Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd, Sjá, fóru 2 vinnuferðir á Vestfirði sumarið 2003.
Sú fyrri var 6. - 9. júní og var unnið í 2 hópum. Annar vann í friðlandinu í Vatnsfirði, hélt til í Flókalundi og vann kappsamlega við að stika og laga gönguleiðir út frá hótelinu allt upp í Dyjandisheiði og baðaði sig í heitri náttúrulaug í fjörunni á kvöldin.
Hinn hópurinn hélt til í Breiðuvík og merktu menn og stikuðu margar leiðir á því svæði, skoðuðu Látrabjarg o.fl. Rúmleg 20 sjálfboðaliðar tóku þátt þessa löngu helgi.
Hin vinnuferðin var í Árneshrepp á Ströndum 22. - 24. ágúst 2003. Þar var gönguleiðinn í Þórðarhelli við Litlu-Ávík lagfærð, Naustavíkurskarð milli Trékyllilsvíkur og Naustavíkur merkt og stikað, allt í glaða sólskini. Endað í Krossneslaug seint um kvöldið.