2023
Sérstakar þakkir Arent Orri Jónsson Dagur Kárason Daníel Hjörvar Guðmundsson Franklín Ernir Kristjánsson Sigurbjörg Guðmundsdóttir Valdís Mýrdal Gunnarsdóttir Ritnefndin Dagur Kárason Franklín Ernir Kristjánsson Lilja Ósk Atladóttir Tinna Eyvindardóttir Valgerður Laufey Guðmundsdóttir Hönnun og umbrot Valdís Mýrdal Gunnarsdóttir Vaka - Félag lýðræðissinnaðra stúdenta @vakafls - vaka.hi.is
Glaðvakandi 2023
06 09 10 12 16 20 22 26
Ávarp ritstýru Hópmynd af ritnefndinni Ávarp formanns Vökuvarningur Vertu með í Vöku! Story time af hjólaferð Tinnu og Dags Get to know Stúdentaráðsfulltrúarnir okkar basically hin hliðin, fyndið. Heitt og þreytt
28 30 35 36 40 42 44 46 48 50
Stjörnuspá gjaldkerans Áróður? Nei, ég er óður
Stóri Hjö ratleikurinn Hvaða Vökuliði ert þú? Topp 5 byggingar Háskóla Íslands Að Háma í sig pening Stefnumál Vöku Stefnur sviða Nefndir Falskar ástir (ekki Flóna-Lagið)
6
Ávarp ritstýru
Kæri lesandi, aldrei hefði mig órað fyrir því að það væri svona erfitt að skrifa ritstjóraávarp, þetta er einhver mesta ritstífla sem ég hef upplifað. Hvað um það, ég held að flestir beri frekar blendnar tilfinningar til háskólanámsins. Þetta er jú, óneitanlega skemmtilegt. Það er gott að vera í rútínu í skólanum og í góðra vina hópi. Mikið um party, vísó, viðburði og þess háttar en svo er maður líka að þroti kominn að finna öll möguleg hikorð og lengingar til þess að fylla í orðafjölda í ritgerðina korter í skilafrest eða jafnvel í fjögurra tíma verklegum tíma í efnafræði að títra. Skólinn væri alls ekki sá sami án félagslífsins og í Háskóla Íslands er nóg framboð af því. Þar er hægt að taka þátt í nemendafélögum en einnig hægt að dýfa sér í stúdentapólitíkina og hagsmunabaráttu sem er- hlutlaust mat- hið fínasta félagslíf. Ég vil hvetja nemendur til að hafa skoðanir og koma þeim á framfæri og taka þátt í því félagslífi sem þessi álma háskólans hefur upp á að bjóða. Vaka er staður þar sem hagsmunabarátta stúdenta, félagslíf og vinskapur fær að taka pláss. Það hefur verið gaman að gera þetta fína blað með flottri ritnefnd og ég vona að þú, lesandi góður munir hafa gaman af því að lesa það. Ég vil þakka nefndinni og öllum þeim sem komu með einum eða öðrum hætti að gerð þessa blaðs fyrir óeigingjarnt og göfugt starf, vinnusemi og fórnfýsi. Annars er ég lítið fyrir væmni og læt þetta því gott heita. Njóttu í botn, Signý Pála Pálsdóttir, ritstjóri
7
8
Ritnefnd Vöku 2023
9
Ávarp formanns
10
Aldrei hef ég verið í þeirri stöðu að þurfa að ávarpa eitthvað blað (er ég að ávarpa blaðið eða þig kæri lesandi?), en hingað er ég kominn. Síðastliðin ár hef ég fengið að taka þátt í starfi Vöku, eða öllu heldur upprisu þessa félags. Þessi ár mín í Vöku hafa einkennst af blendnum tilfinningum, flestar af hinu góða, lélegri tímastjórnun, partýum, málefnastarfi og umfram allt – af vináttu. Ég átta mig fyllilega á því að þetta hljómar virkilega klisjukennt en þetta er bara nákvæmlega staðan. Vaka er nefnilega ekkert annað en risastór fjölskylda, og hún heldur bara áfram að stækka. En ókei, ég held ég komist samt ekki hjá því að tala aðeins um fílinn í herberginu: hvað er það fyrsta sem þú, ágæti lesandi, hugsar um þegar þú heyrir orðin „stúdentapólitík“, „SHÍ“, „Stúdentaráð“ og annað í þessum dúr? Er það ekki bara nokkurn veginn þannig að þú veist að þetta er eitthvað dæmi sem tengist skólanum en þér er eiginlega bara alveg sama um það? Ef ekki, þá vel gert, en ekki örvænta ef það er staðan, því ég er frekar viss um að flestir samnemendur okkar hugsi nákvæmlega þetta sama, ég er allavega á þeim vagni. En ókei, þegar ég segi að mér sé sama þá meina ég að sjálfsögðu ekki að mér sé sama um hagsmuni stúdenta, heldur bara um þessa blessuðu pólitík sem þarf alltaf að koma inn í þetta. Mér finnst þetta nefnilega bara nokkurn veginn borðleggjandi dæmi. Við viljum betri skóla. Við viljum að aðstaðan sé næs, að námið sé næs, fólkið næs og í rauninni bara að allt sem tengist þessum skóla sé bara frekar næs. Ef þú spyrð mig þá finnst mér þetta vera frekar beisik krafa. Því það er svo mikið af hlutum í þessum skóla okkar sem eru bara alls ekkert næs. Sumir eru allt í lagi og aðrir meh. Ég ætla ekkert að þykjast geta reddað öllu, en flest af þessu eru bara frekar einföld dæmi. Er of flókið fyrir háskólann að redda til dæmis bara aðeins betri borðum og stólum, og helst þá einhverjum sem eru ekki af Gefins, allt gefins eða úr leikskóla? Já, eða að það séu innstungur sem virka í stofum. Er þetta of flókið? Þetta eru hlutirnir sem skipta okkur nemendur máli. Stúdentapólitíkin er komin úr böndunum og að mínu mati er bráðnauðsynlegt að við beinum spjótum okkar aftur að raunverulegum hlutum sem snerta hagsmuni stúdenta. Ekki baráttu um hugmyndafræði eða landspólitík, heldur um gæði námsins og skólans. Ég veit ekki með þig, en Vaka mun berjast fyrir þessu, og þér er að sjálfsögðu boðið með. Mig langar að þakka ritnefnd Vöku og Signýju Pálu ritstýru fyrir að þola mig og fyrir þetta blað. Ég vona innilega að þú hafir jafn gaman af því og ég! Arent Orri Jónsson 11
12
13
14
15
16
Vertu með í Vöku!
