Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd
gerðu göngustíg meðfram fossinum með 300 trétröppum. Unnið var eina helgi sex sumur í röð, alls 200 dagsverk.
Árið 1990 voru komnar áberandi ljótar moldarslóðir upp brekkuna við Skógafoss og þörf á úrbótum, enda lítið verið gert framað því. Í samráði við Náttúruverndarráð og Austur-Eyjafjallahrepp var ráðist í að breyta einni af slóðunum í góða gönguleið, bera möl í hana (í handbörum, of bratt fyrir hjólbörur) og smíða á staðnum 300 tréþrep. Svo voru hinar slóðirnar græddar upp.
Verkið tók 6 ár, unnin ein löng helgi hvert ár, 10-15 manns í senn.
Örn Þorvaldsson var verkstjóri öll árin.
Stígur þessi breytti miklu og dugði vel í nokkur ár en var lítið viðhaldið og gekk því úr sér. Í stað þess að viðhalda stígnum var hann lagður af og settur ryðgaður járnstigi í staðinn.