bls. 211-228). Háskólinn á Akureyri, Háskólaútgáfan.

Melnyk, B. M., Orsolini, L., Tan, A., Arslanian-Engoren, C., Melkus, G. D., Dunbar-Jacob, J., Rice, V. H., Millan, A., Dunbar, S. B., Braun, L. T., Wilbur, J., Chyun, D. A., Gawlik, K. og Lewis, L. M. (2018). A national study links nurses’ physical and mental health to medical errors and perceived worksite wellness. Journal of Occupational and Environmental Medicine, 60(2), 126-131.

https://doi.org/10.1097/JOM.0000000000001198

Mitchell, P. H. (2008). Defining Patient Safety and Quality Care. Í R. G. Hughes (ritstj.), Patient Safety and Quality: An Evidence-Based Handbook for Nurses. Agency for Healthcare Research and Quality (US).

Morse, J. M. (2015). Critical analysis of strategies for determining rigor in qualitative inquiry. Quality Health Research, 25(9), 1212-1222.

Pereira, S., Ribeiro, M., Mendes, M., Ferreira, R., Santos, E., Fassarella, C., & Ribeiro, O. (2024). Positive nursing practice environment: A concept analysis. Nursing Reports, 14(4), 3052–3068. https://doi.org/10.3390/nursrep14040222

Potter, P., Deshields, T. og Kuhrik, M. (2010). Delegation practices between registered nurses and nursing assistive personnel. Journal of Nursing Management, 18(2), 157165. https://doi.org/10.1111/j.1365-2834.2010.01062.x

Rasmussen, P. og McLiesh, P. (2019). Understanding research: Qualitative research in orthopaedic and trauma nursing, International Journal of Orthopaedic Trauma Nursing, 32, 41-47. doi: 10.1016/j.ijotn.2018.10.003

Saiki, M., Kunie, K., Takemura, Y., Takehara, K. og Ichikawa, N. (2020). Relationship between nurses’ perceptions of nursing assistant roles and information-sharing behaviors: A cross-sectional study. Nursing og Health Sciences, 22(3), 706-713. https://doi.org/10.1111/nhs.12717

Shah, M. K., Gandrakota, N., Cimiotti, J. P., Ghose, N., Moore, M. og Ali, M. K. (2021). Prevalence of and factors associated with nurse burnout in the US. JAMA Network Open, 4(2), e2036469. https://doi.org/10.1001/jamanetworkopen.2020.36469

Sharma, S., Rafferty, A. M. og Boiko, O. (2020). The role and contribution of nurses to patient flow management in acute hospitals: A systematic review of mixed methods studies. International Journal Of Nursing Studies, 110, 103709. https://doi.org/10.1016/j.ijnurstu.2020.103709

Sigrún Gunnarsdóttir og Helga Bragadóttir. (2012). Þættir sem hafa áhrif á vinnu hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða á bráðalegudeildum. Tímarit hjúkrunarfræðinga, 88(1), 46-56.

Sóley S. Bender. (2021). Rýnihóparannsóknir. Í Sigríður Halldórsdóttir (ritstj.), Rannsóknir: Handbók í aðferðafræði (bls. 277-295). Akureyri: Háskólinn á Akureyri, Háskólaútgáfan.

Suhonen, R., Stolt, M., Habermann, M., Hjaltadottir, I., Vryonides, S., Tonnessen, S., Halvorsen, K., Harvey, C., Toffoli, L., Scott, P. A. og RANCARE Consortium COST Action - CA 15208. (2018). Ethical elements in priority setting in nursing care: A scoping review. International Journal of Nursing Studies, 88, 25-42. https://doi.org/10.1016/j.ijnurstu.2018.08.006

Sveinfríður Sigurpálsdóttir, Ragnar F. Ólafsson og Helga Bragadóttir. (2012). Viðbótarvinnuálag á hjúkrunarfræðinga í bráðaþjónustu: Lýsandi rannsókn. Tímarit hjúkrunarfræðinga, 88(5), 50-56.

Sveinsdottir, H., Flygenring, B. G., Svavarsdottir, M. H., Thorsteinsson, H., Kristofersson, G.K., Bernhardsdottir, J. og Svavarsdóttir, E. K. (2021). Predictors of university nursing student burnout during the COVID-19 pandemic: A cross-sectional study. Nurse Education Today, 106. doi: 10.1016/j.nedt.2021.105070

Tønnessen, S., Scott, A. og Nortvedt, P. (2020). Safe and competent nursing care: An argument for a minimum standard? Nursing Ethics, 27(6), 1396-1407. https://doi.org/10.1177/0969733020919137

Vizeshfar, F., Rakhshan, M., Shirazi, F. og Dokoohaki, R. (2022). The effect of time management education on critical care nurses’ prioritization: A randomized clinical trial. Acute and Critical Care, 37(2), 202-208. https://doi.org/10.4266/acc.2021.01123

Vryonides, S., Papastavrou, E., Charalambous, A., Andreou, P. og Merkouris, A. (2015). The ethical dimension of nursing care rationing: A thematic synthesis of qualitative studies. Nursing Ethics, 22(8), 881-900. https://doi.org/10.1177/0969733014551377

Wei, H., Sewell, K. A., Woody, G. og Rose, M. A. (2018). The state of the science of nurse work environments in the United States: A systematic review. International Journal of Nursing Sciences, 5(3), 287-300. https://doi.org/10.1016/j.ijnss.2018.04.010 WHO (2020). State of the world’s nursing 2020: Investing in education, jobs and leadership Genf: Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, 2020. Licence: CC BY-NC-SA 3.0 IGO World Health Organization. (2018). Handbook for national quality policy and strategy. WHO. https://www.who.int/publications/i/item/9789241565561. Sótt 3. desember 2025

Wieke Noviyanti, L., Ahsan, A. og Sudartya, T. S. (2021). Exploring the relationship between nurses’ communication satisfaction and patient safety culture. Journal of Public Health Research, 10(2), 2225. https://doi.org/10.4081/jphr.2021.2225

„Þetta gerir mig bara að betri deildarstjóra“

Reynsla deildarstjóra hjúkrunar af áhrifum faghandleiðslu

á líðan þeirra og störf

doi: 10.33112/th.102.1.3

ÚTDRÁTTUR

Tilgangur

Tilgangur rannsóknarinnar var að öðlast þekkingu og dýpka skilning á reynslu deildarstjóra hjúkrunar á Landspítala af faghandleiðslu, ásamt því að kanna hvaða áhrif faghandleiðsla hefur á líðan þeirra og störf.

Aðferð

Rannsóknin var eigindleg og notast var við Vancouver-skólann í fyrirbærafræði sem rannsóknaraðferð. Gögnum var safnað með hálfstöðluðum viðtölum við 10 deildarstjóra hjúkrunar á Landspítala sem höfðu reynslu af faghandleiðslu. Þátttakendur voru á aldrinum 42-63 ára og höfðu verið deildarstjórar hjúkrunar í 2-26 ár.

Niðurstöður

Meginniðurstaða rannsóknarinnar og yfirþema hennar er Þetta gerir mig bara að betri deildarstjóra sem lýsir þeim áhrifum sem faghandleiðslan hafði á störf þátttakenda en þeir upplifðu að faghandleiðsla bætti líðan þeirra og væri styrkjandi fyrir þá sem einstaklinga, sem fagmenn og sem stjórnendur. Meginþemu voru þrjú og hvert þeirra með tvö til þrjú undirþemu. Deildarstjórarnir voru þakklátir fyrir að fá faghandleiðslu frá Landspítala og fannst hún veita þeim persónulega sjálfsstyrkingu og aukið sjálfsöryggi. Faghandleiðslan veitti þeim aukið starfsþrek og hjálpaði þeim við að halda jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Þeir höfðu flestir góða reynslu af hóphandleiðslu en þar drógu þeir lærdóm af reynslu annarra, mynduðu tengsl og upplifðu samkennd í hópnum. Þeir lögðu áherslu á að forgangsraða handleiðslunni en annir og starfsemi deildanna voru það sem kom helst í veg fyrir að þeir gætu mætt. Þeim fannst mikilvægt að vera með góðan handleiðara og sögðu faghandleiðslu vera heilsufarslega forvörn og hluta af því að vera fagmaður.

Ályktun

Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að faghandleiðsla geti veitt mikilvægan stuðning fyrir millistjórnendur hjúkrunar, bæði faglega og persónulega og að faghandleiðsla gæti gagnast á fleiri heilbrigðisstofnunum á Íslandi.

Lykilorð

Faghandleiðsla, deildarstjórar hjúkrunar, líðan í starfi, Vancouver-skólinn í fyrirbærafræði

HAGNÝTING

RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA

Nýjungar: Um er að ræða fyrstu birtu rannsóknina á reynslu deildarstjóra hjúkrunar á Landspítala af faghandleiðslu og áhrifum hennar á líðan þeirra og störf. Þátttakendur töldu faghandleiðslu vera mikilvægan stuðning í starfi.

Hagnýting: Hagnýta má niðurstöðurnar til að styðja við deildarstjóra hjúkrunar í yfirgripsmiklum störfum sínum á markvissan hátt. Deildarstjórar hjúkrunar eru með mikil mannaforráð og þurfa að sinna fjölbreyttum hópi starfsfólks með mismunandi þarfir.

Þekking: Niðurstöðurnar bæta við mikilvægri þekkingu á reynslu deildarstjóra hjúkrunar á Landspítala af faghandleiðslu og áhrifum hennar á líðan þeirra og störf. Út frá þeim má álykta að faghandleiðsla sé mikilvægur hluti af því að vera fagmaður á sviði hjúkrunar.

Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga:

Niðurstöður rannsóknarinnar geta verið hvati til almennra hjúkrunarfræðinga og deildarstjóra hjúkrunar til að nýta sér faghandleiðslu á þeim stofnunum sem upp á það bjóða og verða þannig enn öflugri í sínu starfi. Niðurstöðurnar gætu einnig verið hvati til þeirra heilbrigðisstofnana sem ekki bjóða upp á faghandleiðslu að bæta úr því og viðhalda þannig og efla fagmennsku á sínum stofnunum.

Höfundar

SUNNEVA BJÖRK GUNNARSDÓTTIR

hjúkrunarfræðingur, M.S.1

HAFDÍS SKÚLADÓTTIR

hjúkrunarfræðingur, Ph.D.2

HULDA SÆDÍS BRYNGEIRSDÓTTIR

hjúkrunarfræðingur, Ph.D.2

1Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

2 Hjúkrunarfræðideild Háskólans á Akureyri

„Þetta gerir mig bara að betri deildarstjóra“ Reynsla deildarstjóra hjúkrunar af áhrifum

faghandleiðslu á líðan þeirra og störf

INNGANGUR

Deildarstjórar hjúkrunar vinna mikilvægt starf í heilbrigðisþjónustu. Þeir hafa mikil áhrif þegar kemur að þjónustu við sjúklinga og einnig þegar kemur að starfsánægju hjúkrunarfræðinga og ákvörðun þeirra um að starfa við fagið (Cox, 2019; Mirzaei o.fl., 2024). Starf deildarstjóra hjúkrunar er yfirgripsmikið og þeir þurfa að búa yfir víðtækri hæfni og þekkingu. Auk þess þurfa þeir að vera með góða tilfinningagreind og þekkja sjálfa sig vel. Þeir þurfa að vera sérstaklega hæfir í samskiptum, stjórnun og með góða leiðtogahæfni, hæfir í gagnrýnni hugsun, flókinni ákvarðanatöku og tímastjórnun, ásamt því að hafa góða þekkingu á heilbrigðiskerfinu, á klínískri hjúkrun og á teymisvinnu. Þar að auki er kunnátta á nýjustu tækni mikilvæg, ásamt því að þeir þurfa að kynna sér það nýjasta í rannsóknum í hjúkrun (Cox, 2019; González-García o.fl., 2021; Sveinsdóttir o.fl., 2018). Mikið vinnuálag getur fylgt starfi deildarstjóra í hjúkrun og getur ábyrgð og umfang starfs þeirra haft neikvæð áhrif á starfsánægju þeirra. Óánægja í starfi getur svo haft neikvæð áhrif á líkamlega og andlega heilsu, sem getur valdið meiri streitu, dregið úr skilvirkni og verið ein orsök fyrir fleiri veikindadögum (Cox, 2019). Deildarstjórar hjúkrunar sem eru ánægðir í starfi og líður vel eiga í betri samskiptum við starfsfólk sitt (Garcia og Marziale, 2021) en til þess að geta sinnt starfsfólki sínu og eflt það í þeirra störfum þurfa deildarstjórar hjúkrunar sjálfir að vera í góðu jafnvægi og líða vel í sínu starfi (Mirzaei o.fl., 2024; Posluns og Gall, 2020).

Vegna þess hve yfirgripsmikið starf deildarstjóra hjúkrunar er, er mikilvægt að styðja við starfsánægju þeirra og efla líðan þeirra í starfi (Garcia og Marziale, 2021). Ein leið til þess getur verið að leggja meiri áherslu á stuðning í starfi (Cox, 2019). Rannsóknir hafa sýnt að stuðningur frá vinnustaðnum hefur gjarnan reynst hjúkrunarfræðingum betur en stuðningur utan vinnustaðar og getur sá stuðningur komið frá yfirmönnum, samstarfsfélögum eða frá viðkomandi stofnun (O’Neill o.fl., 2022). Samkvæmt rannsókn Cox (2019) hefur stuðningur sem kemur frá viðkomandi stofnun reynst deildarstjórum hjúkrunar sérstaklega vel.

Ein leið til stuðnings í starfi, sem hefur reynst árangursrík, er faghandleiðsla (Cutcliffe o.fl., 2018). Það getur verið flókið að fjalla um faghandleiðslu á fræðilegan hátt þar sem notkun enska hugtaksins (e. clinical supervision) er víðtæk og nær yfir mismunandi skilgreiningar eða tegundir handleiðslu. Sama enska hugtakið er notað yfir faghandleiðslu, jafningjahandleiðslu og fleiri tegundir handleiðslu en vöntun er á alþjóðlegri sameiginlegri skilgreiningu á hugtakinu sem veldur því að fólk á erfitt með að skilja út á hvað handleiðsla gengur (Butterworth, 2022; Cutcliffe o.fl., 2018; Rothwell o.fl., 2021). Hér verður lögð áhersla á þá tegund handleiðslu sem kallast faghandleiðsla en slík handleiðsla fer fram hjá þjálfuðum handleiðara og er af mörgum talin árangursríkasta tegund handleiðslu (Cutcliffe o.fl., 2018). Segja má að faghandleiðsla sé formlegt ferli faglegs stuðnings, speglunar og lærdóms og leið til að auka við þekkingu og styrkja þjálfun fagmanna (Butterworth, 2022). Í faghandleiðslu ræðir handleiðsluþegi eða hópur handleiðsluþega við handleiðara, á formlegan hátt, um málefni sem tengjast starfinu og eigin lífi. Handleiðari veitir handleiðsluþega öruggt umhverfi til að endurskoða og fá speglun á sitt starf og stuðning við úrvinnslu vandamála

sem geta komið upp í starfi (Butterworth, 2022; Gill-Meeley o.fl., 2024). Markmiðið með faghandleiðslu er að fagaðili auki færni sína í starfi og skilji viðbrögð sín og líðan í hinum ýmsu aðstæðum (Hudays o.fl., 2023; Rothwell o.fl., 2021). Einnig er markmiðið að draga úr streitu með því að greina álagsþætti og áhrif þeirra, ásamt því að auka þekkingu viðkomandi á streitu og kulnun (Hudays o.fl., 2023; O‘Neill o.fl., 2022). Áhersla er lögð á þroska og sátt fagmannsins í starfi en í faghandleiðslu er notast við hans persónulegu og faglegu forsendur, hann aðstoðaður við að greina á milli fagsjálfs og einkasjálfs og við að þekkja eigin mörk. Markmiðið er að fagaðilinn verði fær um að beita faglegum aðferðum í stað tilfinningasemi með því að kenna honum að sýna samhygð og lifa sig inn í aðstæður skjólstæðinga án þess að það hafi bein áhrif á hann sjálfan (Gill-Meeley o.fl., 2024; McDonough o.fl., 2024; Pollock o.fl., 2017).

Faghandleiðsla getur verið annaðhvort einstaklingshandleiðsla eða hóphandleiðsla. Einstaklingshandleiðsla fer þannig fram að handleiðari og einn handleiðsluþegi mæla sér mót augliti til auglitis (Butterworth, 2022; O‘Neill o.fl., 2022). Hóphandleiðsla fer þannig fram að hópur starfsmanna er saman í handleiðslu með einum eða fleiri handleiðurum (Moseley, 2020). Ekki fundust margar rannsóknir varðandi faghandleiðslu fyrir deildarstjóra hjúkrunar en stuðst var við rannsóknir sem snéru að hjúkrunarfræðingum sem höfðu þegið faghandleiðslu.

Tilgangur þessarar rannsóknar var að öðlast þekkingu og dýpka skilning á reynslu deildarstjóra hjúkrunar af faghandleiðslu og áhrifum hennar á líðan þeirra og störf. Rannsóknarspurningin var: „Hver er reynsla deildarstjóra hjúkrunar á Landspítala af faghandleiðslu og áhrifum hennar á líðan þeirra og störf?“

AÐFERÐ

Til að svara rannsóknarspurningunni var notast við eigindlega rannsóknaraðferð Vancouver-skólans í fyrirbærafræði (Vancouverskólinn). Sú aðferð leggur áherslu á að dýpka skilning og auka þekkingu á mannlegum fyrirbærum, til dæmis til að bæta þjónustu við fólk eins og þá sem var fjallað um í þessari rannsókn (Halldórsdóttir, 2000).

Þátttakendur

Þátttakendur rannsóknarinnar voru 10 talsins á aldrinum 42-63 ára, þeir höfðu verið deildarstjórar í 2-26 ár og voru allir með einhverja framhaldsmenntun. Þeir voru valdir með tilgangsúrtaki og stýrðist fjöldinn af mettun. Mettun er það þegar nýjar upplýsingar eru hættar að koma fram, rannsóknarspurningunni hefur verið svarað og gögnin gefa sem besta mynd af fyrirbærinu sem verið er að rannsaka (Halldórsdóttir, 2000; Sigríður Halldórsdóttir, 2021). Samkvæmt Vancouver-skólanum er talið æskilegt að í það minnsta hálft ár sé liðið frá reynslunni svo einstaklingurinn geti litið yfir farinn veg og lýst reynslu sinni en sé ekki staddur í henni miðri (Sigríður Halldórsdóttir, 2021). Því voru þátttökuskilyrðin þau að þátttakendur hefðu fyrst farið í faghandleiðslu fyrir að minnsta kosti sex mánuðum en einnig voru skilyrði um að þeir væru deildarstjórar á Landspítala og að þeir töluðu og skildu íslensku.

Gagnaöflun og gagnagreining Gögnum var safnað með hálfstöðluðum viðtölum sem fóru þannig fram að fyrsti höfundur (rannsakandi) og hver þátttakandi áttu í samræðum og báðir fengu tækifæri til að tjá sig og hlusta á hinn aðilann (Halldórsdóttir, 2000; Sigríður Halldórsdóttir, 2021).

Eitt viðtal var tekið við hvern þátttakanda og í samræmi við rannsóknaraðferð Vancouver-skólans hófst gagnagreining strax í viðtölunum þar sem rannsakandi vann samhliða að gagnasöfnun og gagnagreiningu. Viðtölin voru rituð orðrétt upp, þar sem gerð var grein fyrir þögnum og öllum aukahljóðum (Sigríður Halldórsdóttir, 2021). Hver þátttakandi fékk gervinafn og öll gögn gerð ópersónugreinanleg. Því næst var hvert viðtal lesið nokkrum sinnum yfir, lykilsetningar fundnar, hvert viðtal greint í þemu og sett upp í einstaklingsgreiningarlíkön sem voru svo borin undir hvern og einn þátttakanda. Það var gert til að leita staðfestingar þátttakenda á greiningu viðtala og til að koma í veg fyrir að gagnagreining litaðist af hugmyndum rannsakandans. Einnig er það að bera greiningarlíkönin undir þátttakendur liður í því að auka áreiðanleika og trúverðugleika rannsóknar, ásamt því að draga úr skekkju. Að því loknu var skoðað hvað þátttakendur áttu sameiginlegt og hvað aðgreindi þá og eitt heildargreiningarlíkan smíðað úr öllum einstaklingsgreiningarlíkönunum. Heildargreiningarlíkanið var borið undir þrjá þátttakendur til staðfestingar og að lokum voru niðurstöður settar fram með það að leiðarljósi að raddir allra þátttakenda heyrðust (Halldórsdóttir, 2000; Sigríður Halldórsdóttir, 2021). Rannsóknarferli Vancouver-skólans er hringlaga flæðandi ferli þar sem rannsakandi fer fram og til baka, aftur og aftur í gegnum ákveðna vitræna þætti í rannsóknarvinnu sinni. Þessir vitrænu þættir eru sjö talsins: að vera kyrr, að ígrunda, að koma auga á, að velja, að túlka, að raða saman og að sannreyna. Rannsóknarferlið er skilgreint með 12 meginþrepum sem eiga að vera leiðarljós rannsakenda út rannsóknina og í hverju þrepi er farið í gegnum vitrænt vinnuferli Vancouver-skólans sem inniheldur þættina sjö (Sigríður Halldórsdóttir, 2021). Þrepin 12 og hvernig þeim var fylgt í þessari rannsókn má sjá á töflu 1.