17
Storytime af hjólaferð í skólann Fimmtudagurinn 31. ágúst var að öllum líkindum nokkuð eðlilegur fyrir flest öll þau sem ákváðu að mæta upp í Háskóla Íslands, en ekki alveg öll… Dagur Kárason og Tinna Eyvindar ætluðu sér aðeins að breyta til! Kvöldið áður var viðburðaríkt er Dagur og Tinna fengu sér nokkra ískalda á Stúdentakjallaranum og byrjuðu að ræða hvernig þau gætu kolefnisjafnað sína grútskítugu hætti, eins og það að keyra í skólann alla leið frá Grafarvogi. Þá kom upp sú hugmynd hvort það væri ekki bara best að hjóla?! Bæði Tinnu og Degi þótti það vera afbragðshugmynd og fannst það alls ekki mega bíða. Það þyrfti helst að gerast morguninn eftir. Dagur og Tinna vöknuðu eldhress klukkan 07:00 og gerðu sig klár í slaginn. Tinna og Dagur voru tilbúin klukkan 07:50 og byrjuðu þá hjólaferð sína frá Staðahverfi sem staðsett er í Grafarvogi, eða hverfið sem er næst Mosfellsbæ. Ferðin byrjaði hjá þeim köppum, Tinnu og Degi, og voru fyrstu kílómetrarnir nokkuð skrautlegir. Hjólastígar voru ómerktir eða einfaldlega ekki til staðar, það var engin leið til að vita hvar hjólreiðafólk ætti heima en eitt var þó ljóst, þetta var helvítis brekka. Ekki leið á löngu þar til Dagur hrundi af hjóli sínu og þurfti Tinna að reiða hann. Ekki þeirra stoltasta stund. Fyrsta vatnspása var tekin í lúgunni á Olís við Gullinbrú þar sem Dagur og Tinna svöluðu þorsta sínum eftir að hafa hjólað á ágætis tíma fram að því. Einnig fengu þau ókeypis kaffi af einskærri vorkunn starfsfólks. En ekki er hentugt að hjóla með kaffibolla þar sem ekki eru glasahaldarar á 20
venjulegum reiðhjólum. Stoppið var þó stutt vegna þess að för þeirra Tinnu og Dags hélt ótrauð áfram og máttu þau ekki dýrmætan tíma missa. Þegar þau voru komin að Sæbrautinni skelltu þau upp úr vegna umferðarinnar sem þau þurftu ekki lengur að hafa áhyggjur af, því jú þau voru hjólandi. Þegar Tinna og Dagur hjóluðu Sæbrautina kom mjög þögull hálftími þar sem þau voru orðin mjög þreytt og búin á því en þau héldu ferð sinni samt sem áður áfram. Loks voru þau komin í miðbæ Reykjavíkur, sveitt, köld og full af eftirsjá ákvarðanatöku gærkvöldsins, en þjáningin var þó ekki liðin þar sem ein áskorun stóð enn á milli Dags og Tinnu og Háskóla Íslands. Dómharðir MR-ingar og Kvenskælingar. Það gat ekkert komið í veg fyrir að Tinna og Dagur kæmust á leiðarenda og var eina í stöðunni að spýta í lófana, gráta smá og bruna í gegnum þvöguna. Klukkan var 10:00 er þau mættu á Háskólatorg þar sem þau gæddu sér á hræódýru hágæða fæði frá HÁMU. Þar sem Dagur og Tinna misstu bæði af fyrsta tíma, ákváðu þau að ganga í Vesturbæjarlaug og tóku nokkra sundspretti. Það sem Tinna og Dagur höfðu að segja um hjólaferðina: Dagur: „Ég hefði ekki viljað gera þetta með neinum öðrum, en þetta var samt glatað.” Tinna: „Þetta er það allra leiðinlegasta sem ég hef á ævi minni gert.”
hjólreið
bifreið
umhverfisvænt
já
nei
þægindi
nei
já
hægt allan ársins hring
nei
já
tímafrekt
já
nei
aðgengi
nei
já
öryggi
nei
já
merktir stígar/vegir
nei
já
glasahaldari
nei
já
leiðinlegt
já
nei
hentugt utan miðbæjar
nei
já
farangur
nei
já
lowkey ick
já
nei
21
Kynnstu stúdentaráðsfulltrúum okkar
SPURNINGAR
1. Hvert er uppáhalds hagsmunamálið þitt í HÍ? 2. Hvað færðu þér í Hámu? 3. Hvað færðu þér í bragðaref? 4. Hver er celebrity crushið þitt og nennirðu að rökstyðja svarið? 5. Hver er uppáhalds maturinn þinn? 6. Fyrirmynd og af hverju? 22
Júlíana Dögg
1. Aðgengi fyrir öll í HÍ. 2. Fæ mér aldrei neitt í Hámu 3. Hindber, piparfylltan lakkrís og daim. 4. Kehlani af því að hún er bara ekkert eðlilega falleg og ég elska karakterinn sem hún er. 5. Hakk og spagettí og fiskur í raspi. 6. Afi minn af því að hann er alltaf til staðar fyrir fólkið sitt og er óeigingjarnasta manneskja sem ég þekki. 23
1. Bílastæðamál 2. Bleikan collab 3. Hockey pulver, jarðarber og kókos 4. Sofia Vergara, þarfnast ekki rökstuðnings. 5. Cannelloni 6. Á margar fyrirmyndir en tek almennt séð fólk til fyrirmyndar sem setur sér markmið og lætur verða af þeim. Elísabet Sara
Júlíus Viggó
24
1.Þó svo að þetta mál fái engan framgang í Stúdentaráði undir meirihluta Röskvu, þá finnst mér mjög mikilvægt að gjaldskylda verði ekki lögð á stúdenta HÍ fyrir að leggja hjá skólanum. 2. 90% af Hámuferðum eru kaffiferðir. 3. Geggjuð spurning, ég hef verið að bíða eftir að deila snilli minni með heiminum: Hnetusmjör, oreo og heit karamellusósa. Try it. 4. Lily Collins, ég veit ekki alveg hvað gerir það. Dökkhærð og glæsileg - kannski spila augabrúnirnar inn í dæmið. 5. Fékk mér pekanhnetuböku á Hressingarskálanum um daginn sem var nokkuð góð. 6. LBJ. Hann tók fundi á klósettinu.
