Kosningablað
Útgefandi:
Vaka- félag lýðræðissinnaðra stúdenta
Útgáfustjóri
Signý Pála Pálsdóttir
Ritstjórn:
Dagur Kárason
Franklín Ernir Kristjánsson
Hannes Lúðvíksson
Lilja Ósk Atladóttir
Tinna Eyvindardóttir
Valgerður Laufey Guðmundsdóttir
Sérstakar þakkir
Arent Orri Jónsson Claessen
Hannes Lúðvíksson
Daníel Hjörvar Guðmundsson
Sigurbjörg Guðmundsdóttir
Tinna Eyvindardóttir
Valgerður Laufey Guðmundsdóttir
Hönnun og umbrot
Soffía Sól Andrésdóttir
Kosningablað Vöku 2024
7 9 10 12 15 16 18 20 22 26 28 30 32 34 37 38
Ávarp ritstjóra
Ávarp formanns
Hvernig er að vera Stúdentaráðsliði?
Framboðslistar Vöku
Ávarp oddvita
Stefnumál vöku
Frambjóðendur félagsvísindasviðs
Frambjóðendur menntavísindasviðs
Viðtal við rektor Háskóla Íslands
Frambjóðendur verkfræði- og náttúruvísindasviðs
Frambjóðendur heilbrigðisvísindasviðs
Frambjóðendur hugvísindasviðs
Of langt gengin gengi
Strætóferð Dags og Tinnu
Hvað er Háskólaráð?
Frambjóðendur Vöku til Háskólaráðs
Hvernig kýstu?
Kosningar til Stúdentaráðs og til Háskólaráðs fara fram á Uglunni þann 20. og 21. mars. Til þess að kjósa skráir þú þig á Ugluna og smellir á borðann sem er merktur kosningum til Stúdentaráðs. Þar getur þú kosið þá sem þú treystir best til þess að berjast fyrir hagsmunum stúdenta við Háskóla Íslands.
6
Ávarp ritstjóra
Kæri lesandi,
Það kann að vera fylgifiskur þess að ég er í námi við stjórnmálafræði, en ég elska kosningar, sama í hvaða mynd þær eru. Það kæmi þannig lagað ekki á óvart ef að ég myndi að endingu ofpeppast yfir kosningum í stjórn húsfélagsins míns í framtíðinni, þó það kunni í rauninni að hljóma grátlegt. Það er einhver hátíðlegur blær yfir kjördegi þar sem kjósendur veita því fólki umboð sem það treystir best til þess að vera þeirra málsvari.
Kosningar til stúdentaráðs eru ekki síður mikilvægar fyrir stúdenta, eins og hverjar aðrar kosningar. Í stúdentaráði eiga fylkingar háskólans að berjast ötullega fyrir hagsmunum allra stúdenta við skólann. Í þessu blaði munt þú, kæri lesandi, kynnast því góða fólki sem vill berjast fyrir hagsmunum þínum fyrir hönd Vöku á komandi skólaári ásamt því að fá vonandi einhverja skemmtun út úr blaðinu. Það var í það minnsta gaman að vinna að gerð þessa blaðs. Það koma margir að svona fínni útgáfu og ég vil þakka ritnefndinni og öllum þeim sem unnu í þessu blaði fyrir skemmtilegt samstarf og ómetanlegt framlag. Að lokum vona ég að þú munir nýta kosningaréttinn þinn og kjósa þau sem þú treystir best fyrir þínum hagsmunum.
Kæri lesandi, njóttu blaðsins og kosninganna. (vonandi eins mikið og ég mun njóta þeirra)
Signý Pála Pálsdóttir, ritstjóri
7
8
Ávarp formanns
Uff okei já, ávarp sem enginn er að fara að lesa. Yesss. Elska að eyða tíma í eitthvað sem enginn les. Eru ávörp ekki í sama flokki og efnisyfirlit? Nei, efnisyfirlitin hafa alla vega einhver not. Það er ekkert hægt að nýta ávarp formanns stúdentahreyfingar til neins nema jú þau not sem ég hef af því að fá að skrifa eitthvað í eitthvað fancy blað. Ég las nokkur ávörp áður en ég settist niður og fann alveg einhverja samnefnara.
Einn þeirra er til dæmis að það virðist vera sem svo að það sé ekki til stjórn sem er ekki geggjuð, því að það kemur nær alltaf fram. Stjórn Vöku er alveg geggjuð líka, og þá meina ég geggjuð og ekki í þessari útvötnuðu ávarpsfullyrðingu, hún er meira geggjuð en það. Annar samnefnari var að þakka ritnefndinni fyrir blaðið. Takk ritnefnd fyrir blaðið! Þriðji og erfiðasti og jafnframt asnalegasti samnefnarinn var eitthvað svona málefnalegt djók. Ég held ég sleppi því. Það hlýtur að vera í lagi að vera með ⅔ ávarp. En samt svona í fúlustu alvöru, ég held það sjái allir í gegnum stöðuna. Hún er nefnilega mjög augljós að mínu mati. Þessar kosningar snúast um þetta; skólinn verður annað hvort skemmtilegur eða ekki. Kjósum Vöku 20.-21. mars nk. á Uglunni.
Arent Orri Jónsson Claessen, formaður Vöku
9
Hvernig er að vera stúdentaráðsliði?
Kæru vinir, undanfarið árið hef ég verið þeirrar gæfu að njótandi að sitja í Stúdentaráði Háskóla Íslands fyrir hönd Vöku. Fyrir flestum er Stúdentaráð bara e-ð pirrandi, gagnslaust, asnalegt, drasl, asnalegt, batterí sem enginn veit hvað gerir. Það er alveg að nokkru leyti rétt. En til þess að veita betur innsýn í það starf sem fer þar fram og mína upplifun af því ákvað ég að skrifa stutta grein.
(þetta er ekki satt Signý bað mig um að gera þetta og ég nennti því ekki neitt en ég greinilega kann ekki að segja nei)
Dagur í lífi stúdentaráðsliða byrjar oftast eins, maður vaknar. Því næst fer ég annað hvort í vinnu mína að snúa hjólum atvinnulífsins eða í HÍ. Oft tek ég strætó sem er kostnaðarsamt og glatað og tekur alltof langan tíma (bý í Grafarholti) en stundum er ég heppinn og fæ lánaðan bílinn hans pabba eða fæ far.
Þegar ég kem í skólann fer ég auðvitað í Hámu þar sem allt er aðeins of dýrt en einhver verður nú að versla við þau svo þetta fari ekki allt saman rakleiðis á hausinn. Ég kaupi mér collab af því það er ekki hægt að fá Mist og einhverja af þessum 100.000 týpum af samlokum sem boðið er uppá. Þær eru reyndar margar hverjar vel góðar.
Síðan fer ég í tíma eða e-ð eða bara frammi í Lögbergi að chilla. Svo kannski klukkan 17 er fundur hjá Stúdentaráði þar sem þarf að taka ákvarðanir um alls kyns málefni. Þar mætum ég og Vöku-vinir mínir galvösk, Júlíus Viggó talar sennilega ALLTOF mikið og Röskva bókar eitthvað. Þannig ganga þessir fundir oftast fyrir sig.
10
Að vera í Stúdentaráði er frábær æfing í að setja sig inn í mál sem maður hefur mis góða þekkingu á, að tala sínu máli, svara fyrir gagnrýni á hugmyndir og skoðanir sem maður ber fram og auðvitað að tala fyrir framan annað fólk, eitthvað sem er gott að kunna.
Svo ertu annars bara lobbýisti að berjast
fyrir réttindum háskólanema, sem er alveg létt kúgaður þjóðfélagshópur, að því marki að við höfum í raun engan málsvara og öllum þykir vandamál okkar vera bara e-ð væl og non issue. Stúdentaráð hefur ekki mikil veraldleg völd en stundum getur það skilað heilmiklu að kvarta og hafa hátt.
