Ellefu sjálfboðaliðar Sjá, undir forystu Eyglóðar Gísladóttur, unnu hörðum höndum að því að bæta gönguleiðina að þessum fagra fossi 6. - 10. júní 1996. Umhverfi fossins var lítið farið að láta á sjá og Ferðamálaráð lét í tíma gera deiliskipulag að framkvæmdum þar. Sjá mörkuðu gönguleið upp með fossinum, stikuðu hana og lögðu göngustíg frá grasflöt að efsta fossinum, allt samkvæmt nýja skipulaginu. Einnig var hreinsað til, tekin gömul girðing o.fl.
Samtökin unnu þarna aftur nokkra daga árið 2000 og er því lýst í annari skýrslu.
Hópnum leið vel í gamla skólahúsinu á Hrafnseyri og farin var skoðunarferð m.a. í Selárdal.