1. Ég myndi segja að það væri baráttan við menntasjóðinn og allar þær spurningar sem vakna við þessa stofnun. 2. Kókómjólk og tebollu. 3. Yfirleitt gúmmí, salmíak lakkrísflögur og lúxusídýfu. 4. Harry Styles, do I need to? 5. Hjemmelavet vegan tacos. 6. Mamma og pabbi skiptast á að vera mínar fyrirmyndir, finnst þau bæði svo ofboðslega sterkir, skemmtilegir og drifmiklir karakterar. Eiður Snær
Daníel Hjörvar
1. Ég vil berjast fyrir eflingu nemendafélaga svo allir nemendur háskólans geti tekið þátt í öflugu félagslífi. 2. Roast beef smurbrauðið og pulsur í prófunum. 3. Ég borða ekki ís. 4. Ég komst til kynvitundar þegar ég sá Natalie Portman í Star Wars: Attack of the Clones. Svipað má segja með Kieru Knightley í Pirates of the Caribbean. Nú á dögum er það sennilega Phoebe Bridgers eða Tinna Eyvindar. 6. Shit hvað þetta eru cringe spurningar. Ég er fullorðin manneskja, ég á ekkert einn uppáhalds mat. Bara sushi eða eh. 7.Trajan, þegar hann réði sem keisari Rómaveldis frá 98 til 117 náði veldið hámarki landfræðilega séð. Öll getum við séð af hverju það er pottþétt skemmtilegt að vera einvaldur yfir Evrópu. Svar til vara Júlíus Viggó. 25
26
heitt undirgöngin í Veröld Vökupartý Vökuvarningur tvískipt frítekjumark bjórverðið á kjallaranum (ef það hækkar ekki meira) skólinn (oft heitt í skólanum) taka þátt í Stóra Hjö ratleiknum
þreytt hátt verð í Hámu ástandið á almenningssamgöngum vinna með skóla biðlistarnir inn á stúdentagarða microsoft authenticator þegar collabinn gýs í tíma hlaupaperlur í bragðaref (fullorðið fólk á ekki að borða hlaup) 27
Stjörnuspá gjaldkerans Kæri lesandi, þetta skólaár byrjaði snemma en verður fljótt búið. Ég hef kíkt á bókhaldið og afstemmt nokkrar spár. Stjörnurnar hafa talað og örlög okkar má sjá hér að neðan. Mikilvægt er að lesa rétt úr þessari spá, rétt eins og ársreikningi FS sem er ekki sundurliðaður (skrýtið en satt). Franklín, gjaldkeri
Steingeit
Vatnsberi
Fiskur
Hrútur
Haltu áfram að gera það sem þú ert að gera (nema eiturlyf, leitaðu þér hjálpar). Þú ert geitin og mátt haga þér þannig. Vertu ákveðin og sterk því að þú veist best hvað þú vilt. Haltu þér samt fjarri Odda, borðin þar eru hvort sem er ógeðsleg.
Ekki leyfa straumnum að sigra, þetta er alveg að hafast. Mundu að anda djúpt því fram undan er Lögberg og þar er þungt loft. Þetta er ár lærdómsins en ekki hleypa öllu að vegna þess að það er mikilvægt að forgangsraða og verja tíma með vinum og vandamönnum.
28
Vaknaðu til leiks og taktu þetta ár beint á kassann. Sumarið er liðið og nú er tími til að klára skólaárið með stæl. Ekki vera Röskvur á því, því þegar við flýtum okkur þá gerist vitleysan. Dragðu andann djúpt en í guðanna bænum ekki fá þér Opal og túnfisksamloku.
Á þessu skólaári muntu upplifa margt nýtt, þú munt eignast nýja vini, fá ný tækifæri, prufa ýmislegt nýtt undir sæng og á fótum og taka þátt í nýjum verkefnum. Ekki hika við að hoppa á vagninn og leyfa eldinum innra með þér að loga. Passaðu þig samt í lokaprófunum því að árið verður stútfullt af breytingum og það á líka við um einkunnir.
Naut
Tvíburi
Krabbi
Ljón
Meyja
Vog
Þetta verður strembið ár. Kennararnir munu leggja fyrir fjölbreytt og þung verkefni sem munu reyna mikið á sálina sem og á hausinn. Ekki hræðast þennan nýja veruleika, mættu þínum innri djöflum og sigraðu þá. Það gæti líka verið tími til að kaupa lottómiða þrátt fyrir líkurnar á vinningi.
Þetta verður rólegt skólaár, fullt af rómantík og góðum vinum. Njóttu þess góða á meðan það endist því lífið er eins og vegur og það er traffík fram undan í Vatnsmýrinni. Hættu að ofhugsa og kauptu þér gulu peysuna, af því að það er liturinn í ár og þú ert með'etta.
Sporðdreki
Bogmaður
Skólaárið mun líða hratt og þér mun líða eins og þú sért komið á þinn heimastað. Það er mikilvægt að þú leyfir þér að njóta öryggisins því að í janúar muntu fá stórar fréttir sem munu breyta öllu og rífa þig frá rótum þínum. En ekki örvænta því að á enda leiðangursins muntu finna þér þinn stað á ný og ganga sælt inn í sumarið.