Svo er ég líka í öðru dæmi sem heitir sviðsráð á Félagsvísindasviði, það er svona miklu lágstemmdara og meira næs, færri á fundum og almennt léttari stemning.
Ef þú ert ungur og málefnalegur king (ath. að „king“ getur átt við um fólk af öllum kynjum) þá bara skelltu þér í þetta. Þú getur haft meiri áhrif en þú heldur. Sumir fundir eru vissulega leiðinlegir og skila litlu en það er alveg þess virði þegar þú sérð einhvern árangur af þínu starfi. Og í versta versta falli finnst þér þetta alveg fokk leiðinlegt og þá er þetta bara fínn punktur á CV.
Bráðum koma kosningar (er þetta blað ekki annars fyrir það) og þá færð þú, kæri háskólanemi, að kjósa í tölvunni þinni fulltrúa í Stúdentaráð. Þú ræður þessu náttúrulega en ég vil að þú kjósir Vöku af því að
1. við erum nettari
2. við erum með betri pælingar
3. við erum skemmtilegri
Daníel Hjörvar Guðmundsson, fulltrúi Vöku í Stúdentaráði veturinn 2023-2024
11
Framboðslistar Vöku
Félagsvísindasvið
1. 2. 3. 4.
5.
1. Júlíus Viggó Ólafsson, hagfræði
2. Ragnheiður Geirsdóttir, stjórnmálafræði
3. Birkir Snær Brynleifsson, lögfræði
4. Alda María Þórðardóttir, hagfræði
5. Kristófer Breki Halldórsson, viðskiptafræði
Menntavísindasvið
1.
2.
3.
1. Gunnar Ásgrímsson, grunnskólakennsla
2. Ásthildur Bertha Bjarkadóttir, uppeldis- og menntunarfræði
3. Gunnar Freyr Þórarinsson, íþrótta- og heilsufræði
12
Verkfræði– og náttúruvísindasvið
1. Jóhann Almar Sigurðsson, umhverfis- og byggingarverkfræði
2. Ásdís Rán Kolbeinsdóttir, umhverfis- og byggingarverkfræði
3. Fannar Gíslason, rafmagns- og tölvunarfræði
Hugvísindasvið
1. Anna Sóley Jónsdóttir, listfræði
2. Bjarni Hjaltason, listfræði
3. Ísar Máni Birkisson, heimspeki
Heilbrigðisvísindasvið
1. Tinna Eyvindardóttir, sálfræði
2. Eiríkur Kúld Viktorsson, læknisfræði
3. Snæfríður Blær Tindsdóttir, sálfræði
1. 2. 3.
1. 2. 3.
1.
13
2. 3.
Viltu finna milljón? Mánudaga Tryggðu þér áskrift á stod2.is eða skannaðu QR kóðann
Ávarp oddvita
Kæru stúdentar,
Síðastliðið ár hef ég gegnt stöðu oddvita Vöku. Starfið er fjölþætt en snýr fyrst og fremst að því að gæta hagsmuna allra nemenda við Háskóla Íslands. Það getur samt reynst afar erfitt þegar meirihluti stúdentaráðs eyðir allri sinni orku í að setja sig upp á móti þeim hugmyndum sem Vaka setur fram sem snúa að því að auðvelda líf stúdenta. Á því er hins vegar auðveld lausn sem felur í sér að kjósa VÖKU á uglunni 20. og 21. mars næstkomandi !
Í ljósi þessara ástæðna, er augljóst að kjósa Vöku og er skynsamlegt val sem mætti gera í hverju háskóla kjöri. Þeir hafa sýnt þekkingu, leiðtoga eiginleika og vilja til að vinna í hag stúdenta sinna og tryggja að hver og einn nemendi njóti bestu mögulegu upplifunar í háskólalífinu. Kjósið Vöku!
Með bestu kveðju, Elísabet Sara og besti vinur námsmanna, ChatGPT
15
Stefnumál Vöku
Vaka hefur mörg góð stefnumál á sinni stefnuskrá en þetta eru þau mál sem fulltrúar Vöku brenna hvað mest fyrir á komandi starfsári
Samgöngumál
Nú hefur Háskóli Íslands gefið út að gjaldskylda verður tekin upp á bílastæðum skólans næsta haust. Vaka hefur látið í sér heyra í þessum málum og hefur ávallt haldið beinum fjárhagslegum hagsmunum stúdenta á lofti. Nú hefur meirihluti Röskvu ekkert gert til að sporna gegn aukinni gjaldtöku á stúdenta og gjaldskylda verður tekin upp á öllum bílastæðum Háskóla Íslands.
Háskólinn hefur ákveðið að ráðast í gjaldtöku á bílastæðum, en nemendur geta skráð sinn bíl og greitt þá „hóflegt skráningargjald” á mánuði.
Menntasjóður námsmanna
Menntasjóður námsmanna (MSNM) er mikilvægt verkfæri til þess að auka aðgengi að háskólanámi. Hann þjónar þó ekki tilgangi sínum nærri jafn vel og hann gæti gert. Framfærsla stúdenta á námslánum er undir öllum almennum viðmiðum um lágmarksframfærslu. Margir stúdentar vinna þess vegna með námi, en sjóðurinn skerðir framfærslu ef stúdentar þéna „of mikið.” Vaka berst fyrir því að framfærslan verði hækkuð vegna þess að stúdentar eiga ekki að þurfa að sætta sig við að eiga erfitt með að ná endum saman í hverjum einasta mánuði. Núverandi meirihluti hefur lofað umbótum í menntasjóðsmálum í hverjum einustu kosningum svo árum skiptir, en lítið hefur áorkast.
Vaka setur spurningarmerki við nauðsyn gjaldsins en fagnar því þó að ekki hafi verið farin sú leið sem fulltrúar Röskvu í Stúdentaráði hvöttu til, en þar var skólinn hvattur til að þyngja gjöldin enn fremur, og á sama tíma að bjóða stúdentum ekki að skrá bílinn sinn til að létta undan gjaldskyldunni.
Vaka leggur áherslu á að sú gjaldskylda sem HÍ hyggst fara í verði ætíð hófleg og að gjaldskylda sé ekki nýtt sem tekjustofn skólans.
Í ljósi þessa finnst Vöku einnig mikilvægt að háskólinn hafi frumkvæði að því að samgöngur til og frá háskólanum séu stórbættar, en þar til sé ekki farið í íþyngjandi úrræði fyrir stúdenta.
Hversu verðmæt eru loforðin, ef þau skila sér ekki í neinum breytingum? Vaka setur áherslu á alvöru áþreifanlegan árangur sem mun skila sér, ekki bara fyrir stúdenta í framtíðinni, heldur líka stúdenta í dag. Þess vegna setjum við á oddinn að frítekjumarkið verði tvískipt svo að réttindi til framfærslu skerðist ekki við sumarvinnu. Sú breyting er raunhæf og ef þú ert á námslánum þá getur þú búist við að finna fyrir breytingunum á eigin skinni, von bráðar.
16
Skrásetningargjöld
Skrásetningargjöld eru þjónustugjöld og þar af leiðandi er óheimilt að nota þau til almennrar fjármögnunar háskólans. Vaka leggur áherslu á að þessu sé fylgt. Það er óvissa með hvort skrásetningargjöld síðustu ára hafi verið í samræmi við lög. Ef svo er, á að endurgreiða þann hluta gjaldanna sem stenst ekki lög. Með lögum skal land byggja. Í mikilvægu hagsmunamáli stúdenta sem þessu skiptir máli að nálgast verkefnið af yfirvegun og stillingu. Frumhlaup, óðagot og óvarkár vinnubrögð eru aðeins til þess gerð að setja framvindu réttlætisins og beina hagsmuni stúdenta í hættu. Vaka mun standa vörð um hagsmuni stúdenta og klára skrásetningargjaldamálið með faglegum vinnubrögðum sem skila árangri.