Réttmæti og áreiðanleiki

Til að auka réttmæti og áreiðanleika rannsóknarinnar var lagt mikið upp úr því í gegnum allt ferlið að meta á gagnrýninn hátt gæði gagnasöfnunar, gagnagreiningu og framsetningu niðurstaðna. Þrep 7, 9 og 11 í rannsóknarferli Vancouver-skólans fela í sér staðfestingu frá þátttakendum á því að rannsakandi skilji reynslu þeirra rétt sem eykur bæði réttmæti og áreiðanleika niðurstaðna (Sigríður Halldórsdóttir, 2021). Fyrirframgefnar skoðanir og hugmyndir voru ígrundaðar og lagðar til hliðar í hverju þrepi rannsóknarferlisins, á þann hátt að rannsakandi var meðvitaður um sínar skoðanir og lét þær hvorki hafa áhrif á samtalið né á framsetningu niðurstaðna. Rannsakandi viðhélt spyrjandi hugarfari og passaði upp á að hann skildi svör þátttakenda á réttan hátt. Þátttakendur staðfestu mat rannsakanda á gögnum og rannsakandi gaf sér góðan tíma í að skoða gögnin og greina niðurstöður. Siðfræði

Rannsóknin var samþykkt af Siðanefnd stjórnsýslurannsókna á Landspítala (umsókn 13/2024), en ekki var talin þörf á að tilkynna hana til Persónuverndar. Allir þátttakendur fengu kynningarbréf í upphafi með öllum helstu upplýsingum um rannsóknina. Þar kom skýrt fram að þátttaka væri byggð á frjálsum vilja, þátttakendum bæri engin skylda til að taka þátt í rannsókninni og að frjálst væri að hætta þátttöku á hvaða stigi rannsóknar sem er án útskýringa eða eftirmála. Einnig kom þar fram að engar persónugreinanlegar upplýsingar myndu rata í rannsóknargögn, nöfnum þeirra og staðháttum sem kæmu fram í viðtölunum yrði breytt eða þau tekin út. Áður en viðtöl hófust skrifuðu þátttakendur undir upplýst samþykki. Að afritun lokinni var öllum viðtölum eytt og hafði rannsakandi einn aðgang að gögnunum.

Tafla 1. 12 meginþrep Vancouver-skólans í fyrirbærafræði og hvernig þeim var fylgt í þessari rannsókn Þrep Hvernig var þrepunum fylgt

Þrep 1

Val á samræðufélögum

Þrep 2

Undirbúningur hugans (áður en samræður hefjast)

Þrep 3

Þátttaka í samræðum (Gagnasöfnun)

Þrep 4

Skerpt vitund varðandi hugmyndir og hugtök (byrjandi gagnagreining)

Þrep 5

Þemagreining

Þrep 6

Smíða greiningarlíkan fyrir hvern þátttakanda

Þrep 7

Staðfesting á hverju greiningarlíkani (Niðurstöður um hvern þátttakanda með hverjum þátttakanda)

Staðfesting 1

Þrep 8

Heildargreiningarlíkan er smíðað úr öllum greiningarlíkönunum (fyrir hvern þátttakanda)

Þrep 9

Heildargreiningarlíkanið borið saman við rannsóknargögnin

Staðfesting 2

Þrep 10

Að velja rannsókninni heiti sem lýsir niðurstöðum í örstuttu máli

Þrep 11

Staðfesting á heildargreiningarlíkani og yfirþema með einhverjum þátttakendum Staðfesting 3

Þrep 12

Niðurstöður rannsóknarinnar skrifaðar niður þannig að raddir þátttakenda heyrist

NIÐURSTÖÐUR

Tölvupóstur var sendur á alla deildarstjóra hjúkrunar á Landspítala og óskað eftir þátttakendum sem uppfylltu þátttökuskilyrði rannsóknarinnar.

Rannsakandi hafði ekki reynslu af fyrirbærinu en ígrundaði skoðanir sínar, skráði þær niður og setti til hliðar áður en viðtöl voru tekin.

Gagnasöfnun fór fram þar til mettun náðist og fólst í viðtölum við 11 þátttakendur en einn þeirra mætti ekki skilyrðum og var því endanlegur fjöldi þátttakenda 10.

Viðtalsrammi breyttist lítillega milli viðtala vegna upplýsinga sem komu fram í fyrstu viðtölum, þá helst hvernig spurningar voru orðaðar og röðin á spurningunum. Viðtöl voru hljóðrituð, rituð orðrétt upp og dulkóðuð um leið. Helstu hugmyndir ígrundaðar og þeim komið í orð.

Þemun voru skýr hjá flestum þátttakendum en þó höfðu ekki allir eins sterka skoðun á eigin reynslu af fyrirbærinu.

Viðtal hvers þátttakanda var ígrundað og þemagreint og greiningarlíkan smíðað fyrir hvern og einn þátttakanda.

Hver þátttakandi fékk sent sitt greiningarlíkan í tölvupósti og hann beðinn um að staðfesta túlkun rannsakanda. Engar tillögur um breytingar komu fram frá þátttakendum.

Eftir að staðfesting var fengin frá þátttakendum um að þemagreining rannsakanda hafi verið rétt var heildargreiningarlíkan sett saman út frá þeim þemum sem voru sameiginleg meðal þátttakenda.

Rannsakandi las aftur yfir öll viðtölin og bar saman við heildargreiningarlíkanið til að staðfesta samræmi þar á milli. Ekki þurfti að gera breytingar á heildargreiningarlíkaninu í kjölfarið.

„Þetta gerir mig bara að betri deildarstjóra“ var setning sem kom orðrétt frá einum þátttakanda og átti við lýsingu deildarstjóranna á fyrirbærinu, svarar rannsóknarspurningunni og var yfirþema rannsóknarinnar.

Heildargreiningarlíkanið var sent á þrjá þátttakendur til staðfestingar og engar tillögur komu um breytingar.

Í niðurstöðum komu fram beinar tilvitnanir frá öllum þátttakendum og þær skrifaðar niður þannig að raddir þeirra heyrðust.

Yfirþema rannsóknarinnar er „Þetta gerir mig bara að betri deildarstjóra.“ Það lýsir þeim áhrifum sem faghandleiðslan hafði á líðan og störf þátttakenda en þeir upplifðu að faghandleiðslan væri styrkjandi fyrir þá bæði sem einstaklinga og fagmenn. Deildarstjórarnir höfðu allir reynslu af hóphandleiðslu með öðrum deildarstjórum en einnig höfðu margir reynslu af einstaklingshandleiðslu og annars konar hóphandleiðslu.

Faghandleiðsla og líðan í starfi: „Hjálpar manni að vaxa og þroskast bæði sem einstaklingur og fagmaður.“

Þátttakendur sögðu að ásamt því að vera skemmtilegt og fjölbreytt væri deildarstjórastarfið krefjandi: „bara skemmtilegasta starf sem ég hef unnið við ... líka mest krefjandi starf sem ég hef unnið við“

(Vala). Þeim fannst starfsmannamálin þá helst krefjandi og það að þurfa að eiga í og taka á erfiðum samskiptum. Þeir sögðu það einnig geta verið krefjandi að taka stórar og flóknar ákvarðanir, að innleiða breytingar og leiða framþróun. Það gat einnig verið erfitt að fá fyrirmæli frá þeirra yfirmönnum sem stönguðust á við óskir starfsmanna þeirra: „þannig að það er þessi klemma að vera svona millistjórnandi að vera einhvern veginn áleggið í samlokunni“ (Ólöf).

„Þetta gerir mig bara að betri deildarstjóra“

Faghandleiðsla og líðan í starfi

Persónuleg sjálfsstyrking

Hóphandleiðsla og tengsl Faghandleiðsla og fagmennska

Myndun tengslanets

Stofnunin stuðli að fagmennsku

Aukið sjálfsöryggi Lærdómur og verkfæri frá öðrum Faghandleiðslan í forgang

Aukið starfsþrek og sjálfsmildi

Handleiðarinn skiptir máli

Heilsufarsleg forvörn Jafnvægi milli vinnu og einkalífs

Mynd 1. Heildargreiningarlíkan, yfirlit yfir helstu niðurstöður rannsóknar.

Persónuleg sjálfsstyrking

Deildarstjórarnir sögðu faghandleiðsluna hafa góð áhrif á líðan þeirra og styrkja þá sem einstaklinga, sem fagmenn og stjórnendur: „þetta hefur þannig áhrif á ... líðan og störf að maður ... verður bara sterkari“ (Rakel). Í faghandleiðslunni fengu þeir öruggt rými til að tala í trúnaði og stuðning við ákvarðanatöku. Þeir fengu hjálp við að setja mörk, lærðu betur á eigin líðan og að skilja á milli vinnusjálfs og einkasjálfs: „maður svona lærði betur að blokkera ýmsa hluti og taka ekki hluti með sér heim“ (Blær).

Aukið sjálfsöryggi Faghandleiðslan veitti deildarstjórunum aukið öryggi til að takast á við erfiðar aðstæður og hafði þau áhrif að þeir tóku hlutina minna inn á sig: „alveg eins og þú lærir að verða góður í klíník, þarna þarftu bara að verða betri í því að takast á við erfiðar aðstæður“ (Harpa). Þeir töluðu um að faghandleiðslan gæfi þeim staðfestingu á því að þeirra viðbrögð í hinum ýmsu aðstæðum væru rökrétt: „að fá aftur pínu trú á sjálfan sig ... svona staðfestir að maður er ekki að gera tóma vitleysu ... æ þessi efasemdarpúki sem stekkur stundum á mann“ (Vala).

Aukið starfsþrek og sjálfsmildi

Deildarstjórunum fannst faghandleiðslan vera hvetjandi og að hún bætti þeirra vinnuþol og þrek. Þeir töluðu um mikilvægi þess að huga að sjálfum sér og að faghandleiðslan kenndi þeim að sýna sjálfum sér mildi: „… ef maður sprengir sig of fljótt ... kemst maður ekkert áfram ... maður þarf ... að næra sig einhvern veginn“ (Helga). Með því að huga betur að sjálfum sér gátu þeir svo betur aðstoðað starfsfólkið sitt í sinni fagmennsku, þannig að þegar þeir voru betur andlega staddir og búnir að létta á sjálfum sér voru þeir tilbúnari til þess að styðja við aðra.

Heilsufarsleg forvörn

Deildarstjórarnir töldu forvarnargildi faghandleiðslu vera mikið: „þetta er ákveðin forvörn held ég líka gegn því að fólk fari síður í ... veikindi“ (Vala). Þeir lærðu í faghandleiðslunni hvar þolmörk þeirra lágu og hvenær þeir þurftu að fá aðstoð eða fara í næsta handleiðslutíma. Þeim fannst mikilvægt að halda faghandleiðslu á lofti, að deildarstjórar væru fyrirmyndir í því að nýta sér þetta úrræði og að fólk þyrfti ekki að vera í sérstakri krísu til að fara.

Hóphandleiðsla og tengsl:

„Þetta tengslanet er bara dýrmætt ... maður lærir líka ótrúlega mikið af öðrum.“

Deildarstjórarnir töluðu um að eftir að þeir tóku við starfinu voru þeir ekki hluti af starfsmannahópnum á sama hátt og áður. Þeir stóðu einir með ýmis mál og það var margt sem þeir gátu ekki rætt við starfsfólkið sitt: „þú ert svolítið einn að sjá um allt ... það er alls konar sem þú þarft að reka þig á sem deildarstjóri, sem enginn annar kannski skilur almennilega“ (Katrín).

Myndun tengslanets

Hóphandleiðslan veitti þátttakendum þá tilfinningu að þeir tilheyrðu hópi þar sem mögulegt var að sækja stuðning frá jafningjum sínum. Hvergi annars staðar komu deildarstjórar saman á þennan hátt en þeim fannst mikilvægt að rækta tengslin við aðra deildarstjóra og dýrmætt að geta leitað ráða hver hjá öðrum: „… styrkir auðvitað bara stofnunina sem einingu að stjórnendur séu með tengslanet og bara að fólk sé með tengslanet ... maður bara talar bæði betur um og við fólk sem maður þekkir“ (Rakel).

Lærdómur og verkfæri frá öðrum Deildarstjórunum fannst þeir læra mest af því að heyra frá reynslu annarra í hóphandleiðslu: „mjög hjálplegt ... að fá aðeins að heyra hvað aðrir deildarstjórar eru að hugsa og gera og díla við“ (Vala). Þeim fannst gott að endurspegla reynslu hvers annars, fannst það losa um meinlokur í höfðinu á þeim og fannst gott að geta fylgt málum eftir á milli tíma. Það myndaðist samkennd í hópnum, þeir gátu bæði gefið og þegið endurgjöf og fengu þannig víðara sjónarhorn á hlutina. Þátttakendurnir fundu að þeir voru ekki einir með erfið mál og fóru öruggari inn í aðstæður eftir að hafa heyrt af svipaðri reynslu frá öðrum: „mér finnst ég bara hafa fengið ákveðin verkfæri sem ég get haldið áfram að nýta“ (Magnea).

Sumum af reynslumeiri deildarstjórunum fannst skipta máli að hópurinn væri settur saman á ákveðinn hátt, að í hópnum væru deildarstjórar með svipaða reynslu í starfi frá svipuðum deildum: „Það er skrítið að vera í handleiðslu með einhverjum tiltölulega nýútskrifuðum fyrir mig þar sem ég hef sjálf verið oft mentor ... þá á ég erfitt með að fara úr þeim gír“ (Harpa). Öðrum með mikla reynslu fannst þeir hins vegar líka fá mikið út úr því að deila sinni reynslu og vitneskju til hinna sem voru reynsluminni.

Faghandleiðsla og fagmennska: „Ég held að við þurfum bara öll að vera í þessari vinnu.“

Deildarstjórunum fannst flestum faghandleiðsla vera mikilvægur hluti af starfi þeirra og auk deildarstjóra hjúkrunar ættu allir hjúkrunarfræðingar að fá reglulega faghandleiðslu yfir starfsævina: „almennt ættu stjórnendur að tala jákvætt um handleiðslu og ... það á ekki að vera tengt við að það sé eitthvað að ... það sé partur af því að vera professional“ (Arna).

Stofnunin stuðli að fagmennsku

Deildarstjórarnir ítrekuðu mikilvægi þess að stofnunin bjóði upp á faghandleiðslu. Þeim fannst Landspítali gera vel þegar kemur að stuðningi við starfsfólk og voru þakklátir fyrir að geta sótt í faghandleiðslu, hvort sem það var einstaklings- eða hóphandleiðsla: „þetta er mjög ólíkt en bæði algerlega frábær stuðningur“ (Ólöf). Þeim fannst mikilvægt að fá einhvern jarðveg þar sem ríkti algjört traust til þess að tala í trúnaði um mál sem ekki voru rædd annars

staðar. Þeim fannst gott að geta bent starfsfólki sínu á faghandleiðslu og vildu að það myndi nýta sér hana: „þetta hjálpar mér líka sem verkfæri sem stjórnanda, ég hef eitthvert úrræði fyrir þau“ (Harpa).

Faghandleiðslan í forgang

Deildarstjórarnir töluðu um að starfið væri yfirgripsmikið og að alltaf væri nóg að gera en annir voru sá þáttur sem deildarstjórunum fannst hvað mest hamlandi fyrir faghandleiðslu: „það gekk … mjög illa fyrir mig að geta farið að mæta af því að ... það var erfitt að losna út af vinnustaðnum“ (Helga). Sumum fannst það jafnvel streituvaldur að fara í faghandleiðslu en þegar deildirnar voru illa mannaðar var sérstaklega erfitt að komast frá. Starfsemin sjálf og ófyrirsjáanleiki í henni var einnig það sem varð til þess að þeir komust ekki í faghandleiðslu.

Starfsfólk Landspítala þarf alla jafna að fara í annað húsnæði til að sækja faghandleiðslu og sumum þótti hún því óaðgengileg og óþarflega tímafrek og fráhrindandi að þurfa að notast við skutluna til að komast. Flestum fannst þó gott að breyta um aðstæður: „notalegt að komast út úr umhverfinu frá deildinni ... maður fer inn á einhverja svona aðra vídd“ (Katrín).

Deildarstjórarnir töluðu um mikilvægi þess að forgangsraða faghandleiðslunni og sögðu handleiðarana leggja mikla áherslu á það: „maður reynir nú samt að príoritæsa þessu dálítið hátt ... en stundum gengur það ekki upp sko“ (Blær). Þegar um er að ræða hóphandleiðslu gat verið erfitt að finna tíma þar sem allir gátu mætt en þeim fannst mikilvægt að allur hópurinn setti faghandleiðsluna í forgang: „það fá allir minna út úr því ef hópurinn er ekki alltaf bara saman“ (Rakel).

Handleiðarinn skiptir máli

Það skipti deildarstjórana máli að vera með góða handleiðara og flestir báru sínum handleiðurum mjög góða söguna: „handleiðararnir hafa ... leyft hópnum að búa til svona flæðið og stemninguna en samt alveg gripið einhvern veginn inn í þegar að á þarf að halda“ (Rakel). Arna hafði slæma reynslu af faghandleiðslu og þar var það handleiðarinn sem hún var mest ósátt með: „hún talaði rosalega mikið um sjálfa sig, sínar skoðanir ... ég var svo hissa ... á því að hún hafði alltaf skoðun á öllu sem að við vorum að segja, eitthvað svona privat skoðanir“ (Arna).

Jafnvægi milli vinnu og einkalífs

Deildarstjórarnir sögðu að faghandleiðslan hjálpaði þeim við að finna jafnvægi milli vinnu og einkalífs: „hjálpar manni að ... svona fókusera á það bara þetta á bara heima í vinnunni þetta á ekkert heima heima hjá þér og þetta á ekki ... að lita fríið þitt“ (Harpa). Þeir öðluðust öryggi til að setja mörk og til að taka ekki að sér verkefni sem voru ekki á þeirra ábyrgð en faghandleiðslan veitti þeim staðfestingu á því hvað fólst í starfinu: „kannski svolítið styrkt mig meira í því hvert er mitt hlutverk og hvað er það sem að ég á að vera gera“ (Þórdís).

UMRÆÐA

Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að faghandleiðsla geti stutt við millistjórnendur í hjúkrun á ýmsa vegu. Þátttakendum í þessari rannsókn, sem allir starfa sem deildarstjórar hjúkrunar á Landspítala, fannst faghandleiðsla gera þá að betri stjórnendum. Þeir höfðu alla jafna góða reynslu af faghandleiðslu og fannst hún styrkjandi fyrir þá sem einstaklinga, sem fagmenn og sem

stjórnendur, ásamt því að hafa góð áhrif á líðan bæði í starfi og einkalífi. Þetta er í samræmi við erlendar rannsóknir sem sýna að faghandleiðsla eykur starfsánægju og vellíðan starfsmanna, minnkar streitu og tilfinningalega þreytu þeirra og hefur jákvæð áhrif á bæði persónulegan og faglegan þroska (Hudays o.fl., 2023; O’Neill o.fl., 2022; Rothwell o.fl., 2021). Deildarstjórunum sem tóku þátt í þessari rannsókn fannst Landspítali gera vel þegar kemur að stuðningi við sitt starfsfólk og sögðust finna fyrir umhyggju frá stjórnendum stofnunarinnar. Þar sem faghandleiðsla getur stuðlað að aukinni starfsánægju (Hudays o.fl., 2023) getur slíkur stuðningur verið nytsamlegt tól fyrir yfirmenn til að halda starfsfólki í starfi en rannsóknir hafa sýnt að þær stofnanir sem bjóða upp á faghandleiðslu hafa meiri stöðugleika í starfsmannahaldi (Moseley, 2020). Fleiri rannsóknir hafa sýnt að faghandleiðsla hefur þau jákvæðu áhrif að starfsfólk finnur fyrir auknum hvata og metnaði fyrir starfi sínu. Veikindadögum fækkar, starfsfólk finnur meira fyrir þeirri tilfinningu að það tilheyri vinnustaðnum og er líklegra til þess að vilja starfa lengur við fagið (Cutcliffe o.fl., 2018; Martin o.fl., 2021).