Skólaárið mun líða hratt og þú munt fara í gegnum tilfinningarússíbana sem mun gera þér kleift að kynnast nýjum hliðum af sjálfum þér. En eftir þetta ferðalag verður þú þakklátur og munt sakna þess. Láttu vaða og ekki halda aftur af þér, því að þetta er ár breytinga og þú getur leitt þær.
Treystu innsæinu og hættu að hjálpa sæta stráknum í hópverkefninu. Hann er bara að nota þig fyrir glósur. En ekki gefast upp á ástinni því að hún er rétt handan við hornið. Vertu vakandi því að hún gæti líka verið nær en þig grunar.
Skólaárið verður tvíþætt, svart og hvítt, gott og vont. Þú munt finna fyrir innri togstreitu og vangaveltum og núna er stundin til að taka upp tólið og tala við gamlan vin. Það er mikilvægt að týna ekki sjálfum sér á svona stundum og leyfa hjartanu að ráða för.
Mííííííjáá, þetta skólaár verður ROSALEGT! Þú munt kynnast hliðum af sjálfu þér sem þú vissir ekki að væru til. Árið er 1960 og það er kominn tími til að hætta þessum tepruskap og leyfa rándýrinu sem býr innra með þér að ráða för, því villibráðin verður góð. Hlauptu niður í Hámu og fáður þér roast not beef samloku nuuna.
Það er eðlilegt að finna fyrir leiðindum en ekki gefast upp, þetta er alveg að verða búið. Taktu sénsinn því það mun borga sig og ekki leyfa öðrum að stjórna þér. Finndu þér skotmark og slepptu örinni því þú getur þetta. Þetta er í eðli þínu. 29
Áróður? Nei, ég er óður. Áróður? Nei, ég er óður. Áróður? Nei, ég er óður. Áróður? Nei, ég er óður. 30
Dagur Kárason
Það er fátt betra en að afreka eitthvað, að leggja sig allan fram og uppskera það sem maður sáir! Hvort sem það sé að sigra íþróttaleik og/eða -keppni, fá góða einkunn í prófi eða bara taka til inni hjá sér, þá er líklegast engin tilfinning betri. Manni líður eins og ofurmenninu, tilbúinn að ganga út um dyrnar og bjarga heiminum með þakklæti, heiðarleika og auðmýkt sér efst í huga. En hvað með þau sem hafa engan áhuga á því að ná settum markmiðum og afreka nokkurn skapaðan hlut? Eða einfaldlega geta það ekki? Þau sem vilja upplifa þessu sigursælu án þess að sigra hvorki eitt né neitt? Eiga þau ekki líka að fá þátttökumedalíu, smella mynd af sér með hana og skutla henni beint á grammið með stolti? Jú auðvitað! Það skiptir ekki máli hvaða áhrif það hefur á aðra sem börðust fyrir sigri, hvort sem hann hafi verið stór eða smár. Það skiptir engu máli, blóð, sviti og tár eru í stöðugri framleiðslu í líkamanum þannig um að gera. Síðan eru að sjálfsögðu þau sem taka ekki einu sinni þátt og fá þar af leiðandi enga medalíu, það verður að sjálfsögðu að verðlauna þeim, eða réttara sagt þá
verða þau að verðlauna sjálfum sér... Það vill svo heppilega til að ég er með lausnina við því! Eignaðu þér bara afrek annara, berðu þau með stolti og hvert sem þú ferð skaltu minnast á þau! Taktu alla þá vinnu og svefnlausu nætur sem hafi farið í eitthvað tiltekið verkefni og hirtu það af þeim sem kláruðu það. Það er lítið mál, eins og að hnupla sælgæti frá barni (sem er líka í lagi). Þetta á að sjálfsögðu líka við um réttindabaráttu stúdenta, þar sem engar raunverulegar framfarir þurfa að eiga sér stað þegar þegar hægt er að sigla á framtökum annara mörg ár aftur í tímann. Work smart not hard eins og spekingurinn knái sagði á sínum tíma, hver nákvæmlega það var veit ég ekki þannig héðan í frá verður þessi frasi minn. Það vill svo heppilega til að afleiðingar eru ekki raunverulegar eins og réttindi stúdenta og því má gera hvað sem er, eða bara sitja hjá, niðurstaðan er sú sama. Don‘t hate the player, and don‘t hate the game. Just take credit. 31
Njóttu þess að vera hluti af lifandi háskólasamfélagi. Fjölbreytt þjónusta fyrir alla. Háskólatorgi, Sæmundargötu 4 102 Reykjavík Sími: 5 700 700 fs@fs.is · www.fs.is 2SL² P£QXGDJD ȴPPWXGDJD kl. 9-16 og föstudaga kl. 9-12
Félagsstofnun stúdenta_ISC000940_220x150.indd 1
20-02-2023 11:07:40
Ğ«ô«ýÉåƠ ýŌĨĨƠĢ«ö«ĨƠ¬Ơ ãńÍĞóĭüƠ ÉÍßå 32
Ơ
LIFANDI TÓNLIST FRá kl. 10:00 á kvöldin HAPPY HOUR frá kl. 16-19
BOLTINN í beinni á 6 HD skjám útisvæði
píluspjald
Austurstræti 12 | 101 Reykjavík | Tel: 578-0400 | enskibarinn.is | info@enskibarinn.is
33
Stóri Stóri Stóri Hjö ratleikurinn
34