Vaka hefur upp á góða stefnuskrá að bjóða og hægt er að treysta því að fulltrúar vöku berjist fyrir málefnunum á stefnuskrá Vöku. Vaka er með stefnumál
í mörgum góðum málefnaflokkum.
• Alþjóðamál
• Atvinnumál
• Doktorsnám
• Félagsstofnun Stúdenta
• Fjármál Háskóla Íslands
• Fjölskyldumál
• Hinsegin málefni
• Húsnæðis- og aðgengismál
• Jafnréttismál
• Kennslumál
• Menntasjóðsmál
• Umhverfis og samgöngumál
Háma
Háma er hætt að sinna grundvallartilgangi sínum: Að veita stúdentum ódýrar vörur þar sem þeir sækja nám sitt. Núna hefur Hámu verið lokað í Odda og Háskólabíó, og henni verður líka lokað í Eirbergi fyrir næsta skólaár. Á sama tíma eru verðin samt allt of há þó svo að Félagsstofnun stúdenta sé óhagnaðardrifin sjálfseignarstofnun.. Þetta hefur allt gerst á vakt meirihluta–stjórnar Röskvu í FS. Það þarf að snúa þessu dæmi við og kjósa Vöku til þess að bjarga Hámu.
Skannaðu
! ! 17
þennan QR kóða ef þú vilt lesa meira og kynna þér málefnin okkar betur.
Félagsvísindasvið
Frambjóðendur og stefnur á Félagsvísindasviði
Viggó Ólafsson,
Hvað þykir þér mikilvægast í hagsmunabaráttu stúdenta í dag Það sem er númer eitt, tvö og þrjú er Háma. Hún er komið í algjört ólag og þessar lokanir í Háskólabíó og Odda, og yfirvofandi lokun í Eirberg eru staðfesting þess. Þetta hefur allt gerst á vakt stjórnar Röskvu í FS. Þegar liðið er hætt að skora, hvað þá þegar það er farið að skora ítrekuð sjálfsmörk, þá heldur maður ekki sömu leikmönnum inn á vellinum. Þess vegna skiptir máli að skipta Vöku inn í þessum stúdentaráðskosningum
Af hverju Vaka?
Því Vaka virkar. Ég er að eðlisfari mikill raunsæismaður, og vil heldur takast á við heiminn eins og hann er, frekar en eins og ég vildi að hann væri. Vaka leggur áherslu á praktískar lausnir og alvöru áþreifanlegar niðurstöður fyrir stúdenta. Hún skilur flokkadrætti eftir við dyrnar og sameinar stúdenta undir fána raunverulegra sigra og hagsmunabóta. Þess vegna vel ég Vöku.
Á hvaða mál myndir þú leggja mesta áherslu í Stúdentaráði?
Háma í Odda var þungamiðja félagsvísindasviðs og því mikill missir þegar að hún var felld niður. Þessa ákvörðun verður að endurskoða, ásamt því að koma í veg fyrir að aðrar stöðvar Hámu loki. Einnig finnst mér mikilvægt að koma með lausn á rukkun bílastæða sem er raunsæ og hentar sem flestum.
Hvað vilt þú helst gera fyrir þitt svið?
Nemendafélög á félagsvísindasviði hafa sum hver aðgang að aðstöðu til að sinna störfum sínum. Minni nemendafélög gleymast og fá ekki að njóta sömu aðstöðu, þrátt fyrir að mörg þeirra séu virk og sinni starfi sínu jafn vel stóru félögin. Ég vil að öll nemendafélög fái aðgang að aðstöðu til að vinna sín störf, lítil sem stór.
Hvað vilt þú helst gera fyrir þitt svið?
Ragnheiður Geirsdóttir, stjórnmálafræði
Helsta málefnið sem ég vil koma á framfæri fyrir mitt svið, sem er félagsvísindasvið, er að krefjast þess að fyrirlestrar yrðu teknir upp á vídeó upptökur. Það er einfaldlega fáránlegt að missa af heilum, mögulega fjórföldum tíma vegna t.d. veikinda og það eina sem þú getur gripið í eru glærurnar úr tímanum. Þetta var hægt á meðan á ónefnda faraldrinum stóð og einnig er þetta í framkvæmt hinum megin við Öskjuhlíðina.
Af hverju Vaka?
Vaka er félag fólksins, þar eru allir velkomnir. Vaka er félagið sem mun standa við sitt í þágu fólksins. Einnig helluð party.
Júlíus
hagfræði
Birkir Snær Brynleifsson, lögfræði
18
Á hvaða mál myndir þú leggja mesta áherslu í Stúdentaráði?
Það sem ég myndi vilja leggja mesta áherslu á í Stúdentaráði er fyrst og fremst upptaka á fyrirlestrum, það sé samræmi á milli deilda og jafnt aðgengi námsefni hvort sem maður mætir í tíma eða ekki. Styrkja sálfræðiþjónustu stúdenta, sem er mjög ábótavant. Þetta eru tvö málefni sem ég væri til að leggja mesta áherslu á.
Hverju myndir þú breyta ef þú værir einráður í háskólanum?
Ef ég væri einráður þá myndi ég fyrst og fremst taka Odda í gegn, galin (léleg) aðstaða fyrir nemendur. Bílastæðin, sem er tilfingarlegur rússibani að leita að stæði. Háma, hvert skipti sem maður labbar þar inn er maður rændur. Síðast en ekki síst þá er aðgengi að skólanum ekki upp á marga fiska.
Stefnumál
Alda María Þórðardóttir, hagfræði
Af hverju Vaka?
Þegar kom að vali var það ekki erfið ákvörðun, ég vildi vera í félagi sem stendur við stefnumál sín og berst raunverulega fyrir hagsmunum stúdenta skólans. Vaka fylgir málefnum sínum eftir og staldrar ekki við þegar komið er í stúdentaráð.
Hvað vilt þú helst gera fyrir þitt svið?
Það sem ég vil helst gera fyrir félagsvísindasvið er að gera námsefnið aðgengilegra, að aukið púður verði sett í það að hafa fyrirlestra streymda eða þá að minnsta kosti að þeir séu teknir upp og settir á Canvas. Margir á félagsvísindasviði fara reglulega í Háskólabíó á fyrirlestra en þar er búið að loka Hámu. Það er varla hægt að fá sér vatn í byggingunni nema að fara í kranann á baðherberginu, þetta þarf að laga.
Bætt kennsluaðstaða, borð og stólar til skammar í Odda
Fyrirlestrar teknir upp og gerðir aðgengilegir á Canvas
Hámark sett á vægi lokaprófa og fjölbreyttara námsmat
Engin próf um helgar
Tryggja þarf að námsefni sé sett á Canvas
Tryggja þarf betra flæði upplýsinga, t.d. varðandi tvíföll
Tryggja þarf þjónustu við stúdenta í Odda eftir að Hámu var lokað
Varafulltrúar
Salka Sigmarsdóttir, lögfræði Árni Geir Haraldsson, hagfræði
Sylvía Rut Jóhannesdóttir, lögfræðiheimspeki
Ragnheiður Arnardóttir, hagfræði Kjartan Leifur Sigurðsson, lögfræði Björgvin Viðar Þórðarson, hagfræði
19
Kristófer Breki Halldórsson, viðskiptafræði
Menntavísindasvið
Frambjóðendur og stefnur á Menntavísindasviði
Af hverju Vaka?
Ég valdi Vöku því að það fólk sem ég hef kynnst þar er tilbúið til þess að leggja saman hönd á plóg og kljást við krefjandi verkefni stúdenta með samvinnu að leiðarljósi.
Á hvaða mál myndir þú leggja mesta áherslu í Stúdentaráði?