Deildarstjórarnir sem tóku þátt í þessari rannsókn höfðu margir reynslu af bæði einstaklings- og hóphandleiðslu og sögðu flestir að hvort tveggja væri mjög góður stuðningur en misjafnt var hvora tegundina þeir sóttust í á hverjum tíma. Bæði einstaklingsog hóphandleiðsla hafa sína kosti og galla en af mörgum er einstaklingshandleiðsla talin æskilegri þar sem handleiðsluþeginn fær þar persónulega og einstaklingsmiðaða handleiðslu (Butterworth, 2022; O’Neill o.fl., 2022). Þátttakendum þessarar rannsóknar fannst gott að geta notast við einstaklingshandleiðslu eftir þörfum, ef upp komu vandamál í starfi þeirra og þeir þurftu aðstoð við úrlausn þeirra. Einnig fannst þeim gott að ræða þar mál sem tengdust þeirra einkalífi. Ókosturinn við einstaklingshandleiðslu er þó sá að það kostar meira fyrir stofnunina en hóphandleiðsla og skortur á faglegum handleiðurum getur gert einstaklingshandleiðslu erfiðari í framkvæmd (Butterworth, 2022). Deildarstjórarnir höfðu flestir góða reynslu af hóphandleiðslu með öðrum deildarstjórum. Hóphandleiðsla hefur gjarnan þau áhrif að starfsfólk lærir hvert af öðru en með því að deila reynslu og læra hvert af öðru má efla kunnáttu starfsmanna og hópmeðlimir fá tækifæri til að læra að bera fram sín mál í hópi, vinna með öðrum að úrlausn vandamála og þiggja og veita endurgjöf (Moseley, 2020; Schumann o.fl., 2020). Þátttakendur rannsóknarinnar voru þessu mjög sammála en þeim fannst reynsla annarra undirbúa þá sjálfa fyrir erfiðar aðstæður og veita þeim eins konar verkfæri sem þeir gátu nýtt í aðstæðunum. Sumum þátttakendum fannst þeir þó ekki læra mikið af hinum og fannst þeir alltaf í því hlutverki að veita endurgjöf. Það tengdist því að þeir voru reynslumeiri en aðrir í hópnum en það er talinn ókostur við hóphandleiðslu að hópmeðlimir geta þróað með sér ákveðin hlutverk innan hópsins og sumir í hópnum fá meira svigrúm til að tjá sig á meðan aðrir tjá sig lítið (Schumann o.fl., 2020). Rannsóknir hafa sýnt að annar ókostur við hóphandleiðslu sé sá að handleiðsluþegar fá þar minna af persónulegri endurgjöf frá handleiðara en í einstaklingshandleiðslu og það getur verið erfitt að mynda gott meðferðarsamband milli handleiðsluþega og handleiðara (O’Neill o.fl., 2022; Schumann o.fl., 2020). Þátttakendur þessarar rannsóknar ræddu ekki sérstaklega um skort á meðferðarsambandi milli handleiðsluþega og handleiðara en þeim fannst tengslamyndunin við aðra hópmeðlimi skipta miklu máli og fannst mesti stuðningurinn í hóphandleiðslu koma þaðan. Þeir upplifðu að þeir tilheyrðu hópi en hóphandleiðsla

getur verið sérstaklega hjálpleg fyrir fólk sem vinnur mikið eitt og fær sjaldan tækifæri til að deila upplifunum og fá speglun á starf sitt (Moseley, 2020). Hóphandleiðslan hefur gjarnan þau áhrif að starfsfólki finnst það minna einangrað í starfi þegar það fær þennan stuðning og því getur hún komið sér sérstaklega vel fyrir hjúkrunarstjórnendur og aðra hjúkrunarfræðinga sem eru mikið einir með sína vinnu (Cutcliffe o.fl., 2018).

Deildarstjórarnir í þessari rannsókn töldu flestir að faghandleiðsla ætti að vera hluti af starfi þeirra, sem og annarra hjúkrunarfræðinga, þar sem faghandleiðsla sé partur af því að vera fagmaður. Í faghandleiðslu er lögð mikil áhersla á að auka þekkingu og styrkja þjálfun fagmanna, kennd er færni til þess að beita faglegum aðferðum í stað tilfinningasemi, auk þess að kenndar eru aðferðir til þess að skilja á milli fagsjálfs og einkasjálfs (Butterworth, 2022; McDonough o.fl., 2024). Í faghandleiðslu fengu deildarstjórarnir í þessari rannsókn öruggt rými til að tala í trúnaði um viðkvæm mál sem þeir töluðu ekki um annars staðar en faghandleiðsla gefur handleiðsluþega færi á að endurspegla starf sitt og taka ákvarðanir í rólegu og öruggu umhverfi í stað þess að vera stöðugt að taka ákvarðanir í flýti í krefjandi aðstæðum (McDonough o.fl., 2024; Rothwell o.fl., 2021). Í faghandleiðslu fengu þátttakendurnir speglun á sín störf og það var eitthvað sem bar oft á góma þegar þeir voru að lýsa þeim áhrifum sem faghandleiðslan hafði. Þeim fannst mjög gott að fá þessa speglun en speglun er talin nauðsynleg til að þróa með sér faglega sjálfsmynd, ásamt því að það getur hjálpað hjúkrunarfræðingum og hjúkrunarstjórnendum við að verða sjálfstæðari, verða gagnrýnni og við að þróa sig áfram í sínu fagi sem fagfólk. Það að fá speglun á starfið gerir handleiðsluþeganum kleift að skoða viðbrögð sín í hinum ýmsu aðstæðum sem eykur skilning á eigin tilfinningum og líðan (Gonge og Buus, 2015; Patel og Metersky, 2022).

Eitt af því sem deildarstjórunum í þessari rannsókn var tíðrætt um var forvarnargildi faghandleiðslu en þeim fannst mikilvægt að hafa þetta úrræði til að grípa í þegar þeir fundu að álagið í starfinu var að ná til þeirra. Í faghandleiðslu er gjarnan kennd færni til að höndla betur streitu, kvíða og depurð sem getur orsakast af of miklu álagi í starfi en betri persónuleg bjargráð og aukin starfsánægja geta minnkað streitueinkenni og einnig minnkað líkurnar á því að starfsfólk finni fyrir kulnun (Hudays o.fl., 2023; O’Neill o.fl., 2022).

Deildarstjórarnir sögðu að miklu máli skipti að handleiðarinn væri góður. Einn þáttur sem getur hamlað því að handleiðsla sé árangursrík er ef handleiðari og handleiðsluþegi eiga ekki samleið og traust á milli þeirra nær ekki að myndast (McDonough o.fl., 2024; O’Neill o.fl., 2022; Rothwell o.fl., 2021). Traust er lykilþáttur í handleiðslu og því er mikilvægt að handleiðsluþegi eigi kost á að velja sér handleiðara (Cutcliffe o.fl., 2018; Rothwell o.fl., 2021) en rannsóknir hafa sýnt að vantraust í garð handleiðarans er þáttur sem getur hamlað því að starfsfólk mæti aftur í handleiðslu (O’Neill o.fl., 2022). Einungis einn þátttakandi í þessari rannsókn lýsti reynslu af hóphandleiðslu sem var slæm og þar var það handleiðarinn sem var ástæðan fyrir því. Sá þátttakandi hafði flosnað upp úr þeirri handleiðslu en þar voru allir hópmeðlimir á sama máli og hættu að mæta einn af öðrum.

Annir og starfsemi deildanna hafði áhrif á það hvort deildarstjórarnir í þessari rannsókn gátu mætt í faghandleiðslu. Þeim fannst gott að hafa þetta úrræði til að benda starfsfólki sínu á en töluðu einnig um að skipulag mönnunar og vaktafyrirkomulag kæmi í veg fyrir að allir hjúkrunarfræðingar gætu verið í reglulegri handleiðslu. Það samræmist niðurstöðum annarra rannsókna, sem sýna að það getur verið erfitt að finna tíma fyrir faghandleiðslu og viðhalda mönnun á deildum á sama tíma og faghandleiðsla fer fram en starfsfólk á ekki að þurfa að sækja faghandleiðslu utan vinnutíma (Rothwell o.fl., 2021). Sumum finnst það jafnvel aukið álag að taka frá tíma úr sínu starfi til að fara í faghandleiðslu (Masamha o.fl., 2022; Rothwell o.fl., 2021) en nokkrir þátttakendur nefndu að það gæti verið ákveðinn streituvaldur að fara í faghandleiðslu þegar annir voru miklar. Þeir nefndu að mögulega þyrfti að koma faghandleiðslu að í vaktafyrirkomulagi deilda til þess að auðvelda þeim og öðru starfsfólki að nýta sér úrræðið. Víða er faghandleiðsla ekki talinn hluti af starfi hjúkrunarfræðinga og aðrir þættir starfsins taldir mikilvægari. Samkvæmt erlendum heimildum hefur markmiðið alltaf verið að koma faghandleiðslu að fyrir alla hjúkrunarfræðinga en það hefur þó ekki tekist að koma því inn í menningu allra heilbrigðisstofnana að faghandleiðsla sé sjálfsagður hluti af starfi heilbrigðisstarfsfólks (Butterworth, 2022; Rothwell o.fl., 2021).

STYRKLEIKAR OG TAKMARKANIR RANNSÓKNAR

Þessi rannsókn veitir innsýn í reynslu deildarstjóra hjúkrunar af faghandleiðslu og áhrifum hennar en slík rannsókn hefur ekki verið gerð áður á Íslandi. Styrkleiki rannsóknarinnar felst í því að þátttakendur rannsóknarinnar staðfestu greiningu rannsakenda á viðtölunum líkt og gert er ráð fyrir í rannsóknarferli Vancouver-skólans. Að mati rannsakenda fékkst mettun í gögnin þar sem samhljómur var meðal þátttakenda og nýjar upplýsingar voru hættar að koma fram, sem er styrkleiki. Helstu takmarkanir

rannsóknarinnar eru þær að þátttakendur voru fáir og nær hún aðeins til lítils hluta hóps sem sinnir starfi deildarstjóra hjúkrunar á einni stofnun. Hugsanlega voru þau sem höfðu slæma reynslu síður að bjóða sig fram til þátttöku. Einnig felst ákveðin takmörkun í því að ekki séu nákvæmar upplýsingar um fyrri reynslu þátttakenda af faghandleiðslu, svo sem tegund, tíðni og hversu langt var liðið frá því að faghandleiðslan fór fram. Ekki er hægt að yfirfæra niðurstöður rannsóknarinnar á allt þýðið þar sem rannsóknaraðferðin miðar að því að skoða reynslu hvers og eins og gefur því aðeins mynd af reynslu þátttakenda þessarar rannsóknar af fyrirbærinu.

ÁLYKTANIR OG FRAMTÍÐARRANNSÓKNIR

Niðurstöður rannsóknarinnar gefa vísbendingar um að faghandleiðsla geti veitt mikilvægan faglegan og persónulegan stuðning fyrir millistjórnendur hjúkrunar. Deildarstjórarnir sem tóku þátt í rannsókninni lýstu starfi sínu sem fjölbreyttu og krefjandi og voru þakklátir fyrir þann stuðning sem Landspítali veitir starfsfólki sínu í formi faghandleiðslu. Þeir töldu að faghandleiðsla gæti einnig nýst öðrum hjúkrunarfræðingum og lögðu áherslu á að öllum hjúkrunarfræðingum á Landspítala gæfist kostur á faglegum og persónulegum stuðningi í formi reglulegrar faghandleiðslu. Álykta má að stuðningur í formi faghandleiðslu gæti gagnast starfsfólki á fleiri heilbrigðisstofnunum á Íslandi.

Deildarstjórarnir sem tóku þátt í rannsókninni töldu að faghandleiðsla gæti verið sérstaklega mikilvæg fyrir nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga, hjúkrunarfræðinga sem eru búnir að vinna lengi í erfiðum aðstæðum og orðnir þreyttir og hjúkrunarfræðinga sem eru að skipta um starfsvettvang. Framtíðarrannsóknir ættu að miða að því að skoða áhrif faghandleiðslu á almenna hjúkrunarfræðinga og áhugavert væri að skoða sérstaklega þá hópa hjúkrunarfræðinga sem þátttakendur þessarar rannsóknar bentu á.

ÞAKKARORÐ

Sérstakar þakkir fá þátttakendur rannsóknarinnar fyrir að gefa innsýn í reynslu þeirra af faghandleiðslu. Einnig fær Landspítali þakkir fyrir veittan stuðning og afnot af aðstöðu spítalans við gerð rannsóknarinnar.

ENGLISH SUMMARY

"This enhances my skills as a unit manager:” The impact of clinical supervision on nurse unit managers' well-being and profession

doi: 10.33112/th.102.1.3

ABSTRACT

Aim

The purpose of the study was to gain knowledge and deepen understanding of the experience of nurse unit managers at Landspitali –University Hospital regarding clinical supervision, as well as to explore what effects clinical supervision has on their well-being and work.

Method

The research was qualitative, using the Vancouver school of phenomenology as the research method. Data were collected through semi-structured interviews with 10 nurse unit managers at Landspítali who had experience with clinical supervision. The participants were aged 42-63 years and had been nurse unit managers for 2-26 years.

Results

The main finding of the study and its overarching theme is “this just makes me a better department manager”. That describes the impact that clinical supervision has on their work, as they experienced that clinical supervision improved their well-being and was empowering for them as individuals, as professionals, and as managers. The nurse unit managers felt that clinical supervision provided them with personal empowerment and increased self-confidence. It gave them increased job endurance and helped them maintain a balance between work and personal life. Most of the participants had a good experience with group supervision, where they learned from the experiences of others, formed valuable connections, and developed a sense of empathy within the group. They emphasized the importance of prioritizing clinical supervision, but the demands and activities of the departments were the main barriers to their attendance. They felt it was important that the supervisor was experienced in their role and stated that clinical supervision is a health promotion measure and a part of being a professional.

Conclusions

The findings of the study suggest that clinical supervision can provide important support for nurse unit managers, both professionally and personally, and that other health institutions in Iceland could benefit from it.

Keywords

Clinical supervision, nurse unit managers, work-related well-being, Vancouver school in phenomenology

Correspondent sunnevabg@gmail.com

HEIMILDASKRÁ

Butterworth, T. (2022). What is clinical supervision and how can it be delivered in practice? Nursing Times, 118(2), 20-22 https://www.nursingtimes.net/roles/nurse-managers/ what-is-clinical-supervision-and-how-can-it-be-delivered-in-practice-17-01-2022/

Cox, C. A. (2019). Nurse manager job satisfaction and retention: A home healthcare perspective. Nursing Management, 50(7), 16–23. https://doi.org/10.1097/01.NUMA.0000558512.58455.68

Cutcliffe, J. R., Sloan, G. og Bashaw, M. (2018). A systematic review of clinical supervision evaluation studies in nursing. International Journal of Mental Health Nursing, 27(5), 1344–1363. https://doi.org/10.1111/inm.12443

Garcia, G. P. A. og Marziale, M. H. P. (2021). Satisfaction, stress and burnout of nurse managers and care nurses in primary health care. Revista Da Escola De Enfermagem Da U S P, 55, e03675. https://doi.org/10.1590/S1980-220X2019021503675

Gill-Meeley, N., Smyth, S., Frawley, T., Hernon, O. og Cuddihy, C. (2024). Nurses' and midwives' experiences of clinical supervision in practice: A scoping review. Journal of Clinical Nursing, https://doi.org/10.1111/jocn.17489

Gonge, H. og Buus, N. (2015). Is it possible to strengthen psychiatric nursing staff's clinical supervision? RCT of a meta-supervision intervention. Journal of Advanced Nursing, 71(4), 909–921. https://doi.org/10.1111/jan.12569

González-García, A., Pinto-Carral, A., Pérez-González, S. og Marqués-Sánchez, P. (2021). Nurse managers' competencies: A scoping review. Journal of Nursing Management, 29(6), 1410–1419. https://doi.org/10.1111/jonm.13380

Halldórsdóttir, S. (2000). The Vancouver school of doing phenomenology. Í B. Fridlund og C. Hildingh (ritstjórar), Qualitative research methods in the service of health (bls. 47–81). Studentlitteratur AB.

Hudays, A., Gary, F., Voss, J. G., Hazazi, A., Arishi, A. og Al-sakran, F. (2023). Job satisfaction of nurses in the context of clinical supervision: A systematic review. International Journal of Environmental Research and Public Health, 21(1). https://doi.org/10.3390/ijerph21010006

Martin, P., Lizarondo, L., Kumar, S. og Snowdon, D. (2021). Impact of clinical supervision on healthcare organisational outcomes: A mixed methods systematic review. PLoS ONE, 16(11), e0260156. https://doi.org/10.1371/journal.pone.0260156

Masamha, R., Alfred, L., Harris, R., Bassett, S., Burden, S. og Gilmore, A. (2022).

'Barriers to overcoming the barriers': A scoping review exploring 30 years of clinical supervision literature. Journal of Advanced Nursing, 78(9), 2678–2692. https://doi.org/10.1111/jan.15283

McDonough, J. H., Rhodes, K. og Procter, N. (2024). The impact of clinical supervision on the mental health nursing workforce: A scoping review protocol. International Journal of Mental Health Nursing, 34(1), e13463. https://doi.org/https://doi.org/10.1111/inm.13463

Mirzaei, A., Imashi, R., Saghezchi, R. Y., Jafari, M. J. og Nemati-Vakilabad, R. (2024). The relationship of perceived nurse manager competence with job satisfaction and turnover intention among clinical nurses: An analytical cross-sectional study. BMC Nursing, 23(1), 528. https://doi.org/10.1186/s12912-024-02203-5

Moseley, M. (2020). An evaluation of group safeguarding supervision in health visiting practice. Primary Health Care, 30(3), 18–23. https://doi.org/10.7748/phc.2020.e1611

O'Neill, A., Edvardsson, K. og Hooker, L. (2022). Clinical supervision practice by community-based child and family health nurses: A mixed-method systematic review. Journal of Advanced Nursing, 78(6), 1588–1600. https://doi.org/10.1111/jan.15191

Patel, K. M. og Metersky, K. (2022). Reflective practice in nursing: A concept analysis. International Journal of Nursing Knowledge, 33(3), 180–187. https://doi.org/10.1111/2047-3095.12350

Pollock, A., Campbell, P., Deery, R., Fleming, M., Rankin, J., Sloan, G. og Cheyne, H. (2017). A systematic review of evidence relating to clinical supervision for nurses, midwives and allied health professionals. Journal of Advanced Nursing, 73(8), 1825–1837. https://doi.org/10.1111/jan.13253

Posluns, K. og Gall, T. L. (2020). Dear mental health practitioners, take care of yourselves: A literature review on self-care. International Journal for the Advancement of Counselling, 42(1), 1–20. https://doi.org/10.1007/s10447-019-09382-w

Rothwell, C., Kehoe, A., Farook, S. F. og Illing, J. (2021). Enablers and barriers to effective clinical supervision in the workplace: A rapid evidence review. BMJ Open, 11(9), e052929. https://doi.org/10.1136/bmjopen-2021-052929

Schumann, N., Farmer, N., Shreve, M. og Corley, A. (2020). Structured peer group supervision: A safe space to grow. Journal of Psychotherapy Integration, 30(1), 108–114. https://doi.org/10.1037/int0000180

Sigríður Halldórsdóttir. (2021). Fyrirbærafræði sem rannsóknaraðferð. Í Sigríður Halldórsdóttir (ritstjóri), Rannsóknir - handbók í aðferðafræði (bls. 255–275). Háskólinn á Akureyri.

Sveinsdóttir, H., Blöndal, K., Jónsdóttir, H. H. og Bragadóttir, H. (2018). The content of nurse unit managers' work: A descriptive study using daily activity diaries. Scandinavian Journal of Caring Sciences, 32(2), 861–870. https://doi.org/10.1111/scs.12517

Að líknin hafi meira vægi við lok lífs - Hlutverk og reynsla hjúkrunarfræðinga á gjörgæsludeild

doi: 10.33112/th.102.1.4

ÚTDRÁTTUR

Bakgrunnur

Á gjörgæsludeild eru innlagðir bráð- og alvarlega veikir sjúklingar sem oft þurfa sérhæfða meðferð. Þótt meginmarkmiðið sé að bjarga lífi sjúklings reynist það þó ekki alltaf mögulegt og tekur þá við meðferð sem miðar að því að líkna. Þau umskipti að breyta læknandi meðferð yfir í lífslokameðferð er flókið ferli í hátækniumhverfi eins og á gjörgæsludeild.

Tilgangur

Tilgangur þessarar rannsóknar er að leitast við að skilja hlutverk og reynslu hjúkrunarfræðinga á gjörgæsludeild af því að hjúkra fullorðnum sjúklingum og fjölskyldum þeirra við lok lífs. Markmiðið er að varpa ljósi á hlutverk þeirra í gegnum reynslu þeirra og draga fram þá þætti sem eru mikilvægir og hjálplegir fyrir hjúkrunarfræðinga við slíkar aðstæður.

Aðferðafræði

Gerð var eigindleg rannsókn þar sem tekin voru rýnihópaviðtöl við sautján hjúkrunarfræðinga frá öllum þremur gjörgæsludeildum á Íslandi. Stuðst var við innihaldsgreiningu við gagnagreiningu.

Niðurstöður

Greining gagna leiddi í ljós þrjú þemu sem endurspegluðu reynslu þátttakenda af hjúkrun sjúklinga við lok lífs á gjörgæsludeild. Þemun voru: Að reyna að gera þessa stund bærilega, að sjúklingur fái að deyja með reisn; Sem hjúkrunarfræðingur að vera mitt á milli og reyna að dansa, vera á þeim stað sem hver og einn er; og Það þarf víkingarsveitahjúkrunarfræðing. Niðurstöður sýndu að hjúkrunarfræðingar reyndu að gera sitt besta til að stuðla að góðum lífslokum fyrir sjúkling og fjölskyldu hans í flóknu hátækniumhverfi. Þótt oftast hafi ferlið gengið vel gátu hjúkrunarfræðingarnir upplifað togstreitu og vanlíðan við hjúkrun sjúklingsins þegar meðferðin var orðin íþyngjandi fyrir hann. Mikilvægt hlutverk hjúkrunarfræðinganna var að samræma og auðvelda samskipti milli sjúklings, fjölskyldu og lækna, styðja við ákvarðanatöku og sinna fjölskyldum tilfinningalega á meðan ferlinu stendur.

Ályktun

Auka má gæði umönnunar við lok lífs með því að styðja við hjúkrunarfræðinga með fræðslu og að efla samvinnu fagaðila um ákvörðun um meðferðarmarkmið. Til að tryggja samræmi í meðferðarferlinu er mikilvægt að þróa leiðbeiningar um afturköllun á lífsbjargandi meðferð.