Góðan dag kæru hálsar og verið velkomin í fyrsta árlega Stóra Hjö ratleikinn. Ég vil þakka fyrir tækifærið enda vita flestir að ratleikur þessi er eina ástæðan fyrir því að ég bauð mig fram til setu í Stúdentaráði. Það er til mikils að vinna og útlit fyrir að vinningurinn verði ansi fljótur að fara… enda ekki af verri endanum… Ég er búinn að koma fyrir vísbendingum um allan skóla og munu þær leiða ykkur að fjársjóðinum. Fyrsta vísbendingin er eftirfarandi: Vísbendingin tengist manneskju. Manneskja þessi gegndi áður fyrr áhrifamiklu embætti í þágu þjóðarinnar. Vegna mikilvægis starfsins sem manneskjan gegndi hefur hún orðin svo lánsöm að fá byggingu hér á háskólasvæðinu nefnda eftir sér. Vísbendinguna má finna á lesstofu á 2. hæð í byggingunni. Gangi ykkur vel. Daníel Hjörvar Guðmundsson 35
Hvaða Vökuliði ert þú? Hversu leiðinlegur ert þú á skalanum 1-10? A. 12 B. 9 C. -4 D. 2 Ef þú værir staður niðri í bæ, hvaða staður værir þú? A. Allt nema Auto B. Prikið C. Spánski D. Lemmys Hvað sefurðu að jafnaði lengi á nóttunni? A. Tek 15 mín nap B. 4 tíma C. 8 tíma D. Ekki nóg Hvað færðu þér í bragðarefinn þinn? A. Ég er með mjólkuróþol :( B. Jarðarber, kökudeig, kókosbollu og smá lúxusdýfu C. Go to er jarðarber, hockeypulver og snickersbitar D. Fæ mér ekki bragðaref 36
Á hvaða miðil ferðu þegar þér leiðist í tíma? A. Chess.com B. Tetris.com C. Fasteignir.is D. Sudoku Hvað gerirðu ef þú klessir bílinn þinn á leiðinni í skólann? A. Tek upp my lawyer card og flyt málið sjálfur B. Fer að gráta tbh C. Læt close friends á Instagram vita og hringi svo í pabba D. Bíllinn minn er brotinn þannig að ég pæli ekkert í þessu Hver er celebrity crushið þitt? A. Dua Lipa B. Jason Bateman (með buzz cut) C. Austin Butler D. Natailie Portman Go-to drykkur á djamminu? A. Godfather B. Stella C. Helga nr. 69 D. Steypuskot 37
Flest A = þú ert Arent.
Þú ert… bíddu er ég búinn að skila verkefninu?? Já, þú átt það til að vera utan við þig og erfitt getur verið að ná í þig. Þú ert góður í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur og náttúrulegur leiðtogi. Þú þarft að passa þig að þekkja þín mörk því þú átt það til að taka að þér of mörg verkefni. Kannski er það þér fyrir bestu því þú ert þrautseigur, duglegur og alltaf tilbúinn í slaginn. Haltu þig samt frá ísnum því það finna allir lyktina.
Flest B = þú ert Tinna.
Sumir kalla þig Wednesday en það þarf ekki alltaf að vera neikvætt. Þú ert ómannglögg, ákveðin og föst á þínu. Stundum virðist þú líka hafa tengingu við einhvern æðri mátt. En þegar fólk kemst í þinn innri ramma þá breytist nótt í dag og þú faðmar heiminn og fólkið. Þú ert eins og skildingur með tvær afgerandi hliðar sem fáir fá að sjá. 38
Flest C = þú ert Vallý
Þú ert vinur allra sem verða þér á vegi og veist allt um alla. En þegar þú hefur ekki fengið þína átta tíma af svefni þá er eins gott að passa sig að vera ekki fyrir þér og hvað þá þegar þú hefur ekkert borðað. Þú ert málglöð og hefur alltaf eitthvað fyndið að segja. Þú eltir sjaldan stemningu en mætir frekar með hana og það er þitt hlutverk í vinahópnum.
Flest D = þú ert Dagur
Þú ert mikill pælari og bjórunnandi. Lífið er skóli og þú ert svo sannarlega tilbúinn að læra, enda náðirðu hápunkti félagslega í framhaldsskóla og ekki veitir þér af því að setjast loksins niður og opna bók. Þú vilt engum illt enda góð sál og enn betri vinur. Ef eitthvað bjátar á dustar þú rykið af gleraugunum og heldur ótrauður áfram með húmorinn að vopni. 39
Topp 5 byggingar Háskóla Íslands
Hjólaskýlið fyrir utan VR-II Hentug bygging fyrir óhentugan, óaðgengilegan og tímafrekan ferðamáta. Hægt er að læsa hjólum. Það er líka skýli.
Íþróttahús Háskóla Íslands Í íþróttahúsi Háskóla Íslands er stærðarinnar salur fullur af líkamsræktartækjum, þar sem hægt er að telja hlaupabrettin á fingrum annarrar handar. Þar nemur ársgjaldið aðeins 12.000,40
Oddi Oddi, húsnæðið þar sem hægt er að læra í ró og næði án hávaða í skúringarvélum, ryksugum og borvélum. Ójöfn, skítug borð og óþægilegir stólar sem passa ekki undir borðin í stíl. Loftræsting: stundum.
Árnagarður Árnagarður, tale as old as time. Þegar gengið er inn um dyr Árnagarðs finnst þér eins og þú klessir á vegg, hafðu ekki áhyggjur því þetta er bara þungt (líklega) óskaðlegt loft. Er þetta borð? Er þetta stóll? Enginn veit en það verður þröngt um þig. Tölvubúnaður sem eldist líkt og opinn bjór. Húsgögn og innrétting í eldri kantinum, í takt við skjöl Árnastofnunar sem áður voru geymd í kjallaranum þar.