Ég tel að góður flutningur menntavísindasviðs yfir í Sögu sé mikilvægur sviðið. Þá þarf rödd og kröfur stúdenta að heyrast skýrt núna á lokametrunum. Við á menntavísindasviði erum heppin með framboð á fjarnámi, en alltaf má gera betur. Ég tel að það þurfi að nýta staðlotur betur á sama tíma og við höldum góðum sveigjanleika í náminu. Á sama tíma er lítið fjarnámsframboð á öðrum sviðum HÍ og tel ég að við getum kennt þeim á hinum sviðunum hverning hægt er að bjóða upp á aðgengilegra nám í formi fjarnáms. Vettvangsvikurnar geta verið krefjandi fyrir þau sem að vinna með skóla og tel ég að HÍ þurfi að vera opnari fyrir því að meta vinnu upp í vettvangseiningar.
Hverju myndir þú breyta ef þú værir einráður í háskólanum?
Ef ég væri einráður í háskólanum myndi ég að minnsta kosti byrja á því að lækka verðið í Hámu um allavega helming. Síðan myndi ég líklega láta gera einhverja geggjaða gym stöð með heitum og köldum potti og sánu og eitthvað rugl.vw
Hvað vilt þú helst gera fyrir þitt svið?
Það sem ég myndi meðal annars vilja gera fyrir menntavísindasviðið er að bæta gæði fjarnámsins. Þá myndi ég bæði vilja víkka möguleikann á fjarnámi á fleiri námsleiðir og betrumbæta það í heild. Ég myndi auk þess vilja búa staðnemum betri námsaðstöðu þar sem enginn skortur er á innstungum, svo dæmi sé nefnt.
Ásthildur Bertha Bjarkadóttir, uppeldis- og menntunarfræði
Hvað þykir þér mikilvægast í hagsmunabaráttu stúdenta í dag?
Mér finnst að það mætti bjóða upp á fleiri fjarnámsmöguleika í Háskóla Íslands til þess að geta komið til móts við fólk af landsbyggðinni, til þess að gæta jafnræðis í námi þegar kemur að búsetu.
Af hverju vaka?
Af því ég er stemningsmaður og það er alltaf bullandi stemning í Vöku.
Gunnar Ásgrímsson, grunnskólakennsla
Gunnar Freyr Þórarinsson, íþrótta- og heilsufræði
20
Stefnumál
Tryggja að flutningur MVS í Sögu gangi eins og best verður á kosið
Fyrirlestrar teknir upp og gerðir aðgengilegir á Canvas
Uppfærðar kennsluáherslur í takt við raunveruleg störf, þ.e. fleiri námskeið með praktískar áherslur
Stúdentar sem vinna í skólum ættu að geta fengið þá vinnu metna til vettvangseininga
Varafulltrúar
Jökull Þorkelsson, grunnskólakennsla
Alex Elí Schweitz Jakobsson, tómstunda–og félagsmálafræði
Sólmundur Magnús Sigurðarson, grunnskólakennsla
21
Getum alltaf gert betur.
Viðtal við Rektor Háskóla Íslands
22
Hvernig er dagurinn þinn?
„Ég vakna yfirleitt rétt fyrir sjö og er mættur á skrifstofuna kl. 8.30. Vikan hefst vanalega með fundum með helstu stjórnendum þar sem staðan er tekin og starfið skipulagt. Það var vissulega aðeins öðruvísi að vera kennari enda verkefnin önnur.“
Hvernig kaffi færðu þér?
„Í dag fæ ég mér svart kaffi, en ég byrjaði að drekka kaffi mjög ungur og þá notaði ég bæði sykur og mjólk.“
Verslarðu í Hámu? Ef svo er hvað færðu þér?
„Ég geng yfirleitt heim og fæ mér að borða, en ef það er fundur fáum við stundum sendan mat frá Hámu á skrifstofuna. Stundum fer ég á salatbarinn og þá verður Verkfræðingurinn yfirleitt fyrir valinu, sem þarf kannski ekki að koma á óvart!“
Hvernig finnst þér rektorshlutverkið
„Það er stórkostlegt tækifæri að fá að leiða æðstu menntastofnun landsins og láta gott af sér leiða á þeim vettvangi. Það gera sér ekki allir grein fyrir því en Háskóli Íslands er einnig í gríðarlega miklu samstarfi og mjög sýnilegur á alþjóðlegum vettvangi sem skiptir miklu máli fyrir Ísland. Starf rektors er vissulega með köflum erilsamt og því fylgir mikil ábyrgð að gæta orðspors skólans, en endurteknar mælingar sýna að þjóðin treystir Háskóla Íslands. Á persónulegu nótunum hefur ég mikla ánægju af starfinu og finnst það gefandi. Rektorsstarfið er samstarfsverkefni og Háskóli Íslands hefur á að skipa frábæru starfsfólki sem ég vinn náið með og treysti. Svo er auðvitað alltaf ánægjulegt að hitta nemendur og mikilvægt að halda góðu sambandi við þá.“
Fylgir bílastæði með rektorsembættinu?
„Já, það fylgir bílastæði með embættinu sem og reyndar bíll, en ég ekki nýtt mér þessi réttindi og hef ekki þörf fyrir þau þar sem ég bý í göngufæri við skólanum. Síðan erum við með deilibíla sem ég nota ef ég þarf að skjótast eitthvert.“
Með hvaða liði heldurðu í enska og íslenska boltanum?
„Ég hef haldið með Manchester City áratugum saman. Það hefur vissulega ekki verið samfelld sigurganga, en liðið hefur verið frábært síðasta áratug. Við feðgarnir horfum saman á leiki í sjónvarpinu
og við fjölskyldan höfum farið nokkrum sinnum á leiki og nú síðast árið 2019 á leik þar sem Man City tók á móti Englands–meistaratitlinum. Annars er ég líka Frammari og byrjaði að æfa þar árið 1969. Ég var þó ekki nógu góður til að taka það lengra í fótboltanum en að fara í 4. flokk, en ég hafði sannarlega gaman af því.”
Hvað lærðir þú í háskóla?
„Ég lærði rafmagnsverkfræði og sú menntun hefur alltaf reynst mér vel. Félagslífið á mínum námsárum við HÍ var ekki eins gott og það er núna, en Háskólinn var öðruvísi og miklu minni. Til dæmis var Háskólatorg ekki risið þá, en það breytti miklu.
Jón Atli Benediktsson
23
Nefndu kosti sem Háskóli Íslands hefur
„Hann er nálægt samfélaginu hér á Íslandi og ég efast um að það séu margir háskólar í heiminum sem hafa verið þjóð sinni jafn mikilvægir og Háskóli Íslands.
Stofnun skólans 1911 var mikilvæg forsenda þess að Íslendingar gátu risið undir því að vera sjálfstæð þjóð og skólinn hefur haldið þessari stöðu alla tíð og hann endurnýjar sig í sífellu. Fólki í samfélaginu þykir vænt um skólann sinn og hefur skoðanir á honum. Það er heilbrigt að mínu mati því við erum háskóli íslensku þjóðarinnar. Það hefur átt sér stað mikil þróun síðan ég tók við starfi rektors árið 2015. Háskólinn hefur færst mikið fram á alþjóðlegum vettvangi og það er mikið leitað til hans um samstarf enda hefur hann jákvætt orðspor. Við höfum náð miklum árangri, aukið námsframboð, eflt rannsóknastarf, fengið til okkar góða nemendur og HÍ er orðinn mun öflugri alþjóðlegur háskóli en hann var fyrir 30 árum. HÍ er samfélag, en einstaklingarnir skipta alltaf miklu máli og nemendur bera orðspor skólans alls staðar þar sem þeir fara.
Mér þykir vænt um Háskólann og það er mikill heiður að fá að leiða hann og ég vill halda áfram að gera hann betri.”