Lykihugtök

Gjörgæsludeild, hjúkrun, reynsla, hlutverk, eigindleg rannsókn, líknarmeðferð, lífslokameðferð

HAGNÝTING

RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA

„Hvers vegna ættir þú að lesa þessa grein?“

Nýjungar: Lítið er vitað um hlutverk og reynslu íslenskra hjúkrunarfræðinga á gjörgæsludeildum af því að hjúkra sjúklingum og fjölskyldum þeirra við lok lífs. Mikilvægt er að skoða hvað hjúkrunarfræðingar hafa að segja um þessa reynslu.

Hagnýting: Niðurstöður rannsóknarinnar geta gefið til kynna hvert framlag hjúkrunarfræðinga er við að tryggja gæði umönnunar við lok lífs á gjörgæsludeildum og hvernig má styrkja betur hlutverk þeirra.

Þekking: Niðurstöður sýna hvernig hjúkrunarfræðingar takast á við og stuðla að góðum lífslokum sjúklinga á gjörgæslu og styðja við fjölskyldur þeirra.

Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga: Mikilvægt er fyrir hjúkrunarfræðinga og heilbrigðisstarfsmenn að vita meira um hvernig hægt er að bæta lífslokameðferð sjúklinga á gjörgæslu með það að markmiði að bæta og efla þá þjónustu sem þeir og fjölskyldur þeirra þurfa.

Höfundar

KRISTÍN ÞÓRARINSDÓTTIR

hjúkrunarfræðingur, M.S.1

ÞÓRA JENNÝ GUNNARDÓTTIR

hjúkrunarfræðingur, Ph.D.,1 prófessor2

1Landspítali

2Háskóli Íslands

Að líknin hafi meira vægi við lok lífs - Hlutverk og reynsla hjúkrunarfræðinga á gjörgæsludeild

INNGANGUR

Í rannsóknum um líknar- og lífslokameðferðir á gjörgæslu hefur komið fram að lífsbjargandi meðferð (e. life-sustaining treatment) geti stuðlað að því að sjúklingi sé haldið í öndunarvél þó lítil von sé á bata og meðferðin jafnvel íþyngjandi fyrir sjúklinginn. Þau umskipti að breyta læknandi meðferð yfir í lífslokameðferð eru því talin vera ein af erfiðustu og mikilvægustu viðfangsefnum á gjörgæsludeild (Mercadante o.fl., 2018). Þrátt fyrir framfarir í meðferð sjúklinga er hærri dánartíðni á gjörgæsludeildum en á flestum öðrum deildum sjúkrahúsa. Í rannsókn Kristinsdottir o.fl. (2020) sem skoðaði langtímahorfur eftir gjörgæslumeðferð kom fram að dánartíðni á íslenskum gjörgæsludeildum á árunum 2002−2016 var 14% og var þá átt við sjúklinga sem deyja innan 30 daga frá innlögn á gjörgæsludeild. Á heimsvísu er dánartíðnin á gjörgæsludeildum 10–30% (Jensen o.fl., 2020).

Í klínískum leiðbeiningum um líknarmeðferð (2017) er hún skilgreind sem meðferð frekar en meðferðarstig, sem nær til alls sjúkdómsferlisins frá greiningu lífsógnandi og/eða langvinnra sjúkdóma. Líknarmeðferð er veitt samhliða læknandi eða lífslengjandi meðferð en þegar sjúkdómsmiðuð og/eða lífslengjandi meðferð ber ekki árangur stendur líknarmeðferð ein og sér. Lífslokameðferð er veitt þegar ljóst er að sjúklingur er deyjandi (Landspítali, 2017).

Lífsbjargandi meðferðir sem einungis eru framkvæmdar á gjörgæsludeild (oft kallaðar gjörgæslumeðferðir) eru skilgreindar sem þær meðferðir sem krefjast sérhæfðs tækjabúnaðar og lyfja sem miða að því að fyrirbyggja eða meðhöndla líffærabilun tímabundið eða varanlega (Bandrauk o.fl., 2018). Lífsbjargandi meðferðir geta haft það í för með sér að sjúklingi sé haldið í öndunarvél og líf hans framlengt að óþörfu (Mark o. fl., 2015). Þegar ljóst þykir að gjörgæslumeðferð gagnist ekki er dregið úr lífsbjargandi meðferð og hin eiginlega lífslokameðferð hefst. Við það geta sjúklingar upplifað vanlíðan vegna mæði, verkja, slímmyndunar í öndunarvegi og fleiri einkenna (Ito o.fl., 2022). Heilbrigðisstarfsmenn verða líka að undirbúa fjölskyldumeðlimi fyrir það sem fram undan er, hjálpa fólki að takast á við þær áhyggjur sem það kann að hafa og veita stuðning. Ef ekki er staðið vel að þessu ferli getur það valdið vanlíðan hjá sjúklingi, fjölskyldu hans og öllu gjörgæsluteyminu (Downar o.fl., 2016). Mjög fáir heilbrigðisstarfsmenn hafa þó verið sérstaklega þjálfaðir í að afturkalla lífsbjargandi meðferð en engu að síður er algengt að það sé gert á gjörgæsludeild. Þekktar hindranir við við að afturkalla lífsbjargandi meðferð eru til dæmis óraunhæfar væntingar starfsfólks og fjölskyldu um að gjörgæslumeðferð sé að bera árangur til lækningar eða skortur á þekkingu og þjálfun starfsfólks í að veita góða lífslokameðferð (Aslakson o.fl., 2014). Annar stór þáttur er að heilbrigðisstarfsfólk á gjörgæsludeild getur sjaldnast talað við sjúklinginn sjálfan um meðferðarmöguleika, en flestir sem leggjast inn á gjörgæslu geta ekki tjáð sig vegna óráðs, meðvitundarskerðingar eða svæfingar. Því reynir á hæfni fjölskyldunnar og heilbrigðisstarfsfólks að tala saman af hreinskilni um hvað sé sjúklingnum fyrir bestu, hvort gildi og óskir hans séu þekktar og hvort fjölskyldan geti tjáð sig um þær fyrir hans hönd (Pan o.fl., 2023). Fjölskyldan er oft undir miklu álagi á þessum tíma, hún upplifir breytingu á skyldum og óvissa er ríkjandi, en fjölskyldumeðlimum getur reynst erfitt að skilja að gjörgæslumeðferð komi ekki til með að skila árangri (Mercadante o.fl., 2018).

Eigindlegar rannsóknir hafa verið gerðar sem líta á reynslu hjúkrunarfræðinga af því að veita lífslokameðferð á gjörgæsludeild. Ein af fyrstu rannsóknunum á þessu efni er rannsókn Kirchoff o.fl. (2000). Samkvæmt niðurstöðum þeirra var „góðri“ lífslokameðferð lýst þannig að tryggt væri að sjúklingur væri eins vel verkjastilltur og mögulegt væri og að hann héldi reisn sinni. Þátttaka fjölskyldu sjúklings þótti skipta sköpum sem og samfelld umönnun og vitneskja um ástand og horfur sjúklingsins. Hjúkrunarfræðingarnir upplifðu umskiptin frá lækningu yfir í líkn sem óþægilega. Ályktanir höfunda voru að hjúkrunarfræðingar væru að reyna að veita deyjandi gjörgæslusjúklingum sem besta umönnun við erfiðar aðstæður. Óvissa um horfur og samskiptavandamál meðal fjölskyldumeðlima sjúklings og/eða umönnunaraðila flæktu enn frekar hjúkrun við lífslok á gjörgæsludeildum.

Gerð hefur verið kerfisbundin fræðileg samantekt á 13 eigindlegum rannsóknum um hlutverk og reynslu hjúkrunarfræðinga þegar dregið er úr meðferð sjúklings (Vanderspank-Wright o.fl., 2018). Niðurstöður sýndu að lykilatriði þeirrar reynslu eru tilfinningalegt uppnám og ágreiningur (e. conflict) vegna skorts á skýrum leiðbeiningum, annaðhvort frá læknum eða vegna þess að ekki liggja fyrir leiðbeiningar um ferlið. Einnig kemur fram að það sé tilfinningalega erfitt að sinna deyjandi sjúklingi og mikilvægt að bjóða upp á jafningjastuðning. Að sama skapi kemur fram að hjúkrunarfræðingar telji það forréttindi og hafi mikinn vilja til að gera sitt besta til að sinna þessum sjúklingahópi vel, en hugsanlega geti togstreita og skortur á verklagi/leiðbeiningum verið einhvers konar hindrun í því að veita góða lífslokameðferð á gjörgæsludeild.

Þá hefur verið gerð samþætt fræðileg samantekt um áhrif hjúkrunar á gæði lífslokameðferðar á gjörgæsludeildum. Niðurstöður sýndu að mikilvægt er að efla þekkingu og öryggi hjúkrunarfræðinga á öllum sviðum lífslokameðferða á gjörgæslu og voru niðurstöður teknar saman í leiðbeiningar fyrir hjúkrunarfræðinga (Anna Halla Birgisdóttir og Þóra Jenný Gunnarsdóttir, 2024). Rannsóknir á líknarmeðferð fyrir aðra sjúklingahópa hafa sýnt að meginhindarnir við innleiðingu líknarmeðferðar hjá sjúklingum með langvinna lungnateppu eru hugtakaruglingur varðandi líknarog lífslokameðferð (Guðrún Jónsdóttir og Helga Jónsdóttir, 2016). Í rannsókn á reynslu hjúkrunarfræðinga af sérhæfðri lífslokameðferð á bráðalegudeildum kom jafnframt fram að það að skapa rými fyrir vellíðan og góða einkennameðferð í rólegu umhverfi voru mikilvægir þættir góðra lífslokameðferða á bráðadeildum (Bergþóra Stefánsdóttir, 2014). Ekki finnast íslenskar rannsóknir sem tengjast hjúkrun sjúklinga við lok lífs á gjörgæsludeild eða rannsóknir sem skoða reynslu og hlutverk gjörgæsluhjúkrunarfræðinga af því sérstaklega. Rannsóknin gæti verið gagnleg til að draga fram þætti sem bregðast megi við til að styrkja hjúkrunarfræðinganna og mögulega auka þannig gæði líknar- og lífslokameðferðar á íslenskum gjörgæsludeildum.

Tilgangur þessarar rannsóknar var að leitast við að skilja hlutverk og reynslu hjúkrunarfræðinga á gjörgæsludeild af því að hjúkra fullorðnum sjúklingum og fjölskyldum þeirra við lok lífs. Markmiðið var að varpa ljósi á hlutverk hjúkrunarfræðinganna í gegnum reynslu þeirra og draga fram þá þætti sem eru mikilvægir og hjálplegir fyrir hjúkrunarfræðinga við slíkar aðstæður. Eftirfarandi rannsóknarspurning var sett fram: Hvernig sjá hjúkrunarfræðingar hlutverk sitt þegar dregið er úr meðferð sjúklings?

AÐFERÐ

Rannsóknarsnið Eigindleg rannsóknaraðferð var valin. Aðferðin var talin henta vel þessari rannsókn þar sem markmiðið var að auka þekkingu og dýpka skilning á viðfangsefninu fremur en að alhæfa um niðurstöðuna (Helga Jónsdóttir, 2016). Notast var við rýnihópa sem aðferð (Sóley S. Bender, 2016) og gögnin voru fengin frá samræðum í hópnum, en með þessari aðferð var leitast við að draga fram reynslu hjúkrunarfræðinga af því að hjúkra sjúklingum við lok lífs á gjörgæslu. Með rýnihópum var skoðunum, reynslu og þekkingu um efnið safnað saman svo hægt væri að greina sameiginlegt mynstur um reynslu þátttakenda (Holloway og Galvin, 2017).

Þátttakendur

Á Íslandi eru þrjár gjörgæsludeildir; á Landspítala í Fossvogi, Landspítala við Hringbraut og Sjúkrahúsinu á Akureyri. Hjúkrunarfræðingar sem starfa á gjörgæsludeildum taka að sér hjúkrun mikið veikra sjúklinga og þurfa því að vera með víðtæka þekkingu og búa yfir hæfni í mannlegum samskiptum. Tilgangsúrtak (e. purposive sampling) var notað þar sem þátttakendur sem taldir voru uppfylla þau skilyrði voru valdir. Skilyrði fyrir þátttöku má sjá í töflu 1. Rannsakandi kynnti rannsóknina fyrir deildarstjórum gjörgæsludeildanna þriggja og bað þá um að finna hjúkrunarfræðinga sem uppfylltu skilyrðin og kynna þeim rannsóknina í tölvupósti. Áttatíu og fjórir hjúkrunarfræðingar uppfylltu skilyrðin en aðeins þeir hjúkrunarfræðingar sem höfðu áhuga á þátttöku höfðu samband við rannsakanda með tölvupósti. Alls voru 17 hjúkrunarfræðingar tilbúnir að taka þátt í rannsókninni og voru 4–7 í hverjum rýnihóp, sem telst æskileg stærð (Doody o.fl., 2013). Þátttakendur skrifuðu undir upplýst samþykki við komu í viðtalið.

Tafla 1. Inntökuskilyrði þátttakenda rannsóknarinnar

Inntökuskilyrði

- Starfandi á gjörgæsludeildum á Íslandi

- Hafa meira en þriggja ára starfsreynslu á gjörgæsludeild

- Tala og skrifa íslensku

Framkvæmd

Alls voru tekin þrjú rýnihópaviðtöl í fráteknum herbergjum á vinnustað hjúkrunarfræðinganna frá apríl til maí 2021. Viðtölin voru framkvæmd af tveimur aðilum, einum stjórnanda og einum aðstoðarmanni, og tók hvert viðtal um það bil eina klukkustund. Viðtölin voru tekin upp og þau síðan skráð. Fyrsti höfundur, sem er aðalrannsakandi, undirbjó öll viðtölin sjálfur og tók þau á gjörgæsludeild við Hringbraut og á gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri. Þar sem hann starfar á gjörgæsludeild í Fossvogi voru leiðbeinandi og annar hjúkrunarfræðingur með þekkingu og reynslu af viðtölum fengnir til að taka viðtalið þar og var sá hjúkrunarfræðingur einnig með rannsakanda í hinum viðtölunum. Viðtölin voru að mestu óstöðluð eða hálfstöðluð. Opnar spurningar voru notaðar til að fá flæði í umræðuna og hálfopnar spurningar mótaðar að vissu leyti að þeim þáttum sem hafa komið fram í fyrri rannsóknum. Viðtalsrammi var hafður til hliðsjónar (sjá töflu 2). Þátttakendum var bent á að ræða saman sín á milli frekar en beint við rannsakanda og beðnir um að tjá sig ekki annars staðar um efnið sem rætt var í hópnum.

Tafla 2. Viðtalsrammi rannsóknarinnar

1. Hver er reynsla ykkar af því þegar dregið er úr meðferð hjá sjúklingi á gjörgæsludeild? Þátttakandur beðnir um að segja frá dæmi úr starfinu.

2. Hvernig voru aðstæður/starfsandi/tími við þessar aðstæður?

3. Hver er upplifun ykkar í að vinna með fjölskyldu sjúklings við að átta sig á því þegar meðferð sjúklings er ekki að bera árangur?

4. Hvenær finnst ykkur vera réttast að þau umskipti eigi sér stað að breyta læknandi meðferð yfir í lífslokameðferð?

5. Hvað teljið þið vera ykkar hlutverk/ykkar ábyrgð, þegar ákvörðun er tekin um að draga úr meðferð sjúklings, eða hvernig mynduð þið vilja hafa það hlutverk?

6. Hvað var það sem gerði hlutina góða, getið þið nefnt dæmi um það þegar allt smellur? Hvernig voru aðstæður þá?

7. Hvað var það sem gerði hlutina slæma, getið þið nefnt dæmi um það? Hvernig voru aðstæður þá?

8. Er eitthvað sem þið viljið koma á framfæri sem mætti gera betur þegar dregið er úr meðferð?

Þátttakendur eru hvattir til að lýsa nánar og útskýra þegar það á við

Gagnagreining

Við túlkun á textanum í þessari rannsókn var ákjósanlegt að beita aðferðum innihaldsgreiningar (e. content analysis), það er að segja aðleiðslu og þemagreiningu samkvæmt Elo og Kyngäs (2008) sem fer fram í þremur stigum. Á undirbúningsstigi áttuðu rannsakendur sig á gögnunum og flokkuðu og merktu hugmyndir að kóðun. Á skipulagsstigi voru gögnin síðan flokkuð saman í kóða og innihald þeirra túlkað í þemu eða flokka. Gerður var listi yfir hugmyndir sem voru áhugaverðar og textinn var kóðaður/flokkaður í orð eða stuttar setningar sem lýstu þeim hluta gagnanna sem best. Að lokum er tilkynningarstig en þá var frásögn skrifuð um hvert þema til að sýna hvað væri áhugavert við þau og hvers vegna. Rannsakendur lásu öll gögnin og unnu að greiningunni þar til samkomulag náðist um þemu.

Siðfræðilegir þættir rannsóknar

Samþykki fyrir þessari rannsókn var fengið frá siðanefnd stjórnsýslurannsókna á Landspítala (1/2021), framkvæmdastjóra aðgerðasviðs Landspítala og framkvæmdastjóra hjúkrunar og lækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk). Rannsóknin var einnig tilkynnt Persónuvernd. Allir þátttakendur fengu bréf um rannsóknina áður en viðtölin hófust sem útskýrði tilgang hennar, í hverju þátttakan fælist, tímalengd viðtalsins og rétt þátttakenda. Við úrvinnslu rannsóknargagna var þess vandlega gætt að ekki væri hægt að persónugreina þátttakendur. Rannsakandi upplýsti þátttakendur um það í upphafi rannsóknar að þetta gæti mögulega verið erfið reynsla. Ef þeir þyrftu á aðstoð að halda ættu þeir kost á einu viðtali við fagaðila og fengu þeir netfang hans.

NIÐURSTÖÐUR

Greind voru þrjú þemu en þau eru: Að reyna að gera þessa stund bærilega, að sjúklingur fái að deyja með reisn. Sem hjúkrunarfræðingur að vera mitt á milli og reyna að dansa, vera á þeim stað sem hver og einn er og það þarf víkingarsveitahjúkrunarfræðing. Yfirlit um helstu niðurstöður og hvernig þær voru kóðaðar er að sjá í töflu 3.

„Að reyna að gera þessa stund bærilega, að sjúklingur fái að deyja með reisn“

Í frásögnum hjúkrunarfræðinga kom skýrt fram hvernig þeir sjá hlutverk sitt að því leyti að mikill vilji var fyrir því að gera sitt besta

til að stuðla að góðum lífslokum. Þegar dregið er úr meðferð eða lífslokameðferð hafin töluðu hjúkrunarfræðingarnir um mikilvægi þess að gefa sér tíma og eitt veigamesta hlutverkið væri að hafa yfirsýnina:

En hlutverk manna í þessum aðstæðum finnst mér eiginlega vera mikilvægast, að sjá til þess að þetta kerfi gangi sem best fyrir sig, það má segja sem svo, að styðja við sjúklinginn og gera þessa umgjörð ekki eins hræðilega í minningunni fyrir aðstandendur... (hj.fr. 3)

Tafla 3.

Að reyna að gera þessa stund bærilega, að

Reyna að gera allt til að þetta gangi vel fyrir sig Málsvari sjúklings og aðstandenda

Undirbúningur að lífslokum

Vilja klára Að stuðla að góðum lífslokum

Einhverskonar sátt, vera í sama liði og fjölskyldan Uppfylla óskir sjúklings Virðing fyrir þessum stundum og gefa sér tíma Kerti í alrými

Afar mikilvægt að halda fólki vel upplýstu Endurtaka og útskýra betur Gefa fólki tíma til að meðtaka

Að skapa tíma og rými

Mikilvægi upplýsinga til fjölskyldu

Sem hjúkrunarfræðingur að vera mitt á milli og reyna að dansa, vera á þeim stað sem hver og einn er

Að horfa upp á þjáninguna Það er verst, togstreita/vanlíðan þegar meðferð dregst á langinn

Slökkva, trappa niður hægt/hratt Meginhugmyndin að draga úr meðferð þannig að sjúklingur þjáist ekki

Einkennið andnauð Hvað á að kalla þetta ferli?

Samskipti og samráð fagaðila, heildrænt mat/fundir Gildi og óskir sjúklings

Taka umræðuna fyrr

Samráð fagaðila er betra Óvissa um horfur

Að ná ekki að líkna Togstreita

Reyna að auðvelda og samræma samskipti milli fagaðila, fjölskyldu og sjúklings.

Erfitt að horfa upp á þjáninguna

Að dansa á línunni

Mikilvægi þverfaglegs samstarfs

Að vera mitt á milli

Það þarf víkingarsveitahjúkrunarfræðing

Sorgarviðbrögð (afneitun, reiði, óvenjuleg viðbrögð, sektarkennd, ósætti) Sálgæslan

Að átta sig á þörfum fjölskyldunnar Reynslumeiri hj.fr. takist á við flóknu tilfellin

Umræða um stuðning fyrir hjúkrunarfræðinga Klofningur milli samstarfsaðila Kulnun eða “moral distress“

Að mæta viðbrögðum aðstandenda

Að búa að reynslunni

Mikilvægt að fá stuðning

Þeim fannst þeir þannig þurfa að vera málsvari sjúklings í þeim skilningi að þeirra hlutverk væri að tryggja það að sjúklingur þyrfti ekki að þjást og gæti dáið með reisn: „Að sjúklingurinn fái að deyja með reisn, mér finnst það eitthvað svona sem ég vildi sjá meira, ekki sjá viðkomandi veslast upp, að deyja með reisn“ (hj.fr. 16).