Stiginn innan Háskólatorgs Stiginn innan Háskólatorgs, þar sem hvert þrep nemur um tveimur og hálfu skrefi eða einu og hálfu, fer eftir lengd fótleggja. Þar sem þú lítur asnalega út þegar þú gengur niður, en ekki örvænta, það eru allir asnalegir þegar þeir ganga niður þennan stiga, ekki bara þú. 41
Að Háma í sig pening
Júlíus Viggó Ólafsson
Háma er allt of dýr. Það veit hver stúdent sem að hefur a) verslað í Hámu, og b) verslað í öðrum verslunum á Íslandi.Í kosningabaráttunni í vor gerði Vaka verðsamanburð á Hámu og Bakkanum, sjoppunni á Eyrarbakka. Bakkinn rekur sig á viðskiptum fólks sem mætir til þess að dæla sér dýrindis ÓB bensíni og stekkur inn til að kaupa sér kannski eina sykurlausa appelsín og eitt sett. Til samanburðar hefur Háma tryggð viðskipti við þúsundir stúdenta á hverjum degi, er þar að auki ekki rekin í hagnaðarskyni og er undanþegin tekjuskatti og útsvari. Því kom það okkur verulega á óvart að það er töluvert dýrara að versla í Hámu en í sjoppunni á Eyrarbakka. Til samanburðar kostaði Nocco 370 krónur á Eyrarbakka en 415 krónur í Hámu, Hleðsla 315 krónur á Eyrarbakka en 435 krónur í Hámu og skyrdolla 290 krónur á Eyrarbakka en 375 krónur í Hámu. Maður spyr sig: Hvernig stendur eiginlega á þessu? Háma er rekin af Félagsstofnun stúdenta (FS) sem allir stúdentar Háskóla Íslands eiga aðild að, lögum samkvæmt. FS lýsir sér svohljóðandi á heimasíðu sinni: FS er fyrst og fremst þjónustufyrirtæki fyrir stúdenta við Háskóla Íslands og er aðalmarkmið að bjóða stúdentum við HÍ góða þjónustu á góðum kjörum og auka lífsgæði stúdenta. Gildi FS eru: Góð þjónusta – Virk samvinna – Jákvæð upplifun – Markviss árangur. 42
Við í Vöku vildum kanna af hverju í ósköpunum hin óhagnaðardrifna Háma væri svona rosalega dýr, svo við báðum um að fá ársreikninga FS í hendurnar til að rýna í tölurnar. Þá kom í ljós að FS aðskilur ekki rekstur sinn í ársreikningum sínum. FS er nefnilega í gríðarlega fjölbreyttum rekstri en stofnunin rekur Stúdentagarða, Hámu, Bóksöluna (og Bókakaffið), Stúdentakjallarann, tvo leikskóla og fleira .Í ársreikningum FS eru allar þessar mismunandi rekstrareiningar samandregnar í eitt. Hvað þýðir það? Það þýðir að tekjur og gjöld allra mismunandi rekstrareininga FS blandast saman í einn graut svo það er engin leið að greina í sundur hvað gengur vel og hvað gengur illa. Það gæti alveg eins verið peningatætari staðsettur inni í horni á skrifstofu FS sem tætir í sig 20% af öllum tekjum stofnunarinnar og við myndum engan veginn geta komist að því. Því lagði Vaka fram tillögu á stúdentaráðsfundi þann 19. október um að SHÍ myndi beita sér fyrir því að FS birti ársreikninga sína á vefsíðu sinni og að þeir væru sundurliðaðir eftir rekstrareiningum. Okkar skoðun er sú að þar sem stúdentar við HÍ eru lögum samkvæmt aðilar að FS þá eigi þeir rétt á að fá grunnupplýsingar um hvernig peningum þeirra er varið innan stofnunarinnar. Vinir okkar í Röskvu voru þó ekki sammála okkur. Þeir töldu slíkt gagnsæi ekki nauðsynlegt og vildu ekki að allir stúdentar hefðu aðgang að þessum upplýsingum. En gott og vel, Vaka vann að praktískri málamiðlun á fundinum. Vaka fékk það í gegn að SHÍ mun beita sér fyrir því að samandregnu ársreikningarnir verði birtir á heimasíðu FS, en að sundurliðaðir ársreikningar verði gerðir aðgengilegir stúdentaráðsliðum á skrifstofu SHÍ í pappírsformi. Það þýðir að þú sem almennur stúdent munt ekki hafa aðgang að þessum upplýsingum eins og Vaka vildi, en stúdentaráðsliðar geta samt komist í þær. Þetta er auðvitað ekki alveg gagnsæið sem Vaka fór fram á, en þó áfangasigur. Fulltrúar Vöku munu fylgja þessari samþykkt eftir og sjá til þess að þessir sundurliðuðu ársreikningarnir skili sér á skrifstofu SHÍ. Og þegar sundurliðaðir ársreikningar eru komnir á skrifstofu SHÍ munu fulltrúar Vöku liggja yfir þeim til þess að finna hvar vandamálin í rekstri FS kunna að vera og vinna áfram í áttina að bættum kjörum og þjónustu fyrir stúdenta. Því við vitum ekki nákvæmlega hvað er að, en við vitum að það er vissulega eitthvað að. Það þarf að endurskoða rekstur FS og þar sem að FS er óhagnaðardrifin sjálfseignarstofnun þá á hagræðing í rekstri hennar að skila sér beint í betri kjörum fyrir stúdenta, hvort sem það sé í formi lægri leigu á Stúdentagörðum, lægra verði í Hámu, betri þjónustu eða lægra verði annars staðar í þjónustu FS. 43
Stefnumál Vöku 44
Vaka heldur mörgum boltum á lofti! Um þessar mundir er megináherslan á eftirfarandi málefni.
Félagsstofnun stúdenta!
Endurskoða þarf rekstur Félagsstofnunar stúdenta, og þar sem FS er óhagnaðardrifin sjálfseignarstofnun þá á hagræðing í rekstri hennar að skila sér beint í betri kjörum fyrir stúdenta, hvort sem það er í formi lægri leigu á Stúdentagörðum, lægra verðs í Hámu, betri þjónustu eða lægra verðs annars staðar í þjónustu FS.
Tengslatorg Háskóla Íslands!
Tengslatorg er vettvangur þar sem fyrirtæki og stofnanir geta auglýst laus störf og önnur atvinnutengd verkefni fyrir stúdenta HÍ. Stórefla þarf Tengslatorg, fjölga þarf þeim valmöguleikum sem þar standa til boða og kynna vettvanginn betur fyrir stúdentum sem og atvinnulífinu. Einnig þarf að skoða nánari útfærslu á því að samstarf stúdenta við að atvinnulífið verði metið
Litlu hlutirnir sem raunverulega hafa áhrif á stúdentinn!