Nefndu galla sem Háskóli Íslands hefur og hvað má bæta
„Það má helst nefna að háskólasvæðið er skorið í sundur af Suðurgötunni og mikilvægt er að tengja austur- og vestursvæðið betur saman. Við vorum að ljúka við gerð nýrrar þróunaráætlunar fyrir háskólasvæðið þar sem m.a. er gert ráð fyrir þverum Suðurgötu og borgin áformar að gera göng undir Hringbraut. Einnig er áætlað að fyrsti áfangi Borgarlínu fari um háskólasvæðið. Þetta eru auðvitað dýrar framkvæmdir en ef vel tekst til mun Háskóli Íslands taka stakkaskiptum sem ’kampus’ á komandi árum. Við viljum að nemendum og starfsfólki líði vel í námi og starfi og geti verið stolt af því.”
Er Stúdentaráð mikilvægt innan háskólans að þínu mati?
„Já, það er mjög mikilvægt. Ég hef oft sagt að stúdentabaráttan við HÍ er mjög mikilvæg. Rödd stúdenta verður að heyrast og hún skiptir miklu máli. Stjórnendur HÍ og forysta Stúdentaráðs eru kannski ekki alltaf sammála, en það er ekki vandamál. Stúdentaráð er einnig mikilvægur félagslegur vettvangur sem býr ungt fólk undir að taka ábyrgð í samfélagi og atvinnulífi.”
24
Tókst þú þátt í stúdentahreyfingum/pólitík þegar þú varst í háskóla
„Já, það var frábært að taka þátt í Stúdentaráði sem er eitthvað sem ég bjóst ekki við að fara út í þegar ég hóf nám við HÍ. Leitað var til mín um að taka sæti á lista Vöku. Ég þáði það og var kjörinn í Stúdentaráð. Þetta var góð reynsla og þjálfun sem skipti máli fyrir mig í framhaldinu. Ég var formaður Hagsmunanefndar á árunum 1981-1983. Það var starf sem skipti máli, en stúdentahreyfingin á þeim tíma var reyndar mjög með augun á utanríksmálum. Kalda stríðið var í gangi á þessum tíma og var m.a. talsverð umræða um Nató og veru Bandaríska hersins á Íslandi. Þetta voru góðir tímar og þarna kynntist ég góðu fólki frá öllum þremur fylkingunum sem störfuðu á þessum árum í stúdentapólitíkinni.”
Hvað finnst þér að betur megi fara innan Stúdentaráðs?
„Það er ekki mitt að segja til um það. Ég ber virðingu fyrir starfi Stúdentaráðs og hef á undanförnum árum reynt að koma a.m.k. einu sinni á ári inn á fundi ráðsins til að ræða við Stúdentaráðsliða. Mér finnst skipulagið gott og reyndar betra en það var þegar ég var í ráðinu. Starf Stúdentaráðs er ekki síður mikilvægt núna en áður. Ég hef frá árinu 2019 átt reglulega fundi tvisvar í mánuði með forseta Stúdentaráðs sem er jákvætt. Að mínu mati ríkir traust og ekki tortryggni á milli þeirra sem leiða Háskólann og Stúdentaráð. Við erum öll í sama báati og það er mikilvægt að geta talað saman og samskiptin eru góð.”
Hvernig sérðu skólann eftir 10 ár?
„Við höldum áfram að þróa okkur og munum verða með öflugan alþjóðlegan rannsókanháskóla sem þjónar íslensku samfélagi og atvinnulífi afar vel.
Menntavísindasvið verður búið að vera í Sögu í 10 ár og nýtt hús Heilbrigðisvísindasviðs komið í notkun. Byrjað er að byggja fyrir Verkfræði- og náttúruvísindasvið vestan Suðurgötu. Borgaralína mun fara um háskólasvæði sem verður flott og aðlaðandi. Ég er sannfærður um að Háskóli Íslands verður sterkari en nokkru sinni fyrr!”
25
Verkfræði– og náttúruvísindasvið
Frambjóðendur og stefnur á Verkfræði og náttúruvísindasviði
Jóhann Almar Sigurðsson, umhverfis- og byggingarverkfræði
Á hvaða mál myndir þú leggja mesta áherslu í Stúdentaráði?
Sem oddviti verkfræði- og náttúruvísindasviðs mun ég leggja ríka áherslu á mál sem varðar stúdenta núna, finna leiðir til að lækka daglegan kostnað stúdenta og betrumbæta námsumhverfið. Sem formaður Naglanna og stjórnarmeðlimur FV endurvakti ég Verkval eftir COVID og setti upp sjálfsala sem bauð orkudrykki á hagstæðu verði (Monster kostaði 300 kr. en á sama tíma rúmlega 450 kr. Í Hámu). Ásamt þessu kom ég að betrumbættu námsumhverfi á þriðju hæð í VR-II. Þessari vinnu vil ég halda áfram í Stúdentaráði en koma á sama tíma einföldum málum í gegn eins og að hafa líkamsræktina opna 24/7, að það sé hægt að komast inn í byggingar HÍ eftir miðnætti, skilgreina Hopp hjólastæði & bæta þar að leiðandi öryggi hjólandi- og gangandi vegfarenda, tryggja nettengingu á öllu háskólasvæðinu ásamt því að berjast fyrir kvöldmat í Hámu.
Hvað þykir þér mikilvægast í hagsmunabaráttu stúdenta í dag?
Gæði náms og fjármagnsöryggi stúdenta. Undanfarin misseri hefur Háskóli Íslands þurft að skera enn frekar niður og fækka námskeiðum, ekki bara valnámskeiðum heldur einnig undirstöðunámskeiðum námsbrautar. Að mínu mati er Háskólinn, í neyð, að rýra gæði námsins. Háskólinn vill þetta ekki, stúdentar vilja þetta ekki. Eitt aðal hagsmunamál stúdenta um þessar mundir er að standa ekki bara vörð um gæði náms heldur einnig berjast fyrir auknum námsgæðum. Fjármagnsöryggi er grunnforsenda þess að stúdentar nái árangri í námi, ef stúdent nær ekki endum saman, hvernig getur stúdentinn lagt stund á nám sitt? Mitt stærsta verkefni sem ég tæki að mér í Stúdentaráði væri að berjast fyrir niðurfellingu á skerðingu námslána vegna tekna.
Af hverju Vaka?
Vegna þess að hér er fólk sem hefur sömu hugmyndir og ég um það hvað það er sem þarf að gera til þess að vernda hagsmuni allra stúdenta. Þetta er fólk sem að setur sig raunhæf markmið og lætur verða af því sem að þau lofa..
Hverju myndir þú breyta ef þú værir einráður í háskólanum?
Taka til í rekstri á Hámu, upptaka á fyrirlestrum gerð skylda, og taka starfsnám alvarlega það fyrsta sem mér dettur í hug.
Ásdís Rán Kolbeinsdóttir, umhverfis- og byggingarverkfræði
26
Hvað vilt þú helst gera fyrir þitt svið?
Ég væri til í að láta malbika bílastæðið hjá VR2 þar sem það er holótt og ömurlegt og einnig myndi ég vilja hafa borðtennisborð í byggingum VoN, þá verður hægt að dreifa huganum eftir langan dag af lærdómi.
Hvað þykir þér mikilvægast í hagsmunabaráttu stúdenta í dag?
Það sem fer mikið í taugarnar á mér þessa dagana að ég geti ekki keypt mér kaffi og smáköku án þess að þurfa að borga u.þ.b. 600 kr fyrir það. Það er gjörsamlega út í hött. Svo mér þykir mikilvægt að verðin í Hámu verði lækkuð svo námsmaður eins og ég, sem hefur ekki það mikið á milli handana, geti keypt mér nasl á viðráðanlegu verði.
Stefnumál
Fannar Gíslason, rafmagns- og tölvunarfræði
Ný húsgögn og bætt aðstaða í VR-II..Það er löngu kominn tími á að skipta út öllumborðum og
stólum í sumum stofum.