Hjúkrunarfræðingunum þótti mikilvægt að upplifa að geta gert þessar stundir fallegar fyrir sjúklinginn og aðstandendur og sögðu frá nokkrum slíkum tilfellum. Þegar hjúkrunarfræðingarnir höfðu myndað tengsl við sjúkling og fjölskyldu hans í gegnum langa lífsbjargandi meðferð fannst þeim óþægilegt að geta ekki klárað, en mikill vilji var til þess að klára eða kveðja viðkomandi:

Greining gagna með kóðum sem mynda þemu
sjúklingur fái að deyja með reisn

Ég held líka að það séu rosalega margir sem taka sér tíma. Það eru vaktaskipti og maður hefur alveg séð það og vaktirnar fjúka, eru lengur, það er eins og það sé einhver vilji til að gera þetta vel. Hjá mjög mörgum. (hj.fr. 6)

Yfirleitt var gefinn tími og virðing borin fyrir þeim stundum þegar sjúklingur nálgast lífslok og hjúkrunarfræðingarnir í flestum tilvikum ekki látnir vera með önnur verkefni. Nærvera þeirra og stuðningur var mikilvægur svo fjölskyldan upplifði ekki óöryggi eða eins og einn hjúkrunarfræðingur orðaði það: „Reyna að gera þessa stund bærilega, jafnvel þægilega eins og heima hjá sér” (hj.fr. 14).

Þegar ástandi sjúklings fór hnignandi töldu hjúkrunarfræðingarnir mjög mikilvægt að halda góðu upplýsingaflæði til fjölskyldunnar. Hún væri oft í mikilli krísu og sumir ættu erfitt með að meðtaka upplýsingar og því væri afar mikilvægt að halda áfram að upplýsa og endurtaka það sem sagt hafði verið. Mikilvægt væri að nota einfalt orðfæri og að samskiptin væru á þann hátt að aðstandendur skildu meðferðina. Læknisfræðileg hugtök væru ekki alltaf skiljanleg og því þyrftu hjúkrunarfræðingar oft að útskýra betur við hvað væri átt. Stöðugt þyrfti að meta þörf á upplýsingum, svara spurningum af hreinskilni og gefa fjölskyldunni tíma til að meðtaka hvað raunverulega væri að fara að gerast og mæta þörfum og óskum þeirra af virðingu og alúð. Eftirfarandi frásögn lýsir þessu:

Stórt hlutverk fyrir okkur hjúkrunarfræðinga að taka að okkur, að vissulega er fundur og vissulega eru það læknar sem taka ákvörðun og leiða fundinn, en við þurfum svolítið að vera eftir og það er mín reynsla, að við höfum þurft að gera það til að útskýra af hverju. Fólk er oft í miklu sjokki og kannski ekki alveg búið að meðtaka allt, þannig að ég finn að ef við tökum okkur ekki tíma í það þá er erfiðara að vinna með fjölskyldunni. Það er svona. Ég myndi segja það. (hj.fr. 1)

Einn hjúkrunarfræðingur talaði um að það væri mikils virði að hafa notalegt aðstandendaherbergi þar sem fjölskyldan gæti haft sitt afdrep í ró og næði. Mikill erill væri oft á gjörgæsludeildum og minnst var á hvað það þætti gott þegar kveikt væri á kerti (rafmagnskerti) í alrými til að minna starfsfólk á hvað væri í gangi.

„Sem hjúkrunarfræðingur að vera mitt á milli og reyna að dansa, vera á þeim stað sem hver og einn er“

Tæknileg meðferð eins og veitt er á gjörgæsludeild getur verið flókin þegar kemur að því að draga úr læknandi meðferð. Hjúkrunarfræðingarnir upplifðu togstreitu og vanlíðan við hjúkrun sjúklingsins þegar meðferð var orðin íþyngjandi vegna tæknilegra og læknisfræðilegra úrræða. Meðferð sem dróst á langinn gat aukið eða lengt þjáningu sjúklingsins en þjáningar gátu verið af margvíslegum toga, bæði líkamlegar og andlegar. Ríkjandi umræða var um hversu erfitt væri þá að horfa upp á fólk. Hjúkrunarfræðingarnir töldu það mun erfiðara að vera þátttakendur í því þegar meðferð drægist á langinn heldur en við lífslokameðferð. Stundum upplifðu hjúkrunarfræðingarnir að erfitt væri fyrir þá að koma sínum sjónarmiðum á framfæri um að líknin ætti meira við, og sú meðferð sem væri í gangi væri í raun þjáning fyrir alla aðila, sjúklinginn, fjölskylduna og fagaðila:

Við vitum hvert stefnir en við segjum það ekki upphátt og þar af leiðandi þá treinist þetta, þá fær viðkomandi kannski ekki að deyja með þeirri reisn sem hann hefur rétt á, af því að hann veslast upp og hrörnar fyrir framan og allt verður mikið

erfiðara, ekki bara fyrir einstaklinginn sjálfan, jafnvel þjáist, heldur líka aðstandendur sem klára sig algerlega og eru búnir á því og við erum búin að sjá þetta fyrir svona 5−10 dögum síðan hvað er að gerast. (hj.fr. 15)

Hjúkrunarfræðingarnir voru oft í þeirri stöðu að greina frá versnandi ástandi sjúklings eða fá viðurkenningu á þeim skilningi að sjúklingur væri kominn nálægt lífslokum. Hlutverk þeirra var síðan að halda áfram að finna leiðir til að læknar og fjölskyldan gætu áttað sig á aðstæðum þar til samstaða næðist. Hjúkrunarfræðingarnir kölluðu þetta hlutverk sitt mismunandi nöfnum, einn lýsti þessu sem hálfkáki, annar sem miðjumoði og nokkrir nefndu þetta sem dans eða að vera mitt á milli: „... við erum ekki að sjá sama sjónarhornið, mér finnst það mjög erfitt. Sem hjúkrunarfræðingur að vera mitt á milli og reyna að dansa, vera á þeim stað sem hver og einn er, læknir, sjúklingur, aðstandandi“ (hj.fr. 16).

Þegar umræðan snérist um hlutverk og ábyrgð hjúkrunarfræðinga þegar ákvörðun væri tekin um að draga úr meðferð sjúklings töldu hjúkrunarfræðingarnir þörf á auknu þverfaglegu samstarfi eða fundum til að ræða heildrænt mat á ástandi sjúklings. Lýstu þeir eindregið vilja sínum til að vera þátttakendur á slíkum fundum en margir fagaðilar koma að meðferð sjúklings. Einkum var átt við að læknar og hjúkrunarfræðingar væru samstíga og viðhefðu samræmd vinnubrögð og þar af leiðandi sömu markmið í þjónustu við sjúklinginn. Með slíku samstarfi væri hægt að standa betur að undirbúningi um hvernig eigi að haga framhaldi meðferðar:

Ég var á ráðstefnu fyrir nokkrum árum ... þá komum við svona saman læknar og hjúkrunarfræðingar og haldinn þverfaglegur fundur ... þá koma allir með sitt input inn í aðstæður, erum við að gera gagn? Erum við að gera ógagn? Hvað ætlum við að ræða á þessum fundi? Það eru allir samstíga áður en þeir hitta ættingja. Það þarf að undirbúa þetta miklu betur. Bara svo miklu betur með því að koma betur undirbúinn á fundi ... hvað er fram undan skilurðu. (hj.fr. 11).

Formlegir þverfaglegir fundir um markmið meðferðar voru almennt ekki til staðar á gjörgæsludeildunum og var því mismunandi hvort hjúkrunarfræðingarnir töldu sig hafa vægi í þeirri ákvarðanatöku eða ekki. Ólíkt mat hjúkrunarfræðinga og lækna á ástandi sjúklings um meðferðarmöguleika var til staðar, einkum þegar hjúkrunarfræðingar töldu ákvörðun um meðferðartakmarkanir vera teknar seint. Sein ákvarðanataka eða frestun á henni kom skýrt fram sem álag eða neikvæð upplifun en sumir höfðu orð á því að það hefði þó lagast í gegnum tíðina. Hjúkrunarfræðingarnir töldu mjög mikilvægt hlutverk að vera einhvers konar milliliður milli fjölskyldu og lækna. Í þessu samhengi komu umræður um lífsgildi og óskir sjúklingsins. Sjúklingarnir sjálfir voru sjaldan færir um að tjá sig um meðferðarmöguleika og stundum var sú vitneskja hreinlega ekki fyrir hendi: „Mér finnst það svona tilefni til að taka umræðuna fyrr, þetta hvað er það sem sjúklingurinn myndi vilja? Eða það er oft eitthvað sem aðstandendur vita, hver vilji einstaklingsins er, vera svolítið meðvituð um það að ekki vera að halda einhverju áfram sem vinnur á móti óskum hans!“ (hj.fr. 4).

Eftir að ákvörðun hafði verið tekin um að afturkalla lífsbjargandi meðferð kom skýrt fram hjá mörgum þátttakendum að óljóst væri hvaða aðferðum væri beitt. Mismunandi aðferðum var beitt, til dæmis við að venja úr öndunarvél eða lækka dreypi með

æðaherpandi lyfjum, eftir því hvaða læknir var á vakt og stundum var aðferðunum breytt þegar aðrir læknar tóku við. Einn hjúkrunarfræðingur orðaði þetta svona:

... maður þarf svolítið að setja sig í stellingar, já, ókei, nú er ég að draga úr meðferð hjá þessum lækni og ég veit hvernig hann eða hún vill gera þetta og þá fer maður í það hlutverk, og svo eru kannski aðrir sem maður er ekki alltaf sammála um hvernig þeir vilja gera hlutina og það finnst mér mjög erfitt (hj.fr. 1).

Íhlutir í öndunarfærum gátu verið vandamál þegar fólk var komið á þennan stað. Þátttakendum fannst það vera sitt hlutverk að tryggja að sjúklingi liði eins vel og kostur væri og stundum var vandasamt að tryggja góða einkennameðferð, sérstaklega þegar sjúklingar voru háðir öndunarvélum eða miklu súrefni. Einkennið andnauð gat verið erfitt að meðhöndla eins og kom fram í samræðum tveggja hjúkrunarfræðinga:

En mitt hlutverk sem hjúkrunarfræðingur er einmitt að hugsa um að sjúklingi líði vel og það sé ekki bara slökkt á öllu og að viðkomandi fái köfnunartilfinningu og þú veist, skilurðu, að honum líði vel ... Það er bara svona pínu ótti í mér, ég get ekki hugsað mér að einhver upplifi það að hann sé ekki að fá súrefni (hj.fr. 14).

Það er eins og fólk sem er í bipap [ytri öndunarvél], þá heldur maður kannski áfram með bipap meðferðina ... (hj.fr. 17).

Þátttakendur töluðu um að þörf væri á verklagsreglum til að hafa til hliðsjónar um hvernig ætti að draga úr meðferð: „... maður er að dansa eftir einhverri línu og eftir aðstæðum hverju sinni af því að það eru enginn protokoll, enginn guideline ...” (hj.fr. 14).

„Það þarf víkingarsveitarhjúkrunarfræðing“

Þemað að það þurfi víkingarsveitarhjúkrunarfræðing vísar til þess að hjúkrunarfræðingarnir sem tóku þátt voru allir með mikla starfsreynslu og í frásögnum þeirra mátti túlka almennt gott sjálfstraust þeirra í hjúkrun sjúklinga við þessar aðstæður. Það sem kom þó upp í samræðum og var þeim eftirminnilegt var það sem þeim fannst vera erfitt. Eitt af því var að hjálpa aðstandendum sem bregðast til dæmis við með mikilli reiði, afneitun eða ósætti í fjölskyldu, eða jafnvel ósætti við fagaðila:

En svo er þegar þetta fer illa, þá finnst mér eins og ... þegar reiði er í ættingjum. Það finnst mér erfitt, að tækla það. Það fer allt eftir því hvernig fólk er reitt og öskrandi og leggst í gólfið... ég held að öllum fallist hendur, ég held að það séu aðstæður sem maður upplifir ef þetta fer illa, fer ekki vel ... Ósætti ... (hj.fr. 13). Þegar andlát bar brátt að, svo sem eftir slys eða sjálfsvíg, eða þegar aðdragandi andláts var stuttur gátu viðbrögð og tjáning tilfinninga verið mjög mikil eða jafnvel ofsafengin. Hjúkrunarfræðingar upplifðu sig vanmáttuga í að styðja aðstandendur í svona ástandi, þrátt fyrir að hafa starfað lengi á gjörgæsludeild. Engu að síður töldu þeir að með aukinni starfsreynslu öðluðust hjúkrunarfræðingar meiri færni í að takast á við verkefnið eins og til dæmis það að eiga samskipti við fjölskylduna og það að hafa eins konar næmi fyrir þörfum þeirra. Einn þátttakandi hafði þetta að segja um reynslu hjúkrunarfræðinga:

Ég var ekki búinn að vinna nema í nokkrar vikur þegar ég lenti í mínu fyrsta tilfelli á gjörgæslunni, mér finnst það, og eftir á að hyggja, þá var ég ekki tilbúinn í það, það þarf víkingarsveitahjúkrunarfræðing, mitt mat, Það er eitthvað

sem þarf að skoða betur. Það eru svo ótrúlega margir hlutir sem hægt er að læra og lesa. Það er svo mikil reynsla og tilfinningagreind og það held ég að séu hlutir sem þarf að vera með í. Ekki alltaf. (hj.fr. 6).

Í samræðum um stuðning fyrir hjúkrunarfræðinga voru nokkrir þátttakendur sem töldu sig fá stuðning hver frá öðrum og sérstaklega frá þeim sem höfðu verið í sömu aðstæðum og þeir sjálfir. Ágreiningur á milli samstarfsaðila um meðferðarmarkmið gæti komið upp og í þeim tilvikum væri þörf á stuðningi. Það sem kom einatt fyrir var að hjúkrunarfræðingarnir upplifðu gremju og vanlíðan af einhverjum toga í tengslum við það ef þeim gekk illa að ná að líkna, þegar þeim fannst þeir þurfa að beita aðferðum eða meðferð sem þeir töldu ekki vera rétta. Þetta mátti lesa úr samræðum tveggja þátttakenda sem sögðu:

Þessi hjúkrun, þetta er bara of erfitt og maður vill alveg ná að verða sextugur og halda heilsu, í alvöru, ég er alveg farin að hugsa það (hlátur)... Það er svona kannski einn af þessum steinum í stígnum sem verða stundum bara alveg óyfirstíganlegir. Sérstaklega þegar þeir verða margir. (hj.fr. 14).

Þetta er eitt það erfiðasta, finnst mér, í starfinu þegar maður er að veita meðferð sem maður er ekki sáttur við... Það er ofsalega erfitt og það er kannski eitt af því sem gerir það að verkum, ég veit það ekki, margir skipta um stað, fara annað. (hj.fr. 15).

Þegar þátttakendur lýstu aðstæðum þegar vel gekk á milli samstarfsaðila voru nokkur atriði sem komu upp: Gagnkvæm virðing og traust, stuðningur hvert frá öðru og virðing fyrir lífslokameðferð á deildinni.

UMRÆÐUR

Niðurstöður þessarar rannsóknar sýndu að mikill vilji var hjá hjúkrunarfræðingum fyrir því að stuðla að góðum lífslokum. Það að bera umhyggju fyrir skjólstæðingnum og vera málsvari hans og fjölskyldu eru bæði faglegar og siðferðilegar skyldur hjúkrunarfræðinga og í samræmi við siðareglur stéttarinnar um að tryggja réttindi og öryggi skjólstæðinga sem eru í umsjá þeirra (Siðareglur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, e.d. 2015). Fram kom hjá flestum hjúkrunarfræðingunum að yfirleitt gengi ferlið vel og voru dæmi tekin um það. Allir höfðu þó upplifað óþægilega reynslu í tengslum við lífslok, en það samræmist mörgum öðrum rannsóknum um efnið. Það var einkum í þeim aðstæðum þegar meðferð var orðin íþyngjandi fyrir sjúkling (Efstathiou og Walker, 2014; Long-Sutehall o.fl., 2011; Taylor o.fl., 2020) eða þegar þeir upplifðu óþægindi þar sem ágreiningur kom upp innan fjölskyldu eða milli samstarfsfélaga (Gallagher o.fl., 2015: Vanderspank-Wright o.fl., 2018). Einkaherbergi virtist vera til staðar á öllum þremur deildunum og svigrúm fyrir aðstandendur til að geta verið til staðar að vild, en margar rannsóknir hafa lýst því hvernig hjúkrunarfræðingar fást við ýmsa örðugleika við að búa til friðsælt umhverfi fyrir þetta ferli (Efstathiou og Walker, 2014; Gallagher o.fl., 2015; Taylor o.fl., 2020).

Þegar meðferðin sem veitt var krafðist þess að sjúklingur væri í öndunarvél og dragist á langinn sögðu hjúkrunarfræðingarnir að erfitt væri að horfa upp á miklar þjáningar sjúklings og í raun þjáningu fyrir alla aðila. Það væri verst. Bent hefur verið á að tímabilið í aðdraganda ákvörðunar um lífslokameðferð virðist skapa mestu togstreituna hjá hjúkrunarfræðingum (Efstathiou og Walker, 2014). Þegar hjúkrunarfræðingarnir skynjuðu að ástand

sjúklingsins fór versnandi og svörun við meðferð minnkaði fóru þeir að afla samþykkis og samstöðu allra viðeigandi aðila um nauðsyn þess að takmarka lífsbjargandi meðferð og að lífslokameðferð ætti meira við. Þetta hlutverk var áberandi hjá hjúkrunarfræðingunum. Þeir töldu sig bera ábyrgð á því að sjúklingi líði sem best og að tryggja honum virðulegan dauðdaga. Enn fremur töldu þeir sig þurfa að samræma og auðvelda samskipti milli sjúklings, fjölskyldu og lækna, sem og að styðja við ákvarðanatöku og fylgja fjölskyldum tilfinningalega á meðan ferlinu stæði. Þetta hlutverk krefst mikillar tilfinningalegrar vinnu af hálfu hjúkrunarfræðinganna, sérstaklega þegar um er að ræða ólík sjónarmið á milli þessara aðila. Í rannsókninni kölluðu hjúkrunarfræðingarnir þetta hlutverk sitt ýmsum nöfnum, eins og „að vera mitt á milli.“ Hins vegar var því lýst sem ánægjulegu hlutverki þegar þeim gekk vel að samræma sjónarmið þessara aðila. Það vakti athygli að hægt er að heimfæra þetta hlutverk á hjúkrunarfræðingana við tvær aðrar eigindlegar rannsóknir. Í rannsókn Gallagher o.fl. (2015) var aðalhlutverk hjúkrunarfræðinganna að samræma meðferðarferlið (e. negotiated reorienting) sem fól í sér að samþætta samskipti milli fjölskyldu, sjúklings og lækna við þau umskipti að breyta læknandi meðferð í lífslokameðferð. Í rannsókn Long-Sutehall o.fl. (2011) var útbúið líkan fyrir það hvernig hjúkrunarfræðingar framkvæma ferlið. Líkanið innihélt einn aðalflokk: Að samræma meðferðarferlið við lok lífs (e. the process of negotiated dying). Báðar rannsóknirnar nota hugtakið „negotiated“ sem í þessari grein er þýtt sem „að samræma“. Benda þessir sömu höfundar á að þetta hlutverk sé flokkað sem lykilþáttur í gæðum umönnunar og sem eitt af mest krefjandi og erfiðustu störfum sem hjúkrunarfræðingar á þessum deildum sinna (Gallagher o.fl., 2015; Long-Sutehall o.fl., 2011).

Mismunandi gat verið hvaða aðferðum var beitt við að afturkalla lífsbjargandi meðferð, sem gat skapað flækjustig fyrir hjúkrunarfræðingana. Einn þeirra orðaði þetta sem „að dansa eftir einhverri línu og eftir aðstæðum“. Við þessar kringumstæður töluðu hjúkrunarfræðingarnir um þörf á vinnuleiðbeiningum til að tryggja samræmi í ferlinu og hugsanlega til að koma í veg fyrir tvíræðni. Sambærilegar niðurstöður komu fram í fræðilegri samantekt Vanderspank o.fl. (2018) þar sem var skortur á skýrum leiðbeiningum, annaðhvort frá læknum eða vegna þess að ekki liggja fyrir leiðbeiningar. Hjúkrunarfræðingarnar í þessari rannsókn nefndu sérstaklega erfiðleika við meðhöndlun á andnauð þegar sjúklingar væru háðir öndunarvél. Skiptar skoðanir eru á því hvort eigi að fjarlægja öndunarvél og/eða barkarennu við lok lífs en andnauð getur komið fram ef sjúklingar eru teknir snögglega úr vél, sem reynist erfitt að meðhöndla (Truog o.fl., 2008).