Erum við ekki að missa sjónar á því sem raunverulega snertir stúdentinn? Okkar hlutverk er að bæta hag stúdenta og stúdentum á að líða vel í skólanum. Til að mynda þarf betri borð og stóla í margar byggingar og innstungur í allar stofur, hjólaskýli víðar á háskólasvæðið og lægra vöruverð í Hámu. Við megum ekki gleyma þessum „litlu” málum sem stórbæta daglegt líf stúdentsins.
Vaka hefur upp á stórgóða stefnuskrá að bjóða og berst ötullega fyrir málefnum á þeim sviðum! Málefnaflokkarnir á stefnuskránni okkar eru:
Alþjóðamál Atvinnumál Doktorsnám Félagsstofnun stúdenta Fjármál Háskóla Íslands Fjölskyldumál Hinsegin málefni Húsnæðis- og aðgengismál Jafnréttismál Kennslumál Menntasjóðsmál Umhverfis og samgöngumál
Ef þú vilt lesa meira og kynna þér málefnin okkar betur, skannaðu þennan QR kóða! 45
Stefnur sviða
46
Menntavísindasvið
- Tryggja að flutningur MVS í Sögu gangi eins og best verður á kosið - Fyrirlestrar teknir upp og gerðir aðgengilegir á Canvas - Uppfærðar kennsluáherslur í takt við raunveruleg störf
Heilbrigðisvísindasvið
- Bætt námsaðstaða - Starfsnám sé greitt - Samræming staðsetninga kennslustunda - Fyrirlestrar teknir upp og gerðir aðgengilegir á Canvas - Endurtekt í sálfræðideild
Félagsvísindasvið
- Bætt kennsluaðstaða - Fyrirlestrar teknir upp og gerðir aðgengilegir á Canvas - Hámark sett á vægi lokaprófa og fjölbreyttara námsmat
Verkfræði- og náttúruvísindasvið
- Ný húsgögn og bætt aðstaða í VR-II - Lægra vægi lokaprófa, verkefni einnig metin til einkunnar - Aukin tengsl við atvinnulífi
Hugvísindasvið
- Betri lærdómsaðstaða, þá sérstaklega aðgengi að slíkri þjónustu eftir lokun. - Nýrri og betri húsgögn, stólar og borð í skammarlegu ástandi í Árnagarði og Aðalbyggingu - Bætt innleiðing stundakennara, koma á fót námskeiði - Aukið gagnsæi, samræmi og skipulag þegar kemur að námsmati 47
Markaðsnefnd
Skemmtinefnd
Markaðsnefnd Vöku hefur tekist á við skemmtileg, krefjandi, fjölbreytt og ný verkefni það sem af er liðið skólaári. Markaðsnefndin sér um öll markaðsmál innan Vöku. Markmið nefndarinnar er að gera Vöku sýnilega á öllum helstu samfélagsmiðlum. Auk þess sér nefndin um að skreyta fyrir viðburði Vöku og um hönnun á Vökuvarningi. Stærsta verkefni nefndarinnar á skólaárinu hingað til var að auglýsa eftirpartý Vöku eftir Októberfest. Að öðru leyti höfum við aðallega verið að sjá til þess að Vaka sé sýnileg á Instagram og að taka myndir af Vökuvarningnum okkar. Ef þú hefur áhuga á að vera með í markaðsnefnd Vöku máttu endilega senda okkur línu á Instagraminu okkar vaka.fls.
48
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í nefnd á vegum Vöku en vilt ekki fara all in í það alvarlegasta, þá er skemmtinefnd klárlega eitthvað fyrir þig. Við í skemmtinefnd sjáum, eins og nafnið gefur til kynna, um allt það skemmtilegasta á vegum Vöku. Við sjáum um að halda viðburði og almenn skemmtilegheit, eins og partý, vísindaferðir og fleira sem tengist því að hafa gaman. Það eru spennandi tímar fram undan, bæði í Vöku og skemmtinefnd yfir höfuð, og okkur vantar alltaf fólk til að koma með okkur í að skemmta okkur og öðrum. Ef það á við um þig þá viljum við endilega fá þig til að sækja um og koma með okkur í að gera næstu mánuði eins skemmtilega og eftirminnilega fyrir fólkið í skólanum og hægt er.
Ritnefnd
Ritnefnd Vöku setur saman tvö blöð yfir skólaárið. Annars vegar þetta fína haustblað, Glaðvakandi og hins vegar kosningablað Vöku þar sem frambjóðendur og stefnumál eru kynnt og opinberuð fyrir stúdentaráðskosningar. Kosningablaðið kemur út að vori. Ritnefnd er frábær vettvangur fyrir fólk sem hefur áhuga á því að skrifa og búa til efni en er einnig kjörin fyrir þá stúdenta sem vilja taka þátt í félagslífi af einhverjum toga. Ritnefndin hvetur öll þau sem vilja slá til og prófa að hafa samband og ganga til liðs við nefndina, taka upp pennann og byrja að skrifa með okkur!
Fjármálanefnd Einn stærsti þáttur þess að halda uppi starfi öflugra hagsmunasamtaka er að sjá til þess að nægir fjármunir séu fyrir hendi. Án þess væri ekki hægt að halda sturluð partý, heyja öfluga baráttu og málflutningurinn yrði að kalli út í kosmósið sem fáir myndu heyra. Vegna þess hefur stjórn Vöku lagt sérstaka áherslu á að efla fjármálanefnd. Meginviðfangsefni nefndarinnar snýr að því að afla fjármuna með fjölbreyttum aðferðum. Á dagskrá nefndarinnar eru spennandi og áhugaverð verkefni sem eiga vonandi eftir að afla aukinna tekna til skamms tíma sem langtíma. Við hjá fjármálanefnd munum halda áfram að finna leiðir til að blása púðri í þetta sterka félagsstarf, svo við getum tryggt að enginn þurfi að þola þrönga sali, tóma kúta og falska tónlistarmenn í partíum. Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í þessari frábæru nefnd þá erum við alltaf að leita að nýju, skemmtilegu og vakandi fólki til að efla nefndina okkar.