Lægra vægi lokaprófa, verkefni einnig metin til einkunnar
Nýta hugvitið sem býr í verkfræðideild í framkvæmdum á háskólasvæðinu
Bætt aðgengismál, t.d. þarf að fjarlægja þröskulda inn í stofur í VR-II
Bæta þarf nettengingu, t.a.m. í Öskju
Gönguleið innandyra á milli Tæknigarðs og VR-II
Varafulltrúar
Egill Magnússon, hugbúnaðarverkfræði
Elísabet Narda Santos, iðnaðarverkfræði
27
Bjarni Jorge Gramata, iðnaðarverkfræði
Hugvísindasvið
Frambjóðendur og stefnur á Hugvísindasviði
Af hverju Vaka?
Vaka heillaði mig mest vegna þess að þar er hópur af fólki sem er með fjölbreyttan bakgrunn, en hafa öll þá sterku sameiginlegu sýn að bæta hagsmuni stúdenta.
Á hvaða mál myndir þú leggjamesta áherslu í Stúdentaráði?
Félagsmálin á Hugvísindasviði standa mér næst. Á Hugvísindasviðinu eru fullt af námsleiðum sem eru fámenn (en góðmenn) og lítil samskipti á milli deilda, sem gerir félagslífið á sviðinu oft frekar einmannalegt.
Það á að vera skemmtilegt í Háskóla, sem er erfitt þegar það er lítið um félagslíf, eða nemendafélagið óvirkt. Ég vil virkja félagsmálin á sviðinu og passa að allir, óháð námsleið, fái að njóta þess sem Háskólinn býður upp á. Ódýrari lausnir í samgöngum er annað sem ég myndi leggja áherslu á, eins og það sé ekki nógu dýrt að vera námsmaður á Íslandi.
Hvað þykir þér mikilvægast í hagsmunabaráttu stúdenta í dag?
Mér finnst mikilvægast að nemendur geti stundað nám sitt án þess að hafa áhyggjur af fjármálum. Liður í því gæti verið að endurskoða skerðingar námslána á móti tekjum, eða breytingar á niðurgreiðslum stúdentaíbúða.
Hverju myndir þú breyta ef þú værir einráður í háskólanum?
Ég myndi fegra háskólasvæðið, gefa því meiri evrópufíling. Fá fleiri stúdentaíbúðir, fleiri einstaklingsherbergi með sameiginlegri aðstöðu (að hollenskri/evrópskri fyrirmynd) á viðráðanlegu verði.
Hvað myndir þú gera ef þú værir einráður í HÍ?
Búa til lýðræðislegt stúdentafélag og örgl ehv svona stúdentaþing sem hægt er að kjósa fólk í.
Af hverju Vaka?
Því vaka er lýðræðislegt stúdentafélag. Og Arent leyfði mér að sagga á framboðsmyndinni.
Anna Sóley Jónsdóttir, listfræði
Bjarni Hjaltason, listfræði
Ísar Máni Birkisson, heimspeki
28
Stefnumál
Betri lærdómsaðstaða, þá sérstaklega aðgengi að slíkri þjónustu eftir lokun. Koma þarf lesstofu á fót
Nýrri og betri húsgögn, stólar og borð eru í skammarlegu ástandi í Árnagarði og í Aðalbyggingu og
það vantar algjörlega borð í hús Vigdísar
Bætt innleiðing stundakennara, koma á fót námskeiði
Aukið gagnsæi, samræmi og skipulag þegar kemur að námsmati
Tryggja þarf að tímar skarist ekki á
Upptaka á fyrirlestrum væri öllum til hagsbóta
Varafulltrúar
Diljá Valsdóttir, sagnfræði
Sindri Bjarkason, heimspeki
Stefán Orri Stefánsson, heimspeki
29
Magnús Orri Magnússon, heimspeki
Heilbrigðisvísindasvið
Frambjóðendur og stefnur á Heilbrigðisvísindasviði
Tinna Eyvindardóttir, sálfræði
Af hverju Vaka?
Elska gott underdog story. Davíð vs. golíat dæmi.
Á hvaða mál myndir þú leggja mesta áherslu í Stúdentaráði?
Það sem snertir mig og fólkið í kringum mig hvað mest er klárlega þetta fáránlega system hjá sálfræðinni og lyfjafræðinni á að bara lifa í þeirri afneitun að endurtektarpróf séu til. Þetta er bara algjörlega galið og tímaskekkja og ég myndi vilja að þrýsta á þetta. Annars eru lokanir hámu hræðileg þróun sem verður að stöðva.
Af hverju Vaka?
Eina vitið. Vaka er besta leiðin til að koma breytingum í almennilegan farveg. Ég fæ líka að vinna með bráðgáfuðu, efnilegu og flottu fólki, sem eru fyrst og fremst góðar manneskjur.
Hverju myndir þú breyta ef þú værir einráður í háskólanum?
Mynda bandalag með Háskólanum á Akureyri og lýsa yfir stríði á hendur Háskólanum í Reykjavík
Snæfríður Blær Tindsdóttir, sálfræði
Eiríkur Kúld Viktorsson, læknisfræði
Hvað þykir þér mikilvægast í hagsmunabaráttu stúdenta í dag?
Aðgengi fyrir alla að námi. Það er mikilvægt að háskólinn efli fjarnám með áherslu á þróun stafrænna kennsluhátta. Ég vil að lögð sé áhersla á að allt nám sem hægt er að stunda verði sett fram stafrænt óháð því hvort nemendur stundi stað eða fjarnám. Þetta mun veita mörgum hópum fólks betra aðgengi að námi - en svo stundum þarf maður líka bara að taka sér einn persónulegan.
Hvað myndir þú helst gera fyrir þitt svið?
Mínir fellow sálfræði nemendur kannast við kvíðann fyrir lokaprófum, vitandi að þau eiga ekki möguleika á endurtekt. Ég vil að það sé uppfært þetta löngu úrelta líkan svo allir eigi möguleika á að útskrifast á réttum tíma.
30
Stefnumál
Bætt námsaðstaða
Starfsnám sé greitt
Samræming staðsetninga kennslustunda
Fyrirlestrar teknir upp og gerðir aðgengilegir á Canvas
Stúdentar í sálfræði og lyfjafræði fái að taka endurtektarpróf
Endurskoða þarf fyrirkomulag og tímasetningu endurtektarprófa
Tryggja þarf betra flæði upplýsinga, t.d. varðandi tvíföll
Varafulltrúar
Birta Rut Rúnarsdóttir, lífeindafræði
Lilja Ósk Atladóttir, læknisfræði Ísak Þorri Maier, sálfræði
Anna Margrét Hörpudóttir Strawn, sálfræði
Brynja Sævarsdóttir, læknisfræði
31
Of langt gengin gengi
32
Jæja strákurinn byrjaður í háskóla, bara kominn í heimspeki, ekkert eð-li-le-ga nett. Mæti þarna inn á torgið saggaður og sætur, en vitiði hvað? Er síðan ekki Arent vinur minn þarna inni á kaffihúsinu að þykjast lesa Fædros ahaha. Ég fer upp að honum og hlæ aðeins af honum. Hann verður þá fúll á svipinn og lítur smá svona út eins og vondi kallinn í Bug’s Life. En svo fer hann að tala um einhvern lista. „Viltu ekki vera á listanum maður?” segir hann,“Hvaða lista maður?“ svara ég honum fullum hálsi. „Vöku listanum maður!“. U okei, „Hvað er Vaka maður?“ spyr ég hann til baka og hann svarar „Það er félag lýðræðissinnaðara stúdenta basically svona eins og menntaskóla nefnd full af fólki sem elskar lýðræði… maður” Svo fer hann að segja mér frá stefnu vöku, frá því að græja innstungur og þægilega stóla yfir í að lækka verðin í sjoppunum. Svo sagði hann frá því hvernig hann reddaði sjálfsala á svæðið sem selur ekki bara Orku og súkkulaðirúsínur. Mér líður samt eins og hann hafi sagt mér það þrisvar áður. Hann virðist mjög stoltur af þessum sjálfsala. Síðan segir hann mér að það sé alltaf eitthvað djamm, stúss og fjör. Ég hugsa með mér þetta er eitthvað fullkomið fyrir mig, ég er náttúrulega bæði athyglissjúkur og yfirnáttúrulega góður að finna þægilega stóla. Svo ég segi við hann „Veistu, ég er listamaður og þú finnur mig á þessum lista maður!” „En settu mig samt neðarlega - ég vil ekki að fólk haldi að ég sé að tryharda.” Svo föðmumst við óþægilega lengi og ég geng í tíma.