Hjúkrunarfræðingarnir tóku skýrt fram að þeir vildu ekki að sjúklingarnir þyrftu að fara í gegnum íþyngjandi meðferðir. Töldu þeir það mjög mikilvægt að búið væri að taka umræðuna um meðferðartakmarkanir meðan svigrúm væri til þess á þeim stofnunum eða deildum sem viðkomandi sjúklingar kæmu frá til að koma í veg fyrir að þeir þyrftu að fara í gegnum erfiða gjörgæslumeðferð. Hjúkrunarfræðingar eru í einstakri stöðu vegna nándar þeirra við sjúklinginn en rannsóknir hafa sýnt að fáir hjúkrunarfræðingar á gjörgæslu eiga samtal við fjölskyldu um batahorfur eða markmið umönnunar, en telja engu að síður þátttöku sína í slíkum samtölum vera mikilvæga (Anderson o.fl., 2016; Wolf o.fl., 2019). Tíðir fundir og greiður aðgangur að samtali við heilbrigðisstarfsfólk leiða til kerfisbundins endurmats á því hvort meðferðaráætlunin nái markmiðum sínum. Það auðveldar

ákvörðunarferlið þegar fjölskyldan og meðferðaraðilar hafa kynnst og hlutdeild allra orðin skýr ef gera þarf breytingu á markmiðum meðferðar (Aslakson o.fl., 2014; Mercadante o.fl., 2018).

Hjúkrunarfræðingarnir í þessari rannsókn voru almennt öruggir og færir í samskiptum við aðstandendur. Aftur á móti fannst þeim það óþægileg reynsla þegar viðbrögð aðstandenda voru ásakandi eða ógnandi, hugsanlega í vanmætti þeirra og sorg. Í þeim tilfellum reyndi á hjúkrunarfræðingana að bregðast skjótt við út frá þekkingu sinni til að takast á við aðstæðurnar. Samskipti við aðstandendur deyjandi sjúklinga geta verið flókin og krefjandi. Í því samhengi hafa fáar rannsóknir beint sjónum sínum að því að huga þurfi sérstaklega að því að auka við þekkingu starfsfólks þegar erfiðar aðstæður koma upp í samskiptum við aðstandendur á gjörgæsludeild. Almennt er lítið um fræðslu um líknar- og lífslokameðferð á gjörgæsludeildum, en mælt er með fræðslu og þjálfun fyrir starfsfólk og árangursríkast er þegar heilbrigðisstarfsfólk telur sig hæft og í stakk búið til að veita góða lífslokameðferð þegar sjúklingur nálgast lífslok til jafns við lífsbjargandi meðferðir (Rhoads og Amass, 2019).

STYRKLEIKAR OG TAKMARKANIR RANNSÓKNARINNAR

Sautján þátttakendur af heildarfjölda hjúkrunarfræðinga með þessa reynslu voru tilbúnir til þess að taka þátt í rannsókninni. Úrtaksstærðin verður að teljast ásættanleg vegna þess að þegar þemu komu fram var ljóst að niðurstöður voru í samræmi við niðurstöður sambærilegra rannsókna. Reynsla og menntun þátttakenda var talsverð, sem er einn af styrkleikum rannsóknarinnar, en hins vegar takmarkast yfirfæranleiki þeirra við að þær gilda ekki fyrir alla hjúkrunarfræðinga sem starfa á gjörgæsludeildunum, svo sem erlenda hjúkrunarfræðinga og hjúkrunarfræðinga með lægri starfsaldur. Vandað var til vinnubragða við undirbúning viðtalanna, í samræðunum sjálfum þar sem eigindlegu gögnin urðu til og við gagnagreininguna. Réttmæti var styrkt með „triangluation“ þar sem fleiri en einn rannsakandi framkvæmdu gagnasöfnun. Takmörkun rannsóknarinnar er til dæmis reynsluleysi aðalrannsakanda í rannsóknarvinnu og viðtalstækni, sem e.t.v. getur haft áhrif á rannsóknarniðurstöður. Takmarkanir rýnihópa einskorðast mikið við það hvernig viðtalið tekst til (Holloway og Galvin, 2017). Á hinn bóginn hefur aðalrannsakandi starfað lengi á gjörgæsludeild í Fossvogi og hefur talsverða innsýn í efnið. Við gagnagreiningu komu aðalrannsakandi og leiðbeinandi að kóðun og flokkun.

ÁLYKTANIR

Mikilvægt hlutverk hjúkrunarfræðinganna var að samræma og auðvelda samskipti milli sjúklings, fjölskyldu og lækna, styðja við ákvarðanatöku og sinna fjölskyldum tilfinningalega á meðan ferlinu stendur. Niðurstöður sýndu að hjúkrunarfræðingar upplifa hjúkrun sjúklings við lok lífs á jákvæðan hátt þegar þeir ná að samræma meðferðarferlið og stuðla að góðum lífslokum fyrir hann og fjölskyldu hans. Gott skipulag, góð samskipti, einkennastjórnun og það að skapa friðsælt umhverfi voru álitnir mikilvægir þættir til að ná fram góðum lífslokum. Það er flókið ferli að afturkalla lífsbjargandi meðferð á gjörgæslu og krefst góðrar samhæfingar og samskipta á milli hjúkrunarfræðinga, lækna og fjölskyldu sjúklings

ENGLISH SUMMARY

Palliation should have more weight at the end of life. The role and experience of nurses in intensive care unit.

doi: 10.33112/th.102.1.4

Þorarinsdottir, K., Gunnarsdottir, Þ.J.

ABSTRACT

Bakcground

An intensive care unit treats patients with serious, often life-threatening illnesses, who often require specialized treatment. Although the main objective is to save the patients’ life, this is not always possible, and in such cases a more palliative approach is initiated. In a high-tech environment such as an intensive care unit, the transition from curing to providing end-of-life care is a complicated process.

Purpose

The purpose of this study is to understand the role and experience of nurses at an intensive care unit in nursing adult patients and their families in end-of-life care. The goal is to shed light on the role of nurses through their experience and to highlight the important and helpful elements for nurses in such circumstances.

Method

A qualitative study was undertaken, with focus group interviews with seventeen nurses from all three intensive care units in Iceland. Content analysis was used to analyse the data.

Results

Data analysis revealed three themes reflecting participants experiences of caring for patients at the end-of-life in an intensive care unit. The themes were: To make this moment as bearable as possible, the patient is allowed to die with dignity; As a nurse to be in the middle and try to dance according to all tunes; and It takes a special force nurse. Results showed that nurses try to contribute to care and comfort at the end-of-life for the patient and the family in a complex high-tech environment. Although the process was usually successful, nurses could experience conflict and distress in caring for the patient when the treatment had become a burden

for him. An important role of nurses was to coordinate and facilitate communication between the patient, the patient’s family, and doctors, to support decision-making and provide emotional support to families during the process.

Conclusions

The quality of end-of-life care can be increased by supporting nurses with education and strengthening collaboration between professionals regarding decisions about treatment objectives. To ensure conformity in the treatment process, it is important to develop guidelines regarding withdrawal of life-sustaining treatment.

Keywords

Intensive care unit, nursing, experience, role, qualitative research, palliative care, end-of-life care, withdrawal of treatment

Correspondent

krith@landspitali.is

HEIMILDASKRÁ

Anderson, W. G., Puntillo, K., Boyle, D., Barbour, S., Turner, K., Cimino, J., Moore, E., Noort, J., MacMillan, J., Pearson, D., Grywalski, M., Liao, S., Ferrell, B., Meyer, J., O'Neil-Page, E., Cain, J., Herman, H., Mitchell, W. og Pantilat, S. (2016). ICU bedside nurses' involvement in palliative care communication: A multicenter survey. Journal of Pain and Symptom Management, 51(3), 589−596. https://doi.org/10.1016/j.jpainsymman.2015.11.003

Anna Halla Birgisdóttir og Þóra Jenný Gunnarsdóttir. (2024). Áhrif hjúkrunar á gæði lífslokameðferðar á gjörgæsludeildum: Samþætt fræðileg samantekt. Tímarit hjúkrunarfræðinga, 100(3), 64-75. Doi: 10.33112/th.100.3.2

Aslakson, R. A., Curtis, J. R. og Nelson, J. E. (2014). The changing role of palliative care in the ICU. Critical Care Medicine, 42(11), 2418–2428. https://doi.org/10.1097/CCM.0000000000000573

Bandrauk, N., Downar, J. og Paunovic, B. (2018). Withholding and withdrawing life-sustaining treatment: The Canadian Critical Care Society position paper. Canadian Journal of Anesthesia/Journal Canadien D'anesthésie, 65(1), 105−122. https://doi.org/10.1007/s12630-017-1002-1

Bergþóra Stefánsdóttir. (2014). Sérhæfð lífslokameðferð á bráðalegudeildum: Viðhorf og reynsla hjúkrunarfræðinga (meistararitgerð). Skemman. http://hdl.handle.net/1946/18586

Doody, O., Slevin, E. og Taggart, L. (2013). Focus group interviews in nursing research: Part 1. British Journal of Nursing, 22(1), 16−19. https://doi.org/10.12968/bjon.2013.22.1.16

Downar, J., Delaney, J. W., Hawryluck, L. og Kenny, L. (2016). Guidelines for the withdrawal of life-sustaining measures. Intensive Care Medicine, 42(6), 1003−1017. https://doi.org/10.1007/s00134-016-4330-7

Efstathiou, N. og Walker, W. (2014). Intensive care nurses' experiences of providing end-of-life care after treatment withdrawal: A qualitative study. Journal of Clinical Nursing, 23(21–22), 3188–3196. https://doi.org/10.1111/jocn.12565

Elo, S. og Kyngäs, H. (2008). The qualitative content analysis process. Journal of Advanced Nursing, 62(1), 107−115. https//doi:10.1111/j.1365-2648.2007.04569.x

Gallagher, A., Bousso, R. S., McCarthy, J., Kohlen, H., Andrews, T., Paganini, M. C., Abu-El-Noor, N. I., Cox, A., Haas M., Arber A., Abu-El-Noor M. K., Baliza M. F. og Padilha K. G. (2015). Negotiated reorienting: A grounded theory of nurses’ end-of-life decision-making in the intensive care unit. International Journal of Nursing Studies, 52(4), 794–803. https://doi.org/10.1016/j.ijnurstu.2014.12.003

Guðrún Jónsdóttir og Helga Jónsdóttir. (2016). Líknarmeðferð fyrir sjúklinga með langvinna lungnateppu: Að vera samstíga. Tímarit hjúkrunarfræðinga, 92(2), 12–20. Helga Jónsdóttir. (2016). Viðtöl í eigindlegum og megindlegum rannsóknum. Í Sigríður Halldórsdóttir (ritstj.), Handbók í aðferðafræði rannsókna (bls. 137–153). Háskólinn á Akureyri.

Holloway. I. og Galvin, K. (2017). Qualitative research in nursing and healthcare (4. útgáfa). John Wiley and Sons.

Ito, K., George, N., Wilson, J., Bowman, J., Aaronson, E. og Ouchi, K. (2022). Primary palliative care recommendations for critical care clinicians. Journal of Intensive Care, 10(1), 1-8. https://doi.org/10.1186/s40560-022-00612-9

Jensen, H. I., Halvorsen, K, Jerpseth, H., Fridh I. og Lind, R. (2020) Practice recommendations for end-of-life care in the intensive care unit. Critical Care Nurse, 40(3),14–22. https://doi.org/10.4037/ccn2020834

Kirchhoff, K. T., Spuhler, V., Walker, L., Hutton, A., Cole, B. V. og Clemmer, T. (2000). Intensive care nurses' experiences with end-of-life care. American Journal of Critical Care, 9(1), 36−42. https://search.proquest.com/docview/227896501?accountid=135705

Kristinsdottir, E. A., Long, T. E., Sigvaldason, K., Karason, S., Sigurdsson, G. H. og Sigurdsson, M. I. (2020). Long-term survival after intensive care: A retrospective cohort study. Acta Anaesthesiologica Scandinavica, 64(1), 75−84. https://doi.org/10.1111/aas.13475

Landspítali (2017). Klínískar leiðbeiningar um líknarmeðferð. 2. útgáfa. https://assets.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3e3HYs3wtjUnKovViiLKXR/ 21e89835cfe953a6b405f00fead6286c/Liknarmedferd.pdf

Long-Sutehall, T., Willis, H., Palmer, R., Ugboma, D., Addington-Hall, J. og Coombs, M. (2011). Negotiated dying: A grounded theory of how nurses shape withdrawal of treatment in hospital critical care units. International Journal of Nursing Studies, 48(12), 1466−1474. https://doi.org/10.1016/j.ijnurstu.2011.06.003

Mark, N. M., Rayner, S. G., Lee, N. J. og Curtis, J. R. (2015). Global variability in withholding and withdrawal of life-sustaining treatment in the intensive care unit: a systematic review. Intensive Care Medicine, 41(9), 1572-1585. https://doi.org/10.1007/s00134-015-3810-5 Mercadante, S., Gregoretti, C. og Cortegiani, A. (2018). Palliative care in intensive care units: why, where, what, who, when, how. BMC Anesthesiology, 18(1), 1−6. https://doi.org/10.1186/s12871-018-0574-9

Pan, H., Shi, W., Zhou, Q., Chen, G. og Pan, P. (2023). Palliative care in the intensive care unit: not just end-of-life care. Intensive Care Research, 3(1), 77-82. https://doi.org/10.1007/s44231-022-00009-0

Rhoads, S. og Amass, T. (2019). Communication at the End-of-Life in the Intensive Care Unit: A Review of Evidence-Based Best Practices. Rhode Island Medical Journal, 102(10), 30−33. Siðareglur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. (e.d. 2015). https://www.hjukrun.is/fagid/sidareglur/ Sóley S. Bender. (2013). Samræður í rýnihópum. Í Sigríður Halldórsdóttir (ritstj.), Handbók í aðferðafræði rannsókna (bls. 299–312). Háskólinn á Akureyri.

Taylor, I. H. F., Dihle, A., Hofsø, K. og Steindal, S. A. (2020). Intensive care nurses’ experiences of withdrawal of life-sustaining treatments in intensive care patients: A qualitative study. Intensive and Critical Care Nursing, 56, 102768. https://doi.org/10.1016/j.iccn.2019.102768

Truog, R. D., Campbell, M. L., Curtis, J. R., Haas, C. E., Luce, J. M., Rubenfeld, G. D., Rushton, C. H., og Kaufman, D. C. (2008). Recommendations for end-of-life care in the intensive care unit: A consensus statement by the American College of Critical Care Medicine. Critical Care Medicine, 36(3), 953–963. https://doi.org/10.1097/CCM.0B013E3181659096 Vanderspank-Wright, B., Efstathiou, N. og Vandyk, A. D. (2018). Critical care nurses’ experiences of withdrawal of treatment: A systematic review of qualitative evidence. International Journal of Nursing Studies, 77, 15–26. https://doi.org/10.1016/j.ijnurstu.2017.09.012

Wolf, A. T., White, K. R., Epstein, E. G. og Enfield, K. B. (2019). Palliative Care and Moral Distress: An Institutional Survey of Critical Care Nurses. Critical Care Nurse, 39(5), 38−49. https://doi.org/10.4037/ccn2019645

Áhrif innleiðingar stafrænnar tækni á störf hjúkrunarfræðinga á hjúkrunarheimilum - Rafræn skráning lyfjagjafar og umönnunar.

doi: 10.33112/th.102.1.5

ÚTDRÁTTUR

Tilgangur

Skilvirk skráning sjúklingagagna og lyfjaöryggi skipta miklu máli á heilbrigðisstofnunum, þar sem verkefnin eru bæði flókin og tímafrek, á sama tíma og skortur er á starfsfólki. Rannsóknin skoðar innleiðingu og áhrif Iðunnar, smáforrits til skráningar á umönnun, og Lyfjavaka, smáforrits fyrir lyfjaskráningar, á hjúkrunarheimilum. Um er að ræða stafrænar heilbrigðistæknilausnir sem hannaðar eru til að straumlínulaga vinnuflæði og bæta gæði umönnunar. Markmið rannsóknarinnar var að kanna áhrif þessara smáforrita á vinnuferla starfsfólks og leggja mat á innleiðingarferlið sjálft.

Sérstök áhersla var lögð á að greina áhrif tækninnar á daglega skráningu, öryggi og vinnutíma, auk þess að bera kennsl á áskoranir sem nýst geta til að bæta innleiðingu stafrænnar heilbrigðistækni.

Aðferð

Gögnum var safnað með aðgerðarrannsókn (e. Action research) sem innihélt 17 viðtöl við lykilaðila (yfirmenn hjúkrunardeilda og hjúkrunarfræðinga) ásamt athugunarrannsókn (e. Observational study) sem innihélt 58 klukkustunda athugun.

Niðurstöður

Niðurstöðurnar benda til þess að Lyfjavaki hafi aukið upplifað öryggi í lyfjagjöf og stutt við lagalegar kröfur um skráningu lyfja án þess að lengja skráningartíma marktækt. Notkun Iðunnar tengdist auknum upplifðum gæðum klínískrar skráningar og umtalsverðum tímasparnaði, þar sem skráningartími var að meðaltali um 26 mínútum styttri (p=0.039). Að auki voru stöðufundir og vaktaskipti samanlagt að meðaltali 54 mínútum styttri (p=0.020), og tími sem varið var með íbúum var að meðaltali um 95 mínútum lengri (p=0.039) þar sem notast var við Iðunni.

Ályktanir

Rannsóknin leiðir í ljós að innleiðing stafrænnar heilbrigðistækni eins og Iðunnar og Lyfjavaka á hjúkrunarheimilum getur bæði bætt öryggi sjúklinga og flæði í klínísku starfi. Hins vegar reyndist innleiðingarferlið krefjandi, einkum vegna tímaskorts yfirmanna hjúkrunardeilda og mótstöðu starfsfólks. Til að takast á við þessar áskoranir voru greindir lykilþættir fyrir farsæla innleiðingu, þar sem lögð er áhersla á mikilvægi góðs undirbúnings, markvissrar þjálfunar og áframhaldandi stuðnings.

Lykilhugtök

Rafræn sjúkraskrá, stafræn heilbrigðistækni, hjúkrunarheimili, skráningar, smáforrit

HAGNÝTING

RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA

Nýjungar: Þetta eru, svo vitað sé, fyrstu mælingar á Íslandi sem kanna með samþættingu á eigindlegum og megindlegum aðferðum áhrif stafrænnar heilbrigðistækni á dagleg störf og sýna fram á raunverulegt gildi slíkra lausna í klínísku starfi.

Hagnýting: Niðurstöðurnar nýtast við innleiðingu stafrænnar heilbrigðistækni með því að leggja áherslu á lausnir sem falla vel að klínísku starfi. Þær undirstrika mikilvægi markvissrar þjálfunar og stuðnings við starfsfólk í innleiðingunni til að tæknin nýtist sem skyldi og skili raunverulegum árangri.

Þekking: Rannsóknin bætir við þekkingu um hvernig stafræn heilbrigðistækni getur haft áhrif á skipulag, skráningu og öryggi í hjúkrun. Hún sýnir að einföld tækni (e. lightweight technology) getur haft raunveruleg áhrif á gæði umönnunar og nýtingu tíma í klínísku starfi.

Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga: Niðurstöðurnar benda til þess að rétt hönnuð stafræn tækni geti aukið samveru með skjólstæðingum og stutt við faglegt hlutverk hjúkrunarfræðinga í daglegu starfi.

Höfundar

HENNÝ BJÖRK BIRGISÓTTIR

hjúkrunarfræðingur1 sérfræðingur í stafrænni heilbrigðistækni2

ANNA SIGRÍÐUR ISLIND

prófessor í tölvunarfræði2

1Barna og kvennaþjónusta Landspítala

2Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík

Áhrif innleiðingar stafrænnar tækni á störf hjúkrunarfræðinga á hjúkrunarheimilum

-

Rafræn skráning

lyfjagjafar og umönnunar

INNGANGUR

Stafræn heilbrigðistækni hefur á undanförnum árum orðið ómissandi hluti af heilbrigðisþjónustu með það að leiðarljósi að bæta gæði umönnunar, auka öryggi sjúklinga og hámarka skilvirkni í bæði starfi og upplýsingaflæði (World Health Organization [WHO], 2022). Á sama tíma og íbúafjöldi eykst og þörf fyrir heilbrigðisþjónustu fer vaxandi (Stjórnarráð Íslands, 2023) glímir heilbrigðiskerfið við alvarlegan skort á starfsfólki sem virðist ekki sjá fyrir endann á (WHO, 2024; Guðbjörg Pálsdóttir, 2017). Þessi þróun kallar á nýtingu annarra auðlinda til að mæta auknum þörfum og kröfum sem þessu fylgir með markvissari hætti (Stjórnarráð Íslands, 2020).

Rafræn skráning í sjúkraskrár er orðin óaðskiljanlegur hluti af starfi heilbrigðisstarfsmanna. Með innleiðingu rafrænna sjúkraskráa undir lok síðustu aldar jukust kröfur um skráningu og var skráningarskylda lögfest árið 2009 (Alþingi, 2009). Samkvæmt 4. gr. laga um sjúkraskrár (nr. 55/2009) ber heilbrigðisstarfsmönnum að skrá allar upplýsingar um meðferð og umönnun skjólstæðinga. Krafan um skráningu er í raun orðin svo ströng að, líkt og heilbrigðisráðherra Alma Möller lýsti í viðtali, er litið svo á af embætti landlæknis að inngrip hafi ekki verið framkvæmt ef það er ekki skráð í sjúkraskrá (Alma D. Möller, 2022). Þessi aukna skráningarskylda hefur leitt til þess að heilbrigðisstarfsfólk ver sífellt meiri tíma fyrir framan tölvuskjái, á kostnað beinnar umönnunar. Í þeim rannsóknum sem skoðaðar voru var hlutfall vinnutíma sem hjúkrunarfræðingar verja í skráningu á bilinu 17,7–56,6% af vaktinni. Í flestum þeirra nam hlutfallið um þriðjungi vaktarinnar og einfalt meðaltal niðurstaðna var 30,1% (Moy o.fl., 2021; Kossman og Scheidenhelm, 2008; Yee, 2012; Lim og Ang, 2019). Þegar starfsfólk er af skornum skammti getur þetta verið sérstaklega dýrkeypt.