Hafðu samband við okkur ef þú hefur áhuga á starfinu Instagram: Vaka.fls Email: vakafls@gmail.com. 49
Falskar ástir
Arent Orri Jónsson
(ekki Flóna-Lagið) 50
Þegar ég hóf nám við Háskóla Íslands einkenndist samfélagið og kennslan af veirufaraldri. Fáeinum mánuðum síðar flæddi inn í byggingar skólans og sú litla kennsla sem þar var lagðist af. Þá kom upp sú staða að háskólann vanti milljarð, og nú á síðustu vikum hefur legið fyrir úrskurður áfrýjunarnefndar í kærumálum háskólanema þar sem nefndin taldi útreikning þriðjungshluta skrásetningargjalds skólans ekki byggja á fullnægjandi útreikningum. Hvernig má það vera að skólaganga stúdenta í dag einkennist af einhvers konar hremmingum hvað eftir annað, sem minna á plágurnar sem Móse á að hafa kallað yfir Egypta. Ég held raunar að ég hefði frekar kosið stærðarinnar haglél og þriggja daga myrkur eins og henti Egypta í sögunni, en þær „plágur“ kallast víst vetur hérlendis. En þetta ástand sem hefur komið upp núna, hvaða merkingu hefur það? Með öðrum orðum, hvað þýðir þessi úrskurður nefndarinnar? Fyrir rétt rúmum áratug hóf Vaka þá baráttu, þegar Sigurður Helgi, stjórnarmaður félagsins árið 2013-2014, fór að djöflast í skrásetningargjaldinu. Vaka gekk hart fram í þessu máli en ákvað að leggja niður spjótin í bili þegar samkomulag náðist við skólann um að hækka ekki gjaldið.
Árið 2021 kærði stúdent gjaldtökuna, eða krafði skólann um endurgreiðslu skrásetningargjaldsins. Háskólaráð, æðsta ákvörðunarvald skólans, neitaði henni um það. Sú ákvörðun var kærð til áfrýjunarnefndarinnar, og niðurstaða hennar var sú að háskólinn ætti ekki að byggja gjaldið á forsendum fyrri ára heldur ætti að byggja á forsendum og útreikningum fyrir það ár sem um ræðir. Eðlilega. Háskólaráð tók því málið aftur fyrir, ræsti út stærðfræðideildina og reiknaði út þann kostnað sem hlýst af þjónustu skólans, sem ekki telst til kennslu eða rannsókna. Ráðið lagði þá útreikninga til grundvallar nýrri ákvörðun þar sem Háskólaráð hafnaði stúdentinum aftur um endurgreiðslu skrásetningargjaldsins, sem kærði svo ákvörðunina til nefndarinnar. Það er hérna sem nýi úrskurður áfrýjunarnefndar í kærumálum háskólanema kemur við sögu. Úrskurðurinn er álit nefndarinnar á seinni ákvörðuninni. Mat nefndarinnar er það að ekki sé fullnægjandi að byggja útreikning skrásetningargjaldsins á tilteknum hlutföllum af raunkostnaði nema fyrir liggi greining á því á hverju þau hlutföll byggi. Sem sagt, um þriðjungshluti gjaldsins er ekki talinn nægjanlega rökstuddur. Rétt skal vera rétt, háskólanum er skylt að endurgreiða þennan þriðjungshluta ef í ljós kemur að sá kostnaður sem býr að baki gjaldinu sé minni en gjaldtakan fyrir þriðjungshlutinn. Hins vegar, er ekki inn í neinni mynd, því miður, að háskólanum yrði gert að endurgreiða hinn hluta þess, enda taldi nefndin ekkert varhugavert við þann hluta. Þá er samkvæmt áliti nefndarinnar, skýr heimild fyrir gjaldtökunni í lögum, það hvernig háskólinn stendur að henni er hins vegar ekki fullnægjandi. Þær fullyrðingar sem forseti Stúdentaráðs hefur lagt fram um
að skrásetningargjaldið sé ólögmætt, er ekki bara rangt, heldur ósvífið. Álit nefndarinnar er eins og áður segir það að þeir útreikningar sem liggja að baki hluta skrásetningargjaldsins séu ekki nægjanlega rökstuddir. Á engan hátt og hvergi er nefndin að segja að gjaldið sé þar með allt ólöglegt eða að það sé ekki lagaheimild fyrir því. Ekki misskilja mig, ég væri mjög til í að fá 275 þúsund krónur lagðar inn á bankabók, hver væri það ekki? En staðan er bara ekki svona einföld. Fulltrúar Vöku fóru á fund með rektor í gær þar sem afstaða okkar var skýr – að sá hluti gjaldsins sem telst ekki standast skoðun, verði endurgreiddur, og rektor tók vel í þær kröfur og sagði þær eðlilegar og sanngjarnar. Það vekur reyndar upp margar spurningar að forseti Stúdentaráðs hafi ekki minnst einu orði á áðurnefndan úrskurð og fyrirhugaðar yfirlýsingar sínar þegar hún skrifaði undir samning við rektor síðasta þriðjudag um fjárframlög háskólans til Stúdentaráðs. Fjárframlög sem koma úr skrásetningargjaldinu. Forseti Stúdentaráðs minntist raunar ekki á úrskurðinn við Stúdentaráð fyrr en tæpum þremur vikum eftir að hún fékk hann í hendurnar, en það er önnur umræða. Samandregið er það álit mitt, og Vökuliða, að umræðan sem meirihluti Stúdentaráðs og skrifstofa þess hafa farið með, sé mjög villandi. Hún býr til falskar og glæstar vonir hjá stúdentum, lofar þeim endurgreiðslu á skólagjöldum allt til 2014, en byggja á litlu sem engu. Á sandi byggði heimskur maður hús, en á endurgreiðslu alls skrásetningargjaldsins frá og með 2014 byggir veruleikafirrt fólk. 51
52