Nokkrum vikum seinna vakna ég úr beauty sleep við símhringingu frá Arent þá átti maður að vera mættur á listakynningu Vöku. Þar lá ég nakinn, vakinn af Vöku. Ég hoppa í föt og gönna af stað, í fínasta fittinu mínu; oversized saggandi gallabuxum, J’s on my feet og glansandi goonúlpu (ég í alvöru sleppti því að fara í silent munkaresort meðferð til að kaupa úlpuna). Svo geng ég inn með kassann úti og höfuðið hátt, en svo opnar Arent hurðina… og hann er í jakkafötum?
Nei hold up. Þau eru öll í jakkafötum. ÖLL. Arent. Ef ég hefði vitað að þessu þá hefði ég kannski tekið belti eða þóst vera í öðru tímabelti.
En okei, allt í góðu með það. Listinn var kynntur, strákurinn bara í fréttunum. Ég fæ svo símtal frá ónefndum vin. Ég er alltaf svo glaður þegar ég sé hann, og hann er örugglega að hringja í mig til að óska mér til hamingju. En þegar ég svara að þá var þetta örugglega bara eitthvað pocketdial því það eina sem ég heyrði voru einhver öskur um að einhver væri siðblindur að vera listamaður. Ég skildi ekkert í þessu og skellti á.
Vakna ég ekki næsta dag með 15 skilaboð frá allskonar liði. Á þeim stendur mjög svipað dót bara eitthvað „Ísar ertu sjálfstæðismaður” og ég bara „Haa? Nei, ég er ekki sjálfstæðismaður ég er ekki einu sinni sjálfstæður maður” Ég skildi ekkert í þessu og talaði við pabba minn sem er líka heimspekingur svo við spáðum aðeins í þessu og komumst að þeirri niðurstöðu að það er greinilega mjög gildishlaðið að vera í Vöku eða í Röskvu. Þú ert annað hvort hægri eða vinstri. Góður eða vondur fer eftir hvern þú spyrð. Ég hélt að þetta væri hagsmunaráð háskólanema ekki einhver undirstoð íslenskrar flokkspólitíkar. Mér leiðist nefnilega Íslensk pólitík ég skila alltaf auðu því ég er meiri svona fáum 1000 helmassaða karla, konur og kvára og tökum yfir þetta swampfest sem þau kalla Alþingi og byrjum upp á nýtt. Ég hélt að ég væri bara að fara vera í einhverri veislu að græja stóla, berjast fyrir lægra verði í hámu, dressa upp Árnastofnun, berjast fyrir réttindum allra háskólanema og fá smá clout og bjór í leiðinni. Ég vissi að þetta væri háskólapólitík en er þarf þetta að vera svona mikil pólitík. Þetta eru of langt gengin gengi. En ég veit ekki ég er bara leikmaður… En ef ég fæ að spila þá skal ég segja ykkur að ég skal gera allt til að forðast það að tala um pólitík sem snertir ekki nemendur.
um pólitík sem snertir ekki nemendur.
, 3. sæti á hugvísindasviði
Ísar Máni Birkisson, 3. sæti á hugvísindasviði
33
34
AKRANES HÁSKÓLI ÍSLANDS FT. DAGUR OG TINNA
Mánudagurinn 26. febrúar, eða rúmum sex mánuðum eftir hjólaferð Dags og Tinnu, höfðu Tinna og Dagur lifað sínu lífi fram að þeim degi í frið og ró, án „atviks” en þá gerðist það. Aðfaranótt mánudags var engin venjuleg nótt. Eftir að hafa lokað Spánska voru Dagur og Tinna að velta upp hinum ýmsu steinum samfélagsins og stauluðust út á gangstétt til að húkka far heim. Það var að sjálfsögðu án árangurs þar sem þau horfðu í átt frá veginum og þurftu því að labba heim. Á göngunni heim vöknuðu ýmsar spurningar. „Hvað ef við ættum heima á landsbyggðinni? Hvað þá?
Við gætum ekki einu sinni tekið strætó án þess að taka dags ferðalag!?” Oh uneasy lies the head that wears a crown! Tinnu og Degi blöskraði við þessa uppgötvun og var því ákveðið að ganga strax í málið að kanna almenningssamgöngur á milli bæjarfélaga. Það var þá sem Dagur og Tinna ákváðu að prufa að taka strætó frá Akranesi og alla leið upp í háskóla, og það strax.
Dagur vaknaði klukkan 06:00 en Tinna vaknaði klukkan 05:30 vegna þrýstings frá samfélaginu og feðraveldinu þar sem hún er kona og þarf að mála sig fyrir strætóferð! Þar sem Tinna og Dagur ætluðu sér að taka strætó kl. 07:27 þurftu þau að hafa hraðan á og fengu far með góðum borgarbúa sem vinnur einmitt á Akranesi. Eftir ágætan 35 mínútna akstur í óveðrinu komust Dagur og Tinna loks á leiðarenda sem reyndist vera nútímavætt strætóskýli. Um var að ræða ekkert skýli vegna skorts á glerveggjum. Brekkan reyndist rétt vera að hefjast, eins og þegar Tinna og Dagur hjóluðu úr lægsta hlekk fæðukeðju Reykjavíkur, einnig þekktur sem Grafarvogur. Þar sem Dagur og Tinna stóðu röngu megin við götuna og þar af leiðandi í röngu strætóskýli, misstu þau af strætisvagni 57! Á höfuðborgarsvæðinu koma strætisvagnar á þessum tíma með stuttu millibili og því hefðu Tinna og Dagur í flestum öðrum tilfellum verið lögð af stað á leið í háskólann korteri síðar. Þar sem ekki var um að ræða „flest önnur tilfelli” þurftu Dagur og Tinna að bíða í klukkustund eftir næsta strætisvagni 57. Eftir góða stund í Kallabakaríi þar sem þau studdu við fjölskyldufyrirtæki af bestu gerð, var kominn tími til að láta reyna aftur á að ná strætisvagni 57! Tinnu og Degi tókst að þessu sinni að ná strætisvagni 57 og voru lögð af stað í leiðangur kl. 08:32. Það sem á eftir fylgdi var ekki falleg sjón…
35
Skítug, brotin sætin tóku enga fanga og hvað þá þessa tvo fallegu rassa sem aftast sátu í strætisvagni 57. Útsýnið var þó ekki í verri kantinum þar sem að í sætisvasanum fyrir framan sátu leifar af gleði og góðum minningum, birtingarmynd þess? Ein tóm 500 ml Thule dós (ásamt öðru). Sætisbelti Dags var þá einnig til vandræða en skipti það þó ekki öllu máli, t.d. er ekki að finna nein sætisbelti á hjóli sem er auðvitað besti ferðamátinn hvaðan sem nemendur háskólans sækja nám! Sem betur fer tók ekki nema um 50 mínútur að komast á höfuðborgarsvæðið en þá þurftu Tinna og Dagur að vísu að skipta yfir í annan strætó í Ártúni. Þar kvöddu Dagur og Tinna því miður strætisvagn 57 og héldu áfram leið sinni í „sexunni”. Það var um tuttugu mínútna ferðalag sem gleymist heldur aldrei þar sem stappfullur strætisvagn blasti við þeim köppum. Hvorki skortur á sætum né svigrúmi stöðvar þó okkar fólk og var það einfaldlega tekið á kassann en eftir langt og strangt ferðalag voru Dagur og Tinna mætt á Háskólatorg með verk í hjartanu og tárin í augunum.