Ofan á þessa miklu skráningarbyrði tengist skráningarálag í hjúkrun einnig því hvernig skráningin er framkvæmd í daglegu starfi. Umfangsmikil og miðlæg rafræn kerfi eru oft illa aðlöguð hreyfanlegu klínísku vinnuflæði hjúkrunarfræðinga, sem getur leitt til truflana og tvíverknaðar, til dæmis þegar sömu upplýsingar þarf að skrá oftar en einu sinni eða í mismunandi kerfi. Starfsfólkið þarf að aðlaga sig að kerfinu fremur en öfugt (Bygstad og Øvrelid, 2020). Þetta getur falið í sér að starfsfólk þarf að rjúfa klínískt starf til að sinna skráningu, sem fer fram í borðtölvum ákveðinna vinnurýma fremur en að skráning fari fram samhliða umönnun.

Á undanförnum árum hefur áherslan verið að breytast og færst í átt að notkun svokallaðrar „einfaldrar tækni“ (e. lightweight technology), með það að markmiði að færa heilbrigðisstarfsfólk aftur nær skjólstæðingum sínum. Einföld stafræn tækni felur meðal annars í sér smáforrit sem byggja ofan á stærri og þyngri rafrænum kerfum, líkt og rafrænum sjúkraskrám (Bygstad og Øvrelid, 2020; Øvrelid og Halvorsen, 2019). Slík tækni er hönnuð til að styðja við einföld og endurtekin verkefni, svo sem skráningu umönnunar eða lyfjagjafar. Markmiðið er ekki að leysa þyngri kerfin af hólmi, heldur að einfalda notkun, draga úr

truflunum og fella notkun þeirra betur að daglegu starfi (Bygstad og Øvrelid, 2020; Øvrelid og Halvorsen, 2019).

Rannsóknir benda til þess að innleiðing einfaldrar tækni geti breytt vinnuferlum með því að færa skráningu nær framkvæmd verkefna, sem getur stutt við rauntímaskráningu, bætt vinnuflæði og dregið úr tvíverknaði og truflunum í daglegu starfi (Øvrelid og Halvorsen, 2019; Severinsen o.fl., 2022), ásamt því að skráningartími styttist og samvera með íbúum eykst (Ehrler, 2021).

Á Íslandi hefur sama áhersla verið undanfarin ár og hefur verið lagður meiri þungi í þróun á handhægari tækni til að mæta þessum breyttu kröfum heilbrigðiskerfisins (Helix Health, 2023; Stjórnarráð Íslands, 2020). Í þessari rannsókn var sjónum beint að tveimur slíkum lausnum, Iðunni og Lyfjavaka, sem eru smáforrit byggð ofan á rafrænar sjúkraskrár og verið var að innleiða inn á hjúkrunarheimili.

Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvernig slík stafræn heilbrigðistækni væri að reynast í klínísku umhverfi, hvaða áhrif hún hafði á störf hjúkrunarfræðinga og hvernig innleiðingarferlið gekk fyrir sig. Markmið rannsóknarinnar var að svara eftirfarandi rannsóknarspurningum: Hvaða áhrif höfðu Iðunn og Lyfjavaki á vinnuferla hjúkrunarfræðinga? Og: Hvaða áskoranir komu fram við innleiðingu lausnanna?

AÐFERÐAFRÆÐI

Rannsóknin byggði á aðgerðarrannsókn (e. Action Research), aðferðafræði sem gerir rannsakanda kleift að kanna viðfangsefnið frá bæði eigindlegu og megindlegu sjónarhorni. Aðferðafræðin felur jafnframt í sér virkan þátt rannsakanda í rannsóknarferlinu, sem leyfir honum að svara spurningum í rauntíma og veita leiðbeiningar til notenda tækninnar (McNiff og Whitehead, 2010).

Gagnasöfnunin fór fram frá maí til september 2024 og fólst í hálfstöðluðum einstaklingsviðtölum og athugunarrannsókn (e. observational study), þar sem fylgst var með störfum hjúkrunarfræðinga (vaktstjóra hjúkrunar) á hjúkrunarheimilum. Greinin byggir á hluta gagna sem safnað var í stærra rannsóknarverkefni.

Þátttakendur

Samtals tóku fimm hjúkrunarheimili þátt í rannsókninni. Í þessum hluta rannsóknarinnar, sem byggir á stærra verkefni, tóku 17 einstaklingar þátt og voru þeir valdir með tilgangsúrtaki (e. purposive sampling), þar sem lögð var áhersla á að velja þátttakendur með beina reynslu af þeirri stafrænu tækni sem rannsóknin beindist að. Þátttakendur skiptust í tvo hópa. Annars vegar voru fimm deildarstjórar, einn frá hverju hjúkrunarheimili sem tók þátt í rannsókninni og hins vegar tólf þátttakendur í stöðu vaktstjóra hjúkrunar sem notuðust við tæknilausnirnar í daglegu starfi. Starfið er ætlað hjúkrunarfræðingum en vegna manneklu var þessu hlutverki í sumum tilvikum sinnt af sjúkraliðum. Í þessari rannsókn voru níu hjúkrunarfræðingar og þrír sjúkraliðar í stöðu vaktstjóra hjúkrunar. Til einföldunar og samræmis verður vísað til þessa hóps hér eftir sem vaktstjóra hjúkrunar í greininni.

Lýsing á stafrænu tækninni

Iðunn: er skráningarlausn í formi smáforrits sem byggir ofan á rafræna sjúkraskrá, Sögu. Lausnin er hönnuð fyrir snjallsíma og miðar að því að einfalda skráningu daglegra umönnunarverkefna með einföldu aðgengi og fyrir fram útbúnum listum þar sem markmiðið er að skrá niður verkin í rauntíma, samhliða klínísku

starfi. Með Iðunni geta fleiri stéttir umönnunarstarfsfólks skráð framkvæmd umönnunar og stuðlar þannig að dreifingu skráningarálags. Lausnin styður við bætta yfirsýn með betri skráningu og samfellu í upplýsingaflæði milli vakta (Helix Health, n.d.a).

Mynd 1. Skjámynd af Iðunni.

Lyfjavaki: er rafræn lausn fyrir umsjón lyfjagjafar sem styður hjúkrunarfræðinga og vaktstjóra hjúkrunar við lyfjatiltekt, lyfjagjöf og skráningu, ásamt því að stuðla að auknu öryggi fyrir bæði skjólstæðinga og heilbrigðisstarfsfólk. Lausnin samanstendur af tveimur meginhlutum: annars vegar tölvubundinni lausn fyrir lyfjaumsjón og lyfjatiltekt, og hins vegar smáforriti í farsíma sem gerir heilbrigðisstarfsfólki kleift að staðfesta lyfjagjöf við hlið skjólstæðings í rauntíma. Markmið lausnarinnar er að auka öryggi, yfirsýn og rekjanleika í lyfjagjöf (Helix Health, n.d.b).

Mynd 2. Skjámynd af Lyfjavaka.

Framkvæmd rannsóknarinnar

Fyrsti höfundur greinarinnar sá um alla framkvæmd rannsóknarinnar, þar á meðal gagnasöfnun, viðtölin og greiningu gagna. Í upphafi rannsóknarinnar voru tekin hálfstöðluð einstaklingsviðtöl við deildarstjóra hjúkrunarheimilanna. Deildarstjórarnir komu á tengslum við vaktstjóra hjúkrunar sem höfðu reynslu af lausnunum og voru tilbúin að taka þátt í verkefninu. Viðtölin við þann hóp reyndust flóknari í framkvæmd og voru þau ýmist tekin á meðan tími gafst á vaktinni þeirra, meðan þeim var fylgt eftir eða í formi skipulagðra viðtala.

Til viðbótar við viðtölin var gerð athugunarrannsókn þar sem fylgst var með störfum vaktstjóra hjúkrunar á vöktum þeirra. Helstu verkefni voru skráð og tími sem fór í hvert verkefni mældur. Samtals voru safnaðar um 58 klukkustundir af athugunargögnum.

Mælitæki

Til að greina störf vaktstjóra hjúkrunar var þróaður flokkunarrammi (e. time-in-motion observational framework), sem var notast var við til að skrá og flokka verkefni þeirra (sjá töflu 1). Ramminn var þróaður með hliðsjón af tveimur eldri römmum, annars vegar ramma sem upphaflega var þróaður af Urden og Roode (1997) og síðar endurbættur af Duffield, Pelletier og Donoghue (Pelletier og Duffield, 2003), og hins vegar ramma sem notaður var í rannsókn Lim og Ang (2019). Þessir rammar lögðu áherslu á að flokka störf vaktstjóra hjúkrunar eftir eðli þeirra, en áherslurnar í þeim rannsóknum voru ólíkar þeirri nálgun sem þetta verkefni krafðist og því búinn til nýr sem var aðlagaður að markmiðum þessarar rannsóknar. Helstu verkefni voru fyrir fram skilgreind, ásamt upphafi og lokum þeirra, og flokkuð á kerfisbundin hátt eftir eðli verkefna niður í rammann. Markmiðið var að greina hvernig tíminn dreifðist á mismunandi verkefni.

Gagnagreining

Megindleg gögn voru greind með tölfræðiforritinu Statistical Package for Social Sciences (SPSS®, útgáfu 24.0, IBM, Armonk, NY, USA). Í rannsókninni var hver mæling framkvæmd á hverja vakt hjá vaktstjóra hjúkrunar. Vaktstjóri gat haft eina eða fleiri deildir undir sinni ábyrgð á hverri vakt og endurspegla niðurstöðurnar því heildarstarf á viðkomandi vakt fremur en starf á einstökum deildum. Notast var við Mann–Whitney U próf til að bera saman óháða hópa eftir því hvort stafræna heilbrigðistæknin var í notkun eða ekki, með marktæknimarki p< 0,05. Viðtölin voru tekin upp með samþykki þátttakenda og afrituð orðrétt. Eigindleg greining gagna fór fram með þemagreiningu, þar sem gögnin voru kóðuð og greind kerfisbundið til að bera kennsl á mynstur og meginþemu. Niðurstöður eigindlegrar greiningar voru túlkaðar í samhengi við megindleg gögn til að fá heildstæða mynd af áhrifum tæknilausnanna og innleiðingarferlinu.

Siðfræði

Engum persónugreinanlegum gögnum var safnað í rannsókninni. Rannsakandi hélt ávallt fjarlægð við íbúa hjúkrunarheimilanna, fór ekki inn á herbergi þeirra og tryggði að allar skráningar væru ópersónugreinanlegar. Stjórnendur viðkomandi hjúkrunarheimila veittu skriflegt samþykki fyrir þátttöku í rannsókninni.

Rannsóknin var framkvæmd í samstarfi við heilbrigðistæknifyrirtækið Helix Health. Rannsakandi starfaði ekki hjá fyrirtækinu þegar rannsóknin hófst, en hóf störf þar á miðju rannsóknartímabili sem ráðgjafi. Hlutverk fyrirtækisins fólst einungis í að auðvelda fyrstu tengingu við mögulega þátttakendur í rannsókninni. Helix Health hafði enga aðkomu að hönnun rannsóknarinnar, vali á þátttakendum, gagnasöfnun, gagnagreiningu né túlkun niðurstaðna. Fyrirtækið veitti hvorki fjárhagslegan né annan stuðning við framkvæmd rannsóknarinnar. Lögð var sérstök áhersla á að tryggja faglegt sjálfstæði rannsakanda og draga úr mögulegum hagsmunaárekstrum.

NIÐURSTÖÐUR

Niðurstöður rannsóknarinnar varpa ljósi á áhrif innleiðingar stafrænnar heilbrigðistækni Iðunnar og Lyfjavaka á störf vaktstjóra hjúkrunar á hjúkrunarheimilum og draga fram helstu ávinninga af stafrænu tækninni og áskoranir í innleiðingarferlinu. Niðurstöðurnar byggja á bæði megindlegum og eigindlegum gögnum sem saman veita heildstæðari mynd. Niðurstöðurnar skiptast í þrjá meginflokka: (1) Tímasparnað og aukna samveru

með íbúum með tilkomu Iðunnar, (2) aukið öryggi vegna bættrar skráningar í Iðunni og Lyfjavaka og (3) áskoranir í innleiðingu stafrænnar tækni í hjúkrun.

1. Tímasparnaður og samvera með íbúum Megindlegar niðurstöður rannsóknarinnar sýna að vaktstjórar hjúkrunar á hjúkrunarheimilunum verja að jafnaði 27,8% af vakt sinni í beinni samveru með íbúum (Mynd 3). Marktækur munur reyndist þó vera eftir því hvort Iðunn hafði verið innleidd eða ekki. Þar sem Iðunn var í notkun var tími sem varið var með íbúum að meðaltali 95 mínútum lengri á hverri vakt (úr 15 mínútum í 111 mínútur), sem er rúmlega sexföld aukning samanborið við þær vaktir þar sem lausnin hafði ekki verið tekin í notkun.

Þessi aukning í samverutíma skýrist að mestu leyti af tveimur meginþáttum. Í fyrsta lagi reyndist tíminn sem fór í skráningu í sjúkraskrárkerfið Sögu marktækt styttri á vöktum þar sem Iðunn var í notkun. Meðaltími sem vaktstjóri hjúkrunar varði í skráningu var 13,2 mínútur með notkun Iðunnar samanborið við 39,3 mínútur án hennar. Þetta jafngildir um 66% styttri skráningartíma með notkun Iðunnar. Í öðru lagi hafði innleiðingin áhrif á fyrirkomulag vaktaskipta og stöðufunda (rapport), þar sem fundir voru styttir, fyrirkomulagi þeirra breytt eða þeir að hluta felldir niður. Meðaltími vaktaskipta og stöðufunda var samtals 89 mínútur á vöktum þar sem Iðunn var ekki í notkun og 35 mínútur þar sem hún var notuð, sem samsvarar 54 mínútna styttingu eða 60,7%. Á öllum þessum tímamælingum reyndist marktækur munur á niðurstöðunum (Tafla 2).

Niðurstöður úr viðtölunum undirstrika þessar niðurstöður en í ljós kom að bæði vaktstjórar hjúkrunar og deildarstjórar upplifðu breytingar á nýtingu tíma í daglegu starfi. Þrátt fyrir að heildarvinnutími breyttist ekki, var tíminn nýttur á annan hátt, sem leiddi til betri skipulagningar verkefna og aukinnar viðveru með íbúum eða eins og einn deildarstjóri orðaði það: „Það þýðir ekki að hjúkrunarfræðingarnir [vaktstjóra hjúkrunar] séu ekki að vinna þennan tíma sem sparast, tímanum er bara varið öðruvísi.“

Þrátt fyrir að innleiðing Iðunnar hafi leitt til tímasparnaðar í skráningu, sýndu niðurstöður rannsóknarinnar að áhrif stafrænnar heilbrigðistækni var mismunandi eftir eðli lausnarinnar. Athugunarrannsóknin leiddi í ljós að vaktstjórar hjúkrunar vörðu að meðaltali 15,5–23,6% af vakt sinni í notkun rafrænna sjúkraskráa (Mynd 1), en tíminn var mismunandi eftir því hvort Lyfjavaki hafði verið í notkun eða ekki. Á vöktum þar sem Lyfjavaki var notaður fór meiri tími í tölvuvinnu tengda lyfjatiltekt, þar sem lesið var af tölvuskjá í stað lyfjablaðanna. Lyfjatiltekin og umsýsla lyfjanna tók að meðaltali 4 mínútum lengri tíma á slíkum vöktum (úr 43,1 mínútum í 47,2 mínútur), sem samsvarar 9,4% aukningu. Þessi munur reyndist þó ekki tölfræðilega marktækur (Tafla 2).

Mynd 3. Dreifing verkefna, skífurit.

Tafla 1. Athugunarrannsóknarramminn. Tímaskipting á verkefnum vaktstjóra hjúkrunar (Time-in-motion observation Framework)

Flokkur Verkefni

Bein umönnun sjúklinga

Óbein umönnun sjúklinga

Lyfjagjöf

Aðstoð við ADL/sjálfsumhirðu/hreinlæti

Aðstoð við mat og drykk

Meðferðir og aðgerðir (sárameðferð, lífsmörk)

Samskipti við skjólstæðinga

Samskipti við aðstandendur

SamtalsBein umönnun

Undirbúningur lyfja

Undirbúningur lyfja með Lyfjavaka (EHR)* Undirbúningur meðferða/búnaðar

Samskipti við heilbrigðisstarfsfólk

Símtöl

Útaf deild

Deildarfundir/skýrslugjöf/vaktaskipti

SamtalsÓbein umönnun 1380,7939,3%100%

EHR - SAGA - lestur

EHR - SAGA - skráning

Skráningar

Óklínísk verkefni

EHR - Lyfjavaki - lestur EHR - Lyfjavaki - skráning

Samtals - Skráningar544,3815,5%100%

Fundir

Flutningur sjúklinga/ Nýir íbúar Persónulegir tímar (matarhlé, einkasímtöl o.fl.)

Kennsla/þjálfun

SamtalsÓklínísk verkefni 317,789,0%100%

Deildarvinna

Skrifstofuvinna Pöntun á almennum vörum/birgðum Lyfjapantanir Þrif

Samtals - Deildarvinna295,428,4%100%

SAMTALS 3513,76100,0%

*Einnig hluti af rafrænum sjúkraskrám (e.EHR – Electronic health records).

2. Aukið öryggi vegna bættrar skráningar Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að þar sem Iðunn og Lyfjavaki voru komnar í virka notkun ríkti almenn ánægja með lausnirnar. Þátttakendur voru sammála um að innleiðingarnar stuðluðu að auknu öryggi, bæði fyrir starfsmenn og skjólstæðinga. Starfsfólk lýsti því í viðtölum að þessi breyting bætti upplýsingaflæði milli vakta með aukinni skráningu, styrkti yfirsýn og stuðlaði að meiri samfellu og gæðum í þjónustunni, líkt og einn vaktstjóri orðaði það: „Iðunn er hjálpartæki, sem veitir íbúum betri umönnun, af því þar er allt frá A-Ö sem þarf að gera.“ Þátttakendur nefndu einnig að bætt skráning gerði þeim kleift að veita skýrari svör þegar aðstandendur leituðu upplýsinga um skjólstæðinga.

Þegar kom að Lyfjavaka voru starfsmenn einnig sammála um að innleiðing hans hefði stóraukið öryggi í lyfjagjöf en í viðtölunum kom fram að smáforritið virkaði sem eins konar eftirlitskerfi, sem

Tafla 2. Samanburður eftir því hvort Lyfjavaki og/eða Iðunn hafi verið innleidd eða ekki

Samanburður Tegund prófa

Lyfjavaki vs. ekki Lyfjavaki

Skráningartími með lyfjavaka vs. á pappír

Saga –Lestur/ upplýsingaleit með Iðunni vs. ekki með Iðunni

Saga –Skráning með Iðunni vs. ekki með Iðunni

Saga –heildartími með Iðunni vs. ekki með Iðunni

Rapport –Með Iðunni vs. ekki með Iðunni

Tíma varið með íbúum, með Iðunni vs. ekki með Iðunni

Tíma varið með íbúum, Vaktstjórar gefa lyfin vs. aðrir starfsmenn gefi lyfin.

*p<0.05 Marktækur munur.

Hópur 1 Miðgildi (IQR) / Meðaltal (SD)

Hópur 2 Miðgildi (IQR) / Meðaltal (SD) Próftala í MannWhitney Z-gildip-gildiCohen’s

væri stöðugt að „stemma mann af“ líkt og vaktstjóri lýsti, og kæmi með ábendingar ef eitthvað brigði út af. Notkun þess jók einnig meðvitund vaktstjóranna um hvaða skjólstæðing var verið að sinna og hvaða lyf átti að gefa. Þannig styrkti Lyfjavakinn öryggið í lyfjagjöfum og minnkaði hættuna á mistökum. Eins og einn vaktstjóri hjúkrunar lýsti: „Það þarf að skrá allt. Það er fegurðin við Lyfjavaka, kerfið er alltaf að tvítékka [double-checka] þig“.

Athugunarrannsóknin studdi þessar lýsingar starfsfólks. Þar sem Lyfjavaki var í notkun var skráning lyfjagjafar gerð í 100% tilvika þegar fylgst var með starfsfólki í samanburði við 50% skráningu þar sem hún fór fram á hefðbundin lyfjablöð. Í þeim tilfellum þar sem engin skráning átti sér stað skorti bæði staðfestingu á að lyfin hefðu verið gefin og rekjanleika um hver hefði annast lyfjagjöfina. Athugunarrannsóknin sýndi einnig að þegar skráning átti sér svo stað á pappír, reyndist hún í sumum tilfellum ófullnægjandi, þá var lyfjablaðamappan einungis opnuð að hluta til og var hvorki nafn skjólstæðings né nöfn lyfjanna sýnileg þegar kvittað var fyrir.