Að hugsa sér að fólk þurfi að sætta sig við slíkt? Það er hægt að fyrirgefa vegalengdina en ekki er hægt að breyta henni og er staðan sú að fólk þarf að ferðast frá ólíkum stöðum. Það sem ekki er hægt að afsaka er hversu fráleitir núverandi innviðir eru í raun og veru, allt frá því að þurfa fræðslumyndband frá Villa Neto til að læra á Klappið, eða óásættanlega tíðni strætóferða á háannatímum, þá er þetta engan veginn í lagi. Ódýrt samgöngukort er algjört skilyrði ef leggja á gjaldskyldu á öll sem stunda nám við Háskóla Íslands en hins vegar er það samt ekki nóg. Þetta vandamál er ekki bara fjárhagslegt vandamál og krefst þess vegna ekki eingöngu fjárhagslegra lausna. Þú kastar ekki bara pening í okkur (með „dash” af gjaldtöku) án þess að fá skítinn til baka. Hagnýtni og aðgengi trompar umhverfisþætti alla daga vikunnar, tvisvar á sunnudögum þegar við Vökuliðar keyrum í kirkju og iðrumst synda okkar. Þar sem Tinna og Dagur misstu af strætó var heildar ferðatími 2 klst. og 13 mínútur, 1 klst. og 8 mínútur tók að fara frá Akranesi og upp í Háskóla Íslands.
36
Hvað er Háskólaráð?
Háskólaráð er æðsta stjórnvald háskólans og er skipað samkvæmt
Á Stúdentagörðum er stutt í skólann og alla helstu þjónustu
Opið fyrir umsóknir á heimasíðu Stúdentagarða, studentagardar.is
37
Frambjóðendur Vöku til Háskólaráðs
Hvað færðu þér í morgunmat?
Ég fer á pallett í Hafnarfirði og fæ mér skonsu með sultu og cappuccino hjá Pálmari.
Hvað færðu þér í morgunmat?
Það er mjög mismunandi!
Oftast ristað brauð eða seríos (já, ég skrifaði SERÍOS) með rúsínum
Af hverju vilt þú fara í háskólaráð?
Vegna þess að ég tel að við getum náð mun betri árangri í þágu stúdenta en raun ber vitni. Setjum stúdenta í fyrsta sætið og verðum ákveðin í því að verja hagsmuni þeirra þegar að okkur er sótt. Leyfum ekki öðrum að ákveða hvað best sé fyrir stúdenta heldur verum sjálf virk í umræðunni og náum fram breytingum okkur í hag.
Af hverju Vaka?
Vaka var stofnað árið 1935 sem andsvar við tveimur fylkingum, sem aðhylltust annars vegar kommúnísk gildi og hins vegar þjóðernissinnuð gildi. Því eru í Vöku fólk alls staðar úr samfélaginu sem kemur saman í baráttu sinni fyrir bættum hagsmunum stúdenta með því að auka frelsi þeirra, lækka gjöld og létta þeim lífið. Vaka er lýðræðislegt félag þar sem saman gerum við stöðu stúdenta betri.
Ef þú værir einvaldur í HÍ, hvað myndiru gera til að breyta og bæta skólann?
Ég myndi nútímavæða skólann og gera fólki auðveldara að stunda nám utan að landi eða heimafyrir. Skipuleggja tíma eftir þeirra hentisemi og auðvelda foreldrum og fólki í vaktavinnu að stunda nám umfram öðru. Svo myndi ég bæta samgöngur við HÍ með því að efla strætó og samgöngur fyrir hjólandi og gangandi og halda kostnaði stúdenta í lágmarki án þess að fórnarkostnaðurinn sé aukin gjöld á stúdenta.
Af hverju vilt þú fara í háskólaráð?
Ég býð mig fram til háskólaráðs vegna þess að það eru virkilega margir hlutir í algjöru ólagi í Háskóla Íslands. Ég vil leggja mitt af mörkum til þess að tryggja að skoðanir stúdenta fái að heyrast innan háskólans, og það sem meira er, að á þær sé hlustað. Ég vona að ég fái umboð ykkar til að berjast fyrir sameiginlegum hagsmunum okkar allra.
Af hverju Vaka?
Það er svo ótrúlega margt gott við Vöku en þar sem Signý ritstýra setti takmark á orðafjöldann ætla ég að fá að nefna þrjá hluti. Nr. 1: Vaka tekur á stóru málunum með raunhæfar og hagkvæmar lausnir að leiðarljósi. Nr. 2: Vaka tekur ekki bara á stóru málunum heldur leggur líka mikla áherslu á „litlu“ hlutina sem snerta stúdenta dagsdaglega. Nr. 3: Ég veit alveg að þetta er klisjukennt en það er bara eitthvað annað mikil stemning í Vöku.
Ef þú værir einvaldur í HÍ, hvað myndirðu gera til að breyta og bæta skólann?
Ég myndi bæta ýmislegt, t.a.m. myndi ég breyta þessum „litlu“ pirrandi hlutum. Ég myndi til dæmis banna að hafa próf um helgar, fella niður mætingarskyldu eftir kl. 16, lækka verðið í Hámu, setja vatnsvélar í allar byggingar, gera námsbækur ókeypis, skipta út öllum óþægilegu stólunum, bæta aðstöðu nemendafélaga, gera stúdentakortið aðgengilegt í „Wallet“ og margt margt fleira.
Viktor Pétur Finnsson, viðskiptafræði
Sigurbjörg Guðmundsdóttir, lögfræði
38
Af hverju vilt þú fara í háskólaráð?
Ég hef ekki boðið mig fram í það áður og það hljómar eins og eitthvað nýtt og skemmtilegt
Af hverju Vaka?
Útfrá pólitísku sjónarmiði er það vegna þess að ég er ekki
vinstrisinnaður og þá lá Vaka beinast við, en eftir að ég byrjaði í Vöku hefur það verið frábæri félagsskapurinn og vinirnir sem halda mér hérna.
Ef þú værir einráður í HÍ, hvað myndiru gera til að breyta og bæta skólann?
Ég myndi afnema starfsreynslu við inntöku inn í meistaranám.
Hvað færðu þér í morgunmat?
Ég fasta vanalega til hádegis en þá fæ ég mér oftast eitthvað létt
Hvað færðu þér í morgunmat?
Bara the breakfast of kings; sviðasöltu, skyr og svartan kaffibolla beint úr nespresso vélinni (sue me)
Af hverju vilt þú fara í háskólaráð?
Eftir að hafa setið í stúdentaráði 2022 til 2023 og kynnst störfum Háskólaráðs var ljóst að einn daginn þyrfti ég að bjóða kost á mér þar sömuleiðis, bæði til að geta bætt líf stúdenta frekar og auðvitað klárað my bucket list!
Af hverju Vaka?
Ég var frekar týndur þegar þáverandi formaður hafði samband við mig og bauð mér tækifæri til að verða hluti af raunverulegum breytingum innan veggja skólans sem og út á við. Síðan er auðvitað bara galið að stilla sér gegn aðgengi fólks að námi þannig Vaka er einfaldlega það eina í stöðunni.
Ef þú værir einvaldur í HÍ, hvað myndiru gera til að breyta og bæta skólann?
Ég geri ráð fyrir að í þessum hliðarveruleika setti ég af stað order 66 og þess vegna orðinn THE SENATE þannig það fyrsta sem ég myndi gera væri bara damage control. Síðan myndi ég tryggja að sömu réttindi hvað varðar endurtektar- og sjúkrapróf tíðkist sama um hvaða svið eða deildir er að ræða.
Axel Jónsson, félagsráðgjöf
Dagur Kárason, viðskiptafræði
39