Aðrar niðurstöður úr rannsókninni sýndu að viðhorf starfsmanna til öryggis í lyfjagjöfum fór eftir því hvort þau þekktu til lyfjavaka eða ekki. Þar sem enn var notast við pappír var sameiginlegur þráður um að vaktstjórar virtust stóla á minni sitt í tiltektinni og blöðin sjaldan

dregin fram. Þetta sást bæði í athugunarrannsókninni en endurspeglaðist í orðum eins vaktstjóra sem sagði í viðtali: „Ég er alltaf hér, ég þekki fólkið vel, og það eru almennt litlar breytingar á milli daga, ég man lyfin þeirra.“ Undir þetta tóku þeir þátttakendur sem höfðu verið í þessum sporum, að hafa mikið til stuðst við minni sitt áður en Lyfjavaki var tekinn í notkun en viðhorf þeirra hafi þó breyst með innleiðingu Lyfjavakans, líkt og einn vaktstjóri hjúkrunar orðaði það: „Þú gleymir frekar þegar þú notar pappír, sem leiðir til fleiri mistaka. Ólíkt Lyfjavaka, er ekkert á blaði til að minna þig á. Kerfið lætur þig vita ef eitthvað er afbrigðilegt með litakóða sem hvetur til þig til að bregðast við.“

3. Áskoranir í innleiðingu stafrænnar tækni í hjúkrun Þrátt fyrir almennt jákvæð áhrif þessara lausna, Iðunnar og Lyfjavaka, komu í ljós ýmsar áskoranir í innleiðingarferlinu. Áskoranirnar voru mismunandi milli hjúkrunarheimila, en stærsta hindrunin, sem reyndist sameiginlegur þráður fyrir flestar stofnanir, var skortur á skipulagðri og markvissri innleiðingu, sem hafði áhrif á þátttöku og virkni starfsfólks í verkefninu.

Innleiðingarferlið gekk best á því hjúkrunarheimili þar sem deildarstjórinn „mætti á gólfið“ og tók virkan þátt í innleiðingarferlinu. Þar var lögð áhersla á einstaklingsmiðaða þjálfun, reglulega eftirfylgni og áminningar um mikilvægi skráninga í daglegu starfi. Þetta stuðlaði að hraðari aðlögun, starfsfólkið tileinkaði sér eiginleika smáforritsins hraðar og skráði í rauntíma. Á öðrum heimilum var notast við hópkynningar sem aðalþjálfunaraðferðina til að kenna á smáforritið. Það reyndist almennt ekki duga nógu vel til og hafði í för með sér að sumt starfsfólk náði ekki tökum á þessari nýju tækni, og upplifði það þekkingarleysi sem lýsti sér í óöryggi og mótstöðu gagnvart henni. Líkt og einn deildarstjóri lýsti: „Innleiðingarferlið hefur verið mjög erfitt. Starfsfólkið hélt að þetta væri njósnabúnaður um hvort þau væru að vinna vinnuna sína og tók langan tíma að leiðrétta þann misskilning.“ Þetta hafi haft mikil áhrif á innleiðingarferlið.

Niðurstöður benda til þess að skýr ábyrgð og utanumhald um innleiðingarferlið skipti máli fyrir framgang þess. Í viðtölum við deildarstjórana kom í ljós að þeir fóru allir með verkefnastjórn innleiðingarinnar, en sameiginlegur þráður var að þeir upplifðu tímaþröng við að sinna þessu hlutverki samhliða öðrum verkefnum. Umfang innleiðingarferlisins virtist í sumum tilfellum vanmetið, sem hafði áhrif á undirbúning, stuðning við starfsfólk og eftirfylgni. Að auki höfðu sumir stjórnendur takmarkaða þekkingu á smáforritunum, sem dró úr gæðum kennslu þeirra. Þetta samræmdist svörum nokkurra vaktstjóra hjúkrunar, sem lýstu því að lausnin væri ekki fullnýtt og því væri erfitt að hverfa frá eldri vinnuaðferðum.

Þrátt fyrir þessar áskoranir voru flestir sammála um að smáforritið hefði mikið notagildi þegar það væri rétt nýtt. Starfsfólk sem fékk góða þjálfun lýsti almennt jákvæðri reynslu og sá fram á að stafræna heilbrigðistæknin myndi bæta störf þeirra til framtíðar eða eins og einn vaktstjóri orðaði það: „Ég trúi því að tæknin muni hjálpa okkur. Þetta er nýtt, og hefur verið erfitt ferli, en ég trúi að þetta muni einfalda okkur störfin í framtíðinni.“

UMRÆÐA

Markmið þessarar rannsóknar var að varpa ljósi á áhrif innleiðingar stafrænna heilbrigðistækni á störf vaktstjóra hjúkrunar á hjúkrunarheimilum, með sérstakri áherslu á Iðunni og Lyfjavaka. Áhersla var lögð á hvernig tæknin hafði áhrif á skilvirkni, skráningu,

öryggi og innleiðingarferlið. Niðurstöðurnar sýna að stafræn heilbrigðistækni getur haft veruleg áhrif á daglegt starf vaktstjóra hjúkrunar en jafnframt að áhrifin eru háð eðli tækninnar og því hvernig hún fellur að klínískum störfum. Tæknin getur skilað ávinningi í formi tímasparnaðar, aukins öryggis og aukinnar samveru með íbúum.

Megindlegar niðurstöður rannsóknarinnar sýna að vaktstjórar hjúkrunar vörðu tæplega þriðjung af vakt sinni í beinni umönnun íbúa en meiri hluti vinnutímans fór í óbeina mönnun og önnur verkefni sem fara fram fjarri íbúum. Þessar niðurstöður eru í samræmi við fyrri rannsóknir sem sýna að skráningarálag og tölvuvinna taki stóran hluta af vinnutíma vaktstjóra (Moy o.fl., 2021; Yee, 2012; Lim og Ang, 2019). Þetta samræmist einnig upplifun þátttakenda, sem lýstu því í viðtölum að of litlum tíma væri varið í beina umönnun eða samveru með íbúum. Að þessi niðurstaða komi fram bæði í megindlegum tímamælingum og í frásögnum þátttakenda í viðtölum telst til styrkleika rannsóknarinnar og eykur á trúverðugleika niðurstaðnanna.

Rannsóknin sýndi þó marktækan mun á tíma varið með íbúum eftir því hvort notast hafi verið við Iðunni eða ekki á vöktunum. Þar sem Iðunn var í notkun jókst samverutími vaktstjóra hjúkrunar með íbúum umtalsvert. Þetta bendir til þess að einföld stafræn tækni (e. lightweight technology) sem fellur vel að klínísku vinnuflæði geti stuðlað að raunverulegum breytingum á nýtingu tíma í daglegu starfi (Bygstad og Øvrelid, 2020). Slíkar breytingar geta leitt til betri nýtingar á fagþekkingu starfsfólks sem fær þá aukinn tíma til að sinna sínum verkum ásamt því að sinna þeim af meira öryggi. Þessi niðurstaða kom einnig skýrt fram í viðtölum, þar sem bæði vaktstjórar hjúkrunar og deildarstjórar lýstu því hvernig tíminn væri nýttur á annan hátt. Niðurstöðurnar eru í samræmi við erlendar rannsóknir þar sem áherslan hefur verið á að færa starfsmanninn aftur nær íbúum (Bygstad og Øvrelid, 2020; Ehrler, 2021; Severinsen o.fl., 2022).

Stafræna heilbrigðistæknin hafði þó ekki aðeins áhrif á tíma heldur einnig á öryggi. Niðurstöður sýndu að bæði Iðunn og Lyfjavaki stuðluðu að auknu öryggi fyrir skjólstæðinga og starfsfólk með því að draga úr líkum á mistökum og efla eftirlit, annars vegar með aukinni viðveru með skjólstæðingnum og hins vegar með öruggari framkvæmd lyfjagjafar. Þegar horft er sérstaklega til Lyfjavaka kom fram að þrátt fyrir að lausnin hafi ekki leitt til marktæks tímasparnaðar jók smáforritið öryggi og rekjanleika í lyfjagjöf verulega. Þátttakendur lýstu Lyfjavaka sem tæki sem væri stöðugt að staðfesta rétta framkvæmd í ferlinu og drægi þannig úr líkum á mistökum. Þetta undirstrikar hvernig þessi einfalda tækni getur haft ólíkan ávinning eftir eðli og tilgangi þeirra þar sem sumar einfalda ferla og spara tíma, á meðan aðrar stuðla fyrst og fremst að auknu öryggi og gæðum, líkt og fram kemur í erlendum rannsóknum (Øvrelid og Halvorsen, 2019; Bygstad og Øvrelid, 2020; Ehrler, 2021; Severinsen o.fl., 2022).

Þrátt fyrir skýran ávinning reyndist innleiðingarferlið vera áskorun á flestum hjúkrunarheimilum. Niðurstöður sýna að vanda þarf til verka við innleiðingu stafrænnar heilbrigðistækni í heilbrigðiskerfinu til að hámarka ávinning hennar. Tímaskortur stjórnenda hafði áhrif á hversu vel innleiðingin var studd og þjálfun starfsfólks var oft ekki nægilega markviss. Mótstaða starfsfólks gegn nýrri tækni var einnig til staðar, en hún virðist oft tengjast óöryggi við notkun þeirra frekar en raunverulegri andstöðu gegn tækninni sjálfri. Þetta rímar við fyrri rannsóknir sem sýna að skortur á stuðningi

og þjálfun getur hindrað upptöku stafrænnar heilbrigðistækni í heilbrigðisþjónustu (Sun og Cato, 2020). Á grundvelli þessara niðurstaðna var þróaður leiðarvísir sem getur stuðlað að betri framkvæmd innleiðinga í framtíðinni. Leiðarvísirinn er eitt af helstu framlögum stærri rannsóknarinnar og veitir gagnlega sýn á lykilþætti sem geta aukið árangur innleiðingar til hagsbóta fyrir bæði starfsfólk og íbúa.

Blöndun á eigindlegum og megindlegum gögnum telst til styrkleika þessarar rannsóknar og veitir dýrmæta innsýn í bæði mælanleg áhrif og upplifun starfsfólks. Með því að nota tímamælingar og viðtöl saman var hægt að fá dýpri skilning á áhrifum stafrænnar heilbrigðistækni á störfin og áskoranir við innleiðingu hennar. Þrátt fyrir að fjöldi hjúkrunarheimila hafi takmarkast við fimm var vaktstjórum hjúkrunar á hverju heimili fylgt eftir í tvær til þrjár vaktir, og eigindleg gögn úr viðtölum náðu fljótt mettun hvað varðar upplifun þátttakenda. Megindlegar mælingar sýndu jafnframt samræmda mynd af áhrifum innleiðingarinnar.

Þó ber að hafa í huga að rannsóknin fór fram í óstöðluðu klínísku umhverfi þar sem mönnun og umfang ábyrgðar voru breytileg milli vakta og hjúkrunarþyngd ekki mæld. Ekki er því hægt að útiloka að slíkir þættir hafi haft einhver áhrif á niðurstöður og telst það til takmarkana rannsóknarinnar. Svipuð mynstur komu þó fram milli stofnana, sem bendir til þess að niðurstöðurnar endurspegli fremur eðli tækninnar og klínísks vinnuflæðis en sértækar aðstæður einstakra heimila sem styrkir gögnin enn frekar.

Þrátt fyrir að upplifun umönnunaraðila á gólfinu hafi ekki verið formlega rannsökuð í þessari rannsókn, sem telst til takmarkana hennar, er það mikilvægur þáttur sem vert er að skoða nánar í frekari rannsóknum. Niðurstöðurnar benda þó til þess að með innleiðingu Iðunnar hafi orðið tilfærsla á skráningarverkefnum fremur en aukning á heildarálagi. Með því að færa skráningu nær verkinu sjálfu dreifðist skráningarálag á fleiri starfsmenn og tíminn sem áður fór í stöðufundi nýttist með öðrum hætti.

Á heildina litið sýna niðurstöður þessarar rannsóknar að stafræn heilbrigðistækni, í formi einfaldra lausna, getur haft raunveruleg áhrif á daglegt starf í hjúkrun. Með því að aðlaga tæknina betur að klínískri vinnu getur hún stuðlað að betri nýtingu tíma, auknu öryggi og meiri samveru með íbúum eða öðrum skjólstæðingum, án þess að auka heildarálag í starfi. Árangur hennar er þó háður vandaðri innleiðingu. Rannsóknin varpar ljósi á mikilvægi þess að hanna og meta stafræna heilbrigðistækni út frá daglegri framkvæmd hjúkrunar og leggur grunn að frekari rannsóknum á áhrifum stafrænnar heilbrigðistækni á klíníska starfsemi, faglegt hlutverk og gæði umönnunar í heilbrigðisþjónustu. Þegar stafræn heilbrigðistækni er hönnuð og innleidd í takt við raunverulegar klínískar þarfir getur hún orðið tæki sem skilar hjúkrun aftur nær skjólstæðingnum, þar sem hún á heima

ÞAKKIR

Höfundar þakka viðmælendum rannsóknarinnar fyrir dýrmæt innlegg og þeim hjúkrunarheimilum sem tóku þátt fyrir aðgang og samvinnu. Einnig er Helix Health þakkað fyrir að leyfa þessa rannsókn á þeirra tækni.

ENGLISH SUMMARY

The Impact of Digital Technology Implementation on Nurses’ Work in Nursing Homes: Electronic Documentation of Care and

Medication Administration

doi: 10.33112/th.102.1.5

ABSTRACT

Aim

Efficient management of patient data and medication safety is crucial in healthcare institutions, where tasks are both complex and often time-sensitive, and staff shortages are common. This study examines the implementation and impact of Iðunn, an application for care documentation, and Lyfjavaki, a medication documentation application, in nursing homes. These digital health solutions are designed to streamline workflow and improve the quality of care. The purpose of this research was to investigate the impact of digital health apps on nurses' workflows and to assess the implementation processes. The research focuses on understanding the apps’ impact on daily tasks and identifying potential improvements in the implementation process.

Method

Using action research, including 17 semi-structured interviews with key stakeholders (nursing department heads, and nursing staff) and a time-in-motion observational study that included 58 hours of observation, with the objective of obtaining the widest range of data.

Results

The findings suggest that Lyfjavaki was associated with perceived improvements in medication safety and supported legal requirements for medication documentation without significantly increasing documentation time. Iðunn was associated with improved perceived quality of clinical documentation and considerable time savings, with documentation time averaging 26 minutes less (p=0.039) on shifts when it was used. In addition, the combined duration of shift reports and handovers was on average 54 minutes shorter (p=0.020), and time spent with residents was on average 95 minutes longer (p=0.039) on shifts using Iðunn.

Conclusions

This study concludes that integrating applications like Iðunn and Lyfjavaki in nursing homes can improve patient safety and workflow in clinical practice. However, implementation was challenging, mainly due to time constraints among department heads and staff resistance. To address these challenges, key factors for success included thorough preparation, effective training, and ongoing support.

Keywords

Electronic Health Records (EHR), Digital health, Nursing homes, Documentation, Apps

Correspondent hennybjo@gmail.com

HEIMILDIR

Alma D. Möller (2022, mars). Viðtal við Ölmu D. Möller, landlækni. Sjónvarpsviðtal. https://www.ruv.is/kveikur/orkumladist-vid-barnsburd/ Alþingi. (2009). Lög um sjúkraskrár nr. 55/2009. Sótt 30. apríl 2024 af https://www.althingi.is/lagas/nuna/2009055.html

Bygstad, B., og Øvrelid, E. (2020). Architectural alignment of process innovation and digital infrastructure in a high-tech hospital. European Journal of Information Systems, 29(3), 220–237. https://doi.org/10.1080/0960085X.2020.1728201

Ehrler, F., Wu, D. T. Y., Ducloux, P., og Blondon, K. (2021). A mobile application to support bedside nurse documentation and care: A time and motion study. JAMIA Open, 4(3), ooab046. https://doi.org/10.1093/jamiaopen/ooab046

Guðbjörg Pálsdóttir, Gunnar Helgason, og Helga Ólafsdóttir. (2017). Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa!: Vinnumarkaður hjúkrunarfræðinga. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga. Sótt 10. Ág. 2023 af https://old.hjukrun.is/library/Skrar-NeW/utgefid-efni/Skyrslur/ Vinnumarkadur_hjukrunarfraedinga.pdf

Helix Health. (2023). Umbreyting í starfsemi hjúkrunarheimila. Sótt 10. sept. 2023 a https://www.helixhealth.is/pulsinn/idunn-umbylting-i-starfsemi-hjukrunarheimila Helix Health. (n.d.a). Iðunn smáforrit. Sótt 07. jan. 2026 af https://www.helixhealth.is/lausnir/idunn-smaforrit

Helix Health. (n.d.b). Lyfjavaki. Sótt 07. jan. 2026 af https://www.helixhealth.is/lausnir/lyfjavaki

Kossman, S. P., og Scheidenhelm, S. L. (2008). Nurses’ perceptions of the impact of electronic health records on work and patient outcomes. CIN: Computers, Informatics, Nursing, 26(2), 69–77. https://doi.org/10.1097/01.NCN.0000304775.40531.67

Lim, M. L., og Ang, S. Y. (2019). A time-motion observation study to measure and analyse clinical nursing workload in an acute care hospital in Singapore. Proceedings of Singapore Healthcare, 28(2), 124–128. https://doi.org/10.1177/2010105819834569

McNiff, J., og Whitehead, J. (2010). You and your action research project (3. útg.). Taylor & Francis e-Library.

Moy, A. J., Schwartz, J. M., Chen, R., o.fl. (2021). Measurement of clinical documentation burden among physicians and nurses using electronic health records: A scoping review. Journal of the American Medical Informatics Association, 28(5), 998–1008. https://doi.org/10.1093/jamia/ocaa325

Pelletier, D., og Duffield, C. (2003). Work sampling: Valuable methodology to define nursing practice patterns. Nursing & Health Sciences, 5(1), 31–38. https://doi.org/10.1046/j.1442-2018.2003.00132.x Øvrelid, E., og Halvorsen, M. R. (2019). Supporting process innovation with lightweight IT at an emergency unit. Journal of Integrated Design and Process Science, 22(2), 27-44. DOI:10.3233/jid-2018-0009.

Severinsen, G. H., Silsand, L., Malm Nicolaisen, K., Pedersen, R., og Ellingsen, G. (2022). Introducing Lightweight IT–A Way to Build Flexibility for Healthcare Organizations?. In Challenges of Trustable AI and Added-Value on Health (pp. 199-203). IOS Press.DOI 10.3233/SHTI220437.

Stjórnarráð Íslands, Fjármála- og efnahagsráðuneytið. (2023). Breytt fyrirkomulag fasteigna vegna hjúkrunarheimila. Sótt 10. ág. 2023 af https://www.stjornarradid.is/ library/02-Rit--skyrslur-og-skrar/Sk%c3%bdrsla%20vinnuh%c3%b3ps%20FJR%20og%20 HRN%20-%20lokaeintak%20n%c3%b3v%202023%20-%20pr%c3%b3farkalesi%c3%b0.pdf

Stjórnarráð Íslands, Heilbrigðisráðuneytið. (2020). Mönnun hjúkrunarfræðinga. Sótt 10. ág. 2023 af https://www.stjornarradid.is/library/02-Rit--skyrslur-og-skrar/Skyrsla_monnun_ hjukrunarfr_21082020.pdf

Sun, C., og Cato, K. (2020). How much time do nurses spend using electronic devices at work?. Nursing Management, 51(3), 22–29. https://doi.org/10.1097/01.NUMA.0000651184.19361.4e

Urden, L. D., og Roode, J. L. (1997). Work sampling: A decision-making tool for determining resources and work redesign. JONA: The Journal of Nursing Administration, 27(9), 34–41. https://doi.org/10.1097/00005110-199709000-00009.

World Health Organization. (2022). Digital health Euro. Sótt 10. sept. 2023 af https://www.who.int/europe/health-topics/digital-health#tab=tab_1

World Health Organization. (2024). Nursing and midwifery. Sótt 10. sept. 2023 af https://www.who.int/news-room/fact-sheets/detail/nursing-and-midwifery

Yee, T., Needleman, J., Pearson, M., Parkerton, P., og Wolstein, J. (2012). The influence of integrated electronic medical records and computerized nursing notes on nurses’ time spent in documentation. CIN: Computers, Informatics, Nursing, 30(6), 287–292. https://doi.org/10.1097/NXN.0b013e31824af835

Sérfræðingar í sjúkraflugi

Skjót og fagleg þjónusta þegar þú þarft mest á henni að halda

Sérútbúnar sjúkravélar til og frá íslandi fyrir liggjandi og/eða sitjandi sjúklinga.

Gæði og góð þjónusta alla leið

Fullkominn búnaður um borð

Læknateymi um borð

Áreiðanleiki

Fjöldi flugvéla til taks allan sólarhringinn.

Neyðarnúmer 24/7: 522-0000 - www.airbrokericeland.is

Karie Duo

Nýr lyfjaskammtari!

Það hefur aldrei verið jafn auðvelt að fylla á lyfjaskammtara, það tekur aðeins nokkrar sekúndur. Leiðbeiningar á skjá einfalda alla notkun.

Stílhreinn, léttur og einstaklega notendavænn.

Karie Duo stuðlar að bættri meðferðarheldni og auknum lífsgæðum

Karie Duo styður við sjálfstæða búsetu

Karie Duo dregur úr þörf fyrir innlit

Karie Duo hámarkar nýtingu á tíma starfsfólks

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook